![]()
| #500
Ég fór í Hagkaup um daginn til þess að kaupa
perur (ávöxt) fyrir litla strákinn minn. Venjulegu perurnar
sem hægt er að kaupa í stykkjatali voru ekki beinlínis
lystugar, en þá sá ég innpakkaðar fjórar
pínkulitltar lífrænar perur sem litu mun betur út.
En ég var fljótur að fá óbragð í
munninn þegar ég sá verðið... 889 fokking
krónur pakkinn, það gerir 222 kr peran. Alveg ótrúlegt
OKUR! (nb. Lífrænt = gott = dýrt)
#499 Hvað er að gerast í bakaríum? Það er stutt síðan brauðin kostuðu rúmlega 200 kr en nú fær maður varla brauð undir 400 kr, ekki er þetta gengi krónunnar að kenna, þar sem minnst af kostnaðnum við brauðið er sennilega hráefnið. Brauð eru hvergi á hærra verði en á Íslandi, tek dæmi: í Oddi bakara í Hafnarfirði kostar Graskerabrauð 459 kr og karmellumuffins 215 kr, þetta getur ekki talist eðlilegt. Reyndar finnst mér brauð almennt hafa hækkað í bakaríum á stuttum tíma. (nb. Heimsmarkaðsverð á hráefninu er að hækka, er þaggi? Er ekki það sama að gerast í bakaríum eins og alls staðar annars staðar - allt er á leiðinni upp upp upp!) #498 Renndi yfir tilboðabækling Europris sem var dreift í hús í morgun (23.4.). Þar er auglýstur e.k. toppur eða nærbolur á 1190 kr. Sömu vöru sá ég fyrir rúmum þremur vikum í Europris á áttahundruð og eitthvað, líklega 890. Þá hefur Europris hækkað frostþurkað skyndikaffi um heilar 100 kr. úr 399 200gr. í 499 OKUR! #497 Skil ekki alveg verðskrána hjá Aktu taktu. Ég fór þangað í hádeginu og ætlaði að fá mér pylsu og kók og þar sá að þau eru með “tilboð” á því þ.e pylsa, gos úr vél og prins póló á 449, en þar sem mig langaði ekki í gos úr vél þá bað ég um að fá það í dós og fékk að vita að það kostaði mig 59 kr meira eða 508 kr En þar sem mér langaði ekkert í prins póló þá bað ég bara um eina pulsu og kók í dós og þá kostaði það 340 kr Svo tilboðið sem var upphaflega með pylsu, gos úr vél og prinspólói var 168 kr dýrara en það sem ég keypti, þá reiknast mér til að ég hefði borgað 168 kr fyrir eitt prins póló. Þetta kalla ég ekki tilboð !!!! #496
Ég ákvað að kaupa mér Topp eftir sundferð
í Sundlaugina v/Versali. Á afgreiðsluborðið
var límt auglýsingaspjald sem á stóð "Tilboð
á Toppi, kr.99-". Starfsmaðurinn bar Toppinn upp að arfgreiðslukassanum
og sagði svo: 124! Nú, sagði ég þar
sem ég stóð beint fyrir framan
#495 Ég hef keypt heitan mat í Krónunni, Fiskislóð og fengið þar heita pörusteik á 698 kr./kg., sem verður að viðurkenna að er ansi lágt verð. Nú í dag (22/4) er verðið hins vegar komið upp í 1211 kr./kg!!! Rúmlega 70% hækkun! #494 Þurfti að kaupa kertaþræði í Lancer árg. 2000 um daginn. Hringdi í Heklu og verðið var 15.600 kr Fór í N1 (Bílanaust) og fékk þá þar á 4.000 kr. #493
4 stykki af Gillette Fusion kosta 2200 kr út í Nóatúni.
#492
Fór um helgina í Holtagarða með familíuna.
Þar er verslun sem heitir
#491 Ég ferðaðist með Herjólfi til Vestmannaeyja fyrir stuttu síðan. Ég er oftast sjóveik og finnst nauðsynlegt að hafa eitthvað til að drekka og hafði ekki athugað að kaupa drykk fyrirfram, svo ég neyddist til að kaupa ½ lítra af Egils kristal í kaffiteríunni og borgaði 370.- kr. fyrir og annað verðlag á staðnum var eftir því. Finnst ykkur þetta hægt?!! #490 Við hjónin höfum undanfarið staðið í framkvæmdum við baðherbergið okkar og erum því búin að fara ófáar ferðir í Sorpu með ýmisskonar rusl. Við búum hér í Reykjavík og borgum hér fasteignagjöld og þar á að vera sorphirðugjald innifalið eða hvað, þurfum síðan að borga fyrir að losa okkur við rusl hjá Sorpu. Sem við keyrðum þangað sjálf, nota bene. Þetta finnst mér okur. Fyrir utan það að þetta er ekki sorphirða. Það sama gildir um blöð og fernur, flokkum og skilum er fínt og ég er mjög meðfylgjandi öllu sem viðkemur flokkun og skila sjálf inn batteríum, fernum, blöðum, fötum og kertavaxi og Guð má vita hverju. Þegar ég bjó í Svíþjóð fyrir rúmlega tuttugu árum síðan, safnaði maður blöðum í krossband og henti þeim út fyrir dyr á ákveðnum dögum og síðan kom bíll og sótti blöðin. Það mundi ég kalla SORPHIRÐU. Ekki þennan leigubílaakstur með rusl sem við borgum svo sjálf fyrir að losa okkur við þegar við komum í SORPU. Eru ekki fasteignagjöldin í Reykjavík ekki bara alveg nógu há? #489 Ég gifti mig 1. mars 2008 við fórum svo í brúðkaupsferð nokkrum dögum seinna og vorum í 3 vikur. Þegar heim var komið fór ég að skoða vörur með því hugarfari að versla fyrir gjafabréfin sem við fengum að gjöf. Nú í Tékk-kristal kostaði stytta (búin að vera á tilboði svo mánuðum skiptir núna) rétt um 14.800 kr og er komin í 18.800 kr. Sama styttan sem er búin að vera uppá hillu hjá þeim ansi lengi. Hún getur ekki verið svo vinsæl að þau þurfi að panta í hverri viku svona styttu! Það er súrt að horfa upp á að gjafabréfin eru búin að rýrna ansi mikið! #488 Lenti í Okri um daginn og varð að láta vita af þessu. Ég fór með félögunum á Classic Rock í Ármúlanum um daginn, það er ekki frásögu færandi nema af því að ég ákvað að vera pollrólegur og drekka bara Sódavatn... Keypti mér eitt glas, en svo kom reiðarslagið.... REIKNINGURINN. Ég var rukkaður um 550.- kr. fyrir skitið sódavatnsglas úr vél. Það kostar rekstraraðilann lítið sem ekkert glasið af sódavatni úr vél. Og mér hefði fundist 250 kall ALGJÖRT hámark, en ég borgaði 550 krónur fyrir glasið. Vildi bara vara fólk við, mun gáfulegra að drekka bjór og sterkadrykki, eða bara venja komum sínum eitthvað annað. #487 Fór í Nóatún um helgina til að kaupa Béarneseessen sósukraft. Hann var verðmerktur 335 og ég keypti tvo. Þegar ég kom út í bíl sá ég á strimlinum að ég hafði borgað 429 kr. fyrir sósukraftinn. Hann hafði sem sagt hækkað um 28% í einu. Og svo er verið að plata mann með því að halda uppi gamalli verðmerkingu. Fór daginn eftir og fékk endurgreiddar 200 krónur. Það kostaði samt tíma og bensín fyrir mig að keyra í búðina. Verslunarstjórinn var ekkert hress og bauð engar aðrar skaðabætur heldur enn að fá greiddan mismuninn. Baðst afsökunar með fílusvip. Það sauð á mér eftir þessa reynslu. #486 Ég keypti lyfið Melantonin fyrir nokkrum mánuðum (þá var það selt sem undanþágulyf, eða lyf án markaðsleyfis), þá kostuðu 100 töflur ca 2500 krónur. Um daginn fór ég svo í apótek og ætlaði að fá sama lyfið. Nema hvað að nú hefur verið fengið markaðsleyfi fyrir lyfinu og heitir það nú Ciradin. Ég var með lyfseðlil upp á 100 töflur og þurfti ég nú að borga um 8000 krónur í stað 2500!!! Ef þetta er ekki okur þá veit ég ekki hvað!!! #485
Ég veit ekki af hverju, en ég ákvað að bera
saman sömu Dell fartölvuna á ejs.is annars vegar og dell.co.uk
hins vegar.
(ath: EJS er dreifingaraðili fyrir Dell á Íslandi. Sem dreifingaraðili þá kaupum við vörur inn á lager og erum því í stundum dýrari en þegar keypt er beint frá Dell. Oftast erum við þó með sambærileg verð en getum þó ekki keppt við Dell þegar þeir keyra niður verð í sértilboðum á afmörkuðum svæðum. Viðskiptavinur getur því komið í verslanir okkar, keypt vélina og í lang flestum tilfellum fengið vélina afhenta samdægurs. Pantanir taka frá 2-4 vikur eftir verkefnastöðu hjá Dell ytra. Sé hins vegar pantað í gegnum vefsíður Dell má búast við afgreiðslufresti frá 1-4 vikum. Við ákváðum að fara og skoða verðmuninn á okri #485 enda höfum við hjá EJS reynt að stilla verði á Dell tölvum í hóf. Samkeppni er gríðarleg á þessum markaði og því er okkur ekki stætt á að okra á viðskiptavinum okkar. Skv okkar athugunum þá er þetta munurinn á vélunum (án VSK):
Þess má þar að auki geta að EJS er með sama verð á þessari vél og í mars áður en gengið hækkaði. Við tókum þá ákvöðun að hækka ekki gengið og leyfa viðskiptavinum að njóta. Vélin frá Dell UK er á sértilboði og var fyrir nokkrum dögum síðan 100 pundum dýrari. Ef þessi afsláttur væri ekki þá væri munurinn einungis 6 þúsund. Bestu kveðjur.
#484
Vélin í Peougot mínum ofhitnaði uppúr öllu
valdi í lausagangi á fimmtudaginn og fór ég
með bílinn í Bernhard á föstudagsmorgni til
að laga kælikerfið og skipta í leiðinni um bilaðan
ABS skynjara við hægra framhjólið. Ég valdi
Bernhard þar sem þeir eru umboðsaðilar Peougot og væntanlega
með helstu Peougot sérfræðinga landsins innan sinna
vébanda. Mér var tjáð að bílinn yrði
tilbúinn fyrir fjögur.
- Ha?, hváði ég,
en þið gerðuð ekki við neitt?
17.800 kr þurfti ég að borga
Bernhard fyrir að komast að eftirfarandi:
Mér fannst þetta svo dásamlega absúrd, siðlaust og svæsið að ég ákvað borga peninginn athugasemdalaust og kaupa konfektkassa handa starfsmönnum Bernhard fyrir að leyfa mér að upplifa raunveruleika sem er fáránlegri en allar lygasögur um okur. 17.800 kr er kannski ekki svo mikið fyrir jafnfáránlega sögu og þessa. #483
Ég ætlaði bara að koma með eina ábendingu
til þeirra sem eru að kvarta
#482
Það er miklu dýrara að kaupa gjaldeyrinn í
Leifsstöð heldur en í bankaútibúum Landsbankans
hvað þá heldur annarra banka. Mér reiknast til
ca 10% dýrara.
#481
Þótt ég sé ekki með dæmi um að
hækkun á allra síðustu dögum hefur mér
alltaf þótt verð á bílastæðum
við Leifsstöð vera algert OKUR! Það eru malbikuð
þarna nokkur hundruð stæði, á hjara veraldar,
á nokkurnvegin verðlausu landi. Svo er þetta skreytt með
Securitas merkinu og kallað eftirlitsstæði, en örugglega
2 ár síðan skúr með mennskum vörðum
var lokað og sjálfsafgreiðsla sett í staðinn.
Fyrir þetta bílastæði borgar maður svo 630
kr á dag! Og það þýðir ekkert
að bera þetta saman við flugvallarstæði í
stórborgum erlendis - þetta er örfoka hrauni og þangað
til fyrir svona 10 árum var meira að segja frítt að
leggja þarna.
#480
Útgáfutónleikar Morðingjanna í Iðnó
þann 25. apríl er ekki okur. Miði
#479 Síðasta sunnudag 13/4 keypti ég í Bónus í Smáratorgi kúmenkringlu poka með 4 kúmenkringlum í – hann kostaði þá 152,- (tek fram að hann var ekkert á tilboðsverði) Núna rétt áðan 20/4 keypti ég aftur þessar 4 kúmenkringlur og hann kostar núna 179,- OKURhækkun! #478
Var á ferð í Kaupmannahöfn í nóvember
s.l. og hafði farið með lyfseðla með mér til
að kanna hvort hægt væri að kaupa ódýrari
lyfi þar ytra. Það reyndist vera rétt. Lyfið
Norvasc / Amló sérheitalyf á Íslandi en í
Danmörku “Amlodipin Alpharma 100 x 5 mg” kostað Dkk 70,85
á genginu 11,80 eða Ísl. kr 836,00 Hér
heima hafði ég verið að kaupa þetta lyf á
kr.
2.827,- í September s.l. OKUR!
#477
Langar að benda á ekki-okur á Pizzunni í Garðabæ.
Þar er sama
#476 Dvel í Skotlandi sem stendur við nám og hef nýtt mér þjónustu Flugleiða við að ferja sjálfan mig, unnustu og börn okkar á milli Íslands og Skotlands. Þó nokkuð hefur líka verið um gesti og almennt hefur verð miða fyrir fullorðinn verið 24-30 þúsund krónur. Komst þó á milli um daginn fyrir 22.500 kr. Upprifinn eftir þá reynslu ætlaði ég að bóka aðra ferð heim í lok maí og hafa enn meiri fyrirvara (7 vikur). Þá er allt í einu engin leið að fá far undir 45.000 kr. Þeir dagar sem ég hafði í huga (25.-29. maí) bjóðast nú á 55 þúsund krónur (20.apríl kl. 15.20) . Á sama tíma er hægt að fá flug frá London og heim fyrir ca. 30.000 kall. Hvað veldur þessari hækkun? Fákeppnin? Reyndi að fá svör með því að senda ítrekaða fyrirspurn til info@icelandairgroup.is en þeir eru auðvitað ekkert að svara, hvað þá heldur að vísa á einhvern sem getur hugsanlega útskýrt þetta. OKUR? Sú staðhæfing stendur þar til einhver færir mér vitræna skýringu. #475
Ég veit ekki af hverju, en ég ákvað að bera
saman sömu Dell fartölvuna á ejs.is annars vegar og dell.co.uk
hins vegar.
#474 Þurftum að parketleggja. Keyptum parket á 3490 kr fm hjá Húsasmiðjunni. Þetta var 7. apríl. Viku seinna vantaði 2 pakka upp á að verkið gæti klárast. Þá hafði Húsasmiðjan blásið til "gólfefnadaga" og hækkað sama parket um 80 krónur, í 3570 kr fm. Þetta eru skítlegir verslunarhættir. Samt gott til þess að vita að þegar Húsasmiðjan blæs til sérstakra "daga" að það þýðir verðhækkun (en ekki lækkun eins og sauðsvörtum almúganum gæti dottið í hug).
#472 Ég var að
versla í Hagkaup áðan þegar ég rak augun
í það að allt hefur hækkað svívirðilega.
T.d kostar snúðurinn 169 kr, croissantið 249 kr og súkkulaðibitakakan
199 kr. OKUR!
#471 Nýlega gerði ég sennilega verstu kaup ævinnar. Kaffifíknin varð öllu öðru yfirsterkari við hlið númer 31 í Leifsstöð. Ég bað um tvöfaldan espressó, sem fljótlega var kreistur útúr sjálfvirkri vél í pappamál sem hefði rúmað 15 skammta. 490 krónur takk. Ég var semsagt krafinn um tvöfalda upphæð miðað við einfaldan espressó. OKUR!!! #470 Einn líter af trópí appelsínusafa í plastflösku. 398 krónur í Melabúðinni. Kaupi þetta aldrei aftur! (ath: Ég borgaði 499 kr fyrir sama drykk í Samkaup Úrval. En núna er eitthvað tilboð og þá kostar hann bara 199 kr. Helvíti helvíti gott tilboð! En þegar tilboðið hættir þá hætti ég líka að drekka þennan ljúffenga safa.) #469
Nokkur feit okur dæmi:
#468
Hérna er smápæling og örugglega gömul lumma:
#467
Ég ákvað að láta þig vita af svakalegri
hækkun
sem ég varð var við í Krónunni.
#466 Það er búið að hækka hádegismatinn á Maður Lifandi um 100 kall og súpuna líka um 100 kall. OKUR! (nb. Þegar innkaupastjóri Haga, eða hver sem það var nákvæmlega, sagði viku fyrir páska: Við verðum að hækka allt um 30% og DV sló því upp á forsíðu: Gríðarlegar hækkanir eftir páska, þá ákváðu allir bara, Já, ókei! Við skulum hækka allt eftir páska og svo hækkuðu allir draslið sitt í búðunum og matsölunum – af því bara. Af því hinir eru að gera það. Taugaveikluð verðhækkanabylgja flæddi um allt þjóðfélagið – og það er ekki eins og hér hafi verið sanngjarnt verð í gangi áður enda okursíðan engin tilviljun. Okursíðan er löðrandi í dæmum af þessu og maður sér þetta sjálfur út um allt. Ég held maður verði að versla eingöngu við Jómfrúnna, Wilsons pítsu og Ikea hér eftir. Eiga lesendur dæmi af fleiri góðmennum sem hækkuðu ekki þegar "kreppan" reið yfir?) #465 Eymundsson, Smáralind. Gjafapappír, voða þunnur, sjálfsagt agalega fínn. 5 "arkir" í pakka, 20"x26" stk (51cm x 66cm). Á pakkanum er prentað $2.75 (ca kr. 220 ef dollar færi í kr. 80). Verðmerking Eymundsson: kr. 760 !! (rúml. þrefalt dýrara en smásöluverð í USA) Okur! (nb. Alltaf gaman þegar erlendu verðin eru prentuð á draslið. Sannkallað salt í okursárið!) $464 Maður er alltaf að reyna að spara. Er með yfirdrátt eftir gamalt neyslutripp eins og annar hver maður (ekki það ég geti sagt til um í hvað aurinn fór en það er önnur saga) og hafði heyrt að Netbankinn væri með skástu vextina. Sendi þeim bréf og fékk tilboð í yfirdrátt: 13,95% fyrstu 6 mánuðina. Vextir eftir þann tíma: 18.50%. Fannst þetta mun skárra en díllinn í Landsbankanum og sótti um. Þegar ég var kominn með reikninginn var tilboðið orðið: Tilboðsvextirnir eru 16,45% í 6 mánuði og eftir það 20,45%. Ég skrifaði alveg brjálaður og talaði um vörusvik, enda náttúrlega 2% munur á tilboðinu og raunveruleikanum. Svar kom frá framkvæmastjóranum: Því miður hafa stýrivextir breyst tvisvar frá því að við gerum þér upphaflegt tilboð þann 25. mars. Vextir yfirdráttarlána eru ekki fastir og taka breytingum miðað við breytingar á markaði til hækkunar og lækkunar og það á líka við um tilboðsvexti. Þrátt fyrir þessa hækkun á vöxtum okkar eru vextir Netbankans samt betri en vextir á Gulldebet-reikningum annarra banka og sparisjóða eins og sést á eftirfarandi töflu: Netbankinn - Gulldebet 20,45%
Ég neyðist því til að kokgleypa þetta
tilboð nb þótt maður sé nú kannski ekkert
að spara stóran pening. Segjum að ég sé með
milljón í yfirdrátt og yfirdrátturinn sé
í botni í heilt ár. Þá hirðir Netbankinn
af mér 184.500 kall á meðan Landsbankinn myndi hirða
af mér 246.500 kall. Jú jú það er alveg
62.000 kall, næstum því ein leðurlíkishulsa
á Nissan Patrol. Hvað...
(ath: Ég tók eftir því
að þessi þarna hjá Netbankanum hefur alveg
(ath: Held þú ættir að
kanna málið betur með vextina sem Netbankinn er að
Netbankinn - Gulldebet 20,45%
Málið er að þetta eru opinberir
vextir í vaxtatöflu bankanna og að
#463 BT eru okrarar. Í BT blaðinu á heimasíðu þeirra er auglýst fartölva (LG E500) á 139.999 kr og boðið upp á að taka hana á 59 mánaða láni upp á 4120 kr á mánuði en það þýðir að heildar verð tölvunnar er þá orðið 243.080 kr! Það eru 103.000 kr. í vexti eða 74% vextir!!! (nb. Þú ættir þá að prófa að kaupa þér íbúð! Eru BT nokkuð að okra? Er það ekki bankinn sem lánið fer í gegnum? Annars held ég að þetta séu frekar 14.8% því þú þarft að deila í 59 mánuði. En jú, tölvan hækkar um 74% ef þú átt ekki fyrir henni.) #462 Vildi bara benda ykkur á Wilsons's pizza. 16" pizza + 2 L kók + ostabrauðstangir á 1850 kall sótt. Búið að vera sama verð í meira en ár á meðan önnur fyrirtæki negla yfir okkur verðhækkunum með vísan í allt og ekkert. Fannst bara kominn tími á eitthvað hrós inná milli. Þessir menn eiga það skilið. #461
Fyrr í dag, föstudag, ákveð ég að nota
hádegishléið í að slást í för
#460 Hálfur líter af sódavatni í álfabakkabíó kostar 250 kr. Okur! (17.04.08) #459 Fyrir sex árum síðan kom til sögunnar samkeppni í millilandaflugi til og frá Íslandi og þá kostaði flugmiði til London eða Köben (sem var nb ekki á tilboði) í kringum 18-20 þúsund með sköttum og aðrir áfangastaðir á bilinu 20-26 þúsund með sköttum. Mikið vatn hefur runnið til sjávar síðan þá. Iceland Express er hætt að skilgreina sig sem lággjaldaflugfélag og Icelandair eru búnir að kynna til sögunnar "sveigjanlegri" fargjöld sem hafa svo reynst átylla til að hækka fargjöldin upp úr öllu valdi. Lausleg verðkönnun á flugi þar sem "samkeppni" er til staðar, sló inn fyrstu vikuna í september (5 mánaða fyrirvari) og gaf nokkra daga í slaka til og frá þó að fæstir eigi kost á að sveigja til ferðadagana: London: 31.560 - 58.160 kr. með Icelandair.
29.850 - 53.040 kr. með Iceland Express.
Ef við prófum svo áfangastaði þar sem er engin samkeppni erum við eiginlega komin aftur í gamla vistarbandið: Amsterdam (Icelandair): 34.910 - 76.410 kr. (algengasta
verð um 42.000 kr.)
Ath. öll sætin eru á almennu farrými, ekki business class. Mér reiknast að flugmiði á besta verði hafi hækkað um 55-75% síðan árið 2002 á meðan almennt verðlag hefur hækkað um 20,4%. Dettur einhverjum í hug orðin fákeppni eða jafnvel samráð hér? Eða bara OKUR! #458
Fjölskyldan er að flytja og hefur þess vegna kynnst okri
á mörgum vígstöðvum, fasteignasalinn fékk
t.a.m. hálfa milljón fyrir að "selja" íbúðina
okkar sem við létum upp í dýrari eign. Salan fólst
í því að hann útbjó kaupsamning,
hann þurfti aldrei að auglýsa hana, sýna hana eða
hafa neitt fyrir henni.
#457
Vinkona mín ætlaði að halda smá veislu og var
nýlega búinn að fá brochure
#456
Undanfarið hefur það ekki farið framhjá manni
að verðlag í verslunum era ð hækka. Það
liggur við að það sé dag frá degi. Eitt
dæmi er frá Bónus, þarf hef ég verslað
Andrex klósettpappír 9 rúllu pakkningu í gegnum
árin. Ég er með kvittun frá 21.10.2006 þar
sem pakkinn kostar kr 598-, kvittun frá 05.05.2007 er kr 639-, kvittun
frá 29.03.2008 kr 695- og síðan en ekki síst kvittun
síðan 13.04.2008 kr 789-.
#455
Langar að benda á okur hjá Nýherja. Nýherji
er umboðsaðili fyrir Canon myndavélar á Íslandi.
Þar af leiðandi eru þeir byrgjar fyrir ýmsar smávöruverslanir.
Það vakti athygli mína þegar ég sá
á þriðjudaginn eftir páska (fyrsti opnunardagur
eftir páska) að þeir voru búnir að hækka
allt draslið um helvítis helling. Og það gerðu
þeir á undan flestum öðrum sem selja fyrir þá
Canon vörur.
#454 Ég fór með stelpuna mína í kringluna og við ákváðum að fá okkur ís á Ísbarnum. Við fengum okkur ís í brauðformi með eina kúlu eins og það er kallað. Mér brá ekkert smá þegar hún sagði verðið og tók við kortinu en þetta kostaði 690 kr. Ég kaupi ekki svo oft ís til að hafa samanburð en mér finnst þetta geðveiki. Ég hefði beðið hana að taka ísinn aftur ef að við hefðum ekki verið byrjaðar á honum. #453 Vildi deila með ykkur Okri sem börnin mín urðu fyrir í ísbúðinni á Glerátorgi á Akureyri þar hefur í einhvertíma kostað 100.- kr. að kaupa lítið krap í boxi en á einum sólahring hækkaði verðið frá 100 kr í 280 kr. Hvernig er þetta hægt ??? Starfsmaðurinn bar því við steinhissa að þetta hefði bara verið orðið svona dýrt þegar hún kom til vinnu. Börnin mín fengu hins vegar ekki krap þennann daginn en ágætis umræða spannst út um það hvernig er að láta ræna sig. #452 Regnboginn - Græna Ljósið - Tropa de Elite - 1.100 kr. fyrir eitt stykki bíómiða... Búið að brjóta þúsundkróna múrinn! #451 Við hjónaleysin fórum á kaffihús í gær – Sólon – Fengum okkur Cappichino og ég kaffi Latte einfaldana án áfyllingar – 750 kr ---hvað kostar kaffipakkinn í Hagkaup/Bónus/Krónunni/10-11/ o.s.fr.? Á matseðlinum stóð Cappichino 350 að mig minnir og Latte 350 kr... ég fjót að reikna uuu bíddu ég var ekki með tvöfaldan latte (sem var skráður á 400 kr) þá sagði afgreiðslumaðurinn – Já sko við erum búin að hækka verðið en við fáum ekki nýja matseðla fyrr en í næstu viku. Ég skora á ykkur að fara á Sólon og kaupa af matseðli og fylgjast vel með verðinu. #450 Fór inn í Levi´s í Smárlind um daginn til að athuga skyrtur. Sá að Skyrturnar eru á 11.000 kall. Gallabuxurnar eru á 16.000 kall. Ég var fljótur að stinga af áður er afgreiðslumaðurinn kom. OKUR! Ég þarf ekki að fara á netið og athuga verðið úti. Er nokkuð viss um að það er ekki 11.000 og 16.000 kall. Hvað næst, verðum við rukkuð inn í verslanirnar? (nb. Góð hugmynd! Ég er viss um að það er hægt að kalla hækkun Evrunnar um það líka. Og fólk myndi örugglega borga sig þegjandi inn.) (ath: Ég var í New York í vikunni og sá að Levi's gallabuxurnar í Macy's voru á $32-46, eftir tegundum. "Suggested retail price" á Levi's 501 er $48, og er prentað neðst á miðann sem gefur upp stærðirnar. Það eru um 3600kr.) #449 Í veikindum í vikunni ætlaði ég að hressa mig við með gömlum fóstbræðraþáttum frá Bónus leigunni hér í Þingholtunum. Þegar heim er komið sé ég að það er bara seinni diskurinn í hulstrinu (á hulstrinu stendur: „Sería 1, þættir 1 – 8“ s.s. ekki hægt að skilja það öðruvísi en báðir diskar séu í hulstrinu). Þegar ég svo segi stráknum í leigunni frá þessum mistökum tjáir hann mér að þetta sé venjan á öllum Bónus vídeóleigum, svona séu allir þættir leigðir út Nb. án þess að merkja það nokkuð eða segja viðskiptavinum frá! eftir situr viðskiptavinurinn með aðeins helming þeirrar vöru sem hann taldi sig vera að greiða fyrir. #448 Ég er að
standa í því núna þessa dagana að
kaupa mér íbúð, það hefur náttúrulega
verið okurverð á íbúðum undanfarinn misseri,
en það er ekki það sem sló mig mest, ég
vissi alveg af því áður en lagt var af stað.
Á íbúðinni var áhvílandi lán
frá BYR með 4,2% vöxtum og þar sem konan er í
BYR og hefur verið í viðskiptum við sama útibúið
frá fæðingu þá vorum við nokkuð vongóð
um að fá að yfirtaka lánið á þessum
vöxtum. En til að vera viss þá var hringt í
bankann til að athuga málið. Jújú, það
átti nú ekki að vera mikið mál og við
skrifum undir kaupsamning. En þegar komið er í bankann
til að ganga frá yfirtökunni þá fáum
við þær fréttir að 4,2% vextirnir eru ekki lengur
í boði heldur þurfum við að sætta okkur
við 7,6% vexti...... 7,6%, er verið að gera grín
að mér.....þetta er sko OKUR
#447
Hef nýtt mér þjónustu Garðlistar ehf ( www.gardlist.is
) undanfarin 3 sumur til að klippa runna, hreinsa beð og úða
runna og eitt grenitré. Hef gert þetta vegna tímaskorts
, er að vinna mikið sem og konan. Hef verið þokkalega
ánægður með þjónustuna en þó
fundist reikningarnir dálítið ríflegir en erfitt
að röfla neitt þar sem þetta er yfirleitt unnið
á þeim tíma sem maður er sjálfur í
vinnu og því erfitt að meta hvert þeirra vinnuframlag
er.
#446 Mig langar að benda á okur dauðans hjá Hróa Hetti á svörtum pipar. Ég gerði þau mistök einu sinni að gera ráð fyrir að hann væri frír (eins og á flestum stöðum) eða allavega ekki mjög dýr. Svo kom í ljós að þeir rukkuðu mig um tæpar 150 kr fyrir hann (á 9" pizzu!). Þetta má sannreyna með því að fara á heimasíðu þeirra og búa til sína eigin pizzu, Þú getur þá t.d. séð að svartur pipar á 18" pizzu mun kosta þig 357 kr. #445
Ég er með tvö dæmi um okur í Elkó.
Playstation 3 Dark Sector
1000 kall í mun. Þetta finnst
mér okur!
(ath: Rétt verð í Elko er
Resistance 2995 & Dark Sector 5395
Örn Barkarson
#444 Fór í plokkun á augabrúnum í Dekurhorninu Faxafeni í síðustu viku, á heimasíðunni stóð að plokkun kostaði 1.300 kr en ég var rukkuð um 1.650 kr (þrátt fyrir að þá væri ekki búið að breyta verðinu á síðunni hjá þeim). Ástæðan: Allt að hækka útaf gengi krónunnar! Það er ENGINN efniskostnaður við að plokka augabrúnir! og ef maður velur að láta vaxa þær þá er MJÖG lítið vax sem fer í það. #443
SKO hækkar verðið úr 1.990 upp í 2.990 og kallar
það bætta þjónustu við viðskiptavini:
#442
Fór í sápu búlluna Lush til að kaupa næringu
fyrir makann sem hann vill eingöngu nota....3500 kall takk,
fyrir 250 ml. Leið næstum yfir mig fannst þetta nógu
dýrt fyrir mánuði síðan á rúman
2000 kr. Stelpu skinnið sá á mér fumið og
brosti vandræðalega jú gengið hefur hækkað.
Keypti árans næringuna en sá eftir þessum pening
og skipaði manninum að fara með þetta eins og gull.
Ég gat ekki fengið þetta úr huganum og fór
inn á Lush.com á bresku síðuna og fann sömu
vöru á rúm 5 pund eða um þ.b. 800 kall !
Hvernig í ósköpunum útskýrir gengið
þennan mismun?! OKUR. Héðan í frá
kaupi ég ekkert frá Lush á Íslandi...svei.
#441
Má til með að segja þér eina „okursögu“.
Vinkona mín fór í verslun á Akureyri , sem
heitir Siemens-búðin, fyrir stuttu síðan og ætlaði
að kaupa sér Kitchenaid brauðrist en fannst hún heldur
dýr eða tæplega 16.000,- svo hún fór heim
og hugsaði málið hvort fjárveiting væri til
á heimilinu fyrir þessu heimilistæki. Kom í ljós
eftir nokkra umhugsuna að til var í veskinu fyrir þessu
svo steðjað var aftur í Siemens-búðina nema hvað
búið vara að hækka brauðristina í 28.400,-
#440
Fór í klippingu á rakarastofuna á Klapparstíg.
Sat þar í 20
#439 Þegar Kristanía var og hét, var hægt að fá gramm af ágætis toppum, "böddum," "Skúnk," fyrir 50 krónur danskar. Íslenskir ræktendur og smásalar eru að selja grammið af grasblönduðum skúnk á 3000-3500 krónur. Er þetta ekki okur? Í Suður ameríku er hægt að fá bolta af hreinu kóki á $20 dollara. Á Íslandi er fyrir það fyrsta ekki hægt að fá hreint kók, heldur er verið að selja 8-15% hreint kók á 15.000 kall grammið, ef það er ekki okur þá veit ég ekki hvað. Í Svíþjóð kostar grammið af nánast hreinu spítti um 300 kall sænskar, á Íslandi kostar grammið 5.000 kall og gildir þá einu um gæði efnisins. Íslenskir dópsalar eru mestu okrarar í heimi. (nb. Já í steininn með þá alla saman. Og krakkar! Bara aumingjar og hálfvitar neyta eiturlyfja (nema þau séu félagslega ásættanleg og seld af Ríkinu). Gleðin er besta víman!) #438 Gerði
þau leiðu mistök að kaupa rándýra 30L
Brabantia ruslafötu í
#437 Ég sé að við erum búnir að vera að heyja sömu baráttuna ;) Kíktu endilega á Okurþráðinn minn á málefnin.com. Margt ótrúlegt okur og siðleysi komið þar fram undanfarna mánuði. http://www.malefnin.com/ib/index.php?showtopic=101666 #436
Fór í Kringluna í gær til að kaupa gallabuxur
og skó með dóttur minni. Byrjuðum í Gallabuxnabúðinni,
fengum þar frábæra þjónustu og tvennar
flottar gallabuxur á ágætisverði.
#435 / 435
Mig langaði að benda þér á ansi hressilegt
okur hjá Heimilistækjum.
#434 Þurfti að láta víkka leðurstígvél fyrir stuttu og verð fyrir þá þjónustu kostar 3790.- hjá skósmiðnum í Smáralindinni en 1800.- hjá Skóaranum Reykjavíkurvegi í Hafnarfirði. Rúmlega 100% verðmunur. #433
Sunnudaginn var keyptum við nokkur rúnnstykki í Björnsbakaríi
við Hringbraut. Stykkjaverð er 92 krónur óháð
stærð og þyngd. Myndin talar sínu máli:
#432 Mig langar að benda á verslun sem leynir á sér og býður fólki að viðhalda gamla gemsanum sínum með eðlilegri álagningu á GSM aukahluti. Batterí sem kosta 4900-5900 hjá umboðsmönnum fást á 1990-3490 og það er líka hægt að fá skjái frá kr. 1500 í gamla símann. Einnig GSM partasala. Langbesta aukahlutaverð á landinu og ódýr minniskort. www.simabaer.is #431 Meira okur hjá Ingvari Helgasyni (IH). Vinnufélagi minn á Nissan Patrol jeppa og var að leita að poka á varadekkið (leðurlíkishulsu). Við hringdum í IH þar sem þessi forláti poki var verðlagður á 66 þúsund! OKUR. Að gamni okkur spurðum við út í hvað plast skel utanum varadekkið var verðlögð á.... og OKRIÐ fór upp úr öllu valdi: rúm 200 þúsund. OKUR OKUR OKUR! Í okur-losti ákváðum við að hringja í Bílabúð Benna, Stillingu og N1. Verði þar á pokanum var um 8 þúsund, 5 þúsund og 10 þúsund. Eini munurinn á pokanum frá þessum þrem aðilum og IH er að IH pokinn er með NISSAN PATROL merki. IH er OKURBÚLLA! #430 Vildi láta vita af okri á þurrmjólk.. s.s SMA fyrir ungabörn. Lítil dós kostar 398 kr í Bónus en í Lyfju 1405 kr sama dósin!!! #429
Ég er ein af þeim sem eru óheppnir í held ég
flestu........Keypti bíl og setti annan uppí...sem var búinn
að vera á sölu í tæp tvö ár og
lánaði vinkonu minni fyrverandi bílinn....og hún
skildi eftir sig skuld uppá 325.þ....Setti hann uppí
bíl hjá Brimborg og mér var sagt að Jenið
og frakkin væru best.......Núna sit ég uppi með
rok dýran bíl og get ekki selt......Vegna hækkanna
hjá Avant útaf vísitölu segja þeir......og
Brimborg fyrrar sig af allri ábyrgð.....fekk örorku styrk
uppá....250.þ...svaka mikið....
Hún segir að hún hafi verið búin að reyna að selja eldri bíl í 2 ár en ekki gengið. Þá kemur hún með bílinn til Brimborgar sem tekur hann uppí nýja bílinn á verði sem báðir aðilar voru ásáttir um. Í raun fín þjónusta og allt eðlilegt við þau viðskipti. Varðandi kvörtun um viðgerðir þá kom í ljós að nýi bíllinn bilaði hjá henni og kom hún til okkar með bílinn til viðgerðar. Kom í ljós að rafgeymir var gallaður og fjarstýring virkaði ekki sem skyldi sem líklega má tengja rafgeymabiluninni. Allar viðgerðir voru í ábyrgð og greiddi manneskjan ekkert fyrir viðgerðir og fékk að auki frían bílaleigubíl á meðan á viðgerð stóð. Því undrast ég þá fullyrðingu að Brimborg hafi okrað á konunni vegna viðgerða. Ef það er allt í einu orðið okur að fá hlutina frítt þá er mér öllum lokið. Með kveðju
#428
Þetta með gönguskóna (#405): Ég ætlaði
sjálfur að kaupa Scarpa gönguskó í Útilíf
og Intersport í febrúar. Vel að merkja fyrir hækkunarflóðbylgjuna
sem skellur á okkur núna. Verðið á skónum
var þá 28.900 kr. Ég fékk illt í boruna
við tilhugsunina um að kaupa á þessu verði. Þar
sem ég var á leiðinni til Köben tékkaði
ég á verði á skóm þar. Sömu
skórnir var hægt að fá 1.089 dkr. Eða 13.700
á þáverandi gengi. Ekkert bull með tolla og virðisaukaskatt.!
Þessar búðir eru sjálfar búnar að borga
svoleiðis sjálfar og ekkert mikið lægri en hér
á Íslandi. Ef sendingarkostnaðurinn er málið
þá þyrfti það að kosta 41.2 milljónir
að senda einn andskotans 40 feta gám frá Dk til íslands.
Þar sem mér reiknast til að einn gámur gæti
tekið um 2600 pör. Þetta er helv. okur og jaðrar við
glæpsamlegt athæfi.
#427
Ég er í HÍ og er blönk eftir því.
Er að læra á Hlöðunni þessa dagana og þar
sem mötuneytið þar er mjög dýrt (það
er ódýrara að fara út á Select og fá
sér að borða), þá tók ég með
mér nesti (dugleg ég), meðal annars tók ég
með mér samloku með skinku og osti og hugsaði ég
hlýt að geta hitað hana en þegar ég fór
í mötuneytið þá var hvorki rist né
örbylgjuofn sem ég gat notað. Ég spyr stelpuna hvort
það sé ekki eitthvert tæki sem ég get notað
til að hita samlokuna mína og þá fæ ég
þessi svör: jú það er örbylgjuofn og
það kostar 50 kr. að nota hann. Svarið sem stelpan
fékk var: Ha?? Og þá endurtók hún svarið
sitt.
#426
Eitt mesta okur á Íslandi í dag er að finna nálægt
Grindavík. Okkar frægasta heilsulind sem lifir á heitu
vatni úr iðrum jarðar (sem allir ættu að eiga,
ekki satt?) en Bláa Lónið rukkar inn 1.800 kr.- fyrir
aðgang....OG ÞAÐ ER VETRARVERÐIÐ!!! Í sumar
koma forsvarsmenn Bláa Lónsins til með að rukka 2.300
kr.- inn....þetta er ekki fyrir verð á hópa
heldur einstakling!
#425
Símafyrirtækin rukka 6.000 á mánuði fyrir
þokkalegt ADSL, heil 6-8 Mbps. Í Rotterdam er hægt að
fá 20 Mbps á 20 evrur, ca 2.500 kr! Aðspurður segir
Síminn “að þeir séu ekki að keppa á
því markaðssvæði.” Hvað segir þetta?
Öll sala á ADSL hérlendis er hreint okur.
#424 Fór í Byko á Hringbraut í gær til að kaupa lím „superglue“ til að líma saman Pétur Pan plastkall sem 5 ára sonur minn á. Aðeins ein týpa af lími var til og ég fékk gott lím í góðri flösku með fínum tappa sem þarf ekki að taka af. Límið virkaði og sonur minn er ánægður. Gallinn er bara að fyrir þessa flösku sem er minni en naglalakks krús, borgaði ég rétt tæpar þúsund krónur! #423 Var að kaupa Samsung 46" sjónvarp í Danmörku á 14.195 dkr sem að gerir 217.183 ísk miðað við gengi á kaupdag þann 11-04. Sama sjónvarp fæst hjá Bræðrunum Ormson á 499.000 ísk sem að gerir 32.6214 dkr. Hefði kannski átt að kaupa 2 stk. #422 Hér er snöggsoðin úttekt á þróun bíómiða og gjaldi fyrir myndbönd: http://www.123.is/thorkell/blog/record/234167/ #421
Mér langaði aðeins að deila með ykkur hversu mikil
okurbúlla Úrval Útsýn er, fyrir utan það
hversu ólöglegt það er að nota myndir af Bruce
Springsteen til þess að selja pakkaferðir. Einhvernvegin
efast ég um að hann hafi verið beðin um leyfi ; )
#420
Fór á Aktu taktu um daginn, fékk skyndilöngun
í pylsu á Sæbrautinni svo ég
Auka álegg
Verðin eru heldur ekkert í takt, pylsan
var á 200 kall en auka skinkusneið á
#419 Já það alveg hrikalegt hvað það er okrað á manni nú til dags og maður veit varla hvar maður á að byrja. En mig langar til þess að nefna hér 2 dæmi. Fór í Hagkaup í minni fávisku
og ætlaði að kaupa barnatannkrem fyrir dóttur mína,
Auk þess langaði mig til að koma því áleiðis að fólk á að panta sitt fæðubótarefni að utan beint en ALLS EKKI versla við okurbúllur sem eru hér heima. Það er enginn tollur á fæðubótarefni heldur einungis 7% VSK svo ég skil ekki þessa álagninu hjá mörgum sem selja fæðubótarefni. #418 Eg er tvisvar búin að lenda í því að vera borða úti á veitingastað þar sem ég fæ reikninginn vitlausan þar að segja samlagningin. Það er rétt verð á matnum og víninu en þegar þú tekur tölurnar sjálfur og reiknar þá færð þú ekki það sama t.d: Pasta
2500
En svona: Pasta
2500
Og nei þetta var ekki handskrifaður reikningur heldur tölvuprentun. Þegar ég kvartaði var beðið afsökunar og reikningurinn tekin af mér og annar sóttur strax. Þegar fólk fer út að borða kíkir það á reikninginn og ath hvort allar tölur séu réttar en dettur ekki í hug að athuga hvort það sé rétt reiknað. (nb. Ókei muna: Taka vasareiknivél með út að borða.) #417 Var að vandræðast með púst á Nissan Patrol jeppanum mínum. Hringdi í umboðið til að ath. hvað það kostaði fá orginal púst frá hvarfakút undir bílinn. Ræddi við starfsmann í varahlutaversluninni. Bara pústið (rústfrít) kostaði um 140.000 (selt í þrem aðskildumhlutum) síðan var vinnan við að setja pústið undir bílinn var að lágmarki á 50.000 eða um 5 tíma (10.000 kall tímann) eða 190 þúsund. MEGA OKUR hjá Invari Helgasyni (IH), það mætti halda að pústið væri smíðað úr Gulli og skreyt Demöntum. Fékk púst hjá Pústþjónustu Einas, sérsmíðað á 42.000 kall undir bílinn komið. Mér er alveg sama þó IH selji orginal púst út rúsfríu stáli... það dugar bara í sex til 7 ár á meðan pústið frá Einari dugar í 3 til 4.... þá get ég látið Einar setja 4 púst undir hjá mér á meðan IH setur eitt..... þannig næ ég 16 ára líftíma á meðan ég keyri pústið frá IH í 7 ár......... Ingvar Helgason er OKURbúlla...... #416 Verð að láta þig vita af okurbulli í Bónusvideo, Lönguhlíð. Fór þangað til að kaupa Góu karamellur í poka. Drengurinn í afgreiðslunni vissi ekkert hvað pokinn kostaði og fann hann ekki í tölvunni. Hann tók því upp á því að blanda saman tveimur hlutum til að búa til verð á karamellupokann (án þess þó að benda mér sérstaklega á það). Hann semsagt mixaði verð út frá Mentos (120 kr.) og Góu súkkulaðirúsínum (175 kr.) og lét mig borga 295 kr. fyrir karamellupoka (sem kostar um 130 kr. í Bónus). Þegar ég spurði hann út í þetta ypti hann bara öxlum og sagðist vera að búa til þetta verð þar sem þetta væri ekki til í tölvunni. Þar sem konan mín beið heima spennt eftir karamellunum sá ég mig tilneyddan til að kaupa téðan poka, en er enn að svekkja mig á þessu og mun beina viðskiptum mínum annað í framtíðinni. (nb. Aldrei að láta undan karmellusjúkum eiginkonum!) #415 Fór í Bakarameistarann um daginn, gerðist sekur um að eiga þátt í okri aldarinnar, 165 krónur fyrir minnstu rice crispies köku sem ég hef séð á ævinni. #414
Okurbland í poka: Versla nú alltaf í Bónus
en vantaði Sojamjólk eina helgina og lokað í Bónus,
þá fór ég í 10/11 Glæsibæ
og borgaði eilar 259 krónur, en hún kostar 139
krónur í Bónus!!!
#413 Forvitnaðist um verð á 3/4 síðum herra rykfrakka í Herragarðinum Kringlunni Verð kr 89.900 Undrandi yfir verði var mér sagt að um væri að ræða ull. Ætti að segja: um er að ræða okur! #412 Af því þú mælir nú með Mosfellsbakarí langar mig að benda þér á að ég fór þangað í hádeginu og keypti mér súpu og hafði hún þá hækkað um lítil 60% frá því í síðustu viku, eða úr 750 krónum í 1200 krónur. #411
Ég bý á Akureyri og fer þess vegna stundum í
Bakaríið við brúnna sem er afar gott bakarí.
Brauðið þar er hins vegar fjandi dýrt (hálft
matarbrauð 190 kall).
#410
Pítsuát er alltaf jafnvinsælt en vanda verður valið
ef menn vilja ekki
#409
Nokkrir vel valdir okurpunktar:
#408 Keypti ís í boxi um helgina í ísbúðinni í Smáralind. Stærri gerðina af boxi og heita sósu, bað um svolítið vel af sósunni. 560 krónur þurfti ég að borga fyrir ísinn. Ég spurði hvort einn ís kostaði virkilega 560 kr. "já" svaraði afgreiðslustúlkan "það er sko heita sósan". Hef ekki athugað hvað svona ís kostar annars staðar en mér finnst þetta okur. #407
Eftir langan og strangan lærdómsdag í Háskólanum
fórum ég og vinur í 10/11
#406 / 406 Ég fór í Bónusvideo í árbænum um daginn og ætlaði að leigja mér mynd og var nú fljótur að labba út aftur þegar það kom í ljós að þeir ætluðu að rukka mig 700kr. fyrir, málið er að 2min í burtu er Skalli í hraunbæ og þar kosta ný+gömul kr.400.- #405
Ég hef núna í nokkurn tíma verið að
leita mér að gönguskóm. Svona hard core gönguskóm
sem þola nánast hvað sem. Þannig að ef mig langar
að fara og þramma eitthvað lendi ég ekki í
því eins og s.l. sumar þegar ég skellti mér
upp að Glym að vera nálægt því að
fótbrjóta mig í stórgrýttri urð
vegna þess hversu illa ég er skóaður. Strax í
upphafi var ég með ákveðna skó í huga
vegna góðrar fyrri reynslu af þeim.
#404
Vantaði nýjan rafgeymi fyrir vespuna mína hann kostar
8.105
kr. hjá Rafgeyma sölunni.
#403 Hér er sú hækkun sem ég tók mest eftir. Þannig er mál með vexti að ég versla gjarnan barnaföt í Benetton í Smáralind. Mig rak í rogastans um daginn þegar ég komst að því að það virtist að allar vörur höfðu hækkað um 40 til 50% á afar skömmum tíma. Ég hafði skoðað sömu vörurnar nokkrum vikum áður og keypt m.a. nokkra hluti. Sem dæmi má nefna að bolur sem var á 995 er kominn í 1395, sokkar úr 495 í 895, leggings úr 1195 í 1745 eða 1795 o.s.frv. Hef hvergi séð svona hækkun annars staðar. Ég get ekki ímyndað mér að fólk versli mikið þarna þegar það áttar sig á þessu, a.m.k. þakkaði ég pent fyrir mig og fór út með ekkert. #402 Sá auglýsingu í DAGSKRÁ VIKUNNAR frá því í febrúar frá versluninni HREYSTI um tilboð á á nýrri kynslóð Slendertone tækja. Þetta kostar nú sitt þannig ég var svona að hugsa málið. Sama auglýsing er í apríl tölublaði og hafa öll tilboðin hækkað um c.a.4000kr. Vá þvílík tilboð hehehe. RUGL. Ætli maður þurfi ekki bara að fara að hreyfa á sér rassgatið það kostar ekki neitt :) #401 Var verið að taka fjölskyldu myndirnar í gegn, og þurftum við 10 albúm að við héldum fórum í Bónus Laugarvegi og fengum 200 mynda albúm á 379 kr vantaði 2 albúm í viðbót og við förum í Hans Petersen 699 kr sama albúm "okur", ok, svo fundum við að sjálfsögðu enn fleiri myndir og við förum aftur í Hans Petersen því við vorum orðin frekar sein, þetta er daginn eftir, þá var komið tilboð borgar fyrir 2 albúm en færð þrjú, sem hljómar ágætlega, nema hvað það var búið að hækka albúmið úr 699 kr í 1200 kr og búið til tilboð... OKUR ef ekki bara svik og prettir Okur #367 - 400 eru hér. Veistu um viðbjóðslegt okur? Láttu vita! |