2004 XXXX=Snilld
/ XXX=Fínt / XX=La la / X=Drasl / 0=Viðurstyggilegur viðbjóður
Shaun of the Dead -->
dvd
XXX
Fínt stöff en
kannski ekkert jafn ógeðslega æðislegt og margir vilja
meina.
Ricky Garvais live Animals
-->
dvd XXX
Skemmtilegt standöpp
frá þessum asnalega meistara. Hefði kannski verið
enn betra með texta, er bara ekki sleipari í talaðri ensku
en þetta.
Crimson Rivers 2 -->
videó X
Lélegt. Sofnaði
tvisvar við að reyna að horfa á þessi leiðindi.
Ladykillers -->
videó XXX
Byrjar mjög hressilega
en slappast svo aðeins niður. Kannski ég bara þreyttur.
Allavega fínasta mynd frá Coen bræðrum, sem rísa
nú upp eftir Intolerable leiðinda myndina sína.
Open Water -->
bíó XXX
Bandarískt par er
skilið eftir á hafi úti og hákarlarnir synda allt
um kring. Bara nokkuð spennandi og flott þótt Jón
Gnarr hafi skemmt allt með því að segja hvernig myndin
endar í Tvíhöfða.
Dís -->
videó XX
Ágætt miðað
við íslenskan standard, klisjur (ekkert nema listamenn og snillingar
í Rvk - já einmitt, þið meinið á Skólavörðustíg...)
og týpur og ekki beisinn eða frumlegur söguþráður
(það var ljóst frá fyrstu mínútu
að Árni Tryggvason myndi hrökkva upp af), en það
má alveg horfa á þetta svo sem. Voðalega íslenskt
eitthvað. Virkar kannski sem landkynning eins og 101 rvk, sem var með
svipuðum 101 fílingi.
Respiro --> videó
XXX
Gerist á einhverri
lítilli eyju við Ítalíu. Krakkar æslast
í sífelldri sól, mamman er flippuð og á
undir högg að sækja meðal jarðbundinni þorpsbúa
sem vilja senda hana á hæli. Myndin líður vel og
þér líður vel að horfa á þetta
og vilt komast í heitara umhverfi.
Sannleikurinn um Ísland,
alfræði Baggalúts --> bók XXX
Þeir spruttu upp fyrir
nokkrum árum, karlarnir í Baggalút, með spéspegil
á íslenskan raunveruleika í dulargervi vísindamanna
á 19.öld. Mjög sniðug nálgun, oft helvíti
fyndið hjá þeim og allt í sjálfboðavinnu.
Svo kom niðurlægingartímabilið á Rás
2, frekar slappt glens og bitlaust þegar maður nennti að
hlusta (maður setti það ekki á stundarskrána
eins og að heimsækja heimasíðuna), en þar eru
þeir blessunarlega hættir og byrjaðir aftur að snillingast
á heimasíðunni sinni. Nú er komin fyrsta bók
(ISBN 9979-2-1811-8) þeirra í fullri stærð (224
bls í Demy broti) og er hún miklu betri en ég þorði
að vona, enda engin hundleiðinleg lög eða vísur
í bókinni.
Bókinni er skipt
í 5 hluta: Íslendingar / Íslensk arfleifð / Framfarir
og atvinnulíf / Lífríkið Ísland / Dulheimar.
Í hverjum kafla er fjöldi lítilli pistla, oft með
mynd, ekki ósvipað fyrirkomulag og á heimasíðunni
góðu, nema hvað hér er oft notast við neðanmálsgreinar.
Margt er hér dillandi skemmtilegt og bráðsniðugt,
en ekki alveg allt, eins og gengur og gerist. Þetta rennsli er brotið
upp með "blaðaúrklippum" og drepfyndnum listum, sem eru
hæglega það best heppnaðasta í bókinni.
Bókina góðu les maður varla í einum rikk nema
maður sé eitthvað skrýtinn, en gott er að hafa
hana t.d. á klósetti og glugga í henni þar eða
á kaffiborði, sbr. vísindaheitið "coffee table book".
Sannleikurinn um Ísland er svo sannarlega jólagjöfin
í ár og ætti að hitta í mark hjá
öllum með þokkalega kímnigáfu. Karlarnir á
Baggalút eiga greinilega mikið eftir sem er geðsýkislega
unaðsleg staðreynd.
Múrinn
í Kína e. Huldar Breiðfjörð --> bók
XXX
Las
"Góðir Íslendingar" í honeymooninu mínu
á Hawaii. Það var ágætis bók. Hér
er Huldar með ferðasögu af því þegar hann
gekk, fór með rútum, hjólaði o.s.frv. meðfram
megninu af Kínamúrnum. Kína er manni frekar hulin
en bók Huldars lýsir aðeins upp fyrir manni landinu.
Fátækt, óþrifnaður, flokkshollustuheilaþvottur,
karókí. Eitthvað er um listrænt rugl í Huldari,
eitthvað taut um dreka sem ég skyldi ekki og fleira, líklega
til að lyfta bókinni upp á eitthvað plan. Það
er þessi listræni rembingur sem gerði einmitt illt verra
í Niceland og hinni myndinni sem hann skrifaði og betra væri
ef hann hætti þessu rúnki og tæki bara raunveruleikann
á það. Yrði miklu skemmtilegra. Þessi bók
er engu að síður hin fínasta lesning og Kína
verður nær en áður. Get samt ómögulega
sagt að mig langi mikið þangað. Spurning um að tékka
á Norður Kóreu frekar.
Elf
-->
videó
X
Æ
eitthvað svona barnajólagrín. Svosem sæmilegt ef
maður er í stuði fyrir svona. Mér finnst Will Farrell
ekkert sérlega fyndinn.
Love
Actually --> videó XX
Hin
árlega enska konumynd og bara alveg ókei. Öllum leikurum
Englands hrúgað saman og svo fylgjumst við með ýmsu
ástardótinu. Allt endur svo auðvitað vel og áhorfendur
koma út glaðir í jólin. Þunnt Feel good,
en fínir sprettir eins og hjá gamla rokkaranum.
Serge
Gainsbourg, A fistful of Gitanes --> bók XXX
e.
Sylvie Simmons. Gainsbourg var snillingur og það er gaman að
lesa þessa bók. Er þó frekar þunn og ekki
mikið kjöt á beinunum. Vantar meiri djúsí
sögur og díteila. Dálítið í kynningarstíl,
verið að kynna meistarann fyrir enskumælandi. Maður fær
örugglega ekkert kjöt fyrr en maður lærir frönsku
og fær sér innanlandsbók.
Starsky
& Hutch --> videó XX
Ben
Stiller enn á ferð, en þótt þetta sé
ágæt mynd er hún ekkert yfirþyrmandi fyndin.
Fínt í þynnku með djönkfúddi.
Dodgeball
-->
bíó XXX
Mjög
helvíti fyndin mynd enda Ben Stiller traustur. Næstum því
sami söguþráður og í Kingpin, en það
kemur í ljós þegar maður sér þessa
mynd í annað sinn hvort hún sé 100% klassík.
Old
Gods Almost Dead --> bók
XXXX
Stephen
Davis (hefur líka skrifað bækur um Jim Morrison, Aerosmith
og Led Zeppelin) er mjög þéttur rokkhöfundur og
hér segir hann sögu Rolling Stones á lifandi og hressilegan
hátt. Hann er aldrei með stjörnur í augunum yfir
viðfangsefninu, sem gerir söguna ómærðarlega
og ekta, en of margir vilja falla í pytt oflofsins.
The
Butterfly Effect --> dvd XXX
Fínasta
mynd þó sæta ógeðið Kusher sé
í henni. Della auðvitað, en alveg fín engu að
síður.
Pönkið
og Fræbbblarnir --> bíó XXXX
Bráðskemmtileg
og fyndin heimildarmynd um frábæra hljómsveit og góða
tíma í íslensku rokki. Nostalgískt ævintýri
sem hægt verður að ylja sér við lengi!
Blindsker
-->
bíó XXX
Dáldið
kaos, dáldið hrátt, dáldið ónákvæmt,
en engu að síður skemmtilegt, enda Bubbi eini Bubbi landsins
og frábær sem slíkur.
Io
non ho paura --> videó XXXX
Eða
"I'm not scared" eins og hún heitir á umslaginu. Ítölsk
mynd um strák sem finnur strák sem er haldið í
holu. Gerist í sveit og er hæg en gríðar spennandi
og í flesta staði flott mynd. Er víst byggð á
sönnum atburðum. Fór í 4 videóleigur áður
en ég fann hana (Sólvallagötu), ætli ítalskar
myndir séu ekki of framandi fyrir venjulegar videóleigur.
The
Dish --> videó XXX
Ástralskt
feelgood grín um mennina sem sáu um að manna gerfihnattardiskinn
sem fylgdist með Neil Armstrong og kó þegar þeir
fóru til tunglsins.
The
Corporation --> bíó XX
Sett
fram einum of líkt 60 minutes eða eitthvað. Ég var
allavega ekkert ægilega upprifinn, en svo sem alltaf þörf
á að minna mann á að allt er að fara til fjandans.
The
Yes Men --> bíó XX
Gaurar
með boðskap rugla í liði, virðist samt ekki vera
neitt topp lið bara einhverjir grandvaralausir Finnar og eitthvað.
The
Shape of things --> videó XXX
Neil
LaBute er samur við sig og nastí að vanda. Hér er
það listagella sem fer illa með nörd. Gaman að því.
The
Day after Tomorrow --> videó XX
Allar
stórslysaklisjurnar í einum pakka með rétthugsandi
í pokanum. Skemmtileg tilviljun að í The Day After var
paranojan kjarnorkusprengjan, en nú er það gróðurhúsaógnin.
Í báðum myndunum borða menn súkkulaði
en þessi endar á miklu jákvæðari nótum
en hin. Samt, frekar slappt stöff, The Day after var betri!
Secret
Window --> videó XX
Fattaði
plottið snemma sem er lélegt því oftast fatta ég
ekkert. Þokkalegt engu að síður.
Taking
lives --> videó XX
Allar
fjöldamorðingjaklisjurnar á einum stað í mynd
sem byrjar vel en lognast smám saman út af og endar í
algeru rugli.
Triumpf
des Willens --> bíó 0
Hálfvitar
marsera um í lúðrablæstri með útréttar
hendur og glápa hrifnir á eins eistna baulandi dverg með
asnalegt yfirvaraskegg. Hræðilega leiðinlegir tveir klukkutímar
en Bæjarbíó er frábært bíó
þó maður fái æðatappa af gamaldags þrenglum.
Supersize
me --> bíó XXX
Fróðleg
og nokkuð almennileg mynd. Spurlock er skemmtilegur gaur. Fékk
mér samt alveg McDonalds nokkrum dögum eftir, það
er ekki það.
The
Bounty Trilogy (Mutiny on the Bounty / Men Against the Sea / Pitcairn's
Island) e. Nordhoff & Hall
--> bók XXX
Loksins
e. ca 6 mánuði er ég búinn með þennan
doðrant og er það vel. Uppreisnin á Bounty er stórfengleg
harm- og ævintýrasaga og gaman að segja frá því
að afkomendur uppreisnarmanna frá 1789 eru ennþá
á eyjunni. Spennandi og sígilt stöff.
L'Appartement
-->
videó XXX
Franska
myndin (1996) sem þessi Wicker Park (örugglega rusl) er gerð
eftir. Þessi er fín framan af en endirinn er dálítið
upp úr þurru, en kannski alltílagi. Góð
afþreying, eins og sagt er.
The
Bourne Supremecy --> bíó XXX
Fín
spennumynd já já.
Gothika
--> videó XX
Draugaþvæla
og rugl. Sæmileg spennumynd með hefðbundnum bregðuatriðum.
C'era
una volta il West --> dvd XXXX
Eða
Once upon a Time in the West. Frábær spaghettívestri
og algerlega augljóst hvaðan Quentin stelur mestu. Gargandi
snilld!
Capturing
the Friedmans --> bíó XXXX
Óþægileg
mynd, en stórgóð. Sannleikurinn er blaut tuska framan
í áhorfendur. Nema þeir finna ekki tuskuna undir borði
efans. Eða...
Coffee
& Cigarette --> bíó XXX
Stuttmyndir
um lið að rövla reykjandi yfir kaffibolla. Sumar myndirnar
eru fínar, ein er frábær (Molina og Coogan - enda Coogan
algjör snillingur), en margt er líka frekar langdregið,
leiðinlegt og artí fartí.
Touching
the Void --> videó XXXX
Stórkostleg
fjallgöngumynd sem heldur athyglinni 100% og fær rasshárin
til að rísa. Æðisleg mynd!
School
of Rock --> videó XXX
Það
má oftast hafa gaman af látunum í Jack Black jafnvel
þó það sé barnamynd. Þetta er með
því skárra í þeim bransa enda um rokk.
Fahrenheit
9/11 -- bíó XXXX
MM
sýnir það sem allt eðlilegt fólk á að
vita: GWB er fífl, félagar hans sturlaðir græðgispungar,
stríð er viðbjóður og ekkert annað en fátæklingar
að drepa aðra fátæklinga svo hinir ríku verði
ríkari. Ríkisstjórn Íslands mun brenna í
helvíti fyrir stuðning sinn við Íraksstríðið
(nema það er ekkert helvíti svo ekkert verður af því,
en einhvern tímann kemur þetta illilega í bakið
á þeim eins og Kárahnjúkar) og ef smjörstykkið
Kerry tekur þetta ekki í nóvember mun ástandið
ekkert nema versna. Jæks. Sprenghlægileg hryllingsmynd og ekki
jafn mikið tilfinningaklám og ég bjóst við.
Einungis sálarlaus fífl munu hafa lyst á að styðja
Bushdraslið eftir þessa mynd.
Runaway
Jury --> videó XX
Gene
Hackman er vondi spillti kallinn. Eftir réttardama með jor onor,
sustained og fleiri gamalkunnum frösum fær Gene Hackman makleg
málagjöld. Til hvers er maður að leigja svona myndir?
Ég skil það ekki!
Along
Came Polly --> videó XXX
Í
Hollívúdd virðast bara vera til nokkur handrit sem eru
notuð aftur og aftur eftir því hvernig mynd er verið
að gera. Hér er "rómantíska gamanmyndar" handritið
notað enn og aftur og því fylgt í æsar. Ekkert
í söguþræði kemur á óvart en
hér eru snillingar eins og Ben Stiller. Hank Azaria og PSHoffman,
svo þetta verður eins gott og það verður. "Fín
afþreying" eins og sagt er.
Goodbye
Lenin --> bíó XX
Hruni
kommúnismans er haldið leyndu fyrir kerlingu sem liggur í
kóma meðan múrinn fellur. Nostalgísk gamanmynd
og þokkaleg sem slík. Vekur upp spurningar um komm/kapí
og þá staðreynd að undir oki komm virtust allir vera
gáfaðri en vitleysingarnir í kapí. Eftir að
múrinn hrundi hafa svo gömlu vitru komm breyst í nýríka
vitleysinga eða krimma. En hún er svo sem rétt spurningin
sem kapítalistar héldu uppi í kalda stríðinu,
sú hversvegna enginn flýði til kommúnistaríkjanna
meðan liðið streymdi þaðan. Það bannar
manni enginn að lifa sem í kommúnistaríki væri
og þar liggur líklega hundurinn grafinn í þessu
dóti. Samt alltaf fyndin þessi kaldastríðsár
eftir á og kommúnisminn þrælfyndið fyrirbæri
þannig séð. Því er gerð nokkuð góð
skil í þessari mynd, sem var meira hugljúf en öskrandi
skemmtileg, en maður hafði á tilfinningunni að hægt
hefði verið að gera betur. Salurinn var fullur af gömlum
kommum í nostalgíu og það var einna fyndnast.
The
Cooler --> videó XX
Þokkaleg
Las Vegas-mynd. Alls ekkert spes.
Dreamcatcher
-->
videó XX
Byrjar
ágætlega (sambland af Evil Dead og Stand by me ) en leiðist
út í tóma geimþvælu. Horfði þó
alveg á hana alla.
Lost
in translation --> videó XXX
Fólk
vafrar um í stílhreinu tilgangsleysi í Tokíó.
Það er betra að látast sér leiðast með
einhverjum öðrum virðist vera pointið með myndinni.
Spiderman
2 --> bíó XXX
Lói
tuskast á milli blokka, mænir á Kristínu Dönst
og lúskrar á Dr. Októpöss. Oft gaman, stundum
teygjulopi.
Eternal
sunshine of the spotless mind --> bíó XXXX
Ægilega
frumlegt og nokkuð skemmtilegt en ekkert svakalega eftirminnileg. Meira
stílæfing en heilsteypt snilld.
In
America --> videó XXX
Allt
er í steik hjá írskri fjölskyldu í ameríku...
en vonin lifir. Vel leikin melódrama. Ég felldi tár.
Schlock!
The secret history of American movies --> dvd XXX
Ágætis
heimildarmynd um B- 50s geimhrylling og B- 60s klám og ofbeldismyndir.
Thirteen
-->
videó XX
Þrettán
ára stelpa sukkar voða mikið þegar hún kemst
í vondan félagsskap. Þokkalegt svo sem.
Monster
-->
videó XXX
Velleikin
feel-bad mynd um lánlausa hóru. Skilur ekki mikið eftir
sig, en var allavega ekki leiðinleg.
Stuck
on You --> dvd X
Ég
er farinn að hafa áhyggjur af Farrellybræðrum. Vissulega
hefur grínið verið heimskulegt en það hefur flestum
verið fyndið. Hér er síamstvíburagríninu
blóðrúnkað og vandamálið bara að þetta
er alls ekki gegnheil fyndin mynd þótt annars slagið megi
brosa. Það er ekki nóg þegar um grínmyndir
er að ræða og maður á að venjast því
betra úr þessari átt. Gef þó Farrelly
séns enn um sinn.
Dirty
Pretty Things --> videó XX
Þokkalegur
líffæraþriller með ólöglegum innflytjendavínkli.
Duplex
-->
videó
XXX
Frekar
fyndin meinstrím mynd og vel 90 mínútnanna virði.
Ben Stiller er traustsins verður.
Flirting
with disaster --> videó XXXX
Helv
kúl mynd og frumleg, enda eftir sama gaur og gerði Three Kings.
Fyndin og fersk og ekki verra að hún er aukamynd á flestum
leigum. Möst sí.
Elephant
-->
videó X
Mynd
sem margir sögðu geðveika en mér fannst slöpp.
Áhrifin engin. Helmingurinn af myndinni sýnir krakka ganga
á skólagöngum og úti fyrir, sem mörgum asna
hefur eflaust fundist mjög töff. Vonbrigði.
Kill
Bill 2 --> bíó
XXX
Betri
en fyrri myndin. Mjög góð fyrir hlé, frekar langdregin
eftir hlé. Gólandi Ennio Morricone stuð og Tarantino
hressleikinn enn við líði.
All
or Nothing --> videó XXXX
Dapurt
lágstéttarfólk finnur sig í blokk dauðans.
Mike Leigh í góðum gír. Leiðinleg á
yfirborðinu en ljómandi góð og krúttleg mynd
engu að síður.
Selkirk's
Island e. Diana Souhami --> bók XXX
Frekar
þurrkuntulegar lýsingar af atburðunum í kringum
tæplæga 5 ára dvöl Selkirks á Juan Fernandez
eyju, sem síðar varð fyrirmyndin að Robinson Crusoe.
Selkirk þessi gat juðast á geitunum en Robinson fékk
Frjádag. Finnst nú að þessi bók hefði
getað verið betri.
50
first Dates -->
bíó XX
Þokkaleg
rómantísk gamanmynd. Þokkalega fyndin. Rostungar og
mörgæs,
steríótýpur og Rob Snæder er ókei. A.Sandler
er eins og í öllum öðrum myndum og Drjú voða
sæt. Það sem hækkar myndina um einn heilan er auðvitað
staðsetningin, HAWAII!, en allt sem gerist á HAWAII!! fær
átómatískt einn í plús hjá mér
.
Le
Pacte Du Silence -->
dvd X
Spennumynd
með manninum með tittling í staðinn fyrir nef, Gerard
Departíö, og dularfulla tvíbura. Hefur alla burði
til að vera góð, framan af, en alltof margir lausir endar
og frústrerandi endaslepptur endir gera þetta þó
að tímaeyðslu þegar upp er staðið. Hollywood
rímeikið verður kannski betra.
Run
Ronnie Run --> videó X
Þunnt
og ófyndið. Skítasæmilegt engu að síður
og hátíð miðað við verstu mynd sem ég
hef séð, Joe Dirt, em fjallar um sama efni: heimskt hyski.
Fear
X --> videó XXX
Þónokkuð
spennandi en gífurlega hhhhhhææææææggggggg
mynd eftir Danann sem gerði Bleeder og Pusher. Nú er hann kominn
til Hollywood, eða Wisconsin öllu heldur og fær John Turtutto
til að leika öryggisvörð í molli sem rannsakar
morð á konunni sinni. Leikurinn berst til Montana. Þónokkur
David Lynch í stíl Danans og alveg ágætis mynd.
Intolerable
Cruelty --> videó X
Langlélegasta
mynd Coen bræðra. Pointless vitleysa en örfáir ljósir
punktar.
American
Splendor --> bíó XXX
Þegar
ég var sem mest í teiknimyndablöðunum fannst mér
aldrei mikið til Harvey Pekar koma. Óáhugaverður
kall sem lifir óáhugaverðu lífi og hugsar óáhugaverðar
hugsanir. Það er mesta furða hvað er hægt að
gera þessa mynd áhugaverða mikað við, en ég
kom ekki auga á það rosalega meistaraverk sem margir vilja
meina að þetta sé.
Owning
Mawhony --> videó X
Philipp
Hoffman, sá snillingur, leikur yfirmáta óáhugaverðan
bankamann sem finnst gaman í fjárhættuspilum og situr
þar hreifingalaus og hengir haus. Philipp hengir haus út þessa
mynd og er algjör lurkur. Sumum finnst þessi mynd kannski "ljóðræn",
mér fannst hún aðallega hundleiðinleg.
Matchstick
Men --> videó X
Tilgangslítið
rusl framan af en skánar aðeins í lokin.
A
Mighty Wind --> videó XXXX
Mynd
frá liðinu sem færði okkur Spinal Tap, Waiting for
Guffman og Best in Show, allt schnilldarverk. Þessi mynd tekur fyrir
þjóðlaga-geirann með sömu tökum og fyrri
verk, þeas svona feik document. Uppskriftin er gamalkunn og kannski
ekki jafn fersk og hún var fyrst, en þetta er helv. vel gert
og helv. fyndið. Gaman aððííí...
Doctor
Sleep --> videó XXX
BBC-leg
mynd um glámskyggnan doktor og fjöldamorðingja. Mikil dulúð
og spenna framan af en endirinn ófullnægjandi eins og alltaf
í svona myndum. Engu að síður fín spennu og
hryllingsmynd.
25th
Hour --> dvd XXX
Edward
Norton væflast eitthvað áður en hann fer í
fangelsi. Alveg þolanlegt.
The
Banger Sister --> videó XX
Þessi
virtist vera skítsæmileg en ég sofnaði reyndar
í miðri mynd
Sin
-->
videó
X
Skítþokkaleg
mynd um negra sem hefnir sín á Gary Oldman (óver ðe
hill).
Looking
for Alibaldri --> videó X
Áströlsk
unglingamynd sem heldur engum dampi heldur missir maður áhugann
fljótt. Ekkert illa gerð en ekki áhugaverð.
Bruce
Almighty --> videó XX
Jim
Carrey er guð en það er auðvitað ekki eins auðvelt
og hann heldur. Fyrirsjáanlegt drasl, en nokkur fyndin atriði.
Jim geiflar sig og glennir að vanda og er traustur í sínu.
21
grams --> bíó XXXX
Ég
sofnaði yfir Ameros Perros (ekki að hún hafi verið léleg,
ég var bara syfjaður), en þessi er eftir sama leikstjóra.
Fyrrum aumingi en nú trúarfrík (Del Torro) klessir
á og drepur mann og 2 dætur fyrrverandi eiturlyfjafíkils
(Watts) og fær Sean Penn hjartað úr dauða karlinum.
Upphefst nú mikið drama uppfullt af siðferði- trúar-
og heimspekilegum pælingum sem endar á 21 grammi, sem ég
upplýsi ekki betur um. Kannski ekki "skemmtilegasta" mynd í
heimi, en voða kúl og allsekki leiðinleg, enda alltaf gaman
að fá frí frá klysjum. Leikstjórinn heitir
Alejandro González Iñárritu og hlýtur að
slá almennilega í gegn með næstu mynd.
Stormur
e. Einar Kárason -->
bók
XXX
Kárason
hefur löngum verið hrifinn af ræflum en flestir eru þeir
áhugaverðari en Stormur greyið, sem er óþolandi
aumingi. Hann ræflast með fjölskyldu sinni frá Íslandi
til Danmerkur, þaðan til Minnesota, þaðan til Danmerkur
og þaðan til Íslands – og alltaf með allt á
hornum sér kennandi öðrum um allt sem honum mætir.
Maður kannast við svona lið og forðast að þekkja
það. Þess vegna var bókin kannski ekkert æðisleg
og þar á ofan eru engir stórmerkilegir atburðir
sem ræfillinn lendir í, en Einarinn er traustur sögumaður
og alltaf hress.
The
Lord of the Rings - The return of the King --> bíó
XXX
Hobbit-erótísk
tilfinningavella og tölvugerðar bardagasenur – allt yfirkeyrt
í væmnissósu og glæsileika. Aumingja fólkið
sem nennir að sökkva sér í þessa þvælu.
Sjálfur skil ég ekki upp né niður í þessu,
nema þessa plein baráttu góðs og ills og hommatilvitnanirnar.
Það má hafa gaman af þessu þótt þetta
sé kannski alltof langt enda var maður með hálsrýg
og nálardofa og suð fyrir eyrunum, og ég tala nú
ekki um rasssæri. Þegar vonda píkan hefur verið
gjörsigruð takast ástir með Pípinn og Káti,
eini streit hobbitinn Sómi nær sér í kellingu,
en Fróði þarf að leita út fyrir heimahéruð
eftir sínum "hring".