| #130 Egglospróf. Þau fást í
fansí umbúðum í t.d. Lyf og heilsu og Lyfju, 5-6
stk í pakka á ca 2700 kr. Hægt er að panta
svona próf, að vísu ekki í eins flottum umbúðum
en þau gera nákvæmlega sama gagn og virka jafn vel,
á saveontests.com. Þar
kosta t.d. 50 stk - já 50 stk - um 1600 kr. þegar þau
eru komin heim til manns í póstinum. Íslensku apótekin
græða hér feitt á fólki sem er að reyna
sitt besta til að búa til börn. (nb. já og á
smokkum líka, hvað er málið með 12 smokka Durex
pakka á 1500 kall? Er nema von að hér séu allir
á lekandi herpes og önnur hver stelpa orðin mamma fyrir
tvítugt!? Auðvitað ættu smokkar að vera fríir
eins og strætóferðir!)
#129 Hef verið að kanna verð á raftækum undanfarið. Þessi blue ray spilari frá Panasonic kostar 149.995 í heimilistækjum. Sami spilari kostar 6500 sænskar krónur sem gera 61.763 miðað við gengi 04.10.2007. Reynar er þessi spilari á verðbilinu 6500-15617 sænskar krónur en engu að síður er hægt að fá hann á um 140% lægra verði í Svíþjóð en á Íslandi. #128 Fyrst, skilaboð til allra sem eru búnir að fá nóg af okrinu: Hættum að kaupa kjúklingabringur, íslenska tómata (bragðlausir), jarðarber .... allt draslið sem er fáránlega dýrt og við höfum ekkert að gera við. Hættum algjörlega að kaupa mat í 10-11, 11-11, öllum þessum verslunum sem stórfyrirtæki eiga og eru okurbúllur. Hættum að kaupa mat í Hagkaupum og Nóatúni, kaupum bara í Bónus og Krónu. Hættum að kaupa okkur rándýra bíla, hinir eru alveg jafngóðir. Og hér kemur svo dæmi um okur: Canon Eos 400 D stafræn myndavél (bara body-ið) kostar 90.000 kr. í Beco, í versluninni B&H photo and video í New York kostar sama vél 600 dollara (tæp 40.000 skv. gengi dagsins). 50.000 kr. verðmunur. Nú er þetta væntanlega tolla- og skattarugli að kenna en kæru neytendur, ekki kaupa ykkur myndavél á Íslandi, það er bara rugl! Baráttukveðjur, reiður neytandi. #127 Kannaði verð á veisluþjónustu Múlakaffis um daginn. Ódýrasti pakkinn þeirra kostaði 2490 kr á manninn!! Þetta finnst mér okur. Taka skal fram að þetta eru snittur, pinnamatur og eitthvað smálegt – engir drykkir. Ekki heitir réttir eða kvöldmatur sem slíkur. Ef halda skal litla veislu, segjum fyrir 20 manns þá kostar það hvorki meira né minna en tæp 50þús fyrir pinnamat!!! Þetta kalla ég OKUR!! Þó ég efist ekkert um gæðin á matnum frá Múlakaffi þá finnst mér þetta ótrúlegt verð! #126 Viljum benda á okur í tannlæknaþjónustu. Ólafur Höskuldsson barnatannlæknir í Domus medica tekur 12.500 kr. fyrir fyrstu skoðun hjá barni. Innifalið í því er óumbeðin fræðsla og atferlismeðferð (7000.- fyrir þetta tvennt). Hér er líka verið að okra með almannafé!! #125 Tók lán hjá Landsbankanum síðasta haust. Vaxtaprósentan var 8,1% þegar ég tók lánið og greiðsluáætlun gerði ráð fyrir u.þ.b. 35 þúsund króna greiðslu á mánuði. Lánið er verðtryggt með breytilegum vöxtum. Vaxtaprósentan í dag er 11,1% og mánaðarlegar greiðslur komnar upp í 43 þúsund krónur! Geðveiki, ekki satt? Þetta er rúmlega 20% hækkun á afborgunum á einu ári! 96.000 krónur á ári takk fyrir. Þar sem lánið var til 10 ára erum við að tala um eina kúlu á tímabilinu. Hvað get ég gert sem neytandi? Farið í annan banka? Sama tóbakið alls staðar og ég fengi hvergi önnur kjör, vaxtatöflur bankanna eru næstum því eins. (nb. Hvað er hægt að gera? Selja allt og flytja til heitu landanna!) #124 Ég bý í Sviss, sem er með dýrustu löndum í heimi, og hér kostar 0.5L bjór í matvöruverslun sFr 0.75.- eða kr. 37.- s.s. kippan kostar Kr. 222. #123 Nicola Lecca, ítalskur rithöfundur, var nýlega á bókmenntahátíð og bjó á Hótel Borg. Lecca var lasinn, bað um flóaða mjólk fyrir svefninn og fékk eitt glas af flóaðri mjólk upp á herbergi. Haldið ykkur fast: mjólkurglasið kostaði 800 kall! Þegar hann vildi fá skýringu á þessu fáránlega verði var sagt að þetta væri "með þjónustugjaldi!" Það fyndnasta er svo að Lecca hefur skrifað bók sem gerist á Íslandi og heitir Hótel Borg. Hún kom út á íslensku nýlega. (Athugasemd: Þetta með Nicola Lecca og mjólkurglas dauðans er ekki rétt, og það veit ég þar sem ég starfaði fyrir bókmenntahátíð í Rvk. og sá m.a. um Nicola Lecca á meðan henni stóð. Lecca keypti flóuðu mjólkina í fyrsta lagi á Holtinu, en ekki Borginni, enda gistu allir höfundar á því hóteli. Hótel Borg verður því að teljast laus allra mála. Á Holtinu var þó um veruleg mistök að ræða, og hann borgaði engar 800 krónur fyrir mjólk. Ástæðan var sú að nýr starfsmaður í móttökunni var ekki með verðskrána á hreinu. Einu sannindin í þessari færslu er sú að Lecca er vissulega að koma með bók að nafni Hótel Borg í haust sem kemur út hjá Bjarti.) #122 Þar sem ég bý í Danmörku
þessi misserin verð ég áþreifanlega var við
okrið þegar ég skýst heim á stormskerið.
Læt hér fylgja með nokkur dæmi: Fór með
vinunum á Café Victor í Reykjavík til að
horfa á blessað tuðrusparkið en fékk nú
sjálfur nett spark í andlitið við það að
fá mér óæta Club FM-samloku (nafnið hefði
svo sem alveg getað sagt mér að þetta væri ekkert
gourmet) og einn stóran öl en fyrir þetta greiddi ég
tæpar 1900 íslenskar krónur sem mér þykir
alveg með ólíkindum t.d. miðað við að
í mörgum "dýrari" borgum Evrópu gæti ég
fengið þríréttaða máltíð
með víni fyrir svipaðan pening!
#121 Hér er það svart á hvítu: Hæsta benzín og díesel verð í HEIMI er á Íslandi! #120 Tannlæknar á Íslandi eru okrarar. Ég er nýkominn frá Pólandi þar sem ég borgaði 1000 sloty fyrir fínar falskar tennur (22300-22400 isk). Falskar á Íslandi kosta að lámarki 250.000 þúsund, og einhverjir tannlæknar senda mótinn til Eistlands og/eða Pólands til að láta smíða fyrir sig plastið. ÞETTA ER OKUR! #119 Blekhylki Epson T044 kostar 1880 kr í Office1Superstore og Pennanum á Ísafirði, en 2499 kr í BT á Ísafirði. Okur eða hvað? #118 Ein 500ml flaska af Erdinger Weissbier í ríkinu: 305 krónur. Nákvæmlega sama flaskan á Kaffibrennslunni: 750 krónur. Verðmunur í prósentum: 146%. (nb. er þetta nú ekki bara hefðbundin álagning á veitingahúsum? Mér finnst þetta allavega ekkert svakalegt. En kannski bara af því maður er orðinn gjörsamlega samdauna okrinu...) #117 Lilja H er óhress með að tollurinn rukki bæði toll og virðisaukaskatt af sendingargjaldi og spyr hvers vegna látum við þetta yfir okkur ganga... #116 Europris – Maarud flögupakki með beikonbragði (ekki supersize): 359 krónur. OKUR! #115 Toyota eru ekki ódýrir bílar, það er vitað mál. Ég keypti flunkunýjan Yaris fyrir seinustu áramót, hann er í ábyrgð, en til að hann haldist í ábyrgð þarf að láta verkstæði samþykkt af Toyota skoða bílinn á 15 þúsund kílómetra fresti. Það kostar um 30 þúsund krónur. #114 Kaffihúsið í bókabúðinni IÐU við Lækjargötu. Fékk mér kaffi og ætlaði að fá mér croissant (brauðhorn) með en hætti all snarlega við því brauðið eitt og sér með ENGU áleggi átti að kosta 350 krónur! (Athugasemd: Athygli mín var vakin á því að á okursíðu þinni væri vísað í “okur” á kaffihúsi okkar, Café Iða, í Iðuhúsinu við Lækjargötu. Þetta mun vera liður #114. Þar er því haldið fram að croissant með engu kosti hjá okkur kr. 350. Hið rétta er, að Croissant hjá okkur fylgir smjör og álegg, hvort heldur um er að ræða ost, skinku eða marmelaði. Það er því beinlínis rangt, og flokkast undir atvinnuróg, að birta svona á síðu þinni.) #113 Ég fékk senda í tölvupósti
auglýsingu á einhverju nýju tískufyrribæri
sem kallast DaysAgo sem á að segja manni hversu langt er síðan
þú setti hlut inn í ísskápinn svo dæmi
sé tekið. Tvö stykki af þessu fyrirbæri saman
í pakka eru auglýst á 1690 kr. hjá Epal
og síðunni hvenaer.is. Á amazon.com kostar þessi
vara 9,95 dollar sem samkvæmt gengisskráningu í dag
614 kr. Þetta getur varla kallast annað en okur þó
að tollar og önnur gjöld reiknist inn í þetta,
varla valda þeir
#112 Omega 3 lýsi kostar ca 500 kr. í Bónus, kostar um 950 í heilsubúðinni Maður lifandi í Borgartúni. (nb. já og líklega 1000 kall í 10/11 og svo framvegis.) #111 Bakaríið Kornið, Lækjargötu – Þýsk saltkringla: Feb. 2007: 100 kr. / mars 2007 (eftir vsk-breytingu): 90 kr. / júlí 2007: 110 kr. / okt. 2007: 120 kr. (nb. Virðisaukaskattslækkunin er að gera góða hluti fyrir almenning! Takk strákar.) #110 Hér er eitt frábært dæmi um skefjalaust okur. Ég og unnusta mín komum við á Ránni í Keflavík og pöntuðum okkur sódavatn (úr vél) og pilsner (ekki bjór). Sódavatnsglasið á 300 kr. og pilsnerinn á 550 kr. !!!!!!!!!!! Þetta hlýtur að vera toppurinn, alls 850 kr. fyrir þessa ómerkilegu drykki. (nb. nei þetta er ekki toppurinn... bíddu bara!) #109 Ég flutti til Hollands núna fyrir
ca 1 mánuði og það er alveg ótrúlegt
hvað það munar miklu á t.d. bara matarkörfunni
hérna og heima. Ég er með þriggja manna fjölskyldu
og þegar við vorum enn heima og fórum í Bónus,
vorum við að borga ca 7.000 og uppí 10.000 kall fyrir matarkörfuna
sem dugði svona ca út vikuna. Þetta á n.b.
að vera ódýrasta verslun á Íslandi. Við
förum hérna í Hollandi í verlsunarkeðju sem
heitir Albert Hein og er á svipuðu leveli og Hagkaup eða
10/11 heima, þ.e. með dýrustu matvörubúðum
hér, og kaupum matarkörfu sem dugir út vikuna fyrir
ca 4.000 til 5.000 kr. Innifalið í því er yfirleitt
kippa af bjór og ein rauðvín eða hvítvínsflaska.
Þetta er nb dýrasta búðin hér. Við prufuðum
að fara í aðra verslun sem er mikið ódýrari,
og keyptum matarkörfu fyrir 2.000 kall.
#108 Í kaffistofu Þjóðarbókhlöðunnar kostar 50 kr. að fá einn bolla af heitu vatni! OKUR! #107 Logitech Z-2300 hátalarar: BT.is kr. 19.900 / Tolvuvirkni.is kr. 18.860 / Hér kemur okrið!: Direct.iskr. 30.460. (Mig langar að byrja á að þakka fyrir þarft framtak með þarfa vakningu með okursíðunni. Svo langar mig aðeins að bera hönd yfir höfuð þar sem síðan Direct.is er nefnt sem okrari og er það skiljanlegt í þessu ákveðna tilfelli. Það er þó óheppilegt að Direct fái neikvæða kynningu með þessum hætti því að eitt af markmiðum Direct er að bjóða vörur á lægra verði en almennt bjóðast. Direct virkar þannig að vöruframboðið er beintengt vöruhúsum erlendis og birtir lagerstöðu og verð eins og það er hverju sinni. Vörurnar fara svo beint frá vöruhúsi til neytanda og er hugmyndin að þannig megi sleppa við birgðakostnað, bjóða neytendum meira úrval og á nær því verði sem þekkist í Evrópu. Hængur á þessu er að flutningskostnaður skekkir þetta módel þegar um er að ræða stakar vörur sem eru tiltölulega ódýrar en eru þungar sem þýðir að flutningskostnaður er hár. Það er einmitt vandamálið með hátalaraboxið sem Direct er að okra á. Flutningskostnaður næstum helmingur af verðinu : ( Ég veit að það þýðir ekkert að afsaka háa verðlagningu en ég tel að á heildina litið takist mér að bjóða mikið vöruúrval og betri verð en oft bjóðast hér á Íslandi. Betur má ef duga skal og ég lít á þetta sem holla ábendingu og réttmæta gagnrýni. #106 Mér finnst okur að borga 450 kr fyrir LÍTINN skyrdrykk í Sporthúsinu. Í þessum drykk er smá sletta af hreinu skyri, 2-3 frosin jarðaber ( poki af þannig kostar um 100 kall), nokkrir litlir melónubitar og kiwibitar. Svo er mokað klökum í þetta og ég sá til konunnar setja vatn úr krananum út í. Svo er þetta mixað í blender og úr þessu verður vatnsþynnt skyr..með nánast engu bragði :/ Þetta kalla ég okur :) #105 Rúnstykki í mötuneytinu þar sem ég vinn 180 kr innifalið smjör og ein þunn ostsneið, til að toppa okrið kostar aukaostsneið 30 kr. Ein appelsína 100 kr. Ef ég trítla út í bakaríið á horninu kostar rúnstykki og einn smurostur um 120 kr. / Seðilgjald HIVE 400 kr. Fyrir að senda seðilinn til greiðslu í banka. Voru svo að hækka netið um 300 kr á mánuði. / Eitt stykki Joggingbuxur á eins árs í POP 2.200 kr. Eitt stykki sambærilegar buxur (vísu ekki sama merki) í H&M í DK 39,50 dkr stk. / Eitt stykki sundferð fyrir fullorðinn í Reykjavík 350 kr. (nb. það margborgar sig að kaupa sér 10 miða kort á 2.200 kr. ) #104 Var að dást að því hvað úlpurnar frá 66°N væru nú flottar. Fannst þær heldur dýrar en ákvað að þær hlytu nú að vera svona vandaðar og mikið lagt í þær. Rak síðan augun í grein í blaði nokkru þar sem gefið var upp að við erum að borga tugþúsundum meira fyrir vörur frá þessu frábæra innlenda fyrirtæki en eitthvað gott fólk í draumalandinu BNA. Það er mér vermir að vita að þarna sé verið að gera gangskör í að halda buddum landans í skefjum. OKUR!!! – SVÍÐINGSHÁTTUR!!! #103 Já, ég kannast við OKUR. OG
TAKK fyrir að vekja máls á þessu! Hvar er talsmaður
neytenda? Þurfum við ekki að heyra meira frá honum?
Gott að hafa aðstoðarfólk með áhuga! Mikil
umræða hefur verið m.a. um lyfjaverð. Það
getur borgað sig að taka upp símann. Ég keypti lyf
og kaupi (því miður) töluvert af þeim, kemst
ekki hjá því. Ég var að kanna hvort ákveðið
lyf væri komið sem beðið var eftir að kæmi
á markað og hringdi í Lyfju og viti menn (eftir að
ég fékk loks samband) lyfið var komið. Ég
spurði um verð og gefið upp var upp rúmar 2.700 kr.
Ég ákvað þá að kanna verðið
í síma á fleiri stöðum (hringdi í
fjórar lyfjaverslanir í nágrenni mínu) og komst
að því að ég gæti fengið sama lyfið
(þá er ég ekki að tala um neitt samheita-lyf) um
500 kr. ódýrara. Þegar til lengri tíma er litið
þá sé ég að ég get sparað töluvert
fyrir mína fjölskyldu bara á þessu eina lyfi að
versla við “litla apótekarann”, Rimaapótek í þessu
tilfelli og mun gera það í framtíðinni. Ég
tek það fram að þetta á ekki eingöngu við
um þetta eina lyf.
#102 Rafhlaða í HP fartölvu í Opum kerfum kostar 21.000.- Samskonar rafhlaðu er hægt að fá frá B.N.A. á 3.000.- með sendingarkosnaði og tollum. Mesti sendingarkosnaður er á milli Reykjavíkur og Suðureyrar. Rafhlaða í Nokia 5140 GSM síma kostar milli 5.000.- og 6.000.- hjá Símanum. Samskonar rafhlaða kostar 980 kr með sendingakosnaði og tollum frá B.N.A. Ef þetta væri nú bara 100% dýrar hérlendis... #101 Okur á íslandi stendur að eitthverju leiti vegna álagningar gráðugra kaupmanna, en mikið af þessu er komið vegna hárra tolla og gjalda hérna á Íslandi. Fólk með smáverslun verður að reikna vöruna ca. 250% úr búð á Íslandi miðað við heildsölu erlendis til að fá eitthvað fyrir sinn snúð og standa straum af daglegum rekstri, svo er innflutningsgjöld, tollur, vsk. o.s.fv. Eitthvað af þessum dæmum snúast um okur, annað er dæmi um háa tolla og gjöld. Fínt dæmi er reiknivél á bílavefnum
bmwkraftur.is
Verð ökutækis
í EUR: 20.000 EUR
Tollur(45%): 821.610
ISK
Stofn til aðflutningsgjalda:
1.825.800 ISK
Útskyrir margt. #100 Hefur þér dottið í hug að kaupa lén, t.d drgunni.is eða drgunni.com? Skoðaðu munninn á http://www.isnic.is/payments/tariff.php og svo bara einhverri sölusíðu líkt og http://www.az.pl/en/prices.action. Munurinn á að kaupa domain-ið drgunni.is og drgunni.com er svo gígantískur að ég á ekki orð. #99 2 x 18" pizzur á Hróa Hetti með 3 áleggju, lítið hvítlauksbrauð og 2 lítrar af.kók: 7.160 kr. og svona til að vega aðeins upp á móti: Morgunmatur í Ikea (2 rúnstykki, 1 egg, skinka, ostur, smjör, sulta og heitur drykkur): 195 kr. (nb. Ikea er griðarstaður fátæka mannsins. Það væri þjóðþrifaráð hjá þeim að opna nokkra veitingastaði í bænum.) #98 Einbýlishúsalóð í Reykjavík, 11.000.000 kr. Ef lóðin er ekki staðgreidd, löngu áður en hún fæst afhent, fæst lán frá Reykjavíkurborg til fjögurra ára... á 19% vöxtum. OKUR! #97 Mér blöskraði kostnaður Íslandspóst. 350 kr. þarf ég að greiða í tollmeðferðargjald. Í því er fólgið að senda mér bréf til að láta mig vita að ég eigi tollskylda vöru í póstinum. Ég gekk sjálf frá tollskýrslu en gjaldið er samt eitthvað sem ég á að borga. Geymslugjald á kassann sem var kannski 9m3 var 160,64 á dag eða 1.445,76 fyrir 9 daga. Þá fékk ég pakkann sendan heim en ég ætlaði að sækja hann. Þá fékk ég þau svör að þeim væri heimilt að senda mér pakka þegar búið væri að ganga frá tollamálum. Þrátt fyrir að hafa gengið frá tollskýrslu sjálf þá varð ég að borga 2.150 fyrir pakkann minn. Dýrt er ,,drottins orðið". #96 118 – að fá beint samband við símanúmer: 50 kr. OKUR! (Þegar neytanda er boðin þessi þjónustu þá er aldrei tekið fram hvað það kostar.) #95 Mohito á Nordica hóteli: 1.650 kr. OKUR! #94 Mohito á Rex, 1500 krónur, OKUR! (Tek fram að í þessum drykk er einfaldur romm, lime, mynta, klaki og dash af gosi.) #93 HIVE rukkar um 1000 kall fyrir hvert auka GB í niðurhali (einu sinni auglýstu þeir ókeypis niðurhal) - OKUR! #92 Ég borgaði 20 USD. fyrir yfirvigt á tösku hjá Jet blue flugfélaginu í ágúst sl. Borgaði svo sama dag hjá Icelandair 72 dollara fyrir sömu tösku. Þetta finnst mér vera okur. #91 Icelandair; 3.000 kr þjónustugjald fyrir að sameina vildarpunkta, þ.e. færa punktana frá þér yfir á einhvern annan. Gert í gegnum vefinn og mannshöndin kemur hvergi nærri. OKUR! #90 Hér er eitt dæmi, kannski ekki merkilegt, en sjoppan við Háaleitisbraut selur 250 gramma Merrild kaffi á 430 kr. OKUR! #89 Keypti strigaskó í USA á 19,90 dollara (gengið var á rétt um 60 = 1250 kr.). Þegar ég kem heim sé ég nákvæmlega sömu skó í Skór.is á 9.800 krónur. OKUR! #88 Gos á Pizza Hut.... Kanna, (1,7 l) á 730 kr. OKUR! #87 Sparisjóðurinn í Keflavík, innheimtulaun af skuldabréfi í eigu Eftirlaunasjóðs Reykjanesbæjar kr. 720 (mánaðarlega) eða 8640 kr. á ári. Er það ekki svívirðilegt okur?! #86 Strætó bs.- 280 krónur stök ferð fyrir fullorðna! Er skrýtið að fólk velji frekar einkabílinn þegar þetta er svona dýrt? #85 Ég hef oft keypt bækur, cd, eða
dvd á Amazon og hef nú yfirleitt bara greitt brosandi, en
um daginn fékk ég þaðan 3 geisladiska og skoðaði
reikninginn vel.
#84 Ég borgaði 400 kr. fyrir eina flösku af Egils maltöli á kaffihúsinu Kaffibrennslan í Póshússtræti. OKUR! #83 Tilkynni eftirfarandi okur: Erlend verðbréfaviðskipti hjá E-trade á Landsbankanum. Ef þú verslar beint við E-trade í USA er þóknunin hámark 9,99 USD en ef þú gerir sömu verðbréfaviðskipti hjá E-trade í gegnum Landsbankann sem er umboðsaðili E-trade á Íslandi rukka þeir 24,95 USD. Rukkað tvöfalt meira fyrir að gera sama hlutinn! Annað. Tók lán í fyrra upp á 1,5 milljónir hjá Landsbankanum til að greiða fyrir endurbætur á íbúðinni minni. Veðsetningarhlutfallið á henni er ekki hátt og ég er ekki "vandræðakúnni". Vextir á láninu eru 10%! Verðtryggðir!! Manni líður eins og hálfvita að láta bjóða sér þetta, en maður átti ekki kosta völ þegar þakið manns og gluggar láku. Verður greitt niður strax! Get sent þér afrit af greiðsluseðli ef þú trúir mér ekki. (nb. ég trúi þér alveg!) Það er svo mikið "peanuts" að vera að kvarta yfir okri á smáhlutum eins og aukakotkeilsósu á hundrað kall eða þ.u.l. (þó það sé gaman) (nb. það er satt!). Bankarnir eru mestu okrararnir og ég er ekki bara að meina færlsugjöld og aðra smáaura, heldur alls konar þóknanir og aukagjöld. #82 Esprit síð hettupeysa í debenhams= 8900 kr ( Esprit Hong Kong =3500 kr) / Kenwood DDX-7039 (reyndar eldri týpan af DDX-7039) kostar í heimilistækjum 180.000 kr (get ímyndað mér að nýja týpan kosti þegar hún komi til landsins um 200.000 kr), í Hong Kong kostar DDX-7039 (nýja týpan) 46.000 kr. / Brjóstahaldari og nærbuxur frá H&M í Hong Kong= 1300 kr, á Íslandi færðu varla sett undir 6000 kallinum. OKUR! (nb. Tja, er nú sanngjarnt að bera verðin hér saman við í Hong Kong?! Er það ekki bara eitthvað láglaunasvæði?) #81 Stór bjór kostar 800 kr á Gráa kettinum. Mér finnst það vera okur. (nb. það er allt dýrt á Gráa kettinum, enda ertu að borga fyrir þann möguleika að þú sjáir einhvern frægan úr Þjóðleikhúsinu drekka kaffi. Nei, segi bara svona...) #80 Timberland skór á Íslandi kosta 18þús kr. Keypti mér Timberland skó í New York á $89, sem eru 5429kr. ef miðað er við 61kr. gengi. #79 Fínt mál hjá þér þetta með okrið … Ég var t.d alveg kominn með ógeð á Gæludýrabúðum. Hef átt hunda lengi og þegar búr sem mig vantaði kostaði 25.000 kall fékk ég nóg. Fór af stað og flutti inn búr, bæli, fuglabúr og annað dót, og er lang lang ódýrust á Íslandi. Líka í Danmörku og þó svo farið sé til USA er ég með mjög svipað verð og netverslanir þar. Svo það er alveg hægt að sneiða hjá okrinu. Viðbrögð við þessum innflutningi mínum hafa verið þvílíkt góð. Bestu kveðjur, Ólöf www.liba.is / www.bulldog.is #78 Mercedes lyklar, C týpa árg 2002 í USA $160 (10 þús), RVK: Ræsir 27þús og Askja 32þús! OKUR! #77 Langaði að byrja á því
að hrósa þér fyrir framtak þitt. Ég
stend nú frammi fyrir því að þurfa að
taka ákvörðun um hvort ég eigi að taka boði
um starf erlendis eða halda mig á Fróni, þetta
hjálpar ;) Annars langaði mig líka til að benda á,
án þess þó að vita hvort þú
hafir áhuga á því, stórkostlegt einkaframtak.
#76 Hérna er dæmi um að menn verða að kíkja í kringum sig áður ein þeir kaupa eitthvað: Tölvuleikurinn "World in Conflict" fyrir PC. Verð í BT: 4.699 kr. Verð í Elko: 2.995 kr. Verðmunur: 1.704 kr. eða um 56%. #75 Pizza 67 Egilsstaðir!!!! 16" með skinku, pepp og beikon smáslatti af frönskum...Ekkert að drekka 3,160 shitt. #74 Next Kringlunni Barnaskór 7.290 kr. Á verðmiða á skónum stendur að þeir kosti 25 pund í Bretlandi eða 3250 kr. 124% verðmunur. #73 Blue Lagoon, Reykjanesi: Fullorðnir kr. 1800 / Börn yngri en 11 ára fá frítt í fylgd með foreldrum eða forráðamönnum / Unglingar 12-15 ára kr. 900 / Öryrkjar og eldri borgarar kr. 1200. OKUR! #72 Jarðböðin við Mývatn: 1 skipti, 16 ára og eldri kr. 1.400 / Unglingar 12-15 ára kr. 700 / Öryrkjar, Spoex og eldri borgarar (67 ára og eldri) kr. 1.100. Ókeypis fyrir 11 ára og yngri í fylgd með forráðamanni Ath! að þau fá ekki aðgang nema í fylgd forráðamanns. OKUR! #71 Nýjasta snobb og tískukaffið... Apakaffið frá Panama. 740 kr. Fiskisögu, 799 kr. 10 - 11 en 1198 kr í Nóatúni í Nóatúni!!! Bíddu... er 800 kall ekki nóg fyrir einn kaffipoka? Okur #1-70 eru hér. Veistu um skefjalaust og svívirðilegt okur? Láttu
vita!
|