09.04.09
Nú er ekki nema þangað til Dr.
Gunni inniheldur... kemur út.
---
Fór á Draumalandið í gær. Þorsteinn
Guðmundsson var líka í bíó. Og Ólafur
Eff sem var beint fyrir framan mig. Ég var drulluhræddur um
að hann færi að skamma mig fyrir að kalla sig geðsjúkling
í vinsælu mótmælalagi í fyrra. Hann glápti
á mig í smá stund áður en myndin byrjaði
en ég þóttist vera niðursokkinn í Grím
geitskó, klámblað sem lögfræðinemar gefa
út. Sem betur fer byrjaði myndin. Þorsteinn var náttúrlega
hress. Sagði að Lárus Welding hefði verið grýttur
með konfektmolum í þjóðleikhúsinu á
dögunum. Aumingja útrásarræflarnar. Læðast
með veggjum, niðurlægðir vesalingar, smáðir
og hæddir. Jæja, þeim var nær. Myndin já.
Ég var mjög ánægður með hana lengi framan
af. Reyndar læddist sá grunur að mér að verið
væri að fjalla um gamalt hitamál, en ekki heitasta hitamálið
í dag. En auðvitað tengjast þessi hitamál.
Í lokin, þegar hreindýr voru búin að hlaupa
full mikið undir Sigur Rósarlegri tónlist Valgeirs Sigurðssonar,
var þetta orðið ágætt. Eins var gæsin
með eggið að drukkna í hækkandi lóni versus
Austfirðingar í hoppukastala við opnun álbræðslunnar,
full væmið trikk. Myndin er frábær fyrir hlé,
ókei eftir hlé. Í byrjun myndarinnar var talað
um lífið í gamla daga, þegar afi Andra Snæs
vissi út á hvað þetta gekk versus lífið
núna, sem fólk er ekki alveg með á hreinu út
á hvað gengur. Einnig var fjallað um óttann sem alltaf
er haldið að okkur. Óttann um afkomuna, óttann við
framtíðina. Það var einna sterkast við myndina
því það er alltaf verið að troða þessum
ótta upp á okkur. Ó nei gvöð minn fokking
almáttugur, hagvöxturinn er NEIKVÆÐUR ArrrhghhhghrrhH!!
Við drepumst öll! Ég gef Draumalandinu XXX. Ég myndi
fara á hana ef ég væri þú.
---
Þá er ég búinn að éta eitt páskaegg.
Ætli það verði ekki bara það eina í
ár. Mér var nefnilega mútað með páskaeggi
úr Síríus suðusúkkulaði, Konsum heitir
það víst. Páskaegg úr suðusúkkulaði
er full víruð hugmynd en í raunveruleikanum gengur hún
vel upp, ég allavega hreinsaði þetta í gatið
á mér með aðstoð fjölskyldunnar. Innan í
var sæmilega ríkulegt, áfram í "fullorðins"
suðusúkkulaðistílnum. Ég gef egginu fullt
hús, þá sérstaklega vegna þess að
nú er ég búinn að fá ógeð á
súkkulaði fyrir alla páskana, held ég. Spesíal
aukabónus við svona egg er að maður prumpar mjög
sérstakri lykt eftir það, eiginlega indælum gúrme-ilmi.
---
Eftirminnileg klósett #1: Salernið heima hjá Trausta
Júl í París sirka 1987 er mjög eftirminnilegt.
Hann bjó í smáíbúð á efstu
hæð í blokk nálæg Pigalle. Klósettið
var álíka stórt og í flugvél og sá
böggul fylgdi skammrifi (ég hef aldrei skilið hvaða
böggull og skammrif þetta er!) að það var ekki
hægt að sturta niður mannaskít. Klósettið
réði ekki við það. Eða hvort það
var áskeindur klósettpappír sem klósettið
réð ekki við, ég man það ekki. Jú,
ætli það sé ekki líklegra. Maður hefur
varla þurft að veiða skítinn í poka. Nei. Maður
þurfti bara að setja allan áskeinda klósettpappírinn
í poka og henda út í tunnu. Þetta fannst mér
svo ógeðslegt og mikið vesen að ég held ég
hafi ekkert skitið allan tímann sem ég gisti þarna.
Sem getur nú varla verið. Einhvers staðar hef ég
nú þurft að skíta. Jæja, kannski var þetta
ekki svo eftirminnilegt klósett eftir allt saman. Næst í
Eftirminnileg klósett: Pissuskálarnar í CBGB's!
---
Heimildarmaður minn í Úlfarsárdal færði
mér fréttir af lokun Dr. Gunna setursins. Eins og sjá
má á mynd er setrið nú á hrakhólum.
Unnið er að viðunandi lausn á vandanum.
---
Móðir mín heimtar að ég skrifi Bakþanka
um þá svívirðu sem svín eru beitt með
því að líkja fyllibyttum við þau í
auglýsingaherferð. Ég er nú eiginlega búinn
að skrifa um þessar auglýsingar, sagði ég.
En þessu er sem sagt komið á framfæri: Svín
eru engar fyllibyttur heldur göfugar skepnur, offitusjúklingar
kannski, en hreinleg snyrtidýri, með vonda ímynd. Dýr
drekka ekki áfengi, ókei!
---
Voðalega er fólk grænt að finnast þetta
eitthvað biggdíl að FL hafi gefið Sjall 30 millur. Það
er nú algjör hnetuskál í öllum þeim
trilljónataprekstri. Það kemur mér helst á
óvart hvað þetta eru lágar upphæðir.
Ég hefði haldið að þetta væri svona 300
millur. Það kostar að borga hitareikningana í Valhöll
og svona. Nei nei, við skulum ekkert birta hvaðan stjórnmálaflokkarnir
fá peninga, tuðaði þetta lið endalaust. Og nú
blasa fúlar beinagrindurnar við. You are going down buddy. Skítapakk.
---
VG sendu mér bækling með flennimyndum af Katrínu
og Svandísi (sitt hvoru megin). Þetta er alveg misheppnaður
bæklingur. Maður fer ekki að pæla í öðru
en förðun. Hmm, hvaða andlitskrem ætli Svandís
noti? hugsar maður og rýnir í myndina. Þarna innan
í er vitanlega eitthvað blaður um það hvað
VG sé æðislegt, eins og þurfi eitthvað að
segja manni það. Hins vegar er ágætt að fá
nöfnin á frambjóðendunum og myndir. Þegar
ég kýs VG í suðri (eins og ég mun að
sjálfssögðu gera) er ég að kjósa "yfir
mig" fullt af toppliði, eins og Erp Eyvindarson og Einar Má
Guðmundsson. Hinum meginn í norðri væri ég
að fá Ellen Kristjáns og bassaleikarann í Örkuml.
Topplið, ég er að segja þér það.
Ekki má svo gleyma Einari Laxnes sem er í neðsta sæti
í suður. Ef hann væri í efsta sæti hefði
bæklingurinn verið ennþá æðislegri, eða
svona:
08.04.09
Nú eru tveir sólarhringar þangað til Dr.
Gunni inniheldur... kemur út.
---
Þau undur og stórmerkilegu stórmerki gerðust
að ég keypti mér cd á netinu. Eins og ég
geri oft var ég að tékka á hinni almögnuðu
Aquarius
Records plötubúð í San Fransisco og rakst á
fyrstu plötu Ovens, óþekktrar lókal sveitar. Það
var hvergi að finna neitt með þeim á lendum alnetsins
svo ég pantaði mér bara diskinn. Hann kom í gær,
hlaðinn aukakostnaði frá íslenska ríkinu,
og er dúndur góður. Þetta eru strákar sem
syngja um slóðaskap og hangs og ælu og dóp og rugl
við mússikk sem lifir og hrærist í Weezer Bítla
Beach Boys landi. 44 lög á diski sem heitir bara Ovens eins
og bandið. Aðalgaurinn heitir Antony Molina og semur allt - "even
though he probably stole most of the riffs off of someone else". Þrír
aðrir með honum í bandinu. Tekið upp 2006, 2007 og 2008
og þeir segja að hugmyndin hafi verið að þetta
væru 3 lps, en þeir hafi bara ekki haft efni á að
gefa út þrjár lp. Því komi þetta
allt núna á einni cd. Það er Tumult
sem gefur út. Við skulum fá þrjú tóndæmi,
í röð af '06, '07 og '08 "plötunum":
Ovens
- Puke when I'm sad
Ovens
- Movin On
Ovens
- Cantillejo Scene
---
Hér er eitthvað sem heitir Record
Store Day. Virðist spennandi.
07.04.09 - Ammrískt gúmmilaði
Lufsan hringdi í mig babú í gær til að
segja mér frá Klinkinu, nýrri lágvöruverðsverslun
að Faxafeni 8 (inn af Outlet Center). Það er allt fullt hérna
af fáránlegri matvöru frá USA, eins og þetta
sé gamall lager af Vellinum, sagði hún og þekkti
sinn mann. Ég þaut auðvitað uppeftir, sá fyrir
mér rótarbjór, krím sóda, karamelluhúðað
popp og geðveiki, og varð svo sem ekki fyrir neinum vonbrigðum.
Ekkert rót né krím samt. Tók svo spjall við
eigandann fyrir Neytendahorn Fbl
og
hann lofaði að panta rótarbjór og krímsóda
í næstu pöntun. Mæli með búðinni
fyrir aðdáendur ammerrísks gúmmilaðis. Eigandinn
sagðist ekkert tengdur Jóni Sullenberger og væri orðinn
þreyttur á að sverja það af sér...
---
Áður auglýst gigg á Sódómu Rvk
síðasta vetrardag hefur verið blásið af. Hinn
stórfenglegi Eberg mun samt spila, en bara án mín
að þessu sinni. Biggi fattaði allt í einu að hann
var bókaður á Abbakóvergigg í Tónlistarskóla
Akraness á sama tíma. En við spilum bara seinna, ekki
málið. Það var meira að segja búið
að bóka bassaleikara í bandið, heimsfrægan
mann sem var byrjaður að æfa sig.
---
Fólk er að vesenast með Dr.
Gunni inniheldur... og spyrja hvernig það eiga að panta
og svoleiðis. Svarið er að allar upplýsingar varðandi
slíkt verða gefnar upp kl. 10 á föstudaginn. Í
boði verða 300 tölusett & árituð eintök
af hinum glæsilega disk (72 bls bæklingur!) + niðurhal
á 2000 kall - EÐA - bara niðurhal á 1000 kall.
06.04.09 - Útgáfudagur ákveðinn
Eins og sést á hinni vönduðu auglýsingu
hér að ofan kemur sólóplatan Dr.
Gunni inniheldur... út á Föstudaginn langa kl. 10:00.
Þetta er háheilög plata, takk fyrir.
---
Ég fór á fínan veitingastað, Saffran,
eða eins og segir á veitingahúsasíðunni:
Saffran,
Glæsibæ, Rvk XXXX
Flottur, ferskur, heilsusamlegur
og helvíti ódýr veitingastaður í Glæsibæ.
Fékk mér naanwich sem kostaði ekki nema 750 kall og var
alveg svaka fínn. Mæli með þessum.
---
Nytjamarkaðir eru málið í kreppunni. Á
Akureyri er komið Norðurport, sem eins og nafnið bendir til
er Kolaportið norðan heiða plús meira af hannyrðum
og föndri heimamanna. Ég var á röltinu í
gær um hinn gríðarfagra Akraneskaupstað í gær
(á meðan tölvan mallaði út úr sér
master) og tók eftir nytjamarkaðinum Búkolla.
Því miður var ekki opið.
03.04.09 - Grand pönk
Á Kringlukránni rifja Pops upp bítlið, en
pönkið verður rifjað upp á Grand Rokk. Valli í
Fræbbblunum sendi email:
Rétt að minna á Punk 2009 kvöldið næsta
laugardagskvöld á Grand Rokk (annað kvöld). Þetta
verður að mörgu leyti svipað og í fyrra, enda tókst
alveg sérstaklega vel til þá – en við bætum
við nokkrum nýjum lögum í ár. Svo ég
rifji aðeins upp þá er þetta hópur sem var
á sínum tíma í Fræbbblunum, Taugadeildinni,
Q4U, Tappa Tíkarrass, Snillingunum og fleiri hljómsveitum.
Við erum að rifja upp lög frá upphafsárum
Punksins, 1976-1979, bæði þekkt lög frá Stranglers,
Sex Pistols, Ramones og Clash og einnig frá hljómsveitum
sem voru „stórar“ úti en náðu aldrei almennilega
athygli hér, eins og Jam, Stiff Little Fingers, Undertones, Buzzcocks
og Skids.
Það má svo sem deila um hvort þetta sé
allt „Punk“, eða hvort „Nýbylgja“ eða „Power Pop“ sé
réttari stimpill, en það eru ekkert sérstaklega
skemmtilegar umræður, og hvort sem er aukaatriði. Aðalatriðið
er að þetta eru þau lög sem við vorum að hlusta
á þegar við vorum að byrja að spila og þau
lög sem höfðu hvað mest áhrif á okkur.
Og á sínum tíma þótti jafnvel Blondie
vera argasta „punk“ þegar við reyndum að spila „Denis, Denis“
fyrir Hollywood kynslóðina.
Valli sendi slefandi góðan heildarlagalistann með. Það
mætti skella þessu á plötu og kallana Now this
is what I call punk music vol 1:
Anarchy In The UK - Sex Pistols
Police And Thieves - Clash
So What? - Crass
Gotta Getaway - Stiff Little Fingers
Sheena Is A Punk Rocker - Ramones
Barbed Wire Love - Stiff Little Fingers
EMI - Sex Pistols
Into The Valley - Skids
New Rose - Damned
Sex & Drugs & Rock & Roll - Ian Dury
Sound Of The Suburb - Members
Alternative Ulster - Stiff Little Fingers
What Do I Get? - Buzzcocks
I'm So Bored With The USA - Clash
Suspect Device - Stiff Little Fingers
Public Image - PiL
Johnny Was - Stiff Little Fingers
Ever Fallen In Love - Buzzcocks
Holidays In The Sun - Sex Pistols
Denis - Blondie
Pretty Vacant - Sex Pistols
A Bomb In Wardour Street - Jam
My Perfect Cousin - Undertones
Safe European Home - Clash
Get Over You - Undertones
Swallow My Pride - Ramones
White Man In Hammersmith Palais - Clash
Watching The Detectives - Elvis Costello
Spanish Bombs - Clash
The KKK Took My Baby Away - Ramones
Radio Radio - Elvis Costello
No More Heroes - Stranglers
Teenage Kicks - Undertones
Down In The Tube Station At Midnight - Jam
Real World - Buzzcocks
Marquee Moon - Television
Five Minutes - Stranglers
Roots, Radicals, Rockers And Reggae - Stiff Little Fingers
Get A Grip On Yourself - Stranglers
In The City - Jam
White Riot - Clash
God Save The Queen - Sex Pistols
Rockaway Beach - Ramones
Janie Jones - Clash
Blitzkrieg Bop - Ramones
If The Kids Are United - Sham 69
Við fáum tóndæmi:
Buzzcocks
- Real World
Fyrsta lagið af annarri plötu Manchesterpopppönkaranna
með samkynhneigða söngvaranum Pete Shelley, "Love Bites" (eða
"Sogblettir"). Það kom út í september 1978. Fyrsta
plata bandsins kom út sama ár, í mars. Á þessum
tíma voru menn að springa og ekkert að hanga yfir hlutunum.
Dæla stöffinu út eins og Bítlarnir. Eitthvað
annað en núna þegar flestir taka 2-3 ár á
milli platna.
02.04.09 - Sumarsmellamella ég? Nei!
Jónathan var greinilega drulluþreyttur og með störu,
en stóð sig engu að síður ágætlega
í rólegu setti. Gríðarlega skemmtilegir textarnir
margir og hann alveg gegg á köflum. VG í kvöld
ef fólk vill upplifa meistarann. Þá ættann að
vera betur sofinn.
---
Búið er að ákveða að lagið Prinsessan
verði
sumarsmellur Buffs í ár. Lagið er eftir mig. Það
er reyndar líka á plötunni Dr.
Gunni inniheldur... en í mun öreigalegri útgáfu
og heitir þar Prinsessan mín. Þetta er ekki eini sumarsmellur
minn í ár. Ég samdi líka lagið Komdu aftur
sem hljómsveitin Elektra mun flytja. Fjölmargir Veðbankar
segja að það verðu örugglega líka sumarsmellur
í ár. Samkvæmt ofurumbanum Valla Sport verður lagið
frumflutt í Idol 17. apríl. Ég hef hvorugt lagið
heyrt með Buff eða Elektru, en hlakka helvíti til þess.
Alltaf gaman að heyra gítarglamur sitt enda sykurhúðað
og gljándi. Lögin á Dr.
Gunni inniheldur... eru svo 18 talsins, en samt er ekki útlit
fyrir að nema svona 7 lög verði sumarsmellir. Hitt er albúmtrakks
og/eða of geðveikt. Nú hillir loks undir plötuna. Ég
held við séum að tala um formlega útgáfu þriðjudaginn
7 apríl kl. 08:00.
---
Bakþanki dagsins
heitir Halló Tortóla, hér kem ég! Hér
er heimasíða Bomba Shack pöbbsins sem minnst er á
í greininni. Sé rýnt í myndirnar má
sjá þá Björgólfsfeðga í góðu
glensi á dansgólfinu með lífeyrissparnað ömmu
þinnar.
01.04.09 - Bara Jónathan
Þetta
er gríðarlega metnaðarfullt aprílgabb (ef þetta
er þá aprílgabb!)
---
Burt með sorg og sút, settu á munninn stút
og drullaðu þér út... á tónleika
með Jónatani Richman! Jess! Hann er kominn til að velgja
þér glaðlega undir uggum í þriðja sinn
og spilar á Rósenberg í kvöld. Mér skilst
reyndar að það sé snaruppselt á það
gigg. En ekki fara að væla. Jónatan (og Tommi trommari)
verða á morgun (2 apríl kl.21:30) í kosningamiðstöð
VG, Tryggvagötu 11. Ólöf Arnalds verður líka
og það kostar skitinn þúsara inn.
Jonathan
Richman - I was dancing in a lesbian bar
Jónathan er nýbúinn að vera í Englandi
að spila. Hann fær svaka
dóma í Mojo - "Funny, free, and fabulous, Jonathan
Richman is a living celebration of life as it should be lived." Þar
segir að hann líti glæsilega út verandi 57 ára
og að hann þoli ekki farsíma. Þess má geta
að hann þolir ekki heldur tölvur og tölvupóst.
Grímur fær bara sendibréf frá honum þegar
þarf að arrengera gigg. Hér er eitt snilldarlag frá
1992 af plötunni I, Jonathan.
31.03.09
Dr. Gunni inniheldur
— platan sem allir eru að bíða eftir — verður ekki gefin
út 3 apríl. Frestun vegna tölvubilunar, sjáðu
til. Þess í stað kemur platan líkast til út
í næstu viku, vonandi fyrir páska. Svo er allt útlit
fyrir að ég spili þann 22. apríl - Síðasta
vetrardag (frí daginn eftir!) á Sódómu Reykjavík.
Þetta verða almagnaðir tónleikar því
Eberg spilar líka. Tónleikarnir heita Tvöfaldir á
klaka. Eberg gefur einmitt sína plötu út núna
á föstudaginn 3. apríl, helvíti flotta plötu
sem heitir Antidote.
---
Dr. Gunni inniheldur
er svo sem nánast tilbúin. Tölvudjönkið hrundi
bara þegar endamarkið blasti við. Lítið við
því að gera nema bíða eftir viðgerðarkörlunum.
Skjölin eru alveg róleg á harðadiskinum. Platan
kemur út sem CD og niðurhal á 2000 kall eða bara
niðurhal á 1000 kall. CD diskurinn kemur í 72 bls bæklingi,
textar og ljósmyndir og kjaftæði. CD útgáfan
er bara gefin út í 300 eintökum, tölusettum og
árituðum. Platan verður til í einhverjum plötubúðum
og svo beint frá útgefanda, Erðanúmúsik.
Þetta er helvíti góð plata, þótt ég
segi sjálfur frá.
---
Lufsan hefur áhyggjur af því að ég muni
tuða mig í hel yfir nýjustu seríu Lost. Nú
er mannhelvítin sem skrifa þetta búin að draga
tímaflakk inn í grautinn, eins og þetta væri
nú ekki nógu mikið rugl fyrir. Ég sagði ekki
orð seinni helming þáttarins.
---
Í borginni eru allavega tvær asíubúðir,
Mai Thai á Hlemmi og Asian á Suðurlandsbraut. Mín
reynsla er að Mai Thai hafi nú tekið afgerandi forystu í
vöruúrvali. Ég gat allavega fyllt heilan poka af stöffi
þaðan í gær, núðlusúpur, nammi,
skyndikaffi og exótíska drykki. Að fara í svona
búðir er ódýrasta leiðin til að sleppa
frá íslenskum raunveruleika. Maður getur þóst
vera annars staðar í smástund, til dæmis í
steikjandi hita í lókal búð í Aparri.
---
Í Hafnarfirði er fín Antíkbúð á
Strandgötu, Laugavegi suðursins. Þar sagði mér
karlinn aðspurður að síðasta Spur flaska hafi komið
í hús fyrir 12 árum og hún hafi selst undir
eins. Íslendingar hafa nostalgískt æði fyrir Spurflöskum.
Ég myndi örugglega alveg eyða 5000 kalli í Spurflösku,
enda hönnunarlegt masterpís. Hinsvegar var til fullur kassi
af Sinalco flöskum sem enginn nennir að eiga.
---
Ég nenni ekki að tala um landsfund Sjálfsstæðismanna,
nema: Hvað er málið með þessi V-merki? Fyrst Dabbi
með eitt V og svo Bjarni silfurskeið með VV. Var það
ekki síðast Nixon sem flassaði V-um? Mér fannst þetta
eitthvað korní. Annars er ég að spá í
að kjósa D. Ég held alltaf með lúserunum.
Nei, djók.
29.03.09 - We have to kill something
Davíð Oddsson í geðveiku stuði. Helvíti
kreisí alltaf. Gaman að því. Er dáldið
eins og mjölkarlinn fyrir austan - We have to kill something! Segir
það sem hann meinar og er drullusama hvað heiminum finnst.
Reynir þó allavega alltaf að skemmta krádinu með
íslenskri fyndni. Og hinir stórfenglegu Sjallar átu
úr lófanum á honum, nema þegar hann tók
diss á vælukarlinn Vilhjálm - sem kemur alltaf og vælir
þegar á að taka smá frá ríkuköllunum
- þá mátti heyra í engisprettum. Þetta
er hlægilegt lið. Og fyndnast af öllu verður ef flokkurinn
verður minni en bæði Samflykkið og VG í kosningunum.
Það er nú lágmarks útreið, finnst mér.
Og þið getið rétt ímyndað ykkur svartagallið
sem mun vella úr þessari átt þá. Nördarnir
í háskólamyndinni búnir að vinna og djokkin
og gellurnar í geðveikri fýlu og hefndarhug. Revenge
of the Jocks 2013?
---
Sá bíópikkið Cadillac Records um Chess records
í Chicago fiftís. Ágætis mynd og ágætt
að fá smjörþefinn af þessu stöffi öllu,
uppgangi Muddy Waters og Howlin' Wolf og þessa liðs. Það
var farið hratt yfir sögu og ekkert endilega verið að
hengja sig í sagnfræðilegum staðreyndum. Nú
bíða mín bíópikkinn The Buddy Holly Story
frá 1978 með hinum ekkert líka Gary Busey og What we
do is Secret, um pönkbandið Germs og söngvara þess,
Derby Crash, sem gerði þau mistök að drepa sig daginn
áður en John Lennon var skotinn. Dauði hans féll
eðlilega aðeins í skuggann af hörmulegu morði Lennons.
---
Enn á ný er leitað að bestu íslensku plötunni.
Hér
er hægt að taka þátt í að skera niður
485 platna lista!
27.03.09
Sjitt hvað mig hlakkar mig til að sjá hinar lýðræðislegu
kappræður fyrir kosningarnar. Þetta hlýtur að
vera sent út á tv eins og vanalega. Sævar, Ástþór
og Sturla og allir hinir við langborð að tala um það
hvernig hægt verður að bjarga landinu. Þetta verður
eðalefni. Sævar, Ástþór og Sturla... og maður
fær bara að kjósa einn? Þetta er náttúrlega
ekkert lýðræði.
---
Þeim hjá Fact magazine liggur á. Þeir eru
komnir með 20 platna lista yfir bestu
plötur ársins só far. Maður er svo eftir á
og hefur bara heyrt þrjár af þessum plötum. Athygli
vekur að glæný plata með Hildi Guðnadóttur
er á listanum (sem er raðað í stafrósröð).
Hildur
Guðnadóttir - Ascent
Without sinking heitir platan. Hildur
hefur því miður sagt skilið við frábæra
poppið sem hún gerði og söng með Rúnk á
sínum tíma og eyðir nú tíma sínum
í vandaðan cellóleik og melónkólíska
og djúpspaka "klassík". Platan er gefin út hjá
Touch í Englandi og það er flott að Hildi sé
að ganga svona vel.
---
Aðrar plötur sem ég hef heyrt af lista Fact er nýja
Animal Collective sem er ágæt en er kannski ekki að tala
neitt sérstaklega sterkt til mín. Og svo erða nýja
platan með Dan Deacon, Bromst.
Dan
Deacon - Get older
Dan (1981, Baltimore) hefur dælt út plötum síðustu
ár. Bromst ku fullorðnari en fyrri verk (það þýðir
að lögin eru ekki jafn glöð og poppuð). Þó
er gleðin og poppið ekki langt undan, eins og heyrist á
þessu lokalagi plötunnar.
25.03.09 - Fólkið heimtar blóð
Það er nauðsynlegt að hafa alltaf eitthvað til
að hlakka til. Það er nú bara svona beisikk lífsregla.
Hér er eitthvað til að hlakka til menningarlega, svona fyrir
utan Dr. Gunni inniheldur
(sem enn er fyrirhuguð 3. apríl): Græna ljósið
með 17 mynda
bíódaga í apríl. Ég held ég
geti ekki annað en mætt á Not Quite Hollywood: The Wild,
Untold Story of Ozploitation!, svona vegna gamals áhuga á
öllu áströlsku. Síðan er það auðvitað
Jónatan Richman á Rósenberg 1.
apríl. Hann er stórfenglegur meistari. 4.
apríl erða hinsvegar Punk 2009 á Grand rokk. Eldhressir
pönkarar spila pönk með tárin í augunum. Kolrössurnar
verða með næsta Sýna og sjá á Nýló.
Það er annað
kvöld. Þær hljóta að ljóstra upp
hræðilegum leyndarmálum úr fortíðinni.
Kannski eitthvað snardjúsí um Coldplay. Talandi um Coldplay.
Ef Coldplay og U2 færu í slag myndi Coldplay vinna. Þeir
eru miklu þolanlegri af risabandi að vera. Gera oft skemmtileg
myndbönd (eða láta gera fyrir sig). Þetta með
gömlu kerlingunni að dansa var flott og svo er hér
eitt helvíti flott með brúðum.
Blóð
- Icesave
Fréttatilkynning: Dægurpönksveitin Blóð
mun gefa út sína fyrstu plötu á jaðarútgáfunni
Brak Hljómplötur laugardaginn 26. mars. Platan nefnist Fólkið
heimtar BLÓÐ og er hreinskiptin lýsing og gagnrýni
á ríkjandi ástand íslensks samfélags.
Tónlistin er hrátt, heiðarlegt og kraftmikið nýbylgjupönk
sem fær hörðustu afturhaldsseggi og nýfrjálshyggjusmjörkúka
til að hugsa sinn gang. Platan er unnin hratt og fóru upptökur
fram í síðustu viku og hljóðblöndun fór
fram í gær. Brak fær svo 3 daga til að framleiða
plötuna og koma henni í valdar verslanir.
Blóð ætlar að fagna útgáfunni
með útgáfutónleikum á Grand Rokk á
laugardaginn. Morðingjarnir munu hita upp og það verður
frítt inn. Platan verður til sölu á skít
og ingenting og léttar veitingar í boðinu. Blóð
og Brak hvetja alla áhugasama um gagnrýna pönktónlist
til að láta sjá sig. Blóð á mæspeisi.
24.03.09 - Músik og gras
Hin æsandi deströksjón hljómsveit Reptilicus
varð tvítug í fyrra. Á mæspeisi
þeirra má heyra glænýtt lag efst á pleier,
"Time before present in millions of years".
---
Cosmic
Call - Cold hands
Akranesrokkið er ekkert að lúta í gras. Nýjasta
útflutningsafurð Skagans er Cosmic Call sem hét áður
The Pet Cemetery. Bandið varð í öðru sæti
á eftir Agent Fresco í Global Battle Of The Bands 2008 og
þar á undan tók það þátt í
tónlistarkeppninni í framhaldskólanum sínum
á Akranesi. Þau eru nýbúinn að klár
Ep plötu í Sýrlandi sem kemur út á næstu
vikum. Platan heitir eftir bandinu, Cosmic Call. Frekar á mæspeisi.
---
The
Dead Weather - Are Friends Electric
Jack White átti sinn tíma í sólinni. Mér
fannst hann óþarflega óáhugalaus
á tónleikum White Stripes í Laugardalshöll, en
síðan er hann búinn að spila og spila, t.d. með
Raconteurs sem er ekkert spes, og er dáldið orðinn bensínlaus
og hjakkrænn. Nýjasta nýtt er súpergrúppan
The Dead Weather. Þar spilar hann á trommur en aðrir eru
Alison Mosshart (The Kills), Dean Fertita (úr Queens of the Stone
Age) og Jack Lawrence (úr The Raconteurs). LP platan Horehound kemur
í júní, en einn síngull er kominn út.
Á b-hliðinni er þessi ljómandi fína útgáfa
af slagara meistara Garys Numans.
---
Mér þykja grasreykingar ekki kúl en ef gras og
áfengi færu í slag myndi gras vinna því
kannabisvíman er ekki ofbeldishvetjandi, pissíbuxurnarhvetjandi,
ælasigallanúthvetjandi og liggjaíþynnkuogþunglyndihvetjandi,
eins og hið hundleiðinlega en löglega áfengi. Svo ef
Björk í Bankastræti væri með gras í
neytendavænum poka frá Esjumelum (og ég tala nú
ekki um frá exótískari stöðum) þá
myndi ég eflaust kaupa mér smá fyrir gamlárskvöld.
Glætan að maður myndi nenna að steina sig oftar en það,
enda finnst mér gleðin langbesta víman eins og Pálma.
22.03.09 - Satan raðar ekki í hillur
Einhver Howlingtypewriter, líkast til löngu gleymdur pennavinur
minn frá 9. áratugnum, er að bjóða upp eldgamalt
efni með S.H.Draumi á Ebay. Bensín
skrímslið skríður, GOÐ
með öllum 4 Stebba Gríms límmiðunum ólímdum,
Drap
mann með skóflu og einhverja spólu Benzine
& Blood demo sem mig rámar bara í, en hef væntanlega
búið til í útrásarskyni. Eintak nr. 9 af
15! Einstakt tækifæri til að bjóða í
sjaldséð stöff! Ætti að fást hundódýrt.
---
Sumir leggja á sig ferðalag í Fjarðarkaup í
Hf til þess að sleppa við að styrkja Satan og hyski hans
hjá Högum. Ég er ekki alveg svona hardkor klikkaður
en fór engu að síður í FK í gær
enda er þetta flott búð og mjög gaman að koma
þarna. Rosa mikið af fólki og svona stemmning, sem aldrei
er í Bónus. Fjarðarkaup er eiginlega eins og að versla
í fortíðinni. Og fortíðin var miklu betri
en nútíðin, eins og fólk veit, eða veit ekki.
Aldrei að vita nema maður fari aftur fljótlega, ekki endilega
þó til að losna við Satan, enda finnst mér
bæði Bónus og Hagkaup fínar búðir og
set það ekki fyrir mig þó Jón Ásgeir
sé með bæði gamlan og nýjan kúk í
buxunum, enda kemur reksturinn á þessum búðum honum
ekkert við. Hef allavega aldrei séð hann raða í
hillur. En allavega. Tékkaði líka á stórverslun
Bauhaus. Þar er allt tilbúið og bara eftir að fylla
allt af hræbillugu drasli frá Germaní. Skrýtið
að sjá svona risa hús svona gjörsamlega dautt. Hvenær
koma Þjóðverjarnir og bjarga okkur úr fákeppninni?
Aldrei?
---
Dee
Mullins - I am the grass
Enn á ný mætast sækadelían og kántríið,
nú hjá Dee Mullins, kántrígaur sem var of heví
fyrir Nashville. Það er Omni Recording Corporation sem hefur
gefið út safnplötu
með löngugleymdum meistaraverkum Dees, og sama fyrirtæki
gefur út lögum hlaðna tvöfalda
safnplötu, Plantation Gold, þar sem margt er álíka
súrt, ef ekki súrara, en Dee. Eðal eðall.
Wavves
- So bored
Nathan Daniel William kallar sig/bandið Wavves, er 22ja og gusar
út hráum skít á Fat Possumútgefnu plötunni
Wavves. Hann hefur tekið "bloggheima" með trompi og af gaur með
lasið upptökutæki og últrahráan skít
má hann vel við una. Hans speis.
Dum
Dum Girls - Ship of love
Meira lófæ/nófæ, nú frá Dum
Dum Girls frá LA, sem er víst ein stelpa sem heitir Dee Dee
og vinnur á bókasafni. Nú erða skógláp
með örvingluðum trommuheila. Hefði pottþétt
fengið að vera með á Snarl 4. Hennar speis.
Woods
- The Dark
Eins og DDGirls, er Woods gefið út af Captured
Tracks í Brúkklin. Súper dúllulegt amerískt
indípopp og maður er ekki viss af hvaða kyni söngvarinn/konan
er. Af 7" en Lp platan Songs of Shame ku alveg að koma út. Þeirra
speis.
21.03.09 - Íslenski draumurinn
Stundum er talað um klappstýrur útrásarinnar,
en ég heyrði á tal tveggja gaura sem frekar má
segja að hafi verið flöfferar
útrásarinnar. Þeir voru langt í frá ánægðir,
eiginlega drullufúlir, töluðu um að næstu ár
yrðu ömurleg út af því að kommahelvíti
myndu taka hér yfir og banna klám og bjórinn aftur
og vælivæl, en svo myndi þetta fara að lagast upp
úr 2013 og þá væri kannski aftur hægt að
fara að flöffa í flottræfilsveislum í Monte
Carló, eða hvar sem þessir FMhnakkar á hestasterum
báru niður með loftbólulottópeningana sína.
---
Auðvitað var það skemmtilegasta við "útrásina/góðærið"
að fylgjast með hinum nýríku spreða illafengnu
fénu í fávitadelluna. Björgólfur Thor,
Hannes, Jón, allt þetta lið, hinir nýríku,
voru beisiklí með andlegt atgervi FMhnakka, FMhnakka sem duttu
í lukkupottinn. Eða hvað myndu FMhnakkar ekki gera ef þeir
væru allt í einu ógeðslega ríkir? Láta
50 Cent spila í afmælinu sínu á Jamaika? Taka
þátt í kappakstri? Halda svona fávitapartí
í Monte Carlo? Nú vil ég auðvitað ekki vera
með nein leiðindi í garð FMhnakka þótt
ég líkji föllnum flottræflum við þá.
Ég er ekkert svo viss um að FMhnakkar séu til lengur,
nema þá helst á Suðurnesjum. FM er dúndur
útvarpsstöð sem ég hlusta oft á, enda oft
frábær hnakkamúsik í gangi þar, sem virkar
sem andlegt amfetamín (maður verður reyndar að slökkva
þegar koma ballads og oftast þegar einhver byrjar að tala),
og ég er meira að segja svo góður við hnakkana
að ég tileinka þeim lag á plötunni minni næstu.
Kannski maður ætti því frekar að líkja
þessum föllnu nýríku við Tóta í
Íslenska draumnum, þeirri stórfenglegu mynd. Þetta
lið er bara eins og Tóti í 10.000 veldi. Og niðurstaðan
er sú sama hjá báðum. Ég held að Ríkissjónvarpið
gerði vel í því að endursýna Íslenska
drauminn um þessar mundir.
---
Eftir að "þjóðin" hefur lamið á ríkisstjórninni
og eftirlitsstofnunum hlýtur hringurinn að fara að þrengjast
um þá sem raunverulega "bera ábyrgð á hruninu",
þ.e. þessa 20-50 aðalvondu og gráðugu sem oft
hefur verið talað um. Væri ekki ráð að koma
upp wanted-plaggati með þessu liði? Hvað á svo
að gera við þetta vesalings fólk, þ.e. ef það
verður fundið sekt um eitthvað annað en að hlíta
"leikreglum kapítalismans"? Fylla öll fangelsi landsins af
þessu? Eru nú gustuk að eyða meira af ríkisfé
í þetta lið? Opinber réttarhöld læf
í Kastljósi og svo gapastokkur á Arnarhóli,
fylgt eftir með Pol Pot-ískri endurhæfingu? Ég
spái svipaðri niðurstöðu í þessu og
í olíusamráðsmálinu. Einhver Þórólfur
tekur sökina á sig og hinir sleppa flissandi út í
nóttuna. Þannig er Ísland. Eða kannski ekki. Vonandi
ekki. Ekki að manni sé einhver fróun í að
vita af FMhnökkum í grjótinu, en er þetta ekki
bara spurning um RÉTTLæTI!?
---
Ég má alveg vera með í grátkórnum
og segi því líka: SVONA EFTIR Á AÐ HYGGJA
ÞÁ MÁ KANNSKI SEGJA AÐ ÉG hefði nú
ekki átt að... (svínast eins of fífl) og frekar
átt að...(vera betri manneskja og ekki svona helvíti
mikið fífl og gráðugur).
---
Það er engin fokking kreppa í rokkinu. Hljómsveitin
Reykjavík! hefur sent frá sér æsandi myndband
tekið upp á ljósritunarvél! Inga Mæja hans
Bóasar gerði þetta með Hrönn vinkonu sinni. Ég
heyrði lag með hljómsveitinni Sing
for me Sandra í útvarpinu. Það var drulluflott.
Takið eftir því að ég hneykslast ekki yfir
því að þeir skuli ekki syngja á íslensku.
Why bother? Menn syngja ekki á íslensku nema þeir geti
það. Sudden
Weather Change gefa út plötuna Stop! Handgrenade in the
Name of Crib Death 'nderstand? í apríl. Verður eflaust
klassi.
---
Sjálfur get ég ekki staðið við áður
tilkynntan útgáfudag plötunnar Dr.
Gunni inniheldur. Reynum frekar FÖSTUDAGINN 3. APRÍL
KL. 08:00.
19.03.09 - Grams
Gríðarlegur plöturúntur var farinn á
þriðjudag með afmælisbarni dagsins í dag, Steini
Skaptasyni. Fyrst var rúntað um hið frábæra
Úlfarsárdalshverfi, þar sem óraunhæfar
væntingar Íslendinga (Eurovision-bjartsýni) hafa náð
hærri hæðum en nokkru sinni fyrr. Eftir standa 136 íbúðir
í byggingu og 720 tómar lóðir, samkv. góðri
grein í Mbl á mánudag. Það er áhugavert
að dingla um hverfið og hugsa um íslensku þjóðarsálina.
Næsti viðkomustaður var nytjamarkaður Samhjálpar,
Stangarhyl 3. Sá er góður, mikið af drasli til, ekki
síst vegna þess að þangað er kominn eldgamall
lager frá búsáhaldabúð Þorsteins
Bergmanns, sem er enn ofarlega á Skólavörðustíg
(held ég). Vinýlplötur voru af skornum skammti og bara
drasl. Ég spurði starfsstúlku hvort ekki væri meira
til og hún sagði að svo skemmtilega vildi til að Villi
Svan
væri með fullan bílinn af plötum sem einhver
hefði verið að gefa Samhjálp. Þetta stóð
heima, en Villi vildi þó grípa nokkrar gersamar úr
kössunum áður en hrægömmunum var hleypt í
þá. Þetta voru sirka sex pappakassar, ekki vildi Villi
segja hvaðan þeir kæmu, en fullir af góðgæti
voru þeir. Okkur Steini grunar (eftir loðin svör Villa)
að plöturnar komi úr safni útvarpsmannsins frábæra
Guðna Má, en sagan segir safn hans risavaxið. Ég
varð að hemja mig, en lét þó slag standa og
keypti allar Bítlaplöturnar sem ég átti ekki,
samtals 10 stk. Þetta var allt vel með farið og nánast
óspilað. Ég á því Bítlana
komplett á vinýl núna og get hellt mér í
áframhaldandi Bítlaæði. Þegar heim var komið
sá ég með því að rannsaka plöturnar
(svokölluð matrix númer á innri hring) að þetta
var allt úr komplett vinýlkassa Bítlanna sem gefinn
var út 1978. Það er nú alveg nógu gott.
Maður er ekki ennþá það geðveikur að
þurfa að eiga eintök úr fyrstu pressun... en sú
sturlun gæti komið síðar með tilheyrandi fjárútlátum,
stereo og mono og rugl. Af Villa Svan keypti ég líka óspilað
eintak af plötunni John Lennon/Plastic Ono Band frá 1970 (komplíterun
á sólóplötum Johns er þar með formlega
hafin) og vel með farið eintak af þriggja platna albúmi
Clash, Sandanista (fullt af rusli en glæsilegt efni inn á
milli). Ég mæli heilshugar með Samhjálparmarkaðinum.
Hann er mun betri en hinn alltof vinsæli Góði hirðir.
Frá Samhjálp fórum við í Hjálpræðisherinn
út á Granda. Þar var jafn lélegt plötuval
og síðast þegar ég kom þar, en engu að
síður greip ég tvær með mér enda verðið
hagstætt, 100 kr stk. Kings of the Wild Frontier með Adam &
Maurunum og eitthvað algjört fágæti, samnefnda plötu
með hljómsveitinni La Loora frá 1985. Eftir því
sem ég kemst næst er bandið frá Berlín og
gerði split plötu með Psychic Tv síðar á
ferlinum. Herinn er mjög furðulegur staður til að finna
svo sjaldséða plötu.
Góði hirðirinn er eins og áður segir orðinn
alltof vinsæll og þar er allt almennilegt jafnharðann rifið
út á ógnarhraða. Því var ekkert keypt
þar, en rennt yfir kassana á hröðu tempói.
Í lokastöð túrsins, nytjamarkaði ABC barnahjálpar
í Faxafeni 8, fann ég óspilað eintak af Hana nú
með Villa Vill, úr fyrsta upplagi og m.a.s. með textablaði
á fjölmörgum samanheftuðum A4-blöðum. 200
kall + 100 kall fyrir Einkalíf á vhs, en ég kem við
sögu þar í sándtrakkinu. Niðurstaða: Gríðargóður
gramsdagur.
---
Marc Ravalomanana, forseti Madagasgar, kemur sterkur inn í flokk
fyrirmenna með asnaleg nöfn. Fyrir er fólk eins og Búdrosdrosgali,
Hælassílassí, Svangiræ og Ólafur Ragnar
Grímsson.
18.03.09 - Dr.Gunnasetur vígt
Dr. Gunnasetur var formlega vígt í gær, í
glæsilegu húsnæði í Úlfarsárdal.
Við sama tækifæri komst upp um sýninguna Mestu krummaskuð
Íslands eftir Dr. Gunna. Verkið verður sýnt í
Dr. Gunnasetri þar til einhver rífur það niður
(eða setrið verður fjarlægt). Dr. Gunnasetur er opið
allan sólarhringinn. Ókeypis inn. Næg bílastæði.
17.03.09 - Gó við ðe fló
Tónlistarsíðan Rjóminn
er lox orðinn fugl og fiskur og hefur tekið upp bloggformið.
Ætti að vera reglulegur viðkomustaður músekáhugafólks.
---
Símauglýsingin með Hilmi Snæ er einstaklega
misheppnuð. Hún er löng og últraleiðinleg og
eintómt bull, eins og má t.d. lesa hér.
Mamma mín þolir ekki þessa auglýsingu og fór
að tala um það að fyrra bragði. Lufsan þolir
hana ekki (auglýsinguna, það er) og bara allir sem maður
talar við. Síminn er á hálum ís. Fyrst
með misheppnaðri herferð þar sem heimskan og fávitaskapurinn
sem kom þjóðinni á vonarvöl er hafin til skýjanna
á kostnað aðeins gáfulegra sjónvarpsefnis,
og svo þetta drasl með Hilmi. Ég er alvarlega að spá
í að segja þessu fyrirtæki að fokka sér
og snúa mér annað. Verst að þessi símabransi
er svo geðveikt flókinn og illskiljanlegur. Þetta er eins
og með bankakerfið. Erfitt, og eiginlega útilokað, að
komast að því hvaða apparat býður best.
Ef einhver býður þá betur en annar. Svo er líka
alltaf verið að skipta um eigendur á þessu drasli
og Tal orðið að Vódafón orðið að
Blabla og það sem maður samdi um orðið allt öðruvísi.
---
Bubbi hótar að gefa út plötur. Nei ég
meina, hætta
að gefa út plötur. Varðandi þessi mál
vil ég segja eftirfarandi: Stafræna byltingin verður ekki
kæfð. Það er álíka vonlaust að reyna
að læsa stafrænu efni og að reyna að gera vatn
ekki blautt. Því verður maður bara að fljóta
með straumnum. Finna leiðir til að aðlaga sig nýju
umhverfi. Ekki væla um tekjumissi og hóta að hætta.
Fylgist með þegar dr.
Gunni inniheldur kemur út.
16.03.09 - Sýrukántrí
Iss piss. Ekkert varð af fyrirhugaðri masteringu í gær
því annars ágæt tölva sem hefur alveg verið
til friðs ákvað upp úr þurru að nenna þessu
ekki lengur og slökkti á sér. Reynt verður aftur
eftir viku að viðgerð lokinni. Útgáfudagur 26.
mars
er því frekar vafasamur, en hann er allavega on þar
til annað kemur í ljós. Í frústrasjón
minni fór ég í Kportið og keypti Crimes of Desire
með Pat Benatar á 100 kall og best of safnplötu frá
1987 með Tommy James & The Shondells á 300 kall. Þrátt
fyrir að eiga gommu af hitturum hafa Tommy James and the Shondells
nokkuð gleymst í seinni tíð og njóta varla
sannmælis. Ágætur staður til að hefja könnun
er náttúrlega wiki.
Eitt af ótrúlega flottustu lögunum með bandinu er
þetta frá 1968:
Tommy
James and the Shondells - Crimson & Clover
Við erum að tala það undarlega svæði þar
sem sækadelía og kántrí mætast. Tommy
náði hinum fræga víbrandi effekt á röddina
í enda lagsins með því að syngja í gegnum
gítarmagnara með tremelóið á fullu. Lagið
er margnotað í bíómyndum, en einna flottast var
það í myndinni Monster með henni þarna Theron
sem lesbíska mellan og fjöldamorðinginn.
The
First Edition - Just Dropped In (To See What Condition My Condition Was
In)
Hér er annað frá 1968, sem var greinilega gott ár
fyrir sækadelískt sýrukántrí. Þetta
er náttúrlega gargandi snilld líka. Kenny Rogers og
félagar í The
First Edition, band sem spilaði aðallega plein kántrí.
Lagið er líka frægt úr bíómynd, það
hljómaði eftirminnilega í The Big Lobowski. Þetta
var eina sækadelíska lagið með First Edition en Tommy
James og félagar voru mikið á þessum slóðum,
ekki síst á plötum frá 68 og 69, Crimson and
Clover og Cellophane Symphony. Á henni er titillagið 9.39 mínútur
af hippískri tyggjósýru og speisi. Dáldið
svona poppgaurarnir að reyna að vera hefí. Púristum
hefur þótt þetta arfaslakt (nálgist af eigin
ábyrgð):
Tommy
James and the Shondells - Cellophane Symphony
---
Hvað skal segja um pólitík helgarinnar? Kannski helst
að mér finnst Katrín Jakobsdóttir vera langflottasti
fulltrúi minn á þingi í dag. Horfði á
hana hjá Jóni Ársæli og ég ætla
að byrja að versla aftur í Melabúðinni bara af
því hún segir að það sé svo frábært.
Ég hætti því á sínum tíma
vegna okursins. Tæplega tveggja ára straff af minni hendi
er
alveg nóg. Bjarni Ben minnir mig aftur á móti á
fnæsandi graðfola og Sigmundur Davíð, sem fékk
fljúgandi start sem klári gaurinn sem röflaði hjá
Agli Helgasyni, er orðinn gamall og leiðinlegur karl. Svo er það
vitanlega hneyksli að Grími Atlasyni skyldi ekki ganga betur
í örforvali VG á N-V-landi.
15.03.09 - Dr. Gunni inniheldur masteruð
Í dag í austantjaldslegum húsakynnum á
Akranesi fer fram lokapússun og svokölluð mastering á
hljómplötunni Dr. Gunni inniheldur. Um er að ræða
eina bestu hljómplötu mína til þessa, 18 laga
stórvirki sem þó nær ekki 40 mínútum
í lengd. Afhverju að vera að hanga eitthvað yfir þessu?
Hljómplatan kemur út fimmtudaginn 26. mars kl. 08.00. Boðið
verður upp tvenns konar kaupleiðir: a) niðurhal á 1000
kall eða b) niðurhal (ef vill) + CD í veglegu umslagi á
2000 kall. Diskurinn, sem verður gefinn út í 300 tölusettum
og árituðum eintökum, verður sendur heim til fólks.
Hann mun eflaust fást í nokkrum plötubúðum
líka. Þann 26. mars er nýtt tungl, svokallað páskatungl.
Dagurinn er líka þjóðhátíðardagur
Bangladesh, Prins Kuhio dagurinn á Hawaii og andlátsdagur
Nikki Sudden, gítarleikara Swell Maps (2006).
14.03.09 - Bíópikks
Ég er löngu búinn að kjósa í forvaldi
Samfylkingarinnar. Man ekkert hverja ég kaus. Örugglega bara
það fólk sem mér leist best á og var minnst
jakkafatakerfislegt. Flokkurinn hafði uppi lágmarks bögg
á mig. Einhver á vegum Steinunnar Valdísar hringdi
í mig og svo Mörður Árnason sjálfur, sem
mér fannst nú meira grand en að láta einhvern
aðstoðarmann sjá um þetta. Báðum gat ég
sagt að ég væri búinn að kjósa á
netinu og því þýddi ekkert að bögga
mig.
---
Horfði á Backbeat aftur í gær. Það
er helv góð mynd, eða svona. Náttúrlega næntíslega
væmin á köflum (Stuart og Astrid að ríða
í málningu við saxófónsóló),
en lúkkið er frekar oðentik, sýnist mér. Allavega
eru allir með rétt hljóðfæri og maður kaupir
þetta alveg. Það er eitthvað við þetta tímabil
í sögu Bítlanna sem er svo spennandi. Þegar þetta
voru bara einhverjir strákar sem maður hefði getað nálgast
og spjallað við í pásu, þ.e.a.s. ef maður
hefði verið í Hamburg 1961. Það yrði fyrsti
viðkomustaður í tímavélarferðalaginu.
Þetta
er flott örlí Bítlamyndasíða.
---
Ég er nokkuð áhugasamur um það sem er kallað
biopic á ensku, en líklega leikin heimildarmynd á
íslensku. Á flakkaranum bíður Cadillac Records,
ný mynd um blúsinn og rokkið í Chicago fiftís.
Fínar músik bíópikks sem ég man eftir
eru t.d. Ray, Walk the Line, The Doors, What’s Love Got to Do with It,
La Bamba, Control, jafnvel Sid & Nancy. Hér
er
greinin Music Biopics: What's Been Done, What's In The Works, & What
We Want. Á Íslandi erum við með myndina um Jón
Leifs, Tár úr steini. Maður var nú í engu
stuði fyrir hana á sínum tíma. Spurning um að
endurnýja kynnin við tækifæri. Fullt af öðrum
spennandi íslenskum bíópikks gætu verið
sniðugar. Jökullinn - saga íslenska bítlsins og
hipparokksins sögð út frá lífshlaupi Gunnars
Jökuls. Móhíkaninn - Rokk í Rvk tímabilið
út frá Bjarna Móhíkana (b.s.m.h). Morthens
- Sögur Hauks og Bubba, blandaðar saman við dramatíska
atburði úr eftirlífinu (í framleiðslu 2090).
Það er allt hægt ef fólk nennir og vill.
13.03.09 - Besta umslag í heimi?
XTC
- Battery brides (Andy paints Brian)
Ég hef löngum haft óeðlilega mikið dálæti
á hljómsveitinni Xtc frá Swindon. Eða alveg frá
svona 1979 (eða1980) þegar ég keypti smáskífu
með laginu Are you recieving me á útsölumarkaði
Steina í Iðnaðarmannahúsinu við Hallveigarstíg.
Tvær plötur eru í uppáhaldi, önnur og þriðja
platan, Go 2 (1978) og Drums and wires (1979). Eftir það varð
bandið full poppað fyrir minn smekk en maður hélt samt
tryggð við það. Ég á allt sem bandið
hefur gefið út af stúdíóplötum, en
nenni ekki alveg að eltast við bútlegga og allskonar demóplötur
og dót sem gefið hefur verið út í miklu magni.
Bandið var á svaka flugi þegar sviðsskrekkur söngvarans,
gítarleikarans og aðalmannsins Andy Partridge, fór alveg
með hann. Hann fékk kast og bandið hefur ekki komið
fram á tónleikum síðan, nema hugsanlega smá
unplöggd í seinni tíð. Á væntanlegri
sólóplötu minni, Dr. Gunni inniheldur, verður fyrsta
tökulagið sem ég syng inn á plötu, þetta
hér að ofan af Go 2. ´Það verður sungið
á íslensku sem Blindhæð og brú. Ég
hef einhverra hluta vegna sönglað þann texta við lagið
síðan ég heyrði það. Og loks kemur það
út. Eins og sjá má er umslag Go 2 hryllilega smart,
hugsanlega besta plötuumslag í heimi. Að minnsta kosti
það meðvitaðasta. Það var plötuumslagafabrikkan
Hipgnosis
sem hannaði.
XTC
- A dictionary of modern marriage
Þetta er remix (eða DUB mix eins og það var kallað
þá) af laginu að ofan. Það var eitt af sex lögum
sem voru á EP plötunni "Go +" sem var gefin út samhliða
Go 2 og fylgdi fyrsta upplaginu.
12.03.09 - Inúító!
Hin FK-lega herferð Skjásbíós fer dáldið
í taugarnar á mér. Þar er hamrað á
því að gamlar drasl myndir á Voddinu eigi að
vera mun skemmtilegri en hörku dagskrá um neytendamál
og grænlensk ævintýri. Hefði kannski gengið
hjá þeim FK en ekki núna EK. Þetta auglýsingalið
verður að skilja að það er enginn í stuði
fyrir gamla innantóma fávitaskapinn sem manni var boðið
upp á endalaust. Er það ekki annars? Ég er auðvitað
búinn að skila VOD-lyklinum sem Síminn fór snögglega
að rukka 600 kall fyrir á mánuði. Ég notaði
þetta aldrei.
---
Það finnst mér alltaf jafn mikið umhugsunarefni
hversu lítið við nennum að spá í Grænlandi.
Þetta er næsta land við okkur en Grænland er þó
menningarlega fjærlægara okkur en Ástralía. Ég
væri alveg til í að skreppa til Kulusuk – og hvað
þá til Nuuk – en á meðan dagsferðin kostar
50-60 þúsund kall með Flugfélaginu fer ég
nú að sjálfssögðu frekar til New York. En það
er nettur Inútíi í mér. Hið norðlæga
og kalda og dimma er eitthvað sem höfðar til mín. Ég
á ábyggilega stærsta safn innanlands af diskum með
Inúítasöng, heila þrjá diska. Í
nokkur ár í partíum heima hjá mér þótti
mér gaman að draga fram diskinn Songs of the Inuit (útg.
JVC 1994) og blasta lagi nr. 3 eins hátt og græjurnar réðu
við. Þetta eru tvær Inútítakerlingar með
"háls-söng" og þetta lag hljómar eins og sambland
af Prúðuleikurunum og gríðarstórri eimreið
að fara af stað:
Eligah
Mangitak & Qaunnaq Mikigak - Amuma
Konurnar heita Eligah Mangitak og Qaunnaq Mikigak og upptökur
fóru fram í Cape Dorset, N.W.T., Kanada 7-8 des 1993. Eins
og heyrist er það leikur og afþreying hjá konunum
að söngla svona saman. Gleðin skín af þeim, t.d.
í næsta lagi þar sem þær þurfa ítrekað
að gera hlé þegar þær springa úr hlátri.
Frábært stöff!
Eligah
Mangitak & Qaunnaq Mikigak - Ihan
---
Dularfulla listaflipphljómsveitin The Residents, sem var lengi
frægust fyrir það að enginn vissi hverjir væru
í henni, tók Inúíta-arfinn til bæna á
plötunni Eskimo (1979). Þeir hafa kannski ekki vitað að
það er stranglega bannað að kalla Inúíta
Eskimóa, ekki frekar en það má kalla okkur nýríka
fávita sem skitu á sig. Ég var með spikfeitann
áhuga á The Residents á tímabili og man eftir
einni utanlandsferð þegar ég gerði ekki annað
en að leita að verkum sveitarinar í plötubúðum.
Eskimo fannst mér þó alltaf mjög óaðgengileg
plata, enda með endalausum vindhljóðum og djöfulgangi.
Hljómsveitin gerði svo diskóútgáfu af Eskimo
og kallaði hana náttúrlega Diskomo. Upp með dansskóna!
The
Residents - Diskomo
---
Vandaða umfjöllun meistara Þorsteins Joð um mig
og Sýna og sjá framtak Nýlistasafnsins má
nú sjá á alnetinu (Káta maskínan 6.
þáttur). Næstur til að rifja sig upp er Maggi
Strump sem tekur einmitt sjálfan sig til umfjöllunar í
Nýló kl. 8 í kvöld.
---
Bjartsýniskeppi Rásar 2 er á fullu svingi. Þar
keppast menn við að berja sér og hinni svokölluðu
þjóð á brjóst. Mitt framlag, "Satan konungur
apanna", er auðvitað bullandi bjartsýnt, eða svona.
Svona eftir á að hyggja hefði ég getað sent mun
bjartsýnni lög af nýju plötunni væntanlegu,
til dæmis "Verum góð við hnakkana" eða "Prinsessan
mín". En allavega farðu
og hlustaðu á þetta og greiddi svo réttu lagi
atkvæði.
10.03.09 - Jónatan snýr aftur
The
Modern Lovers - I'm Straight (læf '71 eða '72 (ekki vitað)
í Harvard)
Eins og alþjóð veit (eða svona) er Jonathan Richman
á leið að heimsækja oss í 3ja skipti (sjá
fréttatilk hér að neðan). Jonathan er frábærlega
æðislegur og ég ætla vitanlega að mæta.
Ferli hans má mjög lauslega skipta í tvennt og er ég
í gríðarlega stuði fyrir fyrri helminginn, þó
sá seinni sé fínn líka. Sá fyrri miðast
við það þegar hann söng með hljómsveitinni
The Modern Lovers, sem var á hvílíkri eyðimerkurgöngu
að varla hefur annað eins gerst fyrr né síðar.
Eftir að hafa hangið sem unglingur í Factory Andy Warhols
verandi sá geðsjúki Velvet Underground aðdáandi
sem hann var, stofnaði Jonathan The Modern Lovers með vinum sínum
í Boston. Þar á meðal var Jerry Harrison (lengst
til vinstri), síðar gítarleikari Talking Heads. (lesa
um bandið á wiki).
Á þessum hippísku árum var Jonathan stutthærður
(sjá mynd, lengst til hægri) og söng um hluti sem aðrir
snertu ekki á með töngum, t.d. um það að
vera ódópaður og með fullri rænu og reynandi
við gellu sem vill frekar vera með hinum útúrstónd
Hippí Johnny í hinu geðsjúklingslega frábæra
lagi I'm straight. Bandið tók upp stöff, bæði
með John Cale og Kim Fowley, á árunum 71 og 72 en það
kom ekki út á plötu fyrr en 1976 og smellpassaði
þá við pönktíðarandann, enda varð
Jonathan fyrst svalur þá. Þá var hann hins vegar
byrjaður á tímabili 2, "barnalega og rómantíska
tímabilinu", sem hann er búinn að vera á síðan.
Sem sé, búinn að leggja rokkbandinu og kominn í
trúbadorfíling. Ég keypti tvöfalda plötu
á vinýl fyrir nokkrum árum, Live at the Longbranch
and more, þar sem safnað er saman ML upptökum frá
71 og 72. Þar er m.a. þessi útgáfa af I'm straight
þar sem hippinn heitir Hippie Ernie (bassaleikarinn í bandinu
heitir Ernie Brooks - tilviljun?) og kannski er meira dýpt í
flutningi textans því Jonathan er í miðjum klíðum
að fást við þessi flóknu ástarmál.
Textinn er miklu betri í þessari útgáfu, en
svona er hann eins og hann var á stúdíóplötunni:
I'm Straight
I called this number three times already today
But I, I got scared, I put
It back in place, I put my phone back in place.
I still don't know if I
should have called up.
Look, just tell me why don't ya if I'm out of place.
'Cause here's your chance to make me feel awkward
And wish that I had
never even called up this place.
I saw you though today walk by with hippie Johnny.
I had to call up and say how I want to take his place.
So this phone call today conerns hippie Johnny.
He's always stoned, he's never straight.
I saw you today, you know, walk by with hippie Johnny.
Look, I had to call up and say, I want to take his place.
See he's stoned, hippie Johnny.
Now get this, I'm straight and I want to take his place.
Now look, I like him too, I like hippie Johnny.
But I'm straight
and I want to take his place.
I said, I'm straight
I said, I'm straight
I'm proud to say
Well I'm straight and I want to take his place.
Now I've watched you walk around here.
I've watched you meet these
boyfriends, I know, and you tell me how they're deep.
Look but, if these guys, if they're really so great,
tell me, why can't they at least take this place
and take it straight? Why always stoned,
like hippie Johnny is?
I'm straight and I want to take his place.
Oh I'm certainly not stoned, like hippie Johnny is.
I'm straight and I want to take his place.
I said, I'm straight
I said, I'm straight
I'm
I'm straight and I want to take his place
All right you Modern Lovers what do you say?
(I'm straight!)
Tell the world now
(I'm straight!)
I said
(I'm straight!)
Yeah I'm straight and I want to take his place.
Og hér er fréttatilkynningin:
Miðasala á Jonathan hafin.
Hann spilar á Kaffi Rósenberg 1. apríl.
Hús opnar kl. 20 og tónleikar byrja kl. 21.
Ólöf Arnalds hitar upp.
200 miðar í boði - bara 2000 kall inn! www.midi.is
Jonathan flytur sjálfan sig inn! Grímur Atlason hjálpar
bara uppá gamlan kunningsskap...
Jonathan Richman er tónlistarmaður sem hefur haft gríðarleg
áhrif tónlistarmenn frá því að hann
kom fyrst fram með hljómsveit sinni The Modern Lovers í
kringum 1970. Sveitir eins og Sex Pistols tóku lög eftir Jonathan
og eru margir sem muna eftir Road runner í flutningi þeirra.
Frægastur er Jonathan Richman þó líklegast
fyrir þátt sinn í kvikmyndinni There is Something about
Mary
frá árinu 1998. Þar sá hann um tónlistina
og kom fram ásamt trommuleikaranum Tommy Larkins sem spilar með
Jonathan á Íslandi.
Jonathan Richman þykir einstaklega skemmtilegur á sviði
eins og fjölmargir Íslendingar sáu á Innipúkanum
2005 þegar Jonathan og Tommy slógu í gegn.
09.03.09 Ríkir karlar með skítinn upp á
bak
Hvað heldurðu að maður nenni að hanga endalaust
yfir þessum fréttum af ríkum körlum með skítinn
upp á bak? Trilljón í mínus þar og skrilljón
þar. Ég verð ekki áhugasamur um þetta fyrr
en fréttirnar af fangelsun og almennri niðurlægingu fara
að dynja yfir. Ég mun alveg nenna að horfa á þessa
drjóla alla leidda út úr löggubílum í
handjárnum. As if. Eva Joly er mál málanna. Hvað
haldiði að þessi sérstaki saksóknari, strákurinn
með gleraugun á Akranesi, geti í alla þessa hákarla?
Auðvitað á að fara að ráðum Evu, búa
til massa teymi hryllilegra snillinga til að taka á svíðingunum
gráðugu. Fólk verður alveg spinnegal þegar
það ræðir um þetta sín á milli.
Afhverju þurfum við að borga skuldir óreiðumannanna,
frussar það í réttmætri reiði. Best er
því að sleppa alveg að ræða þetta.
Blóðþrýstingurinn, sjáðu til.
---
Fínt er að Ingibjörg sé hætt við.
Hún var búin með allt gúddvill nema hjá
þeim æstustu í aðdáendaklúbbnum. Ég
vona samt innilega að henni batni. Hef ekkert á móti
henni sem manneskju en hún var leiðinlegur stjórnmálamaður.
Alltof glottandi sjálförugg eitthvað og mikið rugl
á henni. Öryggisráðskjaftæði og ekki þjóðin.
Er búinn að kjósa hjá Samfokk. Kaus bara nýtt
lið og liðið sem hafði böggað mig minnst. Þetta
er eins á indverska matsölustaðagötunni Brick Lane
í London. Fyrir utan staðina standa karlar og reyna að fá
mann inn með ömurlega leiðinlegu böggi. Við átum
þar sem enginn var fyrir utan. Ég kaus líka í
forvali VG, sem ég mun að öllum líkindum greiða
vesælt atkvæði mitt á endanum, þó ekki
nema vegna þess að flokkurinn var byrjaður að tala um
Græðgisvæðingu
áður en það var vinælt catchphrase hjá
öllum öðrum flokkum líka. Á þeim tíma
sagði Geir Haarde að hann missti ekki svefn þó einhverjir
strákar væru að fá skrilljón á mánuði
- "Þeir bera svo mikla ábyrgð, sjáðu til".
Eh, einmitt. En ó, ég ætlaði ekki að ræða
þetta. Blóðþrýstingurinn, sjáðu
til. En VG, já. Ánægjulegt að sjá hressar
konur raða sér í efstu sætin. Nú er kynjakvótinn
frekar hlægilegur. Sérstaklega ef óspennandi menn eiga
að fara að græða á honum á kostnað
mun meira spennandi kvenna.
---
Já sko! SATAN KONUNGUR APANNA, eitt af lögunum 18 af Dr.
Gunni Inniheldur er komið í úrslit í Baráttu-
og bjartsýnissöngvakeppni hins nýja lýðveldis
- sönglagakeppni fólksins á Rás 2. Ég
ætla rétt að vona að fólk verði duglegt
að greiða þessu ótrúlega æðislega
lagi atkvæði því vinningshafinn fær gjafabréf
frá verslun ZO-ON ICELAND í Kringlunni að verðmæti
150.000,-. Ekki að mig vanti endilega útvistafatnað, en
bara svona, þú veist... Gamla græðgin!
08.03.09 Eva María og finnsku tippin
Mogginn hefur verið undirlagður af mér um helgina. Á
að henda Dr. Gunna á haugana? stóð á baksíðunni
í gær. Það var verið að ræða um
plötulager Smekkleysu, en þar eru eflaust svona 700 Stórir
hvellir óseldir. Það má alveg henda þeim
mín vegna. Greinilegt offramboð á þeirri annars
ágætu plötu. Ég held hún hafi selt 300
eintök topps. Í dag er ég með "myndaalbúmið".
Mogginn hefur ákveðið að blörra tillana á
Finnunum Keuhkot og Radikanen (trommara Radiopuhelimet) og er það
dáldið fyndið. Ég hélt tillar væru ókei
eins lengi og þeir væru ekki í bullandi standpínu
og þar að leiðandi orðnir dónalegir og ógn
við femínísk gildi. Til að bæta upp fyrir velsæmi
Moggans koma hér tippin sem vantaði. Mjög listræn
mynd, finnst mér:
---
Velvakandi er algjörlega undirlagður í umræðu
um Evu Maríu. Ég tók eftir þessu fyrir mörgum
dögum og ennþá í dag eru 3 af 5 lesendabréfum
um hana. Hvaða andskotans smáborgarateprur eru að standa
í því að dissa hana Evu? Svei attann! Ég
tek undir allt sem "Greiðandi nefskatts" segir í sínu
skemmtilega innleggi:
---
Fór með krakkana mína til Kef í gær
að heimsækja Heiðu og kó. Alltaf finnst mér
jafn exótísk að koma inn á gamla Varnarsvæðið.
Fæ ekki nóg af því. Á markaði körfuboltaliðs
Kef í Samkaupum voru tveir kassar með vinýl. Heiða
komst í feitt og dró heim 10 plötur, nokkrar orginal
David Bowie plötur og annan góðan skít. Sjálfur
fékk ég Feline með Stranglers á 200 kall og hefði
keypt fyrstu plötuna með Generation X líka ef það
hefði ekki verið plata með Steve Miller band í nærbuxunum.
07.03.09 Gamla módelið vs. nýja
Það þarf fólk til að draga hlutina áfram.
Framkvæmdamenn. Manni finnst þessir gömlu góðu
krúttlegir. Maður vill fá nýja svona inn. Menn
eins og Davíð Scheving í Sól, Halldór í
Henson, Tomma í Búllunni, Guðfinn í Bílasölu
Guðfinns, svo tekin séu ósamstæð dæmi.
Gamla módel kapítalískra athafnamanna. Viðskiptamódel
þeirra er skiljanlegt. Þeir meika sens. Jú jú,
þeir kjósa eflaust XD og hafaða flott, safna kannski málverkum
og eiga 2-3 kagga, en þeir eru ekki krepptir í framan af fyrrtri
græðgi eins og nýja módelið sem kom þjóðinni
á hausinn. Það lið skapaði ekki neitt - nema frauð
sem fuðraði upp á endanum. Og eilífa skömm fyrir
sjálfa sig.
---
Talandi um. Aumingja Sigrún Davíðsdóttir að
standa í að greiða úr þessari flæktustu
gítarsnúru Íslandssögunnar. Ætli sjálfur
gamli skemmtanastjórahelmútinn viti jafn mikið um öll
þessi skúffufyrirtæki sín og hún? Ég
blakka út þegar þvælan um 18 skúffufyrirtæki
í Cayman og Tortola og Lúxemborg og bla bla bla byrjar. Þótt
það sé skýringarmynd.
06.03.09 - Viceroy
Fínt gigg í gær. Ég að rifja mig upp
í Nýló. Ég hætti að rekja söguna
1999 með dauða Ununar. Upp úr því tók
líf mitt nýja stefnu. Harkinu var endanlega lokið. Hokrinu
líka. Kynntist Lufsunni, svo komu börnin og hinn svokallaði
æðri tilgangur. Ég hef líkt þessu við
að færast upp á borð 2 í tölvuspilinu
Líf þitt. Maður nennir ekki aftur að spila borð
1 á borði 2. Samt gaman að kíkja á það
annað slagið. Ég er nostalgískur. Hver er það
ekki? Ég er enn að leita að tímaritinu Fréttir
frá Sovétríkjunum. Þó ekki væri
nema eitt tölublað. Hvorki Bókin né Gvendur Dúllari
áttu þetta. Ég bind vonir mínar við dularfulla
bóksalann á Hjarðarhaga, þessum í kjallaranum.
Ég hef kíkt inn um gluggann, það er fullt af bókum
þarna en aldrei opið. Miði í glugganum með opnunartíma
hefur verið fjarlægður. Dó karlinn? Veit einhver eitthvað
um þetta?!
---
Allt í gangi. Nóg að gera. Dr. Gunni inniheldur
- hvíta albúmið mitt - er handan við hornið.
Biggi situr sveittur við mix as ví spík. Sjálfur
sit ég sveittur við skriftir á túristabókinni
Top 10 Reykjavík and Iceland (útg, maí). Svo voru
tvær stelpur úr Elektra hér í heimsókn.
Ég hef samið handa þeim næsta hittara. Við vorum
að berja saman texta. Lagið heitir kannski "Klifurjurt". Svo er
ég víst kominn (aftur) á Feisbúkk en skil minnst
í því hvernig það fúnkerar. Mér
finnst það svo flókið fyrirbæri. Ég geng
undir nafninu Gunnar Larus Hjalmarsson og á 67 vini. Það
er ekki mikið miðað við Hemma Gunn. Ég hitti Hemma
í fyrragær þegar ég fór í viðtal
við Harmageddon. Hemmi gaf mér rettu. Hemmi reykir Viceroy.
Hemmi er frábær. Ég heyrði Krókudílamanninn
í gær á Xinu. Djöfull er það æðislegt
lag, eða æðislegur texti öllu heldur.
05.03.09 Nýló í kvöld / Höllin í
maí
Ég minni vitanlega á Sýna og sjá í
kvöld kl. 20 í Nýló. Ókeypis inn. Ég
fer yfir feril minn í máli og myndum, eða eins og segir
í fréttatilkynningu:
(úr Þjóðviljandum 8/9/84 - viðtal
Össur Skarphéðinsson)
SÝNA OG SJÁ MEÐ DR. GUNNA
Á fimmtudagskvöldið 5. mars klukkan 20 verður fyrsta
kvöldið í Sýna og sjá seríu Nýlistasafnsins.
Þar munu þekktir tónlistarmenn og spekúlantar
koma saman einu sinni í viku næstu tvo mánuði og
fjalla um sköpunarverk sín, hljómsveitir og óháðar
útgáfur, hugsjónir og tónleikahald í
kringum 10. áratuginn.
Dr. Gunni, öðru nafni Gunnar Lárus Hjálmarsson,
er landsþekktur fyrir hljómsveitir sínar S.H. Draum,
Bless, Unun og sólóferil sinn sem og útgáfuna
Erðanúmúsík sem gefið hefur út óháða
íslenska tónlist síðan 1983. Gunni á einnig
að baki rit um tónlistarsögu landans; "Eru ekki allir í
stuði" og áralöng skrif og umfjallanir um tónlist
í tímarit, útvarp og sjónvarp.
Í Nýlistasafninu mun Dr. Gunni fara yfir feril sinn í
mynd og tóndæmum, útgáfur, sýna plaköt
og dreifimiða og skella nokkrum velvöldum upptökum í
vídeótækið.
Á eftir Dr. Gunna munu ma Maggi Strump, F.I.R.E hópurinn,
Arnar Eggert, Saktmóðígur, Yúkatan, Bag of Joys,
Á Túr og fleiri stíga á stokk og fara yfir
feril sinn. Búast má við mega flassbakki og andans fjöri.
---
Svo minni ég á Rúnars Júl tribjútið
í Höllinni 2. maí. Miðasala
hefst kl. 10 í dag. Ég verð þarna með Heiðu
og húsbandinu en Helgi Björns fer í skó Rúnna
og tekur Hann mun aldrei gleymenni. Heiður að fá að
vera með í þessu. Og að því tilefni:
Hljómur
- Byrjun Heyrðu mig góða öfug
Hljómar
- Æsandi fögur
Dusty
Springfield - Little by little
Fyrsta LP platan sem Rúnni söng inn á hefst á
sækadelísku afturábaki sem leiðir inn í
"Heyrðu mig góða". Sé þessum búti snúið
við fæst leyndarmálið leyst ("telja inn í þetta,
telja inn í þetta"). Á plötunni eru mörg
æðisgengin lög eins og "Miðsumarsnótt" e. Þóri
Baldursson og "Peningar" e. Rúnar Gunnarsson. Eitt lag er beintengt
lífssögu minni: Æsandi fögur er lagið okkar
Lufsunnar. Það var spilað eftir að pastorinn í
Las Vegas var búinn að gefa okkur saman í kirkjunni.
Það var undursamlega heimilislegt að heyra Rúnna í
Vegas. Þetta er lag sem Dusty Springfield söng fyrst, en Hljómaútgáfan
er miklu betri. Umslag Hljómaplötunnar er e. Þorstein
Eggertsson og er algjör snilld. Einhver snillingur hefur sett allar
útgáfur SG á wiki, þ.á.m. Hljómaplötuna.
04.03.09 - Smáskilaboð:
Ég á Xinu 977 í dag kl. 15:05 - um "ferillinn"
---
Sá athyglisverða danska heimildamynd í gær
um höfundarétt, sömpl og kjaftæði, Good copy
bad copy. Þarna sést meistarinn Girl Talk og tékkað
er á fyndinni músikstefnu frá Brasilíu sem
heitir techno brega. Þessa mynd má sjá frítt
hér.
---
Við Lufsan vorum að eta á Hótel Holti. Þríréttað
í hádeginu á 2900 á mann. Alveg fínt
en hefði mátt vera betur útilátið. Fyrir 2900
kall vil ég helst að mér líði illa þegar
ég er búinn að snæða. Sá engan ríkan
og frægan. En einhver burtrekinn bankakarl úr LÍ var
að tala við einhvern gaur á frönsku. Örugglega
eitthvað fissí.
---
Pönkið lifir á Akureyri. Hljómsveitin Nálgunarbann
á pabba er að gera góða hluti. 16-18 ára
strákar í hressandi pönkfílingi. Ég mæli
eindregið með að þeir fari í MT.
---
Annars er ég bara að hlusta á Clash. London calling.
03.03.09 - Froskahúðarmelóna
Það er ekki hlaupið að því að fá
góðar melónur. Margar tegundir eru í boði
og maður gerist oft lost. Lendir á óþroskuðu
og vondu stöffi. Eftir tilraunastarfssemi get ég nú
mælt með rosalega góðum melónum, sem að
minnsta kosti eru á góðu tímabili núna.
Sætar, safaríkar og algjört nammi. Hér sést
Elísabet með nýjustu PIEL DE SAPO melónuna sem
var keypt inn um helgina. Hún er úr Bónus þar
sem hún kostaði 198 kr/kg. Piel de sapo þýðir
"froskahúð", og er melónan nefnd eftir froskahúðarlegum
berkinum. Þessi tegund er frá Spáni.
Við Elísabet tökum eina svona saman á þremur
kvöldum, en Dagbjartur er ekkert hrifinn af melónum.Við
fórum hins vegar á fína mynd í bíó,
Ævintýri Despereaux (The Tale of Despereaux). Við vorum
einir í öllu bíóinu í Háskólabíó
kl. 18 í gær. Þessi mynd kom á óvart.
Þetta var ævintýri um fyrirgefninguna. Mun dýpri
barnamynd en þessar venjulegu Disney sem virðast allar eins.
Dagbjarti fannst gaman líka.
---
Sé fólk í pönkstuði má horfa á
þýska heimildarmynd, Punk
in London 1977. Einnig Punk
Rock Movie, sem er frægari og eftir Don Letts.
---
Fátt er betra en að byrja daginn á Accidents will
happend með Elvis Costello en djöfull er Wings at the speed of
sound leiðinleg plata.
01.03.09 - Raggas
Okursíðan hefur fengið nýtt
heimili á blogspot. Tveir kostir: Miklu minna mál fyrir
mig að halda utan um þetta og neytendur geta kommentað á
færslur. Það virkar oft vel. Þannig verður til
umræða, oft upplýsandi. Þetta sistem hefur gefist
vel á neytendahorni mínu
á Vísi.
---
Raggi
Bjarna - Meinfreyjublús
Megas var með þá frábæru hugmynd að
semja og pródúsera heila plötu ofan í meistara
Ragga Bjarna. Eitt lag var tekið upp áður en hugmyndin var
sett á ís vegna 75 ára afmælis Ragga á
árinu. Það er heilmikið Raggafár framundan
en samt vonandi að "Raggas" komi líka seinna. Það
er gaman að heyra Ragga syngja um að "ó-día". Af
Megasi er hins vegar það að frétta að einhverjar
þreyfingar eru um nýja plötu en heimasíðan
Megas.is, sem alltaf var alveg að bresta á, er horfin af öldum
netvakans. (Þessi glæsilega ljósmynd af Ragga er Copyright::
Geir Ragnarsson og fengin héðan).
28.02.09 - Powerpoint
Einhvern tímann hefði ég nú verið með
drulluna í buxunum dögum saman fyrir giggið sem ég
tók í gær fyrir framan markaðs og auglýsingafólk
á Ímarki á Nordica. Ég hefði legið
andvaka í kvíða og veseni. Ekki lengur. Maður er
orðinn svo sjóaður í að "koma fram fyrir fólk".
Þarna var bransinn mættur. Einhver svaka enskur dúdd
með tölu á undan mér. Flestir í salnum alveg
ekta markaðsfólk. Rex 2007. Karlarnir með design gleraugu,
konurnar tveir metrar á hæð. Ég var búinn
að gera fyrsta powerpoint sjóið mitt ever og rúllaði
þessu náttúrlega upp. Helv gott forrit þetta
powerpoint. Og það er ekkert lát á að ég
"komi fram fyrir fólk". Á fimmtudagskvöldið verð
ég í Nýló með eitthvað show & tell
dæmi þar sem ég fer yfir "tónlistarferil" minn
í máli og myndum. Nánar auglýst síðar.
---
Sá The Wrestler. Ég gef henni fullt hús. Hún
er svo skýr. Maður man eftir henni. Svo sem ekkert öðruvísi
en Rocky 2 í grunninn en bara svo mannleg eitthvað þótt
Mickey Rourke líti frekar út eins og eitthvað dýr
en maður. Vanskapað dýr þá. Eða geimvera.
---
Helgi
Hrafn Jónsson - Digging up a tree
Ég vissi nú ekki að þessi strákur væri
til en svo var bara að koma út plata nr. 2, For the rest of
my childhood, og hún er bara svona ljómandi fín. Hann
gerði víst plötuna Glóandi 2005 en hefur svo verið
að blása í lúður á túrum Sigur
Rósar. Þrátt fyrir hrottalega "SigurRósað"
umslag (enda gert af "kærasta Jónsa") er tónlistin
ekki Sigur Rósum nema að hluta. Þetta er meira popp og
jarðbundnara. Helgi er að gera góða hluti í útlöndum,
gefur plötuna út víðsvegar og er á massífum
túr. Tékk itt á mæspeis.
27.02.09 - You Tube: Kinks á Íslandi 1965
Sænsk fréttamynd komin í leitirnar á YouTube.
Stórfengleg heimild um gríðarmikinn poppatburð:
You Tube: Kinks
á Íslandi 1965
Magnað fjör. Tempó og Bravó lika með bítl.
Undarlega gott sánd á þessu. Kinks byrja með trukki,
beint í You really got me. Helvíti voru Bravo hráir
og góðir. Gefa Sjálfsfróun í Rokk í
Rvk lítið eftir. Mikið tyggjójórtrandi pönk,
eins og einhver er búinn að skrifa í kommentum.
Svo eru það Leddarar
á Íslandi 1970 (en því miður bara einhver
hryllingsmúsik eftir Jón Leifs eða eitthvað)...
26.02.09 - Undirtónar
Bragi er algjör snilld í Kiljunni. Það mætti
vera klukkutíma-spesíal með honum á viku. Ég
myndi horfa. Þegar ég fór í bókabúðina
hjá honum fannst mér vörusvik að hann væri
ekki á svæðinu. Það var bara einhver allt annar
karl og ekkert hress.
---
Helvíti skítt með hann Cosser.
Fær hann bara ekkert að kaupa fyrir alla peningana sína?
Er nú svo víst að hann sé með hárkollu?
Jæja, þjóðin getur þá allavega fengið
smá kikk út úr því að gera grín
að honum og sent hann heim til sín með skottið á
milli lappanna og milljallanna enn í veskinu.
---
Enginn stjórnmálaflokkur hefur enn falast eftir mér
á lista. Þetta er til háborinnar skammar. Hér
er hins vegar yfirlýsing: Ég mun ekki lýsa yfir opinberum
stuðningi við neinn í prófkjöri að þessu
sinni. Engan. Svo það þýðir ekkert að kvabba
í mér. Bara svona að hafa þetta á hreinu
áður en síminn byrjar að hringja.
---
Þú átt skilið eitthvað gott og skemmtilegt
lag til að sparka þér inn í daginn. Upplífgandi.
Er það ekki bara gamli skrækur Feargal Sharkey og vinir
hans í norður írska popppönkbandinu The Undertones
sem eru mættir til að bjarga deginum. Alveg bullandi unglingagraðir
á fyrstu plötunni sinni 1979. Samkvæmt Wiki
kom hún út í tvennskonar umslögum, þessu:
sem ég átti í gamla daga en seldi eins og algjört
fífl ásamt mörgu öðru, og svo þessu:
sem ég keypti núna aftur í Lundúnarferðinni.
Á fyrra umslaginu eru strákarnir gríðarlega lúðalegir
í úlpum og gallabuxum með uppbrotum, en á umslagi
nr. 2 eru þeir orðnir meira kúl og búnir að
redda sér leðurjökkum. Á seinni útgáfunni
er líka búið að bæta "Teenage Kicks" inn á
en það er ein fallegasta saga poppsögunnar af tónlistarástríðu
þegar John Peel heyrði lagið í fyrsta skipti og þurfti
að keyra út í kant til að gráta af gleði.
Fyrsta plata Undertones er tímalaus snilld en svo fer þetta
hnignandi. Allar plöturnar eiga reyndar fína spretti.
The
Undertones - Girls don't like it
25.02.09 - Davíð í Kastljósi
Stöð 2 virðist vera að sýna úr Simpsons
seríu nr. 11 í sinni endalausu, en fínu, Simpsons-upprifjun.
Í gær var þáttur #240 á dagskrá,
þegar Maude Flanders deyr. Mér fannst ég vera að
sjá þáttinn í fyrsta skipti, en það
þýðir líklega að ég hafi bara séð
hann svona einu sinni áður. Sería 11 er nýkomin
út á dvd, en ég ekki búinn að fá
mér. Ég á hina 10. Af þessum, og nokkrum þáttum
úr 11 seríu, sem Stöð 2 hefur verið að sýna,
get ég ráðið að sería 11 sé lélegasta
serían. Ég hef þó ekkert meira fyrir mér
í því. Það getur verið að aðrir
árgangar séu með alveg jafn slappt efni innan um. Lélegt
Simpsons efni má ráða af því að manni
finnst eins og höfundar Family guy séu farnir að skrifa
það. Hómer er alltof mikill fáviti og á
neikvæðan hátt, ekki þennan jákvæða
eins og við þekkjum hann. Þættirnir eru alltof flippaðir
(á leiðinlegan og pirrandi þunnan hátt) og alltof
mikið er af slöppu og jafnvel fyrirsjáanlegu gríni.
---
Simpsons eru annars komnir á 20 seríu. Í nýjasta
þættinum, nr. 430, er komin ný byrjun. Hana má
sjá
hér
á Þúskjá.
---
Síðasti Conan á gamla tímanum var á
föstudaginn. White Stripes spiluðu og Conan hjó niður
hluta af sviðsmyndinni og gaf áhorfendum búta. Þetta
gerði hann alla síðustu viku. Conan kvaddi með því
að segja að hann myndi ekki "grow up" við mikinn fögnuð
áhorfenda. Conan í LA í slotti Jay Leno hefst svo
1. júní. Hin æpandi spurning er: Kemur þá
Conan loksins aftur á Skjá einn?! Og hvað verður
um "gítarnegra" Lenos?
---
Sá ástralskan trilljóner í fréttum
og vá, hvað tippið var uppi á honum. "Ég er
ríkari en allir þessir íslensku bjánar (sem
bráðum verður hægt að pissa
á á skemmtistaðnum Sódóma Reykjavík)
til samans og bara klósettið heima hjá mér er
verðmætara en Mogginn. Ég ætla að kaupa Esjuna
og Akureyri og útgáfuréttinn á verkum Insols
og bla bla bla." Cosser heitir hann. Maður ætti kannski að
láta hann gefa sig út? Hann þyrfti varla að reiða
meira fram en eina naflaló þvílíkt æðislega
geðveikt magnaður sem hann er. Voru ekki allir á Íslandi
búnir að fá hundleið á svona gaurum? Þarf
nú að fara að flytja þetta inn líka?
---
Ég er á markaðsdegi
Ímark, EKKERT HELV VÆL: Dr.Gunni mun koma með sýn
neytandans sem tekur á móti skilaboðunum og segja sína
skoðun.
24.02.09 - Smáfuglar fagrir
Þrestir og sterrir (sterrir? Vá, hvað ég er
skrifblindur) og hvað þetta heitir, smáfuglarnir sem sagt,
voru í geðveiku stuði fyrir utan eldhúsgluggann þegar
ég mallaði morgunkaffið. Sungu eins og moðerfokkers.
Eins og þeir viti eitthvað. Kannski að vorið sé
að koma. Helvítis stuð að heyra svona kröftugan
söng í morgunsárið. Smáfuglar hlusta sem
betur fer aldrei á fréttir og vita ekkert hvernig stemningin
er í þjóðfélaginu. Vita ekki að þeir
eiga að vera svartsýnir og helst á bömmer. Vissu
ekki heldur að þeir áttu að vera geðveikt bjartsýnir
fyrir svona 18 mánuðum þegar var geðveikt góðæri
og meiri hagvöxtur í dag en í gær. "Landsbankinn
skilaði 59 milljörðum í hagnað á fyrsta
ársfjórðungi" - manstu eftir þessu? En þú
alltaf með geðsjúka yfirdráttarvexti á yfirdrættinum
þínum. Jæja, kannski fékkstu teppi. En ekki smáfuglarnir.
Þeir syngja bara eins og fífl. Var ekki Jesús eitthvað
að minnast á þetta í Biblíunni?
23.02.09 - Uppbyggilegt á mánud
Jamm. Ef maður væri ekki svona bjartsýnn og léttur
á því þá væri maður kannski
farinn að bogna aðeins. Vegna fréttaflutningsins, sjáðu
til. Allir atvinnulausir. Allir að spá í að flytja
til Kanada. Allir sem í fangelsum íbúðanna sinna.
"Þetta verður erfitt. Framtíðin er svört". Hryllilegt.
Hræðilegt. Martröð. Kreppa. Kviksyndi. Vonleysi. Svartnætti.
Depurð. Skuldir. Botnlaust. Dauði. Djöfull.
---
Eða bara: Hey, fokk jú. Ertu ekki líkamlega í
þokkalegu standi? Eru ekki krakkarnir sem þú átt
bestu krakkar í heimi? Er ekki vorið að koma? Góði
besti ekki taka mark á svartsýnisþruglinu. Og ef ekkert
annað gengur skaltu bara hætta að hlusta á fréttirnar.
Gísla á Uppsala-þig í gegnum þennan moðreyk.
Og fáðu þér rjómabollu druslan þín.
22.02.09 - Játningar glæpahunds
Kolaportið fitnar í kreppunni. Þar hefur sjaldan verið
eins feitt úrval og í gær. Fann tvær örlí
80s plötur á 200 kall stk: Magazine - The correct use of soap
og The Sound - From the lions mouth. Ekki ónýtt það.
The Sound var með ekki ósvipað kuldarokk og Echo & The
Bunnymen og Joy Division, en fékk aldrei þá athygli
sem hún þótti eiga skilið. Adrian Borland aðaldúdd
kálaði sér 1999, henti sér fyrir lest á
Wembley-lestarstöðinni.
---
Ég keypti líka dúkku handa Elísabetu sem
þarf að fara í sótthreinsun. Nú þarf
að fara aftur í portið í dag og kaupa eitthvað
handa Dagbjarti. Hann varð ekki hress þegar hann komst að
þessu með dúkkuna. Alls ekki hress. Þá veit
maður það. Systkinin verða alltaf að fá jafnt.
Það sem eftir er. Líka í innflutningsgjafir og
allt. Skrapp einnig í Smekkleysubúðina á Laugavegi
sem ég hafði aldrei komið í áður eins
undarlega og það hljómar. Hefði keypt singul Amiinu
og Hazlewoods ef hún hefði kostað minna en 999 kr. Þúsund
kall er nú full bratt fyrir eina sínglu finnst mér.
Rótaði aðeins hjá Braga í Bókvörðunni.
Er að leita að tímaritinu Fréttir frá Sovétríkjunum.
Ekkert komplít safn bara nokkur blöð, svo ef einhver er
með eintök í reiðuleysi sem þarf að losna
við...
---
Ókei ég viðurkenni það: Það er
ég sem var að eitra fyrir Árna Johnsen. Nei djók.
En hver skyldi það vera? Ef þetta er ekki bara einhver
ímyndun í Árna, meina ég. Hver græðir
á því að eitra fyrir Árna? Hverjum er svona
ægilega í nöp við þennan söngelska dugnaðarfork?
Ðe mænd boggöls, eins og sagt er.
---
Ég gafst upp á The Reader í gær og fór
að sofa. Sá ekki alveg tilganginn með að horfa meir.
Þýski unglingurinn var búinn að riðlast á
Kate Winslet og lesa fyrir hana í hálftíma og ég
sá ekki alveg hvert þetta stefndi. Það var engin
spenna. Engin drift. Og svo var ég bara alltof syfjaður til
að nenna þessu. Alltaf bjánalegt að heyra alla tala
ensku í mynd sem á gerast í Berlín 1958. Fáránlegt.
Samt finnst Könunum þetta ægilega merkilegt og myndin
er með 5 óskarstilnefningar í kvöld. Annars er flakkarinn
stútfullur. Síðustu Conan þættirnar, The
Wrestler, Milk, Vicky Barcelona, ég veit ekki hvað og hvað.
Brjálað að gera. Djöfulsins glæpahundur er maður.
---
Fyrst keyra á áfram byggingu tónlistarhússins
með skattfé almennings finnst mér lágmarkskrafa
að þegar pleisið verður vígt 2011 eða hvenær
sem það verður, að valið verði í veisluna
random úr þjóðskrá. Ekki að sama slegti
og vanalega mæti með sína tilgerð og snobb, heldur
Jói bolur og Sigga í Frón. Er þetta ekki hús
fólksins? Þurfum við ekki að borga þetta fyrst
Bjöggi gamli rann á rassgatið? Muna það. Og hvað
á svo þetta helvítis hús að heita? Ég
hef nú nokkrum sinnum bloggað um það enda var samkeppni
og búið og velja nafn og allt. Ég var alltaf að reyna
að komast að nafninu en það átti víst að
tilkynnast við athöfn. Menn hljóta að hugsa það
allt upp á nýtt núna. Það verður að
vera kreppulegt nafn en ekki góðæris. Alþýðuhöllin
frekar en, tja, Pelsa og kampavínshöllin. Það mætti
fara að koma nafn á ferlíkið. "Tónlistar-
og ráðstefnuhúsið á austurbakka Reykjavíkurhafnar"
er ekkert spes!
---
Síðasta sumar hitti ég gamla Quarashi kónginn
Sölva Blöndal á brettinu. Hann er orðinn eða að
verða hagfræðingur, held ég. Við ræddum
góðærið sem þá var aðeins farið
að láta á sjá þótt blekkingin væri
ekki öllum orðin ljós ennþá. "Þú
átt bara að horfa á myndina Enron - the smartest guys
in the room til að skilja þetta allt," sagði hann af innsæi.
"Þetta er alveg eins hérna á Íslandi". Ég
var með myndina á flakkaranum en nennti aldrei að horfa
á hana. Betra að hafa íslenskan texta á svona
flóknu stöffi. Eins gott að Rúv sýnir myndina
á sunnudaginn eftir viku.
21.02.09 - En hvað með Focus?
Ég sá Liam Neeson drepa allavega 50 manns í Taken
í gærkvöldi. Ég sá Óla Björn
eins og kleinu á móti svakalega réttlátum og
reiðum Magnúsi á Neii. Niður með Dominos! Ég
fékk tvö æsandi tilboð um ritvélar. Ekkert
í kerruna. Ég fór í Odda og bíð
nú eftir verðtilboði. Myndbandavinnslan mun sjá um
diskafjölföldunina.
---
Nokkur umræða varð um grein
Egils Helgasonar um grein Arnars Eggerts í Mbl um ræðu
Þorgerðar Ingólfsdóttur á Ístón.
Ég sá ekki þessa ræðu, en ég las Arnar.
Um er að ræða síbylju vs. þögn, kannski
frekar en lág vs. hámenningu. Það er þó
alltaf undirliggjandi þótt fólk þori harla að
viðurkenna það. Svo endurbirti Egill gamla
grein um popp og karlana með hnífina á Rúv.
Plöturnar sem karlarnir "lagfærðu" eiga að fara á
Þjóðminjasafnið. Í framhaldi af þessu
öllu skrifa ég fjölmiðlapistil í Fbl í
dag:
Við þetta er svo sem ekki miklu við að bæta.
Nema:
* Í kommentakerfi skrifar Toggi í Ljótu hálfvitunum:
Hversvegna
reyna dr. Gunni og Ásgrímur Sverrisson ekki að stöða
leiðinlega tónlist með handafli ef þeir eru svona
hrifnir af því að aðrir geri það? -
Einhver misskilningur. Það er enginn að tala um að stöðva
eitt né neitt. Bara verið að fagna sterkum skoðunum
um tónlist. Fólk verður að geta skilið á
milli kaldhæðins absúrdisma (Karlar með hnífana
vs. Óli Palli) og raunverulegra óska.
* Lesendur Egils virðast, miðað við kommentakerfið,
hafa átt sinn blómatíma in ðe seventís
og hafa tónlistarsmekk þar að lútandi.
* Egill þekkir vel innarlegan kopp í Bee Gees-búrinu.
Bee Gees er mögnuð og frábær hljómsveit. Gott
ef ekki geðveik líka. Robin Gibb er hugsanlega á leiðinni
á Hótel Glym í október að taka þátt
í Icefushion.
* Bæði ég (í Eru ekki allir í stuði)
og Egill gerum ráð fyrir því að rispað
hafi verið yfir Elskaðu náungann af fyrstu Trúbrots-plötunni
vegna þess að mennirnir með hnífana (skrúfjárnir,
naglana, whatever) hafi ekki líkað að poppskranlistamenn
væru að riðlast á klassík. Tvær aðrar
tilgátur koma nú fram, báðar jafn góðar:
Á þeim tíma sem organistinn á tónlistardeildinni
rispaði Pílagrímakórinn á Trúbrotsplötunni
sá ég um poppþátt í útvarpinu.
Það er misskilningur að þetta hafi verið af “menningarlegum”
ástæðum - þetta var trúarlegs eðlis.
Hann kallaði mig einhverju sinni inn á skrifstofu til sín
og flutti yfir mér dálitla ræðu um þau endalok
kristinnar siðmenningar sem væru yfirvofandi ef drísildjöflar
eins og Jimi Hendrix fengju að leika lausum hala. Minnisstæður
pistill.
Annað verk sem hann lagði bann við að væri
spilað var Jesus Christ Superstar - hann tók eintak útvarpsins
úr umferð - en þá brá svo við Að
Sigurbjörn biskup bað útvarpið sérstaklega um
að þetta yrði nú spilað fyrir unga fólkið
um páskana. Þá var nú sumum brugðið
og öðrum skemmt, skrifar Freyr Þórarinsson og
Arnþór skrifar: Útgáfa Trúbrots af
Wagner var bönnuð vegna þess að höfundarnafn var
ekki rétt skráð. Þeir sögðust víst
hafa samið þetta sjálfir og skráðu verkið
sem sína eigin tónsmíð. Svona svipað eins
og að gefa út Gerplu án þess að minnast á
Laxnes.
* Ánægjulegt er að sjá loksins umræðu
um eitthvað annað en þessa endalausu sem hefur verið
í gangi hérna síðan í okt.
---
Gamla drykkjuholan mín 22 er orðin Kafka. "Við viljum
láta fólki líða eins það sé inni
á stað í Prag í kringum 1900 þegar Kafka
var á lífi," segir
Nuno rekstrarstjóri. Gott og vel. Svo má líka einfaldlega
fara á Mokka og láta sér líða eins og það
sé 1960 og Dagur Sigurðarson sé enn á lífi.
20.02.09 - Smáauglýsing:
Óska eftir að fá lánaða ritvél,
órafmagnaða, í nothæfu ástandi. Til greina
kemur leigugreiðsla, sé þess krafist. Tilboð sendist
í emaili.
Á sama stað er til tvíburakerra, nógu góð
til að skrölta með tvo krakka út í sjoppu, en
varla mikið lengra. Kerran fæst gefins. Uppl í email.
---
Ritvélina hef ég hugsað mér að nota í
plötuumslagagerðin v/ sólóplötunnar minnar
sem nú er að skríða saman. Umslagið á
nebblega að vera analóg. Platan sjálf er auðvitað
digital. Hún verður gefin út á netinu og á
disk í takmörkuðu númeruðu árituðu
upplagi í afar veglegu umslagi. Þetta verður 18 laga masterpís.
Ég var alltaf að vesenast með hvað hún ætti
að heita. Nokkur ömurleg nöfn voru komin til greina:
Ungakaka
Til forna og í dag
Eins manns partí
Velkominn í gleðskapinn
Með öllum mjalla
Allt mjalla
Mjalla
Svo áður en ég fór í Expressflugvélina
til London var ég búinn að ákveða að opna
Expressblaðið blindandi og benda blindandi og að orðið
sem ég benti á yrði titill plötunnar. Ég
hefði náttúrlega hætt við ef það
hefði verið eitthvað glatað eins og Ilmvatn eða Oslo.
Þegar þotan hafði náð fullri hæð framkvæmdi
ég þetta rítúal og benti blindandi þar
sem ég opnaði. Og því mun platan heita
Dr. Gunni inniheldur
Sem er ljómandi gott nafn. Inniheldur. Nær m.a.s. að
vera tvírætt: Inni heldur. Sá sem vill frekar vera
inni. Sem passar vel við mig, eða gerði áður en
ég var þessi útiheldur fjallamaður. Ah, gott að
vera laus við þessa dilemmu.
---
Eftir hrunið var fólk sem lét á sér
bera í "umræðunni" meira og minna óflokksbundið,
sýndist manni. Sem lausar skrúfur í skúffu.
Nú raðast fólkið í hólf. Hljóðmaðurinn
Tryggvi Þór Herbertsson vill vera Sjall. Hvernig er þetta
annars með hann. Fyrst eitthvað bull rétt fyrir hrun að
allt sé í góðum málum og núna að
við skuldum varla djakksjitt. Get ég fengið svona tölvukubb
í hausinn eins og hann? Lilja Mósesdóttir vill vera
VG. O.s.frv. Fólk verður sem sé að vera í
skúffu til að hafa áhrif. Hvað með alla þessa
nýju flokka sem áttu að koma? Verður sami lúserbragur
á því eins og alltaf. Flokkur mannsins eitthvað.
Æi, whatever. Ég hef ekki fengið nein tilboð um að
fara í framboð sem er auðvitað móðgandi.
Ekki að manni myndi langa til að verða þingmaður.
Hanga allan daginn yfir grámóskuleiðindum og tryllingslega
innantómu tuði. Þurfa alltaf að segja háttvirti
og vera með bindi. Maður væri farinn að líta út
eins og Birgir Ármannsson eða þarna barnarasssandlitið
í Framsókn eftir viku. Djísús kræst.
Og fá ekki einu sinni almennileg forréttindaeftirlaun fyrir
ómakið. Skítt. Má vera með Ipod á Alþingi?
Fartölvu? Það má skoða þetta ef það
má.
19.02.09 - Marnie og Jói G
Í dag í Fbl geri ég undraheim plötubúða
að umtalsefni. Þar á meðal þá beinu innspýtingu
sem fæst með því að heyra eitthvað geðveikt
í búðinni:
Marnie
Stern - Prime
Óðmenn
- Orð morð
Marnie er amerísk og svona líka ljómandi skemmtileg.
Önnur platan hennar sem kom út í fyrra heitir því
frámunalega langa nafni This Is it and I Am it and You Are it and
so Is That and He Is it and She Is it and it Is it and That is That. Platan
kom út 07 okt. Luke Haines á afmæli 07 okt. Ég
á afmæli 07 okt. Er þetta eitthvað kosmískt?
Nei. Það var hins vegar gríðarlega kosmískt
að heyra Orð morð um leið og við stigum fæti
inn í Rough Trade. Mögnuð tilviljun. Það er glæsilegt
ef Óðmenn fá þá alþjóðlegu
viðurkenningu sem þeir eiga skilið. Tvöfalda platan
og sínglurnar eru alveg feykilega gott stöff. Allra tíma
Topp 10 efni, ekki spurning. Safnplatan sem var verið að spila
í RT er þessi,
útg. Finders Keepers, nýlegt plötusafnaraleibel sem
maður þarf að fylgjast með. Ég veit ekki hvort
eitthvert endurútgáfumerkið hafi tekið Óðmenn
upp á arma sína biggtæm, en það væri
nú alveg rakið.
---
Ég er ekki fyrr búinn að játa á mig
hreina samvisku í kókaínmálum en óskiljanleg
samskipti Bjössa í Ný dönsk og einhvers dílers
eru birt. Ás og einar og eitthvað bull. Þá veit
maður það. Bjössi bara svona á kafi í
ruglinu! Eða var einu sinni. Hvað er þetta, maðurinn
er klín í dag svo haldiði kjafti. Ég óska
Birni góðs andlegs bata ef hann þarf á því
að halda. Mannskemmandi svona dóprugl. Hann var frábær
í Bubbaþættinum og verður eflaust góður
í Idol. Kannski mætti byrja alla Idolþættina á
að Bjössi fer í lyfjapróf. Selma og Jón Ólafs
líka. Hvað veit maður? Það væri a.m.k. miklu
skemmtilegra en að horfa á alla þessa krakka syngja kóverlög.
---
Já og ég á bakþanka í dag. Fyrirgefðu.
Ætlaði fyrst að kalla hann Annþór og Árni,
en fannst það einum of.
18.02.09 - Fávita næntís
Keypti þrjár bækur í Lundúnum. Bad
Vibes eftir Luke Haines lýsir 90s popplífi Lúks, sem
var allt í öllu í The Auteurs, sem kom upp ásamt
Suede sem fyrsta bylgja þess sem síðar var nefnt Britpop.
Luke þolir ekki tímabilið og finnst flestir vera algjörir
hálfvitar. Gaman! Hann er helvítis dópisti og fyllibytta
næntís náttúrlega en virðist hafa séð
ljósið og býr nú með konu og barni og er feitur
og með skegg. Klassi. Hann hefði náttúrlega ekki
efni á að vera með kjaft ef hann væri einhver lúser
sem ekkert hefði gert að viti en þar sem hann hefur gert
magnaða músik má hann allt. Ég hef reyndar aldrei
tengt svakalega við The Auteurs en konsept plata hans um Baader Mainhof
er snilld og fyrsta plata Black Box Recorder sömuleiðis. Ég
er að verða búinn með bókina, hef lesið hana
á þeysireið, enda er þetta svo mikið stuð.
The Fallen lýsir því þegar Dave Simpson hefur
upp á öllum fyrrverandi meðlimum The Fall, en eins og menn
vita skiptir Mark Edward um meðlimi í bandinu sínu oftar
en nærbuxur. Mig hlakkar til að lesa bitrar sögur um óvættinn
frá fúlum fyrrum meðlimum.
Kill Your Friends fjallar um A&R mann í London 1997. Ég
ætti að kannast við þetta enda að reyna að
meikaða með Unun á svipuðum tíma og maður
komst í kynni við allskonar bjána í þessum
bransa. Gott að menn eru farnir að gera næntís poppsenuna
upp í skáldsögum. Ég er búinn að fletta
bókinni og þarna er neimdroppið eins og moðerfokk.
Gus Gus, Bellatrix og Ragga & The Jack Magnet Orchestra koma öll
fyrir, enda að reyna meik. Kæmi ekkert á óvart
ef Unun væri þarna þó við erum meira svona
1995 en 97. Bókin er löðrandi í kókaíni
enda var allt löðrandi í kókaíni. Ég
hef reyndar aldrei orðið svo frægur að komast í
kók og aldrei verið þar sem fólk er að kóka.
Ef ég hefði flutt út og búið í London
eins og alltaf var verið að tala um hefði ég örugglega
komist miklu oftar í partí og fengið að reyna á
mér nasirnar. Við Biggi fórum meira að segja einu
sinni að skoða ógeðslega íbúð í
rassgati sem kostaði ógeðslega mikið og átti
að vera íverustaður okkur á meðan meikinu væri
velt yfir þröskuldinn. Sem betur fer varð ekkert úr
því. Það var samt alltaf eitthvað stuð
í gangi í öll þessi skipti sem ég var í
London til að spila og hitta einhverja A&R-kalla. Einu sinni var
okkur boðið í opnun á einhverri nýrri afþreyingarbúð
nálægt Oxford Circus. Þarna var handfylli af poppurum,
strákarnir í Chemical Borthers man ég. Þór
Eldon var alltaf að láta mig gera eitthvað rugl sem ég
gerði náttúrlega enda tilbúinn að gera hvað
sem er fyrir meikið. Hann ætti að kunna þetta hafandi
verið í Sykurmolunum og svona. Eitt af því var
að mingla. Ég er vonlaus minglari. Kannski ef ég er dauðadrukkinn
en þarna var ég rétt orðinn kenndur. Ég
get ekki minglað, vafra eitthvað um með glas og tala við
alla. Bara get það ekki. Nema ofurölvi. Sem ég var
ekki. En allavega. Við sjáum popparafífl og Þór
hvetur mig til að gefa mig á tal við hann. Mingla við
hann. Gæti verið gott fyrir seinni tíma sambönd.
Svo ég nálgast aulann sem er umkringdur einhverjum breiðvöxnum
vinum sínum. Veit ekkert hvað ég á að segja
enda glápir hann bara á mig og spyr hranalega What d'ya want?
What d'ya want? þegar ég stend fyrir framan hann eins og mállaus
leigumorðingi. Breiðvöxnu vinirnir gera sig líklega
til að rífa á mig nýtt rassgat svo ég hundskast
í burtu. Líður eins og megafávita og hugsa glottandi
Þór þegjandi þörfina. Helvítis popparafávitinn
var þetta fífl:
John Power í enn einu Britpoppvannabí bandinu Cast. Jæja,
það má hlæja að þessu núna. En
þetta var allt svona asnalegt. Næntísið og meikið.
Kannski maður geri bók einn daginn.
---
Í kvöld verða ÍSTÓN-verðlaunin
afhent. Ég er glataður að spá fyrir um úrslit,
en ég vona að þessir sigri:
Bjartasta vonin - Retro Stefson
Plata ársins - Sígild og samtímatónlist
- Fordlandia – Jóhann Jóhannsson
Plata ársins – Popp/Rokk - Falcon Christ – Dr. Spock
Rödd ársins - Páll Óskar Hjálmtýsson
Lag ársins - Þú komst við hjartað
í mér – Toggi og Páll Óskar (þetta hlýtur
nú bara að vinna!)
Tónlistarflytjandi ársins - Dr. Spock
Höfundur ársins - Bragi Valdimar Skúlason (var gríðarlega
duglegur 08)
Skiptir náttúrlega engu hvað mér finnst. Dómnefndin
ræður.
---
Ég fór aðeins á Facebook. Fannst það
svo tilgangslaust og tímaeyðandi að ég eyddi mér
út af því. Það sama með Myspace. Ég
nennti því ekki heldur. Þetta gamla góða
html blogg er bara málið.
17.02.09
Eins og við var að búast var stórfenglega geðveikt
að flækjast um eins og hver annar túristi í stórborginni
London. Ég segi það satt: Ég las ekki staf, né
heyrði orð, um Ísland og endalaust hrunatuðið í
heila 4 daga og ég hef heldur ekki nennt að eltast við fréttirnar
síðan ég kom heim. Í stað þess lapti
ég upp borgina, frappuchinoa á Starbucks og hef ekki farið
svona mikið í plötubúðir síðan ég
var unglingur sem eyddi öllum peningunum sínum á ferðum
erlendis í plötur. Gott ef maður var ekki í sömu
plötubúðum núna og 1983. Við erum að tala
um Berwick st í Soho þar sem sjoppur standa í röðum.
Við erum að tala um Camden holurnar og Notting Hill stöffið.
Einna best fannst mér Music
& Goods exchange keðjan, sem hét Record Exchange í
gamla daga. Maður fletti vinýlstæðunum sem óður
en leit ekki á cda. Rogaðist svo heim með eitthvað smáræði:
Elvis Costello - Trust
Elvis Costello - My aim is true
Elvis Costello - This years model
Lene Lovich - Stateless
Rachel Sweet - Fool around
Wreckless Eric - The wonderful world of
The Undertones - fyrsta
M - New York London Paris Munich
XTC - White music
10CC - Bloody tourists
10CC - Look hear?
Fischer Z - Going deaf for a living
VA - Buddahs pop explosion (tyggjópopp safnplata frá
1969)
Bítlarnir - For sale / Rubber soul (á brakandi endurútgefnum
vinýl frá Apple)
Vinýlsöfnunin hefur tekið á sig andlit frímerkjasöfnunar.
Ég er að safna ákveðnum hlutum, komplítera
línur. Costello er nú komplíteraður á vinýl
þar til hann varð leiðinlegur. Lovich, Sweet og Eric er það
sem mig vantaði í 5 platna lita-seríunni frá Stiff.
Fyrstu þrjár með Undertones eru möst. Xtc er möst
að eiga, 10cc er bara einhver kláði sem þarf að
ná úr sér, annað er tilfallandi nema Bítlarnir
náttúrlega. Það, "besta band í heimi", gerði
13 plötur (í Englandi sem sé), ef maður telur Yellow
submarine og Magical mystery tour með – 15 taki maður báðar
Past masters með, 18 með Anthology. Allt er þetta nýlega
útgefið á nákvæmlega eftiröpuðu
vinýlgáfum sem vænlegast er að stefna á
enda gamla draslið allt á uppsprengdu verði. Ég sá
t.d. Hvítalbúmið orginal númer #0002446 á
ekki nema 500 Pund í hinni ágætu búð Intoxica.
Nýju útgáfurnar kosta hins vegar svona 16 pund stk
sem er nóg fyrir mig og rúmlega það.
---
Tilgangur ferðarinnar var að sjá Magazine á tónleikum
í The Forum í Kentish town. Giggið uppfyllti allar vonir
enda vorum við mættir fyrstir í röðina og gátum
hlaupið beint í bestu sætin, upp á svölum
fremst fyrir miðju. Howard Devoto, söngvari, sem einu sinni var
ýkt kúl og leit svona út:
Lítur nú svona út:
Einna líkastur Pee Wee Herman. Það er ekki honum að
kenna, fólk verður alltaf minna og minna kúl með
aldrinum. Nema ég sem verð fallegri og meira kúl með
hverju árinu eftir því sem ég verð þroskaðri
og meira með allt á tæru. Því til sönnunar
er hér mynd úr ameríkuferð Bless af facebooksíðu
Péturs gítarleikara þar sem sjá má að
ég var hreint ömurlega útlítandi árið
1990:
Hvað var málið með þessar hártæjur?
Einhver skallaafneitun í gangi? Þetta er ekki félegt
lið. Þessi í rauðu peysunni er John Henderson sem
þýðir að þessi mynd er tekin í Chicago.
Sá gaur var eitthvað að gefa út og var fyrir löngu
búinn að lofa að gefa út S.H.Draum. Svo varð
aldrei neitt úr neinu sem hann talaði um. Seinna átti
hann eftir að sjá um Smekkleysu USA sem var álíka
mikið rugl og allt annað. Ætli hann sé ekki að
selja Herbalife í dag.
---
En jæja, Magazine já. Þeim til upphitunar var kvennabandið
Ipso Facto sem var alveg sæmó. Þær lúkka
allavega:
Keypti reyndar eina singlu með þeim á vinýl.
Þær
hafa gert þrjár singlur só far. Þetta er sú
nýjasta.
Ipso
Facto - Six & three quarters
---
Þess má geta að hinn fallegi bakgrunnur sem nú
er á síðunni er úr barnabókinni Rauði
fiskurinn e. Rúnu (Sigrúnu Guðjónsdóttur),
útg. 1972. |