31.12.08
Og MAÐUR ÁRSINS er... maðurinn með Helvítis
fokking fokk! skiltið. Það segir allt sem segja þarf.
---
Mikið svakalega hefur búsið hækkað í
ríkinu. Maður fær varla dísent rauðvínsflösku
á undir 1500 kall. Ekki að ég hafi vit á rauðvíni.
Sama bragðið af þessu öllu, finnst mér. Spesíalisti
í búðinni mælti með Gnarly
head, 2005 "Smakkast eins og lúka af bláberjum". Ég
keypti þá lýsingu og mun súpa af þessu
með nokkurri eftirvæntingu með kalkúni í kvöld.
---
Hef notað morguninn til að skrifa vöntunarlista yfir vinýlplötur.
Gott að prenta þetta út og hafa í veskinu ef maður
rekst óvænt á plötukassa. Maður áða
til að gleyma hvaða plötur manni vantar með Wings og ELO
og svona. Hengdi upp stærsta fáanlega heimskort í heimi
í stúdírúmm. Það er 120x195 cm. Ja,
þeir segja að þetta sé stærsta kort í
heimi allavega, sjálfir (http://mapsinternational.co.uk/).
Kostar undir 6000 kall í Eymundsson (og þeir voru ekki það
ósvífnir að hækka þrátt fyrir gengisfall,
enda eldgamall lager) en plöstun í Samskiptum lagði annað
eins ofan á. Þetta er náttúrlega framtíðareign.
Er að hlusta á Ísland Spilverksins, á útúrrispuðum
grænum vinýl. Þetta er helvíti gott stöff
hjá krökkunum. Algert snilldarband. Ég nenni ekki að
rifja upp eitthvað frá þessu ári. Þetta stendur
allt hérna á blogginu. Ég hef samt hugsað með
nokkurri sælu til bláberjaveislunnar sem ég fékk
hjá Ylfu og Halla á Bolungarvík í sumar. Ég
held ég hafi étið 10 diska með rjóma. Hefði
getað étið 10 í viðbót en leist ekkert
á svipinn á Ylfu. Það tekur náttúrlega
tímann sinn að tína þetta. Það er náttúrlega
helber skylda að fara og tína bláber næsta sumar.
Það var magnað að sjá hvað það var
mikið af þessu fyrir vestan í sumar. Hlíðarnar
bláar. Hvað meira fyrir 2009? Bara halda áfram á
þessu róli, klára nýju sólóplötuna
og koma henni út í vor, taka hraustlega á, vafra um
Ísland og útlönd. Tja, reyna að halda áfram
að vera ekki of mikill fáviti. Er það ekki ágætis
nýársheiti?
---
Þetta er lokainnlegg mitt (á árinu a.m.k.) í
DBS umræðunni. Gullfalleg mynd af DBS-kappa.
30.12.08
Alheimurinn er
voða voða stór og skrýtinn. Hvar byrjaði hann,
hvar endar hann, til hvers erum við, til hvers er þetta allt,
er alveg hræðilegt að vera bara tilgangslaus maur í
köldu tómarúmi og verður að vera Guð til
að láta þetta meika sens, annars verður allt glatað
og allir missa vitið? Bankahrunið
er voða voða flókið. Hverjum er það um að
kenna, ætlar enginn að taka ábyrgð, verður allt
eins og áður, á ekki að leiða neinn burtu í
járnum, hverjir eru vondu karlarnir, eru engir góðir
karlar? Mér finnst voða voða gaman að hlusta á
Elvis
Costello í morgunsárið. Þá sérstaklega
fyrstu 3 plöturnar. Ekkert flókið við það.
Ekki flækja líf þitt að óþörfu,
eins og segir á segulsneplinum frá Lýðheilsustofnun
(heilræði númer 6). Góður segulsnepill.
---
Stundum er spurt um endurútgáfur af S.H.Draumi og Bless.
Allt með þessum böndum er vita vonlaust að fá
og ekki einu sinni til í dánlódi. Við Biggi erum
alltaf á leiðinni að koma þessu á diska, en
á meðan get ég bent á ilmandi eintak af Goði
sem fæst á okurprís hér.
Þetta framtak hefur snúist í hausnum á mér
lengi. Sniðugast finnst mér að gera diskinn Goð+, tvöfaldan
disk þar sem Goð er á einum og annað efni með
S.H.Draumi á hinum, og bara passa upp á að það
verði betra sánd á þessu en á Allt heila
klabbið, sem var misheppnaður pakki, eftir á að hyggja.
Lágt átpút og ein blaðsíðan í
bæklingnum á vitlausum stað. Kannski það sé
loksins komið að þessu árið 2009. Bless hins vegar
gæti verið ágætur einfaldur diskur, Gums og Melting.
Þetta hlýtur allt að koma á endanum.
---
DBS. Ekki heldur Dettur Bráðum Sundur, Drusla Beyglað
Skran og Dauðinn Bakvið Stýrið.
29.12.08
Skv. heimildum úr innsta hring var DBS norskt hjólafákamerki
og stóð skammstöfunin fyrir Den Beste Sykkel, en ekki Dalli
Bakvið Stýrið, Drusla Bundin Saman, Druslan bakvið skúrinn,
Drusla Beyglaður Skrjóður, Djöfull Bölvarðu
Svakalega, Djöfuls Bölvað Skran, Draugur Bakvið Sætið,
Davíð BorgarStjóri og Davíð Brár Sæmundsson.
---
Hér
sést hvað Sjálfsstæðismenn eru ávallt
bestir til að sjá um fjármál þjóðar,
framsýni þeirra og aðgát leikur enginn eftir. Svo
má benda á gott starf þeirra í borgarstjórn
síðustu árin, hjá öllum öðrum flokkum
hefði glundroði vaðið uppi. Ég tel einsýnt
að þjóðin skuldi þeim 4 ár í viðbót
til að ráða hér öllu.
---
Ég hef legið í nafla alheimsins hjá tengdó
á Hvammstanga og fitað mig. Gerði heiðarlega tilraun
til að hlaupa af mér tvo makkintossmola, en lá annars
og kláraði loksins Dimmar rósir Ólafs Gunnarssonar.
Hún hélt vel. Horfði á The Night listener með
Robin Williams, sem ég allra jafna þoli ekki, en var þarna
sæmilegur. Fór í sund og sá Þóreyju
Eddu stangarstökkvara á bekk. Stoppuðum í Staðarskála
hinum nýju sem er sálarlaus skurðarstofa, enda ekki með
40 ára sögu og fitubrák á bakinu eins og hinn.
Í bænum tókst mér að fá Útkallsbókinni
skiptri í Máli og menningu. Fyrir valinu varð bók
um Bítlana eftir Bob Spitz, gríðarlegur doðrantur.
Hefði kannski átt að lesa dóma um hana á netinu
fyrst, virðist engin snilld "Honum tekst að gera Bítlana
leiðinlega" segir einn. Skilin voru mér svo í hag að
ég fékk líka Destination: Morgue eftir James Ellroy,
safn skáld- og sannra smásagna. James er með aðdáunarverðan
og harðan stíl og skrifar glæpasögur sem gerast þetta
1940-1960 oftast, í Hollywood. Nokkrar misgóðar myndir
hafa verið gerðar eftir bókum hans, L.A.Confidential best.
Í þessari bók sem ég fékk segir hann
m.a. frá uppvaxtarárum sínum. Hann var unglingakríp
"I was a teenage leper, I was aquired taste that nobody aquired" sem
dópaði og braust inn í hús til að stela pillum
og kvenmannsnærbuxum sem hann rúnkaði sér síðan
yfir í kjallakompu. Úrvals jólaefni. Í sjónvarpinu
var ágætt dúó. Mad men á Stöð
2 og Dexter á Skjá einum.
---
Því miður er þessi fitutíð nú
brotin upp af tveimur vinnudögum en svo hefst tveggja daga gleði
plús einn vinnudagur og svo helgi. Þetta er helvíti
ljúft. Mér sýnist þó hefí aðhald,
grænmetisát og wörld clash spiktrimm í aðkallandi
kortunum.
26.12.08
Í hinni ágætu Kjötborg kemur fram að í
Vesturbænum þýddi skammstöfun danska reiðhjólafyrirtækisins
DBS
Dauður Bakvið Stýrið (Vesturbær).
Í Kópavoginum var þýðingin hinsvegar
Drusla Bundin Saman (Kópavogur).
Á Ísafirði, skv. munnlegri geymd Lufsunnar, var DBS
Dýrasta (og) Besta Sort (Ísafjörður).
Eru lesendur með fleiri DBS þýðingar?
---
Það er annars mesta furða að Bónus sé
ekki farið á hausinn ennþá. Allavega tókst
þessum snillingum að fara með te og kaffi-fyrirtækið
Whittard of Chelsea á hausinn, en það keypti Baugur árið
2005. Fyrirtækið var búið að starfa síðan
1886 þegar íslensku snillingarnir tóku við. Hvað
gekk þeim til þegar þeir keyptu þetta fyrirtæki?
Hvaða hugsun lá á bakvið? Hugsaði Jón
Ásgeir: "Ég er sérlegur te og kaffi áhugamaður
og ætla að efla þetta fyrirtæki og bjóða
upp á besta og hagstæðasta úrvalið", eða
var hann bara: Ööö, getum við keypt það út
á krít? Ókei, gerum það svo allir sjái
hvað ég er ógeðslega æðislegur. Mig vantar
lífsfyllingu og ég fæ hana ekki nema eiga allt, múhahahahaha!
Eða á fínu máli: Baugur
fjárfestir í smásöluverslun og tískufyrirtækjum
í Bretlandi og á Norðurlöndum en einnig er félagið
með fjárfestingar í Bandaríkjunum. Leitað
er eftir eignaraðild í fyrirtækjum sem hafa sterka stöðu
á markaði en eiga jafnframt mikla möguleika á frekari
vexti, jafnt innanlands sem og á alþjóðlegum markaði.
(Bla bla bla, já, en til hvers strákar? "Frekari vöxtur"?
Fara á hausinn, meinarðu?)
---
Þó ekkert annað komi út úr bankahruninu
en að "Að gleypa allt-stefnan" sé liðin undir lok er
ég sáttur. Þetta að eiga allt og stjórna
öllu og kalla það "hagræðingu". Hagræðing
fyrir hvern? Kúnnan? Nei. Hvaða vit er í að þrjár
fjölskyldur á landinu eigi það? Er það
hagræðing? Afhverju reynir þetta lið ekki að vera
til góðs eins og karlarnir í Kjötborg, eiga eitthvað
eitt eða tvennt og gera það með öllu hjarta? Hvað
kom Jón Ásgeir oft í útibú Whittard
of Chelsea og spjallaði við starfsfólkið? Hagræddu
á mér rassgatinu.
---
Hvað varð um úthald og festu? Mokka kaffi. Sama fólkið,
sömu innréttingarnar, sama stemmningin áratugum saman.
Það er úthald og festa. Ekki bjánaskapur eins og
að vera með 50 fyrirtæki í kringum rassgatið á
sér sem heita Fs9923, Smind, Hreikir, Fs9934, Brabra group. o.s.frv.
og millifæra loftbólur á milli og búa ekki til
neitt og vera engum til gleði nema kannski sjálfum sér
og fara svo með sig og þjóðina á hausinn vegna
ruglsins og græðginnar. Þetta er eins og að Stefán
hefði ekki verið í Lúdó í 50 ár
og skemmt fólki heldur verið í 50 hljómsveitum
sem hétu Stefán og Lúton, Stebbarnir, St99762, Stefán
group international, Axon holding Stefán, og 45 önnur, og þessi
bönd hefðu aldrei æft neitt og hvað þá
spilað og annað slagið hefðu komið fréttir í
Stefánsmiðlum: Stefán hættur að 75% leiti í
Póló og er kominn 45% í Stefán Holding empire
og 35% í St9911. Stefán (hljómsveitarmaður ÁRSINS
samkvæmt Stefánsmiðlum) segir þetta efla hagræðingu
og auka möguleika á frekari vexti.
---
Kjötborg vs. Gleypurnar = Úthald, festa og hjarta vs. græðgi
og vitleysa. Eða svo að við einföldum þessa umræðu
niður á hafsbotn.
Kjötborg er svona fiskur sem hreinsar aðra fiska:
Gleypurnar hanga hins vegar á botninum og gleypa allt sem þær
ná í:
Að lokum gleyptu þær of stóran bita.
---
Harold Pinter leikskáld látinn já, 78 ára.
Eitthvað reyndi maður að hafa gaman af honum. Átti t.d.
myndina The Birthday Party á vhs, aðallega sem tribute til samnefndar
hljómsveitar, sem líklega nefndi sig eftir leikritinu/myndinni.
Þetta var agalega þunglynt eitthvað, en manni þótti
þetta fínt.
---
Jólagjafir voru fáar og góðar. Auk föndurs
frá börnum fékk ég 120x195 cm heimskort frá
Lufsunni sem fer umsvifalaust upp á vegg í stúdírúmm
þegar búið verður að plasta það, bókina
Útkall eitthvað Heimaey frá tengdó, sem verður
umsvifalaust skipt, vatterað vesti frá tengdó2, handryksugu
frá mapa, Hugleiks-fjölprent frá Heiðu og leðurinnbundna
kompu frá Láru mágkonu.
---
Hvernig er það eru allir hættir að kolefnisjafna?
---
Topp 10: Bestu -myndir fréttirnar á visi.is í
desember:
10. Britney
bakkar - myndir
9. Úrvinda
Kim Basinger - myndir
8. Pamela
ferðast á nærbrókunum - myndir
7. Átakanlega
lúin og þreytt - myndir
6. Skaðbrennd
í sólbaði - myndir
5. Kærasta
Hefners girðir niður um sig - myndir
4. Síminnkandi
barmur Scarlett - myndir
3. Pamela
dælir bensíni - myndir
2. Kynlífsfíkill
fær annað tækifæri - myndir
og með miklum yfirbyrðum í fyrsta sæti:
1. Undirhaka
Kim Wilde - myndir
24.12.08
Gleðileg
jól! Stuð og ást á 2009!
Á aðfangadag er ekki amalegt að hlýða á
Jona Lewie, sem er jú frægastur fyrir jólaslagarann
Stop the Cavalry. Það var reyndar ekki hugsað sem jólalag.
Kom út á plötunni Heart skips beat en útgáfunni,
Stiff, þótti tilhlýðilegt að gefaða út
sem sínglu fyrir jólin 1980 vegna línunnar "Wish I
was home for christmas". Það plott virkaði og síðan
hefur það verið jólaslagari góður:
Jona
Lewie - Stop the Cavalry
Píanóleikarinn og söngvarinn Jona Lewie var baslrokkari
með langa sögu þegar hann komst á samning við
Stiff merkið. Stiff Records var enskt og þátttakandi í
nýbylgjuuppbyggingunni og kannski betur þekkt á Íslandi
en önnur sambærileg merki því Steinar var með
umboðið og dældi plötum fyrirtækisins á
markaðinn. Því má enn rekast á plötur
Stiff í Kolaportinu í dag. Stiff sambönd Steina urðu
einnig til þess að nóboddí eins og hljómsveitin
Any Trouble kom til Íslands (og BA Robinson, sem var reyndar ekki
á Stiff, en hefði getað verið það.) En aftur
að Jona. Um hann má lesa enn frekar á wiki
eða á myndauðugri heimasíðu
hans. Hann er eldgamall í hettu spilamennskunnar en komst á
lista árið 1972 sem meðlimur í Terry Dactyl And The
Dinosaurs (söngur & harmóníka). Bítið
í þessu er ekki ósvipað og í Terry Jacks-meistaraverkinu
In the summertime, en eitthvað er á huldu
hver stal frá hverjum:
Terry
Dactyl And The Dinosaurs - Sea Side Shuffle
Árið 1978 kom út fyrsta Stiff platan, hin geysiveltitlaða
On the other hand there is a fist, skrítið innísig popp
þar sem gamlir grunnar eru að krossa við vætlandi nýbylgju
tíðarandans. Þessa plötu fékk ég nýlega
á eiturgulum vinýl. Á innra slífi eru myndir
af þessari og fjórum öðrum plötum listamanna
frá Stiff sem tóku þátt í "Be Stiff Route
78 tour". Þetta eru listamennirnir Lena Lovich, Rachel Sweet, Wreckless
Eric og Mickey Jupp. Þann síðastnefnda keypti ég
líka og hann er á bláum vinýl svo ég
hallast að því að allar plöturnar fimm hafi verið
litaplötur. Rökrétt er því að komplitera
pakkann, enda hefur Steinar væntanlega tekið þetta inn
á sínum tíma. Á On the other hand there is
a fist eru ýmis ágætis lög, til dæmis þetta:
Jona
Lewie - The baby, she's on the street
Fyrir utan jólahittarann á Jona annað hittlag, þetta
hérna eðalfína sintapopp sem kom út 1980 þegar
ég var 15 og nýbyrjaður að mæta í partí.
Textinn talaði til mín enda hékk ég líka
á eldhúsinu:
Jona
Lewie - You'll Always Find Me In The Kitchen At Parties
Eftir jólavinsældir Stop the Cavalry var reynt með
svipuðu lagi, hinu geysihressa og skemmtilega:
Jona
Lewie - Big shot, momentarily
Kannski var Jona að syngja um sjálfan sig í laginu,
að minnsta kosti varð ferill hans endasleppur, lítið
gekk að koma fleiri lögum á lista og áhuginn dó.
Hann varð hið sígilda eintak af onehittvoneri. Samkvæmt
heimasíðu hefur hann ferðast og fjölgað sér
(sem er það eina af viti!) en það er þó
ennþá von á nýrri plötu. Maður er auðvitað
á Jona-tánum. Að lokum í þessu jóla-jónadæmi
er eitt það síðasta sem Jona lét frá
sér áður en hann fór í hýði.
Svaðallegt 12" remix af vonnabí örlí 80s hitti:
Jona
Lewie - Love Detonator (12 " Version)
23.12.08
Eftir þónokkur heilabrot hef ég komist að niðurstöðu
um hina árlega spurningu: Hverjar eru bestu plötur ársins
að mínu mati. Þetta er svona:
Bestu íslensku 2008
1. FM Belfast - How to Make Friends
2. Lay Low - Farewell Good Nights Sleep
3. Motion Boys - Hang On
4. Dr. Spock - Falcon Christ
5. Morðingjarnir - Áfram Ísland!
6. Reykjavík! The blood
7. Buff - Buff
8. Retro Stefson - Montana
9. Baggalútur - Nýjasta nýtt
10. Singapore Sling - Perversity, Desperation and Death
Bestu erlendu 2008
1. MGMT - Oracular Spectacular
2. Portishead - Third
3. TV on the Radio Dear Science
4. Vampire Weekend - Vampire Weekend
5. Black Keys Attack & release
6. Scars on Broadway Scars on Broadway
7. Fleet Foxes Fleet Foxes
8. Santogold Santogold
9. Neon Neon - Stainless Syle
10. Of montreal - Skeletal Lamping
Fínt músikár. Íslenska deildin grasserar
í gúmmilaði, en FM Belfast er best. Eina platan sem ég
hefði gefið 5 stjörnur í dómi. Allt hitt er
sallagott og ég gæti auðveldlega nefnt 10 íslenskar
plötur í viðbót sem eru góðar. Erlenda
deildin líka ágæt. Talandi um erlent músikár:
Minni á þátt minn Erlendur annáll 2008 á
Rás 2 kl. 14 næsta sunnudag, 28. des. Tveggja tíma
erlent uppgjör.
---
Einhverra hluta hefur gamla diskólagið Hands
up með Ottawan verið mér hugleikið síðasta
sólarhringinn. Þetta er náttúrlega öldungis
þroskaheft lag. Gömlu diskólögin sem maður fyrirleit
í gamla daga eru nú sándtrakk nostalgíu gamals
manns. Nei, ég segi það nú kannski ekki.
---
Ein besta hugmynd að bíómynd sem ég hef séð
lengi er hugmynd Bómullarhnoðrans um sameiningu myndanna I am
Sam og I am legend. Hvernig væri að sameina þessar tvær
myndir í eina mynd, spyr Hnoðrinn.
Þá
erum við með svartan þroskaheftan mann sem er einn í
heiminum að berjast við geimverur. Ég myndi poppþépp
borga mig inn á þessa mynd. Eitt það skársta
við Thunder Tropic myndina (sem ég hef enn ekki nennt að
klára) eru vangaveltur um þroskahefta í bíómyndum.
Kláraði hinsvegar Pineapple Express í nokkrum lotum,
sem er sæmó hassgrín.
---
Af mér er annars að frétta að ég komst
í háleynilega plötukassageymslu í Örfyrisey
og gat látið greipar sópa fyrir slikk. Þetta eru
kannski engar rosalegar plötur en svona stöff sem er ágætt
að hafa í skápnum og maður kaupir ef mar sér
á slikk.
Led Zeppelin - IV
Led Zeppelin - I
Led Zeppelin - III
Led Zeppelin - Houses of the holy
Spilverk þjóðanna & Megas - Á bleikum náttkjólum
(mint cond)
Spilverkið - Ísland (slappt eintak)
Spilverkið - Sturla (mint cond)
Simon & Garfunkel - Wednesday morning, 3 am
Simon & Garfunkel - Sounds of silence
Þokkabók - Í veruleik / Fræfærur /
Bætiflákar
Hawkwind - Doremi fasol latido
Jona Lewie - On the other hand there is a fist (góður titill,
ókei plata)
Mickey Jupp - Juppanese
Remembering... Heinz (hommageðveiki úr sarpi Joe Meek)
Queen - A day at the races
Elvis Costello - Armed forces
John Sebastian - The Four of us
The Cars - The Cars
10 cc - Sheet music
The Cars - Shake it up
Wings - Band on the run
The Monochrome set - Strange boutique
20.12.08
Það sást til Alla Rúts í Kolaportinu
að leita að meistaraverki sínu frá 1973, Ep-plötunni
góðkunni. Hann mun ekki hafa haft heppnina með sér.
Það eru léleg jól ef ekki er boðið upp
á Grýlupopp svo mér finnst gráupplagt að
smella hér inn plötunni allri. Alli getur þá hlaðið
henni niður, að minnsta kosti, fyrst Kolaportið klikkaði.
Fyrir neðan kemur smá um Alla úr Eru ekki allir í
stuði?
01
Alli Rúts - Lína langsokkur
02
Alli Rúts - Grýlugæla
03
Alli Rúts - Ég er jólasveinn
04
Alli Rúts - Grýlupopp
Hörð keppni um krakkana
Einhver almagnaðasta barna- og jólaplata íslandssögunnar
er litla platan með Alla Rúts, sem kom út 1973 og hafði
að geyma fjögur lög. Platan heitir "Kátir voru krakkar"
og Fálkinn gaf út. Meðal laga eru "Grýlupopp",
sem er tölvupopps-smellurinn "Popcorn" með Grýlutexta eftir
Hrafn Pálsson, og íslensk útgáfa af "Línu
Langsokk", sem Alli túlkaði með vafasömum stelpuskrækjum.
Platan var tekin upp í sólarhringslangri törn í
gamla útvarpshúsinu og meðal spilara voru Karl Möller
og Stefán Jóhannsson -- "Við vorum allir að verða
vitlausir!," segir Alli.
Lína langsokkur var aðalstjarnan í barnaheiminum
veturinn 1972, enda stóðu yfir sýningar á ævintýrum
stelpunnar í Sjónvarpinu. Þegar Svavar Gests heyrði
útgáfu Alla af laginu um Línu runnu á hann
tvær grímur því hann hafði látið
Hönnu Valdísi syngja sama lag með öðrum texta
á litla plötu sem var á leiðinni. Þar sem
Svavar taldi sig hafa einkaleifi á laginu um Línu brá
hann á það ráð að fá lögbann
á útgáfu Alla með hjálp umboðsskrifstofunnar
í Skandinavíu. Línulagið hans Alla var því
tekið úr spilun í útvarpinu, en platan fékk
þó að vera áfram í hillum búðanna.
Hanna Valdís og Einar "áttavilti"
Hanna Valdís hafði vakið athygli með Sólskinskórnum
og átti eftir að syngja inn á heila sóló
LP-plötu og inn á litla plötu Sólskinskórsins
árið eftir. Þar var smellurinn "Sól sól
skín á mig", sem ódæl og smekklaus börn
sungu svona:
Sól sól skín á mig
Hanna Valdís rekur við
lyktan er alveg að drepa mig
sól sól skín á mig
Eins og þetta óvægna barnagrín sýnir
var ekkert grín að vera barnastjarna svo Hanna Valdís
dró sig með snatri úr sviðsljósinu eftir plötuævintýrin
1973. Það sama gerði Einar S Ólafsson, sem gekk sinn
veg (og þú gekkst þinn) á sama ári á
vegum SG og var ekki kallaður annað en "Einar áttavilti"
eftir það. Hann varð bitur bifvélavirki og fékk
grænar í hvert skipti sem hann var minntur á smellinn,
en sá loks ljósið og grínið í öllu
saman þegar hann féllst á að syngja lagið aftur
á öldurhúsi í lok aldarinnar.
Fyrirmyndin var Ómar
Alli Rúts (Albert Rútsson) átti langa sögu
í skemmtanabransanum þegar platan hans kom út. Hann
var sonur Rúts Hannessonar, frægs harmóníkuleikara,
og hafði byrjað að troða upp á Siglufirði --
"Þegar ég var pínkulítill var mér troðið
upp á svið og látinn syngja Gamli Nói og "Allir
karlar eru svín, drekka bjór og brennivín", sagði
Alli í viðtali 1965.
Í Reykjavíkinni kom Alli fyrst fram á bingókvöldum
í Austurbæjarbíói í byjun 7. áratugarins,
en þar var Svavar Gests allt í öllu. Svavar stjórnaði
bingóinu af myndarskap ásamt framtíðar-bankastjóranum
Sóloni, en Alli og fleiri skemmtikraftar göntuðust á
milli þess sem bingóvélin var keyrð í botn.
Eftir bingóið tóku við árshátíðir,
dansleikir og revíur og Alli slípaðist í faginu.
Á hinum almennu dansleikjum gat allt gerst og Alli þurfti
að vera við öllu búinn. "Fyrir skömmu kom það
fyrir í samkomuhúsi norður á landi," sagði
Alli 1965, "að maður ruddist upp á senuna til mín,
var fullur og vildi segja brandara og slá í gegn hjá
fólkinu. Hann var heldur lágvaxinn og ég spurði
hvers vegna hann væri svona lítill. Hann sagðist vera
fæddur svona, en ég svaraði þá: Jæja
góði, ég hélt kannske að það væri
svona lágt undir loft heima hjá þér. Þá
hlógu allir og hann var feginn að hypja sig."
Alli tók Ómar Ragnarsson til fyrirmyndar. "Oft vorum
við að skemmta á sömu stöðunum. Ef ég
var á eftir honum einn daginn gat ég pikkað upp brandara
frá honum og sagt daginn eftir ef ég var á undan honum
þá." viðurkennir Alli. Hann kom stundum fram með píanóleikaranum
Jósepi Blöndal og oft með eftirhermunni Karli Einarssyni.
Stundum léku þeir Gög og Gokke, en um jólin voru
þeir eftirsóttustu jólasveinar bæjarins -- metið
sem þeir áttu voru 12 litlu jól og jólatrésskemmtanir
á einum degi á milli kl. 14 og 18. Um Verslunarmannahelgar
var líka oft brjálað að gera hjá Alla og þá
leigði hann stundum einkaflugmann, Arngrím (síðar
í Atlanta), til að fljúga sér á milli staða.
Langt er síðan Alli hætti að troða upp --
"Það var komin svo mikil samkeppni í þetta, margir
nýjir strákar búnir að bætast við."
-- en hann hélt nafninu á lofti með Bílasölu
Alla Rúts.
19.12.08
Í maðkétnu Íslandi þarf að taka
til og skrúbba, eins og komið hefur fram. Nú er fílingurinn
þannig að allt sé morkið í graut og alls staðar
vondir ógeðslegir karlpungar og kerlingar að sölsa
undir sig draslið á ný og láta aumingja flatskjásbolinn
borga brúsann. Á manni skella paranojaðir fjöldapóstar,
örugglega með einhverju sannleikskorni í. Einn er til dæmis
svona, nokkuð krassandi samsæriskenning:
Landsbankamaðurinn sem var hnepptur í varðhald fyrir
100 miljóna fjárdráttinn er farinn að mala á
fullu.
Davíð Oddson hefur þessi sönnunargögn,
þetta er ein af leynibombum hans en hann er með gögnin um
þetta mál og
líka mál á fleiri þingmenn. Þess
vegna mun hann fagna utanaðkomandi rannsókn.
Upplýsingar um braskið hans Lúðvíks
sem á Fasteign ehf, Miðklett ehf og Eykt ehf - sem á
nánast aðra hverja byggingu í Borgartúninu,
koma úr átt Davíðs, sem gerði slíkt
hið sama við Þorgerði Katrínu á sínum
tíma í tengslum við Kaupþing í nóvember
sl.
Lúðvík er ekki sá eini sem fékk
sk. "mútu lán" hjá L.Í, lán með
helmings lægri vöxtum en gengur og gerist.
-Sif Friðleifs fékk líka 75 milljónir líka
á vildarkjörum til að kaupa hlutabréf í Decode
- sem er líka verið að afskrifa
- Þorgils Óttar fékk Keflavíkurflugvöll
á 11 miljarða en ásett verð vallarins eru 50 miljarða
á vildarkjörum frá L.Í en hann hefur aldrei þurft
að borga krónu af því og það er verið
að afskrifa það líka.
Ég hef fengið þessar upplýsingar staðfestar
og sannaðar en málið er að um 80 - 90% þingmanna
eru innblandaðir inn í viðskipti af þessu tagi á
einn eða annan hátt.
Sigurjón Ólafsson er að vinna í þessum
afskriftum á vegum Landsbankanum í Apóteksturninum
í Austurstrætí og þá vinnu er hann að
vinna augljóslega í felum með tætarana í
fullum gangi.
Og svona í lokin er Björgvin G. með myntkörfulán
upp á einhverja tugi milljóna, borgar á aðra miljón
af því á mánuði og mér skilst að
KPMG hafi verið að vinna að afskriftum fyrir hann þegar
þeir voru stöðvaðir í fyrradag, eitthvað
hefur þó Sigurður G. lögfræðingur Glitnis
og mágur Björgvins fengið þegar afskrifað nú
þegar.
Hef fengið það staðfest að uppýsingar
af þessum toga hefur Davíð Oddson á nánast
allan þingheim og er því sallarólegur.
þori þeir ekki að hrófla við honum og
láti hann því frekar valta yfir sig á meðan
þeir fá að láta tætarana ganga.
Hvað er þetta? Sannleikur eða geðsturluð móðursýki?
Eru allri virkilega svona djúpt sokknir í fenið? Eru
allir "með" og Dabbi með alla þræði í hendi?
Fyrst verið er að afskrifa svona mikið er þá ekki
ráð að afskrifa bara allar skuldir allra og úthluta
hverjum og einum jeppa og flatskjá og tíu lömbum? Talandi
um lömb þá fékk ég taðreykt sauðalæri
frá 365 í gær. Undursamlega gott og lúngnamjúkt
kjöt og nú leggur þefinn um allt hús. Þef
viðbjóðslegrar spillingar Baugsmiðla, myndi einhver
segja. Ekki ég samt. Tek hins vegar stórhreingerningunni
fagnandi. Hver á að skúra? Innflutt vinnuafl?
18.12.08
Einar Árnason, kvikmyndatökumaður hjá Stöð
2, hefur tekið upp á þeirra snilld að gefa Klaufabárðana
út á dvd. Þetta eru tékknesku brúðuþættirnir
sem kalla upp æsandi 80s nostalgíu og nóg er að
heyra stefið góða til að komast í fíling.
Þættirnir skotvirka á krakka, Dagbjartur 5 ára,
er alveg húkkt og smíðar nú rauðvínsverksmiðju
í frístundum eins og karlarnir í einum þættinum.
Yfirbygging á útgáfunni er í algjöru lágmarki
og satt að segja bölvað vesen að nálgast eintak
af þessu hágæða barnaefni sem þú getur
meira að segja horft á líka en þarft ekki að
taugaveiklast yfir eins og með lætin í Latabæ etc.
Ég bauðst því til að opna Klaufabárðasíðu
til að þeim sem langar í eintak geti nálgast snilldina.
Klaufabárðasíðan
er hér!!!
---
Áfram með lágmarks yfirbyggt kreppuplögg. Kreppuspilið
er komið út!
17.12.08
Lífsblómið
sló auðvitað í gegn og nú er komið eðalgott
remix
af Lífsblóminu! Fyrir lengra komna í líkamsræktargríni
er svo
Jazzercise
- Move your Boogie Body 1982 auðvitað hið heilaga gral.
---
Áhrif eiganda á fjölmiðla jadda jadda, vóv
ó vói. Þorsteinn Guðmundsson dælir út
dótinu og tekur
á þessari brennandi spurningu í gær. Sjálfum
mér finnst þetta augljóst. Það er til dæmis
ekkert birt á þessari síðu sem stríðir
gegn eiganda hennar, mín. Gunnar Hjálmarsson er fáviti
sem stal mola úr bland í pokadeildinni í Hagkaupum
í gær. Heyrðu góði, þú ert rekinn.
---
Ekki gleyma að skoða Frímann.
15.12.08
Var í massífri afslöppun í sumarbústað
á Bjarteyjarsandi í Hvalfirði.
Engar fréttir, ekkert Silfur Egils, ekkert leiðindapeningarugl,
bara landið og stjörnubjartur næturhiminn, borðspilið
Party og Co Extreme (gott spil!) og nóg að bíta og brenna.
Krakkarnir á Stiga sleðanum (klassísk hönnun). Gekk
bæði á fjall og í fjöru. Tveir hundar (kallaði
þá einhverra hluta vegna Sigga og Grjóna) slógust
í hópinn og eltu mig kílómetrum saman í
hinni glæsilegu Bjarteyjarsandsfjöru. Fílaði mig
eins og sveitamann um hríð, ekki lélegt það.
Maður þarf að koma þarna um sumar, það er
ljóst. Það er alveg galið að taka ekki svona aftöppun
annað slagið. Íslensk sveit er undursamlegt ævintýr.
Ísland er annað og meira en hálfbyggð Reykjavíkurdrullan.
Alveg væri ég til í að hætta þessu
hokri á mölinni og skipta í svona einfalt og afslappandi
líf á landsbyggðinni. Vera í góðu chjilli
með hundum á jörð. Það kemur kannski einn
daginn.
11.12.08
Ef ég hefði reynt svona
trix hefði ég nú samt valið einhverja aðra og
meira útúrbuddukreistandi mynd. Ekki mynd þar sem hið
meinta lík lítur ekki út eins og afturgengin geimvera
frá iðrum vítis. Þeir gætu alveg eins hafa
sett inn myndina af karlinum í The Hills have eyes. Ekki eins og
maður rífi upp veskið við að sjá þennan
furðulega mann, eða við lestur minningargreina almennt, svo
sem. Ætli fangarnir hafi verið með einbeittan brotavilja
þegar þeir frömdu þennan listgjörning, eða
ætli þeir hafi verið skellihlæjandi? Skellihlæjandi
vona ég. Eftir því sem ég best veit er þetta
í annað sinn sem fólk fokkar í minningargreinum
Moggans. Mér skilst að mamma Árna Matt tónlistargúrús
hafi einhver tímann sent menningargrein um sjálfa sig og
fengið birta. Gæti samt hafa verið einhver önnur, ég
þori ekki að fullyrða það. Þetta þótti
auðvitað gríðarlegt hneyksli. Hvaða viðkvæmni
er þetta.
---
Ég hef ekki séð neinn útrásarvíking
í nokkra daga. Maður er samt oft að rekast á þessa
meistara í World Class. Pálmi er þarna oft eldsnemma
á morgnanna og starir einbeittur fram fyrir sig á brettinu.
Kannski að láta SF371 kaupa í SF372 og millifæra
svo til baka í huganum. Hreiðar er stundum, héralegur
á svip og brosmildur. Toppnáungi. Hinn auðþekkjandlegi
og ofursmúðð Lalli Welding var á háannatíma
að láta Arnar Grant berja sig áfram. Karlarnir í
sturtu voru ægilega reiðir eitthvað, svo lætur þetta
helvíti bara sjá sig hérna, frussuðu þeir
æstir. Svona svona. Ætli þessir útrásargarmar
lendi ekki í megaböggi upp á hvern dag? Ekki nema von
að þeir hangi í ræktinni til að geta varið
sig. Alla vega hlaupið í burtu þegar bolurinn með
tapaða sparnaðinn reiðir upp hnefann.
---
Metnaðarfullur Bakþankinn fjallar um Forvarnir.
Hefði verið hægt að koma í veg fyrir bankahrunið
með forvörnum?
---
Ef þú vilt leggja á þig að hlusta á
10 glæný og löðrandi jólalög þá
er jólalagakeppni Rúv hérna.
Margt ekki amalegt, til að mynda Jakob Magg með nýtt instrúmental
bassajólainnlegg,
ýkt nett jólalag
með Múgsefjun og Jólarakkarnir,
sem er lag eftir Andra Leaves-ara sem Róbert ÉG syngur.
---
Kimakvöld á Nösu í kvöld og leibellinn
með svaka 18 laga ókeypis plötu á netinu. Ágæta
þjóð, við höfum gengið í gegnum ýmsa
erfiðleika síðustu mánuði og íslenska
efnahagsundrið hefur reynst mörgum Íslendingnum erfitt.
Við hjá Kimi Records finnum fyrir þessum efnahagsörðuleikum
að sjálfsögðu líka eins og önnur fyrirtæki
í landinu. Við leggjum þó ekki árar í
bát og höldum áfram að færa ykkur fyrirtaks
tónlist á viðráðanlegum verði. Það
er í þessum anda, sem og anda jólanna, að við
höfum ákveðið að færa öllum sem vilja
litla gjöf. Við höfum tekið saman safnskífu með
okkar helstu smellum í bland við jólalög þeirra
tónlistamanna sem vinna með okkur frá ýmsum tímum.
Safnskífuna JÓLAGJÖF KIMI RECORDS 2008 er hægt
að nálgast á vefverslun okkar, kimi.grapewire.net
og þar verður hún fáanleg út desember. Það
er okkar von að sem flestir njóti þeirra tóna sem
við höfum fram að færa.
Bestu kveðjur
Fyrir hönd kima og tónlistarmanna sem starfa með
kima
Baldvin Esra Einarsson
Lagalisti JKR2008:
1. Benni Hemm Hemm Beethoven í Kaupmannahöfn
2. Pikknikk Nóttin tekur við
3. Hjaltalín Mamma kveikir kertaljós
4. Mark Noseby Þrír og hálfur
5. Sin Fang Bous Catch the Light
6. FM Belfast Made a Promise
7. Létt á bárunni Þegar jólin
koma
8. Múgsefjun Dag eftir dag
9. Retro Stefson Life
10. Skakkamanage Now or Never
11. Agent Fresco Above These City Lights
12. Sudden Weather Change Prey Mode
13. Morðingjarnir Ég er kominn heim
14. Reykjavík! - Repticon
15. Borko Continental Love
16. Klive Tidy Granny
17. Hellvar Nowhere
18. Rúnk Bréfberinn
10.12.08
Hvorki landhreinsun né hugarfarsbylting hefur átt sér
stað á Ísland eftir hrunið. Ætli það
verði nokkuð og það sem við fáum verður
í mesta lagi að Samfylkingin og VG hefja stjórnarsamstarf
einhvern tímann á næsta ári. Nema VG verði
svo mikið á móti ESB að einhver popp-útgáfa
af sjöllum með Þorgerði Katrínu í broddi
fylkingar byrji frekar með Samfylkingunni. Leiðinlegt, ég
veit. Maður var í sjokki svona fyrstu vikurnar eftir "Guð
blessi þjóðina" en svo er þetta eiginlega bara dottið
niður í sama gamla. Er Nýja Ísland bara óskhyggja
fárra? Vill kannski bara meirihlutinn fá að fara í
friði í Kringluna? Það eina nýja sem við
fáum er nýtt vísatímabil. Við fáum
það sem við eigum skilið. Við kusum þetta lið
til forystu.
---
Einhverjir landráðamenn hafa tekið sig til og vanhelgað
Sigur Rós með "shreddi". Ég hefði sungið
Jónsa ennþá skrækar ef ég hefði nennt
þessu.
---
Í dag, 10. des, er stór dagur fyrir poppara landsins.
Tékkinn frá STEFi berst í hús. Ég er
gríðarlega sáttur og fæ spikfeitt fyrir Ég
og heilinn minn. Stef borgar alltaf einu ári síðar, þ.e.
núna fær maður fyrir útvarpsspilun 2007. Kannski
maður sleppi því að setja jólin á vísa.
Sama hvað maður þykist hafa á móti peningum.
Þegar þeir koma loksins er maður helvíti sáttur.
Ha ha ha!
09.12.08
Frímann Gunnarsson kemur
til hjálpar!
07.12.08
Voða gaman í Þingholtunum í gær. Við
Dagbjartur römbuðum inn á flóamarkað í
kjallaranum hjá Light nights frumherjanum Kristínu Magnús.
Keypti slönguspil og gamalt flugvélamódel sem Db tók
ástfóstri við. Kristín vildi endilega selja mér
plakat með Í svörtum fötum. Fékk kaffi hjá
12 tónum. Sá almoldugan mann á horni Óðinsgötu
og Skólavörðustígs. Annað hvort ógæfumaður
sem svaf í blómabeði eða Skólavörðufíflið
í flashbacki frá 1671.
---
Það er naumast. Gamlar Snarl spólur farandi á
255
Pund á Ebay! Aumingja kaupandinn verður fúll þegar
hann kemst að því að "Mykjan" og "Skalli" með
Sykurmolunum eru bara læfútgáfur af einhverjum tveimur
lögum sem voru á Life's too good. Nema náttúrlega
að sá sem keypti hafi verið á höttunum eftir
tónlist 16 eyrnahlífabúða. Ég þarf
greinilega að fara að selja eitthvað drasl á ebay, ekki
nema til að eiga dýrmætan gjaldeyri fyrir Magazine ferð.
---
Við vorum oft að leika okkur á ruslahaugum krakkarnir,
haugunum sem nú er löngu búið að moka yfir út
á Kársnesi. Eftir að ég fékk úldna
síld yfir mig einn daginn átti ég erfitt með að
éta síld í nokkur ár. Ég var búinn
að ná mér þar til nýlega þegar að
í fréttunum var farið að kreista sýkta síld
í gríð og erg og sýna manni gröftinn vella
út. Maður lætur sig nú kannski hafaða samt
á hlaðborði. Reynir að hugsa ekki um sýkta gröftinn
vellandi út. Svo er verið að segja að kannski 10% af
síldinni sé sýktur. Verða sérstakir menn
í að flokka þetta sundur? Verða fyrrum bankamenn settir
í síldarkreistingar?
---
Jæja verslunareigendur. Gengi krónunnar styrkist, þið
hljótið að stökkva til að lækka aftur það
sem þið voruð búnir að hækka!? Ha, ekki?
Legókubbakassinn sem Dagbjarti langar í kostar 18.999 kr,
kostaði svona 7.999 fyrir síðustu jól. Það
segir sig sjálft að hann fær eitthvað annað í
ár. Í Englandi lækka samt verðin, eins og Daði
greinir
frá.
06.12.08
Rúnar Júlíusson 1945 - 2008
Allt sem hefur verið sagt um Rúnar og allt sem verður
sagt um Rúnar er satt. Hann var mesti töffarinn, mesti eldhuginn
þegar kom að rokki og róli og hann var ljúfasti
náunginn í bransanum. Góðmennið sem sagði
aldrei styggðaryrði um nokkurn mann. Hann var samt stríðinn.
Þú getur heyrt hann stríða mér á
tónleikum hérna fyrir neðan.
Ég er rosalega heppinn að hafa kynnst Rúnari. Fékk
hann til að syngja tvö lög inn á plötu fyrir
mig sem hann gerði frábærlega. Ég er stoltur af
því að þessi lög eru meðal þeirra
72 sem nú prýða nýja ferilispakkann hans.
Ég ætlaði fyrst að fá Hallbjörn til
að syngja Hann mun aldrei gleym'enni. Á leiðinni heim frá
Húsavík stoppuðum við á Skagaströnd.
Heill sendibíll af listapönkurum og þeim finnska Keuhkot
biðu á meðan ég fór og hitti Hallbjörn
með demó af laginu á kassettu. Hann hlustaði þungbúinn
og sagði svo: Ég syng nú bara það sem mér
finnst skemmtilegt og þetta er ekki skemmtilegt. Sem betur fer sagði
hann þetta. Um leið og Rúnar söng fyrstu setninguna
í stúdíóinu, horfði ég á
Þór Eldon og kinkaði kolli. Við vissum sem var að
rétti söngvarinn væri fundinn.
Ég hafði fyrst Jakob Magnússon í huga með
að syngja Hr. Rokk og Fýlustrákinn. Okkur Bigga Baldurs
fannst rödd Jakobs í t.d. Út á stoppistöð
hæfa laginu fullkomlega. Jakob var ekki til í að syngja
lagið og hefur síðar sagt það vera mestu mistök
ferils síns. Hann væri þá líklega kallaður
Hr. Rokk í dag. En auðvitað var Rúnar til og söng
lagið meistaralega vel. Bar réttmætan titilinn Hr. Rokk
upp frá því. Enginn annar getur borið þann
titil.
Rúnar heimsótti mig í vinnuna á mánudaginn
í síðustu viku. Færði mér nýja
pakkann og ég tók smá viðtal sem kom í
blaðinu daginn eftir. Mér fannst hann dálítið
þreytulegur kannski, en hann bar sig vel að vanda. Ég
horfði á eftir honum inn á Bylgju þar sem hann
ætlaði að heimsækja Hemma Gunn, vin sinn. Mér
datt ekki í hug að þetta væri í síðasta
skipti sem ég sæi hann. Hafði meira að segja orðað
það við hann að hann ætti endilega að syngja
eitt lag fyrir mig á nýju plötunni. Hann tók
auðvitað vel í það. Það var aldrei neitt
mál að fá Rúnar með sér í eitthvað.
Hann var svo bóngóður og til í allt, ef það
tengdist músik.
Rúnar kom allavega tvisvar sinnum fram með Unun. Í
Þjóðleikhúskjallaranum þegar við kynntum
fyrri plötuna okkar. Það var fyrir hjartaþræðingu
og hann fór alveg á kostum. Þar glitti í gamalt
rosastuð á sviði sem Gunnar Þórðarson sagði
mér í gær að hefði verið einstakt. Þú
ert svo ungur Gunni, sagði Þórðarson, þú
sást hann aldrei upp á sitt besta. Það hefur aldrei
annar eins sjó-maður verið til á Íslandi,
fullyrti Gunnar, hans gamli fóstbróðir (sjá nánar
í Fbl í dag).
Á útgáfutónleikum Ununar fyrir aðra
plötuna í Kaffileikhúsunu 1998 kom Rúnar aftur
fram með okkur. Tók Hann mun... og hið frábæra
Hljómalag Lífsgleði. Bandið klúðraði
þessu náttúrlega aðeins (eins og heyrist) en Rúnar
var í miklu stuði. Hann hreinlega elskaði að vera á
sviði. Það er átakanlega viðeigandi að hann
hafi verið á leiðinni upp á svið þegar
kallið kom.
Ég sendi fjölskyldu Rúnars samúðarkveðjur
og íslensku þjóðinni allri. Tjaldið er fallið.
Hr. Rokk hefur yfirgefið sviðið. Músikin og minningarnar
lifa.
Rúnar
Júlíusson og Unun í Kaffileikhúsinu 19.11.98
Hann mun aldrei gleym'enni er á Youtube.
Leikstjóri var Toggi töff og við gerðum þetta
nálægt Hveragerði og í Árbæjarsafninu.
Söngkonan heitir Kristín og var i bandinu áður en
Heiða kom. Árið er 1994. Hér er svo heimasíða
Rúnars.
---
Hávísindalegu vinsældavali á plötum
ársins er lokið. Niðurstöðurnar liggja fyrir.
BESTU ÍSLENSKU PLÖTURNAR 2008 skv. lesendum
1. Emiliana Torrini - Me and Armini 15% 395
2. Sigur Rós - Með suð í eyrum við spilum
endalaust 13% 350
3. FM Belfast - How to Make Friends 9% 243
4. Lay Low - Farewell Good Nights Sleep 7% 198
5. Baggalútur - Nýjasta nýtt 5% 144
6. Dr. Spock - Falcon Christ 5% 143
7. Sprengjuhöllin - Bestu kveðjur 5% 130
8. Retro Stefson - Montana 4% 113
9. Motion Boys - Hang On 4% 107
10. Singapore Sling - Perversity, Desperation and Death 3% 91
Tuttugu plötur voru í boði. Á þær
dreifðust 2653 atkvæði. Sigur Emilíönu er sannfærandi
en kemur mér reyndar nokkuð á óvart. Þetta
er ekki það góð plata þótt hún
sé fín. En auðvitað ræð ég engu
á þessum lista. Þegar ég bjó til listann
yfir þessi 20 plötur sem hægt var að velja úr
gleymdi ég auðvitað einhverju. Bob Justman platan hefði
til að mynda pottþétt átt að vera þarna.
En jæja...
BESTU ÚTLENDU PLÖTURNAR 2008 skv. lesendum
1. Kings Of Leon - Only By The Night 12% 194
2. MGMT - Oracular Spectacular 10% 162
3. Nick Cave & The Bad Seeds - Dig, Lazarus, Dig!!!
9% 153
4. Portishead - Third 9% 149
5. Coldplay - Viva La Vida Or Death And All His Friends 7% 126
6. Vampire Weekend - Vampire Weekend 7% 122
7. TV on the Radio Dear Science 7% 114
8. Fleet Foxes - Fleet Foxes 7% 113
9. AC/DC - Black Ice 5% 86
10. Bon Iver For Emma, forever ago 5% 80
Nokkuð færri lögðu í að velja bestu útlendu
plöturnar, 1684 atkvæði bárust. Sigur Kings of Leon
er afdráttarlaus, en þetta er "poppuð" niðurstaða.
Nick gamli Cave kemur líka sterkur inn og MGMT eru klárlega
"nýliðar ársins". Auðvitað hefði mátt
velja öðruvísi þessi 20 lög, platan með
Santagold er til að mynda rosafín og hefði átt að
vera þarna, til dæmis frekar en Metallica (sem lenti í
11 sæti). En jæja...
---
Sá loks The King of Kong í gærkvöldi. Stórfín
mynd.
05.12.08
Get því miður ekkert skrifað í dag. Er
of upptekinn við að hugsa um Davíð Oddsson (grín).
04.12.08
Ég er búinn að stytta bestuplötuársinskosninguna.
Úrslit kynnt núna á laugardaginn. Nennekki að
hafa þetta hérna fyrir ofan vikum saman.
---
Montauglýsingar íslensku útrásarfyrirtækjanna
(les: íslensku yfirdráttarlánsfyrirtækjanna)
eru til umræðu hjá Agli, hér.
Markús segir: Ég verð að segja að ég
er hálf partinn feginn að þetta sé allt meir eða
minna farið á hausinn. Þá er maður allavegna
laus við þessar tippalengingar auglysingar sem voru orðin
árviss viðburður í kringum jól og áramót.
Þá á ég við þessar rán dýru
auglýsingar sem sýndu hvað þessir snillingar
hefðu keypt í útlöndum á árinu á
Vísa rað. Ég er feginn sömuleiðis. Hinsvegar
má enn sjá froðusnakkið í Gísla Erni
á heimasíðu Atorku. Mér
fannst þessi auglýsing alveg lýsandi fyrir ruglið.
Eitthvað blaður í jakkafötum í exótískum
lókasjóns. Engu til sparað. En maður fattar samt
ekkert hvað er eiginlega verið að auglýsa. Og er drullusama.
Mér skilst að rosafín auglýsing fyrir Icesave
hafi verið langt komin þegar allt hrundi. Örugglega gjósandi
Strokkur, norðurljós og Bláa lónið. Gott ef
ekki Gísli Örn líka.
---
Maðurinn sem neitar að borga hefur örugglega hreyft við
mörgum þar sem hann kom í Kastljósi í gær.
Á maður kannski bara að láta þetta allt saman
dingla til andskotans líka? hugsar maður og reiknar út
í huganum hvað maður á lítið eftir af
mánaðarlaununum þegar búið er borga af húsinu
og bílnum. Þetta má nú ekki hækka neitt
rosalega í viðbót til að maður sé tæknilega
gjaldþrota eins og restin af skerinu.
---
Sá Vampire Weekend spila The
Kids don't stand a change í 2ja vikna gömlum Conani í
gær. Voða fínt. Fékk enn meira álit á
bandinu. Fékk líka meira álit á Hilary Clinton
eftir að ég las að hún hefði rætt kumpánlega
við Sæma rokk þar sem hann stóð heiðursvörð.
Það er víst bara hún og Kristján Eldjárn
sem hafa verið nógu alþýðleg til að rabba
við Sæma. Ég las þetta hjá Eiríki
en svo finn ég ekki færsluna aftur til að vísa
á.
---
Bó og Stebbi Hilmars hafa búið til jólaplötur
með því að syngja "jólalega" texta ofan á
einhver lög sem eru til en kannski fáir þekkja. Þessi
aðferð gefst vel. Mér dettur í hug önnur leið
til að gera "ný" jólalög. Taka ógeðslega
vinsæl lög og "jóla" ofan á þau. Who let
the dogs out, woof woof woof woof yrði "Hver hleypti sveink'út
- hó hó hó hó" og álíka viðbjóðslög
eins og Macarena og No limits yrðu þarna náttúrlega
líka. Nó limits gæti verið Jóla, jóla
jóla, jóla jóla jólastemmning. Þá
mætti grafa dýpra og taka Wild Thing sem "Sveinki með
jólaketti" og svo framvegis. Þetta yrði ógeðslegasta
jólaplata í heimi en myndi eflaust seljast í platínu.
Ekki ósvipað konsept og Stumpaplöturnar um árið,
nema nú yrði það jóla.
03.12.08
Plötur ársins, plötur ársins. Hér að
ofan má sjá tvo afar vandaða kosningakassa þar
sem þú getur kosið um plötur ársins íslenskar
og erlendar. Íslensku plöturnar 20 voru valdar af mér,
en eftir grafalvarlega íhugun hef ég komist að því
að þetta eru 20 bestu íslensku plötur ársins.
Erlendu plöturnar 20 eru valdar af lesendum í gestabók
auk þess sem ég bætti nokkrum blokkbösterum við.
Þetta er leynileg kosning og verða úrslit kynnt hér
á síðunni 20. desember. Þú skalt velja fimm
í hvorum kassa. Þú velur margar með því
að ýta á ctrl takkann í pc eða apple takkann
í apple.
---
Ég get ekki kvartað svo geðveikislega vegna skuldanna
minna miðað við marga sem eru kannski með húsin
sín á myntkörfu. Ég er "bara" með verðtryggt
húsnæðislán og 15 millurnar eru "bara" orðnar
19 á 4 árum. En samt. Helvítis drullubíllinn
er á 3ja ára myndkörfurekstrarleiguláni og ég
losna ekki við bæði bílinn og lánið fyrr
en eftir rúmlega ár. Þangað til verð ég
að bíta í koddaverið og láta B&L og SP-fjármögnun
komast upp með sína mánaðarlegu ofbeldisheimsókn.
Ég skrifaði jú upp á í þeirri trú
að efnahagslegur heimsendir væri ekki fyrirhugaður á
halfpriceland. Mánaðarleg greiðsla var svona 50-55 á
mán framan af og ég man að ég fékk alveg
kast einn mánuðinn þegar greiðslan rauk upp í
65. Síðast var greiðslan 90 og sú næsta er
99! 99.000 er rosalegur peningur fyrir mánaðarleigu á
einum skitnum Renault Scenic. Ég gæti keypt þrjú
eðal Trek hjól í mánuði fyrir þann pening.
Keypti einmitt slíkt á 35 kall í haust. Eðalhjól.
Svo, djöfulsins geðveiki er þetta!
Maður bara tekur smá kast inn í sér, sker
nokkra velvalda ráðamenn á háls í huganum
og borgar. Ég meina, hvað er hægt að gera? Svokölluðum
almenningi, sem samkvæmt ýmsum snillingum ber ekki síst
ábyrgð á öllu fokkinu, var nær að þurfa
bíl og húsnæði yfir hausinn á sér.
Afhverju gastu ekki búið í tjaldi? Þá þyrftirðu
ekki að væla núna.
Í svokölluðu góðæri var almenningur
okur og vaxtaokurpíndur út í eitt fóru loftbólupeningahaugar
góðærisins kannski í það að bólstra
almannaþjónustu og búa til tipp topp velferðarþjóðfélag?
Nei, þeir fóru í hálfbyggðar steypubeinagrindur
út um alla borg og einkaþotur og geðsýkisdrauma
milla. Og nú, þegar millar skottast með leifarnar af sjóðunum
til heitu landanna, er sko ekkert elsku mamma fyrir ræflana sem eftir
sitja. Ha ha, ef þú hélst að þú værir
okur og okurvaxta píndur fyrir? Bíddu sko fokkings bara.
Nú verðurðu tekinn svo illilega í bakaríið
að oddurinn kemur út hinum meginn. Því ofan á
martraðarkenndar hækkanir lánanna þinna, verðurðu
að sætta þig við launalækkun ef þú
ert yfir höfuð með vinnu. Ha ha, frábært!
Einu sinni var klikkaði rússneski stjórnmálamaðurinn
Vladimir Zhirinovsky með þá hugmynd að gera Ísland
að fanganýlendu fyrir rússneskan glæpalýð.
Íslendingar voru sko alveg mótfallnir þeirri hugmynd,
fannst hún móðgun. En nú hefur hugmyndin ræst,
en ekki alveg eins og Zhirinovsky ímyndaði sér. Ísland
er fanganýlenda og þú ert fanginn. En nú nenni
ég ekki að blása út meira um þessi mánaðarmót.
---
Sin
Fang Bous - Catch the light
Eitt af síðustu skipunum er platan Clangour með Sindra
í Seabear, eða Sin Fang Bous eins og hann kýs að
kalla sig. Þetta er skratti góð plata, góð
lög og mikið lagt í útsetningar og hljóðpælingar.
"Krútt"-legt Morr-brak er ekki yfirgengilega áberandi sem
betur fer (þótt þetta sé gefið út
af Morr).
02.12.08
Megas
& Senuþjófarnir - Ég sé pabba krassa á
jólatréð
Megas, jólin, Senuþjófarnir, pabbi og jólatréð.
Já vinur minn! Flúnkunýtt jólalag!!! Ekki missa
svo af jóla-Megasi í
Salnum, 18. des. Lifi bitlinginn.
01.12.08
Þjóðfundurá
Arnarhóli kl. 15 í dag.
---
Skrölta til vallar síðustu plötur fyrir jól.
Kíkjum á dýrðina.
Skakkamanage
- Like you did
Önnur Skakka hossar sér og dillar í kjötvaxinni
nýbylgju. Skakkapopp er staðurinn.
Þar er líka Létt á bárunni og jólakreppujólalagið
Þegar
jólin koma. Úr Fbl: Upptökur á nýjustu
plötu Skakkamanage, All Over the Face, reyndu svo mjög á
taugar forsprakkans Svavars Péturs Eysteinssonar að hann þurfti
að leggjast inn á heilsuhæli í miðjum upptökum.
Þetta tók svo mikið á að ég
þurfti að leggjast inn til að ná mér niður
og til að endurforrita mig fyrir framtíðina," segir Svavar.
Þetta er frægt heilsuhæli í útjaðri
höfuðborgarsvæðisins þar sem fólk á
öllum aldri getur hvílt sig og komið út sem betri
manneskjur. Það er meira en að segja það að
klambra saman heilli plötu í einni lotu."
Platan var tekin upp live" á frekar skömmum tíma
og var keyrslan því mikil í hljóðverinu.
Svo mikil að upptökustjórinn Orri Jónsson úr
Slowblow hefur tekið þá ákvörðun að
hljóðrita ekki fleiri hljómsveitir í framtíðinni,
hvorki meira né minna.
All Over the Face hefur að geyma ljúfsárar ballöður
í bland við hávaðarokk.
Lögin eru háð okkar geðsveiflum og fara úr
miklum rólegheitum í miklar öfgar," segir Svavar, sem
fyrr á árinu barðist hvað harðast fyrir húsafriðun
í miðborg Reykjavíkur. Krafðist hann þess meðal
annars að barinn Sirkus yrði látinn vera, en án árangurs.
Hann vill þó ekki meina að textarnir á plötunni
feli í sér þennan boðskap. Ég held að
það sé frekar að pirringurinn í garð Reykjavíkurborgar,
skipulagsyfirvalda og útþenslu kapítalismans hafi skilað
sér í lögin frekar en textana."
Hann býr nú á Seyðisfirði ásamt
eiginkonu sinni, Berglindi Häsler, sem er líka í Skakkamanage.
Það hefur gengið á ýmsu í þessu
bandi. Maður er búinn að stökkbreytast algjörlega,
fluttur út á land og búinn að hvíla sig
á Reykjavík í bili. Ég tek henni fagnandi aftur
þegar ég verð búinn að sættast við
hana á ný."
Bob
Justman - Most of all
Nýja Guns n' Roses platan er komin. Og Kristinn Gunnar Blöndal
er loksins búinn að gefa út plötu! (Kemur í
vikunni). Ofurchillað og einlægt en með jöxlum og hárum
á bringunni. Úr fréttatilkynningu: Þá
er komið að því. Fyrsta plata Bob Justman kemur út
föstudaginn 5.
desember. Platan sem ber heitið "Happiness & Woe" inniheldur
12 lög, en þar
af hafa tvö lög, "Alone Tonight" og "Most of All" þegar
heyrst á öldum
ljósvakans. Útgefandi plötunnar er Smekkleysa
sm/ehf.
Happiness & Woe var að mestu tekin upp í Stúdíó
Heita Pottinum af Gunnari
Erni Tynes, sem kenndur er við múm. Nokkuð er um
gestahljóðfæraleikara á
plötunni, en fyrirferðamestir í þeim efnum
eru meðlimir tríósins Flís sem
leika stóran part í trommu, bassa og píanóundirleik
plötunnar. Aðrir
hljóðfæraleikarar eru m.a. strengjasveitin Amiina,
Orri Páll Dýrason trymbill og
margir fleiri. Töluvert af óhefðbundnum hljóðfærum
má heyra á plötunni, og
ber þar kannski hæst danska kaupskipafallbyssu og reykvískar
kirkjuklukkur.
Bob Justman er eitt margra aukasjálfa tónlistarmannsins
Kristinns Gunnars
Blöndal (áður í Ensími og Botnleðju).
www.myspace.com/bobjustman
Valur
Gunnarsson & Gímaldin - Kotka song
Valur og Gímaldin í pógskum drykkju og þjóðlagafíling,
austantjalds. Mæspeisað.
Úr Fbl: Til stendur að gefa út nýja plötu
Vals Gunnarssonar og Gímaldsins Megasarsonar út í
Pétursborg. Platan heitir Vodka Songs og má heita sérstætt
að Íslendingar telji sig hafa eitthvað til vodkamenningar
Rússlands að leggja.
Þetta eru erfiðir tímar fyrir þjóðina
en góðir fyrir Rússlandsáhugamenn. En þó
að ég hafi dálæti á menningu Rússlands
er ekki þar með sagt að ég dái rússneska
stjórnarhætti," segir Valur Gunnarsson, tónlistarmaður
með meiru.
Plata hans og Gímaldins Megasarsonar er loksins að koma
út, formlegur útgáfudagur var í gær,
eftir að hafa verið í dái um tveggja ára skeið.
Platan heitir Vodka Songs og er vart hægt að ímynda sér
betri tímasetningu fyrir útgáfu hennar en núna.
Íslenskir tónlistarmenn horfa nú mjög til austurs
í kjölfar þess að Davíð Oddsson lét
þess getið að vænta mætti láns frá
Rússlandi sem lagað gæti gjaldeyrisstöðu Íslands.
Reyndar bólar ekki enn á láninu en hugmyndin ein og
sér hefur orðið til að efla mjög Rússlandsáhugamenn
í andanum. Skemmst er að minnast frétta af því
að Geir Ólafsson hyggst gefa út nýja plötu
sína í Moskvu í sérstakri rússneskri
útgáfu.
Sum lögin eru orðin svolítið deituð" en
önnur eiga einhvern veginn miklu betur við nú en þá.
Lögin Russian Century og American Century fjalla annars vegar um hrun
bandaríska heimsveldisins, sem virðist nær núna
en áður, og hitt um hvernig nýir keisarar taka við
Rússlandi eftir að byltingu lauk," segir Valur. En svo virðist
að þegar þeir Gímaldin voru að leggja drög
að plötunni hafi þeir séð eitt og annað fyrir.
Þetta er verkaskipting okkar á milli. Ég sem textana
og syng Gímaldin semur tónlist og leikur á hljóðfæri
ásamt fleirum."
Til stendur að gefa plötuna út í Rússlandi
en Gímaldin er einmitt staddur nú um stundir í Pétursborg.
Já, Gímaldin sér um þá hlið mála.
Við ætlum að gefa Vodka Songs jafnframt út í
Rússlandi. Í það minnsta í einhverjum búðum.
Þarna er rússneskt forlag sem heitir, merkilegt nokk, Manchester,
sem hefur verið að gefa út tónlist Fimmtu herdeildarinnar
hljómsveit Gímaldins."
Valur segist fagna öllum menningarsamskiptum við Rússland
en þó með þeim fyrirvara að taka skýrt
fram að hann sé enginn aðdáandi rússneskra
stjórnmála. En það eru kannski engir kostir í
stöðunni þegar maður er blankur."
Geir
Harðar - Týndi sauðurinn
Titillag annarrar plötu Geirs er lýsandi, stónsað
rokk og texti um svall. Úr Fbl: Týndi sauðurinn er
önnur sólóplata Geirs Harðar. Sú fyrsta,
Landnám, vakti nokkra athygli þegar hún kom út
fyrir fjórum árum. Þessi er nú svolítið
nútímalengri en hin. Hún er til dæmis í
stereó en hin var í mónó og svo nota ég
synta og trommulúppur á þessari," segir Geir. Þetta
er fyrsta platan sem Huldar Freyr Arnarson tekur upp og við erum búnir
að vera heillengi að þessu, 2-3 ár. Bara svona á
kvöldin eftir vinnu. Ég ætlaði að gefa plötuna
út fyrir síðustu jól. Ég var þá
að vinna í málningarvinnu og það var bara svo
mikið að gera að ég sleppti því. Nú
er minna að gera og lítið fram undan svo ég kýldi
bara á ða."
Tónlist Geirs er poppuð, rokkuð og blúsuð
og minnir stundum á Stones. Textarnir eru allpersónulegir
og biblíulegir á köflum. Platan er um Guð og konur.
Það er þráhyggja þarna," segir Geir. Fyrir
svona þremur árum leitaði ég til Guðs því
ég taldi mig ekki geta tekið til í sjálfum mér
án hjálpar. Textinn við Syndarinn" fjallar til dæmis
um það að byrja upp á nýtt. Að hreinsa
til í fortíðinni og byrja á nýjum stað.
Þessi texti passar dálítið vel við í
dag." (Meira hjá Agli
Harðar)
Ingi
- You little fruitcake
Ingi birtist óvænt með ágætis poppplötu
sem hann tók upp í Kaliforníu með Scott
Mathews, sem er pleier í bransanum og getur jafnhent nokkrum
funheitum nöfnum því til sönnunar. Ingi kynnir sig
og plötuna á Nasa á föstudaginn 5. des. (Ingi
á vefnum) Úr Fbl: Ingi Örn Gíslason notar
listamannsnafnið Ingi í poppinu. Hann er kominn í góð
mál með frumsamda tónlist sína; dvelur þessa
dagana í San Francisco og tekur upp plötu með þekktum
upptökumanni, Scott Mathews. Scott tók hann upp á arma
sína eftir að hafa heyrt prufuefni með honum.
Ég var í lagasmíðanámi í
Hollandi og vinur minn hafði tekið upp lög með mér.
Hann sendi upptökurnar til Scotts, svona aðallega til að fá
hans álit á upptökugæðunum. En Scott varð
hrifinn af lögunum. Eitt leiddi af öðru og nú er ég
bara hér í San Francisco og upptökur ganga vel!" segir
Ingi, nývaknaður á hóteli. Hann vinnur að
fyrstu sólóplötu sinni í hljóðveri
Scotts, Tiki Town.
Scott Mathews á farsælan feril að baki og hefur
unnið náið með alls konar snillingum eins og David Bowie,
Johnny Cash, Roy Orbison, Ringo Starr, Brian Wilson og Neil Young. Hann
er nú voða lítið að segja manni bransasögur,"
segir Ingi. Hann vill frekar vinna og taka upp."
Ingi segir Scott hafa ýmsar frumlegar hugmyndir. Hann stakk
upp á því að tækjum hluta af einu lagi upp
í einangrunarklefanum í Alcatraz-fangelsinu. Það
lag fjallar um martraðir. Við tókum bara bátinn út
í eyjuna og tókum allan túristapakkann í leiðinni.
Þarna voru Al Capone og fleiri snillingar geymdir á sínum
tíma." Ingi segist ekkert hafa spilað á Íslandi
en félagi hans í tónlistinni, Birkir Rafn Gíslason,
var Í Single Drop á sínum tíma. Birkir er með
Inga úti og tekur þátt í plötugerðinni.
30.11.08
Það hefur lengi verið draumur okkar feðganna (ókei
minn!) að fá að keyra í gömlu amerískum
kagga. Oft hefur maður staðið slefandi yfir krómuðum
draumabílum á sýningum og ekki einu sinni mátt
snerta dýrðina. Því hljóp heldur betur á
snærið þegar ég gat kjaftað mig inn á
að fara rúntinn með Ólafi Gunnarssyni rithöfundi
og meistara í gær. Hann á þrjá eðalvagna
í skúr og við fengum að líða um bæinn
á Pontiac Bonneville 1959 árgerð, sem var einmitt fyrirmyndin
að orginal Batman bílnum. Allir frammí í bólstruðum
sessum (ekkert volvoöryggisvæl) og svo liðum við um
göturnar umkringdir 2.7 tonni af stáli og lokasönnun á
fullkomleika mannsins yfir öðrum dýrategundum. Á
Bæjarins bestu þorði enginn að dást að bílnum
nema Sævar Síselskí og vinur hans, enda einu mennirnir
í stuði. Ferðin gerði lítið nema efla mig
í því markmiði að koma mér upp Ford
Mustang fyrir fimmtugt.
Komnir aftur í skúrinn. Ólafur loftar út
á 350 hestafla vélinni. Hann segir mér að heimildarmyndin
sem þeir félagar tóku af Route 66 ferðinni um árið
komi líklega í sjónvarpi um páskana næstu.
Þú ættir svo absalútt að kynna þér
Dimmar rósir, rokkskáldssögu Ólafs frá
hippaárunum. Ég er í henni miðri og þetta
er dúndurgott stöff.
---
Feitibjörn stakk upp nafninu "Spilaborgin" á Tónlistar-
og ráðstefnuhúsið á hafnarbakkanum. Það
er mjög gott nafn sem mætti alveg festast. Annar stakk svo upp
á nafninu Uppasalir og sendi það meira að segja í
samkeppnina.
29.11.08
Ef ég væri úrillur moggabloggari sem bloggaði
á fréttir á vísi gæti ég bloggað
þessi skýru og skörpu úrillisblogg við þessar
fréttir:
http://visir.is/article/20081129/FRETTIR01/252371279/-1
- Hvað er þessi belgsíði asni að þenja sig.
Er ekki nóg að fara á hausinn einu sinni?
http://visir.is/article/20081129/LIFID01/410055022/-1
- Drím on! Hvílík veruleikafyrring! Hvílíkir
úrkynjuðu fáráðar og fífl! Fífl!!!
segi ég.
---
Einu sinni gekk Björgólfur gamli um eins og kóngurinn
í Kína og átti annan hvorn skúr í miðbænum.
Svaka uppbygging eitthvað og gilli gilli hlæ hlæ. Sögur
gengu um að dópistar væru settir í hreysi til að
svæla burt fólk svo hægt væri að rífa
og byggja shopping centers í staðinn. Mönnum fannst það
eðlilegasta mál í heimi að einn karlfauskur ætti
og ræki ekki bara uppbyggingu miðbæjarins heldur hálft
menningarlífið líka. Svo rann hann á rassgatið
með allt þegar góðæriskýlið sprakk
framan í hann og hina sauðina. Nú er allt í steik
og fokki. Rvk er meira og minna hálfbyggt drasl og rusl. Hefurðu
komið í Úlfarsfellshverfið? Göturnar þar
minna á Go kart brautir, allt hálfkarað. Hvað með
þessa kofa sem brunnu á horninu á Læk/Aðalst?
Muniði þegar Vilhjálmur var grenjandi þarna og vildi
tafarlausa uppbyggingu? Þós ver ðe deis mæ frend.
Hvað með þessa kofa á Laugarvegi 4-6 sem Ólafur
EFF keypti á spottprís til að vernda einhverja götumynd
frá 13. öld eða hvað það var? Gott að
eiga þann pening núna til að reka leikskóla, ha?
Höfðatorg
er svo enn einn bömmerinn. Og hvað með tónlistarhúsið?
Ég kíkti á "visitors center" á Lækjartorgi
skömmu fyrir hrun og komst að því að gler-ruslið
hans Ólafs góðærisgrís Elíssonar
utan um þetta kostar ekki nema 2000 milljónir og þarf
her Kínverja til að smíða. Eru þeir enn að?
Verður höllin kannski bara klædd með korki í
staðinn? "Við viljum ekki skilja þetta hálfbyggða
hús þarna eftir, sem minnisvarða um eitthvað sem ekki
varð," segir
Júlíus Vífill sem fær leifarnar í fangið
eftir að Portusið hans
Björgólfs var afhausað. Það sem mér þykir
verst er að nafnið á byggingunni var aldrei komið fram.
Svaka samkeppni var hrynt í framkvæmd og grilljón tillögur
bárust. Aldrei var samt greint frá niðurstöðum.
Því heitir þetta bara ennþá hinu ömurlega
óþjála nafni "Tónlistar- og ráðstefnuhúsið
á hafnarbakkanum". Kannski ætti bara að kalla þetta
"Loftbóluna", "Skýjaborgina" eða "Bömmerstaðir
Björgólfs". Ástand Reykjavíkur er vitnisburður
um heimsku góðærisins. Heimskan er alltaf sú sama.
Það sama rennur alltaf upp fyrir athafnamönnum: Á
Íslandi búa bara 300.000 manns, andskotinn hafiða!
---

Hvíta albúm Bítlanna er fertugt um þessar
mundir. Besta albúm Bítlanna segja margir. Ég er ekki
frá því. Við skulum heyra tvennu í tilefni
dagsins, og í tilefni tilefnisins, og í tilefni ástandsins.
Allir hafa eitthvað að fela nema ég og apinn minn. Fyrst
með Bítlum af Hvíta svo með New Jersey sveitinni
The Feelies sem setti geðveikt frábæra útgáfu
af laginu á hina geðveikt frábæru plötu sína
Crazy Rhythms sem kom út 1980. Þetta
hérna er svo rosa fín síða fyrir Bítlagrúskara,
Beatles Anecdotes.
The
Beatles - Everybody's Got Something To Hide (Except Me And My Monkey)
Feelies
- Everybody's Got Something To Hide (Except Me And My Monkey)
(Þessi mp3-færsla er tileinkuð þeim sem settu
þjóðina á hausinn:)
Come on come on
Come on come on
Come on is such a joy
Come on is such a joy
Come on let's take it easy
Come on let's take it easy
Take it easy take it easy
Everybody's got something to hide except for me and my monkey
(Ooh) The deeper you go the higher you fly
The higher you fly the deeper you go
So come on (Come on) come on
Come on is such a joy
Come on is such a joy
Come on let's make it easy
Come on let's make it easy (Oh)
Take it easy (Yeh yeh yeh) take it easy (Hoo)
Everybody's got something to hide except for me and my monkey
Oh!
Your inside is out and your outside is in
Your outside is in and your inside is out
So come on (Ho) come on (Ho)
Come on is such a joy
Come on is such a joy
Come on let's make it easy
Come on let's make it easy
Make it easy (Hoo) make it easy (Hoo)
Everybody's got something to hide except for me and my monkey
Hey!
Come on, come on, come on, come on, come on
Come on, come on, come on...
Come on, come on, come on, come on, come on
Come on, come on, come on...
28.11.08
Svívirðilegar ásakanir hjá Mogganum í
gær. Ég að gefast upp? Oj piss! Þeir hafa legið
í leynum þar til ég tók sekúndu pásu
og smellt af þá. Enn sekkur Mogginn dýpra í
svað sögufölsunar. Ég er viss um að Agnes hefur
skrifað þetta af því ég vinn hjá Baugsmiðli.
Agnes er með mig á heilanum. Giggið var annars gríðarlega
gott. Frábært ef fleiri bönd færu nú að
spila í spinning. Þá sæi maður loksins eitthvað
af þessu læf.
---
Ég er alveg með kúkinn í buxunum út
af fleytingu krónunnar. Er nebblega á leið til London
í febrúar og er tvístígandi yfir þessu.
Gæti keypt pund núna á sirka 220 kall stykkið sem
er vitanlega sturlun. Svo veit maður ekkert. Kannski verður eitt
pund á 1000 kall í febrúar, eða 500, eða komið
oní 150 kall fyrir guðdómlegt kraftaverk og ég
sæti uppi með rándýr pund sem ég keypti
núna. Ég er alveg bit yfir þessu. Þetta leysist
náttúrlega bara þannig að ég á hvort
sem er engan pening til að kaupa pund núna og þarf að
fara ferðina á Vísa þegar þar að kemur
(eins og vanalega). Ég held þetta verði kannski fyrsta
utanlandsferðin sem maður tekur nesti með sér. Harðfisk,
smjör og hangiket í loftþéttum boxum. Hei, það
er nú bara gaman!
---
Nokkur Viddjó: Þarft þú ekki að anda
inn smá gleði?
/ Mimi frænka ræðir
um John Lennon í fyrsta skipti. / og húrra! Þorsteinn
Guðmundsson videóbloggar.
/ David Koresh og Waco ruglið í heimildarmyndinni WACO:
The Rules of Engagement.
---
Óskalög
sjúklinga - Óvinurinn er þjóðin (byltingu!)
Barst í pósti byltingarpönk. Talið er líklegt
að krakkarnir með svörtu fánana taki Hörð
Torfa úr sambandi í smástund á morgun og blasti
þessu yfir Austurvöll. Sé stemmning fyrir meira kreppupopp
þá vísa ég á Donnu Mess og lag hennar
Ekki
kyngja hráka yfirvalda (via Tímaritið
Nei)
27.11.08
Afþví einhverjum geðsjúklingi datt í
hug að senda út beint frá alþingi allan daginn
sem valtrauststillagan var borin upp sá ég æstan Guðlaug
Þór væla eitthvað um að ástandið
á Íslandi væri nú ekkert einsdæmi. Hann
hefði verið að lesa í BBC að fullt af öðrum
löndum væru líka í skítamálum. Já
já, Gulli minn, en Ísland er í dýpsta
skítnum og það er þér og Sjálfsstæðisflokknum
að kenna. Mannætukerfið sem þú aðhyllist
og félagar þínar hefur komið okkur á þennan
stað. Þetta að hleypa handvöldum siðleysingjum í
sjóði almnennings. Þess vegna á Sjálfsstæðisflokkurinn
ekki að koma nálægt stjórn landsins í langan
tíma. Hann er gjaldþrota andlega. Hausinn á honum brást.
Gulli getur séð staðreyndirnar á ilmandi
litmynd sem OECD sendi frá sér. Því blárra
sem landið er því dýpri er skíturinn. Gulli
minn, hvaða land er bláast á þessari mynd? Ha,
eru svaka mörg lönd jafn blá og við. Er það
já? Nei væni minn, Ísland er bláasta land í
heimi. Eða ættum við að segja blásta land í
heimi til að vera kjút.
---
Í bakþanka læt ég mig dreyma um Ofurhetjuna
Kreppumann.
---
Egill skrifar um baktjaldamenn
Framsóknar, m.a. "Ég missti reyndar af viðtalinu
en skilst að hann hafi ekki viljað nefna nöfn. Af hverju?
Þetta er orðin eins og einhver sjúkleiki hérna,
að tala í hálfkveðnum vísum." Kommentaherinn,
sem maður er reyndar löngu hættur að nenna að skræla
sig í gegnum (það væri fúlltæm djobb),
tekur við sér og tekur undir með Agli. Þeir sem skrifa
um þetta að nefna ekki nöfn eru meðal annars þeir
Doddi, feldur, SJ, Balzac, Þórður, Siggi, EBN, GK, snd,
HH, Snoddi, Humm?????, joð, GU, Laxveiði í boði...,
annag og Nafnlaus. Ef krafan er "að byggja upp nauðsynlegt traust
sem þarf til þess að hægt sé að byggja
upp þjóðfélag" eins og SJ segir í halanum
væri þá ekki ágætis byrjun að fólk
setti fullt nafn við kommentin sín á bloggum út
í bæ? Ekki að það sé eitthvað stórmál,
en samt... þetta að taka til í eigin garði og það
allt.
---
Morfís er víst ekkert svo ömurlegt. Ég fékk
bréf þar að lútandi: Það er mikill
misskilningur í samfélaginu um hvernig MORFÍS stíllinn
er, og heyrir maður hann oft notaðan sem dæmi um útúrsnúninga
og flóttalegan málflutning. Í MORFÍS er hins
vegar mjög erfitt að vinna keppni ef maður er óljós
og varnarstíll eins og föstudagsblaðamannafundir seinustu
vikna er hreinlega ávísun á tap.
Vaðallinn sem Ingibjörg Sólrún og Geir Hilmar
hafa tileinkað sér er mun eldra fyrirbæri en MORFÍS
sem var stofnuð 1985 og á rætur sínar að rekja
til hins háa Alþingis og floksshollra þérandi
útvarpsmanna RÚV í gamla daga. Kurteist mas um ekki
neitt.
Þeir þingmenn sem þó hafa keppt í
MORFÍS s.s. Illugi Gunnarsson, Sigurður Kári Kristjánsson
og Helgi Hjörvar nota sjálfir aldrei MORFÍS stílinn,
en hann fyrst og fremst mjög skýr og beinskeyttur. Hann er
líka meiri svona showcase stíll; MORFÍS ræða
er soldið eins og Harlem Globetrotters að spila körfubolta.
Þetta er exhibition, fyrirfram skrifað og því oft
mun kjarnyrtara en fólk sem rökræðir hlutina í
alvöru. Það talar enginn svona, síst af öllu
stjórnmálamenn.
Er annars sammála þér með helvítis
vaðalinn og þessi Gunnar Sigurðsson gerði vel að
stoppa ISG þegar hún byrjaði að tala út í
eitt og rugla mann með óljósu prófkjörsblaðri,
Tók reyndar eftir því að GHH var ekki að
nota þennan stíl sinn á fundinum (sem reyndar Þorsteinn
Pálsson var frægur fyrir að nota á sínum
tíma; langar vel orðaðar setningar um ekki neitt) heldur
sagði bara já og nei. Kannski er hann orðinn þreyttur
á sjálfum sér?
Vaðall þeirra á hins vegar ekkert skylt við
þessa ágætu ræðukeppni.
Ókei þá!
The
Fireman - Highway
Paul McCartney er í verkefninu/bandinu The Fireman með bassaleikara
Killing Joke, Youth. Þeir gerðu tvær tilraunakenndar plötur
1993 og 1998 en þá komu nöfn þeirra hvergi fram.
Ég hef nú reyndar ekki heyrt þessar plötur. Þriðja
Fireman platan var að koma út, Electric Arguments, og markar
tímamót í sögu verkefnisins. Báðir
leggja nú nafn sitt við verkefnið og tónlistin er
miklu meira "McCartney-leg" en áður, bara "venjuleg" lög
og ekkert rugl. Þetta er fjölbreytt stöff, mikið af
ballads og fljótandi seyð, en hér er eitt rokkað
og Wingsað.
26.11.08
Minni á Dr. spinning Spock kl. 12 í hádeginu í
dag í Sporthúsinu. Það mun vera Danni geðveiki
sem ætlar að leiðbeina spinnendum undir mökkkeyrslu
Spokkara. Ég titra af tilhlökkun.
---
Nokkrar góðar fréttir úr kreppunni: Jólagjafaátakinu
UNDIR
5000 hefur verið hrynt í framkvæmd. Þar er leitast
við að hjálpa fólki að finna sniðugar og
ódýrar jólagjafir. Kreppuspilið
er í vinnslu og þú getur tekið þátt
í að semja spjöldin í spilið. Þá
hefur Santa María, mexíkóska veitingarhúsið
á Laugarvegi 22, ekki hækkað um eina krónu síðan
í vor. Allt á undir 1000 kalli ennþá. Mikið
væri gaman ef aðrir tækju sér þá stefnu
til fyrirmyndar. Þá væri Okursíðan
ekki að springa.
25.11.08
Borgarafundur í
beinni var ágætt sjónvarpsefni. Mistök samt að
bjóða manni upp á vömbina á Árna Johnsen
sem bakgrunn við ræðufólkið, nema það
hafi verið útpælt plott til að minna mann á
svínslega dýrð Sjálfsstæðisflokksins.
Gestir klöppuðu líka full mikið undir ræðunum,
en kannski var það nauðsynlegt til að ná upp góðri
stemmningu. Þorvaldur "Vilmundur" Gylfason tók best
of og ætti að fara í Seðló ekki seinna
en núna. Gamli gæti þá klappað skógarkettinum
Eldibrandi fúlltæm. Silja bauð upp á enn eina myndlíkinguna,
nú var það matargerð, út með ruslið
og ýldulykt. Benedikt tók góðan pakka á
verðbæturnar (burt með það helvíti!) og
verkakonan Margrét fór alveg á kostum og tók
liðið í nefið. Á þing með hana. Ráðherraræflar
sátu sem dauðadæmdir og mesta furða hvað þeir
létu hafa sig út í. Svona fundir ættu vitanlega
að vera vikulega í beinni á meðan landið er í
margumtöluðum björgunarleiðangri. Sérstaklega
ánægjulegt var að verða vitni að því
að sjálfvirkur vaðall ráðamanna var snarlega
þaggaður niður. Við viljum fá svör, ekki
sjálfvirkan vaðal um ekki neitt, ekkert morfísískt
stjórnmálaþrögl takk, bara svör, já
eða nei jafnvel. Sérstaklega á Ingibjörg til með
að grípa til vaðalsins og kannski finnst einhverjum bláeygðum
bjánum í Samfó mikið til svona koma. Sorrí,
það er bara ekki tími fyrir svona froðu í dag.
Burt með vaðalinn og froðuna.
---
Fræbbblarnir
- False death
Þrjátíu ár í dag síðan
Fræbbblarnir pönkuðu skólameistara á Myrkramessu
MK. Ég var ekki á svæðinu en sá bandið
skömmu síðar á sama stað (Kópavogsbíó)
og hef ekki verið samur síðan. Fbl í dag: Í
dag er stór dagur fyrir íslenska pönkáhugamenn
því þrjátíu ár eru liðin síðan
Fræbbblarnir komu fram í fyrsta skipti. Þetta var í
Kópavogsbíói á Myrkramessu MK," segir Valgarður
Guðjónsson, Valli í Fræbbblunum. Það
var menningarleg samkoma, ræður, ljóðalestur og kórinn
söng. Við vorum auðvitað alveg út úr kú.
Þurftum að hafa mikið fyrir því að fá
að spila því skemmtinefndin reyndi með öllum
tiltækum ráðum að útiloka okkur. Sem betur
fer áttum við hauk í horni sem kom okkur inn."
Fræbbblarnir spiluðu tvö Sex Pistols-lög og
Police & Thieves" með The Clash. Síðar skrifaði
Ingólfur A. Þorkelsson, skólameistari í Sögu
MK: Hávaðinn var ærandi og hljóðfærin
voru barin án miskunnar. Söngurinn var sem öskur úr
ungum bola og söngstíllinn harður, allt að því
ógnandi og framkoma sveitarinnar öll hin fáránlegasta."
Það voru samt einhverjir í salnum sem höfðu
gaman af þessu og meira að segja mamma eins vinar okkar, man
ég," segir Valli. Fræbbblarnir starfa enn og 87 lög liggja
eftir sveitina á plötum. Við ætlum að þrjóskast
við og gera allavega eina plötu í viðbót. Hún
kemur líklega út á næsta ári og vinnuheitið
er Puttinn. Textarnir voru upphaflega hugsaðir sem minningargreinar
um drullusokka, bæði raunverulega og skáldaða, en
ég veit ekki hvort ég held það þema út
á heilli plötu."
Fræbbblarnir spila á Grand Rokk á fimmtudagskvöldið,
aðallega nýtt efni, en nokkra klassíkera í bland.
Aðgangur er ókeypis.
False death er af fyrstu 7"plötu Fræbbblanna sem barst til
landsins 1980. Enn jafn ferskt í mínum eyrum og þegar
ég heyrði það fyrst. Keypti plötuna af John Hansen
sem síðar gekk í Krossinn en hefur ekki sést í
mörg hundrað ár síðan.
24.11.08
Flakkarinn er þarfaþing. Loksins er ég í
alvörunni minn eiginn dagskrárstjóri. Nú get
ég dánlódað Conani
og glápt á þegmér sýnist. Ég komst
hálfur inn í heimildarmyndina Bigger,
Stronger, Faster um vöðvakarla og stera. Nennti ekki að
klára hana, en er hinsvegar viss um að allt þetta lið
hérna á Íslandi sem er með óeðlilega
upphandleggi er á bullandi sterum. Það fær enginn
svona nema með efnafræðilegri hjálp. Í myndinni
var hins vegar haldið fram að sterar séu bara hið besta
mál, sýndist mér. Horfði hinsvegar til enda á
spennumyndina Trans-siberian
með Emily Mortimer og Woody Harrelson, enda ágætis mynd
á ferskum slóðum. The
Dark Side of Porn eru misáhugaverðir þættir
frá Channel 4 um klámbransann og allskonar kinkí bisness
þar. Episódan The Real Animal Farm er um Bodil
Joensen og legendarí dýralífsmyndina Animal
Farm sem smaug inn í videóvæðinguna örlí
eitís og brenndi óafmáanlegar myndir í heilaberki
áhorfenda. Ég er ekki frá því að
þessi mynd hafi verið í umferð hér og að
sama skapi þýsk mynd um karl með yfirvaraskegg og klósettbursta.
Þetta var stöff sem maður varð umsvifalaust fullorðinn
af að pína sig í gegnum eða öllu heldur að
ljúga að maður væri búinn að sjá.
Ég veit það ekki. Er ekki skárra að sjá
danska kerlingu juðast á svíni en að sjá skólafélaga
sína taka tilhlaup til að sparka í hausinn á öðrum
skólafélaga sínum á jútjúb. Ég
myndi halda það, Hemmi minn.
---
Aðrar myndir sem gerðu mann fullorðinn voru auðvitað
Cannibal Holocaust og Texas Chainsaw Massacre. Einu sinni fyrir gríðarlega
löngu síðan lagði ég mig fram við að
sjá svona stöff og keypti inn illadöbbaða bútlegga
frá einhverjum gaur í Svíþjóð. Það
voru mikið af myndunum í hinni gríðarlega áhrifamiklu
bók Incredibly
Strange Films. Einnig var maður svag fyrir myndum í
flokknum "svo vondar að þær eru góðar". Núna
nenni ég alveg ómögulega að eyða tíma
í svona stöff. Nenni satt að segja bara eðal stöffi.
23.11.08
Auglýst er eftir tillögum að bestu erlendu plötu
ársins! Já, ég hef tekið að mér
að gera þátt um erlenda tónlist 2008 fyrir
Rás 2 til útvörpunar um áramótin. Gaman
væri ef lesendur hafa hugmyndir um bestu erlendu plöturnar
útgefnar á árinu og vilja deila þeim hugmyndum...
bara eins margar og nennið leyfir í G-E-S-T-A-B-Ó-K-I-N-A.
Síðan verður efnt til vinsældakosninga hér
þar sem valið stendur um 10 heitustu plöturnar eða eitthvað.
---
Og annað eins um íslenskar plötur, nema ég vel
nú bara sjálfur plöturnar í það. Þetta
hefur verið mjög gott íslenskt ár í plötuútgáfu.
Fullt af góðu stöffi svo það verður pís
of keik. Þótt það væru 20 plötur.
---
Ég var með svipað í gangi í fyrra og þetta
var niðurstaðan þá:
Bestu innlendu plötur ársins 2007:
1. Mugison - Mugiboogie (190 atkvæði)
2-3. Sprengjuhöllin - Tímarnir okkar (153)
2-3. Megas - Frágangur og Hold er mold (153)
4. Ólöf Arnalds Við og við (82)
5. Björk Volta (81)
6. Hjaltalín Sleepdrunk seasons (80)
7. Sigur Rós Hvarf/heim (67)
8. Jakóbínarína The first crusade (65)
9. Seabear The ghost that carried us away (56)
10. Skátar Ghost of the bollocks to come (51)
Bestu erlendu plötur ársins 2007:
1. Arcade Fire - Neon Bible (153 atkvæði)
2. Radiohead - In Rainbows (127)
3. Of Montreal - Hissing Fauna, are you the destroyer? (74)
4. LCD Soundsystem - Sound of Silver (73)
5. Deerhoof - Friend Opportunity (46)
6. Jens Lekman - Night Falls Over Kortdala (44)
7. Beirut - The Flying Cub Cup (43)
8-9. Grinderman Grinderman (39)
8-9. Okkervil River - The Stage Names (39)
10. Animal Collective - Strawberry Jam (37)
---
Plaggat úr New York Post af Obama er komið upp á
sækadelíska vegginn í herberginu mínu. Já
já, ég veit, persónudýrkun er hallærisleg,
en ef maður nennir ekki að vera eitthvað endalaust að vera
að spá í þessu og kýs að láta
rafboðin í gráa maukinu í hauskúpunni á
sér snúast um annað er fínt að geta treyst
einhverjum fyrir klabbinu. Helst einhverjum sem maður lítur
upp til, eða svona smá. Obama er allavega ferskur eftir allt
W. ruslið. Djöfull vildi ég að maður hefði
einhvern íslenskan Obama til að hengja upp á vegg, upp
á notalegheitin einhvern vonarneista í þunglyndislegu
svartnættinu og skuldasúpunni framundan en það
er ekki neitt. Bara þriðjudeildarmenn og sama klabbið. Ekki
hengir maður upp svikarann Ingibjörgu, það er ljóst,
og ekki Steingrím, nema hann poppi sig rækilega upp og tali
í pottþéttum framtíðarlausnum. Ég
tek undir þetta,
okkur vantar lýðsskrumara, jafnvel einhvern sem lýgur
ekki.
---
Yma
Sumac - Xtabay
Yma féll frá 1. nóv, æfagömul.
Þegar mann greip kokteilpartí-geimaldar-skrítni-gamalt-mambo-incredible-strange-music-lyftu-exótísk
áhlustun á síðasta áratugi kom Yma Sumac
skerk inn, enda legend. Rödd hennar náði yfir fjórar,
fimm áttundir og hún var dillandi exótísk.
Ég man þegar ég vann í Japis að ég
var svo glaður þegar gömul kona kom í búðina
til að spyrja um Ymu því það heyrði til
algjörra undantekninga að fólk kom og spurði um eitthvað
af viti. Það var líka svo hressandi að vita að
gamla konan þekkti Ymu og hafði hlustað á hana á
gullöldinni sjálfri, um 1960. (Myndin er af LIFE
vefnum, þar er allt vaðandi í kúl myndum
prófið t.d. að fletta upp á Iceland).
The
Inca babies - Brother Rat
Yma var frá Perú og var beib svo vitanlega þarf
eitt lag með Inca babies til að fullkomna glæpinn. Enska
hljómsveitin The
Inca babies (stofnuð 1982) hélt ekki vatni yfir The Birthday
Party og það gerði ég ekki heldur og greip fegins
hendi öll þau bönd sem minntu á hetjurnar. Og þau
voru nokkur. Fá þó jafn rosalega og þetta.
22.11.08
Ég er farlama eftir spinningslys. Tók vitlausan skó
með mér og fékk þessa hörku blöðru
á ilina. Svo fór að grafa í þessu. Er á
batavegi og haltra um með gamlan staf sem ég erfði eftir
afa minn. Verð samt vonandi orðinn spinninghæfur á
ný þegar þessi spinningtími aldarinnar rennur
upp:
Dr.
Spock - Doctor patient relationship
Já, krakkar mínir, Falcon Christ er kominn út.
Snargeðveik rokkplata sneisafull af snilld. Nú, og svo er Falcon
Christ sápuóperutreilerinn, kominn á netið!
---
Hér eru nokkrar fallegar litmyndir frá Íslandi
úr veglegri umfjöllun The National Geographic í nóvember-hefti
1951. Ég vona að þetta hleypi í þig þjóðarstolti
og ættjarðarást. Ég allavega belgist allur út,
þótt ég sé alveg til í ESB líka.
Eða allavega að heyra prós og kons. Hér hafa allir
farið í sitt fínasta púss þegar fína
erlenda ljósmyndarann bar að garði. Mér finnst allt
í kei með ættjarðarást. Ekki þannig að
við þykjumst vera eitthvað merkilegri en aðrir, heldur
að við séum bara svona eins og við erum og gerum þá
allavega okkar besta.
 |