31.05.08
Fann voða næs
eyja síðu, þar sem eitt af áhugamálum
mínum, eyjur á Kyrrahafi, fær umfjöllun. Þar
segir m.a. frá Xavier Rosset,
sem ætlar að dvelja
einn á eyðieyju í 300 daga og gera um það
heimildarmynd. Hann fær bara að taka með sér svissneskan
vasahníf, kameru og batterí fyrir kameruna. Alveg væri
ég til í að vera einn á eyðieyju, en kannski
bara í svona eina viku. Ætli væri ekki öruggara
að ég væri með fullan ísskáp með
mér.
---
Uppnám
hjá starfsliði Airwaves. Maður bara vonar að þessi
glæsilega hátíð sem var komin á blússandi
siglingu haldi dampi.
---
Jarðskjálfti smarskjálfti. Þetta er nú
bara eitthvað pínöts, hugsaði ég og hristist
örlítið við skrifborðið í Skaftahlíð.
En nei nei, ekki heil hilla um allt Suðurland. Og fréttafólk
komst í spikfeitt og gat glennt sig við pulsuvagninn á
Selfossi út í eitt.
30.05.08

Að hugsa sér: Elísabet Lára bara orðin
eins árs! Hún þykir sláandi lík mér.
Nokkuð erfiðlega gengur að finna viðunandi viðurnefni
á hana. Eins og er eru bæði Skufsan, Elgurinn, Essa klessa,
Elsí og Litla Lufsan í jafnri notkun, en ég á
von á að fast nafn finnist. Kannski bara Elísabet Lára,
því lendingin hefur orðið að Dagbjartur Óli
er kallaður Dagbjartur Óli við öll tækifæri.
Hér er sýnishorn úr glæsilegri feðgina-seríu
eftir Bigga Baldurs.
---
Mér tókst að hræra saman mannáti og
Sjálfsstæðiflokknum aftan á víðlesnasta
blað landsins án þess að nokkur hæna tæki
gaggandi móðguð upp hanskann. Það er alveg búið
að maður geti hneykslað einn né neinn lengur enda er
það svo sem bjánalegur tilgangur. Bakþankinn er
hér.
---
Fór loksins á ódýra mexíkóstaðinn
Santa María, Laugarvegi 22, í gær. Gerði þau
mistök að fá mér ekki mexíkóskt heldur
samloku sem var svo sem alveg ágæt. Helsti kostur staðarins
er verðið - ekkert kostar yfir 1000 kall. Reyndar allt á
990. Lufsan segir það hafa kostað 890 síðast þegar
hún fór. En verðin eru sem sé gríðarlega
jákvæð og til eftirbreytni. Vildi að fleiri veitingarhús
tækju þennan pól í hæðina. Þjónustan
var fín en réttirnir komu kannski full seint. Kannski mikið
að gera í eldhúsinu. Innréttingar flottar og stemning
góð. Fær hiklaust XXX hjá mér (í
veitingashúsarýni,
þar eru einnig komnir belgradskir staðir.)
---
Tónleikar tónleikar! EurovisionFrakkinn sjúskaði
Sébastien Tellier leikur með hljómsveit á Íslandi
28. ágúst! og ensku dimmraddajakkafatapoppararnir í
Tindersticks á Nasa 11. sept! (á þessu
bloggi er haugur af tónleikaupptökum með Tindersticks).
---
Mér hefur verið bent á að rokksöguþættirnir
á Rúv eru endursýndir á laugardögum. Sá
fyrsti kl. 14.15 á laugardaginn næsta.
---
Dr. Gunni - Alltaf mega halló. Það er gott nafn á
plötu.
29.05.08
Nú þarf maður að skutlast eftir bók bókanna,
Símaskránni, því Hugleikur Dagson teiknar myndasögu
sem birtist á einum ramma á hverri opnu. Þetta er augljóst.
---
Ég birti tvö dæmi um slappleika minn: Gat ekki vakað
eftir rokkþættinum í gær. Veit einhver hvar maður
getur séð þetta á netinu? Nennti ekki á
Dylan. Leiðist hann. Hef gert allmargar tilraunir til að komast
"inn í hann" en það bara gerist ekki neitt. Ég
held ég sé hreinlega ekki nógu gáfaður
til að fíla Dylan. Mætti ég þá frekar
biðja um John Fogerty. Mesti bömmerinn við að vera í
Serbíu var að missa af þeim meistara. Ég sendi
Ása bróður sem hefur aldrei upplifað annað eins
súpergigg. Á sama tíma hékk ég á
írska pöbbnum í Belgrad og glápti á þennan
Chelsea/Man utd leik. Þeir á pöbbnum blöstuðu
leiðinlegri tónlist yfir leikinn (sem var á silent) og
rifu bara kjaft þegar maður bað þá um að
hækka í leiknum. Sögðu að þetta væri
enginn helvítis sportklúbbur heldur pöbb og það
væru ekkert allir að glápa á þennan leik.
Drykkirnir voru allavega góðir.
---
SÁÁ-blaðið sem fylgdi Fbl í gær
er stútfullt af stöffi. Mikael Torfason talar við pabba
sinn án þess að fá almennilegt svar við spurningunni
Afhverju drakkstu svona mikið? og Gunnar Smári talar um þá
augljósu staðreynd að þjóðfélagið
er allt á leveli fyllibyttunnar. Kannski er kominn tími til
að blása lífi í starfssemi bindindisfélagsins
Nóló? Æi nei. Ég nenni ekki að ala Íslendinga
upp. Læsi mig bara inni um helgar og hætti mér ekki
oní bæ nema í björtu.
28.05.08
Sigur
Rós - Gobbledigook
Það er allt að fyllast af góðum íslenskum
plötum. Sigur Rós mæta með Með stuð í
eyrum, við spilum endalaust og miðað við lagið
hér (fyrsta sýnishorn) er ferskari Sigur Rós á
ferð en áður. Meira sveitaball, meira allsberir krakkar
í stuði út í skógi um mitt sumar, minni
þyngsli, minna jarðarför ömmu þinnar í
þoku. ( ) og Takk voru dauflegur endurómur af meistaraverkinu
Ágætis byrjun (beisiklí, viðurkenndu það
bara) en nú er eins og nýr póll hafi verið tekinn
í hæðina - stuðpóll. Hér
má sjá pjöllurassavideó við lagið. Ég
bíð sannast sagna spenntur eftir plötunni og vona að
þetta sé ekki eina stuðlagið á henni.
---
Benni
Hemm Hemm - Veiðiljóð
Þann 13. júní næstkomandi (föstudagur)
kemur út hjá kimi records þriðja breiðskífa
Benna Hemm Hemm, Murta St. Calunga. Veiðiljóði er óður
til bókarinnar Skugga-Baldur eftir Sjón. Lagið er hresst
og skemmtilegt með vísanir í rokksöguna og þar
á meðal Rolling Stones, ELO og AC/DC. Vilja þeir meina
í fréttatilkynningu. Stórgott lag hjá Hemma
Benn Benn og ljóst að nýja platan er ekkert slor. Ég
bíð sannast sagna spenntur.
Múgsefjun
- Skiptar skoðanir
Fyrsta plata Múgsefjunar, Skiptar skoðanir, kemur út
í dag. Múgsefjun er etv mitt á milli Spilverksins
og Sprengjuhallarinnar með dassi af Þursunum, svo maður gerist
latur í skilgreiningunum. Kalin slóð hefur verið
að gera það gott og Lauslát er næsti megahittari
í spilun. Hér er aftur á móti hið gríðargóða
titillag (featuring Fjallabræður). Rammíslenskt og gott
og þú ættir sannast sagna að drífa þig
beint út í plötubúð.
---
Ég er ekki frá því að sumarið sé
komið.
27.05.08
Geir Haarde: Æi góði besti hættu þessu
væli.
Fréttastofa Stöðvar 2: Áfram – Meira meira!
---
D'er náttúrlega djók. Ég meina, Dima Bilan.
Einhver mafíustyrktur Rússaskratti sem engdist um sviðið
með kellingakall á skautum og fiðlularf sér við
hlið. Og svo allir vælandi væmnir í endann og Dima
kominn á bringuhárin. Og þetta rusl vann! Miðað
við þetta er Evrópu með ömurlegan tónlistarsmekk.
Aðeins skárra var píkupoppið frá Úkraínu,
Grikkland og Armeníu, sem raðaði sér í næstu
sæti. En það var ágætis stöff þarna,
eins og ég hef áður sagt. Frakkinn Sebastien Tellier
var með frábært atriði. Og Ísland sannaði
að við erum ekki algjörir fávitar og gáfum meistaranum
átta stig. Þá varð ég stoltur í höllinni.
Sjóið hans var ýkt töff. Ég sá þetta
í rennslinu og spurði sjálfan mig hvort tækniliðið
væri með allt á hælunum (skotin af löppunum
á honum) eða hvort þetta ætti að vera svona.
Þetta átti að vera svona. Fáum meistarann með
epískt lag um íþróttaflíkur af hinni
ágætu plötu hans, Sexuality.
Sébastien
Tellier - Sexual Sportswear
---
Maður var alltaf eitthvað að rekast á Sébastien
á förnum vegi. Hann var alveg eins í alvöru og
á sviði en það var hins vegar ekki spænski Eiríki
Fjalarinn. Einu sinni sá ég hann án gerfi og kom þá
í ljós ægilega nördalegur smá-spanjóli.
Ég sá líka bosnísku systkinin öppklós
og tók eftir því að stelpan var með dauða
smáfugla í hárinu. Ég var hrifinn af laginu
þeirra og keypti m.a.s. plötu Laka, Zec, sem kom út í
fyrra. Hún er alltraust en kannski ekkert lag alveg eins gott og
Eurolagið.
Laka
- Medzed
---
Þegar ég álpaðist loksins á plötubúð
spurði ég strákinn út í gamalt júgópönk.
Ég fékk að heyra nokkra diska en það var þrekraun
því annar hátalarinn virkaði bara á headfóninum.
Af sýnishornunum fannst mér Pekinška patka (Peking önd)
áberandi best og keypti safndisk. Bandið starfaði á
árunum 1978 - 1981. Byrjaði í pjúra pönki
en endaði í Joy Division-legri kæfu. Hér koma tóndæmi
af þessari þróun.
Pekinška
patka - Bela Šljiva (fyrsti síngull, Jugoton 1979)
Pekinška
patka - Monotonija (af annarri LP, Jugoton 1981)
---
GVA tók mynd af þessum á markaðinum rétt
hjá Hoteli Moskvu þar sem við vorum. Ég verslaði
reyndar engin jarðarber en fullt af kirsuberjum, tók meira að
segja 2 kíló með mér heim. Ég hef aldrei
étið jafn mikið af kirsuberjum enda fæst þetta
hér bara í mínískömmtum á hryllilegum
okurprís. Á markaðinum fékk maður kílóið
á 100 dinera, 140 kall. Ég sat sveittur á nærbuxunum
inn á Hóteli Moskvu og hreinlega mokaði þessu upp
í mig. Bæ bæ kirsuber.
Þetta er fyrir framan Hótel Moskva, Hótel Balkan
þarna til vinstri. Fyrir framan þennan gosbrunn var oft múgur
og margmenni, en á þessari mynd eru fáir mættir.
Við komumst að því að liðið var mætt
til að skiptast á fótboltakarlamyndum, einhver syrpa
sem er gefin út fyrir EM í sumar. Og þetta var allt
þrælfullorðið fólk sem stóð í
þessu. Ég sæi þetta ekki alveg gerast fyrir framan
Kaffi París.
26.05.08
Er kominn heim og beint í einangrun og afeitrun. Það
á að aflúsa mig af lélegri tónlist. Hausinn
á mér er fullur af Eurovisionlögunum 2008 sem ganga
í lúppu, en ég er sprautaður reglulega niður
með gömlu pönki. Mun örugglega ná mér
að fullu innan skamms.
---
Í Belgrad litu allir karlarnir út eins og Dalton-bræður
og á svipinn eins og þeir vildu buffa mann. Konurnar voru
allar eins og 2 metra Unnur Birnur, bara sætari. Ókei þetta
er aðeins ýkt. Ég hafði aðallega samskipti við
leigubílstjóra. Það voru sjaldan belti í
bílunum og ekkert var sjálfssagðara en að reykja.
Einn leigubílstjórinn bauð mér m.a.s. rettu (sem
ég þáði auðvitað). Einu sinni þurftum
við að fara á IN-hótelið. Okkur var ekið
á N-hótel. Þegar misskilningurinn hafði fattast
keyrði karlgreyið okkur á réttan stað en neitaða
að taka við krónu. Við vorum búnir að vera
í bílnum í 40 mínútur og keyra um alla
borg. Serbar eru semsé úrvalsfólk og ekkert að
marka þótt þeir séu á svipinn við
fyrstu sýn eins og þeir vilji buffa mann.
---
Borgin er kaflaskipt. Sumsstaðar glæsileg og velhaldin hús
eða hreinlega munaðar-standard, eins og í sendiráðshverfinu.
Hinsvegar er líka sótsvartur sovétblokkafílingur,
sem lætur "Gyðufellið líta út eins og Arnarnes"
eins og Pétur Jesús komst svo skemmtilega að orði.
Algjör botn á mannlegri reisn er svo í hverfum sígauna
(eða Róma fólks eins og mest pc er að kalla það).
Fólkið hefst við undir brúnum yfir Sövu í
ógeðslegum kofum, án rennandi vatns, hundshræin
liggjandi út um allt. Þetta er beisklí bara öskuhaugur.
En samt eru allir voða hressir með þetta af heimafólki,
krakkarnir skælbrosandi að leika sér og bara stuð
á liðinu. Svona viljum við vera. Þetta var umtalað
í íslenska hópnum. Mest öðruvísi einhvern
veginn, að það væri fólk í borginni sem
væri algjörlega á skjön við aðra, nánast
eins og önnur dýrategund. Baldvin fréttamaður Rúv
vildi næla sér í verðlaunafrétt og hélt
einn með kameru inn í hverfið en kom svo hlaupandi með
steinaregnið á eftir sér til baka, eðlilega nokkuð
brugðið. Held hann hafi samt tekist að búa til innslag
um þetta.
---
Ekki eins og þessi hverfi væru langt í burtu, kannski
150 metrar frá þeim og örygginu og velsældinni
á Continetnal-hótelinu. Við Gunnar ljósmyndari
fórum í mollið. Frá Guccibúllunum voru
100 metrar í ógeðslegu hverfin. Maður fattar þetta
ekki. Eftirminnilegasta sýn ferðarinnar var sýnishorn
úr hverfinu sem gekk framhjá okkur þar sem við
náðum taxa. Karl sem dró trévagn með tréhjólum
og í sátu amma, konan og krakkarnir. Meðfram skokkuðu
fjórir svangir sjeffarhundar og vörðu leiðina. Einhver
sá konu með barn sem var verið að reyna að reka
frá einhverju kaffihúsi. Þegar hún var ekki
nógu snögg í burtu tók veitingamaðurinn upp
kveikjara og kveikti í hárinu á henni.
---
Mér varð kunnugt um þessi hverfi sama dag og ég
sá stórhýsin sem Nato sprengdi og enn standa óuppbyggð
í klessu. Það var býsna grár dagur en ég
fékk samt engar martraðir. Svo var ég farinn að leiða
þetta hjá mér eins og aðrir enda er það
eina leiðin til að halda andlegri heilsu. Afneitun og ignorans.
---
Á bakvið Hotel Yugoslavia eru haugarnir af prömmum
á Dóná með fullt af klúbbum. Sumir eru
hipp og kúl með kokteilbar, aðrir eru lásí
fyllirríspleis og enn aðrir eru búmmbúmmdiskó.
Við gengum þarna á milli eitt kvöldið, helvíti
góður staður til að fara á fyllirí. Eftirtektarvert
að á flestum stöðum var læfband sem spólaði
sig þindarlaust í gegnum lög á miklum hraða.
Trommari, bassaleikari og tveir hljómborðsleikarar yfirleitt
í hverju bandi, eða einn á harmóníku í
stað hljómborðsins. Ég man eftir Monkees-laginu Last
train to Clarksville á ofsahraða og á serbnesku á
einum staðnum.
---
Okurboxið var troðfullt við heimkomu. Hef reynt að
velja það besta úr svo einhver nenni nú að
plægja sig í gegnum þetta. Það virðist
önnur hver færsla vera um ís. Nei nei, en allavega 52
ný okurdæmi á sínum stað. Þrátt
fyrir allt segi ég auðvitað eins og alltaf þegar ég
kem heim frá útlöndum: Heima er best. Það
er bara algjörlega nauðsynlegt að minna sig á það
reglulega.
18.05.08
Er ég að gleyma einhverju? Stuttbuxur, kvartbuxur, stuttermaskyrtur,
Vísa, farseðlarnir, vegabréfið. Ekki má gleyma
að fylla á spilarann. Dáldið eins og pakka fyrir
eyðieyjuna.
- Bang Gang - Ghosts from the past
- Beatles - White album
- Black Keys - Attack And Release
- Dísa - Dísa
- Eurovision 2008
- Fall - The Wonderful and Frightening World of the Fall
- Girl Talk - Night Ripper
- Last Shadow Puppets-The Age of understatement
- Misunderstood - Before the dream faded
- Morðingjarnir - Áfram Ísland!
- Pendulum - In Silico
- Portishead - Third
- Ramones - Rocket to Russia
- Santogold - Santogold
- Suicide Commandos - Make a Record
- System Of A Down - Bland
- The Beach Boys - Good vibrations
- The Who - My generation best of
- Tom Zé - Estudando o samba
- VA - Ed Banger Rec Vol.1
- VA - Ed Banger Rec Vol.3
- VA - Kitsune Maison Compilation 5
Svo hlustar maður náttúrlega ekki á neitt af
þessu.
---
Spilari er annars ágætt orð yfir svona litla mp3 spilara.
"Tónhlaða" og "spilastokkur" er eitthvað svo tilgerðarlegt.
Ég er með 2 gb Sony stubb. Kostaði um 5 þúsund
kall í NY þegar gengið var 60 kall. Gengið já.
1000 denarar eru 1420 kall.
17.05.08
Serbía á morgun, Gei præd á sterum. Allt
klárt. Sé fyrir mér miklar reykingar, kjötát
og göngur. Stefni á að kaupa júgóslavneskan
rafmagnsgítar og lesa Renegade, hina mögnuðu ævisögu
Mark E Smith, sem Óskar Pétur var svo elskulegur að lána
mér. Mark E Smith og Eurovision, eins og flís við rass,
eða kannski göngurstafur við rass frekar.
---
Í gær datt mér í hug gott nafn á
lagi: Satan, konungur apanna. Skrifaði það í
kompubókina. Er með svona litla kompubók, svarta. Kostaði
159. Svo getur maður fengið rauða Kínakompu, alveg jafn
stóra og þykka á 900 kall. Hún er gerðarlegri,
en sú svarta ódýra gerir sama gagn.
---
Tvær mjög fínar íslenskar poppplötur
eru að koma út. Fáum spriklandi sýni á
glerið:
Dísa
- Back home
Ég var búinn að heyra þrjú lög
í útvarpinu (Rás 2) og hugsa alltaf: Vá, hvaða
gæðapopp er nú þetta? Nýtt lag með Cardigans
kannski? Og það var alltaf sama svarið: Dísa. Sem
sé, Bryndís Jakobsdóttir. Og platan er svona ljómandi
fín, mjög "erlendis" sem þarf nú ekki alltaf að
vera kostur, en er það hér. Gríðarlega vandað
artvork líka svo þetta er vel feitur pakki sem ég hvet
fólk eindregið til að smjatta á. Og Dísa bara
20 ára. Öss, hvar endar þetta? Á Grammy?
---
Bang
Gang - Black parade
Barðinn er að koma með Ghosts from the past, gríðargóða
plötu, kannski ekki mjög hressa, en þess dýpri,
angurværari og safaríkari. Barði syngur gullfallega og
það er eitthvað franskt við poppið, smá sletta
af lögin-við-vinnunalegri seventísstrengjastrásætu
Gilberts O'Sullivans, og almennt hrikalega vel heppnað eitthvað
og næs. Til hamingju!
---
Grjóthrun
í Hólshreppi - Grjóthrun
Og svo er það landsbyggðarokkið: Lýður,
Grímur, Jón, Halli og Falur eru Grjóthrun í
Hólshreppi og Grjóthrun er platan. Kemur eftir viku segja
þeir. Og Grjóthrun er lagið!
---
Heiða gaf mér kínverskt Mirinda þegar hún
kom heim frá Kína. Já það heitir MirINDA,
ekki MirANDA eins og manni minnti og þetta var alltaf kallað
hérna. Og auðvitað gert ódauðlegt á plötu
Tappa Tíkarrass. Dómur um Mírindað er auðvitað
fallinn.
Svo byrjaði fjallgöngusumarið á léttu tölti
upp á Búrfell í Grímsnesi. Dómur er
vitanlega fallinn. Sala
á skyrtum tók loksins við sér. Bara fáar
eftir núna.
16.05.08
Rúv býður upp á fræðandi gúddtæms
við kassann (eins og þess lögboðna hlutverk er):
Saga rokksins (Seven
Ages of Rock) er bresk heimildaþáttaröð um rokktónlist
frá því um 1960 og til nútímans. Í
þáttunum er fjallað um tónlistina sem hefur verið
undirspil dægurmenningarinnar og dugað til skilgreiningar á
hverri kynslóð frá því á sjöunda
áratugnum. Saga rokksins er rakin frá úthverfunum
til stóru íþróttaleikvanganna og frá
rispuðu 45 snúninga plötunum til MP3-niðurhals nútímans.
Margir af fremstu flytjendum, höfundum og upptökustjórum
rokksins segja frá því hvernig rokkið varð
til, óx og styrktist og léði hverri kynslóð
nýja rödd. Meðal annars er fjallað um bresku rafblúsbylgjuna
og sýkedelíuna á sjöunda áratugnum, pönksprenginguna
á þeim áttunda og grönsið og indírokkið
á þeim níunda. Því hefur oft verið
haldið fram að rokkið sé dautt en það hefur
staðið af sér allar hrakspár og er sprelllifandi
og fjölbreytt listform í stöðugri endurnýjun.
Fyrsti þáttur - Rokkið verður til
Í þessum þætti er fjallað um bresku rafblúsbylgjuna
upp úr 1960 og meðal þeirra sem fram koma eru The Rolling
Stones, The Who, Bob Dylan, The Kinks, The Yardbirds og Cream.
Annar þáttur - Listrokk
Í þessum þætti er sagt frá innreið
listrænnar tjáningar í rokkið og við sögu
koma Velvet Underground, Genesis, Pink Floyd, David Bowie og Roxy Music.
Þriðji þáttur - Pönk
Í þessum þætti er fjallað um pönkið
og við sögu koma The Sex Pistols, The Clash, Ramones, Television,
Patti Smith, The Damned og Buzzcocks.
Fjórði þáttur - Þungarokk
Í þessum þætti er fjallað um þungarokkið
sem átti upptök sín í iðnaðarborgum Englands.
Við sögu koma Black Sabbath, Deep Purple, Judas Priest, Iron Maiden
og Metallica.
Fimmti þáttur - Leikvangarokk
Í þessum þætti er fjallað um leikvangarokkið
á 8. og 9. áratugnum og áhrif þess á
menningu og stjórnmál um allan heim. Við sögu koma
Led Zeppelin, Kiss, The Police, U2, Queen, Bruce Springsteen og Dire Straits.
Sjötti þáttur - Bandarískt eðalrokk
Í þessum þætti er fjallað um bandaríska
neðanjarðarpönkið á níunda áratugnum
og grönssprenginguna á þeim tíunda. Við sögu
koma R.E.M., Nirvana, The Pixies, Kurt Cobain, Black Flag, Pearl Jam, Sonic
Youth og The Replacements.
Sjöundi þáttur - Breskt indírokk
Í lokaþættinum er fjallað um breska indírokkið
síðan á níunda áratugnum. Við sögu
koma The Smiths, Oasis, Blur, Kaiser Chiefs og Arctic Monkeys.
Fyrsti skammtur fer í loftið Miðvikudaginn 28. maí.
15.05.08
Eins og fram hefur komið fékk Okursíðan
Íslensku neytendaverðlaunin í gær. Í kjölfarið
var mikið og leiðinlegt offramboð á mér í
öllum fjölmiðlum og verður eitthvað út vikuna.
Sorrí! Ellý gerði tvímælalaust flippaðasta
viðtalið, en hin eru svona meira alvarleg. Okursíðan
fékk auðvitað geðveika aðsókn og nýtt
met var slegið þegar ég setti 33 ný okurdæmi
inn í einum rikk. Ráðstefnan á Grand rokk
hótel var ekkert svo leiðinleg. Þetta er orðið
rosa flott þarna hjá þeim á hótelinu.
Minnti mig á alvöru hótel erlendis móttakan þarna.
Míní Las Vegas eitthvað. Karlarnir frá Viðskiptaráðuneytinu
voru hinir hressustu og Herra Björgvin hinn viðkunnalegasti. Nú
er að sjá hvort hann geri eitthvað við þessar
ágætu tillögur sem settar voru fram í hnausþykkri
skýrslu sem lá þarna frammi. Hann er allavega að
reyna að breyta einhverju sem er meira en síðasti viðskiptaráðherra,
sem ég man nú ekki einu sinni hver var. Sjálfur var
ég á hjóli og nennti ekki að taka skýrsluna
og ekki heldur níðþungt og flott verðlaunaegg eftir
Koggu. Sem betur fer var þarna Kjartan blaðamaður á
Fbl og gat tekið eggið með sér upp á blað.
Það er oní skúffu núna. Ég spurði
Björgvin hvort eggið væri ekki fullt af peningum og þá
fyrst mundi hann að það var víst meiningin að
láta mig hafa 300.000 kall líka. Ellý Ármanns
smellti þessari fínu mynd af okkur unga fallega fólkinu
á uppleið:
Nú nú, ætlar Samfylkingin bara algjörlega
að gleypa mig?
---
Ég hélt agalega fína hvatningarræðu
sem lesa má hér.
14.05.08
(Af heimasíðu Sverris
Stormskers): Minni vitaskuld á þátt okkar Halldórs
E, "Miðjuna," sem er í dag, miðvikudaginn 14. maí,
á Útvarpi Sögu 99.4 milli 16:00 og 18:00. Gestur að
þessu sinni er Helgi Hóseason, fyrsti og þrautseigasti
mannréttindabaráttumaður Íslands.
---
Sjálfur er ég á leiðinni að kynna sjónarmið
hins virka neytanda á Grand hótel.
11.05.08
Hvítasunnudagurinn er hinn nýji Föstudagurinn langi.
Ég fór þó á bílasýninguna
Burnout 2008 sem var geðveik og get ekki hreyft mig eftir massífa
máltíð á Ruby Tuesday. Ruby og TGIFridays eru
samskonar staðir, með svipaða matseðla og svipuð gæði.
Ég get nú tilkynnt að RUBY
hefur unnið stríð staðanna tveggja. Á nýja
matseðlinum á Ruby er ekki búið að hækka
verðin á meðan FRIDAYS er búið að hækka
verulega síðan ég kom þangað síðast.
Til dæmis:
Ruby: Bacon Cheeseburger Sígildur hamborgari með
osti, og beikoni. 1.490 kr.
Fridays: Með stökkum beikonsneiðum og hjúpaður
í bræddum amerískum osti. Kr. 1.790-
Það munar um minna. Ég mæli því
með Rubys og ef þú vilt fara til himna skaltu fá
þér Chocolate Tallcake. Ómótstæðileg
súkkulaðikaka og krem úr Oreo-smákökum. Kakan
er borin fram með vanilluískúlu, heitum súkkulaði-
og karamellu-sósum og þeyttum rjóma. 1.390 kr. Þetta
er svo mikið að átvaglið ég, Lufsan og Dagbjartur
gátum ekki einu sinni klárað skammtinn saman. Hreinasta
brjálæði.
---
Næsta gigg er á Grand hótel:
Kl. 10:45 á miðvikudaginn. Ég að kynna "sjónarmið
hins virka neytanda". Er að læra á powerpoint.
---
Það er eins og þjóðfélaginu hafi
verið lokað yfir helgina. Þökk sé gvuði í
upphæðum að bílasýningin Burnout 2008 er þó
allavega opin.
10.05.08
Fyrst þurfti maður að þola sakbitið andlitið
á mömmu Madeleinu í heilt ár. Nú er hún
komin í frí og í staðinn erða reitta austuríska
kjallarauglan. Ætli hún verði ekki glápandi framan
í mann dragandi á eftir sér allt sitt viðurstyggilega
mál í sirka hálft ár í viðbót.
Hvað ætli manni verði svo boðið upp á næst?
---
Hér væri upplagt að segja eitthvað hnyttið
um Guðmund í Byrginu. Dómurinn er hér
ef fólk vill geggjað stuð. Sjálfur nenni ég
ekki að plægja mig í gegnum þetta, einfaldara væri
að horfa bara á Salóið hans Pasolini aftur. Ef maður
nennti því það er að segja.
---
Ég fer helst ekki til nýrra landa nema vera aðeins
undirbúinn. Næst erða Serbía. Ég hef aldrei
getað munað hvernig Júgóslavía skiptist upp
eftir járntjald en nú er það að koma. Serbía
er inn í miðju landi. Sniðugt að spila landafræðileiki
til að reyna að stimpla kortið inn. Aðal útvarpsstöðin
í Belgrad er B92. Þetta
er músikstöðin,
B92
músik. Serbneski tónlistarmaðurinn Rambo
Amadeus var í þættinum hjá Michael Palin.
Rambo gaf tónlistarstefnu nafnið "Turbofolk",
en hefur þvegið hendur sínar af henni síðan.
Turbofolk tengist hægri sinnuðum öfgamönnum, t.d. þeim
í Obraz. Þeim
finnst gaman af þessu. Kellingar með stór brjóst
og amfetamínbít. Merzedes Club er einskonar turbofolk. Svo
finn ég eflaust eitthvað gamalt serbapönk þarna úti.
Wiki
reddar manni alltaf.
---
Maður hefði svo sem getað sparað sér 2000 kall
og ekki keypt Lonely Planet bókina því þetta
er allt saman á Wikitravel.
---
Náði að snöggfletta Mogganum í dag í
10/11 sem ég neyddist til að fara í eftir fjörmjólk.
Í Lesbókinni er hörð keppni ljóðskálda
um það hver getur verið mest tilgerðarlegur að svara
spurningunni Hvers vegna yrki ég ljóð. "Spurði hvers
vegna fuglarnir syngja í trjánum" er auðvitað sigurvegari
keppninnar, en enn skemmtilegra hefði verið ef einhver hefði
svarað "Spurðu hvers vegna rassgatið á mér syngur
í nærbuxunum." Í Lesbók er líka sagt
frá mömmu Húllembekks sem er geðveik eins og sonurinn.
Hef lesið einni bók of mikið eftir þann drulluhaug
og er því ekki á leiðinni að setja mig frekar
inn í mál hans og mömmu hans. Kannski ætti Mogginn
að fara að plasta sig svo maður geti ekki lesið hann á
kassanum. Það sama má segja um Séð og heyrt
sem maður les á 1 mín við kassa. Plöstun gæti
verið lífsbjörg.
---
Ég er alltaf á leiðinni til Braga til að athuga
hvort hann eigi eintök af tímaritinu Fréttir frá
Sovétríkjunum. Nostalgía maður.
---
09.05.08
Sól og sumar! Þú búinn að fá
þér húsbíl, grill á 14 milljónir
og sumarbústað ofan á leiði Jónasar. Samt
er eitthvað sem vantar, einhver nagandi tilfinning sem segir þér
að sumarið sé ekki ennþá fullkomið. Nú
auðvitað, þig vantar havaí-skyrtu! Það er
óþarfi að örvænta þótt þessar
fegurstu flíkur mannkyns fáist hvergi hér á
útnáraskeri því...
...Havaí-skyrtusala
Dr. Gunna er hafin.
Ég neyddist til að henda þessari sölu í
gang í snatri fyrst Biggi í Maus lét mig fá
ókeypis auglýsingu í 24st. Ég er dauðhræddur
um að fólk muni senda mig á okursíðuna fyrir
verðin á skyrtunum en benda á á móti að
þetta er allt lang undir upphaflegu kostnaðarverði. Fyrstur
kemur fyrstur fær, eins og sagt er. Ég vil sérstaklega
benda Danna í Maus og Ólafi ofurduglega sýslumanni
á að þarna eru gríðarlega smart Beach Boys
og Rolling Stones skyrtur.
---
Á Íslandi er bara ein regla: Allir segjast vera á
móti spillingu þangað til þeir fá sjálfir
sneið af kökunni. (Sjáðu bara hvernig stjórnmálamenn
breytast eftir því hvort þeir eru við völd
eða ekki). Þess vegna er mér alveg sama þótt
Jakob Frímann sé á dúndurkaupi hjá Ólafi
"þú ert ekki fokking borgarstjóri" Eff. Jakob er náttúrlega
bara þannig maður að hann á að vera á dúndurkaupi.
Hamhleypa og snillingur. Meira kaup fyrir Jakob!
---
Gaman af viðtali Elsu Maríu við Brian Eno í Kastljósi
í gær. Hann er artí en ekki fartí. Minntist
á lag sem hann sagði með fallegasta strengjakafla í
heimi sem hann skildi ekki enn hvernig hafi verið hljóðritaður
(af Phil Spector 1961). Ég varð auðvitað að tékka
á þessu. Et voila...
Paris
Sisters - I love how you love me
---
Nörd dagsins: Loftmyndir
af Íslandi í boði Nasa.
08.05.08
Sem sendiherra Havæskyrta á Íslandi fæ ég
oft email og er spurður hvar svona skyrtur fáist á Íslandi.
Ég segi fólki að prófa Spútnik eða
Elvis en þar koma menn oftast að tómum havæskyrtukofanum.
Ég gær reddaði ég fjórum boldangskörlum
frá DHL og seldi þeim skyrtur af mér. Þeir eru
að fara í alþjóðlegt fótboltamót
DHL í Belgíu og þar ku Havæþema í
eftirpartíum. Gömlu havæ-skyrturnar eru náttúrlega
eins og havæ-tjöld á mér núna og þar
sem ekki er planað að fylla út í þær
aftur er auðvitað gráupplagt að selja þær.
Maður á auðvitað alltof mikið af allskonar drasli
sem gott væri að losna við. Veit ekki hvort ég nenni
í Kolaportið en kannski mjatlar maður eigum sínum
bara út hér í gegnum síðuna. Búist
því við Havæskyrtusölu með fallegum litmyndum
bráðlega.
---
Selja drasl já. Var ekki einhver gamall heimspekingur sem sagði
að maður væri ekki frjáls nema maður gæti
borið draslið sitt á bakinu? Sá var greinilega einhleypur
og barnlaus og bjó líklega í tunnu og girndist drengi.
Ekkert að marka það heimspekingafífl. Það
er hins vegar á planinu að reka mig og mitt stúss í
miklu minna herbergi svo allir þessir diskar sem ég hlusta
aldrei á og allar bækurnar sem ég er búinn að
lesa eru bara fyrir. Um leið og ég hef tíma til að
búa til æsilegt xls-skjal byrjar útsalan.
---
Doktor
Kosmos - Doktor Kosmos skriver ett öppet brev till sina fans
Sænska hljómsveitin Doktor Kosmos er fín. Búin
að vera að lengi og var að gefa út áttundu plötuna
sína í viðurkenndri lengd, Hallå? heitir hún.
Þetta er poppband með skemmtilegum textum (þykist ég
vita, ekki kann ég sænsku nema hrafl). Öll lögin
á nýju plötunni heita svona Doktor Kosmos hitt og þetta,
Doktor Kosmos spelar på Pepsifestivalen, Doktor Kosmos är på
fest hos Micke Lundgrens tjej og svo framvegis. Besta lagið með
þeim kom hins vegar út á 6-laga plötunni Le Punkrocker
1999: Doktor
Kosmos - På Tunnelbanan
07.05.08
Bajofondo
- Grand Guignol
Á stefnulausu flandri mínu um alnetið rakst ég
á plötuumslag sem mér fannst svo flott að ég
varð að kynna mér innihaldið. Kom þá í
ljós að hljómsveitin Bajofondo er frá Argentínu
og Úrúgvæ og krukka í þarlendar tónlistarhefðir
með rafmagni og blandíblandi. Á plötunni Mar Dulce
sem kom út í fyrra taka stórmenni eins og Elvis Costello
og Nelly Furtado lagið með bandinu. Opnunarlagið, sem nefnt
er eftir frönsku horrorleikhúsi frá síðustu
öld, er instrúmental og smellpassar sem kynningarlag við
fréttaskýringarþátt. Hlustið og ímyndið
ykkur þetta. Alvarlegur þulur af Rás 1 kemur inn í
lagið og segir: Góðan dag, þetta er fréttaskýringaþátturinn
Vinkill, ég heiti Guðbjartur Hróarsson. Í þættinum
verður fjallað um...
Heavy
Vegetable - Song for Wesley / P.O.E.
Í gær átti ég í nokkrum vandræðum
með að muna hvað þessi hljómsveit heitir. Ég
mundi að ég átti þessa plötu á gömlum
hörðum diski en gat bara ómögulega munað nafnið.
Svo kom það smátt og smátt. Einhver meistari, Rob
Crow, var víst aðalgaurinn í Þungu grænmeti.
Platan sem ég átti á þeim glataða harða,
Frisbie, kom út 1995 og er 28 laga. Ég fíla svona
plötur með mörgum lögum þar sem sum lögin
eru kannski bara nokkrar sekúndur. Svo er mjög margt gott á
þessari plötu.Hér eru tvö, í öðru
er sungið um meistarann Wesley Willis, en í hinu er sungið
um P.O.E. Þetta er stíllinn, rokkað Zappa, Beefheart-stæl,
en samt næntís.
06.05.08
Nýjustu frétir úr eldhúsinu: Hef leyst
vandann með plastílátin fyrir morgunkornið sem ég
talaði um fyrr í dag (hér að neðan) með því
að nota tvær ónotaðar plastsafakönnur, eina undir
Cheerios, aðra undir Cocoa Puffs. Sparaði mér eflaust stórfé.
Keypti um daginn sítrussafapressu í Krónunni á
1459 kr. Ég var upptjúnaður eftir Spánarferðina
þar sem ég hafði kynnst unaðssemdum safaríkra
appelsína. Ég held ég sú búinn að
pressa fjórum sinnum síðan. Tvær risavaxnar appelsínur
úr Hagkaup rétt sleppa sem safi í eitt miðlungsglas.
Þetta er mun lélegri nýting en á Spáni
enda þornar þetta náttúrlega upp á leiðinni
hingað. Þar fékk maður pottþétt eitt
glas úr einni appelsínu. Safinn er þó tvímælalaust
betri en Trópí og svoleiðis, af svoleiðis stöffi
er alltaf þrúgandi geymslubragð. Sama bragð er reyndar
komið á sjálfkreistann safa eftir sólarhring í
ísskáp svo maður á bara að pressa fyrir einn
dag í einu. Þessi færsla var tvímælalaust
það innihaldsríkasta sem þú last á
netinu í dag
---
Tvær plötur inn í mér vilja komast út.
"Dr. Gunni með öllu mjalla", stuðplata, fremur akkústísk,
dáldið eins og Beach Boys' Party á köflum, en líka
rafmagn. Varla minna en fimmtán lög. Hlýt að koma
henni út á þessu ári, það er ekki
eftir neinu að bíða. Hin platan er "Dr. Gunni á bretti"
(vinnuheiti). Fjörutíu mínútna plata sérhönnuð
til átaka í rækt, bara búmm-búmm-búmm.
Stefni á hana á næsta ári. Svo er heimildamynd
inn í mér líka. Annað hvort gerir maður hana
eða ekki.
---
Nú er Vísa-laus mánuður. Erfitt. Kannski eins
og að hætta á heróíni. En álíka
gefandi. Þarf samt að kaupa plastílát fyrir morgunkorn
og svartar rúllugardínur í herbergi sonarins. Gengur
ekki að hann sé að vakna fyrir sex alla morgna. Svo var
Mark E Smith að gefa út ævisögu sína sem er
klárlega algjört möst. Guardian birti
kafla.
---
Gaman að horfa á þátt Palins í gær.
Hann fór í forsetahöllina
hans Ceausescu, stærsta mannvirki í heimi fyrir utan Pentagon.
Hvílík geðsturlun! Allt endaði svo með því
að þau heiðurshjón voru skotin. Aftakan
auðvitað komin á Youtube. Veistu ekki hver ég er,
held ég að kerlingaherfan hún Elena hafi gaggað áður
en hún var skotin. Manni hefur stundum fundist Rúmenía
með hallokuðustu fyrrum-Sovétríkjunum. Albanía
var náttúrlega það slappasta, svo kom Rúmenía.
Í gamla daga var þetta svona líka. Manni fannst Tékkóslóvakía,
Ungverjaland og Júgóslavía meira kúl en Búlgaría,
Rúmenía og Albanía. Svo vissi maður ekki einu
sinni að Moldóvía væri til, hvað þá
Túrkmenistan og þessi hin Borat-lönd. Það var
aldrei talað um þau í fréttunum. Það
er greinilega margt vitlausara en að pæla aðeins betur í
þessu stöffi öllu.
05.05.08
Hvað er svona
fyndið við forseta Túrkmenistan? Ég meina fyrir
utan að hann heitir Gurbanguly Berdimuhammedow og virðist ríkja
í landi þar sem eintómir litlir gamlir karlar með
hvítt skegg eiga heima í? Gurbanguly Berdimuhammedow tók
við af Saparmurat Niyazov, "föður allra Túrkmena",
sem lét reisa sér gullstyttur eins og þessa hér
fyrir ofan. Á Íslandi láta stjórnmálamenn
sér nægja að skammta sjálfum sér góð
eftirlaun, hitt væri of áberandi. En ætli maður
eigi eftir að fara til Túrkmenistan? Þetta virðist
vera aðal pleisið. Vonandi fara þeir í Eurovision
einhvern tímann.
---
Gurbanguly Berdimuhammedow er auðvitað heiðursfélagi
í klúbbi stjórnmálamanna með asnaleg nöfn
og ég held að Alistair Darling fái líka að
vera með.
04.05.08
Nýr borgarstjóri í London. Það þarf
nú ekki nema eina reitta hárkollu til að feiti litli
kallinn í Little Britain geti leikið hann.
---
Alls staðar sama sagan. Við verðum að fá útlent
kjöt af því íslenskt er svo mikið okur. Við
verðum að fá útlenda banka inn á fasteignamarkaðinn
af því íslenskir bankar okra svo mikið. Við
verðum að fá útlenskar byggingarvörukeðjur
af því íslenskar okra svo mikið. Við verðum
að fá útlenskar matvörukeðjur af því
íslenskar okra svo mikið.
---
Á poppvaktinni: Ég sperri alltaf eyrun þegar Temptation
með Dísu kemur í útvarpinu. Er þetta
nýtt lag með Cardigans? hef ég hugsað að
minnsta kosti tvisvar. Ef Dísa heldur áfram að dæla
út jafn góðum lögum verður hún ekki á
flæðiskeri stödd. Moses
Hightower ku vera húskarlar Dísu. Þeir henda sjálfir
út ágætum lögum eins og herforingjar. / Ég
er hrifinn af Don't stop
the music með Ríhönnu. Ég eyddi dágóðum
tíma í morgun í að finna út hvað þetta
væri, eftir að hafa heyrt þetta í útvarpinu
í gær. / Nú vilja allir soulið kveðið hafa
eftir vinsældir óreglustúlkunnar Amy Winehouse. Það
kyngir niður ungum soulsöngpíum eins og það sé
1963 eða eitthvað. Duffy er ein og syngur Mercy.
Gabriella Cilmi er önnur og syngur Sweet
about me. / Nokkrar góðar plötur hafa komið út
só far á árinu. Morðingjarnir besta íslenska.
Plötur MGMT og Vampire Weekend komu reyndar út í fyrra
en maður komst á snoðir um þær á þessu
ári. Portishead, Black Keys og Goldfrapp líklega best af
erlendum 2008 en það bætist eflaust gomma við eins
og vanalega.
---
Vér feðgar fórum á hina æsilegu Bílar
og Sport sýningu í Fífunni. Hann var nú spenntari
en ég og heimtaði að fá að sitja inn í
öllum bílunum og keyra í þykjustunni. Ef ég
væri ekki þræll mynkörfubílaláns gæti
ég vel hugsað mér ýmsa róttæka möguleika
í bílamálum. Indverska Reva
rafmagnsbílinn tengir maður t.d. beint í innstungu heima
hjá sér og hleður á meðan maður sefur.
Það tekur 6 tíma að hlaðann og svo kemst maður
50 km daginn eftir. Sem sé ekki í Eden að fá sér
ís en alveg í vinnuna og í ræktina og aftur
heim. Tæplega 2 millur er þó full mikið fyrir svona
rafdverg. Bensín-Reva, sem kostar 150 kall á Indlandi, kostaði
líklega 700 kall hér, sagði maðurinn. Gunnar Hansson
reyndi að höfða til moddarans í mér með
hugsanlegum Vespukaupum. Æi,
vill maður nú ekki oftast vera inn í einhverju í
veðráttunni hér? Vespan er þó óneitanlega
flott hjól og Gunnar er að moka þeim út. Segway
gönguhjólin, fáránlegasta rugl í heimi,
voru þarna kynnt. Alltaf var biðröð í að
prófa og ég þorði ekki að gera mig hugsanlega
að fífli þó mig dauðlangaði til að
prófa að fara upp á svona rugltæki. Þetta
meikar kannski sens á mjög stórum vinnustöðum,
álverum og svoleiðis, en maður væri eins og fífl
á þessu á Miklubrautinni á morgnanna. Mörg
farartæki önnur mátti sjá sem bera heilastærð
tegundarinnar fagurt vitni, flekastórir Buick og Cadillac frá
1974 og nokkrir Mustang, fegurstir bíla, sem dæmi. Eins og
ég hef áður sagt verð ég kominn á Ford
Mustang fyrir fimmtugt, þótt það verði eldgömul
árgerð og ellihrum. Verst að maður þarf að
vita full mikið um virkni vélarinnar sé maður á
svona merkilegum bíl og alltaf að leyfa einhverjum köllum
að skoða oní húddið. Fyndið var á
sýningunni að annað slagið var sest upp í einhvern
bílinn og allt þanið í botn. Dreif þá
að múgur og margmenni sem glápti spennt á reykspólandi
inngjafirnar. Steininn tók endalega úr þegar "kraftmesti
fjarstýrði
bíll landsins" (eins og auglýst var í hljóðkerfi)
var þaninn í einu horninu – brr brrrr brrrrrr brrrrrrr! Fólk
klappaði svo fyrir litla bílnum í restina. Sætt.
03.05.08
Í félagi stjórnmálamanna með asnaleg
nöfn eru meðal annars Bankimún, Kofiannan, Hælassílassí
og Búdrosbúdrosgali. Nú held ég að tími
sé kominn til að Svangiræ verði veitt innganga.
---
Ég er að fara til Belgrad, Serbíu, í þann
sirkus sem Eurovision ku vera. Búinn að kaupa mér Lonely
planet bókina. Það er víst fallegt í miðbænum
en ógeðslega ljótt rétt fyrir utan hann, sovét
blokkir og drasl. Það er nú ákveðin fegurð
í því líka. Þeir eru ekki með Evruna,
enda ekki í Evrópusambandinu, heldur með Denara. Mér
skilst að allt sé frekar ódýrt þarna ennþá.
Allir reykja og borða kjöt og það er alltaf partí.
Eða svo segir Lonely planet. Gisti á frægasta hótelinu,
Hotel
Moskva, og verð með fréttaskot í Fréttablaðinu.
Mér líður eins og Tinna. Tinni í Serbíu.
---
Það er auðvitað dáldill klassi yfir þessu.
Laun í blaðamennsku eru fremur slöpp en álagið
allnokkuð svo það þykir nýbreytni í að
fá utanlandsferðir í bónus. Man bara eftir tveim
álíka dæmum af blaðamennskuferli mínum.
Fór til NYC árið 1992 til að taka viðtal við
vin minn KJG sem er viðfang bókar Stefáns Jóns
Hafsteins New York New York. Viðtalið birtist í tímaritinu
O. Í laun fékk ég úrvals Sanyo hljómflutningsgræjur
sem ég á enn. Átta árum síðar fór
ég til London til að tala við einhverja poppara sem voru
að koma hingað á Reykjavik Music Festival í Laugardalshöll.
Man nú ekki alveg eftir þessu, en fór alla vega í
eitthvað verksmiðjuhverfi og hitti tvo lúða sem mynduðu
Herbalizer. Einnig til Leeds til að hitta gömlu anarkóhippana
og one hit wonderana í Chumbawumba. Þau voru voðalega
almennileg.
---
Meira man ég ekki úr þessari ferð nema að
ég fékk mér líklega Ben & Jerrys dollu
og át utanveltu á hótelherberginu.
02.05.08
Aumingja Knútur hvítbjörn. Bara orðinn snargeðveikur.
Svona er þetta. Dýrin höndla ekki frægðina.
Ég hef það fyrir satt að svínið sem lék
Babe í samnefndri mynd hafi líka orðið snargeðveikt.
Svo óviðráðanlegt að það varð að
fella það. Hér
er mynd.
---
Söngleikurinn Ástin er diskó, lífið er
pönk er alveg la la. Ég hef skrifað aðeins um upplifun
mína á honum á menningarafurðarsíðuna.
Á heimasíðu
Leikfélagsins skrifa valinkunn gamalmenni (þ.á.m.
ég) um þann tíma sem leikverkið gerist á.
Við skulum fá pönk í tilefni dagsins. Hér
eru það strákarnir í 999 sem pönka. Einn pönkarinn
í leikritinu er greinilega aðdáandi og hefur skrifað
999 aftan á jakkann sinn. 999 var hálfgert B-band frá
London sem er örugglega enn að spila. Ég man eftir að
hafa fengið lánaðar plötur með þeim hjá
Tryggva Þór, en átti þá aldrei sjálfur...
999
- Emergency
---
Gaman væri ef Viðskiptablaðið flytti fréttir
af gengi sambísku kvökunnar, tongverska pangasins eða níkarögsku
kordóvunnar. Hér
er tafla yfir flesta eða kannski alla gjaldmiðla heimsins, á
íslensku! Vilji menn reikna út gengið er fátt
betra en XE.
01.05.08
Móri
- Í kvöld
Móri kom eins og þjófur um nóttu og sló
í gegn með fyrstu plötunni sinni 2002. Síðan
hefur hann verið of upptekinn við að lifa lífinu. Nú
snýr hann aftur með nýja plötu í haust. Honum
þótti annað ótækt en að varpa hér
fram forskoti á sæluna, ljúffengu megadissa á
rapparann Poetrix og AA-mennsku hans. Þess má geta að
ég tek að sjálfssögðu enga afstöðu
í þessu ógnvekjandi rappstríði. Þetta
eru allt fínir strákar.
"Þótt að maður geti hugsað sjálfstætt
og myndað sér sínar eigin upplýstu skoðanir
á hlutunum þá er það ekki merki um að
maður þurfi á heilaþvotti eða "meðferð"
að halda," segir Móri, fremur pirraður. "Kannski
ef drauma útópíu-fasistaríki Björns Bjarnasonar
verður að veruleika ætti Poetrix að sækja um vinnu
í upplýsingaráðuneytinu. Þar gæti
hann séð til þess í samstarfi við vin sinn
Þórarinn Tyrfingsson að frjálst hugsandi menn eins
og Jakob Frímann Magnússon og Jón Steinar Gunnlaugsson,
hæstarréttarlögmaður, sem báðir hafa talað
jákvætt opinberlega um lögleiðingu kannabisefna,
séu heilaþvegnir mér við hlið."
---
Hinn dissaða Poetrix má svo heimsækja hér
og varla er langt að bíða þar til hann svarar fyrir
sig með skeggjaðri rímu. Svo eru það Rottweiler,
sem nýta sér netið til að öskra á líðandi
atburði, ekki ósvipað og Að gefnu tilefni, þeir
eru hér.
Móri er hins vegar ekki með mæspeis eins og er.
---
Íslenska er hefí mál og því þarf
öflug hjálpartæki til maður komi þessu þokkalega
rétt frá sér. Á þessari
síðu fræðist maður um hvernig skuli stafsetja
lönd og íbúa þess. Í Olympíupartíinu
mátti sjá djíbútískan hástökkvara,
grænhöfðeyskan spretthlaupara, katarskan glímumann
og lesótóskan kúluvarpara ræða ástandið
í Tsjetsjeníu. Marshall-eyskur sundmaður ræddi
við nárúskan kafara á meðan tógóskir
trommarar trylltu lýðinn. Sérstaka athygli vakti fótafimi
vanúatúsku stelpnanna sem dönsuðu pólka við
spengilegan Svartfelling, púkalegan Paragvæja og töff
Tsjada. Úsbeki og Mjanmari áttu ljúfa stund inn á
salerni en miðbaugsgíneski langhlauparinn hljóp hring
eftir hring um stofuna, enda dauðadrukkinn. Í eldhúsinu
sátu svo tveir utangátta Túvalúar og supu sinn
túvalúska kavadrykk. Í samræmda prófið
í íslensku með þetta!
---
Bakþanki
dagsins er í tilefni að 1. maí. Ætli maður
bóni ekki bara hjólhýsið.
30.04.08
Króatíski keppandinn í Eurovision frá 2006
hefur sent frá sér nýtt lag eftir Íslandsvininn
Goran Bregovic. Lagið heitir "Gas,
gas". Hvílík tilviljun!
---
Rás 2 stendur sig í stykkinu og bíður upp
á hvern framúrskarandi tónlistarspekiþáttinn
af öðrum. Freyr hefur sogið upp íslenska plötuúgáfu
eins og ryksugutogari á halamiðum og á að fá
fálkaorðu fyrir. Síðast var Valgeir Guðjónsson
hjá honum að
tala um Sturlu í frábærum þætti. Er
Sturla Spilverksins Sturlan á vörubílnum? Bjössi
í Mínus hefur verið að færa sig upp á
skaftið í íslenskum goðsögnum. Heilmikil rannsóknarvinna
og fín úrvinnsla einkennir þættina hans. Á
sunnudaginn var endurtekinn þáttur
um Gunnar Jökul sem ég hafði ekki heyrt en er augljóslega
eitthvað sem allir poppgeggjarar verða að heyra. Ekki má
gleyma
uppruna tegundanna
þar sem Kristinn Pálsson horfir á popp og rokksöguna
með smásjá. Margt fleira er á dagskrá Rásar
2 sem gerir það að verkum að stöðin er langbesta
útvarpsstöð landsins. Þó það nú
væri að hún væri það, svona ríkis-
og skattstyrkt í þaula. Það er ekki eins og einhver
geti keppt við þetta bákn með pítsuauglýsingum.
29.04.08
Hvað heitir löggan eða sérsveitarmaðurinn sem
öskraði gas gas og er nú orðinn frægur og aðhlátusefni
út um allan bæ? Mun einhver fjölmiðill þora
að segja okkur eitthvað um þessa stjörnu augnabliksins?
Er Ísland orðið "of alvöru" og "erlendis" til að
nokkur þori að svipta hulunni af þessum manni? Fáum
við fréttina "Gasmaðurinn heitir Jósep Smári:
Missti mig alveg í hita augnabliksins". Nei, líklega
aldrei. Yfirvaldið þarf að vera andlits- og nafnlaust, annars
er það bara "einn af okkur". Þegar "einn af okkur" fer
að lemja "einn af okkur" að skipan "eins af okkur" sem "við"
kusum í síðustu kosningum, þá sjá
allir hversu glatað ástandið er orðið. Þess
vegna verða þeir sem lemja og gasa alltaf að vera nafnlausar
æðri verur sem koma ekki í blöðin með eitthvað
flipp. Það verður að geyma svoleiðis fyrir næstu
sérsveitarárshátíð.
---
Klámmynd með Jimi Hendrix ku komin
í leitirnar. Rúnar Júl hefur oft sagt söguna
af því þegar hann meig við hliðina á
Hendrix í einhverjum klúbbi í London 1968. Með
í för var íslensk flugfreyja sem Hendrix vildi ólmur
fara upp á. Hún fúlsaði við tilboðinu
enda að sögn lítið gefin fyrir menn af hans litarhætti.
---
Ég var gestur í þættinum Mér finnst...
á ÍNN í gær.
Þáttinn má glápa á á
netinu. Áhugamenn um sundurleysi sérstaklega hvattir
til að horfa. Þarna segir Kolfinna m.a. áhugaverða
sögu af íslenskri gestrisni sem endar á setningunni:
"Sorry, do you wanna fuck me?".
27.04.08
Ég hitti mann sem ég hafði ekki hitt lengi og þurfti
að liggja á bremsunni innan í mér að fara
nú ekki að spyrja hann hinnar klassísku íslensku
plebbaspurningar: Jæja, er ekki nóg að gera? Hvað
ertu að gera þessa dagana? Í staðinn fór
ég eins og köttur í kringum heitan graut. Dugnaður
og atorkusemi þykir helsti kostur Íslendings. Sjálfur
er ég ekki saklaus af vinnuofsanum. Fátt þykir verra
en leti. Ég væri latari ef mér þætti það
skemmtilegt. Maður er kannski bara svona alinn upp. Íslenska
vinnumóralinn má sjá á öllum sviðum
tilverunnar, þ.á.m. í gömlum dægurlagatextum.
Lóan hans Páls Ólafssonar er t.d. algjör vinnubrjálæðingur.
Það mætti fá henni svipu og klæða upp
í svartan latex galla.
Lóan er komin að kveða burt snjóinn
kveða burt leiðindin, það getur hún.
(já enda vinnubrjálæðingur)
Hún hefur sagt mér að senn komi spóinn,
sólskin í dali og blómstur í tún.
(það er naumast að hún veit)
Hún hefur sagt mér til syndanna minna,
ég sofi of mikið og vinni ekki hót. (Heyrðu
lóulumman þín, hvað kemur þér það
við!?)
Hún hefur sagt mér að vaka og vinna (Hva,
vaka allan sólarhringinn, vinnufasistinn þinn?)
vonglaður taka nú sumrinu mót.
---
Ingvar, sem er með eina metnaðarfyllstu vinýlbúð
á landinu í Kolaportinu um helgar, vakti athygli mína
á tveimur plötum.
Gandalf
- Hang On To A Dream
Gandalf var band frá New Jersey og dettur í sama skemmtilega
barrokk-sækadelíu-pottinn og snilldarbönd eins og The
Left Banke og Sagittarius.
Kannski ekki eins gott stöff en þetta lag er allavega mögnuð
snilld. Af eina lpinu frá 1968, endurútgefin nýverið
af eðalmerkinu Sundazed.
Power
of Zeus - It Couldn't Be Me
Power of Zeus rokkuðu af sér hælana á einni
plötu frá 1970. Dúndursýrt þungarokk sem
strákarnir í Wolfmother hljóta að hafa heyrt.
Power of Zeus gáfu út hjá Motown-hliðarmerkinu
Real Earth og platan er fágætur safngripur í dag. Ekki
síst vegna þess að síðasta
lagið á henni byrjar á bíti sem vinsælt
hefur verið að sampla. Hljómsveitin á síðu
á netinu.
The
Suicide Commandos - Real cool
Fáum pönk eftir hippavælið. Þessi pönkmenni
komu frá Minneapolis og voru meðal fyrstu Kana til að gera
almennilegt pönk. Make a record kom út 1978 og var eina stúdíóplata
sveitarinnar, gríðarlega sprellandi og fín pönkplata.
(lesa
meira)
Klark
Kent - Don't care
Trommarinn í Police, Stuart Copeland, samdi slatta af lögum
en kom þeim ekki á framfæri fyrir frekjunni í
Sting. Hann brá á sædpródjektráðið
og gerði slatta af stöffi sem Klark Kent. Hér er íðilfagur
straumlínupönkari frá 1978.
---
Ef Hómer Simpsons væri alvöru maður liti hann
svona út:
Sjá betur hér.
(Halli vísaði
á).
26.04.08
Við skulum hlusta á tóndæmi:
Megas
og Senuþjófarnir - Hagavagninn
Megas og Senuþjófarnir taka enn höndum saman á
plötunni Á morgun sem kemur í júní. Þetta
er eins konar "gling gló" Megasar, hans túlkun á öldruðum
smellum. Hagavagninn er eftir Ragnar Jóhannsson og Jónas
Jónasson, útvarpsmann með hálsmen. Hefi heyrt
4 lög af plötu Megasar og tel óhugsandi annað en um
sumarsmell ársins sé að ræða.
---
Santogold er ammrísk söngkona, lagahöfundur og pródúser
sem er að gefa út fyrstu plötuna sína. Þar
sveiflast hún ansi hressilega á milli stíla, dúndursúrt
popp í ætt við M.I.A. hossast við hliðina á
Pixies-legu rokki eins og ekkert sé. Svona er mikið frelsi í
poppinu í dag, fólk gerir bara það sem það
vill. Hér er poppraggí. Svo fínt að söngkonan
ælir gulli af gleði.
Santogold
- Shove it
---
Næstu listamenn koma frá Brúkklin og minna á
Flaming Lips með dassi af Suicide: MGMT! Platan er Oracular Spectacular
og allir eru í góðu stuði á hestbaki. Það
funheitasta í dag en það verða líklega allir
búnir að gleyma þeim árið 2009. Er á
meðan er.
MGMT
- The Handshake
---
Tónlistarmóment vikunnar var þó í
þættinum Vildmarkt: upptäckaren: Túva sem Rúv
sýndi á þriðjudag. Í Túva, litlu
landi á milli Serbíu Síberíu
(Freudian slip) og Mongólíu býr lið sem stundar
hálssöng,
mjög kostulegt fyrirbæri og flott. Fulltrúar frá
Túva komu nýverið á Listahátíð,
súperstjörnurar sjálfar í Huun-Huur-Tu. Í
þættinum sáust tvær konur taka lagið sem var
glæsilegt. Ekki skemmir fyrir að eintóna músikin
sem er spiluð með þessu minnir á eitthvað glæsilegt
krautrokk. Hér er prógramm
um Túva-múskina, reyndar ekki Vildmarkt en flott samt. Ef
námsflokkarnir biðu upp á hálssöngsnámsskeið
myndi ég mæta. Svo myndi ég hálssyngja í
brúðkaupum og fermingarveislum og svona, jafnvel jarðarförum.
---
Talandi um dauðann: Garður
er rosalega vönduð síða og algjör snilld. Flesta
látna landa okkar má finna með einföldu uppfletti.
Á síðum eins og Find-a-gravemá
leita að hvílustað frægra og auðvitað á
Garður
líka. Ég gæti hugsað mér margt vitlausara
en að hlaða viðeigandi músik í eyrun og taka
svo góðan göngutúr í Fossvoginn að kíkja
á hvílustaði Villa Vill, Þórbergs Þórðarsonar
og Rúnars Gunnarssonar, sem dæmi, eða í Gufunes
og votta Hauki Morthens og Gunnari Jökli persónulega virðingu
mína.
---
Æ sorrí, þetta er kannski full morbidd svona í
morgunsárið. Lufsan segir líka að ég sé
búinn að vera alltof neikvæður svo ég er að
íhuga jákvæðnisátak. Allt þetta okurraus
og væl um léleg matvæli og skítuga borg og eitthvað.
Lufsan er svo sem sammála en segir að það sé
bara svo leiðinlegt að vera alltaf að hlusta á mig röfla
um þetta.
---
En þetta er svona stemningin þessa dagana, allir eitthvað
reiðir og fúlir og vælandi. Eins og við höfum
það í alvöru eitthvað skítt? Nei, við
erum ofalin melmegunarsvín. Steininn tók úr þegar
4x4 klúbburinn fór að væla á pallbílnum
sínum. Góðu bestu fáið ykkur Reva. Og hvað
með það þó Ingibjörg og þetta lið
sé í útlöndum? Er ekki best að það
sé bara þar sem mest? Hvað á það lið
að gera hvort eð er? Hvað haldiði að það
geti gert?
---
En Lufsan og jafnvel eitthvað fólk í gestabók
er sem sé farið að kvarta um að ég sé
ekki nógu djollí. Svo ég verð bara djollí
hér eftir. Allavega í einn mánuð. Eða eina
viku. Ég meinaða.
25.04.08
Auglýsingabransinn er vanur að skafa allt upp sem gerist
í þjóðfélaginu og setja í sitt samhengi.
Ég trúi því ekki öðru en hann nýti
sér ólguna (ef þetta er þá ólga)
í þjóðfélaginu einhvern veginn. Næst
þegar löggan lemur bílstjóra verður það
líklega í boði Landsbankans. Þetta uppþot
var í boði Sjóvá almennra, þar sem tryggingar
snúast um fólk. Fáðu þér nýju
óeirðatrygginguna. Það auglýsingaslagorð
sem fer einna mest í taugarnar á mér (af því
það hefur ekkert með síma að gera) gæti
alveg eins birst í þessu samhengi:
Gríptu augnablikið og lifðu núna... já
já ókei, og ha, fá mér áskrift hjá
ykkur? Hvað gerist þá? Lifi ég þá
núna? Djöfuls rugl er þetta. Afhverju ekki: Ekki verða
biturt gamalmenni sem fékk ekki útrás fyrir þrám
sínum (Mix - norðlenskt eðalgos, nú sykurskert)
– Meikar jafn mikinn sens. Og strákarnir með eggin verða
svo örugglega komnir í auglýsingu fyrir einhverja fatabúð
áður en maður veit af. Eggjandi sumarvörur komnar
í Fatkó og mynd af þeim í skotstöðu
með eggin sín. Koma svo auglýsingagerðarmenn!
---
Bara svo það sé á hreinu þá hef
ég ekkert á móti auglýsingagerðarmönnum
– nema síður sé. Ég vildi til dæmis óska
að þeir væru brjálaðir en ekki trukkakallar.
Ekkert nema menn með speisuð gleraugu í trendí jakkafötum
sem stífluðu umferð með skrifborðunum sínum.
Væru örugglega með gáfulegri talsmenn. Við
búum ekki til neinar auglýsingar fyrr en við fáum
ódýrari Makka og betri samninga!!! myndu þeir æpa.
Svo kæmi löggan og gas! gas! gas! maðurinn...
---
Ég hef það annars fyrir satt að þessir svokölluðu
óeirðaskildir hafi verið búnir til í föndurdeild
sérsveitarinnar og að þetta séu samanbræddar
2 L kókflöskur.
24.04.08
Gleðilegt sumar. Hvaða bjána datt annars í hug
að hafa sumardaginn fyrsta á fimmtudegi? Væri þetta
ekki miklu betra á föstudegi? Löng helgi og svona. O-jæja.
Það er þá bara ákaflega stutt "vinnuvika"
á morgun.
---
Þótt íslenskan sé nú flottust þá
bregst henni bogalistin þegar kemur að "óeirðum".
Það verður að segjast alveg eins og er að RIOT er
mun flottara orð en óeirðir. Kannski eigum við ekki
flottara orð því við erum svo óvön svona
rugli eins og í Norðlingaholti í gær. Og eigum
heldur engin flott lög eins og White
riot eða I predict
a riot.
---
Ég fylgdist með þessu með öðru auganu
í sjónvarpinu. Ég var ekki spenntur fyrir þessu.
Satt að segja fannst mér þetta hálf ömurlegt
eitthvað. Bara eins og að sjá fylliríis slagsmál
oní bæ, jafn apalegt. Ég fæ ekki úronum
við að sjá menn hnoðast utan í hvorum öðrum
og horfi því hvorki á box né handbolta. Svo
var jafn ömurlegt að sjá Ingibjörgu tafsandi með
skítaglottið og BB eins og hana á hól.
---
Séríslenskt að þrammandi dimmetering skyldi
stela senunni. Og hvaða krakkafífl voru mætt í
eggjakastið? Stærsta spurningin finnst mér þó
vera: hvenær voru óeirðaskildirnir keyptir inn og hvar
eru þeir búnir að vera allan þennan tíma?
Menn dagsins: Feiti strákurinn í henglunum og löggan
sem æpti gas! gas! gas! Á hverju var hann? (var þetta
Gazman?)
---
Trukkakallar höfðu allt
mitt gúddvill til að byrja með. Gott að einhver nennir
að opna á sér kjaftinn, hugsaði maður. Þegar
þeir mættu flautandi eins og fífl þegar Abbas
var á Bessas misstu þeir gúddvillið all hressilega.
Eftir gærdaginn er ég ekki svo viss. Eru trukkarbílstjórar
heppilegasti hópurinn til að berjast fyrir bættum hag
landsmanna? Því auðvitað mætti Ísland
vera enn betra en það er – er óraunhæf krafa að
Ísland verði besta land í heimi? (Einhver ætti
að skrifa þá bók). Fálæti stjórnmálamanna
á erfiðum tímum er augljóslega ömurlegt og
allar áherslur kolrangar. Það var enginn að biðja
um þetta helvítis öryggisráðsframboð,
fíflin ykkar. Stjórnarandstaðan er uppfull af gatslitnum
tuskum sem enginn hefur áhuga á lengur. Það væri
bara óskandi að trukkarar væru með talsmann sem væri
svona 100% klárari. Þá gæti hann virkað sem
fulltrúi almennings, ekki vörubílakalla eingöngu.
Æstur maður í sjónvarpi fær ekkert gúddvill.
---
En þegar öllu er á botninn hvolft var þetta
ekki bara það sama og í öllum öðrum "stríðum",
láglaunafólk að lumbra á láglaunafólki?
23.04.08
Rakst á athyglisverða
grein um svart ástand geisladiskabúða í Hollandi.
Þar lokar nú hver legendarí holan af annarri. 95% kúnna
eru karlmenn um 35 ára aldur (hljómar kunnuglega!) og krakkarnir
kaupa ekki diska lengur heldur ná þessu niður með
nokkrum músasmellum. Í greininni kemur einnig fram að
holur með vínyl-plötur virðast ætla að lifa
af. Netið drap sem sé geisladiskinn en endurlífgaði
plötuna. Stórmerkilegt!
---
Ég hef ekki komið til Amsterdam eða Hollands síðan
1984 en ég man vel eftir þessari Boudisque búð
sem talað er um í greininni. Man samt ekki hvort ég kom
inn í hana eða heyrði bara slefvaldandi sögur af henni.
---
Samskonar þróun og lýst er í greininni á
sér alls staðar annars staðar, þ.á.m. hér.
Hér er Smekkleysubúðin nýfarin á hausinn
en 12 tónar halda dampi og upp á 10 ára afmæli
á föstudag. Rokkdeildin þar virðist þó
illa lömuð eftir flótta Mugisons og Eyvarar og dauða
Jakóbínurínu, en mér skildist á viðtali
í Fbl að setja eigi klassíkina í forgang. Á
sama tíma er vínyllinn í sókn eins og mátti
lesa í Fbl í gær:
Kúl að gefa út á vínyl
Gamla góða vínylplatan er í bullandi sókn.
Henni var spáð dauða þegar geisladiskurinn kom fram
en nú þykir fátt eins töff hjá ákveðnum
hluta tónlistarheimsins en að gefa út plötu. Báðar
spútniksveitir síðasta árs, Sprengjuhöllin
og Hjaltalín, gefa á næstu vikum út frumraunir
sínar á plasti.
Plata Sprengjuhallarinnar, Tímarnir okkar, er nú í
framleiðslu. "Þetta verður gríðarlega flott útgáfa,"
segir Snorri Helgason. "Við tókum mikinn tíma í
hönnunina og "artvörkið" mun skila sér á fullum
styrk svona stórt. Platan verður tvöföld, Tímarnir
okkar verður á fyrstu þremur plötuhliðunum en
á þeirri fjórðu verður lagið Hiti - okkar
útgáfa af Motown-laginu Heatwave - auk tónlistarinnar
sem við gerðum fyrir leikritið Fló á skinni."
Sleepdrunk seasons með Hjaltalín kemur út á
vínyl um miðjan maí. "Það er nú bara
svo kúl," segir Baldvin Esra Einarsson hjá Kimi Records um
ástæður þess að gefa út á þessu
formi. "Við erum með dreifingu í Skandinavíu og sjáum
því alveg fram á að losna við lágmarksupplagið
af svona plötuframleiðslu, 500 eintök. Stefnan er að
stærri útgáfur Kima verði líka til á
vínyl. Nýjar plötur með Benna Hemm Hemm og hljómsveitinni
Reykjavík! verða til dæmis báðar gefnar út
á vínyl þegar þar að kemur, Benni í
júní og Reykjavík! í ágúst."
Síðustu árin hafa íslenskar hljómsveitir
sífellt sótt í sig veðrið í vínylútgáfu.
Hljómsveitir eins og Sigur Rós, Seabear, múm, Slowblow
og Skakkamanage eru meðal þeirra sem gefið hafa út
á plasti. Plötubúðirnar eru á tánum.
Flestar bjóða þær upp á plöturekka og
í Skífunni á Laugavegi stendur til að stórauka
framboð á vínyl og grafa upp plötur á gömlum
lagerum til að gera úrvalið girnilegra.
Plötuspilarar fást víða. Eitt besta úrvalið
er í Pfaff-búðinni. "Fyrir svona tíu árum
seldum við ekki plötuspilara, en eftir að þeir komu
þá hafa þeir mjatlast út," segir Bragi Kort verslunarmaður.
"Svo má tala um algjöra sprengingu í sölunni þegar
USB-plötuspilararnir komu. Það eru plötuspilarar sem
hægt er að tengja beint við tölvu."
---
Ég er eiginlega bara sáttur við þessa þróun,
þ.e. dauða cdsins og annað líf plastsins. Ekki er
spurning hvort formatið er skemmtilegra og betra og ég hef alla
tíð illa þolað cdinn, enda ömurlega léleg
uppfinning. Margt veldur, lítið og púkalegt format, plasthylki
sem brotnar á hjörunum, dauðara sánd, leiðinlegt
að troða disk í tölvu, vesen, alltof mikill tími
tiltækur á diskum svo listamenn fóru að gefa út
allskonar drasl í misskilinni umhyggju fyrir hlustandanum. Ég
stóðst áhlaup cdsins eins lengi og ég gat. Held
það hafi ekki verið fyrr en 1992 sem ég fékk
cd-spilara og byrjaði að sánka að mér diskum.
Þá gerði ég líka þau mistök að
snúa baki við plötunni og selja megnið af því
gríðarlega safni. Svo gekk næntísið og örlí
tventísið á cdum. Fyrir 2 árum sá ég
ljósið og seldi sem betur fer 50% af cd-safninu. Ég fer
örugglega með restina í Kolaportið seinna á
árinu plús eitthvað drasl sem ég þarf að
losna við (nánar auglýst síðar). Vínyll
og mp3 er málið. Ekki spurning!
21.04.08
Eins og allir vita eru Frakkar svalasta þjóð veraldar.
Chér chic. Ég smitaðist af frakklandsismanum af Trausta
vini mínum sem fór til Frans eftir menntaskóla til
að sjúga í sig straumana. Ég var ári yngri
en átti síðar eftir að leigja með honum í
Lyon í tæplega hálft ár. Missti af fundinum
í Höfða og tónleikum Nicks Caves í Zafarí.
Ég var í Alliance Francais,
eða fór alla vega oft á bíó hjá
þeim, og var mjög spenntur fyrir þessu. Dvölin í
Lyon varð til þess að ég get pantað borð á
veitingarhúsum í París í síma og fæ
alltaf mjög góða þjónustu eftir að ég
hef kynnt mig, Doktör Gúnní. Ég mæli með
að fólk kynni sig sem doktora þegar það pantar
borð á veitingarhúsum í útlöndum vilji
það fá topp sörvis. Þegar ég var í
frakklands-gírnum hlustaði ég mikið á plötu
sem ég keypti í Safnarabúðinni (margblessuð
sé minning hennar). Þetta er platan Les Visiteurs du soir
með tvíeykinu Mathematiques Modernes frá 1981. Gallsvalt
njúveif og opnunarlagið, Paris Tokyo, er enn eitt af mínum
uppáhaldslögum. Þegar ég heyri það dett
í strax oní nákvæmlega sama fílinginn
og ég var þarna í kringum 1985 og ljúfari nostalgíu
er varla hægt að hugsa sér. Eins og sést á
plötuumslaginu var þetta mjög nýbylgjulegt fólk.
Það var mjög nýbylgjulegt að horfa svona tvírætt
út í loftið fram hjá myndavélinni. Þarna
á bakvið þau eru svo rústirnar af París,
turninn af Eiffel dottinn af og allt í hakki.
Mathematiques
Modernes - Paris Tokyo
---
Svellandi franskt kaldranalegt njúveif er góð lína
og má t.d. skófla í sig á safnplötunni
So
Young but so cold. Þar er lag með bassaleikara Stranglers,
J.J. Burnel, af frábærri sólóplötu sem
hann gerði 1979, Euroman Cometh. Þessa plötu átti
ég líka. Burnel bísperrtur fyrir framan Pompidú
á umslaginu og platan full af trommuheilaknúðu framtíðarpoppi
eins og þessu. Mmm...
J.J.
Burnel - Euroman
20.04.08
Silfur Egils: Þorgerður Katrín: "Íslenskar
mjólkurvörur eru bestar í heimi". É ræt.
Þetta er jafn mikil sturlun og þegar Guðni sagði að
íslenska paprikan sem hímt hefur undir flúorljósum
í hitakassa og er bragðlaust rusl, væri besta paprika
í heimi. Hvað er að þessu liði?! Helsti munurinn
er sá að í útlöndum er eitthvað í
jógúrtdósunum. Ef þú kaupir jógúrt
með, segjum, mangó, þá eru feitir mangókögglar
í jógúrtinni. Hér er þetta lapþunnt
jógúrt með mangólit. Ég tók sérstaklega
eftir því á Spáni hvað jógúrtin
var miklu betri en hér. Undarlegur þessi rembingur alltaf
eins og heyra mátti á Þorgerði. Íslenskur
ostur bestur í heimi! Kanntu annan?! Íslenskur ís
besti í heimi... uh, nei! (Sama í gangi þar, eitthvað
í dósunum. Ekki bara ís með bragði heldur
ís með kögglum.) Og hvernig er það með íslenskar
verslanir, af hverju er engin með löðrandi æðislegt
fiskiborð? Erum við ekki fokking fiskveiðiþjóð?
Í hverri einustu smáholu upp í miðju landi á
Spáni voru fiskiborðin löðrandi í allskonar
ferskum kvikindum, humri, rækju, kröbbum, skelfisk, smokkfisk
og ég veit ekki hvað og hvað. Hér fær maður
beinfrosið drasl úr kæli. Og hvað er þessi ömurlegi
Ögmundur að röfla. Já já við drepumst örugglega
öll úr salmónellu og viðbjóði ef hið
frábæra íslenska fasistabúvörusistem verður
ekki viðhaldið. Glæsilegt. Endilega að halda áfram
að kaupa oststykki á 1500 kall og kjúkling á 3000.
Takk Ömmi ömurlegi. Þú ert sko sannarlega vinur
alþýðunnar.
---
Í gönguferð með fjölskyldunni í miðbæ
Rvk komst ég að eftirfarandi:
* Tjörnin er drullubrún. Mávar fleiri en endur. Á
áberandi stað var hrúga af myglandi brauði sem foreldrar
börðust við að forða frá börnunum sínum.
Ef ég væri í borgarstjórn myndi ég byrjaði
á því að taka til í eigin bakgarði áður
en ég gerði eitthvað annað. Ha, Gísli Marteinn?
Átti ekki að gera eitthvað varðandi þessa blessuðu
tjörn? Hvar er andapabbinn sem auglýstur var?
* Þótt það sé skilda (bæði lagaleg
og sjálfssögð kurteisi) að stoppa fyrir gangandi vegfarendum
við gangbraut þá gerir það enginn nema sérstök
ljúfmenni. Biðum þarna við gangbrautinni hjá
tjörninni á meðan 6 bílar keyrðu framhjá.
Ég starði illilega á fólkið, gamalt, ungt,
skiptir engu, enginn stoppaði. Loksins stoppaði blár leigubíll,
Peugeot. Þarf greinilega atvinnumenn til.
* Garðurinn sem Björgólfur Thor á að eignast
er nokkuð töff en honum er gríðarlega illa við
haldið. Sígarettustubbar út um allt í kringum
mjög fallegt garðhýsi sem er þarna á áberandi
stað. Ég er viss um að Björgólfur mun taka til.
Eða öllu heldur, borga einhverjum fyrir að gera það.
Þó væri vissulega gaman að sjá hann með
gúmmíhanska í beðunum. Minnismerkið um Thor
Jenssen er þó með því ljótara sem
ég hef séð. Virkilega ljót næntíshönnun.
Ég trúi ekki öðru en Björgólfur Thor
láti gera skárri minnisvarða.
* Ameríska sendiráðið er með rimla fyrir öllum
gluggum. Ég hef aldrei séð annað eins. Vá
hvað þeir eru hræddir við Erp.
---
Þegar innkaupastjóri Haga, eða hver sem það
var nákvæmlega, sagði viku fyrir páska: Við
verðum að hækka allt um 30% og DV sló upp á
forsíðu: Skelfilegar hækkanir eftir páska!!!, þá
ákváðu allir verslunar- og matsölustaðareigendur
bara, Já hei, ókei, þá er það ákveðið:
Við skulum hækka allt! Og svo hækkuðu allir draslið
sitt í búðunum og matsölunum – af því
bara. Af því hinir voru að gera það. Taugaveikluð
verðhækkanabylgja flæddi um þjóðfélagið
– og það er ekki eins og hér hafi verið sanngjarnt
verð í gangi áður, enda okursíðan engin
tilviljun. Okursíðan er löðrandi í dæmum
af þessari nýjustu hækkunarhrinu og maður sér
þetta sjálfur út um allt. Þarf að hækka
verð á hárgreiðslu og gömlum lager af skóm
af því Evran hækkaði og stýrivextirnir? Já,
greinilega!
Því var sálarsefandi að éta á
Jómfrúnni í gær (4
stjórnur!) og sjá að matseðillinn þeirra
er með sömu verðunum og þegar ég át þar
síðast fyrir hálfu ári eða eitthvað. Gó
Jómfrúin! Ég held maður verði að versla
eingöngu við Jómfrúnna, Wilsons pítsu og
Ikea hér eftir. Djók. Eiga lesendur dæmi af fleiri
vænum góðmennum sem gripu ekki tækifærið
eins og hrægammar yfir höltu dádýri og hækkuðu
ekki þegar "kreppan" reið yfir?
---
Endalaus okurdæmi á Okursíðunni.
Færði þetta tuð mitt hér að neðan um
yfirdráttarvextina þangað (okur #464) af því
ég fékk viðbrögð sem ég birti neðan
við. Samkvæmt ábendinu er s24.is enn skárri en
Nb, en alveg spurning hvað maður nennir að vera á flótta
með yfirdráttinn sinn á milli margra banka því
þessu fylgir sá böggull skammrifi að maður samþykkir
að ræða við einhvern náunga upp á tryggingarnar
sínar og bla bla bla.
---
Mark E Smith er mættur með 27. stúdíóplötu
The Fall, Imperial Wax Solvent, Heimsveldisbónleysir. "Rónaröddin"
af síðustu plötu er minna í gangi sem betur fer
og mér finnst þetta mun betri plata en Reformation Post TLC
sem kom í fyrra. Eiginlega bara toppplata með fullt af topplögum.
Erfitt að velja eitt til sýnishorns, en segjum bara þetta
rokkabillíþöndersjitt:
The
Fall - Wolf kidult man
---
Var að hugsa um að setja hér inn gerðarlegt þjóðlagapopp
með The Dodos frá San Fransisco en sé að þessi
ágæti íslenski mp3-bloggari er búinn að
því.
---
Loksins sé ég að streymið af Aldrei fór
ég suður er komið inn. Hér
er dýrðin. Bitinn byrjar á uppákomu Abbababb!-hópsins
en Óttarr og karlakórinn byrjar á teljaranum sirka
kl. 339.
19.04.08
Maður er alltaf að reyna að spara. Er með yfirdrátt
eftir gamalt neyslutripp eins og annar hver maður (ekki það
ég geti sagt til um í hvað aurinn fór en það
er önnur saga) og hafði heyrt að Netbankinn
væri með skástu vextina. Sendi þeim bréf
og fékk tilboð í yfirdrátt:
13,95% fyrstu 6 mánuðina. Vextir eftir þann tíma:
18.50%.
Fannst þetta mun skárra en díllinn í Landsbankanum
og sótti um. Þegar ég var kominn með reikninginn
var tilboðið orðið:
Tilboðsvextirnir eru 16,45% í 6 mánuði og eftir
það 20,45%.
Ég skrifaði alveg brjálaður og talaði um vörusvik,
enda náttúrlega 2% munur á tilboðinu og raunveruleikanum.
Svar kom frá framkvæmastjóranum:
Því miður hafa stýrivextir breyst tvisvar
frá því að við gerum þér upphaflegt
tilboð þann 25. mars. Vextir yfirdráttarlána eru
ekki fastir og taka breytingum miðað við breytingar á
markaði til hækkunar og lækkunar og það á
líka við um tilboðsvexti. Þrátt fyrir þessa
hækkun á vöxtum okkar eru vextir Netbankans samt betri
en vextir á Gulldebet-reikningum annarra banka og sparisjóða
eins og sést á eftirfarandi töflu:
Netbankinn - Gulldebet 20,45%
Kaupþing - Gullkjarareikningur 23,70%
Landsbankinn - Vörðufélagar 24,65%
Glitnir - Gullvild 22,45%
Sparisjóðurinn - Gulldebet 24,15%
SPRON - Gulldebet 22,75%
Byr - Gulldebet 23,70%
Ég neyðist því til að kokgleypa þetta
tilboð nb þótt maður sé nú kannski ekkert
að spara stóran pening. Segjum að ég sé með
milljón í yfirdrátt og yfirdrátturinn sé
í botni í heilt ár. Þá hirðir Netbankinn
af mér 184.500 kall á meðan Landsbankinn myndi hirða
af mér 246.500 kall. Jú jú það er alveg
62.000 kall, næstum því ein leðurlíkishulsa
á Nissan Patrol. Hvað...
---
En ég hreinlega gerði mér ekki grein fyrir því
að þessir stýrivextir hans Davíðs kæmu
svona beint inn í manns mál. Hafði ekki tengt þessar
endalausu fréttir um stýrivextina við bankareikninginn
minn. Takk, Davíð. Þú ert alveg að redda þessu.
En það er náttúrlega algjört forgangsverkefni
að losa sig við þennan helvítis yfirdrátt (já
og Davíð líka auðvitað).
---
Hvorki meira né minna en tvær myndlistasýningar
sem maður þarf að skoða um helgina. Að sjálfssögðu
List
án landamæra þar sem hver snillingurinn af fætum
öðrum sýnir verk sín. Ég mæti með
veskið. Svo er það lokasýning Listaháskólans.
Ég hef reynt að fara á þær sýningar
á hverju ári. Oft eitthvað gott innan um. Sá t.d.
innslagið í Kastljósi í gær og er ekki frá
því að ég væri alveg til í að
eiga svona mosahring eins og Jimi Tenor lúkkalækið var
með. Gaman að eiga hring sem þarf að vökva. Mosi
er eflaust vannýttasta auðlind landsins. Mosi og skóf.
---
Eins og glöggir gestir taka eftir er komið nýtt veggfóður,
Kólastjarnan, úr Sól-, RC- og Spur-kóla. Mestu
nostalgíuna tengi ég Spur enda var það hefð
hjá mér og mömmu að fá okkur eina Spur þegar
ég fór með henni að skúra. Pabbi vann hjá
Sigurði Elíassyni – eða Selkó, eins og verkstæðið
var kallað – og mamma skúraði skrifsstofuna og mötuneytið.
Ég fór svo oft með að umhverfið er mér
enn í fersku minni. Ég tæmdi úr ruslafötum
og gætti þess vel að rífa frímerki af umslögunum
enda víðtæk frímerkjasöfnun í gangi
á heimilinu. Karlarnir voru oft með hardcore dönsk klámblöð
í skúffunum á skrifstofunni sem þú getur
rétt ímyndað þér að hafi verið spennandi
fyrir barnið mig. Einnig man ég eftir hrekkjaklámspilastokk
sem maður fékk straum úr ef maður reyndi að skoða.
Ég féll nú bara einu sinni fyrir því.
Á kaffistofunni var fornfálegur kókkælir með
Spur og einhverju fleiru. Við mamma fengum okkur alltaf eina Spur saman
á meðan á skúringu stóð. Flaskan leit
svona út:
Þökk sé geðveikri hönnun var flaskan tvískipt.
Mamma drakk efri helminginn og svo fékk ég rest. Kannski
var Spurflaskan hönnuð til að skipta á milli sín?
Það gæti alveg verið enda held ég kanadískt
stöff, allavega frá Canada Dry, og kanadamenn náttúrlega
svo sósíal.
---
Það gekk voðalega margt út á Selkó
á mínu æskuheimili. Pabbi vann þarna, mamma skúraði,
Ási bróðir vann þar lengi, Jón mágur
vann þar um hríð, ég slæptist þarna
með mömmu. Farið var í fjölskylduferðir með
fyrirtækinu. Man eftir einni í Veiðivötn. Það
veiddist svo mikið að það lá við að fiskurinn
hoppaði skjálfviljugur upp á bakkana. Árið
1975 virðist Selkó hafa farið í netta auglýingaherferð
á síðum Moggans. Ég fann 3 mismunandi auglýsingar
á tímarit.is. Þessi er mest töff:
Því miður er enginn ættingi minn á þessari
mynd, og ég skil það nú ekki alveg. En karlana
hitti maður oft og það var talað um þá heima.
Þeir gengu undir fönkí nöfnum eins og "Jón
Píp" og "Maggi Konn".
---
Hvað ég myndi ekki gefa fyrir eina ískalda Spur núna.
---
RC-cola kom inn á markaðinn með offorsi og heilsíðuauglýsingum:
Auðvitað lét landinn "vanann ráða valinu"
og RC fékkst bara í örfá ár. Eins og sést
á þessari aulgýsingu frá 1988 þótti
1. lítra flaska mikil tíðindi. Vá einn lítri!
Það dugar nú í mánuð!
---
Ári áður, 1987, hafði iðjuhöldurinn
og bjóráhugamaðurinn Davíð Scheving Thorsteinsson
stofnað Sól og sett á markað Sól kóla
og eitthvað sem hét Límó. Ég man aðallega
eftir dósunum sem voru úr hálfgerðu plexíplasti
með plastlagi utan um sem maður gat rifið utan af. Bragðið
held ég hafi verið hálf misheppnað enda fór
þetta allt á hausinn með hraði. Eitthvað seldist
þó, allavega milljón dósir samkvæmt þessari
auglýsingu:
 |