KLAUFABÁRÐARNIR snúa aftur!

Tékknesku brúðuþættirnir um Klaufabárðana eru nú komnir á DVD. Á fyrsta disknum eru tíu þættir.

Þættirnir voru sýndir við miklar vinsældir í Sjónvarpinu á níunda áratugnum en hafa verið ófáanlegir hér á landi.

Þúsundþjalasmiðirnir vinalegu glíma jafnan við heimagerð vandamál sem þeir leysa af alkunnri útsjónarsemi en takmarkaðri handlagni. Jákvæðnin fleytir þeim áfram og aldrei slettist upp á vinskapinn.

Hágæða barnaefni fyrir börn á aldrinum 1-120

Ekkert ofbeldi. Engin neikvæðni. Gleði og gaman í 80 mínútur

Diskinn með Klaufabárðunum er hægt að panta með því að senda póst á klaufabardar@gmail.com. Diskurinn er einnig seldur í Kolaportinu fram að jólum.

1.800 krónur stk. eða 3 stk. á 4.900 krónur

Tökum bæði kort og seðla en einnig er hægt að leggja inn á reikning og fá sent. Sendum frítt út á land svo allir eigi kost á sama lága verðinu. Getum komið með diska á vinnustaði ef óskað er eftir.