2006 XXXX=Snilld / XXX=Fínt / XX=La la / X=Drasl / 0=Viðurstyggilegur viðbjóður

Úti að aka - Á reykspúandi Kadilakk yfir Ameríku (e. Einar Kárason og Ólaf Gunnarsson) --> bók XXX
Mjög skemmtileg saga miðaldra manna með gullkorn á vegum úti. Kaflar Ólafs eru sérlega skemmtilegir og ég fann hjá mér sterka hvöt til að lesa bækurnar eftir hann sem ég hef ekki þegar lesið.

Freedomland --> vod X
Drasl sem veit ekki hvort það á að vera dularfull spennumynd um barnshvarf eða Spike Lee-leg mynd um kynþáttaspennu.

The Big White --> vod XX
Þolanleg Fargo-vannabí.

Casino Royale --> bíó XXX
Byrjaði á svaka aksjón á byggingarsvæði og toppaði það ekki síðar í myndinni. Þarna var til dæmis ekkert sprengja allt í tætlur dæmi í endann. Miðað við píkuandlitið Pírs Brosnann, sem minnir alltof mikið á Stefán Jón Hafstein til að vera kúl, er þessi nýji Craig hvaðsemannheitir nokkuð traustur. Hann var laminn illilega í punginn en var kominn á fullt á lovintrestið skömmu síðar. Greinilega með stálpung. Óraunveruleg þvæla semsé en besti bond ever, líklega.

Thank you for smoking --> dvd XXX
Engin pc messa um skaðsemi reykinga heldur voða svart og alveg ágætt.

The River king --> vod XXX
Allágæt smábæjarlöggumynd frá Kanada. Svo sem ekki laus við klisjur en smá fersk engu að síður.

Love: Behind the Scenes e. Michael Stuart-Ware --> bók XXX
Trommarinn í Love með gífurlega jarðbundna sögu af veru sinni í bransanum. Minni hans er ótrúlegt, hann man minnstu smáatriði og tínir þau til, hundaskítur á götu árið 1964 o.s.frv. Lítið af kvennafarasögum, en slatti af dópi og útkoman helst sú að Love hafi verið mun meira en bara Arthur Lee (sem kemur fyrir sjónir sem algjört leiðindagerpi), t.d. fær samverkamaðurinn Bryan MacLean góða einkun. Ágæt bók, dáldið plebbaleg sem er svo sem í lagi, lítil rokkfræði en þess meiri reynslusaga. Aðallega þó bók sem varpar góðu ljósi á hvað var í gangi hjá Love þegar meistaraplötur þeirra á 7. áratugnum voru búnar til.

Mýrin --> bíó XXX
Hafði ekki lesið bókina en þetta hélt vel og var bara helvíti flott, þó kannski ekki endalaust æðislegt. Ég er t.d. ekki ennþá með það á hreinu hver drap Grétar og af hverju. Ingvar og Ágúst Eva eru ekki sannfærandi feðgin en annað var flott, t.d. Björn Hlynur, sem var frábær sem Sigurður Óli (og skemmtileg týpa sá gaur) og Atli Rafn, sem var traustur sem veiki maðurinn. Senunni stal þó Theodór Júlíusson sem Elliði, mest sannfærandi illmenni í íslenskri mynd til þessa! Tónlistin var góð, senurnar margar æðislegar og semsé algjört möst sí myndi ég haldi. Kannski slær Mýrin aðsóknarmet Með allt á hreinu, hvað veit maður.

Les Poupées russes --> dvd XX
Frakki veltir sem upp úr sjálfum sér eins og algengt er að gera á hans aldri (30), fer á milli kvenna og spyr: Hvað svo? Langt og teygt en ágætt á köflum, en þess má geta að textinn á hylkinu er alveg út úr kú og er um einhverja allt aðra mynd.

Borat: Cultural Learnings of America for Make Benefit Glorious Nation of Kazakhstan --> bíó XXXX
Stórkostlegt meistaraverk. Hló viðstöðulaust þar til hléið skall á eins og drulla í poka í fermingarveislu og náði því miður ekki upp öðrum eins viðstöðulausum hlátri eftir hlé. Sjaldan hefur tilgangsleysi bíóhléa verið eins augljóst. Engu að síður söguleg tímamótamynd sem gerir Sacha Baron að eilífum meistara sem mun eiga erfitt að toppa þessa snilld.

V for Vandetta --> dvd XXX
Ég hélt vakandi yfir þessu og vel það. Ágætis popp.

X-men III - Last stand --> dvd XX
Heldur er þetta nú farið að þynnast og líklega komið nóg af þessu liði í bili.

Match Point --> dvd XXX
Gríðarlega ó-woodyleg Woody Allen mynd um ríkt pakk í London. Nokkuð fín bara.

The Weatherman --> dvd XXX
Nicholas Cage er í klessu með sín mál. Sýnt er á fyndinn hátt hvernig hann vinnur úr flækjunum eða ekki. Vel skrifað og fyndið.

16 years of Alcohol --> dvd X
Aukamynd sem ég tók af því Richard Jobson sem var í The Skids með Stuart Adamson leikstýrði og skrifaði handrit. Gafst upp og hraðspólaði yfir megnið af myndinni þegar ljóðræn og leiðinleg frásagnartæknin var farin að skyggja á allt annað. Rusl.

Matador --> dvd XX
Enn leigumorðingjagrínmyndin. Þokkalegt.

L'Enfant --> Skjárinn XX
Belgískir krakkahálfvitar eignast barn. Strákurinn selur krakkann og stelpan verður brjáluð. Mikið raunsæi en hvorki skemmtilegt né athyglisvert. Skil ekki hví þessari mynd hefur verið hampað sem raun ber vitni, Gullpálmi etc. Ekkert spes.

The Squid and the Whale --> dvd XXX
Allt fer til fjandans hjá bræðrunum þegar eigingjarnir foreldrarnir skilja, pabbinn er sérlega glataður. Góð mynd!

Ray --> dvd XXX
Persónulega enginn aðdáandi Ray Charles en þetta er hin fínasta bíópic sem maður límist við.

Jarhead --> dvd XX
Dáldið eins og Full Metal Jacket bara í Persaflóastríðinu og ekki eins góð.

Derailed --> dvd XX
Þokkaleg spennuklisja.

Click --> bíó XXX
Sannast sagna bjóst ég við engu og var eiginlega viss um að þetta væri rusl, svo ég var bara nokkuð hissa og glaður með að þetta er ágætis stuðmynd um gildi fjölskyldulífsins (kaupi það). Sandler hefur ekki verið betri lengi og þetta er bara mjög fín mynd.

End of the century --> dvd XXX
Mjög beisikk heimildarmynd um Ramones, lítið um flúr og óvæntar uppákomur, en fínt fyrir sinn snúð.

The Mayor of Sunset Strip --> dvd XXXX
Rodney Bingenheimer er rokkgrey í LA sem þekkir allar stjörnurnar. Heimildarmennirnir ganga heldur hart fram við greyið og út úr þessi kemur heldur nöturleg sýn á vinalausan mann sem er ekki sáttur. Sjaldan hefur stjörnuruglið verið sýnt jafn bert og dapurt. Mögnuð mynd!

The Da Vinci Code --> bíó XX
Langt og dimmt og með væminni tónlist. Jesúrugl og fjársjóðsleit. Hefði verið gaman að sjá Ingvar E Sigurðsson sem Silas. Bókin var betri.

R-Point --> Skjárinn X
Víetnamar týna tölunni á dularfullri eyju. Leiðinlegt.

Halbe Treppe --> Skjárinn XX
Ástir og framhjáhöld forljótra Þjóðverjara. Meira smínk - minni alvara!

Brokeback Moutnain --> dvd XXXX
Frábær mynd um forboðnar ástir í náttúrunni. Gífurlega vel leikið og gert, "öldrun" aðalleikara og tíðarandi ófinnanlegur og í tæplega 3 tíma leiddist mér aldrei þótt þetta sé hæg mynd og lítið um eltingaleiki á þyrlum. Stórfengleg mynd!

Draumalandið e. Andra Snæ --> bók XXXX
Ég las Draumalandið á meðan ég var í tjilli í Aberdeen. Ég nennti því auðveldlega enda skemmtilegt og nokkuð "spennandi" lesning og kom auðvitað gallharður náttúrukarl út úr lesningunni. Áhrif mikil og helst þessi:
a. Langaði til að taka dag í að týna upp rusl í nágrenninu (nóg var nú af því, Skotar eru helv sóðar, jafnvel meiri en Íslendingar) en nennti því auðvitað ekki enda bara viku í Aberdeen.
b. Þeir sem bera ábyrgð á Kárahnjúkavirkjun eru geðveikir landráðamenn og myndu rotna í helvíti til eilífðarnóns ef það væri eitthvað helvíti.
c. Andri Snær á að taka alla stjórn þjóðarinnar í sínar hendur og við lifum hamingjusöm það sem eftir er.

A History of Violence --> XXX
Fín ofbeldis-spennumynd sem er rétt að byrja þegar aðrar svona myndir væru að enda, enda Cronenberg náttúrlega ekki alveg eins og aðrir. Niðurstaða myndarinnar er að fjölskyldulíf með graðri eiginkonu er mun eftirsóknarverðara en innantómt ofbeldislíf gangstera.

The Woodsman --> skjárinn XX
Kevin Bacon (sem lítur út eins og Gulli Briem, bæ ðe vei) er hrifinn af alltof ungum stelpum og kemur úr 12 ára fangelsi til að hefja nýtt líf. Þar taka sig upp gamlar kenndir en Kevin er voða góður af barnaníðingi að vera og allt fer vel að lokum. Ekkert spes.

Broken Flowers --> dvd XX
Enn ein artí mynd með Bill Murrey. Hann slagar svipbrigðalaust í gegnum 106 mínútur á sló mó og bankar upp á hjá gömlum kærustum. Enginn endir náttúrlega.

Capote --> bíó XXX
Hæggeng en fín bíópikk um skrif bókarinnar In Cold Blood (sem mér langar til að lesa eftir myndina). Hoffman góður þrátt fyrir furðulega rödd (Truman hlýtur bara að hafa talað svona). Fékk Óskar og Bafta og ég veit ekki hvaða hvaða.

Ice Haven e. Daniel Clowes --> bók XXX
Daniel Clowes er besti skrípókallinn með frábæran stíl og sterk einkenni sem leikmenn kunna kannski skil á ef þeir hafa séð myndina Ghost World. Hér er ný graphic novel eftir hann sem er ágæt en ekki alveg á pari við hans sterkustu verk. Miðlungsverk frá Clowes er náttúrlega gott á almennum grundvelli en maður vill meira. Kannski er hann búinn með sín föstustu skot. Hvað veit maður. Náttúrlega orðinn eitthvað yfir fertugt og aðaldjúsið búið... Kannski.

The Motorcycle diaries --> dvd XXX
Che litli, sem margir hægrimenn tuða jafnan um að hafi verið fokking morðingi, skutlast um S-Ameríku ásamt vini sínum og kynnist kjörum alþýðunnar. Fínt stöff, en nú vill maður fá framhaldsmynd. Meiri Che!

Wedding crashers --> dvd XX
Böddí/rómantik grínmynd sem hefði auðveldlega getað verið a.m.k. 1/3 styttri.

Flightplan --> dvd XX
Þokkaleg spennumynd í þotu með Djúdí Foster.

Good night and Good luck --> bíó XXX
Ég sá myndina Good night and Good luck í gær. Hún er ágæt, dáldið hæg og djössuð og maður þarf að vera inn í McCarthy tímanum til að ná þessu almennilega. Aðal hetjan, sjónvarpsmaðurinn Ed Murrow, virkar ægilega vel, svona boðberi sannleikans einhvern veginn og traustvekjandi. Sú mynd sem var dregin upp af honum fékk mig til að hugsa um fréttirnar sem er endalaust dælt yfir okkur hérna og ekki síður um fréttamennina sjálfa. Trúir maður einhverjum fremur en öðrum? Hver er traustvekjandi? Hver er jafn kúl og Ed Murrow var í myndinni?
Ekki eru það Logi eða Sigmundir Ernir þó þeim langi eflaust til þess. Hverjum langar ekki til að vera jafn kúl og alvöru blaðamenn í erlendum bíómyndum? Ég man ekki eftir að Logi og Sigmundur hafi gert eitthvað annað en að lesa upp fréttir og ekki beint grafið eitthvað upp eða velt við steinum. Strákurinn með Kompás lofar góðu en svo annað slagið er hann í tómu rugli eins og þarna með satanistakjánana. Þóra Kristín er dálítið snörp en svo fær hún rugluna og óskar vitlausi fólki til hamingju með sigurinn. Það hlýtur að vera alltof mikið álag á þessu fólki. Bogi les vel eins og Edda og Elín Hirst, en maður hefur varann á þegar pólitískt innlæti fólks er á alla vitorði. Niðurstaða mín er því sú að enginn sé eins kúl og Murrow en kannski var hann ekkert kúl í raunveruleikanum heldur bara í bíómyndinni. Kannski yrðu íslenskir fréttamenn svalari ef þeir væru síreykjandi í útsendingu eins og liðið í gamla daga.
En spegla fréttirnar raunveruleikann? Dag eftir dag er það helst að Arabaheimurinn sé snarvitlaus út af þessum teiknimyndum. Samt eru þetta kannski bara nokkrir hressir ofgamenn og yfirgnæfandi meirihluti fólks bara í tjilli með sitt kebab. En það eru náttúrlega engar fréttir. Og svo eins og hendi sé veifað eru arabarnir búnir að fylla kvótann í fréttunum og þá brestur á með nýju fuglaflensufári. Nú er farsóttin alveg að fara að drepa okkur öll. Einhver áströlsk stofnun er meira að segja búin að reikna út hversu margir deyja og hversu miklu þjóðfélögin munu tapa. Um þetta erum við frædd og eigum líklega að byrja að hamstra. Allavega að verða hrædd og glápa meira á fréttirnar því áhorf hvetur undir auglýsingar..
Myndin spurði líka um eðli sjónvarpssins og hvort það geri nokkuð annað en að forheimska okkur og einangra. Nokkuð fín mynd um gamla tíma þegar allt var svalara en í dag.

Charlie and the Chocolate Factory --> dvd XXX
Ekki eins sýrt og ég átti von á, bara ágætis barnastöff og mun betri en hin ömurlega myndin með Gene Wilder.

Black Hole e. Charles Burns --> bók XXX
Þessi teiknari hefur verið lengi að en þetta er graffikk-nóvel eins og þeir kalla það um ameríska unglinga sirka 1975 sem plága herjar á. Dáldið súrt og ekkert tryllingslega spennandi en ágætis söguþráður og frábærlega teiknað.

Team America, World Police --> dvd XX
Stundum ágætt en yfirleitt alltof þunnt unglingagrín með dúkkum. Þessir gaurar muna sín fífil fegurstan í South Park þáttunum en gera slappar bíómyndir.

Caché  -->XXX
Nokkuð spúkí sjitt en dálítið langdregið. Varð að fá mér kaffi í hléinu. Ég veit það ekki. Fólk er að segja að þetta skilji svo mikið eftir sig. Ekki get ég staðfest það. Endirinn nokkuð endaslepptur og upp í loft. Nema ég sé að missa af einhverju. Nokkuð fínt engu að síður.

The Descent --> dvd XX
Eins konar hryllings-Sex inðe sittí í helli með glærum skrýmslum. La fokking la.

John Peel, Margrave of the marshes --> bók XXX
Ævisöga hins sártsaknaða meistara. Hann gat því miður ekki klárað að skrifa sögu sína sjálfur en það sem hann var byrjaður á er fyrri helmingur bókarinnar, eðaltexti sem nær því miður ekki lengra en til 1965 eða svo. Þar segir frá uppvextinum, allt skrifað með dúndrandi húmor og jafnvel það þegar hann var látinn "þjóna" eldri nemendum í einkaskólanum (þ.e. veita þeim hand relief) er snúið upp í grín. Samt er hann ekki alveg í gríngír þegar hann segir frá því þegar einn eldri bekkinga nauðgaði honum á klósetti. Konan hans, Pig eins og hann kallaði hana, tekur við og segir söguna til enda. Þetta eru svona mósaíkbrot úr ævi þeirra og gripið niður hér og þar. Hinn undarlegi húmor Johns er dreginn fram, t.d. er gott sýnishorn þegar ein dóttir hans er að skrifa ritgerð fyrir skólann og sýnir pabba sínum uppkastið til að fá álit. John segir að það vanti meiri húmor í ritgerðina. Ritgerðin var um umskurð kvenna. John Peel: hetja og fyrirmynd!

Lemming --> bíó XX
Franskt eitthvað svona hægt duló en ekki voða spennó eða spesó. Náttúrlega ekki púkó, hvað þá lummó, en dáldið svona manni stendur á sama-ó.

The Island --> dvd XX
Þokkalegt. Logans Run fyrsta klukkutímann, svo svaka spennueltingaleikur eitthvað, svo týpískur Jams Bond endir.

A little trip to heaven --> bíó X
Ferlega leiðinleg og niðurdrepandi mynd með vandræðalega lélegum söguþræði. Manni var drullusama um persónurnar og það eina skemmtilega var að reyna að fatta hvar á Íslandi og í Reykjavík skotið var. Ég ætla rétt að vona að Kvikmyndasjóður hafi ekki sett krónu í þessa mynd því hann á varla að vera til þess að búa til lélegar b-myndir um ýktan white trash raunveruleika. Hafið var fín, 101 Rvk alltílagi svo Baltasar nær hér botninum. Þaðan er bara ein leið: upp.

Der Untergang --> dvd XXX
Nánast læknisfræðileg úttekt á síðustu andartökum Hitlers litla og vina hans. "Snerti mig" ekki átakanlega.

Hér eru menningarafurðirnar 2005