OKUR! OKUR! OKUR!
Hér eru birt okurdæmi frá lesendum.


#70    Kíkið á þennan verðmun á Dellvélum: Danmörk / EJS. (Athugasemd: Tók eftir því að EJS er búið að taka út (amk eins og er) allar Dell Inspiron fartölvur, þ.m.t. þá sem þú vísaðir á í samanburði við Dell Danmörku. Þeirra svar er semsagt ekki útskýring, ekki verðlækkun, heldur að hætta að birta verð svo við getum ekki lengur borið saman verðin hjá þeim og öðrum.)

#69    Draugasetrið á Stokkseyri: 1500 kr. Álfa-, trölla- og norðurljósasafnið á Stokkseyri: annar 1500 kall. Bjór á Draugabarnum á Stokkseyri: 700 kr. Breezer á Draugabarnum á Stokkseyri: 900 kr. Hringja í félaga þinn nokkrar hringingar talhólfið tekur við (enginn svarar) 35 kr. Taxi frá Hveragerði til Draugabarsins á Stokkseyri: 6.000 kr (dýrt kvöld)

#68    Talandi um okur!!!!Barnabílstólar eru ekki með neina tolla og engin vörugjöld,,,,,keypti fyrir nokkrum árum sessu með baki í gegnum tryggingafélag kostaði mig 13.000 kr. Ok alltilagi þetta er öryggi barnsins mín!!!...Fór til Ameríku í vetur og þar get ég keypt 4 stk fyrir sama pening  af sömu sessuni með sömu stöðlum og krafist er hér ....þessi tiltekna sessa fæst hjá Ólivíu og oliver og heitir Graco Rallysport / Logico L  Hmm!!! Verð 12.600. Staðgr. 11.970..þetta er rán!!!

#67    Sjoppan í Hagkaup Smáralind – Eldspýtustokkur: 99 kr.    OKUR!

#66    Weleda jurtate 940 kr í Lyf og heilsa, 830 kr í Heilsuhúsinu, 300 krónur í smásölu víðast hvar í Þýskalandi (þar sem teið er framleitt)     OKUR!

#65     Verslaði í dag daglinsur Focus Dailies 90 stk í pakka á kr. 6.500 hjá Geisla gleraugnabúð á Akureyri. Sami pakki kostar 33.99 dollara í USA eða 2.108 kr. Mismunurinn er 4.392 kr.! Þetta er ófyrirgefnalegt okur!! (nb. Við getum tekið nánast öll verð í USA og borið saman við verð hérlendis og fáum okur út úr því öllu. Stundum eru verðin stimpluð á hlutina svo við sjáum okrið svart á hvítu. Til dæmis á Wrigleys tyggjópakka sem kostar 77 kr í Nóatúni stendur 30 cent. Ég hef því ákveðið að svona samburðardæmi Ís/Us þurfa framvegis að vera ansi hrikaleg til að fá hér inni.)

#64    Levis búðin – Levis 513 svartar Skinny Jeans: 14.600 kr. Var að kaupa sömu buxur í Kansas City á $56 (eða 3.472 krónur miðað við 62 krónu gengi). Hvílík og önnur eins græðgi og hjá íslenskum verslunarmönnum fyrirfinnst ekki annarstaðar.

#63    Þetta á við um allflestar tölvubúðir og raftækjabúðir! Ég hef unnið í tveim stórum keðjum og þar sem starfsmenn fá hluti á nánast kostnaðarverði fékk ég 80-90% afslátt af öllum köplum og allskonar smádóti fyrir tölvur og raftæki. Dæmi: Hreinsiklútar 790kr. Fékk þetta á 113 kr með starfsmannaafslætti. Annað dæmi: Keypti rafmagnskapal sem átti að kosta 490 kr. Fékk hann gefins því að þeir nenntu ekki að slá það inn. Tók því ekki. Hvað segir það okkur um raunvirði??? Kaupið kapla og annað smádót að utan og ekkert rugl. Það er verið að hössla ykkur feitt. (Athugasemd: Ég hef margra ára reynslu af þessum bransa og hef unnið í betri verslunum hans. Kaplar, snúrur og tengi í hljóð, sjónvarps og tölvu geiranum eru "high marginal products" ALLSSTAÐAR í heiminum... snúrur af bestu gerð eru oftast með framlegð um 50-70% og lægri gæðaflokkar oft í allt að 90% þetta fer mikið eftir framleiðendum og þetta á við um öll lönd enda senda framleiðendur verðhugmyndir (MSRP) fyrir hvert og eitt land. Þetta er ekki bara "okur" á íslandi. Það myndi enginn nenna að selja snúrur einhversstaðar rétt yfir kostnaðarverði, þetta eru viðskipti en ekki góðgerðarstarfsemi.) (Athugasemd 2: Þetta á einnig við um blek í prentara.....prentarar eru seldir nánast undir framleiðsluverði af framleiðanda en síðan er blekið selt með hundruðum prósenta í álagningu. Í sumum tilfellum myndi ég skoða grannt hvort ekki borgi sig hreinlega að henda prentaranum og kaupa nýjann í stað þess að kaupa blekáfyllingu.) (Athugasemd 2: Þetta á einnig við um blek í prentara.....prentarar eru seldir nánast undir framleiðsluverði af framleiðanda en síðan er blekið selt með hundruðum prósenta í álagningu. Í sumum tilfellum myndi ég skoða grannt hvort ekki borgi sig hreinlega að henda prentaranum og kaupa nýjann í stað þess að kaupa blekáfyllingu.)

#62    Hótel Borg – Lítill Thule bjór: 750 kr. Ég var búin að drekka fjóra þegar reikningurinn kom. 3000 krónur fyrir fjóra litla bjóra.     OKUR!

#61    Ef pantaður er 1 stk. geisladiskur að utan (þessa dagana fæst nánast engin tónlist í plötubúðum á Íslandi, þ.a. það er ekkert "val"), sem kostar frá
Amazon ca. 1.000 kr. er lagður ofan á það 24,5% virðisaukaskattur (eða var það 14%?) + eitthvað smá vörugjald, þ.a. eðlilega ætti hann að kosta ca.
1.300-1.500 kr. En nei, ofan á það er lagt UMSÝSLUGJALD, sem er ca. 400-500 kr., þ.e. 40-50% álag fyrir...tja, you tell me!    OKUR! (nb. Umsýslugjald? Það hlýtur að vera fyrir umsýslu, er þaggi?!)    (Athugasemd: Geisladiskur keyptur af netinu ber 7% virðisauka. Fyrst þarf að greiða sendingarkostnað og toll (10% ef keypt er frá USA, 0% ef frá Evrópusambandinu) og reiknast svo vsk. ofan á vöruverð +sendingarkostnað+toll. Ofan á það leggst svo tollmiðlaragjald sem er yfirleitt um 450 kr. Ég var að skoða tollur.is og átti í erfiðleikum að finna samanburð á verði hjá tollmiðlurum eða hverjir þessir tollmiðlarar væru. Það sér það hver maður að ekki borgar sig að kaupa aðeins einn geisladisk í einu því tollmiðlaragjaldið ætti ekki að hækka þó geisladiskum fjölgi um óhóflegt magn. Svo borgar sig ekki að kaupa plötur frá USA því þær bera 10% toll, Nema þær séu töluvert ódýrari en plötur frá evrópu. Besta og ódýrasta leiðin til að eignast tónlist löglega er að kaupa þær rafrænt því þá borgar maður enga skatta, enga tolla og ekkert flutningsgjald (nema þú hafir takmarkað niðurhal). Megnið af kaupverðinu rennur til útgefanda og tónlistarmanns, tónlistin er sú sama og allir eru gríðarlega hamingjusamir.)

#60    Pítan, Skipholti – Viltu bæta einni skinkusneið í pítuna eða á hamborgarann? Það gera 125 krónur aukalega takk fyrir.     OKUR!

#59     Elko – Samsung 40'' LE40M86BDX LCD sjónvarp: 319.995 kr. (Sama tæki í Elkjöp, Noregi á 165.325 kr.)    OKUR!

#58     Sporthúsið –  Lítill hengilás: 750 kr. (sami hengilás í Europris 150 kr, verðmunur 500%!!!)     OKUR!

#57    Ég hef undanfarið borið saman verð á flatskjáum hérlendis og í Danmörku og hneykslast verulega á niðurstöðunum. Hér á landi er tollur 7,5% og vörugjald 25% sem margfaldað gefur um 34% álag áður en kemur að vsk.  Ég veit ekki hver innflutningsgjöldin eru í Danmörku en vsk er sá sami.

Dæmi: (eitt vinsælasta Plasma tækið)
37" Panasonic TH37-PV70, 10. kynslóð af Plasma skjám frá Panasonic: God Pris í DK 8.999 / BT 209.000 kr. Verðmunur 98%    OKUR !

#56    Var nýverið í NY, er með nokkur okurdæmi tengd Apple IMC hérlendis :
MacBook Pro (ódýrasta útgáfa)
    Apple Store Manhattan: 2159 $ (með skatti) = 133.815 ISK
    Apple IMC á Íslandi:   209.990 ISK (60 % verðmunur)

MacBook (ódýrasta útgáfa)
    Apple Store Manhattan: 1186 $ (með skatti) = 73.508 ISK
    Apple IMC á Íslandi : 119.990 (63% verðmunur)

MacMini (ódýrasta útgáfa)
    Apple Store Manhattan : 647 $ (með skatti) = 40.040 ISK
    Apple IMC á Íslandi : 64.990 ISK (62% verðmunur)

#55    Nota jafnan Clinique Body Wash og keypti það síðast í fyrra. Þá kostaði það rúmar 1.600 krónur. Núna kostaði það ríflega 2.400 í snyrtivörudeild Hagkaupa. Ég spurði afgreiðslustúlkuna hvernig staðið gæti á þessari gífurlegu hækkun á stuttum tíma. Hún sagði að snyrtivörur hefðu hækkað mikið þegar matvælaverðið lækkaði. Það var nefnilega það! Þeir lækka matarverðið en bæta sér upp þá lækkun með því að hækka snyrtivörurnar!!!

#54    Ég og konan fórum nýlega út að borða á Hereford steikhús, sem er svo sem ekkert dýrara en gengur og gerist hér á landi. En áhugavert er að bera saman prísana á Hereford í Danmörku mv. hér á landi. Þriggja rétta máltið er 47% dýrari hér á landi en sambærileg máltíð í Danmörku! Verð samt að taka það fram að maturinn og þjónustan á Hereford var mjög góð. Sjá eftirfarandi samantekt (Sölugengi DKK 27.09.07: 11.7 ISK):

Upphæðir í ISK (samkvæmt matseðli Hereford á netinu í DK og IS 20.08.07):
Danmörk - Ísland - Mism. - Mism. %
Forréttur: Hvítlauksristaðir sníglar: 1.030 - 1.390 - 360 - 35,0%
Aðalréttur: Nautafillé 200 g: 2.317 - 3.490 - 1.173 - 50,7%
Eftirréttur: Vaniluís með súkkulaðisósu: 725 - 1.100 - 375 - 51,6%
Samtals: 4.072 - 5.980 - 1.908 - 46,9%

Matseðillinn á Íslandi er 47% dýrari en í Danmörku! Er það eðlilegt? Og afhverju er það þá eðlilegt?

#53    Hér kemur smá dæmi sem snýr að kostnaði þeirra sem nota þjónustu Landsbankans (og sennilega annarra banka) við að stofna og greiða kröfur (greiðsluseðla) vegna seldrar vöru eða þjónustu. Að stofna kröfu í bankanum kostar 40 kr. (rennur til bankans) Þegar krafan (greiðsluseðillinn) er greidd af kaupanda kostar það 75 kr. (rennur til Reiknistofu bankanna) Þetta eru 115 kr. á hverja kröfu (greiðsluseðil) fyrir að halda utan um stöðu kröfunnar í bankanum.
Ef varan sem seld er kostar t.d. 1200 kr. (gæti verið bók í neon bókaklúbbi Bjarts 1180 kr.), þá er bankinn að hirða næstum því 10% af bókinni. Til samanburðar ef varan væri greidd með krítarkorti væri kostnaður seljanda "bara" 2 til 3 % (innan við 40 kr). Vara, þar sem greiðsluseðill er notaður sem greiðsluform, þarf að kosta allt að 5000 kr. til að kostnaðurinn við kröfuna (greiðsluseðilinn) verði sambærilegur við krítarkort (2-3% af vöruverði). Ef varan kostar hins vegar 60.000 kr. (gæti verið afborgun af láni, bíl eða öðru álíka), þá er þetta tæplega 0.2% af upphæðinni. Svo er þetta okur eða ekki? ATH að þetta er bara stofnun og greiðsla kröfunnar. Ekki prentun og útsending seðilsins. Seljandi stofnar kröfuna í eigin fyrirtækjabanka á netinu og ef kaupandi greiðir í sínum heimabanka á netinu, þá er þetta 115 kr. fyrir hlut sem er algjörlega rafrænn og enginn kemur nálægt í bönkunum nema tölvurnar! OKUR!

#52    Tónlistarskóli FÍH – Að taka 5.stig: 130.000 kr. og fer sú tala hækkandi við hærri stig. Þori ekki að fara með það en held það kostaði 40.000 fyrir ekki svo mörgum árum...    OKUR!

#51    Mötuneyti Eimskips – 1 stk brauðsneið: 130 kr.    OKUR!

#50    Sekt við að vera á eineygðum bíl: 7500 kr. Er þetta ekki einum of gróft?

#49    Útskriftargjöld. Dæmi: Mastercard rukkar 280 kr. í "útskriftargjald" fyrir hvern greiðsluseðil sem sendur er til viðskiptavina. En ef ég set kortið í beingreiðslur til að losna undan þessu okri þá er ég rukkaður um 120 kr. í "skuldfærslugjald" í staðinn! Ég þarf að borga fyrir að fá að borga reikningana mína!    OKUR!

#48    Langtíma einokunarstæði Securitas í Leifsstoð: bíll í stæði í rétt rúma 4 sólarhringa: 3.000 kr.    OKUR!

#47    ÁTVR – Stroh 40%: 5090 kr.    OKUR! (eins og yfirleitt allt í Átvr!)

#46    10-11 á Hverfisgötu, Rvk – Starbucks kaffi, lítill poki: 1299 kr. OKUR! (nb. Hér held ég að sé kominn tími til að loka á okurdæmi úr 10-11 enda ljóst að þú ferð ekki þangað inn nema í hallæri og til að láta okra á þér.)

#45    Café Paris – Pepsí í flösku: 350 kr, Sódavatnsglas: 300 kr.     OKUR!

#44    A. Hansen, Hfn – Egils Premium úr krana: 700 kr. (fyrir rúmu ári fengust 2 bjórar á 500kr. WTF mate!?)    OKUR!     (Athugasemd: Verð að benda þér á það að flest allir staðir á höfuðborgarsvæðinu selja venjulegann bjór (víking, gull ofrv.) á 600+. A.Hansen í hfj. býður upp á 4 tegundir af bjór og er sá ódýrasti (gull) á 500 kr. alla daga nema fimmtudaga þá er hann á 350. tuborg og lite eru á 600 og premium á 700 nema á fimmtudögum þá lækka þeir um 150 minnir mig. Það er fáránlegt að taka fyrir dýrustu bjórtegundina af því sem til er af öllum bjórnum sem er til sölu á einum stað þegar þú getur keypt bjórinn þar ódýrari en á flest öllum öðrum stöðum á höfuðborgarsvæðinu. Ég hélt að þetta væri til að fólk sniðgangi staði sem eru dýrari en aðrir. Ekki það að ég verji sérstaklega verð á bjór á börum á Íslandi, en þar held ég að það sé ríkinu meira að kenna í þessu dæmi en vertanum.)

#43    Momentum, Rvk – fagleg innheimta: hryllingsokursögu má lesa hér.

#42    Einangrunarstöð Reykjanesbæjar – 28 daga einangrunarvist fyrir labrador hund: 250.000 kr. (140% hækkun á þeirri þjónustu frá því að þetta fyrirtæki fékk einokun á markaðnum fyrir einu og hálfu ári síðan, en þá var stöðinni í Hrísey lokað. Daggjaldið er nú svipað eða hærra en daggjald á vistheimili aldraðra.)    OKUR!

#41    Sunnubúðin Rvk – Barilla pesto, lítil dolla: 520 kr.    OKUR!

#40    Icelandair þotur – lítill bjór: 400 kr. (varð þorstaheftur)    OKUR!

#39    BYR sparisjóður (og sjálfssagt allir aðrir bankar) – skuldabréfaafborgun sem var greidd 41 degi á eftir gjalddaga. Afborganir og vextir til greiðslu skv. greiðsluseðili voru kr. 14.060. Áfallnir dráttarvextir kr. 386, en síðan kemur OKRIÐ. BYR innheimtir annan kostnað kr. 3.250 og vanskilagjald kr. 1.970, samtals 5.220 kr. fyrir að senda út tvö bréf í almennum pósti (Tilkynningu um vanskil og hótun um innheimtu).    SVÍVIRÐILEGT OKUR! (Takk fyrir einkavæðinguna!)

#38    Vodafone – farsími w880i: 45.900 kr. á "tilboðsverði". (sama týpa kostar 34.900 í Símanum)    OKUR! #38    (Athugasemd: Nú er síminn kominn á tilboðsverð hjá Vodafone: 39.900 kr.)

#37    10-11, Setbergi, Hfn – Ben & Jerry's one pint dós: 844 kr.    OKUR! (fæst á 498 í Bónus)

#36    Flensborgarskólinn, Hfj – 250 ml af Sól safa: 250 kr. OKUR á fátækum námsmönnum!

#35    Austur-indían fjelagið, Rvk – hrísgrjón: 550 kr.     OKUR!

#34    Te og Kaffi, Egilsstöðum – Túnfiskbeygla: 900 kr.    OKUR!

#33    Bakaríið við brúnna, Akureyri – Ein Ostsneið á brauðið: 100 kr.    OKUR!

#32    Skjöldólfsstaðir, Egilsstaðir – líterinn af 95 okt bensíni: 130,20 kr.    OKUR!

#31    Leifsstöð – Hálfur lítri af kók: 350 kr. + hálf flatkaka með hangikéti: 350 kr.    OKUR!   (Athugasemd 1: Okkur þykur leitt að sjá hátt verðlag en það þarf nú samt ekki að vera hærri en það er. Hjá okkur í Veitingadeild IGS í Leifsstöð er 1/2 l af kók á 235kr og flatkökur m/hangikjeti á 210kr en ekki 350 kr hvort stykkið eins og þú getur til um.) (Athugasemd 2: Ég sá að það var leiðrétt verð á ½ kók og ½ flatkaka í Leirsstöð. Ég verð að leiðrétta þetta aftur. Ég fór erlendis 7.ágúst síðastliðinn og keypti mér þetta tvennt og var rukkaður um 700 krónur. Ég labbaði aftur inn til að athuga hvort þetta gæti verið rétt. Og viti menn..............það var rétt!! Flatkakan kostaði 350 kr. og þar sem ég er nú frekar sleipur í stærðfræði þá tók ég 700 kr., dró frá 350 kr. og fékk 350 kr. fyrir kókina!!!! Eða er það ekki rétt? Það hlýtur að vera sama stærðfræðin núna og þegar ég var í skóla fyrir 10 árum. Og fyrir utan það að þá var þetta alls ekki það dýrasta þarna inni og þess vegna keypti ég þetta. Ætti ég að fara í mál við Leifsstöð?)

#30    Íslenskir bankar – 13 kr. í hvert skipti sem þú notar debet kortið þitt og merkilegt nokk eru allir með sömu verðskrá.    OKUR!

#29    Flugterían, Akureyrarflugvelli – Langloka með pepperoni: 690 kr.    OKUR! (Athugasemd af heimasíðu Jens Guð: Dr.  Gunni hefur tekið saman lista yfir okurverð á vörum og þjónustu hérlendis.  Listann birtir hann á bloggsíðu sinni.  Þetta er þarft uppátæki sem að vakið hefur vakið verðskuldaða athygli,  meðal annars í fjölmiðlum.  Ekki er þó allt sem sýnist.  Þegar ég var áðan á Akureyrarflugvelli hitti ég Tómas frænda minn Hallgrímsson.  Hann vinnur hjá Hertz og leigir út bíla handa flugfarþegum. Tómas er afar ósáttur við að í samantekt Dr.  Gunna yfir okur er tiltekið að langloka í flugteríunni kosti 690 kall.  Þarna er verið að bera saman epli og vínber.  Dr.  Gunni leggur langlokuna á flugteríunni saman við hefðbundna pepperóni langloku frá Sóma eða hvað þau fyrirtæki heita sem að framleiða langlokur og samlokur fyrir sjoppur og matvöruverslanir. Tómas vill meina að langlokuna umræddu í flugteríunni eigi að bera saman við Hlölla-báta eða Nonna-báta.  Þetta er matmikill "bátur" hlaðinn allrahanda grænmeti,  tvöföldum skammti af osti og allskonar góðgæti ásamt pepperóni.  Afgreiddur heitur og að margra mati einn veglegasti og bragðbesti "bátur" sem býðst hérlendis og víðar.  Ég smakkaði svona bát í flugteríunni í fyrra og get vottað að hann er í öðrum og hærri gæðaflokki en sjoppu-langlokur.)

#28    Elko, Rvk – Samsung 46" LCD Sjonvarp LE46M86BDX: 419.995 kr. (241.000 kr dýrara en í danskri netverslun, sjá mynd.)    OKUR!

#27    Sony Center, Kringlunni – Sony Bravia 40” LCD sjónvarp, KDL-40W2000: 329.000 kr. (Kostar 14000 dk í Bilka, þú græðir 100.000 kall að fljúga til Danmerkur og borga yfirvigtina og tollinn!)    OKUR!

#26    Apótekarinn Nóatúni ofl. staðir – Nikotinell 4 mg 204 stk, fruit: 5675 kr – OKUR!. (Sama vara fæst í apóteki Árbæjar, Hraunbæ, á 4098 kr.)

#25    Askur, Rvk – hádegishlaðborð: 1.690 kr. (var 1.290 kr. fyrir vsk. breytinguna, en HÆKKAÐI þegar vsk. lækkaði!)    OKUR!

#24    Dæmi af Leigulistanum: 50 fm stúdíóíbúð við Vatnsstíg = 140.000 kr á mánuði / 10 fm herbergi við Fellsmúla = 65.000 kr / 27 fm stúdíóíbúð við Síðumúla = 90.000 kr.     OKUR!

#23    10-11, Hjallabrekku – 5 stk Sensor rakvélablöð: 1090 kr og 8 stk Mac3: 1990 kr.    OKUR!

#22    Culiacan í Smáranum – geturðu sett smá meiri salsasósu á burritóið?: já, það eru 100 kr auka!    OKUR!

#21    Jóa Fel, Rvk – hvítlauksbaguette með nokkrum olífum ofan á: 650 kr.    OKUR!

#20    Hrólfskálamelur, Seltjarnarfokkingnes – 3 herbergja íbúð: 77.100.000 kr.    OKUR!

#19    Samkaup Strax, Keflavík – kartöflur 1 kg.:  299 kr.    OKUR!

#18    Pétursbúð við Ægisgötu – Soyamjólk 1 lítri: 300 kr.    OKUR!

#17    Flugvöllurinn á Egilsstöðum – Hálft langlokubrauð með grænmeti og skinku eða spægipylsu: 500 kr.    OKUR!

#16    Pizza Hut, Reykjavík – stór pizza supreme með osti í köntum:  3.840 kr.    OKUR!

#15    Staðarskáli í Hrútafirði – að fá kokteilsósu á pylsuna sína: 100 kr.    OKUR!

#14    Brú í Hrútafirði – Ein kleina: 170 kr.    OKUR!

#13    Te & Kaffi, Eymundsson, Akranesi – súkkulaðibitakaka: 200 kr. (sambærileg kaka kostar 69 kr. á Subway)    OKUR!

#12    10-11, Eggertsgötu – svartur Ópal sykurlaus: 329 kr.    OKUR!

#11    Le Rendez-vous restaurant, Reykjavík – salatdiskur: 2700 kr.    OKUR!

#10    Markið, Reykjavík – minnsta rafhlaða fyrir hraðamæli á reiðhjól: 700 kr. (mælirinn kostar kr.1.900)  OKUR!

#9    Café Conditori, Reykjavík – Sól ávaxtasafi, 250 ml.: 220 kr. (það gerir 880 kr fyrir 1 lítra)    OKUR!

#8    Vöruval, Vestmannaeyjum – minnsta grasker í heimi: 2040 kr.     OKUR!

#7    10-11, Reykjavík – Sól appelsínusafi 1 lítri: 419 kr.     OKUR!

#6    Súfistinn, Reykjavík – Lítil kók í gleri: 300 kr.     OKUR!

#5    Thorvaldsen, Reykjavík – stór bjór: 750 kr.     OKUR!

#4    101 bar, Reykjavík – stór bjór: 790 kr.     OKUR!

#3    Hálendismiðstöðin, Hrauneyjum – Núðlusúpa í pakka: 300 kr.     OKUR!

#2    Great Wall Restaurant, Reykjavík – Lítil kók í gleri: 350 kr.     OKUR!

#1    Sjoppan á Þingvöllum – Pönnukaka upprúlluð með sykri: 170 kr.    OKUR!

Veistu um skefjalaust og svívirðilegt okur? Láttu vita!