Neytendahorn Dr. Gunna á Vísi / Talsmaður neytanda (Gísli Tryggvason) / Nískupúkinn (Samanburður á vöru og þjónustu) Rafræn Neytendastofa tekur á fyrirtækjum með leiðindi, vitlausar verðmerkingar (með sektum!) og óútskýranlegt okur. / Hagsmunasamtök heimilanna Vaktin (verðsamanburður á tölvuvörum) / Gsmbensín (Hvað kostar dropinn?) / Okurvextir.blogspot.com (Hvað gera stjórnvöld fyrir skuldsett íslensk heimili?) Skotsilfur (um persónuleg fjármál og sparnað) / Kári Harðarson (hugleiðingar um neytendamál) Athugið: Bréfið þitt gæti líka birst í Fréttablaðinu, nema þú sér sérstaklega á móti þvi. Nöfn sendanda fylgja með nema nafnleysis sé sérstaklega óskað. |
(28.01.01):
#1919 GSM
endurvinnsla Símabæjar hefur tekið mikinn kipp
undanfarið svo okkur vantar símahræ til endurvinnslu..
Við tökum á móti öllum tegundum GSM símtækja
og viljum endilega fá gömlu hleðslutækin líka.
Ekkert fer til spillis, allt er nýtt og við sendum t.d. ónýt
móðurborð úr landi til frekari endurnýtingar.
Seljum heila síma og símaparta á algjöru lágmarksverði
til að mæta vinnu við símarif, viðgerðir og
skoðun. Ódýrustu GSM rafhlöðurnar og algjör
kreppukjör á nothæfum gemsum sem kosta frá kr.
1500
#1918 Við
mæðgurnar notum ofnæmislyfið Aerius/Neoclarityn
sem inniheldur virka efnið Desloratadine 5mg . Önnur okkar fær
það hérlendis og þarf því að greiða
fyrir lyfið en hin fær það á breska heilbrigðiskerfinu,
þar sem hún er stúdent þar í landi, og
þarf því ekki að greiða neitt fyrir það
nema fyrir að leysa út lyfseðilinn, breska ríkið
greiðir fyrir sjálft lyfið.
#1917 2 cm þunnar
rafhlöður:
(27.01.09): #1916 Skrapp á
stærstu útsölu bæjarins í IKEA í
fyrradag. Sendi þér smá sýnishorn af svakalegum
tilboðum sem þar buðust.
#1915 Fór
í Olís á Akranesi þar voru til tvær
tegundir af Harðfiski niðurklipptum í 25 og 70 gr pokum.
25 gr pokinn er frá Kjarnafiski og kostar 368 kr eða 14.720.-
kr kílóið Hinn var frá Faxafisk og kostaði
70 gr pokinn 400 kr eða 5.714.- kr kílóið.
Mismunur á verðum frá þessum fyrirtækjum
sem bæði eru staðsett á Akranesi er kr. 9.006.kr.
á kílóinu í sömu búð.
Ef þetta er ekki okur hvað er þá okur. Það
skal tekið fram að verð á fiskinum frá
Faxafisk er í lægri kantinum. En hitt verðið er hreint
okur og ekkert betri að gæðum eða bragði. Ef
eitthvað var sá ódýrari mun betri.
#1914 Góðan
dag. Mig langaði að láta vita um þjónustu sem
pirraði mig heil ósköp. Þannig er að ég
átti stórafmæli á síðast ári
og mér var færð síðbúin afmælisgjöf
sem var karafla frá Rosental með 2 vatnsglösum. Ég
hafði fengið aðra karöflu í afmælisgjöf
og ákvað að skipta þessari. Þar sem ég
var upptekin og hafði ekki tíma til að skipta þessu
strax þá ákvað ég að bíða
milli jóla og nýárs þar sem ég hafði
meiri tíma þá og gæti valið mér
í rólegheitunum vöruna sem mig langaði mest í.
Ég fór í Casa þar sem ég vissi
að karaflan fengist og þar voru líka Ritzenhoff glös
sem ég hef verið að kaupa mér. Ég hélt
að þetta yrði ekkert mál en nei, aldeilis ekki. Kassinn
var ekki merktur með límmiða sem sýndi að hann
hefði verið seldur í þeirra búð og þá
vildu þeir í Skeifunni ekki taka hann inn. Ég var frekar
skúffuð og spurði hvort þeir flyttu þetta ekki
inn sjálfir og þeir gera það víst en bentu
á fleiri svo nú fór ég upp í Kringlu
í Kúnígúnd en þar var sama sagan,
kassinn ómerktur svo þeir taka hann ekki til sín. Ég
freistaði þess að fara aftur inn í Casa en nú
í Kringlunni og benti á að mig langaði að skipta
í glösin fallegu og bauðst til að borga skiptigjald
eins og tekið er í bókabúðum ef enginn er
skiptimiðinn en það kom ekki til greina. Nú flakkaði
ég á milli nokkurra búða sem selja Rosental-vöru
en það bentu allir á sömu aðilana en ég
átti eftir að prófa Epal sem ég hafði bara
enga trú á og hef ekki farið inn í hingað
til svo ég vissi ekki heldur hvaða vöru þeir eru
með. Þar byrjaði afgreiðslukonan á að benda
mér á miðaleysið en sagði í beinu framhaldi
mér til mikillar furðu að hún væri nú
samt til í að taka inn vöruna. Ég gekk um búðina
og skoðaði gjafavöruúrvalið sem kom mér
á óvart og fann hluti sem ég hef núþegar
tekið í notkun heima hjá mér. Hér eftir
á ég ekki eftir að fara inn í Casa og mínum
glösum frá þeim á ekki eftir að fjölga
og ekki held ég áfram að gefa þessi glös í
afmælisgjafir þeim sem ég hef hingað til verið
að gefa. Í Epal á ég örugglega eftir að
fara að versla gjafir. Þeir eru með gott úrval af
gjafavöru sem mér líkar við. Hér eftir bendi
ég vinkonum mínum á Epal og það vita það
allir góðir kaupmenn að konur segja hver annari frá
bæði góðum og leiðinlegum viðskiptum. Takk
fyri Epal.
(24.01.09): #1913 Ég
vildi láta þig vita um okur á milli verslana. Málið
er að ég ætlaði að kaupa möppur undir bókhaldið
í dag og fór í Office one þar kostaði
mappan 1090 krónur og fannst okkur það svolítið
mikið. Við vorum búin að sjá að hægt
væri að kaupa möppur hjá reykjalundi fyrir rúmar
400 krónur þannig að við hættum við að
kaupa þarna og ætluðum að fara í reykjalund.
En fyrst við vorum stödd í smáralind þá
ákváðum við að kíkja í hagkaup(þar
sem íslendingum finnst skemmtilegast að versla) við keyptum
möppur alveg eins og fengust í office á 288 krónur
stykkið. Okkur vantaði 6 möppur og þetta kostaði
1728 krónur í hagkaup en 6540 í office. Er ekki spurning
um að skoða aðeins í kringum sig áður en
við borgum!!?
#1912
#1911 Vil vekja athygli á hækkunum ríkisins: 1. Í ný útsendum reikningum til veiðikortshafa
frá UST er hækkun korta á milli áranna 2008-2009.
59 % - 128 %.
2. Einnig er ótrúlegt í ástandi eins og
ríkir hér á landi í dag að hafa ekki frestað
sektargreiðslum sem tóku gildi um áramótin um
bíla er koma of seint í skoðun. Fólk er rukkað
um 15.000 kr í sekt.
#1910 Mig langar
að segja ykkur af viðskiptum mínum við verslunina 17
nýlega.
#1909 Mig langar
til að benda á algjörlega fáránlegt okur.
Við fórum nokkur saman í gær að fá okkur
bjór á Celtic Cross, fínn bjór á
góðu verði, 650 kr fyrir stóran á krana sem
verður að teljast frekar billegt í dag. Ég fékk
mér hinsvegar Sprite í stóru glasi. Það
var ekki klaki, ekki lime né sítróna og þar
sem að ég var búin að taka sopa þegar ég
fékk verðið, gat ég ekki skilað glasinu. En það
kostaði mig 500 krónur !!!! Sprite úr dælu...
ég sá sko sárlega eftir því að hafa
ekki fengið mér bara einn kaldann og pungað út 3
litlum 50 köllum á milli.
#1908 Reynsla
minnar fjölskyldu hvað varðar slæma þjónustu
setur
#1907 Lyfja
Lágmúla með Colgate-tannþráð: 1.150
kall.
(23.01.09): #1906 Tók eftir því að
þið bendið á vaktin.is fyrir verðsamanburð
á tölvuvörum.
#1905 Ég
fer öðru hverju í hádeginu í 10-11 í
Lágmúla og versla heita súpu hjá þeim.
Súpan kostar 299 krónur sem er ásættanlegt verð
og eitt smábrauð fylgir súpunni. Hins vegar blöskrar
mér hækkun á auka smábrauði sem áður
kostaði 49 krónur en kostar nú 99 krónur stykkið!!
Þetta brauð er ekki nema nokkrir munnbitar. Hvað útsýrir
svona mikla verðhækkun?
#1904 Ég
má til með að segja frá ósvífni verslunarstjóra
Krónunnar
á Bíldshöfða. Ég sendi honum þennan
póst (að neðan) 18.des.................og hvað heldur
þú, ég kom þar í dag og ennþá
eru þeir að selja þennan löngu útrunna þeytirjóma.................er
ekki í lagi með þetta fólk? Hann rann út
28.október.
#1903 Ég
hef lagt það í vana minn að kaupa hreina jógúrt
til að sleppa við
#1902 Bara að
láta vita um enn meira okur. Konan mín gaf mér forláta
gjöf úr Max um jólin. Það var hljómgræja
sem hægt er að festa á vegg, mjög falleg og vönduð
frá Phillips. Ekki veit ég verðið á henni
en hún keypti græjun í byrjun desember. Hins vegar
fór hún aftur í Max 2 vikum seinna og þá
var þessi sama græja búin að hækka um 9000
kr!!!! Eg vil taka það fram að ekki er um eh 100.000 hlut
að ræða. Ég myndi frekar giska á um 20-25.000
kr sem er búin að hækka um heilan helling... svona rétt
fyrir jólin.
#1901 Fjölvarpið:
Breyta verður reglum um hvernig hægt er að læða
inn hækkunum
(22.01.09): #1900 Fór
í vikunni í ritfangaverslun Eymundsson í Reykjanesbæ
til að kaupa svo lítið sem strokleður og blý
fyrir strákinn minn í skólann. Fyrir eitt lítið
Boxy- strokleður þurfti ég að borga heilar 265 krónur!
Ég keypti tvö þar sem ég hef alltaf eitt til vara
upp í skáp því þetta dót hefur
sterka tilhneigingu til að týnast. Fyrir tvö strokleður
þurfti ég sumsé að borga 530 krónur! Já,
tvö strokleður! Fyrir þremur árum eða þar
um bil starfaði ég um tíma í ritfangaverslun og
þá kostaði Boxy-strokleður 65 krónur að
mig minnir. Fyrir pakkninguna af HB 0,7 blýi þurfti ég
að greiða svo mikið sem 575 krónur. Í pakkningunni
eru 40 blý.
#1899 Félagi
minn ferðast mikið. Hann var að benda mér á gríðarlega
hækkun hjá fly-bus flugrútunni.
#1898 Kaupi reglulega
Fjallagrasaflatkökur...í
Nóatúni og Fjarðakaup kostaði pakkinn fyrir helgi
109 kr Á þriðjudaginn fer í Samkaup og viti menn
þar fást flatkökurnar mínar á 129 kr!!!!!
Þótt þetta séu "Bara"20 kr þá kemst
ég ekki hjá því að velta fyrir mér
hvað með aðrar vörur í búðinni?
#1897 Mig langaði
bara að benda á (ef það er ekki þegar komið
fram) að það er alveg hægt komast hjá því
að borga ca 6000 kall fyrir vírusvörn á heimilistölvuna.
Ég gerði mér bara ekki grein fyrir því hve
fáir vita af þessu, fyrr en ég fór að heyra
fólk kvarta yfir því hvað vírusvarnir hafa
hækkað í verði.
#1896 Ég
get ekki orða bundist yfir því sem ég lenti í
dag, ég sá frétt um það að fyritækin
sem lána bílalán myntkörfulánin ætla
að gefa fólki kost á að framlengja áfram greiðslustöðvun
eða hvað á að kalla þetta svo ég hafði
samband við Lýsingu þar sem ég er með
lán þar og hafði fengið greiðlustöðvun
í haust og hugðist framlengja og komst þá að
því að þeir mundu ekki lækka um 50% eins og
var heldur um 25% og þegar ég spurði um hverju það
sætti að þeir væru ekki á sömu nótum
og þeir sem eru með þessi lán var fátt um
svö annað en þetta er bara svona, nákvæmlega
svörin sem gefin eru all víða í dag og við látum
ganga yfir okkur, jæja en svo tók nú ekki nema augnablik
að prenta út pappíra sem ég þurfti að
skrifa undir til að endurnýja samninginn og viti menn fyrir
þetta var ég rukkuð um kr.5000.-og var búin
að greið nokkur þúsund í haust þegar
fyrri breytingin var gerð .... já semsagt kostaði fimmþúsund
að frammlengja á ekki orð yfir svona vinnubrögðum.
#1895 Ákvað
að senda þér smá línu ... því
mér fannst þetta dálítið magnað.
#1894 Vil benda
á Leiksport í Breiðholtinu sem mjög góða
verslun með íþróttaskó fyrir krakka og fleira.
Eftir misheppnaða tilraun til að kaupa innanhússkó
á einn 8 ára í Intersport (skórnir vel merktir
með afsláttarmiða en engin verð eða þau voru
misvísandi og jafnvel svo slæmt að hærra verð
var límt yfir lægra verð) þá fórum
við í Leiksport. Þar fengust skór sem áttu
að kosta 5.500.- og þar sem útsalan var alveg að hefjast,
þá gaf starfsmaður 20% afslátt. Svo ég
endaði á því að greiða um 4.500,- kr. fyrir
skóna. Hef áður verslað í Leiksport og alltaf
fengið framúrskarandi þjónustu og ásættanleg
verð. Mæli með þessu.
#1893 Við
keyptum handþeytara fyrir jól í Hagkaup á
Akureyri á 2490 kr. Nú fyrir tveimur dögum fórum
við aftur í Hagkaup og þá er sami þeytari
merktur á tilboðsverði og kostar nákvæmlega
það sama - 2490 kr. Enn og aftur finnst manni sem verið sé
að svíða neytendur.
#1892 Ég
fór á kaffihúsið Café Mílanó
í Reykjavík 10.janúar sl og pantaði mér
kaffi og ostakökusneið. Sneiðin kostaði 930 krónur??
Sem er algjört met, ég hef allavega ekki rekist á annað
eins.
#1891 Bókin
„Skotvopnabókin“ er til í Eymundsson og kostar 4.480
kr (sjá).
Bókin eru 222 blaðsíður og í kiljuformi. Svo
að þetta er dýr bók miðað við hve rýr
hún er og að auki í kiljuformi. Kiljur kosta venjulega
um 2000 kr. Ég hef ekki athugað hvað hún kostar í
öðrum bókabúðum.
#1890 Ég
var núna að fara yfir tryggingarnar mínar og bar
saman verð 4ra tryggingarfélaga,
En svona lítur dæmið út; Ég var tryggður hjá VÍS og heildartryggingarpakkinn hjá þeim var kr.143.000 fyrir árið 2009. Síðan hringdi ég í þá og fékk lækkaðan tryggingarpakkann í 132.169 og með einu símtali var ég búin að lækka kostnaðinn um kr.10.831, eða um c.a. 10%. En tryggingarnar mínar hjá VÍS höfðu hækkað um 20% frá árinu á undan. Ok., nú var ég búin að lækka kostnaðinn,
og ákvað að fá tilboð frá hinum, þ.e.
Sjóvá, TM, og Verði. Og tilboð þeirra
voru svohljóðandi með VÍS:
Já, nú er hart í búi, og maður lítur í hverja krónu. Nú get ég lækkað kostnaðinn um kr.20.524 eftir 10.831 króna lækkunina áður hjá VÍS. Þannig er heildarsparnaður kr.31.355 Iðgjald var áður en ég aðhafðist eitthvað
kr.143.000
#1889 Þessar
myndir voru teknar nú í vikunni annars vegar í Krónunni
í
(21.01.09): #1888 Passið
ykkur endilega á reikningum frá Símanum; þeir
eru búnir að breyta gjalddögum og eindögum. Núna
er gjalddagi 10 dögum fyrir mánaðamót og eindagi
ANNAN hvers mánaðar. Margir átta sig ekki á þessu
og lenda í dráttarvöxtum, enda var eindaginn áður
seinna eftir hver mánaðamót heldur en annan hvers mánaðar.
Það er alltaf verið að reyna að hafa pening af okkur!
Veit ekki til þess, að Síminn hafi sent viðskiptamönnum
sínum orðsendingu um þessa breytingu. Ef þetta er
ekki rétt hjá mér, bið ég forláts!
#1887 Það
var komið að því að skipta um kerti í bílnum
mínum, Volvo S40 árgerð 2005. Mér hafði verið
bent á að hringja í Stillingu og athuga verðið
þar. Þar kostaði stykkið rúmar 3500kr. Semsagt
14þús fyrir 4st kerti. Mér datt í hug að
athuga með N1. Þar kostaði stykkið 4990kr. Semsagt
20þús krónur fyrir 4st. Af rælni ákvað
ég að hringja í Brimborg en bjóst svosem ekki
við að sjálft umboðið væri ódýrara.
En viti menn, hjá Brimborg kostar pakki með 4st orginal Volvokertum
6440kr! Það margborgar sig að hringja og athuga verðin
og mér finnst að Stilling og N1 ættu hreinlega að
skammast sín!!
#1886 Þannig
er mál með vexti að ég er með áskrift
af stöð 2, stöð2 sport og stöð2 sport2.
Fæ þá ókeypis stöð 2 extra og bíórásina,
og borga fyrir það sama verð og þeir sem fá
að auki extra 1-5 af fótbolta ásamt því
að fá stöð + stöðvar sem ég er ekki
alveg viss hverjar eru ;-)
(20.01.09):
#1884 Ég
fór með tvær 14 ára í Bónus videó
Hafnafirði að kaupa sælgæti síðasta
laugardag, sem og alla aðra laugardaga, enda eru þær dyggir
viðskiptavinir þessara búllu eins og ég vil kalla
hana nú.
#1883 Stór
bjór 900 krónur og Breezer á 1050 krónur á
Kofa
Tómasar frænda!
#1882 Hef tekið eftir nokkrum færslum
þar sem fólk er að kvarta yfir því að
hafa keypt vöru sem var keypt hjá fyrirtæki sem nú
er farið á hausinn eða búið að skipta
um kennitölu, sem að síðan hefur bilað og fæst
nú ekki viðgerð. Það má vera að
auka ábyrgð sem fyrirtæki bjóða stundum, eins
og tveggja ára ábyrgð hjá BT eða slíkt,
sé fyrnd. Hinsvegar er sú alþjóðlega ábyrgð
sem framleiðandi gefur ekki fyrnd þegar að söluaðili
fer á hausinn.
#1881 Ég
fór í klippingu fyrir jólin á rakarastofunni
við Klapparstíg. Í haust kostaði herraklipping
3800 kr. en í þetta skiptið kostaði sama þjónusta
4200 kr. Kærastan mín fór í dömuklippingu
á Rauðhettu og Úlfinum, litlar 6700 krónur!
(engin klipping eða litun eða annar óþarfi). Heimilishaldið
borgaði því 10.900 krónur í klippingu fyrir
þessi jólin. Þetta finnst mér hreinlega vera
okur...
#1880 Langaði
að senda smá dæmi sem ég rakst á í
dag. Ekki í fyrsta skiptið sem ég sé áþekkt
dæmi.
#1879 Tökum stöðu með heimilunum Ályktun stofnfundar Hagsmunasamtaka heimilanna 15. janúar 2009 Efnahagshrunið, óðaverðbólgan, gengisþróunin, atvinnuleysið og markaðs¬hrunið er að koma mjög hart niður á þeim sem síst skyldi og minnsta ábyrgð bera, þ.e.a.s. heimilunum í landinu. Nú stefnir í það að stór hluti heimilanna í landinu verði gjaldþrota verði ekki gripið strax til raunhæfra aðgerða af hálfu stjórnvalda. Heimilin og fjölskyldurnar í landinu tóku lán sín til íbúðarkaupa í góðri trú og trausti til fjármálastofnana og stjórnvalda. Margar fjölskyldur eiga nú þess vegna á hættu að verða hlekkjaðar til æviloka við verðlitlar eignir sínar með skuldaklafann á bakinu, eða að verða hraktar af heimilum sínum með opna heimild til endurupptöku krafna til æviloka. Verði þessi framtíðarsýn að veruleika má gera ráð fyrir verulegum landflótta sem aðeins mun draga afleiðingar kreppunnar á langinn, auka á vandann og ójöfnuðinn. Framtíð íslensks samfélags ræðst af því hvernig stjórnvöld bregðast við núna gagnvart heimilunum og er tíminn til aðgerða mjög naumur. Í ljósi þess neyðarástands sem hefur skapast krefjast Hagsmunasamtök heimilanna eftirfarandi: • lagabreytinga til að verja heimilin í þessu efnahagsástandi, jafna áhættu milli lánveitenda og lántakenda og veð takmarkist við þá eign sem sett er að veði. • almennra leiðréttinga á íbúðalánum heimilanna, bæði í íslenskri og erlendri mynt. Bent er á að lenging lána leysir ekki vandann heldur frestar honum og lengir því aðeins í hengingarólinni. • skilyrðislausrar stöðvunar fjárnáma og uppboða á íbúðarhúsnæði einstaklinga þar til ofangreindar kröfur hafa verið uppfylltar. Samtökin óska eftir samstarfi við stjórnvöld til að leysa þessi stóru hagsmunamál heimilanna. Meginmarkmið slíks samstarfs er að koma í veg fyrir samfélagslegt hrun og byggja upp nýtt réttlátt og sanngjarnt Ísland þar sem allir sitja við sama borð og tekið er tillit hagsmuna heimilanna sem grunnstoðar samfélagsins. Við skorum á fólkið í landinu að fylkja sér um samtökin og gera þau að öflugu verkfæri breytinga fyrir hagsmunum heimilanna og taka þátt í mótun og uppbyggingu nýs Íslands. Hagsmunasamtök heimilanna
#1878 Heyrðu
ég lagðist í það mikilvæga verkefni að
endurgera grísasamlokuna sem maður gat fengið sér
á Hard Rock á árum áður og til þess
verks þurfti ég bbq sósu. Ég keypti Hunt´s
bbqsósu í Bónus og kostaði hún 155 ísk.
Allt í lagi með það en svo dugði hún ekki
svo að ég sendi strákinn minn útí þína
verslun á Seljabraut að sækja aðra, hún
kostaði fokking 427 ísk. Ég get ekki annað
en komið þessu á framfæri.
#1877 Fyrir stuttu
ætlaði ég að kaupa Fitty brauð í
Samkaup-Strax á Fáskrúðsfirði en sá
þá að hleifurinn átti að kosta 450 kr. Ath.
þetta er ekki heilt brauð. Stuttu seinna sá ég
það á 250 kr. í Krónunni í Hafnarfirði.
Þetta finnst mér vera okur hjá Samkaup-Strax á
Fáskrúðsfirði. Þess ber að geta að
núna kostar samskonar brauð 390 kr. á Fáskrúðsfirði.
(17.01.09): #1876 Bílinn
minn sem er Mitsubishi Lancer árgerð 1993 bilaði um daginn
sem er ekki frásögu færandi.Ýmislegt var að
bílnum vatnskassinn ónýtur,vatnsdælan ónýt
og HITANEMINN fyrir vatnskassann.Ég fór í varahlutaverslun
Heklu
og ætlaði að versla hitamælinn (til að fólk
átti sig á stærð hitamælisins að þá
er hann ca.4 cm á lengd og 2 cm á breidd)hann skrúfast
inn í vatnskassann.Ég spyr afgreiðslumanninn hvort hitamælirinn
sé til hann fer í tölvuna og viti menn mér til
mikillar ánægju er hann til.En ánægjan hvarf
einsog dögg fyrir sólu þegar ég heyrði verðið
á helv. hitamælinum ca. 17.700 krónur.Ég þakkaði
kærlega fyrir viðskiptin og labbaði út úr varahlutaverslun
HEKLU möglunarlaust án helv.hitamælisins.Á leiðinni
út fór ég að reyna að átta mig á
verðinu,reyna að finna einhverja réttlætingu á
verðinu ein var sú jú kannski er þetta genginu
um að kenna,nei hugsaði ég það getur bara ekki
tengst genginu Lancerinn minn er 16 ára gamall og ekki eru margir
svona bílar eftir ökuhæfir og ég trúi því
ekki að þetta sé nýinnfluttur varahlutur.
#1875 Mér
blöskraði fréttin um nýja BT, sjá hér
að neðan, svo ég hafði samband við fyrirtæki
sem heitir Tölvuland að Skeljagranda 7 107 R. Það hefur
yfir einum starfsmanni að ráða (Tóta) sem sérhæfir
sig í viðgerðum og sölu á tölvum. Kom ég
með þá tillögu að Tölvuland bjóði
öllum viðskiptavinum gamla BT ókeypis viðgerðir
á biluðum tölvum og tölvuíhlutum og að
viðskiptavinurinn greiði aðeins fyrir varahluti á sanngjörnu
verði. Tók eigandinn (kallaður Tóti tölvukall)
vel í þessa hugmynd mína en þar sem hann er frekar
hógvær náungi og ekki góður að koma
sér á framfæri þá tók ég
það að mér. Síminn hjá Tóta tölvukalli
(rétt nafn er Þórarinn Gunnarsson) er 899 3469.
#1874 Ég
var í Eymundson um jólin og sá lítinn
uppblásin disney koll sem kostaði 2995,- krónur og var
þá nýbúin að sjá alveg eins vöru
í Rúmfatalagernum á 890,-. Þessi kollur er komin
á útsölu í Rúmfatalagernum á 499,-
Svo fór ég í Eymundsson í dag og þar
er útsala eins og annarstaðar en þá blöskarði
mér þegar ég rakst aftur á þennan koll
sem var þá komin í 3995,- Hann var semsagt búin
að hækka um 1000,- krónur á ekki mánuði.
Maður getur semsagt sparað 3500 krónur að versla þennan
koll í Rúmfatalagernum.
#1873 Fór
enn einu sinni í BÓNUS og ætlaði að versla
rakvélablöð,
en þeir selja bara tvær tegundir af gillette sem báðar
eru af dýrari gerðinni og passa ekki fyrir skaftið á
minni. Svo ég ákvað að fara í HAGKAUP í
Spönginni, þar voru til blöðin sem mig vantaði,
sem er af gerðinni GILLETTE MACH 3, en þau voru EKKI VERÐMERKT
á standinum. Ég var búin að reikna það
út að ég get notað hvert blað 3. Sinnum MAX 4.
Sinnum en þá er orðið vont að raka sig.
#1872 Pabbi minn
hefur verið með heyrnartæki í mörg ár.
Það er komið að því að hann þarf
að endurnýja gamla tækið sem er orðið úr
sér gengið og hefur í raun aldrei verið til friðs.
Hann hefur oft þurft að fara með það í viðgerð.
#1871 Ég
og konan fórum að versla í Bónus á Akureyri
rétt fyrir sex í kvöld. Við keyptum átta
stykki af tveggja lítra Coca Cola Light. Sex flöskur í
plasti (kallað kókkippa) og svo tvær án plasts.
Venjulega erum við ekki að skoða kassamiðan en upphæðin
var hærri en við erum vön fyrir svipað magn þá
fórum við yfir miðan út í bíl. Þá
sá konan að kókkippa var seld á mun dýrara
verði heldur en kókflöskurnar í lausasölu (sjá
skýringar á meðfylgjandi mynd). Samt er þetta á
sama stað í búðinni og allt undir verðmiðanum
131 kr. per flösku.
16.01.09: #1870 Ég
verð að hrósa einum af nýju skyndibitastöðunum
á landinu, Just Food to go. Ég fór þangað
í hádeginu um daginn og fékk mjög góðan
alvöru mat fyrir 1000 kr. Skammturinn var hæfilega stór
þannig að maður varð vel saddur af honum. Ég
fer pottþétt þangað aftur. Vildi bara láta
ykkur vita af þessum frábæra stað í Laugarásnum,
svo skemmdi ekki fyrir að þjónustan var alveg sérstaklega
vinaleg.
#1869 Dressmann klikka ekki, frekar en venjulega: Gallabuxur, 2 pör: 4.990
ÞETTA kallar maður útsölu!
#1868 Hér er
önnur saga varðandi gjaldþrot BT: Við keyptum okkur
flatskjá fyrir yfir hundraðþúsund krónur
sem bilaði um það leyti sem BT varð gjaldþrota.
Þar sem hann var ennþá í ábyrgð fórum
við með hann í BT. Þeir firrtu sig allri ábyrgð
vegna nýrrar kennitölu. Þegar sjónvarpið var
keypt í BT á sínum tíma, keyptum við einnig
til öryggis kaskótryggingu til að vera nú alveg
viss. Sjónvarpið var því sent í skoðun
hjá aðila, sem Sjóvá sem kaskótryggingarsöluaðili
benti á. Þá kom í ljós að gallinn
er það stór að sjónvarpið er hreinlega
ónýtt og þar sem þetta fellur undir ábyrgð
framleiðanda að sögn Sjóvár, bæta þeir
þetta ekki heldur. 140 þúsund krónur út
um gluggann þar. Maður getur sem sagt engan veginn varið
sig og skyldi ætla að vara ætti fólk við að
kaupa raftæki yfirhöfuð. Ómögulegt að segja
hvaða söluaðili á eftir að fara á hausinn
og hver ekki á næstu misserum.
#1867 Fór
með Benz A (11 ára gamlan) í viðgerð í
Öskju. Fékk að vita að það þyrfti að
skipta
um alternator og að nýr kosti 80.000. Ok, ég var
ekki neitt mjög ósáttur, þetta er Benz, ekki ódýrasta
merkið en skoðaði málið aðeins betur. Hringi
í nokkrar áttir og það kom í ljós
að Ljósbogi selur nýja, alveg eins alternatora, á
55.000. Þegar sagt er eins þá er átt við
eins. Velo fyrirtækið franska framleiðir báða
og þeir eru eins skv. uppgefnum gildum framleiðanda. Velo framleiðir
alternatorana í Benz A bílana og selur einnig sem varahluti.
Benz notar Bosch alternatora í dýrari bílana. Ég
keypti hann á 55.000 og var bara sáttur.
#1866 Þurfti
að endurnýja lyfjaskammt sem ég þarf að nota.
Þvílíkur
verðmunur á milli apóteka og líka hvort er
um samheitarlyf að ræða. Dæmi: Efexor depot 150mg
100 töflur kosta kr. 10.180 í Rimaapóteki en kr. 17.635
í Lyfju Garðatorgi. Venlafaxin (samheitarlyf fyrir Efexor) 150mg
100 töflur kosta 2.089 í Lyfjaveri en 3.331 í Lyfju
Garðatorgi.
#1865 Þú
verður að afsaka hversu seint ég sendi þér
þetta bréf, en mér var svo ferlega ofboðið
fyrir jólin að ég hafði hreinlega ekki mátt
í mér til að skrifa þér. Núna hefur
orkan safnast upp.
#1864 Keypti lítið,
svart blekhylki í afar venjulegan og ómerkilegan Cannon prentara
í Tölvulistanum í dag, 15. janúar. Það
kostaði 3.790 krónur! Er þetta ekki okur? Það
finnst mér amk.
#1863 Ég
vill benda á okur á kaffi hjá Jóa Fel.
Ég sá að venjulegt svart kaffi kostaði 325 en Kaffi
Latte kostaði 345. Venjulega kaffið fannst mér of dýrt
svo ég ákvað að eyða 20 krónum meira og
fá mér Latte. Þegar ég fékk Latte í
hendurnar var þetta Latte sem kemur tilbúið úr
vélinni, í litlu pappamáli (eins og maður fær
á bensínstöðvum) og var langt í frá
að vera gott. Mér hefur Kaffitár alltaf verið frekar
dýrir en frekar fer ég þangað og kaupi alvöru
Latte í mun stærri bolla á 380.
15.01.09: #1862 Ég hef verslað NuSkin vörur í mörg ár og er mjög ánægð með þær. Ég verslaði seinast í desember og þar áður í nóvember. Svo ætlaði ég að fara að versla mér aðeins núna og það datt af mér andlitið. Hækkanirnar eru hreint ótrúlegar og ég mun ekki versla við þetta fyrirtæki framar. Hér er smá samanburður: Keypt 13 nóvember 2008:
Keypt 8 desember 2008:
Ég er samt með góðan aflátt hjá
þeim. Sem dæmi kostar Intensive Eye Complex nú á
fullu verði 7522. Þetta er augnkrem!
#1861 Plast hurðahillur
í kæliskáp í Húsasmiðjunni
verð: kr. 9.000. Nýr kæliskápur af sömu tegund
verð: 90.000.- Hillur keyptar í netverslun erlendis verð:
kr. 1.200 með öllum gjöldum. Okur!
#1860 Ég
rak augun í það að ég hef verið rukkaður
fyrir netyfirlit á
(14.01.09):
#1858 Við
hjónin búum erlendis og ákváðum fyrir nokkru
að skella okkur til Íslands yfir jólin og eyða jólunum
með vinum og fjölskyldu. þegar að það kom
að því að velja flug komu 2 flugfélög
til greina, SAS og Icelandair. verðið var mjög svipað
en munaði þó nokkrum krónum og var SAS ódýrara.
Þar sem kreppan var skollin á þótti okkur það
vænlegri kostur að velja Íslenskt og keyptum flugmiða
fyrir okkur tvö fram og til baka frá Bergen fyrir litlar 150.000
kr, flugið var ágætt þrátt fyrir að hafa
ekki fengið að njóta nýja vel auglýsta afþreijingarkerfisins
þar sem það var ekki í vélunum sem við
notuðum.
#1857 Núna
þegar ég sé hvað margar verslanir eru eiginlega
bara að svindla á fólki á útsölunum
þá vil ég benda á Gallerí Keflavík.
Ég fór á útsölu hjá þeim
um daginn og þar var allt í versluninni á 50% afslætti.
Þú gast gengi' að öllum vörum þarna inni
með þá vissu að það væri afsláttur
af henni. Ég gerði mjög góð kaup þennan
dag keypti 2 kjóla 2 skópör og eina peysu á rúmlega
17000. Gott að vita að það er ennþá hægt
að gera góð kaup. Og já ég hafði skoðað
bæði skópörin og annan kjólinn fyrir jól
og það passaði allt með verðið.
#1856 Ég
kíkti á útsölu verslunarinnar Ritu í
síðustu viku. Þar sá ég kjól sem
hafði kostað 15.900 en á útsöluverðið
var 6.990. Nú vill svo til að ég keypti mér nákvæmlega
eins kjól á útsölu Ritu í sumar og borgaði
3.900 krónur fyrir!
#1855 Langar að
benda á að James bönd í Skipholti leigja
nýjar myndir á 500.- og gamlar á 200.- og hefur verð
ekki hækkað í mörg ár. Eins safnast upp
punktar ef nýrri mynd er skilað fyrir k. 21.00 og er sjöunda
hver mynd frí. Hjá Heimamynd á Langholtsvegi,
færðu nýja mynd og gömul fylgir með fyrir kr.
600.- Myndi segja "góð verð" á báðum stöðum.
#1854 Ég
fór og keypti mér svínarif í matinn og rifin
frá Kjarnafæði urðu fyrir valinu. Borgaði
2400 krónur fyrir 2 pakka, svona laugardags treat. Litu vel út
og lyktuðu jafnvel betur, alveg löðrandi í sósu.
Well mín hennti þeim inní ofn og ætlaði svo
að sökkva tönnunum í herlegheitin. En óboy
óboy þetta voru bara bara bein. Ég var heppin að
ná einum munnbita úr hvorum pakka fyrir sig. Aldrei séð
annað eins. Meira að segja litli ræfilslegi rifjaskammturinn
frá Dominos gefur af sér meira kjöt heldur en var í
þessum 2 pökkum. Ferlega fúlt á þessum síðustu
og verstu að setja þetta í sölu. En sósan
var góð, vildi ekki að hún færi til spillis
þannig að ég reyndi að skafa hana af beinunum ofan
á bökuðu kartöfluna mína sem endaði á
að vera aðalrétturinn:(. Þurfa að fara að
breyta logoinu hjá sér held ég. Hagkvæmt fyrir
heimilið ætti að að þýðast Hallæri
fyrir heimilið. Jæja búin að ausa.
#1853 Ég
er með eitt dæmi hér, þar sem ég var að
fá bréf frá 365, og mér tilkynnt að
nú verði að innheima „áskriftargjald“ fyrir aukamyndlykil,
en fyrir er greidd leiga kr. 595, en þetta áskriftargjald
er 490 kr. Ég er að greiða áskrift af stöð
2 og sport, ásamt enska boltanum, en nú þarf ég
sem sagt að fara að greiða sérstakt áskriftargjald
bara til þess eins að geta horft á fleiri rásir,
sem ég er þó að greiða fyrir. Ég tel
að með þessu orðalagi sé þarna sé
verið að tvíinnheimta fyrir sama hlutinn, væri ekki
einfaldara fyrir þá að segja sannleikann og tilkynna allt
að 100% hækkun á afnot af aukamyndlykli. Þess má
svo geta að móttökuskilyrði hér á Akranesi
eru víða mjög slæm, myndin stöðugt að
frjósa, og hefur svo verið hér mjög lengi, þrátt
fyrir að marg kvartað hafi verið undan þessu, en ég
get staðfest það, þar sem ég starfaði lengi
við umboð þeirra hér á Akranesi, en það
hefur ekki verið gert neitt í málinu, allt frá
því að sendir var settur upp á Sementverksmiðjunni
fljótlega eftir að stöð 2 fór í loftið,
en íbúafjöldinn hefur nánast tvöfaldast
síðan þá.
#1852 Mig langar
að hrósa einu fyrirtæki hér í bæ.
Það er veitingastaðurinn
#1851 Hagkaup Holtagörðum enn að
skíta á sig. Ég átti þar leið hjá
eftir prófin.
(11.01.09): #1850 Er með
ábendingu varðandi verslunarhætti Zöru. Ég
keypti mér peysu þar í vikunni á útsölu.
Fannst þetta reyndar engin brjáluð útsala, dró
peysuna upp úr risa hrúgu og hugsaði sem svo að peysurnar
í svona hrúgu ættu að vera á 1000 kall en
ekki 1990 og 2990 eins og reyndin var. Ég keypti mér þó
peysu þar sem hún hafði kostað 4900 kr áður
en kostaði nú 2990 kr. Ekki alslæmt. Nema þegar
ég kem heim og plokka af verðmiðann er verðmiði
þar undir sem á stendur 3590 kr. Það sem ég
græddi á þessari útsölu var s.s. 600 kr.
Sömu sögu er að segja af peysu sem systir mín keypti
á útsölu hjá þeim, þegar hún
plokkaði nokkra verðmiða af og sá upphaflega verðið,-
hafði hún grætt 600 kr. þegar upp var staðið.
Mér finnst ekki skipta máli hvenær þeir hækkuðu
verðið, - hvort það var rétt fyrir útsölu
eða einhvern tíman í haust. Þeir eiga ekki að
hækka verð á vörum sem komnar eru inn í búðina
og búið að verðmerkja einu sinni.
(Nb. Það er mikið pælt í þessum verðmiðum hjá Zöru. Meðal annars hér: http://blogg.visir.is/drgunni/?p=220. Verslunin tók þá ákvörðun að hækka með verðmiðum sem voru límdir ofan á gamla í staðinn fyrir að kroppa gömlu af. Kenna hækkun evrunnar um hækkun vöru. Og þeim er svo sem vorkun enda hækkaði evran um 86% eða eitthvað í fyrra.) #1849 Ég
bý í 101 og versla oft í Bakaríunu Korninu
Lækjargötu. Mér brá í morgun þegar
ég keypti svokallað "andabrauð" sem ég kaupi oft
enda með nokkur barnabörn sem heimsækja afa sinn reglulega
og fer ég þá með þau niður á Tjörn
að gefa öndunum. Þetta andabrauð var gefins ekki fyrir
mörgum árum síðan en hefur svo kostað 100kr.
En í morgun kostaði brauðið 150kr. 50% hækkun
á ónýtanlegu brauði til neytanda.
#1848 Fór
með 3 litlar dömur eftir sund í Grafarvogi á N1
í Húsahverfi og keypti
(10.01.09):
#1846 Ég
var stödd í Ellingsen á "risa" útsölunni
nú eftir jólin með útlenskum vini mínum
sem var að versla sér útilegudót. Þegar
hann fór á kassann til að borga þá tók
ég eftir að lítil handöxi sem hann var að versla
sér var 400 krónum dýrari en verðmerkingin á
hillunni sagði til um svo ég benti afgreiðslukonunni á
þetta. Hún fór sjálf og náði í
strikamerkinguna á hillunni og sagði okkur að þetta
þyrfti að fara í gegnum þjónustuborðið
því hún hefði ekki heimild til að breyta verðinu
sjálf á kassanum. Það var svo sem allt í
lagi en þá tók við önnur afgreiðsludama
sem bað okkur um íslenska kennitölu til að geta breytt
verðinu. Þetta finnst mér stórkostlega fáránlegt,
þ.e. að krefja viðskiptavininn um kennitölu svo hægt
sé að leiðrétta verðið í búðinni.
Hvernig hefði þessi útlenski vinur minn á að
fá þetta leiðrétt ef að ég hefði
ekki verið með honum. Mér hefði fundist nær að
þau hefðu bara notað kennitölu verslunarstjórans
til að laga sín eigin mistök.
#1845 10-11 og
Krónan, 750 kr eða 317? hvaða verðmunur er það
eiginlega á nákvæmlega sömu vöru?
#1844 Canon prentarinn
minn byrjaði að krumpa öll blöð sem hann tók
inn í sig, og ég varð að fara með hann til umboðsaðilans
Nýherja
í viðgerð. Þeir voru snöggir að finna sælgætismola
frá tveggja ára syni mínum inn í prentaranum,
og rukkuðu mig aðeins skoðunargjald upp á 4.700 kr en
ekkert tímagjald. Þar sem sambærilegur prentari er núna
á 19.900 kr, en ég fékk þennan Fyrir Kreppu
á 9.900 kr, var ég nokkuð sáttur við þetta
enda var prentarinn ónothæfur og þeir redduðu þessu
á innan við sólarhring.
#1843 Mig langaði
að segja þér frá stutta sögu úr Skífunni.
Um þessi jól fékk ég DVD disk frá Skífunni
í jólagjöf sem ég hugðist skipta. Þar
sem mér leiðist að bíða í röðum
ákvað ég að bíða þangað til
að jólahátíðin og áramótin væru
afstaðin og skipti disknum ekki strax. Í gær komst ég
að því mér til mikillar óhamingju að
ekki er hægt að skipta vörum sem verslaðar voru um jólin
eftir 3.janúar. Innsiglið á disknum er merkt með
smáu letri þar sem þetta kemur fram. Ég hafði
semsagt fjóra daga milli jóla og nýárs til
að skipta disknum og einn dag eftir áramót þar
sem 2.janúar var væntanlega vörutalningadagur og verslunin
því lokuð.
#1842 Ég
fór í Skífuna að skila 2 geisladiskum.
Báðir dískarnir voru
(09.01.09): #1841 Vantaði
hrærivél fyrir heimilið og sá Bosch, 550w hrærivél
+ aukahlutir, auglýsta hjá Byko á 22.900 kr. (að
vísu á tilboði frá upprunalegu verði sem er
28.500). Þegar ég leitaði að samanburði við
aðrar verslanir sá ég að nákvæmlega
sama vél, með sömu aukahlutum, var á 59.900 hjá
Smith og Norland. Talandi um svimandi álagningu hjá sumum
verslunum!
#1840 Pfaff hefur
auglýst útsölu sína stíft. Þar trúir
"frú Pfaff" okkur fyrir því að afslátturinn
sé alveg sérstaklega mikill í ár, 40-60%. Ég
fór, með það í huga að verða mér
úti um Sennheiser heyrnartól. Þegar ég
kom í verslunina sá ég ekki betur en 15% afsláttur
væri allsráðandi með einstaka undantekningum. Ég
spurði afgreiðslumanninn hvaða vörur væru með
60% afslátt og eftir smá umhugsun fann hann fáein
ljós. Jólavörur voru allflestar með 50% afslætti.
#1839 Ég
hef undanfarið verið að hvetja dóttur mina til að
taka strætó í stað þess að söngla
sífellt um að láta sækja sig eða skutla sér
hingað og þangað. En þar sem þessar ákveðnu
ferðir eru kannski 2-3 í viku er frekar óhentugt að
kaupa svokallað grænt kort . Ég ákvað
því að athuga með strætómiða.
Það kom upp úr krafsinu hins vegar að það
er ekkert hagstætt að kaupa strætómiða fyrir
13-18 ára ungmenni. Stök ferð kostar 100 kr en 16
ferðir kosta 1600. Á meðan yngri börnin sem einnig
borga stöku ferðina á 100 kr fá 20 miða kort
á 750 kr. Fullorðnir græða á að
kaupa kort, stök ferð hjá þeim kostar 280 kr en 11
miða kort 2500. Öryrkjar og aldraðir borga jafn mikið
og unglingarnir fyrir 16 miða kort eða 1600 kr. Ég
bara spyr af hverju fá unglingarnir ekki afslátt ef þau
kaupa miða? Þetta finnst mér ekki sanngjarnt.
#1838 Mig langar
að segja verðsögu af 50w.Osram kastaraperu í
Bónus kostar þessi pera 798 kr í Bykó kostar
hún 1633 kr en í heildsölu til rafvirkja kostar svona
pera 375 kr. Kannski eru til fleiri verð ég hef ekki kannað
það.
#1837 Í
dömudeild Next í Kringlunni stendur yfir útsala.
Þangað fór
(07.01.09): #1836 20% AFSLÁTTUR
NÚNA!
Þetta er auglýsing á heimasíðu Hreyfingar.
Við vinkonurnar hugsuðum okkur gott til glóðarinnar
til að koma okkur aftur í gang eftir sluks síðustu
mánaða og fannst þetta náttúrulega frábært
tilboð - en vildum vera saman s.s. í "hópeinkaþjálfun".
* sama fyrirtæki er með ágætis tilboð sem
þau kalla ánægjutilboð.
Hvet fólk til að lesa smáa letrið og kynna
sér hlutina vel áður en gengið er til samninga!
#1835 Mig langar
að benda á eitt mesta okur sem ég veit um þessa
dagana og það er aðgangseyrir í Bláa lónið.
Í dag kostar 3.400 fyrir einn fullorðinn einstakling
að fara í lónið.
#1834 Ég
var, eins og svo margir aðrir, í Kringlunni fyrir jólin.
Ákvað að fá mér ís í ísbúðinni
hjá Hagkaup. Og í fyrsta sinn á ævinni hætti
ég við að kaupa mér ís af því
að hann var of dýr. Lítill bragðarefur/hræringur
var kominn í 790 krónur hjá þeim. Miðstærð
á 890 og stór á 990 krónur. "Venjulegt" verð
fyrir lítinn bragðaref hefur verið á ca. 500 krónur.
Mig grunaði að ísinn hefði hækkað undanfarið
en þetta var of mikið. Tæpar 800 krónur fyrir smá
ís og smá nammi. Ég sá fram á að
fá aldrei ís aftur. Fór í verðkönnunarleiðangur
í Fákafenið í Erlu-ís. Vissulega hefur
verðið þar einnig hækkað en var samt viðráðanlegra.
Hjá þeim í Fákafeninu kostaði lítill
bragðarefur 590kr, miðstærð 690kr og stór 790kr.
Dýrt....en aðeins skárra.
#1833 Ég
fór í N1 í gær og verslaði kókdós,
hún kostaði 180 kr....... Nú vil ég benda
á það að þegar vaskurinn var lækkaður
á vörur þá lækkaði hann mikið á
vörur eins og gos og fleira í þeim dúr eða
úr 24,5 niður í 7% en þá kostaði gosið
í plasti á stöðum eins og N1 og Select svona 140
til 150 kr. En 150 kr flaskan ætti að hafa lækkað
niður í svona 129 kr. Svo má benda á annað
að gos í plasti er að kosta um 190kr lágmark og t.d.
sá ég flösku af kristal+ með sítrónu
bragði sem kostaði 216 krónur. Þannig að
þarna sjáum við það að flaskan hefur hækkað
á stuttum tíma úr það sem eðlilegt væri
129 kr. Í 190 kr.Ég spyr, er þetta í lagi, eru
þessar bensínbúllur ekki að svindla all rosalega
á okkur. Ég skora á neytendur að skoða
það hvort það sé einhver þörf á
því að versla við þessar okurbúllur.
#1832 Mér
datt í hug að segja frá tölvupósti sem ég
fékk um daginn frá einhverju sem heitir ÓB-klúbburinn
(líklegast vegna þess að ég er með ÓB-dælulykil).
Hann leit út eins og sést hér að neðan, sem
sagt ,,risaútsala „ í Ellingsen (sem Olíuverslun
Íslands rekur) og mér var boðið forskot á
útsöluna 2. og 3. janúar. Það hefur komið
fyrir að ég hafi átt viðskipti við Ellingsen
enda er mikið vöruúrval í versluninni og ég
ákvað að líta þar við föstudaginn
2. janúar. Það er skemmst frá því
að segja að í þessari risastóru verslun voru
nokkrir gönguskór sagðir á útsölu og
svo var einn rekki inni í miðri verslun með skilti sem á
stóð ,,tilboð“. Þar var hægt að fá
rúllukragapeysur á dömur sem kostuðu 890 kr. (ekki
var tekið fram hvað þeir áttu að hafa kostað
áður) og síðan einhverjar örfáar flíspeysur,
sem ég kíkti nú ekkert á. Þetta var nú
allt og sumt og annað fann ég ekki á afslætti á
því sem þeir kalla ,,risútsölu“. Mér
finnst sorglegt eftir öll þau viðskiptasvik sem Íslendingar
hafa þurft að lifa við undanfarið að fyrirtæki
eins og Olíuverslun Íslands skuli ekki hafa meira viðskiptasiðferði
en þetta.
#1831 Ég
vildi nefna og já eiginlega taka undir það sem einn hafði
nefnt hérna áður. þannig er mál með
vexti að eg var að versla í bónus mánudaginn
5jan og sá þar heilann frosinn kjúkling sem verðmerktur
var á 545 stk. og mer fanst það annsi fint verð og
áhvað að grípa mer tvo þannig. Svo er eg kem
á kassann þá fylgdist eg serstaklega með þegar
kjúllunum var rennt í gegn og viti menn fyrri var á
680kr og hinn seinni á 665kr. Og bendi eg afgreiðsludömunni
á það og hún segir bara þetta er verðið
sem kemur upp á kassanum hja mer og eg svara henni nú um
hvernig það sé verðmerkt i búðinni og hún
vill ekkert gera þannig að eg bið hana að taka þá
báða til baka, en það gekk ekki betur en svo að
hún bætti þeim við en mínusaði þá
ekki frá, og eg segji afsakið fröken en eg vildi að
þú tækir þá til baka en ekki að þú
rukkaðir mig fyrir tvo auka kjúlla, og hún varð bara
óó vilduru þá ekki. þá svaraði
eg nei ekki vildi eg borga tvöfalt verð fyrir þá
og hvað þá fjórfalt hehe. svo að lokum mínusaði
hún þá af mer og eg bað hana að hóa
á verslunarstjóra og láta laga merkingarnar sem hun
sagðist ættla gera, en svo stóð eg þarna í
eflaust 5min að bíða eftir verslunarstjóra sem kom
aldrei og er eg ANSI viss um að þessari verðmerkingu var
aldrei breytt.
#1830 Ég varð hneykslaður á
þessari frétt sem var á mbl.is (hér)
um hversu Guðmundur Stefán Maríasson, formaður SVFR
er að hreykja sér um að verð á veiðileyfum
í langflestum tilvikum haldist óbreytt milli ára.
Nú ætti einmitt að vera tíminn til að lækka
verðið og það verulega. Seinustu árin á
"góðæristímunum" hafa bankarnir keyrt verðið
upp með kaupum á veiðileyfum á alltof háu
verði. Hinn almenni veiðimaður hefur lengi dreymt um að
veiða í bestu ám landsins á góðum tíma
en þá hefðu þeir þurft að punga út
einhverjum hundrað þúsund köllum fyrir það.
Svo áttu nú bankarnir líka til að leigja heilu
vikurnar í ánum fyrir sína kúnna, þannig
að maður hefði ekki komist að þrátt fyrir
að vera búin að safna allt árið fyrir kannski
einum veiðileyfadegi í góðri á. Ég
get ekki alveg séð líka hvernig gengið hafi mikil
áhrif á veiðileyfaverð, þar sem árnar
eru leigðar af landeigendum í íslenskri mynt og svo selt
veiðimönnum. Þvert á móti væri tækifæri
núna að selja útlendingum veiðileyfi með veikingu
krónunnar. T.d dæmi í nýjustu söluskrá
SVFR. Leirvogsá ein stöng í einn dag dýrsti tími
92.400 kr. Þetta er hneykslanlega hátt verð og er sannarlega
löngu orðið tímabært að leiðrétta
þetta. Gagnrýni mín er ekki eingöngu á
SVFR, heldur öll félög, þá sérstaklega
Lax-á, sem geta verið ansi veruleikafirrtir þegar kemur
að þessum málum. Ég hvet alla veiðimenn
að panta engin veiðileyfi þetta árið og bara bíða,
þá verða félögin þvinguð til að
lækka og kannski einn góðan veðurdag getur hinn almenni
borgari bleytt færið í Laxá á Ásum
á besta tíma án þess að fara á hausinn.
Ég hef verið félagsmaður í SVFR í 15
ár en hef nú sagt mig úr félaginu!
#1829 SÍMINN OKRAR, Eindagi
símreikninga frá SÍMANUM var 2. janúar sem
í fyrsta skipti var venjulegur bankadagur en margir
bankar voru aðeins með opið frá kl. 13 – 16
SÍMINN nýtti sér þetta og hélt
sig við að hafa eindagann 2. dag mánaðarinns eins og
venjulega meðan flestir aðrir gjalddagar sem eru venjulega 2. hvers
mánaðar færðust yfir á 5. janúar. (mánudagur)
En trúlega héldu flestir að bankarnir væru lokaðir
2. janúar eins og hingað til.
(06.01.09): #1828 Yfirleitt
eru auglýstar útsölur allt að 30-70%. En svo þegar
maður mætir í Smáralindina eða Kringluna þarf
að leita að útsöluvörum sem eru á góðum
afslætti og eru þær flíkur yfirleitt mjög
fáar. Þetta var svo áberandi þegar að ég
fór með konunni í "Mollin" um helgina. En þó
eru jákvæðir punktar, t.d. fataverslunin Ellos í
Kringlunni 7, Húsi verslunarinnar(VR-húsið). Þar
er allt með 50% afslætti og fyrir eru verðin mjög hagstæð.
Mig langaði til að vekja athygli á þessu vegna þess
að þar er alvöru útsala og tilvalið að nýta
sér í kreppunni.
#1827 Mér
finnst mjög áríðandi að þetta komi fram
svona öðrum til varnaðar. Aðilar frá Pixmyndum
(www.pixmyndir.is) hafa verið að fara á milli skóla
og taka bekkjarmyndir. Þessir aðilar selja svo myndirnar
í gegnum vefsíðuna sína. Sú breyting var
gerð eftir að foreldrar kvörtuðu yfir að fá
myndirnar sendar heim án þess að biðja um þær.
#1826 Fór
í Smáralindina í gær og gaf 2 ára
stráknum ís. Ég bað um ungbarnaís
í brauðformi og ísinn náði rétt svo
uppfyrir brauðformið. Ég var látinn borga 180 kr
fyrir þennan litla ís fyrir barnið!!! Hvað var um
100 kr.ísana sem var alltaf í boði? Ég mun ekki
oftar kaupa ís í ísbúðinni í Smáralind!!!
#1825 Mig langaði
bara að vekja smá athygli á þeim mun sem er að
verða á vörumerkingum verslana. Ég er alveg viss
um að margir hafi sömu sögu að segja, en ég er
sífellt að lenda í því þegar ég
er að versla inn fyrir heimilið að þegar á kassann
er komið er verð þeirra vara sem ég er að versla
allt annað en auglýst er í hillum verslunarinnar. Ég
er farin að venja mig á það að skoða alltaf
verðmiðana í hillunum og stundum skrifa ég verðin
bara á innkaupamiðann og fylgist svo með þegar þetta
er skannað inn eða tek miðann hjá þeim og fer
yfir þetta.
#1824 Á
laugardag fór ég í hina ágætu verslun
IKEA
og festi kaup á m.a. Salong blómavasa, verðið í
búðinni var 795, sem passar við auglýsingu í
Fbl sama dag. Skoðaði svo strimilinn seinna fyrir tilviljun og
þar er verðið 1.290! Vil eindregið vara við svona
vinnubrögðum, bæði verslun og neytendur, því
nenni ég þeim klukkutíma sem tekur að keyra báðar
leiðir og hanga í biðröð fyrir tæpan 500
kall? Nei, ég mun einfaldlega ekki versla þarna framar.
#1823 Við
fórum í IKEA, þar var útsala. Við
ætluðum að skoða púða, hann kostaði um
365 kr. áður en þeir hækkuðu í okt. þá
fór hann upp í 745. kr nú er hann á útsölu
og þá kostað hann áður en hún byrji
990.kr og á útsölu 699. kr. Fleiri dæmi um svona
vinnubrögð hjá þeim. Rúmföt kostuð
995 kr. hækkuðu verðið í haust í 1200.
kr. Útsala, verð núna 2.500 kr., með afsl.
1.800. kr. Svo er hægt að halda áfram, eru menn að
gera okkur að fíflum?
#1822 Eldsmiðjan
tekur orðið 450kr heimsendingargjald sama hvar þú
ert. Það
#1821 Þann
22. des keypti ég Columbia dömu gönguskó
hjá Ellingsen fyrir tæplega 15.000 kr. Í dag
sá ég svo að þeir auglýsa risaútsölu
þ.á.m. gönguskó á 20-50% aflætti.
Ég gerði mér ferð til þeirra, ákveðin
í að kaupa alveg eins skó á dóttur mína.
Í ljós kom að skórnir eru nú allavega 500
kr dýrari á þessari risaútsölu þeirra.
Ég fór að þjónustuborðinu og kvartaði
yfir þessu og fékk þá skýringu að
þeir hefðu sett eitthvað af gönguskóm á
jólatilboð fyrir jólin. Síðan hafi þeir
verið settir á upprunalegt verð rétt áður
en þessi risaútsala fór af stað.
#1820 Mig langar
að hrósa bræðrunum Ormsson. Fékk Jamie
Oliver pott í jólagjöf sem ég ákvað
að skila um seinustu helgi. Þegar ég mætti á
svæðið, sá ég að það var 20%
afsláttur af pottunum en þrátt fyrir það,
fékk ég inneignarnótu hjá Ormsson upp á
upphaflegt verð sem var fyrir útsöluna. Þeim þótti
það sjálfsagður hlutur og er ég ánægður
með þessa tilteknu þjónustu.
(05.01.09): #1819 Þannig
er mál með vexti að ég pantaði tíma á
nuddstofu þann 29.desember síðastliðinn á stofu
sem heitir Japanska Baðið. Þessi stofa er í
Skúlagötu 40 í Reykjavík.
#1818 Nú
kostar orðið 1100 krónur að fara í bíó
hjá Sambíóunum, hvað er í gangi?
Blessunarlega geta viðskiptamenn Kaupþings þó enn
nýtt sér tilboð sé borgað með Kortinu,
þá kostar miðinn 750 krónur. Spurning hvað
það endist lengi.
#1817 Verslunin
Vínberið
á
Laugavegi selur gos og aðra drykki í kæli. Dæmi
#1816 Vildi bara
láta vita, Max raftæki er búið að vera
með tilboð í desember á DVD-diskum 2stk á
ca.989 kr, þar á meðal var slatti af Disney-diskum.
Ég var búin að sjá þarna í Kauptúni
ákveðin disk og mætti nokkrum dögum síðar
til þess að versla hann í einn pakka en þá
voru skyndilega allir Disney-diskarnir farnir. Þeir voru í
hillunum með barnaefninu en ekki lengur á tilboðsborðinu.
Diskurinn sem að ég ætlaði að kaupa var sem sé
til á 2.299kr. Ég gerði athugasemd við þetta
og strákurinn sem að afgreiddi mig skoðaði diskinn og
sá einhvern miða á honum sem að sýndi að
þessi diskur ætti að vera á afsláttarborðinu.
#1815 Ég
fór í Bónus og Hagkaup áðan. Í
Bónus keypti ég heilan kjúkling frosinn, við frystirinn
stóð "HEILL
#1814 Vildi benda
á hlægilegt okur á N1 Hringbraut en þar
kostar 1L flaska
#1813 Vildi bara
benda fólki á að húsasmiðjan/blómaval
telur dót sem er
#1812 Mig langar
að segja frá einu dæmi sem gerði mig mjög reiða.
Sonur minn sem er eins árs fékk 3 eins bækur í
jólagjöf. Þær voru keyptar í Hagkaup, Bónus
og Office 1 og kostuðu alls staðar það sama. Við
ákváðum að skila öllum bókunum því
hann átti næstum eins bók. Í Hagkaup og
Bónus fengum við innlegg fyrir upphaflegri fjárhæð
1.690 en í Office 1 fengum við einungis 1.090 krónur
þar sem við vorum ekki með miðann ( en það
var skiptimiði á bókinni). Við ræddum
þetta við gefandann þá sagði hann okkur að
það hafi verið lagt hart að honum að setja miðann
í kassa því það yrði dreginn út
einn heppinn viðskiptavinur. Það er því
ekki nein leið til að líta á þetta öðruvísi
en sem glæp. Það er eitt sem víst er að
þarna verður ekki verslað aftur.
#1811 Ég
sendi um daginn email á 66°norður
vegna 50% hækkunar
hjá þeim á dúnúlpu frá því
í fyrra. Það sem ég fékk til baka var nú
frekar kómískt. Þar segir sjálfur forstjórinn
mér að með því að leggja saman 73% gengishækkun
og 17% verðbólgu væri hægt að réttlæta
100% hækkun og þau séu nú nokkuð góð
að hafa bara hækkað þetta um 50%. Það er
nú nokkuð ljóst að 73+17 eru náttúrulega
90 og það eru nú fáir sem myndu trúa því
að verðbólgan reiknist beint sem hækkun, hvað
þá að svona samlagningardæmi fyrir smákrakka
myndi ganga upp í svona aðstæðum. Er það
þá ekki hann sem er að blása í glóðir
verðbólgunnar? Mér fannst þetta kjánalegt
svar og hálfgerð móðgun við mig og auðvitað
aðra neytendur sem langar að styðja íslenska framleiðslu.
Ég fór svo og keypti mér Zo-On dúnúlpu
á "gamla verðinu" sem 66°norður eru orðnir of fínir
fyrir, og studdi þar með annað íslenskt fyrirtæki
sem gerir neytendum kleyft að kaupa vörur sínar, þrátt
fyrir árferðið.
#1810 Tengdarforeldrar
mínir gáfu mér rúmteppi frá Ilvu
í jólagjöf og staðgreiddu
#1809 Mig langar
að benda á að ekki eru allsstaðar raunverulegar verðlækkanir
í gangi þar sem verið er að auglýsa útsölur.
(03.01.09): #1808 Ég
rakst inn á síðuna abvarahlutir.is um daginn og
þar tók ég eftir að þeir gefa sig út
fyrir að vera “ódýrir” í bílavarahlutum.
Þegar ég fór að kanna málið þá
eru þeir með þeim dýrustu á markaðnum.
Ég þarf að skipta um tímareim, strekkjarahjól,
vatnsdælu og pakkdósir í Toyota Corolla ’93 árgerð
og verðmunurinn á N1 Bíldshöfða og AB-varahlutum
er nálægt 300%.
#1807 Langaði
að benda á lélega viðskiptahætti hjá
tveimur söluaðilum sem ég hef átt í viðskiptum
við. Mig hefur lengi langað að kaupa til heimilisins rjómasprautu
með gashylki, en þar sem þær eru frekar dýrar
þá hef ég ekki látið verða af því.
En ég hef fylgst með verðinu núna undanfarna 2 mánuði
og beðið eftir að þær fari á tilboð
eða lækki. Í nóvember s.l. auglýsti Húsasmiðjan
30% afslátt af allri búsáhaldavöru. Ég
vissi að rjómasprauta (hvít) var í kringum 7000
kr. þar deginum áður og ætlaði að nota tækifærið
og fá mér eitt stk. með þessum fína afslætti.
En viti menn verðið var komið yfir 10.000 á tilboðinu.
Í dag kostar hún um 8.000. Í desember þá
opnaði ný Nettó verslun í Grafarvogi og
þar fékkst sama rjómasprautan á 5.900. Ný
búð og nýtt verð á sprautunni gerir maður
ráð fyrir. Ég var búin að ákveða
að skella mér að kaupa hana fyrir jólin en var ekki
búin að því þegar tilboðsmiði kom
heim frá þeim þar sem þeir buðu alla sérvöru
með 30% afslætti og matvöru með 10% aflætti til
22. desember. Ég var alveg himinlifandi og rauk af stað og hvað
heldur þú – sprautan kostaði þá 8.900. Búið
að hækka um 3.000 þegar tilboðið tók gildi.
Þetta kalla ég hreint og klárt SVINDL. Sama rjómasprautan
kostaði 6.900 kr. í Hagkaupum milli jóla- og nýárs.
#1806 Kippa með
sex 250 ml kók flöskum á 1140 í 10 11 í
kópavogi þegar 2 lítra kók kostar 349 er hægt
að kalla þetta annað en græðgi og okur. Og þetta
var jólatilboð.
#1805 Í
byrjun desember gáði ég hvað Abba - Mamma mia DVD
diskurinn kostaði en þá var sama verð á honum
nánast alls staðar 2699-2799. Hagkaup og Skífan
voru t.d. með sama verð sem mig minnir að hafi verið 2699
frekar en 2799. Þegar stutt var til jóla ca. 10 dagar þá
var diskurinn kominn upp í 2999 kr í Hagkaup og Skífunni.
Ég fór m.a. í Hagkaup í Kringlunni og þar
var standur framarlega í búðinni með disknum og þar
stóð skýrum stöfum verð 2999 kr. Lækkað
verð, 3299, og srikað yfir 3299 kr.!!! Hvers konar viðskiptahættir
eru þetta? Ég spyr. Ég þarf varla að taka
það fram að ég hef ekki enn keypt diskinn:) Ég
stefni á að fylgjast með hvert verðið á disknum
verður núna strax eftir jól þegar fólk kemur
að skila og skipta, spurning hvort það hafi ekki lækkað?
#1804 Þar sem
ég vinn í verslun er maður með augun opin fyrir verði
í öðrum verslunum á vörum sem við seljum
þó einkum bókinni Förðun vegna þess
að verðið á henni breyttist mjög mikið hjá
okkur þ.e.a.s var alltaf að rokka upp og niður. En
í dag sá ég auglýsingu í Fréttablaðinu
um útsölu hjá Office 1 þar sem bókin
er sögð með 50% afsl. á 3.990 en kostaði áður
5.990 (sem er augsjáanlega ekki 50% afsl.) en það sem
ég var búin að fylgjast með þessu þá
hafði ég líka séð aðra auglýsingu
22.des í sama blaði frá Office 1 en þar er bókin
auglýst með 50% afslætti á 1.995 kostaði áður
3.990 (það er allavega réttur afsláttur) svo ég
velti fyrir mér hvað er rétta verðið á
þessari bók (mig minnir að hún hafi kostað
mest 4.200 hjá okkur) Ég er bara að spá í
það hvort það sé verið að fara illa
með fólk en ég segi bara það er eins gott að
fylgjast vel með.
#1803 Ég
fór í Heilsuhúsið í Kringlunni þann
19.des s.l. og keypti ýmislegt og þ.á.m. Ultra Omega
3-6-9, 90 hylki frá Natures Plus. Mér svelgdist á
þegar ég var rukkuð 3.456 kr. fyrir eina dollu en lét
mig hafa það þar sem ég tel mig þurfa á
þessu ofurvítamíni á að halda, enda námsmaður
sem þarf að virkja sellurnar.
#1802 Langar að
segja þér stutta sögu – verðsögu. Ég
var staddur í Pennanum í Hafnarstæti á
Akureyri rétt fyrir jólin sennilega 22. desember. Þegar
ég hafði náð í það sem mig vanhagaði
og var á leið að kassa gekk ég framhjá rekka
með prenthylkjum í bleksprautuprentara. Ég vissi að
það var stutt í að ég þyrfti að kaupa
litahylki (HP 344) og ætlaði að grípa eitt með.
Þegar ég sá verðið kallaði ég á
aðstoðarmann og spurði hvort þetta væri öruggleg
rétt verð, það stóð að hylkið kostaði
9560 krónur? Starfsmaðurinn leit á þetta og sagði
júbb þetta er rétt verð. Venjulega hafa þessi
hylki kostað á bilinu 2800-3800 í Tölvulistanum,
BT eða Office 1 svona eftir aðstæðum. Þá
sagði ég við manninn ,,vá ég hélt að
þetta væri verðið á öllum rekkanum ?”.
Maðurinn leit á mig eins og ég væri fífl
(sem getur svo sem vel verið að ég sé) og sagði
svona er ísland í dag”. Ég þakkaði fyrir
aðstoðina og hélt minn veg án þess að kaupa
blekið.
#1801 Mér
var algerlega misboðið eftir viðskipti mín við verslunina
Everest
þannig var að ég sá auglýsingu frá
þeim á netinu bretta-pakkatilboð og hringdi en var þá
sagt að varan væri ekki til lengur þetta var 15. des og
í dag 29. des er enn verið að auglýsa sama tilboð,jæja
ég panta samt pakka hjá þeim en borga 10000kr meira,
sölumaðurinn lýsti brettinu sem dökkbláu eða
svörtu með smá bleiku í og skórnir hvítir
no 38-39,þegar varan kemur í pósti til mín rétt
fyrir jól faldi ég hann án þess að opna(mistök)og
pakkaði síðan inn, þetta var jólapakki til
dóttur minnar, á aðfangadagskvöld kom síðan
í ljós að brettið var ljósblátt með
stórum bleikum blómum og svörtum uglum ekki alveg smekkur
15ára dóttur minnar og skórnir no35-36.Ég hringdi
í verslunina og segi frá þessu og var maðurinn
hinn almennilegasti segist ath málið síðan hringir
hans yfirmaður og segist ekki trúa að ég hafi fengið
þessa lýsingu ég sé að lýsa bretti
sem kosti um 30000 kr meira hann geti endurgreitt mér eða ég
keypt þetta bretti og borgað mismuninn ops jólagjöfin
orðin aðeins dýrari en ætlað var,þessi maður
sem sagði sig eiganda verslunarinnar bauð mér engan afslátt
eða neitt var virkilega dónalegur sagði fólk oft
reyna að fá dýrari vöru með því
að kenna versluninni um mistök,samt gat ég alveg lýst
brettinu og með skóna hafði hann enga skýringu hann
lét alveg í ljós að mér væri ekki
trúandi þegar ég sagði að í mínum
viðskiptum hefði eg ekki upplifað að vera ekki treyst sem
kúnna þá lét hann út úr sér:að
árið 2008 treysti maður ekki kúnnanum, hvað er
málið? Ég má semsagt endursenda jólagjöfina
og hann borgar mér til baka þegar varan er komin inn á
gólf til hans eins og hann orðaði það svo ég
verð að treysta honum og dóttir mín fær ekki
bretti í jólagjöf það munar um 30000kr í
viðbót á þessum tímum, eins og hún
var glöð. Ég gat nú ekki þagað yfir þessari
ömurlegu þjónustu og ummæli eigandans gagnvart
okkur neytendum til háborinnar skammar.
(02.01.09): #1800 Ég
er mikill sushi aðdáandi og keypti 40 bita veislubakka hjá
Sushismiðjunni
í
#1799 Ég
hef verið á níkótín tyggjói
í nokkurn tíma og hef reynt að versla það í
Lyfjaveri á Suðurlandsbraut þar sem Nikotinell 2 mg myntu
tyggjó stór kassi hefur kostað 4900 kr. Ég var
að versla í Kringlunni fyrir jólin og ætlaði
að kaupa tyggjó í apótekinu þar (Lyfju)
en pakkinn þar kostar 7900 kr. Þar var mér sagt að
um áramótin þá myndi allt níkótín
tyggjó hækka um 20% og að ekkert apótek megi vera
ódýrara semsagt eitt verð fyrir allt landið. Ég
fer með einn kassa á viku sem þýðir að
það er töluvert ódýrara fyrir mig að reykja
en að tyggja.
#1798 Við
hjúin ákváðum að halda upp á afmæli
mitt með því að fara á Ask á
Suðurlandsbraut. Þar var hægt að fá 3ja rétta
máltíð á 2990 kr. og hún var ansi vel útilátin.
Góður matur á góðu verði. Við fórum
mjög sátt og södd frá þeim. Takk fyrir okkur
Askur :)
(30.12.08): #1796 Office
one voru með jólabækur núna fyrir jólin
og meira að segja á 15% afslætti og sumir vinsælir
titlar voru seldir með 50% afslætti í nokkra daga og fannst
mér þetta frábært framtak í kreppunni.
Núna er Office hins vegar byrjaðir með útsölu
þar sem bækurnar eru "langflestar" með 35-50% afslætti
sem þýðir að ef ég keypti bók með
15% afslætti fyrir jól og gaf í jólagjöf
þá er hún búin að lækka um 20-35%
þegar sá sem ég gaf bókina ætlar að
skila henni.. Það væri svo sem kannski fyrirgefanlegt þar
sem sá hinn sami gæti fengið aðra bók á
35-50% afslætti en óheppni mín heldur áfram
þar sem ég bý á Akureyri og þar er búið
að fjarlægja "mjög marga" bókatitla og endursenda
til höfuðborgarinnar þannig úrvalið er af mjög
skornum skammti. Þetta finnst mér heldur skrítin vinnubrögð.
Skiptimiðinn á bókum gildir til 6.janúar og get
ég ekki séð af hverju þeir gátu ekki haldið
öllum þessum jólabókum í búðinni
þangað til þá, frekar en að lauma þeim
í burtu helgina eftir jól.
#1795
Fór á BSÍ á aðfangadag til að
taka forskot á jólgleðina og fékk mér 2
pylsur og kókómjólk fyrir þetta borgaði
ég yfir 800kr. Þá setja þessir miklu höfðingjar
30% álag um jólin. Þetta er sú grófasta
svívirða og dónaskapur gagnvart neytendum sem ég
hef nokkurn tíman séð. Svona sjoppur eiga allir að
sniðganga.
#1794
Nú eru verslanir að undirbúa ‘útsölur’. Ég
fékk göngubuxur í jólagjöf frá konunni
sem keyptar voru í Útilíf 20 desember. Buxurnar
voru of stórar og fór ég og skipti. Konan sagði
mér að buxurnar kostuðu 16.990 og er með kassakvittun
sem staðfestir það. Ég fór og fékk
eins buxur og bara einu númeri minni og á þeim stóð
16.990. Ég fór á kassan með buxurnar sem
ég var að skila og buxurnar sem ég tók í
staðinn og konan á kassanum skannaði gömlu buxurnar
inn og nýju buxurnar út, allt í einu voru báðar
buxurmar komnar í 18.990 2000 krónu hækkun, ss búnar
að hækka rétt fyrir ‘útsölu’. Það
sorglega er að þetta er ekki einsdæmi um hækkun rétt
áður en útsala eða tilboð fara í gang.
#1793
Ég þurfti að kaupa 5l brúsa á annan dag
á jólum. Þá var ekki mikið opið en mér
verður hugsað til bensínstöðva og bensínbrúsa.
Í Select í Breiðholtinu kostaði svona brúsi
3695 kr. En eftir smá leit finn ég nákvæmlega
sama brúsann í Select hjá Smáralindinni. Þar
kostaði hann 1295 kr.
#1792
Ég vildi bara minna á ósanngjarna gjaldtöku bankanna
á okkur vinnandi fólkinu. Við vitum þetta öll
en þetta á til að gleymast.
(29.12.08): #1791
IKEA "útsalan":
#1789
Var búið að nefna rúðupiss á síðunni?
Europris: 4 ltr 396, 100% hækkun á 6 mánuðum, en
bíddu bara ! Olís Norðlingaholti í gær
(annan jóladag) 2,5 ltr á 795, þetta var of mikið
fyrir mig, ég hætti við.
(26.12.08): #1788
Mig langar til að vekja athygli á gríðarlegum verðmuni
á blekhylkjum í Canon prentara. Ég á
Canon Pixma IP 4000 prentara og hef jafnan keypt blekhylki í hann
hjá Tölvulistanum þar sem þeir voru ávallt
ódýrastir eftir því sem ég hafði
reynt.
#1787
Ég ætla að byrja á því að lýsa
yfir óánægju minni og ofur-gremju með viðskipti
mín við Icelandair. Þeir voru svo elskulegir að
selja mér flugmiða frá Bretlandi til Íslands og
aftur til baka á litlar 58.340 íslenskar nýkrónur.
Það var vissulega hressandi að borga nærri sextíu
þúsund krónur fyrir miðann en svosum ekkert sem
ég mæli með. Þegar komið var inní vélina
mátti berja augum framtíðarlega afþreyjingar skjái
fyrir hvern farþega, en þegar betur var að gáð
voru þeir einungis þar til að sjúga aðeins fleiri
krónur útúr hinum fátæka farþega.
Þú getur hlustað á tónlist eða horft
á kvikmynd, borgar reyndar 400 krónur fyrir heyrnartól,
þú getur farið í Tetris, borgar reyndar 2000 krónur
fyrir stýripinna. Ef þú vilt leggja þig og halda
hita á þér, getur þú keypt rafmagnað
flísteppi og uppblásinn plastpúða á 800
krónur. Þvílík þægindi! Svo er ekki
boðið uppá mat í vélunum, en þú
getur keypt þér t.d. langloku á 600 króunur
og 330 ml bjór á 500 krónur. Frábært!
Ég hefði semsagt auðveldlega getað bætt 4300 krónum
(7%) ofan á hinn fokdýra miða með því
að nýta mér þjónustuna um borð. Svo
var 45 mínútna seinkun á brottför eftir að
komið var um borð og ég svo heppin að vera með tvær
litlar óþolinmóðar manneskjur í sætunum
fyrir aftan mig, sem mundu eftir því að sparka í
stólinn minn og gefa frá sér óp með reglulegu
millibili svona til að hressa upp á stemninguna. (Ekkert við
börnin að sakast). Ef boðið hefði verið uppá
(boðið uppá eins og í "ókeypis") t.d. barnaefni
og nasl fyrir hina ungu Íslendinga, hefði mátt minnka
gremju mína. En ekki eins og maður hafi mikið val – Iceland
Express eru ekki mikið ódýrari síðast þegar
ég athugaði. Húrra fyrir samkeppni! Var ekki örugglega
búið að borga Hannesi Smára allar starfslokagreiðslur?
#1786
Ég keypti myndavél stafræna í BT 11.01.2008,
ágæta myndavél. Nú er hún biluð,
annað hvort hleðslutækið, batteríið eða
myndavélin sjálf. Fór í BT í gær
áður en ábyrgðin dettur út. Viti menn, mér
er tjáð að ég hafi keypt þetta fyrir HRUN BT,
kominn nýr eigandi (Jón Ásgeir) og þeir beri
enga ábyrgð á tækjum og tólum sem keypt
voru fyrir eigandaskipti. Hvernig getur þetta staðist?
#1785
Ég var að skoða spil fyrir jólin - keypti Scrabble
og Partý spilið í BT á viðráðanlegu
verði. Ég sá hins vegar Partý extreme spilið
í Debenhams á kr. 7100 og fannst frekar dýrt - hef
alltaf talið að Debenhams væri með sanngjörn verð.
Í næstu búð við - Pennanum/Eymundsson sem ég
hef alltaf álitið okurbúllu kostaði sama spil kr.
5600. Í Hagkaupum kostaði þetta sama spil einungis kr.
4600. Það sem sló öllu út er búðin
sem ég taldi að ætti að vera ódýr leikfangaverslun
- Toys r us - en þeir voru að auglýsa 25% afslátt
sem mér fannst snilld. Þar var þetta sama spil á
kr. 10.990. Ég hefði sem sagt getað fengið 2 spil í
Hagkaup fyrir þetta verð! Allar aðrar vörur voru líka
miklu dýrari - þannig þrátt fyrir að reikna
25% afslátt þá var enn ódýrara í
Hagkaup þar sem enginn afsláttur var. Þetta gersamlega
sló öllu við og auðsýnilega fleiri búnir
að átta sig á þessu þar sem að þrátt
fyrir 25% afslátt þá var ekkert að gera í
búðinni!
#1784
Vinn í ráðuneyti og fékk eina rauðvín
og eina hvítvín í jólagjöf. Fór
í gær ÁTVR og skilaði en þá upphófst
mikið vesen. Starfsmaðurinn þurfti að finna út
"gamla verðið" og taka af mér flöskurnar á Því
verði en ég þurfti að kaupa á verði dagsins.
Er þetta hægt? Þetta er skv skipun fjármálaráuneytisins
til ÁTVR, starfsmennirnir kunna þeim litlar þakkir.
Vona bara að ég fái eðal-timburmenn af þessu
koníaki sem ég keypti dýrum dómum.
(23.12.08): #1783
Langaði bara að benda á meistarana í Laugarásvideo,
sem enn rukka 500 krónur fyrir leigu á mynd og verðið
hefur ekki breyst í mörg ár hjá þeim.
#1782
Ég má til með að benda á þá staðreynd
að það þarf ALLTAF skoða hilluverð þ.e
auglýst verð og bera svo saman við verð á kassa.
Ég var að versla í Nettó á Akureyri
súkkulaðibitakex sem er ekki með sykri heldur ávaxtasykri
og ætlað fyrir sykursjúka. Einn kexpakki á hilluverði
229kr. Ok ég ákvað að skella mér á
þetta og keypti nokkra pakka, en viti menn á kassanum kostaði
pakkinn 313. kr það gerir 84kr mismunur á hillu og kassa…84kr
væri í raun fínt verð fyrir einn kexpakka en ekki
313. og þar að auki þegar ég benti á mismuninn
þá þurfti ég að fara á annan kassa
til að fá leiðrétt…sem ég að sjálfsögðu
gerði.
#1781
Alveg er ótrúlegt hvað sumir reyna að okra á
viðskiftavinum sínum. Aðgangur að Bláa lóninu
var 1800 krónur síðasta vetur, (fram í Júní,
en þá hækkaði hann í 2400, sumargjald !).
En núna, frá fyrsta Okt. kostar 2800 krónur (vetrargjald)
að dýfa tánum í dýrðina, þetta
er hækkun uppá 50 - 60 % . Ekki er gefinn neinn afsláttur,
þótt að framkvæmdir hafi staðið yfir í
lóninu, gestum til óþæginda.
#1780
Ég var að koma úr Kaupþingi í Árbænum
þar sem ég ætlaði að nýta mér
að kaupa gjafakort handa þremur börnum fyrir 2ooo krónur
á hvert kort. Mjög sniðugt, ég beið í
tuttugu mínútur eftir afgreiðslu, svo kom röðin
loksins að mér og afgreiðslukonan fer að ná í
3 kort og skrifar 2000 á hvert spjald undir kortið. Svo
spyr hún hvort ég sé í viðskiptum við
bankann. Ég sagði að svo væri ekki og þá
breyttist nú allt saman, ég skyldi gjöra svo vel að
borga aukalega 450 krónur fyrir hvert kort aukalega, semsagt 1350
krónur kostaði það mig að kaupa þessi blessuðu
kort. Ég sagðist bara myndi finna einhvern sem væri
í viðskiptum við bankann til að kaupa fyrir mig kortin.
Auðvitað ætla ég ekki að gera það því
ég skipti við svona peningaplokkara. Það sem
hefði átt að kosta mig 6000 krónur hefði þá
orðið 7350 krónur.
#1779
Ég er einn af þeim sem framkalla ennþá myndir
og geri mikið af því. Ég er vanur að fara með
myndirnar til Hans Petersen en um daginn rakst konan mín á
fyrirtækið Ljósprent á Garðatorgi Garðabæ.
Þar var tilboð 29 kr. myndin þ.e.a.s. 200 eða fleiri.
Hún ákvað að prófa og var mjög ánægð
með myndirnar þó að þjónustan væri
ekkert til að hrópa húrra fyrir. Svo núna fyrir
jólin fór ég aftur og lét framkalla nýjan
búnka og lenti þá í því að
bæði stóðst ekki tíminn sem þetta átti
að taka og svo týndust myndirnar og eftir nokkrar ferðir
í Garðabæinn (ekkert í leiðinni fyrir mig)
fékk ég myndirnar. Ég ákvað svo að
fá 5 af þessum myndum framkallaðar aftur og fór
því af stað aftur.
#1778
Mig langar að segja ykkur frá leið minni í Húsasmiðjuna.
Ég fór þangað einn daginn og sá þar
flottann útigalla á son minn,góður galli á
3990 kr. Ákvað að kaupa gallann 4 dögum seinna og fór
þá aftur í Húsasmiðjuna,og á þessum
4 dögum var gallinn búinn að hækka í 8999
kr.... ég gekk út og tók ekki þátt í
þessu rugli.
#1777
Vildi koma því á framfæri okrinu í Hagkaup
Lítill blár Robot kall kosta 2499 í Hagkaup í
Smáralind,en klukkustund síðar kostar hann 3999 kr í
Hagkaup Skeifunni. Tomy nætur ljós barna er verð merkt
1389 kr á hillumiða í Hagkaup í Smáralind,
en kostar klst síðar 3999 kr í Hagkaup í Skeifunni.
#1776
Tekið af visir.is:
#1775
Mig langað að benda á Ótrúlega þjónustu
sem við hjónin fengum hjá Skíðaþjónustunni
á Akureyri um helgina sem leið, Þann 20 des sennilega
kl 5
#1774
Ég lagði leið mína í Lífland
á föstudaginn var til að kaupa smá jólagjöf
handa heimasætunni. Ég sá voða hentugan bleikan
burstakassa með bleikum burstum, ofsalega heppilegt og vinsælt
þegar maður er þriggja ára. En hvað um það,
ég skoðaði þetta vel og vandlega, og fannst heldur
mikið að reiða fram 3.990.- krónur fyrir herlegheitin
og fór því út. Næst lá leið
mín í
Hestar og menn í Ögurhvarfi, og
viti menn, þar var til samskonar kassi og í Líflandi,
nema í Hestar og menn kostaði hann 2.750.- alveg sami kassi,
alveg sama innihald!!! Það þarf nú varla að
taka það fram að bleiki burstakassinn úr Hestar og
menn fór með heim og bíður nú eftir að
jólapappírinn verði rifinn utan af sér á
aðfangadag.
Veistu um svakalegt okur? Láttu vita! |