Tvöþúsund og fimm
Fyrir marga þýða áramótin nýja
byrjun. Gamla draslinu er mokað aftur fyrir og við blasir óskrifað
blað, glænýtt ár, fersk byrjun: 2005. Þeim
sem muna tímana tvenna hlýtur að finnast þetta
framtíðarlegt ár. Þegar Wham var efst á
vinsældarlistanum var 2005 óralangt í burtu í
dimmri framtíðinni, og algjörlega pottþétt
að þá yrði allt breytt; flugbílar fylltu himininn
og fólk stundaði hugsanaflutning. En svo er þetta bara
nokkuð svipað og þá; á Internetinu er reyndar
hægt að sjá litlu frænku sína í sleik
á skólaballi, en annars er þetta bara ennþá
fátæklingar að deyja úr hamförum eða hungri
og sauðdrukknir suðurnesjamenn í slagsmálum.
Augnblöðkur jákvæðninnar
Það er líklegt að áfram verði allt
svipað, enda lítil hætta á stökkbreytingu
hjá homo sapiens, nema erfðatæknin frelsi okkur úr
viðjum vanans og við getum lifað öldum saman. Þyrsti
fólk í breytingu verður það því
að breyta sér sjálft. Fjölmargir vilja breytingu
og nota tækifærið um áramótin til að
hætta að reykja. Aðrir sverja að fara í strangt
aðhald og líkamsræktarstöðvarnar fyllast annan
janúar af keppum sem ætla að brenna af sér bumbuna.
Svo er runnið á rassinn og reykt og étið á
sig gat á þrettándanum.
Sjálfur hef ég verið að gæla við þá
hugmynd að gera næsta ár að því jákvæðasta
í sögu minni. Neikvæðnin hefur fylgt mér lengi,
í bland við biturð, öfund og illkvittni. Nú
er ég að spá í að snúa við blaðinu,
taka 180° snúning og ganga framvegis á lillabláu
skýi jákvæðninnar. Öllum fréttum verður
tekið með hámarks jákvæðni. Næst
þegar Björn Bjarnason skipar besta vin sinn í eitthvað
feitt djobb mun ég hugsa: Hann var örugglega besti umsækjandinn.
Þegar upp kemst um víðtækt og áralangt svindl
einhverja milljónamæringa á landsmönnum mun ég
hugsa: Þetta er nú örugglega einhver vitleysa, ég
trúi þessu ekki upp á þessa huggulegu menn. Og
þegar Davíð og Halldór tönglast á því
að stríðið í Írak sé æðislegt
og það verði að styðja, ætla ég að
hugsa: Auðvitað – ekki væri betra að Saddam væri
ennþá.
Lífið verður líklega mun betra með augnablöðkum
jákvæðninnar. Ég ætla strax að setja
mig í gírinn á gamlárskvöld og hef þegar
ákveðið að skaup Spaugstofunnar sé æðislegt.
Ég ætla að finnast allt æðislegt. Aldrei mun
ég láta styggðarorð falla um nokkurn hlut aftur.
Ég ætla að verða gegnheil jákvæðnis-sól
sem lýsir upp umhverfið. Allt og allir munu fá toppeinkun
hjá mér. Ó hvað þetta verður gaman og
gefandi.
Svitnað í kirkjunni
Stopp! Úff, hvílík martröð! Ég
gæti nú eins látið gelda mig og fjarlægja
úr mér litla heilann eins og að ganga í gegnum
þessar breytingar. Þá er nú betra að einbeyta
sér að ytra útliti en að vera að krukka eitthvað
í innviðunum. Ég er sem betur fer svo feitur að ég
get einbeytt mér að því að brenna af mér
keppina í mörg ár í viðbót, jafnvel
það sem eftir er, enda er þessu verkefni aldrei lokið
og kílóin fljót að hrúgast á aftur.
Margir kverúlanatar hafa haldið því fram að
líkamsrækt séu að verða trúarbrögð
hins guðlausa nútíma. Að spinninghjólin séu
kirkjubekkir nútímans. Tala um þetta eins og það
sé eitthvað slæmt.
Ég gæti ekki verið meira ósammála. Ég
fermdist til þess eins að fá rafmagnsgítar og nótnabók
með Queen. Í kirkjum líður mér asnalega. Finnst
jarmandi presturinn leiðinlegur, tengi ekki við neitt í
Biblíunni sem hann les upp úr og mærðarlegir sálmarnir
eru svæfandi. Þá er nú heldur betur meira fjör
í ræktinni, sérstaklega í spinningtímunum.
Ég er ekki að tilbiðja eitt né neitt, og síst
af öllu ímyndaða en almáttuga gufutegund, þótt
ég svitni á hjólahnakki sem stingst upp í rassgatið
á mér í gegnum bólstraðar hjólabuxur.
Spinningkennarinn er ekki að þykjast hafa öll svör
í heimi á reiðum höndum þegar hann öskrar
á okkur hvatningarorðum og hækkar Disco Inferno í
botn. Burn baby burn. Gleðilegt ár!
|