OKUR! OKUR! OKUR!
Hér eru birt okurdæmi frá lesendum (og líka ábendingar um ekki okur). Komum út úr neytendamyrkrinu!
Láttu vita um okur
Gagnlegar síður: Vaktin (verðsamanburður á tölvuvörum) / Gsmbensín (Hvað kostar dropinn?) 
Athugið: Bréfið þitt gæti líka birst í Fréttablaðinu, nema þú sér sérstaklega á móti þvi. Nöfn sendanda fylgja með nema nafnleysis sé sérstaklega óskað.

(Sett inn 14.07.08):

#972    Mér verð alltaf ósátt þegar ég hitti fyrir okur og langar til að segja 
frá nýjasta (því miður allt of algengu samt) dæminu.
Í dag, sunnudaginn 13. júlí, fór ég í Smáralind. Þar eru útsölur og 
Debenhams fer mikinn í að auglýsa 70% afslátt af ýmsu.
Ég skoðaði margt og meðal annars buxur sem mér fannst að gætu verið 
góðar. Verðmiðinn sýndi 6490 krónur og ég reiknaði í snatri 70% af 
því. "Ekki sem verst" hugsaði ég og ákvað að máta buxurnar. Þá tók ég 
eftir því að undir miðanum var annar miði með lægra verði, 5490 krónum 
og undir honum enn annar með verðinu 4590 krónur!
Mér fannst þetta undarlegt og ákvað að gera tilraun. Fór að kassanum 
eftir að hafa tekið báða hærra merktu miðana af og spurði: "Hvað 
kostar þetta eftir að afslátturinn hefur verið tekinn af?
Daman renndi buxunum gegnum skannann og út kom...6990 kr.!
"ha? sagði ég. "Það stendur 4590 á miðanum, hvernig getur þetta verið?
Stúlkan varð skrítin á svip, vissi greinilega upp á sig og verslunina 
sökina, að verð hefði verið hækkað kerfisbundið um alla búð fyrir 
"útsöluna". Hún sýndi þó það sjálfstæði að endurreikna með því verði 
sem á miðanum stóð en það gerist ekki alltaf.
Ég fór svo og skoðaði víðar og viti menn. Rúmlega helmingur flíkanna 
sem auglýstar voru með þessum mikla "afslætti" voru með nýjan miða sem 
slengt hafði verið yfir þann gamla og lægri.
Mér finnst þetta ósiðlegt og tel að það eigi að gera alvarlegar 
athugasemdir. Neytendur þurfa að vera betur á verði, reyna að muna eða 
skrifa hjá sér verð á vörum til að láta ekki plata sig svona.
Þetta er algengt í Hagkaup líka og ég hef oftar en einu sinni og oftar 
en tvisvar lent í því að rífast við afgreiðslufólk sem segir: Þetta 
hefur bara hækkað...duhh
Ég held ég haldi mig frá þessum verslunum í framtíðinni.
Vigdís Stefánsdóttir
(Nb.  Leiðinlegt á Íslandi að maður þarf alltaf að vera á varðbergi - það er aldrei hægt að ganga að heiðarleika verslanna vísum - maður þarf alltaf að passa upp á að ekki sé verið að svindla á manni, annað hvort með vitlausum verðmerkingum eða svindli á útsölum. Slappt! Skamm!)

#971    Ég keypti í Byko á Akureyri tvær perur saman í pakka Osram 2x15w special SPC.T26/57 CL 15 230V E14/SES (stendur ofan á pakkanum- þetta eru svona ískápsperur. Ég sá að það var hagstæðara að kaupa pakka með tveimur perum en pakka með einni. Pakki með tveimur kostaði rúmar 600 kr. síðan fór ég í Bónus á Akureyri og sá að nákvæmlega eins pakki með x2 perum kostaði kr. 199- þetta er ekki bara okur, þetta er rán- að mínu mati.
Ásta Guðný Kristjánsdóttir 

#970    Ég  hef verslað mikið í Hagkaup í Garðabæ enda bý ég þar rétt hjá. Nú fer að verða breyting á, ekki það að ég sé að flytja heldur ætla ég að reyna að forðast þessa verslun eins og ég mögulega get. Ég hef oft gert athugasemdir hjá þeim á síðast liðnum árum en mjög algengt er að verðmerkingar stemma ekki við kassaverð. Í tvígang kom þetta m.a í ljós á svo kölluðum 99kr dögum þegar ákv. vörutegundir eru á 99kr. „ekki búið að breyta verðinu í kassanum“  er mjög algengt svar hjá þeim. Mér varð því hugsað til allra þeirra er ekki fylgjast með og halda að þeir séu að kaupa vöru á 99kr en greiða kannski fyrir hana allt annað verð. 
Tvö nýleg dæmi: Special K-Kornflex.  Merkt kr 606.- í hillu en kostar á kassa kr 661.-  Trönuberjasafi kostar í hillu kr483.- en við kassa kr 605.-
En það grátlegast í þessum nýlegu dæmum var svarið sem ég fékk, þegar ég gerði athugasemdir og spurði stúlkuna hvort ekki ætti að leiðrétta (ég fékk mismun endurgreiddan):  „við leiðréttum allt seinna en það er svo margt vitlaust í kerfinu þar sem við erum nýbúin að opna þessa verslun“
Ég var sem sagt að versla í nýju versluninni í Garðabæ.
Læt þetta líka fljóta með: Skötuselur kostar kr 2490.- kg  í Hafinu en kr 2980.- kg í Hagkaup í Garðabæ.  Einnig mjög mikill munur á gæðum þjónustu á þessum stöðum, Hafinu í vil.
Vakandi húsmóðir í Garðabæ

#969   Kellogs K er til á rosalegum stæðum í nýju Krónubúðinni í Lindum,
en bara í 500 gramma pökkum sem kosta 429,- krónur. Í Bónus í
Ögurhvarfi fæst 750 gr pakki á 384,- krónur og sama stærð í Nettó á
389,- krónur.  Maður horfir á pakkann í Krónunni og segir við sjálfan
sig að þetta geti ekki verið rétt, en eftir
könnunarleiðangur reynist þetta vera svona. Þetta eru eins og
sjónhverfingar, að hafa bara minni pakkann á boðstólum en bara á
nógu svakalegum stæðum, þá fattar enginn neitt!!
Aðalheiður

#968    Ég fór fyrir nokkru í afar skemmtilega búð á Laugaveginum sem heitir Liggalá. Þetta er flott búð með svona "retro" barnavörum t.d. múmínálfunum, barbapabba og svona. Þetta heillar því  talsvert þó að dýrt sé. Ég ætlaði að kaupa afmælisgjöf sem átti að slá saman í og mátti því kosta um 5000 kr. Ég fann barnamatarsett sem samanstóð af djúpum disk, grunnum disk og stútkönnu, allt með myndum af Línu langsokk. Þetta keypti ég á rétt rúmar 4000 kr. Svo rak ég augun í stól sem mig hafði lengi langað að gefa dóttur minni en þetta er tré barnastóll með múmín fígúru, einnig voru til með Línu langsokk man ég fyrir jólin allavega. Ég keypti stólinn á að mig minnir 8500 kr. og hugsaði með sjálfri mér að ég væri geðveik!
Eitt kvöld dundaði ég mér við að finna upplýsingar um Astrid Lindgren värld sem er skemmtigarður í Svíþjóð og þar inni var vefverslun sem ég kíkti í að gamni mínu. Þar hefði ég getað fengið matarstellið með Línu á um 1400 krónur íslenskar og einnig var þar til stóll eins og ég keypti nema með Línu og hann kostaði rúmar 4000 krónur ísl.
Þvílíkur munur!!! stellið hér á rúmar 4000 en úti á um 1400 og stóllinn hér á um 8500 en úti á rúmlega 4000, hugsanlega nær 5000 ég man það ekki alveg. Svo skulum við átta okkur á því að verðið í skemmtigarðinum telst sennilega hátt þarna úti.
Auður

(Sett inn 13.07.08):

#967    Ég gerði litla verðkönnun á prímusum fyrir fjallgönguna og komst að eftirfarandi:
Jetboil PCS prímus:
Útilíf: 13.995,-
Fjallakofinn: 12.995,-
Cintamani Center Laugavegi: 9.990,-
Að auki gefur Cintamani búðin okkur FÍ félögum 15% afslátt, en Útilíf  aðeins 10%.
Heiðar Þór Rúnarsson
(ATH: Langaði að bæta við athugasemd #967 að ég keypti lítinn ferðaprímus í Byko um helgina á kr. 1990,- Á tilboði, með gasi... Ekki dýrt það.
Þórhallur Árnason)

#966    Fór í Dýraríkið og keypti mjöllorma fyrir frosk sem ég er með í 
fóstri. 650 krónur 50 st. hvað skyldi kílóið vera á? Keypti líka þurrkaðar
pylsur fyrir hundinn minn..5 st á 480 kr vigtaði pylsurnar þegar ég 
kom heim. Náði ekki 100 gr. Svo eru menn að kvarta undan kjúlla- bringum???!!!

#965    Svo bar við að frúin átti stórafmæli um daginn. Hún fékk m.a. afskaplega fallegan gullkross með 14 kt. gullkeðju, sem var keyptur í Rhodium í Kringlunni f. 2 vikum, 28. júní s.l.
Svo óheppiega vildi til að keðjan var ívið löng og í dag, 12. júlí, fórum við síðan að skipta keðjunni. Okkur var vel tekið í Rhodium og þar sem okkur var sagt að næsta stærð af keðju fyrir neðan þá 55 sm löngu sem við vorum að skila, er 50 sm löng. Hún var ekki til í Rhodium, en var víst til í Mebu, sem er í eigu sömu aðila. Við fóum því í Mebu og ætluðum að skipta.
Nú er tími fyrir smá rökfærslu. Við erum að skila 55 sm langri 14 kt. gullkeðju, sem var keypt á 8.900 kr., og erum að fá í staðinn 50 sm langa samskonar 14 kt. gullkeðju. Ætla má að þar sem gullið er dýrt og á að vera megnið af verðinu, að nýja keðjan væri um 10% ódýrari en sú gamla. Ekki rétt. Verslunarstjóri Mebu heimtaði 12.200 kr. fyrir nýju keðjuna, en vildi taka gömlu upp í á 8.900. Þetta var jú „ný sending“ og þetta er verðið sem „er skrifað í bókina“ og er alls ekki hægt að breyta! 
Engu máli skipti að nýja verðið á gömlu 55 sm keðjunni er um 10% hærra en nýja verðið á 50 sm keðjunni, þ.e. 13.400 kr. 
Hvað haldið þið: Ef við hefðum verið nógu vitlaus til að borga þessar 3.300 kr. á milli, til að fá ódýrari hlut í staðinn fyrir dýrari, hvort haldið þið að Meba hefði selt næsta viðskiptavini 55 sm keðjuna sem við skiluðum á 8.900 eða 13.400?
Við gáfumst upp á að láta starfsfólkið þarna skilja sanngirnisrök og eðlilega viðskiptahætti. Okkur þykir samt okur vægt til orða tekið um 50,5% hækkun á 55 sm keðjunni (úr 8.900 í 13.400) á tveimur vikum. Mér þykir 8.900 kr. fyrir 55 sm langa keðju vera OKUR og nýja verðið er a.m.k. gríðarleg ósvífni, og ég er mikið að velta fyrir mér hvort ekki megi kalla þetta athæfi í búðunum þjófnað?
Við kaupum 50 sm gullkeðju annars staðar við tækifæri, en enginn af öllu okkar fólki á eftir að stíga fæti inn í þessar verslanir framar. 
Kosturinn við þessa reynslu er hins vegar sá að eftir þetta er afskaplega auðvelt að vera ánægður með þjónustuna í öllum öðrum búðum í heiminum!
Ívar Pétur Guðnason
P.S. Eiganda verslananna var sendur tölvupóstur og geginn kostur á að koma athugasemdum á framfæri við okkur áður en við sendum þér. Hann svaraði ekki.

#964    Á dögunum fór ég og keypti  ís í Holtsseli í Eyjafjarðarsveit sem þar er framleiddur.
500 ml af ís kostuðu þar 500 krónur. Nokkrum dögum seinna keypti ég samskonar ís í Kjörbúð Friðriks V. á Akureyri á 1200 krónur. Þetta finnst mér umtalsverður munur.
Steinn Kristjánsson, Akureyri

#963    Það er lítil búð í bænum Skógum á suðurlandi. Þar selja þeir ýmsa hluti á margföldu verði! T.d. Hrís-súkkulaðibitar í pakka sem ættu venjulega að kosta c.a. 200 kall í bónus kostar þar 1150kr.!!!!!!!!! ef það er ekki mesta okur sem ég veit um þá veit ég ekki hvað! Búðin selur líka Maryland kex á 300kr, kókómjólk á 150kr, snakk á 400-500kr og svo má lengi telja!
Þarna versla auðvitað bara túristar vegna þess að þetta er túristastaður og þeir vita ekki rétt verð á þessu á íslandi. Ég er ekki sáttur.
Baldur Kolbeinn Halldórsson

#962  Cockteilsósa á öllum svona búllum sem maður fer á kostar 100kr+ sama hvar maður er. Hinsvegar eru ALLIR þessi staðir að kaupa þessar 50ml cockteilsósur af Vogabæ á 20kr stykkið! maður er að borga fimmfalt verð!! OKUR!!!
Nafnlaus

#961    Ég gleymdi að raka mig í nokkra daga og fyrr en varði var komið mikið og sítt skegg, sem hvorki rafmagnsrakvélar né sköfur vinna á, þannig að ég fór að leita að bartaskera. Fyrst fór ég í Hagkaup Njarðvík, þar sem úrvalið var frekar lítið, annarsvegar dýr hleðslubatterísskeri og svo einfaldari Melissa búnaður með útskiptanlegum hausum á kr. 1.999.  Ég ákvað að bíða með innkaupin.
Næsta stop, Max raftæki.  Við fyrstu sýn var um sömu sögu að ræða, ekkert nema 5 til 8 þúsund króna bartaskerar, en neðst í hillu (nánast falið) fann ég fínan Melissa bartaskera fyrir rafmang á 998 kr, og jafnframt sama Melissa búnað og ég sá í Hagkaupum, einnig á 998 kr! 
Melissa multi hár trimmer 
Hagkaup 1.999
Max 998
Þórður Hall

(Sett inn 12.07.08):

#960    Á heimasíðu Icelandair borgar maður 500 króna bókunargjald fyrir að bóka á netinu: "Bókunargjald bætist við alla miða sem eru bókaðir á www.icelandair.is. Engin endurgreiðsla er á bókunargjaldi." [http://www.icelandair.is/heim/kaupa/forsidu-bokunarvel/taxes_included/]  Fyrir hvað er maður að borga þarna? Afnot af internetinu?
Berglind Inga Guðmundsdóttir 

#959    Sú var tíðin að íslendingar stigu aldrei fæti upp í flugvél án þess að vera pöddufullir. Nú er hinsvegar önnur og veraldarvanari kynslóð vaxin úr grasi sem kýs að vera rétt mátuleg á sínum ferðalögum. En hvað um það. Í fríhöfn landnámsmannsins Leifs Eiríksonar er hægt að kaupa kippu af litlum Carlsberg á lítið meira en það sem ein dós kostar í vélum á vegum ferðaskrifstofunnar Iceland Express. Þetta er einmitt sami bjór og seldur er um borð og losnar maður því við kvabb sem kemur gjarnan upp sé hálfslítersdós af framandlegum toga slitin upp af hagsýnum einstaklingi. 
Annað sem ég tók eftir er að í vélunum kostar miniflaska af spírítus 500 kr á meðan að peli af hinu sama kostar 600 kr. Peli er einmitt passlegt magn til að jafnvel hinir sómakærustu farþegar gerist fjölþreifnir við þær háloftafrúr er selja okkur samlokur á kýrverði og forða frá stórslysum með ipod-eftirliti fyrir flugtak og lendingu. 
Glói Gjallandason
(ATH: Mig langar til að gera athugasemd við grein 959 á okursíðunni. Þar er mælst til þess að flugfarþegar kaupi sér áfengi í fríhöfninni í stað þess að versla í flugvélum. 
Af öryggisástæðum er bannað að drekka eigið áfengi um borð í flugvélum. Ein af ástæðunum er að farþegarými flugvélar í farflugshæð er í u.þ.b. 9000 fetum sem er u.þ.b. 3 km. Þar er loftþrýstingurinn minni en á jörðu. Áfengi virkar því næstum tvisvar sinnum sterkar í lofti en láði. Þetta vita fáir og passa sig því ekki á þessu. Áhafnarmeðlimir verða að geta stoppað drykkju farþega ef hún fer úr hóf fram. Það er gert með því að hætta sölu áfengis til viðkomandi farþega. 
Óskar nafnleyndar)

#958    Mig vantaði um daginn minnisbók, einfalda línustrikaða bók sem ég gæti punktað niður eitt og annað sem á vegi mínum er. Vildi hafa hafa hana harðspjalda og netta svo hún kæmist í töskuna mína, ekki skemmdi það fyrir ef hún væri smá sæt. Fór í Mál og Menningu á Laugaveginum og rauk niður í kjallara og greip eina einlita svarta bók. Bókin var með teygju til að halda kápunni og blöðunum saman, engin mynd að framan og blöðin inní línustrikuð stærðin ca A5 (helmingurinn af A4). Frábært hugsaði ég, einfalt og gott… þar til ég kíkti á verðmiðann. Já hvað ætli minnisbók í M&M kosti? Jú 3.995.- Ég snar hætti við, stökk yfir götuna og fór í Tiger fann líka þessa fínu bók, ögn minni, sætari, teyjulausa en jafn góða á 200.-
Hvaða rugl er þetta?
Marín Þórs

#957    Fór í fyrradag í Zöru í Kringlunni til að kaupa boli á dóttur mína. Hafði
nefnilega keypt svo fína boli þar fyrr í vor og ákvað að athuga hvort þeir
væru til á útsölunni. Heppnin var með mér og bolirnir á einni slánni. Það
var búið að klippa þann hluta miðans af þar sem verðið var staðsett.
Spurði ég þá afgreiðslustúlkuna um verðið og sagði hún mér að útsöluverðið
væri 495 krónur. Fannst mér það frekar skrítið þar sem ég hafði keypt
svona boli fyrr í vor á 495 krónur. Varð hún frekar vandræðaleg og sagði
aftur að þetta væri "útsöluverðið". Skoðaði ég einnig stuttbuxur á
"útsölunni" upprunalega verðið var 795 krónur og annar miði með
útsöluverði var 795 krónur. Ef ég væri að vinna þarna og vissi að ég ætti
vísvitandi að svindla á viðskiptavinunum þá myndi ég allavega ekki láta
upprunalega verðið sjást!!
Þrátt fyrir að þetta séu ekki háar upphæðir þá er þarna verið að svindla á
viðskiptavinunum og skil ég ekki af hverju þessar vörur eru bara ekki
settar á útsölu. Allavega þæginlegra fyrir vesalings starfsfólkið sem þarf
að útskýra þetta fyrir neytendum að það er verið að svindla á þeim. Ég
vorkenndi greyið stelpunni að þurfa að útskýra þetta fyrir mér vegna þess
að hún vissi sjálf betur.
Óska nafnleyndar

#956    Ég vill bara benda á fáranlegt missamræmi á verði þegar maður kaupir vöru í stykkjatali eða kippum. Ég og unnusta mín höfum keypt Krystal+ í miklum mæli á síðustu vikum. Þeir selja þetta í kippum og við reiknum með að það sé eflaust ódýrara ef maður kaupir sex saman frekar en bara eina og eina. Nei, þá er stykkjatalið mun ódýrara. Þó það munar ekki nema 2-3 kr á hverja flösku í Bónus, þá í Krónunni er 100kr dýrara að kaupa kippu, en að taka hana í sundur og kaupa flöskurnar eina í einu. Er ekki misvísandi að hafa magnpakkningar dýrari en sambærilegt magn í stykkjatali?
Ragnar Eyþórsson

(Sett inn 10.07.08):

#955    Í fyrradag keypti ég mér brjóstagjafahaldara í Hagkaup fyrir 5.699 krónur sem er ótrúlega dýrt. Mér svelgdist á en keypti þetta samt þar sem mér er sagt að þetta sé nauðsyn fyrir nýbakaðar mæður. Komst svo að því í dag að nákvæmlega sama tegund (Anita maternity) kostar 4.290 kónur í Babysam. Hagkaup rukkar sem sagt um það bil þriðjungi meira fyrir þessa vöru en Babysam!! Ég skilaði því vörunni med det samme í Hagkaup og sit uppi með innleggsnótu í okurbúllunni. Mun reyna að nota hana í tilboðsvörur.
Ragna Garðarsdóttir 

#954    Langaði að benda á okur á Scarpa Ladakh gönguskóm í Útilífi. Þann 31. maí sl. kostuðu þeir 29.990 kr. Í dag kosta þeir 33.990. Hér er um 13,3% hækkun að ræða (4.000 kr.) á rétt rúmum mánuði. Keypti þessa skó í gær og í kassanum leyndist gömul kvittun frá einhverjum öðrum sem líklega hafði keypt skóna 31. maí og skilað aftur. Á þessari hækkun leikur því enginn vafi - gamla kvittunin óyggjandi sönnun fyrir verðinu í maí. Útilífi til málsbóta má geta þess að ég fékk sæmilega þjónustu, sem er eitthvað alveg nýtt fyrir mér í þessari búð. Fjallakofinn.is selur sömu skó á 29.995. Aðrir sem selja Scarpa skó skv. Gulu línunni eru m.a. Intersport, Flexor, Sjóklæðagerðaverslunin o.fl. Samkvæmt lauslegri verðkönnun á netinu kosta sömu skór um 25 þús. kr. erlendis (USA, Finland, Bretland o.fl.). Gerið verðsamanburð!
Ívar Örn Benediktsson

#953    Ég vil Ekki-Okur-hrósa veitingastaðnum Asíu við Laugarveg. Þar er flestallt á matseðlinum í kringum 1000 krónur. Hin fræga kjúklinganúðlusúpa þeirra, með engifer og chili, er á 990 kall. Svo matarmikil og ríkulega skömmtuð að maður verður saddur tvisvar. Ekki láta framkvæmdirnar fyrir utan staðinn fæla ykkur frá, heldur takið kollhnís inn og sláið þeim fimmu í lófa.
Bobby Breiðholt

#952    Ég fór í okurbúlluna Eymundsson og ætlaði að kaupa mér Íslensku vegahandbókina. Ég komst að því að hún kostar 3990.-kr sem er ótrúlegt okur fyrir bók sem í kilju sem er með upp í tug auglýsinga fyrir verslun og þjónustu á nánast hverri síðu. 
Það var samt ekki það sem fór mest í taugarnar á mér heldur var það að við hlið bókarinnar var sama bók á ensku og þýsku á 2790.-kr. 
Þetta er algerlega óskyljanlegt þar sem bækurnar eru báðar í kilju og eini munurinn á þeim fljótt álitið virðist vera tungumálið. 
Annað sem ég skil ekki í Eymundsson er verðlag á erlendum tímaritum, hvernig getur 3,80 pund orðið að 1440 kr.- sérstaklega þar sem blöðin eru yfirleitt rúmlega mánaðar gömul þegar þau loksins koma með bátnum til landsins, OKUR.
Einu svörin sem ég fékk í Eymundsson var hinn frábæri frasi “Svona er þetta bara, ég ræð ekki verðinu hérna”.
Þorsteinn Hreggviðsson
(ATH: Þetta er ólíðanlegt að fólk hugsar ekkert áður en það skrifar.
 Nú vinn ég hjá Eymundsson, er bara almennur starfsmaður og hef svo sem engan brjálaðan hagsmun að gæta, en svona hugsunarleysi fer í mínar fínustu.
Það er varðandi Íslensku vegahandbókina.
 Sá sem kvartar segir: "Ég komst að því að hún kostar 3990.-kr sem er ótrúlegt okur fyrir bók sem í kilju sem er með upp í tug auglýsinga fyrir verslun og þjónustu á nánast hverri síðu.
Nokkrir puntar sem ég vil koma að:
nr.1 Það eru höfundar og útgáfan(Vegahandbókin ehf) Sem ákvarða hvað er í bókinni s.s. auglýsingar, ekki Eymundsson. Að reyna að tengja 
kvörtun um verðlag hjá verslun og innihald vöru(birgja) er ekki réttlætanlegt.
nr.2 Innkaupsverðið frá útgáfuni er 3.790 kr. Eymundsson fær 35% afslátt. síðan er settur 7% vsk og þá er verð út úr búð 3.990 kr.
Þetta er talin eðlileg álagning, gleymum ekki að fyrirtæki borga laun, leigu, rekstrarkostnað og fl. og fl. þannig að allt fer nú ekki í vasan hjá þessum stóru köllum, þó mætti meira fara í vasan hjá starfsfólkinu.
Síðan segir sá sem kvartar: "Það var samt ekki það sem fór mest í taugarnar á mér heldur var það að við hlið bókarinnar var sama bók á ensku og þýsku á 2790.-kr. 
Þetta er algerlega óskyljanlegt þar sem bækurnar eru báðar í kilju og eini munurinn á þeim fljótt álitið virðist vera tungumálið.  "
Þetta kemur nákvæmlega Eymundsson EKKERT við. Þarna er innkaupsverðið frá Vegagerðin ehf. lægra á ensku útgáfunni. Engin munur er á álagningunni milli þessara bóka.
Þannig að þú ættir að kvarta við útgefandann í þessu tilfelli. 
Íslenska Vegahandbókin er ein vandaðasta ferðabók íslands og mjög ítarleg kort er í henni. Þar að auku fæst 1000 kr. afsláttur ef skilað er inn eldri útgáfu.
Óskar nafnleyndar.)

#951    Fór í Victoria Secret búðina á Borgarnesi sem var heldur betur auglýst í Íslandi í dag síðastliðinn föstudag og kom þar fram að undirföt væru á leiðinni í búðina. Þegar ég kom í búðina eftir hádegi á þriðjudeginum voru enginn undirföt komin í búðina en von væri á þeim síðdegis.
Þegar ég kom aftur síðdegis voru komnar nokkrar flíkur á slánna mjög lítið úrval og dýrt og enginn mátunarklefi. Sem dæmi, einn venjulegur brjóstahaldur merktur Victora Secret á 6900kr!
Einnig voru snyrtivörurnar þar frá þessu merki. Greinilegt lagt mikið á, sem dæmi: einn varagloss-túpa sem kostar 7 dollara í Bandaríkjunum á 1650kr hér. Datt ekki í hug að kaupa nokkurn skapaðan hlut þarna inni.
Magnea

#950    Í fluginu til landsins í dag frá Tenerife með Ferðaskrifstofu Íslands, varð ég fyrir því að vera rukkuð fyrir láni á kodda og teppi. Gjaldið var 6 evrur, en var frítt fyrir tveimur vikum í útleið. Gjaldtaka þessi var hvergi auglýst, á flestu má nú græða!!!
Una H. Pétursdóttir
(nb. Teppið og koddinn eru til eignar, sjá Fréttablaðið í dag. Það má þó kannski spyrja sig hver nennir að dragast með teppi og kodda út í 30 stiga hita þegar lent er á Tenerife...)

#949    Fórum í Smárabíó í gær, þrátt fyrir að bíómiðinn hafi hækkað. Veit vel að hægt er að kaupa á midi.is og fæ afslátt út á að hafa Kortið, en þar sem þetta var ákveðið fyrirvaralaust var ekki hægt að nýta þau tilboð. 
Miðaverðið reiknast þannig: 
1000kr miðinn, 50kr aukalega fyrir digital og svo aðrar 50kr aukalega ef myndin er lengri en 120 mínútur.
Tók eftir því að á miðanum stóð að myndinni (sem byrjaði 20:00) ætti að ljúka 22:03. Sem augljóslega þýddi að hún var ekki 120 mínútur, enda næstum 30 mínútur sem fara eingöngu í það að sýna auglýsingar og trailera! Ekki nóg með það heldur vorum við komin út í bíl eftir myndina 5 mínútur í tíu.
Kíkti svo á IMDB.com, og sá að þessi mynd (Hancock) er aðeins 92 mínútur.. 
Mér er alveg sama þótt þetta sé einhver skitinn 50kall sem um er að ræða, en mér finnst þetta lúaleg vinnubrögð hjá Smárabíói... 
PS. Af hverju er afsláttur fyrir börn, eldri borgara og öryrkja, en ekki námsmenn ??
Óskar nafnleyndar

#948    Fór í Select við Smáralind (Skeljung) keypti mér Kristall Plús á 166kr. fór stuttu síðar í Nettó salavegi sama vara á 105kr er ekki nóg að þeir okri á okkur með oliuna. Hættum að versla annað en oliu á þessum okurstöðum. Enda skilst mér að þeir græði mest á pulsusölunni. Ég er að minnsta kosti hættur því,stöndum nú einusinni saman annars lækkar  aldrei neitt hjá þessum öðlingum. Nota hagnaðinn í að reisa hallir undir bland í poka.
Sigurður Sveinsson

#947    Vorum að koma úr flakki af Suðurlandi þar sem kokteilsósu- og slummþörf heltók okkur tvisvar. Það er ekkert grín að leggja út fyrir hammara á ferðaslóðum um Ísland: Valhallarborgari á Hótel Valhöll Þingvöllum á bilinu 1500 til 1600 kall. Geysisborgari á Hótel Geysi kostar svipað ef ekki 100 krónum meira. (Heilinn á mér neitar að muna nákvæmt verð!)
Engu að síður, þetta er súrrealískt verð. Hinsvegar er rétt að taka fram: Á Hótel Valhöll var þjónustan léleg og franskarnar sem fylgdu með harðar, brúnar og vondar og hamborgarinn vandræðalega slappur. Á Hótel Geysi var hamborgarinn ótrúlega góður og djúsaður, gott kjöt
og vandaðar franskar, framúrskarandi þjónusta.
Ef að þörf fyrir kokteilsósu og hamborgara heltekur ykkur á þessum slóðum - alls ekki borða á Þingvöllum. Eyðið aurunum ykkar frekar í gæði. (Eða grillið ykkar eigin hammara!)
Þórhildur Ólafsdóttir 

#946    Við mæðgur skelltum okkur í Hagkaup um daginn, því barnaafmælin eru tíð þessa stundina og því tilvalið að leita af gjöfum þar. Við reynum nú að miða við 500-1000kr. á afmælisbarn. Og við fundum gjöf sem var með ásættanlegt verðlag en okkur vantaði gjafapappír og vildi barnið endilega velja pappír með Barbí-myndum á. Jú jú ég lét þetta eftir stelpunni en eitthvað fannst mér upphæðin skrýtin og gætti betur að kvittuninni þegar út í bíl var komið. Haldiði ekki að fjandans pappírsdruslan hafi kostað 929kr. en hún innihélt hvorki meira né minna en heila 4m. af pappír.Þannig að pappírinn utan um gjöfina (sem verður tættur upp á "notime" og hent síðan í ruslið) var nánast jafndýr og gjöfin sjálf.
Lísa Birgis

#945    Með tilkomu samevrópsku samtaka flugmálastjórna rétt fyrir aldamótin voru læknisskoðanir fyrir flugmenn færðar frá stofnuninni og sjálfstætt starfandi fluglæknar tóku við. Kostnaðurinn fyrir venjulegan einkaflugmann (sunnudagsflugmann) hækkaði mikið við þessa breytingu, eða rúmlega tvöfalt. 
En nú 1. júní gekk þetta of langt.  Fluglækningastofnun sf., eina starfandi stofa fluglækna á höfuðborgarsvæðinu, hækkaði taxtann sinn, sem nú þegar var mjög hár, úr um rúmlega 8 þúsund í 17 til 26 þúsund krónur.  Réttlæting forsvarsmanns stofunnar var sú að gjaldtakan hafi verið færð til samræmis við nágrannalöndin. Þvílíkar röksemdir sýna afar slæma siðgæðisvitund viðkomandi, því af hverju mátti ekki LÆKKA gjaldtökuna til samræmis við önnur lönd Evrópu þar sem gjaldtakan er minni!  Hreint og beint okur af allra verstu tegund. 
Til gamans má geta að kostnaðurinn fyrir 2. flokks læknisvottorð fyrir einkaflugmann hefur hækkað um það bil um eitt þúsund prósent síðan fyrir rúmlega tíu árum síðan, meðan vísitalan hefur hækkað um 170 prósent.
Óskar nafnleyndar

#944    Dóttir mín fór til Bandaríkjanna í síðasta mánuði, hún hringdi í pabba sinn og systir í alls í 196 mínútur segir reikningurinn og upphæðin er Kr. 52.331.-  sem reiknast Kr. 266.- á mínútu, og ef þetta er tilfellið þá langar mig að aðvara alla landsmenn sem ferðast erlendis að nota bara símann í neyð heldur en að láta stela svona af okkur, síminn ætti að finna fyrir því í mánaðaruppgjörum hjá sér.
Systa Roesel
(nb. Þetta er nú ekkert! Gsm-símtal frá Belgrad kostar 350 kall mínútan! Um að gera að fólk passi sig á þessu.)

(Sett inn 08.07.08):

#943 Heklalækkaði verð á nýjum bílum sínum með miklu húllumhæi í maí. Viðskiptaráðherra og fleiri mættu í gleðina. Forseti ASÍ lýsti ánægju sinni með framtakið og forstjóri Heklu gerði mikið úr málinu og sagði þetta framtak þeirra framlag gegn verðbólgunni. 
Þeir auglýstu reyndar "allt að 17% lækkun" sem reyndist svo bara vera á einhverjum Audi sem seldist í örfáum eintökum. 
Lækkunin á algengustu bílunum var ca 10% sem er hið besta mál. Nú hafa þeir hinsvegar hækkað aftur. Skoda Octavia sem var á 2.770.000 eftir lækkunina er kominn í 2.890.000. Þannig að framlagið gegn verðbólgunni er greinilega hætt.
Björn Gunnarsson

#942    Átti leið inn í Hagkaup í Kringlunni í fyrradag og varð bara að láta vita af því sem ég sá þar. Nefnilega heilsutómata, sem eiga að vera með 3 sinnum meira lýkópeni (andoxunarefni sem á að vera voða gott, m.a. fyrir húðina) en venjulegir tómatar. Nema að ég sá að þeir voru mun dýrari en aðrir tegundir tómata sem voru þarna til sölu og þó voru þarna m.a.lífrænt ræktaðir kirsuberjatómatar frá Engi á tæplega 500 kr boxið. Þessir heilsutómatar voru svipaðir að stærð, s.s. eins og venjulegir kirsiberjatómatar, 9 stykki í bakka og verðið bara og aðeins 979 krónur! Sem þýðir 109 krónur á hvern og einn tómat. Ef það er ekki bilun að borga 109 krónur fyrir smátómat þá veit ég ekki hvað. Þó svo hann sé hollur! 
Hólmfríður Gestsdóttir

#941    Ég fór í hið stórgóða bakarí Sandholt á Laugavegi núna í hádeginu að fá mér samloku og take away latte. Ekki neitt sérstaklega vel útilátið og 1/4 vantaði upp á að kaffibollinn væri fullur þannig séð en saman kostaði þetta 1090 kr!!!! Langloka með pepperoni, papriku, camenbertssneið og smá púrrúlauk og einfaldur kaffi-latte bolli = 1090 kr takk!
Mér leið eins og asna þegar hún sagði verðið stelpugreyið og gat varla bakkað með kaupin og eftirá upplifunin eins og ég hafði verið slegin í framan. Þetta er vissulega gífurlega fínt bakarí og allt það en Jesús minn... 
Dröfn Ösp Snorradóttir

#940    Fór í Krónuna í Mosfellsbæ sl. laugardag, 5. júlí til að kippa með heim einum grillkjúklingi og 2 l. af Coke með, nokkuð sem við heima gerum þegar við höfum ekki tíma til að elda. Síðast þegar ég keypti svona skammt (í maí sl.) kostaði hann 798 kr. og fékk maður Kókið frítt með.  En núna kostaði þessi sami skammtur 998 fyrir grillkjúklinginn, og þar fyrir utan þurfti ég að borga 169 kr. fyrir Kókið!  Allt í allt kostaði þessi skammtur mig því 1.167 kr. 
Þetta er hækkun síðan í maí sl. upp á "litlar" 369 kr. eða sem svarar 46,24% !!!!   Fyrr má nú aldeilið fyrr vera hækkun!
Örn Jónasson

#939 Internet á Íslandi. Tollar á bitum, öll gögn sem þú sækir til útlanda. Ef þú ferð yfir umfram gagnamagn sem í dag er mjög lítið, er rukkað eða hraði settur niður í árið 1997.
Dæmi: niðurhal á blu-ray bíómynd, sem er 50 GB frá löglegum grunni erlendis frá. Þú hefur username/password og borgar fyrir þjónustu frá þeim, download af HD-efni frá útlöndum.
Ísland, notendum er bannað að fara yfir 20 gígabæti á 7 daga tímabili, þá þarf að niðurhala þetta í nokkrum pörtum.
* Download  20 GB og taka rafmagn af router því nú er ekki heimild fyrir meira þessa vikuna.
* Næsta vika  20 GB , slökkva, 
* svo 3ja vikan og Blu-ray myndin er þín og þú getur farið og skoðað erlenda síður aftur (eftir næstum 3 vikur). 

Hvar er HD-Bíómynda framtíðarsýnin? Við neyðumst til að kaupa efni af e-h Íslensku fyrirtæki þvi það er ótakmarkað download innanlands en ekki af utan, og vera föst við það litla úrval af efni sem þeir bjóða uppá. 

50 GB download er ekki mikið í dag þú getur fengið Ljósleiðara tenginu (m.v að OR hafi mætt í hús til þín.) og fengið þér allt að 100 MB/s ljósleiðara tengingu sem er um 100 sinnum meira en ADSL.

Svo ef þú downloadar Blu-ray mynd í umfram magni þá kostar 2.5 kr hvert MB umfram. OKUR!!!
Þá kostar það þig 125.000 kr að niðurhala 1 st BlueRay mynd. OKUR !!!!!

Og þegar Die Hard safnið mætir á Blu-ray og þú verður að sækja það strax þá kostar það þig  500.000 kr fyrir fjórar bíómyndir - OKUR!!! 

Til er HeilbrigðisEftirlit sem allir kannast við, en það er ekki til neitt InternetHeilbrigðisEftirlit 
Til að taka mælingar fyrir raunverulega notkun/hraða hjá notendum hvort að sé verið að okra á þér. Við verðum bara að treysta á þær tölur sem þitt internetfyrirtæki segir til um og hvaða hraða þú er með. Og eins og alltaf láta taka okkur ósmurt alla leið uppí herðar.
Rikhard Johannsson

#938    Keypti fyrir 2 vikum Disney Baby Buff í Hagkaup á 2190 kr  Sá síðan nákvæmlega sama Buffið í Baby Sam á 1390 kr. Buffið er því 800 kr dýrari í Hagkaup sem verður að teljast ótrúlegt okur. 
Nafnlaus. 

#937    Sl. mánudag fór ég í Þín verslun á Seljabraut og ætlaði að kaupa ferskan fisk. Ég sé miða í glugganum sem stendur að allt vacumpakkað lambakjöt frá Fjallalambi
sé með 20% afslætti. Ég fer svo í hilluna þar sem kjötið er til að skoða hvað er á boðstólnum þar sem ég er forfallinn aðdáandi þessarar kjötvinnslu á Kópaskeri.
Það var ekki til uppáhaldskjötmeti krakkanna en ég sé þarna úrbeinað sítrónulæri (hef ekki séð það áður) og allt með sítrónu er í miklu uppáhaldi hjá okkur hjónum.
Ég ákveð að slá til þótt ég var nú ekki á leiðinni að kaupa lambalæri á mánudegi með ýsuflökunum sem eru reyndar á góðu verði á mánudögum í þessari verslun.
Þegar ég kem að kassanum með ýsuflökin og sítrónulærið heyri ég strax á afgreiðslukonunni að enginn afsláttur var gefinn af lærinu enda hafði hún ekki 
skannað inn lærið heldur bara prentað beint inn verðið á því, 3201 kr. Þegar ég bendi henni á að það sé afsláttur á kjöti frá Fjallalambi þá slær hún inn vörunúmerið aftur 
en enginn afsláttur kemur í kassann. Ég bendi henni þá á að það sé stór miði við útidyrnar með þessum afslætti og líka á sjálfri hillunni yfir kjötinu. 
Hún fer inn í búð og talar við konuna í kjötborðinu og hún segir að það sé enginn afsláttur þrátt fyrir miðana þar sem hann hafi bara verið í gildi yfir helgina. Ég læt nú ekki bjóða 
mér slíka þjónustu og afþakka lærið. Hver er réttur neytenda í þessu máli?? Þetta var mjög furðuleg staða þar sem ég var stödd í búðinni kl. 18 á mánudegi og örugglega einhverjir sem voru búnir að fjárfesta í kjötmeti frá Fjallalambi þann daginn í góðri trú um að afslátturinn kæmi sjálfkrafa fram við kassann. Ég tek það fram að það var hvergi getið um gildistíma afsláttarins á þessum stóru gulu miðum sem héngu í búðinni á 3 áberandi stöðum. 
Valdís V. Einarsdóttir
(ATH: Verslanir VERÐA að selja fólki vörur á AUGLÝSTU verði. Ef svona áberandi
skilti eru uppi, á fólk að standa á sínu og láta búðina selja sér
vöruna á auglýstu verði. Þetta hef ég oft gert og fer bara í hart ef
starfsfólkið er með eitthvað múður.
Ef við gerum þetta öll fara verslanareigendur að passa að verðmerkja
vörurnar RÉTT!!!
Einu undanþágurnar sem hugsanlega er hægt að samþykkja eru þegar hvert
stykki af ákveðinni vöru er verðmerkt með litlum verðmiða og
viðskipta"vinir" hafa verið að skipta um verðmiða, eða það standi
einhver krónutala á slá (af fötum, t.d.) og einhver viðskiptavinur hafi
skilað flíkinni á vitlausa slá.
Annað sem mig langaði að segja fólki sem skrifar endalausar kvartanir inn á
OKUR-síðuna um að það hafi orðið svo hissa þegar það var rukkað á
kassanum, eða komið heim og litið á kvittunina. SPURJIÐ UM VERÐIÐ ÁÐUR
EN ÞIÐ KAUPIÐ HLUTINA. Annars er þetta bara ykkur sjálfum að kenna og
þið hafið engan rétt til að kvarta og kveina yfir okri.
Virðingafyllst, Inga Karlsdóttir.)

(Sett inn 06.07.08):

#936    Fór á Brasserie Grand um daginn, því að ég og maðurinn minn áttum þriggja ára brúðkaupsafmæli...ætluðum að gleyma kreppunni og hafa það gott.....Okkur leist vel á matseðilinn, nema verðið en hey brúðkaupsafmæli ekki nema einu sinni á ári.  Við keyptum nákvæmlega það sem okkur langaði til...Súpan var fín, og vel útilátin en svo versnaði í því.  Ég brá mér á snyrtinguna og tók mér tíma til að snyrta nebbann eins og gengur. svo kom ég til baka þar beið þjónninn við innganginn eins og hann hefði verið um það bil að fara að hringja í björgunarsveitirnar og tilkynna mig týnda....þar elti hann mig að borðinu þar sem að 6000króna köld andabringa beið mín og var seig...Þetta kostaði okkur 18000 krónur tæplega (með víni) og æ hvað ég sé eftir þessum peningum...Enginn spurði okkur hvernig okkur líkaði maturinn, ekki einu sinni.  En ég hringdi og tilkynnti og fékk svona lala viðbrögð þar sem yfirþjónn sagði "æ en leiðinlegt" en ekki viljið þið ekki koma aftur og fá ykkur hádegisverð einhverntímann í boði hússins.  Okkur datt ekki í hug að fá okkur kaffi og eftirrétt þarna, heldur fórum við í Snælandsvideo og fengum okkur ís að taka með heim.
Nafnlaus

#935    Ég lenti í því að brjóta heyrnatólin mín sem að komu með ipodinum mínum (þessi litlu hvítu). Ætlaði að kaupa ný í Apple búðinni. Ég var fljót þaðan út aftur 4.990 kr fyrir heyrnatól og já ég er að tala um þessu littlu hvítu sem að koma með ipodinum. Var að skoða hvað þau kosta á netinu apple á netinu 29$ = 2.245 kr
apple á íslandi  4.990 kr 
það eru 2.745 kr munur. Þetta er OKUR!
Berglind Sigurðardóttir

#934    Skellti mer a Paul Simon tonleika i vikunni. Akvad ad fa mer einn bjor og keypti i leidinni raudvin fyrir felaga minn. Einn litill carlsberg i dos kostadi 600 kr. og 100 ml. af raudvini 800 kr. Ef eitthvad er okur tha er thad thetta.
Óskar Nafnleyndar 

#933    Keypti smooties (búinn til úr jógúrtís og ávöxtum) í ísbúðinni í Kringlunni í gær fyrir litlar 745 kr. Skemmtilegt að segja frá því að þar er búið að líma yfir öll verð svo viðskiptavinir geta í raun ekki séð hvað neitt kostar.
Nafnlaus

#932    Versla alltaf í Bónus til að hafa innkaupin í ódýrari kantinum. Fór s.l. fimmtudag 3/7 2008 til að versla smá inn. Sé þá að Latibær er komin með nýjan svaladrykk fyrir börn, eitthvað sem heitir Lazy Town 100% pure fruit. Er þriggja barna móðir og hugsaði að þetta væri nú örugglega hollt fyrir börnin, betra en venjulegur svali. Ekkert var verðmerkt og eru þetta 4 fernur í pakka sem eru hvor um sig 180ml. Var boðið uppá 2 bragðtegundir og keypti ég sinhvorn pakkann, þ.e. 8 stk svaladrykki.Hugsaði með mér að þetta væri örugglega ekkert svo dýrt, þetta er jú Bónus.. Fer á kassann og borga. Fannst upphæðin ansi dýr en borgaði og fór út. Þegar ég kíki svo á strimilinn þegar heim kom sé ég að 4 stk latabæjarsvaladrykkir kosta takk fyrir 598 kr! Þá keypti ég semsagt 8 svala fyrir tæpan 1200 kall!! Þegar 3 venjulegir 250 ml svalar kosta rétt rúmlega 100 kall í Bónus.  Eitt er ljóst að ég kaupi þetta ALDREI aftur! Geymi nú strimilinn ef þetta skyldi hafa verið villa í kassanum, þetta er nú bara alveg ótrúleg uppkæð. Þú mátt alveg endilega koma þessu á framfæri.
Hildur Steindórsdóttir 
(nb. Þetta er væntanlega 100% safi og því rándýrt og bráðholt, ekki vatn og sykur eins og hjá Svala – eða hvað?) 

#931    Skrapp í Elko um daginn og var að skoða ryksugur. Rak augun í svokallaðan blettahreinsi frá merki sem heitir Dr. Becks og er nú bara mjög gott. (Hef notað það á bletti með góðum árangri). EN, í Elko kostaði flaskan tæplega 800 kr. en í Bónus er hún á tæplega 300 kr., síðast þegar ég keypti hana þar. Dálítið mikill munur!
Klara

(Sett inn 04.07.08):

#930    Ég stend því miður í húsbyggingu á þessum síðustu og verstu tímum og er að
stækka við mig um 200 fm. Því fylgja óhjákvæmileg húsgagnakaup og hef ég
farið margar ferðir í húsgagnaverslanir höfuðborgarinnar. Ég hef tekið
eftir því að margir eru að nýta sér gengishækkunina og hækka vörur umfram
það sem eðlilegt væri.
Borðstofuborð sem ég hafði hug á að kaupa í Epal á 198.000 í febrúar
kostar núna 328.000 kr. Þegar ég spurði um skýringar á þessari  rosalegu
hækkun var bara brosað útí annað, yppt öxlum og talað um gengishækkun.
Borðstofustólar í Exó, sem mig langaði mikið í, kostuðu í febrúar 14.900
stykkið. Þeir kosta núna 24.900 kr.
Á sama tíma fékk ég launahækkun, í kjölfar kjarasamninga, uppá 6.6% :o/
Sara Hlín Sigurðardóttir

#929    Ég fór í Toys R us á Akureyri, þegar að hún opnaði, sá það svona bleikan "spark" hest á hjólum, með tónlist í eyrunum ef að ýtt er á þau. Ég ákvað að spyrja hvort verðið væri þá þarna á tilboði en það reyndist ekki vera. Þetta átti bara að vera staðlað verð 4895 kr. Já flott er, þá kaupi ég þetta eftir 3 vikur þegar dóttir mín á afmæli. Ég kem svo aftur þarna 3 vikum seinna og viti menn, þarna á hillumiðanum stóð 6895 kr. Ég snar hætti við að kaupa þetta, 3 vikum seinna á 2000 kr meira.
Svo vissi ég ekkert hvað ég ætlaði að gefa henni og fór daginn fyrir afmælið hennar inni í Hagkaup líka hér á Akureyri, og fór að skoða dótið þar og þar sá ég Disney "spark" Tuma Tígur, nánast ALVEG eins nema annar litur og höfuðið var ekki hestur nema tumi tígur (sem er þekkt merki) Disney.. Og á hilluni stendur 1999 kr og ég fann þarna afgreiðslu dömu og spurði hvort að þetta væri rétt verð og jú jú alveg rétt :) Svo þegar að ég var að fara að borga þá kom á kassanum 1495 kr, þá var einhver auka afsláttur á kassanum :D 
Ég hefði geta keypt 4 tæki í Hagkaup fyrir 1 í Toys R us.
Nafnlaus

#928    Ég er viss um að allir eru fyrir löngu orðnir hundleiðir á símafyrirtækjum
og þeirri vitleysu sem þeir standa fyrir. Það eina sem maður getur gert er
að fylgjast vel með. Við höfum í þónokkurn tíma verið í viðskiptum við það
sem áður var HIVE, nú TAL, og svo sem líkað vel. Vorum með heimasíma og
ADSL hjá þeim og var tilboðið sem þeir buðu upp á nokkuð gott. Við vorum
hins vegar ekki með ótakmarkað niðurhal og af reikningum að dæma virðist
svo vera að við höfum halað meiru niður en við borguðum fyrir í hverjum
einasta mánuði í meira en ár. Og aldrei nokkurn tíma létu þeir okkur vita.
Í desember á síðasta ári borguðum við 7000 kr. aukalega og aldrei hringja
þeir til að láta vita hversu langt farið hefur verið yfir niðurhalsmörkin.
Því miður áttuðum við okkur ekki á þessu fyrr en eftir á (maður skammast
sín fyrir að hafa verið svona sofandi). Við héldum ekki að við værum að
hala neinu niður og fylgdumst því ekkert sérstaklega með þessu. Er það
kannski líka niðurhal að opna netið yfir höfuð?
Tal bauð okkur svo nýtt tilboð um daginn: ótakmarkað niðurhal, 8 mb hraði
og fast gjald fyrir heimasíma (getum talað að vild í heimasíma, gjald
alltaf það sama). Ég marg spurði hvort reikningurinn í framtíðinni myndi
þá hljóða upp á þessar 5990 kr. sem þeir buðu okkur. Svarið var já. Raunin
varð önnur, reikningurinn var hærri. Ég talaði við þjónustufulltrúa í dag
og krafðist skýringa. Sagði hann mér þá að ég þyrfti að borga 190
tryggingagjald á rádernum. Sagðist ég ósátt við að mér hefði aldrei verið
sagt það þrátt fyrir ítrekaðar spurningar mínar um verðið áður. Hann sagði
að við værum líka að borga 190 krónur í seðilgjald en hann gæti fellt það
niður ef við vildum láta taka upphæðina beint út af kretidkortinu um hver
mánaðarmót. Ég sagði honum að þannig hefði fyrirkomulagið verið frá
upphafi og hvort þeir hefði kannski verið að rukka okkur um þessa fjárhæð
allan þennan tíma þrátt fyrir það? Því gat hann ekki svarað. Ég lét hann
hafa kreditkortanúmerið aftur, bað um rétta upphæð tilboðsins og sagðist
myndu láta vita af þessum viðskiptaháttum þeirra.
Tilboðið hljóðar upp á 6180 krónur, ekki 5990 krónur, og mun ég fylgjast
með þessu í framtíðinni. Þetta er kannski ekki beint okur en alveg hreint
dæmigert fyrir það hvernig sífellt er verið að reyna að svindla á manni.
Díana

#927    Ég fékk veður af því hvernig Norðurorka okrar á mælaleigu fyrir íbúðablokk.
Í blokkinni eru 15 íbúðir og var þar settur mælir á hverja íbúð. Fyrir hvern mæli þarf að borga
fast gjald í mælaleigu 765kr á mánuði eða 9180kr á ári.
Þetta er eldri gerð að mælum sem eru ekki með fjarmælingu og ætla má að 
mælir sem þessi gæti kostað u.þ.b. 4-5000 (fengið fá Rafveitunni).
Mælirinn borgar sig því tvisvar upp á einu ári fyrir Norðurorku!!! 
Þess má geta að notkun á íbúðunum á 6 mánuðum var a bilinu  433-1749KWh eða 3.525-14.236 Kr þar sem kwh er á 8,14kr.
 Þannig að mælagjaldið er allt að þrisvar sinnum dýrara en gjaldið fyrir notkunina í íbúðinni !!!
 Nafnlaus

#926    Just4kids: Ég fór þangað áðan og rak augun í huggies blautklúta þegar ég var að skoða þarna og þeir kosta 510kr. Þeir kosta 198kr í bónus, allvega kostuðu það um daginn, veit ekki með núna en vá enginn smá verðmunur. Og ég var að skoða Steffí Love hús (eins og barbíhús) og það kostar 9.900kr en 7.900 í Hagkaup 2000kr verðmunur.
Nafnlaus

#925    Mig langar að koma með eitt dæmi sem ég ER svo reið útaf. Ég versla alltaf í Bónusi á Selfossi og nú í dag sem og oftar fór ég og keypti skinnlausar bringur frá Holtakjúklingum. Með Stórum límmiða Stóð 40 % afsláttur og að sjálfsögðu keypti ég 2 pakka.
Annar pakkinn kostaði 1556,- án afslátttar en fékk 311,- í afslátt og hinn 1707,- án afsláttar en fékk 341,- í afslátt sem gera 20 % afsláttu. Það ER ekki nóg með að maður verði reiður heldur var þetta að koma fyrir í þriðja skiptið að ekki var samræmi á kassakvittun og hilluverði.
Í fyrri skiptum var þetta rétt fyrir lokun og ég henti óvart kassakvittun áður en ég fór og kvartaði 
Nú tók ég eftir þessu um leið og ég kom heim, hafði samband við verslunina og bað um að fá að ræða við einhvern yfirmann sem ekki var við en þá varð ungur maður fyrir svörum og bauðst til að aðstoða mig .
Þegar ég var búin að segja honum frá ósamræmi á kassakvittun og hilluverði spurði hann mig strax hvort þetta væru kjúklingar og virtist kannast við málið.
Hann sagði reyndar að ég gæti komið aftur og fengið þetta leiðrétt  sem ég nennti ekki í dag , var búin að bíða lengi í röð og var fegin að komast út.
Þetta sýnir bara að það ER ekki allt best Í Bónus og fólk þarf svo sannarlega að vera á varðbergi og fara vel yfir verðin. 
Í dag var ég snuðuð um 652,- en oftar hef ég keypt meira magn í einu .
Ég sendi þér hér mynd af kassakvittun og vöru.
Gulla Björk


(Sett inn 03.07.08):

#924    Ég varð fyrir því óláni að annað afturdekkið fyrirfór sér á felgunni, og í
slíkum tilfellum eru góð ráð vissulega alltaf dýr! Nema menn fari til
Vöku. Þegar ég fór til þeirra, armur, beygður og aumur í veskinu, fékk ég
eitt notað dekk, umfelgun á því og tætlunum sem ég kom með mér, og skipti
á því og aumingjanum undir bílnum. Á 3700 krónur! Þar af 3000 fyrir sjálft
dekkið! Til samanburðar kostar hvert nýtt dekk allt frá 10.000 krónum, að
undanskilinni allri vinnu við að setja það undir. Þannig að Vaka fær
risastóran plús frá mér.
Arngrímur Vídalín Stefánsson

#923 Gjaldeyrir á Keflavíkurflugvelli. Fór í Glitni á Eiðistorgi kl.15.00 og skipti í Evrur kostaði evran þá 118 kr var að fara erlendis um morguninn, sonur minn skipti hjá Landsbankanum á Keflavíkurflugvelli kl 8.00 og kostaði hver evra þar 123 kr. Eða fimm krónum meira hver. Fólk heldur að allir bankarnir rukki jafnt við gjaldeyrisskipti en það er aldeilis ekki – ef Landsbankinn getu Okrað á trúgjörnum Íslendingum gerir hann það. Passið ykkur látið ekki ræna ykkur ný vöknuð og glöð á leið í fríið.
Sigþór Bragason 
(nb. Gæti verið að gengið hafi rokið svona upp, gæti líka verið að LÍ sé með +5kr á gengið á vellinum. Þarf að skoða það betur.) 

#922    Ég er að fara að halda barnaafmælisboð og til að bjóða þeim fullorðnu eitthvað annað en drullukökur skrapp ég í Jóa Fel og keypti brauð. Ætlaði að kaupa líka álegg hjá honum og spurði um verð á erlendum Camembert, svona hálfmána upp á kannski 150 grömm. Hann kostaði tæpar átta hundruð krónur svo ég ákvað að nurla mér á þann íslenska í staðinn, þar til ég fékk að heyra að eitt stykki íslenskur Flóa Camembert ætti að kosta 485 krónur. Þetta er ævintýralegt verð! Ætli þeir selji mörg stykki á þessu verði þegar það er hægt að skjótast inn í Bónus við hliðina á og fá næstum tvö stykki fyrir sama verð? Hefur þó Camembertinn hækkað allsvakalega í þeirri búð undanfarið. Þetta getur bara ekki talist annað en - tja, okur :)?
Halla Sverrisdóttir
(nb. Öðru nafni "frjáls álagning".)

#921 Elko í fríhöfninni.  Ég var að skoða linsur fyrir Canon SLR myndavélar og komst að því að Canon EF 50mm f/1,8 II linsa er dýrari í Elko í fríhöfninni (11.999) en í hinum Elko búðunum (11.495).  Hver fer 24.5% virðisaukaskatturinn? 
Stefán Jónsson
(nb. Þetta hefur komið fram áður, Fríhöfnin er ekkert ódýrari nema helst í búsi, rettum og rakspýra)

#920    Brennuboltar: greip með mér einn brennubolta í stórri körfu í miðjum 
gangi Hagkaupa um daginn. Venjulega eru "sértilboð" í slíkum körfum. 
Boltinn kostaði 800 krónur. Ég hugsaði ekki mikið um þetta fyrr en ég 
var kominn út úr Hagkaup þegar ég smellti þessu yfir í dollara. Miðað 
við 70 krónur per dollar er þetta 11.5 dollarar og miðað við 80 krónur 
per dollar er þetta 10 dollarar. Tíu dollarar fyrir brennubolta? Ég 
bjó lengi í USA og svona bolti myndi í sæmilega virðulegum 
súpermarkaði aldrei kosta meira en 1.99 dollara, eða 160-200 kall að 
hámarki. Hagkaup þyrfti sem sagt að bjóða 80% afslátt til að jafna 
bandaríska verðið.
Friðrik Karlsson
(nb. Það mætti fylla þessa síðu alla leið til tunglsins ef ætti að bera saman Ísland og USA. Minni þó að við höfum þokkalega læknisþjónustu. Einn skitinn brennubolti á 800 kall er þó vissulega nokkuð vel af sér vikið í okrinu. Má eflaust fá á 300 í Bónus.)

(Sett inn 02.07.08)

#919    Fór í Rúmfatalagerinn og keypti 2 sólstóla á 4990 kr. stykkið. Sá nákvæmlega eins stóla hjá N1 bíldshöfða á 9900 kr stykkið. Algjör skandall!
Sigurður Sveinsson 

#918    Á föstudagskvöldið þegar ég stóð í ströngu við pizzugerð þá áttaði ég mig á því að uppáhalds og ómissandi pizzasósan var búin. Ég stökk út í Pétursbúð og "fjárfesti" í 1 stk sósu, ég segi "fjárfesti" því að  lítill brúsi kostaði 427 kr. Á sunnudaginn lá leið mín í Bónus og viti menn nákvæmlega sama sósa á 159 kr. Hvernig er þetta hægt?
Elísabet Sverrisdóttir 
(nb. Það er víst allt hægt ef viljinn ef fyrir hendi.)

#917    Ég fór í Bláa Lónið á sunnudagin 29 júní 2008 með útlendinga og vorum við öll svöng og ákváðum að byrja á því að fara að fá okkur samlokur í veitingarhúsinu sem er staðsett nánast í andyrinu þegar maður labbar inní bygginguna.Við fengum nett áfall, samlokurnar voru verðmerktar 750 krónur og voru allar með sama álegginu, skinku, osti, káli. Þetta kalla ég algert okur ! Samlokurnar voru allar pakkaðar í plast, og var þetta sjálfsafgreiðsla. Hvað er í gangi þarna í Bláa Lóninu ! Það er ekki nóg með að það kosti 2300 að baða sig í lóninu, Það heldur áfram sama okurstefnan í snarlmatnum hjá þeim.
Óska nafnleyndar

#916    Svona kanilsnúða sykurógeð (marshmellows?) í innfluttum pokum. Verð að viðurkenna að maður hefur keypt þetta fyrir krakkana í hallæri. Þá var pokinn á ca. 250kr.  En nú er pokinn kominn í næstum 500 kr.  Aldrei aftur!!!!!  Og mín dóttir, 12 ára alveg með á nótunum.  Virkja alla með okrið!!!!
Lára Sólnes

#915    Í Exit var tilboð á barnanáttgöllum sem leit ca svona út:
Tilboð
1 stk á 990 kr
2 stk á 1690 kr
Ég fór að skoða hvernig gallarnir eru. Sá fyrsti sem ég sá var verðsettur á 890 kr fyrir tilboð, þ.a. "tilboðið" hækkaði verið á honum um 11%. Hinir sem ég sá kostuðu 990 kr. Þ.a. það var ekki verið að bjóða neytandanum betra verð á 1 stk náttgalla. 
Afslátturinn á tveimur var síðan ekki nema 17%, meðan aðrar búðir voru að auglýsa 20-70% afslátt á völdum vörum.
Farið varlega á útsölurnar
p.s. Fór síðan í Adams kids og þar sá ég 3 galla á 1990 kr (ekki sértilboð).
Sigrún Lilja Sigmarsdóttir

(Sett inn 01.07.08):

#914    Húsasmiðjan í Grafarholti. Ég fór í vikunni sem leið, á mánudegi, að skoða ýmsa hluti sem vantaði inn á heimilið mitt. Þar á meðal vantaði mig svokallað stormjárn (eining til að loka/opna glugga). Hafði svo sem enga hugmynd hvað slíkt ætti að kosta, en gat ímyndað mér kannski í kringum 1500 kr. Það var verðlagt á 2790 kr. Mér fannst það heldur dýrt fyrir svona hlut, tímdi hreinlega ekki að splæsa þessu á mig. Ætlaði líka að tékka á BYKO seinna í vikunni til samanburðar. Í Byko sá ég svo stormjárn á mjög svipuðu verði og Húsasmiðjan. Þann sama dag liggur leið mín aftur í Húsasmiðjuna og þá til gamans kíki ég aftur á verðið á stormjárninu.  Nú var það verðlagt á 2980 kr!!! Liðu bara nokkrir dagar á milli, 8% hækkun sísvona takk fyrir!!!  Og ég gat ekki betur séð en að þetta voru sömu stormjárnin í sama kassanum. Varla seldist þetta upp og þurfti að leysa út nýtt í tollinum.  Þetta er bara pjúra GRÆÐGI.  En þar sem ég fann aðra lausn á þessu "vandamáli" heima fyrir þá gat ég blessunarlega sniðgengið þessa vöru. Ætti kannski að nefna líka að ég keypti 2 hluti í Húsasmiðjunni þennan daginn. Ekki flókinn reikningur það og ég kom að kassanum og var rukkuð þar 182 kr meira eða 15% meira en það sem var verðlagt í hillunum. Auðvitað lét ég leiðrétta það! Hafa greinilega ekki undan þarna í Húsasmiðjunni að samræma verð á kassa og í hillum.
Bryndís K. Gísladóttir

#913    Ég fór á útsölu í Kringlunni í gær og verslaði skirtu í TIMBERLAND.  Hún átti að kosta 11,900 kr. en svo var settur 30% aflsáttur og ég fékk hana á 8,393 kr. Síðan var ég að lesa hjá þér að sumar búðir hafa einfaldlega sett nýja límmiða yfir gamla miðan og hækkað vöruna fyrir útsöluna. Þegar ég ath. málið betur þá kom það í ljós að annað miði var undir 11,99 kr og þar stóð 10,900 kr., munar 1000 kr. Ekki sáttur, ætla að koma við í Timberland og spyrja hvers vegna þetta sé svona. Læt þig vita. 
Bjarni Bjarnason

#912    Þegar ég fór að leita að áhugaverðum áfangastöðum fyrir sumarfríið rakst ég á spennandi fjögurra daga siglingu um Breiðafjörðinn með Sæferðum (sama fyrirtæki og rekur ferjuna Baldur). 4 dagar í siglingu, 3 nætur á Hótel Flatey, rúta til og frá Reykjavíkur og matur allan tímann. Ég hugsaði með mér að þetta væri ábyggilega svona 80-100,000 kall og fannst það svona á mörkunum en var til í að borga það. En nei, 168,000,- krónur plús 3,000 per nótt því ég er ein = 177,000,-. 
Ég fór að reikna: Með Hópferðamiðstöðinni kostar 1900+2500x2 fram og tilbaka = 8,800. Gisting með morgunmat á Hótel Flatey 3x13,700 = 41,100,-. Hádegis- og kvöldverður (Miðað við verðlista hópamatseðils Lækjarbrekku í Reykjavík) 2900+5900x4 dagar = 35,200. Samtals eru þetta: 8,800+41,100+35,200 = 85,100,-. 
Sem þýðir að Sæferðir taka 91,900 per mann fyrir siglinguna. Og hóparnir eiga að vera 15-25 manns. Ég veit ekki með ykkur, en mér finnst þetta vera okur. Ég ætla bara að sigla um á gúmbát í Þingvallavatni í sumar.
Sóley Guðmundsdóttir

#911    Þannig er að ég fór á útsölu hjá Zöru Kringlunni um helgina og þar var barnapils og nærbolur sem ég hafði keypt fyrir mánuði síðan komið á ÚTSÖLU og tek ég eftir að þetta var á sama verði og fyrir aðeins 3 vikum. Var búið að líma yfir með gulum miða sama verð, en guli miðin átti að þýða ÚTSALA.
Ég spurði afgreiðsludömuna hvort þessar vörur væru örugglega á ÚTSÖLU, hún játti því og sagði að allt með gulum miða væri á ÚTSÖLU. Þá spurði ég af hverju væri sama verð á vörunni  á ÚTSÖLU og svarið var „þetta er bara stundum svona“ sem var engan vegin fullnægjandi  svar fyrir mig. Ég bað um Verslunarstjórann sem fannst ekki í Kringlunni og bað því stúlkuna að koma þessari athugasemd til skila. Eftir á að hyggja leið mér eins búið væri að taka mig í Tópasinn.
Mitt slagorð til ykkar er þess vegna: Varið ykkur á ÚTSÖLUMIÐANUM því oft leynist flagð undir fögrum ÚTSÖLUMIÐA. 
Rannveig Hildur Kristinsdóttir

#910    Ég var í Bónus á laugardag og keypti þar tvö kíló af Kornax hveiti á kr. 125.  Svo þurfti ég í Nóatún þar sem Bónus átti ekki geitaostinn sem mig vantaði og þar var Kornax 2 kílóa hveitipoki á kr. 305!!! 
Guðrún Jónsdóttir 

#909    Þegar ég leit á kassastrimilinn frá Hagkaupum í Kringlunni sá ég að verð fjögurra AAA-rafhlaðna frá Duracell var hátt á áttunda hundrað króna. Ég fann fyrir óþægindum í endanum og fór morguninn eftir, skilaði rafhlöðunum og fékk innleggsnótu fyrir upphæðinni.
Seinna sama dag keypti ég nákvæmlega sömu vöru í Bónus, sem kostaði innan við fimmhundruð krónur!
Afgreiðslufólk í Hagkaupum í Kringlunni er sjaldséðara en í Bónus – svo mér nægir ekki skýringin um hærra þjónustustig!
Ég hvet fólk til að bera saman verð í þessum tveimur verslunum – sérstaklega m.t.t. að nái maður að króa af starfsmann í Hagkaupum, þá vinnur hún nær undantekningarlaust ekki við það sem mann vantar að vita og forðar sér á hlaupum.
Linda María Magnúsdóttir

#908    Maðurinn minn bað mig um að fara og kaupa handa sér hlaupaskó af gerðinni Asics-nimbus. Ég ákvað að fara bara beint í INTERSPORT sem eru auglýsa sig nú alltaf með ódýrustu íþróttavörurnar. Ég borga þar 18.900 kr fyrir skóna. Geng út og rosa ánægð með kaupin. Fer svo fyrir slysni inn í ÚTILÍF daginn eftir og sé þar sömu skó á 16.900 kr, og ekki nóg með að þeir eru 2.000 kr ódýrari, þá eru þeir líka á útsölu. Ég ekki sátt, skila skónum sem kostuðu 18.990 og borga 11.800 kr fyrir þá í Útilífi... 7.200 kr finnst mér vera mikill munur á nákvæmlega sömu vörunni.
Sólveig Karlsdóttir

#907    Ég versla bara í matinn í Bónus, auðvitað! Kaupi þar mikið af kjúklingabringum. Fyrir nokkru síðan byrjuðu þeir að selja Bónus bringur, sem koma líklega frá Holta og er pakkað fyrir Bónus. Kílóverðið á Bónus bringunum er 1990 kr, en kílóverðið á Holta bringum er 2990, munar 1000 krónum!! Bara því það stendur Bónus bringur á þeim.
Gott hjá Bónus að láta pakka svona fyrir sig, en það sem er verst að þessar B-bringur eru ekki mjög sýnilegar í kælinum. Holta bringurnar eru í augnhæð hinnar íslensku konu, 160-170 cm, en B-bringurnar eru yfirleitt í 180 cm hæð eða neðst niðri. 
Helga Margrét Gunnarsdóttir

#906    Þannig er að við maðurinn minn erum afskaplega elsk að góðu kaffi og finnst gott að setjast niður á kaffihús og fá okkur sopa þegar þannig stendur á. Oftast nær höfum við sest niður á Kaffitári í Kringlunni þegar við eigum þar leið framhjá en nú er svo komið að okkur gersamlega blöskrar verðlagið þarna. Fyrir skemmstu þá voru þeir að selja þarna mjög veglegar gulrótatertusneiðar. Ég þori nú ekki að fara með verðið nákvæmlega, en það var rétt um eða undir 500 krónum. Þessar sneiðar voru svo stórar að maðurinn minn, sem er nú samt ágætlega lystargóður, átti í vandræðum með að klára þær. Allt í lagi. En síðan breyttist matseðillinn hjá þeim nýlega og núna er hægt að fá gulrótarkökur þarna sem eru eins og muffins að stærð, svo sem ekkert stórmál nema vegna þess að þær kosta ennþá 500 kall! Það er svipuð saga með annað bakkelsi, sem dæmi er ein sneið af grænmetisböku seld þarna á 1200 kall! Hvaða rugl er þetta eiginlega?
Með þetta í huga þá ákváðum við að deila með okkur einni snickers tertusneið (minni en þær sem áður þekktust, en samt stærri en gulrótar"muffinsið"), ég fékk mér swiss mocca og hann cappuchino, dóttir okkar fékk mjólkurglas og kleinu. Ég var rukkuð um 1200 kall og fannst það alveg nóg. En nei, afgreiðslustúlkan gleymdi að slá inn kleinuna þannig að við borguðum 1400 kr. í heildina. Ég er ansi hrædd um að við verðum að leita okkur að nýju kaffihúsi til að heimsækja, þannig að ef einhver veit um kaffihús sem selur gott kaffi og með því á einhverju sem nálgast að vera eðlilegt verð, þá má viðkomandi láta vita því við erum alveg í vandræðum! Og í bakaríin þorir maður varla að stíga fæti inn fyrir lengur, sama hvað þau heita, þar sem maður kemst varla út aftur nema setja sig á hausinn - ég er farin að baka brauð og bakkelsi heima og tel mig hafa ágætt tímakaup við þá iðju miðað við þetta klikkaða verð sem er orðið normið í íslenskum bakaríum.
Hólmfríður Gestsdóttir
(nb. Ég segi það nú. Á hvaða kaffihús kemst maður án þess að fara að grenja yfir reikningnum?)

#905    Ég fór semsagt í búðarferð í gær til að kaupa nýja Sigurrósar diskinn. Byrjaði að kíkja í Hagkaup og þar fann ég hann á 1999 kr. Ég ákvað að kaupa hann þar því mér datt ekki í hug að ég fyndi hann eitthvað ódýrari annarsstaðar. Fór svo næst í Skífuna og þar kostaði hann 2499 kr!! :/ Var ánægð með að spara 500 kr! 
Nafnlaus
(ATH: Það er hægt að kaupa diskinn sem löglegt niðurhal í miklum gæðum (320 kbps) á 10 evrur á www.sigurros.com, eða sem svarar 1260 krónum (m.v. gengi evru 1. júl ´08). Það eru góð kaup því hulstrið á disknum sem þú kaupir út í búð er nánast bara pappaspjald (engin textabók eða slíkt, bara afskaplega takmarkaðar upplýsingar)

#904    Á fimmtudaginn s.l. (26. júní) rúlluðum ég og maðurinn minn inná ÓB
bensínstöð við Snorrabrautina til þess að taka bensín, auðvitað,
trúandi því að bensínverðið þar á lítra væri ódýrara en t.d. á N1
og/eða Olís en það er einmitt það sem forsvarsmenn ÓB halda fram, að
bensínið hjá þeim sé ódýrara en annars staðar. Líterinn kostaði 174,70
kr.- sem ég veitti nú svosum enga sérstaka eftirtekt enda þetta
blóðuga verð nokkurn veginn hætt að koma manni á óvart en ég gerði þó
ráð fyrir að það væri lægra en á áðurnefndum okur-bensínstöðvum. Eftir
þessa veskja tæmandi bensíferð keyrum við svo framhjá einni af N1
stöðvum bæjarins og er mér þá litið á skiltið hjá þeim sem auglýsir
bensínverðið og viti menn! Þar er líterinn af bensíni á 174,40 kr.-!!!
Ég veit að við erum bara að tala um 30 aura mismun en samt... Kommon!
ÓB segjast vera með ódýrara bensín og allir eru að pissa á sig yfir
verðinu hjá N1 og Olís. Það er þá hægt að bæta ÓB í þann kopp! Ég mæli
með Orkunni, þeir ljúga allavega ekki uppí opið geðið á neytendum.
Tinna Kirsuber Ævarsdóttir
(nb. Á GSM-Bensín geturðu fylgst með verðunum. Eins og sést er eiginlega enginn munur (samkeppni? samráð?). Svo er hægt að fá sér dælulykil, sem lækkar líterinn eitthvað smávegis.)

#903    Leikir í Playstation 2: JUMPER, Harry Potter, Golden Compass og Ratatouille kosta allir 4999 krónur per/stk í BT, þessir sömu leikir kosta 995 kr í ELKO!!!!!
Ef þú kaupir alla þessa leiki í BT er heildarverð: 19.996 en þeir kosta samtals 3980 kr í Elko
Mismunurinn er SVO MIKILL að þú getur keypt þér Playstation 2 leikjatölvuna og stýripinna fyrir mismuninn :D Þetta er OKUR!
Guðrún Ósk Sigurjónsdóttir

Okur #821 - 902 eru hér.

Veistu um svakalegt okur? Láttu vita!