2005 XXXX=Snilld
/ XXX=Fínt / XX=La la / X=Drasl / 0=Viðurstyggilegur viðbjóður
Hostage --> dvd
XX
Brús Villis eitthvað
bla bla. Þú veist hvernig þetta er. Gæti hafa
eitt 2 tímum í eitthvað verra. Eins og t.d. að vera
með niðurgang og lesa ljóðabók.
Rokland (e. Hallgrím
Helgason) --> bók XXX
Besta bók HH síðan
Þetta er allt að koma. Hann heldur manni vel við efnið
með mótmælandasöngli Bödda Steingríms
sem er sjaldgæf rödd nú á tímum rakaðra
punga og áspýttu tani. Endirinn full endaslepptur kannski,
og B-mynda-legur, dáldið antiklimax eftir skemmtilegt hjakk
lengi vel.
Steinarnir tala -->
bók XXX
Sagan, samkvæmt þeim
Rollingum fjórum sem enn rúlla. Skemmtilegt en kannski ekki
of djúpt. Bill Wyman, Brian Jones fá lítið vægi
- síðustu 25 ár fá of mikið vægi. Þýðing
Bigga Baldurs rokkuð og lifandi.
Lord of War -->
bíó XX
N. Cage er vopnasölumaður,
þetta er saga hans. Jamm jamm alveg ágætt en ekkert
spes engu að síður. Ýmsum siðferðislegum
spurningum velt upp en lítið um svör, nema kannski hið
hræðilega: Illskan ræður.
Cellular --> dvd
XXX
Miklu betra en ég
bjóst við: Taugaveikluð spenna í 100 mínútur.
Mjög fín hasarmynd.
Walk the line -->
bíó
XXX
Mjög skemmtileg, feykivel
gerð og mjög sannfærandi leikin bíópikk um
meistara Cash: Foreldrar hans eru leiðindar pakk, eldri bróðir
deyr 14 ára, Cash fer í herinn, kemur heim, slær í
gegn, fíknast á spítt. Fyrri konan hans er fúl
og Johnny rennir lengi mjög hýru auga til Jane Carter. Hún
játast honum fyrir rest. Johnny sparkar spíttinu og lifir
hamingjusamlega til æviloka. Lítið er gert úr sterkri
trú Casharans en bókin er byggð á Men in Black
sem ég byrjaði að lesa strax og heim af myndinni var komið.
Mér var gefin þessi bók fyrir löngu en haf sluxast
við að lesa hana til þessa. Bókin byrjar strax á
mjög trúarlegum nótum. Hún kom út 1975
og þá var JC búinn að fara 3svar til Ísrael.
En sem sé: ekkert meistartaverk svo sem, bara mjög fín
mynd.
War of the Worlds -->
dvd XX
Fábjáninn
Tom Krús hleypur með ofsa fín skrýmsli á
eftir sér sem eru ógeðslega tæknileg en þó
ekki búin að finna upp pensilínið. Það
má glápa á þetta.
Túristi (e. Stefán
Mána) --> bók XXXX
Fléttubók
og formtilraun, eins tilgerðarlega og það hjóðar,
er best að lýsa bókinni. Uppreisnarseggurinn og þungarokksaðdándinn
Stefán Máni rífur blóðlausan lim íslenskra
nútímabókmennta út úr rassgatinu á
sjálfri sér, heggur hann af og hendir tægjunum í
klósett kaldhæðninnar. Eitthvað svona. Tekst þetta
bara drulluvel, stráknum, maður nennti allavega auðveldlega
að lesa bókina til enda, sem er meira en hægt er að
segja um meirihluta þess ljóðræna rúnks sem
maður er að borga fyrir óbeint með sköttunum sínum
ár eftir ár. Kannski er hann sár og bitur, fékk
ekki jafn mikið úr lánasjóðnum og hann bjóst
við? Það er allavega eitthvað sem geldhanar í
greininni munu halda fram, ef það verður á annað
borð einhver umræða um efni bókarinnar. Hverjum er
ekki sama um nútímabókmenntir? Þessum sjö
sem halda uppi umræðunni á síðum Lesbókarinnar?
Krakkarnir sem eru í bókmenntafræði, tilgangslausustu
tímaeyðslu sem til er?
Sjálfum hefur mér
nokkrum sinnum dottið í hug að skrifa skáldssögu,
en þegar ég hugsa málið sé ég hvers
konar martraðarkennt ferli ég væri að bjóða
sjálfum mér upp á. Fyrst væri að betla,
láta ræfla í nefnd meta drög að einhverri
vitleysu sem ég væri búinn að kokka upp. Ef svo
ólíklega vildi til að ég fengi pening frá
ríkinu (eins og hver annar öryrki) tæki við einmanalegt
hangs fyrir framan tölvu. Hamast í marga mánuði
úrillur og vansvefta. Svo kæmi bókin, ég myndi
hamast áfram til jóla í plögginu, enda myndi
ég þá hugsanlega selja 500 eintök en ekki 300.
Lokatakmarkið yrði að vera þýddur á sænsku
og dönsku (önnur 500 eintök) og að um mig yrði gerð
heimildamynd (sýnd einu sinni í Regnboganum og kl. 22:40
á þriðjudagskvöldi á Rúv). Nei, þá
er skárra að öskra sig hásann fyrir framan 30 drykkjusjúklinga
á Grand rokki. Skemmtileg tilviljun að Stefán Máni
virðist komast að sömu niðurstöðu. Eða hvað?
Veit það ekki. Lestu bara bókina. Hún er HELVÍTI
góð.
Themroc --> bíó
XXX
Themroc gefst upp á
siðmenningunni og segir skilið við hana. Verður að
gamla dýrinu sem forfeður hans voru fyrir 80.000 árum
eða svo, breytir íbúðinni sinni í helli og
hræðir nágrannana. Ríður systur sinni, nágrannakonunni
og fleiri konum (sem hafa sömuleiðis breyst í apynjur)
í hellinum. Fer út og drepur löggur á nóttunni,
dregur þær heim og steikir á eldi. Löggan mætir
á svæðið en fær lítið að gert.
Ægileg ádeila á nútímaþjóðfélagið
(1973). Frekar langdregin á köflum (maður er smitaður
af MTV-klippingum) en fyndin mynd og eilítið Búnuelsk.
Layer Cake -->
dvd XX
Enskir krimmar með næsta
Bond í fararbroddi djöflast eitthvað í dópviðskiptum.
Hér heita allir Kranky og Slasher og eitthvað eins og gengur
og gerist í svona myndum. Skítsæmilegt.
Dig! --> bíó
XXX
Ég hef aldrei skilið
hvað fössið er út af Brian Jonestown Massacre. Ekkert
svakalega skemmtilegt hjakk, finnst mér. Skil hins vegar alveg afhverju
Dandy Warhols meika föss, enda melódísk rokkhjakk sem
hittir oft í mark. Um þessi tvö bönd er þessi
ágæta heimildamynd sem endar þó full endasleppt,
finnst mér. Reyndar er Anton, aðalgaurinn í bandinu,
aldeilis ekki svo ánægður með myndina eins og má
lesa á heimasíðu
bandsins. Þar má líka dánlóda nánast
öllum plötum sveitarinnar, sem er frábær þjónusta.
Verst að þetta er bara ekkert skemmtilegt! Fín rokkmynd
engu að síður.
Paha maa --> bíó
XXXX
Magnaður finnskur 130
mínútna megabömmer um orsök og afleiðingu.
Nokkrar magnaðar persónur eru hér dregnar ljóslifandi
upp og eru sítt að aftan bjálfinn Isto og ryksugusölumaðurinn
Teuvo gríðarlega eftirminnilegir. Frábær feel-bad
mynd!
Drabet --> bíó
XXX
52 ára karl úr
gáfulegri millistétt er kominn í klípu. Æskudýrkunin,
grái firðingurinn og kjaftæðið um nauðsyn
þess að hafa brennandi hugsjónirnar hafa leitt hann út
í að riðlast á fyrrum nemanda sínum, sem er
ung og full af hugsjónum. Hún drepur löggu og gamli
maðurinn hættir öllu til að hjálpa henni, starfinu,
hjónabandinu os.frv. Átakanleg er sorg ekkju löggunnar
sem gamli tekur að mestu inn á sig á meðan unga hugsjónadruslan
kemst fljótlega yfir allt saman. Nokkuð fín mynd sem
vekur upp glás af spurningum, m.a. um tvískinnungshátt
ýmiss hugsjónafólks, "fórnarkostnað", glæpi
og refsingu, tryllingslegri hamingjuleit miðaldra fólks (sem
lifir í þeirri blekkingu að líf þess hafi
verið mun merkilegra 30 árum áður) og fleira. Endirinn
er full flatneskjulegur og auk þess er meik-öppi ábótavant
í myndinni, aðalleikarinn var t.d. alltaf lillafjólublár
á vörunum sem dró nokkuð úr áhrifamætti
myndarinnar. A.m.k. horfði ég full mikið á illa meikaðar
varirnar. Mæli samt með þessari ræmu ef innihaldið
höfðar til þín.
Dear
Boy: The Life of Keith Moon by Tony Fletcher --> bók XXXX
Gífurlegur doðrantur
um trommara Hú, mannsins sem fann upp villta rokklífernið
(sukka sukka sukka sukka sukka sukka rústa hótelherbergjum
og sukka sukka sukka), mannsins sem er fyrirmynd Dýra í Prúðuleikurunum.
Undir niðri var nokkuð feiminn og næs náungi. Bókin
er gífurlega nákvæm og alla jafna skemmtileg nema kannski
í lokin, enda fátt skemmtilegt við mann sem drepur
sig smátt og smátt á sukkinu. Keith var nýorðinn
32 þegar hann drapst. Hlakka til að sjá myndina með
Mike Myers ef hún verður e-htímann gerð.
Horí, má
panenko --> bíó XXX
Tékknesk mynd e.
Forman m/ sænskum texta í snilldinni Bæjarbíói.
Held þetta hafi verið nokkuð góð mynd!
Sahara
-->
videó XXX
Fín
ævintýramynd.
Batman
begins --> dvd XX
Þokkaleg
hasarmynd. Ísland er flott.
Sin
City --> dvd XXX
Góð
ofbeldisfantasía í teiknimyndastíl. Fyndist þetta
eflaust enn betra ef ég væri einhver Frank Miller aðdáandi.
Bewitched
-->
í þotu X
Ófyndið
og óspennandi. Hvernig væri nú að þessi Will
Farrell færi að velja betur handritin sem hann tekur að sér?
The
40 year old virgin --> bíó XXX
Stundum
mjög fyndin, stundum minna fyndin, aldrei á Rob Snæder
level. Sérstaklega gaman að sjá mann á hjóli
gyrða buxur ofan í sokka.
Crash
-->
videó XXX
Árekstrar
ýmissa þjóðfélagshópa í LA
undir smásjá. Ágætis stöff.
Closer
--> dvd XX
Skítapakk
heldur fram hjá með skítapakki og riðlast á
hvort öðru. Skítsæmilegt.
Land
of the Dead --> bíó XX
Zombís
skrölta um að vanda. Myndin gerist öll um nótt en
skemmtilegra hefði verið ef dagur hefði verið í
myndinni. Mér finnst það meira spúkí. Ekkert
nýtt en það má hafa gaman að þessu. Eftir
hamfarirnar í NO fer maður að trúa því
að zombí-myndir séu raunsannar um framtíðina.
Þegar myndin var búin kíkti ég aftan í
bílinn minn hvort það væri nokkuð zombí
sem ætlaði að drepa mig. Eru það ekki einhverskonar
viðbrögð?
In
Good Company --> dvd XX
Dennis
Kveid, Skarlett beib og lúðinn úr that 70's show (sem
er leiðinlegt tv) í þokkalegri mynd um menn í fyrirtæki.
Kveid er fulltrúi gamla tímans, lúðinn stendur
fyrir nýja tímann. Sá gamli vinnur auðvitað
enda bara rugl að vinna of mikið og hafa of mikinn áhuga
á peningum. Sæmilegt alveg hreint, þannig.
The
Aviator --> dvd og videó XXX
Saga
Howard Hughes er gríðarlega merkileg og skrítið að
það séu ekki til fleiri myndir um hann. Þessi er
fín fyrir utan að það hefði alveg mátt
segja söguna alla og hér er líka nokkuð klisjuleg
framsetning og svo er DeCaprio alveg fáránlega ólíkur
frummyndinni, alltof krakkalegur til að leika þetta hönk.
Million
dollar baby --> videó XX
Langdregin
mynd um box, mænusköddun og líknardráp. Sæmilegt
miðað við það!
Birth
-->
videó
XX
10
ára strákur segist vera maður Nicole Kidman sem dó
fyrir 10 árum. Ótrúlega langdregið og hægt,
en la la engu að síður.
Palindromes
-->
dvd XXX
Todd
Solonz alltaf í listaruglinu en þetta er allsekki leiðinlegt.
Ekki snilld á borð við Happiness eða Dollhouse en nokkuð
fínt engu að síður.
Suspect
Zero --> videó X
Ghandi
er geðveikur morðingi... eða hvað? Hundlélegt rusl
en reynt að breiða yfir meingallað og óspennandi handrit
með Seven-legri og "töff" áferð.
A
Dirty Shame --> dvd X
Cecil
B Demento var léleg en þessi er eiginlega enn lélegri.
Leiðinlegt að John Waters geti ekki endurnýjað sig eða
haldið dampi því einu sinni fannst mér hann ótrúlega
æðislegur. Nú gerir hann svo vandræðalega lélegar
myndir að ég fer að efast um að hann hafi nokkurn tímann
gert gott stöff, ég hafi bara verið eitthvað ruglaður
að hafa svona gaman að stöffi eins og Cry Baby, Hairspray,
Serial Mom og gömlu klikkmyndunum hans.
The
Life and Death of Peter Sellers --> videó XX
Vel
leikið en handritið eitthvað ræfilslegt og leikstjórinn
rembist einum of við að gera myndina artí. Sæmilega
fullnægjandi.
Meet
the Fockers --> videó
XX
Meinlaust
og þokkalega fyndið á köflum.
John
Peel: A Life in Music e. Michael Heatley --> bók XX
Virðist
hafa verið hent upp þegar karlinn dó og er ekki burðugt
verk, upptalning og hröð yfirferð, engin dýpt og efnis
aflað úr viðtölum og blaðagreinum, engin heimildavinna.
Þokkalegt en ég bíð eftir bókinni sem John
var sjálfur byrjaður á.
The
Legendary Joe Meek, the Telstar Man e. John Repsch --> bók
XXX
Joe
Meek var tragískt keis, upptökumaður sem átti marga
djöfla að draga og endaði með að skjóta leigjandann
sinn og svo sjálfan sig 3. feb 1967. Buddy Holly dó 3. feb
1959 og Joe hafði fengið vitnisburð um það í
andaglasi 1958. Hommaskapur, poppsnilld, dulrænt þrugl, geðveiki
og poppbransinn sullast hér saman í stórmerkilegri
sögu sem er ágætlega sögð. Full stabílt
og anal á köflum en samt örugglega besta bókin
um þetta frík sem til er.
The
Forgotten --> dvd XXX
Fín
spennumynd með Júlíönu Múr um hið dularfulla
fyrirbæri móðurástina.
Voksne
Mannesker / Dark Horse --> dvd XXX
Dagur
Kári með s/h stuðmynd með lúnknum húmor
"eins og honum einum er lagið", og stundum bregður fyrir fínum
artí fartí sprettum til að gera þetta spes. Næstum
því 4 stjörnu mynd en smá ruglingur í lokin
skemmir fyrir... Skyldi ekki alveg þetta með lögfræðinginn
til dæmis - Ef það átti að "vekja mann til umhugsunar"
er það ekki nógu sterkt allt saman. En sum sé mjög
góð mynd og mun þéttari í það
heila en Nói. Mann hlakkar nú bara til næstu myndar.
Garden
State --> dvd XX
Gaurinn
úr Scrubs sem ég hef aldrei horft á er einhver voðalega
misheppnaður og niðurdreginn maður sem kynnist einhverri frekar
leiðinlegri stelpu og þá verður allt voða gott.
Sæmilegt svo sem en mér fannst fólkið bara ekkert
ýkja skemmtilegt og því ekkert slefandi glaður
með þetta.
The
Manchurian Candidate --> videó XXX
Heilaþvotta-
og ofskynjunarþriller, remix af gamalli mynd, sem var samt dálítið
mikið öðruvísi. Þetta er alveg ágætt,
þó kannski ekkert sérlega spennandi, enda gefur maður
sér það að allt endi endalaust vel í nútíma
Hollywood-myndum. Þess má geta að Robyn Hitchcock, rokkari,
leikur lítið hlutverk í myndinni, enda leikstjórinn
Jonathan Damme mikill rokkáhugamaður. Ég fattaði
samt ekki alveg endann á þessari mynd, en það virðist
sem mennirnir hafi eitt augnablik hætt að vera heilaþvegnir.
Allt öðruvísi endir á gömlu myndinni, minnir
mig.
Ocean's
Twelve --> videó 0
Langt
og leiðinlegt og óskiljanlegt rusl.
Before
Sunset --> videó X
Leiðinlega
fólkið hittist aftur, nú í París og er
leiðinlegt í 80 mínútur. Sem er sem betur fer
stutt.
Maria,
llena eres de gracia --> bíó XX
Eða
María fúll of Greis. La la mynd um ráðvilta stelpu
með magann fullan af kóki og barn í maganum. Merkilega
átakalaus og aðallega um vandræðagang. Ekkert spes.
Small
Crimes in an Age of Abundance (e. MATTHEW KNEALE) --> bók
XXX
Smásagnasafn
eftir þennan snilling. Ágætis stöff en nokkuð
risminna en snilldarskáldsögurnar English Passangers og Sweet
Thames.
Napoleon
Dynamite --> bíó XXXX
Frábærlega
skemmtileg og upplífgandi feelgúdd mynd, eins og artí
Revenge of the Nerds, eða leikin King of the Hills eða eitthvað.
Bara betri.
Man
on Fire --> videó XX
Skítsæmileg
spennumynd en gríðarlega pirrandi myndrænt séð.
Líka klukkutíma of löng.
Bridget
Jones, the Edge of Reason --> dvd X
Annar
hluti þessa kerlingagríns. Hefði þess vegna getað
séð hina myndina aftur.
Andrew
Loog Oldham - Stoned : A Memoir of London in the 1960s --> bók
XXX
Manik-þunglyndissjúklingur
og tískufrík sem uppgötvaði Stones og fleiri bönd
in ðe sixtís. Mjög nákvæmlega er sagt frá
öllu fram að ákveðnum tíma (1964) en svo er
bókin bara búin þegar mesta fúttið er að
fara að byrja -- frægðin rétt að byrja og karlinn
að byrja að verða illasukkaður sukkari. Semsé, þétt
framan af en ferlega endaslepp.
Saw
-->
videó XXX
Nokkuð
kúl framan af en skítur í buxurnar með asnalegum
enda. Það er ekkert nýtt í þessari tegund
mynda. Þetta endar alltaf bjánalega.
Anchorman
-->
videó
XX
Þokkalega
fyndið en samt ekki alveg nóg, svona 70s períódugrín
eitthvað. Týpurnar of ýkt miklir fávitar fyrir
minn smekk, en jú jú la la.
Bad
Santa -->dvd XXX
Þétt
skemmtun sem má horfa á hvaða tíma árs
sem er. Eftir snillinginn sem leikstýrði Ghost World og Crumb.
Svo sem ekkert frumlegt við þessa mynd en vel gert og mjög
skemmtilegt.
Englar
& djöflar (e. Dan Brown) -->
bók X
Var
hálfnaður þegar ég fattaði að þessi
bók væri drasl. Þrjóskaðist við og kláraði
en með herkjum þó. Þessi bók er leiðinleg
tímaeyðsla og líklega ein allra síðasta "spennubókin"
sem ég nenni að lesa.
Collateral
-->
dvd XX
Leigubílstjóri
flækist með Tom Cruise um L.A. Sofnaði. Er þó
líklega þokkaleg.
You
can't stop the murders --> videó XX
Steini
sleggja mælti með þessari og þar sem hún er
áströlsk bjóst ég við allnokkru. Er svo sem
skítsæmileg alveg, ekkert ægilega fyndin, gerð af
vanefnum en á þokkalega spretti.
Sideways
-->
bíó XXXX
Þetta
er svona mynd sem maður fer á og veit að allir hafa sagt
hana frábæra. Því er maður á varðbergi
og jafnvel fullur efa og tilbúinn til að finnast hún
ömurleg. Slíkt er þó tilgangslaust hér
því þetta er frábær mynd. Tveir lúðar
flækjast um vínhéruð Kaliforníu, kynnast
píum og drekka vín. Maður fyllist gífurlegri löngun
til að fara á vínsmökkunarnámskeið eftir
að hafa séð þessa mynd. Paul Giamatti (tveim árum
yngri en ég - hjálp!) er æðislegur í þessari
mynd og það er glatað að hann hafi ekki verið tilnefndur
til óskars fyrir þetta. Sem sé, mannbætandi snilld
og möst sí.
Le
Convoyeur --> bíó XXX
Viðurstyggilega
spennandi hrottamynd um skítapakk á peningaflutningastöð
og mann með fortíð sem þangað ræður
sig. Engjast í sætinu spenna, en skilur kannski lítið
eftir sig.
Kleifarvatn
e. Arnald Indriðason --> bók XXXX
Best
selda bókin 2004 og ekki að ósekju því þetta
er frábær bók. Sérlega skemmtilegur er þessi
austantjaldsvínkill. Á einum stað segir einhver að
fílingurinn í Austur-þýskalandi hafi bara verið
eins og beint framhald á Nasistmanum, sem manni finnst meika sens.
Spennandi og vel skrifuð bók.
Welcome
to Mooseport -->
videó X
Hundleiðinleg
mynd með gæjanum þarna úr Raymond og Gene Hackman.
Kannski ekki að marka því ég svaf yfir helmingnum
af þessu drasli.
Un
long dimanche de fiançailles --> bíó XXX
Ægilega
flott eins og allt sem þessi franski gaur gerir (Amilí os.frv)
en dálítið langdregið og engin gargandi snilld þó
ágætt sé. Svipaður frásagnarmáti
og Amilí. Ekki yfirmáta væmið og ekki endilega
kellingamynd, en svona epískt drama með súrrealísku
bla bla já!
Hellboy
-->
videó XX
Ágætt
framanaf en langdregið á endasprettinum. Andlitslausi nasistinn
er skerí en drepst fljótt.
Tais-Toi!
-->
bíó XXX
Gerard
Dípjartö er vangefinn en vinalegur smákrimmi en Djín
Renó svaka harður gaur sem auðvitað linast upp á
endanum. Þeir lenda saman í klefa og lenda í ævintýrum.
Margt fyndið hér. Mér var strax hugsað til myndarinnar
Le Placard, aka The Closet, sem er til á leigum. Fannst húmorinn
svipaður. Fletti því svo upp á imdb að leikstjóri
og handritshöfundur beggja myndanna er sá sami, meistari að
nafni Francis Veber. Fín og fyndin mynd.
Chemical
Brothers - Push the Button --> cd
XXX
Efnabræður
samir við sig í góðu bíti og skemmtilegheitum.
Nokkur frábær lög, önnur ágæt. Gott
á brettið.
Oldboy
-->
bíó XXXX
Yfirþyrmandi
kóreu-mynd, ógeðslega flott og með plott sem virkar
í tætlur. Artí-flott og sjúklega ógeðsleg
á köflum. Allir í bíó.
Be
My Baby: How I Survived Mascara, Miniskirts, and Madness, or My Life as
a Fabulous Ronette --> bók XXX
Ronnie
Spector segir sögu sína á afdráttarlausan en
dálítið slúðurkenndan hátt. Hennar
stærsta móment var Be My Baby sem hún söng sem
forystusauður The Ronettes og svo var hún gift geðsjúklingnum
Phil Spector í 7 ár. Það allt saman er frábærlega
skemmtilegt að lesa um. Líf hennar var mun minna spennandi eftir
skilnaðinn og því eru síðustu kaflarnir fremur
boring og maður fór yfir þá á hundavaði.
Bókin kom fyrst út í kringum 1990 en var endurútgefin
með öppdeiti eftir að Phil drap leikkonuna.
Seconds
--> dvdXXX
Mynd
í extreme makeover sýru-raunsæis-stíl. Miðaldra
karl er leiður á sjálfum sér og lífinu
og lætur því breyta sér í Rock Hudson.
Gert 1966 af John Frankenheimer. Svart hvítt í Twilight zone-legum
dularstíl. Gott framan af en leysist upp í existensjalíska
for-hippavellu. Verður kannski gert aftur rétt eins og Manchuian
Experiment, hmm?