OKUR! OKUR! OKUR!
Ekki láta gasa þig í búðinni líka. Neytendur, höldum haus!
Láttu vita um okur

#580    Þvottastöð Esso við Skógarsel: 690 kr. fyrir bílþvott í sjálfvirkri þvottastöð. EKKI-OKUR! 

#579    7.apríl 08 keypti ég YSL maskara á snyrtistofunni Jöru Akureyri á kr 2650. Móður minni leist svona helvíti vel á maskarann og fór og keypti sér eins núna laugardaginn 10 maí og greiddi fyrir hann 3150kr. á sömu snyrtistofu. sem er 19% hækkun. Litað dagkrem frá Estee Lauder sem keypt var 3 apríl í verslun Hagkaupa Akureyri og kostaði þá 4569 kr. kostaði í dag 12 apríl 5206 kr það er hækkun um 639 kr eða 14% ...  sem er auðvitað bara rugl.

#578    Ég fékk til mín garðyrkjumann til að gera tilboð í að klippa hjá okkur runnana í litla garðinum hjá okkur (við búum í endaraðhúsi). Mér blöskraði þegar hann gaf upp verðið 37000 fyrir viðvikið. Við vorum að greiða um 15-17 þúsund fyrir þetta þegar þeir fóru eins og stormsveipir yfir garðinn á mesta lagi hálftíma og  hirtu svo slatta af greinunum en skildu auðvitað megnið eftir fyrir okkur að tína upp og fara með á Sorpu. Mér finnst þetta orðin algjör fjárplóga- og okurstarfsemi hjá þessum strákum.

#577    Við fórum í ísbúðina í Álfheimum áðan og versluðum einn og hálfan 
líter af ís og 1 litla dollu af heitri sósu og þetta kostaði 1.535 kr 
Mér fannst það ekkert smá dýrt en svona er Ísland í dag. Svo þegar að 
heim var komið þá voru dollurnar ekki einu sinni fullar og þegar að 
var búið að taka af þeim þá voru þær bara hálftómar og illa fylltar. 
Þetta kalla ég okur og ennþá meira okur og ég kem ekki til með að 
versla þarna aftur það er sko alveg á hreinu. 

#576    Hálft soðiðbrauð m/hangiáleggi kostaði í Bakaríinu við brúna á Akureyri 307.- kr (í okt 2007). Í sama bakaríi kostaði hálft soðiðbrauð m/osti einnig 307 kr.- í okt 2007. Samkvæmt upplýsingum af vef ASÍ var kílóverð á hangiáleggi tæplega 390% hærra en kílóverð á osti!!!!!! Að sjálfsögðu hefur verðið á hálfri soðiðbrauðsneið hækkað töluvert í þessu bakaríi síðan í okt og mig minnir að það sé í kring um 335 kr.- núna. Já og ósmurð kostaði hálf soðiðbrauðsneið 73 kr.- og því má segja að áleggið og e.t.v. vinnan við að smyrja það kosti "litlar" 234 kr.-. Annað okur í þessu bakaríi er þegar keypt er rúnstykki með skinku og osti. Þá greiðir maður 108 kr.- fyrir ostneiðina og 108 kr. fyrir, NB! , hálfa skinkusneið. Þetta er þvílíkt okur. (nb. já, en hvað er soðiðbrauð?!)

#575    Kl 15.30 fimmtudaginn 8 maí 2008 fór ég í Krónuna Hafnarfirði og sá þar tilboð á 12 dósum af kók light (330ml) á 599 kr (49.91 kr pr dós). Ég keypti 2 pakkningar þar sem fjölskyldan drekkur mikið af þessu sulli. Kl 20.20 sama kvöld var ég aftur stödd í sömu Krónuverslun. Ég sá þá að sama pakkning með 12 x 330ml kókdósum var nú á 899 (74.91 kr pr dós) dósin hafði hækkað um 25 kr á rúmum 4 klst. (Þess má geta að 500 ml dós af kók light kostar 74 kr í Krónunni) (nb. Lítið við þessu að gera, menn hækka þetta og lækka bara eins og þeim sýnist!)

#574    Ruby tuesday og TGIFridays eru samskonar staðir, með svipaða matseðla og svipuð gæði. Ég get nú tilkynnt að RUBY hefur unnið stríð staðanna tveggja. Á nýja matseðlinum á Ruby er ekki búið að hækka verðin á meðan FRIDAYS er búið að hækka sín verulega frá því ég kom þar síðast. Til dæmis:
Ruby: Bacon Cheeseburger Sígildur hamborgari með osti, og beikoni. 1.490 kr.
Fridays: Með stökkum beikonsneiðum og hjúpaður í bræddum amerískum osti. Kr. 1.790- 
Það munar um minna. Ég mæli því með Rubys og ef þú vilt fara til himna skaltu fá þér Chocolate Tallcake® Ómótstæðilega súkkulaðiköku og krem úr Oreo-smákökum. Kakan er borin fram með vanilluískúlu, heitum súkkulaði- og karamellu-sósum og þeyttum rjóma. 1.390 kr. Þetta er svo stór skammtur að hann dugar auðveldlega fyrir tvo fullorðna og tvö börn. Biðjið því um 4 skeiðar. 

#573    Má til með að benda á enn eitt okrið frá BT sem kallar sig lágvöruverslun. Panasonic TX32LE7F – 32” V-Real LCD Breiðtjaldssjónvarp er í nýjasta bæklingnum þeirra á 99.999.- en nákvæmlega sama sjónvarp fæst í Heimilistækjum á 89.995.- Þetta kallast okur. (ath: Í pakkanum sem auglýstur er í  BT bæklingnum fylgja 20 DVD myndir með sjónvarpinu en ekkert hjá Heimilistækjum. Sorry... Betra verð í BT :-)

#572    Þar sem ég teikna mikið í tölvunni ákvað ég að kaupa mér góða mús til þess.
Eftir smá rannsóknir komst ég að því að besta músin væri  "Logitech MX Revolution"
Í Tölvulistanum kostar þessi mús 14900kr og í Tölvutek kostar hún 13900kr
Ég keypti hana á Computer.is á 7900kr.

#571    Verðmunur á DVD diskum er gífurlegur milli verslana. Bónus, Elko og stærri verslanir sem maður hefði haldið að væru ódýrastar eru hinsvegar lang dýrastar. Lægsta verð síðustu mánuði á 25stk DVD+R 16x er í Start Kópavogi á 1.290 en dýrast nokkrum metrum frá í Elko á 3.995 !!

#570    Fór í Smárabíó í dag með 8 ára dóttur minni á tilboðsmynd (Superhero movie) og kostaði kr. 650 miðinn, fyrir aftan afgreiðslukonuna blikkaði stöðugt að það kostaði 550 fyrir börn 8 ára og yngri (en þessi tilboðsmynd var bönnuð innan 7 ára svo hún hlýtur að vera barnamynd), ég spurði hana hverju þetta sætti en hún gat ekki svarað því nema að þetta væri tilboðsverðið....og virtist ekki skilja þetta sjálf .....

#569    Ég fór í Nóatún í Furugrund og keypti þar hálft hvítt smalokubrauð frá Millunni sem kostaði 235 krónur. Ég fór í Fjarðakaup daginn eftir og fór að skða verðið þar og kostaði það 167 krónur og er vermunurinn 41%.  Þetta finnst mér okur.

#568    Hafði heyrt að verðmunur á lyfjum væri talsverður og vert væri að kanna hvert halda skyldi til innkaupa, en það hvarlaði aldrei að mér að fólk er stundaði verslun með lyf væri haldið þeirri siðblindu sem virðist ríkjandi hjá stórum hluta íslenskra verslunarmanna. Ég hélt mína leið í apótekið að versla þau astma lyf sem uppáskrifuð voru, og í þetta skipti var það Lyf og heilsa í Firði, Hafnarfirði. 
Verðið á mánaðarskammti hafði verið í kring um  4-5 þúsund kr, en nú vildi kurteins afgreiðludaman skömmustuleg fá rúmlega 6800 kr fyrir sama skammt. Ha?, varð mér nokrum sinnum að orði.
Um leið og ég reyndi að láta reiði mína yfir miskunarlausri græðgi apótekarans ekki bitna á auðmjúkri afgreiðsludömuni, bað ég um að lyfseðillinn yrði sendur í eina apótekið sem rekið er að fólki með siðgæðisvitund sem nær yfir dýrslegt eðli græðginnar: Lyfjaver. Þar þurfti ég að láta af hendi 2464 kr. Þar með var mér sannað innræti annara apótekara og ömurlegt sinnuleysi okkar íslendinga.

#567    Ég ætlaði að skipta um bíl og var búin að finna voða sætan bíl hjá Suzuki sem kostaði 2 millur og 190 þús. Ég dreif ekki í þessu og 2 mánuðum síðar þegar ég fór aftur að hugsa um þetta þá hafði litli sæti bíllinn hækkað upp í 2.650.000!!! Mér fannst þetta nú ansi rífleg hækkun og verð bara áfram á litlu dollunni minni!  Reyndar kom auglýsing frá þeim fyrir ca viku síðan þar sem bíllinn var á gamla verðinu.......en ekki á heimasíðunni. Ég var nú að hugsa um að renna til þeirra og heimta hann á því verði.

#566    Talandi um okur, grímulausa græðgi og algjört virðingarleysi gagnvart viðskiptavinum sem greinilega eru taldir heimskir og fávísir!
Þann 24 janúrar 2008 keypti ég í Apótekinu á Akureyri, sem staðsett er í Hagkaupi 2 stk af Otrivin mentol nefspreyi. Þann daginn kostuðu 2 brúsar/flöskur eða hvað sem þessar einingar eru kallaðar, kr. 944. Í dag 9 maí 2008 keypti ég sama magn kr 1.402. 
Er ég spurði afgreiðslustúlkurnar um hvort verðið hefði hækkað virkilega svona mikið svöruðu þær með einföldu jái og og voru í einlægni jafnhneykslaðar og ég á þessari hrikalegu hækkun á ekki lengri tíma eða um 48,516% 
Halló, góðan daginn, já, sæll, eigum við að ræða þetta eitthvað frekar eða???
Ekki hækkuðu launin okkar um þetta mikið í síðustu samningum. Afgreiðsludömurnar í Apótekinu tóku undir það fullum hálsi og grenilegt að þeim stóð ekki á sama. Mér finnst orðin ansi sterkur samhljómur meðal almennings um að einhverjar breytingar á þessu þjófélagi þurfi að fara eiga sér stað.
Hversu lengi ætlum við íslendingar að láta svína á okkur alveg útí eitt og virðist aldrei taka enda. Ráðamenn þjóðarinnar virðast ”ráðalausir” eða þá að bjargráðin séu einfaldlega ”ekki á dagskrá” eins og þeir komast að orði. Að kosningum loknum er ekki lengur á dagskrá að vinna fyrir almenning. Nei, menn fara að vinna fyrir stórfyrirtækin (bankana, orkufyrirtækin ofl.) með flandri út um allan heim jafnvel á einkaþotum og gleyma fyrir hverja þeir vinna, hverjir kusu þá og hverjir greiða þeim launin.

#565    Heimasíðan doktor.is bíður uppá að senda inn fyrirspurn til lækna 
varðandi ýmsa hluti. Þetta var endurgjaldslaust fyrir nokkru síðan. 
Um daginn reyndi ég að senda inn fyrirspurn en gat það ekki af því ég 
var ekki búin að kaupa aðgang. Slíkur aðgangur kostar 3500 kr á ári. 
Það finnst mér mikið, sér í lagi ef maður sendir bara einu sinni inn 
fyrirspurn. Það er á pari við heimsókn til sérfræðings. OKUR!!

#564    Skrapp í Nóatún í Grafarholti og vantaði bara ost, salat poka og 
rjóma. Vanalega þegar maður fer í innkaupa leiðangur er maður með vel 
í körfunni og því síður að spá í verð á einstaka hlutum. En þegar 
stúlkan á kassanum vildi fá 1.100 krónur fyrir þetta staldraði ég 
aðeins við og vildi fá að vita um verðið á þessum hlutum sem ég var að 
fara að raða niður í innkaupapokann. 75 grömm af klettasalati kostuðu 
498 krónur, það jafngildir 6.640 krónum á hvert kíló af þessu grasi. 
Grasið er semsagt orðið talsvert dýrara en eðal nautalundir. Þetta 
kalla ég okur!

#563    Háskólinn í Reykjavík / Te og kaffi - Kaffibolli í gamla Moggahúsinu. Síðasta vika 190 kr. með áfyllingu. Þessi vika 260 kall. Te og kaffi hengja upp miða þar sem segir að hækkun hjá þeim sé tilkomin vegna hækkana frá birgjum. Nú var afgreiðsludaman varla að fá mikla launahækkun og ekki hækkaði gengið svona rosalega eða hvað? Skömm á Te og kaffi og enn meiri skömm á HR fyrir að láta þetta viðgangast. (ath: Það sem er fyndið (eða ekki) við þetta er að við hliðina á afgreiðslukassanum hengur tilkynning frá fyrirtækinu Te og Kaffi sem auglýsir 10 - 20% hækkun á kaffi. Hækkun úr 190 í 260 er mun meira en 20% hámarks hækkun sem var auglýst af fyrirtækinu. Þetta er venjulegur svartur kaffibolli, úr vél sem malar baunirnar automatískt. Þú færð reyndar eina áfyllingu. Hvað í ósköpunum ætli Kaffe Latte bolli kosti núna?)

#562    Pakki með 100 grisjum (10x10cm) kostaði í apótekum rétt undir 300kr fyrir ca.
tveimur mánuðum. Í lok mars/byrjun apríl fór verðið á pakkanum upp í tæpar
500kr. Núna í dag (08.05.08) kostar þessi pakki 1066kr í Lyfju á Smáratorgi -
búinn að hækka um rúmlega 300% síðan í mars! Þetta getur ekki verið í samræmi
við gengisbreytingar og varla hefur "hráefnið" (bómull) hækkað svona mikið í
verði.

#561    Langar að benda á smávegis okur. Þurfti í dag að kaupa 25 einnota málingargalla og ákvað að hringja á nokkra staði til að ath með verð til að spara mér sporin, nema hvað.
Ég hringdi í Slippfélagið og spurðist fyrir um einnota málingargalla "jaa ég man ekki alveg hvað hann er á, en það er eitthvað milli 600 og 650 krónur" svaraði afgreiðslumaðurinn.
Mér fannst þetta frekar dýrt, enda kannski ekki furða þar sem þetta er sérhæfð málingarverslun, þannig að þetta hlýtur að vera ódýrara í Húsasmiðjunni. Hringdi þangað næst, og eftir að hafa hringt út í þrígang þá var svarað og ég spurði að því sama og í fyrra símtali. Einnota galla. Þá var sagt við mig að þeir ættu galla og þeir kostuðu 899.kr......ssshhhittttt....og ég spurði hvort þeir ættu ekki bara einhverja ódýra drasl einnota galla sem kostuðu smá klínk og svo var ekki "þetta eru einu einnota gallarnir sem við erum með." Í þungum þönkum keyrði ég um bæinn og ákvað að kíkja í Byggingavöruverslun Kópavogs betur þekkt sem BYKO, vatt mér inní málingardeildina í nýrri verslun þeirra á Grandanum, fann málingargalla og verðmiðinn sagði....1156.kr ég fórnaði höndum leit aðeins til hægri á sá, að í næstu hillu við hliðina var haugur að einnota málingargöllum á 391.kr. Þarna var ég dottinn í hreinasta lukkupott. Ég er nú ekki neinn svakalegur reikningsgúru en samkvæmt mínum grunnskólareikningi þá fæ ég ekki betur séð en þetta sé rétt tæplega 230% mismunur. Hef nú keypt mér í gegnum tíðina málningargalla hinar og þessar týpur og get ekki séð að það sé einhver svakalegur munur á þessum galla eða þessum galla eða hinum. Ég segi nú bara, "eins gott að ég ákvað að spara mér sporin, því ég spari líka aurinn." 

#560    Í gær fór ég ásamt kærasta mínum út í Nóatún við JL-húsið og við ætluðum þar að versla okkur heitan kjúkling. Nema hvað að þá blasti við okkur nýtt verð á kjúklingnum en þá var hann kominn upp í 1298 kr. Spurði ég því starfsmann hvort það væri misminni hjá mér að hvort kjúklingurinn hefði nú ekki verið undir 1000 kr fyrir stuttu og hann staðfesti það og sagði hann hefði verið á ca 998 kr. Núna er semsagt búið að hækka verðið um 30%. Það væri nú gaman að heyra rökin fyrir því. Einnig má geta þess að hálfur kjúklingur kostar nú ca 598 kr sem jafngildir nákvæmlega ekki krónu í afslætti ef maður kaupir heilan kjúkling. Við enduðum ferð okkar í Melabúðinni þar sem við fengum mjög góðan heitan kjúkling á um 930 kr.
(ath: Stuttu eftir síðustu mánaðarmót hækkaði verð á eldgrilluðum kjúklingi í verslunum Nóatúns í 1.298 en verðið var áður 998.  Verðið á þessum kjúklingi hafði verið nær óbreytt frá því í nóvember 2005 utan virðisaukaskattslækkunarinnar í mars á síðasta ári.  Á þessu tímabili hefur innkaupsverð okkar á kjúklingi hækkað um 20%.  Frá þessum tíma hafa laun hækkað um hartnær 20% auk hækkana á öðrum aðföngum, s.s. umbúðum.  Hækkunin er því nauðsynleg. Ég vil benda á að 7 verslanir Nóatúns bjóða upp á svona kjúklinga sem eru grillaðir á eldi.  Aðrar verslanir Nóatúns, t.d. Nóatún Nóatúni bjóða upp á ofnsteiktan kjúkling líkt og boðið er upp á t.d. í Melabúðinni og kostar hann 998. 
Virðingarfyllst,
Bjarni Friðrik Jóhannesson
Rekstrarstjóri Nóatúns)

#559    Myndavélar í BT eru á bilinu 30-50 þúsund dýrari heldur en í Elko.
Tökum dæmi:
Canon 40D 17-85 kostar 199.999 í BT en aðeins 169.995 í Elko 
Canon EOS 400D 2x kit linsur kostar 119.999 í BT en aðeins 94.995 í Elko
Þetta er óafsakanlegur verðmunur þar sem 
slagorð BT er :" BETRA VERÐ Í BT."
Það er ólíðandi að þeir auglýsi sig með besta verðið en eru síðan með þeim dýrari á markaðnum.

#558    Verslunin Egg í Smáranum! Við hjónin vorum að rölta þar í gegn, rákumst á sæmilega stórt kerti sem lyktaði bara nokkuð vel. Sáum hvergi verð en rákum augun í minna kerti sem átti að kosta 290kr (handskrifað á botnin). Við ákváðum að skella okkur á stærra kertið, ekki gat það verið mikið dýrar. Kertið var um 15 cm á hæð og svona circa 6-7 cm breidd.
Þegar við komum að kassanum renndi afgreðisludaman kertinu í gegnum skanann, 4.900 kr!!!! Ég náði í snarasti í hitt kertið sem átti að kosta 290 kr og spurði í hverju þessi svakalegi verðmunnur lægi. Hún skannaði það… 2.990 kr!!!! Ég var snöggur að grípa þetta á lofti og sagði “Jæja ég tek það þá, 290kr, það er það sem stendur á verðmiðanum” 
En nei, svo auðvelt var það ekki, kallað var á verlsunarstjóra og mér vinsamlegast tilkynnt að verðið væri 2.990 kr, en ef ég vildi gæti ég fengið 15% staðgreiðslu afslátt. Ég afþakkaði það og rölti útí Rúmfatalager og skellti mér á kassa af 12 ilmkertum á 440 kr. 
(ath Vil bara commenta á eitt varðandi okur #558. Eitt sem kemur ekki fram er hvort öll kertin voru merkt á 290 kr. ef svo er á að selja kertið til manneskjunnar á því verði. Ef öll hin kertin eru hinsvegar merkt á 2990 þá gildir það. Ástæða þess er að oft kemur fyrir að fólk er að svissa verðmiðum bara að gamni eða til að borga minna (ekki að það hafi verið tilfellið hér endilega), eða að tiltekna varan hafi óvart verið verðmerkt vitlaust en hinar sem voru til fyrir voru rétt merktar. Held líka að maður hefði kíkt nú á verðið á hinu kertinu til að vera viss um verðið.)
(Svar frá tilkynnara: Ég hefði átt að taka það fram að það voru engar verðmerkingar á neinum kertum nema þessu sem var handskrifað með þykkum svörtum penna. 290kr.) 

#557    Var að skoða tilboð Iceland Express á flugi til Eindhoven. Setti inn dagsetningu og fékk eftirfarandi tilboð. Tveir farmiðar út 2 x 3.100 kr. og heim 3.500 kr. samtals 9600 kr. En svo bætast við liðurinn skattar og aðrar greiðslur sem er upp á 22.280 kr. Þetta er náttúrulega lágkúrulegt að reikna skatt af tæpum 10þús kalli upp í rúman 22 þús kall. OKUR. 

#556    Ég fór til Spánar um daginn og vegna mikils flýtis varð ég að kaupa evrurnar í Landsbankanum inní Leifsstöð. Þar þurfti ég að borga 5 krónum meira á evruna heldur en ef ég hefði keypt þær í banka utan flugstöðvarinnar. Okur!

#555    Ég fór til London um daginn og kom við í ELKO í flugstöðinni. Keypti þar Nokia 6300 farsíma og minniskort í símann. Hélt að ég væri að gera geðveikan díl. Þegar ég kom heim fór ég að spá í þetta og fór á heimasíðu ELKO hér í bænum og í flugstöðinni. Þá brá mér ótrúlega. 

Nokia 6300 í bænum          21.995
Nokia 6300 í fríhöfninni       20.999
Lexar 1Gb í bænum           2.495
Lexar 1 Gb í fríhöfninni        2.499

Þetta er ekkert minna en rán. Það er enginn vaskur af vörum í fríhöfninni og Elko eru að stinga mismuninum beint í vasann. Það ætti að muna allavega 20%. Minniskortið er DÝRARA í fríhöfninni en í bænum. Mér finnst þetta eiginlega vera alveg rosalegt okur. Maður heldur að allt sé svo ódýrt í fríhöfninni en svo er þetta raunveruleikin. (
+
Ég ætlaði að vera sparsamur (að eigin mati) þegar ég skrapp á leik í London um daginn. Mig vantaði tösku undir ipodinn þar sem að maður yrði á labbinu í útlöndum og skokkinu hérna heima þar sem bensínið er orðið svona dýrt ætlaði ég að gera alveg dúndurkaup. Ég nældi mér í tösku að nafni Vivanco í Elko búðinni í fríhöfninni. Þegar ég kíkti svo á elkó vefsíðuna og ætlaði að sjá hvað ég hafði SPARAÐ mér mikinn pening þá kom ýmislegt í ljós. Sparnaðurinn var neikvæður!  OKUR! Þeir voru að rukka meira fyrir tösku í fríhöfninni en þeir gera í bænum, átti fríhöfninn ekki að vera ódýrari? 
Vivanco taska í bænum - 995
Vivanco taska í fríhöfninni - 999 krónur!!!! Ég tapaði 4 krónum á að vera svona "sparsamur"
HALLÓ - Eru þeir ekki með einhverja verðvernd? Ætli að hún dugi gegn þeim sjálfum???
Amk þá læt ég ekki taka mig í ósmurt aftur af þessari verslun, fríhöfnin á að vera ódýrari. 
p.s. þá dugði taskan varla ferðina út, það var komin gat á töskuna 7 dögum seinna. 
(nb. Skv. minni reynslu er það eina sem er ódýrara í Flughöfninni en í bænum sígarettur, bús og rakspíri. Allt annað er svipað dýrt, m.a.s. nammið.) 

#554    Ég keypti mér skeifur undir hestinn minn í gær, 10mm mustad skeifur í Líflandi (áður MR búðin) á 890 krónur parið. Þetta fannst mér dýrt, en eins og svo oft spáði maður ekki í það. Þurfti að nota þær. Ég fór síðan áðan í Hestagallerý, þar sem þessar sömu skeifur kosta 510 krónur parið. Lífland er sumsé 75% dýrara. Ég nota 3 umganga á vetri undir hestana mína 5, sem gera 30 pör af skeifum. Það munar um minna en þetta.

#553    Fyrir 2 vikum fékk ég Húsasmiðjubækling í hendurnar. Í honum voru auglýst barnaleiktæki róla og rennibraut. Ég hringdi og spurðist fyrir um verð of var mér þá sagt að þau væru ekki enn þá komin en væntanleg eftir nokkra daga. Verðið væri Kr 28.000. Rúmri viku seinna fór ég í Húsasmiðjuna, nú með það í huga að kaupa þessi leiktæki - enn voru þau ekki kominn en ef ég ætlaði að versla þau, þá væri verðið komið í Kr 58.000 - hækkaði í gær var mér sagt. Ég fór út og hætti við.

#552    Fór með betri helminginn út að dansa um helgina. Skruppum inn á Súlnasal Hótel Sögu, þar var skemmtun “Melódía Minninganna” og skemmtiatriðin búin þegar við komum á staðinn. Vildi aðeins væta kverkarnar á barnum eins og gengur og pantaði tvo tvöfalda Gin og Tónik. Datt af mer andlitið þegar ég var rukkaður um 3400 krónur fyrir sopann, sem sagt 1700 kall fyrir glasið. Enginn á barnum talaði íslensku en það er nú partur útaf fyrir sig. Held að maður dansi nú bara næst á Lækjartorgi á 17, júní og taki pela með sér. Hvernig er hægt að ætlast til að fólk sækji svona staði? Ekki var nú leigubílarúnturinn skárri, kostaði 3400kr á ballið með BSH en þó ekki “nema” 2400 kr til baka sömu leið með BSR – Garðabær –Hótel Saga. Þetta er hreinasta okur alla leið.

#551    Eitt svakalegasta verð á gosi sem ég veit um er hjá Trocadero á Akranesi. Ef þú borðar inní í sal , þá kostar 2l gosflaska á OKURVERÐI 650 KR!!! Reyndar er gott verð á pizzum þar, með 4 áleggst. á 1150, þarna er lítið samræmi á milli.

#550    Vill benda kreppufólki sem notar rafhlöður mikið á það að fá sér hleðslurafhlöður. Þær geta enst mjög lengi, hleðslutækið geturðu átt fyrir lífstíð. Bendi á verslun símabæjar sem er bæði með hleðslutæki fyrir flestar rafhlöður og einhverjar rafhlöður sem má hlaða.

#549    Þetta er að vísu háklassa okur, en okur engu að síður og líklega í litlu samræmi við gengishækkanir og annað sem hefur dunið á okkur. Hekla er nýbúið að koma fram í fjölmiðlum með stórfréttir af lækkunum á nýjum bílum um allt að 17%. Nýr Mitsubishi Pajero Intense 3.2 Dísel kostar núna 6.290.000.- á þessi nýja fína verði, en kostaði áður 5.550.000.- í janúar á þessu ári (og frá júlí 2007). Þarna er hækkun upp á 740.000.- kr. Og þetta er þrátt fyrir þessa stórkostlegu samninga sem hafa náðst við byrgja. Semsagt ~13% hækkun frá í janúar en engin lækkun eins og verið er að básúna.

#548    Ég var gasaður í Hagkaup og  er ennþá með tárin í augunum. Það er komið sumar, litli strákurinn minn sá þetta ágætis LATABÆJAR reiðhjól og ég ákvað að gleðja hann. Jú hann stökk nú beint á hjólið þegar við komum inn og hjólaði að afgreiðslukassanum. 15.999 kr. 12" reiðhjól án alls aukabúnaðar og hvað gat maður gert í þessari stöðu? Láta strákinn fara grenjandi út eða láta slag standa og kaupa gripinn sem ég og gerði. Þegar heim var komið tæmdi ég póstkassann og það fyrsta sem ég sé er 12" reiðhjól í TOYS'R'US bækling já með brettum, bögglabera, bjöllu og fótbremsu á 7.500 kr sem ekki var með hjólinu sem ég hafði ný fest kaup á. Hvað skildi réttlæta þennan rúmlega helmings mun, annað en hugsunarleysi mitt? Ódýrara hjólið var jú betur búið. Já Hagkaup þar sem Íslendingum finnst skemmtilegast að versla eins og segir í auglýsingunni. Ég hefði átt að láta hann fara að grenja en í staðinn var það ég sem var gasaður og græt enn. Áfram LATIBÆR!

#547    Ég vill benda á það að kíkja á verð á tölvuíhlutum. Það eru mjög oft ansi mikill verðmunur á tölvuíhlutum á milli búða, og eru EJS og Tölvulistinn sérstaklega tregir að lækka verð á milli sendinga.
Þú getur skoðað www.vaktin.is til að bera saman hina ýmsu hluti, en svona til dæmis ætla ég að sýna verðmun á hörðum diski (til þess að geyma gögn á tölvum, bíómyndir, ljósmyndir ofl.).
EJS auglýsir á vef sínum "750GB(greymslupláss) 7200RPM(snúningshraði) 16MB(buffer)" harður diskur á 29.889-.
Eins diskur frá sama framleiðanda eru Tölvuvirkni með, nema með stærri buffer eða 32MB (sem er betra) á 14.760-.
Svona er þetta með hinar ýmsu tölvuvörur, og eru netverslanir með tölvuvörur að gera mjög gott í samkeppninni sín á milli en EJS og Tölvulistinn fylgja sjaldnast á eftir.
Ástæðan fyrir þessu tel ég að það sé létt að plata fólk og að það viti ekki muninn á þessum vörum.

#546    Ég vildi bara senda inn þennan póst til að sýna þér hvað ég sendi Tal mönnum áðan hvað varðar Internetið hjá þeim.
Ég vil fá það útskýrt frá talsmanni Tal af hverju Sigmar talar um Internet þjónustu án takmarkana í Zuuber þætti FM957 í morgun (orðrétt sagði hann: "Af hverju ertu takmarkaður á Internetinu sem dæmi? Við eru með ótakmarkað niðurhal í öllum Internetpökkunum okkar.") þegar  9. grein skilmála ykkar inniheldur eftirfarandi:
"Áskrifanda er óheimilt að trufla, skerða eða á nokkurn hátt hafa áhrif á notkun annarra viðskiptavina. Eftirfarandi atriði falla undir það að geta haft áhrif á eða skert þjónustu til annara viðskiptavina. Ef erlent gagnamagn fer yfir sem svarar 80GB á 30 dögum á 8mb og 12mb og 60GB á 30 dögum á 1mb og 4mb áskilur Tal sér rétt til að synja áskrifanda um þjónustu um stundarsakir eða til frambúðar eða grípa til annara ráðstafana til að draga úr notkun áskrifanda."
Er þetta ekki takmörkun? Ég get ekki séð nema þetta sé bara nákvæmlega sama og Síminn og Vodafone eru með hjá sér þannig að ég spyr bara hvað sé öðruvísi og betra við Tal?
(ath: Ég held að það sé öllum ljóst að séu menn að nota meira en 80GB á 30 dögum, þá eru menn stórnotendur og því eðlilegt að þeir borgi meira en hin almenni notandi. Það er svipuð regla og sú sem er í gangi hjá Sorpu, heimilum er frjálst að kasta og flokka ruslið sitt, en þegar stórir verktakar koma með sinn úrgang þá þarf að borga sérstakt gjald.  Það sama má segja um þjóðveginn, þar borga stórir trukkar og vörubílar þungaskatt, þar sem að þeir slíta vegunum meira en hinn almenni notandi.
Ég er ekki að segja að þeir sem niðurhala miklu séu að niðurhala úrgangi. Þeir eru hins vegar að nota sæstrenginn meira en allir aðrir og geta hægt á öllum almennum notendum.
Því miður eru þetta því nauðsynlegar aðgerðir og nauðsynlegt aðhald sem að við verðum að veita til hagsbótar fyrir heildina. Ég veit að þú skilur þetta og þú veist það líka sjálfur að þetta er ekki óeðlilegt. 
Það hins vegar að kalla þetta "ótakmarkað niðurhal" er svipað eins og að kalla 14 ára fangelsi "lífstíðardóm". Auðvitað lifum við meira en í 14 ár að jafnaði, en þetta er samt lungað úr lífinu, alveg eins og 80 GB er langt umfram venjulega notkun á interneti.
Kv,
Sigmar Vilhjálmsson hjá TAL.)

(Vil bara benda Sigmari Vilhjálmssyni hjá Tal að þeir eiga að segja í öllum auglýsingum,
ótakmarkað niðurhal með takmörkunum, eða takmarkað niðurhal!  Eða jafnvel
niðurhal að 80gb á 30 dögum, ekki meira.  Ekki með pínulitlum stöfum
(varla lesanlegum) í horninu á auglýsingum.  Þetta er því miður eins og
hjá svo mörgum fyrirtækjum, verið að reyna að blekkja neytendur!  Ég skil
sjónarmiðið hans Sigmars að vissu leyti en þá eiga þeir að segja að
niðurhal sé takmarkað við 80gb.  Annað er bara blekking.  Ég tek ofan
fyrir þeim fyrirtækjum sem segja hlutina nákvæmlega eins og þeir eru en
það eru því miður alltof fá!
p.s. Þeir segja í sínum auglýsingum frá Tal:  Flestir Íslendingar nota
síma og tölvu án þess þó að tapa sér í aukabúnaði og útúrdúrum; þeir vilja
bara geta hringt í fólk og farið á Netið án þess að borga fyrir það
stórfé.  Við bjóðum þá velkomna til Tals, þar sem EINFÖLD OG GEGNSÆ
gjaldskrá tryggir þeim lægri símreikning!
Ekki eru auglýsingar frá Tal svo GEGNSÆJAR þegar með varla lesanlegum
stöfum stendur í horninu: Samkvæmt skilmálum!
Þeir eiga að segja satt frá, þá myndi ég kannski skipta yfir!)

#545    Fluoresent pera (Sylvania) 15 wött WW kostar 1.378 kr. í BYKO, fluoresent
pera (Sylvania) 15 wött WW kostar 619 kr. í Europris. OKUR í BYKO?  Já,
að mínu mati...

#544    Fór í Kebabhúsið á Grensásvegi og ætlaði að taka með heim, sem sagt engin þjónusta í sal. Álpaðist til að spyrja hvað ½ líters kókdós kostaði áður en ég greiddi: svarið var 250 kr. 

#543    Fór í Samkaup Hafnarfirði 1. mai og keypti græn vínber, kostuðu 289 kr kg 
var að koma þaðan núna 4. mai 498 kr kg  HALLÓ
Þetta er ekki % hækkun þetta er geðþóttahækkun.

#542    Dæmi úr Shell:
Ejs próteinsjeik 330ml 01.04.08 249kr
Ejs próteinsjeik 330ml 14.04.08 289kr hækkun ekki merkt.
Ejs próteinsjeik 330ml 04.05.08 338kr
Við erum að tala um rúmlega 1 mán.
Svipaðar hækkanir í Olís.

#541    Ég hef verið að kaupa SMA-þurrmjólk fyrir dóttur mína síðan í
desember í fyrra og hef annað hvort keypt hana í Bónus á 368 kr eða í
Krónunni á 369 kr. En í dag, 3 maí, fór ég fyrst í Bónus og svo í Krónuna
og búið var að hækka þurrmjólkina á báðum stöðum. Núna kostar ein dós, 450
gr, 459 kr í Bónus og 460 kr í Krónunni. Og svo segja þeir að það sé ekki
verðsamráð á milli þessara verslanna? Þegar ég spurði verslunarstjórann í
Krónunni af hverju væri þessi mikla hækkun á svona stuttum tíma var svarið
auðvitað "það er gengið" Ég vil taka það fram að ég er sérstaklega
ánægð með Krónu-búðina úti á Granda. Ég fæ næstum alltaf allt sem mig
vantar þar, annað en í Bónus sem ég er hætt að fara í nema í neyð. En hvað
um það, þetta finnst mér full mikil hækkun á vöru sem er notuð á hverjum
degi og sem ekkert getur komið í staðinn fyrir.
(nb. Þessi hækkun var útskýrð í Fréttablaðinu 3.5.08, bls. 8: Ástæðna gríðarlegrar verðhækkunar á SMA þurrmjólk upp á síðkastið er að leita í mikilli hækkun hráefniskostnaðar á heimsmarkaði, segir í tilkynningu frá fyrirtækinu Icepharma sem flytur inn SMA. Í tilkynningunni segir að hinn 10. mars síðastliðinn hafi verð á SMA þurrmjólk hækkað um 50 prósent að meðaltali. Vegna hækkana á heimsmarkaði hafi framleiðslukostnaður Wyeth, framleiðanda þurrmjólkurinnar, aukist gríðarlega, sem skilar sér í þessari miklu hækkun. Í tilkynningunni segir enn fremur að neytendur alls staðar í Evrópu verði fyrir þessum verðhækkunum.)

#540    Á mánudaginn 28.04 fór ég í Intersport og skoðaði Cintamani barnaflíspeysu hún kostaði 4.990.- fór svo aftur á föstudaginn 02.05 og ætlaði að kaupa peysuna og þá var búið að hækka peysuna í 5.990 Nei takk fyrir – fór í Álafossbúðina í Mosfellsbæ og keypti peysuna á 4.750! Ég hélt að Intersport væri "lágvöruverslun"!!

#539    Einn sakleysislegur shampo-brúsi: Neutral 250 ml. kostar í Hagkaupum, Skeifunni, kr. 462  keyptur 3.maí ´08. Sama teg. sama magn kostar í Bónus, Laugavegi, kr. 185 keyptur sama dag.

#538    Ég nota daglinsur - Dailies - og hef oftast keypt þær á netinu. Ég hef hinsvegar þurft að fara í apótek og reddað mér þegar ég er búin með linsurnar og verið að bíða eftir pöntun af netinu. þær hafa oftast kostar frá 2290ISK til  2490.-ISK en ég tók eftir í síðustu viku að þetta hafi hækkað í 2990- í sumum apótekum. Þetta er Dailies 30 stk, (15 dagar),  ég kaupi 90 stk. (45dagar) á netinu td www.visiondirect.com  á 36 $ USD það er 2700 fyrir 3x fleiri linsur. (svo er shipping frítt ef þú kaupir yfir 100$ ).
Ef ég myndi bara versla þetta á íslandi þá væri þetta ca 71.760 á ári .(30 stk pakkat). En ef ég kaupi þetta allt á netinu er þetta 19.200 á ári miðað við USD$ gengi 75. Svo má reikna ca 10% toll  semsagt  21.120 ISK (miðað við free shipping ef allt er keypt í einni sendingu). Þetta er næstum 350% álagning! Miðað við að apotek og endursöluaðilar fá ekki magnafslátt í inkaupum. Mér finnst þetta fáranlegt OKUR!

#537    Himneskar furuhnetur í Hagkaupum á 738 kr. fyrir heil 150 grömm! Óverðmerkt. Nuts.

#536    Fyrirtæki nota tækifærið og réttlæta hækkanir vegna falls krónunnar.
Rakst á eftirfarandi dæmi: Delong sjálfvirk kaffivél sem hefur í langan tíma kostað 60þ er komin í 100þ hjá Heimilistækjum - það er hvorki meira né minna en 67% hækkun !!! Krónu - hvað !!!. 
Það gleymist í umræðunni að sterk staða krónunnar í langan tíma hefur ekki leitt til lækkanna á vörum heldur betri framlegð á vörunni en áður hafði tíðkast. Þetta hafa m.a. bílaumboðin nýtt sér. Þegar krónan síðan gefur eftir, er hækkað um leið - löngu áður en ný vara er jafnvel komin í hús !

#535    Verslanirnar Gítarinn og Tónabúðin selja báðar hljóðfæri frá Aria.
Aria STG-0006 rafmagnsgítar kostar kr.39.900 í Gítarnum, en
sami gítar kostar kr.19.990 í Tónabúðinni, skv. heimasíðum
verslananna. Til samanburðar fæst þessi gítar í Bretlandi fyrir u.þ.b.150 pund.

#534    Hagkaup.... Kornflex 750gr var í 359 kr en hækkaði í 470 kr. Þetta er 30.9% hækkun sem er ekkert annað en OKUR

#533    Kaffibollinn á Kænunni í Hafnarfirði hækkaði úr 250 í 300 í dag og hefur þá hækkað um 100 kr á um einu ári. Okur.

#532    Ég fór í Rima Apótek í gær og sótti úr hillunni mjólkursýrutöflur sem heita Pro-Gastro 8, pakkinn var verðmerktur upp á kr.1.479. Þegar ég átti að greiða fyrir vöruna var ég krafinn um kr.1.627. Ég gerði kurteysislega athugasemd við þetta misræmi en afgreiðslukonan fullyrti að hærra verðið væri rétt, það ætti bara eftir að laga þetta! Þarna er augljóst að verð á eldri vöru hefur verið hækkað!

#531    Fór í world class í  01.12.07, eftir æfingu kaupi ég boost (skyrdrykkur)
lítill og borga ég 390kr og er þokkalega sáttur.
Fer 01.01.08 og kaupi boost, kominn í 490kr.
Hækkun um ca 20%. ég spyr dömuna í afgreiðsluna hvort hun fengi launahækkun.
hun hló bara og spurði mig hvort mér þætti það líklegt.
Fer svo í dag 2.05.08 og boostinn er kominn í 590kr 
Semsagt 200 kr hækkun á 5-6 mán. Er þetta í lagi? (nb. Já, á meðan liðið kaupir. Sjálfur er ég hættur í boostinu. Síðasta hækkun fór yfir þröskuldinn hjá mér.)

#530    Nokkur dæmi: Mig langar að benda á verð á tösku í
"lágvöruversluninni" ELKO.
Taskan er merkt National Geographic og er auglýst verð
núna 8.995kr. sama taska fæst á tilboði í Beco á
5.942kr. Ég keypti svona tösku í ELKO fyrir nokkrum
vikum þá var ásett verð hjá þeim að mig minnir um
12.000kr. Ég bendi þeim á verðið hjá Beco og vegna
verðverndar fæ ég hana á um 5.200kr.
Þetta virðist því miður oft vera stíllinn hjá ELKO,
það er að auglýsa sig sem lágvöruverslun, en setja svo
hátt verð á sumar vörur og lækka svo ef einhver tekur
eftir okrinu. Í mínu tilviki var lækkunin nálægt 50%!

Úr því að ég er byrjaður langar mig nefna ryksugupoka
í Nilfisk, sem ég kaupi í Fönix í Hátúni. Ég keypti
einn pakka um daginn og læt og nefni ég ekki verðið,
en það sem vakti athygli mína þegar ég kom heim var að
pakkinn undan þeim gömlu, keyptum í fyrra, hafði
innihaldið 5 stk. en sá nýi aðeins 3 stk. Ég get ekki
borið saman verðin, því ég á enga kvittun fyrir þeim
gamla.

Og enn annað. Bónus selur litla safapoka og eru 10
stk. seld í einni pakkningu. Ég sá svo þennan sama
safa í Krónunni, þetta var í fyrra, og ég keypti hann
því hann var á lægra verði í Krónunni. Ég áttaði mig
ekki strax á því að ég lét blekkjast. Krónan var
vissulega að selja ódýrari pakka, en einingaverðið var
hærra hjá þeim, því þeirra pakkning innihélt helmingi
færri safapoka, bara 5 stk.

Smá hugleiðing um kartöflur. Þegar þú sérð kílóverð á
kartöflum í búðinni, ertu þá að sjá endanlegt
kílóverð? Það er allsendis óvíst og sennilega eru fáir
sem nenna að reikna það út. Mér finnst ég allavega
lenda oft í því að þurfa að henda kartöflum þegar
kemur að því að borða þær, af því að þær eru skemmdar.

#529    Verð á flugi til og frá dk 
02.05.08 kl 01:20 pantað hjá: icelandexpress = (lágjaldaflugfélag)
8.5.2008 Fimmtudagur FHE901  Reykjavik KEF - Copenhagen CPH  07:15
12:25 23.000,00 ISK
12.5.2008 Mánudagur FHE902  Copenhagen CPH - Reykjavik KEF  13:15 14:35
23.000,00 ISK
Skattar og aðrar greiðslur 9.090,00 ISK
Samtals 55.090,00 ISK

Icelandair = Á útleið: Reykjavík-Kaupmannahöfn
fim., 8. maí 07:45   Reykjavík (KEF) komust.: 12:45   Kaupmannahöfn (CPH
Economy 22.850 ISK (með sköttum)
Til baka: Kaupmannahöfn - Reykjavík
mán., 12. maí 10:40   Kaupmannahöfn (CPH)
komust.: 11:50   Reykjavík (KEF)
Best Price  19.460 ISK (með sköttum)
samtals 42.310 ISK (með sköttum)

verðmunur = 55090-42310 = 12780 kr. Íslenskt já takk,
ps. keypti nákvæmlega sama flug með icelandair 17.04.2008 á 34.430.00 ISK

#528    Lenti í því tvisvar í síðustu viku að barnavörur (annars vegar í Oliver og Olivíu og hins vegar í Apótekinu á Hvolsvelli) að skannað verð var ekki það sama og verðmiðaverð. Munið eftir að krefjast þess að borga aðeins verðmiðaverðið. Í O&O var verðmiðaverð á smekk fyrir barn kr 390. Skannaða verðið sem ég var látin borga var 690 fyrir sama smekk. Ég krafðist endurgreiðslu og fékk hana, en sennilega ekki þeir næstu sem þurftu smekk. Hvet fólk að skoða strimilinn og bera saman við verðmiðana!!!!

#527    Sjá: bandvídd á landsbyggðinni.

#526    Var að lesa hjá þér okur síðuna og rakst á ein ummæli um 3ja ára skoðun hjá Brimborg á Volvo kostaði um 47 þús kr. Finnst mér það nú bara hátíð því frændi minn á BMW X5 og hringdi ég í BogL og kannaði hvað kostaði 1 árs skoðun á þeim bíl. Sagði konan mér að bíllinn léti vita þegar hann ætti að fá skoðun en sú fyrsta væri að jafnaði um 80 þús kr. Þannig að skoðunin hjá Brimborg er nú bara hátíð miðað við þetta. Bróðir minn á Land Cruiser og fór hann með hann í 15.000 km skoðun og sú skoðun kostaði í kringum 40.000 kr og veit ég að þar er ekki mikið gert, enda dísil bíll. 

#525    Síðustu vikur hefur 365-miðill auglýst endurkomu sjónvarpsþáttarins Grey's Anatomy grimmt. Auglýsingin hljóðaði fyrst þannig að Grey's byrjaði aftur í apríl, aldrei var minnst á nánari dagsetningu. Í framhaldi af þessum auglýsingum komu áskriftarauglýsingar, fólk var hvatt til að kaupa sér áskrift svo það missti ekki af þættinum. Um miðjan apríl kom á daginn að þátturinn hefði göngu sína á ný þann 30. apríl - SÍÐASTA DAG MÁNAÐARINS.
Sérstök Grey's áskriftartilboð voru auglýst og sparaði fólk þá heilar 279 kr. ef það ákvað að taka Vildartilboði. Er þetta sanngjarnt tilboð í ljósi þess að 30. apríl verður sýndur UPPRIFJUNARÞÁTTUR úr fyrri þáttum? Fólk sem hefur keypt áskrift hjá Stöð 2 fyrir aprílmánuð fær því ekki einu sinni að sjá einn nýjan þátt fyrir 5.390 kr. (Sérstakt Grey's Anatomy tilboð!), eingöngu upprifjunarþáttinn. Mér þykir heldur lélegt af hálfu Stöðvar 2 að blekkja áskrifendur sína á þennan hátt og hugsanlega nýja áskrifendur.

#524    Ég vildi benda á óheyrilegan verðmun  og okur á Fjörmjólk í 1 ltr. fernum. 
Í Bónus kostar lítrinn kr. 85,- en í versluninni Kjarval í Þorlákshöfn (sem er
í eigu sömu aðila og Krónunnar og Nóatúns) er lítrinn á kr. 122,-!!!!! . Fleira
hefur verið að hækkað óeðlilega mikið þar. 

#523    Ég er búsettur í New York og er að flytja heim núna í maí. Ég fór á Icelandair síðuna til þess að kaupa miða og komst þá að því að miðar aðra leið kosta 990 dollara sem eru u.þ.b. 70.000 krónur. Þegar ég flaug með hingað út síðast þá kostaði miðinn 350 dollara eða  25.000 krónur. Það er afar erfitt að ferðast til og frá Ameríku þar sem að það er bara eitt fyrirtæki sem þjónustar ferðir hingað. Þannig að ég verð bara að láta troða mér (194cm) í sæti sem ætlað er fyrir smáfólk (undir 150cm) í 5 tíma fyrir 70.000 krónur.

#522    Fór ásamt samstarfsfélögum mínum á hádegisverðarhlaðborð hjá Pizza Hut í Smáralind og borgaði þar fyrir hlaðborð og gos 1510 kr. Þar af kostaði gosglasið 320 kr. Fyrir nokkrum vikum kostaði þetta sama hlaðborð og gosglas 1260 kr. Þetta er 20% hækkun!! 

#521    Fór í Fjarðarkaup mánudaginn 21 apríl og keypti þar jarðarber, box á 279 kr. Á föstudeginum 25 apríl var búið að hækka verðið upp í 499 kr. Tek það fram að ég keypti ekki jarðarberin á 499.

#520    Ég var í 10/11 í dag og keypti lítinn head and shoulders brúsa á 599kr!!!!  Minnir að þrefalt stærri brúsi í bonus kosti 470kr. (nb. Jamm, en koma 10/11-dæmin. Minni á að þetta er hávöruverslun svo þú ferð þarna inn á eigin ábyrgð.)

#519    Langar að benda á tvö ekki okur, veit ekki hvort þú ert kominn með þau inn.
1. Snælandsvídjó er að selja 10 VHS spólur að eigin vali af lager hjá sér á 800kr sem gera 80kr á hverja VHS.
2. Santa María á Laugarvegi, svaka góður mexíkóskur matur, ekkert á matseðli yfir 1000 kr, kreppumatseðill. (nb. Ég þarf að athuga Santa María, það er ljóst, en ég gæti nú alveg eins keypt mér cd eins og vhs!)

#518    Fór í BT á Akureyri í fyrradag (ath. LÁGvöruverslunina BT) og rak þá augun í headphone frá Panasonic sem dóttir mín keypti sér um daginn á 1.999 fyrir iPodinn sinn (því Apple er okurmerki). Það var búið að líma nýjan verðmiða yfir þann gamla og þeir voru ekki einu sinni í sama lit svo þetta var extra áberandi og viti menn verðið var komið í 3.490. Einhver andar orðið kreppa og verðmiðavélin er rifin upp hið snarasta. Ég held að BT og fleiri aðilar ættu að fara að hugsa sinn gang. Neytendur eru ekki allir staurblindir imbar eins og margir verslunareigendur virðast halda.

(ath: Heldur finnst okkur hjá BT óréttlát sú gangrýni sem fram kemur í þessari færslu #518. Við höfum skoðað hvernig þessu hefur verið háttað og hér að neðan fylgir verðsaga þessa hlutar. Fullt verð fyrir jólin í fyrra voru kr 2.999,- en um miðjan mars tókum við þessa vöru á sérstakt tilboð sem stóð í fáeina daga. Ný sending kemur svo í framhaldi og hækkar verð um 15% vegna hærra gengis. Okkur finnst nú aðeins fyrir  neðan belti að skamma okkur fyrir þetta ofurtilboð:

BT - RP-HV260E-S - 2.999,00 (19.12.2007 - 11.3.2008)
BT - RP-HV260E-S - á tilboði: 1.999,00 (12.3.2008 - 17.3.2008)
BT - RP-HV260E-S - 3.499,00 (18.3.2008)

með kveðju,
Rúnar Rafnsson
rekstrarstjóri / retail manager
BT verslanir)

#517    Ég var að skoða Límmiðaprentara Dymo Labelwriter Duo, ég fann vöruna hjá tveimur fyrirtækjum, annarsvegar hjá Pennanum á 21.480 kr og á tilboðsverði í Opnum Kerfum á 44.900. 

#516    Það er ótrúleg verðlagning á Gillette vörum hérna (sé að það hefur verið póstað um þetta áður) en maður bara er bara svo gáttaður á hvað fólk er tilbúið að borga (væri ekki verðlagt svona nema einhver keypti).
Verð á Gillette Fusion Blades 4 Pack
Krónan 1.639 (verð 29. apríl í Hafnarfirði)
Hagkaup 1.942 (verð 29. apríl í Garðabæ)
Sainsburys 1.165 (verð 29. aprí á sainsburystoyou.co.uk)

Mismunur frá Sainsburys:
Krónan: 474 kr. hærri (Krónan er 41% hærri Sainsburys)
Hagkaup: 777 kr. hærri (Hagkaup eru 67% hærri en Sainsburys)
Bendi fólki á að nota sainsburystoyou.co.uk (þar eru sömu verð og í versluninni og Sainsburys er með meiri þjónustu en nokkur verslun á Íslandi).

#515    Tveir hlutir sem mig langar að koma á framfæri:
Campingaz gasgrill er selt í Ellingsen og kostar þar 59.900.- og nákvæmlega sama grill fæst í Europris á 24.900.- 
Natracare dömubindi fást í Skipholtsapóteki á 660.- en akkúrat sömu dömubindi eru seld í Bónus á 359.-

#514    Vildi koma með alveg magnaða ábendingu. Þar sem ég er í forsvari fyrir ákveði starfsmannafélag ákvað ég að leita eftir tilboðum í rútuferðir fyrir væntanlega árshátíð sem við erum að halda. Um er að ræða tvær ferðir til selfoss og tveir ferðir frá selfossi í hópbíl sem tekur allt að 40 manns.

Ég sendi á öll helstu hópbílafyrirtækin og fékk eftirfarandi tilboð frá þeim;
IcelandExcursions  : 176.000.-
SBK : 160.000.-
Guðmundur Tyrfingsson : 136.000.-
Hópbílar : 133.000.-
Trex.is : 115.000.- 

Veit nú ekki hvernig er hægt að réttlæta 61 þúsund króna mun á sömu þjónustu, en ég myndi kalla það okur, en þú? Trex.is eiga hrós skilið þar sem ég leitaði eftir svipuðu tilboðum fyrir ári síðan og komu þeir þá einnig lang best útúr því!

#513    Árið 2003 byrjaði ég að vinna sem fulltrúi hjá Samkeppnisstofnun. Við vorum þrjú sem höfðum m.a. þann starfa að fara reglulega á milli matvöruverslana, bensínstöðva og byggingavöruverslana og bera saman skráð vöruverð í hillu og á kassa.
Árið 2005 var Samkeppnisstofnun lögð niður og sá hluti starfseminnar sem við fulltrúarnir tilheyrðum fluttist yfir til nýstofnaðrar Neytendastofu. Ég var sá eini sem þáði "áframhaldandi" starf og ekki var ráðið í þær tvær stöður sem af stóðu.
Á því eina ári sem ég starfaði þar fór ég aðeins einn rúnt um allar matvöruverslanir höfuðborgarsvæðisins til að sinna áðurnefndu verkefni. Í heil tvö ár, síðan ég sagði upp störfum vorið 2006, hefur eftirliti með verðmerkingum ekki verið sinnt af hinu opinbera.
Þær koma mér því nákvæmlega ekkert á óvart sögurnar sem þér eru sendar um það hve oft fólk er tekið í afturendann þegar verslanir segja að vara kosti eitt en rukka svo eitthvað allt annað þegar kemur að því að borga.
Sumir segja að markaðurinn sjái sjálfur um að sigta út þær verslanir sem hafa rangt við, að þær leggi upp laupana á endanum.
Það er mín reynsla að stöðugt eftirlit með þessum málum, þrýstingur og heimildir til að sekta verslanir/eigendur frá yfirvöldum er það eina sem dugar.

#512    Langar hér að benda fólki á að í síðustu viku tóku þeir sig til í versluninni Zöra og hækkaðuðu verðin hjá sér. Sýnist mér sú hækkun í engu samræmi við gengishækkanir. Þar á bæ virðast þeir bara hafa hækkað hverja vöru frá tvöhundruð krónum og uppúr. Ég keypti joggingbuxur þarna um þar síðustu helgi á 1695 kr. en núna um helgina voru þær komnar í 1995 sem er 17,7% hækkun og bolur sem ég keypti á sama tíma hafði hækkað úr 995 í 1195 sem er 20,1% hækkun. Þetta voru ansi þægileg heimaföt og ætlaði ég að kaupa mér annað sett en hætti við, því þó varan sé ekki dýr þoli ég ekki þegar verslanir hreinlega nota ástandið til að hækka verð hjá sér. 

#511    Smash í Smáralind: Ég og unglingsdóttir mín fórum fyrir ca. mánuði  í verslunina Smash í Smáralind og skoðuðum Carhartt buxur sem eru víst „inn“ núna hjá unglingum og kostuðu þær þá 12.900. Var ég nú ekki alveg til í kaupin og ákvað að hugsa málið. Í síðustu viku áttum við leið hjá og vildi dóttirin máta aftur, (og reyna sannfæra þá gömlu að kaupa ; )) og var komin annar verðmiði ofaná upp á 14.900 kr...  Ekki gat ég farið í aðra búð því þær eru eingöngu seldar þarna. 
Ps. Ég samdi við stelpuna að kaupa þær erlendis eftir mánuð, mun þá allavega spara 6 þúsund kall.

#510    Talandi um okur... Ég á sendibíl að gerðinni WV LT46 2004 árgerð og þurfti að skipta um dempara, jú viti menn þeir voru ekki til í umboðinu (Heklu) en þeir kostuðu síðast 47.000.- pr.stk. sem sagt 94.000.- 2 stk.  ég fékk hins vegar dempara í Fálkanum sem er með umboð fyrir dempara og það er sama tegund og notaðir eru í WV og Benz en þar þurfti ég ekki að greiða NEMA 18.000.- pr.stk   sem sagt ég sparaði mér ca. 60.000 á þeim dempara kaupum 

#509    Ég var að leita mér að hleðslutæki fyrir iPod til að stinga í samband beint í rafmagn í vegg. Leitaði á netinu til að finna sem ódýrast. Apple búðin er að selja hleðslutækið á 3.490 kr, Elko er að selja á 2.995 kr. Bæði eru þetta fáránlega há verð. Ég fann svo að lokum langtum ódýrari búð, Símabæ, þar sem ég fékk ég hleðslutækið á 990 kr. Þannig að Apple búðin er að selja hleðslutækið á rúmlega 250% hærra verði en Símabær. Sannkallað okur hjá Apple en að sama skapi frábært verð hjá Símabæ.

#508    Ég ætla (þrátt fyrir gengisfall) að skreppa til Evrópu í sumar. Planið er að fara á InterRail í gegnum álfuna. Fyrir gengishrun var verðið á passanum (í gegnum interrailnet.com) innan við 35.000 krónur, en er á núverandi gengi rétt rúmlega 45.000. Þar er strax tíuþúsund króna aukakostnaður fyrir mig. En bíddu við; þarna er greinilega gengi um að kenna, enda einföld reikniaðgerð, engir Íslendingar nálægt. Til "gamans" kíkti ég á síðu Stúdentaferða, exit.is, en þeir eru einmitt með InterRail passa til sölu þar. Sami passinn (30 daga opinn passi fyrir 25 ára og yngri) 56.400 krónur ! 

Hér er samanburður:
Interrailnet.com:
InterRail passi, 30 daga, 25 ára og yngri, 2nd class: 399 evrur (45.860 ikr)
InterRail passi, 30 daga, 26 ára og eldri, 2nd class: 599 evrur (68.847 ikr)
exit.is:
InterRail passi, 30 daga, 25 ára og yngri, 2nd class:  56.400 kr.  (490 evrur)
InterRail passi, 30 daga, 26 ára og eldri, 2nd class: 84.700 kr. (736 evrur)  OKUR!
(ath: Varðandi InterRail okrið hjá Stúdentaferðum vil ég benda fólki á að það getur keypt passann á Hovedbanegården, þaðan sem flestir hefja lestarferðalagið, tekur 2 mínútur að prenta hann í miðasölunni. Ég fór slíka ferð fyrir 4 árum og þá munaði ... jú einmitt 10 þúsund krónum, á danska verðinu og Stúdentaferðaverðinu. Mér skilst að Stúdentaferðir taki niður passanúmerið, sendi það til Köben og fái miðann sendan til Íslands. Ef satt er mættu þeir alveg minnast á það áður en þeir okra á manni.)

#507    Ég fór í verslunina Just4Kids í gær til að kaupa afmælisgjöf. Ég keypti miðstærð af Simba vörubíl á kl. 3290.- Ég rakst síðan á þennan sama bíl í Hagkaup áðan á kr. 1.799,00 Verðmunurinn er því kr. 1.491,00Frekar mikill verðmunur að mínu mati.

#506    Ég og vinkona mín gerðum þau herfilegu mistök fyrir samræmduprófin að kaupa svona litlar tipp-ex mýs. Við fórum í Eymundsson og keyptum þetta á 615 krónur, pínulítið plaststykki með einhverjum borða inn í. Við sáum okkur ekki fært um að fresta þessu og kennararnir búnir að ítreka að við þyrftum á svona að halda, svo við létum þetta okur yfir okkur ganga. Nú, þegar vinkona mín kemur heim til sín í Borgarnes fattar hún að hún hafi gleymt þessari lúxusmús heima hjá mér og því þurfti hún að kaupa sér nýja, sem hún gerði í Tölvuþjónustunni og fékk þá samskonarmús helmingi ódýrar. Þess má geta að þegar ég mætti í skólann núna í morgun voru margir sem töluðu um hve fáranleg verðlagning væri á þessum músum.

#505    Nú er víst íslenska grænmetið að koma á markað. Fyrir 2 vikum keypti ég kíló af gulrætum á 90 og eitthvað kr. Núna er kílólið komið í 200 og klink. Maður óskar sér helst að íslenskir gróðurhúsaeignedur hætti að framleiða grænmeti í ljósabekkjum svo maður hafi efni á að borða það.

#504    Hérna eru þrjár sögur af okri:
Fyrir 2 árum sléttum keypti ég mér nýjan Toyota Prius. Á þeim tíma kostaði hann 2.5 milljón. Núna, tveimur árum síðar, kostar hann 3.5 milljón. Hefur hækkað um heila milljón eða 40% á aðeins tveimur árum. OKUR!
Almennt er viðurkennt að í hópi bestu skrifstofustóla í heimi séu svokallaðir Aeron stólar. Úti í heimi kostar svoleiðis stóll í kringum $1000, sem er í kringum 73.000,- kr. Í Pennanum kostar svoleiðis stóll um 250.000,- kr, eða um 240% meira en úti. OKUR!
Apple iMac 24" kostar úti í Bandaríkjunum um $2.200 eða um 160.000,-. Hérna heima kostar sams konar tölva 270.000,- eða 69% meira. OKUR!

#503    Ég álpaðist í nýju Útilífsbúðina í Holtagörðum í dag og ætlaði að kaupa mér bol til að sprikla í, sem er nú ekki tískuflík í mínum augum. Ég verð að viðurkenna að mér finnst algjört okur að selja stuttermaboli á 5000 - 7000 kr og held að Erfðagreiningarbolurinn verði að duga. OKUR! En það sem mér ofbauð var að mjög margar flíkur höfðu verið merktar aftur, þ.e. búið var að plokka gamla verðmiðann af og setja nýjan í staðinn – væntanlega "gegnishækkun" á vörum sem löngu eru komnar til landsins og inn í búð, ekki fara menn að fela verðlækkun er það? Þetta var mjög áberandi þar sem þetta ætti við flesta verðmiða sem ég kíkti á, svo gömlu lagerarnir af hinum búðunum eru væntanlega komnir þarna inn á uppsprengdy gengisfellingarverði. ÓSVÍFNI!

#502 Fór í Bónus sumardaginn fyrsta og ákvað að kippa með tveimur sápukúluboxum, ég sá ekki almennilegar verðmerkingar en sagði við sjálfa mig að þetta gæti nú ekki kostað meira en 80-120 kr. stykkið. Þegar út í bíl var komið þá renndi ég yfir strimilinn og sá að hvort stykki kostaði 258 kr. Þar sem mér blöskraði ógurlega þá fór ég aftur inn í búðina og skilaði þessu á kassanum og fékk endurgreitt í peningum. Sá í sömu ferð að saklaus rjómaostur sem var alltaf á 104 kr. í Bónus var kominn í 123 kr. núna sem er um 19% hækkun. Þetta finnst mér rosalegt og sennilega er ekki hægt að kenna um breyttu gengi.

#501    Hækkanir matvara eru gengnar út í öfgar og ekki eru veitingahúsin eftirbátar matvöruverslana þegar kemur að verðhækkunum. Í kvöld fór ég að sækja tælenskan mat á Thai Shop Matstofunni (Lynghálsi 4. 110 Reykjavík), sem svo oft áður, og viti menn, allt á matseðlinum hafði verið hækkað um 40%, já 40%, og ég lét þetta yfir mig ganga, en er fox ill yfir því og læt því vera að versla við þá í bráð. Sem dæmi má nefna að réttir sem áður kostuðu 990 kr. kosta nú 1390 kr. Nefndi þetta við afgreiðslumannin að þessi hækkun væri óeðlilega há, en fékk engin svör nema humm og ha.

Okur #401 - 500 eru hér.

Veistu um rosalegt okur? Láttu vita!