12.06.09
Það væru mistök sem jöðruðu við
landráð ef þú misstir af POPPPUNKTI
í kvöld. Þá mætast Sigur Rós (allir
nema Jónsi) og Áhöfnin á Halastjörnunni
(Hemmi Gunn, Gylfi Ægis og Ari Jóns) í hreint æðislega
kostulegum þætti. Einstaklega magnað!
11.06.09
Eva Joly er eins og sambland af Chuck Norris og Vigdísi. Hún
er okkar eina von til að koma vondu körlunum bak við lás
og slá. Við erum öll ömmur okkar og afar og munum
humma fram af okkur hrunið. Afhverju ætti að gera það
upp, verður byrjað að segja eftir ár. Við tókum
öll þátt í þessu og nú er gengið
búið að styrkjast og bjart framundan. Ha, eigum við
ekki bara að gleyma þessu? Svona verður þetta nema
það verði gengið í verkið og peningum dælt
í Evu. Gott hjá henni að hella niður baununum. Og
talandi um Vigdísi. Væri ekki ráð að fá
hana aftur í embætti? Hún er á launum hvort
sem er. Skiptin þyrftu ekkert að fara hátt. Myndu bara
gerast eina nóttina. Daginn eftir væri Vigdís orðinn
forseti aftur eins og hún hefði aldrei hætt og gæti
strax byrjað að gróðursetja. Enginn myndi nokkurn tímann
aftur minnast á hinn. Hinn hvern? Lifi Vigdís forseti! Það
segir sig sjálft að á svona bömmertímum eins
og núna hefur þörfin fyrir „sameingingartákn þjóðarinnar“
aldrei verið meiri. Mér er alveg sama hvað hver segir: Vigdís
er minn forseti.
---
Dóttir Gunnars Birgissonar, dóttir Gunnars Birgissonar...
þetta hljómar endalaust en aldrei sér maður mynd
af konunni og það er ekki einu sinni sagt hvað hún
heitir. Maður sér bara fyrir sér einhverja smástelpu
með tíkarspena. Heitir þessi kona ekki neitt? Eða
er nafn hennar of hræðilegt til að það megi segja
það í fjölmiðlum? Nei nei, blessuð konan
heitir nú bara Brynhildur og er ábyggilega frábær
eins og pabbi sinn. Ég fann hana þegar ég gúgglaði
Frjálsri miðlun. Fann reyndar enga heimasíðu fyrir
það fyrirtæki enda þarf maður enga heimasíðu
þegar maður fær endalaust djobb hvort sem er. Ég
fann hana á enn einni spillingarsíðunni, Litla
Ísland. Þar eru endalausir köngulóarvefir
um tengsl viðskiptalífsins. Ég veit ekki hvað maður
græðir á þessum köngulóarvefjum nema
að fallast hendur. Og ekki veit ég hvað ég græði
á því að vita að konan heitir Brynhildur. En
allavega...
---
Sá "Ólaf í Samskip" og konuna hans keyra flóttalega
frá verslunarmiðstöð í Mosfellsbæ um daginn.
Eða ég dró þá ályktun að þau
væru flóttaleg. Ég væri allavega flóttalegur
ef ég væri einn af þessum 30-50 eða hvað þetta
er. Hin frábæru menningarhjón sem hafa hent klinki
í fjölmarga listaræfla voru náttúrlega
á gulljeppa og kannski ekkert flóttaleg, heldur kannski bara
skellihlæjandi af öllum fíflunum og étandi upp
úr gullflögusnakkpoka.
---
Með peninga á
heilanum er Bakþankinn í dag.
10.06.09 - Hermt eftir stjörnuljósi
Hermigervill
- Starlight
Hermigervill er að senda frá sér plötuna Hermigervill
leikur vinsæl íslenzk lög. Þetta er góð
stuðplata svo ekki sé meira sagt. Hér er fréttatilkynningin
beint af kúnni: 16. júní gefur Sveinbjörn
Thorarensen út sína þriðju breiðskífu
undir listamannsnafninu Hermigervill, Hermigervill leikur vinsæl
íslenzk lög. Hermigervill leitar víða fanga í
sinni tónlist. Fyrsta platan hans, Lausnin, var hip-hop skotið
sampl-mósaík í anda DJ Shadow og Avalanches. Á
næstu plötu, Sleepwork, var vínylsnarkið enn áberandi
og hljóðsmalanum beitt óspart, en ýmis popp-element
læddust með, gítar hér, söngkonur þar.
Síðan þá hefur Sveinbjörn sífellt bætt
við sig andlitum og gert léttpopp, diskófönk, naumhyggjutekknó,
sveim, hiphop, undirspil fyrir nútímadans og gjörninga,
auglýsingastef og endurhljóðblandað lög fjölda
listamanna (Gusgus, Quarashi, Walter Meego, Reykjavík!, Sometime
o.s.frv.). Samhliða þessu hefur hann stundað hljóðupptökunám
í Hollandi og sankað að sér aragrúa úreltra
raf-hljóðfæra. Raftónlistarsagan er Hermigervli
nefnilega hugleikin og það endurspeglast í þessari
þriðju breiðskífu.
Nýja platan inniheldur einungis instrúmental ábreiður
af þekktum íslenskum dægurlögum, sem færðar
hafa verið í undarlegan, ef ekki hálf vitskertan hljóðgervlabúning
þar sem hið kjánalega og fagra eiga óvænta
samleið. Fyrst þegar farið var að framleiða hljóðgervla
fyrir almenning, á sjötta og sjöunda áratugnum,
varð vinsælt sport að taka upp þekkt lög og klassíska
tónlist í rafvæddum útgáfum. Má
þar nefna listamenn eins og Wendy Carlos og Jean-Jaques Perrey og
fjölda minni spámanna. Þessi tónlist hefur nú
á dögum ómótstæðilegt aðdráttarafl
liðinnar framtíðar: í senn hallærisleg og hugvitsamleg,
einstök í hljómi en kunnugleg í tónum,
einlæg í yfirborðskennd sinni – ein alsherjar yndisleg
mótsögn.
Plata Hermigervils er að miklu leyti eftir þessari retro-forskrift,
en þó ekki í þeim skilningi að apað sé
eftir öllu í köldu og kalkúleruðu háði
– þó hljómurinn standi í þakkarskuld við
tilraunamennsku sjöunda áratugarins greinir margt á
milli. Einfeldingurinn hann Hermigervill hefur miklu frekar tileinkað
sér sjálft hugarfar gömlu rafgúrúanna:
Hann hefur einlægan, barnslegan áhuga á tækninni
og tólunum og ber jafnframt einlæga ást til dægurperlanna
sem hann leikur. Hann langaði að klæða þessi lög
í sinn brenglaða búning einfaldlega því
þannig mátti sameina tvær ástríður.
Sá búningur er, eins og áður segir, í
grunninn ofinn úr tærum, hliðrænum hljóðgervlatónum
fortíðar, en jafnframt úir og grúir af öllum
mögulegum (ó)hljóðum: Hermigervill leikur á
fiðlu, bassa, þeremín, gítar, trommur og tilfallandi
hluti, skankar skífum og klippir og brenglar fundin hljóð,
eigin rödd og annarra verk til að fylla upp í hljóðmyndina,
svo gamlir aðdáendur munu kannast við sinn mann. Á
endanum snýst þó allt um sígildar, þjóðþekktar
laglínur, sem ráða algerlega för.
Eftirfarandi lög eru á plötunni:
Dans dans dans
Glugginn
Starlight
Í bláum skugga
Vegir liggja til allra átta
Sveitin milli sanda
Hótel Jörð
Garden party
Þorparinn
Leyndarmál
---
Gestaslíffeis #1:
Óskar Pétur sendi: Ceres 4 verður ekki ánægður
með þessa bumbu.
09.06.09
Að gera svona:
er stuð. Hér er síða sem heitir Sleeveface
og hér er önnur: Waxidermy.
Ég er búinn að gera tvö í viðbót:
og svo auðvitað:
Ég mun birta álíka myndir frá lesendum,
ef einhver er í stuði - en bara með íslenskum umslögum!!!
08.06.09
Ég reyni að láta peninga ekki skipta máli
í lífi mínu. Það er bara svo helvíti
erfitt. Til dæmis verð ég alltaf ægilega bjartsýnn
eftir að hafa dreymt skít. Held að núna detti ég
í lukkupottinn, fjárfesti jafnvel í lottómiða.
Ég kúkaði á mig í spinningtíma og
þurfti fram á klósett að verka mig. Þar fór
allt í handaskol og fyrr en varði voru komnar klessur á
headfónin mín. Þegar betur var að gáð
var þarna allt vaðandi í gömlum skorpnum mannaskít.
Skít úr einhverjum öðrum. Mér var svo mikið
um að ég vaknaði. Þá fannast mér náttúrlega
að þetta hlyti að vera einhvers konar tákndraumur
fyrir Icesave skuldirnar. Ég kúkaði smá á
mig en aðallega var ég að hreinsa upp gamlan skorpinn skít
eftir aðra. Draumurinn er samt náttúrlega bara remix
af raunveruleikanum því Dagbjartur kúkaði í
sig í sundi í gær af því að fara alltof
oft í kollhnís ofan í vatninu. Við fórum
í sund báða dagana. Á laugardaginn voru Bjössi
og Danni úr Ný dönsk ofan í en Björk í
gær. Mikil popplaug, Seltjarnarness. Lufsunni og Dagbjarti finnst
hún besta laugin. Ég er ekki frá því
heldur.
---
Í nágrenni Rvk er ýmislegt að finna. Við
gerðumst bæði veiðiþjófar og sumarbústaðar-skvattarar.
Ég veiddi oft í Selvatni sem polli á lóð
nágranna og fór og tékkaði á vatninu aftur
í gær. Það er miklu minna en það var.
Hentum nokkrum sinnum út með Disneystöng Dagbjarts og náðum
að slíta spún af í stórgrýtinu.
Ég er allur að hitna fyrir veiðidellu. Kannski maður
kaupi sér stöng í Europris. Svo sumarbústaðar-skvöttuðum
við hjá bústað Guðmundar frá Miðdal.
Bústaðurinn ber þess merki að hafa verið í
eigu listamannsins en þarna er hrörlegt og greinilegt er að
bústaðurinn er ekki oft heimsóttur. Skvöttunum var
vitanlega ekki svo römm að við brytumst inn, heldur létum
við okkur bara hafaða að borða pikknikk á lóðinni.
Ef maður á ekki bústað sjálfur verður
maður bara að redda sér. Nóg er nú af tómum
bústöðum út um allt. Auðvitað tekur maður
allt drasl með sér og gengur frábærlega vel um.
Þetta er vin vin sitjúeisjón.
---
Það var þann 12. júní 1999 sem Sigur
Rós hélt útgáfutónleika fyrir Ágætis
byrjun í íslensku óperunni. Ég var reyndar
ekki þar. Á föstudaginn verða sem sé 10 ár
síðan þessi frábæra plata kom út,
platan sem burstaði kosninguna um bestu plötu aldarinnar þegar
Eru ekki allir í stuði? kom út og ég spái
því að platan endurtaki leikinn þegar úrslit
verða gerð kunn í nýjustu kosningunni þann
17. júní. Tilviljun ein ræður því
að á afmælisdaginn þann 12. júní 2009
keppir Sigur Rós á móti Áhöfninni á
Halastjörnunni (Hemma Gunn, Gylfa Ægissyni og Ara Jónssyni)
í Popppunkti (leikur
nr.2). Ég staðhæfi að þessi leikur sé
skrítnasti þáttur PP frá upphafi og er auðvitað
algjört möst sí.
---
Fyrir tíu árum var mikið bözz í gangi
áður en Ágætis byrjun kom út. Ég
hélt því fullum fetum fram við hvern sem er að
þetta væri Lifun okkar kynslóðar. Ég hafði
þó ekki heyrt eitt einasta lag af plötunni. Mér
hafði fundist Von hundleiðinleg en ég sá bandið
taka 1 eða 2 lög á Hótel Sögu á einhverju
ísl tónlistarverðlaunadæmi 1998 og dró þessa
háfleygu ályktun af því. Ég var að
vinna á Fókus, fylgiblaði DV, á þessum tíma
og tók viðtal við bandið. Stíllinn á blaðinu
var fjörugur og gulur og svona pungsveittur nokkuð, enda þannig
stemmning í loftinu. Tvíhöfði var á morgnanna
og líklega Simmi og Þossi seinna um daginn. Ég tók
hið unga óreynda band nokkuð frjálslegum tökum,
spurði strákana út í hassreykingar (kjaftasögur
um það loddi við þá fyrstu árin) og sagði
að þeir væru Þursaflokkur X-kynslóðarinnar.
Við röbbuðum saman á Mokka en svo var tölt oní
Núll til að mynda þá í speglinum. Strákarnir
urðu ábyggilega brjálaðir þegar þeir
lásu viðtalið í blaðinu, allavega var Jónsi
nokkuð fúll í síma þegar ég talaði
við hann næst. Þeir hljóma líka miklu pungsveittari
í þessu viðtali en síðar meir, hafa kannski
ekki verið búnir að stilla saman strengi hvernig eigi að
koma fram í viðtölum á þessum tíma.
Hér
er þetta vafasama viðtal (þökk sé Tímarit
, en þar má nú gramsa í fortíðinni
eins og óður maður).
Sigur
Rós - Flugufrelsarinn læf 1998
Meira Sigur Rós til að halda upp á 10 ára
afmæli ÁB. Hér er smá læf með þeim
af promo diski sem ég átti (en seldi á uppboði,
en hafði þó vit á að kópera fyrst).
Upptakan er af Gauknum einhvern tímann árið 1998 held
ég. Þess ber að geta að þegar ÁB kom
út var enginn að gera svona tónlist svo þetta var
algjört fenómen. Topp stöff, sem stenst allar hugsanlegar
tímatennur.
07.06.09
Íslenska fótboltalandsliðið karla náði
mögnuðum árangri gegn Hollendingum í gær,
varð í öðru sæti og fékk silfrið,
sem eins og allir vita er gulli betra. Ekki nóg með það,
Ísland vann seinni hálfleik með glæsibrag. Áfram
Ísland!
---
Það var allt vaðandi í lífi í bænum
í gær og verður líklega enn meira líf í
dag. Hrikalegur hávaði þegar skipin við höfnina
fóru að flauta. Fjölskyldan þurfti að leggja
á flótta undan þessu. Svo fundum við hvergi þessa
fiska. Annars skil ég ekkert í því afhverju
Laugavegi og Austurstræti er ekki lokað fyrir bílaumferð
á góðvirðisdögum um helgar. Það er
setið á borðum út um allt og mengandi og hættulegir
rúntbílar skríða hjá öllum til ama.
Það er nú varla svo mikil lífskjaraskerðing
þótt fólk geti ekki rúntað af og til. Ætti
frekar að drullast úr bílunum og spóka sig um
í sólinni. Rúntinum verður algerlega ofaukið
þegar sólin skín. Sáum nokkra staði sem
þarf að eta á við fyrsta tækifæri. Nepalska
pleisið á Laugarvegi. Nýr búlgarskur staður
á Vitastíg gengt Geisladiskabúð Valda (sýndist
hann vera hræbillegur) og svo eigum við enn eftir að tékka
á Indian Mango. Við hliðina á sjoppunni Texas á
Ingólfstorgi er svo kominn enn einn shwarma staðurinn sem heitir
Ali Baba. Leit nokkuð vel út. Fengum okkur bara hummus í
boxi og kringlótt flatbrauð með á 500 kall.
06.06.09
Ég neita að taka á mig hvíðahnút
vegna Icesave skulda Landsbankans. Icesave getur hoppað upp í
rassgatið á sér. En ég bara skil ekki hvernig
einkafyrirtæki gat fengið að veðsetja heila þjóð
fyrir einhverju Nígeríusvindli í útlöndum.
Hver skrifaði upp á það plagg fyrir mína og
allra hinna hönd? Ég spurði einu sinni Kristján
Þór Júlíusson að þessu þegar
ég var með honum í Silfri Egils. Hann bara muldraði
eitthvað um að þetta væri EES-eitthvað, bla bla.
En þetta var helvíti gott skím þegar á
því stóð: Tær snilld hvernig monnípeningaglásin
hrúgast inn og allt það. Já, og ég skil
heldur ekki hvað varð um alla þessa peninga. Vá, hvað
ég skil lítið. Hvítbókin segir mér
hins vegar hvar Icesave-kallarnir eru
núna. Er þessi Hvítbók hann Sullenberger
sem er svona duglegur á netinu? Þá er náttúrlega
engin furða að þessi ódýra búð hans
láti ekki sjá sig.
---
Gussi spyr í gestabók um boðaða endurútgáfu
á Eru ekki allir
í stuði? Já, það lítur út
fyrir að bókin komi út á næsta ári
(nálægt jólum 2010) í endurhannaðri og endurmetinni
útgáfu og svo auðvitað með viðbótum,
þeim 10 árum sem hafa bæst við síðan
hún kom út fyrst. Það er svo sem ekkert fast í
hendi með þetta, en útgefandinn er til í tuskið
og ég líka.
---
Siggi
- Beirút
Ég keypti plötuna Veruleiki? með Sigga (Sigurði
Karlssyni, trommara) af manni í Bökkunum í fyrragær.
Pálmi Gunnarsson leggur Sigga lið og syngur lagið Beirút.
Óhætt er að segja að með texta sínum leggi
Kristján Hreinsson (sem kallaði sig Kristján Hreinsmögur
á þessum tíma) þriggja tonna guilt-trip á
hlustandann. „Reyndu að þefa af rotnandi hræum þá
geturðu ef til vill skilið,“ syngur Pálmi eins og hann
meini það (sem hann gerir eflaust) - djísús! Platan
kom út 1982 og er fimm laga (þar af er þetta lag aftur
ósungið). Þetta lag var eitthvað spilað man ég,
þrátt fyrir nöturlegan textann. Siggi hafði verið
aðaltrommari klakans um langa hríð, spilað með Svanfríði,
Change, Brunaliðinu og inn á fjölmargar plötur á
8. áratugnum. Svo kom þessi plata. Nokkrum árum síðar
hvarf Siggi bara úr bransanum og sást næst sem Votta
Jóhóvi og vakti nokkra athygli sem fyrsti opinberi gluggaþvottamaður
landsins. Þess má geta að umslagið er rokna næs,
en ekki er getið hver gerði það.
---
Með
nöktum - Holes
Í sömu ferð keypti ég nokkrar aðrar plötur,
þ.á.m. eina aðra 12" EP, Skemmtun með hljómsveitinni
Með nöktum frá 1985. Þetta var skammlíft band
sem fyrrum söngvari Þeysara Magnús Guðmundsson stofnaði
eftir Þeyr með strákum úr Spilafíflum og
Haugnum, minnir mig. Músikin var ekki langt frá Þeysurum,
síðfrakka testósterónrokk með Killing Joke/Bauhaus
ívafi, eins og þótti kúl á þessum
tíma. Magnús var innvinklaður í hljóðverið
Stúdíó Mjöt – (S.H.Draumur tók upp fyrstu
plötuna sína þar og Tryggvi Herbertsson og Bubbi gerðu
þar Konu, að minnsta kosti tvisvar því fyrri útgáfan
týndist (eða eitthvað, man ekki alveg) – svo það
voru hæg heimatökin að henda í eina plötu. Bandið
hætti skömmu eftir útkomuna, eða var hætt þegar
platan barst loks til landsins. Síðan hefur hinn ofursvali Magnús
lítið komið nálægt rokki, að ég
held. Ég talaði við hann í síma einhvern tímann
út af einhverju blaðamennskutengdu og þá sagði
hann: Ha, erða gamli melurinn? þegar ég kynnti mig. Mér
fannst það nokkuð skrýtið, en kúl.
05.06.09 - PPPP !
Ég er eitthvað truflaður. Les allt vitlaust. Ég
hélt að aðsend grein í Mbl í dag væri
"Ég er sundlaug" en þá erða bara "Ég er
syndug" og er eftir Ágústu úr Kópavoginum.
Svo sá ég fyrirsögn á Vísi áðan
sem ég hélt að væri "Lúxus að fá
lost", en þá erða bara "Lúxus að fá
ost". Ég þjáist af mislestri. En það er svo
sem ok eins lengi og allt verður fyndnara.
---
Í kvöld kl. 20:10 hefst fimmta sería Popppunkts
í Sjónvarpi - og nú á RÚV!!! Biggtæm.
Við erum að tala um að fyrsti leikur er æsandi slagur
Eurobandsins og Reykjavíkur! Ekki missa af einni mínútu!!!
Hér
má svo sjá upplistun á framhaldinu.
---
Þarna á myndinni af hinni glæsilegu nýju
PP-sviðsmynd sést glitta í Fender Telecaster sem er nýr
en látinn líta út eins og gamall og ku nákvæm
eftirlíking af gítar Joe Strummers. Ég vissi nú
ekki að úrkynjunin í hljóðfærabransanum
væri orðin svo mikil að það er byrjað að
framleiða í massavís hljóðfæri sem líta
út einsog þau séu gömul (eins og hverjar aðrar
forrifnar gallabuxur). Þeir hjá Fender kalla þetta "Road
worn". Stundum er líkt í einu og öllu eftir hljóðfærum
frægra poppara. Í Hljóðfærahúsinu
(sem skaffar dótið í skápana) fæst t.d.
alveg
eins gítar og Jeff Beck notar (kostar ekki nema 999.899 kjall!)
og gítar eins
og Andy Summers í Police notar á ekki nema 1.250.005 kjall.
Sæll! Ekki er maður nú ennþá orðinn svo
latur að maður geti ekki rispað og laskað sín eigin
hljóðfæri. Sem sagt, maður þarf ekki starfsmenn
Fender verksmiðjanna til að sarga í hljóðfærin
sín (stundum eftir fyrirmynd). Ef maður væri geðsjúkur
aðdáandi Andy eða Jeff færi maður kannski allur
á ið...
---
Besta plata Íslandssögunnar (skv. þessu)
verður kynnt 17. júní. Ég spái að það
verði Ágætis byrjun með Sigur Rós líkt
og þegar ég stóð fyrir álíka vali
rétt eftir aldarmótin. Það er svo sem ekkert við
svona vali að segja, þetta verður alltaf persónulegt.
Auðvitað sárvantar fullt á þennan lista og
ég hefði ekki valið fullt af dóti þarna inn.
En fokk það. Hér er minn topp 20 listi yfir bestu plötur
Íslandssögunnar og hann er auðvitað jafn persónulegur
og allir hinir. Ég sýni náttúrlega það
lítillæti að sleppa mínum eigin plötum. Svo
nennti ég ekki að leggja hausinn í bleyti við að
lista þetta upp frá 1-20, enda ekkert víst að ég
gæti það.
Emilíana Torrini – Fisherman’s woman
Fan Houtens kókó – Musique Elementaire (kassetta)
Fræbbblarnir – Viltu nammi væna
Ham – Lengi lifi
Hljómar – Hljómar II
Megas – Fram og aftur blindgötuna
Megas – Millilending
Megas & Spilverkið – Á bleikum náttkjólum
Óðmenn – Óðmenn
Olga Guðrún Árnadóttir – Eniga Meniga
Purrkur Pillnikk – Ekki enn
Sigur Rós – Ágætis byrjun
Spilverkið – Ísland
Spilverkið – Sturla
Stuðmenn – Sumar á Sýrlandi
Sykurmolarnir – Life’s too good
Þeyr – Mjötviður mær
Trúbrot – Lifun
Trúbrot – Trúbrot
Utangarðsmenn – Geislavirkir
---
Alex
Chilton - Dalai Lama
Mér hefði örugglega ekkert leiðst á Dalai
Lama. Hann var voða hress og svona þegar maður sá
eitthvað með honum í sjónvarpinu og með beisik
hluti á tæru, hluti sem alltaf er ágætt að
rifja upp. Ég nennti þó auðvitað ekkert að
eltast við gamla kufl. Í staðinn hlustaði ég
nokkrum sinnum á lagið Dalai Lama með Alex
Chilton af sólóplötu hans High Priest frá
1987. Alex er gamall í hettu poppsins, söng The Letter með
Box Tops þegar hann var 16 ára eða eitthvað, en gerði
svo 3 plötur (þar af tvær fyrstu algjör meistaraverk)
með páverpoppbandinu Big Star. Síðan hefur hann verið
legend og fyllibytta eins og gengur.
04.06.09
Glansmynd úr góðærinu #2:
Æðislega frábærir milljarðamæringar
(eþs gráðugu bjánarnir sem komu þjóðinni
á hausinn) og virðulegur forseti vor (eþs forsetafíflið
sem ætti að sjá sóma sinn í að segja
af sér svo maður geti valið nýjan forseta. Einhvern
sem hægt er að kenna börnunum sínum að bera virðingu
fyrir (þ.e. „sameiningartákn þjóðarinnar“).
Nei, ekki Bjarna Ármannsson!) hitta Conan O'Brien (eþs forsætisráðherra
Finnlands). Myndin er tekin af Hvítbók.vg
(sem er vaxandi síða um góðærið og hina
seku. Ég hef ekki hugmynd um hver ber ábyrgð á
Hvítbókinni,
en það hlýtur að vera einhver meistari fyrst hann/hún
hefur húmor til að vista hana á .vg (Bresku Jómfrúareyjunum)).
---
Skjár einn var með Conan á dagskránni einu
sinni. Svo hættu þeir því. Ég bjó
til netáskorun sem allavega 1000 manns skrifuðu undir. Ekki
kom samt Conan. Samkvæmt þessu
er óvíst hvort Conan eða Leno komi á S1 í
haust. Meirihluti þeirra sem kommentar vilja Leno. Greinilega bjánar.
Munurinn á Leno og Conan er eins og munurinn á Kid Rock og...
tja, hvaða poppari er fyndinn, sniðugur, klár og beittur,
ööö Iggy Pop? Öööö, en allavega. Eflaust
má beyta þrýstingi og því tel ég
upplagt að Conan-sinnar skrifi Sigríði
framkvæmdarstjóra eða Kristjönu
dagskrárstjóra og biðja þær um að
hafa Conan í haust. Það eru allir komnir með hundleið
á þessum Leno bjána. Conan er málið!
---

Eftirminnileg klósett #3
Þegar hljómsveitin Unun
fór að spila 1999 til Riga, í hinu illastadda Lettlandi,
vorum við leidd að vatnsturni
sem búið var að breyta í stúdíó.
Þar var hljómsveitin Sirke, sem spilaði með okkur
í túrnum, að taka upp. Þar inni var eitt eftirminnilegasta
klósett sem ég hef séð. Minningin um það
er skínandi skær. Önnur eins hrörlegheit hafði
maður varla séð. Ég tók hins vegar enga mynd
af því. Þegar ég hóf skrif Eftirminnilegra
klósetta hafði ég samband við Turninn
og spurði hvort til væru myndir af klósettinu. Meistarinn
sem svaraði mér, Janis Daugavietis, var ekkert að tvínóna
við þetta heldur tók mikla myndaseríu af klósettinu
og sendi. Þarna hefur ekkert breyst í 10 ár! Klósettið
er alveg eins á myndunum og í minningunni. Stórfenglegt!
Ég gerði, minnir mig, nr. 1 þarna inni með herkjum,
en ekki undir nokkrum kringumstæðum myndi maður leggja í
nr. 2. Ferðin var annars almennt mjög eftirminnileg. Eftir giggið,
sem var var á hipp og kúl pleisinu Pulkvedim Neviens Neraksta
(einhverjir starfsmenn Eimskip voru þarna innan um Lettana, man ég)
var ekið í algjöru myrkri og okkur hrúgað í
blokkaríbúð. Þegar ég vaknaði barst
ilmur af súpu og lettneskri döbbtónlist í vitin.
Þessi blanda hafði staðið yfir í einhvern tíma
og því hafði lettneska döbbið legið um hríð
yfir draumförunum. Síðar þurfti ég auðvitað
að vita hvaða músik þetta var og komst þá
að því að þetta var:
Latvijas
Gaaze - Saule Saule
Eða Gasveita Lettlands. Einmenningsverkefni Andors, aðal rafdúddsins
í Lettlandi. Lagið er af plötunni Saule saule spidi spozi.
Og því þá ekki að fá annað frá
Lettlandi, fyrst þau eru farin á hausinn eins og við:
Sirke
- Anglumelnais
Hér er bandið sem spilaði með okkur. Ég hef
ekki haldið kontakti við þetta ágæta fólk,
en sé að
síðast gerðu þau plötu 2002. Svo bandið er
greinilega löngu hætt. Hér er lag af plötunni Hellijs
Dzudas (1999).
---
Bítlasafnið í Hamburg. Maður þangað.
Ég er ekki alveg viss, en líklega er þetta heimasíða
safnsins. KJAFTÆÐI: ÞETTA
ER HEIMASÍÐAN! Ég gæti notað ferðina í
að fara í Tinna safnið í Brussel (BBC segir
frá því). Ég hélt reyndar að
það væri fyrir löngu búið að opna þetta
safn, en BBC segir að það opni í júní.
Ha?
02.06.09
Sjónvörp eru full af mannskemmandi drullu. Þetta
blasir við þegar ég hlunkast fyrir framan nokkur í
röð í WC á svokölluðu stigtæki í
ekki svo örvæntingarfullri tilraun til að brenna nokkrar
súkkulaðikökur utan af mér. Ég missi trú
á mannkynið og fyllist af innvortis skít þegar
draslið frussast yfir mig. Sérstaklega er "fréttastöðin"
Sky viðbjóður. Heilalaust sorp á rípít
allan daginn ekki til annars en að sjúga lífið og
mennskuna úr franskbrauðs og beikonétandi Bretum. Einum
skilaboðum er þjappað stanslaust í hauskúpur
áhorfenda: Vertu hræddur. Heimurinn er hættulegur,
passaðu þig, þú verður aldrei frjáls,
ekki hugsa, fáðu þér hamborgara. Það
var hægt að smjatta stanslaust á hvarfi "Maddie" í
heilt ár. Alltaf er einhver dauður, einhver hlaupandi undan
réttvísinni og líklega inn í garði hjá
þér. Svínaflensa - gasp - æ nei, hún er
að koma. Við drepumst öll. Brjálaðir Norður
Kóreumenn ætla að drepa þig. Og svo: Susan Boyle
er komin á geðveikrahæli. HVERJUM ER EKKI DJÖFULSINS
DRULLU SAMA! Viðbjóðsleg landkynning á Bretum þessi
helvítis stöð.
---
Ekki erða skárra á "skemmtirásunum". Fávitar
með fávitaleg tattú og gítara lemjandi úrkynjaða
froðu út um rassgötin á sér, fávitar
að reyna að slá í gegn meðal fávita fyrir
framan dómarafávita, eða fávitar að hoppa
og stökkva í fávitalegri von um að vinna sér
inn fávitalegan pening. Fávitaflóð beisiklí.
Því varða mjög svo ófávitaleg upplifun
að rekast á þátt í gær sem var ekki
fávitalegur. Heldur hreinlega frábær þáttur
með broddi og viti. Og það á Skjá einum sem
er nú ekki beint þekkt fyrir útvörpun gáfulegs
efnis. Um er að ræða þáttinn This
American Life, sem er byggður á grunni útvarpsþáttar
með sama nafni, og er sendur út á Public radio International
á Austurströnd USA. Ég er ekki frá því
að ég hafi heyrt í þessum þætti 1997
þegar ég fór eftirminnilega ferð um öppsteits
NY. Það sem ég heyrði er mér enn minnisstætt.
Karlar sem unnu á skrifstofu voru að segja frá því
hvernig þeir töluðu um konur á dulmáli. „Ég
sá eina á pósthúsinu. Það væri
nú ekki amalegt að skella nokkrum frímerkjum á
hana, ho ho. O.s.frv.“ En allavega, þátturinn sem ég
sá í gær var magnaður. Fjallaði um strák
sem var að taka upp heimildarmynd um mömmu sína og stjúpa,
útbrunninn skallapoppara úr eitísbandinu Oxo. Ömurlegt
lið. Þetta er svona slæs of læf stöff, útvarpslegt
í sjónvarpi - Þorsteinn Joðish. Ég er strax
orðinn aðdáandi þáttanna og verð að
sjá alla tólf sem gerðir hafa verið. Þetta
var sá fjórði af fyrstu sex í seríu eitt
sem er sýnd á S1, en maður hafði ekki heyrt djakk
um þessa þætti áður. Þátturinn
er ekki einu sinni auglýstur á heimasíðu S1! Ég
mæli eindregið með This American Life!!! S1 eru svo að
fara að sýna Bullshit!
í allt sumar, þætti sem Biggi Baldurs hefur mært
mikið. Stóra spurningin hlýtur svo að vera: Ætlar
S1 að byrja að sýna Conan, sem nú hefur tekið
yfir slott hökuhelmútsins Lenos?
---
Enginn nennti að hneykslast á rugluðum listamönnum
í góðærinu. Kreppan hefur það með
sér að nú verður hneykslast yfir öllu sem brýtur
í bága við sparnað og aðhald. 10 millur fyrir
hina frábæru ljósmynd snillingsins Sigurðar Guðmundssonar
er auðvitað alltof mikið, eða ég hefði aldrei
eytt nema svona 3000 kalli í áritaða eftirprentun. Sem
gerir alveg sama gagn. Til hvers að eiga frummyndina? Frummyndadýrkun
er úrelt. Þetta er jafn flott mynd, hvort heldur eftirprentun
eða "fyrsta myndin". Mér hefur fundist þessi mynd flott
síðan ég var smástrákur og eins álíka
myndir frá svipuðu tímabili á ferli Sigurðar.
Ef fólk vill hneykslast aftur í tímann má benda
á nokkra velpússaða steina sem eru í grjótgarðinum
við Sæbraut, þar sem Snorrabraut endar. Þetta verk,
sem er miklu leiðinlegra en ljósmyndin, er líka eftir
Sigurð og var pantað af Rvkborg í tilefni af árþúsundamótunum.
Ekki man ég eftir neinni hneykslunaröldu þegar grótið
var vígt. Og kostaði það þó miklu miklu
meira en skitnar 10 millur. Ábyggilega frekar svona 100 millur,
enda er þetta grjót frá Svíþjóð
sem var pússað í Kína og svo dröslað
í grjótgarðinn. Það er ekki einu sinni skilti
við verkið svo fæstir taka líklega eftir því.
(Það má geta þess að ljósmyndin af verkinu
er eftir Árna Hamstur Torfason,
sem hamast nú við að klára að brjóta um
bók mína Top 10 Reykjavík and Iceland, sem vonandi
slefast í búðir mjög fljótlega.)
01.06.09
Vor andlegur leiðtogi, Hr. Stefán Grímsson, er sextugur
í dag. Eru honum, sem og þjóðinni allri, færðar
hátíðarkveðjur að því tilefni. Ekki
er úr vegi að beina aðdáendum á kvikmynd Sigga
Sigga Bang Bang, Dauðataflið,
sem er besta stuttmynd Íslandssögunnar. Húrra fyrir
Stefáni Gríms!!!
31.05.09
Sliceland hjá Curver í Bjargtangavita er sniðugt
dæmi (vitadæmi
Listahátíðar). Ég væri mjög til í
að skreppa en bara verst maður skreppur ekkert á Látrabjarg.
Maður gæti aftur á móti skroppið á Garðskagavita.
Curver verður hættur að baka pítsur þegar ég
á hugsanlega leið um. Kokkurinn lítur út eins
og það vanti salernisaðstöðu í vitann, sagði
einhver í afmæli í gær. Ég held að
lundakjöt sé gott á bragðið. Auðvitað
ætti að éta lunda í miklu meiri mæli en gert
er, það eru jú milljónir fugla við landið.
Útlendingar eru alveg snar í lundann en við pælum
lítið í honum. Við eigum ekki einu sinni gælunafn
eins og lundalund eða lunni, sem þýðir að okkur
er drullusama um lunda. Fæstir sjá varla lunda um ævina.
Ég held ég hafi bara séð kvikyndið einu sinni,
allavega öpp klós, þegar ég fór út
í Heimaey. Ef einhver sniðugur byggi til lundabita í
fagurlega skreyttum poka myndu útlendingarnir kaupa læk kreisí.
Þeir eru lundaóðir. Hér liggur gríðarlegur
sprotaiðnaður. Eins með íslenska tóbakið,
sem ég minntist á um daginn. Böstaða kannabisliðið
að undanförnu, sem greinilega er með helgræna fingur,
ætti auðvitað að vinna af sér refsingu með
því að koma á fót tóbaksræktun.
Hveró rettur, Flúðasmókur og Flúortott
- ég sé fyrir mér iðnað. Bestu rettur í
heimi! Það hlýtur að vera hægt að selja
íslenska tóbakið nokkrum hundraðköllum ódýrara
en það innflutta. Eða nei. Kannski myndi pakki af Flúortotti
kosta 2000 kall. Það væri í stíl við
annað.
---
Berlúskóní, eða einhver sem lítur út
eins og hann, riðlast á stöðumælaverði. Klassískt
myndefni.
Einna helst að Gunnar Birgisson komist nálægt honum í
stuðinu, sbr. fræga Goldsfinger mynd. (ps. Þetta mun vera
feik úr myndinni Bye Bye Berlusconi!)
30.05.09
Enn rölta leikarar um á Hawaii (eða "eyjunni") í
Lost, alltaf á leiðinni einhvert að gera eitthvað. Í
Brönugrasið eða Svaninn að snúa sveif eða bla
bla. Og nú á mögum tímaplönum. Og alltaf
fjölgar í leikarahópnum. Alveg fínt sjónvarpsefni!
Nú hefur reykskrímslið í Lost fengið sinn
eigin spin-off þátt, eða svo segir
allavega The Onion.
---
Með Google
street view map þarf aldrei að standa upp úr stólnum
heldur má upplifa heiminn í gegnum tölvuna. Páll
Makkkartnei er lítið hrifinn og vill ekki að eitthvað
lið sé að glápa á sig. Hans hús hefur
því verið blokkað út (sjá
/ sjá
/ sjá).
Yoko
Ono - Don't Worry, Kyoko (Mummy's only looking for her hand in the snow)
Hér er listakonan Yoko í gríðarlegum gír
á B-hlið Cold turkey smáskífunnar frá 1969.
Þessi "breimandi köttur í hakkavél" söngstíll
er það sem hatursmönnum Yokoar hefur fundist réttlæta
brandara eins og "Morðingi Lennons skaut hann fimm skotum en ekkert
þeirra hæfði Yoko!" Ég mæli með að
þú komir sofandi eiginkonu/manni þínum á
óvart og vekir hana/hann með því að blasta
þessu eins hátt og tækið þolir.
29.05.09
Síðasti sígarettupakki sem ég keypti kostaði
770 kr. Næst kostar hann eflaust 900 kr. Ég græt það
ekki. Óholt að reykja og svona, enda reyki ég bara þegar
ég er í rokki eða fullur. Sem sé sjaldan. Ætli
það sé annars ekki eins hægt að rækta
tóbak á Íslandi eins og kannabis? Íslenskt
tóbak ræktað undir flúorperum í Hveragerði?
Topp stöff. Ég reyki eingöngu Hveró rettur. Íslenskan
landbúnað já takk. Er enginn að spá í
þessu? Sproti.
---
Önnur lausn: Mætti ekki selja Bechtel öll vatnsréttindi
á Íslandi? Það er náttúrlega svakalegt
hvað við sóum vatninu eins og við gerum. Bechtel gæti
svo selt okkur vatnið til baka á 100 kall líterinn. Ha,
ekki góð hugmynd? Ég er viss um að Hannesi Hó
finnst hún frábær. Þetta er náttúrlega
dautt vatn sem enginn á og gerir ekkert gagn. Ég fékk
þessa hugmynd náttúrlega frá myndinni sem var
á Rúv og ég nennti ekki alveg að glápa
á alla. Sláandi vatnsmálið í Bólivíu
og það sem einhver sagði um að hagfræði sumra
væri eins og stríð. Að tala "fallinna" væri
ekki álitið fólk heldur bara tölur. Burt með
ógeðslegu kapítalista svínin! Kom samstaða
og samkennd!
---
Hér er safnað saman
punktum um afleiðingar stjórnarfars síðustu ára.
Það er ömurlegt hvernig komið er fyrir venjulegu fólki
á þessu vindrassgati frábæra
landi. Við verðum að vinna
mest til að slefa í mannsæmandi líf. Það
er að segja venjulega liðið. Sumir hafaða mun skár.
Annars er ekkert að því að vinna mikið, ef það
er þokkalega gefandi og skemmtilegt. Fullnægja í lok
velheppnaðs vinnudags er sennilega betri en fullnægja í
lok afslöppunardags, tala nú ekki um ef maður lá
í sukki allan daginn.
---
Ég óska eftir að komast í vinýlplötusöfn
og afganga, ekki síst út á landsbyggðinni. Ef
einhver vill losna við vinýlplötur úr bílskúrnum
(ég borga) má hann láta
mig vita.
---
Ég "endurfjármagnaði" 2005 af því það
var svo mikið auglýst. Frjálsi sá um lánið.
Nú ku enginn Frjálsi lengur og síðasti greiðsluseðill
var frá Sparisjóðnum í Skagafirði. Kúl.
Ég fór í viðskipti hjá Netbankanum af því
hann bauð aðeins skár díl á yfirdrætti.
Nú er enginn Netbanki lengur og ég veit satt að segja
ekki hvar peningarnir mínir eru (eða skuldin mín). Best
maður hringi... Íslandi í dag. Húrra fyrir því!
27.05.09 - Popppunktur 2009
Við í hinu stórfengilega setti. Popppunktur á
vegum Rúv hér.
Popppunktur á vegum mín hér.
Sýningar hefjast 5. júní, föstudagskvöld
á eftir Kastljósi (kl. 20.10). Endursýnt á
laugardögum kl. 16.50 og á sunnudögum kl. 10.40. Geeeeegggtt!
26.05.09
Jess... Prinsessan með Buff er nr.
1 á Bylgjulistanum, nr.
2 á Vinsældarlista Rásar 2 og nr.
3 á Lagalistanum. Vinsældir... loksins... Svona gerist
þegar maður lætur fólk sem kann að syngja syngja
lögin sín!
---
Gærdagurinn var súrrealískur. Hollenskt sjónvarpsfólk
frá fréttaskýringaþættinum Tagenlicht
lét mig keyra sig um á Land Rover og sýna sér
tómar byggingar góðærisins. Þetta var glænýr
Land Rover, alveg ágætt að keyra svona druslu. Ég
mun ábyggilega gera jafn mikið gagn fyrir þjónina
og We have to kill something karlinn. Fokk þatt. Við fórum
upp a Bauhaus. Fyrir framan lokað B&L. Ég tékkaði
á fossinum í Kaupþingi. Ekkert merkilegur, ekki miðað
við það sem ég hélt að þetta væri.
Fórum á Kaffitár í Höfðaborg. Til
að auka á draumkennda upplifunina þá voru Mezzoforte
á næsta borði. Þeir hollensku þekktu ekki
til Mezzoforte en þekktu náttúrlega Focus. Túrinn
endaði í grunninum á Tónleikahöllinni. Þau
höfðu farið á B5 um laugardagsnóttina. Sögðu
að þar væri djúsað eins og það væri
2007 ennþá. Jakkafatadrengir keyptu 300 evru kampavín
til að komast í spesherbergin eins og enginn væri morgundagurinn.
Það vildi enginn tala við þau on kamera. Starfsmaður
sagði: Þeir trúa því ekki ennþá
að ballið sé búið. Hætta ekki að spreða
í 300 evru kampavínið fyrr en kortunum verður lokað.
Fullir fávitar.
25.05.09
Var við giftingu á Akureyri um helgina. Hápunkturinn
var vitanlega upptroðsla Helenar Eyjólfs sem tók gott
prógramm sem sörpræs gjöf við þrumandi
undirleik Sérsveitarinnar. Helena var að sjálfssögðu
með stokkinn og mun þetta vera orginal stokkurinn. Hún
hefur bara átt einn stokk um dagana. Ég náði að
dýfa tánni í Akureyri í þessari stuttu
ferð, einn Brynjuís og gott sessjón í vinýlherbergi
Frúarinnar í Hamborg. Þar er traust plötuval og
ekki skemmir fyrir þegar umslögin eru merkt með límmiða
frá Hljómveri, Glerárgötu 32. Gerði fín
innkaup, eða svohljóðandi:
Rúnar Júlíusson - Come into my life - smáskífa
frá 1975
Björgvin Halldórsson - Þó líði
ár og öld - fyrsta LP Bjögga frá 1970, útg.
Tónaútgáfan Akureyri, gríðarvel farið
eintak með óskemmdu föndri á textablaði
The Beatles at the Hollywood Bowl
Yoko Ono - Season of Glass + Walking on thin ice 7"
George Harrison - Dark Horse
Bee Gees - Idea
U-Roy - Version Galore
Ringo Starr - Goodnight Vienna
John Lennon - Menlove Ave, og síðast en ekki síst
Raspberries - Side 3, með hindberjakörfulegu umslaginu nokkuð
heillegu.
Raspberries
- Tonight
Raspberries frá Ohio voru í sullandi páverpoppi
snemma á 8. áratugnum, ekki á ólíkur
slóðum og hið gríðargóða band Big
Star. Bítlar og breska bylgjan voru áhrifavaldar, þetta
var poppað og melódískt en spilað með rokktrukki,
Power
pop kallað síðar þegar bönd eins og The Knack
(My Sherona) slógu í gegn. Hindberin áttu nokkuð
góðu gengi að fagna og bandið gerði fjórar
LP samtals. Söngvarinn Eric Carmen sló síðar í
gegn sóló með væmnismellinum All by myself og enn
seinna mð sándtrakklögum, t.d. Hungry Eyes úr Dirty
Dancing.
---
Á leiðinni heim tók ég eftir því
að 850 fermetra sumar"bústaður" Sigurðar í Kaupþing
er ennþá eins og eitthvað drasl þarna upp á
hæðinni, óbyggt og hálfkarað drasl úr
vangefinni fortíð. Ætli aumingja maðurinn klári
þetta einhvern tímann? Kannski hugmynd konunnar í Baulusjoppunni
verði einhvern tímann að veruleika, að "bústaðnum"
verði breytt í dvalarheimili fyrir eldri borgara úr sveitinni.
Nóg er plássið.
22.05.09 - Sunnanrúntur
Sunnanrúnturinn í gær var smá misheppnaður.
Afi, pabbi og börnin skruppu austur fyrir fjall. Við vorum komin
kl. 12 í sælureitinn Sólheima en þar opnaði
ekkert fyrr en kl. 14. Engu að síður ágætt
að skoða sig um, þótt við kæmumst ekki í
kaffi eða lífræn listaverk íbúa. Dýragarðurinn
Slakki var ekki búinn að opna. Ætli hann geri það
nokkuð fyrr en um Hvítasunnuna. Iðuvellir er nýja
Eden. Búið er að laska menningarverðmæti, held
ég, mála yfir gamalt kits. En það sem verra var:
Það voru ekki til neinar pylsur! Ekki líst mér
á reksturinn ef menn ætla að klikka á svona grundvallaratriðum.
Söluturninn Mæran í Hveragerði reddaði þessu.
Við skruppum líka á planið hjá Kjörís,
en eins og Fbl greinir
frá í dag er Dagbjartur Óli sonur minn "andlit
Kjöríss" í sumar. Honum fannst mikilfenglegt að
sjá sjálfan sig á risamynd aftan á öllum
ísbílunum og við komum ekki í þá
sjoppu að hann blasi ekki við af nýja ísplaggatinu.
Hann er þó svo sem ekkert að pæla mikið í
þessu. Móttakan í Hellisheiðarvirkjun var svo allavega
opin. Það er gríðarmikið mannvirki, allt mjög
2007. Við gláptum yfir tröllslega virkjunina og krakkarnir
fengu buff á hausinn.
19.05.09 - PP 5. júní
Popppunktur fer í loftið á Rúv á föstudagskvöldið
5. júní á eftir Kastljósi. Præm tæm,
sem sé. Svo verður þetta vikulega fram í sept.
Úrslitaleikurinn er 11. sept. Það er búið að
læna upp í algjörlega magnaða keppni. Þetta
eru fyrstu leikirnir átta:
Reykjavík! - Eurobandið
Áhöfnin á Halastjörnunni - Sigur Rós
Sprengjuhöllin - Ljótu hálfvitarnir
Elektra - Bloodgroup
Ingó & Veðurguðirnir - Hvanndalsbræður
Baggalútur - Buff
FM Belfast - Jeff Who?
múm - Árstíðir
18.05.09 - Skítamix
Einn lengi að tjá sig... Þabbarra svo gegt að
gjöra í Popppunkti og rugli mar! Ér ekkert hættur
að blögga eða neitt mar. Hei! Ægilega gaman að við
séum næst best í Eurovision þetta árið.
Mér langaði alltaf að fara beint út í búð
að kaupa mér ilmefni fyrir klósettið þegar
ég sá þennan bláa höfrung koma þarna
siglandi á bakvið Jóhönnu Guðrúnu. Hafa
tvo höfrunga næst og þá mölum við þetta.
---
Ég er mikið hlyntur sykruðum drykkjum eins og komið
hefur fram. Mér er alveg sama þótt Ömmi setji
á þetta "sykurskatt", eða hækki vskinn í
það sem hann var. Þá missa kannski færri tennurnar.
Gríðaleg
umræða á sér stað á spjallsvæði
okurbloggsins á Vísi um gamalt gos. Fólk kemst alltaf
í ham þegar gamalt gos ber á góma, sbr. Sódóma
Rvk. Þarna er áhugavert bréf um uppruna Mix-drykkjarins,
sem nú er kominn á markaðinn orginal sykraður. Ég
er nú enginn Mix-maður, fékk mér þó
svona nýtt sykur Mix og þetta rann nú kannski ekkert
niður með glans. Ég á hinsvegar í litlum erfiðleikjum
með að sporðrenna heilli flösku af Orku. Einna skemmtilegast
við Mixið finnst mér sú staðreynd að Hrafn
Gunnlaugsson er Mix-fíkill. Ókei, þetta er nú
kannski engin staðreynd en ég sá Hrafn einu sinni kaupa
sér Mix með mat á Krúa Tæ! Í bréfinu
kemur fram að Mix hefði upphaflega átt að heita Skítamix.
Fá eina Skítamix takk. Bréfritari er Friðjón
Árnason og hér er bréfið:
Gosdrykkurinn MIX hefur nokkuð verið hér til umræðu
og hafa sumir bent á að drykkurinn sér norðlenskur
að uppruna og hafi fyrst verið framleiddur hjá Sana á
Akureyri. Þetta er ekki alveg rétt en á Akureyri var
drykkurinn fundinn upp og framleiddur í upphafi. MIX var fyrst blandað
og framleitt hjá Efnagerðinni Flóru á Akureyri
sem var í eigu Kaupfélags Eyfirðinga. Það var
bakarinn Björgvin Júníusson sem bjó þennan
drykk til fyrstur manna með aðstoð vinnufélaga sinna
til bragðprófunar. Þannig var að Efnagerðin Flóra
framleiddi appelsínugosdrykk undir nafninu Valash. Hráefnið
í þann drykk var að uppistöðu appelsínuþykkni
en lítill hluti var úr ananasþykkni. Svo gerðist
það fyrir jólin eitt árið, sennilega í
október, að Efnagerðinni barst hráefnið í
drykkinn til að jólaframboðið yrði nægilegt
en svo óheppilega hafði til tekist að hlutföll hráefnisins
urðu öfug fyrir mistök seljandans. Þannig að megnið
af hráefninu í það skiptið var ananasþykkni
en aðeins lítill hluti appelsínuþykkni. Ekki mátti
láta akureyskan gosdrykk vanta fyrir jólin þannig að
starfsmenn efnagerðarinnar hófu tilraunablöndun úr
fyrirliggjandi hráefni. Þannig fóru leikar að Björgvin
Júníusson, sem Akureyringar þekktu sem Badda Jún,
náði að blanda þokkalega drykkjarhæfan mjöð
úr efninu og kallaði til vinnufélaga sína til
að smakka “skítamixið” eins og hann komst að orði.
Mönnum féll drykkurinn ágætlega en töldu
hins vegar ekki fært að kalla hann skítamix svo niðurstaða
þeirra félaga var að kalla drykkinn einfaldlega MIX. Þess
má geta að rosknir Akureyringar muna eflaust eftir flöskunum
sem Valash og MIX voru seldir í en þær flöskur
höfðu nafn efnagerðarinnar FLÓRA upphleypt á
öxl flöskunnar.
Björgvin Júníusson blandaði og pakkaði
einnig fyrir jólin árum saman ölgerðarefni sem selt
var í búðum á Akureyri fyrir jólin undir
heitinu MALTO. Í pakkanum voru nákvæmar leiðbeiningar
um það hvernig brugga ætti ölið og til að
fullnægja lagalegum kröfum um banni við að búa
til áfengi var skýrt tekið fram í leiðbeiningum
að magn sykur mætti aðeins vera upp að ákveðnu
marki, ef settur væri meiri sykur yrði ölið of áfengt
og ÞAÐ MÆTTI ALLS EKKI! Þessar upplýsingar
hef ég fengið staðfestar hjá stjúpsyni Björgvins
Júníussonar en hann heitir Þórður Pálmason
og er þekktur sem veitingamaður á Café Rosenberg.
---
Prins
Póló - Átján og hundrað
Það er allt að verða vitlaust í plötupökkunum.
Skakkamanage er tvískipt á tveimur plötum með Prins
Póló og dúndurgóða 4-laga plötu Ekki
heima og Létt á bárunni á Sexí. Skakkamanage
notast við SS-læsinginu, enda er sú læsing alveg
að virka. Svo má kaupa geggið á diskum líka.
Tékkitát hér í plötubúð.
Svo hafa "gömlu brýnin" í Vonbrigði gefið út
nýja plötu sem má tóndæmast í gegnum
hér.
Þungt og þétt að vanda.
---
Andskotans! Hvað þarf þetta lið endilega að
vera röfla út um rassgatið á sér þegar
Lost á að vera í sjónvarpinu?
11.05.09 - Tveir Bubbar
Popppunktur er að slefa í geggjað stuð. Við
erum að tala um að þátturinn hefjist þann 5.
júní (föstudagskv) og samkvæmt hefð byrja
16 lið sem saxast oní einn sigurvegara eftir 15 leiki (útsláttarkeppni).
Þetta eru engir smá leikir maður. Eins og áður
hefur komið fram byrjar geimið á Sumargleðinni á
móti Sigur Rós. Þá kemur Eurobandið á
móti Reykjavík!, þá Sprengjuhöllin á
móti Ljótu hálfvitunum, og þá Elektra
á móti Blood Group. Svo kemur áframhaldandi snilld,
sem ég röfla um síðar. Ég var að sníkja
föt til að vera í. Maður verður náttúrlega
að vera kúl on tv. Það er enginn með havæskyrtur
og ég búnað selja allar mínar. Næsti bær
er Brim sem ég fór að sníkja í. Í
Kringlunni spurði ég strák hvað eigandinn heitir.
Bubbi, sagðann, auðvelt að muna það. Hann er að
vinna niðrá Laugarvegi. Já ha ha, sagði ég,
auðvelt að muna það. Svo ég fór úr
búðinni og beint í flasið á Bubba sjálfum
Morthens sem var með Dögun París í vagni. Hann dúndur
hress að vanda, nema helvíti ósáttur við myntkörfulánið
sitt, eins og gefur að skilja. Jæja, Lost að byrja. Bæ.
08.05.09 - Skrifstofan hingað og þangað
Þegar ameríska The Office byrjaði hélt ég
að það myndi totta fyrir allan peninginn. Það reyndist
ekki rétt. Þetta er alveg jafn gott og það orginal
enska. Ekki vissi ég að það er allt vaðandi í
öðrum "Office" þáttum.
Í Frakklandi heitir það La Bureau.
Í Þýskalandi heitir það Stromberg.
Í Kanada heitir það La Job
Og í Chile La Ofis. Þá veistu það.
---
Gordon Brown, "Downings-strætis dóninn", er nú
meira andskotans fíflið og tuddast svona á litla stráknum
í bekknum. Okkur, það er að segja. Eina skemmtilega
við hann er að hann er með sama munnkækinn og Hyacinth
Bucket í snilldarþáttaröðinni Keeping up Appearances.
Í þessari endalausu milljarðasúpuskuldakjaftæði
væri gott að fá svör við spurningunum: a) Hvaða
hálfviti veðsetti þjóðina fyrir öllum
þessum skuldum og b) Hvaða hálfviti bjó til svo
krosseignatengt hagkerfi að allt helvítis draslið fór
á hliðina þegar 20-30 manns fóru á hausinn.
Fer ekki að koma tími til að þessum beisikk spurningum
verði svarað?
07.05.09
FRÉTTATILKYNNING: Í þjóðleikhúskjallaranum
í kvöld, 7.maí, kl. 21:
Fílahjörðin rumskar eru tónleikar til styrktar
Steingrími Eyfjörð Guðmundssyni, sem einnig er þekktur
sem Hawaígítarundrið (KRAMDA HJARTAÐ), kvikmyndatónskáld,
lagahöfundur, hagyrðingur, kórstjóri og svo ótalmargt
fleira...Snillingurinn Steingrímur hefur nú háð
stranga baráttu við hvítblæði í um það
bil hálft ár og varið tímanum lengst af á
Landspítalanum, en að lokinni meðferð hér heima
fer hann í mergskiptaaðgerð í Svíþjóð.
Varla þarf að taka fram að svona veikindi höggva gríðarlegt
skarð í fjárhag hvers og eins sem í því
lendir, hvað þá nánustu fjölskyldu.
Því hvetjum við alla aðdáendur, vini
og velunnara Steingríms til að mæta á styrktartónleikana
og skemmta sér í leiðinni.
Fram koma Sýrupolkasveitin Hringir ásamt Möggu
Stínu, nýstirnin í Comedy-rockhljómsveitinni
Skelkur í bringu, gleðibankarnir Úlfur Eldjárn
& Músíkhvatur, gamla góða, eina og sanna Stórsveit
JÚPITERS og sjálfur Dóri Dragbít.
Aðgangseyrir er 1200 kr. (má borga meira – það
rennur líka beint til Steingríms).
Veitingar verða seldar á vingjarnlegu verði.
Þeir sem ekki komast geta styrkt hann með framlagi á
reikning 0513-14-402093 kt. 080160-3139.
Fyrir utan sjálfa tónlistarmennina kunnum við
öllum sem gera þetta mögulegt bestu þakkir fyrir
hjálpina.
---
Hin stórkostlegi fyrsti þáttur í PPPP verður
vonandi og að líkindum Sigur Rós á móti
Sumargleðinni (Hemma Gunn, Ómari Ragnarssyni og Þorgeiri
Ástvalds). Ekki amaleg byrjun það! Fbl greinir
frá.
06.05.09 - Ferðalög
Ég hef komið til
Hell
í Noregi en ég hef aldrei komið til Boring,
Oregon.
05.05.09 - Vörukynning
Hefi tekið trylling síðustu daga á undarlegar
matvörur frá snilldarbúðinni Mai Thai á Hlemmi.
Fyrst ber að nefna hið fáránlega ánetjandi
þarasnakk frá Khun film japanese crispy seaweed - perfect
snack with benefits, eins og segir á pakkanum. Heiða er orðin
húkkt á snakkinu líka og hún telur að þetta
benefits sem talað er á pakkanum um séu velsmurðar
hægðir. Hið undursamlega þarasnakk er til í
fjórum tegundum, með original, salty og tum yum bragði,
sem öll eru almögnuð, en mér fannst spicy verst, full
mikið piparbragð af því. Verð hvers pakka er um
370 kall sem er hverrar krónu virði. Þarasnakkið er
þó klárlega aquired taste, svo ekki koma vælandi
í mér ef það reynist ógeðið eitt.
Önnur snilld í búðinni eru ís/frostpinnar
með exótískum brögðum frá Joy Ice í
Thailandi. Þeir kosta rétt undir 200 kall stk og fást
í lausu eða fimm saman í svona kassa. Kókoshnetubrögð
eru tvö, nata de coco og young coconut, bæði geðveik.
Svo eru þarna gríðarexótísk brögð
byggð á ávöxtum sem maður vissi ekki að
væru til. Til dæmis Durian:
Svona Durian var kannski til í Hagkaupum á háæri
góðærisins, ég man eftir þessu í búðinni,
held ég. Bragðið af þessu er gríðarlega
vafasamt. Fyrri helmingurinn var laukbragð en svo kom ananasbragð.
Algjör steypa. Ég skellti þessu auðvitað í
mig. Ananaslaukbragð... mmm... spes. Það virðist sem
á efri helmingi pinnans sé gums úr ávextinum
sjálfum. Á kókoshnetupinnunum var t.d. kókoskjöt
í efri helmingnum. Ég bind miklar vonir við Taro íspinnan
sem verður smakkaður bráðlega. Man ekki til þess
að hafa séð Taro í Hagkaupum.
Ég lifi á brúninni og tékkaði því
á rauðbaunaís áðan:
Ég mæli ekki með honum. Ég var lengi að
komast í gegnum allar baunirnar á efri helmingnum en þegar
því lauk var bragðið alveg í lagi. En hvað,
maður verður að prófa allt. Hugsa sér það
að ég hefði getað farið í gegnum lífið
án þess að éta rauðbaunaís. Svona leit
ég út við að éta þetta:
---
Bókanir eru á fullu fyrir PPPP5 sem hefst á Rúv
í byrjun júní. Er óhætt að lofa framúrstefnulegum
leikjum í bland við geðveika leiki. Fyrsta viðureignin
verður t.d. svo einstök að fólk mun gapa af undrun
og spennu. Þá má geta þess að platan INNIHELDUR
er plata vikunnar á Rás 2. Sala hefur gengið vel en eitthvað
er þó eftir af hinu takmarkaða magni CDa. Þá
eru komin "í spilun" tvö geðveik lög eftir mig, Prinsessan
með Buff, pródúserað af bandinu, og Komdu
aftur með Elektra, pródúserað af Örlygi
Smára.
02.05.09 - Endalaus hamingja og eilíf fullkomnun
(kl. 16:00) Ég hefði farið að sjá David Lynch
jafnvel þótt hann hafi verið með opinn kynningarfund
um rotþrær. Hann er bara svo æðislegur og hefur gert
svo mergjaða list. Hann og Sigurjón Sighvatsson voru að
koma út úr jeppa við Háskolabíó
þegar ég gekk framhjá hálftíma fyrir
gigg. Þeir voru eitthvað að vesenast með það
inn um hvaða hurð þeir ættu að fara. Það
var hápunkturinn að sjá þá þarna því
enginn annar sá þetta. Ef ég hefði nú verið
með sándtrakkið úr Blue Velvet í vasanum eða
ljósmyndabókina sem ég á eftir hann hefði
verið hægt að fá eiginhandaráritun. Í
staðinn skotraði ég bara augunum á meistarann á
meðan ég gekk framhjá. Hárið grásprengt
og hann í svörtum frakka. Alveg magnaður. Svo var vitanlega
gaman að heyra og sjá hann tala um þetta TM.
Hann lýsir þessu hugleiðsludóti sem einhverju alveg
rosalegu. Eins og því besta í heimi hér. Gullkistu
sem þarf bara lykil til að opna. Lykill er rosaeinföld mantra
sem maður verður samt að læra hjá einhverjum möntrugaur
fyrir 80$, og svo kostar meira ef maður vill ná þessu
enn betur og verða ennþá hamingjusamari og fullkomnari.
Hmmm... Það getur vel verið að ég sé bara
alltof neikvæður og sé að missa af einhverju geðveiku.
Þetta er ábyggilega bara svipað fínt og að
liggja í mosabarði og hlusta á árnið. Það
kostar minna. Hér eru Strandaglóparnir. Þeir voru líka
á fullu í þessu og míní-hitlerinn Mike
Love er ábyggilega enn að.
The
Beach Boys - Transcendental Meditation
---
David Lynch með ókeypis íhugunarrugl hér í
næsta húsi, Háskólabíói, kl. 14
í dag! Ég held maður neyðist til að mæta,
til að glápa á karlinn, þótt þetta
íhuganarrugl sé ekkert sem maður nennir. Og talandi um
snillinga. Ekkert nema snilldin ein á Rúnars Júl tribjúti
í kvöld. Við Heiða tökum aðeins í með
Helga Björns. Þegar við mættum á æfingu
í gær stóðu eftirtaldir úti að reykja
og ræða málin: Gunnar Þórðarson, Hemmi
Gunn, Gylfi Ægisson og Gulli Briem. Er hægt að ná
saman meiri orku á einum punkti? Jú jú, fyrir innan
Bó, Krummi, Bjartmar, Shady, Eyvi og Þórir Baldursson,
svo bara nokkur séu nefnd. Ég sé fram á að
þessi dagur verði eintómt snillingasjó.
01.05.09 - Pönkfarir
Miklar og pönkaðar draumfarir í nótt. Fyrst
dreymdi mig reyndar Geir Ólafsson, en ég man ekki alveg hvað
við vorum að gera. Held í bíói saman. Svo
fór mig að dreyma Jello Biafra. Hann var að selja einhverja
pönkdiska og plötur frá Alternative Tentacles úr
sendibíl á einhverri pönkhátíð (líklega
var ég hér undir áhrifum frá stráknum
sem er að selja myndir úr sendibíl á hinni frábæru
sýningu LHÍ á Kjarvalsstöðum). Hjá
Jello sá ég haugana af plötum með S.H.Draumi. Svo
var ég labbandi ber að ofan inn á fínu hóteli
að skenkinum og spurði hvað nóttin kostaði. 3500$,
sagði konan og bað mig vinsamlegast að fara í eitthvað,
ég væri eins og mannæta. Svo var ég kominn ofan
í kjallara á hótelinu og þar var fjöldamorðingi
í felum og blóðslettur út um allt. Ég vaknaði
fljótlega upp úr því. Sofnaði strax aftur
og þá kom Joe Strummer. Hann var að vinna í plötubúð
sem var neðanjarðar í einhverjum undirgöngum í
erlendri stórborg. Það voru bara seldar pönkplötur
í þessari búð. Joe hleypti mér inn því
það komst enginn inn nema vera hleypt sérstaklega. Þetta
var mjög furðuleg búð, rimlar fyrir öllum gluggum.
Ég sá Viltu nammi væna umslagið en mér til
mikillar skelfingar var vitlaus plata í nærbuxunum, einhver
minniháttar pönksafnplata. Á borðinu lágu
nokkur eintök af nýútgefnum bútlegg með X-Ray
Spex. Mér fannst umslagið asnalegt, einhver teiknimyndaleg skrímsli
sem hefðu getað passað á plötu með bandi eins
og Misfits en ekki X-Ray Spex. Svo vaknaði ég nú bara.
30.04.09
Bloggið situr á hakanum vegna anna. Er á síðustu
metrunum að klára túristabók á ensku sem
byggist á eintómum topp 10 listum. Hið frumlega nafn
hennar er Top 10 Reykjavík and Iceland and The Icelandic Ways. Strax
eftir hana skellur á PP-síson, nokkrir þættir
verða teknir upp í maí en sýningar hefjast strax
í júní. Þarf að semja spurningar sem vindurinn.
Ýmis glæsileg bönd hafa staðfest þátttöku
en því miður verða Hjaltalín ekki með því
bandið er svo upptekið í útlöndum í sumar
(meik?). Egó verður heldur ekki með, Bubbi nennir vitanlega
ekkert að taka þátt í einhverju spurningarugli.
Rennur því fimmta PP-sísonið úr greipum
án þess að Bubbi fáist í þáttinn.
---
Það er magnað að David Lynch sé á leiðinni
hingað. Ég er ekki frá því að hann hafi
verið í guðatölu hjá mér á löngum
æviskeiðum. Hann fór reyndar alveg með það
í síðustu myndinni. Veit samt ekki hvort ég nenni
að hlusta á hann þusa um þetta íhugunarkjaftæði.
Var ekki Mike Love bjáni í Beach Boys á kafi í
þessu? Eða hvað? Er þetta málið? Andlegt
eitthvað? Verður maður að sleppa tökum á efnishyggjunni
og gerast svo hryllilega andlegur að maður snerti ekki jörðina
með iljunum?
---
Bestu döðlur sem fást á landinu eru þær
lífrænu í Maður lifandi. En vá hvað
þær kosta. Kílóið á 3900 kall. Keypti
sex döðlur í gær á 500 kall. Það
er auðvitað sturlun. Ég skammast mín fyrir að
segja frá þessu. En þær eru bara svo ógeðslega
góðar. Við vísindalega athugun á döðlum
(sem sé, að lesa um döðlur á Wiki)
kemur í ljós að döðlur eru til af ótal
tegundum og þeirra er neytt á fjórum þroskastigum.
Kannski maður leggist í döðlufræði meðfram
nýja andlega lífinu. Samt helvíti vonlaust að
ætla sér eitthvað í döðlubransanum á
Íslandi. Maður yrði að flytja til Arabalandanna til
að eiga meira val.
---
Mikligarður er uppáhaldsbúðin mín, eða
Holtagarðar eins og það heitir víst. Lufsan segist
hálfpartinn fyllast depurð við að koma þarna því
hrundir draumar uppspennts góðærisins blasa þarna
alls staðar við. Maður hefur Bónus til að versla
ódýrt í og svo glæsibúð Hagkaupa
við hliðina til að maður geti athugað strax hvað
maður sparaði mikið við að versla í Bónus.
Hagkaupsbúðin þarna kemst næst því
að líkjast glæsiflennibúðum erlendis. Þeir
eru reyndar búnir að minnka hana aðeins núna en hún
er samt alltaf jafn tóm af fólki. Það er aðdáunarvert
hversu lengi menn ætla að halda út. Ég styð
þessa verslunarmiðstöð heilshugar!
---
Glansmynd úr góðærinu #1: Ofurmenni kaupa sér
pylsu í Baulu.
---
Eftirminnileg klósett #2: Klósettið á CBGB's
er að sögn eitt hið eftirminnilegasta í heimi hér.
Það er til á plaggati enda fagurlega skreytt og margar
rokkhetjur hafa kúkað og pissað og ælt í það.
Kannski riðið og sniffað á því líka.
Hin goðsagnakennda (þoli ekki þetta orð) rokkbúlla
CBGB's er nú liðin undir lok og eigandinn dauður, en maður
flæktist nokkuð þarna á sínum tíma.
Fór á tónleika t.d. með The Frogs, Christmas og
Cowboy Junkies. Þá voru Cowboy Junkies ekki búin að
meikaða en ég man að á svæðinu var einhver
ægilegur karl með risavaxinn kæbojhatt, líklega
umboðsmaður. Bless
spilaði þarna 23 nóvember 1990 ásamt fullt
af böndum, m.a. Superchunk og Courtney Love. Hljómsveitinni
Courtney Love, ekki eiginkonunni. Þetta var eitthvað "grrrl riot"
band frá úthverfi í New Jersey eða eitthvað.
Ekki veit ég afhverju þau hétu þetta, en skruggan
hún Love hefur líklega verið byrjuð að vekja
á sér athygli með samvistum sínum við strákræfilinn.
Það er til upptaka af Bless-gigginu í þokkalegum
gæðum. Maður gerir kannski eitthvað við hana seinna.
Það þarf greinilega að gera eitthvað til að
koma S.H.Draumi og Bless í arfleiðina og sögubækurnar,
ekkert af efni bandanna rataði á þennan
bestu plötur Íslands lista sem nú er verið að
velja úr. Og ekki einu sinni æ með Unun sem er nú
hálf fáránlegt! Ég á bara eina plötu
þarna, Abbababb. En það eru svo sem fleiri skandalar á
listanum. Hvar eru Óðmenn? Nei nei, ókei, kannski er
þetta ágætur listi. En allavega, klósettið
á CBGB's. Ég man ekkert eftir því nema að
það var allt útkrassað og svakalega öreigalegt.
Ég man ekkert hvað ég gerði á því.
Svo kannski var það ekkert eftirminnilegt eftir allt saman. Bara
frægt. Heimsfrægt. Og bíður nú í kassa
einhversstaðar eftir að CBGBs verði opnað aftur í
Las Vegas. Sem gerist ábyggilega ekki því karlinn er
dauður.
Næst í Eftirminnileg klósett: Svakalega klósettið
í turninum í Riga.
27.04.09 - Færeysk Orka í Norræna húsinu
Orka
- Fjøllini standa úti
Einu sinni komu þýsku heróínlistamennirnir
Einsturzende Neubauten og söfnuðu drasli á málmöskuhaugi
sem þeir drógu inn á Zafarí og héldu
svo tónleika. Nú er draslrokkmenningin komin til Færeyja
og hljómsveitin Orka, sem eru að spila á allskonar drasl
samhliða hefðbundnum hljóðfærum, spilar í
Norræna húsinu á fimmtudagsinn ásamt Eyvöru
Pálsdóttur og Ólöfu Arnalds. Hljóðfærin
sem ORKA spilar á eru til dæmis steypuhrærivél,
slípirokkur og loftpressa. Það er magnað hvað
þeir geta fengið fagra tóna með slípirokknum.
ORKA hefur fengið mikið lof gagnrýnenda og er afar vinsæl
í Frakklandi sem og víðar í Evrópu.
Hér eru frekari upplýsingar um ORKU:
ORKA ásamt
Yann Tiersen í Frakklandi
Umfjöllun
um ORKU í All Scandinavian
Heimasíðan þeirra
---
Norræna húsið er að gera góða hluti.
Mér finnst svo mikið norrænt velferðarsamfélag
eitthvað að fara þangað. Allt eitthvað svo mikið
hrökkbraut. Sem er gott. Ég fór þar á anga
af List án landamæra sýningunni, sem var mjög
kúl. Nú stendur yfir gríðarleg List
án landamæra dagskrá. Þar má yfirleitt
sjá flottustu list dagsins í dag, sem einnig er á
viðráðanlegu verði. Svo er ég auðvitað
á
leiðinni á Kjarvalsstaði til að sjá útskriftarsýninguna
LHÍ. Þessar tvær sýningar, meistaranna í
LÁL og útskriftakrakkanna í LHÍ eru afburðaviðburðir
í listum, skemmtilegt og frjótt stöff.
26.04.09
Jæja. Komiði þá með þetta norræna
velferðarþjóðfélag takk.
23.04.09 - Meira kyn, minna kr
Ég spái sérstaklega mörgum útstrikuðum
kjörseðlum í ár. Það er greinilega algjört
eitur að hafa fengið pening frá FL eða Baugi. Ætli
frambjóðandi sem væri vís að því
að hafa borgað gleðikonu fyrir að skíta á
bringuna á sér (DV birti myndir) væri ekki í
skárri málum. Mikið væri annars skemmtilegra ef
hér væri allt vaðandi í kynlífsskandölum
en ekki peningaskandölum. Þessi eða hinn næðist
á mynd aftan á geit („Þetta eru óþolandi
dylgjur, það voru allir að þessu 2006“), þessi
eða hinn með klemmur á pungnum í DV, heill þingflokkur
í hópmökum í Skíðaskálanum
í Hveradölum - myndir. Þá væri fútt
í þessu. Miklu skemmtilegra en fúlt peningahjakkið
endalaust. Maður er líka orðinn algjörlega ónæmur
fyrir þessu milljóna, milljarða, skrilljóna-stórhríð
sem hefur bulið á manni síðan í haust. Tvær
milljónir frá FL? Það er nú ekkert! hugsar
maður fyrst, en svo, bíddu bíddu... Tvær millur?
Það er nú alveg fullt. Maður er alveg sjálfur
slatta lengi að streða fyrir því brúttó,
tekur lungan úr árinu. Hefði ekkert á móti
því að fá svona "styrk" frá Satani ehf.
Sem gerði algjörlega engar kröfur á mann í
staðinn. Algjörlega engar. Það er alveg ljóst.
Engar. Einmitt.
---
Og gleðilegt sumar. Loksins.
22.04.09
Mæli með tónleikum Ebergs í kvöld á
Sódómu Reykjavík. Húsið opnar klukkan níu
en bandið byrjar að spila um 10. Hljómsveitina skipa ásamt
Einari þeir Nói Steinn Einarsson trommuleikari, Haraldur Þorsteinsson
bassaleikari og Pétur Ben sem leikur á gítar og selló.
Auk þess mæta aðrir góðir gestir á svæðið
og taka lagið með bandinu. Platan Antidote er eins og fólk
ætti að vita dúndurpoppstykki. Það stóð
til að Dr. Gunni spilaði þarna líka en þá
mundi Biggi að hann var bókaður í Abbasjó
á Skaganum. Dr. Gunni mun þó spila eitthvað í
sumar.
---
Buffið hefur gert útgáfu af lagi mínu "Prinsessan
mín" en það heitir bara "Prinsessan" hjá þeim.
Eins og við var að búast er um að ræða poppsnilld
hjá strákunum enda kunna þeir bæði að
syngja og spila. ELO og Toto pissa í sig yfir þessu hjá
þeim. Lagið verður frumflutt í þætti Felixar
Bergssonar á Rás 2 á morgun um kl. 11. Næsta
skref í sumarsmellabransanum er svo næsta lag Elektru. Las
í Fbl að Örlygur Smári væri að taka það
upp as ví spík.
---
Jæja. Ég er alveg sammála
þótt ég ætli að kjósa VG.
21.04.09
Heyrði í Árna Matt í útvarpsþættinum
Víðsjá í gær. Hann sagði þennan
dóm yfir sænsku Pirate Bay gaurunum engu skipta. Stafrænan
yrði ekki stoppuð. Í því sambandi langar mig
til að skanna inn þessa fornöld sem er að finna á
innraslívi á plötu með Haircut 100 (ömurleg
plata). Held þessi bardagi gegn stafrænunni sé álíka
vonlaus:
Ég rúntaði niður Laugarveginn eins og góður
Reykvíkingur um helgina. Með ís og alles. Ég taldi
TIL LEIGU skiltin í gluggunum. Frá Snorrabraut að Klapparstíg
eru 14. Frá Klapparstíg og niður allt Bankastræti
að Lækjargötu bætist bara eitt við. Samtals 15.
En vandamálið er sem sé Klapparstígur að Snorrabraut.
Fæ ekki betur séð en allt það nýja sem
bætist við séu eintómar lopapeysubúðir.
Einhver fái nýja hugmynd takk! Sá líka að
Heilsuhúsið er komið þar sem Apótekið var
á horninu á móti Mál og menningu. Leit helvíti
kosmópólitan út.
---
Skítt að drengjabækur skuli ekki vera vinsælar
lengur. Stefán og Smyglskútan yrði metsölubók.
---
Headswim: They're gonna be massive! (sagt í 2
vikur 1997)
Kláraði loks skáldsöguna Kill your friends eftir
John Niven. Þetta er bókstaflega mannskemmandi bók.
En fyndin. Hún lýsir breska tónlistarbransanum árið
1997, sirka þegar ég var að reyna að meikaða með
Unun. Þessi bók ætti að vera skildulesning fyrir
alla bláeygða krakka sem ætla sér einhverja hluti
í bransanum. Það er góðæri 1997 í
Bretlandi, britpoppið sullar og Tony Blair tekur völdin. Steven
Stelfox, A&R maður hjá ónefndu stórfyrirtæki,
er sögumaður og álíka geðveikur og Bates í
American Psycho. Þessari bók hefur verið líkt við
"American Psycho meets Spinal Tap", sem er nokkuð góð lýsing.
Steven ríður hórum, lepur upp kókaín, flækist
á milli tónlistarhátíða, hlustar á
demó, segir það sem böndin vilja heyra og öfundast
út í samstarfsmenn sína þegar þeir detta
niðrá bönd sem meika pening. Það er það
eina sem skiptir máli í þessum drullubransa, að
meika pening. Það er hent stórfé í allskonar
vonlausa lúða í von um að eitthvað skeði.
Bönd eru hafin til skýjanna - bransagaurar hæpa þetta
upp og blöðin tyggja ruglið upp. Eftir hálf ár
er allt búið, lúðapopparar skríða aftur
í illalaunað djobb og peningarnar sem fóru í hæpið
eru afskrifaðir. Þessi bransi, vonandi deyjandi bransi, er bókstaflega
vél sem gleypir unga poppara, tyggir þá og spýtir
út. Popparar ganga stóreygðir í vélina
að því þeim langar svo að meikaða. Öllu
þessu er lýst í nákvæmum smáatriðum
og mjög trúverðugum af því höfundurinn
var sjálfur A&R maður lengi. Það er neimdroppað
í plötunni eins og nótúmorró. Mánuðir
ársins eru notaðir sem kaflaskipting. Í hverjum mánuði
er eitthvað band eða poppari sem á að meikaða, samkvæmt
hæpinu. Ruglið í viðkomandi útgefanda er innan
sviga. Gene ("þetta verður krossóver band!"), 3 Colours
Red ("önnur eða þriðja platan þeirra mun seljast
í milljónum eintaka. Ég er viss um það"
- Alan McGee), Gina G ("hún mun þróast á sama
hátt og Madonna. Þetta er dansplata áratugarins"),
D*Note ("Þau munu spila í Royal Albert Hall. The sky's the
limit"), Sylvia Powell ("platan hennar verður rosalega vinsæl!)",
The Ultrasound ("það er ljóst að þetta band
verður á svæðinu miklu lengur en 18 mánuði..."),
Jimmy Ray ("bæði nútímalegur og retró"),
Echobelly ("hvílíkt gæðaband"), Asian Dub Foundation
("ég hefði verið geðbilaður að gera ekki samning
við þá"), Peach ("þetta er tímalaus plata,
algjör hittari"), Superstar ("samband okkar hjá fyrirtækinu
við bandið er til framtíðar..."), Headswim... Nokkuð
er talað um Drum'*'bass listamanninn Rage, sem greinilega er Goldie.
Rage er fáviti og er lýst svona: "He looks like he's covered
himself in glue and charged headlong through an outlet called Rich Black
Bastard." Ég ætla ekki að skemma fyrir væntanlegum
lesendum, en Steven gerir að lokum góða hluti með Spice
Girls eftirlíkingunni Songbirds. Þetta er góð bók,
en ekki frábær, til þess er söguþráðurinn
of mikil klisja, en hún lýsir fávitabransa á
upplýsandi, trúverðugan og sprenghlægilegan hátt.
Þú munt ekki líta poppbransann sömu augum eftir
þessa bók.
19.04.09 - Einmitt, Bjarni
Ég kalla þessa mynd „Einmitt, Bjarni“.
---
Norðurturn Smáralindar, 15 hæða verslunar og skrifsstofuhúsnæði,
er einmitt það sem vantar núna. Enn eitt útibúið
fyrir Húsasmiðjuna, Toys R us, Bónus og rassgatið
á mér. Bygg eru smá byrjaðir á turninum,
komin beinagrind fyrir tvær hæðir, mér sýnist
það hafa verið eins mánuðum saman. En það
verður náttúrlega að virkja eitthvað forljótt
fljótadrasl strax og setja niður álver oná dauðar
heiðargæsir svo hjól atvinnulífsins geti snúist
aðeins meira og þessi helvítis turn fái risið.
E þageggi? Ég meina, þessi fljót renna bara til
sjávar hvort eð er, engum til góðs. Við viljum
turninn! Já, og allt hitt sem Bygg eru með í vinnslu
(sjá hér).
Og svo náttúrlega allt hitt sem öll hin byggingarfyrirtækin
eru með á prjónunum krönunum. Og
tónlistarhöllin auðvitað.
Stolt þjóðar verður ekki sannfærandi nema
það séu glæsibyggingar til að bakka það
upp. Þetta veit fólk. Persónulega hefði ég
fílað betur að "álfhólinn"
sem Frakkinn Jean Nouvel lagði til hefði orðið fyrir valinu,
en ekki þetta smeðjulega góðærislúkk.
Álfhóllinn hefði verið spes. Við verðum að
vera spes til að einhver nenni okkur.
---
Ég mæli með Kryddlegnum
hjörtum, dúndurfínum veitingarstað á
Skúlagötu. Þar er heilsufæði gert frábært
á bragðið með nýjum trikkum. Heilsumatur vill
allur smakkast eins, eins og pappi, en hér er nýtt bragð
og gott. Fyrir 1390 kall (ódýrt!) var hægt að fá
sér 4 súpur og af mjög fínum salatbar. Ég
fékk mér sjávarréttasúpu og kókoskjúklingsúpu.
Báðar voru frábærar. Ég bölvaði
liltum maga mínum fyrir að fyllast svona fljótt. Mig
hefði langað til að éta miklu meira. Fer bara aftur.
Fjórar stjörnur!
--
Hér á heimilinu hefur Grísk
jógúrt frá MS komið sterk inn. Eins og skyr,
kannski bara betra! Besta nýjungin frá MS í áraraðir.
Fjórar stjörnur!
---
Góður dagur í Kolaportinu í gær. Keypti
tvær bestu plötur Megasar á vinýl, meistaraverkin
Millilending og Fram og aftur blindgötuna. Mér líður
aldrei eins mikið sem Íslendingi en þegar ég hlusta
á þessar plötur. Orginal textainnsert fylgdu með
og allt er í algjöru toppstandi. Keypti líka fyrstu
plötu Stranglers, ævaforna Duane Eddy plötu á 100
kall og Dömufrí með Dúmbó og Steina! Því
ver og miður er á Dúmbóumslaginu ekki sögð
saga, hinum megin eru bara myndir af hljómsveitinni og svoleiðis.
Ég er að reyna að muna hvaða umslög eru svona aksjón-umslög,
með sögu sagðri með tveimur myndum, einni framan á
og einni aftan á. Gengur illa að lókeita þetta.
Veit einhver hvað ég er að tala um og getur nefnt dæmi?
18.04.09 - Halló apabróðir
Í síðasta Bakþanka talaði ég um
að Ísland hefði aldrei verið á leiðinni að
verða Dubai norðursins. Ég velt fyrir mér hvað
ég ætti að nota þegar ég var að skrifa
þetta, Lúxemborg norðursins, Cayman norðursins...
en valdi svo Dubai af því Dorritt var eitthvað að
röfla um það að við ættum að stefna að
því að verða Dubai norðurins. Líklega var
þetta rugl hjá mér því við erum nú
á hraðri leið með að verða Dubai norðursins,
eða Dubai að verða Ísland miðbaugsins því
Dubai ku við það að fara á hausinn. Ég
fékk email frá Gunnari Hafsteinssyni þessu að lútandi
með mjög áhugaverðum línkum:
Varðandi síðustu bakþanka, Sigur raunveruleikans,
þar segirðu:
Við vorum aldrei í alvörunni að verða Dubai
norðursins
Má ekki frekar segja að við séum Dubai norðursins?
Bæði löndin fjármögnuðu vöxt með
ofurlántökum sem keyrðu löndin í kaf (amk annað
landið er farið niður, hitt fylgir
fast á eftir).
Bæði löndin notuðu innflutt vinnuafl til að
byggja upp skýjaborgir, sem standa margar hverjar eftir auðar
og yfirgefnar. Aðbúnaður vinnuaflsins var til skammar (þó
gengum við ekki eins langt í þrælavæðingunni
og Emíratarnir í Dubai). Allir vissu um ömurlega aðbúnað
verkafólksins en leiddu það hjá sér: mæli
með þessari
rosalegu grein.
Á meðan við höfum Höfðaborgina, Krepputorg
og tómu úthverfin til að minna á geðveikina
sem ríkti hér hafa bræður okkar í suðri
Pálmatréð, World Islands og Burj Dubai - Sjá.
Aldrei nokkurn tímann hefur mig langað til Dubai. Myndir
þaðan hafa eiginlega fyllt mig viðbjóði. Á
meðan Las Vegas er lokkandi sturlun er Dubai bara sturlun. Afhverju
fer maður alltaf að tengja svona við Biblíuna í
huganum? Sódóma Gómorra eitthvað. Jæja fokk.
Það er náttúrlega ekki í lagi með þennan
blessaða homo sap.
Dúmbó
og Steini - Halló apabróðir
Og talandi um. Mér barst til eyrna hressandi stuðlag með
Dúmbó & Steina með sósíalískum
stuðtexta um apa, mannapa, arðræningja, mengun og kjarnorkuvá.
Ég sver að ég hafði aldrei heyrt þetta lag
þegar ég samdi Homo Sapiens um apana í skógnum
og það allt. Þeir Dúmbó og Steini virðast
hafa verið í sömu hugleiðingum þegar þeir
sömdu lagið Halló apabróðir á seinni
plötu sína Dömufrí (kaupana um leið og ég
séana). Það var Steinar Records sem gaf út árið
1978 og umslagið er stórglæsilegt eins og sjá má.
Ég velti því fyrir mér hvort þetta sé
eitt af þessum seventísumslögum þar sem saga er
sögð. Framan á er eitthvað að gerast og hinum megin
er þetta eitthvað búið að gerast. Aftan á
þessu umslagi gæti t.d. gellan og gaurinn sem gapir að
henni verið komin upp í rúm eða eitthvað álíka
(svo karlrembískir hugarórar mínir fái nú
að blómstra um hríð). Hér er mynd af Dúmbó
og Steina frá svipuðum tíma. Steinn Skaptason er vinsamlegast
beðinn um að telja upp meðlimaskrá í gestabók
frá vinstri til hægri.
Öpdeit: Haukur Júlíusson skrifar: Það
er best að taka ómakið af honum Steini og nefna Dúmbómennina.
Ystur til vinstri er Reynir Gunnarsson(sax) Trausti Finnsson (bassi
/hljómborð)
er næstur, þá Finnbogi Gunnlaugsson(gítar)
Ásgeir R. Guðmundsson
(hljómborð-hljómsveitarstjóri) Sigursteinn
Hákonarson söngvari er í miðju ,þá
trommuleikarinn knái Ragnar Sigurjónsson, síðan
Jón Trausti Hervarsson(sax)
ystur til hægri er Brynjar Sigurðsson (bassi). Textann
"Halló apabróðir" samdi
Bjartmar H. Hannesson þá bóndi á Hreðavatni
en síðar á Norðurreykjum í
Borgarfirði. Dúmbó sextett og Steini/Guðmundur
var býsna merkileg sveit síns
tíma. Átti ma stóran þátt í
að gera Glaumbæ því fyrirbæri sem hann varð.
Bókin góða "Eru ekki allir í stuði"
skautar fremur létt yfir feril þeirra. Lítirð er
til
af upptökum frá ferlinum. Jón Trausti Hervarsson
samdi þátt um
hljómsveitina sína "Saga hljómsveitar Dúmbó
1961-1968" og birti í Árbók
Akurnesinga 2004. Útgefandi, Uppheimar Akranesi. Kaupa strax
og lesa.!!!
(Ég á þessa bók. Myndirnar koma þaðan!
Það er skautað létt yfir margt í Eru ekki allir
í stuði? Og sumt fer ekki einu sinni á skauta. Enda stóð
hvergi að þetta væri hin endanlega bók um íslenska
tónlist!)
17.04.09
Ekki er traustvekjandi þegar enska er léleg á matseðlum
veitingastaðum. Humarskipið
er til dæmis með í boði eitthvað sem heitir Grilled
Vikingstake glanced with mustard, eða Grillaður víkingastaur
litinn á með sinnepi. Nammi namm!
---
Þegar ég bjó á Álfhólsvegi
í Kópavogi kom það einu sinni fyrir að útlendingur
skrifaði á umslagið sem hann sendi mér: Álfholuvegur,
Lopavogi. Mér fannst þetta svaka sniðugt og útskýrði
fyrir honum í næsta bréfi, hey, you wrote Elf hole
road, Woolbay, instead of Elf hill road, Pup of seals bay, which is correct.
Ég held að aumingja maðurinn hafi ekki fattað neitt
um hvað ég var að bulla.
---
Annað kvöld hefst þáttaröðin Alla leið
þar sem Páll Óskar fer yfir Eurovisionlögin í
ár með mér, Guðrúnu Gunnars og Reyni Þór,
Reynsaboy. Mér fannst nú satt að segja meira spunnið
í lögin í fyrra. Þá voru alveg nokkur sem
voru ekki glötuð, mér fannst Tellier æði, og
það mátti hafa gaman af því bosníska,
búlgarska,
spænska og einhverjum fleirum. Nú er þetta heldur rýrt
í roðinu og vantar allt almennilegt flipp í þetta
og öðruvísilegheit. Þetta er alltof hefðbundið
í ár.
16.04.09 - PPPP!
Loksins er eitthvað stuð í þessu. Popppunktur
snýr
aftur á Rúv í byrjun júní! Við
Felix tökum eina syrpu enn, þá fimmtu. Þetta er
auðvitað búið að vera á Skjá einum
síðan amma var ung og símapeningar runnu sem blóð
um æðar hennar. Fyrst vann Ham 2002, þá Ensími
2003, næst Geirfuglarnir 2004. Í Stjörnumessu 2005 komu
Milljónamæringarnir á óvart og unnu Geirfuglana.
Ég er búinn að vera með þetta einn á
Rás 2. Í fyrra sigruðu rótarar feðga í
æsandi lokaslag. En nú er sumsé á döfinni
fyrsti alvöru Popppunkturinn síðan 2004. Það
er haugur af nýjum böndum kominn fram sem við Felix munum
fá til leiks, Sprengjuhöllin, Ingó og Veðurguðirnir,
Hjaltalín... Nokkrar eldri sveitir liggja enn óbættar
hjá popppunktsgarði, Egó, Sigur Rós, Bang Gang
og múm svo einhverjar séu nefndar. Þetta verður
gríðarlegt!
---
Maður verður uppfyrir haus næstu vikur. Er að dæla
inn í túristabókina Top 10 Reykjavík, Iceland,
and the Icelandic Way, sem Sögur gefur út í sumar. Ég
veit orðið allt um allt í Rvk og nágrenni. Sé
því ekki fram á að geta spilað nýja
inniheldur... efnið læf fyrr en í júní eða
eitthvað. Platan er nú til í bæði 12 tónum
og Smekkleysu og náttúrlega í póstverslun Erðanúmúsik.
Geðveikt góð plata!
---
Þegar ég hugsa um lífeyrissjóðsmál
sé ég sjálfan mig fyrir mér, gamlan og nánast
kominn í gröfina. Þess vegna forðast ég að
hugsa um lífeyrismál. Held þetta kerfi mætti
vera betra samt. Ég á einhverja aura hér og þar,
í lífeyrissjóði bankamanna og VR og eitthvað.
Auðvitað ætti að vera hægt að sameina þetta
allt í einn pott. Svo var tuðað í manni á
fullu að leggja í séreignarlífeyrissparnað,
eins og maður hefði eitthvað efni á því.
Aðalsellið í þeirri möntru var að atvinnurekandinn
myndi leggja á móti í hauginn. Að lokum lét
ég undan og samþykkti svona díl. Sem betur fer hætti
ég í vinnu og því datt þetta dæmi
upp fyrir eftir nokkrar greiðslur. Var samt kominn með 73 kall
í sjóðinn. Þegar ég athugaði þetta
áðan hafði dæmið rýrnað í 58
kall. Og ef ég tek þetta út núna eins og er
víst hægt, ö, vegna "sérstakra aðstæðna",
þá er tekinn skattur af þessu og ég veit ekki
hvað, svo ég fæ 37 kall út úr þessu.
Frábær díll! Not.
---
Reykjavík er í rúst af því að
heimskreppan hristi draumóramenn upp af óráðinu
og yfirdráttarheimildin rann af þeim. Draumóramennirnir
sáu fyrir sér nútímalega æðislega
steindauða glerborg, en nú ríkir hjallastefnan, grotnandi
hjallastefna og hálfbyggð skrýmsli. Bakþankinn
í dag fjallar um þetta - Sigur
raunveruleikans. Ef það væri hægt að hafa
myndir með Bakþönkum hefði ég til dæmis
getað haft þessa hér með:
15.04.09 - Ísfólkið
Þá er þetta páskarugl loksins búið.
Maður át eins og kreisí og gerði mest lítið.
Keypti ís og fór í sund. Í Vesturbæjarísbúðina
kom gothara-gengi og keypti sér ís. Ég sá ekki
hvernig ís gothararnir keyptu. Einhver goth ís, væntanlega.
Í Álfheima kom Gunnþór í Q4U og keypti
sér ís með súkkulaðidýfu. Ekki mikið
pönk í þessu, sagð'ann. Ef gamalt pönk hefði
brotist fram hefði hann væntanlega átt að klessa ísnum
í hausinn á sér. Hann sagði að Q4U-kombakk
væri handan við hornið í haust. Fjölskylda mín
gengur annars undir nafninu Ísfólkið því
bæði börnin mín sjást nú í auglýsingaherferð
Kjöríss.
Ís! Já, Ís! Og vatn! Vatn! Ís og vatn, það
er það besta við Ísland. Og hættu svo að
væla. Farðu frekar í sund og fáðu þér
ís.
12.04.09 - Varúð: Páskaeggjasukk!!!
Um daginn bar ég hér saman austurlensku búðirnar
Mai Thai og Asian og taldi Mai Thai skara fram úr í vöruúrvali.
Eftir heimsókn í Asian í gær kemur á
daginn að úrvalið er álíka. Búðin
var bara tóm síðast þegar ég fór,
en nú er ný sending komin í hús. Keypti mér
m.a. geðslegt snakk, Trendy snack, búið til úr hrís
og þara. Það var ekki nógu sértækt
á bragðið, því miður. Mér fannst
ég þó mjög trendí þegar ég
var búinn að gófla þessu í mig.
---
Hún var fín myndin um Liverpool-ferðina í
gær á Rúv. Ætli maður hefði ekki skellt
sér með hefði maður vitað að þetta væri
síðasta gigg Hljóma. Á sínum tíma
kom tvennt í veg fyrir að ég færi. Var nýkominn
frá Belgrad úr Eurovisionruglinu og hafði farið með
Bigga í Bítlaferð til Liverpool árið áður.
Bítlafræðin hafa yfir sér mikinn trúarblæ.
Gædar benda á staðsetningar og fólk fer að
grenja inn í sér við að hugsa um allt bítlið
sem grautast í hausnum á því. Fallegt. Aldrei
að vita nema maður skelli sér aftur til Liverpool í
frekara pílagrím. Er þó engan veginn æstur
yfir öllum þessum væntanlega rímasteru útgáfum
af Bítlaplötunum. Hvað þá þessum væntanlega
tölvuleik. Hér er hinsvegar góður Bítlalínkur:
Beatles
anecdotes.
---
Það er vel til fundið hjá Rúv að sýna
Áramótaskaupið 2006. Djöfull vorum við full
í gær.
---
Eina góða við Feisbúkk er að maður getur
stundum fundið myndir af sjálfum sér. Hér er t.d.
falleg mynd, ungur maður á Borginni 1992, 27 ára og því
á leið í gröfina ef klisjulegustu klisju rokksins
hefði verið fullnægt:
11.04.09
Amerískum smekk er nú vel sinnt í búðum
innanlands. Öðlingarnar í Hagkaupum hafa tekið inn
nýjan skammt af rótarbjór og bjóða nú
A&W dósir eins og ekkert sé sjálfssagðara.
A&W er "Coca Cola rótarbjórsins", eins og ég hef
áður tuðað um. Þá er hin nýopnaða
verslun MegaStore í Smáralind amerísk út í
gegn með gúmmilaði eins og tootsie rolls og eitthvað.
Fann þar svo sem ekkert sem ég var sérlega spenntur
fyrir, en það var allt troðið þarna, fólk
í verslunarham, enda skjár fremst sem segir til um verð
dagsins. Fólki líður því eins og það
sé að spara og það eru fleiri en ég ginkeyptir
fyrir amerískum smekk.
---
Það er ekkert nema göngutúrar og sund þessa
dagana. Ég er að skrifa túristahandbók um Rvk
og Ísland og þarf stundum að tékka á stöffi.
Bókin verða eintómir topp 10 listar um hitt og þetta
á Íslandi, t.d. top 10 Reykjavík on foot, sem ég
hef verið að rannsaka í. Við eigum fullt af ógeðslega
flottum stöðum til að labba í og á meðan
veðrið er gott þurfum við ekki að kvarta. Umhverfið,
náttúran, er það sem við eigum skuldlaust (ennþá),
og m.a.s. innan borgarmarka er allt vaðandi í góðu
stöffi. Til dæmis Grótta, það er dúndurflott
pleis. Það var háfjara og hægt að rölta
út í eyjuna. Neðan við hjallinn og borholuna er umhverfisverkið
Kvika eftir Ólöfu Nordal, sem er fótlaug með heitu
vatni. Hinn daginn varða Elliðaárdalur með sínu
stöffi. Sá græna tjörn sem er þarna, spúkí
nokkuð, en krakkahálfvitar voru búnir að tjóna
hana með helvítis kroti á klettaveggi. Pappakassi og
skór möruðu í hálfu kafi. Nú er lag
fyrir allsherjar tiltekt í Rvk. Atvinnulausa fólkið ætti
að fara í galla með skrúbb og taka borgina í
gegn. Reykjavík hreinasta borg í heimi er takmark sem hægt
er að standa við. Ókei, við erum kannski blönk,
en það er ekki subbulegt heima hjá okkur, gæti slagorðið
verið. Að hugsa sér: Í stað þess að
mara í þunglyndi heima hjá sér og blogga um
spillinguna í Sjálfsstæðisflokknum (eða eitthvað
álíka upplífgandi) væri hægt að vera
úti að tína upp rusl.
---
Hvað varð eiginlega um alla vondu íslamistana sem öll
umræða snérist um fyrir svona sirka ári? Manstu
ekki, þessa sem ógnuðu vestrænum gildum? Ég
spyr af því ég var að horfa á Flugdrekahlauparann
í gær. Ágætis mynd. Uss, hvað Talíbanar
eru vondir. Allt síðskeggjaðir kvenhatandi ríðírassistar.
Talíbanar eru afkvæmi jólasveinsins og Satans. Eva
Joly er hinsvegar afkvæmi Vigdísar og Charles Bronson.
10.04.09
Gleðilegan Föstudaginn langa. Sólóplatan Dr.
Gunni inniheldur... er komin
út. Platan inniheldur... 18 lög. Ég myndi segja
að þetta væri mitt "hvíta albúm" - vegna
fjölbreytninnar, sjáðu til, ekki að ég sé
svo geðveikur að ég haldi að ég eigi eitthvað
í Bítlana. Lögin eru þessi: Hlið A: Elskahata
(geðveikt pönk), Svo 2007 (hljómsveitin Start),
Satan
konungur apanna (Satan að hafa mök við Spilverkið),
Píkan
á Britney Spears (Baby you can drive my car),
Síðasta
fylliríið (raunsönn lýsing á mínu
fyrra lífi), Bubbi Morthens (tribjút),
BSÍ
(kjammakántrí), Góða nótt (Þórbergur
í Violent Femmes). Hlið B: Prinsessan mín (iðnaðarpopprokk),
Verum
góð við hnakkana (gleðipopp), (næstu sex lög
eru hluti af medlíinu "Dr. Gunni í bíl":)
Ófæddar
(Big black),
Dyntótt (Obladí),
Ungakaka (Hendrix
að hafa mök við Yoko Ono í hakkavél), Við
Hekluskiltið ("Travelling Wilburys á sterum" - Biggi Baldurs),
Einbreið
brú (singalong),
Blindhæð og brú (Xtc),
Við
hittumst í dauðatjaldinu (raunsætt þunglyndi,
smá Brian Wilson) og að síðustu:
Skipulagðri
leit hefur verið hætt (Morricone og ðe theme from Hildur.
Þess má geta að þetta síðasta lag á
plötunni er þriðji og síðasti hluti "verða
úti"-tríólógíunnar. Hin tvö áður
útkomnu lögin í þeirra tríólógíu
eru lögin Öxnadalsheiði og Heimavistin Helvíti.) -->
Góða skemmtun og plís ekki nappa!
Platan fæst einnig í 12 tónum, en þar er opið
í dag, Föstudaginn langa, frá kl. 13 til 18. |