(26.02.09):
#2004 Ég
átti leið hjá bókabúðinni Office 1
á Reykjarvíkurveginum, keypti þar blek í Canon
ip 5300 prentara sem kostaði 2.490kr. Í búðinni við
hliðina á því, Tölvulistinn, athugaði
ég með sama blekið þar og það kostaði
1.990kr. Þarna er 500 króna verðmunur á vörum
og búðirnar standa hlið við hlið. Spurningin er
sú er þetta leyfilegt?
(Nb. Já, það er víst. Munurinn mætti
meira að segja vera 50.000 kall. Frjáls álagning heitir
þetta víst. Svo erða bara kúnninn sem verður
að passa sig.)
#2003 Ég
bara verð að láta vita af þessu. um daginn var ég
í vinnu og varð orðin frekar svöng og þar sem
ég fæ ekki matartíma þá ákvað
ég að stökkva inn í Valgeirsbakari í Njarðvík
í til að kaupa mér eitthvað sem ég gæti
skellt í mig með hraði. Ég fæ mér rúnstykki
með skinku og osti og svala og borga fyrir það 245.- ekkert
að því, en ég var orðin svo svöng að
þetta dugði mér ekki og þar sem ég var a
ferðinni og átti leið framhjá Nýja bakarí
í Keflavík þá fór ég þangað
inn til að kaupa mér annað rúnstykki með sama
áleggi en þar borga ég 350.-!!! það munaði
105.- og ég keytpi ekki svala í það skiptið.
Ég ræð öllum frá því að
skipta við Nýja bakaríð í Keflavík
og snúa sér til Valgeirs.
Erna Sigrún
#2002 Verð
á Bensínstöðvum. Ekki mikið okur en smá.
Hjá fyrirtækinu sem ég starfa hjá höfum
við sölumenn kort frá öllum
olíufélögunum, Shell, Olís og N1. Frá
því að bankakreppan skall á höfum við
farið yfir og borið saman hvað vörurnar sem við
kaupum kosta okkur og hefur
komið í ljós að Olís er oftast dýrast,
ekkert okur en oftast nær dýrast.
T.d. algengustu tegundir af sígarettum kosta 730 kr hjá
Olís en 725 hjá N1 og Shell.
Kókómjólk kostar 110 hjá Olís en
109 hjá N1 og Shell
½ lítri af gosi kostar 190 hjá Olís en
185 hjá N1 og Shell.
Þetta eru bara örfá dæmi um verð.
Tek það fram að verðinn hjá þeim breytast
mjög hratt þannig að eitthvað af
þessum verðum gætu hafa breyst frá því
seinast.
Ef þú hefur tök á því að
láta taka verðkönnun á þessum fyrirtækjum
þá væri það
mjög fróðlegt.
Að lokum vil ég þakka þér fyrir þennan
vef.
Ein sem óskar nafnleyndar.
(Nb. Jú það mætti tékka á því
við tækifæri. Mér finnst samt óþarfi
að styrkja þessi pleis mikið nema fyrir bensín og
þess háttar.)
#2001 Plastdrasl
á eyrna-hitamæli. Ég keypti svona glærar plasthlífar
á Braun eyrna-hitamælir í Lyf og heilsa í
JL húsinu.
Rúmar 1700kr. fyrir plastdraslið. Þetta eru 40 stk
og mér hefði orðið illt af því að borga
400kr. en í þetta skiptið varð mér hreinlega
flökurt af okrinu. Hundómerkilegt, einnota plastdrasl sem kostar
smáaura að búa til. Ég fæ hundrað PÖR
af einnota hönskum fyrir minni pening.
Mér datt náttúrulega ekki í hug að
kaupa rafhlöðu í tækið þarna…
Baldvin Björgvinsson
#2000 Fór
í 1011 í gær og ætlaði að kaupa mér
Hersey's
súkkulaði og sá þá að
það kostaði 310 kr. og hætti því snarlega
við. Þegar heim var komið
datt mér í hug að athuga hvort væri hægt
að kaupa kassa af Hersey's á
internetinu. Viti menn ég fann það og komið til
landsins með Fed-Ex
kostaði stikkið 220 kr. Það ber að athuga að
þar af er Fed-Ex
flutningskostnaðurinn 60% af vöruverðinu og búið
að taka tillit til
vsk og tolla.
Björn
(25.02.09):
#1999 Þú
er nú líklega mest að fjalla um okur
en mig langar samt til að vekja athygli á nýju majonesi
í Bónus, merkt þeim
mér finnst umbúðirnar svo sláandi líkar
Gunnars majonesi.
Rauður sporöskjulaga hringur með merki seljanda efst fyrir
miðju
orðið 'mayonnaise', (ekki majónes) með hvítum
stöfum á miðjum rauða fletinum
og hvítan borða utan um.
Helsti munurinn er að innihaldslýsingu virðist vanta
hjá Bónus
en skv. miða eru 600 ml. í dollunni frá Gunnars majonesi
en 540 ml. hjá Bónus.
Dollurnar eru jafn stórar, virðast vera frá sama
framleiðanda.
Er þetta vörustuldur ?
er verið að blekkja neytandann til að halda að hann
sé að kaupa áratugalanga uppskrift
í stað einhvers sem er nýtt og hefur ekki unnið
sér sess á eigin verðleikum ?
Afsakið að myndin er óskýr, tekin á farsíma.
Ádni
(Nb. Veit ekki hvort þetta sé vörustuldur, meira
svona umbúðastæling. Þetta er ekkert nýtt.
Í næstu búðarferð ætti fólk t.d.
að bera saman nachos frá Doritos og svo nýja tegund nachos
frá Þykkvabæ. Sláandi lýkir pokar sem
auðvelt er að ruglast á sé maður eitthvað
utan við sig.)
(ATH: Gunnars majones er örugglega framleiðandinn af þessu
majonesi sem er merkt Bónus.
Bónus hefur þann sið að "þvinga" íslenska
framleiðendur til að framleiða fyrir sig vörur undir þeirra
eigin
nafni og á lægra verði gegn því að
framleiðendurnir fái að hafa vörurnar sínar
í verslunum þeirra.
Flestar vörur undir bónus merkinu og þá
sérstaklega vörur sem eru með stuttan líftíma
eru framleiddar af innlendum
aðilum, og eru það nánast alltaf þeir
sömu og eru að selja samskonar vöru undir sýnum eigin
merkum.
Ef vara merkt bónus er borin saman við samskonar íslenska
framleiðslu er oftast lítill sem enginn munur á útliti
umbúða og magni.
Hinsvegar er líklegra en ekki að bónusvaran sé
aðeins lakari að gæðum.
Ónefndur)
(ATH2: örstutt um þetta majones, þetta er framleitt
af vogabæ í
hafnarfirði en ekki gunnars majonesi, þessi vara er algerlega
sambærileg að
gæðum á við gunnars majones en er bara mun
mun ódýrari fyrir neytendur, ca
20-30% lægra verð, þetta á líka við
um bónus fetaostinn í krukkunum, bónus
sýrðarjómann, mjólku rjómann allt
eru þetta nýjar vörur sem við erum að taka
inn og allar eru þær mun mun ódýrari en
sambærilegar vörur sem hafa verið
til á markaðnum áður, okkar viðskiptavinir
eiga það skilið að við hlaupum
okkur móð alla daga. kveðja guðm.m / Bónus)
#1998 Ég
get ekki orða bundist yfir Keiluhöllinni. Hversu ofboðslegt
okur á þar sér stað á hverjum einasta degi,
á mínu heimili er Keiluhöllin iðulega kölluð
Okurhöllin.
Það var nú þannig að besta vinkona dóttur
minnar var ofboðslega spennt yfir því að halda afmælið
sitt í Keiluhöllinni og bjóða um 25 krökkum
í afmæli í Keiluhöllinni.
Þar sem ég hafði nú skoðað þennan
afmælispakka á vefsíðu keiluhallarinnar áður
þá vissi ég alveg um verðið þarna.
Og þar sem ég og pabbi stúlkunnar erum góðir
vinir síðan í gamla daga og þekkjumst vel í
dag þá sá ég mér nú ekki annað
fært en að slá á þráðinn til hanns
og spyrja hann útí þetta.
Hann var fyrst voðalega hrifinn af þessu og sagði “já
pakkinn þarna kostar nú bara 1550 kr á hvert barn og
þetta er bara lang sniðugasta lausnin að losna frá
öllu veseni”
1550 krónur hljóma kannski ekkert svo hrikalega nema
þegar maður fer að hugsa.
Ég gerði honum ljóst að um 25 börn væru
að ræða þannig það myndi kosta fyrir þessi
25 börn, 1 leikur í keilu, 1 glas af gos og 3 mjög litlar
pizzusneiðar heilan 38.750. Ég meina HALLÓ? 38.750 krónur
fyrir 25 stk af 7 ára stelpum. Hvílíkt okur!!!
Er það nú afmæli. Ég tjáði
honum að hann gæti fengið 10 pizzur af næsta pizza
stað undir 10 þúsund krónum með gosi og öllu.
Sko 10 heilar pizzur, með brauðstöngum og öllu gosi.
Í staðinn fyrir 25x 3 litlar pizzusneiðar og eitt glas af
gosi á mann.
Er einhver að fara að reyna að segja mér það
að keiluleikurinn sem fylgir þessu kosti þá 28.750
fyrir 25 stelpur…
Þetta er okur á alvarlegu stigi og að sjálfsögðu
bakkaði félagi minn útúr því að
halda afmælið í Okurhöllinni.
Að svona afmælispakki fyrir 25 stelpur skuli kosta í
heildina 38.750 krónur er óafsakanlegt.
Hvílíkt okur!! Ég bara á ekki til orð.
Hafa fjölskyldur virkilega efni á því að
halda afmæli barnanna sinna á þessari búllu?
Og þá sérstaklega núna í kreppunni?
Mín fjölskylda fer aldrei þangað sökum okurs
þannig ég hef ekki orðið fyrir barðinu sjálfur
á Okurhöllinni en ég vildi bara láta vita að
þessu því mér finnst ég vera hetja að
hafa bjargað blásaklausum vini mínum frá því
að borga 38.750 krónur fyrir afmæli dóttur sinnar
og 25 litlar stelpur í afmæli þarna.
Orðlaus Pabbi
#1997 Mig langar
að láta þig vita af lélegri þjónustu
hjá Nýju Sendibílastöðinni. Ég
veit ekki endilega hvort að þetta heyrir undir okur en allavega
lélega þjónusta. Ég þurfti að láta
flytja fyrir mig þvottavél á dögunum og hringdi
rétt fyrir 8 að morgunlagi í Nýju Sendibílastöðina
og tek fram að ég sé ein á svæðinu og
það þurfi að vera trilla með svo að hægt
sé að koma þvottavélinni upp í bílinn
því að ég treysti mér ekki að lyfta
henni. Nú svo kemur bíll með einhverjum öldungi
undir stýri sem að sjálfsögðu treystir sér
ekki til að koma þvottavélinni upp í bílinn
einn með trilluna þannig að ég varð að lyfta
henni með honum. Síðan segir hann við mig já
þú ert náttúrulega með peninga til að
greiða fyrir bílinn því að ég tek ekki
kort. Frábært mér var ekki sagt það þegar
ég hringdi. Fyrir algera tilviljun átti ég 5000
kall í veskinu og slapp við að fara í hraðbanka
klukkan 8:00 um morgun. Síðan keyri ég á eftir
manninum niður í Sundahöfn þar sem þvottavélin
átti að fara á bíl. Þá er komið
að því að borga og ég dreg upp veskið og
hann segir 3400 krónur. Ég bið hann um kvittun en nei
það er ekki í boði......við segjum bara 3400 segir
hann ég slæ af 500 kalli segir hann og brunar svo í
burtu.
Ég stóð eftir alveg gapandi yfir þessum viðskiptum.
Síðan hringi ég á Nýju-Sendibílastöðina
og segi mínar farir ekki slétttar og þá segir
símastúlkan að þessi flutningur sé greinilega
ekki skráður vegna þess að símtalið hafi
borist fyrir opnun skiptiborðs og þá taki bílstjórarnir
sjálfir símann. Hún býður mér svo
að framkvæmdastjórinn hafi sambandi við mig sem og
hann gerir nokkrum dögum seinna. Eina sem framkvæmdastjórinn
gat sagt var það að þetta atvik endurspeglaði ekki
fyrirtækið það væru 2 bílstjórar
sem að væru ekki með posa og það væri vaninn
að láta vita um það fyrirfram og svo þegar ég
spurði út í nótulausu viðskiptin þá
sagði hann að hann gæti svo sem haft samband við bílstjórann
og látið hann gefa mér nótu en þá
myndi hún ekki hljóða upp á 3400 krónur.
Ég get ekki betur séð en að bílstjórinn
hafi verið að ná sér í svartan pening þarna
í algerri óþökk minni sem hef engan áhuga
á nótulausum viðskiptum og var aukin heldur mjög
óánægð með þjónustuna sem þessi
maður veitti mér. Það er alveg á hreinu að
það verður aldrei skipt aftur við þetta fyrirtæki
á mínu heimili.
Óskar nafnleyndar
(23.02.09):
#1996 Sprengjudags
vörusvik! ...veljum íslenskt?
Fór á föstudag í Nóatún
í Austurveri til að kaupa "Saltkjöt og baunir- túkall"
sem er sennilega ein íslenskasta mataruppskrift sem til er hér
á landi. Það er flott saltkjötið hjá þeim
af íslenska lambinu. Þegar kom að rófu innkaupum
þarna brá mér heldur mikið, því þær
voru flest allar á stærð við fótbolta!
Tveir afgreiðslumenn upplýstu mig um að þetta væru
innfluttar rófur, þar sem ekki væru til íslenskar
á markaðnum og hjá Nóatúni? Við
nánari skoðum kom í ljós að þessir "fótboltar"
voru frá Bretlandi, nánar tiltekið Skotlandi.
Ég sagði nei-takk, breskar rófur borðar mitt
fólk ekki á Sprengidaginn eftir það sem á
undan er gengið við þarlenda. Í Fréttablaðinu
og Morgunblaðinu um helgina eru heilsíðu auglýsingar
frá Nóatúni þar sem stendur " Sprengidagurinn"
og einnig " Íslenskt, úrvals grænmeti sem meðlæti"
ásamt mynd af rófum .....þetta eru vörusvik
og fölsun í auglýsingu að mínu mati .....veljum
íslenskt - hvað?
Fór í aðra ónefnda verslunarkeðju þar
sem nóg var til að meðalstórum íslenskum rófum
sem hæfa hinum alíslenska sprengidegi ...áfram Ísland.
Og til að kanna orð Nóatúnsmanna um vöruskort
á íslenskum rófum hringdi ég í Sölufélag
garðyrkjumanna, þar sem mér var tjáð að
til væri nóg af íslensku rófum, en Nóatún
verslaði ekki við þá? Þeir vilja heldur
eyða takmörkuðum gjaldeyri núna í innflutning
á risa rófum frá Bretlandi.
Við neytendur borðum ekki breskar rófur á Sprengjudaginn
....skamm-skamm Nóatún!
Sprengidags unnandi.
#1995 Það
er endalaust verið að plata okkur íslenska neytendur. Halda
Bónusfeðgar og aðrir „lágvöruverslana“-rekendur
að við séum alger fífl? Eitt dæmi: Kattasandur,
Best friend – fresh & easy, kostaði í Bónus f.a.h.
(fram að hruni) ísl kr. 298, en kostaði í gær
í Bónusi Faxafeni (hvað sem hann kostar svo í
dag og á morgun), ísl. kr. 849! Er þessi hækkun
í einhverjum takt við verðlagsþróun hér
a.m.t. gengi og öllu? Spyr sá er ekki skilur útreikninga
hér.
Nei takk, ég læt ekki hafa mig að fífli lengur.
Er hætt að styrkja snekkjueigendur sem reka Hagkaup, Bónus,
10-11 og eigendur Krónunnar og hvað þetta
heitir allt saman. Beini mínum viðskiptum framvegis að Nettó
og kaupmanninum á horninu. Með von um að þeirra hagnaður
fari ekki beint í Karabíska.
Eygló
(ATH: hérna er skýring á því af
hverju kattasandurinn hefur hækkað
eins og raun ber vitni, þetta eru breytingar frá jan
08 til dagsins í dag,
þessi ágæti maður talaði um að varan
hefði kostað 298 kr og það er rétt, hún
kostaði það frá lok ársins 2005 út
árið 2007 en eftir það hefur hallað á
ógæfuhliðina.
Erlent innkaupsverð frá framleiðanda í Kína
hækkar á síðasta ári um 54%.
Gengi ,(EVRA) á sendingu sem er verðlagt eftir núna
er ca 80 % hærra en
gengið sem var verðlagt eftir í jan 2008
Kostnaður vegna flutnings, erlendis og sjóflutningar,
hefur hækkað talsvert
á tímabilinu bæði vegna gengis og hækkanir
flutningafyrirtækja.
Innkaupsverð hefur hækkað um ca 180 % vegna gengis
og erlendrar hækkunar.
Útsöluverð Bónus hefur hækkað um
136% vegna kostnaðarverðshækkunar.
Erlend hækkun er vegna hækkunar frá framleiðanda
í Kína, sem er skýrð með
hráefnis- og kostnaðarhækkunum, þetta er
ekki hefðbundin kattasandur sem er
búin til úr sandi eða leir, heldur er þetta
vara sem er framleidd frá
grunni.
Búast má við að verð lækki, ef gengi
styrkist frá því sem það er.
gerum okkar besta, keðja guðm.m / Bónus)
#1994 Langar bara
benda á Dominos og þessa svo kölluðu "Megaviku"
my fokking
ass!!! 1290 kall og svo 300 kr fyrir skíta aukaálegg.
þeir ættu sko að
kalla þetta "kreppu viku" !!! ertu að fokking djóka
hvað það er verið
að spara í álegginu á þessar pizzur!
það mátti telja ananasbitana
þessa 3 kjúklinga bita sem voru á 15"pizzunni.
það mátti sjá
brauðbotninn standa upp úr álegginu útum
allt á allum 3 pizzunnum ,
þar sem osturinn var í mg og áleggið á
víðavangi! 3 pizzur illa á
settar þurrar og vondar +ananas og kók 4450 takk fyrir!
Einn ósáttur
(Nb. Ég keypti nú hjá þeim eina Domino´s
Mystique á megavikunni og er gríðarlega sáttur
við þau kaup, svo... Wilsons eru líka með tilboð
þessa vikuna, 1000 kall stór pizza 2 álegg, held ég
að það sé)
#1993 Þannig
er mál með vexti að kærastan mín fór
með smápeninga sem við áttum upp í Spron
í Spönginni. Gjaldkerinn setti peningana í talningarvélina
og kom svo aftur að borðinu og spurði kærustuna mína
hvort hún væri með reikning hjá Spron. Hún
er ekki með reikning þar og þá sagði gjaldkerinn
að þetta kostaði 500 kr. og nota bene þá var
þetta um 3000 kr. í smápeningum. Hún hringdi
í mig og ég sagði henni að fara í Glitni,
þar sem hún er með reikning ef að hún þyrfti
að lenda í sama bullinu þar. Þar skipti þeir
klinkinu án vandræða og spurðu ekki einu sinni hvort
hún væri með reikning þar.
Þegar hún kom heim þá hringdi ég í
Spron og þar sem gekk illa að ná sambandi við Spöngina
hjá skiptiborðinu og ég mátti ekki fá beint
númer í Spöngina þá bað ég um
einhvern sem vissi allavega eitthvað um gjaldskrána hjá
þeim. Ég fékk samband við konu þarna og hún
sagði að þetta væri svona í öllum bönkum
en ég sagði henni frá Glitni og þetta væri
í fyrsta skipti sem ég heyrði um svona gjaldtöku.
Þá sagði hún mér að þær
hafi greinilega ekki haft brjóst í sér að rukka
kærustuna mína um meira þar sem í raun kostaði
þessi "þjónusta" 1650 kr. Þannig að ef að
kærastan mín hefði verið rukkuð um 1650 kr. eins
og á að vera þá hefðum við tapað um
60% af peningnum við það að nýta okkur þessa
"þjónustu" hjá Spron.
Ástæðan fyrir þessari gjaldtöku, samkvæmt
konunni hjá Spron er að það tekur tíma að
setja í talningarvélina og eru þetta vanalega langar
afgreiðslur. Það hlýtur að vera nokkuð sárt
fyrir gjaldkerana þarna að eftir nám og fleira að
vita að þessi blessaða talningarvél er hæstlaunaðasti
"starfsmaðurinn".
Ég spyr mig líka hvernig það er ef ég
myndi vilja skipta 1000 kr. úr klinki í seðla, myndi
ég þá skulda bankanum 650 kr aukalega eftir þá
heimsókn? Fáránlegt kerfi!
Arnþór
(Nb. Þegar ég vann í Landsbankanum var ég
oft á talningavélinni. Bara gaman að því.
Engum hefði dottið í hug að rukka sérstaklega
fyrir þá þjónustu, enda er það fáránlegt!)
(ATH: Fór inn á Kaupþing við Hlemm um daginn
til að skipta klinki, var ekki rukkaður um krónu né
spurður um hvar ég væri í viðskiptum (Ég
er hjá SPRON en ætla að koma mér þaðan
í snarhasti, farnir að bera þess merki að vera gjaldþrota
fjármálastofnun, hræddur um að þeir mælist
ekki hátt í næstu ánægjukönnun).
#1992 Mér
brá heldur betur í brún þegar ég fór
síðast í Bónus. Nú hefur ekki
verið til síðan um áramótin, 2 lítra
Sprite í Bónus. Oft hef ég spurt
hverju þetta sætti því alltaf fékkst
gosið í öðrum verslunum eins og
Hagkaup og Nettó.
Svörin voru mismunandi og loðin en nú síðast
fékk ég skýrt svar hjá áfyllingarmönnum
Vífilfells.
Bónus er hætt að panta inn 2 lítra Sprite og
Sprite Zero. Þegar spurt var
hvers vegna var fátt um svör. Það er ekki eins
og þetta sé óvinsæl
vara, þetta var rifið út þegar þetta var
til.
Þannig að nú fá þeir inn mikið meiri
pening frá þeim sem drekka
Sprite, sem neyðast til að kaupa 2 eins lítra flöskur
í stað einnar 2
lítra. Þetta eru ekki góðir viðskiptahættir.
Ég fyrir mína parta
versla mitt ropvatn framvegis í Hagkaup, þar get ég
allavega fengið 2
lítra á lægra verði en í Bónus.
Brynja
#1991 Vantaði
DVD spilara um daginn og kíkti í Elko. Samkvæmt
ráðleggingum
frænda míns, þá benti hann mér á
að kaupa spilara sem styður HDMI, þar
sem það auki myndgæðin. Sölumaðurinn
sýnir mér þá spilara og ég vel
þann sem mér leist best á. Því
næst þurfti ég að finna snúruna og þá
sýnir hann mér snúruna, sem kostaði 3.995.-
Mig lá ekki á þessum
spilara svo ég ákvað að kanna hvort ég
gæti ekki fundið þessa snúru
ódýrari á netinu. Hana fann ég á
amazon.co.uk í Bretlandi fyrir 1,9
pund eða um það bil 310 krónur, eða rúmlega
1000% dýrari.
Auðvitað á eftir að bæta við sendingarkostnaði
til Íslands og tollum
og virðisaukum o.fl. En tollur og vsk. af 310 krónum
eru einhverjir
tíkallar. Nauðsynlegt að taka það fram
að þetta voru sambærilegar
snúru, báðar HDMI í HDMI og gerðar úr
gulli að einhverju leiti (sem
leiðir myndina betur). Ég þurfti tvær
snúrur, þannig að með því að
skoða þetta tókst mér að spara mér
ca. 7.000 krónur.
Greinilegt að Elko vinnur þannig að þeir selja
tækin á aðeins lægra
verði en nauðsynlega aukahluti rándýra með.
Óska nafnleyndar
(ATH: Nokkur orð varðandi okur nr. 1991 á vefsíðunni
þinni en þar er vísað til verðs á HDMI
snúrum hjá ELKO.
Til eru margar gerðir af HDMI köplum og eru þeir
vitaskuld misgóðir eftir því. Í Elko höfum
við verið með ýmsar gerðir til sölu en sá
ódýrasti hefur verið á 2.495 og dýrasti
á 5.495 (1,5 meter).
Munurinn á þessum snúrum er gagnaflutningsgetan.
Ódýrari snúrurnar fylgja version 1.2 en þessari
dýrari fylgja version 1.3 en munurinn þarna á milli
er margfaldur, í gæðum talið. Fólk sem er með
háskerpuspilara á borð við Blu-Ray spilarana og síðan
háskerpusjónvarp hefur verið ráðlagt að
versla sér betri snúrurnar en við höfum yfirleitt
bent á þessar ódýrari þegar fólk
er að versla sér HDMI kapla fyrir DVD spilara með uppskölun,
eins og er í þessu dæmi.
Hvort tengin á kaplinum séu gullhúðuð
eða ekki skiptir í raun engu máli því merkið
sem fer í gegnum kapalinn er ávallt stafrænt ólíkt
skart-tengjunum. Þess vegna er ekki verið að horfa á
tap á gæðum. Þess ber að geta að snúrurnar
sem merktar eru 1.3 staðlinum eru í raun og veru einu snúrnar
sem taldar eru geta sinnt FULL-HD merkinu (1080p) skikkanlega.
Ódýrari snúran hefur reyndar ekki verið
til hjá ELKO um nokkurra vikna skeið enda uppseld hjá
birgja.
Þess vegna hefur ódýrasta snúran sem viðkomandi
viðskiptavinur hefur séð verið á 3.995.
Ég ráðlegg öllum sem hafa áhuga að
lesa um HDMI á Wikipedia síðunni en þar er að
finna mikið magn af ótrúlega góðum upplýsingum
um þessar snúrur. Sér í lagi hérna: http://en.wikipedia.org/wiki/HDMI#Versions
Bendi líka fólki á að gera verðkönnun
því HDMI snúra á 2.495 verður að teljast
gott verð!
Starfsmaður Elko)
(21.02.09):
#1990 KFC auglýsir grimmt um þessar
mundir. Auglýsingar þeirra byrja
svohljóðandi: "byrjum árið á hollum lífstíl,
réttur mánaðarins á KFC er
tortilla með grænmeti og sweet chilli sósu aðeins
699 krónur. KFC núll
grömm transfita.
Mig langar að vita hvort það sé hægt að
koma með svona fullyrðingar þ.e að
maturinn sé algjörlega laus við alla óhollustu.
Hvað með allt hitt sem er
í matnum hjá KFC? Telst það hollusta? Mér
þætti gaman að fá svör við því.
Önnur tilgangslaus pæling. Hver hefur ekki tekið eftir
því að sjá
verðmerkingu við einhverja vöru: Þessi vara er á
tilboði og nemur
verðlækkun 20% eða TILBOÐ 20 prósent verðlækkun.
Svo kemur maður á kassann
og þá er verðið það sama og var á
hillumerkingunni. Það er vegna þess að
það er búið að reikna afsláttinn inní
verðið sem er uppgefið við vöruna.
Fólk ætti að passa sig á þessu.
Tryggvi
#1989 Vil benda á þessa nefnd...
http://www.neytendastofa.is/Pages/270
Hún er mikilvægt tæki fyrir okkur neytendur til
standa í hárinu á fyrirtækjum sem brjóta
af sér og ætla að komast upp með það.
Það er nokkuð fræðandi að lesa úrskurði
nefndarinnar. Einnig veit ég að þeir eru ekki allir birtir.
Veit um dæmi þar sem TAL tilkynnti um skilmálabreytingar
í tölvupósti líkt og Síminn gerir þessa
dagana...
Það gekk til baka fyrir viðkomandi sem kærði
(en ekki alla...????) hugsanlega náðist sátt áður
en nefndin úrskurðaði.
Nafnlaus
#1988 Mig langaði
að senda þér línu því það
er allt of sjaldan sem fólk
hrósar góðri (eðlilegri?) verðlagningu á
vörum og þjónustu.
Veitingastaðurinn Ítalía hefur verið í
miðbænum um árabil og stendur
alltaf fyrir sínu. Góður matur og góð
þjónusta. Og ekki skemmir
verðmiðinn á matnum fyrir. Við hjónaleysin
skelltum okkur á
föstudagskvöldi á Ítalíu og fengum vel
útilátinn mat og góða vínflösku
með. Borguðum rétt rúmlega 8 þúsund
krónur fyrir sem er bara nokkuð
gott fyrir notalegan og góðan veitingastað í
miðbænum. Við förum
pottþétt oftar á Ítalíu á
næstunni.
Brynja
#1987 Ég
var rukkaður um 290kr fyrir hálfan líter af Egils kristal
í Keiluhöllinni í Öskjuhlíðinni
í gær. Ég varð að koma þessu á
framfæri. Þetta er náttúrulega algjört rugl.
Þorsteinn Þorsteinsson
(20.02.09):
#1986 Ég
vil koma á framfæri staðfestum grun um skort á
verðmerkingum og gerviútsölu á svokölluðum
"Tax
Free" dögum Hagkaupa sem nú standa yfir. Ég fór
í Hagkaup í Kringlunni í dag og ekki nema brot af
snyrtivörunum voru verðmerktar. Búið var að brjóta
upp á verðmiðann á langflestum vörunum þ.a.
fullt verð sást ekki. Þegar ég skoðaði
strimilinn sá ég hversu himinhátt fullt verð var,
miklu hærra en ég hafði séð það auglýst
hjá þeim nú fyrir skömmu. Svo virðist sem
þeir hækki verðið rétt fyrir Tax Free daga og
gefi svo 20% afslátt af því okurverði! Þetta
er auðvitað bara leið til að ginna viðskiptavini til
að verlsa á útsölu. Fyrir utan það að
virðisaukaskattur er 24,5% en ekki 20% eins og Hagkaup virðist
standa í trú um! Þetta fyrirkomulag hefur verið
á hjá þeim um um langa hríð núna
og engin segir neitt við þessu. Sjálf er ég sem
neytandi búin að fá mig fullsadda af þessu svínaríi
og veit að þið hin látið ekki bjóða
ykkur þetta heldur!
Þórunn
(ATH: Vildi benda á varðandi endurgreiðslu á
virðisaukaskatti, þá í tengslum við tax-free
daga Hagkaupa (#1986). Gefum okkur að vara kosti 1000kr, lagður
er skattur 24.5% á hana, þá er verðið 1245kr.
Ef ég gef mér 24.5% afslátt af 1245kr þá
kostar varan 940kr. Með því að gefa 19.6787%
afslátt af 1245kr þá fæst upprunalegt verð
eða 1000kr. Þannig að 20% afsláttur er rétt
gefinn.)
#1985 Nú
hefur Eimskip hækkað verðið með Herjólfi.
Sem er líklegast eðlilegt ? Miðað við allt. Málið
er að ef að fólk átti einhvað inni á afsláttarkortinu
sínu þá hefur það rýrnað sem nemur
hækkuninni, vegna þess að þú átt ekki
einhverja afsláttarmiða inni heldur er þetta bara peningainneign.
Var að velta því fyrir mér hvort þetta sé
löglegt.
Þorsteinn
#1984 Ég
fór í Hagkaup Skeifunni á mánudag. Þar
var afgreiðslukona í kvenfatadeild að plokka verðmiða
af sokkum. Hún var með plastpoka með fullt af "gömlum
verðmiðum" Þegar ég fór var ekki komið
"nýtt" verð á sokkana, en varla var hún að
lækka verðið...Til umhugsunnar.........
Sigríður Einars
#1983 Hef verið
að versla í Húsasmiðjunni undanfarin ár
og er farið að ofbjóða okrið hjá þeim.
Tók saman nokkur dæmi sem ég sendi með þessum
pisli.
Að meðaltalið hefur vöruverð sem ég tilgreini
hækkað um rúm 63% á einu ári en það
sem ég skil ekki er að sumar vörur hafa hækkað
um rúm 100% og ein um 600% sem getur ekki talist eðlilegt.
Húsasmiðjan hefur ekki tekið á sig launahækkani
á síðasta ári en hafa aftur á móti
lækkað laun starfsmenna á gólfi um tugi þúsunda
með afnámi næturvinnu.
Í mars 2008 var evran á um 122 kr en er núna á
um 146 kr eða um 20 % hærri. Vörur erlendis eins og
timbur og f.l. hafa lækkað á heimsmarkaðsverði
um 30 til 70%.
Sem ætti að skila sér í lækkandi vöruverði
hér heima eins og gerist með olíuna. Einnig hefur Húsasmiðjan
tekið af allan afslátt af viðskiptavinum en hann var 15
til 25 %.
Sem sagt verð hefur hækkað að meðaltali á
vörum sem ég tók til um 63%, erlendar vörur lækkað
um 50%, laun lækkað um 10% og afsláttur tekinn af um 20%
því má segja að Húsasmiðjan er á
hafa um 143% hærri álagningu núna en var fyrir ári
síðan og var hún þó allnokkur, geri aðrir
betur. Ef þetta er ekki okur hvað er þá okur.
Nær væri fyrir Húsasmiðjuna að lækka
verðin til samræmis við þann sparnað og erlendar
lækkanir ásamt lækkun gengisvísitölunnar
úr 230 í 190 til að koma byggingariðnaðinum
af stað aftur.
Okur eykur aldrei sölu það dregur úr sölu
sem leiðir til enn frekari hækkunnar og að lokum fara þau
fyrirtæki á hausinn sem okur stunda.
Okur leiðir líka til þess að aðrir sjá
sér fært að koma inn á markaðinn.
Múrbúðin hefur ekki farið þessa leið
sem Húsasmiðjan fer, enda hefur stór aukist salan þar
í kreppunni.
Munum að olían var hæðst í um 200 kr og
væri nú í um 150 ef ekki hefði komið til hækkunnar
frá ríkinu, vegna lækkunar á heimsmarkaðsverði
og lækkunar á gengisvísitölunni.
Húsasmiðjan hefur ekkert lækkað aðeins hækkað.
Er ekki kominn tími á að hvíla verslun í
okurbúllum eins og Húsasmiðjunni.
Einn búinn að fá nóg af okrinu.
#1982 Símabær
þakkar frábærar viðtökur vegna GSM
endurvinnslunnar sem Gunni kynnti svo vel í Fréttablaðinu.
Við höfum varla haft undan eftirspurn og margir neytendur hafa
gert afar góð kaup og nýtt peninginn í aðra
hluti á meðan. Við viljum launa okursíðunni
og lesendum hennar greiðann með húsráði sem tengist
hleðslurafhlöðum í t.d. fartölvur og síma.
Er batteríð alveg handónýtt svo þú
nærð ekki einu sinni gögnum úr tækinu þínu?
Þá geturðu fryst rafhlöðuna í t.d. sólarhring
og gefið henni svo nokkra klukkutíma við stofuhita áður
en hún er endurhlaðin. Ég las fann þetta húsráð
á netinu og sagði örvæntingarfullum kúnna
frá því, Kúnninn kom himinlifandi til baka því
þetta virkaði svo ég sagði fleirum frá því
og það er sama sagan, þetta virkar einfaldlega en hve varanlega
veit ég ekki.
Ég kann ekki að lýsa því tæknilega
hvað frystingin gerir en hugsanlega einhverskonar hreinsun vegna ískristalla.
Þá get ég ekki fullyrt hve lengi þessi “viðgerð”
virki en það breytir ekki því að þarna
er komin hagnýt lausn til að redda sér tímabundið
eða bjarga gögnum úr dauðum búnaði
Ég vara hinsvegar við að setja frosna rafhlöðu
beint í hleðslu og bendi fólki á að finna
frekari upplýsingar í gegnum leitarvélar.
Gylfi Gylfason
Símabær ehf
(19.02.09):
#1981 Keypti
í gær bakka af nautahakki í Hagkaupum í Seltjarnarnesi.
Fékk hann á 50% afslætti af því hann var
á síðasta söludegi. Uppgefið kg. verð er
1.549.- kr. og þyngd 480 gr. eða verð kr. 744. Á afsláttarmiða
er uppgefið söluverð kr. 744.- sem er rétt, en þá
er þyngdin allt í einu orðin 510 gr. og verðið
kr. 395.- Í raun ætti verðið að vera kr. 371.-
svo að þeir græða kr. 24.- á þessu. Meðfylgjandi
er mynd af verðmiðunum.
Steinarr Kr. Ómarsson
(Nb. Kannski bara mannleg mistök?)
(ATH: Tók enginn annar eftir því að pökkunardagur
er sagður annar á umbúðunum, 16. febrúar í
staðinn f. 12. febrúar á miðanum undir? Fannst þetta
bara undarlegt.)
#1980 Hjá
Pennanum
í Hallarmúla kostar 1 blokk af postits (gulu miðunum)
550 krónur!!! Gulir miðar fást hjá Póstinum
í Ármúla (önnur tegund) og kosta 67 krónur
minnir mig.
Hrönn
#1979 Við
vorum þrjú sem fórum í Bláa
Lóninu um síðustu helgi. Er ég spyr
hvað ég þurfi að greiða segir afgreiðsludaman
"4500.-" fyrir þrjá aðila. Ég spyr þá
hvort þeir séu búnir að lækka verðið
í 1500 per miða. Þá segir daman: nei við
erum með tilboð í gangi "tveir fyrir einn" Þannig
að miðinn kostar 3000.- per aðila sem vil fara í Bláa
Lónið. (þetta er ekki allt.)
Er ég spyr hvers vegna þeir hafi hækkað verðið
þá segir daman að þetta sé reiknað út
frá 20 evrum og þær séu 3000.- í dag.
Er ég síðan skoðaði matseðilinn á
Lava matsölustaðnum þá er þar réttur
sem kostar 21 evru(minnir mig) en á íslensku kostar hann
2600.-
Þannig að mismunur á genginu er töluverður
á milli evra í aðgöngumiða eða
evra á matsölustaðnum
Óskar nafnleyndar
#1978 Lenti í
því um daginn að það sprakk hjá mér
og í ljós kom að dekkið var ónýtt.
Við nánari skoðun kom í ljós að dekkin
voru öll slitin og á síðasta snúningi. Ég
hringdi því á nokkur dekkjaverkstæði
til að tékka á verði á nýjum heilsárs
14” dekkjum (185/65/14):
Barðinn í Skútuvogi: Tilboð 51.500 kr allur pakkinn
með umfelgun (ónegld vetrardekk líklega á um 11.400
kr/stk)
VDO Borgartúni: Cooper dekk á 10.100 kr/stk.
Betra grip Lágmúla: nokkrar týpur í boði:
Daytone 700 á 14.657 kr/stk, Loftbóludekk á 17.492
kr/stk og Sóluð dekk á 8.481 kr/stk.
Vaka Eldshöfða: milestone dekk á 9300 kr/stk. Umfelgun
og ballansering á 4800 kr/gangurinn.
Þegar hér var komið sögu sá ég
að þetta færi líklega aldrei undir 40.000 kall.
Fór því á netið og googlaði “dekk til
sölu” 14”. Þannig fann ég gefins 14” álfelgur
sem ég þurfti að vísu að sækja upp á
Akranes. Og lítið notuð negld vetrardekk á 5000 kr/
4 stykki. Er því kominn með fín dekk á álfelgum
undir bílinn fyrir 10.000 kall (umfelgun kostaði 5000 hjá
Nýbarða í Garðabæ með afslætti).
Það greinilega margborgar sig að leita fyrst í smáauglýsingum
á netinu, þó að í þessu tilfelli hafi
ég líklega verið óvenju heppinn.
Andri
#1977 Mig langar
að benda á það að á vefsíðunni
sinni undir Fréttir ( neðst á síðunni ) birti
Síminn
hækkun á verðskránni sinni sem tekur gildi
frá 1. Mars 2009. Þar á meðal ætlar Síminn
að hætta með eitt sitt helsta „trick“ til að fá
viðskiptavini í ADSL sjónvarpsþjónustu sína
„Myndlykill sem kostar ekki neitt“. En frá 1. Mars 2009 mun áskriftargjald
á myndlykli frá Símanum hækka frá 0 kr
í 600 kr fyrir þá sem eru ekki með áskrift
af öðrum miðlum annað hvort frá Skjánum
eða 365. Þetta er augljóslega töluverð hækkun
á þjónustu hjá Símanum. Fulla verðskrábreytingar
má sjá
hér,
en breytingin veldur að meðaltali hjá viðskiptavinum
6,1% hækkun á símreikningi þeirra.
Ennfremur brýtur Síminn um leið skilmálana
sína þar sem að í skilmálum þeirra
stendur að verðbreytingar skuli tilkynna skriflega, en ég
sem kúnni hjá þeim hef hvorki fengið tilkynningu
í gegnum tölvupóst né í venjulegum pósti
og rakst eingöngu á þessa verðbreytingu fyrir tilviljun
þegar ég var að leita að annari frétt á
vef þeirra. Ég tel þetta brot á skilmálum
og ætla að láta reyna á uppsögn mína
á ADSL viðskiptum þeirra ( þrátt fyrir að
eiga einn mánuð eftir af samningi ) vegna brota á
skilmálum af þeirra hálfu þar sem verðlagshækkunin
tekur gildi 1. Mars og þeir hafa ekki tilkynnt mér hana skriflega
mánuði fyrir ( eins og stendur í skilmálum þeirra
).
Þetta finnst mér mjög lélegt að ætla
að reyna koma inn 600 kr hækkun inná notendur án
þess að einu sinni láta þá vita og kalla
þessa viðskiptahætti Símans lélega og OKUR.
Annað hvort hafa þeir breytt þessu eftir að ég
sá þetta fyrst, eða þá að ég hef
misst af því. Það er ennfremur hækkun á
leigu á router fyrir SpeedTouch routera sem flest allir viðskiptavinir
Símans ( sérstaklega þeir sem eru með Skjáinn
) eru með frá 0 kr í 350 kr. Þannig að heildarhækkunin
er 950 kr á mánuði fyrir þá sem eru bara
með fríustöðvarnar hjá Símanum.
Davíð Fannar Gunnarsson
(18.02.09):
#1976 Hingað
til hef ég verið frekar léleg í að huga að
verðlagi og þess háttar.
En nú er ég, eins og aðrir, aðeins að vakna
til meðvitundar um mikilvægi
þess að standa á varðbergi og þar af leiðandi
vil ég koma á framfæri til
þín hneykslanlegu atviki sem ég er ansi hrædd
um að margir neytendur hafi
fallið í síðustu daga.
Þannig er að maðurinn minn fór í morgun
í nýja verslun Krónunnar í
Hafnarfirði. Alla helgina hafa verið auglýst
tilboð þar og
tilboðsbæklingar bornir í hús. Við
fengum meðal annars þessa bæklinga og
fannst spennandi að sjá að kjúklingur var á
40% afslætti. Þar af leiðandi
keypti maðurinn minn eitt stykki heilan kjúkling.
Kílóverðið á
kjúklingnum var 988 krónur og hann var 1,751 gr. þannig
að þessi
kjúklingur kostaði 1.747 krónur og við stóðum
að sjálfsögðu í þeirri trú
að þarna kæmi til 40% afsláttur á kassanum
eins og kemur fram í
áðurnefndum bæklingum og er merkt með límmiða
á sjálfum kjúklingnum. Fyrir
rælni þá ákváðum við hjónin
nú einu sinni að fara yfir innkaupalistann og
átta okkur á hvað hlutirnir væru að kosta
og þá komumst við að því að það
hafði bara aldrei komið til þessa 40% afsláttar.
Þannig að við urðum af
því að fá 699 króna afslátt!
Ég þori að fullyrða að það hafa MJÖG
margir
einstaklingar fallið í þessa grifju. Ég
vil að sjálfsögðu ekki trúa því
að þetta sé með ráðum gert hjá
forsvarsmönnum Krónunnar en ég vil endilega
að þessu sé komið á framfæri til
neytenda þannig að ALLIR skoði nú
strimlana og passi að fá þann afslátt sem þeim
ber að fá miðað við
auglýsingar.
Nafnleysi óskað
#1975 Ég
er einn af þeim sem fer sjaldan á kaffihús. En þegar
ég geri það þá langar mig að fá
mér eitthvað gott. Við hjónaleysin ákváðum
að kíkja á Café Milanó á
laugardaginn var 14-02-2009 og fá okkur eitthvað gotterí
þar sem að það var jú Valentínusardagur.
Í staðinn fyrir blómin eða konfektið þá
ákváðum við að setjast niður og njóta
þess að fá okkur eitthvað gott og spjalla. Smurbrauð
varð fyrir valinu og Coke light með, enduðum svo á að
fá okkur eina kökusneið saman. Ekkert af þessu var
verðmerkt í kælinum en við vorum svo sem ekki að
velta fyrir okkur verðinu þar sem þetta var jú bara
smörrebrod og gos. Þegar það kom svo að því
að greiða reikninginn þá datt restin af dauðu
lúsunum úr höfði mér þar sem að
reikningurinn hljóðaði upp á 4010- krónur.
Mér varð næstum á orði að spyrja hvort
ég fengi hlutabréfin í fyrirtækinu send í
pósti eða hvort að límósínan sem myndi
keyra okkur frítt heim á eftir biði fyri utan? Var þetta
falin myndavél ??? nei nei. Þessar 4010 krónur skiptust
svona.
Smurbrauð, krónur 1190x2
Coke light í gleri, (290ml) krónur 350x2
Kökusneið með rjóma, krónur 930
Samtals 4010 krónur.
Þess má til gamans geta að helgina áður
áttum við leið um Húsasmiðjuna Skútuvogi
en þar var Kaffigarðurinn að bjóða upp á
smurbrauð á 190 kall. Ég gat ekki séð að
þessi smurbrauð hafi verið eitthvað veglegri en þar
og geri ráð fyrir að Húsasmiðjan hafi verið
að selja þetta á kostnaðarverði og kannski örlítið
betur. Sem segir mér það að álagningin á
Milanó sé u.þ.b. 600-650%. Einnig geri ég ráð
fyrir að Mílanó skipti kökunum upp í 12 sneiðar
sem þýðir að ein kaka fari á 11.160- kr. Það
er ekki slæm ávöxtun. En eitt er ljóst. Ég
fer aldrei aftur á Café Mílanó.
GGG
#1974 Vildi koma
með enn eina söguna um hversu varhugaverð bílaumboð
landsins eru, a.m.k. Hekla. Þannig er mál með vexti
að það logaði EPC ljós í mælaborðinu
í bílnum hjá mér og þurfti ég
að láta tengja bílinn við einhverja tölvu í
Heklu til að láta greina hvað væri að. Það
var allt gott og blessað, nema hvað eitthvað virðist hafa
gerst meðan bíllinn var inni hjá þeim (ca 20 mínútur),
því þegar ég fæ bílinn afhentan
virkar rafmagn í rúðum ekki, ekki fjarstýrða
læsingin né ljós inni í bílnum. Ég
tala eðlilega um leið við Heklu og fyrirtækið ákveður
að athuga hvað væri að og hvort orsök þessarar
bilunar væri að finna hjá þeim. Nú þarf
ég að taka fram að undir eðlilegum kringumstæðum
myndi ég aldrei fara með bílinn í viðgerð
á verkstæði Heklu, ekki eingöngu vegna verðlagsins
heldur líka vegna þess að faðir minn á og rekur
bílmálun og er því með mjög góð
tengls inn í þennan bransa (o.þ.a.l. góða
díla). En þar sem þessi bilun kom mögulega upp
meðan bíllinn var tengdur við þessa tölvu hjá
þeim, samþykkir Hekla að taka bílinn inn á
verkstæði í forskoðun til að athuga hvað fór
úrskeiðis, mér að kostnaðarlausu. Ég fæ
síðan símhringingu daginn eftir og mér tjáð
að einhver varahlutur sé ónýtur, sem þurfi
að panta að utan og muni kosta mig 80.000 krónur. Þar
sem ég er vel tengdur inn í bílabransann afþakkaði
ég það og fékk inni á verkstæði
hjá kunningja föður míns. Þar kom í
ljós að það eina sem þurfti að gera var
að skipta um 1 öryggi!!! Þetta tók ca 2 mínútur
og var mér að kostnaðarlausu. Það er langur vegur
á milli að kaupa og skipta um öryggi eða kaupa (óþarfan)
varahlut upp á 80 þúsund krónur sem síðan
útheimtir sjálfsagt nokkura klukkustunda vinnu við að
setja í á verkstæðinu (hver klukkutími er
á 13.500). Þannig ef við gerum ráð fyrir ca
4 klst vinnu þá hefði það kostað um 134.000
krónur að laga bílinn í Heklu, viðgerð
sem ætti ekki að kosta meira en 500-1000 krónur. Mér
blöskraði þetta mjög mikið og varð hugsað
þeirra einstaklinga sem búa ekki jafnvel og ég og leita
alltaf til bílaumboðanna í góðri trú.
Vona að þessi saga verði þeim víti til varnaðar
og að þeir fái a.m.k ráðgjöf annars staðar
frá ef gera þarf við bílinn.
Tjörvi
#1973 Ég
fór í Krónuna á Bíldshöfða
og þar keypti ég hveiti og kostar það samkv. Kassastrimli:
Heilhveiti 2 kg. 260 kr.
Hveiti 2 kg. 244 kr.
Í Kjarval á Hellu kosta þessar vörur
samkv. verðmerkingu á hillu.
Heilhveiti 2 kg. 425 kr.
Hveiti 2 kg. 364 kr.
Í báðum tilfellum erum við að tala um Kornaxvörur.
Þetta er okur og ekkert annað.
Brynjar Svansson
#1972 Ég
keypti rúðuvökva hjá N1 í desember
og kostaði 5 lítra brúsi þá um 900 kr.
Í dag þegar átti að endurnýja þessar
birgðir þá kostar hann 1210 kr. 35%
hækkun takk fyrir. Í desember voru allar verðhækkanir
komnar fram og get ég
ekki betur séð em að fyrirtækið sé
hreinlega að hækka sína álagningu. Ég
var ekki sáttur og kannaði aðeins í kringum mig
og fékk 5l rúðuvökva á MAX1
á Bíldshöfða 5 sem er beint á móti
N1 brúsann á 890 kr.
Árni
#1971 2 lítra
Pepsi
Max í 10-11 Arnarbakka á 339 kr.
Reynir
#1970 Herru, fór
að vesla i húsasmiðjunni um daginn,kaupa slatta af
timpri og vissi eg að þeir voru að auglýsa 10prósent
inneign þegar veslað væri í husasmiðjunni,en
vitið menn,það átti ekki við um þegar veslað
væri í timbursölunni,þannig að þessi
auglysing er ekkert nema plat:)
Buxi
(11.02.09):
#1969 Brandari
ársins í neytendamálum, eða lélegasti stærðfræðingur
ársins, er í Vetrarhöllinni í Smáralind.
Þetta systkinatilboð í vindlausan hoppukastala í
Smáralind slær allt út í markaðsmálum.
Afsakið léleg myndgæði á símamynd, ég
hló svo mikið að ég gat ekki haldið símanum
stöðugum. Fyrir utan okrið fyrir 10 mínútur
þá er þessi afsláttur einhver óræð
tegund af snilld.
Sérstaklega þetta frábæra loforð í
lokin: "o.sfrv." Maður heldur bara áfram að græða
og græða!
Það segir svo sína sorglegu sögu að börnin
fengu að fara samt sem áður, enda er maður oftast varnarlausastur
gegn þessari tegund af "þjófnaði."
Það hefur því líklega verið stærðfræðingurinn
snjalli sem hló alla leið í bankann.
F.
#1968 Mig langar
að benda á óvenjulega innheimtu skilagjalds Pennans/Eymundssonar
á bókum. Okkur hafði verið gefnar nokkrar eins
bækur í skírnargjöf dóttur okkar, svokölluð
"Dagbók barnsins", og þegar við ætluðum að
skila þeim í verslun Eymundssonar í Kringlunni var
okkur bent á að vegna þess að gefendur bókanna
höfðu ekki fengið skipti-límmiða hjá Eymundssyni
við kaupin þyrfti nú að innheimta 250kr skilagjald
á bókunum.
Okkur þótti þetta nú frekar undarlegt og
eiginlega ómerkilegt af fyrirtækinu að rukka fyrir slíka
"þjónustu" þar sem verið er að greiða til
baka í formi inneignar.
Dagbók barnsins kostar 1.730kr. Þetta er því
frekar há upphæð af þeirri bók.
Hvað finnst lesendum um þetta? Er þetta kannski bara
algjört smámál :-)
Margeir Örn Óskarsson
(Nb. Kannski smámál, en samt. Þetta er ný
leið fyrir fyrirtækið að ná inn aur og kennir
manni kannski bara það að fá alltaf skiptimiða
þegar maður kaupir bækur sem gjafir. Eiginlega ættu
búðirnar ekki að selja bækur öðruvísi
en með þessum miðum.)
#1967 Mig langar
að benda á lélega viðskiptahætti Bakarameistarans.
Þeir auglýsa tilboð mánaðarins sem er auðvitað
bara gott en í auglýsingunni stendur "Rúnstykki og
Kringlur 80 kr stk." Þarna álpaðist ég inn í
dag og þá átti þetta ekki við um spelt-
og þriggjakornarúnstykkin. Mér finnst ansi lélegt
að orða auglýsingu svona ef þetta á ekki við
um allar tegundir, bara þær ódýrari þar
sem maður mætti ætla að hinar tegundirnar tvær
væru dýrari í framleiðslu, ekki satt?
Ég bendi á http://i42.tinypic.com/a2zmgi.jpg
máli mínu til stuðnings.
Anna Arnarsdóttir
(ATH: Góðan dag, mig langaði bara að benda #1967
á að í Bernhöftsbakaríi eru öll
rúnnstykki á 50kr. Ég geri mér ferð
niður í miðbæ, sérstaklega um helgar, til
að ná mér í ódýr og góð
rúnnstykki! Birna)
#1966 Vildi bara
benda á villandi auglýsingar Tryggðarkortsaugl. frá
N1. Þar auglýsa þeir blákalt – 5 kr. afslátt
af eldsneyti og –15% af vörum. Í sumum auglýsingum eru
bara þessar tölur og ekkert meir. Í heilsíðum
er svo í löngu máli útskýrt að 5 kr.
fást með því að leggja saman kr. afslátt
og afslátt í formi vildarpunkta. 15% eru bara af bílatengdum
vörum. Í heilsíðunum er slegið upp tölum
með risasparnaði hjóna. Þar er síðan kostulegur
útreikningur á öllu sem þau þurfa að
kaupa hjá N1 til að spara þessa upphæð.
Sævar
#1965 Dóttir
mín á páfagauk sem við höfum alið á
fóðri sem fæst í 500 gr. poka í Bónus.
Ég tek það fram að páfagaukurinn er við
besta heilsu!
Þessi poki kostar í augnablikinu kr. 259.
En um daginn var þetta ekki til í Bónus, uppselt.
Fór því í Krónuna þar sem ég
vildi ekki láta aumingja páfagaukurinn verða svangann.
Keypti þar kassa með 500 gr. af páfagaukafóðri.
Önnur tegund að vísu, en fóðrið samanstendur
af sömu fræjum. Og gettu hvað þessi kassi kostaði?
Kr. 699!!!!!!
Sem sagt: Páfagaukaeigendur: EKKI fara í Krónuna!
Karólína
#1964 Hver slær
hendinni á móti helmingsafslætti í dag? Við
kljúfum kreppuna í tvennt til hagsbóta fyrir heimilin
því á 2fyrir1.is
finnurðu aðeins og eingöngu 2 fyrir 1 tilboð eða vörur
og þjónustu á 50% afslætti!
Semsagt: Alltaf helmingsafsláttur! Ekkert minna! Þetta
kallar maður alvöru búbót á hinum síðustu
og verstu …
Landsmenn hafa líka tekið framtakinu fagnandi. Við opnuðum
fyrir ókeypis skráningar þann 12. desember og hér
stöndum við í dag:
Skráðir notendur: 10.059
Útprentuð tilboð á dag: 50 að meðaltali
(Yfir 2500 útprentanir síðan 12.12.2008)
Fjöldi samstarfsfyrirtækja: 28
Það er ókeypis að skrá sig á 2fyrir1.is
– engar skuldbindingar, ekkert rugl, engar refjar og ALLTAF 50% afsláttur
eða 2 fyrir 1 af vörum og þjónustu.
Dæmi um samstarfsaðila:
Argentína steikhús
Fosshótel
Rauðará
Tapas Bar
Dalía blómabúð
Fitness Sport
Löður
Vegamót
Gyðjan snyrtistofa
Gunnar Andri
#1963 Segir allt
sem segja þarf. Þ.e.a.s. verðin - http://pizzahut.is/maxie/files/File/matsedlar/TA%20Feb-Mar%202009.pdf
#1962 Maðurinn
minn þarf að taka blópþrýstislækkandi
lyf. Cosar Comp. Honum var boðið samskonar lyf á ódýrara
verði. Svo fór hann að athuga þetta og kom þá
í ljós að samheitarlyfið var 100 kr dýrara
en Cosar Comp. Yfirleitt þiggur maður samheitarlyfið
hugsunarlaust. En neytendur þurfa greinilega að gá
að sér.
Sigrún
#1961 Vildi bara
deila með ykkur einni okursögu sem ég finn engan botn í.
Ég lenti
í því óhappi um daginn að týna
bíllyklunum og átti enga varalykla. Því fór
ég upp í Heklu og ætlaði að fá
þá til þess að smíða nýja handa
mér.
Allt í lagi með það, þeir sögðust
geta orðið við því en það myndi kosta
24.000 krónur! Fyrir hvað? Að skera út lykil?
Betra verður það þó ekki. Fyrir þessar
24 þúsund krónur fékk ég BARA
lykilinn. Enga fjarstýringu með til þess að geta
opnað bílinn úr fjarlægð.
Það kann að vera ákveðinn lúxus en
mér fannst þó skrýtið að ég væri
að
borga 24 þúsund og fengi ekki eina skitna fjarstýringu
með. Það kostar
víst 20 þúsund krónur aukalega að fá
fjarstýringuna... 44 þúsund krónur
semsagt fyrir lykilinn með fjarstýringunni - Ein afborgun
af bílnum.
Ég lét mig hafa þetta og pantaði lykilinn án
fjarstýringu. Þegar ég kom að
sækja hann og til þess að borga, þá létu
þeir mig fá lykilinn sem var eitt
það vanskapaðasta fyrirbæri sem ég hef á
ævi minni séð. Venjulega er
fjarstýringin áföst við lykilinn sjálfan
og hægt er að fella lykilinn inn
í hana. Í þetta skiptið var búið
að taka fjarstýringuna af lyklinum og
láta mig fá hálfan lykil sem djóklaust
lítur út fyrir að hafa verið
sagaður í tvennt. Ég get ekki einusinni fest lykilinn
á lyklakippu!
Geta þetta talist eðlilegir viðskiptahættir? Hekla
er hér komin í
yfirburðastöðu þar sem þeir geta í
rauninni haldið bílnum í gíslingu or
rukkað mann um hvaða fjárhæð sem er.
Vonandi getur þú bent fólki á þessa
peningagildru.
Guðmundur Páll Líndal
#1960 Í
haust áður en bankahrunið mikla skall á með öllum
sínum þunga, seldi hið lítilfjörlega bakarí
Kornið í Lækjargötu öll brauð á
199kr á miðvikudögum. Síðan ákváðu
þeir að verða bjargvættur litla mannsins í kreppunni
og buðu öll brauð á 219 kr sem er 10% hækkun.
Get ég vel skilið þá hækkun í ljósi
hækkandi gengis í haust. Núna um daginn sá ég
að öll brauð kosta 289kr sem er 45% hækkun síðan
í október. Snúðar, vínarbrauð og annað
bakkelsi hafa líka hækkað að jafnaði um 25%. Hver
borgar 200 kr fyrir einn snúð? Þetta er ekki hægt,
ég hélt að þegar þetta bakarí kæmi
í miðbæinn myndi það færa okkur miðbæjarpúkunum
eitthvað nýtt og ferskt. Nei OKUR og aftur OKUR þetta
er dýrasta bakaríið í 101. Þetta er hrein
svívirða og hvet ég alla til að snúa sínum
viðskiptum eitthvað annað. Gömlu handverksbakaríin
í 101 eru með langbestu verðin.
Palli
(07.02.09):
#1959 Þetta
er ekki okur-ábending heldur ábending um svívirðilegan
blekkingarleik
Húsasmiðjunnar: http://yddarinn.blog.is/blog/yddarinn/entry/796403/
#1958 Það
er dýrt að vera með njálg á þessum tíma.
Pakki með 32 töflum af Vanquin 50mg kostar 7999 í
Lyf og Heilsu! Fullorðin manneskja þarf að taka 8 töflur,
2 fullorðnar þurfa að taka 16 töflur. Svo eftir 2-3
vikur þarf að gera þetta sama. S.s. einn pakki dugar (vonandi)
á tvær fullorðnar manneskjur. Ég þakka fyrir
að vera ekki með stórfjölskyldu!
Óskar nafnleyndar
(ATH: Það er hagstæðara að leita til læknis
og fá uppáskrifað Vermox, fyrir utan að það
virkar mun betur en rauða litarefnið í Vanquin (Vermox er
breiðvirkara ormalyf sem eyðileggur meltinguna í kvikindunum).
6 töflur í pakka kostuðu ca. 2000 kr að mig minnir
í Lyf og Heilsu. Hver tekur eina töflu, og er það
endurtekið eftir 2-3 vikur og svo aftur eftir 2-3 vikur. Margborgar
sig og virkar betur. 2 skipti fyrir 4ja manna fjölskyldu kostar.)
#1957 Í
hvert skipti sem ég fer í Ámuna að versla,
þá er öllu stungið í poka og svo gefið
upp verðið sem ég á að borga.
Svo kíki ég á nótuna og þá
kostar pokinn 17kr.!
Er ekki venjan að spyrja hvort maður vilji poka ef hann kostar?
Og annað, það stendur á kvittuninni:
Samtals: 2.280.-
Afsláttur: -1
Til greiðslu: 2.281.-
Þarna er stolið krónu af manni í hvert skipti
sem maður verslar! Ekki há upphæð, en engu að
síður til skammar, og glæpsamlegt afthæfi!
Svavar
(Nb. Kannski spurning að hafa orð á þessu við
afgreiðslumanninn?!)
#1956 Hér
að neðan sést gott dæmi um haugalýgi og vafasama
viðskiptahætti, BT er að auglýsa vaxtalausa
helgi og í raun eru þeir að rukka 11,25% vexti sé
miðað við hvað nákvæmlega eins tölva
kostar í Tölvutek (neðar á síðunni).
#1955 Elektro
kveikjari
í
Olís Álfheimum kostar 391kr ef að það er ekki
rán um miðjan dag þá veit ég ekki hvað.
(06.02.09):
#1954 Ég
kem stundum við í Krónunni á Bíldshöfða
til að kaupa í matinn. 19. janúar s.l. keypti ég
þar Toro grýtu Bolognaise og kostaði hún þá
398.-kr.pakkinn. Nú í dag, 4. febrúar 2009 er verðið
á þessum pakka komið upp í 490.- kr. pakkinn. Mér
finnst nokkuð mikið að slíkur pakki hafi hækkað
um 23% á aðeins 15 dögum. Það er alveg ljóst
að maður kastar mörgum krónum á því
að versla í Krónunni.
Óskar
#1953 Samanburður
á verði millum Apple store í USA, Ástralíu
og Apple umboðinu á Íslandi:
Í Apple búðinni í USA (www.apple.com) er verðið
á iMac 24"
24" iMac2.8 GHz
2.8GHz Intel Core 2 Duo
2GB memory
320GB hard drive
8x double-layer SuperDrive
ATI Radeon HD 2600 PRO with 256MB
Free shipping!
http://store.apple.com/us/browse/home/shop_mac/family/imac
USD: 1,799 * 114 á gengi dagsins (5.febrúar) = kr. 205.086
Í Apple búðinni í Ástralíu (www.apple.com.au)
er verðið á sama iMac 24"
AUD: 2.399 * 73 á gengi dagsins (5.febrúar) = 175,127
kr
Í Apple umboðinu á Íslandi kostar þessi
sama tölva í dag littlar kr. 359.990
Mismunur við USA: kr. 154.904
Mismunur við AUD: kr. 184,863
Það mætti því kaupa sér TVÆR
iMac tölvur í Ástralíu og bland í poka
fyrir afganginn og svo gott sem það sama í USA.
OKUR!!
Makkaaðdáandi
#1952 Ég
hef átt iPod síðan um mitt ár 2005 og hann
hefur virkað eins og draumur allan tímann, þangað
til upp á síðkastið, svo ég fór til
Apple og ætlaði að láta gera við hann. þar
var mér sagt að vegna aldurs tækisins (3 1/2 árs)
mættu þeir ekki gera við hann! er þetta réttlátt?
Bryndís
#1951 Ég
fór í dag í Bónusverslun á Vesturlandi
og
á meðal þess sem ég sá var Sensodyne tannkrem.
Ég leit á verðið á tannkreminu og sá
að lítraverðið á Colgate var eitthvað um
2.800 krónur. Þarna var líka Euroshopper tannkrem á
um 1000 krónur lítrinn. Svo sá ég Sensodyne
tannkremið: Það kostaði bara 664 krónur lítrinn.
Frábært! Ég hlýt að taka það,
óvenjulega gott verð reyndar. Áður en ég tók
þetta ódýra Sensodyne tannkrem varð mér
litið aðeins til vinstri í hilluna. Þar var sams konar
verðmiði, á sams konar vöru. Þar stóð
að lítraverðið væri 6.640 krónur, en ekki
664 krónur eins og verðmiðinn hægra megin gaf til
kynna. Ég tek það fram að þetta var sama varan
og greinilegt að mistök höfðu átt sér stað
við gerð miðans, þar sem augljóslega vantaði
eitt núll í lítraverðið. Ég er ekkert
að fjargviðrast sérstaklega yfir því að
lítraverðið hafi misprentast, enda geta mistök átt
sér stað hvar sem er.
Nú kemur að skemmtilegasta partinum.
Ég fann unga og vingjarnlega stúlku sem vann í
versluninni og sagði henni af því að ég vildi
sýna henni mistök í verðmerkingu sem gæfu
til kynna að verðið væri tíu sinnum lægra
en það væri í rauninni.
Ég: Sjáðu, hérna er verðið 664 krónur,
en hérna 6.640. Þetta er sama varan og þess vegna heldur
fólkið að þetta sé 10 sinnum ódýrara
en það er í raun.
Hún: Já, fólk skoðar ekkert þetta verð
(sagði hún um lítraverðið eins og það
væri bara til skreytingar)
Ég: Hvað meinarðu!!!??? Fólk verður að
vita lítraverðið ef það á að meta hvað
hlutirnir kosta. Alveg eins og það notar kílóverðið
til að meta verðið á kjöti...
Hún: Allavega þekki ég engan sem gerir það...
Ég var bara heppinn að sjá þetta áður
en ég gerði þessi „góðu kaup".
Mér finnst þetta vekja upp enn meiri spurningar um verðvitund
þjóðarinnar ef starfsfólk verslana skynjar ekki
einu sinni mikilvægi þess að sjá rétt einingaverð...
Kristinn Leifsson
#1950 Vildi koma
með ábendingu varðandi bleyjumarkaðinn á
Íslandi. Á sjálfur 4ra mánaða son og höfum
við hjónin gert óformlega gæða- og verðkönnun.
Höfum komist að því að Europris bleyjurnar sem
fást í Bónus er að meðaltali 50% ódýrari
en sambærilegar bleyjur (Pampers, Friskies og Huggies), ~15kr/stk
á móti 30-35kr/stk. Jafnframt eru þær rakadrægari.
Er þetta einnig reynsla annarra foreldra sem við þekkjum.
Orðið á götunni er að bleyjuútbrot komi
síður með þessum bleyjum. Sel það ekki dýrara
en ég keypti það. Tel VIP bleyjurnar í Krónunni
ekki með í þessarri úttekt þar sem gæði
þeirra eru mjög léleg.
Erik Eriksson
#1949 Þurfti
að fá þér þrennskonar lyf. Hringdi í
tvö apótek, Lyf og heilsu í Mosó og Rimapótek
í Grafarvogi og náði með því að
spara mér rúmar 3.800 kr.
|
Lyf og heilsa |
Lyf og heilsa |
|
Amitriptyline 10 mg. 28x6 |
3.400,- |
850,- |
Mism. 2.550,- eða 75%. |
Pakodín 100 stk. |
1.526,- |
1.220,- |
Mism. 306,- eða 25% |
Ovestin 2 mg 30x3 |
4.950,- |
3.960,- |
Mism. 990,- eða 20% |
Samtals: |
9.876,- |
6.030,- |
Mism. 3.846,- = 38,9% |
Sesselja Guðmundsdóttir
#1948 Það
er ótrúlegt hvað fyrirtæki meta lítils núverandi
viðskiptavini sína og langtímaviðskiptasambönd.
Í tíu ár hef ég verið viðskiptavinur
World
Class og mánaðargjaldið verið dregið af Visa
kortinu mínu allan þann tíma án hléa.
Undanfarið hefur WC auglýst ýmis tilboð eins og gengur
og gerist. Borga einn mánuð, fá annan frían, og
tilboð til ýmissa stofnana og fyrirtækja um ókeypis
líkamsrækt með einhverskonar sektarfyrirkomulagi.
Hringdi ég á skrifstofuna og spurði hvort að
þessi fínu tilboð væru ekki í boði fyrir
alla viðskipavini en fékk það svar að þannig
virkaði þetta ekki. Sagði ég þá
upp kortinu mínu enda finnst mér að þeir kúnnar
sem eru búnir að vera lengst í viðskiptum eiga að
vera með bestu kjörin og tilboðin. Var uppsagnarfresturinn
á samningnum heilir 6 mánuðir sem ég vissi svo
sem af þegar ég gerði samninginn. Var síðan
að fara yfir yfirlitið í heimabankanum og sá þá
að upphæðin hafði hækkað úr ca. 12.875
í 14.420. Fannst skrýtið að fá enga tilkynningu
og hringdi því WC. Fékk þau svör að
þetta væri eðlileg vísitöluhækkun eins
og kveðið væri á um í samningnum og ætti
því ekki að koma á óvart. Þau hefðu
líka ákveðið í góðmennsku sinni
að hækka „bara“ um 12% en ekki 18% sem þau hefðu alveg
mátt gera.
Það er ótrúlegt að World Class skuli vera
að hækka verðskrána á sína traustu kúnna
á meðan þeir bjóða nýjum kúnnum
upp á ókeypis líkamsrækt og ýmis önnur
tilboð. Eins sé ég ekki betur en að kúnnum
hafi fjölgað verulega undanfarið sem ætti að draga
úr þörfinni á að hækka verðskrána.
Heyri á mörgum gömlum kúnnum að þeir
eru hundfúlir út í WC og ætla annað með
sín aukakíló.
Ragnar
#1947 Mig langar
að láta ykkur vita um vægast sagt dýrt skyr,
200 gr dós sem er selt í Átak, líkamsrækt
á Akureyri. Verðið á 200 gr. dós er ekki
NEMA 350 krónur. Eins svona skyrdós í Bónus
kostar um 90 kr. Ef þetta er ekki RÁN, hvað er þá
rán?
Trausti
#1946 Get ekki orða bundis
vegna þess að dóttir mín var að segja mér
frá því að hún hafi ekki getað notað
debet kortið sitt sem ég gaf
henni í jólagjöf og var frá Kaupþing-banka
(Gjafakort)
Hún ætlaði sem sagt að greiða reikning sem
var upp á rúmar tíu
þúsund og rétti gjaldkera kortið en fékk
þá svar að ekki væri hægt
að borga reikninga með þessu korti (Þetta var í
kaupþing-banka)
Ég hefði nú haldið að þetta kort væri
sama og peningar en svo
er víst ekki.
Af hverju er alltaf verið að gera fólk að "fíflum"?
spyr sá sem ekki veit
Er enginn mettnaður í bankakerfinu til að vera mannleg.
Gísli Sigurgeirsson
#1945 Mig langar
að segja þér smá sögu af undarlegum og jafnvel
ólöglegum viðskiptaháttum.
Málið er að ég á inneignarnótu
í Byggt og Búið, útgefna 08.12.2008 í
Smáralind.
Í dag átti ég erindi í Smáralind
og sé þá að það er rýmingarsala
í Byggt og Búið og ákveð að drífa
mig að versla fyrir inneignarnótuna svo að hún yrði
ekki ónýt.
Ég tíni saman nokkra hluti og fer að kassanum til
að gera upp, dreg upp mína inneignarnótu en þá
er mér sagt að ekki sé hægt að taka við
henni,
inneignarnótur gilda ekki á rýmingarsölunni,
mér þótti þetta undarlegt og spyr hvar þetta
sé auglýst og lít í kringum mig til að
athuga hvort mér hafi yfirsést einhver auglýsing um
það en hvergi var hana að finna og staðfesti afgreiðslumaðurinn
það.
Rökin fyrir því að ég gat ekki notað
inneignarnótuna voru þau að þetta væri til
þess að koma í veg fyrir að farið yrði með
vöruna í Byggt og Búið í Kringlunni og henni
skilað þar og þá á fullu verði. Ég
verð að viðurkenna það að þegar ég
hlustaði á þessi rök fór um mig undarleg tilfinning,
við skulum bara kalla það reiði, mér var mjög
misboðið.
Nú vildi ég gjarnan fá að vita hvort svona
vinnubrögð eru lögleg, allavega eru þau siðlaus
og ekki þessari verslun til sóma.
Þorbjörg Hannesdóttir
#1944 Í
Hafnarfirði er lítil (krúttleg 20 fermetra) fiskbúð
sem heitir Litla fiskbúðin. Þar er hægt að
kaupa sér í soðið alla daga vikunar (nema sunnudaga)
mjög ódýran GÓÐAN fisk. Kílóverð
á ýsu án roðs og beinhreinsuð er 890 en með
roði 790. Stundum er tilboð en þá fer ýsan
niður um 100 kr. Litla fiskbúðin á því
heiður skilið að geta loksins boðið almenningi GÓÐAN
fisk á viðráðanlegu verði. Litla fiskbúðin
er í norðubæ Hafnarfjarðar (fyrir aftan Samkaup).
og er rekin af feðginum. (að ég held).
Einn fastakúnni
#1943 Þar
sem ég og konan erum ad fara ad fjölga íslendingum um
einn nú í februar til ad skuldir Íslendinga dreifist
á fleiri hendur, þá hef ég verid ad skoða
bílstóla.
Nidurstadan virdist ekki vera gód fyrir tryggingafélögin
sem eru dugleg ad auglýsa sig bædi í blödum og
á netinu sem lang hagkvæmasta kostinn.
Sjóvá auglýsir 40% afslátt fyrir vidskiptavini
sína sem eru í stofni og tala þá um af ALMENNU
verdi.
Dæmi tekid af heimasídunni:
Britax eclipse si fyrir 9-18 kg ALMENNT VERD 34395 stofnfélagar
20637
þú semsagt sparar heilar 13758 kr.
hmm...
Nákvæmlega sami stóllinn i Olavia&Oliver..
Britax eclipse si fyrir 9-18 kg 23900 án nokkurs
afsláttar,en bodid er
uppá 5% stgr afslatt þar svona almennt.
23.900 Þad er eins gott ad tad er ekki ALMENNT
verd þvi þá þyrfti Sjóvá
ad selja þessa stóla á 14340 midad
vid 40% afslátt.
Svo auglýsir VÍS stóla til leigu sem er ágætur
kostur fyrir marga sérstaklega þar sem 3 stærdir eru
í bodi þannig ad þegar barnid vex uppúr stólnum
skiptirdu honum bara upp í þann næsta bara slétt
skipti og ekkert vesen. Einn stór galli, fyrsti stóllinn
og sá sídasti eru uppseldir og er bidlisti i gangi, þá
gæti farid svo ef madur er (heppinn) ad fá stól ad
þegar barnid vex uppúr honum þá er ekkert annad
i stödunni en ad kaupa sér næsta stól. Allaveganna
þá hljóma þessi tilbod hjá tryggingafélögunum
mikið betur en þau raunverulega eru.
Jörgen Sigurðsson
(Svar: Sæll Jörgen ,
Mig langar til þess að byrja á að óska
ykkur til hamingju með væntanlega fjölgun núna í
febrúar.
Það skiptir svo sannarlega miklu máli að huga
vel að öryggi barna í bílum og hefur það
verið Sjóvá mikilvægur þáttur að
geta stuðlað að því.
Fyrir þá sem eru viðskiptavinir í STOFNI
hjá okkur standa til boða barnabílastóla
tilboð, bæði hjá N1 og Ólavíu
& Óliver. Þessar verslanir eru með mismunandi vöruframboð,
en eitthvað af sömu stólunum. Hinsvegar er verðlagningin
ekki sú sama hjá þeim, þrátt fyrir að
um sömu vöru sé að ræða. Það er
alfarið í þeirra höndum að sjá um að
verðmerkja sínar vörur og svo er það okkar að
semja um afláttarkjör fyrir okkar viðskiptavini.
Dæmið lítur því svona út:
Britax Eclipese SI fyrir 9-18 kg
Ólavía og Óliver Verð 23900 / með afslætti
16.730 krónur
N1 Verð 34.396 / með afslætti 20.638 krónur
Ég vona að þið getið nýtt ykkur þetta
tilboð og einnig vill ég segja ykkur frá Sjóvá
Forvarnahúsinu ef þið eruð með einhverjar spurningar
varðandi öryggi barna, hvort sem það er í bílum
eða á heimili.
Gangi ykkur vel,
Eva Björk – Sjóvá)
#1942 Ég
og unnusta mín fórum í hagkaup Garðabæ um
daginn að versla okkur Ferrari barnabílstól, mér
fannst þetta ágætis hugmynd því ferrari
er frægt merki fyrir gæði. En allt kom fyrir ekki og þegar
ég ætlaði að festa stólinn í bíllin
þá brotnaði festingin sem heldur beltinu utanum stólin
og heldur stólnum föstum í bílnum. Ég
fékk þá stólnum skilað og endurgreitt. Eftir
á að hyggja sá ég hvað er málið,
það er þessi sveif sem er notuð til að herða
niður stólin er úr plasti og er algjört drasl.
Ármann
#1941 Langar að
benda á mikinn verðmun á barnabílstólum
af sömu gerð. Britax first class fæst bæði í
Ólafíu og Óliver Glæsibæ á 29.900
og hjá N1 á 39.415. Ég spurði starfsmann (Örnólfur)
N1 hvernig stæði á þessum verðmun og hann gaf
þá skýringu að hann skildi þetta ekki þar
sem Ólafía og Óliver keyptu stólana af þeim.
Ég er sjálf í stofni og fæ því
40% afsl af stólunum hjá N1 en 30 % hjá Ólafíu
og Óliver en þrátt fyrir minni afsl sem slíkan
þá verður stólinn alltaf ódýrari
hjá Ólafíu og Óliver.
Finnst svona einkennilegt þar sem við erum ekki að tala
um einhverjar nokkrar krónur í verðmun á sömu
vörunni heldur tæpar 10.000 kr og það munar um minna.
Andrea
(04.02.09):
#1940 Langar að
benda á hársnyrtistofu sem er ekki OKUR. Herraklipping
2900, dömuklipping 3100. Engar tímapantanir bara mæta
á staðinn, góðir fagmenn. Stofan heitir Hárflikk
og er á horni Miklubrautar og Lönguhlíðar í
litlum bílskúr, Lönguhlíðarmeginn. Ef frekari
upplýsinga er óskað er síminn 8625186.
Einsi
#1939 Ég
var í Strax Samkaup verslun áðan og ætlaði
að kippa með mér 2l Coke flösku og verðið barði
mig allveg fast í fésið. 330 kr fyrir tveggja lítra
flösku! Hvað er að gerast þarna??
Ekki langt síðan ég gat farið í bónus
og keypt 2l coke á 99-120 kr. Dýrustu sjoppur og video leigur
hafa verið að selja flöskuna á 250-270 kr er það
dýrasta sem ég hef séð en þegar svona fyrirtæki
er farið að selja flöskuna á 330 kr og fela sig bakvið
kreppuna svona eins og baugur/hagar gera með 10/11 er bara fáránlegt.
Þeir eru semsagt bara búnir að ákveða að
laga framlegðina hjá sér svona helv mikið með
300% plús kr álagningu? Þeir eru að fá flöskurnar
á sama verði inní búðir samkaups og allra
hinna en þetta verð er bara bull.
Kókisti
#1938 Nú
er svo komið að endurnýja þarf eitt og annað í
pennaveski guttans
(7 ára) og er hann m.a. orðin uppskroppa með tréliti.
Í dag 3. febrúar 2009 fór ég á stúfana
og byrjaði á því að fara í
Eymundsson í Hafnarstræti á Akureyri.
Þar kostuðu 24 Faber Castell trélitir 3400 krónur
(rúmar) sem þýðir að
hver litur í pakkanum kostar rúmlega 141 krónu.
Mér fannst þetta heldur dýrt þannig að
ég ákvað að kíkja í fleiri búðir.
Næst lá leið mín í Office1 á
Glerártorgi og þar kostaði sama vara 24
Faber Castell trélitir 1799 krónur eða um það
bil 75 krónur liturinn.
Þetta finnst mér ótrúlegur verðmunur
á sömu vöru.
Sólveig
#1937 Langar að
segja frá okurverði úti á landsbyggðinni.
Lét kaupa fyrir mig í Bónus, 10 stk smjörlíki
og 10pk kaffi. Þetta kostaði kr.7.700.-. Í minni heimabyggð
kostar samskonar karfa kr.13700.-
Mismunurinn er s.s. kr.6.000.-
Nafnleyndar óskað
#1936 Keypti mér
máltíð mánaðarins á KFC en þurfti
að kaupa mér gos aukalega því að máltíðum
mánaðarins fylgir ekki gos á KFC.
Einnig fórum við fjölskyldan á American style
þar sem auglýst er að sá yngsti borði frítt
en þegar til kom þurfa víst að vera fjórir
í fjölskyldunni til að tilboðið gildi Þetta
kalla ég vörusvik.
Valgerður María
(03.02.09):
#1935 Værir
þú til í að setja eftirfarandi í umræðuna
í neytendahorninu?
Þetta varðar eitrið ASPARTAM
Sjá viðhengi og eftirfarandi vefsíður.
http://video.google.com/videoplay?docid=-566922170441334340
http://vald.org/greinar/040808.html
Siggi Jensson / www.ymislegt.net
/ þar fæst einnig Tinna
svunta!
(ATH: Ekki drekk ég gos með Aspartam, reyndar ekkert
gos, bjór er miklu „hollari“, amk. betri, en Aspartam umræðan
hefur kostað mikinn æsing hér heima (þar sem allar
samsæriskenningar eru gripnar á lofti) og hefur alltaf farið
aðeins í taugarnar á mér, veit ekki hvað er
satt og rétt en sbr. http://www.vantru.is/2007/01/26/08.00/
þá er amk. ekki gefið að þetta sé
stórhættulegt og allt í lagi að hafa bæði
sjónarmiðin á hreinu. Valgarður)
#1934 Ég
keypti 715 gr. Cherioospakka (hunangs) í Hagkaupum á
laugardaginn. Það er nú ekki í frásögur
færandi nema að ég skrifaði hjá mér
verðið á hillunni og bar svo saman við verðið
sem kom upp á kassanum. Það var svolítið skemmtilegt.
Á hillunni stóð 577 það sem ég borgaði
var 699. Það var ekkert mál að fá mismuninn
endurgreiddan en maður er nú ekki að bera þetta saman
á öllu sem maður kaupir. Ætli þetta sé
algengt? Það er frekar dapurlegt að geta ekki treyst að
vörur séu rétt verðmerktar. Ég hélt
að það væri búið að argast svo mikið
í þessu að þetta væri nú orðið
í lagi. En heldur betur ekki.
Sigrún Finnsdóttir
#1933 Ég
hef sjaldan verið jafn svekktur og með Sporthúsið
sem er að auglýsa vilt og galið. Ég fell fyrir þeim
pakka og tók árs samning. Eftir 2 mánuði sá
ég að Sporthúsið er alls ekki minn staður og
fór. Ég meiddist einnig aðeins og stoppaði þetta
allt. Ég sagði upp samningi með 3 mánaða uppsagnarfresti.
Það er semsagt að gefa þeim 3 mánuði frítt.
Og ekki nóg með það, þá greiðir
maður sér samningsgjald einnig við byrjun. Eftir 3 mánuði
hélt ég áfram að fá 4.900 kr í bankann.
Ég hringdi og fékk þær upplýsingar að
ég hefði sagt upp samningi og ætlaði mér ekki
að vera þarna áfram. En þá kom í ljós
að ég hafi verið settur á fyrirtækjasamning
sem er ekki hægt að rifta. Þannig að ég þarf
að greiða alla 12 mánuði þótt ég
mæti ekki og þótt ég hafi skrifað undir uppsögn.
Sporthúsið er núna að auglýsa grimmt til að
fá ungt fólk inn til sín úr skólunum
og binda það niður í ár. Ef krakkarnir hætta
þá eru þau samt að borga í ár. Þetta
er ekkert annað en stuldur á peningum. Fólk hefur yfirleitt
alltaf þá hugmynd að þú getir hætt
ef þér líkar ekki staðurinn eða eitthvað
kemur upp, en það kemur Sporthúsið alveg í
veg fyrir með því að stela af þér peningum.
Þetta er klárlega rán og siðlaust, það
getur vel verið að þetta sé í skilmálum,
en ef fólk vill komast í burti þá er það
einfaldlega ekki hægt. Fólk getur ekki farið annað
því það þarf að greiða af sporthúsinu.
Þannig að það er að neyða sig til að mæta
þangað. Það vill enginn vera að borga af 2 stöðum
á sama tíma heldur.
Erling Valur Ingason
#1932 Ég
þarf að láta aðeins vita um það sem ég
kalla OKUR OG SVINDL.
Ég fór í gær 1.feb. í Intersport
í Lindum Kópavogi, var ég að leita að snjóbretti
fyrir 6 ára
Barnabarn mitt. Þegar ég kem þangað inn
þá sé ég bretti og er það merkt 12.990,-
og taldi
Ég mig hafa himin höndum tekið og ætlaði
að kaupa þetta bretti.
Nei aldeilis ekki brettið var merkt á plastinu með fyrrgreindu
verði en svo var stór miði undir
Brettinu og þar stóð 22.990.- fannst mér
þetta nú heldur betur vera eitthvað sem ekki var í
Lagi, en afgreiðslumaðurinn stóð fast á sínu
og sagði að þetta væri eitthvað ekki rétt
verð.
BRETTIÐ KOSTAÐI 22.990,- OG EKKI KRÓNU MINNA en
svo var 20% afsláttur af þessu verði.
Þau svör sem afgreiðslumaðurinn kom með voru
með ólýkindum.
Þetta hefur kannski verið verðið á gömlu
sendingunni og svo var það hækkað.
Nei ég get ekki sætt mig við þetta og það
engan veginn.
Tel ég að þarna komi hið sanna í ljós
varðandi ÚTSÖLURNAR núna.
Verðið er hækkað eins og í þessu dæmi
um 10.þúsund krónu og svo veittur skitinn 20% afsláttur.
Ég ákvað að kaupa ekki brettið en lét
þessi í stað heyrast vel í mér að þetta
væri það alvesta svindl
Sem ég hefði orðið vitni af og ætlaði
ekki að versla þarna hvorki núna né seinna.
Og ég ætlaði að
Láta vita af þessu.
Það er með eindæmum hvað hægt er að
gera núna á þessum síðustu og vestu dögum.
Ákvað að senda þetta til þín, en
þetta er sennilega það sem gert er til að ná
upp í „Næstu“ sendingu.
Bergþóra M. Jóhannsdóttir
#1931 ÉG
FÓR Í Múlakaffi og keypti Þorrabakka
fyrir 2 og borgaði 4500 kr (hefði mátt vera 2500). En nennti
ekki að fara annað svo ég lét taka mig í görnina.
En viti menn það reyndist ekki vera neinn hvalur í pakkanum,
svo ég fór í galleri fisk og kjöt og keipti
flís á 3000 kr kílóið þetta var görnin
tvö svo ég ráðlegg engum að fara á þessa
staði til að ná sér í forna menningu.
Sigurjón Guðmundsson
#1930 Ég
fór á útsölur í dag mánudaginn
2. febrúar 2009, ég fór í Debenhams
í Smáralind, þar sem er auglýstur er 20%aukaafsláttur,
til viðbótar þeim sem áður hafði verið
gefinn,sem virtist vera mest á bilinu 30 til 50%.
Ég hugsaði strax, ókei, það er 70% afsláttur
af einhverjum vörum og leist vel á það.
Nú ég sá þarna fallega úlpu (fullorðins)
sem hafði kostað kr: 14.990,- og var hún auglýst
með 50% afslætti og 20% viðbótarafslætti, ég
með hana að afgreiðsluborðinu til þess að fá
endanlegt verð á hana. Jú úlpan kostaði
kr: 5.996,- og fannst mér það ásættanlegt
og fjárfesti í flíkinni.
Ég fór svo heim og fór að skoða þetta
betur, þar sem þessi endanlega upphæð stóð
eitthvað í mér og ég fór að reikna
út afsláttinn.
Debenhams reiknaði þetta svona:
fullt verð kr. 14.990.-
50% afsláttur kr: 7.495,-
verð eftir 50% afslátt kr: 7.495,-
20% afsláttur af 7.495,- kr: 1.499,-
og verðið því kr: 5.996,-
Ég varð mjög hissa, því ég skildi
þennan viðbótarafslátt þannig að, það
væri 70% afsláttur af flíkinni, og afgreiðslustúlkan
sagði það meira segja við mig, að svo væri.
En samkvæmt minni reiknivél að þá liti
verðið svona út
fullt verð kr: 14.990,-
70% afsláttur kr: 10.493,-
og endanlegt verð hefði þvi verið kr: 4.497,-
munurinn er því kr: 1.499,- sem mér finnst ég
hafa verið snuðuð um.
Þannig að heildarafsláttur í þessu tilfelli
er 60% en ekki 70%, og það getur nú munað um minna,
það eru reyndar spjöld um alla verslun, þar sem
tiltekið er upphaflegt verð, verð m/50% afslætti og verð
með viðbótar 20% afslætti. En ég gat ekki séð
að það væri tekið fram á þeim, hvernig
þessir afslættir væru reiknaðir út.
En ég er alveg viss um að meirihluti fólks, lætur
heillast af þessu tilboði og heldur að það sé
að fá 70% afslátt, mér þykja þetta
frekar slæleg vinnubrögð og svona frekar til þess
að svekkja viðskiptavininn heldur en til þess að gleðja
hann.
Ég vil þó taka fram að Debenhams er mjög
oft með góð helgartilboð og mjög góðan
afslátt af vörum og hef ég mikið nýtt mér
það, þó sérstaklega í barnadeildinni.
En ég vildi bara vekja athygli á þessu, þar
sem ég flaskaði á þessu, að þá
geta aðrir líka lent í því.
Ingibjörg R Þengilsdóttir
#1929 Ég
ætlaði að kaupa 35w halogen peru (svona stóra í
kastara) í Krónunni og sem betur fer rak ég
augun í verðið 1990 kr stk, þar sem mig vantaði
3 stk.... nei takk, ákvað að vera perulaus áfram
frekar en að borga tæpar 6000 kr fyrir 3 perur.
Fór í byko stuttu seinna og þar var stykkið
á rúmar 700 kr.
hefði getað fengið stykkið á 500 kr ef ég
hefði vilja aðeins minni.
Íris
(02.02.09):
#1928 Við
hjónin fórum í gær í Mál og
menningu á Laugavegi til að kaupa afmælisgjöf
handa vini okkar sem er fertugur. Fundum góða bók
á þokkalegu verði og vantaði
svo kort til að fylgja með. Konan mín fann einfalt
kort en sá ekki verðin í
standinum. Á meðan verið var að pakka gjöfinni,
skrifaði hún í kortið og ég
borgaði. Ég hrökk aðeins við þegar konan
á kassanum gaf upp verðið. Bókin
kostaði 3.990 kr. sem ég vissi, en kortið var á
795 kr!! Hvaða álagning skyldi
vera á því? 500% eða hvað? Þetta
er óþolandi græðgi og því miður
gátum við ekki
skilað kortinu því konan var byrjuð að skrifa
í það. Hvað er eiginlega í gangi
með þetta lið? Ég meina hvers lags djöfulsins
okur er þetta eiginlega. Þetta
verð er alveg út úr Q. Á sama tíma
og bókaverslanir eru með útsölur, þar sem
by
the way er hægt að gera ágætis kaup, taka menn
sig til og selja fólki afmæliskort
á kr. 795!!!!!. Það er greinilegt að maður
verður sífellt að vera á varðbergi
gagnvart kaupmönnum hér á landi. Lykilatriði
er að finna út hvað hlutirnir
kosta áður en greitt er fyrir þá. Ég
tek það fram að við hjónin höfum mjög
sterka verðvitund, og vorum því allt annað en
sátt við þessi viðskipti. Þetta
skemmir klárlega fyrir viðkomandi fyrirtæki, og munum
við hugsa okkur um
tvisvar áður en við styrkjum svona lið aftur. Ég
meina get a grip, 795 kr.
fyrir lásí afmæliskort!
Jakob Aðils
#1927 Mig vantaði
blek
í
dag þannig að ég kom við í Bóksölu
stúdenta á leiðinni
heim úr skólanum. Blekið sem mig vantaði (Canon
3e Black) kostaði þar
2888kr og ég fékk nett áfall. Í byrjun
janúar þá hafði ég keypt sama blek
á 1998kr í Eymundsson þannig að ég ákvað
að fara þangað og athuga verðið
áður en ég fjárfesti í þessu
rándýra blekhylki. Viti menn, verðið var
ennþá 1998kr. Þarna munar tæpum 900kr á
einu blekhylki !!! Ég hringdi í
Bóksöluna og fékk þá skýringu
að Eymundsson hlyti að eiga gamlan lager.
Veit ekki hvað er til í því en mér finnst
þetta samt aðeins of mikill
verðmunur.
Óskar nafnleyndar
(ATH: Ég keypti mér um daginn blek í verslun í
Ármúla 31 sem heitir Vitamin.is/Blek.is. Þetta eru
"feik" blek en virka hinsvegar fullkomnlega. Prentaði út ljósmyndir
með þvi og það kom alveg eins út eins og orginal
blekin. Hver segir að þú verðir að nota orginal
blek og pappír til að fá út góð gæði?
Þú verður bara að fara í verslunina með
númerið á blekinu í prentarann. Ég keypti
3x svar og 1x blátt 1x gult og 1x rautt og þetta kostaði
um 3000kr. Elín)
#1926 Langaði
að benda ykkur á verðið á einni peysu & einum
bol útsölunni hjá Zöru í Smáralind.
Læt hérna mynd fylgja með, hún segir held ég
allt sem segja þarf.
Vinstra megin byrjaði varan í 1,495kr & á útsölu
er hún á 1,495kr
Hægra megin byrjaði varan í 1,795kr & á
útsölu er hún á 2,295kr ..
Þarna græddi ég sko á því að
versla á útsölu, NOT!
Áslaug
#1925 Ég
er í Ferðamálaskóla Íslands. Ég
borgaði mín skólagjöld uppá 350.000 ISK og
í
staðinn átti ég að fá kennslu á
íslensku þar sem allt námsefni er á ensku. Svo
þegar við byrjum í Amadeus bókunarkerfinu þá
kemur í ljós að enginn kennari er
í þessu fagi heldur kennir kerfið þetta sjálft
og að sjálfsögðu Á ENSKU, maður
spyr kennarann út í þetta og maður fær
svör alveg út í bláinn sem komast ekki
nálægt því sem ég var að spurja.
Þannig ég þarf að mæta í tíma
þar sem enginn
kennari er reyna að krafla mig í gegnum þetta á
menntaskóla enskunni minni, það
er enginn til að leita hjálpar til með kerfið því
maðurinn sem situr yfir okkur
hefur enga þekkingu á kerfinu. Á ég að
þurfa að senda fyrirspurnir mína út til
IATA?
Þetta er kanski ekki okur en þetta er í alla staði
laaaangt frá því að vera
ásættanlegt, en þar sem skólinn er einkarekinn
hvert á ég að leita? Ég er búin
að leita til Menntamálaráðuneytisins en var vísað
þaðan út á grundvelli þess að
skólinn væri einkarekinn. HVERT FÖRUM VIÐ ÞÁ!?
INGA HRÖNN
#1924 Ég
fór í kvikmyndahús í kvöld og tók
eftir því eins og oft áður að viðskiptavinir
nýja kaupþings fá sérstakan afslátt ef
þeir greiða með korti nýja kaupþings. Ég
er viðskiptavinur nýja glitnis , sem er eins og nýji
kaupþing og nýji landsbankinn allir orðnir ríkisbankar.
Ég spyr hvort þetta sé löglegt ?
Jónas
(30.01.01):
#1923 Ég
fór, eins og margir Reykvíkingar gera á laugardögum,
í nammiland í Hagkaup. Það á að
vera svo ódýrt- maður fær nammið á hálfvirði.
Fyrir ofan nammistandinn stóð stórum stöfum: 50%
afsláttur á laugardögum. Mér finnst ég
alltaf vera að græða- fyrir hver 2 nammi sem ég tek,
fæ ég eitt gefins.
Þarna stóðum ég og dóttir mín,
köfuðum okkur leið í gegnum mannþröngina
með hlaupkarla undir skónum. Ég náði tveimur
broskörlum og við og við kallaði ég á dóttur
mína til að athuga hvort hún hefði nokkuð troðist
undir í öllum látunum. Fólk hamstraði, keypti
jafnvel 3 troðfulla poka af alls konar nammi. Ég valdi nokkur
nammi fyrir mig og spúsann, tók 2 af hverju og gafst loks
upp eftir að finna að mér var orðið mjög heitt-
leið eins og ég væri að reyna að komast fremst
á Sálartónleikum, svo mikill var troðningurinn.
Mér verður litið á fimmtuga konu þarna
í mannþrönginni. Allir í kring virðast hverfa
og ég fylgist með henni. Hún opnar nammiboxið á
jarðaberjahlaupinu, treður höndinni ofan í, tekur eina
lúku og setur í troðfullan pokann. Ég horfi á
hana með vanþóknun og finn að mér verður
óglatt. Hún tekur eftir mér og horfir skömmustulega
á mig, snýr sér við og finnur sér leið
út úr nammilandinu. Ég segi dóttur minni mjög
hátt að við skyldum bara hætta við að kaupa
nammið þar sem við værum að kaupa bakteríur,
útskýrði fyrir henni háttsemi konunnar og sagði
henni að sumir væru bara of dónalegir til að nota
skeið. Hún lítur á mig með tárin í
augunum og segist vera búin að velja besta nammið og að
hana langi eiginlega ekki til að skila því. Ég
segi henni að næst munum við fara út í sjoppu
á laugardögum í stað þess að ferðast
alla leið í Hagkaup í nammilandið.
Við komum að kassanum, borgum og göngum burt. Ég
hef þann sið að skoða miðann sem ég fæ
frá afgreiðslustúlkunni og rek ég þá
upp stór augu, 975 krónur kílóið af sælgæti!!!
Á venjulegum degi eru þetta sem sagt um 2000 krónur
kílóið! Ekkert skrýtið að Okurkaup (það
ætla ég að kalla Hagkaup héðan í frá)
skuli ekki láta verðið standa fyrir ofan nammilandið.
Þess ber að geta að í sjoppunni í Grafarholtinu
kostar kílóið bara 1690 krónur á venjulegum
degi.
Ég heiti því héðan í frá
að versla ekki nammi þarna aftur - þó ég
fái sýkla í kaupbæti.
Inga Jessen (http://www.atvinnulaus.blog.is)
#1922 Mér
datt í hug hvort þú vissir af því hvað
tryggingar á bifhjólum eru háar hér á
skerinu? Ég fékk um daginn yfirlit frá VÍS
um mínar tryggingar, þar var að finna listaverð upp
á 680þ fyrir árs tryggingu fyrir bifhjól. Síðan
kemur afsláttur vegna viðskipta bla bla bla og endanleg tala
um 99þ. Ef maður skoðar þetta að þá
er það slysatrygging ökumanns sem er aðal þátturinn
í þessu okri. Fyrir 4.árum fékk ég tilboð
frá Danmörku og Noregi fyrir samskonar hjól og ég
var að tryggja hér og þá var verðið
um 4.000 dkr nkr úti en hér heima fékkstu gíróseðill
upp á 480.000 þ og síðan hófst prúttið
við umboðsmanninn um hvað ættir að borga. Það
er merkilegt að enn í dag þarf maður að ganga
á milli tryggingarfélaga og biðja um tilboð til að
reyna að lækka pakkann og allt kemur það upp hjá
þeim æææ þú átt mótorhjól
þar fór í verr. Síðan er vaðið í
ósmurða görnina á manni og ekki boðið vaselín
(sorry er pisst út í þessa okurhunda).
Hannes H. Gilbert
#1921 Langar að
benda á eina verslun sem ég hef sérstaklega tekið
eftir að beinlínis að okra á viðskiptavinum og
ég bara fæ ekki skilið að nokkur versli þar
lengur. Sú ágæta verslun heitir Olís.
Það gekk endanlega fram af mér þegar dekkjahreynsirinn
sem ég greiddi um 800 krónur fyrir fyrir cirka ári
síðan kostaði tæpar 1.800 í dag. Líter
af ísvara kostar þar núna tæpar 1.200 krónur
og ég gæti lengi haldið áfram.
Fyrst við erum að tala um olíufélögin má
líka benda á að það er ekki lengur neinn teljanlegur
munur á því að nýta sér þjónustu
starfsmanna á plani og að dæla sjálfur. Var á
Ítalíu í sumar og þar var þessi munur
cirka 12 kr. ISK en hefur hér verið 2 Krónur svo lengi
sem ég man eftir mér. Skil ekki hvað fólk er sofandi
yfir þessu. Það er greinilega tilbúið að
vinna frítt fyrri þessi góðu félög
sem hugsa svo mikið um hagsmuni viðskiptavina sinna eða þannig.
Eins er áhugavert að sjá hvað Atlansolía er
tilbúin að taka þátt í sukkinu þrátt
fyrri fallega byrjun.
Vilhjálmur
#1920 Á
bls. 17 í fréttablaðinu 29.01.2009 er auglýst
rýmingarsala í Byggt og búið Smáralind.
Auglýstur er lágmarksafsláttur
30% og allt að 80%. Ég var í þessari búið
í dag og þar var ekki ein
vara á meira en 30% afslætti. Talaði meira að
segja við starfsmann sem
tjáði mér að allt í búiðinni
væri á 30% afslætti. Þetta finnst mér
svindl á háu stigi til að lokka fólk í
búðina.
Nafnleyndar er óskað
-----
Okur #1774 - 1919 eru hérrrrrrrrrrrrrrrrrrrrnaa.
Veistu um svakalegt okur? Láttu
vita! |