UM: KJALLARAR
Þessir kjallarar birtust í DV á tímabilinu
09/09/2005 - 01/04/2006
Um: Megrun
Megrun hefur verið snar þáttur í lífi
mínu. Ég hef verið mismikið að spá í
þessu í gegnum tíðina, en er búinn að
prófa ýmsar gagnslausar leiðir. Ég var búinn
að vera í átaki og var nálægt kjörþyngd
þegar ég náði mér loksins í konu.
Þá fannst mér ekki taka því lengur að
halda í við mig enda er ég náttúrlega átfíkill
þegar allt kemur til alls.
Það er lítið gaman að kaupa föt þegar
maður er keppur. Maður kemst ekki í neitt! Í fyrra
fór ég í Hagkaup til að kaupa buxur. Ég
passaði ekki í neitt enda hafði ég aldrei verið
þyngri. Sama sagan í Dressman, sem þó hafði
oft verið þrautarlendingin. Með kalið hjarta fór
í fyrsta skipti í sérstaka fitubollubúð,
sem kölluð er "High and Mighty" af fyrirhyggju fyrir þeim
afbrigðilegu. Og afbrigðilegur fannst mér ég sannarlega
vera þarna inni. Eins og eitthvað frík að troða
mér í sérhönnuð föt fyrir frík.
En í búðinni sá ég ljósið. Að
ekki væri hægt að láta þessa misþyrmingu
á líkamanum viðgangast lengur. Nýtt líf
nr. 119 var við það að hefjast.
Lausnin er auðvitað hlægilega einföld. Éta
minna og hollar, hreyfa sig meira. Því minna sem þú
étur og því meira sem þú hreyfir þig
því fljótar gengur þetta. Viljastyrkur og sjálfsagi
er málið, ekki duft og töflur.
Rúmu ári síðar poka High and Mighty fötin.
Ég fæ á mig föt í tískubúðum
þar sem unglingar versla og varð að kaupa mér nýtt
belti því því nýja gatið sem ég
gerði á gamla beltið með síl var ekki alveg að
gera sig.
Séu hlunkar enn tvístígandi eftir þennan
lestur langar mig að í vitna í göngugarp sem fór
á Suðurpólinn og var spurður að því
hvernig hann fór að. "Ég tók bara eitt skref,"
sagði garpurinn, "og svo annað og annað og annað..."
Um: Banana
Einu sinni spilaði Unun í Eistlandi og Lettlandi. Það
var upplifun að koma þarna á þessum tíma.
Þetta var 1999 og vofa kommúnismans sveif enn yfir vötnum.
Það er ekki langt á milli landanna, svona eins og til
Selfoss frá landamærunum til Rigu, fannst mér. Lettlenska
bandið Sirke var með okkur og mér fannst furðulegt að
þau þyrftu að tala við krakka í Eistlandi á
ensku. Eitt giggið var í gamalli kommúnistaverksmiðju
í bænum Parnu í Eistlandi. Við spiluðum í
gegnum tékkneska magnara sem heita Tesla og bandið hljómaði
eins og traktor. Við drukkum mikið af eistneska bjórnum
Rock, sem var eitt það fyrsta sem byrjað var að framleiða
eftir að kommadraslið datt upp fyrir.
Eistneska hljómsveitin Blind spilaði líka. Þetta
var stórband heima fyrir enda varð allt vitlaust þegar
strákarnir spiluðu. Baksviðs talaði ég við
söngvarann og hann mundi tímana tvenna. Hann sagði mér
frá því hvað allt var leiðinlegt og þrúgandi
þegar Eistland var hluti af Sovétríkjunum. Honum var
einhverra hluta vegna tíðrætt um banana. Það
voru nefnilega ekki til neinir bananar í kommalandi, en hann hafði
samt séð þá í bók eða bíó.
Í mörg ár lét hann sig dreyma um að smakka
banana. "Þegar ég gat loksins keypt banana út í
búð vissi ég að við værum orðin frjáls,"
játaði hann fyrir mér af einlægni.
Ég man ekki eftir bananalausu Íslandi. Hér leggur
fólk banana á tröppur alþingis eins og ekkert
sé sjálfssagðara. Ég hef getað étið
banana frá fæðingu, en foreldrar mínir voru ekki
svo heppnir enda lifðu þeir í heimi þar sem fólk
fékk bara epli á jólunum en aldrei banana. Ég
man þegar kívíið kom fyrst. Mér þótti
það útúrfríkað. Nú er svo mikið
úrval af framandi ávöxtum að ég hef ekki
undan að smakka þá. Af ávöxtunum skuluð
þér þekkja frelsið og góðærið!
Um: Haust og hús
Ég er gapandi yfir því hversu snemma haustar í
ár. Esjan orðin hvít og varla leggjandi á hana
lengur nema með broddum. Ég stóð í þeirri
trú að vegna gróðurhúsaáhrifa gæti
maður haft það náðugt í allan vetur og
þyrfti jafnvel ekki að setja nagla undir skrjóðinn.
Þetta er svindl!
Engu að síður tek ég haustinu fagnandi, enda
uppáhaldárstíðin mín. Það er
notalegt að kúldrast í myrkrinu og reyna að klæða
af sér kuldann. Svo er ólíkt meira í boði
af andlegu snakki en um grillpenslað sumarið. Algjör heví
metal Kvikmyndahátíð er t.d. að skella á,
full af girnilegu stöffi að mér sýnist, og Kvikmyndasafnið
er byrjað að sýna gamla snilld í Bæjarbíói
í Hafnarfirði.
Að fara á sýningu í Bæjarbíói
er eins og stíga í tímavél og upplifa bíósýningu
frá sirka 1975. Ekkert Dolby eða THX-rugl, engin helvítis
hallandi sæti, heldur óþægilegir bekkir, flöktandi
mynd á tjaldi og hljóð sem maður þarf að
hafa sig allan við að greina. Svo er boðið upp á
allskonar snilld úr kvikmyndasögunni og vitleysingar eins og
Rob Schneider eru hvergi nærri. Þegar allt kemur til alls vil
ég frekar ég horfa á snilld á óþægilegum
bekk en rusl í dúnamjúkum rassnuddandi lúxusstól.
Þ.e. innihaldið skiptir öllu máli, umgjörðin
litlu – það getur m.a.s. verið betri að umgjörðin
sé þannig að maður fái flassbakk og upplifi
menningarlega fortíð sína.
Nýja tónlistarhúsið á Hafnarbakkanum
lítur á myndum út eins og eitthvað úr vísindaskáldsögu.
Svona líka ægilega flott og rándýrt, allt fljótandi
í gleri og glitrandi málmum enda sýruhausinn Ólafur
Elíasson með puttana í þessu. Ótrúleg
framsýni og drifkraftur! æpa menn nú hver upp í
annan og sjá fyrir sér framtíð þar sem allir
eru hættir að vera týpískir íslenskir plebbar.
Í framtíðinni munum við öll passa inn í
höllina, voða fín í kjólfötum, kannski
akkúrat þá að láta Pólverja byggja
fyrir okkur óðal í Vatnsmýrinni. Ég er
viss um að árið 2009 verður Húsdýragarðurinn
alltaf galtómur því allir verða í nýju
höllinni að mæna á Atla Heimi og Sigrúnu Eðvalds.
Þau verða auðvitað að grilla pylsur ofan í
liðið og í bakgrunni sargar Sinfó Yesterday.
Um: Gat
Aumingja við. Á okkur er gat sem við rembumst við
að fylla með misjöfnum meðölum. Gatið á
sumum er stærra en á öðrum því óblíðar
móttökur á uppeldisferlinu hafa teygt á því.
Það sem gerir gatið á okkur er vitið, sú
vissa að einu sinni vorum við ekki til og að einhvern tímann
– gífurlega bráðlega jarðfræðilega séð
– verðum við ekki til upp á nýtt. Vitneskjan um yfirvofandi
dauða og efinn samfara þeirri nöpru staðreynd er gatið
sem við lifum til að fylla.
Flestir fylla í gatið með trúnni á að
við séum ekki bara einhver undarleg tilviljun heldur púsl
í risapúsli "æðri máttarvalda". Að við
séum börn "Hans" og að þegar pumpan hættir
að dæla taki við undursamlegt ævintýr á
öðrum stað, jafnvel annarri "vídd". Þótt
ekkert styðji þessar kenningar nema margendurskrifaðar bækur
aftan úr grárri forneskju er ekkert útlit fyrir að
fólk hætti að fylla gatið með þessari aðferð.
"Synd eða sjúkdómur?", spurði SÁÁ
á fundi á dögunum og ég svara: Hvorugt. Bara
vinsæl leið til að fylla gatið. Komast maður í
annað ástand með hjálp efna gleymir maður gatinu
um stund. Það verður að segjast alveg eins og er að
ekki fylgir því mikil mannleg reisn að vera dópisti
eða fyllibytta. Þessir sem rændu apótekið um
daginn og voru svo gómaðir jafnharðan fyrir utan fá
örugglega aldrei reista styttu af sér. Þeir sem drepast
inn á klósetti enda varla á frímerki – ja,
kannski ef þeir hafa vit á því að skrifa
ljóð. Nýjasta nýtt í þessum bransa
er hestadeyfingarlyfið ketamín sem fólk er víst
umvörpum á um allan bæ. Ísland verður aldrei
fíkniefnalaust, því miður. Gatið er bara of
stórt.
Varanleg lausn er jafn einföld og hún er hræðileg:
Að við förum öll sem eitt og látum gera skurðaðgerð
á heilablaðinu.
Um: Hnakkann á Paul McCartney
Þarna stendur hann, örvhentur með Hofner-bassann. Er
þetta sama eintakið og hann keypti í Hamborg 1962?, hugsa
ég. Ég hef ekki augun af hnakkanum á Paul McCartney
sem er í svona 30m fjarlægð frá mér. Hárið
tjásulegt og svart. Illar tungur sögðu að Heather væri
byrjuð að nudda háralit í hausinn á karlinum
en Paul brást ókvæða við og játaði
að hafa verið byrjaður að lita sig löngu áður
en hann kynntist konunni með staurfótinn. Nú er hnakkinn
á Paul byrjaður að fíla sig í botn í
fyrsta laginu, Magical Mystery Tour, og fyrir innan – þetta er ótrúlegt!
– er heilinn sem hefur samið alla þessa undursamlegu tónlist.
Heilinn á Paul er þetta 1.3 - 1.4 kg eins og gengur og gerist,
en vitneskjan um að það er akkúrat þessi gráa
klessa, akkúrat þetta rúmlega kílóa mauk
af kjöti, blóði og tægjum sem er uppspretta allra
þessara laga, er nóg til að ég fæ uppljómun
um dýrðleika lífsins og kökk í hálsinn
í fyrsta skipti í kvöld.
Þetta er fjórða og síðasta kvöldið
hans í Madison Square garðinum á Manhattan. Varla þarf
hann á peningunum að halda svo ég álykta að
hann hafi bara svona gaman að þessu. Og það sést.
Sviðið er umkringt áhorfendum á þrjá
vegu og Paul gengur um sviðið og veifar til áhorfenda eftir
nánast hvert einasta lag. Ég stend margoft upp og veifa til
baka og æpi eitthvað eins og fermingastelpa í losti. Bandið
er búið að vera með honum lengi og er drulluþétt.
Lögin eru frá öllum ferlinum, eldgamalt stöff samið
löngu áður en Bítlarnir slógu í gegn
til laga af hinni ágætu nýju sólóplötu.
Þar sem Bítlarnir voru fyrsta bandið sem ég féll
fyrir og þess vegna besta band í heimi í mínum
huga bera tilfinningar blandaðar æskuminningum mig ofurliði
á köflum. Kökkurinn fer aldrei langt og ég missi
mig og grenja yfir Good Bye Sunshine – af öllum lögum.
Paul var alltaf næs náunginn í Bítlunum
og er það ennþá, svona eins og stóri góði
bróðir þinn. Hann talar mikið við mig og hina
17.999 áhorfendurna og djókar með það þegar
hann datt í gatið í sviðinu í Róm.
Ég forða mér á klósettið þegar
hann spilar mest leikna lag allra tíma, Yesterday, en að öðru
leiti er þetta gigg ógleymanlegt í gegn. Okkar hlið
var sú seinasta sem Paul veifaði þegar hann gekk af sviðinu
eftir tvö uppklöpp. Paul og rúmlega kílóa
heilinn hans sem breytti mér og ef ekki bara öllum heiminum
líka var búinn að vinna í kvöld.
Um: Skrítnasta mann í heimi
Vinur minn Kiddi er skrítnasti maður sem ég þekki
og líklega skrítnasti maður í heimi. Það
er margt skrítið við hann en það sem er skrítnast
er að hann gengur gegn því sem drífur samfélög
Vesturlanda áfram: Það að hagnast og njóta
góðs af hagnaði sínum. Hjá Kidda snýr
þetta allt á haus: Hann þrælar myrkranna á
milli til þess að gefa fátæklingum alla peningana
sína.
Kiddi fór til New York 1986 með smáaura í
vasanum. Hann er búinn að vera þar síðan. Margt
hefur drifið á daga hans og um það má lesa
í bók Stefáns Jón Hafsteins, New York New York,
sem kom út 1993. Fátt hefur breyst í lífi Kidda
síðan þá. Hann er vaknaður klukkan 4 og þrælar
á tveimur stöðum til kvöldmats. Hann er kolólöglegur
í landinu en ekkert er gert í því enda ekkert
leyndarmál að ólöglegir innflytjendur halda mörgum
atvinnugreinum uppi í Bandaríkjunum. Atvinnurekendur Kidda
taka af laununum hans fyrir húsaleigu en afgangnum eyðir hann
í fólk götunnar, nema sirka 5$ á dag sem hann
kaupir helstu nauðþurftir fyrir.
Ég hef komið til New York nokkrum sinnum og flækst
með honum um borgina. Hann þekkir hvern krók og kima og
flesta sem verða á vegi hans; dyraverði, bílstjóra
og ruslakarla, og sérstaklega þá lægst settu,
skítuga fólkið með draslið sitt í vögnunum,
dópistana og betlarana. Þeir sem biðja um aur fá
hann og auðvitað eru margir komnir á bragðið. Fólk
situr fyrir honum og þetta er nánast orðið eins og
eitt risastórt einelti þyggjenda.
Auðvitað er drullupirrandi að sjá hvernig Kiddi
lifir lífi sínu – mann langar til að hrista hann og segja
honum að hætta þessari helvítis vitleysu – en hvað
getur maður gert? Okkur er frjálst að gera það
sem við viljum þótt engir velji leið Kidda. Ég
veit ekki hvaða stórundarlega kennd þetta er eiginlega
sem drífur hann áfram, hallast helst að því
að þetta sé ofvaxinn Jesúkomplex. Það
er víst betra að gefa en þyggja og Kiddi hefur það
að leiðarljósi á tryllingslegan hátt. Eins
gott að eftirlíf samkvæmt kenningum Biblíunnar
sé staðreynd því í þannig himnaríki
verður Kiddi í góðum málum. Við hin förum
á yfirdrættinum okkar beinustu leið til helvítis.
Um: Uppvask
"Þú hefur bara verið einhvers staðar úti
að leika sér," svarar mamma þegar ég spyr hana
hvar ég var á Kvennafrídaginn 1975. Sjálf fór
hún og Stella í næstu íbúð á
fundinn og voru svo "allan daginn að flakka," eins og fólk úr
úthverfunum gerir iðulega þegar það kemur í
miðbæinn.
"En komstu ekki heim foxill og neyddir pabba til að vaska upp?",
langaði mig að vita.
"Nei, það var alltaf ákveðin verkaskipting á
okkar heimili," segir mamma, sem var heimavinnandi húsmóðir
af gamla skólanum, og bætir við: "Ég get ekki séð
betur en ástandið sé ljómandi gott í jafnréttismálum
í dag. Það eru margar kellingar í góðum
stöðum í þjóðfélaginu, en það
verður auðvitað að jafna launamuninn."
Verkaskipting kynjanna þegar kemur að heimilisstörfunum
er athyglisvert mál sem ber að hafa í huga á þessum
degi. Þegar mamman vann heima vaskaði hún upp og engar
refjar. Ef guð er rauðsokka sendir hún mig til helvítis
því svo örsjaldan hjálpaði ég til við
uppvaskið í æsku. Konan mín hafði orð á
þessu þegar hún borðaði í fyrsta skipti
heima hjá foreldrum mínum á aðfangadag. Þarna
flatmöguðum við pabbi og bróðir minn í stofunni
eftir jólasteikina, en mamma og systir mín vöskuðu
upp. Ég viðurkenni líka alveg að fátt finnst
mér leiðinlegra en uppvask. Nema kannski að þurrka
af og þrífa klósett. Í stuttu máli sagt
drepleiðast mér eldhúsverkin.
"Halldór Laxness vaskaði aldrei upp!," sagði ég
við konuna mína þegar við vorum að rífast
um það einu sinni sem oftar hvort okkar ætti að vaska
upp.
"Þú mátt sleppa við að vaska upp ef að
þú færð Nóbelinn," svaraði konan.
Ég settu stefnuna á Nóbelinn um stund en fór
síðan einfaldari leiðina og keypti uppþvottavél.
Hvílíkt lúxuslíf! Ég mæli eindregið
með þessu á hvert heimili.
Þess má geta að það var yfirstéttarkona
í Illinois sem fann upp fyrstu uppþvottavélina. Hún
hét Josephine Cochrane og sló í gegn með vélinni
á Heimsýningunni 1893. Það var þó
ekki af umhyggju fyrir húsmæðrum sem hún fann vélina
upp heldur af því að hún var svo þreytt á
að þjónarnir hennar voru alltaf að brjóta diska
úr fína stellinu hennar.
Um: Milljarðamæringa
Karlar með svokölluð ofurlaun koma stundum upp í
"umræðunni" enda nýlegt fyrirbæri hérlendis.
Svona vellaunuð ofurmenni hafa ekki verið meðal vor fyrr því
gömlu millarnir voru mun verr launaðir en þessir – eiginlega
eins og harmóníkur við hliðina á þessum
pípuorgelum. Ég man vel eftir því þegar
Ólafur Jóhann komst fyrst í fréttirnar fyrir
að vera í vinnu hjá Sony og fá fjórar millur
á mánuði. Ólafur varð þar með fyrsta
ofurlaunaða ofurmennið og fólki þótti þetta
stórkostlega merkilegt. Fjórar millur þótti
himinhá laun og þjóðin nötraði af samblandi
af aðdáun og öfundsýki. Skömmu síðar
var Ólafur að árita bók í Kringlunni og
biðröðin hjá honum var svakaleg. Annað eins hafði
ekki sést enda hálfgerður hálfguð hér
á ferðinni. Hálfguð sem hafði tekið sér
pásu frá því að græða milljónir
til að skrifa bók fyrir almúgann.
Ólafur er alveg hættur að heilla með laununum
sínum og nú eru það gaurar eins og KB-strákarnir,
Jón Ásgeir, Actavis-náunginn og Björgólfur
yngri sem eiga sviðið. Því ver og miður hefur
enginn þeirra skrifað bók. Það má bóka
að biðröð til þeirra í Kringlunni yrði
síst minni en hjá Ólafi.
Ég nenni ekki að væla um þá svakalegu
misskiptingu og siðleysu sem ofurlaun þessara gaura eru, t.d.
við hliðina á leikskólakennaralaunum. Slíkt
er náttúrlega bara öfundssýki og kommaþvaður.
Skítt með það þótt Kínverji á
Kárahnjúkum þurfi að vinna samfleytt í 150
ár til að ná þeim 400 milljónum inn sem
Sigurður í KB tók inn á dögunum fyrir...
Ja, fyrir hvað eiginlega?
Skítt með það allt saman. Það sem ég
vil kvarta yfir er hversu ósvalir þessir náungar eru.
Afhverju eru þeir ekki spreðandi þessum peningum sínum
hægri vinstri í glannalega vitleysu. Allskonar vitleysu sem
við hin gætum hlýjað okkur við að fylgjast
með. Litla stúlkan hafði eldspýtur en við gætum
haft Hér og nú með stanslausar fréttir af uppátækjum
flippuðu millana.
Ókei, Björgólfur sýndi viðleitni þegar
hann fékk sér einkaþotu og Jón Ásgeir
fær prik fyrir lubbann og meint snekkjusukk. Hinir virðast bara
vera ægilega venjulegir náungar sem fara í Ikea með
konunum sínum um helgar. Væri nú ekki skemmtilegra
ef Sigurður í KB klæddist eingöngu loðfeldum,
léti keyra sig niður Laugarveginn um helgar á Rolls Royce
úr gulli með nokkrar dömur frá Geira í Maxíms
upp á arminn? Væri nú ekki skemmtilegra ef Aktavis-náunginn
hefði átt í ástarsambandi við Söndru
Bullock og Heidi Klum og væri um þessar mundir að deita
Nicole Kidman á milli þess sem hann smíðaði
tímavél? Koma svo strákar – það er ekki
nóg að hirða alla peningana, þið verðið
að skemmta okkur líka!
Um: Tilboð
Trúarbrögð heimsins gera það svona gott af
því þau hafa lausn á þeim vanda sem blasir
við hverjum manni: Dauðanum. Það er náttúrlega
helvíti hart að sitja uppi með það að maður
drepist bara og þá sé allt búið og ekkert
taki við nema hæg rotnun í sambýli við maðka.
Mun betra er að gangast inn á tilboð trúarbragðanna
um óljóst eftirlíf. Ef maður hefur verið þokkalega
góður og duglegur í trúnni á maður
ágætis tíma framundan í himnaríki, næstu
vídd, næsta lífi. Ekki er gott að vera illmenni
því þá fer maður til helvítis eða
endurfæðist sem flatlús. Þetta fyrirkomulag – eða
trúin á það – kýs fólk sér
í stórum stíl ef það er yfirhöfuð
nokkuð að spá í þessu.
Nú eru bankarnir komnir í harða samkeppni við
trúarbrögðin. Tilboð bankanna er reyndar aðeins
raunhæfara en trúarbragðanna því ef maður
lifir fram á eftirlaunaaldurinn á maður víst að
uppskera fúlgur sem síðan er hægt að spreða
í að gera líf sitt að einhvers konar himnaríki
á jörð. Ef það er þá himnaríki
að hanga aðgerðarlaus á stuttbuxum í leiguíbúð
á Costa del Crap.
Bankarnir eru hreinlega óðir í mann og hamast á
manni með nýrri og nýrri auglýsingaherferð.
Sú nýjasta er um "mótframlag" (atvinnurekandinn er
víst bundinn með lögum til að borga í sjóðinn
á móti okkur). "Plís, láttu okkur fá
hluta af laununum þínum," væla bankarnir stanslaust
í manni, "og þegar þú ert búinn að
gera það allt þitt líf færðu hauga af
seðlum." Bankarnir slá upp svaka fínum upphæðum,
13 milljónum, jafnvel 15, ef maður lætur þá
hafa svo og svo mikið í hverjum mánuði. Þó
þetta virki sem þokkalegar upphæðir í dag
verður þetta þó smáræði þegar
að útborgun kemur, þökk sé verðbólgunni.
Afborgunin af húsnæðisláninu verður til dæmis
komin upp í 500 þúsund kall á mánuði
þegar fúlgan á að greiðast út.
Það er því einhvern veginn þannig að
þetta lyktar allt af því að einhver sé að
taka einhvern í staðinn þar sem sólin ekki skín.
Sérstaklega þegar mitt í herferðinni birtast afkomutölur
bankanna og upplýsingar um laun "æðstu" stjórnanda.
Hvað þurfa bankarnir annars að græða mikið
til að við fáum lækkun á þjónustugjöldum
og vöxtum? Ég segi því enn og aftur: Þið
fáið ekki krónu frá mér í viðbótarlífeyrissjóð,
bankabullurnar ykkar!
Um: Val
Miðað við framboðið virðast fasteignaauglýsingar
njóta mikilla vinsælda um þessar mundir. Mér
finnst líka ágætt að grípa fasteignakálf
með þegar ég fer á klósettið og renna
yfir valmöguleikana. Maður staðsetur sig í huganum
í húsunum sem eru í boði og spyr sig: Hvernig
yrði líf mitt ef ég byggi í þessu húsi
eða þessari blokk? Betra? Verra? Helst eru það hræódýr
hús á landsbyggðinni sem gaman er að skoða og
maður spyr sig: Yrði líf mitt enn hlaðnara tilgangi
og lífsfyllingu ef ég keypti 192 fm einbýlishús
á Raufarhöfn á 3.4 milljónir og flytti þangað
til þess að hugsa og hlusta á Rás 1? Ég
fengi náttúrlega konuna aldrei með mér svo þetta
er galið og ég hvort sem er löngu búinn að sturta
niður.
En svona er þetta. Maður andar, frumurnar fjölga sér,
hjartað pumpar og maður stendur endalaust frammi fyrir valmöguleikum.
Einu sinni hafði fólk ekki úr miklu að velja – þú
gerðir bara það sem pabbi þinn gerði og ekkert
kjaftæði – en nú þarf maður að velja á
hverjum degi, og ekki bara út í búð eða fyrir
framan sjónvarpið, heldur í öllu sem maður gerir.
Ungt fólk er sérstaklega á nálum, enda allt
lífið framundan og flestir búnir að sjá það
margar fléttumyndir með óreiðukenninguna í
bakgrunni að fólk veit að það verður að
velja vel. Velja rétt. Velja sér líf. Takmarkið
"hamingja" er gulrótin sem hangir fyrir framan okkur öll. Þessi
tilfinning sem fyllir hausinn af gleði. Endanlegt takmark, lærir
maður svo síðar á "lífsleiðinni", er að
standa uppi umvafinn afkomendum á níræðisaldri,
sáttur og saddur lífdaga – ekki ósvipað og Nicholas
Cage í endanum á Raising Arizona.
Og þá er það svarið við stóru
spurningunni. Svarið við "Hver er tilgangur lífsins?" er
í raun svo einfalt að það er hlægilegt að
fólk þurfi endalaust að vera að tuða um ýmis
afbrigði svarsins. Það er búið að flækja
svarið álíka mikið og svarið við því
hvernig eigi að grennast. Maður grennist með því
að éta minna og hreyfa sig meira. Einfalt og augljóst.
Tilgangur lífsins er að fjölga sér og breyta rétt.
Einfalt og augljóst. En náttúrlega jafn mikið
mál að framkvæma það eins og að grenna sig.
Þá er bara að taka einn dag í einu eins og alkarnir.
Og vissulega erum við öll bullandi alkar og meðvirk með
lífinu þar að auki.
Um: 25 pirr á leiðinni út í búð
Það er slydda (1) og fljúgandi hált (2). Ég
breytist í gamla konu í hálku. Ég mjaka mér
að bílnum og reyni að fljúga ekki á hausinn
(3). Ég er með leifar af poppkorni undir tungunni (4) og reyni
að ná því í burtu. Ég er líka
með ofþornaða putta (5). Þeir líta út
eins og bleikar sveskjur. Ég er á leiðinni út
í búð að kaupa mér hádegissnarl. Ég
bakka úr stæðinu og lendi strax á eftir karli með
hatt sem keyrir lötur hægt (6). Ég hangi í rassgatinu
á honum þar til hann snöggbeygir, án þess
náttúrlega að gefa stefnuljós (7). Ég æpi
og góla undir stýri og blóta karlhelvítinu
í sand og ösku. Þetta er eina útrás nútímamannsins
sem eru kominn svo langt frá helliseldinum að stundum pissar
hann sitjandi. Ég kveiki á útvarpinu. Lendi óvart
á útvarpshálfvita sem þusar í uppgerðarstuði
(8). Skipti um stöð, lendi á útvarpsspjalli um nánustu
framtíð. Útlitið er kolsvart, segir mér alvarleg
rödd. Ef allir myndu lifa sama lífi og við Vesturlandabúar
þyrftu þrjár jarðir til afla nægra lífsgæða.
Er að koma heimsendir?, hugsa ég en snögghemla því
unglingsbjáni (9) kemur æðandi úr hliðargötu.
Hann snögghemlar líka og í eitt augnablik horfumst við
í augu. Það lekur af honum heimskan enda alinn upp á
heilaskemmandi sjónvarpsefni (10) og mannskemmandi tölvuleikjum
(11). Líklega fannst honum æðislega fyndið þegar
dapurlegu krakkafíflin réðust á Tryggva Hring
(12). Nú eru komnar fréttir. Glaðleg rödd segir
mér að það verða "flöt jól" því
allir ætli að fá sér flatskjái. Heilalausir
hópsálir, þusa ég við sjálfan mig.
Þá er nú skynsamlegra að fá sér tvöfaldan
ísskáp með klakavél.
Ég legg og geng fram hjá risajeppa (13). Allt í
einu sprettur upp hundkvikindi (14) og geltir að mér (15). Ég
hraða mér í burtu og hundhelvítið gjammar
út í það óendanlega. Í búðinni
skellist sjálfvirka hurðin á andlitið á mér
(16). Ég geng fram hjá bókaborðinu og örvæntingafullar
montauglýsingar útgefanda (17) koma upp í hugann.
Það er ein kassastelpa á vakt og röðin löng
(18). Loksins er bara einn fyrir framan mig; ellilífeyrisþegi
sem vill borga með klinki sem er dregið hægt upp úr
buddu (19). Þar sem ég tvístíg þarna opnar
auðvitað annar kassi og allt liðið fyrir aftan mig treðst
á hann (20). Hversu marga poka? (21), spyr loks undirlaunaða
kassavélmennið. Í bílnum fatta ég að
rækjusamlokan er útrunnin (22) og kókómjólkin
volg (23). Ég læt mig hafaða, bít í samlokuna
og innvolsið vellur öfugu megin út á vömbina
á mér (24). Ég reyni að halda aftur að tárunum,
kveiki á útvarpinu og er þá sagt að Kallakaffi
(25) sé með 37.5% áhorf.
Um: Kynjaskipti
Ef karlar færu á túr væri margt öðruvísi.
Til dæmis væri hægt að kaupa túrtappa með
Manchester United lógóinu og sérstök U2 dömubindi,
sem hétu náttúrlega herrabindi. Herrabinda-auglýsingarnar
væru karlmannlegar en ekki væmnar og konulegar eins og núna.
Svipaðir karlar og í Dressman-auglýsingunum væru
sýndir ganga, hoppa og beygja sig og svo kæmi dynjandi þungarokkslag
um leið og umbúðir bindana sæust. "Við eru karlmenn,
við blæðum," væri tilvalin sölulína. Karlmennskan
yrði mæld í blóðmagninu. Karlar sem fylltu
XXL bindi með streyminu úr sér væru taldir miklir
menn en blóðlausir ræflar sem vætluðu í
XS bindi þyrftu að stofna sérstakan eineltis- og umræðuhóp.
Ef karlar færu á túr væri stanslaus umræða
um það. Kannski eins gott að karlar fara ekki á túr.
Ef karlar gætu orðið óléttir væri
margt öðruvísi. Konur væru stikkfríar og yrðu
nú allt í einu til í tuskið með hverjum sem
er, eins og meiri hluti ábyrgðar- og móðurlífslausra
karla dagsins í dag. Karlar héldu að sér höndum,
eða öllu heldur saman á sér lærunum, enda
fylgdi nú möguleikinn á níu mánaða
veseni hverjum drætti. Stórkostleg skemmtun væri að
sjá kasólétta karla vagga um bæinn í
sérstökum óléttujakkafötum.
Um: Innréttingar hamborgarastaða
Það bregst ekki: Allir hamborgarastaðir, ekki bara í
Reykjavík heldur að því virðist allstaðar
í heiminum, líta út eins og útibú frá
bandaríska Árbæjarsafninu. Á meðan hamborgarinn,
frönskurnar og salatið hakkast ofan í maga, getur maður
t.d. virt fyrir sér hafnarboltahanska, umbúðir utan af
flórsykri og leikfangabíla, og allt er þetta antík
frá því sirka 1940 til 1960. Ameríska gullöldin
lifir enn góðu lífi, í smækkaðri mynd,
á hamborgarabúllum Reykjavíkur.
Þetta voru dýrðartímar, eigum við a.m.k.
að ímynda okkur á meðan við tyggjum borgarann.
Konur voru undantekningalítið heima, klæddar í
kjól með svo fullkomin heimilistæki að líf
þeirra var leikur einn. Karlar gengu með hatt, keyrðu um
á svokölluðum drossíum, tveggja tonna krómuðum
bensínhákum með hákarlauggum. Efnahagurinn var
á uppleið, fólk hafði efni á því
að gera líf sitt ljúft á meðan Frank Sinatra
og Doris Day sungu siðsöm dægurlög. Óvinurinn
var skýrt afmarkaður. Vondu kommarnir höfðu það
umfram óvininn í dag að þeir héldu sig heima
hjá sér og hægt var að halda þeim í
skefjum með því að beina stanslaust framúrskarandi
kjarnorkusprengjum í átt til þeirra. Ósmitaðir
fuglar sungu á hverri grein, en svo kom rokkið, þá
skítugu sígröðu hipparnir og þaðan koll
af kolli þangað til draumurinn sökk endanlega í það
ameríska martraðarfen, sem smá saman er að opinberast
heiminum, m.a. með myndum frá hörmungunum í Louisiana.
Ameríski draumurinn kom aldrei hingað, nema til best-tengdu
heildsalana og það er ekki fyrr en núna sem við erum
að upplifa okkar gullöld. Kannski er akkúrat núna
besti hugsanlegi tíminn í lífi Íslendinga,
mesta hagsældin, mesta góðærið, best að
lifa? Eftir fjörutíu ár verður kannski opnaður
KB-borgari. Á veggjum munu hanga flatskjáir, I-poddar, antík
auglýsingar frá bönkum og símafyrirtækjum
og Birgittu Haukdal dúkkan. Á meðan fólk hakkar
í sig borgara ómar klassík Heitra lumma. Gamall maður
með hökukegg og glampa í augum mun stanga úr tönnunum,
horfa á áritaða mynd af Sigur Rós og hugsa: Ó,
hvað varð um þig besti tími lífs míns?
Um: Laugardag í desember
Það var laugardagur. Tvær vikur til jóla og
ekki vinnandi vegur að fara í annað hvort Smáralind
eða Kringluna. Við hefðum öll misst vitið í
mannmergðinni og kraðakinu. Við vorum í bílnum.
Ætluðum að skoða jólalandið í Árbæjarsafni.
Á leiðinni þangað varpaði konan sprengju: Sagði
að það væri ekki hægt að gefa mér
neitt því ég ætti allt og ef mig langaði
í eitthvað eða vantaði þá keypti ég
það strax. Ég varð ógeðslega fúll
eins og karlar verða þegar konur gagnrýnir þá.
En þetta er reyndar alveg rétt hjá henni, ég
á allt sem mig vantar og á erfitt með að nefna eitthvað
sem mig langar í. "Vertu þá bara ekkert að gefa
mér neitt ef þetta er svona erfitt," hreytti ég út
úr mér eins og sá uppstökki karlpungur sem ég
er að reyna að vera ekki.
Við vorum komin að Árbæjarsafni sem gaf tækifæri
til að drepa þetta asnalega rifrildi í fæðingu.
Þar var allt lokað og læst – bara opið á sunnudögum
– og sonurinn sofnaður aftur í. Við brugðum á
það ráð að heimsækja vinafólk okkar
á Álftanesi. Þau höfðu ekki heldur hætt
sér í Smáralind eða Kringluna. Heilinn á
mér var á fullu við að finna eitthvað sem ég
gæti sagt konunni að mig langaði í í jólagjöf.
Svo ég gæti slengt því fram og klárað
dæmið. Ekki diska, ég á alveg nóg af þeim
og þeir hrúgast hvort sem er inn, ekki bækur því
ég kann ágætlega við að nota bókasafnið
– tja, nema Rokland, tengdó ætlar víst að gefa
mér hana. Hmm... þetta var vissulega snúið.
Vinafólk okkar var foxillt yfir því sem einhver
verslunarmaður hafði sagt í fréttunum, að það
væri hreinlega "stöðutákn" að eiga flatskjá.
Þeim fannst þetta komment lýsa tíðarandanum
vel. Flatskjárinn er víst málið í ár
hjá öllu fólkinu sem á allt en verður að
eignast meira því það er hreinlega skilda þess
sem neytenda í kapítalísku þjóðfélagi
að kaupa sér/gefa eitthvað á þessum árstíma.
Og ef einhver er búinn að segja að það sé
"stöðutákn" að eiga flatskjá þá
er stór hluti almennings tilbúinn til að trúa
slíku krappi. Ég gat því kokhraustur bent konunni
á að ég er ekkert einsdæmi. Við lifum í
slíkum vellistingum að allir eiga hreinlega allt og því
er hægt með því að nota fyrsta trikkið í
bókinni "Um hjarðeðli" til að fá alla hjörðina
til að fá sér flatskjái eða fótanuddtæki.
Við verðum svo þakklát ef okkur er bent á eitthvað
nýtt til að eignast.
"Elskan, ég er góðærismettur," sagði ég,
"en þú mátt gefa mér La-z-boy með rassnuddi
til ég geti haft það sem best á meðan ég
glápi á nýja flatskjáinn."
Henni fannst þetta ekkert fyndið.
Um: "Hluti" til að "gera" áður en maður deyr
Lífið er staðreynd. Dauðinn líka. Lífið
eftir dauðann veik von. Ekki hægt að búast við
of miklu þar. Eilíft líf í gufukenndu ástandi
starandi í aðdáun á æðstu máttarvöld
frekar leiðinleg tilhugsun, og mun skárri eru hugmyndir um flakk
á milli vídda eða lífreikistjarna. Endurfæðing
er svo sem ágætis kerfi líka. Líklegast þó
að við séum öll á leiðinni að verða
að gróðurmold, sem er bara fínt – "Af moldu ertu
kominn..." og allt það.
En allavega: Við deyjum. Þetta er svakaleg staðreynd
sem maður hugsar sem betur fer lítið um framan af ævinni.
Hugsunin fer að ágerast með aldrinum. Hin sístarfandi
markaðsöfl eru aðeins byrjuð að spá í
þessu og bækur sem heita t.d. "500 hlutir til að gera áður
en þú deyrð" njóta vinsælda. Þar er
gengið út frá því að lífið
sé einskonar löng verslunarferð í Kringlunni og
manni er bent á "hluti" sem ofsa sniðugt, eða hreinlega
nauðsynlegt upp á sálarheillina, er að "gera" áður
en maður hrekkur upp af. Þarna eru bryddað upp á ýmsum
hugmyndum, t.d. að fara í fallhlífastökk, gróðursetja
tré, synda með höfrungum og hlaupa í maraþoni.
Líklega gengur svo hver og einn með einhvern svona lista
á bakvið eyrað og þarf því varla bækur
til. Ferðalög á framandi staði og það að
verða betri manneskja í faðmi ástríkarar fjölskyldu
verma líklega toppsæti flestra.
Lífið er eins og gátlisti sem maður krossar við
í leið sinni í gróðrarstöð dauðans.
Þessi staðreynd getur valdið ugg og kvíða og sendir
marga í hendur vafasamra trúarbragða eða enn vafasamari
andlegra meistara – allt í því skini að finna "dýpri"
tilgang og meiri hamingju. Það nægir mér þó
alveg – eins og er allaveganna – að vera þakklátur fyrir
það sem ég er og hef, og að reyna að gera það
besta úr því. Svo er gott að minnast þess
reglulega að ég er hluti af þeim minnihlutahópi
sem þarf ekki að hafa áhyggjur af því hvort
hann fái að borða á morgun eða ekki. Svona bækur
meðal hinna snauðu í þriðja heiminum yrðu
mjög stuttar og einhæfar – "1 hlutur til að gera áður
en þú deyrð: reyna að skrimta".
Um: Áramótauppgjörið 2006
Jæja, bara komið nýtt ár. Og ég ætla
ekki að æra óstöðugan með enn einu áramótauppgjörinu
fyrir árið sem var að klárast. Nei, í staðinn
set ég mig í Völvustellingar og spái því
að þetta nýfædda ár, 2006, verði besta
ár í sögu Íslands, hvorki meira né minna.
Góðærið verður náttúrlega gífurlegt
áfram og þennslan og kaupgleðin, en þegar skammt
er liðið á árið, u.þ.b. þegar íbúatalan
slefar yfir 300 þúsund, er eins og landsmenn hugljómist
allir sem einn og hér kemst á ástand sem á
sér ekki hliðstæðu nema í klikkuðustu himnaríkisvonum
þeirra trúuðu. Ísland verður hið eina sanna
draumaríki og næstu áramótauppgjör, um
næstu áramót, verða lýginni líkust.
Þetta er meðal þess sem þar má lesa:
Hressileg launaleiðrétting varð um mitt ár. Þá
urðu landsmenn á einu máli um það að þetta
gengi ekki lengur. Í staðinn fyrir að forkólfar væru
með 50 föld laun þeirra lægst launuðustu snérist
þetta á hvolf og endaði í því að
leikskólakennarar sem sýsla með það sem okkur
er kærast urðu ívið betur borgaðir en tölvuskjásstarandi
millifærslufólkið sem sýslar með andvana fjármagn.
Bankarnir komust líka að því að þeir
væru búnir að græða alveg nóg. Öll
yfirdráttarlán voru því þurrkuð út
um mitt ár og stimpilgjöld og annar bankakostnaður langt
aftur í tímann borguð til baka. Matarverð lækkaði
líka svo mikið á árinu að Heimilishjálpin
og Mæðrastyrktsnefnd voru lögð niður. Á árinu
varð líka að loka meðferðarheimilium SÁÁ
og Kvennaathvarfinu vegna verkefnaskorts. Fólk einfaldlega nennti
ekki lengur þessu rugli. Þá lést enginn í
umferðinni af því fólk tók sig svo rosalega
á.
Engar fréttir heyrðust um að verið væri að
níðast á erlendu verkafólki, enda var ákveðið
að hækka laun þessa hóps um 500% um leið og
ákveðið var að hætta við Kárahnjúkavirkjun
og rífa það sem búið var að reisa. Tónleikarnir
Hætta-hópsins í Höllinni reyndust svona áhrifamiklir.
Kynþáttafordómar lögðust algjörlega
af, sem og hómófóbía, eftir að Kári
Stefánsson einangaði meingenið sem veldur þessum heilasjúkdómum.
Þá var Hvannadalshjúkur mældur aftur með
enn fullkomnari græjum en síðast og reyndist hann nú
vera mun hærri en hæsta fjall Svía, eða 2121 m.y.s.
Um: Ójöfnuð
"Allt það besta í lífinu er ókeypis".
Þetta er fínn frasi til að slá á gremju
almúgans, sem horfir með samblandi af undrun og öfund á
vellauðuga yfirstétt landsins, sem nú er að spretta
upp – tja, það á nú eiginlega að kalla þetta
"langtyfirstétt" frekar. Já, ókei, allt það
besta er frítt, en samt... Hversu ljúft væri það
nú ekki að vera með 6 millur á mánuði,
þó það væri ekki nema í einn mánuð.
Maður gæti þá allavega greitt niður yfirdráttinn.
Ef okkar dvergsamfélag sættir sig við það
að sumir séu með laun og fríðindi sem þorri
landsmanna á ekki möguleika á nema vinna í Víkingalottóinu,
þá er samfélagið um leið að segja: Þetta
fólk er betra en þú og á skilið betra líf.
Þannig hefur samfélaginu hrakað í það
ástand að einn gaur – segjum kannski gaur sem á pabba
sem fékk hluta af auðlyndum þjóðarinnar að
gjöf fyrir nokkrum árum – er að lifa á launum sem
fimmtíu gjaldkerar í banka eru að lifa af, eða áttatíu
leikskólakennarar. Ég hef ekki heyrt neina viðhlítandi
réttlætingu fyrir þessu ástandi. Er þetta
ríka lið áttatíu sinnum duglegra en einn leikskólakennari
– eða hvað er málið? Það hafa alltaf verið
til ríkir og ekki ríkir og jafnvel fátækir í
þessu landi. Fyrir stuttu var samt ekki meiri munur en svo að
talað var um stéttlaust samfélag. Það sjá
allir að það er hlægilegt kjaftæði að
halda því fram í dag.
En jæja. Samfélaginu – fyrir utan nokkra minnuga leigubílstjóra
og bitra vinstrimenn, sem þó þagna um leið og þeir
komast á spena, bara einhvern spena – verður smátt og
smátt komið á þá skoðun að svona
geðveikur ójöfnuður sé bara allt í lagi,
óhjákvæmilegur í þessu "samkeppnisumhverfi".
Svæfandi blístrið um að "þetta sé í
takt við þróun erlendis" mun smá saman lægja
reiðiöldurinar. Og þegar endanleg sátt hefur náðst
um að sumir séu hér valsandi um á 80 sinnum hærri
launum en aðrir, verður næsta skref í átt að
þúsund ára ríki kapítalismans stigið.
Þá mun Kári Stefánsson birtast eins og frelsari
með rándýra aðferð til að lengja líf
þeirra ríkustu – "litningalenging" verður það
kallað og bætir öld við hvern skrokk. Fjandinn hafaði,
það gengur náttúrlega ekki til lengdar að dauðinn
sé þarna alltaf að flækjast fyrir uppgangi og útrás
þeirra moldríku, eins og glottandi verkalýðsforingi
í sinni svörtu hempu, sveiflandi ljánum og eigandi endalaust
lokaorðið. Nei, það segir sig sjálft að stórmenni
með 6 milljónir á mánuði verða að
lifa mun lengur en láglaunapakkið. Hvers vegna í ósköpunum
ekki?
Um: Siðblindu
Ég játa: Ég fer stundum á almenningsklósett
sem eru merkt fötluðum. Þessi klósett eru betur þrifin
en önnur og mun rúmbetri. Ef ég þarf að gera
númer tvö vel ég undantekningarlaust þennan kost.
Ég veit að með þessu athæfi sýni ég
af mér ákveðið siðleysi. Þó ég
passi að ganga mjög vel um er ég samt einskonar glæpamaður.
Ég gái auðvitað alltaf vel í kringum mig áður
en skelli mér inn, gái vel hvort einhver sjái hvað
ég er að gera, hvort einhver fatlaður sé á
leiðinni. Einu sinni var ég næstum kominn inn þegar
maður á hækjum birtist. Ég hrökk í
kút og þóttist vera að skoða handfangið.
Vildi frekar þykjast vera sérstakur áhugamaður
um handföng en ófatlaður maður á fötluðu
klósetti. Bauð svo góðan daginn og hraðaði
mér í burtu.
Ég dreg þó línuna við bílastæði
fatlaðra. Í þau legg ég aldrei þótt
ég hefði svo sem ágætis afsökun fyrir að
leggja í slík stæði. Það er siðblinda
að leggja í stæði fatlaðra og siðblinda er
fötlun – Ergo: Siðblindir eru fatlaðir og mega því
leggja í stæði merkt fötluðum.
Nýlega var ég að koma út úr búð
með troðfulla poka. Bílnum mínum var lagt við
hliðina á stæði fatlaðra. Stæðið
var autt þegar ég fór inn í búðina
og autt þegar ég kom út. Nema hvað, þegar
ég nálgast rennir sér í fatlaða stæðið
þriggja tonna biksvartur pallbíll. Út stekkur aflitað
vöðvabúnt í þröngum bol með handleggina
bera. Það var fjögra stiga frost en búntinu brá
ekki svip. Ljóska með húð eins og pulsa sem hefur
legið of lengi í potti læddist á eftir þeim
léttklædda. Hvorugt var mikið fatlað. Eiginlega bara
algjörlega ófötluð að sjá. Nema smekkleysi
sé fötlun.
Ég hefði getað verið með kjaft. "Drullistu úr
stæðinu!," hefði ég getað öskrað mannalega
og otað pokunum í átt til þeirra. "Hvað ef
fatlaður kemur á meðan þið eruð í búðinni?
Svona, hafiði manndóm til að færa pallbílinn!"
En auðvitað sagði ég ekki múkk enda ljóst
að búntið hefði getað rotað mig með einum
putta. Ég hefði samt náttúrlega verið meiri
maður liggjandi í blóði mínu á götunni
en hugsandi réttlætandi þegar ég keyrði burtu:
"Hvað kemur mér aumingjaskapur annarra við á meðan
ég breyti rétt?"
Um: Hlýðnistilraun Milgrams
Einu sinni sá ég heimildarmynd um hlýðnistilraunir
Stanleys Milgram, sem hann gerði í Yale háskóla
í byrjun 7. áratugarins. Þessi mynd er mér enn
í fersku minni því hún sýnir vel misbrestina
í mannlegu eðli.
Tilraunin fór þannig fram að logið var að
þátttakendum að verið væri að gera tilraun
á því hvort refsing hefur áhrif á námsgetu.
Tilraunadýrið var sagt að það væri "kennari"
og það kynnt fyrir öðru sem var "nemandi", en var í
raun starfsmaður háskólans. Mennirnir fóru inn
í sitthvort herbergið. Hjá "kennaranum" var svaka stjórnborð
með tökkum sem gaf missterkt raflost, frá mildum straumi
upp í banvænan. Honum var sagt að búið væri
að festa rafskaut á "nemandann". Yfir "kennaranum" stóð
valdsmannlegur vísindamaður í hvítum sloppi. Hann
spurði "nemandann" spurninga og "kennarinn" refsaði fyrir vitlaus
svör með því að gefa sífellt sterkari
rafstuð. "Nemandinn" kveinkaði sér ekki undan stuðinu
til að byrja með en svo fór hann að æpa af sársauka.
Það er mjög athyglisvert að við fyrsta öskrið
glottu "kennararnir" undantekningalítið og margir hlógu
taugaveikluðum hlátri. Svona hélt þetta áfram
þar til rafstraumurinn var orðinn lífshættulegur,
öskrin orðin hærri og "nemandinn" farinn að grátbiðja
um grið. Allir "kennararnir" höfðu þá efasemdir
og vildu staldra við, en vísindamaðurinn í sloppnum
hvatti menn áfram með þessum skipunum:
1. Vinsamlega haltu áfram.
2. Tilraunin krefst þess að þú haldir áfram,
vinsamlega haltu áfram.
3. Það er algerlega nauðsynlegt að þú
haldir áfram.
4. Þú átt ekki um neitt annað að velja,
þú verður að halda áfram.
Hin svakalega niðurstaða var sú að u.þ.b. tveir
af hverjum þremur þátttakendum hélt áfram
og hreinlega drap "nemandann" (sem vitanlega var þó aldrei
tengdur við neitt rafmagn heldur lék bara svona vel). Hin sterka
nánd vísindamannsins í sloppnum fékk fólk
til að skella skollaeyrum við rödd samviskunnar og hlýða
í blindni hinum sterka og vitra. Í ljósi niðurstaðna
þessarar tilraunar er auðveldara að skilja fjölsamþykkta
geðveiki úr mannkynssögunni, t.d. hvers vegna Þýska
þjóðin gekk fyrir björg á tímum Nasistanna.
Einhvern tímann verður kannski litið til baka og tilraunin
látin útskýra hvers vegna við samþykktum
geðveika misskiptingu þjóðfélagsins í
blindri hlýðni og trú og svo hina stærri alþjóðlegu
misskiptingu með sínum 30.000 börnum sem deyja úr
hungri á hverjum degi. Þessa mynd ætti a.m.k. að
sýna einu sinni á ári til að minna okkur á
okkur.
Um: Útlönd
Hamingjunni sé lof fyrir útlönd. Ímyndiði
ykkur helvítið ef maður kæmist aldrei af þessu
guðsvolaða skeri. Lukkunni sé lof fyrir Valgerði og
álverin hennar sem gefa okkur góðærið og fylla
alla vasa af gjaldeyri og farseðlum. Þegar maður paufast
í myrkrinu á morgnanna, gegnblautur af slagveðri, eða
frostbitinn og kengboginn af þunglyndu myrkrinu, hversu oft hefur
maður þá ekki fyllt lungun og æpt út í
tómið: HVERN FJANDANN ER MAÐUR EIGINLEGA AÐ GERA HÉRNA!
En þráin eftir útlöndum er ekki bara veðurfræðileg.
Einu sinni fór ég eitthvert í miðju fjölmiðlafárinu
hina mikla. Þá hafði maður varla hugsaði um annað
dögum saman. FM hnakkar voru farnir í mótmælasvelti
og Heimdellingar virtust sem róttækustu ríkiskommar.
Mjög skrítnir tímar. En þeim í miðjum
fór ég og feginleikinn og léttirinn sem helltist yfir
mig þegar ég var laus við þetta kjaftæði
úr hausnum er ólýsanlegur. Maður tékkaði
á erlendum fréttum og það var ekki stafur um fjölmiðlafrumvarpið
og Davíð. Ég gleymdi þessu alveg og fór
að lifa lífinu. Íslenskt þjóðlíf
er svo þrúgandi að það er nauðsynlegt að
hreinsa á sér hausinn annað slagið. Það
er þrúgandi í tíðindaleysi sínu (prófkjör
Framsóknarflokksins, endalaust handboltakjaftæði...) og
þrúgandi í flogakenndri fréttahitasóttinni
sem gýs upp annað slagið (fjölmiðlafrumvarp, Baugsmálið,
Auðunn fréttastjóri, DV-málið...) Þrúgandi
í endalausum fréttum um það hver sé nú
búinn að kaupa hvað og hvað hinn og þessi sé
nú búinn að græða ógeðslega mikið.
Þrúgandi í endalausum fréttum um nauðsynlegar
grunnstéttir þjóðfélagsins sem fá
skít og kanil fyrir sinn snúð. Í ofanálagt
virðist hér svo allt á hendi tveggja "blokka" sem maður
þarf að taka afstöðu til. Maður þarf sífellt
að spyrja sjálfan sig: Hver er búinn að taka mig
minnst í rassgatið? og síðan haga viðskiptum
sínum og innkaupum eftir því. Það sér
hver maður að þetta er frekar glatað. Og þegar
það rennur upp er kominn tími á að láta
sig hverfa.
Það er svo segin saga að útlönd eru ekki
lengi sá sælureitur sem ætla mætti í fyrstu.
Í steikjandi hita fer maður að þrá skítakulda
og í mannmergðinni að mannlausar víðáttur
og auð stræti. Hlutskipti utanveltu ferðamannsins er ekki
eftirsóknarvert til lengdar. Maður er því fullur
tilhlökkunar á leiðinni heim, hamstrar dagblöðin
í flugvélinni og sekkur sér ofan í þrúgandi
– en krúttlegt – tíðindarleysið. Og þegar Reykjarnesið
birtast loksins út um gluggann hugsar maður á útlensku:
Ahhh, here we go again...
Um: OKKUR
Allt snýst um OKKUR. OKKUR sem búum í sátt
og samlyndi á eyjunni góðu. VIÐ erum samhent, innhverf
ofurþjóð og viljum hafaða þannig. Þegar
stórslys henda í útlöndum er þess sérstaklega
getið hvort eitt af OKKUR hafi verið meðal hinna föllnu.
Sem betur fer er það nánast aldrei. Enginn af OKKUR fórst
í Tvíburaturnunum, enginn af OKKUR lenti í flóðunum
eða jarðskjálftunum miklu. Ekki heldur í hryðjuverkunum
í London og Madrid. Hjúkkit, segjum VIÐ þá
og lítum aðeins öðruvísi á atburðina
en ef eitt af OKKUR hefði verið meðal hinna föllnu. Fyrst
eitt af OKKUR er ekki með þá eru hinir hörmulegu
atburðir einhvern veginn ekki alveg eins hræðilegir, enda
sjáum VIÐ hið útlenda fólksger eins og í
móðu. Það er alltaf eitthvað rugl í gangi
í útlöndum og fólk alltaf deyjandi hvort eð
er, hugsum VIÐ. Hva, deyja ekki 30.000 börn úr hungri á
dag? Það eru ekki VIÐ svo það er algjör óþarfi
að spá of mikið í því. Alveg nóg
að fá smá samúðarkast fyrir jólin og
gefa Rauða krossinum þúsund kall.
Ísland er í 180. sæti yfir fjölmennustu ríki
heims. VIÐ erum á milli Bahamas eyja og Belize. Langtum fleiri
búa á stöðum eins og Lúxemborg, Tajikistan,
Comoros og Maldives eyjum. Ha ha, vá hvílíkir lúsera
staðir! Enginn Björk þar eða Unnur Birna. Engir nýríkir
snillingar eins og VIÐ að kaupa upp heilu samfélögin.
Í almennilegum fjölmiðlum er gerður greinarmunur
á OKKUR og öllum hinum. Eðlilega. VIÐ erum VIÐ
– félagar, frændur, kviðmágar – hinir eru eitthvað
annað. Íbúar heimsins eru grár grautur í
móðu utan landssteinanna. Þess vegna er allt í
lagi að birta fréttir sem byrja á "VIÐ vörum
við myndunum sem hér koma á eftir" ef það eru
fréttir um einhverja aðra en OKKUR. Fréttir um OKKUR
hefjast aldrei á að það er varað við myndunum.
Eðlilega. VIÐ viljum ekkert slíkt af tillitssemi við
aðstandendurna, fólk sem er hluti af OKKUR. Almennileg blöð
birta hneykslisfréttir af frægu fólki ef það
er útlenskt. Það fólk er bara hluti af grautnum
og sér hvort sem er aldrei íslenska fjölmiðla. Ekki
má segja hneykslisfréttir af einu af OKKUR. Það
er ljótt.
Mér finnst þetta allt saman krúttlegt. Þetta
er viðhorf sem gefur öryggistilfinningu. VIÐ eigum að
vera ofsalega góð við hvort annað, en ekki bara í
fjölmiðlum heldur allsstaðar. Til dæmis alls ekki að
keyra í burtu ef einhver fær slag á bensínstöð.
VIÐ erum pínulítið land og eigum að klappa sjálfum
okkur endalaust á bakið, halda áfram að vera miklu
stærri en 180. sætið á listanum gefur til kynna.
Hver veit, kannski tekst OKKUR að kaupa upp allan heiminn ef VIÐ
höldum svona áfram. Og þá myndi íslenska
tillitssemin verða við líði um allan heim. Pældu
í því hvers konar útópía þá
yrði til!
Um: Músiktilraunir
Tuttugasta og fjórða sigursveit Músiktilrauna fannst
á föstudagskvöldið. The Foreign Monkeys heitir bandið,
fyrsta sigursveitin frá Vestmannaeyjum. Þetta er skruggufínt
gruggpönk hjá strákunum, þétt gítarhjakk
sem minnir á Nirvana og Botnleðju, en sungið á ensku.
Til hamingju!
Mér finnst Músiktilraunir frábært fyrirbæri
og það er gaman að sjá hversu mikill áhugi
er alltaf fyrir keppninni. Fimmtíu og ein sveit harkaði á
sviði Loftkastalans að þessu sinni og þótt flestir
færu heim án verðlauna er fráleitt allt unnið
fyrir gíg. Eftir Músiktilraunir er fyrsti áfangi ferilsins
kláraður og þótt menn vinni ekki er framtíðin
engu að síður björt. Nærtækasta dæmið
er strákarnir í Sigur Rós sem komu fram sem hljómsveitin
The Bee Spiders fyrir meira en áratugi síðan og ekki
þótti tilefni til að verðlauna þá.
Ég þreytist seint á því að monta
mig af því að hafa komið fram á alfyrsta Músiktilraunakvöldinu,
18. nóvember 1982, með hljómsveitinni Svart hvítur
draumur. Á þessum tíma hafði meistari Jóhann
G Jóhannsson verið í svaka stuði í réttindabaráttu
poppara sem honum fannst mæta afgangi hjá klassísku
páfuglunum í STEF og FÍH. Hann stofnaði félagasamtökin
SATT og hluti af baráttuni voru Músiktilraunir sem SATT hélt
í samkrulli við Tónabæ. Jóhann er því
einskonar afi Músiktilrauna. Þetta fyrsta kvöld vorum
við mættir, félagarnir, og gerðum okkar fyrsta gigg.
Það voru bara þrjú önnur bönd. Eitt hét
Vébandið og var skipað félögum okkar frá
Keflavík, merkismönnum eins og Einari Fal ljósmyndara
á Mogganum og Séra Guðmundi Karli, sem nú messar
í Lindasókn en var á þessum tíma nokkuð
brjálaður pönksöngvari. Annað hét Reflex
og þar var fréttamaðurinn Heimur Pétursson í
fararbroddi, svaka töff (hélt hann) með rauð axlarbönd.
Loks var þarna Sokkabandið frá Ísafirði, kvennaband
með Ásthildi Cecil.
Þetta tókst nokkuð vel bara, minnir mig að við
höfum hugsað án þess að það sé
fræðilegum möguleiki að ég muni það.
Hin dapra niðurstaða varð þó sú að
Reflex fékk flest atkvæði úr salnum (það
var engin dómnefnd á þessum tíma), Sokkabandið
lenti í öðru sæti en við aumingjarnir duttum
út eins og Vébandið. Við hugsuðum auðvitað
í biturleika okkar að eina ástæðan fyrir góðum
árangri Sokkabandsins væri sá að þetta voru
kellingar. Og sé litið á árangur kvenna í
Músiktilraunum sést að hann er mjög góður,
svona miðað við það hversu fáar stelpur taka
þátt. Í ár voru t.d. 9 stelpur í keppninni
á móti 205 strákum. Eitt af yfirlýstum markmiðum
keppninnar er að auka þátttöku stúlkna í
rokk/popptónlist, en líklega fær engin jafnréttisáætlun
því breytt að stelpur eru tregar til að taka upp gítarana.
Mín vegna mætti þó hreinlega skylda stelpur til
að stofna hljómsveitir því þá sjaldan
það gerist er útkoman langoftast forvitnileg og góð. |