08.12.01
Er allsstaðar svo til. Í útvarpinu og sjónvarpinu: Með Hljómum og Óttari Felixi í Morgunsjónvarpi og Einari Erni og Þorsteini Eggerts í Kastljósi. Gaman að því. Smínkan hjá Stöð 2 var 2 sekúndur að henda á mig meiki en Eva Sólon hjá Sjónvarpinu var a.m.k. 5 mínútur enda vandaði hún sig svona líka rosalega. Í kvöld erða svo "bók dagsins" með Árna Snævarr á Stöð 2. Stuð!

07.12.01
Jæja krakkar mínir: þá er bók ársins loksins komin út: Eru ekki allir í stuði? Ég er kampakátur yfir þessari snilld og ef ég fæ ekki einhver verðlaun - jafnvel bara eitthvað á Andrésar andar-leikunum -  verð ég voða fúll. En fúlari og sárari verð ég þó ef bókin ríkur ekki úr öllum bókahillum. 

04.12.01
New York City var í lagi, en mikið djö.. er hún orðin dýr eftir að þessi vitleysislega flotgengisstefna var tekin upp. Dollar á 110 kall - ertu ekki að grínast? Burt með flotgengið og inn á með fastgengið. Það bar helst til tíðinda að við gistum á okurpleisinu Empire Hotel eftir að YMCA hafði reynst skítahola. Eyðum degi í malli á Staten Island og fáum föt sem passa utan um okkar belgi. Fórum með Greyhound til Northampton, höfuðborg gjafavörubúða og lesbía, og er það hið yndislegasta. Allir Kanar eru með fána og allir gluggar eru útbíjaðir í fánum. Þjóðernisstoltið alveg að sliga greyin - og kannski mega þeir það alveg. USA er jú fínt pleis og Kanar eru upp til hópa eins og hressir táningar.

25.11.01
Ja mikið helvíti er ég latur að halda út þessari dagbók. En nú er semsé bara nokkrir dagar í að við förum til NYC og konan alveg hætt að vera hrædd því er ekki búið að drepa alla úr Alkæfa genginu? En mikið er ljótt að sjá Danafíflin vera orðin móðursjúka rasista - eins gott að þetta helvíti komi aldrei hingað bigg tæm. Ég er að gera músik fyrir myndina Gemsar sem hann Mikki tott ætlar að frumsýna í lok jan. Þetta verður massamynd með massa sándtrakki - það kemur á disk. Fullt af frábærum listamönnum taka þátt og ég verð með 5 ný popp lög: Eitt sem Stebbi Hilmars syngur, annað sem Hreimur syngur, eitt Heiða syngur, eitt sem Halla Vilhjálmsdóttir (hún leikur í myndinni) og eitt sem ég syng sjálfur. Gamanaðððííííí......

04.10.01
Geðveikt dedlæn út af bókinni. Geri ekkert annað í bili. Ætla að létta mér upp og éta á Banthai, en það er ömurlegt skítapleis og ég fæ ekkert að éta.

02.10.01
Hitti Bubba á Borginni út af bókinni. Segist hafa samið lag um Valla (sjá hér að neðan) sem verður á nýju plötunni hans (Nýbúinn). Bubbi er hinn almennilegasti og leyfir mér að reka úr sér garnirnar (sjá bók).

14.09.01
Swordfish er einhver versta mynd sem ég hef séð. John fokking Travolta voða svalur hryðjuverkagaur eða eitthvað. Einhver gaukur að hamast í tölvu að hakka sig eitthvað - mér sýnist þetta vera Windows 2050 sem hann er að vinna á (afhverju er tölvuumhverfi alltaf svona flott í bíó - aldrei neitt í línkingu við það sem ég á) á meðan einhver stuðmúsik glymur. Ömurlegir karekterar og ömurleg mynd. Það er víst búið að banna hana út af WTC. Djöfull held ég við fáum mikið af væmnum myndum núna. Stallone og Swartzenegger atvinnulausir greyin. Sem betur fer.

11.09.01
Þessi dagur er hér með opinberlega gerður að VERSTI DAGUR LÍFS MÍNS-Dagurinn. Húsið hefur verið í fokki - allt út af einu sprungnu kaldavatnsröri. Lak niður á næstu íbúð og rústaði vegg og eldhúsinnréttingu. Ég og vinur minn Steini gerum við, eða réttara sagt, hann, því ég er klaufskari en handalaus maður. Allavega, byrjum um morguninn í þessum iðnaðarleiðindum. Koma eldhúsinnréttingunni upp aftur. Ikea helvíti. Klukkan 1/2 2 hringir konan hans, segir að annar turninn standi í logum. Unnusta mín kemur heim og er á bömmer. Segir: Ég fer sko ekki til NY, en þannig er að við vorum búin að borga miða til NY, en áttum reyndar ekki að fara fyrr en eftir tvo mánuði. Vonandi verður ástandið skárra þá. Ég trúi þessu ekki. Er ekki alveg að melta þetta. Geri mér ekki grein fyrir stærð málsins. Jæja fokkitt. Upp í Ikea. Steini gleymdi miðanum með málunum í öllum látunum, svo hann ekur eftir honum, en ég og unnustan mín étum í Ikea (5.2 af 10). Þar er tómlegt. Svo að kaupa varahluti í eldhúsinnréttinguna á neðri hæðinni sem við rústuðum. Lamir? Það eru til 50 tegundir af lömum!!!! æpir stressaður strákur á Ikea-lagernum. Segir svo að hann sé bara svona stressaður út af WTC. Að mamma hans vinni þar. é ræt. Fram á kvöld er eldhúsinnrétting djöfulsins sett upp. Það er leiðinlegt. Á meðan fer allt til fjandans og súpermarkaðurinn sem ég var búinn að skoða á netinu er ekki til lengur. Og þúsundir dauðra. Ekkert nýtt kannski að saklausir borgarar deyji. Nú eru það bara Ameríkanar.

08.09.01
Dagarnir þjóta hjá eins og þeir séu með sinnep í rassgatinu. Ég setti aldrei sinnep í rassgat neins, en einu sinni tók ég þátt í að slefa og pissa og hrækja í kókdós sem síðan var afhent Valla "vitlausa" til drykkju. Ég hef varla náð mér af skömm síðan. Einnig vil ég biðja strák á sendibíl merktum "Te og kaffi" afsökunar fyrir að hafa gefið honum fokkmerki. Hann svínaði reyndar fyrir okkur, en maður á samt ekki að lyfta litlaputta, svona almennt. Verum góð krakkar, nei í alvöru.

30.08.01
Skammarlega sjaldan uppdeitað hjá mér. Sorrí. Lítið að gerast svo sem, er bara að hamast í bókinni Rokk síðustu aldar, sem útgefandinn telur reyndar vera full alvarlegur titill. Ég stakk upp á Stóra stuðbókin, en hann keypti það ekki alveg. Hafa lesendur hugmyndir? Svo er ég með pípara yfirvofandi því það fór rör - leiðindi. Og svona. Eitthvað þannig. Ég lofa í alvöru að vera duglegur. Ekki hætta að skoða þetta.... plís....

22.07.01
Ferðaklúbburinn Megas aftur á ferð og nú til að sjá Glym. Komumst næstum því alla leið, en þá byrjaði að rigna og við nenntum þessu ekki. Sáum þó mest af Glym í smá fjarlægð. Næst erum við að spá í að vaða gilið. Hér eru nokkrir okkar að fara yfir stórhættulega brú. Fyrir neðan má sjá beljandi stórfljótið. Hér skipti sekúndubrot sköpum og hvert skref var spurning um líf og dauða. 

19.07.01
ÁRNI JOHNSEN ÁRNI JOHNSEN ÁRNI JOHNSEN! Reyni að finna diskinn sem ég átti með honum, en finn hvergi (af einhverjum dularfullum ástæðum). Hringi í Megas út af bókinni. Hann er líka í Árna-stuði og spyr í gríni hvort Árni taki Everybody must get stoned í Brekkunni. 

11-12.07.01
Flækjust í góðu stuði til Stranda. Tvær nætur á Hótel Djúpuvík, sem er flott pleis; almennilegt fólk og fínn matur. Gamla síldarverksmiðjan (sjá Blóðrautt sólarlag) er að vísu lokuð fyrir gesti (hægt að kaupa ferð með leiðsögn) en á Eyri, Ingólfsfirði, sem er næsti fjörður við, er önnur gömul síldarverksmiðja og það er enginn að vakta hana. Jú, reyndar, helvítis frekjuhlunkarnir, kríurnar, svo við hröktumst á flótta undan þegar þær gerðu árás. Á Ströndum mæli ég að auki með sundlauginni í Krossnesi, kaupfélaginu í Norðurfirði og að slappa af í grýttu og eyðilegu umhverfinu. Strandir rúlz!

09.07.01
Je minn eini, hvílíkar harðsperrur eða hass perrar. Ferðaklúbburinn Megas fór upp á fjöll í gær, og við ætluðum að skoða þennan blessaða Glym. Göngum á stað en þetta er svo illa merkt að fyrr en síðar erum við komnir upp á Hvalvatn. Ég er með göngubók eftir einhvern Einar Þ. Guðjohnsen, og samkvæmt henni á þetta allt saman að vera pís of keik. Hangandi utan í klettum og skríðandi niður skriður skömmu síðar samþykkjum við þó að banka upp á hjá þessum Einari og buffa hann ef við sleppum lifandi í bæinn. Eftir 8 tíma hluss um fjöll erum við lox í þessari gjá sem þessi foss er í, en ég er of máttfarinn til að slefast að brúninni og kíkja á kvikindið, enda erum við líka öfugu megin. Ég er því ekki enn búinn að sjá foss helvítið þegar við komum í sjoppuna í Mosfellsbæ og röðum í okkur próteini og fitu.

06.07.01
Keypti klósettrúllur í Nóatúni. Mun betri búð en 10-11. Á leiðinni heim með rúllurnar í poka var ég skömmustulegur og viss um að einhver færi að hía á mig og segja hluti eins og "það er naumast að minn maður ætlar að vera undirbúinn" eða "nonn-nonn-nohhhh - 12 rúllur bara, á að éta mexikóskt?" Sem betur híaði enginn á mig og ég slapp óhultur heim. Eina lífveran á leiðinni var "ógeðslega konan" að fara í strætóskýli. Það er illagreidd kona með smjörlíkisstykki í hárinu og tekin í framan - eins og norn. Ég er í raun skíthræddur við hana. Hún var samt of útúrþví til að djóka með klósettrúllurnar. Ég henti einu sinni svörtum frakka sem ég átti þegar ég mætti í strætóskýlið og hún var í alveg eins frakka. Innanundir var hún reyndar í bleikum joggingsamfestingi, en samt... Ég hef greinilega ömurlegan fatasmekk. Einu sinni var ég að labba Laugarveginn og sá að mér fanst ofsa flotta kúrekaskyrtu í glugga. Snaraðist inn og mátaði en þegar ég kom út mátunarklefanum var sonurinn úr "mæginum ástarinnar" að skoða alveg eins skyrtu og mamma hans að dást að syninum/ástmanninum. Ég var snöggur að hlaupa út. Skyrtulaus.

29.06.01
Fékk 5 LP plötur á 100 kall í Góða hirðinum: Best of Doobie Brothers, Harpo-Movie star, Olga Guðrún-Kvöldfréttir, Tommy Seebach-Wheels og Sparks-Indiscreet. Er enn að spá í því hvort peningunum hafi verið vel varið.

15.06.01
Biðröðin gekk ótrúlega fljótt fyrir sig og allir voru svaka stilltir og þægir á Rammstein/Ham tónleikunum. Ham umluðu nokkuð glettilega, en kunnugir segja þá hafa verið betri á Gauk. Samt ekkert á við Duus-hús, æ gess. Rammstein komu við hjá Hjálparsveit skáta og voru yxna. Göbbels hefði átt að hafa þessa stráka með sér í áróðursstríðinu því þeir voru með liðið í vasanum. Sveitt rokk og allir með hefí metal puttana tvo á lofti. Húrra fyrir Rammstein!

13.06.01
Kemst því miður ekki á Ham tónleika því ég er að fara upp í sveit. Það er alveg eins gaman og svo ég Ham hvort eð er á föstudaginn.

03.06.01
Ég fór ekki að grenja þegar rímnakarlinn kom fram með Sigur Rós en ég veit um allavega tvo sem táruðust. Gaman að því. Þessi ballett-stelpa þarna á kassanum var þó meiri háttar hallærisleg. Minnti mig á listaflokkinn Dá í Félagsstofnum stúdenta 1982. Hljómar voru þrumuskuð 2001 og hafa engu gleymt, nema kannski Gunnar Þ sem var með gömlu-karla-sánd á gítarnum og Sigfús trommari sem var úti að skíta. Hljómar ættu að fá sér þéttari trymbil og þá væru þeir til í slaginn á ný!

02.06.01
Blonde Redhead var eina skemmtilega bandið á þessu Kidda í Hljómalindar-giggi. Til hvers í andskotanum er verið að púkka undir þessa Kvæ stráka? Alveg eins og Mogwai að djamma með gítarsólóleikarunum úr Dire Streits. Úlpa aðeins skárri og Maus svona la la. Danni = hættu nú að fikta svona mikið með þennan trommusinta sem þú keyptir þér.

18.05.01
Hjólreiðatúr alla leið í þetta nýja bryggjuhverfi þarna í Grafarvogi. Svaka spúkí af því það er nánast enginn fluttur í þessi hús. Svo eru gangstígar áfram og framhjá hrikalega voldugum einbýlishúsum. Hvar fá menn pening til að byggja öll þessi hús? Sumt á maður erfitt með að skilja.

12.05.01
Eurovision-partí og ég fór á fyllirí. Alltaf jafn gaman að vera fullur, ég var búinn að gleyma því. En alveg jafn ömurlegt að vera þunnur. Þar sem ég er svo gamall/ekki í þjálfun var ég þunnur í 3 daga og slappur í 2 að auki. Það verður því því miður ekkert fyllirí aftur í bráð. Kannski ekkert fyrr en Euro 2003? Gott hjá Einari B að koma okkur úr keppninni - gott fyrir lifrina á mér.

18.04.01
Fór í bæinn, voða gaman. 

15.04.01
Björk var að fara til útlanda, á strönd í Frakklandi, og ég lenti í þeirri aðstöðu að bera fyrir hana dýnu sem hún ætlaði að taka með. Ég bar dýnuna einhvert og skellti henni í farangursgeymslu VW-bjöllu. Skömmu síðar vaknaði ég.

06.04.01
Ég held að Tollpósturinn sé persónulega á móti mér. Það kom einhver pakki frá Anthill Records - eitthvað dót sem ég hef ekki hugmynd um hvað er - og þeir þarna hjá tollinum vildu fá reikning og láta mig borga toll fyrir eitthvað drasl. Ég sagði þeim bara blessuðum að endursenda þetta. Þetta er þó ekkert miðað við ruglið sem ég lenti í þegar ég var að sörfa eins og fábjáni og lenti á elvis.com og pantaði einhver hræódýr elvis-sólgleraugu (sem ég á eflaust aldrei eftir að láta sjá mig með). Ég sendi visa-númerið, en svo komu þessi ódýru plastgleraugu í mörg þúsund kr. Fed ex-sendingu og svo vildi fyrirtækið Jónar láta mig borga nokkra þúsund kalla í toll og rugl í viðbót. Þessi sólgleraugu á 1500 kall enduðu því í svona 10.000 - já, það er gaman að þessu helvíti. 
Muna: ekki kaupa meira á netinu!

31.03.01
Fer á meistaraverkið Lalli Johns. Allir eiga að sjá þá mynd. Dreymir svo Lalla í alla nótt.

30.03.01
Fer á úrslitakvöld Músiktilrauna. Fullt af slöppum hljómsveitum, en sumt alveg fínt. Hardkor hljómsveitin Andlát vinnur.

24.03.01
Varð hugsað til æfaforns póstkorts sem ég keypti einu sinni í fornbókarbúð í París. Þar liggja þrjár s/h konur útglenntar og pissa kröftuglega út í loftið. Þar sem bunurnar þrjár mætast, heldur pissið uppi eggi. Hvar er helvítis póstkortið, hugsaði ég.

23.03.01
Bursta Grjóna í Badminton. Held með Borgarholtsskóla í Gettu betur.

22.03.01
Borða einhvern borgara á McDonalds. Finnst eins og ég hafi étið skít.

18.03.01
Keyrðum í Hvalfjörð og ætlum að ganga upp að Glym (hæsti foss á Ísl). Sjáum þá að brúin hefur verið tekin niður og og erum of miklar gungur til að vaða yfir.

11.03.01

Skoðaði húsin í Bessastaðahverfinu. Þar er eitt hús með engum gluggum. Þetta var nostalgíuferð því ég fór oft með foreldrum mínum að skoða þetta sama hús þegar ég var lítill. Pabbi er húsasmiður og svo var drepið á bílnum fyrir framan þetta bjánalega gluggalausa hús. Svo fussaði og sveiaði öll fjölskyldan og pabbi spurði hvers kyns ógæfumönnum dytti í hug að byggja svona rugl.