Innlegg (Nafn - Innlegg - Hugsanleg not (öll önnur
not þó leyfileg))
DJ Síbyljus - Magnús - (plötusnúður, hræðileg hljómgæði og streituvaldandi músik)
Skrokkar - Magnús - (Allar tegundir hljómsveita)
Páskar - Þórður - Hljómsveitin var stofnuð
vorið 1970 af Annari Hansen. Hún þótti efnileg en starfaði því miður aðeins
fáeina mánuði eða þar til Annari var boðið yfir í gospel-bandið Hvítasunnu sem
allir ættu að kannast við.
Briminnstunga - Summi - sem mótvægi við Brimkló.
SKAK - Ari - teknóband með sjómannatextum.
Með vesen - Heiða - aðallega fyndið til að kynna bandið á sviði.
Eplapæjurnar - Tryggvi Már - Stelputeknóband sem notar bara Apple tölvur.
Kverkatak - Dr. Gunni - Töff metall, eða tilraunarokk. Ruglist ekki saman við hina norsku Kvelertak
Excursion - Hjalti - Dauðarokk, augljóslega. Stendur
og fellur með hve illlæsilegt lógóið er.
Slímhúð - Hjalti - Paunksveit á þorrablót
háls- nef- og eyrnalækna.
Pabbar á pöbbum - Sibba - Í fyrstu
virðist þetta vera venjulegt pöbbaband, en svo vakna upp
spurningar um kynhneigð meðlima. Gæti hitað upp fyrir
Beers For Queers.
Thöierucide - Sibba - Svona eins og dauðarokklingar.
Dauðarokklingarnir eru svosem líka ágætis pæling.
Hádegis-Móri og Náhvelin - Guðni G
- Electropönk
Poor Thing - KP - Sólónafn eða hljómsveitarnafn
yfir rokksveit sem vill hagnýta sér kreppuna með meiki
í útlöndum.
I Say - KP - Sami ásetningur og að ofan, nema hvað
að hér er meira grín og kaldhæðni í
yrkisefnum
Spíttlarnir - KP - Bítlalög í Spítt-Metal
útsetningum.
Véspá (eða Vespa) - Gunni - Þungarokk
Beers for Queers - Mosi - samkynhneigt pöbba-coverband
sem tekur eingöngu lög með Tears for Fears.
Sellátur - Mosi - vestfirskt kaupfélagsband (erlendis
yrði nafnið Sell Out U R (You Are))
Blóð, Busi, Dóri, Davi - Binni - passar líklegast
best saman á fjögurra manna band, frábært plötunafn
líka og einnig hljómsveitameðlimanafngift. Pönk
augljóslega.
Hljóðlát Eldabuska - Pétur Óskar
- Notist af meðalgóðu bandi...
SOKKAR - Jói Ág - rokk
GUMBAN GOJ - Jói Ág - 12 manna krúttband
Óskar frændi - Inga - kvikmyndatóntist
Bert Hold Breitt - Inga - Leikhústónlist
AFAR GÓÐIR - Eiríkur - skallapopparar og ljúfmenni
...... orðnir afar
SUÐ VERSTUR - Eiríkur - mjög háværir
"heavy metal" gaurar - framleiða eyrnasuð í stórum
stíl
RASSKINNHESTAR - Eiríkur - bykkjutónlistarband
ÞAKHLÁTUR - Eiríkur - Þakklátir
hrollvekjutónlistarmenn
Mólikúl - Guðmundur - Fyrir kúl stærðfræðirokkband
Helgimbill - Örvar - fyrir dreifbýlis-dauðarokkara/pönkara.
Sólbrigði - Örvar - fyrir pönkara sem þurfa
að fara á sveitaballarúntinn.
Picadeath - Óskar P - Lo-fi dauðarokkssveit...ath.
að 'pica' = 0,000000000001 en 'mega' er 1.000.000. Selfyssingurinn
Jón Örlygsson (sem var í Sauðfé á
mjög undir högg að sækja í landi Reykjavíkur)
á heiðurinn að þessu nafni.
Unaðsreitur - Kristinn - Ofurvæmin hjónadúett
íklæddur hvítum satínskyrtum og buxum í
stíl. Bæði eru þau með ljóst, slétt
og axlarsítt hár og útlitið ekki ólíkt
70's looki hljómborðsleikarans Rick Wakeman.
The Shower Curtains - Kristinn - Tónlist í anda
ástralskrar 80's kuldanýbylgju þar sem allir iðkendur
bera gjarnan uppi mikinn þjáningasvip og ekki ólíklegt
að afurðir þeirra hafi fengist leiknir í útvarpsþættinum
Nýræktin með Skúla Helga og Snorra Má.
Reyður - Sigga - Hvalaskoðunardauðarokk
Incunabula (Vögguprent) – Bragi – Dauðarokk fyrir lengra
komna
Auðmenn - Mark - Pönk eða pöbbarokk
Horfellir - Hjörvar - Horfellir - Fyrir níðþungan
metal
Rothaus - Hjörvar - Kjörið fyrir þá
sem hyggja á meik í Þýskalandi
Prosody - Magnús T - metall með vönduðum
framburði
Johnny Úllendúllendoff - Magnús T - hress
og nettur klámtrúbador
Besefar - Magnús T - doo-wop strákaband af gamla
skólanum
Geit í bandi - Magnús T - sunnlenskt danspopp
Loðinbarðar - Magnús T - hármetall
Harðfiskur - Stefán - Gamaldags og alíslenskt
pönk
Gnýr - Stefán - Þungarokk
Silvio - Stefán - Rafpopp
Skrýmsladeildin - Stefán - eiginlega hvað
sem er...
Náfroða - Elvar - allavega ekki sveitaballaband,
en brúklegt á flestar aðrar stefnur.
Barbu gimmick - Elvar - Barbabrella á google translate.
Sennilega hipphopp flipp.
Hipp Hopp Flipp - Elvar - hipphopp flipp
Rúdolf og Stefán - Sigurður Ingi - flipppönk
Halim Al og Barnaþjófarnir - Árni Kristjáns
- Létt poppað rokk með barnaránsívafi
Rasskerlingarnar - Kristinn - gengur bæði fyrir kvenna-
og karlabönd, en dugar best sem svona: Kröftugt Vondukallapönk
eða kröftugt Vondukerlingapönk.
DROOL - Óttarr Proppé - Gott fyrir dauðarokkhljómsveit.
Hljómar ógnvekjandi en meiningin er...tja...maður spyr
sig.
Vangeflingarnir - Bjarki - Kóvera bara lög með
Rokklingunum
Dýpri líf (Deep relief) - Inga - slökunartónlist
eða tjáningarfullt rokk.
Tussusnúðarnir - Bjarki - dj dúó
Herra Kúreki og Nauðgararnir - Bjarki - Psychobilly
Sveiattan! - Bjarki - til allrahanda brúks
Stef geldingarnir - Sindri - vinsælt popp
Krúsi og Snúllarnir - Sindri - xylófóna
fönk
Rusty Colon and the Mambo queens - Sindri - salsa rokk
Minty and the Armpit healers - Sindri - ömmu og afa rokk
Marathon noise brothers - Sindri - æfinga techno
Tasty Sack and the Publeton swingers - Sindri - dónalegt
swing
Digital treazures - Sindri - Acoustic jungle
Bryggjupollarnir - Ævar Örn - f. nokkra rosa “hressa”
kalla (ekki yngri en 50) sem spila öll þessi “gömlu góðu”
á sjómannadaginn, á Síldarævintýrinu,
Fiskideginum mikla osfrv.
Helgarpabbarnir - Stebbi Magg - spila pabbarokk, en geta þó
bara spilað aðra hvora helgi!
Fúþark - Daníel Brandur - fornaldarpönkhljómsveit
eins og hefði orðið til ef Egill Skallagrímsson hefði
kunnað á rafmagnsgítar (eða Egill Ólafsson
hefði stofnað ef hann hefði fílað pönk en ekki
progg þegar hann stofnaði Þursaflokkinn)
Bölvuð Læti (eþs B'læti) - Haraldur
Unnar - bílskúrspönk með sinnepi
Ruglelgur - Haraldur Unnar - sama afturábak og áfram,.stolið
frá Baggalút. -Svona retro-stefson-hresstogflippaðeitthvað
The Shites - Haraldur Unnar - trúi ekki að það
sé ekki til band með þessu nafni?? correct me if I´m
wrong. besta nafn EVER.
Spy-Leg (spælegg) - Gungun - fyrir sveitaballahljómsveit
sem heldur að hún meiki það erlendis
El-Fish - Gungun - íslenskt en samt alþjóðlegt
sérstaklega framburðurinn, gæti meikað það
á starbucks
Jabbada-Badu - Gungun - coversveit fyrir Erykha Badu, gæti
spilað frítt á menningarnótt en fengi ekki að
vera með á airwaves
Borin von (The Boring One) - GÞ - Skemmtipopp
Leðurreður - Flosi Þorgeirsson - Pönk
Styrkár - Flosi Þorgeirsson - Viking/Black Metal
Angantýr - Flosi Þorgeirsson - Viking/Black Metal
Heysátan (Hey, Satan) - Almar - kristið Sigur Rósar
wannabe/satanískt dauðarokk, hvort tveggja kemur til greina
Hrun - Almar - brjálað kröstpönk?
Hnignun - Almar - líka brjálað kröstpönk?
RAKASKEMMDIR - Margeir - pönk
Blautur hanski - SIK - experimental pönk
Tamin dúfa - SIK - indie
ekkiljótur - SIK - pönk
Mosabarð - SIK - þjóðlagapönk
Móðir - SIK - pönk
Heimamenn - SIK - útálandi grínpönk
Óður snjótittlingur - SIK - músiktilraunir
Varmenni Íslands - SIK - metall
Rokkband íslenska lýðveldisins - SIK - blúsrokk
Hávaði - SIK - pönk
Nýmóðins - SIK - pönk
Nýmóðins Hávaði - SIK - pönk
Cama Mass - Steinar Júlíusson - Þjóðlagaskotið
popp
Hljómsveitin Strengir - Heiða - Fyrir árshátíðarband
íþróttakennaranema (ath tvíræða merkingu)
Helvítis ólétta kellingin mín (My bloody
pregnant wife) - Maggi Logi - Pönk
Sófar (So Far) - GLH - Sveitaballaband sem vill meikaða
erlendis
Armband - Sigurjón Kjartansson - Fyrir neðan miðlungs
sveitaballaband
Observatory - Dannímaus - Dauðarokk
Úttektir:
PULSAN - Jói Ág - experimental
noisecore (ATH: Varðandi nafnið Pulsan í Hljómsveitanafnabankanum
að þá man ég ekki betur en að Sindri Kjartansson
hafa starfrækt sveit undir þessu nafni árið 1993
og lék hún t.d. á mikilli rokkhátíð
í Faxaskála þetta sama ár. (Kristinn Pálsson),
Pulsan var starfandi einhversstaðar á tímabilinu frá
1992-1993, í minningunni var það ágætis hljómsveit
(Valtýr), Ég man eftir Pulsunni í grunnskólanum
á Ísafirði árið 1991. Þá hituðu
þeir upp fyrir Sororicide og gott ef ekki að Fróði
Finnsson heitinn hafi verið í Pulsunni...kannski fleiri meðlimir
Sororicide?! (Kristján Freyr).
Alþingi - Bjarki - Dauðarokk (ath:
Hljómsveit sem nú heitir Þingtak (mæspeis)
hét einu sinni Alþingi en skrifstofustjórinn á
þeirri merku stofnun hringdi í þá og bannaði
þeim að nota nafnið. Gaurarnir, sem eru þokkalegir
töffarar, skiptu um nafn, svo skrifstofustjórinn hefur vísast
haft sterk rök bakvið sig. Gylfi Ólafsson
HJÓNABANDIÐ - Margeir - ægilega
rómantískur dúett (ala Ike & Tina) - ATH: Þessi
hljómsveit er starfandi fyrir vestan og spilar alltaf á Ögurballi
og þorrablótum.
Ðe Lónlí bló djobs
- Binni - Grínpönk - Bandarísk kona tók út
fyrir barnaband
Bíllykill (Billy Kill) - GLH - Rafrokk
- Heiða tók nafnið út fyrir rafrokksóló |