28.07.09
Insol
- Hvenær mun hér á Íslandi rísa stjörnusambandsstöð?
Insol
- Er ég ekki of gamall fyrir þig?
Kópavogsbúinn Insol (Ingólfur Sigurðsson)
hefur ekki lagt sitt af mörkum til plötuútgáfu
síðan, að ég tel, 2002. Fyrir þann tíma
tókst honum á örfáum árum að gefa
út 6 plötur. Fyrst kom Insol (1998), með kóverútgáfum
af Bob Dylan lögum og She loves you Bítlanna. Þar eftir
streymdu plötur með frumsömdu efni. Fyrst Hið mikla samband
(1999), en snilldarlagið hér að ofan um stjörnusambandsstöðina
er einmitt þaðan. Hið mikla samband er mikið meistaraverk
og eina platan að held sem er samin undir áhrifum frá
kenningum Dr. Helga Pjeturss (að undanskilinni nýju Veðurguðaplötunni
að sjálfssögðu). Á Hinu mikla sambandi má
heyra lög eins og Engin mengun finnst á lífsstjörnunum
og Hápunktur mannlegar vitzku (sic). Þegar hér var
komið við sögu fór Insol á fullt og kom næst
með Blóm, Friður og Ást (2000), þá Jafnréttið
er eina svarið (2001), næst Fyrri byggðir (2002). Er ég
ekki of gamall fyrir þig er af henni. Loka innleggið í
sexlógíu meistarans var platan Við viljum jafnrétti
(2002). Síðan eru liðin sjö ár en vonandi er
Insol ekki endanlega af baki dottinn og er á leiðinni með
nýtt verk.
---
Halelúja! Skv. Fbl í dag hefur stórsnillingurinn
Einar Bé ráðið Tvíhöfða á
Kanann
sinn, útvarpsstöðina sem á að byrja að senda
út í september. Þættirnir verða vikulega,
á laugardögum. Vil ég bendi Einari á að vera
með öflugan vef og bjóða upp á strím
ef ske kynni að maður yrði að gera eitthvað annað
á laugardögum en að hlusta á útvarpið.
Til hamingju Ísland, loksins eitthvað jákvætt að
gerast á þessu lúbarða vælukjóaskeri!
---
Ég lá í læstri hliðarstellingu og nagaði
neglurnar kl. 23:15 í gærkvöldi og beið eftir ragnarökum
Láru Ólafsdóttur „skjálftakonu“, eins og DV
kallar hana eftir misheppnaðan spádóm á forsíðu
Vikunnar. Það kom náttúrlega ekki neitt en ég
var að vona að það kæmi eitthvað svo Lára
liti ekki út einsog algjört fífl. Það væri
kúl ef hún væri í raun svona ægilegur
sjáandi. Hún gæti fundið Magdalenu litlu (hún
segist vita hvar hún er) og Ísland eignaðist gríðarlega
ofurhetju á sviði sjáenda. Kannski ætti hún
að taka að sér almannatengladjobb fyrir einhvern útrásarvíkinginn?
Hún yrði ábyggilega ekkert minna sannfærandi þar.
27.07.09
Reyndi að horfa á þátt Rúv um Evrópusambandið
um daginn. Mér leið eins og ég væri að læra
fyrir próf svo ég hætti að nenna að glápa
á þetta.
26.07.09
Ég er ekki frá því að mig hafi dreymt
Ingólf
Margeirsson í nótt. Hann var mjög brúnn.
Árbæjarsafnið er frábær staður. Fullt
af gamla tímanum og dýrum á beit. Stæðilegur
ferhyrndur hrútur, Hrútsi Hrútspungur, fór
á kostum og át njóla sem óður væri
úr höndum okkar. Ef þú ert eitthvað að
vesenast með hvað á að gera með fjölskyldunni
í dag þá mæli ég með Árbæjarsafni.
---
Póstkortagerð er ekki eins öflug og hún var.
Ég hef því ákveðið að leggja mitt
af mörkum og búa til nokkur póstkort. Hér kemur
það fyrsta:
---
Raunir ælupokasafnara eru all nokkrar. Þeir eru leiðir
yfir hnignandi metnaði flugfélaga. Icelandair eru t.d. bara
með ómerkta hvíta poka í vélunum, ekki
lengur fagurbláa poka með blómamynd. Einn helsti ælupokasafnarinn
er Rune sem er með öfluga síðu.
Hann er órólegur
vegna metnaðarleysisins. Sýnum því metnað -
flottari ælupoka!
---
Tom
Zé - Todos os olhos
Tom
Zé - Mã
Tom Zé er stórfenglegur brasilískur snillingur.
Hann spilar út-úr-frumlega sömbu með djúpspökum
textum (geri ég ráð fyrir, ég kann ekki portúgölsku).
Hann braust úr þögn þegar David Byrne tók
hann upp á "arma sína" og gaf út á Luaka Bop
merkinu. Á "best of" plötu sem Byrne gaf út voru aðallega
lög af plötunum Todos os olhos frá 1973 og Estudando o
samba frá 1975. Lögin að ofan eru þaðan. Bæði
fyrir og eftir þessar plötur hefur Tom Zé dælt
út djúsí dóti. Það er gaman að
hlusta á hann. Það gefur fersk hugrenningatengsl.
24.07.09
Eins og komið hefur fram er Dagbjartur Kjörís-drengurinn
í ár og á plaggötum út um allan bæ
og í sjónvarpinu. Í gær var því
farin delúx einkatúr/fjölskylduferð um verksmiðju
Kjöríss í Hveragerði. Kjörís er fjölskyldufyrirtæki
og er í dag rekið af börnum mjólkurfræðingsins
Hafsteins sem stofnaði það 1969, þeim Valdimar framkvæmdastjóra
og Guðrúnu markaðsstjóra. Það var magnað
að hitta fólk sem hugsar meira um ís en ég. Kjörís
stendur ágætlega þrátt fyrir hrun, enda myndi
ég halda að fólk fái sér áfram ís
þótt það sé smá kreppa. Fyrirtækið
fór heldur ekkert á neitt góðærisflipp þrátt
fyrir ýmis gylliboð og sameiningartilboð. Það
hefði verið lítið mál að skafa þetta
fyrirtæki að innan eins og öll hin og hirða arð
af íssölu næstu 10 ára fyrirfram. Kjörís
er rekið af mikilli sparsemi og nýtni í anda gamalla
gilda og engu er hent ef ekki má endurnýta eða gera við.
Ekkert rugl, sem sé. Guðrún leiddi okkur ísfólkið
í allan sannleikann um ísframleiðsluna. Verið var
að búa til græna frostpinna og súkkulaðimjúkís
í dollu. Þetta er voða beisik. Ísinn er lagaður
í stórum pottum og svo liggja rör um húsið
þar sem ísinn streymir. Græni frostpinninn fer í
síló og ægilegt færiband formar og súkkulaðihúðar.
Hér er Guðrún að sýna Kjörísdrengnum
Dagbjarti hvernig grænir frostpinnar verða til:
Og svo fékk litli systir að taka gæðatékk.
Hún gaf frospinnanum A+
Mjúkísinn í dollu er þó ekki færibandaframleiddur
heldur er bara rör á miðju gólfi sem nýlagaður
ísinn streymir út um. Þar við situr starfsmaður
með dollur og fyllir af ís á miklum hraða. Ég
myndi fara yfirum úr stressi ef ég ynni "á rörinu".
Það kæmu eflaust íshrúgur fyrir neðan
hjá mér á hverjum degi. Ég fæ örugglega
martröð um þetta bráðlega sem verður eins
og í Chaplinmynd. Guðrún leyfði okkur að smakka
ísinn beint úr rörinu og ég held að það
sé einhver besti ís sem ég hef smakkað á
ævinni, enda átti eftir að gaddfrysta hann. Svona "beint
úr beljunni" ku ísinn ferskastur. Vá!
Hér er verið að skoða ísa fortíðar
en það eru ýmsir sigrar og bömmerar á leiðinni
einsog gengur. Kjörís er innflutningsaðili Ben & Jerrys,
sem hefur ekki verið til síðan í hruni. Valdimar
framkvæmdastjóri taldi þó líklegt að
B&J yrði fluttur aftur inn með haustinu enda eru margir aðdáendur
sem bíða í ofvæni. Ég sagði að það
væri allt í lagi þó þetta yrði dýrt,
fólk hefði skilning á að gengið er í tómu
rugli. Þetta hefur reyndar gengið eftir því innfluttan
Daim-topp þarf að selja á 500 kall plús og fólk
er ekkert svo að setja það svo fyrir sig. Auðvitað
vorum við svo leyst út með íslager og því
held ég að verðlaunagreinin Frægir sem voru feitir
í S&H í gær og blastaði mér á
forsíðunni eigi ekki við rök að styðjast mikið
lengur. Nema ég taki bara helmingi betur á í ræktinni
á móti. Déskotans vesen alltaf!
---
Í kvöld líkur 16-liða keppninni í Popppunkti
þegar Árstíðir og múm takast á í
æsandi spennuleik. Bæði böndin eru með snarferskar
plötur á takteinum og í tilefni dagsins er ekki úr
vegi að tappa aðeins af rörinu.
múm
- Sing along
Sing along to songs you don't know er frábær ný
plata frá múm (útg í ágúst) og
miklu poppaðri en fyrri plötur. Boðið er upp á
mun einfaldari hljóðheim en áður og búið
að leggja brakinu og brestunum að mestu. Mjög góður
fílingur í gangi og fullt af gæðalögum.
Árstíðir
- Látum okkur sjá
Fyrsta plata Árstíða er fagmannleg og fornpoppuð,
iðagræn af afslöppunarpoppi. Símon og Garfunkel og
Magnús og Jóhann snúast í hringi (ekki í
gröfum sínum þó). Ég sé fyrir mér
nuddbekk og reykelsi.
---
Meira plögg, meira plögg:
Cosmic
Call - Cold hands
Rokkbandið Cosmic Call frá Akranesi er að halda útgáfutónleika
á Sódómu Reykjavík í kvöld kl.
21.00. Who knew og sykur sjá um
upphitun. Brjáluðu stuði er lofað. Platan er 7 laga
og þessi velslípaði slagari er fyrsta lagið á
henni. Cosmic Call verða einnig á Rás 2 upp úr
kl. 11 á eftir.
23.07.09
Ég var beðinn um að segja frá því
að stærðfræðiformúlumúsóbandið
sem vann MT í fyrra, Agent Fresco, er á Sódómu
í kvöld. Einnig koma fram síðrokkararnir í
For a Minor Reflection og hin angurværa rökkurpoppsveit Rökkurró.
Það er glænýtt viðburðakompaní Ókídókí
sem sér um að bóka og það kostar einn skitinn
500 kall inn. Þú getur sem sé farið átta
sinnum á þessa tónleika frekar en í Bláa
lónið!
---
Skemmtilegir draumar í nótt. Ég í enskum
strandbæ eitthvað að flækjast og skemmta mér
í alla nótt með einhverju liði. Mér sýnist
þetta hafa verið á Cornwall. Kannski í St. Ives
eða Newquay. Eða kannski Port Isaac, sem er þar sem Doc Martin
þættirnir voru teknir upp (bærinn var þá
kallaður Portwenn). Yfir draumnum hljómaði hið lokkandi
lag Cat Stevens í flutningi Tremeloes, Here comes my baby. Já,
mínir draumar eru með sándtrakki.
---
Eitt af því fyrsta sem kom á alnetið var flökkusagnasíðan
Snopes.
Þar er leitast við að finna sannleikann. Síðan
er enn í góðu formi þótt hún lúkki
smá eins og það sé ennþá 1996. Í
tilefni afmæli tunglgöngunar var ég tékka á
því hvort þetta væri satt að Neil Armstrong
hefði sagt Good luck mr. Gorsky í lok sinnar frægu ræðu
um eitt lítið skref o.s.frv. Þar átti hann að
hafa verið að tala um nágranna sinn og möguleika hans
til totts frá eiginkonu sinni sem átti að hafa sagt:
Þú færð tott þegar strákurinn í
næsta húsi (Neil) gengur á tunglinu. Því
miður er þessi saga
uppspuni.
Annað sem ég skoðaði er hvort líkið af Walt
Disney sé fryst. Það er líka bull.
Annað kóktengt: Rauði feiti jólasveininn var ekki
fundinn upp af Coca Cola!
---
Annað sem ég man eftir að hafa skoðað mikið
á frumdögum alnetsins er stafa/orðabrenglara-síðan
á Wordsmith.org. Þar
kemur ýmislegt skondið og heví djúpt í
ljós, t.d. að ef maður ruglar "Iceland best" kemur út
"Bad lice nest".
---
Ég hef ekkert mikið nennt að tuða um Icesave, enda
er það orð eiginlega í banni í mínum
heimi. Smá um það í Bakþanka
dagsins þó.
22.07.09
Ég fæ unaðshroll af því að hugsa
til verðlagsins í Bláa lóninu. Lónið
hefur oft borið á góma hinnar síöflugu og
sjálfrænu Okursíðu
og það er ekki að undra, þau eru alveg met í
okrinu þar. Mér dettur ekki í hug að fara þarna
og ég færi sjaldan eða aldrei þótt það
kostaði það sama og í sund. Þetta er bara ekki
það merkilegt. Maður er með þýsk rassgöt
í fésinu í sturtu, yfirleitt engin sápa í
dúnkunum, bjánalegar læsingar á klefunum, hlandvolgt
þarna oní og maður er dögum saman að ná
þessari slepjulegu leðju af sér. En verðið já.
Síðasta sumar fóru lónarar að tengja verðið
hjá sér við evru og miðuðu við 20 evrur á
haus. Verðið hefur sveiflast þetta frá 3200 í
3600. Þetta hefur þeim ekki þótt nógu mikið
okur því nú sé ég hér
að þeir hafa hækkað verðið upp í 23
evrur, eða sem sé 4000 kall á haus oní. Fjögur
þúsund kall í Bláa lónið!!! Þetta
er náttúrlega alveg sprenghlægilegt!
---
Bjargvættur húsmæðranna Sullenberger er kominn
með nafn á nýju búðina – Smartkaup.
Smartkaup! Dáldið korní svo ekki sé meira sagt.
Miklu betri nöfn hefðu t.d. verið Töffver, Kúlkaup,
Lekkerttorg eða Gasalega búðin. Ég mun auðvitað
mæta galvaskur í Smartkaup þegar þar að kemur,
enda sé ég fyrir að mér að vegna tengsla Jóns
við Bandaríkin verði boðið upp á bæði
rótarbjór og kremgos. Það er þó alls
ekki hægt að segja að það sé einhver kreppa
í rótarbjórnum. Allt flæðandi í A&W
í Hagkaupum og í Klinkinu fengust á tímabili
tvær tegundir, IBC og Superchill. Kallinn í Klinkinu segir
mér að rótarbjórinn hafi rokið út á
nó tæm og von sé á nýjum gámi
í lok ágúst.
---
Ég átta mig á því núna hversu
lík fyrirbæri það eru, popparar að röfla
umða hvað þeir séu að meikaða í útlöndum
og peningakallar að röfla umða hvað þeir séu
að meikaða í útlöndum. Viðskiptakálfar
átu upp röflið eins og dægurmálasíður
éta upp röflið. Í ríkukallabransanum er þó
engin Björk, Sigur Rós, múm eða Gusgus. Bara Shooting
blanks.
21.07.09
Snúinn frá bakarofninum á Costa Blanca. Þetta
var þrekraun. 38°C held ég að mælirinn hafi
sýnt mest. Maður hékk mest inni hjá tengdapabba
í El Galan á stuttbuxunum og faðmaði loftkælinguna.
Oftar en ekki étandi brakandi fersk kirsuber. Mér sýnist
ég hafa étið 3 kíló af kirsuberjum á
einni viku. Kirsuberin á Spáni eru glæný og
kosta sirka 500 kall kílóið (miklu minna auðvitað
af krónan væri ekki svona fokkt). Þegar þetta
fæst í Hagkaupum er helmingurinn ónýtur og kílóið
á sirka 3000 kall. Bestu kirsuberin fékk ég á
útimarkaði í San Miguel. Þau voru stærri
en þessi í búðinni og sætari og safaríkari.
Ég byrja að slefa við tilhugsunina.
---
Það er vitanlega ekki saman að jafna, ávaxtadeildum
á Spáni og hér. Þarna úti er maður
umvafður LYKT af ávöxtum í ávaxtadeildinni
enda mest af þessu lókal vara. Melónur og appelsínur
frá Murcia og svona. Allt eitthvað svo ferskt og frábært.
Kjöt og fiskborð eru líka spennandi. Í einhverri
smá sjoppu kannski rosa fiskborð með fimm ferskum tegundum
af misstórri rækju, smokkfiskur, kolkrabbi, undarlegustu tegundir
af allskonar fiski, skeljar og dót. Ísland á að
heita öflug fiskveiðiþjóð, en hér er oftast
ekkert nema frosin flök í boði í svipað stórum
búðum. Ég át einhvern fisk sem heitir panga sem
mun vera að ryðja sér til rúms á borðum
Evrópubúa. Gríðarlega góður eða
"næstum því eins og kjúklingur". Át líka
gegnheilt lífrænt ræktaðan kjúkling sem var
með bragði, ekki svona pappakjúklingur eins og fæst
í Bónus. Mjólkurafurðir á Spáni
gefa íslenskum ekkert eftir nema síður sé. Var
mikið í feitri jógúrt með hveitibragði
(smakkaðist betur en það hljómar) og grískri
jógúrt. Ísinn er þó betri hér.
---
En hitinn var yfirþyrmandi og ég læt mér
þetta að kenningu verða. Það er glapræði
að yfirgefa Ísló á tímabilinu maí
- ágúst, hvað þá til svona örbylgjuofnalanda.
Eini sénsinn til að vera úti við var að hanga
á ströndinni. Þar fóru krakkarnir á kostum
þakin sólarvörn nr. 30. Hér er sönnunargagn:
Þarna er fullt af fyrirtaks ströndum og það getur
verið ágætt að hanga svona í sjónum
og brjóta það upp með ísáti. Bara muna
eftir áburðinum. Ég ætti að vita það,
ef maður gleymir því er maður eins og karfi um ístruna.
Tengdó á að auki forláta bát sem við
skruppum til fiskja frá höfninni í Torreveija. Allskonar
gúmmilaði kom á öngulinn. Nokkrir pínkulitlir,
tveir stórir, hugsanlega makríll. Svo fékk Dagbjartur
marhnút og var ægilega stoltur enda Miðjarðarðahafsmarhnútur
ekkert til að skammast sín fyrir þótt hann færi
uppíhræktur til hafs á ný.
---
Ég hékk alltof mikið yfir íslensku netsíðum
þarna úti og skammast mín eiginlega frá því
að segja frá því. Hvílíkt rugl að
vera að lesa um ESB og Æseif þegar maður get bara staðið
heiladofinn á kirsuberjabeit við loftkælinguna. Og ég
sem nenni ekki einu sinni að kynna mér þessi draslhitamál
að neinu viti fyrir utan að finnast eins og enn og aftur sé
verið að lauma blautum bölli óréttlætis
upp í sameiginlegt rassgat landsmanna. Ágætt líklegast
að komast í Evrópusambandið en fúlt að
enda uppi með djammskuldir Bjögólfs Thors og félaga,
sérstaklega þar sem þetta lið allt leikur enn lausum
hala í góðum djammfílingi eins og ekkert hafi
í skorist. Það var hægt að láta tengdó
æsa sig heil ósköp í bílnum við að
tala um hrunið og það allt. Hann er eins og allir aðrir
sem ég veit um: eru orðnir brjálaðir eftir smástund
þegar talið berst að þessu og helvítis útrásarvíkingunum
og æi æi ó ó ó. Þessa vikuna virðist
„Werners-synir“ vera mestu ræflarnir og þetta eru nú
alveg epic fail náungar sýnist mér. Með allt niðrum
sig. En örugglega forríkir einhversstaðar étandi
kobe í morgunmat drullusama um hvað er verið að væla
um þá á Íslandi.
---
Ég hentist í tvær bækur: Indjánann
e. Jón Gnarr og ævisögu KK eftir Einar Kárason.
Báðar fínar, Jón kannski full endurtekningarsamur
og of mikið að vorkenna sjálfum sér smábarninu
(sem hann má kannski alveg). Ég vona samt innilega að
Jón klári trílógíuna og komi sem fyrst
með bók um unglingsárin. Einar er með fína
og smúðrennandi yfirferð um feril KK, sem maður vissi
minnst um. Mér tókst að auki að klára doðrantinn
The Beatles e. Bob Spitz. Keypti The Hangover bútlegg á dvd
af Kóreumanni, horfðum á hana, eða þann hluta
sem náðist á band. Ekkert svo skemmtileg, allavega ekki
bútleggurinn.
---
Þetta er varla Spánn þessi hverfi sem ég
var mest í. Byggt á eyðimörk til að hýsa
ellilífeyrisþega frá Vesturlöndum á ævikvöldinu.
Svo kom snuðra á framkvæmdina vegna kreppunnar og því
er mikið af tómum húsum eða hálfrisnum þarna,
og mikið drasl út um allt. Ef maður hætti sér
út mætti maður bara gamlingjum með handtöskubrúna
maga undir flaktandi skyrtum eða tattúveraða ættingja
þeirra frá Huddersfield eða krakkaskríl í
heimsókn. Allir með gjammandi hundkvikindi onðe sæd
auðvitað en flestir brosmildir og bjórlagðir. Sá
og heyrði þar að auki í fullt af Íslendingum,
þar af þremur léttum í þýsku draslbúðinni
Aldi sem fannst mikið til koma að hitta "kallinn í sjónvarpinu".
---
Það besta við hverja utanlandsferð er að yfirgefa
Íslandi og svo að koma heim. Maður er í endalausu
love/hate sambandi við þetta blessaða pleis.
11.07.09
Nú keppast allir við að mæra Hótel Valhöll
og sjá í brunanum myndlíkingu fyrir ástandi
þjóðarinnar og é minn eini. Ísí á
geðshræringunni. Valhöll fyrir mér er Gin og tónik
og versta þynnka í heimi.
---
Sá Brüno. Það var viðbjóðslega
gaman.
10.07.09
Að hugsa sér að þessi litli sé ég.
Þarna í sumarfríi á Akureyri með Oddnýju
systur, pabba og kettinum Bidda. Ég er líklega fimm að
verða sex um haustið og þá er þetta 1971. Þetta
er í garðinum hjá Sigga frænda í Munkaþverárstræti.
Siggi tók myndir og allt endaði á slædsmyndum sem
við fengum svo að horfa á á sýningartjaldi
næsta sumar. Það var mikið vesen á kettinum
Bidda. Fyrst átti að skilja hann eftir hjá Sigrúnu
frænku á meðan við færum norður. Hann varð
brjálaður, stóð upp á rönd á stól
og vældi út um gluggann. Það varð að snúa
við og sækja hann og taka hann með norður. Næsta
sumar var hann tekinn með strax. Pabbi, sem á það
til að mikla hlutina fyrir sér og fá kvíðakast
yfir ólíklegustu hlutum, hafði miklar áhyggjur
af kettinum í bílnum. Meðal þeirra atburða
sem hann sá fyrir sér að gætu hent var að kötturinn
myndi skríða undir bremsuna svo ekki væri hægt að
bremsa og við myndum húrra niður af Öxnadalsheiði.
---
Eins og sést á þessari mynd er ótrúlega
fallegt alltaf á Akureyri á sumrin. Á veturna svo
sem líka. Maður var í því að spila rommí
við ömmu sína sem brjálaðist ef hún tapaði.
Hékk oní saggafullum kjallara og las saggafull dagblöð
fortíðar (brandarana). Svo spilaði maður fótbolta
við sjálfan sig og húsvegg. Ef maður komst yfir pening
fór hann umvörpum í fótboltamyndir og tyggjóplötuna
sem fylgdi með. Einn af hápunktunum var þegar ég
fékk 250 kall og keypti fótboltapakka fyrir það
allt í Keabúðinni (nú Eymundsson) eða Amaro.
Ábyggilega 10 pakkar og ég í paradís. Skipti
ekki öllu þó Kevin Keegan væri hvergi að finna
í pökkunum. Þeir eru alveg hættir að láta
svona tyggjóplötur fylgja með illu heilli, en krakkar eru
ennþá brjálaðir í þessar myndir. Svo
hefur maður farið í búðina og séð
allt sem var öðruvísi. Öðruvísi mjólkurafurðir
og gos. Það var spennandi. Þarna smakkaði ég
Morgan Cream Soda frá Sana, sem ég er búinn að
vera með á heilanum síðan og gerði mig að
gosfíkli. Ó, minningar... Ekkert nema minningar. Og ljósmyndir.
---
Lét loks verða af því að éta á
búlgarska veitingastaðnum Balkanika á Vitastíg.
Þetta er stórgerður matur fyrir skógarhöggsmenn
og beljaka sem passaði fínt því ég var að
drepast úr hungri. Át mig saddann af svína-Kepje eða
Kjupje og grænmeti fyrir 1290. Fer þarna ábyggilega
aftur enda er þetta nokkuð spennandi allt saman. Mikið af
einhverju sem maður veit ekki hvað er og fullt af salati og súpu
og stöffi. Allt í ósviknum austur-evrópskum fílingi,
þjónustan fín og verðið hagstætt.
09.07.09
Það eru svaka lofthræðslugildrur þarna í
Þórsmörk. Kattahryggir og svona kreisí stöff.
Ég lá langt fram á kvöld að hugsa niðrí
gilin og ímynda mér beinin brotna í bauk hefði
ég dottið niður. Örugglega óþarfa panikk,
ætli maður hefði ekki í mesta lagi bara fengið
skeinur og mar. Stundum fer maður bara á rassgatinu niður.
Ég er dáldið slappur í jafnvæginu eftir
að klæðskiptingarnir fótbrutu
mig um árið. Mér var nær að vera svona fullur.
Ég er alveg til í að labba úr mér lifur
og lungu, en frekar sný ég við en að tefla í
tvísýnu. Eins og sést smá á þessari
mynd er Þórsmörk eins og konfektkassi útlits,
algjör snilld. Maður getur fyllt sig krafti bara með því
að hugsa um pleisið og það að fá að snúa
þangað aftur (þetta er svona næstum eins og eyjan
í Lost). Þarna nennir maður ekki lengur að hugsa um
peningavæl.
---
Áríðandi leiðrétting: Í Bakþanka
dagsins er því haldið fram að engin fiskbúð
sé á Akureyri. Þetta er alrangt. Þar opnaði
nýlega fiskbúðin Heimur hafsins á Tryggvabraut
22. Þetta ku snilldarbúð og hún er á Facebook.
Fyndið annars hvað maður hefur tilhneigingu til að segja
fiskIbúð og fiskIbolla og svo framvegis. Ekki segir maður
kjötibolla.
---
Það var sagt mér að plöggaðí að
Gogoyoko
er nú í loftinu. Hef ekki gefið síðunni nægilega
mikinn tíma ennþá.
---
Þá var mér sagt að plögga þessu:
8.07.09
Í árdaga hrunsins talaði Vilhjálmur Bjarnason
um sirka 30 manna hóp sem hefði komið Íslandi á
kúpuna. Níu mánuðum síðar hefur lítið
gerst í að draga þessa menn til ábyrgðar. Manstu
ekki eftir þessu hugtaki - ábyrgð - þegar allt lék
í lyndi? Maður var kannski að væla eitthvað yfir
fréttum um gaura, miklu yngri en maður sjálfur, sem voru
að fá það sama í laun á mánuði
og maður var að slefa í fyrir alla starfsævina. Ef
maður stundi upp: eh, er þetta nú ekki eitthvað óeðlilegt?
var manni alltaf svarað með því að þessir
gaurar bæru svo svakalega MIKLA ÁBYRGÐ. Eftir á
hefur svo komið í ljós að ábyrgðin var
lítil sem engin. Menn komust upp með það að segja
að allt væri tipp topp og æðislegt fram á síðasta
dag. Þegar spilaborgin fauk um koll kom í ljós að
það var þjóðfélagið allt sem þurfti
að koma og skeina þessu liði og bar í raun alla ábyrgðina.
Eða snýst hrunið nokkuð um að 30 manns eru farnir
á hausinn en allt annað er bara í góðum málum?
Nei. Þjóðin öll hafði verið sett að veði
fyrir ruglinu.
---
Nú berast sögur af þrjátíumenningunum
sem eru í anda þjóðsagna eða sögum af
jólasveinum. Einhver sá lakkrískonfekti hent í
einn í leikhúsi. Annar sá eldri mann hrækja
á gangstétt fyrir framan annan. Þetta eru hressilegar
sögur sem munu eflaust færast í vöxt nema hrunahópurinn
forði sér úr landi fyrir fullt og allt eða geri siðbót,
t.d. með því að skila hverri einustu krónu
af þýfinu og ganga í Borgarahreyfinguna. Hér
er t.d. ein svona saga í Pressunni (sem segir frá miklum
skeggvexti). Fólk mun í vaxandi mæli vilja lesa svona
sögur. Ég sé fyrir mér heila bók um afdrif
hópsins. Bókin gæti skipst í tvo hluta þar
sem niðurlægingarsögur yrðu seinni helmingurinn en sá
fyrri sögur af ævintýralegri eyðslu og flottræfilshætti
(af nógu er að taka). Bókin gæti heitið Í
ábyrgð fyrir hruninu, eða eitthvað slíkt.
---
Þjóðfélagið er gegnumsýrt vegna
þess að ruglið var látið viðgangast svo lengi.
Allt ber að sama brunni. Öll fljót renna til hrunsins.
Þar sem tveir koma saman verður fyrr en varir byrjað að
tala um ástandið. Ég labbaði Fimmvörðuháls
í fyrradag. Það var auðvitað frábært
og Þórsmörk er enn flottasti staður í heimi.
Í skálanum spurði vörðurinn hvort við værum
ekkert í trússinu og hefðum látið senda nautasteik
og rauðvín á undan okkur. Nei, er það nú
ekki einum of 2007, sagði ég með minn harðfisk í
poka. Þá kveiknaði á perunni hjá honum og
hann sagði hrunamannasögu. „Heyrðu, það komu
hérna tveir labbandi yfir Fimmvörðuháls um daginn,
Lárus Welding og Þorsteinn í Kók. Þeir
stóðu hérna við hliðið, eins og álfar
út úr hól í stretsbuxum og mér fannst
eins og þeir vildu ekkert láta sjá sig meðal fólks.
Ég kallaði í þá, gaf þeim kaffi og
þeir vildu nú bara komast að Seljalandsfossi. Þetta
var seint og allar rútur náttúrlega farnar, en það
var einn karl hérna á jeppa. Hann var svona 30 metra í
burtu. Heyrðu, geturðu skutlað þessum, kalla ég
til hans og hann kallar til baka: ókei, fyrir 3000 kall á
mann. Svo labba þeir til hans og hann sér hverjir þetta
eru. Þá segir hann: Nú, eru þetta þið?
Þá eru það 10.000 kall á kjaft.“
Svo hlógu allir og einhver sagði með meðaumkun í
röddinni: Æi, maður vorkennir þessum greyjum hálfpartinn.
En samt ekki.
---
Svona eftir á að hyggja fólst því ábyrgðin
kannski í því að menn sögðu sig úr
samfélagi við annað fólk með því
að þyggja yfirnáttúrulega há laun. Þegar
allt er hrunið felst ábyrgðin í því
að vera aðhlátursefni, hrákaskífa og holdveikisjúklingur.
Var það þess virði?
05.07.09
Vinsældir og velgengni eru hjómið eitt! Alveg líður
mér nákvæmlega eins núna og á sama tíma
í fyrra þótt ég eigi bæði vinsælasta
lag landsins og sjái um vinsælasta sjónvarpsþátt
landsins. Ókei, ég er smá rogginn. Jæja þá,
ekkert smá, heldur ógeðslega rogginn og brjálaður.
Ég er að spá í að kaupa mér gulljakkaföt,
tvo Range Róvera og láta græða á mig aukaskaufa.
---
Ég held ég muni aldrei nenna innhverfri íhugun.
Til hvers að eyða dýrmætum tíma í að
tæma hausinn á sér þegar hann tæmist hvort
sem er í Draumalandi og í Dauðalandi? Frekar að fylla
hann en tæma. Ég held ég hafi ekki nógu mikla
ró í beinum til að nenna að sitja kjurr og þylja
möntru inni í hausnum á mér. Jæja kannski
seinna, ef ég akkúrat ekkert skárra að gera. Sem
verður kannski aldrei...
Þetta Masserassí rugl sem Lyncharinn var að boða
hérna um daginn er nú bara eitthvað peningaplokk, sýnist
mér. Alvöru lið í þessum íhugunarbransa
gerir þetta ókeypis en hjá Lynch þarf maður
að borga stórfé fyrir 1 stk möntru. Lynch ætti
að hætta þessu rugli og drullast til að gera eitthvað
af viti, eins og t.d. að draga hausinn út úr rassgatinu
á sér og gera eina almennilega mynd. Jafnvel með söguþræði.
Ég var að lesa umða þegar Bítlarnir féllu
fyrir þessu kjaftæði og fóru til Bangor, Wales til
að íhuga við hlið lukkutröllslega litla karlsins
sem ég nenni ekki að gúggla. Margt gerðist samhliða
ferðinni. Cynthia Lennon missti af lestinni og John dömpaði
henni skömmu síðar fyrir Yoko og þegar Bítlarnir
voru þarna í möntruruglinu dó umboðsmaðurinn
Brian Epstein heima hjá sér. Bítlum og liðinu
sem var þarna var úthlutað möntru til að þylja
til að komast í hið eftirsóknarverða ástand
og því var stranglega bannað að segja öðrum
frá hver sín mantra væri. Nokkru síðar,
þegar nýjabrumið var farið af dæminu, kjaftaði
rótarinn Mal Evans frá að sín mantra væri
„I-ing“. Þá kom auðvitað í ljós að
það var sama mantran og öllum hinum hafði verið
úthlutað. Vilji fólk í ástand bítlastæl
er svo sem hægt að draga fram dýnuna, skella sér
í lótus, loka augunum, reyna að hætta að hugsa
og þylja bara æ-ing... æ-ing... æ-ing... fyrir
munni sér eins og eitthvað zombí. Skv. Lynch á
maður fljótlega að taka lyftu niður í kjallara
hins alltumlykjandi stöðuvatns fullkomnar hamingju og hugmyndauppsprettu.
Og bla bla bla.
---
Svo má líka bara fá sér ís. Lét
reyna á nýju ísbúðina í Laugalæk.
Ágætis ís og alles en staðnum vantar kannski bara
meiri sérstöðu. Þetta er alveg eins ísbúð
og einhver önnur sem maður hefur komið í, sama stöffið
til sölu og annars staðar. Ég styð auðvitað
opnun nýrra ísbúða heilshugar. Við hliðina
á að opna sveitavörubúð um næstu mánaðarmót
þar sem beint frá býlum stöff verður til sölu.
Eflaust verður það mjög athyglisverð búð,
fersk og næs. Ég held það sé gríðarleg
stemmning fyrir þannig búð. Ég var í svo
miklu ísstuði í gær að ég fór
líka og fékk mér manndrápsskammt af ís
í Álfheimaísbúðinni. Ég held að
sú búð sé sú besta á Rvksvæðinu
og dreg þá ályktun út frá hinu veglega
úrvali sem búðin býður upp á.
---
Gerði gríðarlega hagstæð magninnkaup á
plötum:
7":
Mánar - Einn, tveir, þrír
Bítlavinafélagið - Munið nafnskírteinin
Beatles - All you need is love
Beatles - Hello Goodbye
John Lennon/Plastic Ono Band - Power to the people
John & Toko/The Plastic Ono Band - Happy Xmas (War is Over)
Mary Hopkins - Goodbye
LP:
Steinka Bjarna - Á útopnu (með frábærri
forsíðumynd)
Jakob Magnússon - Special Treatment (á æsandi gulum
vinýl)
Mannakorn - Brottför kl. 8
Söngflokkur Eiríks Árna
Pelican - Uppteknir
Melchoir - Balapopp
Buzzcocks - Love bites
Siouxsie & The Banshees - Juju
Ottos Sammelsurium (Þýskarinn Otto sem var vinsæll
á Íslandi í sirka mánuð sirka 1990)
Blondie - The Hunter
Blondie - Autoamerican
Blondie - Eat to the beat
Gary Lewis & The Playboys - New Directions
Isotope - Isotope
Desmond Dekker - Compass Point
Beatles - Oldies but goldies
Peter Tosh - Bush doctor
Tælensk 60s safnplata (me óskiljanlegu letri)
Indochine - Le péril jaune
Ost - Sgt. Pepper's Lonely hearts club band (sándtrakkið
úr misheppnuðu Bee Gees myndinni - með plaggati!)
Bruce Springsteen - Darkness on the edge of town
Simple Minds - Live in a day
The Moody Blues - Days of Future passed
10cc - Live and let live
Ufo - Phenomenon
---
Svo lá maður bara fyrir framan sjónvarpið. Horfði
á Gran Torino með Clintaranum. Það er nú aðallega
fyndin mynd. Clint urrandi og skyrpandi og svona ægilega harður
gamalmenna Dirty Harry eitthvað. Alveg fínt.
04.07.09
Gott veður á Íslandi er stressandi....maður verður
að njóta þess á meðan það gefst,
það er svo fátítt. Það er krafa samfélagsins
að fara í stuttbuxur og byrja að grilla. Eða ekki. Ef
maður á þykk gluggatjöld skiptir veðrið ekki
öllu.
---
Ultra Eva Joly hélt róandi tölu í fréttum
í gær og sagði að vondu karlarnir færu í
fangelsi og réttlætinu yrði fullnægt. Það
tæki bara smá tíma. Hugguleg hún Eva og allskonar
færir útlendingar komnir í lið með henni til
að taka til. Þessi ber
Ísland saman við Pitcairn þar sem sifjaspell þótti/þykir
ok. Þetta er ekki svo vitlaus samlíking og Ísland er
viðskiptalega í sömu sporum. Hér eru allir kviðmágar
í veskinu á næsta manni. Hér fóru lögfræðingarnir
að tala um „séríslenskar aðstæður“, auðvitað
talaði liðið á Pitcairn líka um „sér-pitcairnískar
aðstæður“...
---
Ekki er alveg á hreinu hvað gerðist á milli þess
sem bresku útlagarnir/sjóararnir komu til Pitcairn og brenndu
skipið sitt og 20 árum síðar þegar bara einn
hvítur karl var eftir með slatta af Tahiti konum og börnum,
en öll þessi saga er rakin með skáldaleyfi í
The Bounty Trilogy eftir þá Nordhoff og Hall. Ég þrælaði
mér í gegnum þetta um árið til að sökkva
mér í Kyrrahafsismann. Fyrsta bindi, Mutiny of the Bounty,
er uppspretta hetjulegrar sögunnar af Christian Fletcher (Mel Gibson)
sem leiðir uppreisnina gegn hinum vonda Blight skipstjóra (A.
Hopkins). Þetta bindi hefur til þessa verið látið
duga þegar gerð er mynd um atburðina (allavega 3 hingað
til). Góði kallinn vinnur og siglir með sína menn
inn í sólarlagið, en vondi kallinn siglir til heljar
á árabáti. Þetta er auðvitað ekki ðe
end of storí því í öðru bindi, Men
against the Sea, segir frá Blight sem með ótrúlegu
harðræði kemst loks til Englands og út eru send skip
til að leita að Mel Gibson og félögum. Nokkrir finnast
á Tahiti og eru sendir heim til Bretlands til aftöku. Gibson
og félagar finnast þó hvergi. Í þriðja
bindi, Pitcairn's Island, er skáldleg úttekt á því
sem höfundar telja að hafi gerst á eyjunni eftir að
liðið mætti og brenndi skipið. Einhverjum tekst að
búa til brennivín í helli og þegar brennivínið
tekur völdin á eyjunni er auðvitað fjandinn laus. Menn
eru drepandi hvorn annan hægri vinstri út af kerlingum og
rugli þar til einn hvítur er eftir (Alexander Smith, aka John
Adams), orðinn ægilega trúaður og á í
öllum börnunum á eyjunni.
Bókin endar þegar skipið Topaz kemur að landi,
það fyrsta í 20 ár. Framhald sögunnar er svo
að árið 1856 var orðið svo fjölmennt á
eyjunni að allir voru fluttir til Norfolk eyju, sem er nálægt
Ástralíu. Sumum fannst ok að vera þar en aðrir
söknuðu Pitcairn svo slatti flutti aftur til baka þvert
yfir Kyrrahafið. Í dag búa þarna 50 manns (fámennasta
ríki heims) og pleisið er helst þekkt fyrir frímerkjaútgáfu
auk sögunnar og hins vafasama samfélagsmynsturs sem viðgengst
þar. Það er ekki hlaupið að því að
heimsækja eyjuna, en samt er nú official
tourism web.
03.07.09
Alveg er nú magnað hvað Ísland er lítið
og krúttlegt land. Þremur tímum eftir að ég
skrifa hér stórkarlalega að það sé „ágætt
að hrækja á gangstéttir fyrir framan útrásarvíkinga“
mæti ég einum í World Class. Þarna er ég
með handklæðið um mig miðjan, úti með
gufustrókinn upp af sveittum fagurlega sköpuðum líkama
mínum þegar Hreiðar Már, annar meðlimur gríndúettsins
Knoll og Tott, á leið hjá úr baðstofunni,
sér mig, brosir og segir í gríni: Ekki skyrpa á
mig! Brosir svo enn meira og fer í hæklasssturtuna. Ég
náttúrlega eins og kleina og styn upp að maður fari
nú ekkert að hrækja á gólfið í
World Class – „Aldrei samt að vita ef ég hitti þig úti,
he he“ og eitthvað svona rugl. En svona eftir á að hyggja
held ég að maður sé bara einum of vel upp alinn til
að byrja að hrækja að fólki, enda er það
nú bara bjánalegt ofbeldi og ofbeldi er eiginlega alltaf
rangt. Ég er kannski bara ekki nógu reiður (les: hef
ekki tapað átakanlega miklu enn vegna Hrunsins) til að vera
með munnvatnskirtla í óverdræfi. Æi, svo
eru þetta bara allt einhverjir gaurar. Gaurar sem tala íslensku.
Gaurar sem lesa fokkings bloggið manns!
---
Það er fyndið hvernig það sýður
á öllum sem maður talar við. Það er kannski
þunnt yfirborð þar sem hægt er að ræða
um daginn og veginn en það er alltaf stutt í straumhart
eldspúandi hraunfljót illsku og heiftar. Enda ekki búið
að gera málin upp. Liðið sem kom þjóðinni
á hausinn enn bara dílandi og vílandi eins og ekkert
hafi í skorist, segjandi hluti eins og „já já, ég
er alltaf að hugsa um Icesave maður“, „nei nei, ég segi
ekkert af mér, þetta eru bara rakalausar dylgjur og me me“
eða „he he, ég mun koma að uppbyggingunni.“ Svo verða
allir ógeðslega fúlir og pirraðir þegar þessi
mál eru rædd – það fer í gang eitthvað
svakalegt fúkyrðafljót, enda óréttlætið
svo alltumlykjandi, allt eitthvað svo ormétið, spillt og
ógeðslegt. Kannski er öllum svo sem skítsama í
prinsippinu, bara fúlir að hafa ekki getað otað sínum
tota eins og stóru strákarnir. Og hvað varð um þetta
Nýja Ísland sem fólk sá í hillingum?
Er Sigmundur Davíð, versti stjórnmálamaður
Íslandssögunnar, Nýja Ísland? Vei æðislegt,
takk.
---
Svo þegar tautið hefur staðið yfir í smá
stund endar það yfirleitt með því að einhver
segir: Æ sjitt, ég nenni ekki og meika ekki að tala meira
um þetta. Og þá byrjar fólk að tala um eitthvað
skemmtilegt svo það verði ekki geðveikt og byrji að
lemja gong á Austurvelli eða skrifa endalaus komment við
blogg Egils Helgasonar. Samt er uppgjöf að hætta að
tala um þetta. Klósjörið verður að koma.
Það verður að moka út. Annars versnar bara mórallinn.
Auðvitað nennir svo enginn að spá í þetta
lengur þegar kreppan er liðin hjá og allir komnir á
nýjan bíl. Ekki frekar en eitthvað þótti
athugavert við hrottalega þróunina í góðærinu.
Æi þegiðu nú og farðu að tala um eitthvað
skemmtilegt.
---
Ég tók enn eina nýja sundlaug í gær,
Álftaneslaug. Ég mætti forsetabíl og flautaði
eins og galinn. Aumingja bílstjórinn var næstum farinn
út af. Maður á alltaf að flauta hranalega þegar
maður sér forsetann. Svo er ágætt að hrækja
á gangstéttir fyrir framan útrásarvíkinga,
mæti maður þeim, og horfa á þá með
brennandi fyrirlitningu. Heyrðu, ætlaðir þú
ekki að fara að tala um eitthvað skemmtilegt? Jú, en
svona er þetta alltaf. Öll fljót renna til Hrunsins.
En allavega, Álftanessundlaugin er komin í sund/fjöll.
---
Það er kominn tími til að deila því
fágæti sem mér áskotnaðist í Vinýlskrepp
09. Fyrst eru það grænlensku bítlarnir The Eskimo's
og síðan meistari Haukur.
The
Eskimo's - My Bonnie
Bandið gaf út átta lög á 2 7" Ep-um 1966.
Það er glimrandi gott og þétt og gaman að heyra
þennan my bonnie slagara sunginn með grænlenskum hreimi.
The
Eskimo's - Wipeout
Grænlenskt kajaka sörf-rokk! Gerist varla betra. Hér
má lesa smáræði um bandið á dönsku.
Haukur
Morthens - Gústi í Hruna
Haukur
Morthens - Fyrir átta árum
Fyrsta útgáfan frá Faxafón útgáfumerki
Hauks var smáskífan með þessu lagi. Ég er
ekki alveg viss hvaða ár þetta kom út, skít
á 1963. Þetta er helvíti næs rokkari frá
Hauki og hann fer á fullt í rokkstunum þegar hvínandi
saxafónsólóið skellur á. Sérstaklega
kúl er svo síðasta „mmmm, ééééé-ið“
í laginu sem Haukur flytur af ástríðuþunga.
Ekkert ballöðukjaftæði hjá Hauki í þetta
skiptið heldur svellandi rokkfuni. Á umslaginu sést að
Haukur drekkur Sinalco og ekki er það nú til að draga
úr vægi þessarar plötu. B-hliðin, Fyrir 8 árum,
er bongótrommustuð.
Haukur
Morthens - Með blik í auga
Aðallagið á Faxafón No 102 er þetta helvíti
kúl lag. Þessar tvær smáskífur virðast
hafa komið út um svipað leiti því báðar
myndirnar á umslögunum eru úr sömu sessjón.
Nú er Haukur hættur að drekka Sinalco á djúkboxbarnum
og kominn niðrá kæja með nikkuna. Stúlkan (hvaða
kona er þetta?!) brosir enn undirleit og lokkandi og er að sjálfssögðu
enn í sama kjólnum, enda heví næs kjóll.
Hin stelpan á Faxafón 101 er svo líklega bara enn
að dæla túköllum í djúkboxið, eða
farin heim með Ragga Bjarna.
02.07.09 -Af ferðum mínum innanlands
Skrapp í vinýlskrepp 09 með Steini Skaptasyni.
Dagur 1 - Rvk - Ak:
* Laugabakki: prjónandi hillbillí í sjoppu.
* Við Árbakkann, Blönduósi: Eini almennilegi
kaffibollinn á allra leiðinni til Ak (fyrir utan Borgarnes).
Tvöfaldur latté á 460 kr. Dýrt! Smakkaðist
full moldarlega.
* Hallbjörn var við kynningar í Útvarpi kántríbæ.
Er orðinn full pönkaður í kynningum. Nokkuð góður
samt. Spilaði að sjálfssögðu mikið af sjálfum
sér.
Dagur 2 - Ak:
* Akureyri er snilld. Það þarf náttúrlega
ekkert að nefna það. Tilgangur ferðarinnar var að
ath vinýlplötubúnka hér og þar. Kalli frændi
minn, sonur Sigga, hálfbróður pabba, hafði haft samband
við mig upp á að skoða plötusafn pabba síns,
sem lést fyrir nokkrum árum. Kassarnir voru í skúr
við smábátahöfnina innan um veiðarfæri
og slíkt. Reyndist mikið af 78 snúningaplötum og
aðallega harmóníkutónlist. Það er eflaust
hægt að finna fólk sem hefur áhuga á svona
efni en ég og Steinn erum því miður ekki í
þeim flokki. Siggi var líka gríðarlega öflugur
ljósmyndari og tók myndir öll sumur þegar við
mapa & kó mættum í okkar árlegu heimsóknir
norður. Ég fékk að komast í nokkra skyggnukassa
og fann 3 myndir af mér 9 ára. Verður sett í skönnun
asap.
* Við kassa í Nytjamarkaði Fjölsmiðjunnar rákumst
við á Gunnar Tryggvason og ræddum lítillega við
hann, en Steinn fattaði náttúrlega að Gunni Tryggva
lék með Akureyrarbandinu Póló í denn. Og
fleirum. Annars lítið á nytjamarkaðinum að græða,
keypti þó snyrtitösku merkta Fanta á 50 kall til
að kaupa eitthvað.
* Aðeins skárra var í Hjálpræðishernum,
keypti hryggjarstykki Skriðjökla, Er Indriði mikið erlendis?,
og Prefab Sprout plötuna með þeim þarna á mótorhjólinu.
Rákumst aftur á Gunna Tryggva og ræddum meira við
hann um bransann, gömul hljóðfæri og söfnun.
Hann sagði okkur endilega að kíkja á sig.
* Heilagt gral vinýlgrúskara á Ak er Frúin
í Hamborg, búðin frábæra í miðbænum.
Þar var Steinn að koma í fyrsta skipti og þurfti
sinn tíma. Ég var hins vegar nýbúinn að
vera þarna, en gat engu að síður dregið frekari
björg í bú: Elvis Costello - Blood and Chocolate, Stevie
Wonder - Songs in the key of life, Introducing Sparks, Hulda at the Summit
(fágæti), Paul McCartney - Press to play, The best of Steve
Miller 1968 - 1973, The Four Seasons - We love you.
* Í gúrmebúð Friðriks V fékk ég
að smakka hundasúrupestó. Það var, ööö,
athyglisvert á bragðið. Þarf að ath þessa
búð betur seinna þegar ég kem með Lufsunni.
* Smámunasafnið er alltaf stuð.
* Á Holtaseli er ísbúð með ís úr
beljunum í fjósinu. Rosa sniðugt og brjálað
að gera. Fólk fílar eitthvað svona sniðugt í
ferðamennskunni. Ég fékk mér tvær kúlur
í vöffluform (175 kr. stk - ódýrt!). Annað
bragðið, skyrís með bláberjum, var rosalega gott.
Hitt, karamellu, almond eitthvað, var fínt en ekki eins spes.
Maður er dáldið lost í brögðunum hjá
þeim. Það stendur hvergi á áberandi stað
hvað er til, svo maður verður að rýna í boxin
í frystinum. Holtasels-ís er á réttri braut
en þau verða að fókusa sig betur. Ég mæli
með að snilld eins og skyrísinn með bláberjum
verði settur í forgrunn og eitthvað svipað fundið
upp og prómeterað. Það er minna stuð að borða
ís sem er bara með einhverjum innfluttum essens. Nú erða
lókal sem er glóbal, maður.
* Gunni Tryggva úr Póló býr í einbýlishúsi
í Eyjafirði. Húsið er troðfullt af græjum,
aðallega hljómborðum ýmiskonar, mögnurum og
stöffi. Það var geggjað að fá leiðsögn
meistarans um húsið. Hann er með þetta allsstaðar.
Hjómborð upp í rúmi, liggur við. Hann á
fjórar Farfísur svo eitthvað sé nefnt, og a.m.k.
fimm pumpuorgel. Við fengum að gramsa í plötunum líka
og mér tókst að svæla út úr honum
tvær rosalega athyglisverðar 7" með grænlenska bítlabandinu
The Eskimos, útgefnar af Kajak útgáfunni árið
1966 (mp3 síðar). Ég hélt satt að segja að
hippahljómsveitin Sume hafi verið fyrsta vestræna/nútíma
hljómsveit Grænlands - amk til að gefa út plötu
- svo það var opinberun að finna bítrokk Eskimos.
* Maður yfirgefur svo ekki Ak nema að fá sér „Kolesterólsprengjuna“
á Greifanum og Brynjuís fyrir allan peninginn.
Dagur 3 - Ak - Flókalundur:
* Í Miðkoti rétt utan við Dalvík býr
Hafsteinn bóndi, að öllum líkindum stórtækasti
músiksafnari landsins. Hann hefur fengið hjá mér
efni um nokkurt skeið og það var orðið löngu
tímabært að heimsækja hann. Hann á svona
sirka 95% af allri útgefinni íslenskri tónlist á
vinýl (öllum snúningum), kassettum, cd, os.frv. Hann
á fleiri öndergránd snældur en ég. Hann
er hreinlega ótrúlegur í áráttu sinni.
Hann byrjaði að safna snemma á 8. áratugnum eftir
að hafa keypt plötu Kaffibrúsakarlanna. Fyrst ætlaði
hann bara að komplítera SG en svo vatt þetta upp á
sig. Hann geymir öll bréfasamskipti sem hann hefur átt
við útgefendur. Þeir voru misgóðir við
hann. SG var önugur til að byrja með en þegar hann fann
að Hafsteini væri alvara vildi hann allt fyrir hann gera. Rúnar
Júl sendi Hafsteini allar útgáfur Geimsteins. Og jólakort
með fjölskyldumyndum þar að auki. Og kom auðvitað
í heimsókn þegar hann átti leið um. Öll
bréfleg samskipti geymir Hafsteinn bóndi í möppum.
Það var lítið mál að fá aukaeintök
hjá honum. Ég fór burt með safnplötuna Eitt
með öðru frá Tónaútgáfunni, Ómar
Óskarsson - Middle class man, Mannakorn - Mannakorn og Óðinn
Valdimarsson - Blátt oní blátt. Hafsteinn er alveg
met!
* Ólafsfjörður var þarna bara. Ókum í
gegn.
* Engin göng ennþá svo við fórum dalinn
og heiðina og hinn dalinn og Strákagöng til Siglufjarðar.
Ég held bara svei mér þá að ég hafi
aldrei komið þangað áður. Gerði svo sem ekki
neitt. Rúntaði smá um. Virtist bara hinn vænsti
bær. Ekkert þó sem hrópaði á mann
að staldra við.
* Hofsós er meira en maður býst við. Sérlega
flott er svæðið við höfnina, Vesturfarasetrið
og svona stuð í gömlum húsum. Þarf að
tékka betur á því seinna.
* Á Sauðárkróki voru Lummudagar og allt vaðandi
í bláum blöðrum. Fékk ágætis
ís í bakaríi. Kona á förnum vegi sagði
mér að hún læsi alltaf Bakþankana mína
og klippti þá út. Fullt af hestum í miðbænum.
Fínn bær.
* Sund í Húnavallalaug. La la. (Fjórar nýjar
sundlaugar eru nú komnar í Sund/fjöll)
* Það var mikið að ég komst til Gríms
í Búðardal. Átum ljómandi máltíð
með honum, Helgu og börnunum. Svo í einum grænum
á Flókalund. Rosaflott þarna á Barðaströndinni.
Mikil snilld. T.d. aflagða kaupfélagið/sjoppan við Kollafjarðar/Gufufjarðar-nesið.
Flókalundur er blómlegur. Tjaldaði loksins þessu
fína tjaldi frá Rúmfatalagernum (2.990 kr.). Ég
held það sé úr bréfi. Eins gott að það
ringdi ekki. Ég svaf samt vel.
Dagur 4 - Flókalundur - Bíldudalur - Bjarkalundur
* Eigandinn á Flókalundi var mjög hress.
* Sund í Reykjafjarðarlaug. Betra verður útsýnið
varla. Það er allavega flottari héðan en í
Árbæjarlaug! (Sem þó er flott.)
* Á Bíldudal var „Bíldudals grænar baunir“-hátíðin
á lokametrunum og allt vaðandi í grænum blöðrum.
Nokkur örtröð var á einu sjoppunni/matsölustaðnum
í bænum, Vegamótum. Gerði innkaup. Ís (góður)
og fiskisúpa (einum of mikið hveiti), Fínt latté.
* Selárdalur. Við lentum í veseni. Kona í nokkru
uppnámi kom gangandi á móti bílnum. Sonur hennar,
ekki orðinn 2ja, hafði læst sig inni við eyðibýli.
Samlæsing og allt í volli. Sól og hiti og gsminn læstur
inn í bíl. Maðurinn hafði reynt að spenna upp
hurðina með járnkarli. Löggan sagði að það
tæki allavega klukkutíma að koma til að opna og þá
ekkert víst að það myndi reddast. Strákurinn
sofandi sveittur. Ákveðið var að stúta lítilli
rúðu á jeppanum. Steinn í málið. Allt
endaði vel. Skömmu síðar gengum við að bæ
Gísla á Uppsölum. Ómar Ragnarsson og félagar
hafa tekið bæinn í gegn að utan og sett gler í
og nýja hurð. Inni er allt við það sama, held
ég. Það er spurning hvað ganga á langt með
að poppa staðinn upp. Verður komið fyrir talandi læfsæs
dúkku af Gísla fyrir rest og latté-sölu? Nei,
ég treysti auðvitað Ómari 100% fyrir þessu.
Fjárhús Gísla er hins vegar allt í steik og
stórhættulegt. Maður gæti auðveldlega hrapað
oní 3 metra djúpa heygeymslu („heygeymsla“ hlýtur
að heita eitthvað ægilega pró sem ég veit ekki
hvað er, enda ekki bóndi). Það var slatti af fólki
sem lagði leið sína að bænum. Amk þrír
hópar fyrir utan okkur á þessum klukkutíma sem
þetta tók. Það er ennþá mikill áhugi
á Gísla.
* Og ekki síður er áhugi á Samúeli og
ævintýralandi hans í Selárdal. Þangað
mætti fjöldi manns á meðan ég var þarna,
enda auðveldara að skoða staðinn þar sem hann stendur
með bílastæði og allt. Þetta er allt saman snilld,
en eitthvað tómlegt fannst mér safnið í kirkjunni.
Uppbygging hefur eflaust fokkast upp eftir hrunið (erfiðara að
fá brauðmolaklink auðmanna í dag) svo ég setti
glaður 500 kall í bauk.
* Loksins sá ég safn meistara Jóns Kr., Melódíur
minninganna. Safnið er einstök snilld. Auðvitað sérlega
áhugavert fyrir músikáhugafólk, en alveg frábært
stöff fyrir bara alla held ég. Glápti hrærður
á plötuumslög. Jón lék við hvurn sinn
fingur en var aðeins þreyttir vitanlega eftir ös helgarinnar.
Meistarinn leysti okkur Stein út með óspiluðum eintökum
frá Faxafón útgáfu Hauks Morthens: Haukur Morthens
- Nú er Gyða á gulum kjól LP, Með blik í
auga 7" og Gústi í Hruna 7". Alveg er ég viss um að
ég á eftir að koma aftur í safnið, enda er
það ekki fullklárað. Eitt herbergið er svo fullt
af dóti að Jón kemst ekki í að raða í
það. Hann þarf að fá geymslu út í
bæ og hefur verið að biðla til sveitafélagsins.
Þar virðast menn bara yppa öxlum sem er furðulegt í
ljósi þess hve safnið er einstakt og glæsilegt og
örvandi fyrir aðdráttarafl bæjarins. Auðvitað
á nú bara að kippa svona í lag strax. Ekki spurning.
Heyriði það, aðaldúddar á Bíldudal?
* Tálknafjörður. Kannski einum of lítið pláss.
Kaffihúsið/barinn var nú ekki neitt neitt ennþá,
enda nýopnað, en verður það vonandi seinna. Þar
inni móktu fáir gestir yfir fartölvum. Fengum engu að
síður prýðilegt latté.
* Ó, mig langar heim (til Patreksfjarðar) er eitt uppáhaldslagið
mitt með Halla og Ladda, enda Massachusetts með Bee Gees. Margir
segja plássið í andaslitrunum (Patreksfjörð,
alsto) en ég held ekki. Jú jú, auðvitað eru
þarna full mörg auð íbúðarhús og
verslanir farnar á hausinn í miðbænum. Það
er aldrei gott til afspurnar, ekki á Patreksfirði frekar en
á Laugaveginum. Sjóræningjasafnið er engu að
síður algjör snilld. Þetta var 700 m2 sögufræg
smiðja sem lá undir skemmdum en eldhugar ætla að umturna
skref fyrir skref. Kaffihúsið er meiriháttar. Mjög
flott og kúl, kaffi og samloka ódýrt og gott. Annar
eigandinn sýndi okkur pleisið. Þarna er tónleikasvæði
og grillsvæði og svo á að gera meira og meira, fjölskylduvænt
útleiksvæði og ég veit ekki hvað og hvað.
Það nennir enginn að standa í svona nema algjörir
eldhugar og meistarar. Þetta að rífa sig upp í
stemmingu á einhverju afskekktu plássi út á
landi er ekkert sem loppnar rolur gera. Það þarf eldhuga
til að draga sig upp úr doðanum. Patreksfjörður
er að auki með árlega heimildamyndahátíð,
sem er fín innspýting. Verslunin Albína er nokkuð
skemmtileg. Pólskur fílingur á köflum og hraðbankinn
einn sá öreigalegasti sem ég hef séð.
* Flókalundur aftur. Eigandinn ennþá mjög hress
og viðræðugóður. Sagði að þýddi
ekkert að standa í þessu nema með 100% einurð,
að vera alltaf í vinnunni. Koma oft á veturna að
dytta að og svona. Hann ber engan kala til Bjarkalundar og sagði
að hann hafi ekkert endilega viljað fá allt plöggið
vegna Dagvagtarinnar. Ástæðuna fyrir því
að Bjarkarlundur var valinn segir hann þá að Jón
Gnarr var oft á sumrin bensíntyttur á Bjarkarlundi
enda pabbi hans innvínklaður í félagið sem
rak pleisið. Þetta er því pjúra nostalgía
hjá Jóni.
* Barðaströndin aftur, ennþá mjög flott.
Wathne-systur eiga víst land þarna og sjást stundum
spranga gellulegar um í veiðifötum. Við sáum
þær hvergi en sáum ref skjótast yfir veginn.
Verður varla meira foxí. Fyrsti villti refurinn sem ég
sé um dagana held ég.
* Svaf á hinum fræga Bjarkarlundi (sjáið bara
hvað einn velheppnaður sjónvarpsþáttur getur
gert). Tjaldið hékk enn uppi og sem betur fer byrjaði ekki
að rigna fyrr en 30 mín áður en ég fór
af stað. Ég gef ekki mikið fyrir heilsufar mitt eftir heila
nótt í dembu í þessu.
Dagur 5 - Bjarkalundur - Rvk
* Króksfjarðarnes er þarna bara og kaupfélagið
löngu farið á hausinn.
* Skriðuland, kaffibolli. Tískulöggan Skjöldur
birtist upp úr þurru og fór að borða Cherrios.
Seinna frétti ég að mammans á pleisið.
* Grímur var til kynningar í Búðardal. Hann
hefur áður sett sig í hlutverk eldhugans sem reynir að
rífa upp pleisið. Inn á Bjargi, veitingahúsi/gistiheimili
sem gæti auðveldlega verið úr David Lynch mynd, er
sjaldgæf mynd af Björk að syngja með Sykurmolunum. Þetta
er önnur rare Bjarkar myndin sem ég sá í ferðinni
því á safni Jóns Kr var þessi sjaldgæfa
prómómynd af Björk með ballbandinu Kaktus frá
sumrinu 1983:
Allir í poppstuði nema Björk sem er new wave og greinilega
ekki alveg „ein af strákunum“. Þetta er eina myndin sem ég
hef séð frá þessu tímabili Bjarkar. Á
netinu
rifjar söngkonan Kristjana Stefáns upp kynni sín af
þessu dæmi.
* Í Leifsbúð, Búðardal er kaffihús/matsala/víkingasafn.
Fengum frábæra fiskisúpu (ekkert hveiti rugl) og frábæra
köku. Og gott latté. Mæli endregið með þessum
stað. Yfirgefna risa sláturhúsið við hliðina
er svo sem ekkert augnayndi heldur sláandi dæmi um pólitískan
hrappshátt á landsbyggðinni.
* Í Fjósinu á Erpsstöðum, nokkrum km sunnan
við Búðardal, er byrjað að búa til ís
og selja. Þetta er þriðji fjósaís landsins,
eftir því sem ég kemst næst (sá þriðji
er nærri Höfn). Þessi ísbisness er það
sem koma skal, held ég. Kannski kominn tími til að nota
nafn landsins ICE-land og moka út háklassa ís? Fyrir
eitthvað verðum við að vera fræg. ehaggi? The famous
Iceland Ice Cream. Skítt að þessi breska verslunarkeðja
Iceland hafi nauðgað nafninu óáreitt. Í Fjósinu
var okkur boðið upp á sirka 8 tegundir af ís sem
voru essens-blandaðar og fínar sem slíkar. Bananaís
er með alvöru banönum og var góður, sem og lakkrísís
(Hmm... Lakkrísís, gott nafn á bandi). Það
var brjálað að gera í ísbúðinni.
Ég er að segja þér það. Liðið
vill ís!
* Ágætt latté í Vinakaffi, Borgarnesi.
* Heim í Icesave og það væl.
01.07.09
Afhverju tala tannlæknar stanslaust við mann á meðan
þeir eru að hjakka á tanngarðinum á manni?
Það er svo sem allt í lagi en þetta verða hálf
einhliða samræður. Maður liggur þarna með troðfullan
kjaftinn af drasli og getur varla kyngt hvað þá haldið
uppi samræðum um dægurtónlist og Icesave. Tannlækninum
mínum finnst semsé algjör fásinna að samþykkja
Icesave og þar að auki hatar hún rapp og er viss um að
hún myndi drepast ef henni yrði haldið fanginni og neydd
til að hlusta á rapp dögum saman. Frábær tannlæknir
og sanngjarn. Ég ætti annars eflaust að lesa þetta
sem JBH skrifar en ég efast um að ég nenni því
í þaula. Það væri þá ekki nema
sem viðleitni til iðrunar fyrir að æpa á JBH að
hann væri fáviti þegar ég var að dimmitera
blindfullur 1985 fyrir utan alþingi.
---
Þetta eru svo kreisí upphæðir. 900 millur í
lán til að kaupa hlutabréf og svo gufar lánið
bara upp eins og hendi sé veifað (handboltakall Þorgerðar
fv. þingmanns) eða 450 millur í það sama (lögfræðingurinn).
Ég hef nú ekki hugmyndaflug til að nefna upphæðirnar
sem Knoll og Tott í Kaupþingi voru að sulla með. Við
hliðina á þessu fílar maður sig sem algjöran
minnipokamann. "Á" íbúð sem kostar skitnar 30
millur og fær svona 4 millur á ári í laun ef
vel viðrar. Jamm. Afhverju bauð mér enginn að kaupa
svona fansí win/win hlutabréf? Ég er dauðöfundssjúkur.
Eða ekki. Og svo geta þessi lítilfjöllegu lán
manns ekki gufuð upp eins og hjá almennilegu fólki heldur
vex þetta bara og vex eins og sveppur á haug. Kræst.
ps: myntköfulán Satans skreið yfir 90.000 fyrir þennan
mánuð. Til hamingju. Ég slepp í apríl.
---
Æ nei ég held ég fari ekki að glápa
á náinn af Jacko greyinu í Neverland. Ágætis
hugmynd samt hjá aðstandendunum. Það þarf eflaust
lítið að dytta að líkinu enda var kallgarmurinn
meira og minna úr plasti hvort sem er. Ef ég væri sérlegur
aðdáandi myndi ég að sjálfssögðu
láta mig hafaða. Það er alltaf þörf á
að búa til ný mekka. Þetta veit ég hafandi
þrætt Bítlaslóðir í Liverpool, glápt
á Dakotabygginguna í New York, farið í Rockjunket
túrinn með Bobby Pinn í NY og ég veit ekki hvað
og hvað. Eftir eru Nashville, Graceland og Buddy
Holly Center í fæðingarbæ meistarans í
Lubbock, Texas og fjölmargt fleira. Ég er ákaflega hlyntur
rokksöfnum og var himinlifandi með Melódíur minninganna
á Bíldudal. Þar var ég á sunnudaginn
og birti díteila síðar. Hér eru tveir sætir:
---
Hellvar
- Falsetto
Nýtt lag af nýrri plötu með Hellvar. Hljómar
helv. vel. Söngurinn minnir mig á eitthvað örlí
breskt póstpönk, Raincoats eða Slits.
Bandið er á leið til útlanda og sendi fréttatilkynningu:
Hljómsveitin
Hellvar heldur nú enn einu sinni til Berlínar til tónleikahalds,
en það er næstum árviss viðburður hjá
sveitinni sem einmitt var stofnuð þar árið 2004. Hellvar
leikur eina tónleika í Berlín þann 4. júlí
en heldur svo til Weimar þar sem sveitin hefur verið bókuð
til að halda fyrirlestur um hina íslensku búsáhaldabyltingu,
og spila síðan á tónleikum á eftir. Síðan
er aftur farið til Berlínar þar sem einhverjir pönkarar
eru að skipuleggja tónleika og er dagsetningin enn á
reiki, líklegast þó 8. júlí.
Af Hellvar er það að frétta að sveitin
er að semja og vinna nýtt efni á aðra plötu
sína, og í tilefni af því að vera sirka
hálfnuð hefur lagið "Falsetto" orðið fyrir valinu
til dreifingar, og gefur forsmekkinn á hljóm næstu
plötu. Hún er þó ekkert endilega að koma út
á þessu ári, heldur kemur út þegar hún
er tilbúin sem gæti dregist fram yfir áramót.
Í laginu sýnir Heiða söngkona á sér
nýja hlið og notar mun klassískari raddbeitingu en oft
áður. Lagið er nú komið á allar útvarpsstöðvar
og er fyrsta nýja efni frá Hellvar síðan fyrsta
plata þeirra, "Bat out of Hellvar", kom út, í lok árs
2007.
30.06.09
Ég var að röfla um montauglýsingar hér
að neðan. Þetta er hluti af horfnum heimi sem kemur varla
aftur í bráð. Þeir sem vilja ylja sér við
gömlu mýtuna um að Ísland sé stórasta
land í heimi, en ekki það skuldugasta, ættu að
tékka á þessu: Hér
er Baugur að monta sig af frábæru eyðslufylleríi
og riðlast á lagi Sigfúsar Halldórssonar í
leiðinni. Vegir liggja víst ekki til allra átta eftir
allt saman heldur í skuldafangelsi. Hér
er Avion group að sýna hvað þeir eru með stórt
undir sér við dynjandi undirleik SigurRóslegrar hetjutónlistar.
Er þetta fyrirtæki ekki örugglega búið að
skíta upp á bak eins og öll hin? Verða einhverjar
grobbauglýsingarnar fyrir næsta áramótaskaup?
Kannski bara skjáauglýsingar um breytta opnunartíma
Fjölskylduhjálparinnar og atvinnuleysisbótaskrifsstofunnar?
Nei, ég segi bara svona. Áfram Ísland! Hér
er svo hin magnaða úkúleleauglýsing sem ég
bloggaði einnig um fyrir 5 dögum.
---
Gissur
- The 3 Days Of Jesus Christ And People
Athygli mín hefur verið vakin á því
að listamaðurinn Gissur Björn Eiríksson andaðist
þann 12.09.08. Hann varð 51 árs. Gissur gaf út
geisladiskinn The Beginning árið 2001, 8 laga disk með frumsömdu
efni sem Axel Einarsson í Stúdíó Stöðinni
tók upp með honum. Eins og kemur fram í minningargrein
um Gissur veiktist hann ungur af geðsjúkdómi sem markaði
djúp spor í lífsgöngu hans. Platan ber merki
sjúkdómsins og er eiginlega alveg einstök. Hún
hefur aðdráttarafl sem erfitt er að skilgreina og lætur
mann spyrja sjálfan sig spurninga, eins og t.d.: Má ég
hafa gaman af því að hlusta á þetta? Svarið
er auðvitað: Já. Tónlist er búin til þess
að einhver hlusti á hana, ekki satt?
Ekki minnist ég þess að platan hafi fengið mikla
athygli á sínum tíma. Það getur verið
að Andri Freyr hafi tekið viðtal við Gissur í einhverjum
þætti á Xinu og Eiríkur Jónsson tók
viðtal við hann í sjónvarpsþættinum sínum
(harðorða úttekt um það má lesa hér
(15 janúar)). Platan mun eflaust lifa í annálum íslensks
outsider-listaheims og orðspor hennar hefur farið víða,
t.d. hingað. Bloggfærsla
í kjölfar þess að ég keypti plötuna frá
07.07.02 er svona: Keypti þennan disk í Skífunni
í gær og fær hann mína hæstu einkunn fyrir
þá sem fíla "utangarðs"-popp (aka "Hamfara-popp"),
en í þeirri deild eru fyrir t.d. snillingsplötur eins
og "Hamfarir" Gunnars Jökuls og nánast óteljandi plötur
Sigríðar Níelsdóttur. Það er áþreyfanlegt
að Gissur Björn Eiríksson gengur ekki alveg heill til skógar
og því sniðug en e.t.v. ómeðvituð ákvörðun
að sýna hann með trjám á umslagi meistaraverksins.
Ég veit annars lítið um Gissur – fletti honum þó
upp í símaskránni og skv. henni býr hann í
Hátúni 10 (öryrkjablokk). Lögin eru aðeins
átta og allir textarnir samdir árið 1975 (í maí
og júní) og má það nánast teljast
einstakt afrek að þetta komi út núna, 27 árum
síðar. Tónlistin er skemmtarafroða í anda
"Hamfara", textarnir steypa á ensku, en það er einstök
söngrödd Gissurarar sem er kirsuberið á þessa
einstöku köku.
Eins og Gissur benti á á plötunni er jörðin
ein af trilljón stjörnum. The Beginning ætti að vera
til á þeim öllum.
29.06.09
Einu sinni þegar við Lufsan vorum nýkomin til New
York bárust fréttir af því að George Harrison
væri látinn. Nú skrapp ég í ferð
til Akureyrar og var ekki fyrr kominn norður en allt fylltist af fréttum
af önduðum Michael Jackson. Ég skrifaði einu sinni
bakþanka sem heitir Michael
Jackson og læt hann duga sem minningarorð. Ég skildi
annars aldrei hvernig þessi súpertjónaði maður
ætlaði að halda úti stuðinu á 50 tónleikum
í röð.
---
Ég var frá í 4 daga og fór aldrei í
tölvu. Það var helvíti hressandi (díteilar
síðar). Ég held ég hafi ekki misst af neinu. Þegar
ég fór voru allir að væla um Icerave og þegar
ég kom til baka voru ennþá allir að væla
um Icerave. Það er meira hvað þessi safnplata frá
1992 getur vakið sterkar tilfinningar hjá fólki. Við
verðum Norður Kórea ef við neitum að hlusta á
Icerave og væli væl. Sjálfur er ég á báðum
áttum en hef hlustað smá á Icerave í kvöld.
Þori ekki öðru. Nú getur þú líka
hlustað smá á Icerave.
Pís
og keik - Ég og Nonni
Þess má geta að Björgvin Halldórsson sá
um að velja á safnplötuna. Þann 15. feb í
fyrra voru erlendir peningamenn ekki alveg vissir um að Icerave væri
svo frábær plata. Þá sendi Landsbankinn þetta
skjal til fjölmiðla í Bretlandi til að fullvissa
þá um að aurinn á innlánsreikningum Icerave
væru í traustri geymslu. Nei nei, við erum ekkert að
fara á hausinn, haldið bara áfram að leggja inn á
okkur. Fyndið svona eftir á, ekki satt? Þetta gums allt
segir manni bara það að það er ekkert hald í
neinu. Og við hlustum ekki á rave-tónlist óreiðumanna.
Eða hvað?
25.06.09
Alveg er ég viss um að kostunaraðilar myndarinnar Transformers
2 Revenge of the Fallen eru Hasbro leikfangagerðin og Bandaríski
herinn. Mig langaði allavega til að kaupa bílakalla og ganga
í herinn til að skjóta á vonda bílakalla
og rústa menningarverðmætum í Egyptalandi eftir
að hafa séð þetta ofbeldisrúnk dulbúið
sem barnamynd. Þetta er 3ja tíma djöfulgangur og svona
helmingi of langur. Dagbjartur var hins vegar eiturhress með þetta
og fer eflaust bráðlega að suða um nýjan bílakall.
---
Maður út í bæ bað mig um að grafa upp
mont-auglýsingu frá Baugi Group sem var sýnd á
undan áramótaskaupinu sirka 06 til að „gefa innsýn
inní ruglið sem var í gangi“, eins og hann orðaði
það. Ég hef lítil tengsl í heim mont-auglýsinga
en ef einhver getur sagt mér hvar svona gamalt mont má finna
á netinu væri ég glaður. Ég ætlaði
að benda manninum á svipað montrúnk frá einhverju
sem heitir Atorka. Þar á heimasíðunni var lengi
galin og óskiljanleg auglýsing frá þeim með
Gísla Erni í aðalhlutverki en nú virðist hún
hafa verið fjarlægð. Í staðinn, í takt
við tímann náttúrlega, er bara komið eitthvað
bull um "samfélagslega ábyrgð". Eða eins og segir
í laginu: „muna að gefa í líknarstarfssemi“.
---
Ég vil ekki monta mig um of en ég held ég sé
samt með fyrstu mönnum til að fá mér úkulele
hér á landi. Nú er annar hver maður lemjandi úkulele
voða krútt. Hljóðfærið er upprunnið
á Havæ þegar portúgalskir innflytjendur þar
fóru að smíða sér lókal útgáfu
af portútgalska smágítarnum cavaquinho.
Sem Kyrrahafsfrík kom snemma inn í myndina að fá
mér svona og lét ég verða af því
í London árið 2000, bara eitthvað drasl af Vantage
gerð. Ég lærði nokkur grip og samdi eitt lag. Þá
var hringt frá Símanum og ég beðinn um að
semja lag sem átti að notast í auglýsingu um nýja
heimasíðu Símans. Úkulelelagið smellpassaði.
Þetta var gríðarlega metnaðarfull auglýsing
leikstýrð af Óskari Jónassyni. Ég man ekki
hvað aðalleikarinn heitir en ég var að vinna með
honum í Japis. Hann var svona lúði og var að spila
lagið á úkulele og textinn fjallaði um heimasíðuna:
Ef þú vilt vita eitthvað um símann þinn,
skaltu fara á heimasíðuna beint inn (o.s.frv.) Lagið
var tekið upp hjá Saga Film og Doddi í Trabant söng
það. Svo var auglýsing til, ægilega fín,
og ég fékk 200.000 kall eða eitthvað fyrir lagið
en auglýsingin var bara sýnd einu sinni. Ef það.
Mig minnir að heimasíðan hafi ekki verið tilbúin
fyrr en hálfu ári eftir að auglýsingin var tilbúin
eða eitthvað. Úkuleleið borgaði sig allavega upp
í snarhasti. Seinna gaf Lufsan mér annað úkulele,
einnig af Vantage gerð, bara fínna módel. Þessi
hljóðfæri eru náttúrlega til í fjórum
stærðum og af mörgum rosaflottum tegundum. Ég kíkti
í úkulelebúð á Havæ á sínum
tíma og alvöru tæki voru rándýr. Ég
sá líka innfæddan hlunk spila í rútu
á leið í luau og hann strömmaði á mjög
sérstakan hátt sem ég hef aldrei almennilega náð.
Margt eftir í úkulelefræðum, altsog.
---
Annars er marr búnað verí fríi og svona. Gerði
heiðarlega tilraun til fiskveiða með ömurlegum afleiðingum.
Í Skorradalsvatni sargaðist flotholt og fluga af í þriðja
kasti. Þá festi ég Tobyspún og braut glænýju
stöngina þegar ég reyndi með offorsi að ná
spúninum. Á bát í Vesturhópi hélt
ég áfram með hálfa stöng og lét bátinn
draga annan spún. Gætti ég ekki að mér og
rann allt girnið af hjólinu. Greip ég þá
Disney-stöng Dagbjartar og henti út síðasta spúninum.
Hann festist og allt draslið slitnaði af. Ég varð auðvitað
ekki var einu sinni á meðan á þessu armageddoni
stóð! Læt þetta þó ekki stoppa mig
og mæti fílefldur og reynslunni ríkari aftur til leiks
asap.
---
Best í ruslflokknum
er Bakþanki dagsins.
19.06.09
Tvíhöfði
- Andsetin eiginkona
Það er ótrúleg mannauðssóun að
Tvíhöfði sé ekki í loftinu. Oft var þörf
en nú er nauðsyn. Hvað skyldi Yfirkennaranum finnast um
Icesave? Fór Suðu-Sigfús illa út úr bankahruninu?
Kannski rætist úr þessu, mér heyrist þeir
allavega vera til í tuskið. Gubbað
af gleði er kominn út, tvöfaldur troðfullur pakki.
Mörgum sinnum betra en ekkert!
18.06.09 - Pepp verður að hafa innistæðu
Bankagrey hamast við að eyða peningum í "ímyndarauglýsingar"
eins og ekkert hafi í skorist. Hér er ein on ðe hás:
---
Nýi listinn hefur verið birtur. Athyglisvert er að bera
hann saman við listann úr Eru ekki allir í stuði:
Bestu plötur Íslandssögunnar 2009:
1.Ágætis byrjun - Sigur Rós - vann líka
síðast
2.Lifun - Trúbrot - upp um 3
3.Á bleikum náttkjólum - Megas & Spilverk
þjóðanna - sama
4.Hinn íslenzki Þursaflokkur - Þursaflokkurinn -
upp um 8
5.Sumar á Sýrlandi - Stuðmenn - niður um 1
6.Debut - Björk - niður um 4
7.Gling Gló - Björk etc - upp um 6
8.Ísbjarnarblús - Bubbi Morthens - niður um 2
9.Með suð í eyrum við spilum endalaust - Sigur Rós
- ný
10.Sturla - Spilverk þjóðanna - upp um 1
11.Me And Armini - Emilíana Torrini - ný
12.Hana nú - Vilhjálmur Vilhjálmsson - upp um
4
13.Fisherman's Woman - Emilíana Torrini - ný
14.Life's Too Good - Sykurmolarnir - niður um 4
15.Með allt á hreinu - Stuðmenn - niður um 11
16.Einu sinni var-Vísur úr vísnabókinni
- upp um 14
17.Lög unga fólksins - Hrekkjusvín - upp um 14
18.Kona - Bubbi Morthens - niður um 9
19.Mugimama is this monkeymusic - Mugison - ný
20.Takk... - Sigur Rós - ný |
Bestu plötur síðustu aldar (birtur 2001):
1 Sigur Rós - Ágætis byrjun
2 Björk - Debut
3 Megas & Spilverk þjóðanna - Á bleikum
náttkjólum
4 Stuðmenn - Sumar á Sýrlandi
5 Trúbrot - Lifun
6 Bubbi Morthens - Ísbjarnarblús
7 Utangarðsmenn - Geislavirkir
8 Stuðmenn & Grýlurnar - Með allt á hreinu
9 Bubbi Morthens - Kona
10 Sykurmolarnir - Life’s too good
11 Spilverk þjóðanna - Sturla
12 Þursaflokkurinn - Hinn íslenski þursaflokkur
13 Gling Gló - Björk etc
14 Ham - Lengi lifi
15 Björk - Homogenic
16 Vilhjálmur Vilhjálmsson - Hana nú
17 Megas - Megas
18 Ýmsir flytjendur - Rokk í Reykjavík
19 Fræbbblarnir - Viltu nammi væna
20 Björk - Post |
---
Er maðurinn sem rústaði húsinu og gróf
bílinn það sem koma skal? Eða er hann einsdæmi,
eins og karlinn á Stokkseyri (eða hvar það var) sem
drap landnámshænurnar sínar (nema það hafi
verið gæsir) þegar fjölmiðlaplágan um fuglaflensuna
stóð sem hæst? M.ö.o., eru allir að verða
vitlausir eða bara örfáir?
---
Í gær sagði Jóhanna: „Íslenskir útrásarvíkingar
höfðu farið víða um í miklum græðgis
og óhófsham og skilið eftir sig rústir, ekki einungis
hér á landi heldur einnig í öðrum löndum.
Stjórnvöld og eftirlitsstofnanir sýndu við þessar
aðstæður of mikið andvaraleysi“ (kjú inn á
skot af glottandi forseta og forsetafrú í fýlu).
Jóhanna segir okkur heyja sjálfsstæðibaráttu
og kom með pepp, m.a. að þjóðin mætti „ekki
draga sig inn á heiðina“ eins og Bjartur í Sumarhúsum.
Jóhanna og hennar fólk verður að skilja að það
þýðir lítið að vera með pepp á
meðan málin eru óuppgerð. Það vantar klósjör.
Réttlætið hefur enn ekki sigrað. Það er
allt við það sama. Ekki einn einasti íslenskur
útrásarvíkingur sem fór víða um
í miklum græðgis og óhófsham hefur þurft
að svara til saka heldur er allt þetta lið nú í
kappi við að mylja undir sig gamla draslið á ný.
Jóhanna getur peppað fram í rauðan dauðann og
dregið glottandi forsetann með sér en það virkar
ekki djakksjitt fyrr en búið er að fjarlægja dýrbítana.
Heyrirðu það Jóhanna?
---
Plötubúðir eru deyjandi fyrirbæri, nema þær
séu þeim mun æðislegri. Virgin á Times Square
á að hafa verið svaka fræg og hefur nú verið
lokað. Ég man satt að segja ekkert eftir þessari búð.
Man hins vegar eftir Tower neðar á Manhattan en þar við
hliðina er hin gegnumgeðveika Other
Music, sem lifir eflaust góðu lífi ennþá.
Einhver hjá Rolling Stone var að röfla
um að það væri erfiðara fyrir ný bönd
að koma sér á framfæri í dag. Nú?
Ég hélt að það ætti að vera auðveldara
með mæspeis og svoleiðis. Kannski ný bönd ættu
bara að drullast til að gera einhverja almennilega tónlist
í staðinn fyrir að hjakka endalaust í lagabanka síðustu
fimm áratuga.
---
Horfði á Íslenska drauminn enn einu sinni í
gær. Klárlega ein af 5 bestu kvikmyndum Íslandssögunnar
(hinar fjórar gætu verið Sódóma Rvk, Varði
fer á vertíð, Rokk í Rvk og Börn náttúrunnar).
Tóti er erkitýpa góðærisgosans og myndin
öll allegoría fyrir það sem við erum að ganga
í gegnum. Nú erum við að vinna við málningavinnu
en um leið og einhver kemur með frábæra hugmynd í
heilsugeiranum erum við stokkin af stað á ný og ekki
langt að bíða þar til við verðum aftur komin
á einkanúmer. Reyndar nær skíturinn svo langt
upp á bak í þetta skiptið að það
gæti tekið mannsaldur að komast aftur á einkanúmer,
en vittu til, það kemur.
---
Kennedy
- John and Yoko (featuring Yelle)
Kennedy er voða stuð
og platan hans heitir Life is a party. Hér er gott stuðlag um
John og Yoko. Getur ekki klikkað!
17.06.09
Baggalútur hefur gefið út plötu með SS-læsingu
og lekkert Selfosslag þar að auki. Gúmmilaðið
má finna hér.
---
Fréttin af Sigur Rós í Popppunkti hefur farið
eins og eldur um sinu poppblaða, enda ekki á hverjum degi sem
eitthvað skemmtilegt gerist í þeim bransa. Nördabibblían
Pitchfork
sagði frá því og Qið
líka. Og þaðan bárust tíðindin til annarra
minni blaða. Spurning hvort Áhöfnin á Halastjörnunni
fái einhver tilboð í kjölfarið? Annars tel ég
það mjög líklegt að Ágætis byrjun
verði valin besta íslenska platan í heimi í dag.
---
Maður er sívakandi fyrir einhverri skemmtilegri músik.
Get ekki sagt að maður hafi hoppað hæð sína
í loft upp af spenningi fyrir einhverju á þessu ári.
Nýja Grizzly Bear platan rúllar hér undir og er alveg
ágæt. Green Day nýja er meira Whorokk frá þeim
og ókei með það, Sonic Youth eru traust í hjakkinu
en nýja Elvis Costello er leiðinleg. Nýja Jarvis Cocker
er alls ekkert spes, Phoenix platan er nokkuð góð, en Art
Brut gerir lítið fyrir mig. Nokkur lög af nýju Prodigy
eru fín á brettinu og Animal Collective er alveg fín.
Kannski þetta stöff sé einna best af því
sem maður hefur heyrt só far af erlendum plötum 09:
God
help the girl - God help the girl
Nýjasta pródjektið frá Belle & Sebastien
karlinum Stuart Murdoch (lestu um það hér
eða hér) er fullt
af sætu, gamaldags og gáfulegu stöffi eins og við
var að búast. Svo á maðar eftir að tékka
á ýmsu og margt á eftir að koma út. Þarf
að athuga nýju The Gossip og Iggy Pop, svo koma víst
Blur og Devo með nýjar plötur á árinu (ekki
að maður búist við miklu frá þeim jálkum).
Það hlýtur eitthvað almennilegt að detta inn.
Einhverjar hugmyndir?
---
Annars er það helst að frétta að ég
keypti veiðigræjur í gær og er albúinn að
byrja að veiða í soðið. Í stað þess
að kaupa eitthvað drasl í Rúmfatalagernum fór
ég í búð að Grandagarð 3 þar sem
græjurnar kostuðu alveg það sama og í Rúmfó,
en líta út fyrir að vera betri.
16.06.09
Dj Ásta fór hamförum á bjöllunni, eins
og sást í fréttunum í kvöld. Þetta
hefði verið ennþá fyndnara ef Dj Ásta hefði
verið með rafbyssu á priki til að þagga niður
í þessum sítuðandi framsóknarplebbum, sem
ættu að hafa vit á því að halda kjafti
í svona áratug á meðan allir gleyma Halldóri
og Finni.
---
Það er meiningin að tjalda á víð og
dreif. Til dæmis að labba í kringum Langasjó með
tjaldið á bakinu. Mig vantaði göngutjald og skoðaði
hæklass tjöld í virtum búðum. Þetta
var allt á 30.000 - 50.000 kall og ég bara tímdi því
ekki. Niðurstaðan var Rúmfatalagerinn og tjald á
2.990 kr. Ég mun eflaust bölva helvítis nískunni
þegar ég ligg einhvers staðar vatnssósa og skjálfandi
nær dauða en lífi upp á öræfum í
hríðarbyl. En jæja...
---
Erðanúmúsik
tilkynnir næstu útgáfu sína: Dr. Gunni Feita
svín. Um er að ræða nytjamúsik til notkunar
á líkamsræktarstöðum, helst til að hlusta
á á göngubretti eða skíðavél (eða
á hlaupum úti). Diskurinn verður um klukkutíma
langur enda tekur því varla að fara á brettið
fyrir minna. Hægt verður að hala plötunni niður
frítt en einnig verða í boði árituð og
tölusett eintök á CD disk (þúsari). Með
CD disknum mun fylgja handhægur leiðbeiningabæklingur þar
sem útlistaðar verða 100% öruggar aðferðir
til að losna við 10 kíló af spiki og/eða 30 kíló
af spiki. Feita svín er á útgáfuáætlun
í "haust".
---
Ég vek athygli á því að það
er japanskt í norræna húsinu. http://101tokyo.is/
Meðal atriða er gigg með Shugo
Tokumaru miðvikudaginn 1,. júlí með Amiinu. Shugo
er japanskt krútt og aldrei að vita nema maður drullist
í norræna til að krúttast á fullu.
15.06.09
Bölvað fokk að vera ekki með myndavél á
símanum sínum. Þá hefði ég getað
tekið myndir af settinu fyrir Fangavaktina og sett hér inn.
Mig langar til að gamli Nokia síminn minn springi í loft
upp svo ég geti keypt nýjan síma hjá Nova á
2000 kall á mánuði og stuð. Verst að þá
væri ég að styrkja Björgúlfsfeðga. Það
eru einum of erfitt að lifa hérna. Maður er alltaf að
styrkja Satan hvað sem maður gerir. Það ætti einhver
góður maður að teikna upp viðskiptamunstur þeirra
sem vilja ekki eiga viðskipti við útrásarfífl.
---
En allavega. Það var verið að taka við mig viðtal
fyrir heimildarþátt um Vaktar-seríuna. Tekið upp
í Krepputorgi, en þar sirka fyrir aftan Toys R Us var Fangavaktin
tekin upp. Þessi heimildarþáttur verður sýndur
í haust. Ég get skúbbað því að
Fangavaktin verða ekki nema sjö þættir. Serían
byrjar í sept. Það er búið að taka þættina
upp og nú er verið að klippa þá. Tökur
á bíómyndinni Bjarnfreðarson eru að hefjast.
Það á að frumsýna myndina annan í jólum.
Þetta verður fyrsta framtíðarmynd Íslandssögunnar
því hún gerist sirka 2013 þegar Georg er laus
úr vistinni. Hann sleppur með 4 ár fyrir morð af
gáleysi á Ólafíu Hrönn. Ég hef
enga ástæðu til annars en að áætla að
þetta verði allt saman algjör djöfulsins snilld.
---
Staðalblogg dagsins: Væli væli. Peningar. Ú
ú. Icesave. Fokk. Drepa alla. Æ æ. Ísland. Siðrof.
Hengja þá. Ó vei. Afhverju ekki líka ég?
Grísinn! Leðurhommi rústar kommahúsi. Ó
ó. Manjana.
14.06.09
Ég fór í síðasta skipti á ævinni
í Hyrnuna í gær. Það er alltaf sama sagan,
fjórtán ferðalangar að panta sex pulsur og ellefu
ísa hver, og ein þunn unglingsstelpa að afgreiða.
Ég gerði tvær tilraunir til að kaupa mér pulsu
en fór tvisvar svangur frá borði þegar mér
ofbauð biðin. Hyrnan er rusl. Hyrnan er komin í bann. Aldrei
aftur! Eitthvað annað var upp á teningnum í hinni
metnaðarfullu vegasjoppu Vegamót á Snæfellsnesi.
Þar voru þrjár harðduglegar búkonur á
vakt sem sinntu gestum af alúð og áhuga. Þar fékk
ég pulsuna mína og endurnýjaða trú á
mannkynið.
---
Gönguhópurinn Blómey ætlaði á Skessuhorn
í Borgarfirði en hraktist undan óárennilegri skessunni
sem var skýjum hulin og með óárennilega snjóskafla
í hettunni. Ákveðið var að taka Drápuhlíðarfjall
í staðinn, flott fjall í nágrenni Stykkishólms.
Vegurinn er kominn alveg upp að Baulárvallarvatni. Ég
hef aldrei farið nýja veginn áður. Þetta er
miklu flottari leið en Kerlingaskarð. Á fjallinu þurfti
að klöngrast upp drápshlíðar fullar af steinaflögum
um stund, upp í flott útsýni þaðan sem sést
yfir Breiðafjörð og fjallahlaðborð allt í kring,
t.d. fjöllin Skyrtunnu og Ljósufjöll. Ég sá
litla þyrlu fljúga í suðurátt. Óli
á flótta með þýfi? Ég tók
löngu leiðina niður og strunsaði áfram einn í
mýrlendi um hríð. Setti í fluggír og öslaði
blautar þúfur og flæmdi mýrlendisfugla ítekað
úr hreiðrum sínum (ímynda ég mér).
Náði loks veginum þar sem vörubílstjóri
bauðst til að skutla mér eitthvað. Helvíti gott.
Malarvegur, sumar og sól. Ég leiddi ekki hugann einu sinni
að kúluláni Sigurðar eða Icesave deilunni. Í
Hólmi Stykkis var margt um manninn, hoppukastali og læti.
Gamla byggðin er einhver flottasti staður á landinu og Narfeyrarstofa
gerði gott eðalkaffi á kreppuverðinu 300 kr. Í
gamla bókasafninu er Roni Horn með leiðinlega vatnasýningu
styrkta af FL-group og Straumi Burðarás. Jæja, húsið
er flott. Þarna var boladrusla til sölu sem mig langaði
til að kaupa enda í svitastorknum bol en ha, 5000 kall? Nei
nei.
---
Mig langaði ekkert rosalega mikið til að snúa aftur
í Kreppuvík. Það er eins og kreppan sé ekki
til út á landi. Eða það var hvort sem er aldrei
neitt sérstaklega mikið góðæri þar.
13.06.09
Mikko
Alatalo - Comediénne
Keypti nokkrar plötur í nytjamarkaði ABC sem er beint
á móti Húsasmiðjunni og við hliðina á
elstu Bónus. Það var svo sem ekki upp á margar
fiskitorfur úrvalið, en eitthvað gat ég gripið
smálegt með mér, safnplötu frá Stiff útgáfunni,
nokkrar næntís tólf tommur sem ég get notað
í Popppunkti og svo sólóplötuna Maalaispoika
Oon frá 1974 með finnska popparanum og stjórnmálamanninum
Mikko Alatalo. Seventís finnskt er yfirleitt nokkuð skemmtilegt,
t.d. plötur M.A.Numminen sem eru gefnar út af finnska Love
Records merkinu líkt og Mikko. Lógóið þeirra
er nokkuð sniðugt:
Það er af plötunni að segja að hún er
nokkuð fjölbreytt, kántrí og rokk og popp og svo
textar á finnsku, sem er náttúrlega magnað tungumál.
Í þessu lagi finnst mér t.d. eins og hann sé
alltaf að syngja "í mannhafinu". Í mannhafinu er einmitt
eitthvað sem seventís popparar myndu syngja til að vera
djúpir.
---
Það kemur smátt og smátt í ljós
hversu frábær táknmynd Silvía Nótt var
fyrir góðærið. Hún var bara nokkrum árum
á undan sinni samtíð. Véfrétt. Allir elskuðu
hana. Allir elskuðu ríku kallana, útrásina og
góðærið. Svo kom Eurovision/Hrunið og þá
fóru allir að hata Silvíu/ríku kallana. Munurinn
er bara að Silvía var leikin af frábærri leikkonu
en ríku kallarnir voru ekki leiknir heldur alvöru fífl.
---
Jæja, ég má ekki vera af þessu. Fjallgönguvertíðin
er byrjuð og gönguhópurinn Blómey fer af stað
með trukki á sjálft Skessuhorn. |