OKUR! OKUR! OKUR!
Hér eru birt okurdæmi frá lesendum (og líka ábendingar um ekki okur). Komum út úr neytendamyrkrinu!
Láttu vita um okur
Athugið: Nú á að víkka hugmyndina með þessari síðu og færa hana inn á síður Fréttablaðsins, þar sem ég starfa hvort sem er. Það hefur þótt rugl að nota þetta ekki þar. Okursíðan heldur auðvitað áfram og verður pönk á meðan það sem kemur í Fbl verður aðeins meira popp, enda virðulegri miðill. Svo ef þú hefur eitthvað á móti því að bréfið þitt birtist hugsanlega líka í Fréttablaðinu, þar sem farið verður dýpra í málið og líklega með svari "okrarans", láttu þá vita. Nöfn sendanda munu fylgja með frá og með 902. færslunni, nema nafnleysis sé sérstaklega óskað.

(Sett inn 28.06.08):

#902    Ég er að styrkja fjögur bágstödd börn í gegnum SOS barnaþorpin og ABC barnahjálp og hef gert í nokkur ár. Og ég reyni að skrifa þeim öllum bréf reglulega og sendi yfirleitt eitthvað smotterí með sem kemst í umslag, t.d. límmiða. Fyrr á árinu keypti ég í góðan bunka af límmiðum á 95 kr. örkina. Í gær ákvað ég kaupa fleiri arkir þar sem bunkinn var farinn að minnka. Ég kom fyrst við í Hagkaup sá þá að nákvæmlega eins límmiðar og ég keypti fyrr á árinu á 95 kr. voru komnir upp í 245 kr.!! Ég tók þessu með stóískri ró og sagði við sjálfa mig að ég gæti nú bara sjálfri mér um kennt fyrir að hafa ætlað að versla í okurbúllunni Hagkaup. Ég fór því beinustu leið í Office 1 þar sem þeir eiga nú að heita ódýrastir. Þar sá ég sömu límmiðana og í Hagkaup á 235 kr.!!! Ég læt ekki vaða svona yfir mig og fór því út límmiðalaus. Börnin mín verða því miður bara að sætta sig við að fá enga límmiða með bréfunum frá mér á næstunni.
Sigríður Rósa Snorradóttir (Ég sá hérna neðar á síðunni að einhver var að kvarta yfir því að þessar færslur væru nafnlausar. Ég kvitta því glöð undir og vona að þú birtir það með.)

#901    Tannburstar!  Keypti nýja tannbursta í Bónus í gær, 249,- kr. pakki með 2 stk.  Var sátt við kaupin.  Þurfti svo að fara yfir í Hagkaup, sá þar alveg eins tannbursta 1stk í pakka á 349,-  þetta kalla ég OKUR!!!  Og svona fyrst ég er byrjuð, hef gaman af að gera verðkannanir. Keypti uppþvottavéladuft 2,5kg í Bónus á 689,-  Nákvæmlega sama tegund og jafnþung kostaði 1.089,- í Hagkaup.  Það borgar sig að kanna málið. (nb. Já og auðveldast er bara að versla frekar í Bónus en Hagkaup. Nema kannski þegar manni langar í ferska grænmeti og ávexti. Oft ekkert svakalegur ferskleiki í gangi í Bónus.)
(ATH: Nú veit ég ekki hvernig reynsla þín af grænmetis- og ávaxtakaupum í Bónus er, en ég er á því að grænmetið þar sé ferskara en í Hagkaupum vegna þess að stanslaus endurnýjun er í gangi, að minnsta kosti í stóru búðunum. Ég er fyrrverandi starfsmaður Bónus á Smáratorgi og ég veit að þangað kemur alltaf ný sending af grænmeti og ávöxtum á hverjum degi, svo ekki sé minnst á það að Hagkaup fá nákvæmlega sömu vörur og Bónus, eru bara með meira úrval. :-))

#900    Lenti í því um daginn að þurfta að skipta um ljósaperu á bílnum mínum. Ég á Toyotu Avensis með bláum ljósum reyndar og hélt að eitt stykki ljósapera myndi kosta á bilinu 7000-10000 kallinn en nei. Hún kostaði heilar 21000 krónur!!!!

#899    Fór í 10-11 og ætlaði að kaupa mér snarl með bíómynd. Það voru einkum tvær tegundir sem ég hafði hugsað mér að kaupa, sem voru Maarud Sprø Mix (200g) og venjulegar Maarud flögur með salti og pipar (175g). Engar verðmerkingar voru í snakkhillunni nema á poppinu sem var ódýrt og því þurfti ég að biðja þennan ósköp vinalega starfsmann verslunarinnar um að kanna verðið á þessu fyrir mér. Hugsaði nú strax að þetta gæti verið dýrt, en minnti nú að þetta væri alltaf rétt undir 400 kallinum. Svo þegar hann skannaði pokana inn þá hugsaði ég með mér að nú hefðu þeir hjá 10-11 toppað sig. Sprø mix kostaði 699 kr, og litli Maarud pokinn 599 kr. (nb. Ahh... 10/11, hvað væri Okursíðan án þín?!)

#898    Ég fór í Hagkaup um daginn til að kaupa mér þykkar bómullar sokkabuxur. Lengi vel hef ég keypt þær í Hagkaup og alltaf bölvað verðinu á þeim, en í þetta skipti keypti ég þær ekki og geri ALDREI aftur! Þær hafa hækkað úr 2990kr í 4190kr! Það gerið 1200 króna hækkun, sem er bara brjálæði!

#897    Þegar dóttir mín 11 ára fékk að skreppa út í 107 sjoppu við Nesveg, til að fá sér langþráðan ís, fékk hún svo lélega þjónustu að ég get ekki orða bundist. Hún keypti sér ís og gerði athugasemd við verðið, síðan greiddi hún fyrir og smakkaði ísinn var að hennar mati vondur, hún bað um endurgreiðslu. Svarið var að enginn hefði kvartað og að hún væri bara ósátt með verðið, væri bara að ljúga. í stað þess að leysa málið á staðnum og endurgreiða barninu var ausið yfir hana svívirðingum, orð eins og ,,fuck'' og fleiri vel valin orð. Hún hringdi grátandi í mig og spurði hvað hún ætti að gera. Ég kom eins fljótt og ég gat til hennar og talaði við konuna. En þá fékk ég sömu svívirðingum. En þá sagði hún að þetta væri bara af því að hún væri útlensk (eins og ég er sjálfur). Hún borgaði 370 kr fyrir ísinn sem kemur vonandi vel í framtíðinni hjá sjoppunni. Mér finnst þetta mjög léleg þjónusta og ég ætla aldrei að versla þarna aftur í framtíðinni! 

#896    Bettís, Urðarbraut/Borgarholtsbraut, Kópavogi
Lítill ís í brauði (án nokkurs annars)                Kr: 250
með dýfu                                                      Kr: 300
+ í vöffluformi                                               Kr: 350
Fór út áður en mér tókst að skoða verð á STÓRUM ÍS.

#895    Ferðir með Heimsferðum, t.d. til Mallorka, auglýst 2.-9.júlí „hræódýrt“. Þegar farið er inná „pöntun“ kemur í ljós að auk valkvæðrar forfallatryggingar og rútuferða er innheimt fyrir ELDSNEYTISGJALD, kr: 3.900 HVORA LEIР > 7.800. Þá stenst ekki lengur uppgefið verð. (nb. Ég sé ekki betur en gengisbreytingu upp á 17.8% sé líka smurt á verðið. Ég veit ekki hvað skal segja um þetta. Eru menn ekki bara að reyna að forða því að skíttapa á þessum bransa? Ekki kjöraðstæður í þessu núna.)

(Sett inn 26.06.08):

#894    Við hjónin fórum á útsölu hjá Polarn og pyret í Kringluni áðan og ætluðum að kaupa barnaföt á góðu verði. Þar er allt á 40% afslætti. Við hittum konu sem var í sömu erindagerðum. Við stóðum við sokkastandin og hún bendir okkur á að það sé búið að líma nýja verðmiða á alla sokka sem eru til sölu yfir þá eldri. Við kíktum undir nokkra verðmiða og gátum séð þann sem var undir. Þar sáum við að sokkar sem höfðu verið á 990 kr voru komnir með nýja verðmiða upp á kr 1.300 og síðan 40% afsláttur af nýja verðinu. Það er ekki 40% af eldra verð, heldur um 21%. Eins tókum við eftir því að það hafði verið klippt af öðrum merkimiðum á vöru í búðinni og komnir nýjir verðmiðar. Ég þarf vart að taka það fram að við gengum út án þess að kaupa það sem við vorum búin að taka til og vorum á leiðinni að kassanum með. Þetta er til skammar og eftir því sem ég best veit lögbrot, að verslanir beiti svona blekkingum.

#893    Ég fékk ný dekk undir jepplinginn minn í vikunni og þurfti að láta jafnvægisstilla þau. Því miður fór ég til næsta aðila, sem er N1 smur- og dekkjaverkstæðið á Ægisíðu. Jafnvægisstillingin kostaði nettar 5.890 krónur. Daginn eftir hóf ég leit að verkstæði, sem gæti hjólastillt bílinn en mér var ráðlagt að láta gera það og sem betur fer gera þeir ekki slíkt á N1 á Ægisíðu. Leið mín lá út á Granda en þangað hefur fyrirtækið Nesdekk flutt. Þar gat ég fengið að panta tíma í hjólastillingu og reynslunni ríkari spurði ég hvað það myndi kosta. Þar sem mér fannst verðið sanngjarnt datt mér í hug að spyrja um þeirra verð á jafnvægisstillingu og viti menn: verðið hjá þeim er 2.500kr!
Örg út í sjálfa mig ók ég heimleiðis og ákvað að koma við á N1 til að fullvissa mig um að þjónustan hefði ekki verið ranglega gjaldfærð og ég óvart látin borga of mikið. Ég hitti fyrir sama aðila sem afgreiddi mig daginn áður og hann staðfesti að ég hefði borgað rétt fyrir jafnvægisstillinguna, 5.890 krónur og það var með 654 króna afslætti. Þá stóðst ég ekki mátið að segja honum að Nesdekk tæki 2.500 krónur fyrir sömu þjónustu. Hann átti bágt með að trúa því og vildi hringja í Nesdekk meðan ég biði, sagði að þeir hefðu “alltaf verið á svipuðu verði og við”.  Þegar hann fékk samband vildi hann tala við yfirmann á staðnum en fékk svo staðfestingu á verðmuninum. Sagðist hann vera hissa á þessu lága verði hjá Nesdekkjum því meðan NN hefði unnið þar hefðu þeir alltaf talað sig saman um að vera á svipuðum nótum. Óhress með verðið hjá N1 en hress með frjálsa samkeppni og að Nesdekk snúi baki við samráði ók ég heim í veðurblíðunni og naut íslenska sumarsins í allri sinni dýrð.

#892    Ég fór í Boss búðina í Kringlunni til að kaupa jakkaföt á útsölu. Upp um alla veggi stóð að það væri 30% afsláttur. Þegar á kassann var komið þá kom í ljós að ég þurfti að borga 1.500 kr. fyrir að láta stytta buxurnar. Hef aldrei heyrt um eða lent í því að það sé ekki innifalið enda eru jakkaföt ekki fullkláruð fyrr en búið er að stytta. Sérstaklega þótti mér þetta furðulegt í svona búð sem á að vera með þeim skárri. Starfsmaður upplýsti að það væri alltaf borgað fyrir þetta á útsölu hjá þeim. Það þýðir að það er alls ekki 30% afsláttur heldur 27,8% afsláttur (í mínu tilviki). Það er sem sagt ekki bara verið að okra á manni heldur líka að villa um fyrir manni.

#891    Fór í áhaldaleigu BYKO í gær og leigði ryksugu. Skilaði henni inn rúmum sólarhring síðar og þurfti að borga fyrir þetta tæpar sjö þúsund krónur (einn ryksugupoki með). Þetta er ekki okur, þetta er hömlulaus græðgi. Vona að BAUHAUS verði með áhaldaleigu.

#890    Ég er ein af þeim sem finnst gott að hafa Tópas m/xyliton með í för ef ég er að ferðast. Það er alveg ótrúlegur munur á verði á einum pakka. Í Shell Borganesi kostar pakkinn 210 kr, Í Byko á Akureyri kostar hann 228 kr. Í kaupfélaginu í Reynihlíð (Mývatni) kostar hann 228 kr. Bónus Egilsstöðum 98 kr. Nóatún Selfossi 158 kr. En svo var hægt að fá 2 saman í Nettó á Akureyri á 119 ( stóð á hillu, gæti verið vitlaust verð ) og í Kassanum, Ólafsvík, kostuðu 2 pakkar saman 279 kr. Þessir aðilar græða vel á að kaupa pakka í Bónus og selja svo. 

#889    Verslaði í Hagkaup á Akureyri Oroblu "tátiljusokka" á heilar 1.299 kr. Fannst það svona heldur dýrt, en hugsaði svona er dýrtíðin. Átti leið í apótekið Lyf og heilsa og þar fengust alveg eins sokkar á aðeins 652 kr. Sem sagt helmingi ódýrari. Hvernig má það vera að sama varan sé helmingi dýrari í tveimur verslunum og það í sama bæjarfélagi? Ekki er þá hægt að kenna um flutningskostnaði.  Alla vega verður þessum dýru Hagkaupssokkum skilað og eitthvað keypt í staðinn sem hugsanlega er stöðluðu verði - kannski bara oststykki? 

#888    Sjoppan gegnt Melaskólanum við Furumel okrar á gosdrykkjum.  Þar kostar 1/2 Ltr af Sítrónutopp heilar 200 krónur. Víða í verslunum er þetta verð á 130-170 krónur en 200 krónur hef ég hvergi séð annars staðar. Þetta lítur út einsog okurleti þar sem verðið er einfaldlega hækkað uppí næsta hundraðið.

#887    Svívirðilegt okur! Bláa lónið er sennilega mesta okurfyrirtæki á landinu. Það er lesning hér á síðunni um hátt verð í einkarekinni sundlaug í Úthlíð sem eru hreinir smámunir hjá glæpastarfseminni í Bláa lóninu. Það kostar 2300 – TVÖÞÚSUNDOGÞRJÚHUNDRUÐ KRÓNUR – að fara í Bláa lónið! Þetta er ekki misritun, það kostar 2300 krónur að fara í Bláa lónið. Og ef maður gleymir handklæði heima er leigan 450 krónur fyrir handklæðið. Mér er alveg sama um allt kjaftæði um fjárfestingar og rekstrarkostnað. Þetta er okur á heimsmælikvarða! Og þarna er farið með erlenda gesti og þeir féflettir eins og hægt er áður en þeir komast lengra inn í landið. Ég segi það einu sinni enn: það kostar 2300 krónur að fara ofan í Bláa lónið! (nb. Bláa lónið hefur margsinnis komið hér fyrir áður, enda auðvitað svívirða að heimta 2300 fyrir sund. Ég fer líka undantekningalaust með mína túrista í Árbæjarlaugina þótt þeir vilji endilega í Lónið. Það hefur kynnt sig mjög vel og það þykir möst að fara þangað í Íslandsferð. Fer aldrei aftur í Lónið. Þannig er það nú bara, enda svo sem ágætt. Maður er alla vikuna að ná kísilslikjunni af sér.)
(ATH: Við hjónin fórum í Jarðböðin í Mývatnssveit í síðustu viku og þar kostaði kr. 1.400 inn (á mann). Allt annað verð fyrir mjög svipaða þjónustu. Ef túristar ferðast um landið þá ættum við að benda þeim á að sleppa Bláa Lóninu og fara frekar þangað. Snyrtilegur og flottur staður. Ég bý sjálf í Reykjanesbæ.) (nb. 1400 fyrir sund er nú ágætis verð svo sem...)

#886    Fór í 10/11 í Lágmúla. Keypti þar 1 L af Brazza. Á hillunni voru tvö verð á þessari tilteknu tegund af Brazza, annars vegar 180 kr. hinsvegar 189 kr. Þegar á kassann var komið tilkynnti stúlkan að fernan kostaði 199 kr. NEI!!! Stúlkan samþykkti að ég greiddi 180 kr. fyrir fernuna en sagði mér í óspurðum fréttum að það hefði verið "takki" til að breyta verði á kassanum en nú væri búið að taka hann svo hún varð bara að setja inn að ég hefði greitt fullt verð og láta 19 kr. vanta í kassann. BULL BULL og vitleysa. Eins gott að fylgjast með verðmerkingum. (nb. Enn betra að versla ekki í 10/11.)

#885    Ég bókaði flug um daginn fyrir tvo til og frá Eyjum með Flugfélagi Vestmannaeyja yfir verslunarmannahelgi. Á venjulegum degi hefði slíkt kostað 10 þúsund krónur en nákvæmlega þessa helgi er prísinn kominn í 19.800 krónur takk fyrir. 

#884    Dæmisaga: Tónik-okur! Leynt eða ljóst? Maður fer út í búð og ætlar að fá sér tvo lítra af ákveðnum gosdrykk. Ætti ég þar að standa frammi fyrir tveimur kostum. 2ja lítra flösku annars vegar og/eða 4x1/2 líters flöskur hinsvegar. Tveir lítrar í sama ílátinu kostar 289 krónur. Fjórar hálfs-lítra flöskur kosta (4x189) 756 krónur. Á þessum kostum er gríðarlegur verðmunur, eða 467 kr., fyrir sama magn af gosdrykk. 
Hér kemur svo point-ið: SUMAR 10/11 verslanir vanda sig viljandi við það að eiga aldrei/sjaldan/mjög lítið af 2ja lítra Tónik flöskum í kælum/hillum sínum, en hálfs-líterinn alltaf í massavís! Og það er gjörsamlega óviðunandi. Hvað á þetta eiginlega að þýða ? Þú ert búinn að ákveða að fá þér ilmandi bláan Bombay, og þú ÞARFT þitt tónik, fjandinn hafi það. Þú kippir þessum fjórum 1/2s líters, og lætur okurbraskarana ræna þig um tæplega fimm hundruð kall í hvert sinn. Og hvað gerir maður? Ekkert, það er það sem maður gerir.
Svo eru sumar (bensínstöðvar) sem einfaldlega bjóða einungis upp á 1/2s líters tónik! Hver kaupir bara hálfan lítra af tónik? Hver mætir í partý með BARA hálfan líter af Tónik? 

#883    Það hefur einn aðili alveg sloppið við þessa umræðu um okur, og  það er alveg undarlegt. Þetta er einhverskonar veitingarhús í lækjargötu sem heitir Jómfrúin. Annað eins okur og dónaskap hef ég aldrei  á minni ævi séð. Skaust með tvo Dani með mér í síðust viku, þeir héldu að þetta væri bara grín. Skammturinn á mann tvær brausneiðar og öl rúmar 4000 kr per mann. Þetta er engu öðru líkt, ég hringdi í hverfisbakaríið mitt og þar var mér gefið upp að 40 sneiða rúgbrauð kostaði 990 kr sem gerir 24,75 kr per brauðsneið. Hvar liggur þessi gígatíski munur milli 25 kr og 2390 kr einsog dýrasta sneiðin kostar á Jómfrúnni? (nb. Álegg?)
(ATH: Í athugasemd #883  finnst skrifara Jómfrúin okra, þegar öl og tvö smörrebrauð kosta rúmlega 4.000. Gerður er samanburður við sneitt rúgbrauð í hverfisbakaríi.
Ekki má gleyma að um er að ræða veitingahús, og kannski er fátt eins mikil handavinna en að smyrja brauð að dönskum sið. Kannski mætti frekar miða við verksmiðjuframleidda Sóma/Júmbó samloku með kjötsneið og majones-salati við rúgbrauðið.
Ég heimsótti Idu Davidsen í Kaupmannahöfn um daginn. Fékk mér tvær sneiðar að fallegu brauði og öl með.  Á eftir fylgdi svo glas með rauðgraut með rjóma.
Eignkonan fékk sér skreytt brauð og rauðvín. Reikningurinn hjá Idu var samtals 495 DKK sem gerði 8.215 ISK þegar það náði inn á Mastercard reikninginn. Ef Danirnir hafa dregið upp danskar krónur á Jómfrúnni og ekki verið snuðaðir um gengi hafa þeir fengið Jómfrúarbrauðið á sambærilegu verði og IDA selur sitt á. Ég sá ekkert í athugasemd #883 um hvað dónaskapurinn snerist.)

(Sett inn 25.06.08):

#882    Var að leita að gistingu úti á landi fyrir helgardvöl í júlí. Var búinn að skoða ýmsa kosti í kringum Dalvík en allt fullt nema á Fosshótelinu á Dalvík. Á þessu hóteli sem telst vera 3 stjörnu hótel kostar nóttin í tveggja manna herbergi (með baði – hótelið býður nefnilega upp á berbergi án baðherbergis og kosta þau 9.900kr fyrir tveggja manna) 20.900kr!!! Ótrúlegt að geta fengið 3 stjörnu klassann þegar herbergi án baðs eru í boði. 
Á Hótel Sögu í Reykjavík kostar herbergið 20.000kr nóttin og á Nordica (Hilton) kostar nóttin 24.000. Bæði þessi hótel eru 4 stjörnu (og öll herbergin með baðherbergi). Ég fer að hugsa um fréttina í fréttablaðinu um daginn þar sem dæmigerð helgarferð túrista hér á landi er tekin fyrir. Helgin fyrir tvo kostaði rúm 300þús og eins og sagði í fréttinni að þá er þetta ekkert sem þessi ímynduðu hjón sáu eftir – þau koma bara aldrei aftur!  Ég á eiginlega bara ekki orð yfir þetta verð á Fosshótel Dalvík og langar mig að sleppa því að nota öll þau lýsingarorð sem koma upp í hugann og segja bara að þetta er hreint og beint OKUR!!! (nb. Mín reynsla af íslenskum hótelum er að maður fái sirka fyrir sama verð sígerettubrunninn menntaskólabedda á Neskaupsstað og glæsiherbergi í París eða New York. Þó eru glæsilegar undantekningar á þessu og sumt er það gott að maður tímir því svo sem alveg í eina nótt eða svo, t.d. Hótel Búðir (21.500 2 manna), eða Hótel Aldan (17.800 2. manna) / Hótel Snæfell (14.800 2 manna)  á Seyðisfirði.)

#881    Var að koma frá Mývatni og lenti þar í svakalegu okri. Fórum að fá okkar að borða á stað sem heitir Gamli bær, sem er við hliðina á Hótel Reynihlíð. Dóttir mín 7ára vildi fá sér þar Lasagna sem var víst réttur dagsins, bað ég um að fá hálfan skammt fyrir hana, en það var ekki inní myndinni. Var okkur sagt hér væri engin barna-matseðill, þannig það var keyptur heill skammtur af Lasagnu handa barninu og kostaði hann ekki nema 1800kallinn, okur! Lítil kók lagði sig á 330 kallinn. Ég hélt að ég væri vanur okri, þar sem ég er Íslendingur, en þetta gekk alveg fram af manni.

#880    Var á ferðinni í dag og var á hraðferð eins og annar hver íslendingur er svo ég vippaði mér inn á N1 stöð og fékk mér eina pylsu með kartöflusalati sem varla sást eða varð var við því það var svo lítið og ein lítil kók í gleri (19 cl) og hvað haldið þið að ég hefði mátt greiða fyrir þennan "þjóðarrétt"? 445-kr. Þetta er ekki í lagi en það kostar auðvitað að reka þessar bóngljáðu bensínhallir sem maður fer helst ekki á skítugum skónum inn á!

#879    Mig langar til að koma því á framfæri að þeir hjá Aktu taktu hafa boðið barnaís á 50 kr sl. sumur en hafa nú hækkað hann upp í 100 kr. sem þýðir 100% hækkun. Það þykir mér gríðar mikil hækkun og spyr mig að því hvort kostnaðurinn hafi farið svona upp úr öllu valdi eða hvernig standi annars á þessu? Eitt er þó víst en það er að 100% hækkun hlýtur alltaf að teljast okur.

#878    Fór í Húsasmiðjuna í Skútuvogi og keypti mér eina skúffukökusneið sem stóð næstum í mér þegar ég borgaði 350 krónur. Þvílíkt rán.

#877    Ég sá auglýst í Fréttablaðinu þann 20. júní á bls. 33, heilsíðu auglýsingu frá tölvuversluninni Att - "Erum og verðum ALLTAF ÓDÝRARI". Jæja þarna er loksins komin einhver ódýr verslun þar sem ég get keypt mér fartölvu, í auglýsingunni var ein á 104.950 sem mér leist bara vel á. Dreif mig á staðinn en legg bílnum beint fyrir framan aðra tölvuverslun í sama húsi sem heitir Start og í forvitni minni ákvað að skoða þar fyrst og sjá okurverðin þar! Viti menn er ekki bara nákvæmlega sama fartölva sem Att auglýsti á 79.900 (Halló 25.000 ódýrari)!!!!
Ég keypti þessa tölvu hjá Start og er rosa sátt, fín þjónusta og flott verð. Eftir að hafa talað við tölvunörd þá fékk ég að vita að Att er í eigu Tölvulistans og beitir sömu auglýsingabrellum og þeir. Það á að banna þessar fullyrðingar í auglýsingum.

#876    Ég fór á skröltið með vinkonum mínum um helgina og þar sem ég er ólétt var ég ekki að sötra bjór og létt vín eins og vanalega, heldur svolgraði í mig sódavatni. Glasið af sódavatni kostar 350.- kr á Brons og 300 kr. á Einar Ben. í bæði skiptin var þetta vélar-sódavatn og glasið var meðal stórt ca eins og lítill bjór. Samkvæmt okkar útreikningum er lítraverð af sódavatni á barnum ca 900.-kr. Nett okur!

#875    Ég skrapp í Hyrnuna í Borgarnesi þann 14.06.08. og keypti meðal annars Tilda Basmatik 500 gr. hrísgrjónapakka, sem kostaði 479,- kr. Í dag skrapp ég síðan í Bónus Akranesi og keypti samskonar pakka á 158,- Pakkinn í Hyrnunni er sem sagt á við rúma þrjá í Bónus. ( 158 x 3 = 474). Þetta finnst mér jaðra við ofbeldi ef ekki eitthvað enn verra.

#874    Fór á veitingastaðinn Red Chili í Pósthússtræti, keypti nánast óæta kjúklingasamloku á 1590 kr. og Pilsner í dós á 650 kr.!!!!!  Ég hefði betur lesið matseðilinn almennilega!

#873    Ég keypti lítið plastútihús sem hægt er að hafa úti í garði fyrir börn í Ikea í byrjun maí húsið kostaði 9995,-. Sá svo nákvæmlega sama húsið til sölu í Hagkaup í síðustu viku á 22,999,-. Þetta finnst mér hreint og klárt okur.

#872    Ég flúði okrið á Íslandi fyrir tveimur árum og var bara að frétta af þessari síðu þinni fyrst í dag.  Mér finnst þetta alveg frábært framtak og datt í hug að benda þér á bloggfærslu sem ég skrifaði um okurvexti og verðbætur fyrir nokkru síðan. http:/heidah.blog.is/blog/heidah/entry/329703/

(Sett inn 23.06.08):

#871    þeir voru flottir á því í Bónus Akureyri um helgina. Special K var uppstillt við frystana 500g pakki á kr. 369 stk. (738 kr/kg) eins og á "tilboði" (má vera að það hafi ekki staðið "tilboð") en í hillunni við hliðina var 750g pakki á kr. 389 (519 kr/kg). Eins gott að maður grípi ekki alltaf það sem er stillt upp áberandi fyrir augunum á manni. Þetta var verðmunur upp á 219 kr/kg eða 42% fyrir sitthvora pakkninguna!! 

#870    Fór í  Sandholtbakarí á Laugavegi að kaupa sætabrauð og meðþví. Lét vera að kaupa einn lítra af appelsínusafa frá Sól, þar sem hann kostar þar 405 kr! Frekar drekk ég bensín á 173 kr. lítrann.

#869    Talandi um verðmun. Fyrir viku síðan (15.06..sl.) hnaut ég um eðal drykk í Bónus á Völlunum í Hafnarfirði- og keypti. Hann heitir FROOSH og er blanda af hreinum ávaxtasafa. Líterinn kostaði kr. 459,- og þótti dýrt. Í dag keypti ég svo sama drykkinn í verslun 11-11 í Staðarbergi og þar kostaði sami drykkur og í sama magni kr. 579,- Takk fyrir  - 26% munur og kílómeters loftlína milli staða. Okur? (nb. Frjáls álagning?)

#868    Snælandsvideo Reykjavíkurvegi í Hafnarfirði: Keypti mér hálfan lítra af ís í gærkvöldi, ekki nóg með að ísinn hafi verið yfirverðlagður heldur kostaði lítið box af súkkulaðisósu 180 kr. Hafið þið heyrt annað eins???

#867    Ég er ein af þeim greinilega mjög fáum íslendingum sem eru með mikið mjólkursykuróþol. af þeim sökum þarf ég að kaupa rándýra gerfimjólk, svona hrísgrjónasull, sem kostar í bónus um 260 krónur líterinn (sem er nú okur sjálf), þar sem mjólkursamsalan sér sig ekki fært um að framleiða mjólkursykurslausa mjólk eins og fæst í öllum öðrum evrópulöndum (á svipuðu verði og nýmjólk). eina "mjólk" sem get drukkið hér er sykurskert kókómjólk, sem fæst því miður bara öðru hverju í bónus. svo um daginn fór ég í kjarval á hvolsvelli og keypti þar eitt sixpack af kókómjólk, sem eg er vön að borga um 350 - 400 krónur. þegar ég skoðaði strimilinn fyrir utan búðina blöskraði mér 615 krónur! sem gerir 102,5 krónur á 2,5 dl fernu eða 410 krónur á líter. ég fór inn aftur að kvarta og fékk því breytt í 6 stakar fernur á 89 krónur og fékk 81 krónur til baka. skóðaði svo verðið núna um helgina og jú sixpack kostar enn 615 krónur! þetta finnst mér okur!

#866    Í kvöld brá mér heldur betur í brún þegar ég áttaði mig á því að plúskortið mitt var tómt, þannig er mál með vexti að ég notaði á árum áður kreditkort fremur óhóflega og safnaði neysluskuldum eins og margir Íslendingar. Fyrir sléttu ári síðan skipti ég um bankaviðskipti frá Kaupþing til Landsbankans af því að þeim hjá Landsbankanum tókst að sannfæra mig um betri kjör sem ég átti að fá ef ég kæmi yfir til þeirra. Ég ákvað í leiðinni að segja upp gamla kreditkortinu mínu og fá mér svokallað plúskort sem er eins konar fyrirframgreitt kreditkort, ég nota það til að kaupa mér drasl á ebay og fleira. 
Nema hvað fyrir nokkrum dögum setti ég 10.000 krónur inná kortið sem ég ætlaði að nota til þess að kaupa mér eitthvað á internetinu. Nema hvað, þegar ég skoða í heimabankanum yfirlitið eru nákvæmlega 1428 krónur á kortinu, og hvað heldurðu að Eurocard hafi gert, jújú þeir rukkuðu mig 9500 kall fyrir notkun á kortinu næsta árið. 9500!!!!! 
Ég fékk kortið fyrsta árið án endurgjalds og bjóst við því að þurfa kannski að borga 3500-4000 krónur fyrir það. Nei vinur minn, það var meira en tvöfalt það, takk fyrir. Ebay bless bless, því á morgun ætla ég að segja kortinu upp og segja skilið við kreditkortin fyrir fullt og allt.

#865    Ég keypti íslenskar agúrkur í Kjarval á Hvolsvelli (ég bý þar). Verðið er kr 219 stk, var kr 149. Semsagt 70 kr hækkun, þetta kallar maður nú ekta glæpamennsku eða hvað finnst þér? 

#864    Færsla #727, þar sem ég hældi brönsj Konditorís við Suðurlandsbraut er "dauð
og ómerk" - ekki er lengur hægt að fá brönsj, bara einhver rándýr vesæl
rúnnstykki, samlokur, o.fl., á OKUR-prís. Týpískt að hætta með það eina góða
sem hægt var að segja um þennan stað!

(Sett inn 21.06.08):

#863    Snæland Video á Reykjarvíkurvegi í Hafnarfirði. Fyrir ca mánuði kostaði lítill bragðarefur 450 krónur (sem er nógu dýrt). Ég fór og ætlaði að kaupa bragðaref í gær og þá var búið að hækka verðið upp í 550 krónur! 22% hækkun ! Ótrúleg hækkun! Hættur að versla við þessa búllu.

#862    Mig langar til að útskýra fyrir þér og neytendum hvað er að gerast í þessum bakarabransa. Í ár tóku aðeins 3 bakarar sveinspróf en þegar ég tók sveinspróf 1996 vorum við 16 á ári að meðaltali. Þetta er helsta ástæðan fyrir því að mörg bakarí eru farin að kaupa innflutta vöru, því það er enga bakara að hafa, nýliðun er nánast engin í þessari stétt. Þessi stóru bakarí einsog Bakarameistarinn, Kornið og Myllan eru öll með risa stóra frystiklefa og laga flest alla vöru, brauð og bakelsi inn í þessa klefa í dagvinnu. Síðan er þetta sett í svokallaða frystihefskápa sem eru tölvustýrðir skápar sem frysta, kæla, hefa vöruna og hálftíma áður en bakararnir mæta kveikir tölvan á ofnunum. Síðan koma einn til tveir bakarar og baka þetta á nóttinni kl. ca 4:00. Ef þessarar tækni nyti ekki við yrði líklegast allur mannskapurinn að koma kl 10:00 á kvöldin. Vara sem er löguð og sett í frost hefur geymsluþol í 7-14 daga, það veltur svolítið á gerð klefans og frágangi á vörunni. Það er mikill misskilningur að vara sem er löguð á þennan hátt sé eitthvað verri en önnur, t.d. ekkert verri en frosinn fiskur. Það hefur verið gríðarlegt áreyti frá heildsölum við að bjóða bökurum þessa frosnu vöru, sem vekur aftur á móti upp spurningar hvað þeir eru að hafa upp úr þessu. Stærsta bakarí í Evrópu er Vandemoortele í Belgíu og framleiða þeir á einni klukkustund árs notkun allra Íslendinga á brauði og bakelsi (Myllan og Ísam eru að flytja inn frá þeim). Það eru eiginlega allar sömu heildsölurnar og eru að selja okkur hveiti og önnur hráefni sem eru að bjóða þessa frostnu vöru. Þó svo að maður myndi vilja berjast gegn þessum innflutningi þá er það varla hægt, það er eiginlega enginn heildverlun sem ekki er að flytja eitthvað inn. Þessar vörur eru líka farnar að skjóta upp kollinum í fleiri greinum en bara bakstrinum, t.d. á veitingahúsunum. Ég sendi þér hér slóðir á helstu byrgja veitingamanna og bakara svo þú getir með eigin augum séð hvað er í raun að gerst. Á flestum veitingahúsum í bænum eru öll brauð, eftirréttir, ís og alskyns önnur matvara innflutt. Ég skora á þig að skoða þessar slóðir sem ég sendi á þig og þú munt verð hissa, því þú hefur örugglega séð margt af þessu á diskinum þínum þegar þú ferð út að borða. .
www.vandemoortele.com
www.garri.is
www.danco.is
www.sd.is
www.dreifing.is
www.isam.is
www.ekran.is

#861    Fimm pylsubrauð í pakka frá Hornabrauð bakaríi á Höfn kosta kr. 200 á meðan sama stærð af pakka með alveg eins pylsubrauðum frá Myllunni kostar kr. 87. Selt úr sömu hillu í Nettó á Höfn. Klárlega okur! (nb. Ekkert endilega. Ég geri ráð fyrir að Hornabrauð sé með eðal handgerð pulsubrauð. Svo styrkir maður væntanlega iðnað í héraði með því að kaupa þau á meðan Myllan er verksmiðja.)

#860    Það er búið að hamra á því endalaust, að Krónan og Bónus séu ódýrastar, en svo er ekki alltaf. Upp á síðkastið hef ég keypt blandaða ávexti í vatni. Eins og margir þá hélt ég að hið sjúklega verð Krónunnar væri það ódýrasta eða 275 kr. Um daginn þá stökk ég inn í Fjarðarkaup til að versla fisk (hann er ódýrari þar heldur en hjá fisksölum og munar 200 kr. á kílóinu) og kíki í leiðinni hvað dósin kostar hjá þeim. Þessi sama dós kostar þar 188 kr.!!

#859    Talandi um okur! Ég er kvk og árið 2003 uppgötvaði ég alveg frábæran maskara, loksins markari sem ég fíla. Hann kostaði 1490 sem þótti frekar dýrt, en hann var svo góður að ég hélt áfram að kaupa hann þó gallinn við hann sé að hann dugi í mánuð því þá eru gæðin farin og hann farin að klessast. Svo gerðist það að verðið stökk uppí 1930 kr, okei ég hélt samt áfram að kaupa hann, svo fór hann í 2490, og muniði, ég kaupi hann á sirka mánaðarfresti. Ég fór í búð núna í júníbyrjun og vá hann kostar núna 3300. Mér finnst þetta fáránlegt. Maskarinn umræddi heitir maskara volume effet, luxurious maskara og er frá Yves Saint Laurant og ég hef keypt hann í Hygea í kringlu/smáralind. Því ég hef komist að því að þar er hann ódýrastur, en hvað ætli hann kosti í snyrtivörubúðum út á landi? Allt í kringum okkur er að hækka, hvort sem það er euroshopperbómull sem var á um 80 kr og kostar núna um 150 eða matvara. Og ekki hækka blessuð launin..

(Sett inn 20.06.08):

#858    Ég er nýorðin jeppakarl og stoltur af því. Jeppar bila nokkuð meira en aðrir og gerði ég ráð fyrir því. Jeppinn er Toyota Landcruiser 2001 módel.
Ég fann titring í bílnum og fór strax með bílinn í bilanagreiningu hjá Toyota. Þar var mér vel tekið og bíllinn greindur með ónýtan hjörulið að aftan sem oft gerist víst og stykkið átti að kosta 10.000 kr og viðgerð um 15.000 kr.
Ég þótti mig sleppa vel en ákvað að fara heim og ráðfæra mig við bifvélavirkja sem ég þekkti. Hann benti mér á að fara í Fálkann og kaupa hjöruliðinn þar og koma svo til sín og hann myndi skipta um þetta fyrir mig fyrir 8000 kr.
Þetta þótti mér ansi vel boðið og þáði það og hélt af stað í Fálkann daginn eftir. Þeir hjá Fálkanum tóku mér vel réttu mér hjöruliðinn og báðu um 2.428 kr!. Ég hélt að þeir hefðu gert mistök þar sem TOYOTA hafði áður verðlagt sama hlut fyrir 10.000 kr.
NEI. Alls ekki . Þessi ákveðni hjöruliður var búin að vera sá sami frá því Cruiserinn kom fyrst á götur og hafði ekkert breyst en TOYOTA umboðið var bara svona miklu, miklu, miklu,miklu DÝRARA. Ég hefði skilið 5000 kr en 10.000 fyrir eitthvað sem Fálkinn tók 2.428 kr fyrir þótti mér heldur stór munur. Þjónustan hjá Fálkanum var til fyrirmyndar og eiga þeir þakkir skildar fyrir gott verð. Bíllinn er betri og viðgerður fyrir sléttar 10.428 kr og svo fengu 4 bjórdósir að fylgja með í kaupbæti til viðgerðarmannsins fyrir snör handtök.

#857    Keypti fyrir "slysni" Smergel-Sandpappír (kornastærð 80) í Húsasmiðjuni. Þar kostaði Örkin 349 Krónur. Rakst síðan á samskonar Smergel-Sandpappír í Múrbúðini. Þar kostar Örkin 70 Krónur. Verðið í Húsasmiðjuni er fimmfalt, þetta kalla ég Okur!

#856    Ég er bara svo gapandi hissa að það hálfa væri sko yfirdrifið nóg!!! Ég var að vesenast í heimabankanum mínum og rekst þar á reikning frá Avant, en ég er með bílalán hjá þeim. Ég skyldi ekki í upphæðinni, því hún var lægri en lánið er og gjalddagi og eindagi var 1 júlí en á láninu er hann annar.
Ég hringdi og spurðist fyrir um hvað þetta væri og er tilkynnt að þetta séu bifreiðagjöldin. Ég hringi þá í ríkisskattstjóra og krefst skýringa, því ég á að vera með niðurfellingu á bifreiðagjöldunum. 
Þar hitti ég á almennilega konu sem útskýrir þetta fyrir mér. Niðurfellingin mín er í fullkomnu lagi og enn í gildi. Enginn seðill ætti að berast mér. Ég spyr hana þá út í þetta skrítna mál. Upphæðin á þessum reikningi í heimabankanum hjá mér er 18.492.- en bifreiðagjöldin sjálf eru ekki nema 14.566.- Hún skyldi ekki af hverju upphæðin væri önnur en gjöldin ættu að vera. Og annað sem hún benti líka á var að rsk sendir út bifreiðagjalda reikninga í byrjun júlí sem eru með eindaga 15 ágúst. 
Ég hringi aftur í Avant og fæ þar samband við konu og spyr hana út í þennan reikning. Hún segir mér að í þessum 18.492.- krónum sé bifreiðagjaldið, seðilgjald og umsýslugjald upp á rúmar 3000 krónur. Ég spyr hana þá hvað þetta umsýslugjald sé. Það er þá gjaldið sem Avant tekur fyrir að rukka okkur um bifreiðagjöldin í staðinn fyrir að fá reikning beint frá rsk !!!!!!! 
Fyrir mig skiptir þetta svo sem ekki máli þar sem niðurfellingin mín er í lagi og ég þarf ekki að borga þetta. 
En mér er spurn. Veit fólk almennt hvað það er að borga fyrir ???
Mér finnst alger glæpur að rukka rúmar 3000 krónur fyrir að vera milligöngumaður á að innheimta annan reikning sem auðvitað væri réttast að við fengjum beint frá þeim sem upphaflega rukkar !!!!! Hvar annars staðar liggja fleiri svona gjöld sem við þegjandi borgum og höfum ekki hugmynd um hvað það er sem við erum að borga ??? Ég er alla vega alveg bit á þessu og er bara hreint hneyksluð !!!

#855    Ég á Prixma ip4500 mjög góðan prentara .Um daginn fór og komst að þvi að blekhylki í Office 1 kostaði 1995 og þar sem að mig vantaði 4.stk svart, gult, blátt og rautt var verðið tæpar 8000 krónur. Í ELKO kosta sömu 4 hylki tæpar 6000 krónur. Ég keypti þau að sjálfsögðu í ELKO.

#854    Langar að benda á að Valgeirsbakarí í Njarðvík er tvímælalaust lang-ódýrasta bakaríið á Suðurnesjum og þótt víða væri leitað. Snúður og kókmjólk kostar t.d. 200.- kr. 

(Sett inn 18.06.08):

#853    Keypti snemma í vor æfingatæki (fjölþjálfi/crosstrainer) í Markinu, Ármúla.
Tækið, sem er af viðurkenndri tegund (Kettler Verso 307) var á tilboði hjá þeim.
Fékk tækið á tæpan fimmtíuþúsund kall. Verð sem er mjög sambærilegt við það
sem tækið hefði kostað mig ef ég hefði pantað það úr erlendri vefverslun.
Þegar ég hafði sett tækið saman kom í ljós að púlsskynjarinn var ekki að virka.
Þeir hjá Markinu mættu þá bara strax á staðinn, ekki með varahlut eða til að
gera við, heldur með nýtt tæki. Skiptu því bara út - ekkert mál, málið leyst.
Nú, 3-4 mánuðum síðar, þá gefur sig stöng í tækinu. Sennilega einhver galli.
Ég bjóst við allskonar stappi við að fá í gegn ábyrgð... en nei, ég fékk val um
að fá menn frá Markinu til mín að laga tækið eða koma bara með ónýta stykkið
og fá nýtt í staðinn, sem ég og gerði. Ekkert mál, málið leyst.
Þetta kalla ég góða þjónustu. - Prik fyrir Markið Ármúla

#852    Ég keypti kerrulás í N1 á 2750 kr. Mjög svipaður kerrulás kostar 8750 kr í Stillingu (algert okur!)

#851    Einn tvöfaldur expressó á Rossopomodoro kostar kr. 780! Okur!

#850    Kattarsandur í Bónus á rúmlega 500 kr., sami (nákvæmlega sami) kattarsandur í Dýraríki rúmlega 1.600 kr., þetta er rúmlega 200% verðmunur!!!!

#849    Við hjónin vorum á Súðavík um helgina og maðurinn minn keypti 500g af Maxwell House kaffi í búðinni á staðnum og borgaði fyrir hann kr.790.

(Sett inn 17.06.08):

#848   Ég keypti íslenska fánann í Bónus þann 14.júní á 89.- krónur (stór þunnur taufáni).
Rakst svo á íslenska fánann í Máli og menningu þann 16.júní (lítill þykkur taufáni) á 595.- krónur (!). Fjögurra ára syni mínum leyst mun betur á að veifa þeim stóra á 17.júní…

#847    Talandi um Okur, við fjölskyldan dvöldum á tjaldstæðinu í Úthlíð og skemmtum okkur vel í sól og sumaryl. Síðan var ákveðið að fara í sund í sundlauginni í Úthlíð, og þá gerðist það: rán um hábjartan dag! Þar kostar 450 kr. fyrir fullorðinn (ok, gott og vel við vorum í sveitinni) og 250 kr fyrir börn. En börn eru, eins og við vitum öll, talin vera slík frá því þau fæðast og þannig er það líka í Úthlíð. Þar kostar 250 kr. fyrir 5 mánaða jafnt sem fyrir 16 ára. En síðan eru ekki einu sinni bekkir í klefanum eða stóll til að segjast á og ekki hægt að leggja barnið frá sér. Reyndar var skiptiborð inni á klósettinu (sem ég sá seinna þegar þar var ekki upptekið). Klefarnir voru þar að auki sóðalegir, enda ekki nema von þar sem ein ung stelpa var að vinna í Lauginni, við afgreiðslu í laugina, í sjoppunni, við sundlaugargæsluna og við að þrífa klefana. Laugin sjálf var þó alveg ágæt, vel heit og hugguleg, en fyrir þá sem vilja fara í sund á þessu svæði bendi ég á að fólk geri sér frekar ferð á Laugarvatn. 
(ATH: takk fyrir síðuna! Hún er voða sniðug þangað til maður lendir sjálfur í klónum á henni og er sakaður um okur.
Færsla #847 fjallar um okur í Úthlíð sem kallað er rán um hábjartan dag.
Sundlaugin í Úthlíð er rekin af ferðaþjónustunni í Úthlíð og nýtur engra opinberra styrkja eins og þær sundlaugar sem eru í nágrenninu svo sem sundlaugin í Reykholti sem Bláskógabyggð rekur og sundlaugin á Laugarvatni sem ríkið á og rekur.
Ef kostnaðurinn við að fara í sund í Úthlíð er borinn saman við kostnaðinn við að fara í sund í Aratungu, eða á Laugarvatni kemur í ljós að það er næstum því ókeypis að fara í sund í Úthlíð. 
Aðgagnseyririnn þarf að dekka allan kostnað við reksturinn: heitt vatn, rafmagn, viðhald, launakostnað og síðast en ekki síst opinber gjöld sem eru svo notuð til að niðurgreiða gjaldið í sundlaugarnar sem Ferðaþjónustan í Úthlíð er í samkeppni við. 
En það sem sundlaugin í Úthlíð hefur fram yfir allar hinar laugarnar er glæsileg útsýn úr heitu pottunum og lauginni yfir sveitir Suðurlands og allt til Heklu og Eyjafjallajökuls. Þarna er einnig eini sundlaugarbar landsins og þetta er líka eini golfskáinn með sundlaug í bakgarðinum.
Hið rétta er að klefarnir eru orðnir ansi lúnir og þreyttir, enda húsið komið til ára sinna. Sundlaugin sjálf var tekin í gegn fyrir nokkrum árum og við endurnýjuðum nuddpottinn. Það er gott að fá ábendingu um að það þarf að bæta aðstöðuna fyrir barnafólk í klefanum og svo er nú ekki rukkað fyrir börn undir fimm ára aldri. 
Mér finnst að þú ættir að kanna aðeins samkeppnisumhverfi og aðrar forsendur þegar þú tekur svona gagnrýni og kemur henni áfram. Það er ekki hægt að bera saman verð í sundlaug sem er rekin af einkaaðilum og sundlaug sem er með niðurgreiddum aðgangseyri frá hinu opinbera.
Sjá nánar um ferðaþjónustuna í Úthlíð: www.uthlid.is 
Með vinsemd og ósk um að þú endurskoðir þessa færslu,
Hjördís Björnsdóttir
Ferðaþjónustunni Úthlíð)

#846    Er ekki skrítið að eigendur lífeyrissjóða, þ.e. við sjálf, samþykkjum að borga innheimtugjöld vegna afborgana af lífeyrisjóðslánum? Mest er okrið hjá STAFIR lífeyrissjóður sem innheimtir 450 kr seðilgjald. Það er sko okur í lagi.

#845 Blekkingar símfyrirtækja er með ólíkindum og ekki gott að átta sig á góður, betri, bestur, eða þeim frumskógi tilboða sem í boði eru. Að lesa sig í gegn um reikninga er töluverð dægradvöl og undarlegt að ekki skuli vera hægt að setja þetta fram á mannamáli:

Önnur gjöld en notkun, er ADSL tenging 2500 kr. Tenging Góður 3990 kr, fyrir 4. Mb niðurhal sem þekkist ekki nema á Íslandi að ég best veit. Númerabirtir er einn liðurinn og hann er ekki til annars en að viðkomandi hringi til baka og þá fær síminn sitt að auki. Gsm sími er 2990 kr. fast gjald og töluvert hægt að hringja fyrir það með frelsi.  Símafyrirtæki keppast við að bjóða allskonar pakka sem eru með duldum kostnaði,  þessi þjónusta er dýrari en hjá sjónvarpsstöð sem sendir út margar rásir allan sólarhringinn. Önnur gjöld en notkun: ekki nokkur leið að átta sig á fyrir hvað er verið að borga.

#844    Ég er búsett á Akranesi og þar er nokkuð gert upp úr því að versla í heimabyggð. Ég þurfit að kaupa mér A4 T-shirt prentarapappír, en ég hafði keypt slíkann papír fyrir 1 1/2 ári síðan og kostaði pakkinn þá með 10 blöðum af Canon papír 1390 kr. Ég skunda því í Eymundsson (sem nýverið hefur hertekið bókabúðamarkaðinn hér í bæjarfélaginu) og fann pappírinn. Það var reyndar aðeins til HP pappír með 12 blöðum. Þegar ég ætlaði að borga er mér sagt að þetta lítilræði kosti 3300 kr. Ég þakkaði nú bara pent fyrir mig og ákvað að ég léti nú ekki hafa mig að asna. Fór því næst í Omnis verslunin hér á Skaganu og þar var til Canon papírinn á rúmar 2600 kr.  Ekki var ég tilbúin að gefast upp enda átti ég nú hvort sem er erindi í Höfuðborgina þar sem ég fékk Canonpappírinn í BT í skeifunni fyrir 1990 kr. Það er náttúrulega með ólíkindum að það sé hægt að hafa svona mikinn verðmun á sömu vörunni, en ég sætti mig þó um að hún hefði hækkað um 600 kr. á einu og hálfu ári. En fyrir Skagamenn er ekki annað að segja en að það er mikilvægt að vera á neytendavaktinni áður en við ákveðum að versla í heimabyggð. 

#843    Ég ætlaði að kaupa Umbro íþróttatösku hjá Intersport sem var á 1890 kr, nú var búið að líma nýjan verðmiða yfir sem segir 3490, Þetta er 85% hækkun sem mér finnst ansi mikil þrátt fyrir gengisbreytingar og aðrar afsakanir. 

#842    Ég sá að Eymundsson á Laugaveginum var að selja Jeeves & Wooster gamanþættina í einum pakka; mér varð það á að kíkja á verðið - rúmar 8 þúsund krónur! Nákvæmlega sami pakki á Amazon.co.uk kostar 22.98 pund, sem gera 3.610,85 skv. Kaupthing.is.


#841    Frá því í kringum 2002 hef ég af tómri sérvisku valið mér ákveðinn svitalyktaeyði sem einungis er seldur í apótekum, en um árabil kaus ég að trúa því að sá væri betri vara af einhverjum sökum. Það rollon heitir BAN og er alveg lyktarlaust og því getur maður angað af ilmvatninu sínu en ekki svitalyktareyðinum, sem er kostur fyrir kvk amk. Einnig er þetta sérlega góður svitalyktareyðir og ég hef bara varla svitnað öll þessi ár.. (!! Stílfært af rithöfundi en þó nærri sannleikanum).
Ég og BAN höfum því fylgst að um sex ára skeið, eða frá því ég flutti alkomin heim frá BNA eftir langa útiveru í landi tækifæranna, þar sem allt var svo yndislega ódýrt, bensínið kostaði á þeim árum 0.80 dollara...(GALLONIÐ sko!) og allt var á útsöluverði miðað við íslenskan okurraunveruleika (sem já, var einnig svo sannarlega til þá, það fann aumur námsmaður vel). 
Þegar ég hóf svo að kaupa BAN-ið mitt góða, kostaði það man ég um kr.250 í kringum 2002 og fannst mér það ansi dýrt en ákvað að leyfa mér það, því fegurðin er jú sársaukafull... (e: beauty is pain). Og ekki vildi ég lykta illa!
En... nú sex árum síðar, hef ég vaxið úr grasi (í sveita andlits míns, en samt vel lyktandi), verðbólgan í ruglinu, stjórnmálamennirnir okkar í enn meira rugli, gallonið í USA komið í 4.5 dollara og BAN-ið kostar í dag í Apótekinu í Hagkaupum Skeifunni kr. 1199!! 
Að sögn framleiðanda eru 44grömm í glasinu, ég hef notað uþb 1 slíkt á mánuði (með sparsemi!), og með því framhaldi þyrfti ég að eyða 15þúsund krónum á ári í að verjast eigin svitalykt. Ég sagði bara nei takk og ákvað að finna e-d ódýrara, eða bara "go natural" - Mér var ekki bara nóg boðið, heldur misboðið. 

(Sett inn 16.06.08):

#840    Í Krónunni á Granda er ekki hægt að fá lauk í lausu, ég sendi 
fyrirspurn varðandi þetta í mars sl. og var lofað bótum og betrun, 
það var til laukur í lausu í svona viku eftir að ég sendi póstinn en 
síðan þá hefur bara verið hægt að fá Gourmet lauk - 3 saman í neti. 
Og þetta er sko Gourmet laukur!
Laukarnir þrír kosta 129 kr. Skv. mínum útreikningum er kílóverðið á 
lauk í Krónunni því um 250 kr. (örugglega meira því þetta er gróf 
áætlun) en kílóverðið í Bónus er 65 kr. og hefur verið síðan í vetur. 
Það er sama í hvaða búð ég fer, alls staðar er laukurinn ódýrari, 
held að 10/11 selji laukinn ekki einu sinni svona dýran!
Vil því benda fólki á að versla ekki lauk í Krónunni nema að hann sé 
til í lausu - hann var held ég á 66 kr. kílóið þegar hann var til 
þessa einu viku. Sama gildir með rauðlaukinn, hann er bara til í 
svona Gourmet neti!

#839    Ég er víst bakarísstelpan á visir.is fréttavefnum sem stóð fram og sagði frá... öllu bakkelsinu í Bakarameistaranum sem kom frosið, tilbúið frá útlandinu til okkar og við (afgreiðslustúlkurnar) látnar fullbaka og selja sem bakarísbakkelsi. Ástæða þess að ég kom fram var þegar ég las á visir.is frétt þar sem Bakarameistarinn var að setja út á að Krónan og þessháttar búðir væru að selja bakkelsi sem kæmi tilbúið og frosið frá útlandinu. 
Mér hefur aldrei verið vel við að fólk sé að ljúga upp í opið geðið á fólki þegar ég veit betur. Ég ákvað að tjá mig og samþykkja viðtal og áður en ég vissi af var fréttin komin á vefinn. Það sem fylgdi í kjölfarið var dásamlegt. Bakari frá Myllunni kom fram og sagði frá sora þar og þú sjálfur, dr. gunni, okkar eigin íslenski og því miður eini alvöru neytendafrömuður látinn tjá þig. Á endanum setti Bakarameistarinn út yfirlýsingu þar sem hann viðurkenndi sín mistök, en tók þó ekki fram að skinkuhornin væru líka keypt tilbúin. Ég gat meira að segja farið að gorta mig við vini mína að þeir þekktu persónulega konuna sem væri á bak við stærsta bakaríshneyksli Íslandsögunnar... en hugsið út í það, ef það væru fleiri sem kæmu fram  og segðu frá sora  og svindli hjá sínum vinnuveitendum! Það þarf bara einn til að koma fram og þá koma fleiri og þá er hægt að gera eitthvað í þessu bananalýðveldisneytendasvindli sem er landlægur andskoti hjá íslendingum....
Ég bjó í 4 ár í Danmörku. Einmitt þau ár þar sem ég byrjaði að halda heimili sjálf og þar með erfði ég danska neytendavitund. Trúið mér. Danir kunna að fara með sína peninga (á íslensku heitir það níska) og þar komast fyrirtæki og þjónustufyrirtæki ekki upp með lortinn sem okkur er boðið upp á á Íslandi. Ég er sannfærð um að ástæða þess að okur, svindl, hroki og ókurteisi í garð íslenskra neytenda stafar af engu öðru en okkar eigin hegðun í garð fyrirtækja og verslana. Það eru ALLT of margir íslendingar sem bölva bara í hljóði yfir óánægju með verð og þjónustu. 
Þetta er í rauninni ekki flókið. Setjum sem dæmi ef X verslun eða þjónusta ákveður að okra ógurlega á vörum eða þjónustu. Hvað mun gerast ef allir kvarta með kjarnyrtu orðavali og hætta að versla við viðkomandi verslun? .... og hvað mun svo gerast ef allir borga það sem upp er sett með samanbitnar varir? OG koma aftur og aftur...
Stundum held ég að þessi mikla nærvera okkar við sauðfé og danska einokunarverslun í gegnum aldirnar hafi gert okkur að neytendum sem læra með móðurmjólkinni að kvarta aldrei, borga það fáranlega verð sem sett er upp og fylgja bara hjörðinni til slátrunar. 
 Hvað er í gangi með ykkur Íslendingar! ... Hafið þið gaman af að láta snuða á ykkur og svindla?!!! Gerið eins og danirnir. Hættið að versla við okurverslanir! Hættið að skipta við léleg þjónustufyrirtæki! Ef þið eruð snuðuð eða okrað á skrifið kjarnyrta netpósta til allra toppanna hjá viðkomandi verslun eða þjónustu þar sem þið lýsið yfir að ykkar peningar verða notaðir annarsstaðar í framtíðinni. ÞAÐ ER ÞAÐ EINA SEM ÞEIR SKILJA!!!!!
 Þetta er ekki flókið, alls ekki, en við þurfum ÖLL að standa saman... munum að hætta að brjálast við saklausa afgreiðslustelpu sem hefur enga stjórn á verðinu og gera svo ekkert annað ... Leitum upp netföng þeirra sem stjórna þessu fáranlega verði og þessa lélegu þjónustu sem við fáum. SKRIFUM ÞEIM. Hvað munu topparnir þola lengi kvartanir frá ÖLLUM viðskiptavinum? Ég efast um að það taki svo langan tíma þangað til að við fáum að sjá einhverja sanngirni. Ef maður hugsar út í það er í rauninni fáranlegt að verslunareigendur og fyrirtækjaeigendur séu að fá svo mikið út úr fyrirtækjum sínum á þessum fámenna markaði. Mér verður hugsað til eigenda lítils veitingastaðar sem ég vann hjá keyra á glænýjum AUDI jeppa fyrir utan stóra einbýlishúsið sem hann átti í Garðabæ. FÁRÁNLEGT. 
Verðlagning á Íslandi virðist helgast af því hversu mikið fæ ég neytendaaulann til að borga án þess að hætta að versla hjá mér vegna gjaldþrots hugsanafars... Koma svo fólk, förum að gera eitthvað í þessu annars held ég að ég þurfi að fara að skipuleggja eitthvað sjálf, er að bíða að einhver byrji, og er búin að bíða ansi lengi.

#838    Ég var í gamni mínu á Dominos.com og var að skoða verð á pizzum í hinni stóru Ameríku. Þetta er algjört rugl við erum að borga 2590 fyrir Dominos Extra sem er vinsælasta pizza hjá þeim en í Ameríku kostar hún 15,66$ sem gerir 1263 kr miðað við að dollarinn sé 79 kr. Þetta er meira en tvöfalt meira. Brauðstangir kosta hér heima 540 kr með sósu en 3,99$ eða 315kr miðað við sama gengi. Þetta er yfir 70 prósent hærra. Þetta ætti að fara með í blöðin þetta. Mjög gróft okur. Dominos er búnir að ýta flestum útaf markaðnum og selja pizzurnar á því verði sem þeim sýnis. (nb. Það er alþekkt að Ísland sé með dýrustu verðin á djönkfúddí, sbr. McDonals-vísitöluna sem birtist annað slagið.)

#837    Fjörukráin í Hafnarfirði er með mesta okur sem ég hef séð lengi. 
Ég og kærastinn ætluðum að fá okkur að borða þar á Víkingahátíðinni og hann pantaði matinn. 
Þegar samlokan sem ég bað hann um að panta fyrir mig kom á borðið þá var það hamborgarabrauð með skinku og osti, 20-30 stk af frönskum og smá iceberg salat og gróft söxuð gúrka með. Ég beit í samlokuna og komst að því að ekki aðeins var hún sósulaus, heldur líka köld og augljóslega örbylgjuð! Ég spurði hvað þetta hefði kostað og þá segir kærastinn mér að samlokan sé á 1200 krónur! Ég tók matinn okkar og skilaði honum! Það tókst að fá þessi ósköp endurgreidd (en ekki fyrr en eftir talsvert stapp). Samskonar samloka kostar 595 krónur svk heimasíðu American style og hún er meira að segja grilluð! Ef mig langar í brauð með skinku og osti í örbylgjuofni, þá fer ég heim til mín og fæ það á 100 kall.

#836    Var að skoða leiguhúsnæði í Salahverfi og íbúðin stóð til boða á 150 þús. Þessi leiguokrari vill að ég borgi 60 % af eðlilegum launum. Það er laun t.d kennara eða slökkviliðsmanna.  Ég vildi skoða meira og fann svo íbúð á 105 þús sem er stærri og betri íbúð. Hvað veldur því að leiguokrarinn telur sig geta svínað svona illilega á fólki? Getur verið að leigulistinn stýri verðinu á leigumarkaðinum?

#835    Í dag fór ég í Eymundsson í Austurstræti til að kaupa útskriftargjöf 
til að gefa mágkonu minni sem var að klára hjúkrun frá HÍ. Ég var 
búin að ákveða að kaupa ákveðna bók sem var á mjög sanngjörnu verði. 
Þar sem þetta var nú útskrift ákvað ég að kaupa kort líka. Í fyrsta 
lagi var ekki hægt að finna neitt verð á kortunum, ekki einu einasta, 
hvorki á þeim né á neinum lista nálægt standinum. Ég valdi mjög 
einfalt kort, lítið með huggulegri mynd af blómi á. Þegar ég kom að 
kassanum komst ég að því að þessi einföldu hugglegheit voru sko ekki 
gefins. Kortið kostaði 395 kr takk fyrir!! Hvað á slíkt okur að þýða? 
Þetta kort er ekki stórt, einungis 15x7 cm og ekki með eftirprentun 
af neinu þekktu málverki á, heldur bara einu blómi og letruninni; 
"Til hamingju með áfangann" Héðan í frá mun ég föndra öll kort eða notast við gula post-it miða.
(ATH: Það vill svo vel til að ég var starfsmaður hjá Eymundsson og get fullyrt það með algjörri vissu að það er ALLTAF listi með verðum við hliðina á rekkanum, fyrir ofan hann eða einhversstaðar þar sem auðvelt er að sjá hann.
Verðlistinn virkar svo þannig að aftan á gjafakortunum er vöruflokksnúmer eins og til dæmis 35, vöruflokkur  35 kostar 395 krónur.
Gjafakortin eru hinsvegar svona dýr af því að Kartos, eina fyrirtækið sem býr eingöngu til gjafakort á Íslandi, rukkar Eymundsson svona mikið fyrir þau. 
Eymundsson selur einnig ódýrari kort en það stendur ekkert í þeim eða á þeim því þau eru framleidd í Kína eða Indlandi.
En ég skal alveg segja ykkur að álgningin er ekki mikið í Eymundsson sérstaklega ekki á þeim vorum sem fyrirtækið flytur inn sjálft.!!!
Mesta álagningin er á vörum frá Despec, Nýherja og Múlalundi.)

#834    2.900.- krónur klippingin á Hárhorninu við Hlemmi. Torfi rakari algjör ljúflingur. Öryrkjar og gamlingjar borga 2.400. Örugglega ódýrasta klippingin á Íslandi í dag.

#833  Keypti fyrir nokkrum dögum fjórar Palmolive sápur í pakka í Europris sem kostuðu 499 kr pakkinn. Fór daginn eftir í Fjarðarkaup og sá þessar nákvæmlega sömu sápur á 212 kr. Ég hafði samband við Europris þar sem ég fékk þær upplýsingar að þetta væri rétt verð!!!  Einnig má geta þess að samskonar pakkning af sápum  kosta í Krónunni rétt innan við 300 kr.

#832    3.415.- krónur fyrir nikóntyggjóskammt í Lyfju 5. maí. 4.634.- krónur í Lyf og heilsu, JL-Húsinu, fyrir sama skammt 6. júní. Hér erum við að tala um ódýrasta tyggjóið, Fruitmint, stærstu pakkninguna. Ég hef ekki hugmynd um hvað þetta kostar annars staðar því ekki gefa þessir andskotar upp verð á heimasíðum fyrirtækjanna. Enda hafa þeir ekki við að hækka. Og ég ákvað að hætta bara. Í stað þessa að löðrunga einhvern í Lyf og heilsu. OKUR!

#831    Fór á pizzastaðinn Rizzo upp í Hraunbæ eftir af hafa séð margsinnis
auglýsingar frá þeim um eldbakaðar pizzur. ég sló til og bauð konu og
börnum upp á pizzu sem var í sjálfu sér alls ekki dýr miðað við gæði
hennar og ferskleika, en þegar pizzuátið var hálfnað þá þurfti frúin ásamt
dótturinni að komast á salerni og stendur konan upp og gengur að
afgreiðslustúlkunni indælu sem selt hafði okkur dýrindis pizzu og spyr
hana hvar salernisaðstaðan væri. það var fljótt um svör og stúlkan sagði
frúnni að ekkert salerni væri á staðnum fyrir viðskiptavini. ég heyrði nú
afgreiðslustúlkuna svara þessu og varð bara í fyrsta skipti á ævinni
gjörsamlega algjörlega orðlaus. Þarna varð ég ásamt konu og börnum að
standa upp og yfirgefa staðinn því ekki gat ég haldið áfram að éta með
konu og barn í spreng. ég varð bara að deila þessu með einhverjum og jafnvel vara við því
þetta var ekki skemmtileg uppákoma

(Sett inn 13.06.08):

#830    Hvað hefur okursíðan gert fyrir mig?
Ég er 24 ára og man ekki eftir að miklu púðri hafi verið eytt í
neytendakennslu í mínu uppeldi. Fram að seinasta ári var ég því bara ósköp
venjulegur íslenskur neytandi. Íhugaði lítið hvað matvörur kostuðu,
borðaði hádegismat hvar sem er og keypti bensín á næstu bensínstöð.
Semsagt, Zombí með kort.
En á nýju ári hefur margt breyst, enda var áramótaheitið: "Að vera betri neytandi". Ég les næstum daglega okursíðu Dr. Gunna
og hegða mér samkvæmt því. Ég versla eingöngu í Bónus eða Krónunni og þá
helst á föstudögum því þá er algent að ASÍ og Neytendastöfa framkvæmi
verðlagskannanir. Ef ég sé kjöt eða annan mat á góðum afslætti þá kaupi ég
aðeins meir af því og frysti. Ég versla ávallt vopnaður skrifblokk og á
hana skrifa ég niður allar verðmerkingar og passa svo uppá að rétt verð
komi upp á kassann. Er óhræddur að standa á mínu ef vitlaust verð kemur
upp, sama hversu smávægilegt það er.
Ég er alveg hættur að kaupa brauð, baka það frekar sjálfur, sem er u.þ.b.
15 mín. vinna fyrir mig 3ja hvern dag.
Nú elda ég nánast alltaf heima hjá mér og tek með mér nesti í vinnuna.
Hættur að svíkjast í sveittan skyndibita og over-priced veitingastaði með
miðlungs mat.
Ef ég ákveð að borða úti, þá vel ég meðvitað staði sem eru ódýrari. En ef
ég vil fara fínt út að borða, þá fer ég í hádeginu og fæ þá dýrindis mat á
næstum helmingi betra verði.
Strætó og hjólið eru mínir helstu reiðmátar í dag. Nota bílinn örsjaldan
og kaupi aðeins bensín í sjálfsafgreiðslu.
Ég nota ekki debetkort því færslugjöldin af þeim slaga í hátt í 12.000
krónur á ári. Ég nota ekki kreditkort út af dráttarvöxtum og hættunni sem
stafar af yfirdrætti. Kortið sem hentar mér best er kreditkort plús. Á því
eru engin færslugjöld, ég get notað það við netviðskipti og ársgjaldið er
um 3.500. Auk þess þá legg ég pening inná það sem gerir mér kleift að hafa
fullkomna stjórn á eyðslunni.
Okursíða Dr. Gunna hefur spilað stóra rullu í umsnúningi mínum og minnir
mig á hverjum degi hversu vakandi ég þarf að vera. Ég á núna alltaf aðeins
auka pening í bankanum og hef meira sjálfstraust á mér sem íslenskum
neytanda. Ég læt í mér heyra éf ég er óánægður frekar en að nöldra ofan í
bumbuna.
Þakka þér fyrir Dr. Gunni!
(nb. Það var nú lítið! Gaman að heyra þetta.)

#829    Vildi bara hæla Max raftækjum í Garðabæ. Mál með vexti að ég keypti uppþvottavél í fyrra sem svo bilaði, var dráttur á að varahlutur kæmi þannig að verslunarstjóri. Sendi nýja vél (betri týpa), einstaklega lipur og góð þjónusta, bestu þakkir Max Raftæki!

#828    Ég rak augun í það á síðunni að einhver hafði sett inn að honum þætti það okur þegar að hann fór með bílinn í smurningu og það kostaði hann 7.564 kr. Þá verð ég að benda á það sem að ég kemst ekki yfir hvað er mikið okur. Ég fór fyrir tæpri viku með bílinn minn í smurningu hjá Smurstöðinni Klöpp ehf. Ég var ánægð með þjónustuna sem ég fékk þar, þangað til að ég fékk að sjá hvað ætti að greiða fyrir. Hvorki meira né minna en 10.509 kr. Hvaða vitleysa er þetta, ég var ekki að trúa þessu. Og ég er á litlum fólksbíl, hvað ætli kosti þá að vinna sömu vinnu við jeppa?? Ég rak sérstaklega augun í það að ég var rukkuð um 785 kr. fyrir eyðingar- og tryggingargjald, sem er eitthvað sem að ég hef aldrei séð áður... 

#827    Vörusvik! Ég keypti frosinn niðursneiddan heilan lambahrygg í Bónusi í
Smáratorgi í dag.  Þetta var í pakkningum frá Kjarnafæði.  Verðið var
ásættanlegt 1699 kr/kg og því ekki um okur að ræða.  EN þegar ég
opnaði pokann og fór að skoða sneiðarnar þá kom í ljós að það er búið
að skera burt lundirnar undan hryggnum.  Þetta eru hrein vörusvik.

#826    Fór í SPAR í Bæjarlind um daginn, ætlaði að kaupa Libero bleyjupakka. Undir þeim stóðu 1700 krónur en þegar ég kem á kassann þá segir hún að þetta kosti 2800 krónur!!! Þá var miðinn fyrir ÞESSAR bleyjur einhversstaðar í næstu hillu. OKUR og SVINDL!! 

#825    Hef lengi haft augastað á hinni vinsælu Canon 400D vél sem er mjög vinsæl hér á landi.  Í Nýherja kostar þessi vél 76.900 án linsu og fyrirtæki á borð við BT hafa einnig boðið uppá þessa vél á að þeirra sögn kostakjörum.   B.T. selur vélina ásamt 17-85 linsu á kr. 149.900 og bjóða svo uppá tilboð á  flassi(er í raun nauðsynlegt í gæða myndatöku inni) á 29.900.  Þannig að vélin með linsu og flassi er á um 179 þúsund krónur í B.T.
Ég ákvað kaupa hana erlendis þegar ég frétt að það er engin tollur á myndavélum en það þarf auðvitað að greiða vsk.  Ég pantaði vélina í gegnum Adorama í New York.  Pakkinn sem ég tók var myndavél(stök) á 517 dollara á genginu 73 kr. með vsk um 46.þúsund krónur. 17-85 linsu á 499 dollara með vsk eða um 45 þúsund.  Canon 430 Flass á 236 dollara eða 21 þúsund með vsk(Elko selur sama flass í fríhöfninni á 33 þúsund kr.)  Ég keypti einnig 2GB minniskort og hleðsurafhlöður fyrir flassið en þær kostuðu 1224 krónur en nákvæmlega sömu rafhlöður kosta 3.499 í Bræðrunum Ormsson. 
Adorama sendu þetta með UPS sem kostaði um 70 dollara(5200 íslenskar), ég pantaði það á miðvikudagskvöldi og það pakkinn var komin heim 2 dögum síðar.  Þetta kostaði um 119 þúsund heimkomið en sami pakki hefði verið um 50-60 þúsund krónum dýrari á íslandi.  Vélin er í fullri ábyrgð þó hún sé keypt erlendis og ekkert mál að senda hana út komi einhver vandamál uppá því þjónustan hjá Adorama er framúrskarandi. Canon 400D heitir Canon Digital Rebel Xti í USA. (ATH: Linsan á 400D vélinni í BT sem er á 149.999 þús er á um 70 þús kr. stök í þeim búðum sem selja hana á Íslandi. Einnig eru verð á raftækjum dýrari á Íslandi en annarsstaðar þar sem fyrirtækin út í heimi og þá sérstaklega þessi stóru panta vörur í þúsunda tali á meðan fyrirtæki á Íslandi oft ekki nema í tuga tali ef ekki minna. Og hvort gefuru manni sem kaupir 100 brauð betra verð eða manni sem kaupir 10.000 brauð ??? Einnig bætist á verðið álagning þar sem fyrirtæki eru ekki rekin á núlli!!)

(Sett inn 12.06.08):

#824    Okur: Keypti Hydroxicut 150 töflur í Nóatúni á Selfossi núna í vikunni á innan við 7200kr en í Fitness sport í skeifunni kostar sama dós 8990kr! (nb. Ég skil nú ekki til hvers nokkur maður er bryðja þessar töflur. Gerðu allavega ekki neitt fyrir mig í þennan mánuð sem ég át þetta. Enginn munur, bara peningaeyðsla!)

#823    Þar sem ég var að vafra um síðu þína þá fannst mér alveg tilvalið að benda á þá ágætu staðreynd að á meðan lénið www.drgunni.is myndi kosta þig 12.450 kr. í stofngjald og svo árlega 7.918 kr. skv. verðskrá www.isnic.is þá myndi það einungis kosta þig rétt rúmar 778 kr. árlega að skrá www.drgunni.net skv. verðskrá www.godaddy.com.  Og skv. tilboði þar þá myndi það kosta þig heilar 78 kr. að stofna www.drgunni.info en svo yrði það að öllum líkindum 778 króna ársgjald eftir fyrsta árið að því gefnu að tilboðið verði ei framlengt.  Hvort myndi maður nú velja ".is"- eða ".net"-endingu?!  (Þess má til gamans geta að með skráningu hjá Go Daddy fylgja 100 frí "forwarding" tölvupóstföng og frí áframsending á síðunni hvert sem er en með skráningu hjá IsNIC fylgir einungis svæsinn anús-sviði.)

#822    Keypti áðan í 10 - 11 verslun hálfdós (450g nettóinnihald) af niðursoðnu blönduðu grænmeti frá Ora, dósin kostaði 195.- kr, það er okur, - hef ekki gert neina könnun en mun gera það við fyrsta tækifæri.

#821  Fór í klippingu um daginn (jarðskjálftadaginn) á stofu sem er í Smárahverfinu í Kópavogi, klippingin kostaði 5670 kr. Fór þangað 10 dögum fyrir páska , þá kostaði klippingin um 3500 kr . All skuggaleg hækkun og ef maður veltir fyrir sér álagningunni á hvern sjampó brúsa, gel túbu og allt sem er notað og deilt í með hvað er hægt að nota þetta í marga hausa, þá er þessi hækkun alger geggjun og alveg úr takti við allan raunveruleika. OG til að toppa allt þá er ég svo illa klippt að ég hefði nánast getað gert þetta sjálf .
 

Okur #711 - 820 eru hér.

Veistu um rosalegt okur? Láttu vita!