OKUR! OKUR! OKUR!
Hér eru birt okurdæmi frá lesendum (og líka ábendingar um ekki okur). Ekki vera zombí með vísakort!
Láttu vita um okur

(52 dæmi sett inn 26.05.08):

#710    Keypti flík í Zöru á 3.595, það verð var búið að líma yfir annan verðmiða á
flíkinni sem á stóð 2.995. Við kassa var mér sagt að ástæðan væri "verðbólga og
verðhækkanir í landinu". Athyglisvert í ljósi þess að þegar var búið að kaupa
vöruna til landsins á tilteknu verði og verðleggja í samræmi við það. Hækkunin,
20%, virtist því eingöngu tilkomin af hagnaðarvon vegna umræðu um verðhækkanir
undanfarið! 

#709    Mitt framlag til okurs sem fólk má vita af er í Þjónustumiðstöðinni á 
Þingvöllum. Þar er seldur ís úr vél, lítið box kostar ,,litlar,, 480kr!! og
stórt box kostar aðeins 510kr.!!! Það fylgir nú sósusletta með en ég held að 
hún hýfi ekki verðið upp. Tek fram að ísinn var ekki borinn fram í gullboxum.

#708    Langar að benda á okur í Shellskálanum í Sandgerði. Ég keypti mér Popp íspinna þar 18.5.2008 á 290 kr. Þvílíkt okur...

#707    Ég fór nýlega í Eden eins og oft áður. Tertusneiðarnar hafa minnkað um helming síðan Bragi átti Eden og hækkað líka í verði eins og fleira þarna. 

#706    Ég var staddur á Akureyri um helgina og við félagarnir ætluðum að enda
bæjarröltið á því að kaupa okkur pizzu. Við fórum á stað sem heitir Tikk
Takk sem er staðsettur í hjarta Akureyrar. Þegar við ætluðum að borga þá
kostaði þetta okkur 3490 krónur! Reyndar með einni 2ja lítra kók.

16" pizza með pepperoni = 3120.
2ja lítra kók = 370.

Mér finnst þetta ekki í lagi! (nb. Víða á Íslandi er verð á pítsu svo sannarlega ekki í lagi. Þetta er nú bara brauð með áleggi, for kræing át lád! Því er bara eitt hægt að gera: Ekki taka þátt í þessu rugli.)
(ath: Til að byrja með, Þetta er pínulítill staður og því fáum við ekki þá afslætti af hráefnum sem stóru staðirnir fá.  Það er hærra verð hjá okkur á næturnar, við þurfum jú að greiða starfsfólkinu hærri laun þá, við erum með tilboð á 16" til kl 23:00 á 1290kr.  Annað sem ég vil benda á er að á næturnar eru 16" pítsur ekki á matseðli því það hægir svo á eldhúsinu (aðeins einn ofn) og drukkið fólk er ekki með neitt tímaskyn og er oft byrjað að kvarta yfir að þetta taki of langan tíma eftir 2-3 mín(venjuleg bið er 10-15 mín)  Aftur á móti ef fólk vil samt sem áður 16" á hærra verði þá er það undir því komið!. Síðan vil ég að lokum benda á það að við höfum ekki hækkað verðin hjá okkur síðan síðasta vor og stefnum á að hækka þau ekki, ef við mögulega getum. Í sambandi við þessa pítsu þá hefur verið meira en bara pepperoni á henni þetta eru allavega 3-4 áleggstegundir á næturverði.)

#705    Langar að vekja athygli á verluninni Þinni verslun á Seljabraut, þar kostar
lítil tebolla heilar 214 krónur, þetta eru nokkrir munnbitar með kaffibollanum
og það finnst mér mjög dýrt hjá þeim. Hins vegar kostar stærðar kleina hjá þeim 109
krónur þó það afsaki ekki hitt nema síður sé. Þetta er stórmarkaður en ekki
kaffihús með þjónustu.

#704    Litlar 15 vatta Osram special ljósaperur (t.d. í ísskáp eða lítinn
lampa) tvær í pakka, kosta í Byggt og búið í Kringlunni nálægt 700 krónum. Í
Bónus kostar pakkinn 199 krónur.

#703    Ég kom við í Ísgrilli á Bústaðavegi um daginn og keypti mér einn lítinn Lackerol pakka og tvær hálfs líters Egils kristal plús, það gerði 610kr.!! Eða s.s. 250kr. fyrir hálfs líters kristal og 110kr fyrir lítinn Lackerol.Afgreiðslukonan afsakaði þetta háa verð á Kristalnum af því þetta var sko Kristal PLÚS!

#702    Ég vil endilega fá að benda fólki á að versla síður við Lystadún Marco ef það er að leita sér að sérsaumuðum dýnum eða svampi.  Ástæðan er sú að ég fór þangað inn um helgina og lét taka niður fyrir mig stærð á tjaldvagnadýnum og búa til aðrar eins því hinar eru orðnar gamlar og lúnar.  Af því að um helgina var 20% afsláttardagur eða eitthvað þess háttar hélt ég að ég fengi dúndurverðtilboð í verkið en eftir helgi var hringt í mig og mér boðið að kaupa dýnur í tjaldvagninn á 80.000 kr, þá var búið að reikna með 20% afslættinum.  Sem sagt á venjulegum degi hefðu þessar dýnur kostað mig 100.000. Af því að þetta verð finnst mér vera helbert okur þá kannaði ég málið og fór í RB rúm.  RB ráðlögðu mér að tala við H.Gæðasvamp eða H.G. svamp uppi á Vagnhöfða sem ég og gerði og þar fékk ég tilboð í að láta sníða fyrir mig dýnurnar á 59.000 krónur og tilbúið eftir örfáa daga.  Ég tók feginshendi á móti því tilboði.

#701    Sem hundaeigandi þá hef ég keypt svokölluð "hundabein" sem eru úrkast frá kjötvinnslum. Ég keypti svona bein í Nóatúni fyrir 6 vikum og þá kostuðu 20kg af þeim 2880kr. Ég keypti síðan annan skammt í gær þann 20/5, og þá kostuðu þessi 20kg 5880 kr.  Sem sagt rúmlega helmings hækkun á rúmum mánuði. Kílóið fór úr 144kr í 294kr. Þetta finnst mér full mikið.

#700    Ég ákvað að færa viðskipti með tvo frelsis GSM síma frá Vodafón yfir til Tal. Eftir að númerin höfðu verið færð á milli fyrirtækjanna uppgötvaði ég að Frelsis inneignir símanna höfðu ekki fluttst með númerunum yfir til Tal. Þegar leitað var skýringa hjá Vodafón var svarið það að inneignir mínar á gömlu kortunum væru tapað fé, "ég hefði sjálfur ákveðið að færa mig yfir til annars símafyrirtækis og það tíðkaðist ekki að endurgreiða slíkar innistæður". Vonandi taka bankarnir ekki uppá að afgreiða glataða viðskiptavini sína með þessum hætti!

#699    Má til að senda á þig nokkuð sem kom mér skemmtilega á óvart nú í morgunsárið. Fór í bakaríð Kornið í morgun til að ná í eitt brauð og viti menn fékk Speltbrauð hjá þeim fyrir 219kr. Ég varð nú alveg steinhissa á þessu og spurði bara hvað þetta væri eiginlega, jú það eru brauðdagar hjá þeim á miðvikudögum og þessi líka góði afsláttur. Tilvalið fyrir þá sem borða brauð að kaupa á miðvikudögum þegar er tilboð og setja í frysinn ekki satt.

#698    Ég fór í apótek (apótekið í Reykjanesbæ) núna fyrir stuttu og ætlaði að fjárfesta í einum svona nefúða til að reyna að losa eitthvað um þetta kvef. Það er nú ekki frásögufærandi nema ég bið bara um einhvern góðan nefúða og jújú hún réttir mér þennan fína nefúða og lofar öllu góðu um hann. Svo kemur að því að borga og hún stimplar hann inní kassann, já neinei!! 3400 kr fyrir 10 ml lítinn brúsa af nefspreyi!!!!! Já nei ekki séns, ég spurði nú hvort hún ætti ekki einhvern ódýrari og og jújú, það var nú til eitt stykki af nefúða, 10 ml brúsa á „aðeins“ rúmar 500 kr !!  og hann reyndist alveg virka fínt en rúmar 500 kr fyrir 10 ml af nefpreyji!! Okur!! Og hvað þá 3400 kr fyrir 10 ml af þessu sulli!!! OKUR!!! 

#697    Hér er dæmi um fáránlegan verðmun, fór ásamt konunni í Blómaval í síðustu viku og keyptum við okkur fjóra rifsberjarunna, í miklu nostalgíukasti, til að setja í óræktina fyirir utan húsið. Við höfðum engar forsendur til að meta verð enda litlir garðræktendur (fram til þessa a.m.k.) og reiddum því glöð af hendi tæplega átta þúsund krónur fyrir fjóra agnarlitla sprota eða tæpar tvöþúsund krónur fyrir stykkið. Skunduðum við nú beina leið heim með draumkennt blik í augum yfir endurminningum um allar gleðistundir bernskunnar við rifsberjaát úr nágrannagörðunum. Settum þvínæst plönturnar niður og gættum þess að gera það með mikilli ástúð og hlýju eins og uppálagt er að gera svo þær spretti vel. Okkar börn gætu nú fengið rifsber í framtíðinni, okkar eigin rifsber. Nema hvað, í dag varð mér litið inn í Garðheima og sé þar miklu stærri og stæðilegri rifsberjarunna á 570 kr. stykkið!

#696    20.maí sl. fór ég inná bensínstöð N1 á Akranesi og vantaði bílljósaperu H4 12v, þeir áttu til perur Hella, standard framlósaperu á 2090kr, þegar ég heyrði hvað hún kostaði snéri ég við á punktinum og fór í olís og fékk samskonar peru frá öðrum framleiðanda (þýska, NARVA) sem hafa reynst mér ágætlega og hún kostaði 676kr.  2090/676=3,0917 ég get því farið í olís og fengið þrjár perur á verði einnar frá N1. (Ódýrustu perurnar á hvorum stað)

#695    Eftir kvöldmat í gær ákvað ég að vera svo huppleg og bjóða vini upp á 
ísrúnt hérna á Akureyri. Þar sem röð var út á götu í ísbúðinni Brynju 
eins og vanalega skunduðum við í bílalúguna í Leirunesti þar sem ég 
pantaði tvo miðstærðar ísa í boxi með kaldri sósu. Það munaði litlu 
að ég missti hökuna niður á bensíngjöfina þegar drengurinn kvað upp 
verðið: áttahundruð krónur - 800,- íslenskar krónur fyrir þessa tvo 
ísa! Ef þetta er ekki okur þá er ég otur.

#694    Ekki okur og frábær Þjónusta! Ég fór með gamla sjónvapsflakkarann minn í viðgerð hjá tölvuversluninni TAKKAR á Suðurlandsbraut, en ég keypti hann hjá þeim á sínum tíma. 
Þessi flakkari hafði lent í nokkrum áföllum og var hressilega tjónaður. Í veikri von um bata fór ég með hann til þeirra og var hann skoðaður. 
Örfáum tímum seinna fæ ég sms um að hann sé tilbúin og ég fer að sækja hann, býst við að þurfa greiða eitthvað fyrir viðgerðina, enda skaðinn algjörlega á mína ábyrgð. 
Ég fæ afhentan glænýjan flakkara í staðinn með bros á vör frá frábærum afgreiðslumann. 
Ég hef verslað  við þá í gegnum tíðina og þeir eru alltaf með sanngjörn verð og framúrskarandi þjónustu. Húrra fyrir þeim! 

#693    Þar sem fagmennirnir versla - er þér óhætt!
Ef fagmennirnir versla í BYKO er eðlilegt að þeir séu dýrir: 

Specter Pensill 120 mm breiður
Verð í BYKO 19. maí 2008 >> 1.490
Keyptur í Múrbúðinni 20. maí 2008 á >> 1.195 

Specter pro kalkkústur 120 mm breiður
Verð í BYKO 19. maí 2008 >> 1.575
Keyptur í Múrbúðinni 20. maí 2008 á >> 595 

Nákvæmlega sama varan á báðum stöðum. 

#692    Fór í Krónuna um helgina og keypti einn pakka af hafrakoddum – Ota Havre Fras morgunkorni og borgaði 654 krónur fyrir pakkann. Ég var nærri dottin af stólnum þegar ég skoðaði strimilinn þegar ég kom heim því þetta verð var ekki í lagi.  Fékk það staðfest hjá vinnufélaga mínum sem átti strimil úr Krónunni síðan í mars, þá kostaði pakkinn 267 krónur. Þetta er 245 prósent hækkun í lágvöruverðsverslun á tveimur mánuðum.

#691    Í 10-11 (í Hafnarfirði allavega) er verið að selja 0,33 L Dr. Pepper gosdósir á 269 kr. stk. Það þýðir að lítraverðið er 807 kr. Okur!

#690 GSMbensín er vefsíða sem gefur upp bensínverð á landinu. Þetta er nú svo jafnar tölur að það tekur því varla að eltast við þetta. Samkeppni? Yeah, right!

#689    Mig langaði til að fræða ykkur um okur fyrirtækis er nefnist EICO, en það
er fyrirtæki sem sér um, gervihnattabúnað, sjónvarp, loftnet, og "góða
þjónustu" - samkvæmt heimasíðunni þeirra.
Ég er með gervihnattardisk uppi á þaki og var með áskrift að SKY-pakkanum.
Um miðjan desember snerist diskurinn í vindinum svo að allt sjónvarp datt
út. Ég hringdi mjög fljótlega eftir að diskurinn datt út til að fá mann
heim til að stilla diskinn að nýju, en fékk þau svör að ég gæti bara
gleymt því að komast á listann þar sem það væri svo mikið að gera hjá
þeim. Já, þeir s.s. neituðu að skrá niður beiðni um að fá mann heim. Viku
eða tveimur síðar hringdum við aftur til að panta mann heim, jújú ok það
var ekkert mál, þeir myndu bara hringja í okkur til að mæla okkur mót um
tíma.. svo leið og beið, einn og hálfur mánuður var liðinn og enginn kom!
Ég hringdi þá aftur, þá könnuðust þeir ekkert við að það væri nokkur
pöntun á okkar nafni, en lofuðu að þeir myndu skrifa þetta niður og koma
sem fyrst. Aftur liðu 2-3 vikur og ekkert heyrðist í þeim. Nú var ég orðin
frekar mikið pirruð, endaði með að tala við einhvern tæknistjóra sem
kannaðist ekkert við þessa pöntun en ætlaði í málið og hann myndi svo hafa
samband. Þess má geta að ég sagði upp áskriftinni í enda des/byrjun jan,
en var ennþá að borga af henni í apríl, var meira að segja búin að skila
inn áskriftarkortinu!
Einn daginn hringir í mig maður, sem biður mig að vera heima næsta morgun
þar sem hann ætlaði að koma þá.. hann kom hvorki né hringdi! Nokkrum dögum
síðar er svo aftur hringt og þá kemur loksins maður (ath, þetta er á
fimmtudegi). Hann kemur með nýja festingu fyrir diskinn og stillir hann.
Kveikjum á sjónvarpinu og allt virðist virka ágætlega. Á þessum tíma var
ég í prófum og því ekki mikið að horfa á sjónvarpið. Miðvikudeginum eftir
kveiki ég á sjónvarpinu, en þá kemur ekki neitt merki inn á diskinn.
Fimmtudagurinn reyndist vera almennur frídagur svo að ég náði ekki í þá,
svo ég neyddist til að hringja í þá á föstudeginum. Sama dag kom svo sami
maður og hafði komið rétt rúmri viku síðar, komst að því að það væri raki
inni á kaplinum og að það þyrfti að skipta um kapal, sagði að það væri
stórt gat á kaplinum uppi á þaki (AF HVERJU gat hann ekki hafa séð það í
fyrra skiptið).
Svo kemur nú að okrinu, enn hafa þeir ekki endurgreitt áskriftina fyrir
þessa 3 mánuði sem ég greiddi áskriftina (rúmar 15 þúsund krónur). Einnig
komu tveir reikningar, HVOR upp á 30 þúsund krónur! Þar er tímakaupið
6950, og sagðist hann hafa verið 2 klst i hvort skipti, sem er nú ekki
allskostar rétt. Akstursgjald er 2500,- hvort skipti og mælagjald er 2200
(já, fyrir það að stinga mælinum í samband!) Svo var auðvitað rukkað fyrir
efnisgjald (sem er nú kannski skiljanlegt þar sem það dót er skilið eftir
hérna)
Auk þessa má geta að upphaflega ætluðu þeir að koma með nýja og betri
festingu, og notuðu þeir það sem afsökun (eftir á) fyrir hvað það tók
langan tíma að koma.
Mér finnst helvíti mikið okur að láta mann borga 60 þúsund krónur á réttri
viku fyrir viðgerðarmannsins eigin mistök

#688    Mig langar að segja sögu Axa Original Muesli (danskt). Það var til 
víðar hér á landi um nokkurt skeið en síðan var bara hægt að fá það á 
Grípið og greitt og í Fjarðarkaup (sem var dýrari). Í Fjarðarkaup í 
síðastu viku kostaði það 320 kr en verðið þarna hefur verið frekar 
stöðugt. Svo byrjaði Kaskó að selja múslið, en þarna kostaði það 281 
kr þangað til í dag, þegar það kostaði 295 kr (þó að það hafa ekki 
komið nýja pakkar, dagsetningin er alveg eins og síðast). En nýlega 
byrjaði Hagkaup að selja múslið, en þarna kostaði það 529 kr. í 
síðastu viku. Það er ótrulegt en satt.

#687    Ég bað Securitas um verðtilboð á myndbandsupptökubúnaði 19. ágúst 2007.  Aftur var beðið um tilboð í sama búnað 15. maí 2008.  Ég hef ekki séð annað eins og dugar gengislækkun krónu ansi skammt sem skýring hér.  Myndavél (JS-JCC-DN3720H) fór úr 14062 kr í 30760 kr (219% hækkun)!  Linsan (LI-560274) hækkað minnst eða úr 6900 í 10037 sem eru um 145% hækkun!  Öllu athyglisverðari var hækkun á myndavélahúsi með hitara (JS-JCH-220H) sem fór úr 2120 kr í 9391 kr eða sem svarar 443% hækkun!  Rúsínan í pylsuendanum var veggfesting fyrir myndavélarhúsið (JS-JC-108) sem hækkaði úr 421 kr í 2116 kr sem er 502% hækkun!  Það má vel vera að Securitas mæti etv. slakari afkomu í hallærinu með svona hækkunum, hinsvegar get ég ekki annað en varað fólk við þessari verðlagningu fyrirtækisins þar sem verðmæti þessa búnaðar sem það er að reyna “selja” okkur neytendum getur ekki hafa hækkað í neinni líkingu við þetta okur sem nú birtist.  Ég ætla allavega að leita á netinu að öðrum seljanda og aldrei skipta við þetta fyrirtæki um ókomna framtíð.

#686    Mig langar til að segja þér frá okri Lyfju á vítamín-línu, sem þeir eignuðust með því að kaupa Heilsuhornið á  Akureyri, hún heitir SOLARAY. Þessi lína var flutt inn af Hermanni sem rak Heilsuhornið það til um áramótin sl. Það má segja að allt vörumerkið hafi hækkað um 1000 kr. Við sem verslum þarna eru ekki hress með þetta og skiljum ekki af hverju það þarf að hækka vöru sem flyst frá innflutningi fyrri eiganda, til stærri eiganda. Frekar hefði maður trúað að varan myndi lækka þar sem umsvifin eru miklu stærri. Þetta gerðist smá saman síðan í janúar.

#685    Í Grasagarðinum er notalegur garðskáli þar sem Café Flóran er til húsa. Indælis kaffihús með góðu kaffi og kökum, en því miður óttaleg okurbúlla. Ég var þar á ferð um daginn með manni og börnum og sem betur fer er bara annað barnið orðið fært um að sporðrenna heilum ís, því einn ístoppur úr frystikistu við afgreiðsluborðið kostar svo mikið sem 300 kall. Maður teygir sig í þrjá slíka, gengur að kassanum og borgar 900 krónur. Þessar góðgerðir útheimta enga þjónustu, framreiðslu né aðra fyrirhöfn af hálfu starfsfólksins, nema auðvitað það létta verk að strauja þessa svimandi upphæð af kortinu mínu. Ég hreinlega veit ekki hvað svona toppur kostar út úr næstu kjörbúð, en þetta getur ekki talist annað en skelfilegt okur! 

#684    Fór í Krónuna um daginn og keypti mér próteinstangir frá EAS.
Stykkið kostaði 319 kr.þar.  Áður hafði ég keypt sömu stangirnar á
260 kr. í Hagkaup Eiðistorgi og blöskraði mér verðmismunurinn.
Kom við í Hagkaup til að sjá hvað þær kostuðu þar núna eftir allar
þessar verðhækkanir sem átt hafa sér stað og þá voru þær komnar
upp í ca. 280 kr./stk.  Og svo á Krónan að heita lágvöruverslun!! Mér
finnst Hagkaup vera algjör okurbúlla en hvað er í gangi hjá Krónunni.
Annað með blessuðu Hagkaupsbúðina á Eiðistorginu. Ég hef heyrt marga 
tala um það hversu illa þeir standi sig í verðmerkingum. Það
er mjög algengt að hilluverð sé ekki rétt miðað við skráð verð í kassakerfinu. 
Vinkona mín lenti í því að hilluverð stemmdi ekki við verðið í kassakerfinu og
bað um að fá að tala við verslunarstjórann og fá skýringar á þessu. Einu 
svörin sem hún fékk voru þau að starfsfólkið hefði ekki undan að leiðrétta
hilluverðin út af öllum þessum verðhækkunum sem ættu sér stað á hverjum
degi!
Mjög algengt er að vöruverð hafi verið að hækka um ca. 30-40% að undanförnu.
Svo eru mjög margar verslanir farnar að vera með vorútsölur og sumarafslætti, 
upp á 15 - 20%. Hver er lógíkin í þessu, í alvöru. Hækka hækka og hækka og
vera svo bara með allt á tilboði því enginn vill kaupa dótið sem er á boðstólum. 
Svo er það blessaða bensínverðið sem er að fara upp úr öllu valdi. Hef ákveðið að 
taka ekki þátt í því bulli. Læt bílinn minn standa óhreyfðan í hlaðinu á
meðan ég ferðast um í strætó og er þegar búin að spara mér tugi þúsunda.

#683    Lítill (og þá meina ég LÍTILL) bragðarefur í ísbúðinni við gömlu sundlaugina í Kópavogi: 650 kr! Okur!

#682 / 682    Okur: Kristall rauður í hálfslítra umbúðum kostar um 82 krónur, ef þú kaupir 6 saman í bónus. Sem er svosem allt í lagi. Á föstudaginn á Olís stöðinni í Norðlingaholti (óeirðavetvanginum margfræga), kostar hún litlar 189 kr. Eini munurinn að Olís flaskan er köld. 
Fín framlegð ef þú kaupir kippu í Bónus og kælir.  Og Bónus er ekki að tapa á þessu. 
Ekki-okur: Fer oft í golf og á miðvikudögum erum við að spila venjulega frá um 17 og til 21-22 eftir því hvernig gengur. Venjulega mjög svangir. Á miðvikudaginn var fórum við á Korpu hjá GR og þar í gólfskálanum fengum við þennan fína Kveldúlf (hammari, ostur, egg, bacon, skinka, sveppir og tilbehör), franskar og sósu á litlar 1190 kr. Ostborgarinn var á 990 með viðeigandi tilbehör. Var ekki einhver að tala um tæpan 2000 kall á TGI eða Ruby? 
Sparnaðarráð: Í staðinn fyrir að kaupa endalaust vatn í sjoppu eða á bensínstöð mæli ég með vatnsbrúsa í bílinn. Þú bara fyllir hann eftir þörfum og kostar ekki krónu.

#681    Ég fór að skoða reiðhjól um daginn og fann hjól hjá Intersport. Leist vel á,
það kostaði 27.900 kr sem er kanski ekki svo mikið fyrir 21 gíra hjól með
brettum, standara og diskabremsum. Síðan fór ég í Byko í Garðabæ og sá sömu
hjólin og voru þau 2.000 kr dýrari, en þegar ég vildi fá að fara með hjólið
út til að prófa það þá var sagt nei ég gæti hjólað eftir ganginm í búðinni,
hann væri langur svo ég lét mig hafa það að hjóla á ganginum. Þá kom í ljós að
ég gat ekki skipt um gíra á hjólinu og petalin datt af þegar ég var að hjóla
til baka, þegar ég spurði hver þjónustaði hjólin fyrir þá var fátt um svör
starfsfólkið hélt að einhver sláttuvélaþjónusta í Kópavogi þjónustaði þau.
Þegar ég fór að kynna mér þetta betur þá eru þetta hjól sem eru mjög léleg
og fólk kemur með þau ónotuð á verkstæði til að láta gera við þau. Skoðið
alla vega málið vel áður en þið kaupið reiðhjólin hjá Byko eða Intersport.

#680    Fór í Byko í Breiddinni (Kópavogi) í gær og rak augun í að Palmolive
handsápa með pumpu kostar 480kr hvorki meira né minna þegar "skikkanlegt"
verð á henni er innan við 200 kallinn í "lágvöruverðsverslunum". Þetta er
um 240% verðmunur og það á fljótandi sápu!
Í sömu verslun kannaði svo verð á venjulegum plaststólum til að nota á
pallinum og kostaði 1 stykki af stólum hvorki meira né minna en 4990 kr.
Innkaupaferðin hefði því kostað mig tæplega 20 þúsund fyrir 4 stóla sem
fyrirhugað var að kaupa!!! Síðast þegar ég tékkaði í Rúmfatalagernum
kostuðu plasstólar með svipað notagildi tæpan 600 kall! Ég hefði getað
keypt ferð til útlanda fyrir mismuninn....OKUR!

#679    Chicago Town pizza með osti (tvær smápizzur í pakka): Fór í Melabúðina og keypti pakka af Chicago Town pizzum með osti, þetta er tvær litlar pizzur saman í pakka og kostaði tæplega 900 krónur. Fannst það rosalega dýrt miðað við að kaupa 12” pizzu tilbúna, td. hjá Dominos – ein svona CT smápizza nær varla að metta litinn barnamaga. Jæja, en ákvað að kanna málið nánar í Bónus næst þegar ég fór þangað og viti menn, nákvæmlega sama pakkning kostar þar 389 krónur. Veit að Melabúðin er svona “Gourmet-kaupmaðurinn á horninu-hverfisbúð” en mér finnst ég hafa verið rænd!

#678    Það kom fyrir mig að geta ekki staðið við greiðsluskuldbindingu og skuldin send til lögfræðings. Það er gerist í lok árs 2005. Þá er höfuðstóllinn 102.514 kr. Í dag hef ég
greitt 90.000 kr. en samtals eftirstöðvar eru 282.383kr. Þar af eru dráttarvextir frá upphafi og til 1.hvers mánaðar 173.186kr. Þeir hafa aldrei lækkað vegna þess að lögfræðistofan hefur aldrei greitt neitt af því sem ég hef borgað þeim, inn á höfuðstólinn!!
Auðvitað vissi ég að það kæmi alls kyns kostnaður ofan á skuldina en mér þykir súrt að vera næstum búin að borga höfustóll skuldarinnar og eiga þá eftir að borga nær önnur 300 þús. Þetta þykir mér okur svo ekki sé minnst á óheiðarleg vinnubrögð.

#677    Nóatún eru að selja Keilu bita (fisk) í einhverri sósu á rétt tæpar 1400kr (1395kr minnir mig). Þetta er algjört brjálæði, síðasta Föstudag 15.05 var meðalverð 60kr per kg á slægðri Keilu á fiskmarkaði. Eftir flökun er sirka 30% eftir, s.s um 180kr  Gera má ráð fyrir að framleiðslukosnaður sé um 15% en sléttum þetta út og segjum 210kr frá framleiðand (rúm 15%)
Bætum svo flutning við ásamt VSK ég ætla segja 30% sem gera 273kr en sléttum þetta og úr verða 300kr. Eftir eru 1100kr. Er Nóatún og/eða framleiðandi virkilega að taka þetta mikla framlegð til sín? Ég skora á einhvern frá Nóatúna að réttlæta þessa verðlagningu á Keilu. Þetta er algjör SVÍVIRÐA.

#676    Þessi síða er ágæt og þörf fyrir utan eitt. Það er samt það sem ansi margir nývaknaðir "íslenskir neytendur" átta sig ekki á þó það virðist vera frekar augljóst.
Ég vill endilega að þú skjótir því þarna inn á síðuna þína þar sem þú átt nú
smá þátt í þessu að fólk á ekki neinn rétt á því að vera með dónaskap og
lítilsvirðingu við afgreiðslufólk þó það sé ekki sátt við verðin.
Ég starfa í hlutastarfi við afgreiðslu og hef tekið eftir auknum pirringi hjá
viðskiptavinum og ef einhverjum dettur í hug að ég fari að taka upp tólið og
hringja í innkaupastjórann sem ég hef b.t.w. aldrei hitt og frussast og
froðufella við hann eins og er gert við mig þá er sá einstaklingur frekar illa
gefin og mun sá hinn sami vonandi fá að kynnast því að starfa í afgreiðslu í
næsta lífi. Auðvitað hefur þetta bara verið smá brot af fjöldanum sem uppljóstrar sínum
sanna innri apa en þetta fer ört vaxandi þessa dagana.

#675    Hvað varðar okrið, þá áttaði ég mig á ástæðu verðbólgunnar nú um helgina.
Við hjónin komum við í Húsasmiðjunni í Borgarnesi nú á laugardaginn. Þar
var fjárfest í talnalás sem smkv hilluverði átti að kosta nærri 700 kr,
einnig var keyptur ljósapenni frá Duracell, en hilluverð var rétt tæpar
600 kr. Þegar við komum að kassanum var samanlagt verð þessara tveggja
hluta rúmlega 2400 kr. Við gerðum athugasemd og vorum send að
þjónustuborðinu. Maðurinn sem afgreiddi okkur þar möndlaði afsláttartölur
þangað til að við vorum komin í upphæð sem var 37 krónum hærri en
hilluverð. Skýringarnar voru að þeir í Reykjavík væru að hækka vörurnar.
Honum virtist ekki finnast neitt sjálfsagðara en að svona smá vörur væru
hækkaðar hart nær 100%. Önnur hækkaði upp í rúmar 1200 krónur og hin tæpar
1200 krónur. Persónulega finnst mér það ekki sjálfsagt að heildsalar og
smásalar skulu ekki taka tillit til annars en eigin bókahalds, en sá
hugsunar háttur er einmitt frumorsök verðbólgu hér á landi.

#674    Í IÐU á Lækjargötu kostar bíómyndin Persepolis á DVD um 3200 kr! En í Mál og Menningu kostar hún 1999.

#673    4 Janúar fór ég í Lyfjaver á Suðurlandsbrautinni og keypti þar Voltaren Rapid 3ja mánaða skammt á 4461kr. 4 mánuðum seinna fór ég í Lyf og Heilsu í Hrísalundi á Akureyri og ætlaði að kaupa aftur Voltaren rapid 3ja mánaða skammt og það kostaði litlar 9428kr!!!! Sami framleiðandi en ekki sama Apotek!!! Djísús Þvílíkt klikk OKUR!!!! (nb. Eins og oft hefur komið fram hér og annars staðar er Lyfjaver ódýrasta apótek landsins.)

#672    Keypti í síðustu viku Lotus eyrnapinna 160 stk í dollu á 59 kr í Bónus. Var síðan að versla í Hagkaup og sá sömu eyrnapinnana á heilar 325 kr dolluna. Hvernig er þetta hægt?

#671    Í Bykó á Akureyri eru hilluberar til að bera uppi borð, svona vinklar úr hvítu járni, mjög einföld smíð. Kosta um 4500 kr stykkið!! Já 4500 kr, ég skrifaði ekki óvart auka núll.

#670    Jæja, þá eru 150 grömm af "gullhúðuðum" himneskum furuhnetum komin í kr. 849 í Hagkaupum! (Voru 738 kr í #537).

#669 Ég vil koma verði á símaþjónustu á framfæri. Það er dýrara að vera með gsm hjá Símanum miðað við önnur kerfi. Innan símans er mínutan 11 kr og ef hringt er frá símanum í önnur kerfi er verðið 22 kr mínutan og 28 kr mínutan til Nova. Hins vegar hjá Tal er jafnaðarverð á mínutu 14,90 alveg sama í hvaða kerfi er hringt.
Einnig var ég með svokallaða besta pakkan hjá Símanum innifalið er 8 mb hraði og ótakmarkað niðurhal, kostanðurinn við þetta var á sjöunda þúsund kr, þetta var alltaf að klikka og við hraða-prófsmælingu þá kom í ljós að hraðinn var helmingi hægari en ég borgaði fyrir. Hjá Tal fæ ég pakka með 4 mb ótakmörkuðu niðurhali fyrir tæp 3.000 og við mælingu stóðst hraðinn og ég er miklu ánægðari.

#668    Duftsúpa í pappaglasi kostar 250 kall í 10-11. Kökudropar
í Hagkaupum kosta 769 kall.  Um þetta okur fréttist þegar
líka fréttist um að manngrey hefði drukkið súpu og
dropana á sitthvorum staðnum og gleymt að borga.
Þann 21.maí var hann dæmdur fyrir glæpina, skal borga
185 þúsund í sakarkostnað og gista um mánaðskeið í
grjótinu vegna skilorðsdóms frá 2005. Víst er að Baugur
sér um að efnahagsbrotafólki sé rækilega refsað. 
Víst er líka að Baugur kann að verðleggja sullið sitt.

#667    Ég fór um daginn og keypti humar í Krónunni. Humar þennan var búið að taka úr skelinni og var þyngdin sem stóð á pokunum eftirfarandi.
Poki 1   0,162 kg
Poki 2   0,152 kg
Poki 3   0,148 kg
Poki 4   0,158 kg
Samtals átti þetta að vera 620 gr. Þegar ég var búinn að opna alla pokana þá fannst mér þetta lítið og lélegt. Þannig að þegar vatnið var farið af þá vigtaði ég og þá var þetta 443 gr.  Framleiðandinn er Snæfiskur.

#666    Ég fór með bílinn minn í lögbundna skoðun um daginn og fyrir þessa 10 mínútna skoðun þurfti ég að reiða fram 6900 krónur!  Mikið fjári hefur þetta gjald hækkað mikið, ef mig misminnir ekki þá var rukkað rétt í kringum 4-5þús fyrir þetta fyrir 2-3 árum.  6900 krónur fyrir þetta finnst mér einfaldlega vera argasta okur!

#665    Ég kíkti í Hagkaup í gær til að kaupa jarðarber með eftirréttinum. Greip litla öskju með flottum íslenskum berjum. Við kassan heyrðist mér daman segja 379 og ég hugsaði með mér "vá!  en dýrt". En mér hafði misheyrst, askjan kostaði 579 kr. Ég veit, ég borgaði, zombie og allt það. Mér til gamans og yndisauka taldi ég "gulleplin" í öskjunni og reyndust þau vera 12. Þannig að hvert jarðarber kostaði tæpar 50 krónur. Við át á eftirréttinum leið mér eins og ég væri að stinga fimmtíuköllum upp í mig og var liðinu gert ljóst að þau skyldu nú njóta eftirréttarins sem þau og gerðu.

#664    Bakarí eru skelfileg og hafa oftast verið hvað verðlag varðar en það sló öllu út í gær þegar að ég komst að því að smá aumingjans gulrótarterta hjá Jóa Fel kostar 1.750 kr!
Kakan var ofursmá... Kremið var hart, alsett í einhverju bláu kuski og meiru til... Gulrótarskrautið ósannfærandi þar sem gerfigulrótin var rauð frekar en appelsínugul... Kakan sjálf var greinilega ofbökuð og ekki ný því hún var frekar hörð og þurr, molnaði því öll þegar á henni var tekið... Bragðið minnti jú á hefðbundna (sem sagt ekkert spes) gulrótarköku nema að viðbættu lyftiduftsbragði sem skilaði sér fullkomlega í gegn...
Málið er að ég verslaði þessa köku ekki sjálf heldur var það gestur sem kom með hana færandi hendi í kaffi til mín.  Það voru engar verðmerkingar í borðinu og engum lifandi manni datt í hug að kakan gæti kostað þennan pening og hún var í raun búin að kvitta fyrir henni áður en hún áttaði sig á verðinu.  Fór því með hana haldandi að hún héldi á bestu gulrótarköku á landinu og þó víðar væri leitað.  Ef þú ætlar að verðleggja kökuna þína svona þá er lágmark að láta hana standa undir því og rúmlega það!  Ég hef aldrei verslað við Jóa Fel og það er nokkuð ljóst að ég mun aldrei gera það í framtíðinni!

#663    Vildi bara koma því á framfæri hvað flugfélögin eru lúmsk í að smyrja 
viðbótarkostnaði á flugferðirnar.
Ég var að panta far til Köben með Iceland Express á dögunum. Eftir að 
hafa valið ferð fer ég á næsta stig en þarf að afhaka í "kaupa 
forfallatryggingu". Síðar er ég aftur spurður hvort ég vilji 
örugglega ekki forfallatryggingu. Voru þau ekki að taka eftir?
Mér stóð til að boða að velja sæti og geri það, en... þegar ég er að 
fara að klára pöntunina var verðið aðeins hærra en mig minnti. Þá kom 
í ljós að það kostar 3000 kall að velja sæti í vélinni... það kom 
hvergi fram og örugglega margir sem hafa flaskað á þessu að óþörfu.
Eitt er að rukka fyrir þetta, annað og alvarlegra að segja ekki að 
það kosti nokkuð til að byrja með og reyna að lauma því framhjá.
Okur eða ekki okur, þetta er allavegana lúalegt.

#662    Okur hjá Já.is. Var að fá símareikninginn minn, sem með vaxandi „samkeppni“ er allt í lagi, nema hvað að ég þurfti að nota sérþjónustu sem er Upplýsingar um erlend símanúmer í gegnum Já.is. Nema hvað að það kostaði mig tæplega 650 kr að tala við þau í 3,4 mínútur!!!! Þetta finnst mér vera heldur mikið. (nb. Svipað mínútuverð og hjá klámlínum!)

#661 / 661    Ekki okur: 12 tommu pítsa með þremur áleggstegundum, 0,5 L af kóki og
hvítlauksolía kostar 1400 kr hjá Devitos (eru með sambærileg tilboð fyrir 16 og 18 tommur) en flestir aðrir staðir rukka um 2000 kr fyrir bara pítsuna.
Okur: Fjölfölduð innrömmuð ljósmynd í A3 stærð kostar 10.900 kr í Habitat. Sömu mynd er hægt að fá 12 pund á netinu (rétt rúmlega 1700 kr og svo bætist reyndar sendingarkostnaður og tollur við) og tréramma mjög svipaðan útliti og hinn er hægt að fá í Ikea á þúsund krónur. Sama
mynd í eins ramma á verði sem er ekki einu sinni nálægt Habitatverðinu.

#660    Mér finnst rétt að benda fólki á verð á mold í Garðheimum og Blómavali.  Ég keypti í Garðheimum um daginn tvo poka af mold og pokinn var á 690kr.  Mig vantaði svo meiri mold í pottana mína og átti leið í Keflavík og fór í Blómaval.  Það keypti ég 40L poka af mold f/úti og inniblóm (jafn stóran og í Garðheimum), þar var pokinn ekki verðmerktur  svo ég fór á kassann og borgaði.  Nei, þar kostaði pokinn yfir 1100kr!!!!!!!!!  Mér finnst þetta vera okur.  Ég sagði afgreiðslustúlkunni frá þessu og hún sagði að fleiri hefðu sagt sér svona dæmi úr Garðheimum varðandi áburð og slíkt. Þannig að ég held mig við Garðheima héðan í frá.

#659    Ég sá að Hreysti var að auglýsa Slendertone buxur sem á að grenna og styrkja rass og læri. kr 26.980 þurfti að borga fyrir græjuna. Ákvað að athuga hvað þetta tæki kostaði í Bandaríkjunum. Þar kostar það 89 dollara eða 6.447 íslenskar krónur. Mismunurinn er 20.443. ÞETTA ER OKUR! 

#658    Keyptum tvö rúm í Reykjavík og létum senda með Vörumiðlun út á land. Þegar
reikn. fyrir flutninginn kom hljóðaði hann upp á kr. 13.225 sem ég er kanske
ekki að hneykslast á, heldur kom okkur spánskt fyrir sjónir að í þessari
upphæð var "olíugjald" upp á 865 kr!! Er þetta leyfilegt? Mér finnst fýla af
þessu.

(Sett inn 18.05.08):

#657    Mig langaði að benda á okur í Steinar Waage í Kringlunni. Ég keypti skó á 1 árs gamla dóttur mína fyrir jól á 5900 sem er nottla dýrt en maður sættir sig kannski við það fyrir góða barnaskó en svo eru þeir orðnir of litlir og ég ætlaði að kaupa nýja... .Nei nei aðeins 6 mánuðum síðar eru þeir búnir að hækka um 2000 krónur – semsagt kosta núna 7900! Þetta er nottla bara RUGL!

#656    Fór í Eden í gær og keypti tvær tertusneiðar og einn venjulegan lítinn kaffibolla. Kostaði 1800 kr! Tertusneiðin á 750 og kaffibollinn á 300 krónur og ég meina uppáhellingskaffi! Hrikalega vont – en vá, það mátti fá eina ábót á kaffið!

#655    Mig langar að gera Rangárvelli að umtalsefni hér. 34 km. frá Selfossi er verslun á Hellu sem Kjarval heitir. Sömu verslun er að finna á Hvolsvelli. Þessar verslanir eru einhverskonar útibú frá Nóatúnskeðjunni. Þar eru slæmar verðmerkingar, döpur þjónustulund og 30% dýrari vara en á þéttbýlissvæðum. Ég spyr: Er ekki vert að rannsaka svona viðskiptahegðun? Er engin virk stofnun, í þessu blessaða landi sem stendur vörð um hagsmuni okkar neytenda. Eigum við bara að yppa öxlum og þegja hundrað ár í viðbót?

#654    Mig langar að benda á hagstæð innkaup. Ég kaupi alltaf ferskan kjúkling í heilu í Bónus. Verðið er um kr. 698 kílóið svo er 40% afsláttur við kassa þannig að kjúklingurinn er að koma út á um kr. 700. Síðan úrbeina ég hann og frysti. Verð á bringum er kr. 1500 - 2000, annað eins fyrir lundir og aftur sérverð fyrir leggi og vængi. Það er ekkert mál að úrbeina og svo er bakið soðið og fæst þá fyrirtaks kjúklingakraftur.

#653    Stöð 2 auglýsir mikið núna að þeir bjóði 30% afslátt af fyrsta mánuðinum ef þú gengur í Stöð2 Vild. þ.e. ef þú skuldbindur þig í 12 mánuði. Ég reiknaði þetta svona gróft og mér sýnist að 12 mánaða áskrift að Stöð2 kosti ca 63.700kr og maður fær 30 % afslátt af fyrsta mánuðinum sem kostar 5300 og því eru þetta heil 2,5% í afslátt af 63.700kr. Þetta er kannski ekki okur en þetta er mikil HRÆSNI!!
Svipaða sögu er að segja um olíufélögin. Það eru linnulausar auglýsingar um 2 kr auka afslátt ef maður notar dælulykil. 2kr af 157.2kr eru 1.3% og af 173.2kr (dísel) eru þetta heilar 1.2%. Þetta er bæði OKUR og HRÆSNI.

#652    Dæmi #551 er um eitt svakalegasta verð á gosi á Trocadero á Akranesi á 650 kr. Gat ekki annað en sent mail þar sem við vinkonurnar förum í nánast hverju laugardagshádegi og fáum okkur að borða á Café María í Vestmannaeyjum og þar kaupum við okkur 2l gos á 780 krónur!!!! Þetta látum við bjóða okkur og fussum og sveijum í hvert skipti sem við komum þar út. Svo þetta er örugglega það dýrasta á landinu!

#651    Fáránleg hækkun á Andrésar Syrpunni. Verðið hækkaði á einni nóttu í
lausasölu úr 930 kr í 1290 kr, þvílíkt okurfyrirtæki þessi Eddu klúbbur!
Syrpa? ...Nei takk. Ég kaupi frekar erlent vandað fótboltatímarit á 450 kr
og sonurinn helmingi lengur að lesa það.

#650    Ég keypti stakt flugfar á netinu frá póllandi til Köben með dönsku flugfélagi á 775 DKK. Það fannst mér svosem ekki slæmt. Þá vantaði mig að komast heim frá Köben til Íslands, og bar saman Icelandair og Icelandexpress. Flugfar með Icelandexpress kostaði um 18.þúsund með sköttum á fimmtudegi, en með Icelandair 50.þúsund með sköttum á miðvikudegi. Ég varð að mæta í vinnu á fimmtudegi, en reiknaði lauslega að með því að kaupa gistingu eina nótt til að geta nýtt mér ódýrara far heim á fimmtudegi með Icelandexpress og vinnutap á fimmtudeginum, þá var samt dýrara að fljúga heim á miðvikudegi fyrir 50þúsund.
En, gat ekki skrópað í vinnuna þannig að ég gekk frá þessu á netinu 2 vikum fyrir brottför með blóðbragð í munni.
Það sem ég græddi á þessu var eindæma þreytandi þjónusta um borð með okurfluginu, pirraðar flugfreyjur og úthlutað 50þús. króna sæti sem var við hliðina á wc. umferðinni fyrir aftan sagaclass, með tjald í nefinu sem skildi mig frá sagaclass, og enginn sjónvarpsskjár. Það er 
sæti sem ætti að vera frítt, óþægilegasta sætið í vélinni. Ég skil ekki enn að ég skildi láta bjóða mér slíka niðurlægingu, en hafði í raun ekki val í þetta sinn.
Mér fannst ég alveg eins hafa greitt fyrir sagaclass sæti, svo dýrt var það, það var laust á því farrými, en stóð mér ekki til boða.

#649    Kaffihúsið Amokka í Borgartúni = dýrasti kaffibollinn hingað til. Keypti mér tvöfaldan soya latte þar um daginn og þurfti að greiða heilar 460 kr. fyrir. Næstum 500 kall fyrir einn kaffibolla! Hjá Te og Kaffi kostar sami bolli 330 kr og þó finnst manni það alveg nóg!! 

(Sett inn 16.05.08):

#648    Ég er stödd á Spáni og fór í apótek hér og ákvað að kanna verð á hormónaplástri, en mér hefur alveg ofboðið verðið heima. Heima á Íslandi kostar þriggja mánaða skammtur tæpar 6.000.- kr. (þar sem ég hef fundið ódýrast) en hér kostar sama magn um 23 evrur. Hér er um að ræða nákvæmlega sama plástur, sami framleiðandi og allt það sama. Heima á Íslandi greiðir Tryggingastofnun lyfið kannski eitthvað niður en hér er það ekkert niðurgreitt. Í hverju liggur þessi mismunur?

#647    Mig langaði að segja ykkur frá mestu Okurbúlluni á Akureyri. Það er Te og Kaffi í Eymundsson. Þar kostar ein flaska af trópí 0,33cl flaska, 280 íslenskar krónur! Og einn Croissant 330 KR!! Pæliði í geðveiki! Maður stoppar þarna og fær sér Trópí og einn croissant samtals 610 KR!!! Á sumum stöðum í Frakklandi og Sviss, fær maður Croissant fríann með kaffinu! Ógeðslegt OKUR!!! (nb. Því miður er engin verðsamkeppni sýmileg á milli T&K og Kaffitárs. Þetta eru því miður sömu okurbúllurnar sem maður reynir í lengstu lög að ignora.) 

#646    Fór í Blómaval og keypti ca. 5 kg poka af hvítum skrautsteinum á kr.2.500,- pokann.  Keypti síðan sömu steina hjá Malbikunarstöðinni Höfða þar sem tonnið kostar kr. 9.000. Dæmi hver fyrir sig.

#645 Í versluninni Plúsmarkaðurinn að Hátúni 10, þar sem öryrkjar versla, sem komast ekkert annað vegna fötlunar sinnar, er verðmunurinn miðað við t.d. Bónus tvöfaldur. Ég keypti vörur fyrir ca. 5000 kr. Í Bónus og gáði hvað samskonar karfa kostaði í Plúsmarkaðinum, þar kostaði hún 10.000 kr.! Þetta er okur! (nb. Mæli með að Jóhanna Sigurðardóttir skipuleggi hópferðir í Bónus. Þetta gengur auðvitað ekki svona.)

#644    Fyrir ca. 3 vikum keypti ég krem í fríhöfninni í Keflavík, sem ber heitið EXTRAIT OF SKIN CAVIAR FIRMING COMPL. frá LA PRAIRIE og greiddi fyrir það kr.6.899.  Núna í maí spurðist ég fyrir  um þetta sama krem í versluninni HYGEU í Kringlunni og var þá sagt að það kostaði kr.11.880! Hvað er málið, hvar liggur hækkunin??  Þetta er tómt rugl, og algjört OKUR. Mér dettur ekki í hug að halda áfram að nota þessar vörur frá LA PRAIRIE, þar sem verðið er alveg uppí skýjunum, held mig bara við mín gömlu góðu ódýru krem.... sem kosta ekki einu sinni helminginn af þessu OKRI.

#643    Ég ákvað að gleðja strákana mína einn rigningardaginn og fara í Smára-bíó á Superhero-ekki beint efst á mínum óskalista en þeir eru 7 og 10 ára. Í miðasölunni bað ég um tvo barnamiða og einn fullorðins. "Það er ekkert svoleiðis sagði miðasölustúlkan, þrjúþúsund krónur takk fyrir". "Ertu ekki að grínast?'' og myndin í sal 5. Þó ég fari sjaldan í bíó þá fannst mér þetta fullmikið á krakkamynd og eldri strákurinn skammaðist sín örugglega fyrir aðhaldssömu móður sína sem auðvitað veifaði kreditkortinu eftir að hún var búin að tuða um okur við afgreiðslustúlku með vandræðalegt bros. Þetta kalla ég okur og ekkert annað.

#642    Vinnufélagi minn er að standsetja forstofuna og vantaði snagabretti. Hafði frúin fundið álitlegt bretti í Saltfélaginu sem kostaði rúmar 15 þúsund kr. Um mánuði síðar þegar hjónin voru ásátt um það að þetta væri hið rétta snagabretti þá fór maðurinn með að kíkja á gripinn. Þá stóð á verðmiðanum rúmar 24 þúsund. Þau ætluðu samt að láta sig hafa það að kaupa brettið. Þegar komið var á kassann segir afgreiðsludaman, nei þetta er vitlaust verð, þetta á að kosta rúmar 31 þúsund krónur! Hjónin sendu hvort öðru augnatillit og ætluðu að skila vörunni en þá segir önnur afgreiðslukona sem hafði hlustað á þetta að ef það stæði rúmar 24 þúsund á verðmiðanum þá yrði að leyfa þeim að kaupa snagabrettið á því verði.

#641    Ég keypti frunsukrem um daginn í Lyfju. Túpan kostaði um níuhundruð kall. Túpan var sú minnsta sem ég hef séð um dagana; innihélt heil 2 grömm. Það þarf nú ekki Reiknistofnun Háskólans til að fá út að kílóið leggur sig á 450.000 kr. Tæp hálf milljón kílóið, takk fyrir.
Svo annað dæmi úr Lyfju: Hóstasaft, Danskir brjóstdropar, 100 ml, 695 kr. sem þýðir að lítrinn kostar 6.950 kr. Einn lítri af 12 ára viskíi í Vínbúðum ríkisins kostar 6.390 kr. með öllum tilheyrandi, áfengisgjöldum og því um líku.

#640    Nú er garðavinnan í gangi og mig vantaði mold. Fór í gæðamold í Gufunesi, þar kostaði pokinn 250 kr í fyrra (ca.15 kg), en nú kostar hann 500 kall! Nýr eigandi, sögðu þeir. Þetta er meira en okur, þetta er glæpur. Kerra af grjóthreinsaðri mold kostar 3000 kr! Það mun vera okur! 
(ath: Ég er einn eiganda  að Moldarblöndunni-Gæðamold og það er ekki alveg rétt farið með í athugasemdinni.
Mold í pokum (ca 17 kg.)  er  Gæðamold sem er grjóthreinsuð mold sem blönduð hefur verið með: Skeljasandi (keyptur að), hrossaskít, og svörtum sandi. Þessi eining hefur kostað 250 kr. í einhver ár og var litið á þetta sem þjónustu aðallega.  Þegar salan fór að aukast (vegna þess hve verðið var lágt) þá þurfti einfaldlega að kaupa nýjar birgðir af plastpokum, og  fjölga vinnustundum, og reikna út raunverulegan kostnað. Og því miður er þetta útkoman. Og við leggjum að fólki að reyna heldur að kaupa í kerrur. 
Varðandi kerruverð (sem breyttist síðast árið 2006) þá er verð á kerru af grjóthreinsaðri mold kr. 1500 en ekki 3000 eins og haldið er fram. Verð á Gæðamold (sjá lýsingu hér að ofan) er aftur á móti kr 3000 
Hvað varðar fullyrðingar um að verð á íslenskri mold þurfi ekki að fylgja verði t.d. evru þá vil ég reyna að upplýsa hvað er gert við þessa íslensku ókeypis mold.
Moldin sem seld er í ár kom til okkar fyrir  3 árum þá var fólk á launum við að taka á móti henni og moka upp í haug (það er gert til að hún brjóti sig og verði betri) með vélum. Það má líta á þetta sem "fjárfestingu" til 3ja ára.
Nú þegar salan á þessari "fjárfestingu" hefst er aftur fólk á launum við að grjóthreinsa hana. Moka henni með vélum í aðrar vélar sem hreinsa grjótið úr. þetta eru dýrar vélar og vinnan með grjótið fer illa með þær og því dýrt að halda þeim við. Þessa vinnu er ekki hægt að vinna í bleytu og því þarf að vinna langa daga og alla daga þegar veður leyfir. Allar þessar vélar eyða olíu. Einhver þarf að borga fyrir vélarnar og vextina af þeim. Fólkið sem sér um viðhaldið þarf laun. Varahlutir eru allir fluttir inn og eru ekki ókeypis. Það er svo aftur rétt að moldin sjálf er "ókeypis" eins og vatnið og naglinn í naglasúpunni forðum.
Skýringin "nýjir eigendur"  á ekki við hér (og hefur ekki verið gefin af okkar fólki) því við keyptum fyrirtækið í fyrra og héldum óbreyttum verðum (frá 2006) þar til nú. Einmitt til að sjá af eigin raun hvert verðið þyrfti að vera. Og því miður komumst við að því að verð á íslenskri mold þarf að miklu leyti fylgja verði erlendra gjaldmiðla. Ég held að #639 styðji það að fleira fylgi gengi gjaldmiðla en fólk haldi í fljótu bragði.
Mér er það mikils virði sem dyggs lesanda síðunnar að geta treyst því að upplýsingar þar séu réttar. Öðruvísi getum við ekki forðast okrið.
m. kveðju,
Jens Gislason.)

#639    Fórum í Björgun að kaupa sand og möl í pokum, fyrir ári síðan (23.4 2007) kostaði pokinn 389 kr. með vsk. en núna (9.5 2008) kostaði hann 890 kr. með vsk. Þetta er ótrúleg hækkun á einu ári og ekki er þetta innflutt!

24 dæmi sett inn 16.05.2008:

#638    Ég bý í London og flýg heim til Íslands svona þrisvar á ári. Eg borga alltaf um 35 þúsund krónur fyrir farið og flýg ýmist með Flugleiðum eða Iceland Express eftir því hvor miðinn er nokkrum krónum ódýrarari. Það bregst ekki að það er alltaf sama verðið á báðum stöðum. Hvernig væri bara að sameina þessi batterí? Það er engin samkeppni hvort eð er.

#637    Eitt kíló af lífrænum eplum kostuðu um daginn 1198 krónur kílóið (1/2 kg pakki á 599 kr) í Hagkaup, Kringlunni. Nokkrum dögum síðarvoru sömu eplin komin í 1598 krónur kílóið (hækkun í 799 kr pakkinn) – bara aðeins mýkra hýðið, vegna geymslu. Og ætlar enginn að fjalla um verð á fiski? Fór í fiskbúð ídag, sem heyrir undir "Fiskisögu" og varð fyrir áfalli.
Meira get ég ekki sagt, annað en spurt: Hvernig er komið fyrir okkur?

#636    2ja lítra Chiquita ávaxtasafi í Bónus kostaði 198 kr. þangað til fyrir nokkrum vikum síðan. Svo hækkaði hann fyrir nokkru í 229 kr. Sem var alveg fjandans nóg. Í dag kostar þessi sami safi 299 kr. og Jóhannes hlær bara.
Bónus þykist vera vinur litlu aumingjana en það er svo fjarri lagi þessa dagana. Þeir hafa í raun hækkað allar vörur hjá sér verulega mikið upp á síðkastið og vitna bara í gengisbreytingar sem er bara tóm þvæla, að vissu leyti, því flest alvöru fyrirtæki eru tryggð fyrir svona gengissveiflum. En við trúum því auðvitað af því að við erum bara jarmandi sauðir sem finnst gott að láta misnota sig. (nb. Gengifall og hækkun á verði vörunnar á heimsmarkaði. Verðum við ekki að trúa því?)

#635    Bónus!!!
1.       Matarkarfan hjá þeim (þá meina ég svona typikal matarkarfa) hefur hækkað mun meira heldur en gengismunur getur nokkurn tímann útskýrt munin hvað þá réttlætt hann.  Ég fór á föstudaginn seinasta og verslaði í „skápana“ aðallega (baunir,þurrmat og slíkt til að eiga) eina kjötmetið sem ég keypti voru tveir pakkar af kjúklingabringum, ekki keypti ég ost né annað slíkt sem hækkar reikninginn tölvert. Þessi rúmlega ¾ karfa sem ég keypti kostaði mig 18þ krónur, sjokkið var svo svakalegt að ég gleymdi að taka miðann til þess að fara yfir þetta rán sem þó átti sér stað í viðurvist fjölda vitna og um hábjartan dag.
2.       Frosin jarðaber frá Euroshop kostuðu um áramót 198kr í bónus en kosta í dag 398kr og þetta dæmi er svo langt frá því að vera einsdæmi.
Bónus er ekki að gera sig núna og hefði ég trúað þeim til þess að standa sig betur en þetta en það sorglega er að ekki getur maður sniðgengið Bónus né fengið betri kjör í öðrum verslunum.
*** Að lokum vill ég hvetja fólk til þess að kaupa í magni í frystikistur sínar eins og fisk, kjöt og annað slíkt og það sparar ótrúlega fjármuni og síðast en ekki síst, það er bara „kúl“ að nota afgangana.....og hræðilega halló að henda mat í massavís!

#634    Ég keypti mat frá Sukhothai í Hamraborg, Kópavogi, um daginn sem ég hef oft gert síðasta ár enda fjölskyldan hrifin af matnum þar og verðið mjög sanngjarnt.  Núna um helgina pöntuðum við mat þaðan og eiginmaðurinn fór og sótti hann.  Í fyrsta lagi hafði rétturinn sem ég er vön að fá mér hækkað um 110 krónur (úr 980 í 1090) á mánuði og hafði nýverið þar áður hækkað um 90 krónur (úr 890 í 980).  Í heild hefur þessi uppáhaldsréttur minn hækkað um 200 krónur á minna en hálfu ári eins og mér sýnist allur matseðillinn þeirra hafa gert en það sem verra er að þeir hafa líka minnkað matarskammtinn og ílátin sem þeir eru vanir að nota voru ekki full eins og áður en 3/4 full og eiginmaðurinn fann 4-5 kjúklingabita í sínum kjúklingarétti en þó var ég að vísu heppnari.  Þannig að bæði hækkun um 200 krónur á einum matarskammti og minnkun matarskammts sem gefur mun meiri raunhækkun á vörunni.  Þetta finnst mér okur.

#633    Fyrir c.a. tveimur árum síðan var ég að flytja með fjölskylduna heim frá Danmörku og við ákváðum að taka Norrænu heim. Við pöntuðum far hjá Smyril line ferðaskriftstofunni í Danmörku og átti ferðin fyrir okkur, tvo fullorðna, tvö börn og einn bíl, að kosta u.þ.b. 63.000 isk, sem við vorum mjög sátt við að borga og eiginlega hálf hissa á því hvað þetta væri hagstætt en svona uppá grínið ákváðum við að athuga hvað þeir segðu hérna heima á Íslandi og komumst að því að ef við hefðum keypt þessa ferð í gegnum íslensku Smyril line ferðaskrifstofunni hefðum við þurft að borga u.þ.b 120.000 isk. Ég veit ekki hvernig þetta er í dag en ég ráðlegg öllum sem ætla sér að fara með Norrænu að prufa að hringja í hinar ferðaskrifstofurnar og athuga hvort að ekki sé hægt að fá þetta hagstæðara þar.

#632    Mig langaði bara að benda á kostnaðarlið sem Landsbankinn er farinn að leggja á herðar þeirra sem þurfa að eiga í viðskiptum við þá. Þannig er mál með vexti að ég lenti í því að fá ofgreidd lán frá LÍN að upphæð 35.000 kr. I kjölfarið gáfu þeir mér kost á að endurgreiða þeim í fjórum greiðslu, með vöxtum auðvitað. Þáði ég það. Þegar greiðsluseðlarnir fóru að berast rak ég augun í kostnaðarlið sem ég taldi að mér bæri ekki að greiða. Þetta voru svokölluð innheimtulaun sem Landsbankinn tók fyrir að rukka inn skuldina fyrir LÍN. Þannig lagði Landsbankinn 790 kr aukalega ofan á afborgunina og vextina. Þar sem ég taldi að það hlyti að vera LÍN sem ætti að greiða fyrir keypta þjónustu þá ákvað ég að greiða allt nema þessi innheimtulaun og hafði samband við LÍN. Þar vísuðu þeir í smáa letrið í samningi okkar þar sem fram kom að ég ætti að greiða þennan kostnað. Ég var mjög ósáttur við það en varð að sætta mig við það. Tveimur dögum síðar berst mér annar greiðsluseðill frá Landsbankanum þar sem þeir eru að rukka mig um þessi ógreiddu innheimtulaun. Ofan á þá upphæð eru þeir svo búnir að leggja önnur innheimtulaun, þannig að 790 kr innheimtulaunin sem ég skuldaði þeim eru allt í einu komin upp í 1110kr. Þeir sem sagt rukka mig um 320kr. í innheimtulaun. Þetta gerist þrátt fyrir að síðasta greiðsludagur á upphaflega seðlinum væri ekki liðinn.  Ég kaus ekki að eiga í viðskiptum við Landsbankann en kemst ekki hjá því í þessu tilfelli, sit samt uppi með kostnaðinn. Fyrir utan vextina sem ég er að greiða af skuldinni þá er ég að greiða tæp 10% aukalega vegna innheimtulauna sem Landsbankinn smyr ofan á upphæðina.Af  8.784 krónum leggja þeir ofan á 790 krónur en ofan á 790 krónurnar leggja þeir 320 krónur, skrýtið reiknisdæmi!
Kannski ekkert skrýtið að Landsbankinn hafi sýnt 20 milljarða hagnað á síðasta ári!

#631    Bankarnir! 
1.       að taka 15þ krónur fyrir að nafnabreyta bílaláni er náttúrulega svo svínslegt að manni gefst ekki einu sinni færi á því að teygja sig í vaselínið hvað þá meira. Einnig lenti ég í því að 
2.       Landsbankinn tók sér aðeins og langan tíma til þess að afgreiða lóðalán sem ég tók hjá þeim seinasta haust þanniga að þeir sjálfir leystu málin og settu inná reikninginn minn 9 milljónir í yfirdrátt, í beinu framhaldi týndust pappírarnir yfir lánið í bankakerfinu og þegar þeir loksin fundust átti ég að greiða 375þ krónur í vexti af þessum „ágæta“ yfirdrætti sem þeir græjuðu vegna eigin mistaka.
3.       Sami banki tók 8700 krónur fyrir að færa lán frá íbúðinni minni yfir á sumarbústaðinn minn í 1 viku meðan ég keypti nýtt húsnæði!!!!
4.       Ég á yfir 35milljónir í hreinar eignir (ekki veðsettar neinstaðar) og seinustu mánaðarmót þurfti ég að grenja í útibússtjóranum sjálfum til þess að fá 250þ kr yfirdráttaheimild á fimmtudegi sem var greidd niður á mánudegi
Við erum komin aftur til fortíðar í bankamálum þar sem bankinn á okkur með húð og hári og stjórnar öllum kaupum og kjörum í lífi okkar.

#630    Penninn er með tilboð á LEITZ möppum sem voru á tæpar 600 kr.
Nú hljóðar tilboðið þannig í bæklingi frá Pennanum.
Tilboð 499 kr. Verð áður 735 kr.
Þetta finnst mér rosalega gróft og á ekki að líðast. Verð áður er ekki rétt.

#629    Langaði að benda á það að það er kominn nýr gjaldaliður inn hjá Icelandair þegar þú bókar flug. Þeir eru farnir að taka 500 krónur í bókunargjald þegar bókað er á netinu. 
Ég er félagi í Neytendasamtökunum og benti þeim á þetta þar og þá sögðu þeir að þeir vissu af þessu. Ég er mjög pirruð bæði út í Icelandair fyrir að vera alltaf að plokka af manni og svo 
líka út í Neytendasamtökin vegna þess að maður er að borga í þetta félag og þeir gera ekkert þó þeir fái fregnir af svona gjöldum, mér finnst að þeir hefðu átt að fara með þetta í fjölmiðla, því þó þetta sé kannski löglegt gjald þá er það gjörsamlega siðlaust.

#628    Ég er að fara til útlanda að heimsækja vini og ættingja og listinn af sælgæti sem á að taka með langur. Ég fór því á heimasíðu Fríhafnarinnar og nóteraði nokkur verðdæmi áður en ég fór í Bónus.
Í Bónus keypti ég svo 100 g bingókúlupoka á 99 kr í stað fyrir að borga 109 kr í Fríhöfninni.
Svo greip ég Djúpur í 250 g poka á 259 kr en í Fríhöfninni mun 180 g poki kosta 299 kr. 
Hrískubbar frá Freyju, 425 g poki kosta í Bónus 398 en 340 g kassi af þeim í Fríhöfnini kosta 579 kr.
Hvernig er lagt á vörurnar í fríhöfninni ef þetta er verðið án vsk?!
Að lokum dæmi af sænsku Polar extreme-brauði sem er alltaf í hillunum í Hagkaup merkt á 298 kr en þegar á kassann er komið eru rukkaðar 498 kr. Keypti líka poka af slíku brauði í Bónus áðan á 259 kr. Hillumerkingin stemmdi meira að segja við kassaverðið þar. 
Ástandið í dag er náttúrulega fáránlegt! Vinn í ferðaþjónustu og hagstætt gengi á seint eftir að skila sér til ferðamannanna í sumar vegna skyndilegs verðhækkanafárs sem hefur gripið kaupmenn og seljendur þjónstu hvers konar. Og sársaukamörkum langflestra ferðamanna til Íslands hafði þó verið náð fyrir löngu. Ef gæði þjónustu héldust a.m.k. í hendur við hátt verð væri í alvörunni hægt að þykjast vera að selja lúxus. Þetta er þó önnur saga.

#627    Ég var að koma úr klippingu og fékk skol í hárið og ég borgaði 18.000 
krónur í Salon Veh í húsi Verslunarinnar. Fyrir áramót borgaði ég kr. 
12.000 fyrir þessa þjónustu, þetta kalla ég okur!

#626    Ég skrapp í 10-11 í Keflavík í dag, ætlaði bara að kaupa einn pakka af kaffi og vera fljót. Ég sneri við í snatri þegar ég sá að pakkinn af SENSEO kaffi frá Merrild kostar 536 krónur í 10-11. Ég ákvað að renna í Bónus í Njarðvík og athuga hvort ég væri biluð, minnti að þar kostaði pakkinn um 300. Ég reyndist ekki biluð, pakkinn í Bónus kostar 232 krónur. Ég get ekki skilið þennan verðmun! (nb. Þetta er munurinn á "lágvörubúð" og "hávörubúð búð sem er opinn allan sólarhringinn". Trixið er að hafa vaðið fyrir neðan sig og fara aldrei í 10-11.)

#625    Láttu póstinn koma því til skila. Slagorð Íslandspósts sem stenst engan veginn. Ég sendi bréf til útlanda en fékk það jafn harðan endursent aftur. Ég gerði mér ófáar ferðirnar uppá pósthús og póstmiðstöð en allt kom fyrir ekki. Alltaf endursent. Í fjórða skiptið (og núna var ég orðinn mjög pirraður) hringi ég í þjónustuverið og bið um yfirmann dreifingar. Já, ég má ekki gefa þér samband þangað. Ha, segi ég? Reglur hjá okkur, þjónustuverið aðstoðar við allt svona. Já okei, ég ber upp erindið mitt og hún bendir mér góðfúslega að fara aftur uppá póstmiðstöð. Þangað fer ég og loksins fór bréfið úr húsi eftir að yfirmaður póstmiðstöðvar gekk í málið. Ég borgaði c.a 950 krónur undir 50 g bréf, 100 krónur fyrir umslag, semsé 1050 krónur og hvaða skýringu fékk ég af hverju bréfið hefði verið endursent, jú þeir eru með útlendinga í vinnu sem kunna hvorki íslensku eða ensku og gera mistök. Á ég ekki að fá pottþétta þjónustu fyrir 1.050 krónur? Ég kalla þetta nú bara hálfgert okur, þ.e að borga þetta verð en fá þetta alltaf endursent.
Ég er í skóla í fjarnámi fyrir norðan og hef þurft að fá skólavottorð sent með faxi. Hef yfirleitt fengið það frítt en nei, núna nýlega þarf maður að greiða 150 krónur til Íslandspósts fyrir að taka á móti einu faxi. Hreint og klárt okur! Þeir verða ekki fyrir neinum kostnaði, blaðið kostar kannski 10 krónur og blekið eitthvað pínöts. Fatta ekki svona lagað!
Ég hef ekkert á móti þessu fyrirtæki, mér finnst bara að staffið þurfi að tala meira saman, auka við markaðstarf innanhúss. Æðstu stjórnendur fyrirtækisins eiga nú að hætta að hugsa um markaðsmálin og pæla meira í einstaklingunum og hvernig má þjónusta þá. Fræða staffið betur sem er nú allt að vilja gert til að aðstoða.

#624 / 624    Ég þarf að fá skriflegt verðmat á húsið mitt. Ætla ekki að selja en þarf að lána veð í því. Mér datt í hug að hringja í nokkrar fasteignasölur og athuga hvað slíkt kostar. Flestar sölur rukka 15.000 kr fyrir slíkt viðvik. Einn vildi fá 19.000. Svo hringdi ég í 101 fasteignasöluna, þar svaraði afar geðgóður piltur sem ætlar að græja þetta frítt. Af því að það er gott veður sagði hann. Við eigum deit á eftir. (nb. Já en hvað gerist ef það er skítaveður, eins og gerist örsjaldan hélendis?)

#623    Ég kaupi oft garn í Hagkaup, upphaflega þegar ég byrjaði að kaupa garnið var tegundin sem ég nota var ein dokka á 329 kr. svo fór hún upp í 349 kr. áður en ég vissi af varð ég að greiða 399 kr. fyrir dokkuna - en síðasta hækkun fór alveg upp úr öllu valdi - 529 kr. dokkan sem er rúmlega 60% hækkun - það er OKUR!

#622    Nú er garðvinnutíminn að renna upp og þörf á að endurnýja ýmis garðáhöld sem eru komin til ára sinna eða hafa ryðgað í sundur úti í garði, eins og hjólbörurnar mínar. Í Húasmiðjunni fann ég þokklegar hjólbörur á 3.990 kr. og í Byko á svipuðum prís. En svo sá ég auglýsingu frá Múrbúðinni með samskonar hjólbörum á 1.700 kr. Það kalla ég ekki-okur. Húrra fyrir Múrbúðinni (sem er nánast alltaf með lægra verð en okur-byggingavöruverslanirnar, og nokkuð oft með MIKLU lægra verð en þær).

#621    Fór í BYKO í gær og keypti 2 halogen perur og borgaði rúman 1400 kall fyrir herlegheitin. Átti síðan leið í Bónus síðar um daginn og sá að þar kostaði peran 159 kr. nákvæmlega sama gerð. OKUR!!! Ég fór í BYKO og fékk endurgreitt.

#620    Ég keypti Focus eins dags augnlinsur í Ég C í Smáranum á 2400 kr. og fór svo í Lyfju sem er tveimur skrefum frá og þar kostar pakkinn 2990 kr.! Mér finnst þetta blóðugt sérstaklega í ljósi þess að Lyfja er keðja og því ættu þeir að fá magnafslátt á innkaupsverði og líka þar sem þessar tvær verslanir eru hlið við hlið og Lyfja er greinilega ekki mikið að athuga verðið hjá keppinautnum við hliðina!

#619    Ég rambaði á netverslunina augnlinsur.is og fékk linsur á kr. 7.250 og allur sendingakostnaður er innifalinn í kaupverði. Nema þegar linsurnar berast kemur auka reikningur með þeim upp á 1.868, sem sundurliðast þannig:  vsk. 1.418 og kr. 450 tollmeðferðargjöld. Og með pakkanum fylgdi reikningur frá Linse-Xpress í alt dkr. 450,- sem er margfaldað með genginu 15.668.
linsurnar (6 mánaða skammtur) kostuðu mig samtals:  7.250 + 1.868 = 9118 þann 2. apríl 2008. Ég hef þó ekki gert samanburð, þótti bara mikil viðbót að borga næstum kr. 2,000 auka við afhendingu. Ég kvartaði yfir þessum 1868 kr við linsubúðina en þau svöruðu að á síðunni stæði að gera mætti ráð fyrir aukagreiðslum þar sem þetta kemur frá Danmörku. Það hlýtur að vera í mjög smáu letri.

#618    Þurfti að kaupa mér sundskýlu. Fór í Holtagarða og þá fyrst í Útilíf. Þar voru til Speedo, Nike og Adidas sundskýlur, engin undir 3.000 en flestar á bilinu 4-5.000 krónur. Mér ofbauð og fór í Hagkaup og sá þar sundskýlu á 1.690 og taldi vel sloppið og keypti. Sundkýlan entist samt ekki sundferðina og raknaði í sundur. Ég var heppinn að komast í klefann áður en hún datt af mér og teygjan slitnaði áður en ég komst úr henni. Í gær fór ég síðan í OUTLET í Skeifunni og þar sá ég flottar Speedo sundskýlur í öllum regnbogans litum og gerðum á 1.490 krónur. Ég þangað næst og læt framvegis vera að kaupa einnota kínadrasl í Hagkaup þar sem mér finnst leiðinlegast að versla. 

#617    Litli frændi minn átti afmæli um daginn og ég ætlaði að gefa honum tölvuleikinn Fifa Street 3 í xbox 360. Ég byrjaði á því að fara í BT og sá að leikurinn var á 7.990.- ég labbaði strax út, því ekki dettur mér í hug að kaupa einn tölvuleik á þessu verði. Því næst fór ég í Elko og þar var leikurinn ekki til en sá að Fifa Street 3 í Playstation 3 kostaði 5.990.-. Fyrst að leikurinn var ekki til í Elko þá fór ég og kíkti á verslunina Tölvuvirkni og þar endaði ég á því að kaupa Fifa Street 3 fyrir Xbox360 á 3.000.- Mér finnst þetta ansi blóðugt að tvær stæðstu tækja verslanir á íslandi sem btw segjast vera ódýrastar séu svona langt fyrir ofan minni verslanir.

#616    Mig langar til að svekkja mig aðeins á 365 miðlum. Mér hefur stundum þótt verðið vera hátt en það er þó annað sem ég ætla að skrifa um. Í dag (15/5) hugðist ég segja upp áskrift að sjónvarpsstöðvum hjá 365. Mér var sagt að ég gæti ekki sagt áskriftinni upp fyrr en frá og með 5. júlí eða með 50 daga fyrirvara. Ástæðan var sögð sú að búið væri að taka út fyrir þessari áskrift á kreditkortinu. Ekki væri heldur hægt að bakfæra júnígreiðsluna síðar eins og ég bað um. Mér var bent á að lesa skilmálana á netinu. Ég átta mig ekki á því hvernig þetta fjölmiðlafyrirtæki þykist hafa rétt til að vera með mig í nauðungaráskrift í júní. Öll mín samskipti við fyrirtækið hafa verið í gegn um síma og ég þykist vita að aldrei hafi verið minnst á uppsagnarákvæði í þeim samtölum. Ég þykist viss um að fyrirtækið brjóti á mörgum ,,viðskiptavinum” sínum með þessum hætti en þar sem upphæðirnar eru í þúsundum en ekki í tugþúsundum nennir enginn að gera neitt í málinu. 

#615    Ætlaði að kaupa klettasalat sem ég nota oft með öðru salati til bragðbætis. Mér hefur reyndar fundist pokinn dýr en látið mig hafa það hingað til. En nú blöskraði mér og ég hætti við. Þetta var í Nóatúni, man nú ekki hvaðan pokinn var, Hollt og Gott eða Náttúru en það hefur hingað til ekki munað miklu á þeim. En sem sagt, 75 grömm kostuðu 498 kr. Mér reiknast til að kílóið sé þá á 6640 kr. Ef þetta er ekki okur veit ég ekki hvað okur er.

#614    Við nokkrar samstarfskonur og fólk í kringum okkur höfum tekið okkur saman og skráð hvað kostar að fara á hársnyrtistofu: SJÁ HÉR.

33 ný okurdæmi sett inn 15.05.2008 daginn eftir Íslensku neytendaverðlaunin:

#613    Um helgina stóð ég í flutningum og varð uppiskroppa með límband til 
að loka pappakössum. Ég bölvaði í hljóði því nú voru bara 
bensínstöðvar opnar og því góð ráð dýr.  En ég kyngdi stoltinu og 
keypti límbandsrúllu á Olís-stöðinni í Álfheimum.  Þar varð ég 210 
krónum fátækari en fannst það ekki logsvíða neitt ofsalega því ég gat 
jú klárað flutinga. En 210 kall er samt ansi mikið fyrir skitna 
límbandsrúllu, eða það hélt ég allavegana þangað til í dag. Mér 
varð nefnilega á að bregða mér í Pennann í Hallarmúla og þar rekst ég 
á samskonar límbandsrúllu í rekka. Mér varð starsýnt á verðið og ég 
verð að viðurkenna að ég er ennþá að ná þessu. Hjá Pennanum kostar 
samskonar límbandsrúlla 998 krónur!  Ertu ekki að djóka? Ég var ekki 
viss um að þetta gæti staðist og tékkaði því aðeins betur á þessu.  Á 
N1 kostar samskonar rúlla 275 krónur og vefverslun Pennans staðfesti 
svo þetta fríkaða okur. Penninn fær hér með fullt hús okurstiga!

#612    Mér var falið að kaupa nokkur snittubrauð sem áttu að vera hluti af afmælishlaðborði móður minnar annan í Hvítasunnu. Sem sagt smá fjölskyldupartý. Fór í Hagkaup (þar sem íslendingum finnst skemmtilegast að versla - hahahah) út á Nesi þar sem ég bý. Ég hugsaði með mér, æji, þetta er bara einn hlutur (er farin að hugsa um Hagkaup og Nóatún sem sjoppu eins og 10-11 á gamla mátan, ef maður þarf 1 til 3 hluti, you know what I mean). Í Hagkaup var snittubrauðið  á 309 kr. Stk. WTF!!!  Mig minnir að sama brauð hafi verið á 259 ekki alls fyrir löngu. Hljóp út hið snarasta og keyrði út á Fiskislóð í Krónuna þar sem mjög fínt snittubrauð var á 119 kr. Stk. Sem sagt:  Hagkaup 3x309 =927 / Krónan 3x119=357.

#611    Ég  vill benda á að það er sama góða verðið á mold í kerru hjá VGH mosfellsbæ og í fyrra, 1000 kall. Gott mál hjá þeim. (nb. Enda kannski dálítið erfitt að réttlæta verðhækkun á íslenskri mold með hækkun Evrunnar! Samt alveg á hreinu á harðsvíraðri okrarar hefðu notað tækifærið.)

#610    Ég fór á pósthúsið þann 11. apríl sl. og sendi pakka til útlanda. 
Pakkinn var 14 kg og fór til þýskalands. Sendingin kostaði 8400.-kr Ég 
sendi annan alveg eins pakka (sama þyngd og stærð) til sama lands núna 
í vikunni og var verðið komið í 9690.-kr. Þetta er 15% hækkun á einum 
mánuði. OKUR !!

#609    Ég ætla að benda á okurhækkun á Whiskas þurrmat fyrir ketti hjá sjálfum bestu vinum litla mannsins - Bónus! Þeir seldu í mörg ár poka sem voru 1,5 kg og lengi undanfarið hafa þeir oftast kostað 429 kr sem gerir þá 286 kr/kg. Allt í góðu. Nú er Bónus allt í einu farinn að selja þennan sama þurrmat (Whiskas) í 2 kg pokum og maður skyldi ætla að það væri hagkvæmara að kaupa í stærri einingum. En bíðum við, pokinn kostar 798 kr og kílóverðið er því 399 kr. Mismunur/hækkun er 113 kr á kíló sem gerir (113/286) 39,5% hækkun! Svívirða og auðvitað til skammar að samkeppnisyfirvöld skuli aldrei fylgjast með og gera verðsamanburð á gæludýrafóðri því það eru ófá heimilin þar sem eru gæludýr og matarkaup fyrir þau telja vissulega hjá eigendunum. (ath Mér blöskraði þessi hækkun þar sem ég er með nokkra ketti. Ákvað að fara í Krónuna í gær að kaupa kattamat, en sneri við á staðnum þegar ég sá að 2kg poki af Whiskas kattamat með túnfiskbragði var á 1399. Ég fór í Bónus og keypti pokann á 788 kr.)

#608    Honey "Corn flakes" frá Kelloggs hafa nú á um 2 vikum hækkað úr 179 kr í 225
kr eða um sem nemur 25%. Versla í Bónus svo þetta er verðmið þaðan. Þetta verður að teljast okur. (nb. Heitir þetta ekki frekar eðlileg hækkun vegna markaðsaðstæðna?)

#607    Danelectro Fab Echo gítareffektapedali er hannaður með það að markmiði að vera ódýrastur á markaðnum. Hann kostar 14.99 dali (1.198 isk) í Guitarcenter. Á Íslandi, í Gítarnum, kostar hann hins vegar 6.900 isk! Ha? 576% álagning! Ég prófaði líka eðal MXR carbon copy (analog delay) gítar effect sem er "ekki nema" 208% dýrari í Gítarnum.

#606
Þrjú dæmi af tölvuíhlutum.Verðmismunur á milli Tölvuvirkni (ekki okur) og Tölvulistans (okur). 
Skoðaðu þetta
og þetta er okur

skoðaðu þetta
og þetta er okur

skoðaðu þetta
og þetta okur

Smá dæmi og svona má lengi tína upp tölur á www.vaktin.is.

#605 Matsalan í Freysnesi þar kostar plokkfiskur fyrir tvo + vatnsglas kr 3600 (þ.e. 1800 á haus) það er hægt að borð nokkrum sinnum hjá IKEA fyrir þá upphæð. (ath: Ég var þarna á ferðinni 4 maí og verslaði smávegis (tímdi ekki alveg að versla mikið). Einn poki af kartöfluflögum Lays (gulur) kostaði þar 660 kr - - mér ofbauð algjörlega.)

#604    Mér varð það á þann 8.maí sl að slysast að kaupa mér rakvélablöð, Venus Vibrance, fyrir afskaplega bleika og dömulega rakvél. Þar sem ég er því miður ekki mjög vakandi fyrir því hvað hlutir kosta, borgaði ég rakvélablöðin og rauk út í bíl. Eftir um 4 metra á rándýru bensíninu rofaði til í annars illa skýjuðu heilabúi mínu og mér varð ljóst að ég hafði borgað 2.385,- krónur fyrir pakkann, sem inniheldur 4 blöð. Ég æddi í Nóatún í Rofabæ og kíkti á verðmerkinguna og jú- mikið rétt ég borgaði uppsett og skráð verð. Í Bónus kostar sams konar pakkning 1.271,-.
Ég ákvað að skila ekki Nóatúnspakkningunni minni af þeirri einföldu ástæðu að þetta verður erfðagóss og mun ganga milli komandi ættliða minna um ókomnar aldir. Sem betur fer á ég bara eitt barn því annars myndi þetta líklega valda varanlegum skaða á samskiptum fjölskyldumeðlima þegar kemur að skiptingu dánarbús míns.
Ég á strimilinn ennþá og hann er í það minnsta verðmeiri en hlutabréf mín í FL goup sem ég seldi ekki í fyrra.  Vona að tískan muni líka breytast hratt í framhaldinu, við konur tökum upp þýska siði og söfnum líkamshárum, ég hef í það minnsta ekki efni á fleiri rakvélablöðum.

#603    Fyrir rúmum 2 árum átti ég Nissan Primeru. Bæði framljósin voru ónýt í honum og ég ákvað að kaupa ný áður en ég léti skoða hann. Fór niðrí Ingvar Helga og talaði við kall þar. Hann fletti þessu upp og bæði ljósin voru hingað komin á 24.900. Þurfti að sérpanta þetta víst. Geymdi þetta aðeins því þetta var aðeins of mikið fyrir mig. Var búinn að heyra að þetta væri til í AB varhlutum uppá Höfða (við hliðina á Húsgagnahöllinni) og þar voru bæði ljósin til á 12.900 en tek það fram að það er dálítill tími  síðan þannig að þetta er örugglega búið að hækka eitthvað. Þannig að það borgar sig að skoða fleiri staði heldur en bara umboðið.

#602    Fór með familíuna að skoða nýja Habitat og Stubbasmiðjuna um síðustu helgi. Ætlaði að kaupa Sollu stirðu litabók fyrir 4 ára dótturinna. Ég var fljót að hætta við því bókin kostar 589 kr. Sama bók í Bónus á hæðinni fyrir neðan kostar 199 kr. Þetta kalla ég OKUR! (nb. Eins glæsilegur og verslunarkjarninn þarna í Holtagörðum er þá er bara best að tölta í gegnum Bónus fyrst og kaupa það sem manni vantar og er til þar því það er alltaf vel ódýrara en í öllum hinum búðunum.) 

#601    Mig langaði í fallega Ellte barna húfu sem fæst í Hagkaup en tímdi ekki að kaupa hana því hún kostar þar 2999 krónur. Var svo stödd í Fjarðarkaup Hafnarfirði og sé þar nákvæmlega sömu húfu á 1641 kr! Ég keypti hana þar og segi nú öllum mömmum að fara í Fjarðarkaup til að kaupa húfur og forðast Hagkaup eins og heitan eldinn! (nb. Hvaða vitleysa!? Finnst ekki Íslendingum skemmtilegast að versla í Hagkaup!?)

#600    Ég fór og keypti dags linsur þann 14. maí 2007 í Auganu Kringluni og kostaði pakkinn 2.600.- af Daily focus en það er líka til ný gerð á 3.350.-. Tek það fram að ég versla þar iðulega og met þjónustuna vera framúrskarandi. Þurfti 4 pakka en ég áttaði mig á því eftir kaupin að 1 hefði dugað þar til ég fer erlendis núna á föstudaginn og hefði þá mögulega geta keypt á lægra verði hluta af innkaupunum í Leifsstöð. Ég gerði því samanburð á verði í Optical Stúdíó Leifsstöð og Smáralind. Í Smáralind kostar pakkinn 3.600.- til 3.800.- en í Leifsstöð 2.700.- til 2.850.- af Johnson & Johnson linsum. Eðlilega varð ég hæst ánægður með kjarakaup í Auganu Kringluni. Gott og gilt að verðmunur er á milli verslana Optical Stúdíó í Smáralind og Leifstöð en að linsur séu 27,8% dýrari í Optical Stúdíó Smáralind en í Auganu Kringluni er okur. Þar að auki að þær séu 3,7% dýrari í Optical Stúdíó Leifsstöð en í Auganu kringluni er mjög svo áhugavert og lærdómurinn er því þessi: Ekki láta verslanir í "fríhöfninni" plata ykkur!!!!

#599    Ég vil nefna það að ég fór með Toyota jeppann minn sem er 8 ára gamall til Toyota í Kópavogi, þar sem bremsurnar voru eitthvað að láta illa. Fékk uppgefið verð kr. 115 þúsund. Þetta var um miðjan des. Hafði ekki efni á þessu en smellti mér núna í maíbyrjun með hann á sama stað. Reikningurinn: 200 þúsund. 74% hækkun á 6 mánuðum!! OKUR!!! Þetta tók þá innan við dag að gera en reikningarnir þeirra eru þannig úr garði gerðir að tímafjöldi kemur ekki fram.

#598    Ég vildi benda á fólki á að vera vakandi gagnvart misræmi í verðmerkingu. Ég bjó í Bretlandi í hálft ár og aldrei kom það upp að misræmi gætti í verðmerkingu í hillu og á kassa enda neytendavitund mjög sterk þar í landi. Ég hef fimm sinnum farið í Nóatún eftir að ég kom heim. Í þrjú skipti hef ég verið rukkaður meira en verðmerkingin í hillunni gaf til kynna. Í fyrsta sinn var það grillsósa frá Argentínu. Hún átti að kosta 369 kr. en ég var rukkaður 449 kr. Nokkru fyrr keypti ég krydd í Nóatúni sem stundum er ódýrara en í Bónus. Ég var rukkaður 269 fyrir piparkorn sem voru merkt 179 í hillu. Í þessi tvö skipti náði ég að leiðrétta og fékk mismuninn tilbaka - eðlilega. Síðast þegar Nóatún reyndi að svindla á mér var ég að kaupa stórar bökunarkartöflur í stykkjatali skv. kílóverði. Ég man ekki í svipinn verðið en ég vil koma því á framfæri að það er mun erfiðara að vera vakandi gagnvart grænmetis- og ávaxtaokri þar sem maður þarf að reikna í huganum þyngdina margfaldað með kílóverði og deila og draga frá á þessum örfáu sekúndum sem maður hefur við kassann. 

#597    Í framhaldi af grein í Mogganum 13.maí sl "Barist um barnafólkið"
Þar fullyrðir rekstrarstjóri Bónuss að bleyjur hafi ekki hækkað sl. mánuði.
Ég er búin að vera með 2 börn á bleyju undanfarin 3 ár og fullyrði að bleyjur hafi hækkað um 40% á árinu eða úr rúmum 900 kr í 1.265 kr. eins og þær kosta í Bónus í dag. Ef menn hafa ekkert betra við peningana að gera er hægt að kaupa sama bleyjupakka í 10-11 eða apóteki á rúmar 1.800 kr.
SMA þurrmjólk kostaði í Bónus í byrjun árs 449 kr. og er í dag komin í 549 kr. = 22% hækkun.
Sama þurrmjólk kostar 1.299 kr. í Hagkaup og 714 kr. í Nóatúni.
Mér varð á að setja SMA þurrmjólk í körfuna á laugardaginn í Hagkaup, kíkti svo á strimilinn þegar ég hafði greitt 9.500 kr. fyrir helgarsteikina og þurrmjólkina. Mér ofbauð okrið á þurrmjólkinni og heimtaði endurgreiðslu sem ég fékk orðalaust. Ég læt ekki bjóða mér þetta kjaftæði.

#596    Fór á Vegamót við Vegamótastíg fyrir svolitlu síðan.
Pantaði mér glas af ananassafa. Ég sá á matseðlinum að glasið kostaði 350 kr. 
En af því mig langaði í góðan safa ákvað ég engu að síður að láta mig hafa það í þetta skipti.
Afgreiðslustúlkan sneri aftur að borðinu þar sem ég sat og tjáði mér að ananas safinn væri búinn, því yrði smá bið.
Af því ég var hvorteð er að bíða eftir vinkonu minni sætti ég mig við það.
Stuttu seinna sé ég téða afgreiðslustúlku stökkva út, kemur tilbaka 15 mín seinna með tvo Bónus poka fulla af Ananas Brassa.
Ég sé hana svo taka fernu úr pokanum (sem hún hafði keypt í Bónus, á Laugarvegi, nokkrum metrum og örfáum mínútum frá á rúmar 100 kr líterinn) og hella í glas.
Þess má einnig geta að hún fyllir glasið fyrst af klökum. 
Þetta borgar maður 350 kr. fyrir. Ég hefði getað fengið rúma 4 lítra af sama safa aðeins ofar í götunni.
Þó vil ég taka fram að maturinn á Vegamótum hefur alltaf verið í lægri kantinum (miðað við magn og miðað við önnur sambærileg kaffihús).
Þetta atvik var samt alveg fráleitt.

#595    Ég pantaði mér tíma í hársnyrtingu á dögunum hjá nýja Klippótekinu í Reykjanesbæ. Ég tók það skýrt fram að ég vildi bara rétt svo láta særa endana því ég væri að safna hárinu niður. Nema hvað að stúlkan fór alveg eftir þessu sem ég bað um og snyrti bara rétt endana, þetta var eiginlega varla neitt sem hún klippti af og þetta tók innan við 5 mínútur, allt í góðu með það, svo þegar ég er að fara að borga þá lá bara við hjartastoppi, hún rukkaði mig 3900 krónur fyrir þetta, engin litur eða permó eða hvað sem þetta heitir allt, bara smá særing....þvílíkt okur vá!! ég var í nokkra daga að jafna mig eftir þetta rán.

#594    Mig langar til að láta vita af okur verði á s.k. BUFF-i sem er selt í
Hagkaup, Útilíf og eflaust víðar.
Buff á smákrakka kostar meðal annars 2299 kr og til eru dýrari
tegundir t.d. Latabæjar-Buff sem kostar næstum því 3000 kr.
Buff er mjög efnislítið og framleiðslukostnaður er ekki mikill.
Þetta er OKUR!

#593    Ég eignaðist barn í desember síðastliðnum og þar af leiðandi hef ég þurft á lekahlífum/brjóstapúðum að halda. Fann eina tegund í Lyfju sem ég hef haldið mig við þar sem hún kostaði ekki mikið miðað við mörg önnur merki en virkar samt. 
Ég hringdi nú reyndar í Neytendasamtökin í apríl og lét vita af þessu og ég átti að fá svar aftur, en það bólar ekkert á því. 
Ég hef alltaf borgað 366 krónur fyrir kassann (með 15 pörum í og ég nota ca. 3-4 á dag). En einn daginn þegar ég fór að kaupa kassa þá var allt í einu búið að hækka verðið upp í 579 krónur fyrir nákvæmlega sama kassann! Þetta er hvorki meira né minna en u.þ.b. 40% verðhækkun í einu stökki. Mér finnst þetta eiginlega blóðug verðhækkun. 
Get líka bent á verðmun á snuðum fyrir 0-6 mánaða börn. 
Keypti 2 snuð í pakka frá Avent á 699 krónur í Ólavíu&Óliver. Þau voru hins vegar á um 1000 krónur í BabySam og um 1200 krónur í Lyfju, allt eru þetta nákvæmlega sömu snuðin. (nb. Ég mæli með ferð í Lyfjaver. Mér sýnist það langódýrasta apótekið.) 

#592    Ég var í Rúmfatalagernum að kaupa ýmislegt fínt útileigudót fyrir nýja fellihýsið mitt þegar ég sá Rosti plastvatnskönnu á 599 kr ég ákvað að láta ekki freistast og kaupa hana ekki. Svo fer ég seinna um daginn yfir í Hagkaup til að kaupa matvöru og sá ég ekki sömu könnunna frá sama merki á 1799 kr! Hvað er málið?! Hvernig getur þetta staðist?! Núna finnst mér 599 kr allt í einu ekkert svo mikið fyrir eina plastvatnskönnu. 

#591    Sjoppan Brautarstöðin í Ármúla býður fólki að kaupa 24 litlar kókdósir á 1000krónur. Reiknast mér sem svo það sé þá 41 króna dósin. Sambærilegar dósir kosta uþb 45-50krónur í lágvöruverslunum á borð við Bónus og Europris og þar er um innflutt sull að ræða. Kannski ekki stórmunur, 4krónur á dós og einhver 100kall á kassann. En engu að síður góður díll. Á sama stað má fá stóran, góðan hamborgara með beikoni eggi og allskonar djúsí gúmmelagði með frönskum og öllu pakkanum á 1100 krónur. 
Annað dæmi um ekki okur er VideoLeigan og sjoppan Skalli í Hraunbæ 102. Þar má fá tvær myndir (eina nýja og eina eldri) leigðar á 350krónur. Góður díll það meðan að Bónusvideo rukka uþb700krónur fyrir eina mynd. 

#590 Ég ræð fólki frá því að fara á Pizza Hut. Fór þangað með börnum mínum tveimur, við pöntuðum stóra pönnupitsu (2250 kr.) með fjórum áleggstegundum sem kosta 330 hver. Áleggshluti pitsunnar var ca. 70% yfirborðsins, annars bara botninn. Beikonbragð fannst ekki, svo lítið var af því áleggi. Af hinu var meira en það skal enginn segja mér að virði rauðlauksins á einni svona pitsu nái meira en 20 kr. og sama má segja um þessar tíu ólívur sem hafði verið dreift yfir. Fyrir þessa pitsu borguðum við semsagt 3570 kr. Fyrir 1.7 l. af sódavatni kr. 550 (tímdi engan veginn að borga 800 kr. fyrir 1,7 l. af gosi). Og fyrir fjórar smáar hvítlauksbrauðssneiðar með osti 760 kr. Brauðið var þó gott en það er ekki hægt að segja um pitsuna rándýru. Þegar ég ætlaði svo að bjóða börnunum upp á ís (en hann var aðalástæðan fyrir að þau völdu Pizza Hut) var okkur sagt að ísvélin hefði verið tekin í sundur til að hreinsa hana. Já, auðvitað þarf að hreinsa vélina en óheppilegt að gera það á kvöldmatartíma á öðrum í hvítasunnu, þegar gera má ráð fyrir barnafólki á staðnum. Þegar ég greiddi reikninginn tjáði ég starfsmanni að mér þætti leitt hvað staðurinn hefði dalað og að börnin væru leið vegna ísmálanna, stóð honum greinilega alveg á sama. Við fórum út með óbragð í munni, það er sjaldan sem við leyfum okkur að fara út að borða og þetta voru mikil vonbrigði. Aldrei aftur Pizza Hut! 

#589    Ég verð bara að segja eitt: Var í N1 um daginn og keypti mér Smint sem er pínu lítill pakki og ég borgaði 245 kr fyrir, það er okur.  Síðan kostar 1000kr að fara í bíó á Selfossi en 1200 kr að fara í bíó í RVK á nákvæmlega sömu mynd.

#588    Ég bý á Skagaströnd. Ég fékk pakka í morgun í póstkröfu, sem hljóðaði upp á krónur 3.670.
Þegar ég opnaði pakkann og sá reikninginn þá sagði ég ekki neitt fallegt.
Reikningurinn hljóðaði upp á krónur 2.670 en það kostaði semsagt 1.000 krónur að fá þennan pakka frá Akureyri, sem var 80 gr að þyngd.

#587    Þetta er orðið algjört bull hvernig verðlagið er orðið. Ég bý á stað þar sem við höfum aðeins eina búð, Samkaup úrval. Aldeilis ánægð þegar ég sá að það var til Chile-pipar (fæst nú ekki oft). Dreif mig heim með 2 pakkningar, ss 200 grömm, fannst nú pokinn ansi léttur sem ég bar út úr versluninni miðað við hvað ég borgaði. Skoðaði síðan strimilinn þegar heim kom. Viti menn, kílóið kostar 4.500 +/- einhverjar krónur.  Maður spyr sig hvað er í gangi.

#586    Fyrir nokkrum dögum síðan lenti ég í frekar óskemmtilegri atburðarás. Atburðarásin byrjaði ósköp sakleysislega. Ég hafði keypt stóran 6kg. kattarmatspoka (Royal Canin) hjá ónefndri gæludýraverslun hér í borg. Síðan vildi kisinn minn né kettir vinkvenna minna ekki borða matinn, ekki einu sinni bragða á honum. Mig fór að gruna að eitthvað hlyti að vera að matnum og taldi best að skila pokanum í verslunina. Ég ákvað að reyna vera sérslega elskuleg þar sem ég var ekki viss um að geta skilað pokanum en mér fannst einnig fúlt að þurfa að henda poka upp á 2000kr. þannig að ég ákvað að reyna. Verslunin tók frekar treglega í þá hugmynd að taka við opnum pokanum sem endaði í því að hringt var í þá heildsölu sem selur vöruna, heildsalann DÝRHEIM sf. Sú sem þá tók við símanum var kurteis og spurði mig skynsamlegra spurninga eins og hvaða mat ég hafði áður notað. En ég hafði oft áður skipt um mat fyrir kisann minn og aldrei átt í neinum vandræðu með það. Konan sagðist þá ætla að biðja eiganda DÝRHEIM að hringja í mig. Ég var á þessu stigi farin að sjá eftir að hafa komið með pokann þar sem ég var ekki að nenna að standa í þessu veseni sem var að verða út af einum kattarmatspoka! Ekki leið nema 5 mínútur en þá hringdi eigandi DÝRHEIM sf. Í mig. Ég reyndi í upphafi að útskýra á sem besta máta mitt mál og ítrekaði að ég væri nú engin sérfræðingur en ég taldi rétt á að innihald pokans yrði kannað eða allavega skipt við mig fyrir aðra gerð. Þá tók viðkomandi eigandi tryllinginn og hellti sér yfir mig með skömmum og dónaskap. Hvernig ég gæti útskýrt það að af öllum þeim þúsundum pakka af þessum mat sem seldur er á Íslandi og í Evrópu hafi aldrei neinn skilað pakka! (ég dreg þau orð stórlega í efa), að það væri ekki þeim að kenna að ég ákvað að skipta um tegund (ég var ekki að kenna einum eða neinum um það) og hún gæti ekkert að því gert þótt kötturinn minn væri svona vandlátinn (ehemm…allt í góðu en hann var ekki sá eini sem ekki gat borðað hann). Ég hef aldrei upplifað annað eins símtal í mörg herrans ár og átti ég og vinkona mín sem stóð mér við hlið bágt með að trúa því hvernig viðkomandi eigandi var að tala við viðskiptavin. Samtalinu lauk með því að ég skellti á konuna því svo óforskömmuð var hún að ég gat ekki lengur hlustað á þetta. Ég snéri aftur í gæludýraverslunina sem var þá að ræða við eiganda DÝRHEIM og sá viðkomandi greinilega hversu brugðið mér var. Málið var snarlega afgreitt með því að afhenda mér innlegsnótu fyrir vörunni. Það var augljóst að viðkomandi aðili gerði sér vel grein fyrir því að eigandi DÝRHEIM hafði farið yfir strikið gagnvart mér. Enda var ég lengi á eftir að ná mér eftir þetta símtal. Er þetta leiðin til að viðhalda góðum viðskiptum við okkur viðskiptavinina? Ég mæli algjörlega gegn því að nokkur versli við þetta fyrirtæki aftur og í guðs bænum verslunareigendur snúið ykkur eitthvert annað en til DÝRHEIM til að versla vörur í búðirnar ykkar!!!

#585    Ég fór í Ikea fyrir rúmum mánuði síðan og keypti þar ljóskastara 
fyrir þrjú halogenljós. Með ljósinu fylgdu þrjár 230 volta, 35 Watta 
Osram halogenperur. Alltsaman kostaði þetta sléttan þúsundkall. Var 
reyndar á einhverju tilboði. En þegar ein pera kostar rúmlega 
fimmhundruð krónur í Bónus, nákvæmlega eins pera, þá get ég hent 
ljósinu og á eina peru í afgang og er enn ekki kominn upp í það sem 
tvær perur kosta í Bónus. Ég hef reyndar aldrei skilið okrið á þessum 
hundómerkilegu ljósaperum.

#584    Í síðustu viku þá fór ég í Bónus í Hveragerði og þurfti að kaupa venjulega handsápu. Ég sá Dove sápu, 3 í pakka á 98kr. Fannst þetta vera góður prís svo ég ákvað að kaupa byrgðir og keypti 3 pakkningar. Þar sem ég var með fulla körfu þá tók ég nú ekki eftir því fyrr en ég kom heim að sápurnar kostuðu 198kr! Þar sem maður býr í öðrum bæ þá var maður engan vegin að fara þangað aftur til þess að kvarta yfir þessu svo maður sat bara í fýlu heima

#583    Ég fór í sakleysi mínu í N1 skálann á suðueyri með börnin mín og við ákváðum að fá okkur ís og ég keypti 2 hnetutoppa frá ms og einn trúða ís og viti menn hnetutopparnir kostuðu hver um sig 375 krónur og trúða ísinn á 260 krónur og alls gerði þetta 1020krónur fyrir 3 litla ísa!

#582    Ég fór í Húsasmiðjuna í Grafarholti um síðustu helgi.  Sá þessar líka flottu barnahjólbörur og leitaði að verði og fann – íkr. 1.390 stóð á miðanum.  Þar sem ég átti von á barnabarninu mínu í garðaverk til mín fannst mér tilvalið að fjárfesta í þessu og var sátt við verðið.  Á kassanum kostuðu hjólbörurnar íkr. 3.390.-! - segi og skrifa þrjúþúsundþrjúhundruðogníutíu. Ég var ekki alveg sátt, tók afgreiðsludrenginn með mér að verðmerkingunni og fékk að vísu hjólbörurnar á því verði.  Hvað með þá sem eru að kaupa marga hluti og taka ekki eftir þessu?  Þeir eru snuðaðir um 2000 krónur.

#581    Ég get ekki að því gert: Þegar vorar og hlýnar og birtir fer ég útí garð að róta og rækta. Í fyrra brotnaði (malar)hrífan, sem ég nota til að slétta beðin eftir að ég sting upp o.fl. Á heimasíðu Húsasmiðjunnar er slík hrífa auglýst á 1.190 krónur. Gerðarleg hrífa að sjá, svo ég dreif mig í HS við Grafarholtið. Þar kostuðu allar malarhrífur vel á þriðja þúsund, sú dýrasta 2.990 (þ.e.a.s. sú dýrasta sem var af svipuðu tagi og tilboðshrífan, það fást þarna enn dýrari hrífur, sem sjálfsagt endast í hundrað ár, miðað við verðið). Ég spurði starfsmann, sem gekkst við því að vera í verkfæradeildinni, um ódýru hrífuna, sem skv. myndinni á heimasíðunni var af sama tagi og flestar þær sem blöstu við í rekkunum. Hann kannaðist ekki við neitt tilboð, en benti mér á að fara bara með hrífu á kassann og athuga hvort tilboðið kæmi ekki fram þar – en biðja starfsmanninn á kassa að kanna heimasíðuna að öðrum kosti, og heimta minn afslátt ef verði bæri ekki saman. Ókei, hann fær mínus fyrir að hafa ekki hugmynd, en plús fyrir að gefa mér þetta ráð. Nema hvað, ég fór að ráðum hans, fór á kassann með hrífu í hönd. 2.990 sagði strikamerkjalesarinn. Ég bað kassadrenginn að fara inná heimasíðuna. Hann fann hrífuna sem auglýst er á 1.190 kr. Hún reyndist tólf tinda. Sú sem ég hélt á var fjórtán tinda. Ég rölti aftur í rekkann með hrífuna. Fann þar fullt af fjórtán tinda hrífum á 2.990, og fullt af tíu tinda hrífum á eitthvað aðeins lægra verði (tvö og fimm eða tvö og sex, sirka). En enga tólf tinda. Ókei, hugsaði ég, kannski stukku bara allir á tólftinda-tilboðið og þær eru uppseldar... Fór aftur á kassann og bað drenginn að tékka á þessu, hvort þær væru til á bakvið en bara ekki komnar í rekkann, semsagt – og líka hvort þær væru til í aðalbúðinni, Skútuvogi. Neibb, þær voru bara ekki til – í búðunum. Þær voru hinsvegar til á lager, sagði hann.
Hversvegna skyldu þær vera til á lager, en í hvorugri aðal-verslun Húsasmiðjunnar í Rvík? Þetta er dæmigert trikk, og ekki bundið við Húsasmiðjuna: Auglýsa eitthvað einfalt, algengt verkfæri/vöru af hvaða tagi sem er, ekkert endilega í dýrari kantinum, á súper tilboði. Jón/Jóna útí bæ sér þetta og hugsar, hey, mig  vantar einmitt svona, best að koma við þarna.
Þegar hann/hún mætir svo á staðinn er varan “ekki til, en væntanleg.” Kúnninn er súr, en verslunareigandinn ekki, því tilganginum er náð: Jón/Jóna útí bæ er mætt/ur á staðinn, og fyrst svo er, þá er kannski einsgott að skoða hvort eitthvað annað er vænlegt til kaups – og svo vantar mann auðvitað ennþá það sem maður kom til að kaupa – og fyrst tilboðsgripurinn er uppseldur, og mann vantar þetta á annað borð, þá grípur maður bara næstu sambærilegu vöru, jafnvel þótt hún kosti tvisvar til þrisvar sinnum meira.
Þetta er ekki bara okur, þetta er ósvífni og dónaskapur, og jaðrar við að hægt sé að kalla þetta ólögmæta viðskiptahætti – þótt sjálfsagt verði erfitt að færa á það sönnur sem duga fyrir dómi.
Allavega, ég keypti enga helvítis hrífu. Kem við í HS á morgun eða hinn og athuga hvort tólftinda tilboðshrífan er komin – að öðrum kosti kaupi ég mína hrífu einhverstaðar annarstaðar, jafnvel þótt hún kosti ennþá meira en í HS.

Okur #501 - 580 eru hér.

Veistu um rosalegt okur? Láttu vita!