Heiðraða samkoma,

Ég er neytandi. Mér finnst gaman að koma í góða matvörubúð og virða fyrir mér úrvalið, sjá allt dótið, sjá allar vörurnar sem samferðafólk mitt hefur búið til, að því er virðist bara fyrir mig. Ég og konan mín leggjum oft leið okkar í matvörubúðir á ferðum okkar erlendis og skoðum úrvalið og ekki síst verðin. Það er ekki saman að jafna, verslunum í Evrópu eða Bandaríkjunum, og verslunum hér, hvorki í vöruframboði né verði. Ísland er satt að segja ekki samkeppnishæft. Við erum útnári.

En það er algjör óþarfi að sætta sig við að þetta verði svona um alla eilífð. 

Okursíðan á heimasvæði mínu á Alnetinu er mitt framlag til betra Íslands. Síðan var sett í loftið 21 september í fyrra. Ég les úr bloggfærslu sama dag:

Át á Great wall í hádeginu. Allt í lagi kínastöff. Maður blánaði þó þegar reikningurinn kom og lítil kók í gleri reyndist vera á 350 kall stykkið. Bæjarstjórinn á Bolungarvík saup hveljur enda hafði hann fengið sér tvær og þurfti nú að borga 700 kall fyrir tvær skitnar kók. Svo mjög fékk þetta skefjarlausa og svívirðilega okur á mig að ég ákvað að stofna sérstaka okur-síðu sem myndi lista upp dæmi um skefjalaust og svívirðilegt okur. Og hér vil ég auðvitað fá hjálp lesanda. Ef lesendur hafa dæmi af viðurstyggilegu okri skal umsvifarlaust senda mér línu til að okrið fái pláss á nýju okursíðunni. Vér Íslendingar erum náttúrlega vön okri á flestum sviðum svo ég er bara að leita eftir frámunalegum okurdæmum, eins og þessu með litla kók á 350 kall. Skill jú? Vonast eftir góðri þátttöku. Látum ekki endalaust okra á okkur! Okursíðan gegn okri! Allir saman nú!

Viðbrögðin við Okursíðunni voru strax góð, dæmin streymdu inn. Svo vatt þetta upp á sig, fyrst eftir að fjölmiðlar landsins fóru að sýna framtakinu áhuga og birtu um það fréttir, síðan þegar “kreppan” skall á fyrir tveimur mánuðum með vafasömum verðhækkunum og almennum svíðinsskap. Nú, átta mánuðum síðar, nálgast okurdæmin 600, sem þýðir að ég hef fengið sirka 2 og hálft dæmi á hverjum einasta degi í átta mánuði.

Okursíðan er orðin einskonar skammarkrókur okrara. Þar sitja þeir sem mest okra með allt niðrum sig og gera yfirleitt ekki minnstu tilraun til að bera hönd fyrir höfuð sér. Okrarar vita upp á sig skömmina. Þeir vita líka að þeir komast upp með okrið af því að fólk – meiri hluti almennings á Ísland – lætur okra á sér.

Algengasta viðkvæði neytenda er að yppa öxlum og stynja:. Æi þetta er bara svona hérna á Íslandi, það er allt svo dýrt hérna. Og ekki bara dýrt heldur er vitlaust verðmerkt í búðunum og stundum bara ekkert verðmerkt. En ég nenni samt ekki að gera mál úr þessu. Ég er þreyttur, búinn að vinna í allan dag, það eru fjórir sem svipað er ástatt fyrir með fullar innkaupakörfur fyrir aftan mig og ég bara nenni ekki að draga bólugrafinn kassastrákinn inn í búð til að sýna honum að þessi lífrænt ræktaði gráfíkjupoki er verðmerktur á 480, ekki 780 eins og á strimlinum. Ég borga bara og læt þetta yfir mig ganga.  

Mörgum finnst líka að það sé einskonar merki um aumingjaskap að kvarta yfir okrinu. Að maður sé geðveikt smámunasamur ef maður minnist á mismun á milli merkingar í búð og verði á kassa. Að það sé merki um það hversu vel maður stendur sig í lífinu að kaupa oststykki á 1400, kjúklingabringur á 3000 eða gallabuxur á 27.500 án þess að blikna. Ég er flottur, mér er alveg sama þótt það sé okrað á mér, er mottó allt of margra. Það eru bara einhverjir asnalegir Þjóðverjar sem nenna að pæla í svona, hugsar landinn og ruglið heldur áfram. Vitund neytenda er steinsofandi.

Um leið og okrarar eru í gapastokknum á Okursíðunni er síðan líka orðin einskonar kaþólskur skriftarklefi lúbarinna íslenskra neytanda – það er að segja, þeirra sem eru á tánum. Þeir sem okrað er á, fá lausn sinna mála með því að öskra yfir óréttlætinu á Okursíðunni. Já, bíddu bara, hugsar kannski fólk í búðinni, ný búið að verða fyrir ömurlegu okri, ég sendi þetta sko beint á okursíðu Doktors Gunna.

Já hlustendur góðir. Staðreyndirnar eru ekki upplífgandi. Verð á flestu, ef ekki öllu, er hér hærra en annars staðar. Hér vinnur fólk líka lengur en annars staðar en skuldar samt meira en gengur og gerist í öðrum löndum. Er þetta eitthvað annað en ólíðandi og ömurlegt ástand? 

Búðir okra, apótek okra, veitingastaðir okra, bankar okra. Stutt er síðan húsnæðisverð á Íslandi var hagstætt. Ekki lengur, þökk sé síðustu ríkisstjórn. Nú kostar 3 herbergja íbúð á Seltjarnarnesi það sama og einbýlishús í Los Angeles með sundlaug.

Hvernig stendur á þessu okri? Eru fulltrúar neytenda einfaldlega ekki að standa sig? Vantar kannski allt pönk í þá? Þýða einhver vettlingatök við þetta ástand? Hvaða klikkun er það til dæmis að láta vita á undan sér þegar gerðar eru verðkannanir? Er það ekki bara að koma skríðandi á hnjánum til að kyssa vöndinn?

Hvernig stendur á þessu okri? Eru íslenskir verslunareigendur og seljendur þjónustu upp til hópa satanískir okurmangarar, ofsa gráðugir, ósanngjarnir og gjörsamlega lausir við alla samfélagslega siðferðiskennd og þjóðhagslega samkennd. Bölvað helvítis pakk, svo ég tali bara íslensku.

Hvernig stendur á þessu okri? Eru íslenskir neytendur lélegustu neytendur í heimi? Lúffum við endalaust fyrir okurhyskinu með hangandi haus, muldrandi í barminn. 

Ísland, eins og við vitum, er besta land í heimi. Ég sé enga ástæðu til þess að Ísland geti ekki orðið ennþá betra. Okur á Íslandi er ekkert náttúrulögmál. Ef þú lætur ekki okra á þér verður ekki okrað á þér.

Takk fyrir.