2002 

Star Wars II - Attack of the clones --> dvd 2.3 af 10
Djöfulsins leiðindasorp er þetta. Dúkkur djöfulsins og tölvugrafík aumingjans hristast í innantómum leiðindum + einhverjir drepleiðinlegir unglingar og Blue Lagoon-leg ástarvella. Ef ég hitti þennan Yoda á förnum vegi ætla ég að sparka í hausinn á honum og benda hlæjandi á þennan George Lucas aumingja og segja honum að fara á Lordoftherings til að sjá almennilegt ævintýri. Þetta er síðasta SW myndin sem ég sé enda sú langleiðinlegasta og ekki voru hinar nú neitt stórkostlegar. Rusl.

Bend it like Beckham --> videó 4.5 af 10
Indverjastelpu finnst gaman í fótbolta. Fjölskylda hennar er á móti því. Allt fer þó vel að lokum. Frekar mikil leiðindi en svona þokkalegt gúddí gúddí fíling.

Varði goes Europe --> videó 7.0 af 10
Varði fer á vertíð var hvílík brakandi snilld að erfitt var að fylgja öðru eins eftir. Þar var raunsæi íslenska tónlistarbransans í brennidepli en nú fer Varði on ðe ród og hittir fyrir leiðinlega geðsjúklinga, skemmtilega geðsjúklinga og almenna flökkukalla. Endar svo auðvitað í Kolaportinu. Líklega fín heimild um hinn ekkert svo spennandi böskbransa en maður bíður spenntur eftir næsta verkefni Gríms Hákonarsonar enda upprennandi stórmeistari þar á ferð.

Sensitive New Age Killer --> videó 5.0 af 10
Ég er sökker fyrir áströlskum myndum en þessi er í þunnari kantinum. Illa leikin og klaufaleg, en með nokkrum sæmilegum sprettum. Þetta er blanda af John Woo byssubardögum (mjög illa gerðum og asnalegum) og einhverju skandó fjölskylduraunsæi með smá slatta af pervertisma og crocodile shoes-legum plebbisma.

MIIB --> dvd 6.6 af 10
Alveg eins og hin myndin nema meira af talandi hundinum. Voða fín innihaldsleysistugga á góm sófans en ég man ekkert hvernig þessi mynd var, ekki frekar en ég man eftir gömlu tyggjói síðan á þriðjudaginn. Ágætt að japla á þessu með augunum á meðan á því stóð.

Frailty --> videó 6.1 af 10
Pabbi stráka segir að Guð hafi sent sér lista yfir fólk/djöfla sem hann á að drepa. Svo fer hann að kála liði með strákana í eftirdragi. Svaka spúkí. Annar strákurinn hefur megnustu andúð á þessu rugli í pabba sínum og telur að Guð sé ekki til. Í lokin kemur þó í ljós að Guð er til og djöflarnir eru réttdræp illmenni. Eða eitthvað svona. Ég var dottandi yfir þessu og gæti því hafa misst af einhverju. Þokkaleg mynd, en gaurinn sem leikur FBI lögguna sem er að hlusta á játningar annars sonarins er svakalega asnalegur leikari.

The Deep End --> dvd 7.0 af 10
Mamma verndar samkynveittan son sinn (leikinn af einhverjum gaur sem lítur út eins og Chris Burke eþs Corky), en hún heldur að hann hafi drepið slísí gaur á Corvettu. Mamman felur líkið og fer mikinn í að fela sönnunargögn. Kemur þá Slavi sem getur með ríðingarmyndbandi tengt hommason við slísígaur og hyggst blackmeila mömmuna. Slavi er alltof góður fyrir svona djobb og klikkar að beyta mömmunni nauðsynlegu ofbeldi. Yfirmaður Slava er hinsvegar kall í miklu krapi og líður engan aumingjaskap. Úr þessu verður spenna sem er ekkert svo mikil spenna. Tahoe City og Reno er sögusviðið og gaman að því. Leikur fínn og þetta er þokkalegt hey í harðindum.

Panic Room --> dvd 6.6 af 10
Djúdí Foster og gelgja flytja inn í risastóra íbúð með þjófavörðum klefa. Svo koma vondu kallarnir og þær flýja í klefann og hanga þar á meðan vondu karlarnir brjálast. Dvæt Jókham er verulega fínn vondi kall, en Forrest Whittaker er góður vondur kall sem vantar bara pening. Þetta á eflaust að vera einhver svaka "sálfræði tryllir" en er frekar þunnt í heildina. Þokkalega spennandi kannski en ekkert möst. Já já.

A Beautiful Mind --> dvd 7.3 af 10
Ágæt en klisjuleg mynd um geðklofa stærðfræðing. Crowe er alltaf traustur kassavaxinn kall og það var kúl hvernig maður var hafður að fífli hálfa myndina eða svo.

Harry Potter II --> bíó 6.2 af 10
Hef aldrei litið í þessar bækur enda sem betur nóg annað við tímann að gera. Þetta er voða gaman í svona hálftíma en því miður er myndin 2 tímar og 40 mínútur svo mar var orðinn framlár í lokin. Leikarakrakkarnir kunna bara þrjú svipbrigði: "hissa", "meira hissa" og "ennþá meira hissa" og tekur það á taugarnar. Ágæt spesíal effekts en mér skilst að mar þurfi að hafa lesið bækurnar til að ná "töfrum" Harry Potter-bókanna til fullnustu. Fuss. Mætti ég nú fremur biðja um Tinna. Þar eru sko töfrar.

Monster's Ball --> videó 7.2 af 10
Billy Bob og gamli kallinn úr Reymond og Heath Lodger hafa fram af hver öðrum verið fangelsislöggur. Svo steikja þeir Puff Daddy (sem hefði nú mátt gera fyrr) og þá brotnar Heath saman. Helle Belly lítur ekkert lík sjálfri sér út (enda fékk hún Óskarinn fyrir þetta), er kona Puffs og á spikfeitan son. Heath drepur sig, bíll keyrir á feita soninn, gamli kallinn úr Raymond fer á elliheimili og Billy Bob og Helle juðast saman og verða hjón. Allt þetta gerist á 110 mínútum en er samt heldur langdregið. Voða þunglyndislegt allt og hægfara og sorglegt en ágætis mynd engu að síður.

The Craíc --> videó 6.4 af 10
Tveir írskir lúðar flýja undan vitleysislegum glæpahundi til Ástralíu og lúðast þar um sveitir. Á hælum þeirra er glæponinn, löggan og innflytjendaeftirlitið. Alveg þokkaleg grínmynd, lágstemmd með fínni mússikk, þ.á.m. Stranglers, Buzzcocks og Lenu Lovich ("Lucky Number"). Taktu þessu sem aukamynd þegar hún verður orðin nógu gömul í það.

Animal Factory --> videó 5.9 af 10
Steve Buscemi leikstýrir en ég hef líka séð Trees Lounge, sem hann leikstýrði, og af því get ég dregið þá ályktun að kallinn er miklu betri leikari en leikstjóri. Þessi mynd er svo sem alveg ágæt, en rosalega venjuleg fangelsismynd. Ekkert nýtt eða frumlegt í þessu og þetta skröltir bara áfram á hefðbundinn hátt, enda kannski ekkert "nýtt og frumlegt" við að vera í fangelsi. Willem Defoe er góði vondi kallinn sem kemur í veg fyrir að Edward Furlong verður "pönk" annarra vondu kalla. Myndin er eftir bók Edwards Bunker, sem sést í myndinni sem einn af gömlu föngunum. Edward þessi er eitthvað költ og var í Reservoir Dogs, en ég fatta ekki alveg hvað er svona æðislegt við hann annað en að hann byggir þessa sögu á eigin reynslu. Í meðallagi la la.

24 Hour Party People --> videó 8.5 af 10
Það getur endað illa þegar svona rokkmyndir eru gerðar (Velvet Goldmine) en oftar tekst vel upp (Backbeat, The Doors). Þessi er fín. Tony Wilson "eigandi" Factory er sniðugur kall en reyndar á ég mjög erfitt með að kaupa Steven Coogan í hlutverkinu af því maður er alltaf að hugsa um karakterinn Andy Partridge sem þessi Steven lék. Andy þessi er einn af stórkostlegustu karakterum grínsögunnar síðustu árin. Þar að auki var ég enginn sérstakur Joy Division aðdáandi og enn síður aðdáandi Happy Mondays. Það kemur líka á daginn eins og ég hélt alltaf að Ian Curtis var leiðindadurtur og Shaun Ryder og Bez eru þroskaheftir dópistar. En þó þetta séu ekki uppáhaldsböndin mín er þetta samt mjög skemmtileg mynd sem flýtur áfram og er sniðuglega uppbyggð og útfærð.

Comic Book Villains --> videó 5.5 af 10
Saursæmileg mynd um gráðuga nörda sem berjast um dýr teiknimyndablöð sem gömul kelling lumar á. Fullt af ríferensum í kjánaveröld hasarblaðanna og örugglega fín skemmtun fyrir hasarblaðaharðhausa.

Birthday Girl --> videó 6.0 af 10
Rolulegur bankagjaldkeri í enskum smábæ kaupir Nikól Kiddman yfir í gegnum rússneskan brúðarpöntunarlista. Á eftir fylgja tveir rússneskir glæpahundar og leggja líf gjaldkerans í rúst. Svona la la – skárra en ekkert.

Hafið --> bíó 8.5 af 10
Það er þungt yfir firðinum. Ríki kallinn sem á allt kallar á krakkana og við sjáum gjörðir og afleiðingar speglast í liðinu sem allt á bágt og er meira og minna geðveikt og á tæpasta vaði. Heví sjitt en matreitt þannig að maður fyllist ekki þunglyndi, eiginlega bara snilldarmynd hjá Baltasar og engin furða þó landinn staflist inn á stykkið. Herdís Þorvaldsdóttir brillerar sem kómik relífið og Guðrún geðveika nær nýjum hæðum í geðveikinni. Stundarfriður var byrjunin á geðsýkisferli hennar og hún kann þetta næstum of vel. Kristbjörn Kjeld finnst mér slöpp leikkona (af einum of gömlum skóla og maður gleymir því aldrei að hún sé leikkona) en hún gerir hér eins og hún getur. Franska dræsan er væmin og leiðinleg en á líklega að vera það. Vondi kallinn frá LÍÚ er líka einum of vondur til að vera trúlegur, það hefði mátt sleppa því að nudda inn illsku hans með þessu "slorfýlu" atriði. Hilmir, Gunnar, Sigurður og sérstaklega Elva Ósk (sem rekur tuskubúðina Cosmopolitan í kjallaranum heima hjá sér og geðsjúklingast um með þá ranghugmynd að allt sé betra fyrir sunnan – sem er nú ekki endilega keisið þó það séu fleiri pízzastaðir) standa sig vel. Sænski vitleysingurinn er góður og sonur hans og Guðrúnar er lúði og vel leikinn af hettuúlpu. Löggan, hrúturinn og kallinn á bensínstöðinni eru skemmtilegir í landsbyggðargeðveikinni. Myndin gengur upp, það eru engir lausir endar skildir eftir. Ein besta mynd Íslandssöunnar, mynd sem maður kemur hugsandi út af, mynd sem gleymist ekki svo fljótt sama hvað LÍÚ reyna að klóra í bakkann. Balta í framboð!

The Good Girl --> bíó 9.2 af 10
Þessi kom verulega á óvart. Ég ætlaði varla að nenna að fara með Bjarnveigu á'ana, enda vissi ég ekkert um myndina nema að Jennifer Aniston léki aðalhlutverkið (það var nóg til að Lufsunni langaði). Bjóst við einhverri grunnri vellu en fékk verulega kúl og artí mynd (samt ekki fartí). Jennifer er döpur húsmóðir sem af eintómum leiðindum byrjar að halda framhjá með ungu rómantísku ljóðskáldi (svona Túliníus-týpu, bara sætari). Að lokum stendur hún frammi fyrir stærsta vali lífsins - á hún að stinga af með Túliníusi eða vera áfram í rútínunni með karlinum sínum, sem er velmeinandi hasshaus. Verulega góð stúdía (takið eftir þessu, ég sagði "stúdía") á eðli nútíma manneskja ("eðli nútíma manneskja" er nú ekkert slor heldur, ég ætti kannski að reyna að fá að skrifa fyrir kistan.is?). En myndin er líka fyndin á svona "Happiness"-legan hátt (samt ekki alveg sama snilldin og Happiness). Vonandi kemur þessi einhvern tímann hingað því þá ætla ég aftur. Sami leikstjóri og gerði "Chuck og Buck" sem ég gaf 7.2 svo gaurinn (Miguel Arteta) er á uppleið. Fæddur 1970 samkvæmt imdb.com svo þetta er framtíðargaur.

Signs --> bíó 7.0 af 10
Alveg fínasta spenna og fjör fram á síðasta korterið þegar myndin breytist úr frekar frumlegri skæ-fæ mynd í hefðbundna zombie-mynd (góða fólkið oní kjalla að berjast við vonda liðið (geimverurnar (asnalegar)) sem vilja komast inn og drepa góða fólkið. Hinn kristilegi boðskapur í lokin var mér heldur ekki að skapi. Leikstjórinn M.Night er samt alveg fínn, það var fín svona hæg spennusöfnun í fyrstu köflunum og hann hlýtur að eiga eftir að gera verulega góða mynd næst (eða þarnæst).

Goldmember --> bíó 6.4 af 10
Austin er eitthvað svo aumingjalegur í þessari mynd og ekki sama töffarinn og í hinum 2. Ágætis fyndni inn á milli og bara seim old seim old, mikil þynnka. Hinn alslepjulegi Michael Caine er þarna. Ég held ég þoli hann ekki. Mini me er nú bara þarna fyrir smákrakkana í salnum. En feiti og dr. evil eru á sínum stað og nýr frábær karakter - Goldmember sjálfur, hollenski glaumgosinn - bjargar deginum. Hann minnir mig á óljósan hátt á Árna Zúra (sorrí Zúri!)

Insomnia --> bíó 6.0 af 10
Jú jú Al Pacino er kúl en þessi mynd greip mig ekkert sérlega vel. Kannski er ég bara kominn með krónískt ógeð á R.Williams eftir allar "oh, hvað hann er yndislegur hann Robin"-myndirnar. Nú er hann vondi karlinn og ég bara keypti það ekki. Al er með vonda samvisku og getur ekki sofnað í sólarhringsdagsbirtunni í Alaska. Hann eitthvað að bilta sér er svona það eina sem ég man eftir, því sjálfur var ég dottandi yfir þessu og alls ekki andvaka. Svo rumskaði ég í lokin og þá var búið að skjóta Robin í einhverjum kofa og þá veistu það! Ég spái því að Robin hafi líka drepist í "One Hour Photo", en þar er hann líka vondi kallinn (ætli maður sleppi því ekki bara að sjá hana).

City by the sea --> bíó 2.0 af 10
De Niro er rólyndislögga sem á dópistason sem hann yfirgaf f/ mörum árum síðan. Nú er dópistasonurinn (leikinn vælulega af einhverju fífli) búinn að drepa einhvern dópsala og þá þarf De Niro að takast á við sjálfan sig og fortíðina. Svo er annar dópsali í dæminu líka (yfirdópsalinn - kallaður "Spyder" (húrra!) og leikinn af William Forsythe, sem tottar illilega hér því miður, eins og hann var nú geðveikt góður sem bróðir John Goodman í Raising Arizona). Þessi mynd er bara fusking leiðindi mar. Alltaf alltof löng (efnið hefði rúmast vel í 1/2 tíma sjónvarpsmynd) og De Niro í cruise control alla myndina nema í endann (uppgjörið) þegar hann sýnir ofsalegri ofleik en ég veit ekki hvað. Hvað er eiginlega orðið um alla leikstjórana sem eru til í gera almennilegar myndir eins og þær sem De Niro varð frægur á að leika í? Hvar eru hinir nýju Scorsese og Coppola? Alls ekki sjá þessa mynd.

Donnie Darko --> videó 8.4 af 10
Mjög góð og fersk spennu/unglinga/yfirnáttúrumynd með fullt af fínum hugmyndum og skemmtilegu fíli til að byrja með, en fer aðeins offari í yfirnáttúru í lokin. Þessi gaur sem skrifar og leikstýrir (Richard Kelly) er framtíðarmaður og útvatnast vonandi ekki í hórukassanum Hollívúdd. Það er nettur Lynch í honum, en fullt af öðru líka svo útkoman er mjög töff (fyrir utan kannski endinn sem fær rökhugsandi fólk til að klikkast).

Very Annie-Mary --> videó 6.4 af 10
Ekkert spes smábæjargrín frá Veils. Dáldið svona líkt einhverju sem maður hefur séð áður (úr breskum smábæ). Eitt atriði er þó ótrúlega fyndið, en svona í heildina er þetta varla meira en sæmilegt og alls ekki nógu fyndið. Einum og væmið líka og ég grenjaði eins og kelling og fyrir það ber að þakka.

Shallow Hal --> videó 5.2 af 10
Vonbrigði því Farrelly bræður hafa sjaldan svikið. Þessi mynd er bara alls ekki nógu fyndin. Bara einn brandari út í gegn og fyrirsjáanlegur endir og svo er þessi leiðinlegi litli úr Seinfield og hann er sorglega ófyndinn. Jack Black er svona la la en í heild er þetta bara ekki gott.

Le Placard --> videó 7.0 af 10
Frakkafífl. Jæja, þeir geta nú alveg gert skemmtilegar myndir. Aðal er feiminn auli í smokkaverksmiðju. Það á að reka hann en nágranninn segir honum að þykjast vera hommi. Það gengur svona líka vel og allt gengur upp. Gerard Dípartíjö er fyndinn sem hommafælinn rumur sem snýst í andhverfu sína til að halda vinnunni og þetta er lúmsk og notaleg kveldskemmtan.

Minority Report --> bíó 3.6 af 10
Alltof löng bullmynd vaðandi í óhnýttum endum eftir vitleysinginn Spílberg. Hinn opinmynnti Tom Krús er lögga í nánustu framtíð sem stöðvar glæpi áður en þeir gerast. Þetta er gerlegt með aðstoð þriggja "dáskyggnimiðla", sem liggja marandi í vatni og senda frá sér lottókúlur með spádómum (sei vot?). Ég missti af því hvernig þetta grundvallaratriði myndarinnar var útskýrt vísindalegum rökum. Það var í upphafsatriði eftir hlé, en ég kom 1 mínútu of seint og missti af spekinni. Þá er Tom á flótti enda sakaður um glæp í framtíðinni. Hann finnur uppfinningamann hins svakalega kerfis í skógi, en það er klikkuð kerling í gróðurhúsi. Svo hlussast þessi mynd áfram í eintómu bulli og stelur lokafléttunni frá meistaraverkinu LA Confidential (Vonda löggan var góð, gamla löggan var vond). Ég var nokkuð hress svona mestan part fyrir hlé, en svo fór að halla á þetta rugl og í lokin var maður farinn að bíða eftir að komast út enda orðinn drepleiður á þessari ljótu ófyndnu og sorglega óspennandi þvælu.

Ocean's Eleven --> videó 6.6 af 10
Karlpungar undirbúa rán á spilavíti í Las Vegas (gaman að slefa yfir aðstæðum). Allt í ágætum gír þar til helvítis vælutíkin hún Júlía Róberts mætir með sitt belgsíða fés, þá fer allt að slappast, en lagast svo aftur þegar hún hverfur (en slappast svo aftur... o.s.frv.). Þetta er endurgerð á 60s Ratpack-mynd sem endaði "illa". Þessi endar auðvitað "vel" (þeir fá fullt af peningum og Goggi Klúní fær eilíft líf í faðmi Júlíu), enda er bannað að enda myndir illa eins og ég hef áður minnst á.

Joy Ride --> videó 6.4 af 10
Bræður gera nastí grín í trökkdræver og sá verður svona líka brjálaður að hann eltir þá alla myndina og ætlar að drepa þá. Sama hugmynd og í "Dúel" Spielbergs, nema sú var nú miklu betri. Steve Zahn er nokkuð fínn (þó hann leiki alltaf sama karakterinn) og þetta er svona skítsæmó spennumynd.

Novocaine --> bíó 5.6 af 10
Steve Martin er fíflalegur tannlæknir sem fellur fyrir dóphóru (óskiljanlegt). Upphefst nú mikill vandræðagangur en allt endar vel. Skítsæmilegt, nóg samt að sjá þetta á videó.

Made --> videó 7.7 af 10
Sömu gaurar og í hinni stórgóðu "Swingers" aftur á ferð með svipaða karaktera, nema sá klikkaði er orðinn mun klikkaðri en síðast og er eiginlega einum of klikkaður. Þeir eru látnir vesenast eitthvað fyrir skúrk og sá klikkaða kemur öllu í uppnám. Maður skilur einmitt ekki alveg afhverju þessi klikkhaus var settur í djobbið. Hann verður of ýktur til að maður fíla þetta alveg í botn, en myndin er samt skemmtileg og þokkalega fersk. Gaman.

Driving in cars with boys --> videó 6.7 af 10
Drjú Barrímor er ferlega leiðinleg stelpa sem verður ólétt 15 ára og þar með koðna hennar listamannsdraumar niður í bleyjuskiptingar. Myndin fjallar um það allt saman og er mun skárri en þetta hljómar. Sagan fer fram um mörg ár þegar Drjú er orðin miðaldra. Já já, alveg þolanlegasta kerlingamynd.

The Unknown (aka Det Okända) --> videó 5.9 af 10
Sænsk samsuða úr Blair Witch og Invation of the body snatchers. Þokkalegt held ég, samt ekki alveg dómbær því ég sofnaði og svaf síðasta hálftímann.

The Mothman Prophecies --> bíó 4.8 af 10
Bjánamynd um "Yfirnáttúrulega" atburði, auglýst upp með einhverjum slagorðum eins og "Trúir þú...." – eitthvað svona X-fæls bull. Jæja svo sem alveg þolanleg spenna á köflum en svo leysist þetta upp í einn órökréttan graut – sem má auðvitað afsaka með því að þetta sé allt svo "yfirnáttúrulegt". Richard Gere er nú bara orðinn einhver B-leikari sýnist mér, er að detta í Kevin Costner fasann. Þessi mynd er of svifasein, hefur lélega mússik og er bara ekki neitt neitt. Samt ekki "bregðumynd" sem er ágætt því mér finnast bregðumyndir – bö! – leiðinlegar.

La Pianiste --> videó 7.9 af 10
Geðsjúkar franskar mæðgur búa saman og sofa í sama rúmi. Dóttirin er píanókennari og altekinn af hinni ömurlega leiðinlegu klassísku tónlistarsögu; veit allt um Schuman og Schubert og eitthvað helvítis helvíti. Hún "lifir og hrærist" í þessum leiðindum og hangir með mömmu sinni yfir sjónvarpinu þess á milli. Þetta leiðir eðlilega til mikils öfuguggaháttar sem er í gerjun í myndinni. Hún fílar að lykta af brundtissjúum í klámklefum og að pissa við hliðina á bílum sem inn í er par að ríða í útibílabíói – gaman að því. Svo kemur ungt myndarlegt buff sem er skotinn í kellunni og hún sér leik á borði og fær útrás fyrir geðveikisgreddunni. Má af þessu öllu hafa nokkuð gaman, en þetta er víst "listræn" mynd og því er hún einum of hæg. Hefði mátt stytta um 30 mín a.m.k. – t.d. er skot af hurð að lokast í 3 mínútur, sem er frekar leiðinlegt, en einhverjir montrassgatast eflaust og tala um "myndmál". Næst þegar maður sér þetta þurrkuntupakk sem tilheyrir klassíska geiranum á Íslandi verður gaman að rifja þessa mynd upp og sjá fyrir sér. – ja, ég nefni engin nöfn – lyktandi af brundtissjúi inn á kamri í Salnum, Kópavogi. Til að sýna að ég er mjög menningarlegur segi ég að lokum: "Þessi mynd er eins og ef Michel Houellebecq hefði hjálpað Luis Buñuel við að skrifa handritið að Belle de jour".

Interstate 84 --> videó 0.2 af 10
Eins og hálfviti tók ég þetta. Ástæða #1: Umslagið sepía brúnt og gothic og myndinni líkt við Momento og X-Files. Ástæða #2: Kevin Space er sagður "executive producer" á umslaginu og ég hugsaði; hann var nú góður í LA Confidential, er hommalegur og hlýtur því að vera smekkmaður. Ástæða #3: Mér sýndist þetta vera það skársta í helv leigunni (muna: Ekki fara aftur í Bónusvideó). Jæja, í stuttu máli er þetta drulluslappur krimmi um klisjulega löggu sem er fyllibytta og nýskilinn við kerlinguna sína. Mætti halda að Árni Þórarins hafi skrifað þetta. Það hefði svo sem mátt hanga yfir þessu ef þetta hefði ekki bara verið svona helv illa leikið og gert í alla staði. Ég gafst því upp eftir 15 mín og horfði með öðru auganu á aukamyndina: Gidget, gamla sörfmynd frá 1960, sem var hundslöpp en mun skárra en þetta Interstate rusl. Muna (aftur): Aldrei á Bónus aftur!!!

The Count of Monte Cristo --> videó 6.6 af 10
Rólegur gaur er hafður fyrir rangri sök og settur í tukthús á einangraðri eyju. Hann á nokkrum harma og hefna og eftir að hann finnur fullt af gulli fer hann að plotta um hefnd. Ókei búningasápa sem hefði alveg getað verið svona sjónvarpsþáttur í tveim hlutum sem er sýndur í Rúv um jólin. Eins og jafnan í svona myndum er einn kall ógeðslega vondur (á svart/hvítan hátt) og Guy Pierce er þessi týpa og stendur sig sannfærandi - er hreinlega viðbjóður. Já já, alveg þokkaleg mynd, en ekkert til að hrópa ferlega hátt húrra yfir.

I am Sam --> videó 4.6 af 10
Besta "þrossamyndin" er án efa Gaukshreiðrið, en oftast eru slíkar myndir slappar. Nú er Sean Penn hress þrossi sem á dóttir, sem ríkið vill taka af honum. Af þessu spinnst mikið grenj og væl en allt endar að sjálfssögðu vel. "Venjulega fólkið" er sýnt sem stressað pakk sem hugsar ekki um börnin sín, en Sean er góður af því hann er þroskaheftur. Mjög gamalkunnugt Hollywood-slef. Sean á nokkra þrossavini sem eru kómik-relíf – af þeim er mongóinn fyndnastur, en ég á erfitt með að trúa að þessi paranoju-sjúklingur vilji hanga í þessum hópi. Bítlalög með öðrum flytjendum og Misjel Pffæffer gera lítið til að lyfta þessu á hærra plan. En mér leiddist þó allavega ekki mikið, kökknaði smá í háls, en Lufsan grenjaði í heilt tissjú.

Red Planet --> videó 4.3 af 10
Langaði að horfa á skæ-fæ og þetta var einhvern veginn það eina sem ég var ekki búinn að sjá. Það er 2025 og Val Kilmer og vondi karlinn úr Reservoir Dogs og einhver nefskökk kona og Terrence Stamp (drepst fljótlega) + eitthvað leiðindapakk annað er sent til Mars að tékká hvað kom fyrir einhverja þörunga sem voru sendir þangað til að búa til súrefni (af því jörðin er að farast úr mengun). Þá kemur í ljós að pöddur átu allan þörunginn og þetta eru vondar pöddur. Val sleppur einn og kemst með nefskökku konunni til baka og eitthvað. Æ fremur óspennandi rugl og þrugl og frekar slöpp mynd, en þó svo sem skítsæmó upp á almennan heiladauða á laugardagskvöldi.

About a boy --> bíó 8.2 af 10
Jákvæð mynd um sérstakan strák og Hugh Grant, sem lifir á STEF-gjöldum fyrir jólalag sem pabbi hans samdi. Svona er nú allt betra í útlöndum því ég gæti varla keypt mér vindsæng fyrir mín STEF-gjöld. Ég var oft með grátstafinn í kverkunum og ekkasogaði í mig poppkorn og kók til að verjast táraflóði þegar mesta búhúið gekk á. Samt engin vælumynd heldir bara svona "mannleg" mynd um fólk. Og svo fer auðvitað allt vel enda virðist það skilda þegar bíómyndir er búnar til.

Zoolander --> videó 7.7 af 10
Mig minnti að þessi hefði ekki fengið neina sérstaka dóma og var því glaður að hún skildi vera svona skemmtileg. Ég hló allavega eins og hálfviti í nokkur skipti. Ben Stiller er aðalkallinn, leikur og leikstýrir og skrifar handrit. Hér er "fallega fólkið" sýnt eins og það er - eða þannig - og þó allir brandarnir séu ekki æði þá eru margir þéttir. Myndin er byggð upp nákvæmlega eftir formúlunni - byrjun - miðja - ris - happí endir - og það er kannski það versta við hana. Gaman að sjá pabba Bens og allir standa sig nokkuð vel. Taktetta til að aftengja á þér hausinn.

EL-P - Fantastic Damage --> cd 3.4 af 10
Eftir hina geðveiku plötu Anti-pop Consortium var ég tilbúinn að faðma að mér nýja rappið og hlóð þessa niður á AG áður en svartnættið skall á enda platan búin að fá rosagóða dóma útum allt. Þetta er þó því miður einhver leiðinlegasta plata sem ég hef heyrt lengi - nokkur ágæt lög en heildin ferlega döll og óspennandi. Kannski er þetta svona rosalega djúpt að maður þarf að hlusta 20 sinnum áður en eitthvað gerist, en því miður hef ég ekki tíma í slíkt.

Eminem - The Eminem Show --> 7.4 af 10
Annar feitur ZIPfæll af AG. Gott partístuð músiklega en langþreytandi yrkisefni: Ég er EmmiNem og ég er æði / eða: Allir voru svaka vondir við mig en nú á ég fullt af pening svo fokk jú. Emmi er ekki eins beittur gaur og ég hélt - ég fór á heimasíðuna hans og las textana samhliða og þar var engin sérstök snilld. Auðvitað er þetta svo sem ekki mússik ætluð miðaldra karlpung og ef ég væri 15 væri ég örugglega að gefa þessu tíu. Ég tala nú ekki um ef ég ætti fábjána sem foreldra og hefði alist upp í félagslega kerfinu. Þá skildi ég eflaust undirliggjandi bræðina betur. Já, meira að segja stundum getur verið neikvætt að eiga fínt fólk sem foreldra og hafa átt súper fína æsku...

The Beatles Anthology --> bók 9.5 af 10
Jæja það var mikið að ég kláraði þessa 8 kílóa hlussu bók. Ef þú ert á annað borð fyrir Bítlana þá er þetta skyldueign. Bítlarnir eru besta band í heimi og það þarf einhverjar kínverskar aðferðir til að koma mér af þeirri skoðun. Rafmagn í eistun og þá skal ég segja þér að Westlife sé besta band allra tíma. En allavega, þessi bók þarna um Bítlana er þrusufín. Að vanda nennti ég ekki að lesa um það þegar þeir voru smábörn og byrjaði því á kafla 2 - 1960. Svo vindur sagan ofan af sér - svo sem ekkert meiriháttar nýtt á ferðinni - en það er gaman að lesa þeirra eigin umsagnir. Hefði kannski verið enn betra ef það hefði staðið hvar og hvenær hvert komment var látið falla. Textinn er semsagt upp á 10, en þegar kemur að myndvinnslu er ég síður en svo 100% hress (kannski svona 85% hress). Þó þetta sé ekki sama stórslysið og Stuðmannabókin þá er alltof mikið verið að reyna að vera töff í þessari Bítlabók. Of mikið af flennistórum artímyndum og einum of mikið artíkjaftæði í gangi í leiátinu. Ég er viss um að artí fartí vannabíið McCartney hefur verið að skipta sér af. En alltso: Glæsihlussubók og það er gott að geta farið að lesa eitthvað annað á kvöldin!

Torrente 2 --> videó 6.4 af 10
Mjög þroskaða einstaklinga þarf til að skilja Torrente-húmorinn, sem gengur hina örþunnu línu fávitaskapar og snilldar án þess að detta. Verðandi brúður mín hefur ekki húmor fyrir þessu feita fífli, en ég, sem er andlega skildur að hluta, næ þessu. Þetta er verra en fyrri myndin, en samt alveg þolanlegt rugl.

From Hell --> videó 8.9 af 10
Gert eftir teiknimyndasögum sem ég hef ekki nennt að lesa um Jack the Ripper, sem ég hef engan sérstakan áhuga á. Samt mjög fín og drungaleg mynd sem rennur vel og skemmtir á sinn illþefjandi hátt. Ömurlegt var að vera Breti um þarsíðustu aldamót - jafnvel ömurlegra en að vera Breti í dag. Allir með kúkinn í rassinum nema Depp sem reykir bara sitt ópíum og upplýsir morðmálið. Þó Ripperinn sé óupplýstur enn sem komið er taka Hughes-bræðurnir (leikstjórarnir) sér það bessaleyfi að segja okkur hver hann var. Kúl mynd.

No-man's land --> video 8.1 af 10
Þegar þetta bullstríð var í gangi hugsaði ég með sjálfum mér að einhvern tímann yrði þetta búið og þá myndi ég sjá mynd um þetta allt saman. Þetta er ein slík. Tveir "óvinir" hírast í skotgröf og af því leiðir allskyns rugl í góði-dátinn-Sveik-ískum anda. Fín glettni með háðskum og beyttum broddi. All war is stupid eins og kellingin sagði.

Ali G - In da house --> bíó 6.8 af 10
Æ, jæja. Ali fer grunnskólaleiðina og hættir að vera kúl. Í staðinn er reynt að höfða til smákrakka með smákrakkahúmor. Sumt er fyndið en alltof margt er bara asnalegt sellát og einum of þunnt fyrir þennan mikla fyrrverandi meistara. Þetta er miklu skárri mynd en Mr. Bean myndin, en það er ljóst að Ali er ekki óskeikull. Ný grínhetja óskast, takk.

Training Day --> videó 6.2 af 10
Gamla löggan er voða voða vond en sú nýja trúir enn á það góða í manninum. Þið megið giska tvisvar hvernig það endar. Fyrirsjáanleg fávitamynd, en stundum er nú fínt að vera fáviti. Hvað var Denzel Washington að fá Óskar fyrir þetta?

Moulin Rouge --> videó 2.2 af 10
Vemmileg terta. Ég fór að sofa eftir 15 mínútur en konunni fannst þetta fínt.

Weezer - Maladroit --> cd 3.4 af 10
Mjög óspennandi gítarhjakk og leiðindi frá þessum strákum sem gerðu tvær mjög góðar plötur áður en þeir urðu drasl.

Spiderman --> bíó 7.0 af 10
Ég hef aldrei haft sérstaklega gaman af "ofurhetjum", en ber þó lúmskar taugar til Köngulóarkarlsins og minnir að hann hafi verið mitt uppáhalds þegar ég var lítill. Ein vinkona mömmu hét Dedda og af því ég átti enga vini milli 6 og 11 ára aldurs var ég stundum með í för þegar mamma heimsótti Deddu. Sonur Deddu - ábyggilega einum 10 árum eldri en ég - átti amerísk hasarblöð í hrönnum og þar sem lítið annað var í boði á meðan mamma og Dedda röbbuðu saman um nýja kákasus-gerilinn yfir kaffibolla sat ég og reyndi að fá botn í blöðin. Hulk og Spiderman og eitthvað lið var að berjast og ég skyldi aldrei hvaðan búningarnir komu og afhverju karlarnir voru með ofurkrafta. Í myndinni Spiderman er þetta skýrt aðeins en ekki nægilega. Ókei, einhver geislavirk könguló bítur Peter og skömmu síðar er hann orðinn svaðalega sterkur og eitthvað rugl. Ókei, langsótt en samt. En hvað með Willem Dafoe? Hvað var hann að reyna að gera þegar hann varð óvænt ofurhetja? Jæja, sleppum þá allri rökhugsun og skynsemi - þetta er jú ævintýramynd - og eitthvað svona. Þá er þetta alveg fín "afþreying" sem reynir ekkert á heilabúið og ef ég væri ennþá 10 ára væri ég örugglega núna að reyna að skríða upp veggi eða leita að köngulóm til að láta bíta mig. Leikstjórinn Sam Raimi gerir þetta vel og hann þarna strákur sem lék Fróða er geðþekkur leikari og hún þarna Dunsten Knust líka. Frænka Peters er væmin og vitlaus og það er of mikið verið að flagga ameríska fánanum í þessari mynd. Samt alveg fín fávitamynd ef maður hefur ekkert skárra að gera (og hefur t.d. verið hent út af því konan er búin að bjóða vinnufélögum sínum í indverskan mat - sem er alveg yndislega góður og bitarnir alls ekki of stórir).

Antipop Consortium - Arrythmia --> cd  8.6 af 10
Rappgengi frá NYC með drullugott verk. Warp gefur út. Frumlegt og sprellifínt. Ping pong kúlur og geimverur.

The Pledge --> videó 7.9 af 10
Afar vönduð spennumynd með mjög óvæntum og óvenjulegum endi og já, almennt óvenjulegri framvindu. Spennandi og dapurleg.

The Others --> videó 6.4 af 10
Nicole Kidman er draugur sem heldur að lifandi fólkið séu draugar. Æ nú er ég búinn að skemma þetta fyrir ykkur. Það er nú allt í lagi af því þetta er ekkert sérstök mynd - og svo eru heldur engir draugar til - fólk sem heldur það er geðveikt eða uppfullt af ranghugmyndum.

Y tu mama tambien --> videó 9.1 af 10
Unglingsstrákar sem dreymir um að fá að ríða er algengt þema í unglingamyndum. Oft er unnið vel úr þessu (American Pie), en oftar illa (American Pie 2). Sjaldan hafa myndir með þessu þema þó verið sérlega djúpspakar, fyrr en nú í þessari frábæru mexíkósku mynd. Hún er unun á að horfa frá byrjun til enda og mjög skemmtileg. Kannski aðeins of meðvituð á köflum og sumar af þessum pólitísku skýrskotunum fara fyrir ofan garð og neðan, enda er maður lítið inn í mexikóskum stjórnmálum. En sumsé, frábær mynd sem ég mæli 100% með.

The Score --> videó 5.3 af 10
Fullkomlega gleymanleg spennumynd um peningaskáparán. Ágæt á meðan henni stendur en svo er hún gleymd. Ha, var Marlon Brando í henni?

Please Kill Me : The Uncensored Oral History of Punk e. Legs McNeil & Gillian McCain --> bók 9.6 af 10
Ferlíkisþykk bók sem rekur sögu "pönksins" frá Velvet Underground og þar til Johnny Thunders úr New York Dolls drepst úr heróíni. Á leiðinni er farið um stoppistöðvarnar The Stooges & Iggy Pop, New York Dolls, Ramones, Television og Patti Smith, en ég sleppti reyndar köflunum um hana af því mér finnst hún svo leiðinleg. Bókin fókusar vel á þessa senu, NY-senuna í kringum CGGBs-klúbbinn, og er hin skemmtilegasta lesning, þó maður fái kannski ekki alveg heildarmyndina. Liðið sem upplifði atburðina tjáir sig umbúðalaust um þá og þetta voru oft svaðalegar uppákomur. Það sem kemur mest á óvart hvað liðið er allt ungt og hvað það er allt á kafi í neyslu á hörðu dópi. Eins og Bubbi kom því að hér að menn væru varla menn með mönnum nema hafa unnið eitthvað í fiski, þá var maður eiginlega ekki maður með mönnum í frumpönkinu nema heróín-sprautan héngi í arminum og maður hefði tottað tvo sölumenn frá Ohio fyrir skammtinum. Ég mæli eindregið með þessari fyrir pönk/músikáhugafólk, hér er ekkert leiðinda bull á ferðinni og fólk tekur sig mátulega alvarlega.

3000 Miles to Graceland --> videó 1.1 af 10
Gamlir jálkar dressaðir upp og reynt með ítrustu leiðum að gera þá "kúl". Svo hallærislega rembingslegt og leiðinlegt að manni verkjar í bringuspjalirnar (hvað er það?) Kostner Kevin er sérlega glataður og hvað er Kúrtnei Kox að gera með þessu gengi? Hvers vegna var hún svona sorglega smekklaus að taka þátt í þessu vankaða gríni? Maður bíst næstum því við að Mick Jagger birtist á hverri mínútu, svo slappt er þetta. Eini góði leikarinn er pylsuhundur í grænni peysu sem á stórleik og sést í 4 sekúndur. Vegna hans fær myndin ekki 0.0.

Leaving Las Vegas --> videó 4.2 af 10
Nikulás Cage er drykkjuræfill sem ákveður að drepa sig. Það tekst. Æ æ aumingja drykkjuræflarnir.

The Curse of the jade scorpion --> bíó 7.7 af 10
Vúddí Allen er orðinn eldgamall og hálsinn á honum er eins og á skjaldböku. Þessi mynd er svona meinlaus farsi þar sem dáleiðsla kemur mikið við sögu. Manni leiddist aldrei, en hefði svo sem ekki verið að missa af neinu ef maður hefði ekki mætt. Bara enn ein fín Vúddí mynd og betri en margar af hans síðustu myndum.

The Man who wasn't there --> videó 8.2 af 10
Samvöxnu Coen-bræðurnir eru snillingar með stæla og stíl á hreinu. Þessi snyrtilega s/h mynd fjallar um gungu sem kemur sér í ótrúlegt klúður og gunguskapurinn smitast út frá honum og drepur allt kvikt. Fremur hæg, en kúl og barasta mjög fín.

Cornershop - Handcream for a generation --> cd 7.6 af 10
Þessir strákar eru hressir og tjútta hér villt og galið, út og suður og róta í ruslahausum rokksins og diskósins og jú neim itt. Sumt er dúndurstuð, en svo koma leiðindi eins og glatað flykki sem Noel fáviti rúnkar sér utan í með sínum freðna gítar. Allt í allt er þetta ókei partíplata, en vantar einhvern veginn hjartað á réttan stað.

The Royal Tenebaums --> bíó 8.5 af 10
Wes Anderson hefur sinn eigin stíl sem hann hefur þróað í Bottle Rocket, Rushmore, og nú þessari, hans bestu mynd. Hann er á hálfgerðu Woody Allen/Altman svæði, en samt ekki. Er með stílinn á hreinu, þessi "lúkkar" vel og músikin er alveg frábær. Myndin fjallar um tæpa fjölskyldu ofurmenna og pabba þeirra, sluxann, sem vill komast inn á gafl aftur og segist því vera dauðvona. Þetta er skemmtilegt allt saman, en vantar svona smá hjarta í öllu lúkkinu og stælunum. Hefði líka mátt vera fyndnari en hún var. Samt sem áður, mjög fín mynd sem mig langar til að taka á videó seinna. PS - Verð að kvarta aðeins yfir sal 3 í Bíóbalanum þarna í Álfabakka, ég var fáránlega nálægt tjaldinu en samt á 3ja bekk og sá varla neitt hvað var að ske í vinstra horninu.

Jalla! Jalla! --> videó 8.8 af 10
Mjög skemmtileg sænsk mynd eftir upprennandi snilling, Josef Fares. Getuleysi, þvingaður ráðahagur fólks frá Líbanon og garðrækt, gaman gaman, og myndin gengur snyrtilega upp í lokin. Frískandi, fullnægjandi og frumleg. Jú hú!

Mulholland Drive --> bíó 5.6 af 10
Æ æ aumingja David Lynch, einu sinni varstu hetjan mín (þú og John Waters, sem er álíka útbrunninn og þú, greyið mitt). Þú hefur líka gert svo mikið af æðislegum myndum, Blue Velvet, Wild at heart, Eraserhead, Twin peaks - en með þessari og Lost Highway ertu bara búinn að missa það, garmurinn. Já já, þetta byrjar alltaf jafn vel hjá þér - þú kynnir til sögunnar dularfulla atburði og allskonar athyglisverðar persónur en svo missirðu þetta út í sama súrrealíska tilgerðarbullið og Twin Peaks þættirnir enduðu í. Það er eflaust eitthvað fólk sem finnst sniðugt að enginn botn fáist í plottin sem þú ert búinn að byggja upp og fer heim uppveðrað og hugsi, en ég var nú bara frekar fúll að þú hafir ekki fundið skárri slaufu á pakkann en þetta jukk sem þú bauðst mér upp á. Ég er með hugmynd fyrir næstu mynd: Þú klárar súrrealíska ruglið á fyrstu 10 mínútunum og svo verður restin þrælspennandi og dularfull og við vitum kannski út á þetta gekk þegar við förum út, ha, svona eins og í Blue Velvet, mannstu? Ha, hvað segirðu, er það ekki hægt? Hætta þá Frakkarnir sem borga myndirnar þínar í dag að fíla þig? Ókei þá. En þú varst einu sinni góður, það máttu eiga.

A.I. --> videó 2.8 af 10
Þunglyndisleg langavitleysa með "mennskum" boðskap frá hinum rasssíða vitleysingi Spielberg. Vélkrakkinn er hundleiðinlegur og þessar geimverur í endann fáránlega cheapo cheapo tölvugerðar. Að vanda í framtíðinni er white trash sem hlustar á þungarokk (sú sena - þegar gera á gladiator úr vélkrannanum - hefði getað verið í Mad Max) og það eina sem gerir þessa mynd skítsæmó eru Jude Law og Bangsinn, sem er sá eini sem ég hafði samúð með. Æ æ aumingja bangsinn.

Risk --> videó 4.1 af 10
Áströlsk mynd um tryggingasölusvind. Óspennandi og fremur langdregin.

The Time Machine --> bíó 4.7 af 10
Frábær saga verður fremur óspennandi í þessari útgáfu. Maður fær enga samúð með Guy Pearce og framtíðin er illa útfærð - árið 807971 eru allir eins og maoríar en kunna samt reiprennandi ensku - já, einmitt - glatað! Sæmilegir sprettir, illmennin eru ógeðsleg og svona, en í heildina er þetta óspennandi krapp. Gamla myndin var miklu betri (þar voru allir hippalegir í mussum í framtíðinni - en töluðu reyndar ensku líka...)

Jay and Silent Bob strike back --> videó 1.1 af 10
Ég bar mikið gúddvill í brjósti til Kevins Smith því hann átti allt gott skilið eftir hina skemmtilegu Clerks. Mallrats var strax stórt skref niðrávið, en Chasing Amy fannst mér fín. Mér leiddist besservisserisminn í Dogma og því varða með efa í hjarta sem ég tók þessa. Í stuttu máli sagt er þetta rusl. Á brandarafæribandinu eru annað slagið sæmilegir bitar (þokkalegir brandarar um standpínu), en að megninu til eru gæðin í anda MAD og Sverris Stormsker. Þessi mynd rembist eins og vangefin rjúpa við brotinn staur við að vera sjálfsmeðvituð og sjálfsgagnrýninn á gamansaman hátt og er með tunguna svo langt upp í kinninni að hún kemur út um rassgatið. Og afhverju segir engum þessu Kevin Smith (sem leikur sjálfur Silent Bob) að hann eigi að sleppa því að leika? "Gamansöm" túlkun hans á Bob er vandræðarlega léleg og ófyndin. Ef það væri ekki hress órangúti í myndinni myndi hún fá 0.0. Ég er ansi hreint hræddur um að þetta sé síðasta myndin eftir leiðindargerpið Kevin Smith sem ég nenni að sjá.

Kiss or kill --> videó 7.3 af 10
Áströlsk vegamynd sem kemur á óvart. Ungt glæpahyski flýr út í óbyggðir eftir að drepa óvart fórnarlamb og hefst þá frekar spennandi eltingarleikur. Tekið er út úr klysjubanka vegamyndanna en margt ferskt ber fyrir augu, t.d. eru löggurnar langt í frá steríótýpur og lið sem verður á vegi parsins er allt meira og minna ruglað á skemmtilegan hátt. Þess má einnig geta að engin tónlist er í myndinni, hmm... mæli með þessari (hún er fríspóla).

Walk the talk --> videó 6.9 af 10
Fremur óhefðbundin áströlsk mynd um velmeinandi fábjána (leikinn af ráðagóða ítalska gaurnum úr unglingasápunni "Heartbreak High") sem sækir stíft í sértrúarsöfnuði og pýramídanámskeið og er orðinn veruleikafyrrtur af öllu persónuleikapeppinu. Hann ákveður að gerast umbi fyrir hundlélega söngkonu og upphefst þá hin skemmtilegasta atburðarrás. Heldur kannski ekki dampi allan tímann en er sniðug og á eftirminnilega spretti (eins og þegar fábjáninn og söngkonan mæta með kynningu á stórt útgáfufyrirtæki).

Osmosis Jones --> videó 5.4 af 10
Áður hef ég verið slefandi yfir Farrelly bræðrum en hér bregst þeim boga og grínlistin því þessi mynd er mun síðri en fyrri verk. Þetta er hálfgerð barnamynd sem hefur þann boðskap að maður eigi ekki að éta mat upp af götunni. Bill Murrey er fínn en "dóttir" hans er væmin og samleikur þeirra í Disneyvælustíl. Megnið er teiknað og ekki sérlega skemmtilegt. Þokkaleg afþreying en ekkert meira. Ekki gott.

Ali G - Bling Bling --> videó 9.9 af 10
Þetta er hugsanlega fyndnasta spólan sem hinn stórkostlegi Ali G hefur gert og þar af leiðandi ein besta grínspóla samtímans. Hér eru vindheilarnir Posh og Becks tekin í spjall, Ali talar við dýrafræðing (but, seriously, Animals are crap, innit?) og marga fleiri. Hápunkturinn er innskot meistara Borats sem er 30 mínútna bútur sem maður grenjar nær óslitið af hlátri yfir. Við kynnumst heimkynnum Borats (this is myyy wife, this is myyy other wife, this I have to pay for, but she's worth it) og svo fer Borat á kostum í Bretlandi, m.a. í skosku Kramhúsi þar sem hann veltist um og syngur Right said Fred og talar við einhvern úrkynjaðan lávarð. Spólan fæst m.a. í bestu videóleigu landsins, Laugarásvideó, og er algjört möst sí. Nú er Ali G myndin væntanleg og maður er með hjartað í buxunum að þetta verði sama ruslið og þegar Mr. Bean seldi sál sína og gerði sína ömurlegu mynd. En ég trúi því bara ekki upp á hann Ali.

American Pie 2 --> videó 0.6 af 10
Mesta rusl sem ég hef orðið fyrir þeirri ógæfu að leigja síðan viðbjóðurinn Joe Dirt kom í hús. Mig minnti að fyrri myndin hefði verið ókei og því tók ég þessa. Hún er því miður jafn fyndin og endaþarmur á lóu.

In the bedroom --> bíó 5.9 af 10
Lét blekkjast af góðu umtali og fór á þessa langdregnu mynd um miðaldra hjón í Maine sem missa son sinn. Vel leikin og vel gerð, en algerlega óspennandi og fyrirsjáanleg mynd sem snerti mann ekki hið minnsta.

Ghost World --> videó 9.8 af 10
Frábær mynd byggð á sögu snillingsins Daniel Clowes. Thora Birch og Steve Buscemi fara á kostum og myndin er skemmtileg út í gegn. Tekur vandræðaganginn sem fylgir því að "verða að manni" og veltir sér upp úr almennri heimsku fólks. Meistaraverk!

The Hole --> videó 6.8 af 10
Unglingaógeð eru föst í neðanjarðarbyrgi og þá gerast ýmsir voða atburðir. Spurningin Hver er sekur? er lögð fram en svar fæst ekki fyrr en í endirinn - eða gerir hann það? (já þetta er þannig mynd). Ágæt afþreying, eins og maður segir, og Tora Bitch er kynæsandi.

Bugsy --> videó 5.3 af 10
Bugsy var viðbjóðs mafíósapakk og er svo sem ekkert dreginn upp sem engill í þessari alltof löngu og hægu mynd. Smjörkúkurinn Warren Beaty er bara ekki sannfærandi sem illmenni.Samkvæmt myndinni er Busy faðir Las Vegas spilavítanna, en til þeirrar stuðborgar er ég á leiðinni (og útskýrir það kannski af hverju ég tók þessa slöppu mynd).

The Parole officer --> videó 8.2 af 10
Englendingurinn Steve Coogan er stórkostlegur grínisti og týpan sem hann skapaði, Alan Partridge, er hrein grínsnilld. (Hægt er að fá þætti með Alan Partridge á videóspólum og ég mæli eindregið með því). Maður var nú hálf skeptískur að Steve tækist að halda uppi heilli mynd (þetta er hans fyrsta mynd) og mikið rétt, þetta er ekki beint "góð" mynd. Steve leikur skilorðsfulltrúa sem minnir um margt á áðurnefndann Alan, er bara ekki eins mikið fífl. Hann lendir í klemmu og fær gamla skjólstæðinga til að hjálpa sér að fremja bankarán. Inn í þetta kemur kvenlögga sem fellur fyrir honum. Fléttan er slöpp og endirinn 10 mínútur af klisjum, en sé myndin rifin sundur koma í ljós fullt af góðum bútum, sem Steve hefur kannski skrifað sem skets og svo hefur verið reynt að troða öllu saman í bíómynd. Frábær atriði eru innan um og Steve er enn frábær grínisti. Hann þarf bara að vanda sig miklu betur næst þegar hann gerir bíó - eða kannski ætt'ann bara að halda sig í sjónvarpinu?

Legally Blonde --> videó 4.2 af 10
Slappt og fyrirsjáanlegt þunnyldi með nokkrum sæmilegum punktum. Reese er þó fín að vanda.

Lucky Numbers --> videó 6.7 af 10
Travolta og Fíbí í svona græðgiskómedíu þar sem allt fer smám saman í vaskinn og fólk fær makleg málagjöld. Þokkalegt alveg, en ekkert spes.

Planet of the apes --> videó 7.0 af 10
Hoppandi apar og fólk á flótta (þeirra á meðal Kris Kristofersson í steinaldalörfum og eitthvað hallærislegt bimbó sem á að vera dóttir hans). Allt í lagi stuðmynd með dálítið vitleysislegum endi sem gerir ekkert annað en valda tilgangslausum heilabrotum. Sniðugt.

I'll make you happy --> videó 3.3 af 10
Hundslöpp nýsjálensk mynd um hóru og asnaleg ævintýri hennar. Grín og glens en frekar slappt. Gæti næstum því verið íslensk mynd.

Requiem for a dream --> videó 3.6 af 10
Pirrandi mynd um dópistagrey í Brooklyn. Uppskrúfað myndmál og hræðilegt fiðlusarg út í gegn. Myndin segir það sem allir með heilbrigða skynsemi vita: Að dóp er drulla og að drulla því í sig endar bara á einn veg. Niðurdrepandi listrænn pirringur.

The Adventures of Sebastian Cole --> videó 7.1 af 10
Önnur uppvaxtasaga af Austur-strönd USA. Þessi gerist 1983 og nær tíðarandanum vel. Strákur býr hjá stjúppabba sínum sem er búinn að láta breyta sér í konu. Það gerist svo sem ekki neitt, en myndin heldur alveg athyglinni í svona feel-good fíling og er alveg ágæt.

Outside Providence --> videó 7.5 af 10
Ákvað að taka þessa Farrelly-bræðra mynd eftir jákvæða strauma sem ég fékk af Say it isnt so. Átti von á hágæða kúk, prump og brund húmor, en fékk yfirvegaða uppvaxtarsögu með fínum sprettum og almennt góðu gríni. Bókin er byggð á bók eftir annan Farrelly-bróðurinn og undirstrikar enn og aftur að þessir gaukar eru topp náungar sem geta meira en kúkað og prumpað (eins og það sé samt ekki nóg...) Hin fínasta mynd og orðin "aukamynd" hjá flestum videóleigum.

Cube --> videó 6.6 af 10
Hér er aukamynd sem Sjón mælti eindregið með. Eitthvað lið er allt í einu statt í einskonar risavöxnum 26x26x26 töfrateningi og er að hamast við að komast út framhjá ýmsum eggjaskerandi gildrum. Dálítið sniðugt allt saman en með yfirborðskenndri heimspeki, t.d. hvað erum við að gera hér (í kubbnum / í lífnu). Góðir og vondir karlar verða vondir og góðir og svo endar bara myndin og við fáum engin "svör" (ekki frekar en um grunnspurningar mannlegrar tilveru zzzzzz). En jú jú, það mátti hafa gaman að þessu nördalega sæ-fæ.

Say it isn't so --> videó 8.5 af 10
Farrelly bræður eru meistarar og ég hló oft eins og hýena af þessari vitleysu. Topp heiladauði og varla veikur punktur - samt kannski ekki sama gargandi snilldin og ...Mary D&D og Kingpin, en vissulega næsti bær við.

The Faculty --> videó 7.2 af 10
Unglingageimveruspennuhorror. Væn vitleysa!

Small time crooks --> videó 6.9 af 10
Woody í þokkalegu stuði. Hann er reyndar alltaf í betra stuði en flestir, en hér er hann ekki í neinum svaka ham. Lítil og létt mynd með nokkrum kílóum af fyndn.

Indecent proposal --> videó 2 af 10
Woody og Demi eru hjón í Las Vegas. Þá kemur millinn Redford og vill af öllum konum í heiminum endilega rumpa sér af á Demi og borgar fyrir það 1M$. Smá saman verður Woody geðveikur og þau bæði - fara alveg yfir um í staðinn fyrir að eyða eitthvað af þessum aurum eins og ég og konan mín hefðum gert. Svo væla þessir aumingjar fram og til baka og allt fer í drullu og Demi hóra byrjar með Redford. En hvað gerist þá - jú, auðvitað Woody á glæst kombakk og myndin segir í endann: Margur verður af aurum api og kent bæ mæ lov.

The Tao of Steve --> videó 4.3 af 10
Rómantísk gamanmynd um fituhlunk í Santa Fe (með mjög gervilega bumbu) sem notar öfuga sálfræði til að fá sér á hinn alkunna brodd. Svo sér hann beinagrind sem fellur ekki fyrir þessu og bla bla bla - þið vitið endann á þessu, erþaggi? Og ég sem hélt að þetta væri einhver svaka mynd...

Chuck & Buck --> videó 7.2 af 10
Þeir voru vinir þegar þeir voru 11 ára en nú er Chuck orðinn fullorðinn og farinn að vinna við plötuútgáfu en Buck er staðnaður sem 11 ára. Þegar mamma hans deyr fer hann að böggast í Chuck og vill að hann rifji upp gamla slagorðið "Chuck & Buck they suck & fuck". Dálítið athyglisverð mynd og frumleg, vel leikin en frekar hæg og ekkert sérstaklega eftirminnileg.

Grafarþögn e. Arnald Indriðason --> bók 7.5 af 10
Ég gefst oftast upp í fyrstu köflunum á skáldsögum af því þær komast ekki í gegnum múrinn. Þessi síaðist í gegn og ég lauk henni á viku, sem er nánast met því ég er yfirleitt sofnaður eftir 2 bls. Bókin er þokkalega spennandi þó endirinn hafi reyndar ekki komið svo mjög á óvart. Arnaldur er að verða fær í þessu (ég hef reyndar ekki lesið hinar bækurnar hans) og maður keypti aðstæðurnar, þ.e.a.s. að sagan gerðist á Íslandi.

Elling --> bíó 9.5 af 10
Tveir "geðfatlaðir" meistarar, Elling og Kjell Bjarne búa saman í þjónustuíbúð í Oslo. Myndin er um ævintýri þeirra: frábærlega fyndin og skemmtilegir strákar með skemmtilega takta! "Mannleg hlýja" hellist yfir og maður kemur út líðandi eins og Móðir Teresa eða eitthvað. En það varir reyndar stutt.

Along came a spider --> videó 6.0 af 10
Fullkomlega gleymanleg mynd en ókei á meðan henni stóð.

The Lord of the Ring --> bíó 9.3 af 10
Þeir eru alltaf hlaupandi undan einhverjum forynjum. Ó Ó þarna koma fnuff-fnuffarnir og svo er slegist við þá. Samt tekur ekki betra við því Flabb-falabbarnir eru handan við hornið. Eftir æsilega baráttu næst fullnaðarsigur. Sopið kálið þó ekki í ausuna er komið því nú berast fréttir um að Rúmm-slúmmarnir séu á leiðinni og það eru svo ógeðsleg kvikyndi. Hlé. Rúmm-slúmmarnir eru lagðir að velli og okkar menn (föruneytið) anda léttar. Ekki þó lengi því nú dettur galdrakarlinn í hyldýpi illskunnar og hinir svakalegu Ódd-duddverjar eru á leiðinni. Hefst nú ægileg barátta sem endar á því að Sean Bean drepst, tveir Huppitar eru teknir fanga en Trölli, Álfi og Manni ákveða að elta þá uppi. Aðal huppinn og auka huppinn halda ferðinni áfram. Framhald að ári. Þvælan úr Tröllkíen í gómsætri framleiðslu meistarans Peter Jackson og gaman gaman!

Sexy Beasts --> videó 5.5 af 10
Gamlir krimmar hafa komið sér þægilega fyrir í krummaskuði á Spáni og sleikja þar sólina í rólegheitum. Þá kemur illmennið Ben Kingsley og vill fá einn þeirra til að taka þátt í bankaráni. Ben er óþolandi gaur og terroríserar liðið þar til það tekur í taumana. Ekkert spes mynd og mjög gleymanleg. Þetta er allt svo leiðinlegt lið að manni er nokk sama hvað gerist næst, vonar bara að Ben fái makleg málagjöld og það fær hann.

Joe Dirt --> videó 0.0 af 10
Viðbjóðslegasta rusl sem ég hef hraðspólað yfir í langa tíð. David Spade er jafn fyndinn og ruslafatan mín og handritshöfundurinn af þessum skít getur varla verið meira en sjö ára. RUSL!!!