01.10.05
Elma frænka búin að kaupa Fenderinn og trommari Sonic Youth búinn að fá VIP-miðann á McCartney. Ég er því að fara á Paul McCartney tónleika í New York á miðvikudaginn með Grími Atlasyni og Steve Shelley. Hljómar eins og útúrsýrður draumur. Hvað næst? Tónleikar með Rolling Stones á útisviði í Hamraborg, Kópavogi, og ég mæti með Steini Skaptasyni og bassaleikaranum í R.E.M?
---
Maður út í bæ spurði mig hvort ég vissi hvaða lag er með þessari laglínu: "Það er komið laugardagskvöld, kemur aðeins fyrir 5000 sinnum á öld". Ég hef ekki hugmynd en ef lesendur vita það væri nú gaman að fá uppl um málið svo maðurinn geti sofið rólega. (Annars kemur laugardagskvöld u.þ.b. 5200 sinnum á öld svo þessi texti er rugl).

30.09.05
Ertu aðdáandi Bítlanna? Varstu að vinna í lottóinu eða ertu með 4 - 20 millur í laun á mánuði? Nú er tækifærið! Get útvegað einn miða - VIP - á tónleika Pauls McCartney í Madison Skver Garði í New York 5. október nk. Nú er að hrökkva eða stökkva. Nánari uppl veiti ég.

29.09.05
Ég er ennþá að fíla Mesmerize með SOAD í botn (eða tætlur). Iða í skinninu að heyra Hypnotize (kemur víst í nóv), en þessar plötur eiga að mynda pakka. Hér er áskorun um að fá bandið til Íslands. Ég myndi pottþétt mæta á það, jafnvel í latexi. Helvíti gott band! 
---

TIL SÖLU VANDAÐUR FENDER RAFMAGNSGÍTAR
Þar sem ég er á leiðinni að kaupa mér annan gítar ætla ég að selja þann gamla. Um er að ræða Fender Stratocaster, Jimi Hendrix tribjút módel, búinn til í Japan líklega svona 1990-1995. Þeir sem til þekkja segja að japanski Fenderinn sé næst bestur (á eftir USA made). Hausinn er öfugur en annað fyrir rétthenda. Ég lét setja einhvern voða fínan pikkupp í gítarinn en gamli pikkuppinn fylgir með. Ég heyrði engan mun þegar þessi pikkupp var settur í. Það er gott að spila á þennan gítar og sándið fínt. Með fylgir mjög illa farin taska. Ásett verð er 40.000 kr en ef menn vilja endilega prútta má það. Þetta er auðvitað hlægilegt verð. Fyrstur kemur fyrstur fær - dr.gunni@centrum.is

28.09.05
Vá. Djöfull eru fáir að vinna hjá Símanum. Ég hringdi í innheituna og var númer 30! Aftur á móti var Fréttablaðið komið kl. 6 í morgun sem er algjört met. Síðustu mánuði hef ég varla fengið blaðið og stundum meira að segja daginn eftir. Ekki það skipti máli. Nægir mér að líta yfir þetta á netinu. Kannski er kominn nýr útburður? Fór á fertugan hreinan svein í gær. Það var alveg ágætt, 3ja stjörnu mynd. Sérstaklega gaman að sjá mann á hjóli gyrða buxur ofan í sokka. Sjálfur gyrði ég alltaf buxurnar í sokkana líka.

27.09.05
Málið verður ekki einfaldara en þetta.

26.09.05
Var það ekki Hallgrímur Helgason sem kallaði valdastéttina "lýs" í morgunsjónvarpinu í morgun? Lýs sem hafa legið á þjóðinni árum saman. Hmm... Ég man eftir þessari lúsa-líkingu áður og það frá Jónasi Kristjánssyni. Þetta var á ritstjórnarfundi á DV fyrir alllöngu, löngu áður en Baugur keypti DV. Hann vildi meina að gömlu lýsnar væru að minnsta kosti ekki svangar eins og nýjustu lýsnar og því væri e.t.v. skárra að vera með gamlar lýs á sér en glorhungraðar nýjar lýs. Þetta var mér tilefni til textagerðar og lags sem komst ekki á Stóra hvell. Gjöriði svo vel:

Dr. Gunni - Lýs (demó át-teik)
---
Er þá Baugsmálið runnið undan rifjum Jónínu Ben? Maður er nú alveg að vera spinnegal í þessu og best held ég að slökkva bara á öllu og lesa um þessa steypu í Öldinni okkar eftir 20 ár. Annars er Jónína náttúrlega sexí kjelling (miðað við aldur og fyrri störf) og ekkert skrýtið að hún sé að gera allt vitlaust. Hún kom í útvarpsþáttinn Zombie á sínum tíma og talaði um alla spillinguna í samfélaginu og bla bla bla og sagðist vera með bók um þetta allt saman (sem kom nú aldrei út og hefur ekki verið nefnd einu orði í þessu rugli öllu saman núna), en sama hvað hún talaði mikið þá skildi ég aldrei hvað hún átti nákvæmlega við. Og sama hvað Jón Gerald talar mikið um það sem Baugur á að hafa gert sér þá hef ég ekki alveg skilið það ennþá hvað er í gangi hjá honum, um hvað málið snýst. Bara eitthvað rugl með einhverja snekkju og ég veit ekki hvað og hvað. Fólk sem ég hef verið að tala við um helgina skilur ekki upp né niður í þessu heldur. Kannski er ég bara svona vitlaus og allir vinir mínir líka – nema náttúrlega frambjóðandinn sem sér samsærið skýrt og greinilega. Hins vegar skil ég alveg hvað Olíufélögin gerðu landsmönnum og finnst skrýtið hvað lögin hafa lítið tékkað á því dæmi.

25.09.05
Fastir liðir: Popppunktur í kvöld: Poppbarátta upp á líf og dauða: Írafár á móti Í svörtum fötum. Tónlistarþáttur Dr. Gunna á Talstöðinni kl. 16: Megamassaður þáttur með drullufínni mússikk. En nú sem endranær: Topp 5 in da moðerfokking hás!


Hermigervill - Hard to stop: Hann sker og hann límir! Sleepwork er massíft meistarastykki og hér er sýnishorn. Heimasíða


Jeff Who? - The morning after you: Gífurlega "erlendis". Nýja platan þeirra – Death before Disco – byrjar á þessu lagi.


Tom Vek - I Aint Saying My Goodbyes: Enskur strákur. "We have sound" heitir platan hans.


Paul McCartney - Temporary Secretary: Makka í framúrstefnunni á plötunni McCartney II frá 1980. Þykir ekki með betri verkum hans!


Mínusbarði - Svartur sauður: Eintómir snillingar leggjast á árar í sándtrakki Strákanna okkar (ekki búinn að sjá hana). Sjáðu svarta hárið!

24.09.05
Jibbí jei það eru bara allir komnir í djókið hérna! Þegar Jón Ásgeir sagði "eigum við ekki bara að henda 300 millum í karlinn til að hann láti okkur vera" var það sagt í djóki. Þegar ritsjóri Moggans skrifaði "Má ég biðja þig að eyða fingraförum Morgunblaðsins af þessu skjali og senda það síðan til Jóns Geralds?" var það auðvitað í djóki líka. Ég segi bara enn einu sinni: Ha ha ha – hvílíkt djókland!

23.09.05
Sú kvikmyndahátíð sem nú er u.þ.b. að bresta á er mun háfleygari en nokkrar fyrri. Ég man ég sá slatta af myndum sem ég kveikti á í hátíðinni sem var síðast og Ísólfur Ísi hélt með Hole in the Heart og því öllu. Þá var meira popp en nú er komið að lífrænu soyapoppi frá búðinni Yggdrasill í líki kvikmynda. Voða gott og holt auðvitað. Eina myndin sem mig langar snarlega á er þessi: The League of Gentlemen's Apocalypse, enda byggð á fyndnum sjónvarpsþáttum. Öðru þarf maður að telja í sig nokkurn menningarlegan kjark til að gefa séns. Svo langar mig á The 40 year old virgin, sem byrjar í almennri sýningu í dag enda er ég búinn að lesa mér til um hana og sýnist hún vera ágæt.

22.09.05

Tilgangur minn í lífinu er tveggja ára í dag. Að því tilefni var leigð skurðgrafa til að djöflast fyrir utan gluggann. Svona hefur Bubbi byggir mikil áhrif á áhugamálin.
---
Ég hef ekki sakað neinn um spillingu. Ef einhver heldur því fram bið ég um að lögð verði fram sönnunargögn.
---
Ha ha ha! "Tantra-hópurinn" hittist aftur hjá Sirrý í kvöld. Plús: Fyrsti þátturinn af íslenska Bachelor! Royal aumingjahrollur komming öpp!

21.09.05
Helvíti ætlar veturinn að skella snemma á. Lenti í geðveikri slyddu áðan og Esjan er orðin hvít. Hlýt samt að geta drattast á ana einu sinni enn eða svo í ár. Haustið og veturinn er annars hið fínasta mál, ég er alveg að kaupa dimmuna og kuldann enda væri maður á frekar vitlausri hillu ef maður gerði það ekki. Allskonar jákvæðni má tína til. Til dæmis er Kvikmyndahátíð alveg að bresta á og eflaust hægt að finna e-h almennilegt þar. Í Bæjarbíói eru svo sýningar Kvikmyndasafns 2x í viku á allskyns gömlu stöffi, mörgu þrælspennandi. Finn hvergi línk á dæmið en bæklinga með dagskránni er hægt að finna um allan bæ, t.d. pikkaði ég upp bækling á Borgarbókasafninu áðan.
---
Þó flestir séu mér ósammála finnst mér Family Guy hundfúll þáttur, eitthvað svo mikill rembingur. Hér er verið að gera grín að Björk og satt að segja er þjóðerniskennd minni stórlega misboðið!
---
Ég sé örugglega Wedding Crashers einhvern tímann á videó og hef þokkalega gaman af nema ég sofni yfir henni miðri, en þetta er aftur á móti ægilega skemmtilegt. Hver sem vettlingi getur valdið má setja hausinn á sjálfum sér í stað félaganna Óven og Vins.
---
Aumingja Makkartnei datt ofan í gat í Florída. Hann heldur þó ótrauður áfram tónleikaferðinni og vonandi næ ég að sjá hann í okt.
---
Og svo auðvitað Michael Bolton í kvöld. É ræt!
---
Uppáhalds dagarnir mínir í Hagkaup standa nú yfir, Amrrrískir dagar. Margt rándýrt og helvíti fitandi drasl í boði að vanda; fokdýrt Starbökks og beef jerki í 20 gr poka á 700 kall svo eitthvað sé nefnt. Ben og Jerrys, best ís í heimi, er þó kominn í 499kall sem er bót í máli. Þeir geta samt treyst á mig enda rótarbjór í boði, ú la la. Rótarbjór er ekki bjór og ekki áfengur en var kallaður "bjór" í árdaga til að gera drykkinn meira aðlaðandi fyrir kúrekana. Mér skilst að engin hafi viljað drekka óáfengt í þá tíð. Enginn hefur náð yfirburðarstöðu í þessum bransa eins og í kókinu og því mörg hundruð tegundir í boði og svona álíka bransi að smakka það allt eins og að smakka allt léttvín í heiminum (þó rótarbjórinn sé reyndar bara búinn til í USA). Hingað til hafa Hagkaup flutt inn rótarbjór af tegundunum A&W, Shasta og Best yet, sem allt eru "bónus" tegundir og ekki eins svakalegt gúmmilað og bestu sortirnar. Nú er boðið upp á Supervalu Super Chill, sem eins og sjá má hér fær ekki sérlega góða dóma, enda enn ein "bónus" tegundin. Skiptir ekki máli, ég er búinn að birgja mig upp. Þess má svo bæta við að ég þekki engan sem finnst rótarbjór góður, reyndar finnst flestum þetta ógeðslegt!

20.09.05
Æsland erveifs ætlar að vera dúndurgóð í ár, sýnist mér. Á línknum má sörfa og ná í ýmiskonar dúndurstöff, slatta af mp3 meira að segja. Til dæmis ný lög með Ælu og Hairdoctor, sem bæði eru þónokkuð æðislegri en úldinn mannaskítur. Erlendu böndin eru ekkert slor þó hér sé kannski enginn algjörlega heimsfrægur. Nægir að nefna Architecture in Helsinki, Clap your hands say yeah, Junior Senior, Fiery Furnaces og Lo-Fi-Fnk því til staðfestingar. Þá er bara að væla út VIP því ekki nennir maður að bíða í 3 km biðröð fyrir utan Gaukinn. Það væri nú óskandi að hægt yrði að koma þessu í Höllina eða eitthvað því blessuð hátíðin er algjör sardínudós þegar best lætur.
---
Ég nenni ekki að koma með nýjan topp fimm fyrr en eftir viku. Sorrí.
---
Ensími tapaði fyrir Ske. Mörg önnur óvænt úrslit eru framundan í Poppppunkti.
---
Er dissaður biggtæm af engum öðrum en Megasi í Stúdentablaðinu sem fylgir með Fbl í dag ("sumir ættu nú að sleppa því að fílósófera" segir hann um mig og gefur þannig í skyn að ég sé hálfviti). Veit eiginlega ekki hvernig ég á að taka þessu, er auðvitað gráti næst að Megasi skuli ekki þykja ég undursamleg mannvitsbrekka því það þarf ekki að spyrja að því hvað mér þykir hann æðislegur. Megas hefur víst svona ægilegan skilning á sjálfsmorðssprengjugaurunum sem ég sagðist einhvern tímann ekkert skilja í í DV. Var ég þá að tala um liðið sem sprengdi sig í London og sagði eftirfarandi: Hvað þyrfti eiginlega að ganga á til að ég myndi sprengja mig í loft upp og eins marga og ég gæti í leiðinni? Myndi ég gera það ef búið væri að drepa alla ættingja mína? Hvaða geðveikislegu ranghugmyndir þyrftu til að ég myndi fórna mér fyrir einhvern málstað eða trú? Hvers konar yfirþyrmandi sjálfselsku og frekju þyrfti ég að ala í brjósti til að finnast að lífi einhvers fólk út í bæ væri réttlætanlegt að fórna fyrir það sem ég trúði á? Þetta eru spurningarnar sem brenna á manni í góða veðrinu í ljósi nýjustu tíðinda frá London. Æi ég veit það ekki. Ég held ég fari bara að grilla.
Hér segir frá sjálfmorðssprengjugaurunum. Get ómögulega séð að þeir hafi átt ömurlegt líf í flóttamannabúðum og því hlýtur trú (á yfirnáttúru eða málstað) að hafa rekið þá í dauðann. Í Palestínu aftur á móti er að mér skilst búið að pína menn manni fram af manni í flóttamannabúðum og ef við Megas værum í sömu sporum værum við eflaust löngu búnir að blasta okkur í tætlur í Kringlunni og drepa einhverjar kerlingar með Bónuspoka og börnin þeirra og púðluhundana. Eina lausnin á ofbeldi er auðvitað meira ofbeldi eins og öll hugsanleg dæmi sanna. 

19.09.05
Kominn heim riðandi á fótunum eftir dásamlega nautnaferð til Parísar. Fórum þetta Lufsan + tvö vinapör og fengum herbergi hlið við hlið á fimmtu hæð á Hotel Paris Rivoli, sem við Lufsan vorum á í fyrra líka. Hægt var að sitja á svölunum og glápa á lífið á Rue de Rivoli, sem er einskonar Laugarvegur Parísar. Eiffel, Pompidú, Sacre Coer og þetta sjitt klikkaði ekki en Porte de Clingnancourt flóamarkaður er rusl, eða allavega það sem við sáum. Ekkert nema föt sem svarti maðurinn fílar (ljót körfuboltaíþróttaföt, Rastadrasl, et al) Engin fjölbreytni í vöruvali og vonbrigði. Þá kíktum við Steini Sleggja inn í nokkrar klámbúllur við Pigalle, m.a. eina stóra þar sem 30 eða svo tosklefar stóðu í röðum í myrkri á efri hæð. Þarna var gífurlegur hávaði í klámmyndum og svo í körlum sem voru að njóta erótískrar listar. Kíkti inn í einn klefann og gat ekki séð hvar meiningin væri að losa gumsið. Sá þá stóra feita svertingjakerlingu eins og beint út úr Tomma og Jenna teiknimynd með bleika gúmmíhanska og moppu. Líklega ömurlegasta djobb í heimi en konan virtist svaka glöð og söng við raust gamla negrasálma á meðan hún moppaði klefagólfin í myrkrinu.
---
Fórum á vandaða matsölustaði á hverju kvöldi. Ég pantaði undir nafninu Doktör Gúnní, enda vonalaust að nota Jálmarsson. Fengum við því góða þjónustu, besta stað í húsinu og slíkt, og er þetta þá líklega í fyrsta skipti sem ég græði eitthvað á Doktörs-nafninu.
---
Þetta er veitingarhúsin:

Nos Ancetres Les Gaulois, 39 rue Saint-Louis-en-l'Île, París XXXX
Magnað risavaxið pleis í aldagömlum katakombum á þessari eldgömlu eyju í miðri Signu. Nafnið þýðir "Forfeður okkar Gaulverjarnir" og er allt í svona Ástríx-stemmingu þó honum hafi per se ekki verið stillt upp á staðnum. Þjónarnir voru eiturhressir og maður mátti henda sígarettunum á steingólfið. Þeir sögðu að svínin væru tekin fram og látin hreinsa til eftir lokun. Til að byrja með var sett á borðið gríðarleg karfa troðfull á grænmeti sem maður átti að búa til salatið sitt sjálfur úr. Svo var hlaðborð með ýmsu kjöti og dóti. Svo gat maður valið um aðalrétt og eftirrétt. Allt þetta á 35 Evrur á kjaft. Að auki voru rauðvínstunnur á svæðinu sem maður mátti gangi í að vild enda rúlluðu að lokum allir út fullir og magasíðari en áður. (Heimasíða)

Chez Paul, 13 Rue de Charonne, París XXXX
Ekta franskt og unaðurinn einn. Gráðostafylltur héri og eitthvað meira sem ég man ekki enda með nokkra fokdýra kokteila í maganum sem við héldum að við værum að kaupa á happy hour (á skítabúllunni Boca Chica sem ber að varast. Vilji fólk ódýra kokteila (5 evrur stk) má mæla með happy hour á glansbarnum á 35 rue Vieille-du-Temple (til kl. 20). Franskt og þægilegt pleis.

Chez Omar, 47 Rue de Bretagne, París XXXX
Kússkúss aldarinnar! Hrikalega vel útilátið og kjötið meirt eins og rjómi. Í Lonely Planet-bókinni er tekið fram að þjónarnir á þessu pleisi séu furðulegir og reyndist það rétt. Einn arabatittur var með eintóma stæla og grín sem maður tók bara enda maturinn of góður til að væla. Hann hélt því m.a. fram heillengi að það væri ekkert kússkúss til í húsinu og þegar hann bar fram expressóið þóttist hann hella yfir Steina. Í smástund frusu allir en þá var karlskrattinn með tóman bolla. Mæli með Royal Couscous-inu sem inniheldur einhverjar 4 kjöttegundir. Óheyrilega gott.

Ambassade d'auvergne, 22, rue du Grenier Saint-Lazare, París XXXX

Ægilega fínt pleis sem reiðir fram mat frá Auvergne hérðinu og er staður sem veitir vel og mikið. Ýmiskonar gúmmilaði í forrétt, m.a. pylsur og hráskinkur frá héraðinu. Nautakjöt í aðalrétt voru mistök, en ég smakkaði líka perluhænsn (Guinea-fowl) og í eftirrétt var hrikalega gott chocolate-múss í 2 lítra skál svo allir átu yfir sig. Þjóninn var dáldið þurr til að byrja með en linaðist upp í góðu gríni eins og t.d. með því að láta sem 2 lítra múss-skálin væri fyrir Lufsuna eina. Topp stöff og það má algjörlega mæla með öllum þessu fjórum hér að ofan. Muna að þykjast vera Doktör til að fá góða þjónustu. (Heimasíða)
---
Nú tekur bara gamla hjakkið við og er það nú bara fínt enda lýjandi að vera of lengi í fríi. Mun þó hugsanlega fara til NYC til að sjá Paul McCartney í kringum fertugsafmælið mitt í byrjun okt.

12.09.05
Hef fengið fyrirspurn frá útlöndum: I sat in the main square in Reykjavik on Friday 15 July 2005 and listened to an incredible jazz band just after lunchtime. Who were they and how can I buy their stuff? I think they were 4 guys all under 20 who popped out of a red van, played for 20 mins. then popped back in without saying a thing. The electric piano and sax guys were the main men. Veit einhver eitthvað? Senda mér þá línu.
---
Í Vefsjónvarpi Skjás eins má glápa á gamla Popppunktsþætti. Síðustu fjórir verða framvegis vistaðir. Svo má sjá okkur fjölskylduna í Brúðkaupsþættinum Já frá 9. ágúst.
---
Grímur bassaleikari sækist nú eftir að komast í það iðandi skemmtilega djobb sem býðst í Ráðhúsinu. Hann lofar öllu fögru auðvitað, t.d. Dr. Gunna sem aðalnúmer á 17. júní á hverju ári. Nei nei. En hann er allavega farinn að blogga á ný, enda er það ágætis leið til að komast í fjölmiðla. Sjáið bara Össur. Hvar er annars bloggið hans Gísla Marteins? Það hlýtur að koma.
---
Ég get því miður ekkert gert af því þótt Rúnar og synir hafi valtað yfir Káta pilta í gær. Sem betur fer eru svona burst ekki algeng í þeim 7 leikjum sem eftir eru í 16-liða keppninni. Næsti leikur, Ensími - Ske, er t.d. stórhættulega spennandi.

11.09.05
Sunnudagur þýðir skefjalaus sjálfsprómótering. Ég minni auðvitað á Tónlistarþátt Dr. Gunna á Talstöðinni kl. 16. Allskonar gæðagott + smá vínkill á New Orleans senuna (sem var?). Menn voru í grottagóðu grúvi þar framan af. Klukkan 20 er svo komið að fyrsta 16-liða-úrslitaþættinum í POPPPUNKTI STJÖRNUMESSU. Nú byrjar gleðin fyrir alvöru og fyrsti leikurinn er Kátir piltar á móti Rokksveit Rúnars Júl. Er óhætt að tala um að gleðin sé þar við völd en við spyrjum að leikslokum.
---
En nú er það Topp Fimm, en ekki hvað?


Benni Hemm Hemm - I can love you in a wheelchair baby: Benni úr Rúnkinu hefur gefið út magnaða plötu. Lúðrasveita-öðlingspopprokk a la Belle & Sebastian og svei mér þá bara ein besta íslenska plata ársins. Smákökurnar gefa út og hér er öruggur hittari, Ég get elskað þig í hjólastól vinan.


Útvarp Matthildur: Í öllu því halalújabauli sem nú heyrist úr þjóðfélagsfjósinu vegna breytingana í atvinnumálum Davíðs Oddssonar gleymist tiltakanlega að nefna eitt það albesta sem Davíð hefur gert: Útvarp Matthildi. Einhvern veginn slapp framúrstefnugrín Davíðs, Þórarins Eldjárn og Hrafns Gunnlaugssonar í gegnum fúla möskva Ríkisútvarpsins og fékk að grasserra á öldum þess staðnaða ljósvaka veturinn 1971-72. Ég get rétt ímyndað mér upplitið á peysufatakerlingunum. Þetta var svona álíka grínbylting og Monty Python, get ég trúað. Daginn eftir að Davíð tilkynnti um breytingarnar keypti ég diskinn með úrvali af því besta úr þáttunum. 

Þegar Hitler var fimm ára
Maður heyrði þetta í æsku og fannst sumt fyndnara en annað. Þegar ég renndi í gegnum diskinn komst ég að því að það fyndnasta er ennþá fyndnast. Nægir að nefna Gestur Svavarsson sendir jólakveðjur ("segðu amma, Nonni minn"), Þátturinn Eftir hádegi (í þessum skets fer Davíð á algjörum kostum sem óskalagaplötusnúður), Þingeyjarsýslurannsóknin og Styrjaldarleiðtogarnir. Hver man ekki eftir setningunni – "Þegar Hitler var fimm ára sagði hann við móður sína: Haltu kjafti helvítis druslan þín!" Algjör eðalklassík hér á ferð og mun betra stöff en "Hátíðaræður Ólafs Thors" sem líka eru til á disk en ég get ekki ímyndað mér að nokkur hafi gaman að. 

Kombakk?
Davíð hefur hingað til verið frekar frumlegur náungi og því voru fréttirnar um nýja djobbið úr karakter miðað við hann. Fyrirsjáanlegt og af gamla skólanum. Best hefði verið að Davíð hefði lokað hringnum og endurvakið Matthildi með Hrafni og Þórarni. Ég get ekki séð að þeir hafi eitthvað betra að gera. Þá fengi þjóðin notið gamla góða grín-Davíðs og hann fengi fyndna og jákvæða útrás fyrir pirring í garð Baugs, Ingibjargar og annara aðila sem hafa verið að bögga hann. Þetta yrði magnað stöff, gæti jafnvel verið sjónvarpsþáttur. Kæmi vel til greina í stað Spaugstofunnar, sem hlítur hvort eð er að vera algjörlega óstarfandi eftir að Davíð hætti.
(úr DV í gær)


Kanye West - Gold digger (feat Jamie Foxx): Loksins jákvæður rappari, ekki fífl að tala um "tussur" og það hvað hann er ríkur. Kanye hefur m.a. vakið athygli fyrir að tala gegn hómófóbíu í rappinu og svo fyrir að drulla yfir Bush í beinni, sem ég verð að játa að var stönt sem vakti athygli mína á þessum gaur. Nýja platan, Late Registeration, fær dúndurdóma víðsvegar enda djöful þétt og glæsileg. Þetta er vægast sagt smurður hittari sem maður fær á heilann.


Jason Forrest - My 36 favourite punk rock songs: Þennan náunga hef ég bloggað um áður, eldri gaur með skæri í New York. Nú hefur hann tekið 36 uppáhaldspönklögin sín og slengt í eitt drulluflott trakk. Þetta verður víst á nýjustu plötu meistarans, Shamelessly Exiting, sem kemur út í október.


Baggalútur - Kallinn: Baggalútur er þrímælalaust það besta á netinu í dag og þessir ofbeldishneigðu amfetamínsjúklingar hafa nú gert plötu sem fær meðlimi Brimklóar og Lónlí Blú Bojs til að svelgjast á uppsöfnuðu munnvatni. Hér er hrottagott sýnishorn, byggt á arfleifð hinna stórfenglegu Kalla. 
---
Talandi um Kallana þá skilst mér að hinn helskorni Ceres 4 hafi gefið út þá yfirlýsingu að aðal-Kallinn, Gilzenegger sé "eiginlega frekar búttaður bara". En þó Gilze sé með lafandi brjóst (skv. C4) má hann þó eiga það að vera voða fínn penni, t.d. voru hróp hans á fituvarnarátak í DV á föstud fínt stöff.
---
Fór í brúðkaupsveislu í Perlunni í gær þar sem Halldór Gylfason Geirfugl var veislustjóri. Hann sagði brandara: Mamma Nonna litla, 12 ára, var að taka til í herberginu hans og fann blaðastafla undir rúmi. Við nánari athugun sér hún að blöðin eru öll sadó/masó klámblöð af svæsnustu gerð. Konugreyið fær sjokk, hringir í kallinn sem brunar beint heim úr vinnunni. "Hvað eigum við eiginlega að gera?" spyr konan þegar hún hefur greint manninum sínum frá málavöxtum. "Ja," segir hann, "við getum allavega ekki flengt hann".

07.09.05
Stórfréttir! Davíð Oddsson loksins hættur. Hér er fallegt lag í tilefni dagsins.
---
Snillingarnir í Sigur Rós komnir með videó við Glósóla. Gullfallegir krakkar galsast í gullfallegri náttúru. Engir strákar fara í sleik í þetta skiptið og ekkert down syndrome heldur, en klassísk snilld engu að síður.
---
Fór á Land of the Dead, sem er nú svona og svona. Alltaf skemmtilegra á þessum zombímyndum þegar þær gerast á daginn. Eiginlega meira skerí þannig en í myrkri.

06.09.05
Hvað varð um fræga fólkið í New Orleans? Meistari Alex Chilton (sá sem söng "The Letter" og var í hinu snillingslega bandi Big Star) var týndur en er reyndar fundinn núna. Honum var bjargað af húsþaki á heimili sínu í franska hverfinu. Annars er svakalegt hvernig heil borg virðist bara alveg búin að vera sem slík. Og fáránlegt það sem yfirvöld segja að þau hafi bara ekki getað séð þetta fyrir. Þessu var nákvæmlega lýst í Lifandi vísindum fyrir 2 árum síðan! Ég ætla rétt að vona að það fari nú að styttast í annan endann á vonlausri forsetatíð GWB og hans skuggalegu kóna.
---
Ég held ég hafi ekki skoðað erlenda fjölmiðla jafn mikið núna og síðan 11/9. Það er ekki á hverjum degi sem heimsendir rennur upp. Svakalegt að sjá sumt, eins og t.d. viðtalið við sýslumanninn í Jefferson, líka hvernig fréttamenn hjá Fox (stöð hins illa) gátu ekki tekið þátt í lýginni lengur og komu hreint fram. Maður veit ekki alveg hvert skal fara til að fá réttan fréttaflutning á stundum eins og þessum svo maður hefur verið tékkandi á Washington Post, Nytimes, Michael Moore, Crooks and Liars og Drudge report. Eftir 9/11 var auðvelt að æsa liðið í að ráðast á Afganistan og Írak, en hvað ætla þessir brjálæðingar að gera núna? Samþykkja Kyoto bókunina? Nei, örugglega ekki!

04.09.05
Þriggja ára leðurbrúðkaupsdagur hjá okkur Lufsunni í dag. Hún fær stígvél, ég fæ belti. Stór dagur. Fyrsti Popppunkturinn (Forleikur) svo náttúrlega í loftið á Skjá einum kl. 20 í kvöld og svo tónlistarþáttur Dr. Gunna að vanda kl. 16. Ekki má heldur gleyma Topp 5 sem er hér:


Ernie K-Doe - Here come the girls: Sálar-meistari frá New Orleans, en fréttir þaðan minna helst á zombie-mynd þessa dagana. Öskrandi hrollvekja. Fyrir utan mannlegar hörmungar þá er væntanlega öll menningin, hið léttleikandi mardi gras djass gúmbó stuð, fyrir bí. Annars sýnir aðgerðarleysið framan af bara almennt afskiptaleysi ameríska þjóðfélagsins fyrir þeim sem minna mega sín. Það er búið að gefa skít í hina fátækustu áratugum saman og afhverju ekki að halda því bara áfram þótt flóðbylgja hafi riðið yfir? Eins æðisleg og Ameríka getur nú verið þá er þetta ótrúlega sikk stöff á öðrum sviðum. 


Fan Houtens Kókó - Grænfingraðir morgunhanar: Af fyrri spólunni "Musique Elementaire" (1981). Sú seinni heitir "Það brakar í Hr. K" og kom 1982. Báðar í 150 eintökum. Báðar mikil snilld, stöff sem æpir á endurútgáfu. Bandið var náttúrlega "súrrealískt popp" og skipað 4 af Medúsu hópnum: Einari Melax, Þór Eldon, Ólafi Engilbertssyni og Matthíasi Matthíassyni. Strákar innan við tvítugt á þessum tíma. Jafn ferskt nú og þá.


Felix Kubin - Hello: Hér er mættur dúndurhress Þjóðverji (sjá mynd) með kóver af einu leiðinlegasta lagi mannkynssögunnar. Af plötunni "Matki wandalki".


We Are Wolves - Non Stop: Kanadískt skítaelektrópönk. Slefandi gott á grill stuðsins.


Wynton Marsalis - Benediction: Annar New Orleans-ari, hér hinn virti djass-blásari. Heyrði þetta í svefnrofanum fyrir viku. Lagði mig í hádeginu og það var verið að spila þetta á Gufunni. Flott stöff. Er maður að fara í djassinn núna? Tja. Er náttúrlega að verða 40 og svona. Nei nei. Kannski bara í bland.
---
Ný Bjögga saga! Við erum stödd á heimili Bjögga. Síminn hringir.
Bó: Já?
Ónefndur starfsmaður Saga film: Sæll. Þetta er XXX. Ég er að bóka í nýjan þátt Hemma Gunn, það var lagið. Okkur langar að bjóða þér í þáttinn.
Bó: Það var lagið... Hvað er það?
XXX: Svona skemmtiþáttur þar sem gestir leika á alls oddi og syngja og svara léttum spurningum.
Bó: Nú já. Hvað fæ ég borgað?
XXX (hikandi): Eh, hérna...
Bó: Tuttugu þúsund og málið er dautt!
XXX: Eh nei, við erum nú ekkert að borga fyrir þetta.
Bó: Er það ekki nei? Hvað færð þú borgað fyrir að hringja í mig?
Tjaldið.
---
Um helgina tókst mér að sofna yfir tveim myndum: Mala Education eftir Almodovar. Sýndist þetta vera eitthvað hægt hommadrama, hugsanlega 3 af 4, og svo The Interpretor sem var eitthvað svona spennudót, líklega 3 af 4 líka, en dálítið sló líka.

02.09.05
Einn góður frá Birni Jörundi: Jón Ólafsson: Fyrsti vinningur í Idolinu.
---
Sænski Elvisinn sýnir yfirgengilega takta.

01.09.05
Ágætis karlrembubrandari sem ég heyrði á settinu í gær:
Það var verið að taka upp á Ungfrú Ísland-keppninni á Hótel Íslandi. Ónefndum starfsmanni Broadway varð þá að orði: Nei, er verið að taka upp fyrir þáttinn Allt í druslum?

31.08.05
Popppunktsupptökur á fullu. Ofsa fínt. Sýningar byrja á sunnudaginn. Svaka fínar prómómyndir og svona, eða þannig. Ég er eins og api í þessu dómaradressi. En þetta þótti voða sniðugt:

29.08.05
Þegar ég hætti að æla byrjaði Dagbjartur að æla. Lufsan hlýtur að taka þetta upp fljótlega. Annars er ég ennþá helvíti slappur í maganum, leyfði hálfum Big n tasty (eða hvað þetta heitir, þessi mac með grillbragðinu), sem er kannski ekkert skrýtið því hann er reyndar viðbjóður. Merkilegt hvað manni langar stundum ógeðslega mikið í Mac eða KFC og svo þegar maður er búinn að éta þetta er eins og maður sé orðinn þunglyndur og finnst eins og einhver hafi skitið upp í sig. Hlýtur að vera einhver dularfull gerfiefni í þessu.
---
Trommuleikarinn úr Doors tjáir sig um hóriríið í rokkinu. Honum er ekkert vel við Ray Manzerak, þarna hljómborðsleikaranum. Ekki ósvipað þessu (talandi um að við séum öll hórur og bla bla bla). Eða nei nei, hvadda mar?! Veltu mér upp úr deigi kapítalismans og djúpsteiktu mig í potti stundargleðinnar!, eins og gamla konan sagði.
---
Nú er Frikki kokkur sem sló í gegn á veitingarhúsum í New Orleans, en var reyndar líka heróínsjúklingur, einhvers staðar hlaupandi um undan fellibyljinum Katrínu. Ljótt ef satt er.
---
Fór á vinnustofu Jóns Sæmundar í dag. Algjör snillingur. Kíkti svo á sýningu annars snillings, Halldórs Péturssonar, í Gallerý Fold. Allt fullt af myndum en því miður allar seldar, allavega þær sem mig langaði í. Maður hefði getað fengið listaverkalán og allt.
---
Í Pitchfork í dag er grein um hnignum tónlistarinnar, eða þann gapandi mun sem er á milli þess sem gagnrýnendum finnst og svo þess sem fólk kaupir. Athyglisvert er að bera saman 10 best seldu plöturnar í USA, sixtís / næntís (eins og hann er settur fram hjá Webalmanac). Það sést að gagnrýnendur og kaupendur virtust á sama máli á 7. áratugunum. Besta tónlistin var að seljast best:

Best seldu plöturnar í USA, sixtís:
1 The Beatles White Album 
2 Led Zeppelin II
3 Abbey Road
4 Sgt. Pepper's Lonely Hearts Club Band
5 Led Zeppelin I
6 Magical Mystery Tour 
7 Rubber Soul 
8 More Of the Monkees
9 The Monkees 
10 Revolver 

(Allt tímalaus snilldarverk, m.a.s. Monkees!)

Og svo er það hið sorglega næntís:

Best seldu plöturnar í USA, næntís:
1 Come On Over Shania Twain 
2 The Bodyguard Movie Soundtrack 
3 Jagged Little Pill Alanis Morissette
4 Cracked Rear View Hootie & the Blowfish
5 No Fences Garth Brooks
6 Double Live Garth Brooks 
7 Supernatural Santana
8 Backstreet Boys Backstreet Boys 
9 Ropin' The Wind Garth Brooks 
10 Baby One More Time Britney Spears 

(Allt viðbjóður). 

Hvað er málið? Er fólk með verri smekk en það var? Er þetta afleiðingin af því að nær öll plötusala er á vegum fimm risafyrirtækja þar sem hámarksgróði er eina markmiðið? Hver sem ástæðan er er þetta að minnsta kosti afar sorgleg þróun. Segir kannski bara allt sem segja þarf um þróunina á síðustu 40 árum eða svo.

28.08.05
Tónlistarþátturinn í dag kl. 16 en nú: Topp 5.


Moondog - Chaconne in G: Blindur víkingur sem stóð á götuhorni en var ekki róni heldur mikilfenglegt tónskáld. Tékka á því öllu betur hér. Þetta verk er af plötunni "Moondog in Europe".


Kevin Blechdom - Love you from the heart: Einhver kona. Var áður í Blectum from Blechdom. Minnir smá á Egil Sæbjörnsson.


The Real Tuesday Weld - Bathtime in Clerkenwell: Náungi í London. Gaman þegar gamalt sullast við nýtt.


The Pop Group - We are all prostitutes: Nokkur umræða um Che eða Thatcher á bolum og pennaveskjum hefur staðið yfir hjá Agli Helgasyni. Hér eru Pop Group með sitt þrumuskot. Annars er augljóst afhverju fólk vill ekki ganga með Thatcheri eða Ronald Reagan á bolum. Þau eru gömul og ljót. Che var þó allavega kúl. Við erum þó öll hórur hvað sem tautar og raular.


Kimono - Sonar: Nýja platan er topptorf sem venst eins og vaselín.
--- 
Lítið að frétta annars. Búinn að vera með ælupest. Fór á grænmetismarkað í Mosfellsdal. Gulrætur eru góðar.

---
Blogg fortíðar hér: