25.09.09
Ágætis gigg í gær á Nasa. Sá svo eitt lag með Morðingjunum á Sódómu. Ég og Grímur vorum elstir á svæðinu eins og einhverjir ellismellir. Vantaði bara leðurlíkisjakka og kombóver. Við féllum betur í hópinn á Megasi á Nasa. Sá 3 lög. Hjörleifur Valsson sargaði á fiðlu yfir allt og KK blés í munnhörpu. Dáldil ofhleðsla kannski, en góð lög og ég væri alveg til í að sjá heilt gigg seinna þegar ég þarf ekki að fara svona snemma að sofa.
---
Árni Matt og Arnar Eggert eru enn með vinnu á Mogganum svo menningunni er borgið. Veit ekki um snillinginn Halldór Baldursson, en ég hlakka allavega til að sjá myndina hans á morgun.
---
Guðrún Helga tók ágætis viðtal við mig fyrir dagskrárblaðið Birtu. Vesgú:

24.09.09
Sá Hannes Hólmstein koma askvaðandi og skælbrosandi að Hagkaup út á Nesi áðan (kl. 17:45). Svona eftir á að hyggja þá hefur hann nú varla verið að fara að versla í Hagkaupum. Ég óskaði honum til hamingju með daginn og hann sagði að ég væri annar maðurinn í dag til að óska honum til hamingju, hinn væri Svanur samkennari hans. „Ég skil bara ekkert í þessu,“ sagði Hannes og brosti ennþá meira.
---
Já og svo tók ég viðtal við Gunnar í Krossinum í morgun. Sjá Fbl. á laugardaginn. 
---
Rétta -giggið í kvöld á NASA. Þetta eru nákvæmar tímasetningar:

23.00 Hjálmar
22.00 Megas & Senuþjófar
21.00 Dr. Gunni
---

Ég er ekki búinn að fara í nýju búðina hjá Ingvari ennþá en er á leiðinni. Hér er grein úr Fbl í dag: Á Hverfisgötu 82 hefur Ingvar Geirsson opnað plötubúð, Lucky Records. Ingvar hefur staðið vaktina með plötubás í Kolaportinu síðastliðin tvö ár og er óhætt að segja að hann hafi náð einna mestri sérhæfingu í vínylplötusölu á Íslandi. Nýja búðin er blautur draumur sérhvers plötusafnara.
„Það er náttúrlega miklu meira úrval í búðinni en í Kolaportinu," segir Ingvar Geirsson um nýja plötubúð sína á Hverfisgötu. „Ætli þetta séu ekki svona 20-30.000 notaðar vínylplötur og 8.000 tólf tommu plötur. Ég er líka með nýja geisladiska og tónlistar-DVD. Ég stefni svo að því að vera með notaða diska líka."
Plötubúðin verður opin frá klukkan ellefu á morgnana til níu á kvöldin á virkum dögum, en um helgar heldur Ingvar áfram með básinn í Kolaportinu. „Nei, ég ber ekki lagerinn á milli, það er mismunandi úrval," segir hann. Um ástæðu þess að plötubúðin sé opin til níu á kvöldin segir Ingvar: „Ég loka ekki á vinnandi menn. Mér fannst það ekki meika neinn sens að hafa bara opið til sex. Sjálfur var ég alltaf að vinna til klukkan sex svo ég hefði aldrei komist í búðina. Svo er bara svo mikið úrval að það verður að vera langur afgreiðslutími til að fólk komist yfir þetta. Fólk á að koma til að gramsa."
Eins og gefur að skilja er Ingvar forfallinn tónlistaráhugamaður og helst gefinn fyrir hinar ýmsu gerðir af blökkutónlist: „Sálartónlist, fönk, reggí, djass og hipphopp eru mínir stílar, en í búðinni fæst miklu fleira. Hér er hellingur af íslensku efni og rokki og poppi og öllu þar á milli."
Hann segir pabba sinn hafa verið mikinn vínylkall og þaðan hafi bakterían sprottið. „Ég byrjaði að kaupa hipphopp um 1984 þegar ég bjó í Svíþjóð og hef alltaf safnað plötum. Ætli ég sé ekki með svona 15-17.000 plötur heima, en eitthvað af því fer í búðina. Ég féll aldrei fyrir geisladiskunum, hef aldrei átt nema kannski svona 250 diska í einu. Það er bara miklu meiri fílingur í plötunni, artvörkið er allt veglegra og sándið fyllra. Svo skilst mér að líftíminn sé lengri."
---
Vinn annars hörðum höndum að næstu útgáfu Erðanúmúsikur (E-26). Er um að ræða best-of plötu með meistara Insol, valið efni af fyrstu átta plötum meistarans. Platan er væntanleg því nauðsynlegt er að gefa fólki auðmeltanlegan skammt af þessari snilld allri. Átta plötur (með lögum allt upp í 37 mínútur að lengd!) er kannski full hefí skammtur, þótt eðlilega muni fólk vilja komplítera meistarann síðar.

23.09.09
Réttir og vesen. Dr. Gunni spilar á Nasa annað kvöld, líka Megas og Hjálmar. Svona lítur kvöldið út:

Thursday, September 24
POPPLAND & BORGIN
23.00 Hjálmar
22.00 Megas & Senuþjófar
21.00 Dr. Gunni

Mæta, e haggi?! Byrjað verður á slaginu 21, enda Haukur bassaleikari bókaður tvisvar annars staðar sama kvöld með Morðingjunum. Það þýðir því ekkert að hanga yfir þessu jafnvel þótt enginn verði mættur. Byrjað á slaginu 21 og ekkert rugl.
---

Alveg er möst að sjá Pönksýninguna í Kópavogi. Tónlistarsafnið er með síðu og þar má sjá haug af myndum frá opnunni. Enn spyr ég hver hinn dularfulli teiknimyndapönkari sé (hér að ofan). Veit það einhver?! Það eru allir að klóra sér í hausnum yfir þessu. Er þetta kannski Davíð Oddsson? Sýningin stendur til 18. desember. Í september og október verður sýningin opin alla daga vikunnar frá kl. 11-16. 
---

Morðingjarnir - Manvísa
Hinir svívirðilegu pönkarar í Morðingjunum eru tilbúnir með plötu númer þrjú. Flóttinn mikli. Það ætti að vera gleiðrennireið til Unaðsvallar því síðasta plata var alveg að gera sig. Fréttahaukur Kima sendi tilk: Popppönkhljómsveitin Morðingjarnir hafa nýlokið við upptökur á þriðju breiðskífu sinni, en hún mun heita Flóttinn mikli og kemur út 10. nóvember hjá Kimi Records. Í tilefni af þessum tímamótum senda Morðingjarnir frá sér nýtt lag í spilun á útvarpsstöðvum og vefsíðum landsins í von um vinsældir og gróða. Lagið heitir Manvísa og sérstakur gestur í laginu er Katrína Mogensen úr Mammút en Haukur Morðingi og Kata flytja sannkallaðan ástardúett með pönkívafi. Morðingjarnir munu svo koma fram á réttum nú um komandi helgi. Þeir spila á Kimi Records+Mugiboogie kvöldi á Sódómu Reykjavík fimmtudagskvöldið 24. september og svo á Eistnaflugskvöldi á Grand Rokk sama kvöld.
---

Valrós - Imagine
Hér er hljómsveitin Valrós (næstum því Walrus) með gott lag. Fólk er alveg hætt að senda innlegg í ÍHNB en mér datt eitt í hug áðan, Véspá (eða Vespa). Dáldið líkt þungarokksnafninu Vígspá. En allavega, Valrós sendi tilk: Hljómsveitin Valrós var stofnuð á haustmánuðum 2007. Sveitin var dugleg við spilamennsku sumarið 2008 og lék nokkrum sinnum í miðbæ Reykjavíkur við góðar undirtektir. Þá um haustið fluttu tveir liðsmanna hennar erlendis og lögðust þá æfingar og spilamennska að mestu leyti af í bili. Nú hefur sveitin loks brugðið sér í hljóðver og hér er afraksturinn, lagið Imagine eftir Egil Halldórsson, söngvara Valrósar. (Mæspeis)

22.09.09
Fjölskylduáætlanir og siðfræði kynlífs eftir Hannes Jónsson félagsfræðing er mikil grínbók sem Félagsmálastofnunin gaf út 1964. Hannes og fjölskylda bjó í blokkinni í Kóp og var nokkur umgangur á milli fjölskyldna og þess vegna rataði bókin til okkar. Maður hló mikið að bókinni sem unglingur og hún er ennþá sprenghlægilegt barn síns tíma. Hér er sýnishorn úr kaflanum um „frjóvgunarvarnir“:

Mjög góð aðferð til að prófa smokk. Ég nota hana alltaf áður en ég set á mig smokkinn sem ég er að nota í sjöunda skipti. Hvað er annars „flatur skinnsmokkur“?
---
Kynlífsfræðslubylting Kinsleys var í gangi á þessum tíma og Hannes var alveg með á nótunum:

Athyglisvert er að sjá hvernig talað er nánast um konur sem húsdýr sem ber að handleika á ákveðinn hátt. Hjúkkitt, það er eins gott að stunda ekki kynferðislega rányrkju á konunni svo hún verði ekki þreytt og þrasgjörn og fái jafnvel um síðir taugaáfall. Er þetta ekki annars ágætis pikköpplína:  Hæ sæta, viltu koma heim að stunda kynferðislega rányrkju? 
---
Kaflinn um öfuguggahátt hafði auðvitað mest dulmagn en þess má geta að árið 1964 hefði engum, jafnvel í sínum villtustu órum, dottið Gay Pride í hug:

---
Þar hafiði það. Nú er bara að skella sér út og „gera kynlíf“ eins og Gulli sendill kallar það. Kostar ekki neitt og er sígilt stuð. Bókina ætti svo að vera hægt að nálgast á bókasöfnum og ég mæli með henni. Hún er gríðarlega skemmtileg.
---

The Flaming lips - The Ego's Last Stand
Embryonic er glæný tvöföld og 18-laga plata frá Flaming Lips. Bandið hefur verið á poppuðum slóðum á síðustu þremur LPplötum en gefa nú skít í allt og allt og eru hnausþykkir og tyrfðir og bara í helvíti víruðum gír á plötunni nýju. Hef renntenni einu sinni í gegn og held ég muni hafa hana á fóninum lengi enn því maður þarf að hafa fyrir þessu, sem er alltaf gaman. Vírbundið gæðaskronk og þar sem maður veit að bandið er æði gefur maður þessu séns út í næstum því hið óendanlega. Giggið með þeim í Höllinni er eitt af þeim betri sem maður man eftir.
---
Sá rosalega flotta ljósmynd af einhverjum vita uppi á rosa háum kletti rétt hjá Vestmannaeyjum í sunnudagsblaði Moggans. Myndin var í bullandi litum á heilsíðu. Ég vissi nú ekki að það væri til svona töff viti á svona töff kletti á Íslandi. Mig langar í þessa mynd upp á vegg. Svona á Mogginn að gera meira af, blasta gríðartöff heilsíðum og jafnvel bjóða upp á að hægt sé að kaupa myndirnar sem plaggöt. Það væri vitaskuld geðveikt ef Davíð Oddsson yrði ritstjóri, bara verst hvað allir þurfa alltaf fá æðiskast þegar hann ber á góma. Maður er satt að segja orðinn frekar þreyttur á þessu Davíðs-æðiskasti sem þjóðin fer í með reglulega millibili. Slappiði nú bara af, andskotinn hafiða. Hverjum er ekki sama hvað Davíð Oddsson er að bedrífa? Væri samt enn betra ef hann byrjaði aftur með Matthildi. Hann hefur aldrei náð að toppa það, finnst mér. Allavega ekki grínlega séð og annað skiptir minna máli.

20.09.09
Þetta heyrði ég í fréttunum í gærmorgun: „Maður um tvítugt sást kviknakinn á reiki í Skeifunni í nótt. Er lögreglan kom á vettvang var maðurinn kominn inn í Office 1 og gekk þar í hringi. Maðurinn var í annarlegu ástandi og er talið að hann hafi verið í sveppavímu.“ - Note to self: Fara varlega í sveppina. Samt gott að hafa ritfangaverslun opna allan sólarhringinn ef maður fer einhvern tímann yfir um á sveppaáti.
---
Reyndi að horfa á mynd með Dennis Quiad í gær en hún var of róleg. Eða ég of syfjaður. Heitir Smartpeople og er ein af þessum amerísku myndum fyrir og um gáfufólk. Aðalsöguhetjan er kennari og alltaf í brúnum flauelsjakka. Það bregst ekki í þessum myndum að hann keyrir á gömlum Volvo. Dennis var reyndar á gömlum Saab.
---
Steinn komst yfir haug af ævagömlum 50s og 60s sjö tommum og gaf mér. Allar með stóru gati fyrir djúkbox. Við erum að tala um plötur með dúvoppliði eins og Dell-vikings upp í Na na hey hey með Steam, allt gauðrispað og æðislegt. Ég sló upp balli með þessu og fjölskyldan dansaði eins og hún ætti lífið að leysa inn í kompunni minni. Gaf mér þá hugmynd að kaupa kompakt græju til að hafa inn í stofu svo hægt sé að slá upp balli með gauðrispuðum plötum á laugardögum. Mér finnst einum of að fá mér djúkbox en næsti bær eru æðislegar græjur sem ég rakst á frá Crosley framleiðandanum.  Það er meira að segja hægt að spila kassettur! (Stungið inn á hlið).

Gömlukalla innkaupalistinn samanstendur þá af Crosley græju, tvöföldum ísskáp með klakavél, La-z-boy (ef við finnum einhvern sem Lufsan samþykkir) og Ford Mustang. Gott að hafa þetta til að stefna að fyrir fimmtugt.
---
Opnun Pönksýningarinnar í Kóp var vitaskuld algjört æði. Þarna var allt liðið mætt aftur, ævagamlt og visnað. En samt hresst. Frikki pönk er sá eini sem enn heldur dampi í pönkinu og einhver annar pönkari reyndar líka, gamall í hettunni teiknimyndapönkari. Hann sést hérna fyrir aftan mig - veit einhvern hvaða maður þetta er?!

Þarna erum við Steinn að skoða líkan af Kópavogi þar sem helstu staðsetningar pönksins hafa verið merktar inn á. Frábær hugmynd. Þéttskrifaðar dagbækur mínar frá 1980 og 81 eru þarna í glerkassa innan um fleira gamalt drasl:

Öxin hans Bjarna Móhíkana er líka inn í skáp:

Ég er að stela þessum myndum af Facebook-síðu Ragnars Jónssonar, en hann var hluti af mixdúóinu "Bölvar og Ragnar". Þarna voru nokkrar myndir af F/8 að spila í Snælandsskóla þar af ein sem sýnir glæstan bakhlutann á mér að spila fyrir liðið. Bjössi bassaleikari var þarna (orðinn vinur hans á Facebook!) og hann sagðist luma á þessum myndum einhvers staðar og gæti skannað og sent mér. Svo heyrði ég í HFF spila Buzzcocks-legt hressirokk og Fræbbblarnir Stebbalausir (með Gumma í Tappanum á trommum) renndu í nokkra slagara. Stebbi var í salnum að horfa á og þetta var allt frekar Spinal tappað. Vonum aðða endi vel. En það er allavega heilög skylda allra að mæta á þessa sýningu. Hún verður opin til jóla.
---

Hjaltalín - Stay by you
Enn halda Hjaltalínkrakkar áfram að hita mann upp fyrir næstu plötu. Hér er eitt alveg glimrandi og gullfallegt lag. Svífur um í Curtis Mayfield/Burt Bacharach fílingi, þar til það dettur í súpersætt og sæluríkt viðlag. Frábært lag! Og maður getur ekki annað en nagað neglurnar í ofvæni eftir plötunni. Um málið hafði fréttafulltrúi hljómsveitarinnar eftirfarandi að segja: Hljómsveitin Hjaltalín hefur sent frá sér nýtt lag í útvarpsspilun og nefnist slagarinn Stay By You. Hjaltalín hefur frá áramótum unnið hörðum höndum að sinni annarri breiðskífu, milli þess sem sveitin hefur verið óþreytandi við spilamennsku erlendis auk annarra verkefna hér heima.
Fyrsta tóndæmið sem almenningur fékk að heyra af væntanlegri plötu var hinn þungi og taktfasti smellur Suitcase Man sem var algjör 180 gráðu snúningur frá lögunum sem höfðu farið í spilun þar á undan, Sjómannavalsinn og Þú komst við hjartað í mér.
Með Stay By You tekur Hjaltalín enn eina 180 gráðu beygjuna. Lagið er án vafa það rólegasta sem Hjaltalín hefur sent frá sér í spilun en um það leikur yndisfríður þokki með vægum trega og margslungnum útsetningum. Lagið samdi Högni, söngvari og gítarleikari Hjaltalín, en textann sömdu Rebekka, fagott, Sigríður, söngkona, og Steinþór Helgi, umboðsmaður, meðan þau keyrðu sendiferðabíl sveitarinnar á tónleikferð um Bretland í vor.
Sem fyrr er það Sigurður Guðmundsson sem stjórnar upptökum en þess má til gamans geta að félagi Sigurðar til margra ára, Guðm. Kristinn Jónsson (Kiddi Hjálmur), hefur nú bæst í upptökuteymið sem vinnur þessa daganna hörðum höndum að því að klára plötuna í Hljóðrita í Hafnarfirði. Enn er þó ekki vitað hvenær gripurinn dettur í verslanir. Semsé, mér sýnist það enn ekki ákveðið hvort platan komi fyrir eða eftir jól.

19.09.09

Það fór eins og það fór. Ljótu hálfvitarnir tóku þetta glæsilega en Jeff stóðu djöfull í hárinu á þeim lengi framan af. Ég var farinn að halda að ég þyrfti að finna bráðabanapokann. Það þurfti ekki enda tóku Ljótu rosalegan endasprett, eða grísuðu öllu heldur á rétta valflokka. Líkur þá PPPPsísoninu í bili en mér skilst að við snúum aftur með hækkandi sól enda fullt af böndum eftir að keppa í PPPP!
---

Það voru ekki farsímar með myndavélum til forna svo það eru engar myndir til að pönkhljómsveitinni F/8. Ekki svo ég viti allavega. Þetta var glæsilegt band skipað Tryggva Þór gítarleikara Fræbbblanna sem söng, Birni Gunnarssyni á bassa (síðar í Dron), Hauki Valdimarssyni (gullsmiður í Carat í dag og átti eftir að tromma á fyrstu árum S.H.Draums) og mér á gítar. Ari Einarsson, hinn unglingurinn í Fræbbblunum, spilaði smá undir lokin á gítar með bandinu, m.a. á Snælandsgigginu. Bandið var stofnað í vinnuskólanum í Kóp og fyrsta giggið var að spila samnefnt lag í þætti um Vinnuskóla Kópavogs sem var í einhverjum unglingaþætti í Ríkisútvarpinu (eina stöðin á þeim tímum). Þetta var í byrjun sumars 1980. Svo hékk bandið í pilsfaldi Fræbbblanna og hitaði upp. Anal-ég gerði auðvitað giggografíu. Músikin var tilgerðarlaust popppönk, Ramones og Fræbbblarnir og smá raggífílingur í bland. Bandið liðaðist sundur þegar maður vildi fara að gera eitthvað flóknara og „dýpra“. Ég seldi allar Ramones-plöturnar og maður helti sér í The Fall, Þeysara o.s.frv. 

F/8 - Vinnuskólinn (úr Gufunni, biðst aðsökunar á þulunum sem eyðileggja lagið)

+ Næstu fjögur lög voru tekin upp í bílskúrnum heima hjá Bjössa bassaleikara, Hrauntungu 2 eða 4. Hef ekki hugmynd um hvenær en augljóslega á tímabilinu 1980-1981.
F/8 - Útjaskaðir nemendur
F/8 - Bókassa
F/8 - Bölvun fylgi þeim (í lok upptökunnar má heyra mömmu Bjössa stinga hausnum inn í hávaðabílskúrinn og segja að klukkan sé orðin hálf átta og því líklega kominn matur eða hávaðaleyfi dagsins runnið út. Þess má einnig geta að Morðingjarnir tóku ilmandi kóver af laginu á Áfram Ísland! plötunni.)
F/8 - Kennari (Fyndin martröð)
+
F/8 - Tónleikar í Snælandsskóla 30/04/1981 - 29 mínútur af ýlfrandi oðentik Kóp-pönki. Um upptöku sá Steingrímur Birgisson. Þarna er mikið af límsniffandi og æpandi gelgju. Bandið var mikið að stilla og leika sér á gítara og bassa. Ekki mjög pró. F/8 náði samt að lokum að flytja lögin:
1. Blitzkrieg bop (Ramones)
2. Númer
3. Raggae-partur Bjössa (skissa)
4. Útjaskaðir nemendur
5. So what (Crass)
6. Bölvun fylgi þeim
7. Now I wanna be a good boy (Ramones)
8. Sadistar
9. London's burning (Clash)
10. Vinnuskólinn
11. Belsen was a gas (Sex pistols)
12. So what (Crass - aftur!)
13. Last
---
Ég er náttúrlega í þessu F/8-nostalgíukasti af því sýningin Heilbrigð æska, Pönk í Kópavogi, hefst í dag kl. 15 í Tónlistarsafni Íslands við Hábraut 2 í Kópavogi (einhversstaðar þarna í fína menningarklasanum á Hamraborgarbrúnni) . Ég hef ekki séð hvernig þetta lítur út en á von á góðu. Meiningin er að sýna í eitt skipti fyrir öll fram á það að vagga pönksins á Íslandi sé í Kópavogi. Við opnunina spila Blóð og HFF, sem er nýtt band Árna Daníels úr Taugadeildinni og Q4U. Fræbbblarnir áttu að spila líka en það er eitthvað á huldu enda hafa þeir gömlu fóstbræður í pönki, Valli og Stebbi, eitthvað verið með vesen í hvors annars garð upp á síðkastið (án þess að ég þekki það til hlýtar) og því eru Fræbbblarnir að öllum líkindum óstarfhæfir. Það er náttúrlega hálf glatað ef Fræbbblarnir geta ekki spilað þarna því Fræbbblarnir VORU pönkið í Kópavogi og á við heila æskulýðsstofnun. Lengi lifi hinir heilögu Fræbbblar! 
---

Retrön - Toll of Forgotten Temple
8-bitametall er klístur kúl og Retrön jarma á bitanum fyrir allan peninginn á Swordplay and Guitarslay, sem er ekki bara plata heldur einnig leikfang. Eins og sjá má er goðumlíkt gúmmilaði til upphitunar og engin ástæða til að væla yfir því. Sérstaklega ekki þar sem það er FRÍTT INN!!!
---
Hér er svo ógeðslega fyndin auglýsing sem fjallar um tilurð lagsins Life is Life með Opus. 

18.09.09
Fimmtu önn Popppunkts lýkur í kvöld. Annað hvort Jeff Who? eða Ljótu hálfvitarnir bætast á skjöldinn sem er greiptur í farandbikarinn. Þar eru fyrir: 2002: Ham / 2003: Ensími / 2004: Geirfuglarnir / 2005: Milljónamæringarnir. Ég veit svo sem ekkert um það en ég á fastlega von á því að þetta verði geðveikur leikur enda í beinni og þá, eins og fólk veit, getur allt gerst.
---
Var á Rás 2 að röfla eitthvað um geðveika sýningu sem opnar á morgun í Kópavogi. Freyr kom með þá frumlegu tilgátu að bankahrunið sé pönkinu að kenna. Útrásarvíkingar et al hafi gert orð Einars Arnar - Það er ekki málið hvað maður getur heldur hvað maður gerir - að sínum og rúmlega það.
---
Ég þarf annars að vera með meira Kópavogspönk hérna á morgun (þar á meðal nýfundnar upptökur með pönkhljómsveitinni F/8), en núna kemur fréttatilkynningin:

Næstkomandi laugardag Á morgun opnar sýningin Heilbrigð æska, pönkið og Kópavogurinn 1978-1983. Sýningin opnar kl. 15.00 og er haldin á Tónlistarsafni Íslands við Hábraut 2 í Kópavogi. Klukkan 15.30 hefjast tónleikar á efri hæð hússins þar sem gamlar pönkhljómsveitir í bland við nýjar, troða upp (innskot: að ég held Blóð, HFF og Fræbbblarnir). Að loknum tónleikum er gestum velkomið að ganga niður í gömlu undirgöngin sem verða opnuð á ný í tilefni af sýningunni.
Tilgangur sýningarinnar er að varpa ljósi á pönkmenninguna sem myndaðist í Kópavogi á árunum 1978-1983. Auk þess verður farið yfir sögu pönksins á Íslandi og verða munir frá tímabilinu almennt, til sýnis. 
Pönkið og Kópavogurinn eru tengd sterkum böndum. Hljómsveitin Fræbbblarnir var stofnuð í MK veturinn 1978 með tónleikum á fyrstu Myrkramessu skólans. Pönkhljómsveitirnar Snillingarnir, Taugadeildin og Þeyr höfðu allar á að skipa meðlimum úr Kópavoginum en auk þess voru starfræktar fjöldinn allur af hljómsveitum í bænum sem reglulega tróðu upp við margvísleg tilefni líkt og F-8, Dordinglar, Geðfró, Stífgrím og NAST. 
Frá Kópavogi barst pönkhljómurinn og hljómsveitir voru stofnaðar víða um land. Því má segja að Kópavogurinn hafi verið vagga pönksins. Pönkæði greip um sig meðal ákveðins hóps ungs fólks og áttu Fræbbblarnir, ásamt öðrum hljómsveitum úr Kópavogi, stóran þátt í því. 
Sýningin á Facebook.

17.09.09
Kreppa eða góðæri er að megninu til bara spurning um hugarfar. Góðæri myndast þegar menn gleyma því að á Íslandi búa bara rétt yfir 300.000 manns. Það fer snögglega allt að fljóta í peningum og menn taka trylling. Kreppa er svo það þegar menn muna að hér búa bara rúmlega 300.000 og eru hræddir um að helmingurinn sé að flytja í burtu. Það er alltaf ringing og enginn peningur til. Bú, hú. Sjálfur „finn ég ekki svo mikið fyrir kreppunni“ enda er enn opið fyrir internetið og amerískir dagar í Hagkaupum. Ég er nú ekki flóknari en þetta. Til að auka enn þá tilfinningu að „botninum sé náð“ og að allt „stefni uppávið“ (hvar sem það endar er svo önnur saga) eru vinir mínir hjá Kjörís aftur byrjaðir að flytja inn Ben & Jerrys ísdollur. Sá það í Hagkaupum í gær. Fjórar tegundir voru til, þar af ein ný, Caramel chew chew, sem ég keypti umsvifalaust á 998 kall. Ég var reyndar að vonast til að það yrðu fleiri nýjar tegundir, enda svo geðveikt margar til, en maður tekur því sem að höndum ber. Ætla að éta úr dollunni á laugardaginn -  mmmmm - en hinir í fjölskyldunni fá líka. Smá. Talandi um mmmmm, þá hefur „Guffi á Gauknum“ opnað allspennandi veitingasjoppu á móti Vínberinu á Laugavegi og kallar hana Mmmmm. Matsalan er all nokkuð erlendis á að líta með erlendis matvali og fjandi lokkandi. Þarf að tékka betur á henni. Guffi vill auka morgunverðarmenningu á Íslandi, segir hann. Hér er ekkert nema cheerios á línuna. Í New York er svo kúl að sjá alla fara og fá sér morgunverð áður en þeir fara að vinna í háhýsunum (hvað svo sem maurarnir eru nú annars að gera þar). Það hefur helst verið á Kaffitári í Bankastræti sem maður sér svona smá kosmópólitan-fíling í þessu, eða Gráa kettinum eða Prikinu. Ég vildi að maður mætti í gráum frakka með hatt á neonlýstan matstað, fengi sér ilmandi æðasprengjandi „trukk“ , spjallaði við Doris gengilbeinu og færi svo að vinna. Nei nei, það er ekkert þannig. Bara Biojógúrtdós (kókos) og svo hjólar maður með buxurnar girtar ofan í sokkana í endalausri rigningunni og allir í þunglyndiskasti og drasl. Nei nei, hvaða hvaða. Muna geðorð nr. 1: Hugsaðu jákvætt, það er léttara (sem er reyndar haugalýgi því það er miklu auðveldara að sjá það neikvæða í öllu. Það er bara svo fjandi slítandi og leiðinlegt til lengdar).
---

Hjálmar - Það sýnir sig
Bindindsmennirnir í Hjálmum eru að gefa út saman í pakka nýja plötu IV og dvd með heimildarmyndinni Hærra ég og þú. Myndin fjallar um gerð plötunnar. Strákarnir gerðu þetta alvöru, fóru til Jamaika og í Tuff Gong og annað hljóðver og fengu gulltennta blökkumenn í aukahlutverk. Útkoman er úrvals raggí á íslensku, eins og bera ver. Þarna er náttúrlega innanborðs vinsælasta lagið á landinu í dag, Manstu.
Plögga skaltu herra: Fréttatilkynning frá Hjálmum og gogoyoko.com. Fjórða hljómplata Hjálma, IV, er nú fáanleg á gogoyoko.com. Platan kemur í verslanir þann 21. september, en þangað til verður eingöngu hægt að kaupa hana á stafrænu formi á gogoyoko.com. Einnig verða allar eldri plötur Hjálma (Hljóðlega af stað, Hjálmar og Ferðasót) seldar á sannkölluðum spottprís hjá gogoyoko.com fram til 21. september. Verð hverrar plötu er aðeins 4,50 evrur (um 800 íslenskar krónur). IV var tekin upp í Hljóðrita, Hafnarfirði og í Tuff Gong og Harry J Studio á Jamaíka í vor. Á Jamaíka fékk hljómsveitin til liðs við sig ýmsa þaulreynda innfædda tónlistarmenn sem setja sitt mark á lopapeysureggíið sem Hjálmar eru þekktir fyrir. Síðasta plata Hjálma, Ferðasót, kom út árið 2007 en það er ljóst á eftirspurninni og áhuganum núna að IV er beðið með mikilli óþreyju.
Hjálmar IV á gogoyoko.com + Hjálmar á gogoyoko (með eldri plötum).

16.09.09
Jæja. Þá þarf Jón bara af stofna Haugur og kaupa allt stöffið aftur. Með láni frá, uh, ööö, tja? „Ég á fyrir diet-coke. Það er nóg“. Ég þakka Jóni Ásgeiri fyrir að vitna í mig (ég sagði reyndar strigaskó, ekki diet-coke). Diet-coke er samt ansi slappur drykkur, Light coke er til að mynda mun betri og er alltaf drukkinn á mínu heimili. Ef Jón hefði sagt „Appelsín“ hefði hann jafnvel fengið nokkur plússtig, „Malt“ enn fleiri. Ekki mörg samt. Nú hlýtur næsta skref aðgerðasinna vera að hella niður öllu diet-coke á landinu. Eða sprengja Vífilfell í loft upp. 
---
Talandi um aðgerðarsinna þá hafa nokkrir hressir krakkar í Háskólanum gert ljómandi fallega síðu.
---
Þessi könnun er ferleg fyrir forsetann. Maður vorkennir karlgreyinu eiginlega, þetta er hvílíkt högg. Eitt prósent!? Og Vigdís með 4.5%! Ekki gat ég séð að það væri mikið verið að tala um þessa könnun í sjónvarpsfréttunum í gær. Enginn að fá viðbrögð forsetans og svona. Kannski eðlilega.
---
Tímarit er geðveik uppspretta fortíðar. Sem unnandi þess að hanga yfir gömlum dagblöðum fagna ég nú að geta gert það rafrænt. Ég rakst á síglettinn EIR að reka garnirnar úr blautum bakvið eyrað Bjarna Ármanns. DV 3. nóv 1999. Loki góður líka:

Bjarni er mikill frömuður í því að setja þjóðina á hausinn. Eða nei, hann er alveg saklaus af því. Ég bíð alveg spakur eftir niðurstöðunni hræðilegu 1. nóv. Ég man að minnsta kosti eftir Bjarna litla í sjónvarpinu, líklega í viðtali hjá Agli, um nýja peningakerfið sem var í uppsiglingu í kringum aldamótin. Ég man sérstaklega eftir því að hann talaði um að eftir örstuttan tíma væru „3000 manns orðnir vell-auðugir," - gott ef ekki milljarðamæringar. Helvítis peningaleiðindi alltaf.
---
Engin umræða hefur verið um bíóferð Jóns og Bryndísar sem Fbl greindi frá í gær. Þau fóru á viðbjóðsmyndina Antichrist eftir Lassa vitlausa frá Danmörku. Það kom fram að Jón fór út í miðri mynd en Bryndís hélt út en varð svo mikið um að hún „hellti í sig brennivíni“ þegar hún kom heim til að ná úr sér viðbjóðnum. Ekki ætla ég að sjá þessa mynd. Von Trier finnst mér ömurlegur leikstjóri og ég er fyrir löngu hættur að þykja eftirsóknarvert að þykjast vera nógu harður til að þola svona bíóviðbjóð. Slökkvitækjaatriðið í Irreversable er mér enn í fersku minni. Ég skreið upp í hjá mömmu og pabba 14 ára eftir að ég sá Friday the 13th og þorði ekki að glápa á Texas Chainsaw massacre á Beta spólu 1981. Já já, ég er algjör kettlingur og kelling.

15.09.09

Bubbi á Færibandi (úr Mið-Íslandi)
Það er aldrei nóg af góðu gríni. Og aldrei nóg af Bubba Morthens-eftirhermugríni heldur. Nú eru að hasla sér völl þessir hérna að ofan - Ari Eldjárn, Árni Vil, Dóri DNA, Bergur Ebbi og Jóhann Alfreð - og þeir kalla sig Mið-Ísland. Það sama heitir útvarpsþáttur í umsjón Bergs Ebba á Rás 2 kl. 3 á sunnudögum (heimasíðan er hér - hægt að stríma). Ég hef ekki hlustað nógu mikið á þennan þátt, að hlusta á útvarp er ekki alveg það sem maður gerir einna mest af um helgar, en margt er alveg fínt samt sem ég hef heyrt. Umtalaðasta atriðið til þessa er sketsið hér að ofan. Ari Eldjárn er Bubbi og Jóhann Alfreð eru þeir sem hringja inn. Heimsklassa eftirhermugrín! Hópurinn ætlar að vera virkur í uppistandinu í vetur og ekki veitir af. Um að gera að hlæja sig í gegnum ruglið. Tja, eða vera ennþá ógeðslega reiður og blogga sig bláan.


Dj Musician - I put my hand up in the air (with Foxy Princess)
Já, eða dansa sig í gegnum ruglið og þá helst með iðandi groddateknó Dj Musicians (Pétur Eyvindsson) í eyrunum. Platan Sehr gut cocktail var að detta í hús (12 tónar) og er full af stuði og hressleika. Þetta er önnur platan í fullri lengd, My friend is a record player kom út fyrir 5 árum. Dj Musician er líka með plötuna á Gogoyoko.

14.09.09
Páll Skúlason já. Við Steini Sleggja sátum yfir honum í andakt í kassanum hjá Agli og Steini stundi upp með stjörnur í augum að líklega sé Páll gáfaðasti Íslendingurinn. Þótt það sé náttúrlega kjaftæði, af því við drepumst öll og svo brennur sólin upp, þá vantar samt einhvern talandi haus til að draga vagninn. Það gekk ekki alveg að draga vagninn af græðginni einni saman, það þarf gott gáfumenni til að blása lýðnum eldmóð í brjóst. Ekki kannski Castro eða Kim il-sung-stæl, en a.m.k. eitthvað. Jóhanna gæti alveg gert þetta og þessir aðstoðarmenn hennar ættu að skipuleggja vikulega Áfram Íslandi messu í beinni. Nóg bara 10 mínútna brífing og smá pepp í lokin. Það vantar samt kannski smá blóðhita í hann Pál til að það væri hægt að tefla honum fram sem forseta (nema við viljum annan Eldjárn - sem er fæn bæ mí), en ef það væri hægt að hækka blóðhitann í honum um 20% (tala með minna svæfandi röddu) flygi hann á Bessastaði um leið og hinn lætur sig loksins hverfa.
---
Sigfús er að gera góða hluti í norska X-factor. Mér er sagt að Sigfús hafi rekið hinn goðsagnakennda (er „goðsagnakennda“ ofnotaðasta lýsingarorð í heimi?) Hómer ís á Hverfisgötu. Mér finnst þetta nú bara fínt hjá Fúsa og skil ekki þessi leiðindarkomment sem fólk er með. 
---
Keypti sex plötur hjá Ingvari í Lucky records í gær:
Lene Lovich - Flex (önnur plata listakonunnar, ágæt en ekkert sem kemst með tunguna þar sem „Lucky number“ hefur úfinn).
John Lennon - Walls & Bridges (er þá sóloplatnagerð Lennons komplíteruð, held ég sé ekkert að eltast við flippplöturnar sem hann gerði með Ono).
OMD - Organisation (Enola Gay er frábært lag!).
Human League - Reprodction (fyrsta plata Humara og snarbrött í sínum listræna poppmetnaði).
Queen - Sheer heart attack (komplíterun á Kvín lýkur þá brátt).
Colin Newman - Not to (Colin er poppaðasti hluti hinnar stórfenglegu hljómsveitar Wire og hér með sólóplötu númer 3. Fyrir þá sem ekki vita eru fyrstu 3 plötur Wire hið heilaga gral póstpönks og möst haf. Í sólóferlinum voru menn þó frekar álappalegir. Colin gerði reyndar ágætis popp en hinir stofnuði Dome, sem var hundleiðinlegt band. Þetta er reyndar allflókinn katalókur sem ég hef ekki hangið yfir. Einhver úr Wire sagði víst við meðlimi Stilluppsteypu að þeir ættu að henda gíturunum sem og þeir gerðu. Wire hafa staðið í ást/haturs-sambandi við gítara og elskast með svuntuþeysurum þess á milli, en síðast þegar ég vissu voru þeir aftur farnir að glamra á sexstrengina á sínum nýjustu og gallhörðu plötum. Kannski maður leggist í smá Wire-fix núna. Þeir hljóta sífellt að vera með kombökk sem maður getur stefnt á að sjá.) 
---
Leiftur úr fortíðinni #1: Á fótboltavellinum var strákur sem var kallaðir Svunti. Hann var brjálaður yfir þessu nafni og elti alla með lurk sem kölluðu hann þetta. Ég gerði það aldrei.
---
Úrslita-PP er á föstudaginn, Ljótu hálfvitar og Jeff Who? berjast á banaspjótum. Þetta verður læf og það vantar áhorfendur í sal. Ríkið hlýtur að splæsa í einhverjar veitingar og svo er þetta bara stemmning. Mæting kl. 19:30 upp í Efstaleiti, búið rúmlega 21. Þeir sem vilja koma vinsamlegast sendið mér póst með nöfnum þeirra sem vilja mæta. Ég hef ekki nema svona 20 stóla svo fyrstur kemur fyrstur fær.
---

GusGus - Take Me Baby - Feat. Jimi Tenor
Mér fannst nú lítið til Add this song koma þegar ég heyrðu það fyrst. Núna finnst mér það mjög gott. Því dreg ég þá ályktun að nýja platan með GusGus þurfi góðan meltingartíma. Afi teknó snýr nú aftur með harmóníkuna og allir eru þokkafyllri en áður og vel grúmmaðir og í lokkandi þýskum gír. Platan er að koma út í dag og ég gef plögg- og fréttatilkynningardeild Smekkleysu orðið, enda hefur hún sjaldan verið í eins miklu stuði: SJÖUNDA HLJÓÐVERSSKÍFA GUSGUS KEMUR Í BÚÐIR Í DAG!
Það mætti líkja þessari sjöttu plötu GusGus við hval.  Dýrið dvelur flestar stundir neðansjávar en þegar það kíkir uppá á yfirborðið er það oftast nær með miklum glæsileik, ekki ósvipað nýjasta sköpunarverki GusGus.  Ekki er ráðlegt að fara á hlaupum yfir þetta verk því þar er hvert einasta augnablik útfært af alúð og vandvirkni.
Undirliggjandi hugtak plötunnar er grái fiðringur fyrrum Texas-búa sem á yngri árum var vinsæl karlfyrirsæta en fær nú mjög fá verkefni í ókeypis sölubæklingum. Á plötunni er fylgst með honum hverfa inn þýskt næturlíf þar sem hann leitar af lífisins tilgangi.

Lagalistinn:
1. Thin Ice (08:24)
2. Hateful (09:37)
3. On The Job (10:50)
4. Take Me Baby - Feat. Jimi Tenor (03:58)
5. Bremen Cowboy (07:51)
6. Add This Song (11:35) 

Megin hryggjarstykkið er frumsamið og spunnið í iðrum Gusgus.  “On the Job” er æðisgenginn óður hins vinnandi manns til hinnar ótömdu skepnu sem ástin er.  Í “Thin Ice” fer hinn stríðaldi asni út á ísinn að dansa og í “Add This Song” er hlustandinn eindregið hvattur til að bæta viðkomandi lagi í lagasafn sitt. 
Hliðrænn hljóðheimur GusGus hefur aldrei notið sín betur og söngur Daníels er ríkjandi að nýju og opnar um leið vídd í síbreytileika hljómsveitarinnar.  Sem endranær tekur Gusgus lag frá Jimi Tenor, hið magnaða Take me Baby og kemur hann fram sem gestasöngvari.  “Hateful” er falleg hússtemma sem Gusgus og Aaron-Carl gerðu í sameiningu beggja vegna Atlantsála.  “Bremen Cowboy” lýsir ráðvilltri leit Texas-búans að lífsins fyllingu í svitamettuðum næturklúbbum Bremen. 
Staðreyndir um 24/7:
- Platan er tekin upp lifandi í faðmi vestfirskra fjalla, nánar tiltekið í Tankinum við Flateyri. 
 - Fullkomnu sviðshljóðkerfi var komið fyrir í upptökusal til að ná fram réttum umhverfisáhrifum
klúbbsins, þar sem tónlistin á heima og nýtur sín til fulls. 
-- 24/7 er endurkomuópus söngvarans Daníels Ágústs Haraldssonar inní Gusgus.  Hann hefur
ekki verið formlegur meðlimur síðan sveitin sendi frá sér “This Is Normal” árið 2009. 
- Þetta er viðamikill, margslunginn og fléttuþrunginn tónlistarheimur þar sem hlustandinn verður að gefa sig tónlistinni á vald og gangast við þeim skilyrðum sem verkið krefst.  Í fimmtíu og sex mínútur.
- Hið nýja, hraustlega og ferska útlit hljómsveitarinnar er nær eingöngu að þakka hinum þýskættaða
stílista Klaus Sverrisson frá Wuppertal
- “Klaus lagði áherslu á að snyrtimennskan yrði ávallt í hávegum höfð” segir ljósmyndarinn og forsprakki hljómsveitarinnar, President Bongo, “allan tímann, jafnt í svefni sem vöku.  24/7!   Enda er slagorð fjöllistahópsins: Gusgus alltaf í vinnunni.” 
- 24/7 er að mestu leyti samin með aðstoð sérsmíðaðra hljóðgervla (Doepfer A-100 System) frá Bæjaraheimi í Þýskalandi. 
- 24/7 er gefin út af Kompakt í Köln í Þýskalandi og er það án vafa ein virtasta dans- og raftónlistarheiminum í dag.  Útgáfuna má sannarlega kalla gæðastimpil fyrir Gusgus.  Kompakt eru þekkt fyrir að fara ótroðnar slóðir og fyrir að vera útgáfa sem hugsar út fyrir ramma hins oft á tíðum ferkantaða teknóheims.  Þetta er mikill fengur á báða bóga.
GUSGUS Á GOGOYOKO!

13.09.09
Heldurðu að það væri nú ekki amalegt ef Páll Skúlason, forseti lýðveldisins, kæmi einu sinni á viku, segjum kl. 21 á mánudögum á samtengdum sjónvarpsrásum, með gott innihaldsríkt pepp fyrir kreppuþjóðina, sem snérist um framtíðarsýn og tilgang? Heyrirðu það Ólafur Ragnar? - Bæ bæ...
---
Það á náttúrlega að reka þann sem setti Popppunkt á Rúv og Litlu hafmeyjuna á Rás 2 á sama tíma. Tveir bestu þættirnir! Þetta er rugl. Eftirhermur er sígilt skemmtiatriði og fáir eru eins miklir snillingar og Freyr Eyjólfsson. Eitt eftirminnilegasta atriði sem ég hef heyrt í útvarpi var í þætti Jakobs Bjarnar og Steins Ármanns þegar alvöru Leoncie var á línunni að rífast við Einar Bárðarson, Hallbjörn og einhvern einn enn, gott ef ekki Megas, sem Freyr lék alla. Tótal klassík. Þetta fer langt upp í það, hjarðsveinar nýgildrar tónlistar í borgara hjá Hallbirni.
---
Sala varnarliðseigna var einu sinni uppáhaldsbúðin mín, drasl frá Kananum á slikk, en Alfreð Þorsteinsson hleypti bara velvöldum á bakvið til að komast í besta djönkið. Umboðssalan á Smáratorgi (gamla Elko plássið) minnti mig á Söluna, allskonar djönk  sem mig langaði ekkert í, en vantaði bara hermannajakka og vinýlplötur með Kiss. Það vakti athygli mína að spóla með Home Alone 4 var til á 800 kall. Ég vissi nú ekki að Home Alone 3 væri til, hvað þá 4. Ætli Home Alone 4 setji ekki ný viðmið í ömurlegheitum? Í sömu ferð fór fjölskyldan í Ikea (ég er að reyna að láta af andúð minni á Ikea. Ekki það að ég sé á móti þessu sænska gæðamerki, heldur finnst mér bara svo yfirþyrmandi leiðinlegt að labba þarna í gegn). Ikea-veitingarhúsið er hræbillegt. Við öll fjögur fengum að eta og gengum full södd út fyrir 3.030 kr (ókeypis matur fyrir krakkana). Þá var líka Mikligarður sóttur heim, eða Holtagarðar eins og þetta er víst kallað núna. Gott að hafa Bónus og Hagkaup svona hlið við hlið. Kettle korn örbylgjupopp á amrískum dögum er sætt og syndsamlega gott og karamellueplin maður, úlalala. Ef þið langar til að kalla mig Baugsdindil þá er það velkomið. Ég er nú að vinna fyrir Fbl líka og svona. (Hvenær ætli maður fari að fá útborgað í úttektarmiðum í verslunum Haga?) Ég nenni bara ekki að fara í þann gírinn að eiga bara viðskipti við alheilbrigða og æðisgengna kapítalista. Hver endaði það? Á Uppsölum? Ég trúi ekki öðru en að viðunandi botn fáist í þessi mál asap og að maður þurfi ekki að vera með móral yfir því hvar maður vinnur eða kaupir matinn sinn. Nýja Ísland, þú manst. 

12.09.09
Það er naumast að Mogginn getur tönglast á því að ég nenni ekki að hlusta á framsóknarhnakkadiskóið á Kananum FM91.1. Maður ætti kannski að senda reikning á Einar Bárðarson fyrir velheppnaða markaðssetningu? Þó ég verði að vaða eld og brennistein ætla ég þó að hlusta á Tvíhöfða í dag (13-16, eða í fyrramálið 7-9). Ég hvet hinsvegar Einsa að setja þáttinn á netið sem strím, aðgengilegan hvenær sem maður vill. Það er framtíðin í útvarpi maður, aðgengilegt alltaf. Svo væri náttúrlega snilld ef pleilistinn væri á ís rétt á meðan Tvíhöfðinn er í loftinu og þeir Jón og Grjóni mættu spila sína eigin músik. Heldurðu að það væri nú ekki amalegt að heyra Bob Dylan og Swans í staðinn fyrir Robbie Williams og Whitney Houston? Ég þori eiginlega að veðja að 95% af hlustendahópi Tvíhöfði myndi fagna þessu.
---
Ekki gat ég séð kreppuna í Wall street, Borgartúni, í gær. Við Lufsan ætluðum að fara á færibandið í Osúshí í hádeginu en staðurinn var troðfullur af jakkafötum og drögtum. Maður hefði nú haldið að fólk tæki bara rúgbrauð með kæfu með sér í nesti í þessu svokallaða árferði, en nei nei, allir bara gúffandi í sig súshí eins og fínt fólk, svo við hröktumst yfir götuna í Mann lifandi, sem er með ágætis hlaðborð í hádeginu. En sama hvað það borðar af súshíi þá er maður með glænýtt perspektíf á svona ungu snyrtilegu fjármálafólki í sínum velpressuðu jakkafötum og drögtum. Í góðærinu fílaði maður sig sem algjöran lúser við hliðina á þessu fólki. Þetta var með miklu meiri kaup en maður hafði nokkurn tímann séð, jafnvel sem poppstjarna. Krakkarnir kannski réttsloppnir úr háskóla en á blússandi kaupi og kaupandi sér drasl, og maður fylltist lotningu því maður skildi ekki hvað það var að gera, alltaf eitthvað glápandi á línurit hníga og falla á tölvuskjám. Hrunið leiddi í ljós að þetta fólk var að millifæra loft, millifæra yfirdrátt brjálæðinga, og þess vegna er perspektífið öðruvísi í dag. Það lifði í draumi, draumaheimi, og maður vorkennir þessum greyjum bara í dag, segi ég án þess að vera með eitthvað diss. Ég er viss um að allir sjá sannleikann að lokum og fara að gera eitthvað raunverulegt og það sem skiptir máli (ekki að eitthvað skipti máli í jarðfræðilegu samhengi, en þú veist...). Sko, enn ein jákvæð áhrif kreppunnar.
---
Ellefti september var enn einu sinni í gær. Svona eftir á að hyggja þá er maður mest bit yfir hugmyndafluginu á bakvið ódæðið. Þetta, að stela þotum og fljúga á skotmörk, var bara eitthvað sem enginn heilvita maður hafði látið sér detta í hug. Hollywood var ekki einu sinni búið að fatta þetta. Enda flestir sem betur fer það heilbrigðir að vilja ekki fórna sér fyrir málstaðinn, og hvað þá í jafn stórum hóp og glæpamennirnir.

11.09.09
Það var rigningarsuddi þegar ég hjólaði heim í gær eftir vinnu. Svona veður verður víst í dag líka. Það voru samt skratti margar að hjóla þarna á Miklubrautinni og þeirra á meðal klæðskiptingurinn Þór Stiefel (aka Tora Victoria). Ég er ekki frá því að Þóra hafi stungið undan mér snemma á 10. áratugnum (nei, hann er ekki hommi, heldur fílar bara að vera í kvenmannsfötum) og þess vegna gaf ég allt í og þeysti fram úr honum. Ég tók samt eftir því að hann var á háhæluðum skóm og pilsi. Þetta kallar maður hardkor klæðskiptingu, að fara á drápshæla á hjólið í grenjandi rigningu. Glæsilegt!
---
Nafn tónlistarhússins verður á íslensku en þarf að vera auðvelt fyrir útlendinga að bera fram, er sagt. Það á að haska þessu af til að sýna að við séum ekki algjörir aumingjar og til að Sinfó fái almennilegt æfingarhúsnæði. Í maí 2011 á að opna. Nafnið verður tilkynnt núna í nóvember og ég er nokkuð spenntur. „Á íslensku en auðvelt fyrir útlendinga að bera fram“, hmmm? Þá er „Góðærisdraumur Björgólfs gamla“ allavega úr myndinni.
---
Á meðan beðið er eftir úrslitaþætti Popppunkts (Jeff Who? - Ljótu hálfvitarnir, næsta föstudag 18/09 í beinni) verður boðið upp á svokallaðan nördaspesíal í kvöld. Atvinnunördar eru þeir Óli Palli, Kjartan Guðmundsson á Fbl og Atli Fannar á Mónitor (sem er reyndar á Fbl núna. Er hér um siðferðislegt stórslys að ræða og enn ein ástæða fyrir öfgafrjálshyggjulúsera að hella sér yfir mig? Vonandi). Götulið poppnörda er skipað Helgu Þórey Jónsdóttur (móðir), Bjössa í Mosanum (kennari) og Bertel sem starfar hjá Eimskip. Ég lofa æsandi keppni.
---

Me, the slumbering Napoleon - She's a maniac
Ég, blundandi Napóljónið (mæspaði) er að gefa út fimm laga ep í dag, Marske by the sea, hvað svo sem það þýðir. Maður hefur tekið eftir þessu nafni í einhvern tíma, enda gott hljómsveitarnafn þótt það sé komma í því. Mér skilst að þetta sé forsmekkur af plötu í fullri lengd sem á að koma síðar í haust. Eins og heyrist er þetta fözzsorfið eðalindierokk með reiðum en hissa söngvara. Myljandi fínt, sem sé. 
Plögg: Kimakvöld #6: Útgáfutónleikar Me, The Slumbering Napoleon
Kimakvöld #6 verður haldið föstudaginn 11. september kl. 11 (hús opnar 10) á Sódómu Reykjavík. Frítt er inn á tónleika Me, the Slumbering Napoleon, Morðingjanna og Plastic Gods. Kimono verður með dj set. 
Meginþema tónleikanna er útgáfa Me, the Slumbering Napoleon á EP plötunni Marske by the Sea en hún kemur einmitt út samdægurs á hinu mjög svo hressa og framsækna útgáfufélagi BRAK hljómplötur.
Morðingjarnir munu kynna nýtt efni en þeir eru nýskriðnir úr upptökuverinu Reflex. Platan 'Óbærilegur léttleiki tilverunnar' kemur út í október hjá Kima og mun að öllum líkindum bjarga sálarlífi þjóðarinnar í svartasta skammdeginu.
Plastic Gods spila dómsdags/drun rokk og hafa gefið út eina plötu, Quadriplegiac. Platan hefur fengið glimrandi viðtökur og nauðsynlegt að fylgjast vel með hljómsveitinni í framtíðinni.
Það er því þungt og pönkað rokkkvöld í vændum á Sódómunni þar sem tattúveraðir menn afgreiða veigar og migið er á útrásardrullusokka. Viðkvæmum og hjartahreinum er bent á að halda sig heimavið.

ATH: Platan er komin inn á Gogoyoko 
Hlustað frítt og keypt ef maður fílar á verði sem þeir sjálfir ákveða að "græða".

10.09.09
Það er mikill misskilningur að ég sé neytendafrömuður. Ég hef aldrei gefið mig út fyrir það þótt margir álíti mig slíkan frömuð. Það er ekki mér að kenna að það séu ekki betri neytendafrömuðir á vegum hins opinbera eða sjálfsstæðra neytendastofnana sem geta sinnt þessu hlutverki svo tekið sé eftir. Ég birti bréf fólks á Okursíðunni og hef gert í rúmlega 2 ár. Það var ekki ætlunin að sú síða yrði stofnun þótt hún sé orðin það vegna þess að Ísland er yfirhöfuð helvítis okurbúlla. Síðan hitti í mark af því allir skildu strax út á hvað hún gekk. Þessi síða er vettvangur útrásar og með kommentakerfinu er hún orðin eins konar umræðugrundvöllur og upplýsingaveita, eða a.m.k. vísir að slíku. Vitanlega held ég áfram að birta bréf á Okursíðunni eins lengi og ég fæ einhver bréf. Eða set eitthvað inn sjálfur eins og nýlegt upplýsandi blogg Jónasar Kristjánssonar um ódýra hádegisverðarstaði. Ef einhver skrifar alveg brjálaður um Iceland Express birti ég það auðvitað líka. Það fylgir ekki verndarvængur í sellát-pakkanum. Það er hins vegar undir ritsjórn FBL komið hvort ég sjái áfram um neytendaumfjallanir í blaðinu og það væri sársaukalaust af minni hálfu þótt annar „óspjallaður“ væri fenginn í djobbið. Gamli ritstjórinn var því með „þarfa ádrepu“, eins og sagt er. 
---
Fyrst ég er að tala um Jónas verð ég að endurtaka það sem hann sagði einu sinni á ritstjórnarfundi. Það er bara svo flott að mér finnst að það megi ekki gleymast. Ætti eiginlega að vera í tilvitnanabók. Þetta var líklega í kringum aldarmótin og það var eitthvað verið að ræða gömlu ríkukallana vs. nýju ríkukallana. Hvor hópurinn væri eiginlega betri? Jónas sagði: „Gömlu lýsnar eru sennilega betri en þær nýju af því þær eru ekki eins svangar.“ Einmitt, eins og síðar átti eftir að koma í ljós.
---
Eins lengi og það er internet og amerískir dagar í Hagkaupum er ég sáttur. Ég fékk feitt skúbb um að amerísku dagarnir byrji í dag og mætti því til að skoða dýrðina í gær. Það er engin kreppubragður á þessum amerísku dögum heldur eru þetta svei mér þá bara feitustu amerísku dagarnir frá upphafi. Þarna er matarlitur og sykur fyrir allan peninginn. Sæla! Þarna er allt jukkið mætt aftur eins og það sé ennþá 2007, Pop tarts, Starbucks, karamellu epli (4 tegundir!) og morgunkornið Kix, sem margir hafa eflaust nostalgíu fyrir. Því miður sá ég ekki Trix, en jafnvel fleiri hafa nostalgíu fyrir því. Í gosdeildinni hafa Hagkaupsmenn alveg fengið flog, boðið er upp á A&W Cream soda, Cherry Pepsi, bæði Vanilla og Cherry Coke og eitthvað sem heitir Red code Mountain Dew (ætli það sé ekki bara rautt Mountain Dew?). Ég keypti mér auðvitað sýnishorn af öllu og mun gera vísindalega gæðakönnun á því næstu dagana. A&W rótarbjór er hins vegar orðinn staðalvara í Hagkaupum og því óþarfi að kaupa upp allan lagerinn.
---
Minnisvarðasíða Helga Hós á nú 23.000 vini sem er stórfenglega mikið. Minnisvarðinn/skjöldurinn verður auðvitað staðreynd enda þarf bara að sækja um hjá Skipulagsstofnun. Það er ótækt að aurinn fyrir slíku komi frá ríki eða bæ svo það er komin í gang söfnun til styrkar málefninu: Söfnunarreikningur fyrir minnisvarða hefur verið stofnaður í samráði við fjölskyldu Helga!
Reikningsnr. er 0323-26-002289 og kennitalan er 260390-2289. Sýnið nú hversu annt ykkur er um þetta málefni og leggið ykkar af mörkum!! Við viljum sjá þennan minnisvarða reistann! --> þá er bara að leggja inn, en reyndar er ekki heppilegt að reikningurinn sé á persónulegu nafni safnarans. Skatturinn, sjáðu til.
---

Útidúr - Mind your stay
Útidúr er nýjasta hæpið. Þetta lag er gott. Minnti mig á Cardigans. Fjölbreytnin í fyrirrúmi. Annað lag sem ég hlustaði á minnti mig á Violent Femmes. Er Útidúr Hjaltalín 2? Hvenær kemur plata?
Plögg: Já, haustið er komið. Laufin er byrjuð að gulna og falla af trjánum, vindurinn blæs og skólinn er byrjaður. Föstudaginn 11.september ætla hljómsveitirnar Útidúr, Miri og Helgi Valur því að halda stórtónleika til að fagna hringrás lífsins og nýju skólaári.
Útidúr er nýjasta hæpið í Reykvísku-grasrótarsenunni. Meðlimir hljómsveitarinnar eru ca. 12 og eru tónleikar sveitarinnar annálaðir fyrir mikið stuð og lífsgleði. Tónlistin er indípopp með áhrifum úr flest öllum heimshornum, bossanóva, ska og diskó er m.a. á boðstólnum.
Austfirski kvartettinn Miri er í bullandi stuði þessa dagana, enda eru þeir að taka upp sína fyrstu breiðskífu í samvinnu við meistara Curver. Hamingja, Hamingja, Hamingja og rokk og ról.
Tupac, Biggie og Helgi Valur. Önnur plata rapptrúbadorsins Helga Vals, Black man is God, the White man is devil er nýkomin út og er víst heitari en lummur. Dóp, byssur og gærur eru meðal umfjöllunarefna. Teitið verður haldið á GrandRokk við Smiðjustíg og hefst um klukkan 10. Þar sem allir eru í góðu skapi verður líka frítt inn.

09.09.09
Þetta er nú svo flott dagsetning að ég verð að blogga eitthvað þó ég sé svo sem alveg tómur. Allt er einhvern veginn bara í góðum fílingi. Maður er þó gapandi yfir hrottaskapnum sem viðgengst í ummönun ungmenna (svo sem búinn að taka þá göpun út þegar Breiðavíkurmálið skall á), en er orðið alveg slakur í kreppukreppunni. Var að spá í að setja upp einhvern borða hérna efst, Kreppulaust blogg eða eitthvað slíkt, en hætti við því það er aldrei að vita hvenær maður fær löngun til fá kreppukast aftur. Eins og vera ber eru heilsíðuauglýsingar af mér í blöðunum (= meira glápt en vanalega). Sá nýjasta lagið með Devo (forsmekk nýrrar plötu) og það er nú ekkert spes, enda gera gamlir karlar ekkert að viti, þannig. Devo eru náttúrlega með sitt eigið sánd, það verður ekki af þeim tekið. Whip it var í spinningi í fyrradag, gott. Ég var að spá í að tékka á RWWM en myndin fær svo herfilega dóma að maður er nú tvístígandi með það. Kannski bara á dvd. Er ekki Ástríður í kvöld? Það er ágætt stöff, konustöff náttúrlega, en alveg nógu gott til að maður nenni því. Ókei, 090909 in ðe hás.

08.09.09
Á morgun er 09.09.09 - það hlýtur nú einhver að notfæra sér það.
---
Óvenjufáir hafa kallað mig mellu, sellát, eða jafnvel flöffer útrásavíkinga, eftir að mitt álitlega smetti fór að birtast í auglýsingum fyrir Iceland Express. Ég var tilbúinn með allskonar afsakanir og varnagla, en böttomlænið náttúrlega það að einhvern veginn verður maður að borga upp helvítis yfirdráttinn sinn. Svo er líka IE ágætis fyrirtæki, þannig, þótt öll flugfélög eigi auðvelt með að láta líka illa við sig ef það verður einhver töf á flugi eða flug falla niður. IE veitir a.m.k. samkeppni. Ekki væri skárra ef það væri bara eitt fyrirtæki sem gæti flogið með mann í burtu. Ég samdi textann sjálfur sem er í þessu og er svo sem ekkert að segja eitthvað sem ég meina ekki og hef ekki verið að tuða áður, t.d. hér á blogginu. Mér finnst lífsnauðsynlegt að komast af skerinu annað slagið þó það sé ekki nema til annars en að finnast Ísland alveg frábært þegar maður kemur til baka. Dílnum fylgir engin kvöð um að ég sé að plögga IE hér villt og galið, en ég bendi þó á að Rödd skynseminni (þ.e.a.s. ég) er með síðu og svo er planið að nota Facebook út í ystu æsar. Nú er til dæmis alvarleg samkeppni í gangi með tvo miða í verðlaun fyrir besta sparnaðarráðið í ferðum erlendis. Er í gangi til föstudags. 
---
Byrjaði aftur 9-5 á Fbl í gær og skrifaði m.a. grein um minnisvarðaátakið um Helga Hós (11.000 meðlimir núna - stórkostlegt!). Það versta við prentmiðlana er að oft er búið að blóðmjólka fréttina á netinu og í sjónvarpinu áður en fréttin birtist loksins í blaðinu. Það verður að lifa með því.

07.09.09
Tvíhöfði hefur engu gleymt á Kananum. Náttúrlega hneyksli að manni sé boðið upp á þennan sorglega framsóknarhnakka-pleilista á milli þess sem þeir mala, en maður verður bara að koma sér upp einhverju systemi og spila sína eigin músik þegar jukkið skellur á. Eða slökkva. Ég skil ekki hvað Einar er að spá með þessari herfilegu músik. Eins og það sé ekki nóg að það sé ein FM957, sem reyndar er með miklu skemmtilegri músik. "Kaninn - eins og FM, bara miklu leiðinlegri" er ekki gott slógan. Mætti ég þá biðja um sama jukk og var í Kananum í gamla daga, amerískt yfirvaraskeggjarokk og kántrí. En Tvíhöfði er vitanlega snilld.
---
Var í bústað með gott útsýni á 900 fm sumarbústað Sigurðar Einarssonar í Borgarfirði. Það var ekkert í gangi þar. Ekki einu sinni sojahippar að kúka á pallinn. Á göngu um hið gullfallega Hreiðarvatn (sem þó hefur látið á sjá vegna þess að vatnið hefur minnkað í því) rakst ég á 6 álftir og 4 kindur. Fór í störukeppni við kindurnar sem unnu.
---
Á leiðinni heim fórum við á Ruby Tuesday á Höfða. Ruby er að taka samkeppnina í TGIF dáldið á verðinu, eru nú orðnir mun ódýrari. Fékk rosalegan hamborgara með öllu á um 2000 kall. Gott mixteip var í græjunum. Það er ekki oft sem maður heyrir Isolation með Joy Division á hamborgarastað.
---
Upp er fín mynd. Fyndin og djúp, allavega dýpri en G-force myndin með marsvínum sem eru njósnarar. Ég fer alltaf smá að grenja í væmnu atriðunum í Pixar myndum. Ég er bara svona soft. Fjögurra stjörnu mynd, ekki spurning.
---
Helgi Hós vildi helst af öllu komast sem fyrst til Sameinuðu þjóðanna í heimildarmyndinni um hann (sem nú væri upplagt að endursýna) og nú hefur honum orðið að ósk sinni. Söknuður er í Helga og að því að sjá hann ekki lengur á horninu. Hann var reyndar ekki búinn að vera þar lengi, líklega vegna veikinda. Ég ætli rétt að vona að eitthvað verði gert til að minnast hans þarna á horninu, ég sé fyrir mér útilistarverk, t.d. skilti í varanlegu efni. (ég sé það núna að menn eru að hugsa á svipuðum slóðum á Fésbrók). Þá ætla ég að vona að einhverjir, e.t.v. félagar í Vantrú, passi upp á þau menningarverðmæti sem skiltin hans eru. Vertu sæll, Helgi Hós.

Jonee Jonee - Helgi Hós
Af Svonatorrek LP (Gramm 1982). Jonee Jonee var eina nýbylgjubandið í Garðabæ og voru undir sterkum áhrifum frá Devo (nafn sveitarinnar er m.a.s. tekið frá lagi Devo "Come back Jonee".) Jonee Jonee er frægust fyrir lagið "Af því að pabbi vildi það".
---
Vegna söfnunnar fyrir Laugarásvídeó vill Tryggvi Rafn Tómasson koma því á framfæri að allir sem styrktu þetta málefni hafa fengið endurgreitt. Ákveðið var að hætta við söfnunina v/ýmissa ástæðna. Leigan er á facebook.

05.09.09
Tónleikarnir tókust vel. Blóð rústuðu pleisinu og tóku gullfallega útgáfu af Glæpur gegn ríkinu. Ég var drullustressaður um að Insol myndi ekki mæta en svo kom meistarinn korteri í og tróð upp. Fólk var almennt mjög vel á nótunum, nema sumir sem fannst ofurnæmur trúbadorinn ekki eiga heima í þessum hávaðapakka. Insol tók öll sín frægustu lög og feikti þakinu af kofanum þegar hann tók ofursmellinn Hvenær mun hér á Íslandi rísa stjörnusambandsstöð?og allir sungu með. Ég hef náttúrlega eingöngu hlustað á Insol síðan ég vaknaði, endurnærður eftir þriggja tíma svefn, en finnst leiðinlegt að hafa misst af meistaranum og ekki getað keypt þá tvo diska af honum sem mig vantar í safnið. Það kemur. Hellvar næst og gríðarlega þétt í frábæru sándi Silla Geirdal. Svo kom hið nýja Dr. Gunna kombó og ruddist í gegnum settið sem var öll Inniheldur nema tvö lög (tvífari Stefáns Mána koma að máli við mig eftir tónleikana og var svekktur að við hefðum ekki spilað Síðasta fyllirríið og Við hittumst í dauðatjaldinu því það eru uppáhaldslögin hans, sagðann) tvö lög af Stóra hvell og Algjör þögn í proggmetal útgáfu. Fólk var dýrslega stemmt, sýndist mér, og vældi út hvert einasta lag sem við kunnum, þ.á.m. grínlagið Bygg. Grand rokk er náttúrlega sérkapituli út af fyrir sig og Bakkus kóngur með sterka nærveru á staðnum. Það var dáldið verið að röfla í manni. Ekki það að ég sé of góður til að hlusta á röfl en næst væri ég samt til í að spila fyrir sveitt fólk í spandexgöllum drekkandi smúððí. Spá mín gekk eftir, þegar búið er að deila innkominni jafnt á alla hlutaðeigandi varða 5.545 kr á mann.
---
Fyrr um daginn vorum við að spila á Rás 2 sem tók allt saman upp. Gjösso'vel:

Dr. Gunni - 4 lög læf á Rás 2 04/09/2009 (.zip)
---
Af ÍHNB er það helst að frétta að nýjabrumið er dottið af bankanum og innlögnum fækkar ört. Auk þess hefur verið komið upp gæðastýringu svo ekki er nóg að senda bara eitthvað bullhljómsveitarnafn, heldur fara innlegg í gegnum stýrihóp gæðateymis sem strækar á eitthvað rugl.
---
Svo er rétt að minna á það að Tvíhöfðinn þinn hefst kl. 13 á hinni, ööö, geðslegu stöð Kaninn.

04.09.09
Já! Giggið er í kvöld. Eins og sjá má hér að ofan hefst gleðin kl. 22 og Blóð á svið 22:30. Þá meistari Insol, Hellvar og hljómsveitin Dr. Gunni stígur á stokk Grand rokks um miðnætti. Svo er bandið að spila í beinni á Rás 2 kl. 11:15 á eftir. Helvítis rokk sem sé í dag.
---
Maður kemst því harla á opnun Rokkheima Rúnars Júl í Kef í dag kl. 17, en ég á ekki von á öðru en maður skvísi sér þangað asap, enda aldrei of mikið af rokksöfnum á Íslandi. Tónlistarsafn Íslands í Kópavogs er til að mynda það nýjasta og á næstu vikum verður opnuð sýning sem er náttúrlega sem hönnuð utan um mig: Pönkmenning Kópavogs (Feisbrók). Þarna verður skiptistöðin, límið, pönkið, félagsheimili kópavogs og allt stuðið 1978-1982 í algleymi og ferlegt tilhlökkunarefni að sjá þetta verða til. Talandi um sagnfræði og rokk þá fékk ég að lesa fyrsta draft af væntanlegri ævisögu Magga Eiríks og það er hvílíkur kjarnorkukokteill að aðrar rokkævisögur verða eins og frostpinnaprik við hliðina. Ef bókin verður jafn djöfullega djúsí og þetta draft gefur til kynna þá erum við að tala um algjört þönderstöff. Fyrsta alvöru rokkævisagan á íslensku, getum við eiginlega sagt, því hinar flestar hafa verið þurrar og leiðinlegar og öllu djúsinu haldið kyrfilega í skápnum. Og með djúsi á ég vitanlega við það sem djúsíast er: sex drugs and rock and roll.
---
Ég er búinn að vera að rifja upp gömlu Reykjavík á Feisbrók. Þorsteinn Guðmundsson var að tala um einhverja hrekkjadótabúð á Skólavörðustíg til forna en ég man ekkert eftir henni. Á Skólavörðustígnum man ég bara eftir frímerkjabúð Magna þar sem maður kom oft (og líka í frímerkjabúðina á Lækjargötu í timburhúsinu. Það brakaði í öllu þegar maður gekk upp stigann.) Áður en fór í pönkið var ég í frímerkjunum og fór stundum niðrí bæ með SVK og keypti frímerki. Ein ferðin er eftirminnileg og í hálfgerðri þoku. Ég að versla í búðinni hjá Magna og svo er ég kominn eins og hjá Austurbæjarbíói. Þar í hliðargötu hitti ég fullan karl sem var einkennilegur í minn garð og vildi fá mig með sér eitthvað. Ég er ekki frá því að þetta hafi verið sá eini sanni. Ég man enn eftir ónotatilfinningunni og hvernig eins og slökkt væri á öllum götuljósunum í kring þegar þetta gekk á. Það var slydda. Ég held ég hafi nú bara hlaupið í burtu með frímerkin, eða það er allavega þannig þar til annað kemur í ljós í djúpdáleiðslu.
---

Á Skólavörðustíg í eldgömlu timburhúsi þar sem nú er Grænn kostur var hið einkennilega íslenska dýrasafn. Húsið mun hafa heitið Breiðfirðingabúð og var dansleikjastaður. Dagný systir sá þar til að mynda hljómsveitina Toxic með Jónasi R og á miðann ennþá. Í safninu voru uppstoppuð dýr, lamb með tvo hausa og allskonar drasl. Það var vesen á karlinum sem var með þetta og það orð gekk af honum að hann keypti brennivínskrypplinga og gaukaði að ungdómnum í skiptum fyrir þú veist hvað. Ég er ekki frá því að DV hafi fjallað um málið í miklum smáatriðum. Í safnið kom ég á unglingsárum og hló eins og fífl að öllu sem fyrir augu bar. Spéspeglarnir voru fyndnastir, man ég. Í öðrum gömlum skemmtistað, frægum hommastað, Hábæ efst á Skólavörðustíg (nú Leifur Eiríksson hótel), var mínígólf í kringum 1980. Það var svona álíka sjoppulegt og dýrasafnið. Þar var maður oft í tímadrápi unglingsáranna, en karlinn vildi náttúrlega að maður drullaði sér út þegar maður var búinn að spila síðustu brautina. Þá rann gólfkúlan inn í klefann til hans og maður varð að skila kylfunni. 
---
Við hliðina á þar sem verslunin Stella er ennþá, neðst á Bankastræti, var framsækin bókabúð á þessum árum, því hún var alltaf með glæný Mad-blöð og allskonar djúsí súperhetjublöð. Ég var reyndar aldrei aðdáandi súperhetjublaða, þótt mér hafi þótt spennandi að skoða forsíðurnar, en ég var forfallinn Mad-maður. Minni manns er svo skrítið að ég man ennþá eftir einhverju búbble-baðsalti í plastflösku sem ég keypti þarna, líklega þá í Stellu, og kom færandi hendi með heim til mín. Ég veit nú ekki hvaða flipp það hefur verið. Og enn síður skil ég hvað ég er að blogga um það! 

03.09.09

Í Bakþanka dagsins er fjallað um hið æðisgengna fyrirbæri Slím.
---
Nú hefur Skjár einn tekið þá ákvörðun að vera ekkert að púkka upp á snillinginn Conan heldur sýna áfram hinn þunnildislega Leno. Allt í lagi með það mín vegna, bara gó vi da fló skjó únó. Ég hef ótakmarkaða aftöppun á þessa þætti alla hvort sem er í gegnum Latebyte í NL. 
---
Giggið á Grand er annað kvöld. Þetta er í fyrsta skipti síðan í góðærinu sem ég spila læf. Síðast kom ég fram á Mosfellsdeginum í fyrra, í andaslitrum góðærisins, og fékk 50.000 fyrir að taka Prumpulagið. Ég er enn miður mín, mér finnst þetta svo sikk upphæð. En giggið á morgun ætti að verða massa, enda fæ ég örugglega innan við 5.000 kall fyrir að spila heilt sett. Svona er allt breytt. Og svo er hvílíkt gengi að spila þarna líka að það hálfa væri nóg. Ég og strákarnir spilum svo læf á Rás 2 um kl. 11:15 í fyrramálið og tökum eitt íslenskt kóverlag sem Óli Palli neyddi mig til að spila. Ég fæ ekkert fyrir það nema kannski einn disk með upptökunum af settinu + ávexti.
---
Þessi grein mun eflaust vekja athygli, fjallar umða þegar Jón Ásgeir notaði smá af yfirdrættinum sínum til að leika Michael Jackson og kaupa upp stefgjöld nokkurra poppara. Mér var ekki boðið að vera með, enda bara smáfiskur, en ég ætla ekki að vera með eitthvað yfirlæti í garð popparanna – ég hefði örugglega fengið glýju í augun og selt mig líka, fínt að fá nokkrar millur í einu til að kaupa hlutabréf í FL í staðinn fyrir að láta mjatlast inn á sig ár eftir ár. Gaman væri hins vegar að vita nánari smáatriði um þessa samninga, upphæðir og hvernig þetta var. Átti Jón Ásgeir t.d. líka stefið af öllu nýju efni sem maður gaf út á tímabilinu? Hefði maður þá ekki bara samið eitthvað níðþungt torf og skrifað smellina á konuna?

02.09.09

ÍHNB er hvílíkur sökksess. Minns kominn í teinótt og ætla að kíkja á Bessastaði í kvöld. Örnefni á Íslandi geta alveg gagnast sem hljómsveitarnöfn eins og dæmin sanna. Nægir að nefna norsku blakkmetalsveitina Dimmuborgir, örlí næntís kvennabandið Dritvík og pönkhundana í Dys. Það er margt fleira töff, en alls ekki allt. Fanntófell og Svignaskarð eru töff, Finnbogastaðir og Sauðanes ekki töff. Mig rak í rogastans þegar ég rakst á örnefnið Smjörbítill í kortabókinni minni. Smjörbítill! Hvað er það nú eiginlega? Bara einhver partur af auðninni þarna fyrir norðan? 
---
Smjörbítill kallar á óvænt hugrenningatengsl á milli Bítlanna og smjörs. Átu Bítlarnir mikið smjör og þá hvaða tegund? Þessi spurning hlýtur að kalla á enn eina bók í viðbót, The Beatles' Butter, sem yrði bók númer 45.303 um Bítlana. Nú linni ég ekki látum fyrr en ég stend á Smjörbítil og hlusta á Bítlana. Samkvæmt stuttri google-leit er í engu bítlalagi minnst á smjör, en hinsvegar segir í sólólagi Pauls, Uncle Albert/Admiral Halsey: „the butter wouldn't melt so i put it in a pie.“ Það væri samt eiginlega svindl að hlusta á það.
---
Ég reyndi margoft að stilla á Kanann, FM 91.9 í gær, en það var alltaf svo ógeðslega leiðinleg tónlist að ég meikaði það ekki. Svona alveg óþolandi framsóknarhnakkamúsik, svo niðurdrepandi að ég varð að slökkva. Einu sinni var eitthvað heimskulegt hjal á milli einhvers sem var með þátt og einhvers sem var að byrja með þátt seinna um daginn. Sorrí, elsku Einar og kæra fólk, að vera ekki í markhópnum. Það sem skiptir máli eru laugardagarnir á milli 13 og 16. Þá byrjar Tvíhöfði enn og aftur. Mmmm, þrír tímar af elsku Tvíhöfðanum mínum - Ek get ekki beðið. Ég vona samt að þeir geri ekki þáttinn með rassgatinu og þetta verði bara Smásálin í þrjá tíma streit, þó góð sé. Tvíhöfði er svo endurtekinn á sunnudögum frá 7-9 og vonandi verður hægt að streyma þessu í tölvunni sinni. Einar má spila verstu músik heimi út í eitt mín vegna, honum er fyrirgefið allt fyrir þá takmarkalausu snilld að draga Tvíhöfða aftur að hljóðnemunum. 
---
Laugarásvideósöfnunin, sem minnst var á í gær, hefur verið blásin af. Tryggvi Rafn skrifar: 
Sæll doktor,
Ég frétti það í morgun að það er nú þegar byrjuð önnur söfnun fyrir þennan
mann og því lýkur minni söfnun. Óþarfi að hafa tvær safnanir.
Það er m.a kominn feisbúkhópur varðandi björgun laugarásvídeós.
Það sem er komið inná reikninginn sem er um 6.000 krónur fær eigandi
Laugarásvídeós í sinn vasa þegar Kaupþing er búið að losa peninginn.
Því miður gerði ég þau mistök að gefa þér upp númer á bók sem er bundin,
þ.e hvert innlegg bundið í 10 daga. Ég hef haft samband við Kaupþing sem
er að vinna að því að losa þetta.
Það getur verið að ég blási til nýrrar söfnunar en þá ætla ég að tala við
einhvern bankann og fá hann til samstarfs við mig eða eitthvað fyrirtæki.
Einnig verður búinn til sérstakur reikningur fyrir þessa söfnun.
Mér finnst ekki sniðugt að ég sé að láta leggja inná minn einkareikning.
Ég læt þig vita!
Mbkv.
Tryggvi Rafn

01.09.09

Það er einhver óþverrablær á þessu Magma-dæmi sem vill kaupa allar borholur á Suðurnesjum. Ekki nóg með að fyrirtækið starfræki klámverksmiðju í Þýskalandi heldur er starfandi franskt proggband á þeirra vegum líka. Svei! Orkuna aldrei í þetta gapandi Gomez græðginnar!
---

Tryggvi Rafn Tómasson tók menningarbrunann í Laugarásvideói nærri sér. Hann ætlar að gera eitthvað til að hjálpa, stofna Facebooksíðu og hefja söfnun. Hann skrifar: Uppáhaldsvídeóleigan mín eyðilagðist í fyrrinótt. Djöfull er ég svekktur! Ég hef eingöngu verslað við þessa vídeóleigu síðustu ár. Fyrir því liggja nokkrar ástæður. Hann Gunnar sem á þessa leigu hefur ekki hækkað verð hjá sér í mörg ár á meðan aðrar leigur hafa hækkað sig reglulega. Ef þig vantaði einhverja sérstaka mynd sem var ófáanleg á öðrum leigum gastu treyst því að finna hana þarna. Þessi maður er öðlingur og á bara hrós skilið. Það var því sorglegt að lesa um þennan bruna í gærmorgun.
Ég vil í framhaldi af því starta söfnun. Ætlunin er að safna pening til að aðstoða þennan indæla mann við að byggja upp vídeóleiguna á nýjan leik. Söfnunin stendur yfir frá 31.08.2009 til og með 07.09.2009. Gunnar mun svo fá ávísun mánudagsmorguninn 08.09 með öllu því sem safnaðist.
Þeir sem vilja styrkja hann Gunnar geta lagt inná þennan reikning
0372-13-300360 kt. 070283-5499
Ég vil líka taka það fram að um opið bókhald er að ræða. Þ.e þeir sem vilja geta fengið að sjá yfirlit á reikningnum hvenær sem er, til að sanna það að ekki er um fjársvikastarfsemi að ræða.
---
Erða ímyndun í mér eða eru það hnakkarnir sem einir eiga einhvern peninga lengur til að sýna auglýsingar? Það hlýtur að vera ástæðan fyrir því að önnur hver auglýsing er fyrir póker eða bætiefni. Og hvað í fljúgandi samförum er póker túrnament? pókermót kannski?
---
Fólk er enn að búa til myndbönd og það jafnvel af gríðarlegum metnaði. Gusgus væflast hérábúðarfullir um spítala og láta sig dreyma um ægilega gellu. Töff alltaf, Gusguskallarnir, og svo ætti maður að geta notað 24/7 á brettinu.
---
Þýðingavélin á Google er algjör brandarakall. Hún þvælir út í eitt. Unun er security, rassgat er blanks, gapandi rassgat er gaping Gomez (gæti komist í ÍHNB) og ég skil ekki rassgat er I don't understand Gomez. Hvað er málið með þennan Gomez? Vestfirðingurinn góðkunni Smári Karls sló inn nafnið sitt og fékk út að hann heitir Transistor man! Það er reyndar mjög kúl nafn.
---
Katrín bendir á Konráð, sem er sniðugur. Var ekki einhver svona svipaður á blogginu fyrir nokkrum árum? Er þetta kannski sá sami?
---
Já, heyrirðu það, Hr. Skap Ofsi.
---
Og já: Þurfa þau á Nýfundnalandi ekki bráðum að fara að skipta um nafn?

31.08.09
Það svoleiðis hrúgast inn á Íslenska hljómsveitanafnabankann - ÍHNB, og margt af því er gott stöff. Nú ætti helsta vandamál hljómsveitastofnunar, að finna nafn, að vera endanlega úr sögunni. Ég get ekki ímyndað mér annað en að Margeir Pétursson í MP banka sé farin að ókyrrast yfir þessari óvæntu samkeppni. Hagnaður ÍHNB á fyrsta dagsfjórðungi var 759.015.112.000 ISK fyrir skatta.
---
Í Hveragerði á laugardag var Kjörís að halda upp á 40 afmæli með ísorgíu og auðvitað mætti ísfjölskyldan. Stórhljómsveitin Húrrígúrrí (sem veitti ekki af að kíkja í ÍHNB) tók Prumpulagið sem þriðja lag en ég var þá á leið í bílinn og heyrði bara óminn. Alveg fínt að vera kóveraður í Hveragerði og strákarnir lögðu faglegan metnað í verkið. Það var gríðarlegt dýrastuð í dýragarðinum í Slakka. Allskonar dýr flæktust laus um garðinn, kálfar jafnt sem kettlingar, og börnin fíluðu það í botn. Þarna var líka unglingsstrákur, vinnumaður, með buxurnar á hælunum sem hljóp í ofboði undan gríðarstórum kalkúna, svokölluðum kalkúnzilla, sem var brjálaður í skapinu. Það er náttúrlega ekki gott í dýragarði að starfsfólkið sé hlaupandi í skelfingu undan dýrunum og ekki traustvekjandi fyrir gestina. Sem betur fer var heljarmennið Steini sleggja með í för og hann brá á það ráð að hefja slagsmál við kalkúnann sem nú ætlaði að ráðast á okkur fyrst vinnumaðurinn var sigraður. Enn eitt kodakmómentið þegar Steini og kalkúninn flugust á. Djöfull þarf ég að fara að fá mér svona almennilegan síma með myndavél því ég er alltaf að missa af geðveikum kódakmómentum. Auðvitað vann Steini en maður þakkar sínum sæla að það séu engir strútar í Slakka, eða fílar. 
---
Alltaf er súpernæs að koma í Sólheima, en ég saknaði þess hve fáir íbúar voru á ferli. Eftir lífræna köku og kaffi vænkaðist þó hagur strympu þegar við keyrðum framhjá sjálfum meistaranum Reyni Pétri, sem var á göngu lengst í burtu frá bænum.
---

Við kíktum auðvitað aðeins á Mosfellsbæ. Tékkuðum á nýja víkingaleikvellinum í Leirvogshverfinu. Hann er rosa vel heppnaður og flottur. Kíktum líka á leikvöllinn við Álafosskvosina, sem er ekki síður töff. Þar bar það helst til tíðinda að risavaxin könguló skreið á höndina á Dagbjarti með tilheyrandi angist. Þarna er gríðarlega veglegt umhverfisverk eftir Magnús Tómasson, risagrjót sem dinglar í keðju fyrir ofan oddmjóan sixhyrning innan í hvelfingu. Ég var drulluhræddur um að keðjan slitnaði og við yrðum undir farginu, en það slapp.
---
Ljótt að heyra um brunann í Laugarásvideó. Það vita allir að þetta hefur lengi verið ein frábærasta videóleiga í heimi. Menningarslys ekki síður en fjárhagslegt. En hvaða maður á hvítum jeppa með tagl kveikti eiginlega í? Ætli hann hafi vitað af eftirlitsmyndavélinni? Og þekkja eigendurnir hann ekki á myndunum? 

30.08.09
Kirsuberjahakkarinn (sem byrjar aftur með þáttinn sinn eftir viku) sýndi myndir á vef sínum af sigurtillögu um Höfuðstöðvar LÍ. Ég kommentaði og sagði að arkitektúrinn minnti mig á Blade Runner. Síðan er ég búinn að vera að hugsa aðeins um þetta og er nú frekar kominn á það að þetta sé eins og höll Mörgæsarinnar (Danny Devito) í Batman returns. Eða hvað finnst þér?


---

Sjálfur hef ég nú stofnað nýjan banka, ÍHNB - Íslenska hljómsveitanafnabankann. Tengill er hér að ofan til frambúðar. Aðilar geta lagt inn hljómsveitanöfn og eins geta hljómsveitir tekið út nöfn. Bæði úttektir og innlagnir skulu fara fram með emaili. Bankinn er frekar tómlegur eins og er, en ég vonast til að það færist líf í starfssemina. Það er bara eitt útibú, þetta hér. Ég sé fram á mikinn vöxt, enda erum við að tala um ÍHNBthinking og innan tíðar verður farið að drita út handklæðum.
---
Ég pantaði rótarbjór og fleiri gos frá Sodapopstop um árið. Hér er frábært innslag um meistarann sem rekur búðina. Verst að hún er í LA. 500 tegundir af gosi í einni búð! Ég væri alltaf þarna. Ég veit allavega hvar ég panta næst gos, t.d. þegar dollarinn fer undir 100 kall. Fleiri svona skemmtileg matartengd innlsög eru í boði á CHOW.

29.08.09
Örlí eitís kom fram músik sem gjarnan var kölluð kuldarokk á Íslandi. Hún var, eins og nafnið bendir til, kuldaleg og ísmeygilega svöl. Gary Numan, meikaður starandi kúl í myndavélina, eða Billy Idol með Elvis-varirnar eru dæmi. Á Íslandi varða kuldarokk á fyrstu tveimur plötum Grafíkur, sem dæmi, og hjá Baraflokknum (eða ætti ég að segja Urinalbankfork?). Ég sá gríðalega kuldarokkslega bíómynd í gær, The Informers, eftir smásögubók Brett Easton Ellis, sem er afar mistækur. Myndin er frekar leiðinleg. Forríkir kuldarokkskrakkar af brengluðum peningafjölskyldum eitthvað að ríða endalaust og dópa, gullfalleg og hrörnandi. Myndin er byggð á smásögum svo það er ekkert plott, í ríðandi unglingana blandast sögur af barnsráni með sjúskuðum Mickey Rourke og skuggalegum ævintýrum kuldarokkarans Bryan Metro. Það er dáldið flott músik í þessu, gallhart kuldarokk náttúrlega, tíðarandinn mjög vel útfærður og ágætlega krufin óhamingja þessa ömurlega liðs í allsnægtunum öllum, en eins og ég segi þá er þetta hundleiðinleg mynd! Hér er skáldaður smellur Bryan Metro. Kuldarokk með Bowie-ískum undirtóni. Kókaínmúsik fyrir aumingja (en samt kúl, enda þykir kúl að vera aumingi í smá stund áður en það verður paþettikk! Halló Amy, Britney, Lohan osfrv.):

"Bryan Metro" - Only you
Ég get nú ekki svarið hver syngur eða hver semur þetta lag en það er allavega skrifað á einhverja David Palmer, Jason Falkner, Justin Meldal-Johnsen og Justin Stanley.


The XX - Crystalized
Og talandi um kuldarokk. Hljómsveitin The XX frá London er kuldarokk með allskonar íblöndun og fyrsta platan þeirra XX, hefur verið að fá góða dóma enda er þetta gott stöff. Vonandi eru þau ekki í ruglinu og við fáum ekki "Söngkonan í XX dauð á pöbb"-fréttir á vísi eftir ár.

28.08.09
Stórveldið Medialux ber ábyrgð á laginu Big Big Big sem maður kemst nú ekki undan að heyra í auglýsingum Vódafón. Mér finnst þetta reyndar gasalegt gott lag, alger megasmellur. Það er Don Pedro sem flytur ásamt söngkonunni Siggu Þóru og dæmið kallast Suzy Thunder. Lagið er frítt hér. Þegar samningurinn við Vódafón rennur út mætti selja lagið aftur, t.d. til Byggingafélags Gylfa og Gunnars ("Bygg Bygg Bygg, við byggjum Bygg Bygg Bygg") eða til líftæknifyrirtækins ORF-Líftækni ("Bygg bygg bygg, við ræktum bygg bygg bygg, erfðabreytt bygg bygg bygg...") Ég vona að Suzy Thunder geri plötu og að öll lögin verði jafn góð og Big big big.
---
Ég fór með öldruðum foreldrum mínum og bróður á ofbeldis- og klámmyndina Menn sem hata konur í Smárabíó í gær. Síðast fóru þau gömlu á Titanic í bíó. Þau voru sammála um að það væri alltof hátt hljóðið og búið að hækka það mikið síðan á Titanic. Verandi öll fv. Kópavogsbúar naut ég þess að keyra um Smárann og sýna þeim þær gríðarlegu framfarir (sumir myndu segja afturför) sem þarna hafa átt sér stað. Deloitte turninn er framtíðarlegasta bygging á Íslandi. Það er örstutt síðan að þarna var mýri og ekki neitt. Uppáhaldsleiðin mín er að keyra fram hjá Toys r us og The Pier og beygja til hægri upp rampinn við hlið turnsins og upp á bílastæðið hjá Smáralind. Það verður varla meira erlendis en það á Íslandi. 
---
Sýningin gekk ekki áfallalaust fyrir sig og klúður Smárabíós er þeim til minnkunar. Fullur salur sat yfir 20 mín af auglýsingum og stiklum fyrir ömurlegar ruslmyndir og svo byrjaði einhver fávitamynd með John Travolta. Strax komst ókyrrð í salinn enda fólk ekki mætt til að glápa á Travolta heldur rammmenningarlega sænska klámmynd. Þau fáránlegu mistök höfðu semsagt átt sér stað að myndin sem átti að vera í sal 4 var óvart í sal 2 og öfugt. Brast því á smölun þegar Travolta-hnakkarnir í sal 4 hlupu í sal 2 en menningarlegu Svíavinirnir úr sal 2 hröktust í sal 4. Þetta var ömurlegt enda við í góðum sætum í sal 2 en vegna hægagangs aldraðra foreldra minna sem áttu lítið í kapphlaupið á milli sala þurftum við náttúrlega að láta okkur nægja sæti upp við tjaldið í sal 4. Svo var þarna fatlað fólk og fleiri gamalmenni sem þurftu að standa í þessari dellu. Var semsé ekki hægt að svissa filmum (eða á hvaða formati þetta er) í sýningarvélunum og auðveldara að smala 300 manns á milli sala? Það var ekki boðið aftur upp á 20 mínútur af drasli, enda hefði þá einhver verið drepinn. Mér finnst ég alltaf vera að lenda í einhverju svona rugli þegar ég fer í bíó. Textavélin biluð, hljóðið ónýtt, myndin úr fókus, eða eitthvað. Sýningarmenn, takið yður tak.
---
Og jú jú, myndin var fín. Maður var ekkert að horfa mikið á mömmu og pabba þegar mesta ofbeldisklámið var í gangi, en annars eru allir orðnir svo sjóaðir í klámi og ofbeldi að það var lítið mál. Fyrir 30 árum hefði sænsk mynd þýtt eitthvað innhverft eftir Ingimar Bergman en nú verður að vera ofbeldi og kynlíf og sama sandalamenntaskólakennaragengið mætir og finnst þetta alveg nógi merkilegt bara af því það er sænskt. Það virðist ekki vera hægt að segja sögu eða gera bíó eða sjónvarp nema það sé einhver spenna og einhver drepinn. Maður er orðinn svo sjóaður að sundurlimaðir búkar, innyflaflóð, nauðgangir og limlestingar renna framhjá án þess að maður blikni. Það þarf að vera eitthvað verulega ófyrirleitið og hrikalegt til þess að maður finni fyrir því (slökkvitækjaatriðið í Irreversible kemur upp í hugann). Ef maður fer kannski og pissar út í skógarjaðri á maður alltaf von á að sjá sundursklorið lík oní skurði. Ég meina, þannig er það í bíó. 
---
Og maður sér hinar tvær myndirnar í Millennium-seríunni, jamm, en ég nenni samt ómögulega að lesa bækurnar.
---

Nögl - Eyes
Nú verð ég seint sakaður um sérstakan áhuga á gruggi eða metali, en hljómsveitin Nögl, sem hrærir þessu saman á nýrri plötu, I proudly present, er greinilega með mikla hæfileikamenn innanborðs. Þétt, vel gert og gríðarlega efnilegt. Bandið kemur frá Grundarfirði, held ég, a.m.k. að hluta, og virðist vera tilbúið til frekari sigra og átaka. Hér er lag sem ég held ég hafi heyrt bílskúrsútgáfu af í gær í hinum áhugaverði þætti Skúrinn á Rás 2. (Nögl í Rjóma / Mæspeis)

27.08.09
Eftir nokkra umhugsun umða hver sé versta vinsæla hljómsveit í heimi hef ég komist að því að fyrir mitt leiti vinnur Guns N Roses. Ég þoli ekki vælið í honum Axeli. Metallica og U2 komast ekki með tærnar þar sem Axel hefur hælana í óþoli og ég verð ekkert pirraður þegar er verið að spila þessa artista í spinning. En þegar helvítis Paradise city kemur með vælinu í þeim rauðhærða á ég í fullu fangi með að missa ekki allan mátt og leggjast í gólfið.
---
Nú er maður svona miðaldra settlegur karl sem finnst gaman að fara kannski einu sinni á ári til útlanda með vinum sínum í ferð sem snýst um að fara á gigg með eins og einni hljómsveit. Í febrúar var það velheppnað kombakk Magazine sem allt snérist um, en nú er maður að skoða hvað getur komið næst. Ég vona helst að hljómsveitin Devo verði á ferðinni. Þeir frábæru listamenn eru að gera nýja plötu, þá fyrstu síðan 1990, og ég bind miklar vonir við það sem stendur á heimasíðunni þeirra: "We'll list any new shows as we get the confirmations. Lots of plans for 2009/2010!" Þar sem Devo eru meðal 10 bestu banda í heimi skv. vísindalegri niðurstöðu minni væri vitaskuld frábært að sjá þá þótt gamlir og lúnir séu. Maður veit náttúrlega ekkert hvernig þessi nýja plata þeirra verður. Þeir eru allavega að átsorsa plötuna og láta lið eins og LCD Soundsystem koma að henni (skv. þessari glefsu úr Rolling Stone). Svo er hér nýlegt spjall við Gerald Casale.
---
Hvað annað væri geðsjúkt að sjá? XTC fara varla að spila úr þessu. Nick Cave er örugglega ekkert að spá í að vera með Birthday Party kombakk og Bítlarnir með Sean eða Julian Lennon og þarna syni George Harrisson sem er með einhverri íslenskri stelpu (hver var það aftur? Dóttir Árna Ken í Keflavík?) eru varla að fara að spila saman á ný. En auðvitað myndi ég mæta á þetta allt! Eitthvað dót er búið að vera í gangi sem er svona b-stöff en maður myndi alveg láta nægja sem utanlandsferðarhvata. Það er ágætt að fylgjast með þessu á síðu Mojo blaðsins, sem er einmitt stílað inn á svona markhóp eins og ég er, miðaldra músikáhugamenn. Miðað við úrvalið þar líst mér best á The Specials, sem eru að spila á fullu reyndar án aðalmannsins, Jerry Dammers. Hann vildi víst frekar fara að spila ný lög en að hjakka á ellismellunum.
---
Nús er maður alveg þokkalega kóveraður þegar kemur að sjóun í áhorfi á poppsnillingum. Hef farið á tónleika með Paul McCartney, sá Brian Wilson þegar hann spilaði Smile í fyrsta skipti, og var á sama leikvangi og Rolling Stone. Í sömu ferð át ég m.a.s. borgara á Sticky Fingers búllu Bills Wymans. Ég hef greinilega látið setja mig á mailinglista búllunar því ég er enn að fá send nýjustu hamborgaratilboðin! Annars þarf ég að tékka á bókinni sem hann skrifaði, Stone Alone. Hún ku djúp. Nenni samt ekki að lesa ó-stóns-tengdar bækur sem hann hefur skrifað, eins og t.d. þessa.
---
Ég á gamlan Nóa-konfektkassa með fullt af aðgöngumiðum frá tónleikum sem ég hef séð, aðallega á 9. áratugnum. 

Ég sá Echo & The Bunnymen í Höllinni 1983. Eina sem ég man eftir því er að Trausti Júlíusson reif fyrir mér 10 franka franskan seðil í áfengismóðu. 

Hin dularfulla Grace Jones kom líka 83 og spilaði í Safarí. Þar var mjög lágt til lofts. Ég man ekki mikið nema að í byrjun giggs kom karlkyns eftirlíking af Grace fyrst á svið og allir fóru að klappa. Svo kom Grace sjálf og eftirlíkingin annað hvort lét sig hverfa eða var eitthvað að skaka sér á sviðinu. Ég man að Grace gekk gríðarlega nálægt mér þegar hún fór á svið. Grace var víst á Hróarskeldu í sumar og var með gigg sem sumum þótti það besta á hátíðinni, a.m.k. Andreu Jóns.

Þegar ég bjó í Lyon , Frans, veturinn 86-87 sá ég slatta af böndum, m.a. Suicide. Þeir voru í mikilli eiturlyfjamóðu. Alltaf að fara á bakvið á meðan trommuheilinn svitnaði á sviðinu. Við ímynduðum okkur að þeir væru að sprauta sig.

Residents voru fjórir á sviðinu, þar af tveir dansarar með brjóst. Einn residenturinn söng en hinn spilaði á sinta og dót. Gott gigg, minnir mig. 

Samkvæmt þessu sá ég PIL og Pete Shelley úr Buzzcocks hitaði upp. Ég sverða, ég man ekki neitt eftir þessu!

Ég hlýt að hafa séð The Woodentops fyrst ég á þennan miða. Man þó ekkert eftir því. Þetta band þótti nokkuð kúl á þessum tíma og spilaði síðar á Íslandi á Broadway með Daisy Hill. Þá var ég í útlöndum, minnir mig. Ég man hvorki eftir gigginu né bandinu. Hef örugglega ekki hlustað á það síðan 1988! Þá er bara að láta reyna á netið, t.d. jútjúb. Úff, hundleiðinleg hljómsveit!

26.08.09
Enn á ný kemur stjórnmálamaður með asnalegt nafn og bætist í góðan hóp manna eins og Búdrosbúdrosgali, Hælassílassí, Bankímún og Alesterdarling. Þessi er búinn að vera smá í fréttum út í Afganistan og heitir Abdúlla Abdúlla og ekki bara það heldur Dr. Abdúlla Abdúlla. Ha ha ha! Djöfull vona ég að Dr. Abdúlla Abdúlla vinni þessar kosningar. Maður glottir alltaf smá út í annað þegar talað er um Dr. Abdúlla Abdúlla.
---
Svo er meira fyndið í fréttum, sem er léttir eftir allt Icesavehjakkið. Lufsan skildi ekkert í mér fyrir að hafa ekki vitað neitt um þetta mál með Sigmund Erni fyrr en í gærkvöldi. Ég fór að skellihlæja þegar ég sá brot í sjónvarpinu í gær, snéistápunkdinum, snéistápunkdinum. Hér hefur einhver lagt það á sig að setja þetta á jútjúb. Djöfull er maður annars glaður að vera ekki að vinna á alþingi. Er til geldari vinnustaður? Og svo er það stóra spurningin hvort hlaupagikkurinn Caster Semenya sé kall eða kerling. Lufsan vill meina að hún sé tvítóla. Er ekki einfaldast bara að kippa niðrum hana/hann?
---
Í kvöld kl. 22:45 er hin fína heimildarmynd um Joe Strummer, The Future is unwritten, á Rúv. Skilduáhorf.
---
Það er orðið svo auðvelt að verða sér úti um niðurhalaða tónlist að það jaðrar við geðveiki. Aðalmálið í dag er að vita hvern andskotann maður eigi að hlusta á! Því hafa fyrirbæri eins og bókin 1001 Albums you must hear before you die rutt sér til rúms. Hann Arnar Eggert skrifar um nokkrar plötur í þessari ágætu bók. Eins og gefur að skilja eru þarna taldar upp 1001 plötur sem fólk ætti að hlusta á áður en það gefur upp öndina. Nú hefur einhver brjálæðingur í útlöndum tekið það að sér að bjóða upp á þessar 1001 plötur í hali. Hann er kominn upp í 435.
---
Það eru reyndar til allskonar bækur um allskonar hluti sem maður á að gera áður en maður drepst. Eru kallaðar Before you die-bækur. Það er einhver ónáttúra tengd þessum bókum, finnst mér. Þær ýta undir þá hugmynd sem sprottið hefur upp á undanförnum árum að lífið sé einhver helvítis kringla sem maður eigi að labba í gegnum og kippa því besta í körfuna. Áður en maður fer í gröfina. Að allt eigi að snúast um að kreista sem mest út úr lífinu. Auðvitað gerir það það, svo sem, en það er bara einhver örvænting í því að hamra á þessu í svona bókum. Það hvernig þetta er sett fram er mér ekki að skapi, ekki bara í þessum bókum heldur bara almennt, m.a. í auglýsingum. Þú átt bara eitt líf, lifðu því til fulls (og fáðu þér síma hjá okkur), er algeng mantra. Þykjast þessir auglýsingagerðarmenn vera búnir að afsanna endurholgun eða speki Biblíunnar? Vegna þess að fólk telur sig eiga að kreista allt úr út lífinu flækist það á milli atvinna, sambanda og/eða námsbrauta í endalausri og örvæntingarfullri leit að hinni fullkomnu hamingju. Sem er í raun kannski bara eitthvað jafn óglamúrus og að fjölga sér og takast á við þau verkefni sem því fylgir, borða góðan mat, fá adrenalínkikk, smella Boney M á fóninn og láta hverjum degi nægja sínar þjáningar. Þú veist, ekki synda allsber í sjónum við Isla Palenque með miðnætursólina yfir sér hafandi barist við hákarl fyrr um daginn og verandi í einhverju James Bond dæmi upp á hvern dag. 
---
Ég er viss um að Dr. Abdúlla Abdúlla er sammála mér.

25.08.09
Taktu föstudagskvöldið 4. sept frá því þá verða súpertónleikar á Grand rokk. Dr. Gunni spilar plötuna Inniheldur í fyrsta og kannski eina skipti. Hljómsveitin Hellvar mætir funheit frá miðbæ Keflavíkur (ég minni á hið magnaða nýja lag þeirra Falsetto) og hinn einstaki og æðislegi trúbador frá Kópavogi INSOL tekur lagið (ég minni á lög hans Er ég ekki of gamall fyrir þig og Hvenær mun hér á Íslandi rísa stjörnusambandsstöð). Fjórða áleggið á þessari einstöku tónpizzu er hljómsveitin Blóð sem mætir með rauðar málningaslettur á höndunum (ég minni á lag þeirra Icesave). Giggið er haldið af hinu unaðslega tímariti Grapevine og það kostar 1000 kall inn.
---
Fyrsta æfing hjá bandinu var í gær og þetta rann allt eins og velsmurð steinsmuga. Auk mín spila Kristján Freyr á trommur og Haukur kenndur við Morðingja á bassa. Báðir syngja svo eins og englar með mér. Ég náði í Insol eftir krókaleiðum. Það er allt að gerast hjá honum. Hann segist vera að vinna að nýju efni og Svavar Knútur var þegar búinn að bjóða honum að spila á einhverri Melódíka-hátíð sem er um næstu helgi. Insol er á Facebook og það er bara tímaspursmál hvernær þú gerist aðdáandi. Þar komst ég að því að Insol hefur gert 8 diska, ekki 6 eins og ég hélt fram hér nýlega, og mig vantar Jafnréttið er framtíðin (útgefin 2003) og Við eigum að samstillast öll (útgefin 2003).
---
Mér skilst að Jón Ásgeir skuldi agalega mikið. Kannski svona 1000 milljarða þegar allt kemur til alls. Ef hann hækkar Bónusbrauðið um 10 kall hvað þarf þá hann þá að selja mörg brauð til að borga þetta upp? Ég get því miður ekki reiknað þetta því ég kann ekki að stimpla 1000 milljarða inn í vasatölvuna.
---

Morðingjarnir - '81
Morðingjarnir vinna nú að þriðju plötunni sinni og er hún væntanleg með haustinu. Ég heyri ekki betur en að þetta sé poppaðra en áður. Hér er eitt lag til að hita þig upp fyrir gúmmilaðið. 

24.08.09
Þau eru dáldið lík lögin Leipzig með Hraun og Eyjan græna með Egó. Tékkaðu á því. Verst að ég var með þessi bæði lög á heilanum þegar ég labbaði á Skessuhorn í gær. Þetta er hræðilega útlítandi fjall, ógnvekjandi og frekar strembið eftir því. Maður er marga klukkutíma að komast þarna upp. Ef maður kemst þá upp. En auðvitað bara fínt ef maður drepur sig ekki, fullt af berjum þarna í Borgarfirðinum, bæði aðal og aukabláber og krækiber. Ég stakk strákana af og átti einrænar sálfarir við Móður jörð og berin á niðurleiðinni. Fátt betra en að viðra sig sálrænt og fá heilbrigða útrás fyrir núdismann. Svo í Hreppslaug sem Blómey hafði sóló fyrir sig. Það var skerpt á heita pottinum fyrir okkur þar til kjötið losnaði af beinunum. Dúndur sunnudagur á Íslandi, hvað viltu það betra?
---

„Music for guys with food stains on their shirts“ er sniðug lýsing sem ég finn mig í þótt ég sé ekki endilega alltaf með matarleifar á skyrtunni (eða eiginlega aldrei!). Er slógan fyrir útvarpsþáttinn Choking on Cufflinks með Michael Goodstein á hinni engu líku og æðisgengnu Wfmu útvarpsstöð í New Jersey, sem er eins og áður hefur komið fram, besta útvarpsstöð í heimi. Talandi um menn með matarleifar á skyrtunni þá hef ég orðið mér úti um myndina Vinyl sem fjallar um súpernörda og vinýlsafnara. Horfi á hana bráðlega. Er annars að velta því fyrir mér hvort ég eigi að hefja komplíteringu á Top of the Pops plötunum. Það er allt vaðandi í þessum plötum í kössum innanlands og eftir því sem ég kemst næst voru gerðar 92. Maður myndi þá frekar safna þessu út af umslögunum, sem er alltaf með pósandi seventís gellu, fremur en innihaldinu, sem er kóverversjónir af samtímasmellum fluttar af óskilgreindu sessjónfólki í akkorði. Það er auðvitað einhver sem er búinn að gera heimasíðu um fyrirbærið svo ég held ég láti þetta bara eiga sig!
---

Eiki Einars - Mitt á meðal manna
Maður með Bítlatopp kom hlaupandi út úr íbúð við hliðina á Esperantofélaginu (sem mér finnst alltaf jafn æðislegt að sé enn starfandi) og gaf mér disk. Mun þetta hafa verið Eiki Einars og diskurinn volgur úr pressun heitir ...ég er með hugmynd! Músikin er glatt og hressandi bítlapopp og hugmyndin, eftir því sem ég kemst næst, er að snúa sér að Jesúm. Þá verður allt frábært, eða svipað því að maður setti á sig 10 þúsund Lifewave plástra í einu (eða eitthvað!). Mig rámar í að Eiki hafi einu sinni staðið fyrir bítlakvöldi á 10 áratugnum svo allar Bítlasamlíkingar eru ekki úr lausu lofti gripnar. 

22.08.09
Fór í nýja Eymundsonbúð í gamla Spron á Skólavörðustíg. Flott búð. Þar er reynt að halda gamla M&M fílingnum af Laugarvegi, enda er þarna mest starfsfólk úr gömlu búðinni. En allavega, keypti nýja matreiðslubók snillingsins Nönnu Rögnvaldsdóttur fyrir Lufsuna sem átti afmæli. Á kassanum sá ég að miðaldra Svíi sem leit út eins og Sigríður Snævarr var að kaupa nýju túristabókina mína. Ég var að spá í að bjóðast til að árita bókina, eða áreita öllu heldur. Ég uppveðraðist allur að sjá að ókunnugt fólk var að kaupa eitthvað eftir mig. Bókinni er annars vel útstillt í miðbænum og ég ætla rétt að vona að hún rjúki út, enda mjög góð. 
Dagbjarti langaði í kókómjólk svo við fórum í Vísi á Laugarvegi. Kirsuberjaáhugafólk ath: Í búðinni fást gríðarlega djúsí kirsuber á 1800 kall kílóið. Keypti fyrir 355 kr. sem dugði mér að japla á upp í Korputorg (í skoðunarferð með Db í ToysRUs), reyndar með því að kjammsa lengi á hverju beri (Db: Afhverju heita þetta kyssuber? Verður maður að kyssa einhvern þegar maður borðar þau?). Það er svo skrítið með kirsuber að þótt þau líti öll vel út eru sum bragðlaus og vatnssósa á meðan önnur er fullkomin: stinn, sæt og safarík. Það er snúið að velja þetta í poka. 1800 kall fyrir kílóið er kannski ekkert svo rosalegt. Fyrr um daginn keypti ég t.d. krækiber í boxi í hinni frábæru Melabúð, kílóið af þeim á 700 og eitthvað. Lufsan skammaði mig fyrir að eyða peningum í krækiber, en mér finnst nú ekki 214 kr mikið fyrir fullt box af krækiberum sem maður getur rutt í sig og ímyndað sér að maður liggi í brekki við læk.
---
Það hefur lengi verið draumur minn að heimsækja Valda koppasala. Það hefur bara aldrei dottið koppur af í þessi ár sem ég hef haft bílpróf. Eitthvað hef ég verið að þjösnast í köntum því nú var einn dottinn af og ég til Valda. Heimkynni hans við Rauðhóla eru glæsileg og hann kom hlaupandi út úr húsinu þegar ég renndi í hlað. Oft bölva ég í hljóði að eiga ekki gsmsíma með myndavél. Valdi var viðræðugóður og talar í snöggum setningum sem hann baunar á mann. Við gengum a.m.k. þrisvar sinnum á milli bílastæðisins og koppageymslunnar með nýja og nýja koppa til að máta og á meðan óð á Valda. Hann komst að því að ég þekki Ólaf Gunnarsson og Einar Kárason og að ég var ekki á sýningu Krúserklúbbsins í Nesti á fimmtudaginn. Ég komst að því að hann fílar Glen Miller og Elvis og að í bókinni Heimskra manna ráð eru tvær blaðsíður um hann. Svo sagði hann mér að koma að taka viðtal við sig þegar ég byrjaði aftur á Fréttablaðinu en ég mætti ekkert spyrja um Icesave og önnur svoleiðis helvítis leiðindi. Topp maður, Valdi. Eftir að hafa mátað þrjá Renault koppa sem enginn toldi á, endaði Valdi með því að smella Citroen koppi undir sem smellpassar og er stórglæsilegur. Klós enöff. 2000 kall. Ekki undir 5000 í umboðinu, sagði Valdi.

Egill S - Crazy like a bee
Nýja platan Egill S með Agli Sæbjörnssyni er dúndurflott þótt hún sé á ensku. Tónlistin er settlegri en áður á Tonk og takmarkaða stöffinu, tilraunavillimenskan ekki lengur fyrir hendi en bara lög&textar í staðinn. Platan er meira ballads en rokkáts. Ég sakna þess reyndar að það sé ekkert jafn flippað og dýralögin á allra fyrstu plötunni. Platan er jafnvel aðeins of settleg og alvarleg - of „fullorðins“.

Skelkur í bringu - Sindri drepa
Sem er einmitt ekki það sem Húðlitað klám með Skelkur í bringu er. Vilji maður villimennsku, flipp og hráleika tékkar maður á henni. Ég veit ekkert um þessa krakka. Kannski eru þau í LHÍ? Helíumrödd söngkonunnar minnir á Möggu Stínu á fermingaraldri og þau eru öll lófæ, fössuð og fremur frábær á þessari plötu. Taka þarna Googoomuckið sem Cramps riðluðust og kalla það Slímógeð. 15 laga plata og sumt bara rugl.

21.08.09
Ég mæli eindregið með því að fólk einbeiti sér alhliða að því að missa ekki af POPPPUNKTI í kvöld. Þetta er síðasti þátturinn í 8-liða úrslitum, Sigur Rós keppir við Bloodgroup. Það verður rafmögnuð snarspenna.
---
Það er ágætt að vera reiður, en dálítið slítandi til lengdar. Og leiðinlegt. Maður vaknar kannski ágætlega hress eftir fínar draumfarir en gerir svo þau mistök að lesa fréttir eða kíkja á Eyjuna. Eftir ekki langan lestur er tilfinningin um að maður búi í ormétnum hestshaus ofan í sneisafullum spillingarkamri orðin svo viðloðandi að maður þarf að taka sér frí frá lestrinum, setja eitthvað róandi á fóninn og anda djúpt. Ekki til að gleyma heldur til að geyma. Ég var eitthvað að röfla um siðverslun á Rás 2 í gær. Siðræna neyslu. Við þekkjum þetta frá umræðunni um að ekki sé samboðið samvisku manns að kaupa föt sem búin eru til af börnum í 3ja heiminum, þótt það sé ódýrast. Nú snýr önnur en svipuð spurning upp á okkur. Er það samboðið samvisku okkar að versla við þá sem koma landinu á kúpuna og gerðu lífskjör okkar verri, bara af því það er ódýrast? Og hvers vegna í andskotanum er okkur ennþá boðið upp á þann valkost? Hversu skelfilega geta lúðulakar farið á hausinn án þess að allt dótið sé tekið af þeim? Hvar eru „góðu“ þjóðfélags-samábyrgðu kapítalistarnir sem við getum verslað við án þess að herpast saman að aftan? Er kannski „góður-kapítalisti“ þversögn og enginn munur á kúk og skít? Ég veit að þetta er smekklaus samlíking en þetta sem við stöndum frammi fyrir er eins og ef Þjóðverjar hefðu ennþá þurft að versla í Göringskaupum eftir stríð til að fá besta dílinn. Eins og Þjóðverjum hefði verið boðið upp á að horfa á tónlistarmyndbönd á Hitlers-TV 1946. Það sem allir almennilegir Íslendingar hljóta að vera að biðja um er þetta: Við viljum óbragðið úr munninum, takk. Munnskol 2009 - hvenær kemur þú?
---
Góður kapítalisti, já. Er það eitthvað ofan á brauð? Er það ekki svona eins og Alli ríki. Kallinn sem allir elska í bænum af því honum er ekki sama, hann veit að hann er hluti af samfélaginu, ekki álegg úr gulli ofan á það. Svona eins og Björgólfur eldri vildi líklega vera, brosandi og veifandi til allra niðrí bæ eins og einhver Vallí Vonka. Hagvöxtur er hamingja, græðgi er góð, hún er eimreiðin sem teymir okkur áfram, sögðu menn slefandi af losta en enginn gaf beinlínis út leiðbeiningar yfir það hversu mikil græðgi væri æskileg. Hver á að ráða því? Upp í hugann koma 10-fréttir sjónvarpsins 11. september 2001. Ómar Ragnarsson er í Icelandair þotu í New York með Sjálfsstæðismanninum Birgi Ísleifi Gunnarssyni. Heimurinn er í uppnámi, Ómar er æstur, Birgir er rauður í framan af gleði. Nú hækkar sko álverðið, maður, því nú þarf að framleiða og framleiða stríðstól, segir hann og brosir með öllu andlitinu. Græðgi er góð. Nó matter vott.
---
Hjálmar sýna mynd um Jamaikaferð sína í Austurbæ auk þess að spila lög af plötunni sem þeir tóku þar upp, IV. Hitti Kidda og Þorstein í gær. Þeir voru að fá sér pítsu með ungbarnadrullu á Pizzaverksmiðjunni. Þeir sögðu mér að 90% jamaískra karlmanni reykir gras daglega. Usain Bolt er áreiðanlega einn af þessum 10%. 

20.08.09
Mikki refur er Bakþanki í dag. Var að lesaða að Glen Matlock sé á Íslandi. Þetta finnst mér frekar æsandi tíðindi.
---
Þú getur hætt að væla: Baggalútur er kominn úr sumarfríi.
---

Látinn er Bretinn Steven Wells, aka Seething Wells, aka Swells (1960 - 2009). Ég heyrði fyrst minnst á hann þegar ég fór að fá fanzine frá Bretlandi sirka 1984. Þá var hann hluti af ranting grín/ljóða hreifingu sem oft hitaði upp á tónleikum. Annar var Attilla The Stockbroker og böndin sem voru í gangi hétu kannski Bogshed og Half man half biscuit. Löngu síðar varð hann blaðamaður á NME og tók viðtal við okkur í Unun. Ég held að viðtalið hafi farið fram út í sveit. Unun var oft eitthvað að hanga á sveitabýlum/stúdíóum að vinna að efni sem aldrei kom út og þangað komu blaðamenn til að taka þátt í ruglinu. Ég man ennþá eftir samræðunum sem ég átti við Steven um bartskera. Hann notaði einn slíkan til að raka sig um hausinn eins og ég. Hann hvatti mig eindregið til að nota olíuna í litla brúsanum og bera hana á blaðið eftir hvern rakstur. Að með þessu myndi græjan endast mun betur og raksturinn verða mýkri. Síðan hef ég farið eftir leiðbeingingum Stevens. Sem nú er látinn.
---

Weapons - Up tight
Mér barst plöggtillaga frá hinni fínu sveit Weapons: Í kvöld ætlar hljómsveitin Weapons að halda útgáfutónleika á tónleikastaðnum Sódóma Reykjavík í tilefni af útgáfu þeirra fyrstu plötu “A Ditch In Time” sem kemur út á vegum Future Records. Verða þetta  fyrstu tónleikar sveitarinnar eftir langt hlé, sökum þess að bassaleikari hennar er nýkominn frá Tennessee í Bandaríkjunum þar sem hann gerði Mastersverkefni um sögu Elvis Presley, einn helsta áhrifavald sveitarinnar.
Hljómsveitin hefur lítið komið fram opinberlega síðan á síðustu Airwaves hátíð, þar sem sveitin fékk geysilega góða gagnrýni fyrir líflega og kraftmikla tónleika. Útgáfutónleikarnir hefjast klukkan 21:00. Um upphitun sjá hljómsveitirnar Swive og Útidúr auk trúbadorsins Helga Vals. Eftir tónleikana mun svo Dj. Óli Dóri halda uppi stemmingunni. Það kostar 500 krónur inn en það er frítt inn fyrir þá sem festa kaup á plötunni á aðeins 1500 krónur. Hljómsveitin stefnir á Bandaríkjatúr með haustinu.

19.08.09
Það á að rífa rólóinn á Lynghaga upp. Íbúarnir vilja taka málin í sínar hendur og svona stuð. Smá kreppufílingur, sem er frábært. 2007-stíllinn hefði verið að fá Glitni til að sponsa og rennibrautirnar hefðu verið með Glitnislógóinu. Það var útifundur í gær, samstöðulala með pylsum frá Melabúðinni og geðveiku stuði. Svo kom brjálað veður og blöðrurnar fuku. Þarna voru allir aðal. Ég, Steini Sleggja, Ögmundur (topp náungi!), Kjartan og Felix. Nýtt band?
---

Woodpigeon - Love in the Time of Hopscotch
Trédúfa  frá Kanada spilar dúllulegt skátaindie á Batteríinu (gamla Organ) á morgun, fimmtudagskvöldið 20. Míri og Retro Stefson spila líka. Það er OkiDoki sem heldur tónleikana. Þaðan kom fréttatilkynning: 

Stundum líkt við og nefndur í sömu andrá og Fleet Foxes, Sufjan Stevens og Grizzly Bear; Woodpigeon er af mörgum talin nýjasta vonarstjarna kandísku tónlistarbylgjunnar.
Woodpigeon kemur frá Calgary í Kanada og er hugarfóstur söngvarans lagahöfundarins Mark Hamilton. Hann vakti fyrst athygli fyrir sína fyrstu plötu 'Songbook' (2007) í heimalandi sínu og hóf í kjölfarið að leika á tónleikum með Broken Social Scene, Iron and Wine og The Dears víðsvegar um Kanada.
Önnur breiðskífa Woodpigeon 'Treasury Library Canada' (2009) hefur hins vegar náð langt út fyrir Kanada og fengið glimrandi dóma hjá
tónlistargagnrýnendum um heim allan. Platan náði nýverið inn á stuttlista Polaris Prize plötuverðlaunanna (kanadíska útgáfan af Mercury Awards), sem ekki ómerkari listamenn en Arcade Fire, Wolf Parade og Feist hafa bitist um síðustu ár (en alltaf lotið í lægra haldi, Íslandsvinir í Final Fantasy og Patrick Watson hnepptu hnossið árin 2006 og 2007, Caribou 2008).
Woodpigeon hefur þrætt tónlistarhátíðir sumarsins og leikur á END OF THE ROAD Festival, HALDERN POP í Þýskalandi, WAY OUT WEST í Svíþjóð og SUMMER SUNDAE í Bretlandi dagana fyrir komu sína til Reykjavíkur.
Framundan hjá Woodpigeon eru síðan tónleikar á Pop Montreal og CMJ í New York.
Woodpigeon leikur á Batteríinu, fimmtudaginn 20. ágúst, ásamt Retro Stefson og Miri. Mark Hamilton kemur fram sem Woodpigeon bæði með hljómsveit og eins síns liðs, og verður einn á sviði í Reykjavík.

Það er ekki af Kanadamönnum skafið að þeir eru alltaf svo helvíti snyrtilegir eitthvað. Ég fílaða. Hugrenningatengsl við kartún Drawn & Quarterly útgáfunnar koma upp í hugann þegar maður hlustar á margt kanadískt stöff, heimspekilega sinnað fólk í mokkafrökkum að spá eitthvað. Kannski í haustroki með eðalkaffi í máli. Haustlegir, Kanadamennirnir.

18.08.09
Líf og fjör í Reykjavík í gær. Keypti gervikúk í Hókus Pókus (besta búðin!) Nú verður sko grínast. Gleymdi að kaupa pönkilminn, hvaðann heitir aftur – ponsjó? Það var bara til ein tegund af gervikúk. Kreppan, mar. 
---
Skoðaði Henson verksmiðjuna með Hensoni sjálfum. Hann á fótspor George Best í steypuklumpi sem hann keypti á Ebay og er með memorabillíu með Lenin upp á vegg, nema það hafi verið Stalín. Á áritaðan bol frá Maradonna. Er kominn með vísi að safni í verksmiðjunni. Það er engin kreppa í Henson. Snarbrjálað að gera. Fékk flotta peysu til að vera í í PP. 
---
Fór líka í Brim til að fá töff og kúl Billabong og Element boli til að vera í í PP. Bubbi í Brim sagði mér að það horfir til vandræða í búðinni nú þegar krakkarnir sem vinna hjá honum eru að týnast í skóla. Hann er búinn að auglýsa í 3 vikur eftir starfsfólki en enginn hefur sótt um. Ekki einn! Samt borgar hann ágætlega að eigin sögn. Kannski er að koma upp kynslóð atvinnuleysingja sem heillast af fyrirbærinu? Það var ófínt að vera atvinnulaus einu sinni, en nú er það allt í lagi? Það eru allir atvinnulausir hvort eð er! Hvað veit maður? Það er allavega ekki fullmannað á frístundarheimilin og í Smáralind sá ég a.m.k. 3 atvinnuauglýsingar út í gluggum verslanna.
---
Í Mai Thai á Hlemmi eru komnar 5 nýjar gosdrykkjartegundir, eiturgrænar og kjarnorkurauðar. Smökkun fer fram bráðlega. 
---
Sá mann á einhjóli að tala í farsíma. Er alltaf að sjá hann. Afhverju er ekki komið viðtal við hann í blöðunum? Það virðist bölvað vesen að halda jafnvægi á þessu. Hvað gengur manninum til? Sé líka stundum menn eða mann á Segway labb-hjólinu (eða hvað á að kalla þetta). Væri til í að prófa Segway, ekki af því að ég nenni ekki að labba, heldur bara til að prófa.
---
Keypti nýjasta Mojo á 885 kall í Hagkaup, sem er mjög gott verð þegar blaðið kostar 4.50 Pund í Englandi. Hvernig fara þeir að þessu? Gáði hvort þessi díll náði yfir línuna en þá var eitthvað hefímetalblað á 1.675 kr sem kostar 3.99 Pund í Englandi, svo svo er ekki. Svo kostaði bara 200 kall í barnalandið í Laugum, en var meira einu sinni. Er kannski Okursíðan farin að bera árangur?
---

White Denim - YoYo (Bonus track)
Viðtal við White Denim vakti athygli mína í Mojo. Þetta er dúndur amerískt tríó frá Austin sem grautar í ýmsu. Pönk Beefheart, if you will. Þriðja platan heitir Fits og er á fóninum. Svo er víst Telstar, leikin mynd um enska pródúserinn Joe Meek komin út, sá ég. Þetta er nú eitthvað sem maður verður að sjá. Las bók um hann og hans ferill er allur sveipaður dulúð. Örlí sixtís hommaleynd a la Epstein, geimveruáhugi, bransastuð, dulræn reynsla í sambandi við andlát Buddy Holly, og morð og sjálfsmorð. Heldjúsað og spennandi og tónlistin lyktar af þessu, víruð.
---
Vá, þetta myndband er súrtunna dauðans: Fullir örlí næntís hnakkar í bænum. Upphafið að endalokunum! Nei, svona í alvöru: Hvenær verða hinar réttu orsakir Hrunsins afhjúpaðar? Þetta lið sem kom okkur á kúpuna var meira og minna alltaf draugfullt og þaðan af verra og með bullandi ranghugmyndir í takt við ástand sitt. 

16.08.09
Mér fannst dáldið sætt að sjá alla alþingiskallana og kerlingarnar faðmast þegar búið var að vrappa upp þessari endalausu Icesave steypu. Þetta fólk mætti gera meira af því að faðmast (ekki á væminn hátt heldur svona kumpánlega eins og þau gerðu). Það er bjartsýnisskapandi fyrir plebba eins og mig út í bæ og uppörvandi fyrir framtíðinarhorfurnar. Allt þetta tuð og rifrildi og svartsýnisraus er ekki til að bæta andlega heilsu þjóðarinnar. Spáiði aðeins í það, alþingisfólk.
---
Vinýlplötusafnarabransinn á Íslandi er fullur af hákörlum sem svífast lítils í fíkn sinni eftir réttu plötunni. Hákarlar sveima við dyr Góða hirðisins þegar þar opnar kl. 12 (gáðu bara, það er yfirleitt um 100 manns fyrir utan þegar opnar í þeirri von að hremma rjúpu eftir Guðmund frá Miðdal eða Icecross plötu). Í Kolaportinu sveima hákarlar og stökkva á kassa með Boney M og Brunaliðinu ef þeir sjá. Ég fór því vitaskuld með það sem mannsmorð þegar mér var sagt frá „fullt af plötukössum“ í Nytjamarkaði Skallagríms út í Brákarey í Borgarnesi. Í gær ókum við Skaptason á svæðið og komum ekki tómhentir út. Fyrst var reyndar stoppað í Esjustofu sem er glænýtt kaffihús við Esju-rætur. Nú er komin kaka í nágrennið sem maður getur hugsað um alla leiðina upp á topp og aftur niður. En plöturnar já. Þetta var sem sé alveg ágætis úrval, því miður ekkert af pönki, en maður dró með sér slatta, enda hræbillegt:

Donovan - Fairytale
The Cut - Shadow Talks (Norskt nýbylgjuband sem kom til Íslands)
Manfred Mann - Mann made hits
The Hollies - For certain because...
Paul McCartney - Choba B CCCP
Roy Wood - Mustard
Stephen Stills 2
VA  - Concert for the people of Kampuchea (Clash, Who, Queen og fleiri að styrkja árið 1979 í tónleikaröð skipulagðri af Makka og Kurt Waldheim).
Stevie Wonder - Journet Through the secret life of plants
Kate Bush - The Sensual world (handa Heiðu)
Julian Lennon - Valotte
Humble Pie - Thunderbox
Abba - The Visitors / Super Trouper / Arrival / Voulez-Vous (þá verður ekki undan því komist að komplítera Abba, enda æðislegt band!)
Friðryk - Friðryk
Trúbrot fyrsta, nær óspilað eintak
Hljómar I og II, handónýt eintök sem hanga saman á lýginni
Hallbjörn - Kántrý 3 - sjaldgæfasta plata meistarans
Magnús Eiríksson - Smámyndir
Mannakorn - Í ljúfum leik (Maggi goes new wave!)
Jónas & Einar
Náttúrubörn
Helgi Pé - Þú ert

Það er svo sem ekki mikið eftir handa öðrum hákörlum eftir að við djúphreinsuðum kassana, en eitthvað þó. Svo bætist kannski eitthvað við. Svo er slatti af bókum þarna og allskonar dót eins og gengur á nytjamörkuðum. Þarna verður opið á laugardögum á milli 12 - 16, a.m.k. það sem eftir lifir af ágúst.
---
Og talandi um vinýlplötur: Hér er listi yfir verðmætustu plötur í heimi.

15.08.09

Þetta góða grín er úr nýjasta Grapevine, sem er að koma brakandi ferskt og stútpakkað á göturnar. Mér finnst þetta fyndið. Eins er fyndin þessi mynd af hugrökkum lúser-hagfræðingum með dauðri kvígu. Mér skilst á manni sem hefur farið austur að drepa hreindýr að þetta sé ekki mjög karlmannlegt. Hreindýrin eru í stórum hópum og  veiðihetjurnar liggja með kíki á byssunum og geta valið sér dýr til að stúta í rólegheitum, næstum því eins og að velja sér bindi í Sævari Karli. Þetta er eins og að skjóta síld í tunnu. Þeir feitustu/lötustu láta svo skutla sér alla leið á 4-hjóli svo það þarf ekki einu sinni að vera hreyfing í þessu.
---
Ég er enn að velta því fyrir mér hvort það sé gott eða slæmt að löggan sé ekki alveg viss um það hvoru megin víglínunnar hún mun standa ef það verður önnur búsáhaldabylting. Ég veit það kannski ef Davíð Oddsson verður fremstur með sleif og pönnu.
---

Framtakssamir ættu að stofna Góðærissafnið. Þar væri af nægum safngripum að taka. Allskonar vitleysa væri sett í glerbúr fyrir framtíðarkynslóðir að flissa yfir. Drasl frá bönkunum gæti verið þarna, til dæmis þessi mynta sem kom í pósti: „Félagi minn gaf mér þessa myntu. Þessar myntur voru víst settar með á matarbakkana í Icelandair vélunum hér í den. Veit ekki hvort ég hafi lyst á henni, skilur ábyggilega eftir óbragð í munni. En skemmtileg öfugmæli þarna á smáa letrinu.“
Þess má geta að það var allt vaðandi í þessum myntum þegar ég fór á tónleika Hjaltalín á Vellinum í haust. Ég fattaði ekki að geyma mér eina til að gefa í Góðærissafnið. Ég er viss um að svona safn yrði vinsælt, sbr. það að í Berlín eru vinsælir staðir þar sem gælt er við fortíðarþrá yfir kommúnistatímanum. Í Góðærissafninu væru auðvitað vaxbrúður sem segðu rugl ef ýtt væri á takka. T.d. HHG með hinn frábæra frasa um grill og gróða (eða bara HHG sjálfur ef þetta verður ríkissafn) og Haarde með "Maybe I should have".

14.08.09
Ekki get ég sagt að ég hafi nennt gegnheilu grúski á nýútkomnum plötum á þessu ári. Ég hef satt að segja lítið nýtt fundið sem hefur knúið fram á mér gæsahúð. Þetta fylgir auðvitað aldrinum, ég er ekkert að þykjast vera svaka glaður með einhverjar plötur þegar þær hljóma bara ekkert svo spes. Ég man ekki einu sinni hvað ég er búinn að vera að hlusta á. Þarf að skrolla yfir folderinn til að muna það. Ég þarf samt að vera með einhverja svona best of 2009 lista um áramótinn svo það er ágætt að byrja að hita sig aðeins upp. Rokkpönkpopparinn Jay Reatard er fínn á plötunni Watch me fall. Green Day eru kannski ekki það kúlasta en ég er samt alveg að fíla Kinks-Who rokkið þeirra á nýju plötunni. Beth og félagar í The Gossip eru fín á Music for men. Belle & Sebastien sædprójektið God help the girl er fínt. Eins og kom fram í gær er væntanlegi Airwaves-gesturinn Micachu dúndurgóður á plötunni Jewellery. Ný sólóplata Jarvisar Cocker og ný plata með Art Brut eru ókei. Madness, Lily Allen og Prodigy er alveg fínt, eins og Grizzly Bear. Mér á eflaust að þykja nýjar plötur með Animal Collective og Sunset Rubdown góðar, en hef samt ekki tengst þeim almennilega enn. Það sem getur svo blandað sér í gæsahúðasultuna er ný tvöföld Flaming Lips plata, „Embryonic“, Love2 með Air, ný DEVO-plata! og Cosmic Egg með Wolfmother. Og svo bara eitthvað allt annað!
---
Af íslensku eðalefni er það helst að frétta að Hermigervill er skemmtilegur á „leikur vinsæl íslensk lög“. Ebergurinn er góður á Antidote (hjá Súra má finna hið flotta klósettmyndband með honum). Múm (sjáið þau í kvöld í æsilegum Popppunkti á móti Buff!) eru dúndurfín á Sing Along To Songs You Don't Know. Létt á bárunni og Prins Póló er gott stöff. Ég veit ekki hvað kemur út það sem eftir lifir árs en einhvern tímann er von á nýrri FM Belfast plötu, sem ku flott en kannski „þyngri“ en sú fyrsta frábæra. Pönkarahelvítin í Morðingjunum slá ekki slöku við og eru nú að klára plötu nr. 3 sem kemur bara bráðlega. Hjaltalín eru með funheitar hæpvélar í rassgatinu og miðað við „Suitcase man“ ætti þar að vera eftir miklu að slæjast. Berndsen er efnilegur í sintapoppinu og, já, og svo allskonar framvegis...
---
Neytendamál í gær: Keypti flugnaspaða og sölumaðurinn sagði: Svo má nota hann á kellinguna líka. Eftirminnilegt. Komst einnig að því að ódýrasta pappamáls latté kaffið í bænum er í BERNHÖFTSBAKARÍI, Bergstaðastræti - 235 kall og alveg sambærilegt að gæðum við annað sem kostar yfirleitt helmingi meira. Svo eru Bernhöftsmenn með öll rúmstykki á 50 kall svo þetta er klárlega besta bakaríið!

13.08.09

Þetta er helvíti töff mynd hjá Mogganum. Gæti verið á plötuumslagi. Minnir mig reyndar á plötuumslagið hjá Girl Talk fyrir plötuna Feed the Animals:

Þetta nýsletta hús er heima hjá Hreiðari Má sturtuvini mínum og í annað sinn á stuttum tíma sem málningu er slett á húsið hans. Þetta eru víst, hvað 13-14 skipti, sem slett hefur verið á hús þessara fv. aðdáunarverðu ríku kalla. (Ekki það að ég hafi verið slefandi, en margir voru það og þeir virðast hvað heiftúðastir í dag). Ætli maður væri ekki orðinn helvíti pirraður ef það væri alltaf verið að sletta á húsið manns á nóttunni. Aðallega leiðinlegt að þurfa að útskýra þetta fyrir krökkunum sínum. Ég veit ekki hvað maður myndi hugsa samt, svona persónulega. Ætli maður færi nokkuð af þeirri skoðun að maður væri pottþéttur gaur og hefði ekki gert neitt rangt? Auðvitað er lang auðveldast að réttlæta sjálfan sig með því að hugsa bara: allir hinir eru fávitar. Láttu mig þekkja það. Ef ég væri Hreiðar myndi ég sjálfur sletta með töff bláum og grænum litum yfir húsið mitt ofan á þetta rauða og þá væri ég kominn með helvíti hipp og kúl Jackson Pollock-lúkk á kofann, sem er mun meira töff en þetta ó-ég-svo-settlegur-og-ríkur hvíta lúkk. Allavega.
---

Fór í nýopnaða bændamarkaðinn Frú Lauga í gær. Leyst vel á þetta, margt spennandi að hafa og allt svona í takt við NÍ (Nýja Ísland). Keypti reyndar ekki mikið, bara einn risa salathaus (900 grömm!) á 320 kall og poka af konfekttómötum frá Engi, sem eru algerlega geðveikir. Á leiðinni í búðina er allskonar dót, ber og læti, svo maður verður að tékka reglulega eða láta setja sig á póstlista. Ég fór líka í Búrið, sem er skemmtileg búð. Tímdi ekki að versla innfluttann ost (skil samt vel að innfluttir ostar þurfi að vera dýrir í þessu gengishallæri), en keypti taðreyktann silung frá Fiskilóni (sem ég hef ekki hugmynd um hvar er!). Hann er sturlaðingslega góður. Ég keypti líka kryddpaprikur í krukku frá Búlgaríu sem vakti upp nostalgíuna því einu sinni átti ég búlgarska svilkonu sem kom með svona frá Búlgaríu og gaf okkur. Hættu svo þessu væli.

12.08.09
Nú hef ég með hjálp nútímatækni horft á fyrstu seríu Tom & Eric Awesome Show og er ekki frá því að þetta sé helvítis snilld. Mín bíða næstu season, en þau eru víst orðin 4 í allt. Gúddtæms. Glápti líka á heimildamyndina Made in Sheffield um sintasenuna í Sheffield á 8. áratugnum sem gat af sér Human League, Cabaret Voltaire og svona stöff sem var alveg á skjön við pönkið annars staðar. Dáldið hrá mynd en fín svo sem, alltaf gaman af heimildarmyndum um músiksenur og bönd.
---

Micachu & The Shapes - Calculator
IcelandAirwaves er það sem líf íslenskra banda snýst um, allavega þeirra banda sem eru ekki á ball og pöbbasenunni. Það er ekkert kreppuvæl þar á bæ og lænöppið í ár (14-18 okt) er farið að skýrast. Nokkur erlend atriði eru komin á blað, sumt hljómar kunnuglega hafi maður nennt að ryksuga, en Micachu & The Shapes er það sem ég þekki best, enda gerði bandið plötuna Jewellery (útg. Rough Trade), sem er ein af hressustu plötum ársins. Það er þessi breska söngkona og lagasmiður Micachu sem er aðal og hitt liðið svona on ðe sæd. Tónlistin er nýfersk en með gömlum osti frá postpönki. Hér er eitt skemmtilegt lag sem angar af Tequila.
---
Svo er þetta fínt ef ske kynni að þú værir á höttunum eftir rússneskri danstónlist. 

11.08.09
Flott nafn á hljómsveit: BÍLLYKILL. Ekki endilega út af því hvað nafnið táknar heldur hvernig stafirnir raðast. Á ensku héti bandið svo BILLY KILL. Góður grafíkar gæti gert flott lógó. Þetta nafn fæst ókeypis en bara handa almennilegri hljómsveit takk.
---
Eins og elstu menn muna er Popppunktur nú hálfnaður í 8-liða úrslitum og Ljótu hálfvitarnir og Jeff Who? þegar komnir í 4-liða. Næst er Buff á móti múm í hörku leik. Við verðum með últra spesíal extra þátt 11. sept þar sem poppfræðingum að atvinnu verður egnt gegn poppfræðingum að áhugamáli. Nú er verið að velja tvö 3 manna lið svo ef þú veist um einhvern hroðalegan snilling sem ætti að vera í liði poppnörda ekki hika við að tjá yður í bók gesta. 
---
Eitthvað hefur borið á kreppupoppi síðan þú veist. Örugglega verður meira þannig. Ég man nú ekki allt, en það er sem sé búið að vera slatti af þessu. Milljónamæringarnir komu með hið angurværa Grasið grænkar. Þar syngur Karl Olgeirsson um þjóð sem siglir til grænni haga en skilur illþýðið eftir. Það er bryddað upp á nauðsynlegri jákvæðni um gras sem grænkar alltaf aftur. Bubbi er búinn að vera með ástandið kyrfilega í kollinum enda með svo há myntkörfulán. Einna best finnst mér hann takast á við þetta í Fallegi lúserinn minn, þar sem hann sér björtu hliðina á sjálfum sér í lúserskap sínum. Og um leið okkar allra. Eða þannig skil ég textann. Mannakorn tókst á við þetta í laginu Kraftaverki. Þar finnst mér eins og Magnús Eiríksson bindi vonir við að kreppan verði barin niður með jarðvarma. Svo er náttúrlega uppáhaldslagið mitt, Prinsessan mín með Buff. Sá texti var reyndar gerður í janúar 2008 og er því ekki endilega „uppgjör við hrunið“ heldur meira svona ævintýralegur vinkill á stétt- og misskiptingu. 
---
Hver er svo niðurstaða poppara (og þar með almennings)? Einhvern veginn svona: Við vorum blekkt og vondir karlar riðu okkur í rassgatið. Við sitjum í súpunni en þeir sleppa. Þessi vinkill er uppi hjá popparanum Bjarna Þór í laginu Ísbjörg (Icesave): „Ég, treysti ykkur til að ávaxta minn sjóð / Þið, tókuð ykkur til og arðrænduð heila þjóð / Núna sitjum við eftir auralaus og skuldum heila glás / á meðan útrásarvíkingar andskotans ét’ af borðum krás“... (hlustið á Bjarna á mæspeisinu hans).
---
Auðvitað er margt jákvætt við hrunið. Til dæmis það að popparar geta nú tæklað það og það ætti að vera upplagt að fara nú að syngja um eitthvað af viti. Það er meira líf í listinni í kreppu en í kokkteilboði með ríkri barónessu og Bjögga margfarnaáhausinn. Ég bíð spenntur eftir meira kreppupoppi. Megas á t.d. eftir að tjá sig. Kannski gerir hann það fyrir jól því það er von á nýju efni með honum og Senuþjófunum á nýrri plötu. Það verður annars tvöfaldur Megas fyrir jól því það kemur læfplata líka.

10.08.09

Mikið var að beljan bar. Hin ógeðslega góða (vísindalega sannað!) ferðamannahandbók Top 10 Reykjavík and Iceland e. mig er loks komin glóðvolg úr prentsmiðjunni og fáanleg í öllum betri búðum á 2.490 isk (leiðbeinandi útsöluverð). Þetta er svaka fín bók og ekki síst vegna umbrots og ljósmynda Árna hamsturs. Útgefandi minn, Tómas hjá Sögum, hefur unnið það einstæða afrek að koma bókinni í sölu í Saga boutique Icelandair. Þetta er fyrsta bókin í heimi sem er seld þar en fjölmargir hafa reynt að koma bókum í sölu í funheitum flugfreyjuvögnunum. Vitanlega er þetta fyrst og fremst túristabók svo ef þið vitið um hressa túrista látiði þá kaupa þessa bók en ekki einhver leiðindi, ókei. Svo er þetta svo sem alveg nógu góð bók til að þú getir fengir þér hana líka.
---
Meira plögg: Sólóplatan Inniheldur fæst nú einnig í Frúnni í Hamborg á Akureyri, en þangað ættu allir að skella sér með hraði fari þeir norður. Platan hefur nú selst upp í kostnað og sæmilega betur og kannski maður fari eitthvað að spila og kynna þetta aðeins. Samt svona varla að maður nenni að standa í því!
---

Maður er nú kannski ekkert liggjandi yfir og að eltast við nýjasta nýtt í gríninu, en ég rakst á sjónvarpsþættina Tim and Eric Awesome Show Great Job!, sem eru víst búnir að vera í nokkur season. Þetta er frekar fyndið og gallsúrt. Amerískt og sýnt á Adult Swim stöðinni (sem tekur við af Cartoon Network á kvöldin (í USA)). Hér má sjá einn þátt í heild sinni og svo er hér handvalið góðgæti af Þútúbu: Grín um Cinco samsteypuna: Cinco er (vitanlega) í bankaviðskiptum, Cinco er með handhæga hluti eins og ferðasturtu og ræpubrækur og Cinco er með ýmiskonar leikföng eins og Skjugl. Þættirnir eru fullir af algjöru rugli (Pumpers, Bub-bubs) og stundum eru einkamálaauglýsingar. Hressandi stöff!
---

The Wintergreens - Open heart surgery
Ég fékk cd í pósti frá Skotlandi. Þar er Gunnar Thor Ófeigsson eini Íslendingurinn í hljómsveitinni The Wintergreens. Platan er fimm laga og mjög góð. Tónlistin tilrauna-alt-popp og sterkur samhljómur með örlí 80s experimental njúveifi, kannski smá Young marble giants og Pink military. Þetta er titillag plötunnar og gæti mjög auðveldlega hafa komið út hjá Factory records árið 1981. Kú-húl. Þau eru á Mæspeis.
---

Og hver er nú þessi Berndsen eiginlega? Hann lítur úr eins og sambland af Jóni Gnarr og Hugleiki Dagssyni og syngur og leikur svona líka skemmtilegt sintapopp. Mér skilst að Berndsen sé að fara gefa út fyrstu plötuna sína í haust með Hermigervil. Tvö lög má hlíða á á á á á á á á mæspeisinu hans og svo er það hið blóðuga stuðmyndband sem er að gera allt vitlaust (á þútúbu). Það byrjar sem varnaðarauglýsing frá Umferðarráði en breytist strax í eitthvað allt annað og alveg öðruvísi og alls ekki Umferðarráði til mikillar gleði. Berndsen er klárlega plata sem mun borga sig að tékka á og menn ætla greinilega alla leið miðað við umfangið og umstangið við að búa til þetta myndband. Ég meina, velta heilum bíl, þrettán lítrar af gerfiblóði og allar græjur.

09.08.09
Hef snúið aftur eftir 10 daga frí á Ísafirði og Dalvík. Ég þorði ekki að segja frá því hér að ég væri ekki heima, út af innbrotsþjófunum, sjáðu til, ef ske kynni að þeir læsu blogg. Það er víst innbrotaalda. Ekki það að innbrotsþjófar kæmust í feitt heima hjá mér, nema kannski ef þeir væru á höttunum eftir Kitchen aid eldhústækjum og rispuðu eintaki af safnplötunni Hrif 2. Sumarfríið var auðvitað allt saman undursamlegt. Til dæmis Gamla bakaríið á Ísafirði. Þar var eigandinn, hin 89 ára gamla Rut, í góðu stuði og gaf mér Napóleonsköku. Þetta er uppáhaldsbakkelsi Ólafs Ragnars Grímssonar og hann kaupir alltaf Napóleonskökur og lætur stundum senda sér í pósti þegar mikið stendur til á Bessastöðum. Þú getur ekki verið minni maður, sagði sú gamla og ég var hjartanlega sammála. Maður var eitthvað að reyna sig með veiðistöngina og tókst að ná einum ufsa í Hnífsdalshöfn. Hann fór sömu leið til baka. Svo var maður eitthvað að ganga þarna fyrir vestan. Fór frá gamla skíðasvæðinu í Seljalandsdal og yfir í Hnífsdal yfir hin svökölluðu Þjófaskörð. Þetta var gott 4 tíma stím, aðallega niðrí Hnífsdal, en Þjófaskörðin voru svona í meðallagi skerí. Hlunkaðist líka upp frá sundlauginni á Suðureyri, sem er líklega sú besta þarna á svæðinu, og yfir fjall inn í Vatnadal. Það var þétt 2 tíma stím, mestur tíminn fór í að finna út hvar maður kæmist niður án þess að hrapa og hálsbrjóta sig. 
---
Sundlaugin á Þingeyri er full köld fyrir minn smekk en í elsta húsi bæjarins eru nokkrir Belgar búnir að opna kaffihús sem þeir kalla Simbahöllina. Belgarnir fengu húsið nánast gefið og hafa nú gert það allt upp. Þarna fæst eðalkaffi og belgískustu vöfflur á Íslandi. Mjög góðar og alveg möst að tékka á þessu ef fólk er á svæðinu. Dænerinn Amma Habbý á Súðavík er snilld sem fyrr. Þú hefur ekki lifað fyrr en þú hefur torgað einum sjeik og borgara þar.
--- 
Veðrið hefði alveg mátt vera betra. Í fyrra var sól og sumaryl nonstopp en nú fóru heilu dagarnir í vætu og vosbúð. Gott samt fyrir Mýrarboltann. Ég glápti smá á það, aðallega kvennaleiki. Berjaspretta er 2 vikum verri en í fyrra en maður gat samt troðið sig út í eðalfjörðum eins og Hestfirði. Það er helvíti langt að keyra norður í Eyjafjörð og við tókum Djúpið á löturhraða. Það er stundum kvartað yfir veitingasölu á landsbyggðinni, aðallega N1-væðingunni á hringvegi 1. Maður verður að vita hvar á að stoppa. Ég get t.d. mælt heilshugar með Heydal í Mjóafirði. Það er svaka fínt bistró með fullt af spennandi stöffi á matseðlinum þó ég hafi nú bara fengið mér hamborgara (var þarna í hádeginu). Kobbi páfagaukur röflaði nonstopp yfir hausamótunum á manni. Sundlaugin á Reykjanesi er líka gríðarlega töff og heit og alveg möst að tékka á henni.
---
Á Dalvík gistum við í Efstakoti hjá mágkonu minni, á næsta bæ við Miðkot, en þar býr safnari safnaranna, Hafsteinn í Miðkoti. Hann á, eins og komið hefur fram, eiginlega alla músik sem hefur komið út á Íslandi. Og ekki bara það, sýndi hann mér fram á þegar ég heimsótti hann í annað sinn í sumar, heldur er hann líka með það prójekt í gangi að taka ljósmyndir af öllum kirkjum á Íslandi. Að auki er hann með full myndaalbúm af kúnum sem hann átti meðan hann hélt bú, tvær myndir af hverri belju (frá báðum hliðum) með handskrifuðum upplýsingum aftan á. Hann leyfði mér að hirða úr umframkassa: Stuðmenn Sumar á Sýrlandi (orginal Egg production - veit einhver hvort það var einhvern tímann innraslíf með þessari plötu?), Sextett Ólafs Gauks spilar og syngur Oddgeir Kristjánsson og læfsafnplötuna Live Stiff.
---
Fiskidagurinn mikli skall þarna á meðan ég var á svæðinu. Mjög sniðugt. Fólk var með markaði í garðinum hjá sér. Í einum var plötukassi og ég fann tvær tólftommur sem maður býst kannski ekki alveg við að finna á Dalvík: Ziggy Stardust með Bauhaus og Transmission með Joy Division. Fékk 3 súpur á föstudagskvöldið þegar ákveðin hús bjóða upp á fiskisúpu. Gríðarlegur mannfjöldi hlykkjaðist um bæinn að fá súpu. Á einum stað blakti regnbogafáni við hún og fyrir neðan var Árni Johnsen með klóna og gítarinn að baula sín ljúfustu lög. Maður væflaðist um með börnin innan um fulla unglinga fram á nótt. Ákveðin stemmning í því. Daginn eftir, á sjálfan Fiskidaginn, voru svo hefí biðraðir í ókeypis mat á bryggjunni og stjörnur bæjarins, Matti Matt, Eyþór Ingi og Friðrik Ómar í akkorði við að syngja nýjasta fiskidagslagið upp á sviði. Dalvík peppast allur upp við Fiskidaginn, verður stórborg sem iðar af lífi. Þarna var líka allt svo hreint og nýmálað og flott og hvergi sjáanlegur útálandi-doðinn sem mætir manni stundum. Ég mæli með að fleiri bæjarfélög taki sér þetta til fyrirmyndar. Berjadagar eða Bílskúrsdagar. Það er alltaf ákveðið þunglyndi að koma aftur í Ártúnsbrekkuna. Það er óneitanlega ferskara um mann úti á landi. Enda spái ég flótta frá höfuðborginni nú þegar innanhúsarkitektúr og drungaleg millifærslustörf og excelhangs er ekki alveg í blóma lengur. 
---
Ég las Lennon in America e. Geoffrey Giuliano um árin eftir Bítlana. Í stuttu máli: Yoko Ono er hrægammur, en Lennon var kynóður með tendens til homms og hálfgert grey. Bókin styðst að hluta við dagbækur Lennons og er ítarleg og frekar skemmtileg. Svo er ég með nokkrar bækur eftir Einar Kárason í bakhöndinni, til dæmis Þættir af einkennilegum mönnum sem er ískrandi fyndin og rennur á þennan auðvelda hátt eins og margt sem Einar skrifar, textinn er eins og lækur og allt svo sjálfssagt einhvern veginn.
---
Ég fylgdist svo sem með fréttum og eiginlega full mikið miðað við að ég ætti að heita í fríi. Helst fannst mér til þess koma að Nó nó, nó nó nó nó, nó nó nó nó, nó nó ðers nó limits sé að koma. Eins finnst mér þessi frétt frekar athyglisverð þó ég skilji hana varla. Formaður Rannsóknarnefndar Alþingis um bankahrunið segir að nefndin færi þjóðinni líklega verri fréttir en nokkur nefnd hafi áður þurft að gera. Ég meina, hvað er það annað en búið er verið að tönglast á síðan í haust? Þarf maður nú að liggja í fósturstellingu til 1. nóv í bið eftir hinum endanlega skelli, hinum óþægilega sannleika sem enginn sá fyrir, en nefndin gróf upp? Bankahrunið var um að kenna græðgisgeimverunum Græþon frá stjörnukerfinu Plx4, ormkenndum sníklum sem tóku sér bústað í iðrum helstu útrásarvíkinga eftir að foringja Græþonanna, Sníklos Illþyrmus, aka Davíð Oddsson, skipulagði yfirtökuna? Ísland verður fyrsta nýlenda Græþona og líf hinna vesælu borgara verður hér eftir nýtt til að fóðra dýrið, aka Icesave. Nei, ég segi svona. Það er samt á mörkunum að maður nenni þessu lengur.
---
Stundum sakna ég þess að geta ekki haft mynd með Bakþönkunum mínum í Fbl. Fínn Bþ Bergsteins Sigurðssonar um ferð hans til Seattle og söguna af Edith Macefield sem neitaði að selja húsið sitt hefði verið enn betri ef mynd hefði fylgt. Ég gúgglaði dæmið. Hér kemur mynd af húsi Edith Macefield og hér má lesa um þetta nútímaævintýri á wiki.

---
Íslenska póstkortaserían #2.

---
(((2009 - 4. hluti)))