2003 

28 days later -->8.1 af 10
Sannfærandi breskur heimsendadrungi en vonarglæta í lokin. Skil samt ekki hvað flóttaliðið fyrrtist við þegar hermennirnir vildu fara að viðhalda sér með kvenfólkinu – maður hefði nú haldið að viðstaddir ættu að gera sér grein fyrir því að viðkoma dýrategundarinnar gengi fyrir einhverjum tepruskap og kynköldu.

City of God --> 9.4 af 10
Mögnuð helvítis mynd um krakkahelvíti með alvæpni í gettóinu Borg guðs í Ríó Desjaneró. Möst sí.

Mystic River --> bíó 9.0 af 10
Rosalega fín spennu og "fléttu"mynd. Öll myndin er hlaðin ógnvekjandi spennu og er eiginlega bara Íslendingasögulegt stórvirki. Clint Eastwood er snillingur!

Master and Commander: The Far Side of the World --> bíó 6.8 af 10
Ég varð fyrir vonbrigðum því ég átti von á frábærri mynd. Bæði finnst mér Peter Weir og Russel Crowe kúl og líka finnst mér gaman að svona 19. aldar siglingastuði. Ég sofnaði reyndar þegar skipið fór fyrir Góðravonahöfða og kannski missti ég af einhverju, en allavega fannst mér plottið götótt og endirinn endemis ófullnægjandi.

The Man from Elysian Fields --> videó 4.0 af 10
Andy Garcia er staur. Þessi mynd er leiðinleg.

Confidance --> videó 5.5 af 10
Æi enn ein svona svikamillumynd eitthvað svona, þar sem alltaf er einn leikur eftir í fléttunni. Saursæmilegt.

Croupier --> videó 5.0 af 10
Frekar leiðinleg mynd um gaur sem vinnur sem gjafari í ensku spilavíti. Fúlt.

Blue Latitudes: Boldly Going Where Captain Cook Has Gone Before (e. Tony Horwitz) -->bók 8.5 af 10
Titill bókarinnar segir allt sem segja þarf og kemst Tony vel frá sínu. Rekur sögu Cooks og bætir við sínu upplifunum af sömu stöðum, en allir hafa þeir auðvitað nútímavæðst þó það glitti í gamla ævintýrablæinn. Þykkur doðrantur sem tók mig u.þ.b. 3 mánuði að lesa, en maður var rekinn áfram af fróðleiksfísn en heftur af svefnþörf.

Love Liza --> videó 5.4 af 10
Snillingurinn Phillip Hoffman í sæmilegri mynd. Konan hans hefur drepið sig og myndin fer í væl Phillips yfir þessu og bensínsniff og flugvélamódel flug. Myndin er eins og miklu verri About Schmidt, Kathy Bates er m.a.s. líka í þessari mynd. Alls ekki nógu gott.

Kill Bill --> bíó 7.5 af 10
Stíliseruð ofbeldisfantasía og Tarantino-grín. Svaka stuð. Sérlega gaman að sjá Lucy Liu fá makleg málagjöld.

Mótmælandi Íslands --> bíó 8.0 af 10
Ég skil ekki alveg hvað það er sem Helgi Hós vill fá út úr baráttu sinni, og allsekki skil ég hvernig hann nennir þessu – öllum öðrum hefur allavega nægt að skrá sig úr þjóðkirkjunni og svo farið að einbeyta sér að einhverju öðru. Hann er þrjóskur karlinn og mikill meistari og þessi mynd er fín. Sérlega gaman er að hinu sögulegu úttekt en kannski minna stuð í að horfa á hann elda hafragraut og hjálpa farlama eiginkonu sinni – en það hefði svo sem verið sögufölsun að hafa það ekki með. Hápunktur: Þegar myndavélin skimar eftir vegg Helga og við sjáum úrklippu af Davi og Dóra með fossandi blóstauma sem mynda orðið "Morðingjar". Mikið gæfi ég fyrir þessa mynd á bol.

Dirty Deeds --> videó 6.4 af 10
Alþokkaleg áströlsk mynd um bófa og mafíósa og eitthvað svoleiðis drasl. Undirheimar Sydney 1969 og svona gúddí gúddí andblær yfir þessu, smá grín í blóðbaðinu. Brian Brown er fínn glæpon og John Goodman er svipaður og alltaf. Ekkert möst sí en alltílagi B-stöff.

People I know --> videó 3.2 af 10
Hundleiðinleg mynd. Al Pacino er einhver ræfill sem verður vitni að morði og maður heldur alltaf að hann geri eitthvað í því. Hann drepst hins vegar í sófa eftir 80 mínútur af hjakki og óþokkarnir fá ekki makleg málagjöld. Ferleg leiðindi en jú jú, "öðruvísi"!

Scorched --> videó 7.1 af 10
Ágæt mynd um 3 gjaldkera í banka í Nevada sem ræna bankann sittí hvoru lagi. Woody Harrelson og John Cleese eru meðal leikenda sem er ekki slæmt.

Auto Focus --> videó 6.6 af 10
Enn eitt biopictið sem gerist í skemmtanabransanum in ðe 60s. Endasleppt mynd um tvo menn sem eru graðir graðir graðir og riðlast á gellum út í eitt á milli þess sem þeir rúnka sér saman yfir videóupptökum af sjálfum sér að ríða. Sikk!

Punch-drunk Love --> dvd 7.5 af 10
Bullum sullu "listræn" ástarmynd sem er frekar ófókuseruð, en svo sem skemmtileg. Adam Sandler er enn einu sinni karl sem fær æði. Hann verður skotinn í Emily Watson en er ofsóttur af hyski sendu af klámlínubossanum Philip Seymour Hoffman (snillingur). Þau fara til Hawaii og allt. Skemmilegasta atriðið er á aukadisknum þar sem Philip Seymour Hoffman dettur ofan af dýnu sem er ofan á bíl. Glæsilegt.

Narc --> videó 6.8 af 10
Grófkorna dópkrimmi. Ágætt.

The italian Job --> bíó 7.0 af 10
Ágætis afþreying framan af en tekur allar klisjurnar í endann eins og vera ber. Mark Wahlberg er þó einum of ókúl og líkur Cliff Richards til að virka 100% í þessu hlutverki.

The Ring --> dvd 5.4 af 10
Einhver Japani fær þá ágætu hugmynd að gera mynd um videóspólu sem allir drepast af er sjá. Svo er spunnið einhverri þvælu í kringum þetta og þetta er ameríska útgáfan. Ég sofnaði reyndar í miðri mynd en spólaði á endinn daginn eftir og hann meikaði engan sens.

Adaptation --> videó 9.5 af 10
Besta myndin á leigunum í dag! Frumleg, fyndin og frábærlega leikin. Spike og Charlie eru mennirnir. Hvað kemur eiginlega næst?

Paradise found --> videó 5.5 af 10
Þokkaleg mynd um Paul Gauguin framan af (gaman að sjá frumskógamyndir frá Tahiti og svona) en verður svo drulluslöpp í endann. Sagnfræðilega kolvitlaus (hvar er Van Gogh?!) og dramatískt væmin. Keifer Sutherland er heldur ekki sannfærandi sem Gauguin.

Pirates of the Carribeans --> bíó 8.0 af 10
Sullandi hress ævintýramynd framan af. Johnny Depp í ælandi góðu formi og stuð og skrens. Eftir sirka 110 mín fer dálítið að halla undan fæti, maður kominn með þokkalega mikið nóg af skylmingaruglinu, og endirinn er sérlega misheppnaður og hreinlega stjúpid. Fínt engu að síður.

Crush --> videó 6.8 af 10
Þokkaleg kellingamynd með Andie McDowell, sem ég þoldi ekki en umber núorðið, enda orðinn svo víðsýnn.

Legally blonde 2 --> bíó 1.0 af 10
Það hefur enginn gaman af þessari mynd nema hann sé þroskaheftur. Allavega fórum við Lufsan út í hléinu. Þegar hundurinn varð hommi var samt sæmilega fyndið (1 stig).

Catch me if you can --> dvd 7.5 af 10
Þetta er fín afþreyjunarmynd. Mynnti mig á confessions of a dangerous mind en er bara ekki alveg jafn kúl.

Darkness Falls --> videó 5.5 af 10
Hálf slöpp b-mynd sem gerist á eyjunni Mön. Byrjar ágætlega að hlussast niður í drasl.

Terminator 3 --> bíó 6.8 af 10
Fín fávitamynd með springandi drasli og one-lænerum.

Hulk --> bíó 7.2 af 10
Hann er grænn og pabbans er geðveikur. Ang Lee gerir þessari þvælu skil á "listrænann hátt" (les: hægan) og stundum var maður farinn að óska þess að þessu þvæluhandriti hefði bara verið gerð skil á hefðbundinn hollívúdd-máta (les: hratt). En þetta er svo sem fínt framan af og bjána stuð í góðum gír. En endirinn er pjúra "búið ykkur undir part 2". Eitt sem ég skil ekki: Afhverju springa buxurnar ekki utan af honum þegar hann stækkar? Frábært efni í þessum buxum og það mætti stórgræða á svona buxum því allar fitubollur heimsins myndu fá sér eintak.

Blood Money --> dvd 6.4 af 10
Clint Ístvúdd í þokkalegum gír framan af, en endirinn er klisja klisja klisja og slöpp klisja ef út í það er farið.

Rock Star --> dvd 4.5 af 10
Hálfbökuð rokkmynd með þunnyldislegri framvindu. Slappleiki.

Anger Management --> bíó 6.4 af 10
Enn ein fávitamyndin með Adam Sandler. Þessi er þó mun betri en margt annað nýlegt með honum og vel hægt að hlægja út í annað eistað stöku sinnum.

Phone Booth --> bíó 6.5 af 10
Gaur hangir í símaklefa með annan gaur miðandi á sig riffli. Þokkalega spennandi framan af en skítur á sig í endann með hallærislegum og illa heppnuðum endi.

Waking up in Reno --> videó 7.2 af 10
Bokkuð vel heppnuð feel-good gamanmynd um tvenn hjón sem skreppa á trukkasýningu í Reno. Leikararnir góðir, maður er vanur góðu frá Billy Bob en Patrick Svæsí kemur á óvart sem sannfærandi vitlausi gæinn.

En la puta vida --> bíó 6.0 af 10
Mynd um gleðikonu frá Úrúgvæ sem manselst til Barcelona. Hér er mun léttari fílingur en í Lilju 4-ever og það er hvergi gefið í skin að stelpan hafi eitthvað á móti djobbinu, hún verður bara fúl þegar hún fær ekki að fara aftur til Úrúgvæ. Frekar hrá kvikmyndagerð, svona í sama klassa og íslenskar myndir fyrir svona 15 árum enda kvikmyndagerð í Úrúgvæ að slíta barnsskóm. Þokkalegt og bíóið fullt af Kramhúskerlingum.

High Crimes --> videó 5.0 af 10
Lögfræðikerling leggur allt í sölurnar til að verja karlinn sinn sem er sakaður um fjöldamorð. Ashley Judd er ömurlegur leikari og þetta er mynd sem sæmilega bjart fólk er alltaf einu skrefi framar í því handritið er svo mikil klisja. Slappt.

One for the road e. Tony Horwitz --> bók 7.0 af 10
Tony þessi var tæplega 30. þegar hann skrifaði þessa bók 1988. Hann fór á puttanum um þvera og endilanga Ástralíu, upp og niður og út og suður. Stíllinn er ágætur en það gerist frekar fátt á leiðinni. Það er bara assgoti mikið sullað í bjór og svo stiknað úr hita þess á milli.

Kangaroo Jack --> bíó 4.4 af 10
Tveir kjánar hlaupa á eftir hoppandi kengúru í gullfallegri náttúru Ástralíu. Þokkalegt 3-bíó, maður brosti út í annað sirka 3svar, enda allur að vilja gerður. Það bjargaði deginum að þroskaheftur Kani sat á næsta bekk og hló og skemmti sér mjög opinskátt.

The Unsaid --> dvd 6.5 af 10
Sálfræðingur í sorg tékkar á stórhættulegum unglingi. Skítsæmó.

Battle Royal --> videó 4.2 af 10
Japanskir krakkar hoppa um á eyju og drepa hvorn annan í einskonar leik. Asnalegt og leikarinn Beat er alltaf jafn slappur.

The Badge --> videó 6.8 af 10
Löggan Billy Bob Thornton hoppar eitthvað um í þokkalegu stuði í Lúsíana.

Red Dragon --> videó 7.2 af 10
Ágætis spennuþrugl um fjöldamorðingja með skarð í vör. Mikið fer þó Anthony Hopkins í taugarnar á mér ofleikandi og skítandi á sig eins og það ömurlega rusl sem hann er. Afhverju er geðsjúkir fjöldamorðingjar alltaf svona hrifnir af því að klippa út myndir og líma í bækur eða upp á vegg?

Identity --> bíó 6.6
Draugagangur í rigningu á vegahóteli, en nei bíddu... þetta var þá bara allt í hausnum á einhverjum geðsjúklingi. Ha? Æ svona mynd. Þokkalegt.

Klassfesten --> videó 7.0
Snyrtilegur Svíi fer á ríjúníon og þar er allt eins og það var. Fyndið. En tilgerðarlegt á köflum. Í heildina fínt þó.

A view from the top -->bíó 7.2 af 10
Þokkalegt flugfreyjugrín: 25% legally blonde, 25% Romy and Michele's High School Reunion, 50% týpísk fíl-gúdd rómantísk gamanmynd. Alltaf gaman af Mike Myers.

Interstate 60 --> videó 1.5 af 10
Ömurlegt rusl með gaurnum sem leikur Cyclop í Xmen í aðalhlutverki. Hann er svo ömurlegur leikari að manni verkjar í augun að sjá hann rembast þetta. Myndin er algjört drasl, eitthvað svona diet David Lynch súrrealismi með "boðskap". Hraðspól.

Matrix: Reloaded --> bíó 5.5 af 10
SF-kjaftæði. Ég sofnaði yfir: dansatriðinu, Keunu að lemja margfaldaðan Smith (alltof tölvuleikjalegt) og lokaatriðinu, en spennandi eltingarleiksatriði strax eftir hlé var ágætt. Ekki gott.

Bad Boy Charlie --> bíó 6.5 af 10
Charlie veifar drjólanum. Ágætis heimild um strippandi kjána.

Das Experinmet --> videó 6.9 af 10
Þýskt lið er lokað inni sem fangar eða fangaverðir í tilraun til að mæla streytu við þessar aðstæður. Allt fer í handaskol og geðveiki. Þetta er alveg þolanlega almennilegur "sálfræðiþryller" og vondi kallinn er verulega sannfærandi en hetjan frekar pirrandi og ómótaður.

Salton Sea --> dvd 0.5 af 10
Rusl. Val Kilmer með andlega ræpu. Hraðspólaði eftir 30 mínútur.

The Rules of Attraction --> dvd 0.5 af 10
Rusl. Slökkti eftir 40 mínútur.

Confessions of a Dangerous Mind --> bíó 8.5 af 10
Skemmtilegt og kúl bíóbíó um þennan Chuck náunga sem var annað hvort bæði CIAmorðingi og sjónvarpsgaur eða lygari og sjónvarpsgaur. Sam Rockwell stendur sig vel og Clúní kann þetta. Eðal afþreyja.

Human Nature --> dvd 8.0 af 10
Fín mynd um menn og apa og apamenn og mannapa. Smellin og fyndin og lúkkar kúl enda gaurinn sem gerði nokkur Bjarkarmyndbönd leikstjóri. Handrit eftir karlinn sem gerði Being John Malkovitz svo þetta er auðvitað sýrutripp á köflum. Gaman og stuð og gredda og fjör.

Rabbit proof fence --> bíó 7.8 af 10
Enn ein vísbending um að hvítt fólk er viðbjóður. Árþúsundum saman (sumir segja 20.000 ár, en í allavega 8000 ár) höfðu Ástralíunegrar búið í sínu harðgera landi og aðlagað sig aðstæðum á umhverfisvænan og über tschjillaðan hátt. Þegar hvíta ógeðið ruddist inn tók hann til við að "frelsa" hinn óæðri kynstofn frá sjálfum sér með hefðbundnum viðbjóði (sjá einnig: Indjána, Afríku, Írak etc). Stelpur þrjár eru teknar frá mæðrum sínum til að þræla og "frelsast". Þær strjúka og flýja 3000 km. heim til sín. Þetta ku sönn saga og í lokin sjást gömlu konurnar sem voru 8 og 12 ára 1931 staulast um í landinu sínu. Við þá sýn fór ég grenja sem er alltaf kostur þegar farið er í bíó. Annars er myndin frekar hefðbundin en sem hvítum ástralíunegra fannst mér gaman að þessu.

Gamle Mænd i nye biler --> bíó 6.5 af 10
Öfugt framhald af I Kine spiser det hunde, sem var fersk. Þessi er ekki fersk, amk sé miðað við gömlu myndina. Nokkrum nýjum týpum hefur verið bætt við sem eru ekki sérlega skemmtilegar. Seinheppni júgóslavinn Vuk er ennþá fyndnastur, en grínið í kringum hann langt frá því að vera ferskt. Maður fær það dálítið á tilfið að þessi mynd hafi verið óþörf og helst gerð til að græða á vinsældum fyrri myndarinnar.

Johnny English --> bíó 3.0 af 10
Aumingja Rowan Adkinson hefur ekkert gert að viti síðan þessi ömurlega Bean mynd kom út. Hér er hann einhver ha ha Bean 007 lendandi í atburðarrás sem er fyrirsjáanlegri en þvagrásin á mér. Mjög slappt og ferlega aulalegt. Algert 3 bíó enda skemmtu krakkar sér þokkalega.

One hour photo --> videó 5.4 af 10
Langdregin og fremur leiðinleg mynd um Robin Williams sem er sorrí grey sem vinnur á framköllunarstofu og tekur ástfóstri við leiðinlega fjölskyldu. Hann færir sig upp á sjúkt skaptið þegar hann kemst að því að fjölskyldufaðirinn er að halda framhjá væmnu mömmunni. Æsast þá leikar en hægt þó og enda á hefðbundnum nótum. Geisp.

Bowling for Columbine --> bíó 8.8 af 10
Aumingja Kanarnir eiga bágt, sturlaðir af ótta og paranoju, og hér sýnir Michael Moore okkur ástæðu þess. Væri nú ekki meira stuð hér í heimi á ef Kanafífl væru líkari Kanadamönnum, vinum sínum? Jú það held ég og Michael líka. Sterk mynd en því ver og miður breytir hún líklega mest engu.

Habla Con Ella --> videó 7.2 af 10
Karlar hanga yfir konum í kóma og bera saman bækur sínar. Annar eðlar sig með sinni og kemst þá í bobba. Ha? Tja...

Mies vailla menneisyyttä --> bíó 6.8 af 10
Hæggeng í sama gamla Kaurismaki stílnum. Minnislaus maður rolast eitthvað með fátæklingum og byrjar með Hjálpræðisherskerlingu. Langar finnskar þagnir, brilljantín, rokk og roll, skondin tilsvör og almennt fílgúdd. Þokkalegt.

Maður eins og ég --> videó 6.0 af 10
Mun slappari mynd en Ísl draumurinn og eins og handritið hafi verið skrifað á hraðferð. Skítþokkalegt engu að síður, Þorsteinn og Þ.Bachmann góðir en meistari Gnarr með asnalegan fýlusvip allan tímann og ekki sannfærandi. Minnir á Ladda í alvarlega hlutverkinu hans. Leiðinlega léleg myndgæði að auki, einum of grófkorna. Splæsa í almennilega filmu og betra handrit næst, Douglas.

The Bourne Indentity --> videó 7.0 af 10
Minnislaus maður á flótta í leit að fortíð sinni. Allt fer vel að lokum enda made in usa. Ágæt afþreying og ekki yfirþyrmandi heiladauð. Sem er gott.

Lilya 4-ever --> bíó 9.5 af 10
Stórkostlega andstyggileg og vonlaus mynd um hvítt þrælahald. Lukas Moodyson á að baki tvær góðar "feel good" myndir, en þessi er "feel bad" eins og þær gerast napurlegastar. Maður kom út úr bíó skömmustulegur og með ógeð á karlmennsku sinni og öllum heiminum og myndin mun hanga í huga manns lengi því þetta er verulega áhrifaríkt stöff. Möst sí.

Nói Albínói --> bíó 7.5 af 10
Nói er sköllóttur og hleypur um Bolungarfjörð í vitleysisgangi. Hann býr hjá Ömmu sinni sem er róleg kelling og skrýtin. Pabbi hans er lúser lúði og hefur gaman að Elvis. Kall í bókabúð er furðulegur en veit sínu viti. Dóttir hans er gullfalleg og vinnur á bensínstöðinni. Nói er skotinn í henni. Nói er rekinn úr skólanum og fer að vinna í kirkjugarðinum. Hann er að fríka út á Bolungarfirði en þá taka æðri máttarvöld í taumanna. Segi ekki meir því ég vil ekki skemma. Ágæt mynd og fyndin á séríslenskan hátt sem er líklega bara til í bíó og svipar til mynda Kaurismaki-bræðra. Jamm jamm dæsti karlinn.

The Gangs of New York --> bíó 5.3 af 10
Löng og leiðinleg sögumynd með þjóðrembingslegum boðskap og sykurhúðuðum leik. Ég treysti aldrei aftur þessum Óskarsúthlutunum...

Hollywood Endings --> dvd 6.0 af 10
Glænýjasta mynd Vúddí Allen er ekki upp á marga fiska. Þreytt grín fremur enda kallinn orðinn ellihrumur eins og sést þegar hann tekur ofan gleraugun. Hann er þó alltaf með einhverjum svaka gellum í þessum myndum sínum. Brosti út í annað sirka tvisvar en sofnaði í 20 mínútur.

About Schmidt --> bíó 9.0 af 10
Sæt og skemmtileg mynd um karlgarm í kreppu. Jack Nicholson er frábær og allt er eitthvað svo eðlilegt og ekta. "Mannleg" mynd, en alls ekki á þennan fávitalega hátt sem slíkar myndir verða oft. Ég fékk risastóran köggul í lok myndarinnar er Jack lét falla tár. Auuuuuu, smútsí smútsí. Möst sí fyrir alla sem eru fólk, en ekki fól.

The Sweetest thing --> videó 0.9 af 10
Ömurleg mynd um leiðinlegar gellur. Lufsunni fannst þetta ömurlegt líka svo ég er ekki að tala út um karlmannlegt rassgatið á mér.

Eight legged freaks --> videó 5.0 af 10
Bjánamynd um kóngulær. Allt fer vel að lokum.

Brotherhood of the Wolf --> videó 6.8 af 10
Frönsku búningamynd sem gerist í kringum 1780. Skepna gengur laus og drepur konur og krakka. Grasafræðingur og indjáni ganga í málin. Þokkalegt alveg en ég dottaði full mikið til að fatta plottið, enda nokkuð heví.

Irreversible --> bíó 7.9 af 10
Rómantísk frönsk gamanmynd. Kona er ólétt. Hún, kærastinn (við fáum að sjá typpið á honum, enda er helsti munur á evrópskum myndum og bandarískum að við sjáum typpi í evrópskum myndum) og fyrrverandi kærasti fara í partí. Kærastinn verður fullur og konan fer. Þegar hún nær í úlpuna sína þarf hún að klofa yfir konu að totta karl. Aldrei hef ég séð svona í partíum. Næst liggur leiðin niður í undirgöng þar sem konunni er nauðgað af samkynhneigðum hórumangara. Tekur sú sena að sögn 9 mínútur og er myndin aðallega fræg fyrir það atriði. Við sjáum typpið á nauðgaranum eftir óþverrann og er það í standi. Hann hefur ekki alveg lokið sér af, fær nú samviskubit fyrir að svíkja samkynhneigðina og lemur konugreyið í spað. Kærastinn og fyrrverandi kærastinn verða auðvitað ekki glaðir þegar þeir frétta af nauðguninni. Þeir hóta að hefna og hefja nú leit að illvirkjanum með hjálp einhverra gaura sem detta jafn snögglega út. Að lokum koma þeir á mjög suddalegan hommaklúbb, Le Rectum, sem 22 er eins og barnaheimili við hliðina á. Þar telur kærastinn sig hafa fundið nauðgarann og ætlar að kenna honum lexíu. Nauðgarinn nær þó undirtökunum, handleggsbrýtur okkar mann og býr sig undir að ríða honum í rassgat. Áður en til þess kemur mætir þó fv-kærastinn með slökkvitæki og lemur nauðgarann í hausinn. Hann lemur hann svona 15 sinnum í viðbót (með miklum dolby steríó dínk) og sjáum við greiðlega hvernig haus nauðgarans verður að mauki við þessar aðfarir. Næst liggur leiðin upp í íbúð fyrir ofan Le Rectum þar sem tveir menn ræðast við. Annar er allsber og segist hafa verið í fangelsi fyrir að sofa hjá dóttur sinni en um hinn er minna vitað. Endir. Þess ber að geta að myndin er sögð öfugt svo ég ætti eiginlega að snúa öllum þessum texta við, en nenni því ekki. Gríðarlega ógnvænleg eru subbuatriðin en söguþráðurinn er í þynnra lagi svona þegar búið er að snúa honum við. Einnig er frekar lítil speki viðhöfð í myndinni nema þetta hafi átt að kenna okkur að allir karlmenn eru viðbjóður, eða öllu heldur að hommar séu viðbjóður sem nauðga og á bara að buffa í spað við öll tækifæri? Að við séum öll bölvuð dýr þegar við þurfum á því að halda? Jæja, maður "spyr sig allavega spurninga" að lokinni myndinni og er það vel. Aðallega er þessi mynd þó formtilraun og er myndavélinni iðulega snúið í hringi og haldið á haus til að byrja með en myndatakan verður þó eðlileg fyrir rest. Sýningamaður Háskólabíós er greinilega með á nótunum því hann lagði listrænu hliðinni lið með því að hafa myndina úr fókus fyrstu 50 mínúturnar eða svo. Var það svo pirrandi að ef einhver frá Háskólabíó er að lesa þetta heimta ég skriflega afsökunarbeiðni og endurgreiðslu strax.

Orange Country --> videó 7.6 af 10
Alveg hin fínasta unglingamynd og mörgum sinnum gáfaðri en flestir slíkar; þessi gerir m.a.s. grín af því hvað unglingar eru mikil fífl, sérstaklega þá bandarískir. Jack Black er í svaka stuði og maður hlær sirka 3sinnum uppáhátt og brosir nokkrum sinnum svo þetta er tvímælalaus góð afþreying, eins og sagt er. Ég heyrði hvergi þetta lag með Quarashi sem á að vera í myndinni. Það hefur hugsanlega verið einhvers staðar mjög lágt á bakvið. Það er sniðugt hvernig lagið þarna "Butterfly" er notað til að tákna almennan fávitaskap, enda fávitalegt lag. Mæli með þessari.

The Crush --> videó 5.7 af 10
Alicia Silverstone (14 ára) er ólm í einhvern örlí 90s-lúkkandi bjánagaur (enda myndin frá 1993) og hættir ekki í geðveiki fyrr en allt er farið fjandans til. Ein af þessum 90s "obessjón" myndum og voða týpísk sem slík.

Sweet Thames (e. Matthew Kneale) --> bók 8.4 af 10
Varð að tékka á fyrri afrekum Kneale eftir að hafa heillast af "English Passangers" (sem vann víst einhver Whitebread-verðlaun). Þessi er einfaldari en fjallar aftur um tímarammann 1850. Aðalsöguhetjan er verkfræðingur sem er mikið að spá í hvernig megi koma kúknum úr Lundúnarbúum frá. Inn í þetta blandast Kóleru-faraldur. Aðal sagan er þó svaka spennusaga um unga eiginkonu verkfræðingsins. Sú hefur ekki hleypt honum upp á sig ennþá, sem er farið að taka á verkfræðinginn enda hafa þau verið gift í marga mánuði. Eftir að okkar maður gerist full ágengur hverfur eiginkonan sporlaust. Hefst þá dularfull og örvæntingafull leit verkfræðingsins að konunni sem dregur hann í gegnum undirdjúp Lundúna þar sem skítugur lýðurinn ríkir. Spennó og vel skrifað. Stíllinn minnir mig örlítið á Guðberg, svona glettilegur.

Tanguy --> bíó 6.2 af 10
Frönsk mynd um foreldra sem gera allt sem þeir geta til að losna við ofurvæmin son sinn að heimann. Allþokkalegur farsi, leikur sonar með miklum ágætum en foreldrarnir full ýktir.

My Big Fat Greek Wedding --> videó 3.0 af 10
Ég hélt að þessi væri eitthvað almennileg en svo er nú ekki. Grísk piparjúnka með gleraugu verður svaka skutla þegar hún fær sér linsur og nær sér í asnalegan karl í framhaldi af því. Gríska fjölskyldan sem fylgir jónkunni er steríótýpísk upp til hópa en samt voðalega lík ítölsku fólki í bíómyndum. Allar kerlingarnar sídansandi með hendur á iði og karlar síétandi og hótandi að lemja alla. Svo giftast þau og þá er myndin búin. Drasl, nema ég hafi bara verið svona einstaklega ekki innstilltur inn á "mannlega" grínmynd fyrir heimskar kellingar.

La Repetition --> bíó 5.5 af 10
Konan var með "klúbb" svo ég hrökklaðist á franska kvikmyndahátíð. Skítsæmilegt drama um konur í ástríðuvandræðum. Ha? Leiðinlegar týpur þessar kerlingar, svona frekar. Fremur slappt.

Áform (e. Michael Houellebecq) --> bók 6.2 af 10
Megnið af þessari bók er eins og upp úr Tígulgosanum, en nokkrar sæmilegar pælingar veltast innan um klámkjaftæðið. Frekar neikvætt röfl um "fyrringu" heimsins sem er þöngulhausískt og auðvelt í framleiðslu. Það er svo auðvelt að vera svartsýnn. En hann hefur kannski ástæðu til, enda franskur.

You can count on me --> 7.0 af 10
Amerískt Smábæjardrama um "alvöru fólk":  Konu í banka, flakkarabróðir hennar, ofurskipulagðan bankastjóra og son bankakonunnar, yngsta Home Alone-bróðursins. Ekki það stórkostlega meistaraverk sem sumir vilja meina, en svona marflatt og ágætt. Skilur ekki mikið eftir sig.

Showtime --> videó 1.0 af 10
Löggurnar Robert DeNiro (alvarlegi vinnuþjarkurinn) og Eddie Murphy (flippaða löggan sem dreymir um að verða lögga í sjónvarpsþætti) eru neyddar til að vinna saman í sjónvarpsþætti. Heiladauð böddí-löggumynd sem maður hraðspólar yfir til að finnast maður ekki alveg hafa kastað peningunum út um gluggann.

Lord of the Rings / Two Towers --> bíó 8.5 af 10
Meira af því sama og í fyrri myndinni. Þeir þarna föruneytismenn í þrem hópum hver á sínu róli. Mikið um tölvugerðar bardagasenur þar sem allt gerist svo hratt að maður sér ekki neitt. Bara eitthvað lið að drepa hvert annað. Þetta er ægilega flókið á nördalegan hátt en samt skilst mér að myndin sé einföldun á bókunum. Eymingja þeir sem nenna að sökkva sér niður í þetta. Leikarar bera illa fram nöfn eins og "Freyja" og "Grímur" og ég hugsaði með mér að ég hefði getað verið á launum við að segja liðinu hvernig á að bera þetta fram. En þetta er auðvitað voða mikið listrænt afrek hjá P.Jackson og manni leiddist ekkert, samt var fyrsta myndin skemmtilegri enda nýjabrum mikið. Hlakka þó til lokaskammtsins og að taka allan pakkan í 9 tíma sessjóni.

Kvetch --> leikhús 7.3 af 10
Lið á miklum bömmer og í ægilegri sálrænni kreppu. Er alltaf að hugsa upphátt en á meðan eru aðrir leikendur frosnir. Heil klukkutíma matarveisla er í þessum dúr sem er kannski full langt. Leikarar eru með sóðakjaft og Edda Heiðrún þuklar á sér annað brjóstið framan í áhorfendur. Listrænn sigur. Leikarar eru upp til hópa nokkuð góðir en verkið sjálft er kannski ekki það æðislegasta sem um getur.

English Passangers (e. Matthew Kneale) --> bók 9.6 af 10
Bókin gerist um miðja 19. öld. Smyglarar frá Mön flytja grasafræðing, prest og mannfræðing til Tasmaníu. Presturinn hyggst sanna kenningu sem hann hefur lengi haft uppi um að Eden hafi verið í öræfum Tasmaníu. Mannfræðingurinn ætlar að sýna fram á það endanlega að Bretar séu öðrum kynstofnum æðri með rannsóknum á beinagrindum. Það skemmtilega og ferska við þessa fínu bók er að söguhetjurnar eru fjölmargar og þær segja allar sögu sína í fyrstu persónu, sem er bókmenntatrix sem ég hef ekki séð áður (spurning um að stela því). Allt liðið er semsé að tala í hver sínum kaflanum og sagan spinnst áfram út frá mörgum sjónarhornum. Helstu hetjurnar eru presturinn (snargeðveikur og versnar með hverjum mánuðinum út á sjó), mannfræðingurinn (snargeðveikur í hroka sínum – presturinn og hann eru í sífelldum erjum), skipperinn frá Mön (snargeðveikur töffari), grasafræðingurinn (ekki svo geðveikur) og loks Peevey, sem er innfæddur ástralíunegri á Tasmaníu, en þar unnu hvítu mennirnir eitt sitt stærsta "afrek" þegar þeir drápu eiginlega alla negrana á nokkrum árum. Peevey er vitanlega snargeðveikur og í miklum hefndarhug. Endirinn er frábær og þessi hátt í 500 bls doðrantur er hverjari mínútu virði. Ég öfunda þig að eiga eftir að lesa þessa bók.

Lantana --> videó 8.0 af 10
Fullt af fökkt öpp miðaldra liði í svona Altman/Magnolíu fíling + smá thriller-element. Frá Ástralíu og fínt.

Heist --> videó 7.3 af 10
Já bara frekar fín mynd um ræningja með svikul plott og endalaus plön-B í gangi. Leikstjórinn er David Mamet sem gerði hina fínu "State & Maine". Týpurnar eru alltaf frekar trúlegar hjá honum, svona eins og þetta sé alvöru fólk.

Panik --> videó 6.2 af 10
Leigumorðingi á bömmer. Eitthvað svona, já já, sæmilegt. Alltof margar myndir eru til um leigumorðingja miðað við hversu starfsstéttinn er fámenn (ef þá í raun til?). Miðað við þetta allt ættu að vera til einar 7000 myndir um pípara og 400 myndir um innrammara.

HINGAÐ TIL AÐ SJÁ MENNINGARAFURÐIR 2002