![]()
| (Sett inn 11.06.08):
#820 Ég uppgötvaði um daginn að þegar maður biður um sódavatn með pulsunni sinni á Bæjarins beztu er ekki rukkað fyrir drykkinn. Kannski ekki merkilegur sparnaður en þar sem þau kæmust upp með að rukka fyrir sódavatn eins og gos án nokkurra athugasemda finnst mér þetta gott hjá þeim. #819
Sendi þessa fyrirspurn til Valitor:
#818
Ég asnaðist til þess að fara í bakarí
Jóa Fel. Mun ekki gera það aftur.
#817 Smurstöðvar
landsmanna. Ef farið er með fólksbíl á
venjulega smurstöð og ef beðið er um þetta hefðbundna
eins og “ viltu smyrja” eða “viltu skipta um olíu” eða slíkt
eins og venja að biðja um, þá er starfsmönnum
á flestum smurstöðvum uppálagt að ganga í
að skoða og tékka á öllu í bílnum
sem viðkemur smurningunni þó svo að “smurningin” sé
í flestum tilfellum ekki það sem gert er. Mjög
margir fólksbílar og jepplingar í dag eru nefnilega
smurkoppalausir að mestu eða öllu leyti.
#816 Fór
sem leið liggur í Múrbúðina og keypti nokkra
#815 Varð fyrir því að týna festingu áGarmin GPS tæki. Fór því í R. Sigmundsson og hugðist kaupa þessa mjög svo einföldu festingu (festing með sogskál til að festa tækið í framrúðu í bílnum) en hún var ekki til, nema í pakka með hleðslutæki og kostaði 4.800 kr!!!. NB Nýtt tækið kostar 17.900 kr. hjá R. Sigmundsson þá fylgir auðvitað festingin og hleðslutæki með í pakkanum. Á heimasíðu Garmin er hægt að kaupa þetta án hleðslutækis á 25 USD = 1.940 kr. og með hleðslutæki á 29,99 =2.327 kr. þetta er semsagt rúmlega 100% dýrara hér. Annað sem vekur athygli er að tæki sem kostar 17.900 kr. hjá R. Sigmudsson kostar 16.500 á heimasíðu Garmin. Afhverju ætli verðmunur á tækinu sé nánast enginn, en á aukabúnaði 100%? Gæti að samkeppni sé í sölu á tækjunum. Kannski minna sé um samkeppni í sölu á aukabúnaði (einokun)??? #814 Fór um helgina fór ég í Húsasmiðjuna í Grafarholti og ætlaði að kaupa eina fléttu 180 x 167 í garðgrindverk sbr. slóð. Verðið á fléttunni var 19.200 kr. Ég ræddi við starfsmenn í timbursölunni og barmaði mér yfir verðinu. Þeir voru sammála mér um að verðið væri fáranlega hátt enda kostaði hún 13.000 kr. í fyrrasumar. Þetta er því um 47% hækkun á milli ára. #813
Ég sendi þetta bréf líka á Vífilfell
og ég vona að því verði svarað því
mér finnst verið að svindla á manni! Þegar
ég fer og fæ mér að borða á veitingastað,
t.d pizzu, hamborgara, samloku þá vil ég drekka með
matnum, eða bíó og drekka með poppinu. Nú
þá
vil ég velja drykki frá Vífilfell, sem eru mínir
uppáhaldsdrykkir, t.d Coke, Sprite og Fanta. En nema hvað, þessir
drykkir eru svo oft seldir í dælum eingöngu á
þessum stöðum, sem er ógeðslegt, þetta
er það allra versta sem er hægt að gera. Þetta
er ekki líkt orginal drykkjunum. Þetta er eins og að selja
gamlan skoda, í staðinn fyrir glænýjan fólksbíl.
Er þetta eðlilegt eða hvað? Svo líka eitt, þetta
er ekki einu sinni sama bragðið á öllum stöðunum,
sumir drykkir eru dísætir og stundum er þetta bara vatn
90 prósent. Ég er hundfúll yfir þessu.
#812
Keypti Myllu fjölskyldubrauð í síðustu
viku í 10-11 í Staðarbergi í Hafnarfirði og
blöskraði að sjá það var komið í
325 kr. því ég hafði verið verið að
kaupa það á rúmar 160 kr. í Bónus.
Sá svo seinna í vikunni að Bónus var að auglýsa
þetta brauð á tilboði kr. 129 og keypti þvi
nokkur stykki til að frysta. Þetta er okur og ekkert annað
;-(
#811 Fór í Nóatún um daginn og keypti kjúklingabringur með 40% afslætti, en þegar ég var á leiðinni út úr búðinn leit ég á strimilinn og sjá, fékk bara 20%. Fékk samt leiðréttingu á eftir. #810
Ég var að versla í Bónus um daginn og þurfti
meðal annars að versla bleyjur á
#809
Þetta á reyndar ekki við um okur á Íslandi,
en töluvert af Íslendingum ferðast þangað þannig
ég vil endilega láta vita af þessu. Ég var á
flugvellinum
í Dalaman í Tyrklandi, sem er flugvöllurinn sem
farið er til ef verið er að fara til Marmaris. Þarna
eru nokkrir veitingastaðir eins og McDonalds, KFC og Pizza Hut.
#808 Fór í Húsasmiðjuna með kærustunni og keypti rúgbrauð með síld og eggjum, smurbrauð með hangiketi og káli, 1.kaffibolla og vatn. þetta kostaði 1220 kr. Ok. Svo fórum við að spá, rúgbrauðið kostaði 350kr., kaffið kostaði 120 kr. og hvað er þá eftir??? 750KR fyrir smurbrauði!!!!! Ef þetta er ekki okur þá er ekkert okur. #807
Ég fór í dag í verslunina Aveda í
Kringlunni til að kaupa mér sjampó og hárnæringu.
Ok... þetta er sérvöruverslun en mér er alveg
sama. 250ml brúsi af sjampó kostar kr. 1.640.- og 200ml brúsi
af hárnæringu kostaði 2.415.- og nota bene þetta
voru með ódýrari tegundunum sem fengust þarna.
Af fávitaskap ákvað ég að kaupa þetta
samt sem áður búandi mig undir að hárið
mitt breytist í gull eftir þvottin, en á kassanum sá
ég fljótandi augnskugga sem ég keypti þarna
fyrir um ári síðan og var mjög hrifin af, áður
kostaði hann kr. 990.- 8ml túpa en nú mátti ég
gjöra svo vel að greiða kr. 1.700.- fyrir stykkið. ATH
að sæmilegar hárvörur sjampó/hárnæringu
er hægt að fá á bilinu 250-450 kr. í Bónus.
#806 Ég keypti 5mm Swarovski kristalla af erlendri heimasíðu. Komnir til mín með öllum tilheyrandi kostnaði kostuðu þeir 23,4 kr/stk. Á heimasíðu Perlukafarans má sjá nákvæmlega eins kristalla á 60 kr/stk. OKUR!! #805 Í bakaríinu Passion við Álfheima kostar lítil 250 ml.nýmjólkurferna (Muu-mjólk, EKKI G-mjólk) kr. 59, þ.e.a.s. 236 kr. 1 lítri. Í versluninni 10-11 við Álfheima kostar sama magn (250 ml. nýmjólkurferna) 39.oo kr. eða 156 kr. lítirinn, sem er nær lagi þar sem er jú dýrara að kaupa vöruna í smáeiningum. En 236.oo kr. lítirinn, e.t.v. er það löglegt, en mér finnst það okur. #804 Leynileikhúsið auglýsir sumarnámskeið fyrir börn og unglinga. Eitt námskeiðið kallast söngleikjanámskeið, fjöldi þátttakenda 12, tveir kennarar, 5 hálfir dagar, verð kr. 34.500. Það gerir 7000 kr. fyrir hvern hálfan dag. #803
Fór með fartölvu konunnar í viðgerð
hjá EJS (Dell ferðatölva, keypt ný í október).
Lítill pinni í powersupply virðist hafa brotnað og
til þess að laga það þá þarf að
skipta um móðurborð. Reikningurinn hljóðar upp
á a.m.k 70þ með vinnu. Tölvan kostaði ný
um
#802 Skólagjöld
við HR. Ég ætlaði i frumgreinadeild eða svið
hjá þeim. Það kostaði 12.500 en er hækkað
i 24.000 kr??? vá.......100%? Okur...eða brjáluð
hækkun...og i engum takt við það sem er að gerast
á atvinnumarkaði. Hver myndi t.d. hækka klippingu á
hári úr 4000 kr i
#801
Þurfti að fara um helgi í Lyf og heilsu að kaupa Zovir
frunsukrem (2. gr.) og viti menn túpan kostaði kr. 1.477.
– kílóverðið sem sagt kr. 738.500.- Hringdi
að gamni í Lyfjaver og þar kostaði sama varan kr.
1.077.- Ég veit það vel að ég á ekki
að versla í Lyf og heilsu eða Lyfju en þarna hafði
ég ekki tök á öðru. Ég hvet fólk
til að sýna samstöðu og hætta að versla í
þessum okurbúllum.
#800
Tók sunnudagsbíltúr með fjölskylduna austur
fyrir fjall á sunnudaginn síðasta. Kíktum inní
Eden
í Hveragerði til að fá okkur ís, en þar
sem ég fjölskyldufaðirinn hafði gleymt að borða
almennilega áður en farið var í túrinn, ákvað
ég að fá mér smá snarl.
#799 Grillhúsið Tryggvagötu hefur verið einn af mínum uppáhalds hamborgarastöðum og ég hef verið dyggur viðskiptavinur frá því hann opnaði sem Grillhús Guðmundar. Þeir hafa alltaf verið í dýrari kantinum og ég hef látið mig hafa það þar sem jú góður borgari kostar sitt. En fjandinn hafi það nú kostar miðlungsdýr borgari 1.490 kr þarna með frönskum sem eru svo naumt skammtaðar að ég upplifi mig á einhverri megrunar-búllu. Ég stíg ekki fæti þarna inn lengur! #798
Tvö okurdæmi: Fór í Mál og menningu 10.
júní og keypti 2 tískublöð, franska
og
#797 Fór um daginn í Hagkaup til að kaupa mér krydd. Langaði að dekra við mig og ákvað að fá mér gott "íslenskt krydd" frá Pottagöldrum. Veit að þetta er töluvert dýrara krydd en gengur og gerist en það er mitt val Svo þegar ég tek mér minn kryddstauk í hönd, sé ég og finn að í stað þess að vera úr gleri, þá eru umbúðirnar úr plasti, staukurinn komin úr því að vera 24 grömm í 15 grömm en sama gamla verðið. Það kalla ég okur með karríbragði. #796 Grái kötturinn. 1 lítil pepsi max í flösku + 1 lítil appelsín í flösku. 600kr! (Sett inn 10.06.08): #795 Keypti hálfan líter af coca-cola á Kaffivagninum, sem kostaði 280 kr. Hefði betur keypt 2 lítra af bensíni. #794 Ég fór í sund með nokkrum félögum mínum í Sundlaug Mosfellsbæjar. Sundlaugin er fín en það getur verið ansi dýrt að gleyma handklæðinu heima. Fyrir leigu á einu skitnu handklæði heimta þeir 450 krónur, þetta er náttúrulega alveg út úr öllu korti! #793
Það var að koma út Indíana Jones leikur
í tilefni myndarinnar og þessi leikur er til fyrir öll
helstu stýrikerfi. Í nýjasta blaði max raftækja
er leikurinn auglýstur á 4989 kr en nb þegar maður
kemur í búðina á það bara við um
playstasion 2, playstasion porteble og pc tölvur. Ef þú
átt playstation 3 eða x-box tölvu borgarðu 7498 kr
fyrir leikinn. Hvaða djók er það?
#792 Fór í Útilíf í Glæsibæ með hugmyndir um að endurnýja gönguskóna mína sem er afbragðs góðir og heita Lowa gönguskór. Var búin að fara seinnipartinn í vetur og þá kostuðu skórnir 15.900.- en ekkert varð úr kaupunum þá. Nú átti að láta til skara skríða en viti menn, skórnir höfðu hækkað um ca 50% nú kosta þeir kr. 23.990.- rúml. 8000.- kr. hækkun á einu bretti. Ég nota gömlu skóna áfram í sumar. Þetta er ekki hægt !! #791 Fyrir ca mánuði kostaði gul papprika 219kr/kg og appelsínugul 229 kr/kg en núna gul á 719 Kr /Kg og appelsínugul á 729 kr /kg bull bull bull! Þetta var í Samkaup Úrval í Borgarnesi. #790 Langar að láta vita um okur hjá Apótekum landsins. Ég þurfti að kaupa blóðþrýstinglyfið Atacand 16mg 98 töflur. Ég var búin að heyra að Lyfjaver Suðurlandsbraut 22 væri ódýrast, ef maður þyrfti að kaupa lyfseðlaskyldlyf, - sem er rétt !! Lyfið kostar í Lyfju 3335 kr, í Lyf og heilsu 3400kr. en hjá Lyfjaveri kostar lyfið 3400 kr en svo ofan á það færðu 41,6% afslátt sem gerir lokaverðið 1985 kr. Ekki spurning - ég mun versla hér eftir öll mín lyf hjá Lyfjaveri! TAKK!!! (Sett inn 09.06.08): #789 Fór í Lyf og heilsu og ætlaði að kaupa mér einn kassa af verjum. Ég valdi mér einn góðan pakka af Durex Featherlite og síðan var komið að því að borga, ég bjóst við kannski 1100 kr (sem er reyndar full dýrt) en nei þeir kostuðu aðeins meira en það takk fyrir 1640 kr fyrir pakka með 12 stykkjum í! Ég fölnaði þegar ég rétti fram kortið mitt. Hvernig er það, er verið að stuðla að þungunum hjá unglingum! Eftir að hafa sagt nokkrum frá þessu þá kom í ljós að Bónus selur þetta ódýrast. Apótekin alveg að skíta á sig. #788
Fyrir bíóunnendur sem ekki tíma 1000 kalli eða
meira í bíó ætla ég að
#787
Var að versla í Bónus um daginn og sá svona ''snuddukeðju''
sem mér finnst nauðsynlegt að eiga þegar maður
er með ungabarn. Verðið var 450 krónur, ég
hugsaði með mér hvað þetta væri dýrt
en keypti þetta samt. Var svo í Samkaupum í Hfj
í dag og þá kostar alveg eins snuddukeðja 849 krónur!
Hvað er málið?
#786
Var að horfa á Austurríki-Króatía og okkur
langaði að panta okkur pizzu. Ég hringdi í
Dominos
og spurði um verð á EM-tilboðinu þeirra. Jú,
ég fékk mjög skýrt svar og lét endurtaka
það fyrir mig, til að vera viss. Það er 2.700.
Þetta er 15 tommu pizza með 11 áleggstegundum.
#785
Hagkaup selur furuhnetur undir merkjum Himnesk Hollusta. 150gr poki
#784 Glas af einföldum Campari í klaka og kranavatni á einum barnum á Nasa 900 krónur! (Sett inn 07.06.08): #783 / 783
Tvær pínulitlar, semi-hrukkóttar paprikkur í
10-11 Austurstræti: 410 kr. Okur!
#782 Okkur vinkonunum langaði í Dior meik sem fæst í hagkaupum, en okkur fannst það frekar dýrt, 7400 c.a já já ég veit fáránlega dýrt... en meikið er mjööög gott, svo við ákváðum að býða eftir tax free helgi og kaupa það þá, við komum svo þessa helgi og ætluðum að næla okkur í þetta fáránlega dýra meik, við spyrjum afgreiðslukonuna hvað meikið kostar og hún segir 7200 c.a og við.. já og með afslættinum hvað þá.. þá segir hún þetta er með afslættinum... þá var búið að hækka meikið í 9500 c.a. Við báðum hana vel að lifa. Nei takk...OKUR ! #781 Í Vörðunni kostar eitt hjól undir Silver cross balmoral barnavagn 18.900 kr, en það minna 15.900. Vááááá þvílíkt okur... Ég þarf að setjast. Nagladekk undir 4x4 pickupinn minn kosta 14.700 kr. stykkið. Hvað er að? Fyrirgefið en vá! #780 Iceland Express frá Billund (4/7) til Keflavíkur og aftur til baka (27/7) 151.510 kr.- fyrir tvo fullorðna með eitt ungabarn. Þetta var alla vegna það verð sem fékkst þann 20/5 sl. Sömu dagar til og frá Køben 78.690 kr.- Billund er ódýrari flugvöllur og það er styttra flug (þó ekki muni það miklu). Ætli það sé ekki frekar það að það er smá samkeppni til Køben en ekki til Billlund. Þetta er alla vega gróft okur að mínu mati. #779 Þar sem ég bý út á landi er bara eitt apotek í plássinu og heitir það Lyf og heilsa, mig vantaði ómerkilegt kælikrem og fékk ég túpu sem innihélt 35 gr og hvað haldið þið að það hafði kostað? 740 kr!!! sem gerir 21.000-kílóverð! Finnst ykkur þetta í lagi? Ekki mér! (Sett inn 05.06.08): #778
Sá okur #773 um dýra rúðuskiptingu á Golf.
#777 Þar sem ég er ófrísk kona og á orðið nú afar erfitt með hreyfingar, datt mér í hug að kaupa mér "snúningslak" til að gera mér næturhreyfingarnar aðeins auðveldari. Ég fór því í Oliver & Olivíu og var komin með lakið í hendurnar, þegar ég lít á verðið...3990 kr. Þá fór ég í Babysam og sá samskonar lak á 2900 kr. samt dýrt, en ég sparaði mér a.m.k. 1000 kallinn!!! #776 Langaði bara að spyrjast fyrir og velta því fyrir mér og fleirum hvort Icelandexpress, sem á að vera ódýrt flugfélag, sé löngu búið að gefast upp á þeim markmiðum sínum? Ég ferðast svona sæmilega mikið um heiminn en nú vantar mig miða aðra leið frá london til Íslands. Þegar ég tek á sama degi ferð með Icelandair á móti Icelandexpress þá kemur í ljós að Icelandexpress er 21,13% dýrari en Icelandair. Samt er almennileg þjónusta og miklu meiri þægindi í Icelandair. Það er varla boðið uppá kodda í Icelandexpress hvað þá fóður né önnur fríðindi. Afhverju eru þeir þá dýrari? Þar að auki flýgur Icelandair til Heathrow sem er langdýrasti flugvöllur Bretans, á meðan Icelandexpress eru að lenda í sveitinni langt frá London, sem kostar mann auka pening að komast til! Hvað er í gangi hjá flugfélögunum. Lýst hins vegar vel á að Icelandair séu að bjóða mun betri flugvelli, þjónustu og lægra verð. Svona á að stunda buisness. (nb. Eru ekki sömu eigendurnir að þessu dóti? Ég get ekki séð að það sé samkeppni lengur í að komast héðan. Gömlu vistarböndin!) #775 Langar að láta vita um okur hjá Rizzo pizza á Grensásvegi. Fór þangað í hádeginu um daginn og við pöntuðum okkur hádegistilboðið s.s. 16"pizza og gos á kr.2290.- Á tilboðsspjaldinu við afgreiðsluborðið stendur 16"pizza og 2L gos á kr.2290.- Strákurinn afgreiðir og afhendir okkur svo glösin. Byrjar svo að afgreiða næsta. Ég spyr hvort ég eigi ekki að fá 2L gosið sem ég keypti. Þá segir hann "NEI, það á bara við ef þú tekur pizzuna með þér - það er nefnilega bannað að hafa 2L plastflöskur inni í matsalnum"! "Gosið fyrir ykkur er þarna í vélinni"!!!!! WHAT! á ég semsagt að borga jafnmikið fyrir vatnsblandað gos úr vél (sem ég NB! drakk bara 1 gas af - en hefði tekið tekið afganginn með mér í flöskunni) og 2L í flösku????? Þeir voru alveg fastir á þessu og voru orðnir frekar dónalegir - "SVONA ER ÞETTA BARA!" var sagt við okkur. Þetta finnst mér OKUR - að borga jafnmikið fyrir vélargos og 2L gos í flösku !!!!!!! Á Rizzo í Árbænum er leyfilegt að hafa 2L gos í matsalnum - afhverju er það bannað á Grensás??!!!! #774 Mig langar að
vara fólk við svokallaðri greiðsluþjónustu
bankanna þar sem
(Sett inn 04.06.08): #773 Ég var fyrir því óláni að gler í spegli á VW Golf brotnaði. Ég skaust í Heklu og ætlaði að kaupa nýjan spegil og verðið þar er rúmlega 10.200. Einföld leit á netinu leiddi í ljós að spegill með öllu kostar USD 56,74 og hæstu mögulegir tollar og vörugjöld eru 47% (tollur 7,5% vörugjald 15% vsk. 24,5%). Þessi spegill ætti því að kosta mig um 7.000 (með flutningsgjöldum) ef ég kaupi hann af netinu. Þarna er ég samt ekki að njóta þess að flytja inn varahluti í miklu magni og geta dreift flutningskostnaði. #772 Ég skrapp í 10-11 í Engihjalla í gær, vantaði litla dós af majonesi. Lítil dós af þessum óþverra kostar þar 229 krónur. Verðskynið mitt sem er dálítið laskað þessa dagana eins og hjá fleirum sagði mér að líta ekki við þessu okri svo ég fór niður í Bónus á Smiðjuvegi og þar kostaði dósin 71 krónu. ÞREFALT VERÐ FYRIR 250 ml. af majonesi ... Nei takk! Þetta er OKUR. #771
Lagði leið mína í Hagkaup í Skeifunni fyrir
ca mánuði síðan og eitt af því sem rataði
ofan í körfuna voru snuð fyrir yngstu dóttur
mína. Tegundin var MAM og fást þær tvær
saman. Í Hagkaup borgaði ég um 1400 kr fyrir pakkann.
Í dag lá svo leiðin í Krónuna upp á
Höfða og viti menn, sami pakkinn á um 750 kr! Munurinn
87%!
#770 Á dögunum keypti ég frosna ýsubita frá GLK matvæli. Ég tók síðan úr pakkanum það sem ég taldi að mundi duga fyrir fjóra og sauð. Rýrnunin var ansi mikil því að þessi skammtur dugði aðeins fyrir tvo. Synir mínir tveir komu ekki í mat þetta kvöld svo að rýrnunin kom ekki að sök, þannig séð. En ég var óánægð með þetta. Í morgun tók ég svo síðasta frosna bitann úr pakkanum til að sjóða handa kettinum. Ég vigtaði hann fyrir suðu og reyndist hann vera 66 g. Ég vigtaði bitann aftur eftir suðu og þá var hann 22 g , einn þriðji af því sem ég borgaði fyrir. Ég veit að það er langt síðan matvælaframleiðendur föttuðu að drýgja mætti mat með vatni, sbr vatnsskinku, hangikjöt og nú líka fisk. Mér finnst þetta ekki í lagi en ég veit ekki hvar ég ætti að kvarta yfir þessu. Það er verið að hafa neytendur að fíflum með því að selja þeim vatn á kílóverði fisks eða kjöts. (Sett inn 03.06.08): #769 Í Lyf og heilsa, verslunarmiðstöðinni Firði, Hafnarfirði, kosta 250 ml af Colgate munnskoli 600 kr., hinum megin við ganginn í Firði er 10-11, þar kosta 500 ml af sama munnskoli 598 kr. og í Bónus kosta 500 ml 398 kr. Þetta er svakalegt okur hjá Lyf og heilsa! (nb. Frjáls samkeppni, frjáls álagning, frjálst val...) #768 Ég fór í Hagkaup í Holtagörðum um daginn og sá Toro rauðvínssósu sem kostaði 206.- kr. Fannst það nokkuð dýrt og lagði leið mína í Krónuna á Bíldshöfða. Og viti menn, þar kostaði samskonar sósa 103.- kr. Sem sagt, Hagkaup var 100% dýrari en Krónan. Það má líka geta þess að þessi sósa kostar 102.- kr. í Bónus, Hraunbæ, og það eru sömu eigendur að Hagkaup og Bónus. Það sem sagt ekki skemmtilegt að versla í Hagkaup. (nb. Mér finnst það reyndar mjög skemmtilegt, en það er bara ekki ódýrt.) #767
Fór í Fjörðinn á "Maður Lifandi" þann
28.05. og keypti tebolla og kökusneið sem kostaði samtals
910 kr. eða tebollinn:320 kr. og kökusneiðin sem var mjög
lítil 590 kr.
#766 Fór í Ísbúð vesturbæjar á Grensásvegi í gær. Þar er svo sem almennt okur og ég gerði mér nú grein fyrir því áður en ég labbaði þar inn að ég gæti búið til ódýrari ísveislu. Það sem mér hins vegar ofbauð var að á meðan verðið á lítra af ís er kr. 660 þá kostar 1/2 lítri hjá þeim kr. 450 (ég var sem sagt að kaupa 1 1/2 lítra + sósur til að taka með). Ég verð að játa að ég skil ekki hvernig hægt er að réttlæta þessa verðlagningu. Ég gerði nú athugasemd en með engum árangri. Kann hins vegar illa við að láta taka mig í bakaríið og hyggst nú sniðganga búlluna þótt þetta sé uppáhaldsísinn minn. En það er greinilega nóg af kjánum eins og mér og búðin sú arna þarf örugglega ekki að kvarta undan kreppu því þarna er alltaf fullt út úr dyrum og maður býður iðulega 15-20 mínútur áður en maður er ,,rændur." Bendi hins vegar öllum sem eru fyrir þennan ,,gamla kalda" ís á Bónusísinn, 2 lítrar iðulega í kringum 200 kallinn. Þarf fleiri orð? (Sett inn 02.06.08): #765 Margir kvarta undan því að vídeóleigurnar séu búnir að hækka verðið, t.d. kostar leigan núna 650 kall í Bónusvídeó. Langaði þess vegna að benda á Laugarásvideó, langbestu leiguna í Reykjavík. Þeir eru í fyrsta lagi með laaangstærsta DVD úrval landsins, í öðru lagi með starfsfólk sem veit alveg helling (þetta eru ekki einhverjir bólugrafnir unglingar heldur kallar sem svara manni heiðarlega ef maður spyr hvort tiltekin mynd sé góð eða slæm) og síðast en ekki síst, þeir eru enn með gamla verðið, 500 kall!! #764 Nú er komið grilltímabil enn og aftur og við hjónin að fjárfesta í gasgrilli. Vert er að benda á að við versluðum gasgrillið okkar í Europris á 35.990 krónur, mjög gott grill m/3 brennurum úr steypujárni, hliðarhellu and the works. Í Ellingsen fæst nákvæmlega sama tegund af grilli á 59.900 krónur. Mismunurinn er því 23.910kr !!! Tegundin er Campingaz Adelaide III. #763
Ég vildi benda á að hægt er að fá “verðleiðréttingu”
í Útilíf. Ég keypti tvö pör
af Scarpa gönguskóm á 29.990 kr parið eða
samtals 59.980 kr. á laugardegi. Fimm dögum síðar
birtist auglýsing frá þeim að allir gönguskór
væru með 20% afslætti. Ég fór í Útilíf
og bað um afsláttinn í formi endurgreiðslu á
kreditkortið mitt. Afgreiðslustúlkunni fannst þetta
skrítin bón en gerði þetta engu að síður.
Ég fékk til baka 11.960 sem er ansi gott tímakaup.
Thumbs up.
#762 / 762
Eins og kemur fram hér aftur og aftur er allt hækkandi. En
fátt hefur hækkað jafn hrikalega mikið og uppáhaldskaffihúsið
mitt, Te og Kaffi. 560 kr fyrir ómerkilegar kökusneiðar,
850 kall fyrir samlokudruslu og heilar ÞRJÚHUNDRUÐ OG
ÞRJÁTÍU krónur fyrir hreint croissant! HREINT!
Ekki einu sinni teskeið af skinkumyrjudrullu inni í því!
Kaffið fer líka hækkandi þarna, ég borgaði
740 kall fyrir cappucino og tvöfaldan latte um daginn og taldi mig
því alls ekki hafa efni á klessu af smjördeigi
fyrir 330 kall..
#761 Fór í Krónuna Bíldshöfða og keypti meðal annars kippu af Pepsi Max sem var verðmertk í hillu á 144 kr. síðan þegar ég fer að skoða miðann sem var í heild yfir 20 þús. Var gosið á 999,- sem er kr. 166,5 stykkið, ég gerði athugasemd við afgreiðslumanninn sem labbaði með mér að hillunni og sá að þetta var 144,- kr. á hillunni, en þá sagði hann að hann hefði tekið eftir því að það væri dýrara að kaupa kippu en eina og eina flösku, sem er ansi undarlegt, það var komin röð á kassan svo ég nennti ekki að vera röfla útaf þessum 135,- krónum en vildi koma þessu á framfæri. #760 Hvenær getur talist hagkvæmt að greiða 929 kr. fyrir ostborgara, franskar og "vatns"kók í glasi? Þetta er auglýst sem "Tilboð" hjá AktuTaktu - hvet neytendur til að hugsa áður en verslað er hjá slíkum okurbúllum. Íslenskir neytendur ættu nú að hugsa áður en verslað er og sniðganga #759 / 759Jói
Fel: 0.5 lítrar af Pepsi Max -
kr. 250. Jói Fel er greinilega aðeins fyrir auðmenn.
(Sett inn 01.06.08): #758
Ég keypti fljótandi-sma 100 ml fyrir sléttri
viku á 89 kr í Hagkaup í Kringlunni. Í
#757
Ég brá mér í Bláa Lónið
áðan ásamt félaga mínum. Aðgangseyrir
litlar 1800 krónur. Það voru svo rosalega margir að
það voru mjög fáir skápar lausir. Ég
og félagi minn þurftum að deila með okkur skáp
því það voru ekki margir skápar lausir, við
þurftum að skiptast á að fara í sturtu þar
sem það var stöðugur straumur fólks í
sturturnar og fórum 45 mín í laugina sem var svo troðin
af túristum þannig að það var ekki verandi þar.
Við fórum fljótlega uppúr.
Verðdæmi:
FKN OKUR! Svo annað, þegar við vorum á
leiðinni út tókum við eftir því að
á dyrunum sem maður labbar innum er svona rauður hringur
með gulu striki (bannað að fara hérna megin) á
hurðinni, maður þurfti að labba í gegnum sérstaka
"giftshop" til að komast út. Allt á rándýru
verði. Sennilega bragð til að geta selt túristunum eins
mikið og hægt er á okurprís.
#756 Fór með börnin mín á Mcdonalds áðan. Keypti þrjú barnabox. Öll með lítilli eplasafafernu í stað kóks í pappaglasi. Þegar ég fór að skoða strimilinn rak ég augun í, að stykkið af eplasafanum kostar 150 kr. Sem sagt 450 kr fyrir þrjá eplasafa!! Þetta finnst mér vera okur vægt til orða tekið. Ég held að það sé hægt að fá ansi mikinn eplasafa í Bónus eða Krónunni fyrir þennan pening. Mér finnst þetta sérstaklega sæta furðu þar sem Mcdonalds vilja gefa sig út fyrir að ýta undir yfirlýst lýðheilsumarkmið og einnig gefa sig út fyrir sanngjarna álagningu. Ég hringdi í símanúmerið á strimlinum og þar var ég spurður hvað eplasafinn kostaði á KFC! Ég sagði að mér væri slétt sama. Ég væri að hringja til Mcdonalds og gera athugasemd. Viðkomandi starfsmaður sagði að sama verð væri fyrir kók í pappaglasi og fyrir eplasafann. Hann sagði einnig að hann skyldi taka málið upp á vikulegum fundi hjá verkstjórum Mcdonalds. Vonandi verður þessu breytt. #755 Fór í sjoppu sem heitir Bettís í gær og er hjá gömlu sundlauginni í Kópavogi (sbr. Okur #683). Við vorum tvö á ferð og keyptum okkur sinn hvorn ísinn, stórann og lítinn án dýfu eða skrauts. Þar kostar lítill ís 250 kr. og stór ís 330 kr. sem er nú ekki ódýrasti ísinn í bænum… Ætlaði samt að láta mig hafa það að borga það en drengstaulinn sem var að afgreiða ætlaði að rukka okkur um 600 kr. fyrir herlegheitin og snuða okkur um 20 kr. (maður verður nú að spá í hverri einustu krónu á þessum krepputímum). Eftir að ég leiðrétti drenginn og hann ætlaði að rukka okkur um rétta upphæð fékk ég skyndilögun í Buffaló súkkulaðistykki og bað hann um að bæta því við og hann rennir kortinu í gegn. Þegar ég síðan kvitta undir strimilinn sé ég að 810 kr. voru dregnar af kortinu, sem sagt Buffaló stykkið kostaði 230 kr.!!!! Þetta er okur af verstu gerð! Ég spurði hvort þetta væri rétt verð og fékk nett garg til baka um að þetta væri rétt, stykkið kostaði 230 kr. Drengurinn greinilega pirraður á þessari “kellingu” sem fyrst krafðist þess að fá að borga rétt verð fyrir ísinn og spyr síðan út í okurverð á súkkulaði… Ég nennti ekki að skila stykkinu og þegar ég kom út í bíl leið mér eins og ég hefði verið illa tekin í ósmurt. Þess má geta að ég keypti sömu tegund af súkkulaði í Hagkaup í síðasta mánuði á 99 kr. stykkið. Það er allavegana ljóst að ég á ekki aftur viðskipti við þessa okur-sjoppu, sem og okur-bakaríið sem er í sama húsi. #754 HP Color LaserJet 2500 prenthylki fást í íslenskum verslunum og kosta kr. 12.900,- hylkið, eða kr. 51.600,- (4 hylki 4 litir). Sömu hylki fæ ég fyrir kr. 4.086,- hylkið eða kr. 16.344,- (4 hylki 4 litir) hjá erlendri vefverslun, (verð með sköttum og flutningskostnaði). - Þarna munar 35.256,- krónum. #753 Var sannkallaður zombie með visakort í vikunni. Fór í Bakarameistarann í Suðurveri og keypti eitt baguette brauð, þið vitið þessi löngu hvítu sem eru gerð úr hveiti, vatni og geri. Eitt slíkt kostaði tæpar 500 krónur og ég svitnaði þegar ég kom út í bíl og skoðaði kvittunina. Hefur hveiti virkilega hækkað svooooona mikið????? #752
Fékk mér "venjulegt" kaffi í Te og Kaffi
Holtagörðum, borgaði 320 kr fyrir bollann.
#751 Ég keypti pakka með 4 Venus rakvélarblöðum í Krónunni Fiskislóð þann 30. maí á litlar 1375 kr. NB þetta var ekki Venus Vibrance, þau eru ennþá dýrari. (Sett inn 31.05.08): #750 Ég var að kaupa mér nikotíntyggó og að því ég er búsettur í Keflavík þá lá leið mín í Lif og heilsu í Keflavík þar sem ég verslaði einn stóran pakka af Nicorette fruitmint 2 mg nicotin 210 stk. og borgaði fyrir það 4.629 kr. Ég var alveg stein hissa en ég keypti pakkann í þetta skipti og hugsaði bara með mér að hætta að nota nikótín-tyggjó því það er orðið svona dýrt. Fyrir rétt um mánuði var ég staddur í sömu verslun og verslaði sömu vöru að þá kostaði pakkinn 3.067, svo hann hefur hækkað um 1.562 kr á einum mánuði sem er algjört OKUR OKUR OKUR! Ég hringdi í Lyfjaver á Suðurlandsbraut og spurði um sömu vöru og þar kostaði pakkinn 3.430. Þó að bensínið sé dýrt þá myndi borga sig að keyra til Reykjavíkur. #749 Ég kaupi stöku sinnum franskar Í Aktu taktu í Breiðholti (áður Staldrið) til að hafa með matnum. Miðstærð kostar kr. 429 og hingað til höfum við verið ánægð með skammtinn. Í gærkvöldi þótti mér pokinn hins vegar heldur rýr þegar heim var komið. Viktun sýndi 213 grömm sem gerir 2.104 KR/kg, TVÖ ÞÚSUND KR FYRIR KG AF FRÖNSKUM!!. Þetta er ekkert annað en OKUR. Ég fór aftur í verslunina og taldi að um mistök hefði verið að ræða. Starfsfólkinu var sléttsama, sagði að þetta væri eðlilegur skammtur og ranghvolfdi bara í sér augunum af hneykslun yfir því að mér þætti þetta lítið fyrir peninginn. Bar fyrir sig að eigandinn segði að þetta ætti að vera skammturinn. Eigandinn staðfesti í símtali í dag að þetta væri sá skammtur sem fólk fengi fyrir 429 kr, og 2.000 kr/kg væri ekki mikið að sínu mati vegna þess að allt hefði hækkað svo mikið. Var ekki hnikað með það að ég fengi meira magn en bauð endurgreiðslu sem ég afþakkaði. Í annari sjoppu fékk ég um það bil helmingi stærri skammt fyrir sama pening í dag, nánar tiltekið við Ármúlann nálægt Grensásvegi. AktuTAKTU liðið getur haldið áfram að TAKA 2.000 kr/kg fyrir franskar í poka af en þau eru alveg laus við mig hér eftir. #748 Tók eftir mögnuðum auglýsingum frá BT í fyrradag þar sem þeir auglýsa vaxtalaus kjör. Ef þú margfaldar hins vegar mánaðarlegu greiðsluna með mánaðarfjöldanum færðu út uþb. 11%-12% hærra verð. Þetta er kannski ekki okur en þetta er í það minnsta ekki alveg satt… (ATH: Í sambandi við færslu #748 þá vil ég bara benda á að í bæklingi BT er hægt að sjá af hverju þessi munur er. Þar stendur nákvæmlega "Inn í útreiknuðum mánaðargreiðslum er 5,8% skuldaálag og 3% lántökugjöldum auk 250 kr. færslukostnaðar". Þetta er eitthvað sem lagt er á öll lán. Vill einnig benda á það að ég er starfsmaður BT.) (nb. Þannig að þetta eru "vaxtalaus kjör" en bara með "5.8% skuldaálagi" í staðinn? Sniðugt.) (ATH: Þessi 5,8% eru útaf því að þú ert ekki að staðgreiða lengur. Er á öllum lánum vaxtalaustum sem og með vöxtum. Öll verð í BT eru staðgreiðsluverð og þar sem þú ert ekki að staðgreiða lengur þá bætasta þessi 5.8 % við.) #747
Það er ekki gefið að láta smyrja bílinn:
(Sett inn 30.05.08): #746
Ég hef mjög gaman að því að fara á
kaffihús og fá mér gott kaffi.
#745
Hef í nokkurn tíma notað vöru í hárið
frá Redken sem heitir Maneuver. Sú vara (lítil 100ml
dós) kostaði síðast þegar ég athugaði
um 3200-3400 krónur á hárgreiðslustofum borgarinnar.
Ekki dettur mér til hugar að borga slíkt OKURVERÐ
fyrir vöru sem endist jafn stutt og þessi, en ég hef
hingað til getað keypt þetta efni víðs vegar um
austurströnd Bandaríkjanna í verslunum sem nefnast Trade
Secret og kostar þar $13,95 auk söluskatts (sem er um 5-8,5%,
mismunandi eftir fylkjum). Sama verð er á vörunni á
heimaslóðum Redken á 5th ave í NYC sem og á
flestum öðrum útsölustöðum í BNA sem
ég hef fundið þetta efni á. Þetta gera um
1100 íslenskar krónur sem er GRÍÐARLEGUR munur.
Ég taldi skýringuna hljóta að vera mismunandi
verðlag milli heimsálfa, en nú í síðustu
viku var ég á ferð í Bretlandi og fann þar
Trade Secret verslun og kepti umrædda dós þar á
GBP 10,50 sem gera tæpar 1500 íslenskar krónur. HALLÓ!
Þetta þýðir að varan er um 220% dýrari
hér en í Bretlandi, sem við öll vitum að er
eitt dýrasta land í evrópu, og heilum 300% dýrari
hér en í BNA. Svipaða sögu er að segja
af muni á öðrum “fagmanna” hárvörum s.s. sjampói.
#744 Var í Skagfirðingabúð á Sauðárkróki sem er stórt kaupfélag í anda Hagkaups. Ég rak augun í nýlega geisladiska og var mjög hissa á verðinu. Ég veit að ég er í búð úti á landi en þetta er óeðlilegt. Mjög margir nýlegir erlendir tónlislardiskar voru á 2980 kr. Dæmi um verð um nýjan vinsælan
disk:
Þegar búðir eru farnar að setja 30% hærra verð á diska en Skífan, sem er einnig alræmd okurbúð, þá er ekki bara um okur að ræða, heldur ofurokur! #743 Þegar ToysRus opnaði í Reykjavík var Babyborn dúkka á opnunartilboði á 1990 krónur. Nokkuð var um að fólk reyndi að fá sent til sín ýmislegt á opnunartilboði í póstkröfu en búðin sinnir ekki slíkri þjónustu. Hinsvegar sagði starfsfólk búðarinnar að samskonar tilboð yrðu í gangi þegar ToysRus myndi opna á Akureyri. Á morgun opna svo herlegheitin hér á Akureyri og viti menn: Opnunartilboð á Babyborn dúkkunni hljóðar upp á 4599 krónur! ÞETTA ER OKUR!!! (Ath: Það er sama verð á öllum vörum í verslunum Toys"R"Us á íslandi. Þegar verslunin í Kópavogi opnaði þá var opnunartilboðið á BabyBorn dúkkum á 1990 kr en síðan þá hafa verð í versluninni hækkað, vegna t.d gengi krónunar, hækkun á tollagjöldum o.s.frv. Þessi hækkun er því ekki einsdæmi fyrir Akureyringa heldur líka þá sem búa á höfuðborarsvæðinum. Það mun ávalt vera sama verð í öllum verslunum Toys"R"Us á íslandi.) #742 Var í fríhöfninni í síðustu viku og keypti mér síma hjá Elko. Sony Ericsson K530i – ég bjóst við að verðin í fríhöfninni væru ódýrari en í búðum Elko í bænum þar sem enginn virðisaukaskattur er á vörunni, en svo fór ég að skoða þetta aftir að ég kom heim. Þá er síminn 2000 krónum dýrari í fríhöfninni en í bænum. Keypti símann því miður á Kr. 21.999 en hefði getað fengið hann hérna í bænum á 19.895 ath.. með VSK. Ég hugsa mig núna vel um áður en ég kaupi nokkur í þessari svokölluðu FRÍHÖFN hérna á Íslandi! (nb. Ef þú hefðir lesið okursíðuna þá hefðirðu vitað þetta. Fríhöfnin er eiginlega bara ódýrarari svo einhverju nemur þegar kemur að verði á tóbaki og búsi. Það borgar sig engan veginn að fara þarna inn og halda að maður sé að fara að gera góð kaup.) #741 Ég lagði leið mína í gær í verslunina Einu sinni var í Faxafeni. Ég sá þar barnaborð og stóla sem mér leist vel á, og ákvað að kaupa, enda á mjög góðu verði, kassinn var merktur með verðmiða 2.000,- Þegar á kassann var komið var mér tjáð að þetta væri bara borðið, ef ég ætlaði að fá borð og stóla kostaði það 4.990,-. Ég mótmæli þessu, sagði að á kassanum kæmi skýrt fram hvert innihaldið væri (þar stóð skýrt að í kassanum væri borð, sólhlíf og 2 stólar) og því bæri versluninni að afhenda mér þær vörur fyrir það verð sem kassinn væri merktur. Eigandi verslunarinnar bar við mistökum og að það ætti að vera alveg morgunljóst að þetta væru mistök og að hún gæti ekki selt mér vöruna á því verði sem stóð á kassanum. Hún þyrfti að vera með amk 10 manns í vinnu ef hún ætti að geta fylgst með búðinni og að allir verðmiðar væru á réttum stað og ég yrði bara að kyngja því. Ég hvet fólk því til að athuga vel verslunarhætti í svona dýrum búðum eins og Einu sinni var. (Sett inn 29.05.08): #740 Samstarfsmaður minn tekur í nefið. Tóbakið er af misjöfnum gæðum. Gæðaminna tóbakið lyktar heldur illa og konunni hans líkar það fremur illa. Minn kann sig og fer í Hagkaup hérna á Akureyri til að kaupa sér kölnarvatn. Hann kaupir 50ml af Fahreinheit (ekki einusinni selsíus) á heilar 5.789. Hann borgar náttúrulega, en bara vegna þess að hann var í losti. Þessi ágæti maður er á lágum launum og því setti þetta ansi góða holu í veskið hans. Ég held hann sé að spá í að hætta að taka í nefið. #739 Kauptu sumardekkin í Danmörku og fáðu helgarferð fyrir 2 í kaupbæti! Eftir að N1 keypti upp öll dekkjarverkstæðin á höfuðborgarsvæðinu er sama ríkisverðið á öllum dekkjunum sem þeir selja. Til að mynda var ég að skoða dekk undir bílinn minn. Dekkin sem ég hafði augastað á voru í frekar háum gæðaklassa og vildi N1 fá 33.000 kall á stykkið. (132.000 fyrir settið). Hinsvegar komst ég að því að hægt er að kaupa sömu dekk, og í raun hvaða dekk sem er á rúmlega 50% afslætti hjá daekonline.dk í danmörku. (sömu dekk kostuðu þar 14.000 stk. Þrátt fyrir hátt gengi, eða 56.000 kall gangurinn) Ákvað ég að skella mér á dekkin í Danmörku, fór út ásamt konunni og fluttum við þau heim 2 dekk á mann og innrituðum þau eins og hvern annan farangur hjá Iceland Express. Niðurstaðan var því sú að ég ég fékk helgarferð fyrir 2 til kaupmannahafnar í kaupbæti, miðað við íslenska okrið. #738 Verð að
benda á síðuna #737 Get varla orða
bundist yfir því hve framleiðendur og búðareigendur
eru útsmognir í sölumennskunni. Okur er ekki
alltaf sýnilegt sem hækkuð krónutala, heldur
líka breytt vigt eða fjöldi í pakkningu, þannig
fá þeir meira fyrir minna. Tek sem dæmi kjúklingabringupakkningu
í Bónus. Þar hafa alltaf verið 4 bringur í
pakkningunni og kílóverðið um 2100. Þannig
að í kassanum hefur verðið verið á bilinu
1700 - 2000 krónur, eftir þyngd pakningarinnar. Nú
ber svo við að það eru aðeins 3 bringur í
hverri pakkningu. Kassinn segir ennþá að heildarverðið
sé á bilinu 1700 - 2000 krónur eftir þyngd,
nema það sem er öðruvísi núna er að
kílóverðið er komið upp í 2799.- krónur!!!
Ef fólk áttar sig ekki á því að það
er búið að taka eina brigu úr pakningunni er ekki
víst að það átti sig á verðhækkuninni
því það lesa ekki allir kílóverðið
heldur aðeins krónutöluna sem það þarf
að borga, og hún hefur jú ekki hækkað!!!
(Sett inn 28.05.08): #736 Ég lagði leið mína í Hagkaup í Kringluna í apríl og keypti mér nærbuxur frá Trimump super soft á 1999 kr. Síðan einum og hálfum mánuði athuga ég verðið í síðustu viku þá brá mér heldur betur. viti menn nærbuxurnar komnar á 4199 kr. Vildi bara láta vita af þessu. #735 Í fyrradag fór ég á Dylan tónleikana. Þar kostaði lítill Carslberg í dós 650 krónur. Þetta er svívirðilegt. (Ath: Ég var einnig á Bob Dylan tónleikunum og sá að það verið að rukka 650 íslenskar krónur á gengi dagsins fyrir 33cl dós. Ekki datt mér í hug að versla eina. Ég var einnig í höllinni ekki fyrir löngu síðan og þá á Jet Black Joe tónleikum. Þar var aðeins Tuborg í boði og 33cl dósin þá á 500 íslenskar krónur. Hvort tveggja er okur!) #734
Nú vantaði mig að tengja græju sem er með dvi
tengi í hdmi tengi í sjónvarpið (dvi nýja
tölvuskjátengið og hdmi er high-def sjónvarpstengi).
En svoleiðis snúrur eru rááándýrar
hér á landi
Fór um daginn í Task og sá
að hún var á um 5900kr þar og, að mér
skilst, á svipuðu verði í Apple
#733 Mig vantaði blautþurkur og sú tegund sem ég kaupi vanalega var ekki til í Bónus svo ég fór í Hagkaup. Þar kostaði pakki að Pampers sensitive blautþurkum 618 krónur síðast þegar hann var til í Bónus kostaði hann 268. Þetta er nú algjörlega fáránlegt verð ég fann ódýrari tegund sem kostaði samt næstum 500 kall. Ég keypti ekkert annað í Hagkaup í þessari ferð þar sem mér var bara hálf óglatt. #732 Eignaðist barn fyrir skemmstu og hef verið að kaupa grisjur 10x10 cm í Lyfju og kostaði pakkinn af þeim um miðjan mars um 270 krónur. Fór síðan um daginn og ætlaði að kaupa sömu vöru en þá var hún komin í tæpar 430 krónur, ég hætti náttúrulega við og gekk út. Við erum að tala um nokkrar einnota grisjuklúta sem hækka um 160 krónur á tveimur mánuðum. Skýringin: HÆKKUN FRÁ BIRGJUM (Logalandi í þessu tilfelli). #731
Óformleg verðkönnun á 2 kg. af Neutral-þvottaefni
mánudaginn 26. maí.
Ég veit að klukkubúðirnar og Nóatún eru þekktar fyrir hærra verð en þetta er OKUR! #730
Í Vestmannaeyjum er selt kex sem heitir Goteborger Rem kex
litlar kexkökur með súkklaði að utan og myndubragði
inní.
#729 Ég varð vitni að okri í Krónunni í dag. Þar var til sölu kókómjólk í 320ml flöskum á 89 kr stykkið, þar við hliðina á var svo boðið upp á pakka með 4 sams konar flöskum (320ml), en merkt sumarleiki Klóa. Þessar fjórar flöskur kostuðu 489 kr, eða ríflega 122 kr stykkið. Þetta gerir 37% verðmun á nákvæmlega sömu vöru, nema að dýrari umbúðirnar eru sérstaklega markaðsett fyrir börn. Valið var mjög einfalt fyrir mig, ég valdi stöku flöskurnar á 89 kr, en vonandi er fólk vakandi fyrir svona okri. (18 dæmi sett inn 27.05.08): #728 Ég er að renna yfir kvartanir um okur á síðunni þinni ... það sem stingur mig er að fólk virðist vera að kvarta undan okri á hlutum sem það er BÚIÐ AÐ KAUPA ... ég held að mesti sparnaðurinn sé fólginn í að skoða verðið og ákveða út frá því HVORT þú ætlar að kaupa vöruna ... annars fór ég í Hagkaup um daginn og ætlaði að splæsa á mig ananas og kirsuberjatómötum ... munur á hilluverði og verði á kassa á tómötum var 200 kr (164 vs 368 kr) og eitt stykki ananas kostaði 705 kr sléttar ... ég bað kassastarfsmanninn vel að lifa (að sjálfsögðu með kurteisi og elskulegheitum) og fór í bónus þar sem tómatboxið kostaði 146 kr og eitt stk ananas 168 kr (óháð stærð) ég tek fram að um sama framleiðanda var að ræða í báðum búðum, bæði af tómötum og ananas. (Ath: Nú vinn ég í Hagkaup og starfa sem yfirmaður grænmetis í Kringlu og það stingur í augun að horfa á þessa vitleysu með verðið á kirsuberjatómutunum. Ég skoðaði þetta sérstaklega daginn eftir að ég hafði lesið þetta og get hér með bent á að ERLENDIR kirsuberjatómatar eru á 164 kr/pk en Íslenskir á 368 kr/pk. Svo er einnig hægt að fara í lífrænt ræktaða frá bæði Akri og Engi en þá ertu líka kominn í mun dýrari pakka.) (ath: þetta voru erlendir tómatar, ég er enginn kjáni og var með erlenda tómata, málið er að það eru alveg sumir sem lesa sér til um verðin og ég er ein af þeim, þetta voru erlendir tómatar, tvær týpur voru í boði.) #727 Bakarí
Konditorí v. Suðurlandsbraut
4A eru þekktir fyrir að vera okurbúlla -
#726
Það er mikið rugl sem á sér stað á
lyfjamarkaðnum á Íslandi. Ég fór í
#725
Keypti nýju plötuna með Portishead - Third í
12 tónum þann 23. maí
#724
Ég fór í skóverslun Steinars Waage í
Smáralindinni einu sinni sem oftar á þriðjudaginn
20. maí og keypti barnaskó. Svona skó hef ég
keypt frá árinu 2000 og að minnsta kosti 20 pör
síðan þá. Keypti par í desember 2007 sem
kostaði 4.990.- krónur, man það svo vel því
ég fékk 10 krónur til baka af fimmþúsundkrónu
seðlinum sem ég greiddi með þá, annað par
keypti ég svo í mars 2008 sem kostaði 5.990.- og svo
parið sem ég keypi núna 20. maí á kr. 7.
995.-
#723
Enn eitt Byko-okrið: Vantaði glæra gúmmíslöngu
í fiskabúrið mitt, fékk 2 metra af slöngu,
keypti síðan nokkra aðra hluti og borgaði. Fannst ég
borga full mikið
#722
Ég og dóttir mín fórum um daginn í Bernhöftsbakarí
á
Bergstaðarstræti
#721 Fer stundum í Tvistinn í Vestmannaeyjun og kaupi kaffi í plastmáli til að taka með í vinnuna og borga 100 kr. fyriri það, í síðustu viku var komin ný kaffi vél og ég ætla að rétta afgreiðslustúlkunni 100 kr peninginn , nei, þá kostar kaffibollinn 250 kr, vegna þess að það er ný kaffivél! Algjörðlega ólíðandi, kaupi mér aldrei aftur kaffi þarna á 250 kr. bollann í plastglasi. #720
Ég fór í SPAR í Bæjarlind að
versla kattarsand. Sá í hillunni kattasandinn, glæran
sand með bláum kúlum frá framleiðandanum Vitakraft.
2.2 kg poki kostaði 855 krónur sem mér fannst heldur
mikið en lét samt slag standa þar sem ég var í
tímaþröng.
#719 Ég þurfti að kaupa bleyjur á dóttur mína í gær á sunnudegi því miður en vanalega versla ég þær í Bónus á 890kr pakkann á virkum dögum. Fyrst fer ég í 11-11 þar sem Pampers bleyjupakkinn kostar 1699kr en mér ofbauð þetta okur og ákvað að leita til 10-11 í staðin(ekkert annað opið á þessum tíma) þar kostaði sami bleyjupakki 2090kr sem er meira en 100% dýrara en í bónus. #718
Var að koma úr Krónunni á Fiskislóð.
Keypti fátt en fannst dýrt.
#717 Fyrir jólin kostaði barnaklipping í 101 Hárhönnun á Skólavörðustíg 2800 krónur. Nú kostar barnaklipping þar 3900 krónur. Ástæðan fyrir hækkuninni er þar sögð vera gengishækkun. Hvað er hægt að ganga langt í slíkum tilsvörum þegar beðið er um útskýringar á hækkun? Þetta er varla annað en okurhækkun og það ósvífin! Á Hársnyrtistofunni Vitatorgi, Lindargötu 59, kostar barnaklipping ekki nema 1700 krónur. #716 Ég vildi bara koma með dæmi um mjög góða þjónustu hjá Centro á Akureyri... uppúr jólum þá keypti ég gallabuxur á manninn minn sem kostuðu rétt tæpar 7000kr sem mér finnst svo sem ekkert rosalega ódýrt en buxurnar voru búnar að vera í mjög lítilli notkun í rétt um 2 vikur þegar þær voru hreinlega komnar í hengla en við búum frekar langt í burtu og í þau skipti sem við fórum í bæinn þá gleimdum við að taka þær með okkur þangað til núna um daginn loksins mundum við eftir því en þar sem langur tími var liðinn og við vorum ekki einusinni með upprunalegu kassakvittunina (bara útprentun úr heimabankanum) bjóst ég ekki við því að fá þær endurgreiddar, vildi aðallega bara láta verslunareiganda vita af þessu en stúlkan sem tók á móti þeim hringdi í eigandann sem var ekki á staðnum en væntanlegur og við ákváðum að þau myndu bara hringja í mig og láta mig vita hvernig færi... rétt um klst seinna fékk ég símtal frá konu sem sagði mér að þessar 7000kr yrðu lagðar inná reikninginn minn og baðst afsökunar á þessu öllu saman... mér fannst þetta mjög góð þjónusta og vildi endilega láta fólk vita af þessu... Auk þess sem þau í Centro eru mjög dugleg að setja vörur sínar á tilboð og er oft hægt að gera mjög góð kaup á fötum hjá þeim en eins og flestir hafa tekið eftir undanfarið þá eru föt eitthvað sem yfirleitt er ekki hægt að kaupa ódýrt. #715 Við skötuhjúin
fórum að sjá Indiana Jones í bíó
í gær og fengum nett
#714 Langar að vara fólk við verðmerkingum í Krónunni í Mosfellsbæ. Boðið er upp á vörur sem merktar eru góð kaup en engin verðmerking. Þegar betur er að gáð þá felast góðu kaupin í appelsínusafa. Tveggja lítra ferna kostar 339 kr. sem er rándýrt það er ekki furða að þeir verðmerki ekki vörurnar. Skoðið líka strimilinn vel, hann er sko aldeilis ekki alltaf í samræmi við verðmerkingu. #713
Fór í Húsasmiðjuna á Hvolsvelli
og keypti fyrir rúmlega 3.000 kr. Þegar ég var að
labba út leit ég á nótuna og sá að
verð á einum hlut var ekki það sem mig minnti. Fór
því og tékkaði á öllum verðum á
þeim hlutum sem ég keypti, en þeir voru 5 talsins. Skemmst
frá því að segja að verðið á
kassa var hærra í 4 tilfellum af 5 en eitt var sama á
kassa og í hillu.
#712 Gjafir
jarðar, sem var ein uppáhaldsbúðin mín,
ég fór þangað um daginn og ákvað að
kaupa pakka af uppáhaldsreykelsunum mínum, ég
spurði afgreiðsludömuna hvað þeir kostuðu og
hún sagði 450kr, svo ég ákvað að taka
tvo, þegar ég ætla að borga þá er önnur
að afgreiða og hún spyr hina hvað þetta kostar
ég sagði hún hefði sagt 450, og hún sagði
nei það getur ekki verið við kaupum þetta inn á
400 kr þetta kostar allavega 800-900 krónur en ég skal
láta þig hafa þetta á 800 kr eins og hún
væri að gera mér einhvern greiða, ég var
mjög fúl og ákvað að sleppa einum pakkanum en
keypti þó einn pakka en dauðsá eftir því
, það er á hreinu að ég á ekki eftir
að verlsa þarna aftur, ég fann svona pakka á netinu
þar kostar hann 2.95$ ss. um 200 krónur.! (Ath: Gjafir
Jarðar selur reykelsi í mismunandi stærðum og kassi
með 15 gr. kostar 350.- kassi 40 gr. kostar 850.- kassi 100 gr
kostar 1200.- Það var nýr starfsmaður í afgreiðslu
og hafði ekki gert sér grein fyrir mismunandi stærðum
á milli 15 gr og 40 gr. þar sem pakningin er eins í
útliti. Og ef höfundur af greininni hefur fundið 40 gr
pakningu á netini á $ 2.95 þá er það
ansi gott verð (líklega er það 15 gr. sem hún
hefur séð) en þá á eftir að setja á
vöruna flutnig+tolla+álagningu+vsk. Það er leiðinlegt
að heyra hvað konan er óánægð með okkur
og vonandi kemur hún aftur svo að ég geti útskýrt
málið betur fyrir henni. Við höfum hingað til ekki
verið ásökuð um okurálagningu enda fer það
víðsfjarri að svo sé.
#711
Ég fékk það skemmtilega verkefni nú á
laugardaginn að versla og tengja hljómflutningsgræjur
fyrir
ónefndan aðila sem vantaði græjur fyrir Eurovision-partý.
Okur #581 - 710 eru hér. Veistu um rosalegt okur? Láttu vita! |