18.04.08
Fyrsta Portishead platan kom þeim á kortið, önnur
var frekar dauft bergmál þeirrar fyrstu. Nú er komin
plata númer þrjú, Third, og verður hún að
teljast nokkuð árennileg, þótt ég sé
ekki alveg að lepja hana hólseil og æpi ekki brjálaður
að hún sé meistaraverk. Ég hefði líklega
mp3-að einhverju af þessum 3 lögum sem hann Bobby Breiðholt
póstar svo til að spara mér sporin sendi ég þig
bara þangað til
að sækja þau.
---
Það væri auðveldara að vera með Evru en
krónu. Já. Svo væri auðveldara að talk english
sem er líklega rétt. Afhverju er smáþjóð
að burðast með 1100 ára tungumál sem enginn skilur?
Samt segi ég nei. Íslenskan gerir okkur að Íslendingum.
Skítt með krónuna, hún er ekkert issjú,
en málið - the language - það er allt annað mál.
Við værum hallærisleg ef við töluðum bara
ensku, "corny", miklu bjánalegra en "hallærisleg". En kannski
er mun hagkvæmara að vera ekki Íslendingur heldur bara
alþjóðlingur og tala ensku. Hagkvæmni smagkvæmni.
17.04.08
Ég var að gera uppgötvun: Ég hef ekki séð
eina einustu frétt um París eða Britney í allavega
mánuð! Hvað gerðist eiginlega? Kreppan?
---
Hvað ætli hafi verið sagt OMG í mörgum öðrum
húsum en heima hjá mér þegar Ásdís
Rán og mamma hennar voru í Kastljósi í gær?
---
Þreyttasta klisja hins þreytta afþreyingargeira Hver-drap-líkið-sjónvarpsþáttanna
er sú að allir geðveikir morðingjar séu með
blaðaúrklippur upp á vegg hjá sér. Brjótist
löggan inn í hús og í einu herberginu eru úrklippur
(ekki verra að andlit hafi verið afskræmd á myndum)
er pottþétt að morðinginn er fundinn. Þessi
klisja spratt upp í klisjubankanum Mannaveiðum, þeirri
frekar slöppu seríu. Geðveiki morðinginn með úrklippur
á vegg í sumarbústaðnum. Slappt. Ég missti
reyndar af þætti nr. 3 svo ég er kannski ekki dómbær,
en fannst það ósannfærandi mótíf að
einhver nennti að drepa sig fyrir Höllu Vilhjálms, eða
hvaða stelpu sem er, þannig séð.
---
Enn er Okursíðan
funheit. Nú ætlar fréttastofa Stöðvar 2 að
birta eitt dæmi á viku, sem er ágætt, gefur þessu
meira vægi. Einhver 14 ný dæmi komin síðan
í gær, leðurhulsa á 66.000 og allskonar geðveiki.
---
Pabbi minn, Hugh Hefner
er Bakþanki dagsins. Hér
eru myndirnar af gamla sóðaseggnum Hefner og stelpunum sem ég
minnist á. Ítarefni við greinina gæti verið
myndin af pabba sem hefur haft hausaskipti við Hugh. Ég vona
að systkini mín og aðrir ættingjar fyrirgefi mér
það tilfinningalega uppnám sem þessi mynd getur
valdið þeim, og treysti því í lengstu lög
að gamli maðurinn fari nú ekkert að tölvuvæðast
og skoða þessa síðu. Svona lítur hinn óhugsanlegi
hliðarraunveruleiki út:
---
Í upptalningu minni á góðum Euro-lögum
gleymdi ég vitanlega að telja upp hinn franska Sebastien
Tellier, en hann er nú svo sem úr annarri deild en hitt
liðið þarna - löngu búinn að meikaða
og svona. Hef verið að hlusta á plötuna hans, Sexuality,
sem er nokkuð góð. Önnur góð er Goldfrapp
nýja. Black Keys platan Attack and Release vinnur líka stöðugt
á, ég verð hreinlega að setja hér inn uppáhaldslagið
mitt á henni. Það er Dangermouse sem pródúserar
og þetta er miklu betra stöff en nýja Gnarls Barkley
sem líður fyrir máttleysi og blóðskort.
The Black Keys - Strange times
Hér
er fréttaskýring um hljómsveitina. Þetta
eru blúkollar Akronbúar.
16.04.08
Hvaða íslenska snilldarlag má hlusta
á hér? Rétt svar í gestabók
takk. Sá fyrsti til að svara rétt fær í
verðlaun hálftíma "alnudd" í boði Femínistafélagsins.
Stígðu inn í tölvuheiminn, komdu og vertu með.
(Skuggahliðin
með Box - Kristinn Pálsson og Hinrik "þór"
fá báðir alnudd).
---
Með þessu áframhaldi fer að verða fullt starf
að sjá um Okursíðuna.
Maður ætti kannski að reyna að fá að vera
í boði 10/11 og Lyfju? Nei, grín. Funheit 10 ný
dæmi birt í dag.
---
Þeir hjá Brimborg mega eiga það að vera
nokkuð á tánum og sjálfur forstjórinn sendi
mér (og höfundi okurs #398) heillangt útskýringabréf
sem ég birti auðvitað í heild sinni fyrir neðan
okrið (sjá
okur #398). Þegar eitthvað dæmi kemur um okur frá
Brimborg fæ ég umsvifalaust póst frá þeim
og er beðinn að gefa upp kontakt á þann sem sendi.
Málið er svo hreinsað upp eftir bestu getu, skilst mér.
Enda skrifar herra forstjórinn mér: Varðandi það
að ég, forstjórinn sjálfur, sé að standa
í þessu þá vil ég upplýsa þig
um að í hverri viku sit ég gæðaráðsfund.
Þar er farið yfir allar ábendingar, allar kvartanir og
öll hrós sem berast fyrirtækinu í gegnum vefsíðu
þess og allt er skráð og öllu er svarað. Ég
met svör starfsmanna við kvörtunum, greini þau og geng
úr skugga um að reynt sé að komast að rót
vandans. Þetta ferli er skráð hjá okkur skv. ISO
9001:2000 gæðastaðlinum sem Brimborg hefur eitt bílaumboða.
Þetta hjálpar mér einnig að skynja gæði
þjónustunnar í öllum deildum og gerir mér
kleift að bregðast við, þróa og bæta.
---
Ég skrifaði honum til baka og sagðist vona að þeir
héldu ekki að ég væri að leggja sig í
einelti. Ég meina Ford (Mustang) og Volvo? Kommon, klassa stöff.
Svo kom auðvitað enn eitt okrið, þetta númer
429 og þurfti auðvitað líka að vera um eitthvað
frá Brimborg. Þetta er reyndar frekar óljóst
dæmi en ég læt það fljóta með enda
kemur það inn á myntkörfukjaftæðið.
Aumingja konan virðist ekkert skilja hvað hún er búin
að koma sér út í. Þetta á eflaust
við um fjölda fólks sem horfir nú upp á lánin
sín hækka og hækka. Mitt helvítis bílalán
hækkaði einmitt um 10.000 kall milli mánuða í
kjölfar gengisfellingarinnar miklu og maður bara sýpur
hveljur og huggar sig við að hafa ekki asnast til að láta
plata sig út í fleiri myntkörfulán. Ætli
enginn bjóði annars upp á mynkörfulán í
frönskum frönkum, þýsku marki og ítalskri
líru? Djöfull væri það góð "karfa".
---
Eftir fyrsta Lost er ljóst að maður
gapir á þetta allt saman enn og aftur. Hver fann annars upp
á hinum slappa "Lífsháska" sem reynt er að kalla
þáttinn á íslensku? Það kallar þetta
enginn Lífsháska, allir Lost. Auðvitað átti
þetta bara að heita Lost, enda góð og gild íslenska,
eða kannski "Týnd" til að vera seif. En "Lífsháski",
það er bara rugl. Sá líka brot af endursýndum
Svalbarða og leist vel á. Meira meinstrím en maður
átti von á, minna súrpungaflipp en við var að
búast, enginn Barði að hrækja á gólfið
eða Þorsteinn að móðga gestina eða að
henda í þá lifandi hænu upp úr þurru.
Nú er sennilegast tími meintrímsins runninn upp. Súrheit
búin að vera í bili. List fyrir fólkið, Næturvaktin,
Sprengjuhöllin, Svalbarði. Eitthvað sem fólk nennir
að sjá og heyra. Massinn. Bara hið besta mál þótt
hitt lafi auðvitað með. Stöff þarf samt ekki endilega
að vera eitthvað æðislegt þótt það
sé súrt og/eða artí og bara fílað af
"útvöldum". En það er það samt oft. Fóstbræður,
David Lynch...
---
Ég vissi ekki að Davíð
Lynch væri að vinna hjá íslenska Rauða krossinum
en hann
er það samt.
---
Palli hefur munstrað mig í Eurovisionþáttinn
sinn Alla leið. Verð þar með honum, meistara Reynsa
boy og Guðrúnu Gunnars að þrugla um 43 Eurovisionlög.
Eitt mesta rokk sem ég hef komið nálægt! Og ég
gæti jafnvel sokkið enn dýpra í Eurovisionpyttinn
því það er útlit fyrir að ég mæti
til Belgrad í herlegheitin á vegum Fréttablaðsins.
Upplifi þetta "gay pride á sterum" (Bó) á eigin
skinni. Það eru mörg ágætis lög í
þessu í ár. Nei ég meina það!
---
Jæja, ókei, kannski ekki "mörg".
En ég bendi á framlag Bosníu-Herzegóvínu.
Þetta er mjög óvenjulegt lag, hvað þá
eurovisionlag, og ég er alveg að fíla þetta. Og
hvað er málið með sjóið? Vöðvatröll
að raka og hæna? Metnaðarfull súrheit - dúse
points!
"Spænski
Eiríki Fjalarinn" (eins og ég hef kallað hann í
Eurovionhorni mínu í Fbl) er líka alveg að gera
sig. Þetta er frábært lag sem maður heyrði mikið
á Spáni enda gríðar vinsælt þar um
þessar mundir. Dúse points!
Alltaf gaman þegar austurblokkin vill vera
töff og kúl. Búlgaría
og kúlheit hafa kannski ekki alltaf átt samleið en Deep
Zone og Balthazar eru komin til að breyta því. Gott lag!
Dúse points!
En svo leka náttúrlega leiðindin
af mjög mörgu þarna.Gomma af misleiðinlegu formúlupoppi,
"þjóðlegum" leiðindum og ballöðuvæli.
Kannski fara Aserar
allan hringinn með sínu innleggi, dramatísku óperuvælrokki
þar sem barátta góðs og ills er sett fram á
leikrænan máta af þessum töppum hérna tveim
að ofan. Azerbaijan er að taka þátt í fyrsta
skipti (eins og San Marínó) og kannski eru menn ekki alveg
búnir að ná konseptinu þar. Ég er samt viss
um að allir í Azerbaijan halda að þeir vinni þetta
í ár með þessari gríðarmiklu tónsmíð
og stólpavandaða videói.
15.04.08
Okursíðan
fékk metskilaboð í gær, 26 okurdæmi, þar
af 19 sem rötuðu inn á síðuna. Hitt var aðallega
um 10-11 og eins og ég segi þá eru takmörk fyrir
því hvað hægt er að skrifa um okrið þar.
Líklega var það þessi
frétt á Vísi sem kom skriðunni í gang.
Þarna eru margar skemmtisögur af okurbúllunni Ísland.
T.d. ein góð um gönguskó og önnur þar
sem stúdent hyggst dreifa flýerum framan við 10-11 á
stúdentagörðum til að fæla neytenda-dofna nemendur
frá okrinu. Einnig er öppdeit á Brimborgar-okri #398
og teppahreinsunarokri #387, en það gamla okur hefur nú
færst hingað.
---
Fólk virðist almennt ekki hafa vitað af þessari
okursíðu þótt hún sé meira en hálfsárs.
Eins virðist fólk almennt ekki vita af þessari hérna
bloggsíðu minni, það hringdi til dæmis einhver
náungi af Útvarpi Sögu og sagði að okursíðan
væri nú einskonar blogg og því vildi hann tala
við mig í bloggútvarpsþættinum sínum
í fyrramálið kl. 7:30 á Sögu. Já,
en ég er nú búinn að vera með bloggsíðu
í meira en 7 ár, reyndi ég að segja, en hann hlustaði
ekkert á það og fannst okursíðan bara málið.
---
En það er skelfilegt hvað allt er að hækka
hægt og bítandi (nema kaupið auðvitað) og ég
fæ mörg dæmi um þjöl-á-endaþarmslegar
hækkanir sem kaupahéðnar hafa stokkið til að framkvæma
þegar kreppan byrjaði (fyrir hvað, mánuði?). Sjálfur
tók ég eftir því á Boost barnum að
búið er að hækka allt um sléttan 100-kall svo
nú kosta skyr-boostin 590-690-790. Við þessu er bara eitt
að segja: fokk jú og þitt boost.
14.04.08
Allt hækkar nú nema kaupið mitt. Þetta er allt
Davíð fokking Oddssyni að kenna (skilst mér) sem
situr eins og einhver kóngur á "Svörtuloftum" (eins
og nú er í tísku að segja) og "gerir bara eitthvað"
af því hann er svo geðveikur og kann ekkert að vera
bankastjóri. Er ekki hægt að koma þess flykki á
eftirlaun fyrst hann er þessi skaðvaldur?
Nei nei, þetta er bull, kaupmáttur hefur vaxið gríðarlega
á Íslandi síðustu árin svo fokk jú.
Já, en...
Æi þegiðu!
(Þetta var stutta útgáfan af "umræðunni").
---
Okur #400 hefur borist frá fótumtroðnum almenningi.
Það reyndist vera tannþráður. Í rúmlega
hálft ár hafa okurdæmin komið
í hús og ég samviskusamlega sett þau inn.
Set reyndar ekki allt inn, margt er endurtekið efni og sumt hreinlega
ekkert okur (þannig séð). Helsti lærdómurinn
er þessi:
* Ekki versla í "klukkubúð" nema þú endilega
viljir láta okra á þér. Okurdæmi um að
þetta eða hitt sé svo ógeðslega dýrt
í 10-11, 11-11, eða hvað sem þetta heitir, verða
varla birt oftar. Verslaðu í Bónus ef þú
vilt láta okra minnst á þér. Þetta vita
allir.
* Bankarnir eru siðlausar okurstofnanir. Fyrir 20 árum fóru
vinjettuhöfundar í fangelsi fyrir að vaxtaokra minna
en það sem þykir eðlilegt að smyrja á yfirdráttarlán
í dag. Lifi einkavæðingin. Svo geta bankarnir lengi fundið
allskonar kostnað og gjöld til að smyrja á. Þetta
er samt allt þér að kenna sjálfum/ri. Það
var víst enginn að neyða þig til að kaupa þér
pallbíl og flatskjá (eða búa ekki í kassa
á Hlemmi, þannig séð...)
* Dæmi um okur á Íslandi miðað við verð
í USA (eða í öðrum löndum) eru vinsæl
en spurning hvað þau hafa upp á sig. Já já,
það er allt dýrast á Íslandi. Við vitum
það.
* Lyfja og flest apótek eru okurapótek. Lyfjaver okrar
minnst á þér. Verslaðu þar.
* BT er okurbúlla miðað við Elko og fleiri staði.
* Flest kaffihús eru okurbúllur. Kaffitár og Te
og kaffi koma ekki vel út. Dýrt kaffi, fokdýrt bakkelsi.
Að fara út að borða er svo lúxus sem maður
getur bara leyft sér í bjartsýniskasti.
* Bílaumboð eru rekin af hundum heljar. Brimborg kemur sérlega
illa út. Fáðu þér hjól.
* Bakarín Jói Fel, Bakarameistarinn og Kaffi Konditori
eru okursjoppur. Ég mæli með Mosfellsbakaríi og
einhverjum lummulegum lókalbakaríum. Skárra þar.
Annars segi ég bara "neytendur höldum vöku okkar" (sem
er ofurhallærislegt því það er meira töff
að þykjast svo fjáður að það sé
allt í lagi þótt það sé okrað
á manni) og endilega haldið áfram að senda okurpósta
þótt það megi alveg hafa á bakvið eyrað
að sleppa því að endurtaka gamlar lummur.
13.04.08
Tengdapabbi á hús í námunda við Torrevieja
á Spáni. Vorum í fjölskó í 10 daga.
Tvennt fannst mér eftirtektarverðast. Appelsínu og sítrónutré
eru á hverju strái. Stalst til að grípa appelsínu
af grein. Hún var góð. Fimm kíló af appelsínum
kosta 2 Evrur í búðinni. Sá í Hagkaupum
áðan að kílóið kostar 218 kall. En það
vaxa náttúrlega engar appelsínur hér. Hitt
sem var skrítið eru hórurnar sem húka þarna
á mörgum hringtorgum og útskotum. Ég var dáldinn
tíma að spá íðí hvað þessir
föngulegu kvenmenn væru alltaf að gera þarna í
mínípilsum flassandi túttum framan í bíla.
Var hreinlega of fattlaus til að leggja saman tvo og tvo. Tengdó
varpaði ljósi á málið. Hver hóra virðist
eiga sinn stað og var þar alltaf þegar maður keyrði
framhjá. Lítið að gera hjá þeim. Vinnutíminn
9-5 og allar farnar eitthvað annað í eftirmiðdaginn.
---
Skrítinn dagurinn hjá Spánverjum. Allt lokað
um miðjan dag (siestan). Eru allir sofandi heima hjá sér?
Svo opnaði allt aftur klukkan fimm eða eitthvað og var opið
fram á kvöld. Maður var smá tíma að ná
þessu tempói.
---
Gaman að skoða alvöru spænskar borgir eins og Elche
og Orihuela. Vera þar sem spænskt líf kemur beint af
kúnni með gömlum miðbæjum og gömlum kerlingum
að sópa og krökkum í skólabúningum
í viðstöðulausum. Væri alveg til í að
eiga heima á svona ósviknum Miðjarðahafsstað.
Mun minna stuð var í þeim hverfum þar sem ensk gamalmenni
hafa tekið öll völd. Bara búðir sem selja bakaðar
baunir og The Sun, enskt fólk sem virðist komið til að
deyja í sólinni að sulla í enskum bjór
í spænskri sól daginn út og inn. Svo ekki sé
talað um ellibelgina sem siluðust um á golfkerrum endalaust
spilandi golf. Og allir með þessi helvítis hundkvikindi.
Maður var að ganga um í gúddífíling
þegar þessi andskotar komu geltandi á mann í
gegnum hliðin. Maður var alltaf hrökkvandi í kút.
---
Í því hverfi San Miguel de Salinas sem við
gistum í er allt nýbyggt og ekkert nema Bretar með hunda
í endalausu afslappelsi. Fyrsta daginn datt gamalmenni við hliðina
niður tröppurnar heima hjá sér (mikið af postulínsflísum
á Spáni) og lá hjálparvana og kallaði á
hjálp. Við komum til bjargar. Ég fann óbyggt svæði
og spókaði mig þar um á göngu innan um maura,
plöntur, héra, froska, snigla, drekaflugur og fleira drasl.
Á stuttbuxunum. Saup svo því miður seyðið
af þessu útstáelsi með útbrotum og kláða
það sem eftir var ferðar. Muna: síðbuxur næst.
---
Arroz er einskonar paella, eða kannski er það það
sama. Við átum það allavega með hérakjöti
og pollo. Hér erum við tengdó við upphaf veislunnar:
Við urðum að panta þetta daginn áður.
Átum líka mikið af tapas, wok, kína, indversku
og jú neim itt. Maður gerði náttúrlega mest
af því að éta og "gera ekki neitt".
---
Ég fylgdist með "þjóðlífinu" á
Íslandi í gegnum netið af gömlum vana eins og einhver
vanasjúklingur. Ekkert merkilegt að frétta svo sem. Sá
Silfur Egils áðan og það mætti halda að
það væri að koma heimsendir. Allir vælandi og
skælandi. Hefði náttúrlega verið hagstæðara
fyrir mann ef evran væri 80 kall ennþá en ekki 115,
en samt er flest ódýrara ennþá á Spáni.
Ekki bensínið þó. Fríkað að koma
úr 25 stiga sólarblíðu í 0 gráðu
slyddu. Velkomin heim!
---
Okursíðan
er full af nýju drasli. Svo er eitthvað nýtt í
gosinu.
Já og svo þarf maður að fara að kíkja eitthvað
á Svalbarða. Mér skilst að það sé
skíturinn.
02.04.08
Snældusíðan
hefur verið poppuð lítillega upp. Þar sem Snælduþættirnir
hafa rotnað af gagnagrunni Rúv eru þessir tímamótaþættir
nú niðurhalanlegir og neyzluhæfir í hinu frábæra
mp3 formi. Einnig er að finna (neðst á síðunni)
excel-skjal sem er listi yfir kassettuútgáfur íslenskar
sem passa (ekki barna- harmóníku-, trúar- o.s.frv.
tónlist). Ef fólk telur sig geta bætt við listann
eða lappað upp á hann má það endilega senda
mér línu.
---
Hvað er réttar í stöðunni en að fljúga
með einkaþotu á mikilvægan fund um það
helst hvort Úkraína og Georgía eigi heima í
NATO þegar landið logar í flautandi trukkum, óánægðu
fólki með rasssæri, morknandi miðbæ og almennri
ringulreið? Fátt! Ég er viss um að allir hætta
snarlega að flauta núna. Ég hélt satt að segja
að þetta
væri aprílgabb, en varla er Haarde með í gríninu?
Vá, hvað þetta lið er sturlað. Hvað næst?
Einn gúrme-kokkur á kjaft í alþingi af því
liðið þarna tapar svo mikið af dýrmætum
tíma við að fara að éta á Múlakaffi?
Gullklósett og skeinipappír úr silki af því
"hrjúfari pappír hefur slæm áhrif á mikilvæga
endaþarma alþingismanna"?
---
Aaaarrrrrgggghhhhh!!!! Eins gott að maður er að fara til
heitu landanna. Það verður mjög kærkomin hvíld
frá þessu helvítis kjaftæði af þjóðfélagi.
01.04.08
Okursíðan fékk fimm okur í gær sem er
nú bara það almesta í langan tíma. Sýnir
kannski að fólk er vart um sig. Frekar fúlt samt að
maður þurfi að vera "var um sig". Eitthvað óheilbrigt
við það, nema það sé merki um "heilbrigða
samkeppni".
---
Heiða er orðin
aðstoðarmaður Atla Gíslasonar. Til hamingju með
það. Ég myndi ekki nenna að vera aðstoðarmaður
einhvers en það væri ekki amalegt að eiga rétt
á aðstoðarmanni. Ég myndi ekki tvítóla
við að ráða Gillzenegger
sem minn aðstoðarmann. Léti hann píska mig áfram
í ræktinni og redda mér ódýrum kjúklingabringum.
Hann og vinir hans éta náttúrlega kjúklingabringur
í öll mál og væru allir farnir á hausinn
ef þeir keyptu þetta á 3000 kall kílóið
út í búð. Þess vegna eru þeir með
spesdíla við skuggalega kjúklingabringudílera,
kaupa kannski 10 kílóa poka á 10-12. þúsund
kall stykkið og hafa í frystinum. Með Gillz sem aðstoðarmann
kæmist maður inn á kjúklingabringudíler.
Svo léti ég hann skrifa fyrir mig greinar í blöðin
og svona. Taka einn og einn Bakþanka þegar ég nennti
því ekki. Verst að ég nenni bara ekki því
kjaftæði og leiðindum sem er óneitanlega fylgifiskur
þess að reyna að troða sér á þing.
Mitt helsta vandamál er að ég nenni bara ekki að
troðast að trogi samtryggingarinnar. Samtryggingarinnar sem skein
í glottandi tanngarðinn á í Kastljósi þegar
Egill spurði afhverju í ósköpunum þeir væru
að fá sér aðstoðarmenn nú á þessu
erfiðu tímum. Það var lítið um svör...
bara... uh, ég fer að lögum. Ég set horklessu í
næsta kjörseðil. Ef ég nenni að mæta.
---
Mapa voru á Kanarí, hittu Guðna Ágústsson
og konuna hans á Mannabar og leyst svona ljómandi vel á
hjónin. Ég mun hafa komið til tals, Guðni sagði
eitthvað um að ég væri "harður" en konan hans
sagðist lesa bloggið. Sko bara! Ef Finnur Ingólfsson væri
ekki til er aldrei að vita nema maður fengi sér lopapeysu,
keypti
kind og gerðist Framsóknarmaður. Guðni er allavega
súrrealískur sem er meira en hægt er að segja um
restina af þessum gapandi sjálftökuuxum.
30.03.08
Á þessum skjálfandi teprulegu tímum er rétt
að árétta: Grín má vera ógeðslegt.
Það má vera algjör viðbjóður. Það
má móðga milljónir. Frakkinn Philippe
Vuillemin er hrár og ógeðslegur og tók öll
tabúin. Myndaröðin Hitler = SS vakti hvað mestan
óhug og málaferli. Þessi (kannski fyndni? – ég
er of slappur í frönsku til að vita það) viðbjóður
birtist fyrst í menningarritinu Hara Kiri á 9. áratugnum.
Bók með dótinu er bönnuð í Frakklandi
og á Spáni en má dánlóda á jpg-um.
Hérna
er blogg um þetta með tengli í góssið.
Hara Kiri og L'Echo des Savanes voru teiknimyndablöðin sem
eitthvað var spunnið í. Fyrir utan Vuillemin var Willem
að gera góða hluti. Hollenskur hippi sem hafði ílengst
í Frakklandi. Hann eins og Vuillemin vissi að auðveldasta
leiðin til að gera allt vitlaust var að hjakka í nasista/gyðinga-deildinni
og bæta bara nógu mikið við af klámi og kúk
og kjaftæði. Ég bíð bara eftir svipuðu
hardkorgríni um múslíma, því satt að
segja var danska dótið Sigmund við hliðina á
þessu stöffi. Þá mætir skíturinn loksins
viftunni og ömmu sinni.
---
Glæsileg
síða um baðlaugar og almenningsbaðstaði á
Íslandi. Loksins loksins! Algjör snilld. Þessi glæsiaðstaða
hér á myndinni er til að mynda Heiti
potturinn Rauðumýri en efnainnihald
pottsins er meira að segja gefið upp á síðunni.
Hér er komin einhver besta síða sem ég hef lengi
fundið og síða sem maður mun nota mikið framvegis!
---
Á okurvaktinni má benda á ostahugleiðingar
Gríms
og almennar okurhugleiðingar Bobbys.
En þetta er allt í lagi: Ingibjörg er mætt og ætlar
að redda þessu öllu á nótæm.
---
Í Gerðubergi er skemmtileg sýning á hljóðfærum.
Ég prófaði að juðast á gömlu þeramíni
(þóttist ekki sjá Vinsamlega snertið ekki safngripina
miðann). Það var stuð.
---
Enn einu sinni byrjar "umræðan" um Íslam og bla bla
bla. Fyrir ekki svo mörgum árum var þekking manns á
málefninu bundin við Tinnabækur (Svarta gullið o.s.frv.)
og kannski 1001 nótt, en nú er maður neyddur til að
þykjast hafa einhverja skoðun á þessu og vita eitthvað
um menningarheim múslíma og la dí da. Matarmenning
frá Norður Afríku er alveg nóg fyrir mig. Ég
fíla kússkússrétti og tajine rétti,
mauksoðið lambakjöt í eðalkryddlegi og nammi namm.
En nei, það er ekki nóg. Þú verður að
taka afstöðu. Ókei þá.
---
Þegar Salman Rusdie fór í felur 1989 eftir þessa
drepleiðinlegu bók sína og hans var leitað af snartrúuðum
morðingjum man ég ekki eftir neinum Vesturlandabúa sem
tók upp hanskann fyrir morðingjana, enda ennþá
hægt að skipa sér í komma/ekki-komma bása
þá og þetta ekki orðið issjú. Nú
er öldin önnur. Nú er ég viss um að þó
nokkuð margir myndu verða fjölmenningarlega víðsýnir
í framan og segja : Salman Rusdie var nær að móðga
aumingja trúaða fólkið svona með þessari
bók, ekki græt ég þegar hann verður skorinn
á háls eins og skepna. Svona eins og það sagði
um hin ægilega móðgandi dönsku Sigmunda-gamalmenni.
---
Ég hef líka hitt nokkra Íslendinga sem voru glaðir
í hjarta sínu eftir 11. september. Þeir (Hinir illu
Kanar) áttu þetta skilið, sögðu þeir og
það hlakkaði í þeim.
---
Ekki nenni ég að sjá þessa hollensku stuttmynd
enda greinilega bjánalegt drasl. Ég hef lesið umræðu
um hana, meðal annars á bloggi Péturs
Tyrfingssonar. Í svarhala þar skrifar einhver "Dóri
Hemm": "Framsókn forfeðranna í Norðurálfu”
færdu okkur og hafa gefid okkur Britney, X Factor og Michel Houillebecq.
Thetta heilaga “málfrelsi” finnt mér reyndar stórlega
ofmetið. Dóri hefur eflaust fagnað þegar WTC hrundi
og hann má það mín vegna. Hér væri
freistandi, eins og gert var í komma/ekki-komma-umræðu
síðustu aldar (sem þessi umræða nú svipar
auðvitað mikið til) að segja einfaldlega við menn eins
og Dóra: "Flyttu þá bara til Teheran fyrst það
er svona æðislegt," en það gerir auðvitað ekkert
fyrir hvorki Dóra né mig.
---
Annars er það gáfulegasta sem ég hef lesið
um málið eftir Sigurð
Hólm.
---
Og já, að eiga það á hættu að
þurfa að hlusta á útúrdópaða
Britney á nærbuxunum að gaula sitt alversta lag er mun
skárra en að vera neyddur til að lifa lífinu í
skugga ömurlegs fornaldarbulls. Jafn ömurlegt og ef Gunnar í
Krossinum væri alvaldur á Íslandi. Eða bara Pálmi
Matthíasson.
---
Það svoleiðis vellur úr manni músikin þessa
daga:
Grjóthrun - Herinn hans Bjössa: Dr. Lýður
Árnason, þorpsstjórinn á Bolungarvík,
Halli Rotþró og fleiri hressir gera út hljómsveitina
Grjóthrun (í Hólshreppi) í frístundum
sínum. Músikdiskur kemur í verslanir um sumarmál
en hér er smjörþefur af gúmmilaðinu, megahittari
um herinn hans Bjössa.
The Raconteurs - Hold up: Jack White er gömul frétt
en af tillitssemi við gamla aðdáun tékkaði ég
á nýju Raconteurs plötunni sem er komin út, Consolers
of the lonely. Þetta er ágætis rokkhjakk, einhver þróun
og svona – vitnað í gamalt rokkgrín út og suður.
Þéttur pakki eins og sagt er.
B-52's - Hot corner: Ellihrumir stuðboltar halda partíinu
gangandi á næstu plánetu. Alltaf var nú gaman
að hoppa út á dansgólf og sýna eggjandi
nördatakta þegar Rock Lobster kom á (í þúsundasta
skipti) í Zafarí og margt af því sem þetta
lið hefur gert er mjög gott. Miklir áhrifavaldar á
stuðgrín Sykurmola og Risaeðla enda prógei og prókölt
og prókitsch. B-52s var sem sé að gefa út nýja
plötu, Funplex, og eru alveg þokkalega hress.
The Black Keys - I got mine: Blúsinn er ekkert dauður.
Þessir hárkögglar blúsa enn og aftur og plötunni
Attack and Release og Dangermouse sá um próduksjón.
Það má vel fjaðra í mjöðmunum yfir
þessu. Myndu passa á blúshátíð.
The Teenagers - Starlett Johansson: Komu þessir ekki á
Airwaves? Franskt stuðpopp í svona ægilega hipp og kúl
Soffíu Coppola legum gír. Reality check er platan og lepur
smörva úr rassgati tilgangsleysisins, en þetta lag er
flott.
29.03.08
Gott stöff á netinu: Halli í New York fór
í skrýmslalegan vinýlkjallara í Brooklyn og
gerir honum skil hér.
Þetta er hryllingslesning fyrir áhugalausa en æsilesning
fyrir okkur vinýlnörda og "ríkulega" skreytt með
ljósmyndum. Hef "ríkulega" hér innan gæsalappa
enda orð sem kauðslegir auglýsingagerðarmenn nota mikið,
"ríkulega búinn aukabúnaði". Annað svona orð
er "að skarta". Það bregst ekki að allar skítamyndir
"skarta" þeim Josh Nobrain og Patty Fuckface.
---
Þjóðfélagsumræðan verður beittari
í kreppunni. Kreppan er reyndar bara búin að vara í
tæplega tvær vikur svo þetta er bara byrjunin. Verður
heví, sérstaklega ef það kemur einhver alvöru
kreppa og maður fer kannski að sjá útúrspreyjuð
húsbílahræ bætast við útúrspreyjaða
hjalla í miðbænum. Bragi Valdimar Skúlason sem
gamalmennið Enter skrifar hverja dúndurfærsluna á
eftir annarri í lesbók Baggalúts. Að
myrða hús er t.d. beint í mark. Í sama hné
sparkar Sigmundur Ernir sem er hardkor í grein sinni Ó,
borg mín, borg og Páll Baldvin krukkar í sama
greftri í Brennum
borgina. Næsta skref er auðvitað að draga hina andlitslausu
verktaka fram á sjónarsviðið, stilla þessum
hrægömmum og skemmdarvörgum upp á skotpall forsíðna
og benda: Sjáiði: Þetta er hyskið sem er að drepa
höfuðborgina ykkar. Hvaða helvítis gráðugu
fífl ætli það séu nú?
---
Plata mánaðarins er fimmmælalaust Áfram Ísland!
með Morðingjunum. Súperpönkpartí. Annað
sem maður hefur verið að hlusta á, segirðu?
Be your own Pet - Heart throb: Tja, önnur breiðskífan
með þessum amerísku unglingapönkurum er fín.
Heitir Get awkward og sparkar víða í rass á þessum
rétt rúmlega hálftíma sem tekur hana að
skrölta í mark.
The Young knives - Terra firma: Luralegir enskir bræður
og einn enn að spila breskt nútímarokk með síðpönks
og britpoppsbragði. Ekki ósvipaðir í laginu og hljómsveitin
Vax frá Egilsstöðum sem ég var að röfla
við í móðunni miklu á Ísafirði.
Vax er auðvitað snilldarband, farfísa og stuð, og ungu
hnífarnir ekki mikið síðri. Platan þeirra nýja,
Superabundance, fer nú kannski ekki langt, en alveg til Blönduóss
samt.
Gnarls
Barkley - No time soon: Svo erða önnur platan með
þessum nútímasálverjum. Alveg ágæt
á köflum. Nokkur hörmuleg lög reyndar. Íslendingur
gerði umslagið en þótti það ekki merkilegt
afrek þegar ég talaði við hann fyrir Fbl. Ein af mínum
uppáhalds tónlistartengdu upplifunum var þegar ég
hafði keypt Reach out I'll be there með Four Tops á sínglu
í Safnarabúðinni og dró heim í foreldrahús,
pönkunglingur að aldri. Hlýt að hafa haldið að
þetta væri eitthvað pönk. Motownmiðinn snérist
á fóninum og svo búmm, vá. Það er
eitthvað svo óendanlega dularfullt við þetta lag (kannski
ekki en heilinn á mér heyrir það þannig).
Maður eins og datt inn í nýja vídd, flautan í
byrjun og svo þegar bassinn er skilinn einn eftir á undan
viðlaginu – þetta er náttúrlega bara tær
og ómenguð poppsnilld og eitt og sér nóg til að
maður fyllist bullandi trú á mannkyninu. Síðan
hefur örsækadelískt soulpopp snert á mér
strengi og Gnarls eru að reyna að snerta þessa strengi en
tekst það bara ekki. Ekki í fyrstu lotu allavega. Ég
verð bara að blasta þessu hér:
The Four Tops - Reach out I'll be there: Eitt af bestu lögum
í heimi, gjössovel. Keypti eitthvað best of með Four
tops einu sinni og þar var eitthvað af ágætis stöffi
en ekkert jafn gæsahúðandi og þetta náttúrlega.
Los Salvajes - Es Mejor Dejarlo Como Esta: Og svo ein gullfalleg
ábreiða með "spænsku Stóns". Maðurinn í
bláu skyrtunni er svo sannarlega í stuði.
---
Magnað þetta hjá Góðverkasamtökunum
sem máluðu yfir krotið í miðbænum. Svona
á að gera þetta! Er málun í skjóli
nætur að verða alíslenskt aðgerðarsinna-fyrirbæri?
Karl á Ísafirði (Pabbi hennar Kiddýjar) málaði
í skjóli nætur eitthvað rafstöðvarhús
sem bærinn hafði dregið lappirnar með að mála
árum saman og nú þessir snillingar í bænum.
Það var gaman að lesa um þetta í Mogganum í
gær og fólkið í búðunum grét
af gleði. Samt smá spurning af hverju búðareigendur
voru ekki fyrir löngu búnir að mála sjálfir
fyrst þetta var svona lítið mál. Mér skilst
að búið sé að góma eitthvað af þessum
unglingakroturum. Með þá í gapastokk á Arnarhól
strax takk. Svo má almenningur spreyja á þeim rassgötin.
Það þarf náttúrlega að taka eitthvað
á þessu liði svo þetta haldi bara ekki áfram
að spreyja út í hið óendanlega. Mikið
var nú skemmtilegra þegar menn skrifuðu eitthvað á
veggina, Nefrennsli eða Teipum Tobba, svo tvö góð dæmi
séu nefnd.
---
Bítlarótari með leyndarmálin í gröfina.
Grein hér.
---
Júlli Strömmerkamp
er með yfirlýsingu: Það er búið að
bæta ellismellunum Sham 69 á Kamp og einnig hefur verið
kunngjört að reggítjald frá AXIS SOUND SYSTEM verði
opið alla helgina. Sham sér um að kikka inn á föstudegi
en þetta er reyndar Sham án Pursey, hann var rekinn í
fyrra. Ég fékk svo orðsendingu í gær um
að nú er feitur biti að bætast við og þegar
hann verður staðfestur mun líklega seljast upp med det samme!
Fáir miðar eftir og litlar líkur á að verði
hægt að bæta við miðum. Það eru því
síðustu forvöð fyrir áhugasama að skella
sér með í fjörið en enn á ýmislegt
eftir að bætast við, til dæmis er akústik tjald
í undirbúningi. Skrifið Júlla til að komast
á Strömmerkampið: strummercamp@gmail.com
---
Maggi Strump leitar að fyrri eigendum að bassanum sínum:
Ég
á nefnilega forláta Hofner President bassa frá 1966.
Þetta ku vera týpa "500/6" og var hann einungis framleiddur
í 500 eintökum. Ég fjárfesti í honum í
búð sem seldi notuð húsgögn einhverntíman
á tímabilinu '91-'94. Mér leikur forvitni á
að vita hvaðan gripurinn kemur, hver átti hann áður
og hvaða hljómsveitir gætu hafa verið svo frægar
að skarta þessum dýrgrip.
lítil
mynd af honum stökum
lítil
"collage" mynd af bassanum frá ýmsum sjónarhornum
stór
samskonar collage mynd
Skrifið Magga ef þið vitið eitthvað um fortíð
bassans: maggi@twolittledogs.co.uk. Rosa heppni annars í Magga.
Aldrei hef ég fundið neitt af viti í þessum notuðu
húsgagnabúðum. Ég er viss um að hann borgaði
skít og kanil fyrir bassann þar að auki.
28.03.08
Gott hjá vörubílakörlunum. Meira svona. Eggja
alþingishúsið. Slora stjórnarráðið.
---
Borgin boðar aðgerðir í miðbænum. Gott
hjá görmunum. Þá á bara eftir að sparka
Árna Mathiesen, lækka bensínið um 50 kall, lækka
matvælaverð um 50 prósent, hækka persónuafslátt
í 200 þúsund, lækka skattprósentuna í
25%, lækka vexti á íbúðalán oní
3%, afnema verðtrygginguna og sitthvað fleira. Svona til að
byrja með.
27.03.08
Ef ég væri verktaki og ætti ógeðslegt
hús í miðbænum fullt af hlandbrunnum dópræflum
og væri að bíða eftir því að geta
rifið það myndi ég halla mér aftur í
leðurstólnum, teyga að mér kúbanskt vindlaloft
og segja stundarhátt: Ha ha, djöfull verða allir hættir
að hugsa um þetta á morgun.
---
Maður kemur að tómum kofa varðandi þessa Ísafjarðarferð.
DV upplýsti reyndar í gær að ég hefði
verið blindfullur á svæðinu og sýndi mynd af
mér þar sem ég leit nú ekkert svo fullur út.
Ég er hins vegar dauðadrukkinn á þessari fallegu
mynd:
sem má sjá á aldrei-síðu
Monítórs. "Sólheimaglottið" tekur sig hér
upp eftir langan dvala. Því miður get ég ekki séð
fleiri myndar þarna hjá Monitor, enn sem komið er. Ég
er líka að reyna að sjá upptöku frá hátíðinni
þegar karlakórinn Ernir tók Hvar ertu nú? með
Óttarri en upptakan á síðunni
þeirra virðist vera í skralli. Á þetta
einhver á videó?
---
Annars virðast meiðsl mín minni en á horfðist
og ég kemst í spinning bráðlega. Sem er eins gott
því páskaeggin hafa hlaðist á mig í
helvítis fríinu.
26.03.08
Hér er áríðandi tilkynning sem ég var
beðinn um að koma á framfæri: Langar þér
að vera áhorfandi á Svalbarða og upplifa frábæra
svalbarðska stemmingu. Sendu okkur þá línu á
svalbarði@sagafilm.is.
Fyrir þá sem ekki vita er Svalbarði skemmtiþáttur
í umsjón Þorsteins Guðmundssonar og verður
fyrsti þáttur sýndur á Skjá einum 4.
apríl.
---
Hauskúpuskel hefur verið að gera allt vitlaust um páskana.
Í Boneroom (og mörgum
svipuðum búðum) má fá fullt af mannabeinum
sem væri hægt að strá víðsvegar um landið
til að halda lífi í íslenskum fjölmiðlum
vikum saman og gera lögguna gráhærða. En það
væri auðvitað ljótt svo ekki gera þetta krakkar!
---
Miðbær Reykjavíkur er viðbjóður. Útkrotaðir
kofar út um allt, brunagildrur og rónagreni. Að keyra
niður Laugarveginn er eins og að horfa á myndina Warriors
eða eitthvað - eða bara einhverja heimsendamynd frá
Kalda stríðinu. Í fyrsta lagi á að taka þessa
verktaka og henda þeim upp á fjöll, svo á að
taka þessa síkrotandi unglingabjána og henda þeim
upp á fjöll (án spreybrúsa) og svo á að
gefa Torfusamtökunum 600 millur til að lappa upp á þetta.
Eða eitthvað. Þetta er svo sannarlega viðbjóðslegt
ástand. Er verið að hylma yfir með zombiefaraldri?
---
Í Krónunni í gær var verið að spila
Ísland er land þitt í kerfinu. Álíka
viðeigandi og Wonderful life í gasklefa. Mig langaði mest
til að rífa mig úr fötunum, rífa upp kjúklingabringupakka
á 3000 kr kílóið, maka bringum á bringuna
á mér og hlaupa æpandi og gólandi út.
Ísland
er land þitt í rotnandi miðbæ, Ísland er
land daglegrar töku í görn, Ísland er land okurs
og ömurlegs veðurs, Ísland er land þitt með fábjána
við stjórn (syngist).
---
Ekki það ég sé eitthvað neikvæðari
en vanalega. Þynnkan frá Ísafirði alveg farin en
ég er ennþá snúinn á löppinni eftir
svellbúnkann á leiðinni heim og kemst ekki í spinning
í bráð. Tek þá bara í lóð
á meðan. Og svo er ég á leið til útlanda
svo fokk itt.
25.03.08
Þá er páskafríið búið og
hægt að fara að vinna aftur.
20.03.08
Eftir uppbyggilegan rúnt um óravíddir alnetsins
nú í morgunssárið hef ég komist að
einu: Fyrirbærið stuðarapungur
er staðreynd.
---
Páskafrí hefur einhverja meiningu þegar maður
er launaþræll. Ef ég væri verktaki væri
þetta bara alveg eins dagur og í gær en nú er
þetta byrjun á 5 daga frí. Vá og vei!
---
Ef þú ert fyrir vestan spila ég þar tvisvar.
Föstudaginn langa kl. 13 í skíðabrekku einhvers
staðar á vegum Skíðaviku.
Ég, Heiða, Elvar og Kristján Freyr. Blandað efni
úr sarpi fyrir "alla fjölskylduna". Sama settöpp á
Aldrei
fór ég suður á laugardaginn kl. 16. Ætti
að verða gengdarlaust stuð. Ef maður kemst fyrir veðri,
það er að segja.
---
Hófleg bjartsýni
er nýjasti Bakþankinn. Nokkuð sæmilegur bara. Og
þær breytingar hafa verið gerðar að á Okur-síðu
er kominn nýr möguleika, þ.e. EKKI-OKUR. Í kreppunni
þarf maður að vera jákvæður og benda á
það sem er jákvætt, ekki bara á okurpungana.
Það var einmitt kók á 350 kall á veitingarhúsinu
Great Wall of China (aka Naustið) sem fæddi Okursíðuna.
Nú er sá staður uppvís af mansali svo þú
ert algjör hálfviti ef þú ferð þangað
inn fyrir dyr. Helvítis rugl á þessum Kínverjum
alltaf. Eru Kínverjar nasistar 21. aldarinnar? Hjálp, nei.
Nú er kannski einhver frá kínverska sendiráðinu
að lesa þetta og ég er kominn á einhvern lista
hjá þeim. Ekki það mig langi eitthvað til Kína
svo þeir um það.
---
Okursíðan verður 6 mánuða á morgun.
Var sett upp 21. sept í fyrra. Dæmin eru orðin 368.
---
Sá John McCain í 60 mínútum. Því
miður, þetta er næsti forseti BNA. Ekki séns þegar
á hólminn er komið að Barack Obama fái kosningu
verandi bæði blökkumaður og gáfumenni. Hann verður
að dömbadán til að eiga séns. Sjást á
fótboltaleik og drekka bjór. Ameríski bolurinn mun
flykkjast um gamla góða McCain því hann er vakandi
með hlandsting kl. 3 um nætur og getur því svarað
í símann. Hann hefur svona plebbalegan sjarma sem liðið
vill, traustur, var í Víetnam, samt mannlegur (reiðist),
hefur þurft að vinna sig upp frá botni í kosningabaráttunni.
Vona samt að ég hafi rangt fyrir mér.
---
Hljómsveitarnafnið Unun þykir 3ja best í könnun
Jens
Guðs, á eftir Spilverki þjóðanna og Kamarorghestar.
Unun er mjög vel heppnað nafn, verð ég að viðurkenna,
því það má snúa stöfunum á
haus og samt stendur Unun og leika sér með þetta hönnunarlega
á marga vegu. Við Þór Eldon vorum búnir
að vesenast með nafn í smá tíma, mig minnir
að það skásta hafi verið Zombie Duck áður
en Unun kom upp þegar við vorum að spila skrabbl. Aldrei
að vita nema maður geri eitthvað meira undir þessu nafni,
Unun, fyrst almenn sátt virðist ríkja með að
nafnið sé svona gott. Og þannig séð er þetta
Unun á Ísafirði. Reyndar bara eitt Ununarlag sem við
spilum, en samt.
18.03.08
Tónlistarverðlaun. Sigtryggur og EÖB enn og aftur að
sækja styttur fyrir Björk. Bjánalegt. Hætta að
dæla þessu í kellu nema hún sæki sjálf.
Henni er alveg sama þótt hún fái þetta
ekki. Megas mætti auðvitað ekki heldur. Of kúl fyrir
svona. En afhverju þessir þrír flokkar í poppmúsik?
Aumkunarlega vesælt. Það má alveg eins bara smækka
þetta enn frekar og veita öllum verðlaun: Besta plata ársins
í flokknum indie með faggott, besta plata ársins í
flokknum hresst eurodiskó, besta plata ársins í flokknum
Færeyingur á Íslandi, o.s.frv o.s.frv. Auðvitað
eiga bara að vera ein verðlaun í einum víðum
og almennum flokki dægurtónlistar. Þetta er svo mikið
rugl svona. Afhverju geta Hjaltalín og Ólöf Arnalds
ekki verið saman í flokki á meðan Palli og Sprengjuhöllin
geta það? Algjör steypa sem gerir bara lítið
úr þeim sem sigra. Og hver fjandinn er "fjölbreytt" tónlist?
Dægurtónlist heitir þetta fíflin ykkar. Afhverju
eru 3-5 manns látnir tilnefna og sömu 3-5 manns látnir
velja úr tilnefningunum sínum skömmu síðar?
Afhverju fá meðlimir í FTT og FÍH ekki að
kjósa? Svona fag- eitthvað eins og í Eddunni? Eða
hreinlega bara hinn upplýsti skríll? Þessi hátíð
kallar á víðtæka endurskoðun. Tómu sætin
í salnum segja sitt. Að öðru leyti flott, Felix í
essinu og péinu sínu og til hamingju meistari Rúnar
Júl!
---
Hvað skal segja? Það ætti allavega að verða
fjör á okursíðunni
á næstunni.
---
Á meðan lífskjör almennings versna með hverjum
deginum eru liðónýtir stjórnmálamenn að
gera það eina sem skiptir þá máli, fjölga
stöðum í utanríkisráðuneytinu og fullir
stórmennsku að reyna að troða sér í öryggisráð
SÞ (skil ekki til hvers í andskotanum).
---
Á óánægjuvaktinni mæli ég með
þessari
grein Hallgríms Helgasonar og viðtali í Silfri Egils
við útvarpskarlanna á Sögu. Ekki það skipti
einhverju máli þótt þú leggir þig
eftir því. Ástandið skánar hvorki við
að tuða né við að hlusta á tuð.
16.03.08
Sýning Sigurðar Guðmundsson í Hafnarhúsinu
kallaði á tvær hugsanir: 1. Svaka er Jói Ágústs
reffilegur allsber á hestbaki og 2. snyrta píkuháratískan
hefur ekki náð til Japans. Á leiðinni heim kom ég
inn í lag hjá Óla Palla. Hvaða hundlélega
Sigur Rósar kópía er nú þetta?, hugsaði
ég. Reyndist vera lagið Samskeyti með Sigur Rós á
tónleikum á BBC. Glatað rusl satt að segja. Má
segja svona um Sigur Rós?
---
Svona söngvari réttlætir þátt eins
og Bandið hans Bubba, sagði Bubbi einu sinni ef ekki tvisvar
í síðasta þætti. Hann var líklega
að tala um hina ágætu barka Eyþór frá
Dalvík og Arnar með störuna. Ég veit það
nú ekki. Yrði ekkert úr þeim ef þeir fengju
ekki að góla einn þriðja úr gömlu Hljóma-lagi
í sjónvarpinu? Það held ég ekki. Ég
held að góðir söngvarar finndu sér alveg leið
þangað sem þeir stefndu, ef þeir á annað
borð nenntu því. Lítil hætta á að
þeir vesluðust upp í aumingjaskap þótt ekkert
karókí-tv væri í spilinu – eða hvað?
Er kannski landið fullt af æðislegum talentum sem koðna
nú niður á bakvið skrifborð á loftlausum
kontórum af því Bandið hans Ragga var ekki á
dagskrá 1975? Hvað er líka unnið með söngvara
sem getur sungið per se? Verður ekki meira að fylgja með?
Eins og að geta barið saman lagi? Er eftirsóknarvert að
framleiða hvítþegna súkkulaðibarka á
færibandi? Er þetta ekki bara afturhvarf til glataðri tíma
áður en rokkið kom til sögunnar, Pat Boone og það
allt? Fer ekki gerjunin fram utan sjónvarpsmyndavéla? Hvað
hefur komið út úr svipuðum íslenskum þáttum
til þessa? Stórfenglegir listamenn? Björn Jörundur
er annars alveg að bjarga prógramminu með sínu spaugi
og glensi.
---
Extra extra: Djassaði stærðfræðikvartettinn
Agent
Fresco sigraði Músiktilraunir.
---
Neytendamál: Holtsels
Hnoss - 500 ml ísdolla - 735 kr í Nóatúni
(eini staðurinn sem bíður upp á þetta held
ég). Tveggja stjörnu ís frá Eyjafirði. Bragðið
sem við smökkuðum var tíramísú sem var
alltof væmið og óspennandi. Ég held ég prófi
vanillu bragð næst og mixi svo sjálfur eitthvað við
hann, peanut butter cups frá Reese's eða eitthvað. Það
er jákvætt að fólk sé að dunda sér
við ísgerð. Mjög jákvætt meira að
segja. Það er ljóst að maður þarf að
heimsækja ísbúðina
í næstu norðanferð.
---
Uppfært: Mynd og bók í menningunni.
---
Fór í 12 tóna og keypti nýja diskinn með
Leoncie. Um er að ræða mikið meistaraverk. Þótt
listakonan hafi flúið skrílinn í Sandgerði
og búi nú í Essex dvelur hugurinn á Íslandi.
Helmingur plötunnar er á hinu ilhýra. Að minnsta
kosti þrjú lög af átta teljast ódauðleg.
Þar á meðal er pólitískt uppgjör Leoncie
við lífið á Íslandi. Sjaldan hefur sannleikurinn
verið málaður jafn skýrum litum á plötu.
Láttu okkur hafaða óþvegið! Þau eru
að leita að sannleikanum og ekkert finnst í tómum
bjórdósunum! Það er skylda hvers þjóðfélagsþegns
að kaupa þessa plötu og það strax!
Leoncie
- Pólitískar leikbrúður
---
Minni karla, Skuggasveinar flytja lög Tony
Joe White, er komin út. Hjálmarnir Siggi og Kiddi fengu
þá
hugmynd að íslenska lög Tonys Joes og fá ýmsa
meistara til að syngja þau inn á hinn karlmannlega disk.
Þarna eru Megas, Ragnar Kjartansson, Baggalútar og fleiri
og fleira í netthrottalegum karlagír og punglyktin svífur
yfir vötnum. Heyrum Óttarr Proppé og epískt hvítfönk.
Óttarr
Proppé - Af tollheimtu djöfulsins
15.03.08
Tekinn hefur verið upp nýr bakgrunnur hér á
síðunni sem heitir Viltu koma á tónleika? Hann
eflir vonandi sögulega tónlistarmeðvitund landsmanna.
---
Já já já og Bob Dylan að koma. Fimm dögum
á eftir John Fogerty. Djöfuls rosa pakki er þetta þarna
í lok maí. Og maður kannski bara út í Serbíu
að blaðamannast eitthvað á gei preid á sterum
og missir af öllu. Hvílíkur skandall!
---
Dr. Gunna rótarbjórinn, fyrsta upplag, er kannski ekki
algjörlega ódrekkandi en nálægt því.
Ég gerði fjölmörg mistök. Það er til
dæmis ekki það sama ger og ger. Maður notar ekki bökunarger
úr bréfi úr kjörbúð í svona
dæmi heldur sérstakt ger sem maður kaupir í búð
eins og Ámunni. Því var rótarbjórinn
gjörsamlega flatur og hálf viðbjóðslegur. Svo
nota ég minni sykur og minna þykkni næst, fer sem sé
algjörlega eftir leiðbeiningunum. Þetta er rosalega bragðsterkt
og sætt. En ég gefst ekkert upp sko. Ég held þetta
sé allt að koma. Það má kaupa svona þykkni
til dæmis hér
ef einhver er að spá í að framleiða sinn eigin
rótarbjór.
---
Ég hefði nú alveg verið til í að sjá
Sálina í gær en það nennti bara alls enginn
með mér. Ég var samt með eitt lag með strákunum
á heilanum í gær í tilefni dagsins. Svo eru
kassarnir gífurlega flottir. Ekki amalegt að vera kassagerður.
Ég á ekki séns í svona kassa sjálfur.
Það mætti kannski skrapa í þriggja diska kassaútgáfu
með S.H.Draumi / Bless, en það er smotterí miðað
við 13-diska kassagerð Sálarinnar og 5-diska kassa Þursanna.
Þriggja diska kassi er meira svona skókassi. Hér er
heilalag gærdagsins:
Sálin
hans Jóns míns - Neistinn
---
Svo hef ég verið að hlusta á nýju plötuna
með Goldfrapp sem er góð. Seventh Tree heitir hún
er það ekki? Voða rólegt og svalt. Hér er til
dæmis eitt bítlalega hljómandi lag:
Goldfrapp
- Little bird
---
Talandi um Bítla þá er þessi
ferð FTT náttúrlega algjör snilld. Ég
er svo sem búinn að gera þetta áður, sjá
McCartney og fara pílagrímsferð til Liverpool, en verðið
sem þetta er á er gríðalega gott. Svo væri
auðvitað magnað að sjá Hljóma í Cavern
og drekka (í sig nostalgíuna) með einvalaliði poppara
sem örugglega fer í ferðina.
---
Einhver Sigursteinn var óánægður með svartagallsraus
mitt um lífskjör á Íslandi og heldur því
blákalt fram í gestabók að Ísland sé
víst besta land í heimi og Spánn til dæmis totti
fyrir allan peninginn í samanburði. Nú hef ég
náttúrlega ekki búið á Spáni en
það var allavega helvíti ódýrt allt þar
síðast þegar ég fór (enda gengið hagstætt).
Ég reyndi að espa Tóta Leifs
upp í að bakka mig upp í þessu en hann nennti ómögulega
í netþras en skrifaði þó eftirfarandi:
Að lífsgæði hafi versnað á Spáni
er bæði rétt og rangt hjá viðkomandi. Húsnæðisverð
hefur hækkað mikið en margir innfæddir hafa staðið
í stað tekjulega, þeir rétt skríða yfir
1000 evrur á mánuði. Þetta þýðir
að æ fleirri sjá fram á að geta ekki keypt
sér eigin íbúð, verða að búa heima
hjá mömmu eða leigja nokkrir saman.
Flestir sem flytja til Spánar eru með tekjur annars staðar
frá og/eða duttu yfir sæmilega íbúð
í gegn um klíku. Einnig geta menn komist ágætlega
af með eigin rekstur, ef vel gengur.
Það sem er snúið í þessu
- er að lífgæðin eru margfalt hærri til að
byrja með að mínu mati. Þetta er soldið óhlutbundið
og einmitt vonlaust að rífast um á netinu. Hvað eru
lífsgæði nákvæmlega? Að geta farið
á ströndina hvenær sem er? Að geta farið út
að borða þríréttað hollann mat fyrir þúsund
krónur?
Það gæti orðið erfitt fyrir mig að rífast
um lífsgæði við mann sem býr kannski
í Grafarvoginum og á þrjá bíla á
lánum. Þýðir lítið að segja við
hann að lífsgæði séu það að geta
labbað í sólinni út í búð til
að kaupa ódýrt grænmeti og kaffi.
Heilbrigðiskerfið á Spáni er ókeypis
og jafn gott og á íslandi. En nú er það
ræktinn. 33 evrur á mánuði. Niðurgreitt af
borginni. Nýjustu græjur. Hóptímar. Sundlaug.
Þannig er nú það. Á móti má
svo segja að Ísland sé magnað út af hreina
vatninu úr krönunum, heita vatninu í pottunum, fjöllunum
og jólasveinunum. Og svo er kannski einhver sem telur hámark
lífsgæða að vinna lengst allra Evrópubúa
til að eiga fyrir dýrasta mat í heimi og verstu lánum
í heimi.
|