11.02.09
Ég varð fyrir nokkrum vonbrigðum með gærdaginn. Lítið grín. Smá kannski þarna með forsetann og þýska blaðið ("sko, þetta er misskilningur" a la Georg Bjarnfreðarson), en lítið meira. Ég get varla beðið eftir að komast af þessu skrípalandi. Bara að vera laus við þetta kjaftæði og spóka sig um í stórborg og hugsa um eitthvað annað en skýrslur hagfræðinga og væl og rugl og dellu er hrikalega spennandi tilhugsun. Mér hefur lengi fundist lífsnauðsynlegt að komast héðan til að viðra mig, láta minna mig á að heimurinn er ekki þetta sker með öllu sínu kjaftæði. Í "ástandinu" er þessi þörf jafnvel meiri en áður.
---
Því er eins gott að ég er að skreppa til London á morgun. Verst að vofa Jóns Ásgeirs eltir mann um á Oxford stræti og ég vona að maður verði ekki barinn af einhverjum illa förnum Icesave innáleggjanda. Þetta er skemmtiferð, versluð í september, við æskufélagarnir að fara að sjá hina endurvöktu nýbylgjuhljómsveit Magazine (mæspeis / wiki), sem hefur ekki spilað síðan 1981 en var nokkuð stór þáttur í tónlistaruppeldi okkar. Ég hef látið marínerast í plötum sveitarinnar síðustu daga til að fá allt kombakkið sem best í æð. Þetta eldist gríðarvel. Hér er til dæmis eitt frábært. Morrissey hefur oft tekið kóver af þessu á tónleikum.


Magazine - A song from under the floorboards
Af þriðju plötu Magazine, The Correct Use of Soap, 1980 pródúserað af Martin Hannett, þeim víðfræga geðsjúklingi. Magazine er Manchester sveit. Howard Devoto söngvari gerði stuttan stopp í pönkbandinu Buzzcocks áður en hann stofnaði Magazine 1978. Svo kom ein plata á ári til 1981. Þarna innanborðs var bassaleikarinn Barry Adamson sem gekk í Bad Seeds Nicks Cave og hefur gert sóló í seinni tíð og gítarleikarinn John McGeoch sem spilaði á fyrstu þrem plötunum. Síðan gekk hann til liðs við Souxsie & The Banshees, Visage og fleiri bönd. Hann dó 2004 og kombakkið er ekki síst tilkomið til að minnast hans. Nú, og svo finnst gömlum körlum bara gaman að spila. Howard reyndi fyrir sér sóló en mér skilst hann hafi unnið á bókasafni eða skjalasafni síðustu árin svo honum finnst eflaust stuð að stíga aftur á svið. Sem sé, mikill spenningur hjá öllum. 
---

Bobby Breiðholt, hinn algóði bloggari, vísar í úttekt Mens health tímaritsins á versta matinn í Ameríku. Þetta er gríðarskemmtileg lesning. Alverst þykir þeim vera Baskin Robbins Large Chocolate Oreo Shake sem er ekki nema 2600 hitaeiningar! (Hér er medium sem er "aðeins" 1410 hitaeiningar). Þetta eru náttúrlega geðveikir snillingar! Ég hef að sjálfssögðu flett upp hvar Baskin Robbins er að finna í London. Hey, ég er í fríi!!! Só long sökkers.

10.02.09
Grínið heldur áfram á Íslandi. Forsetinn og Dorritt (sem bannað er segja styggðaryrði um því krúttlegar forréttindadósir eru heilagar) rífast í glansblaði. Nennti ekki að lesa það, en skilst það sé krassandi. Þar fær eymingja Bó meðal annars að kenna á því. Merkilegast við fréttina hlýtur að vera að hjónin eigi hund, Sám. Afhverju vissi enginn um þennan hund fyrr? Er þetta kannski einhver leiguhundur sem hjónin fengu sér til að líta betur út? Jón Ólafsson hyggst kaupa Senu. Einu sinni þótti Jón svo ósvífinn gróðrapungur að hann var kallaður Jón vondi, samt aðallega til að fólk ruglaðist ekki á honum og hljómborðsleikara Possibillies. Jón vondi má eiga það að vera ekki farinn á hausinn og hann hefur ekki dregið þjóðina með sér á botninn, svo fyrir alla muni leyfið honum að fá Skífuna aftur. Á hann ekki hefðarrétt á því, svona álíka og þegar Heiða seldi mér Guild gítarinn minn aftur sem ég hafði selt henni í einhverju flippi skömmu áður? Það er bara hluti af færslu Nýja Íslands til fortíðar að Jón eigi Skífuna. Fréttin Madonna ullar uppí unglambið - myndir stóðst ekki væntingar. Ég bjóst við alvöru me me. Bubbi og Egó á Arnarhóli núna kl. 9 í morgun. Mætum öll (ef við höfum ekkert betra að gera). Voðalegt er að sjá Sigurð Kára í þinginu svona bólginn og illa til hafðann. Það er hrikalegt þegar ylurinn af kjötkötlum leikur ekki um mann lengur, fólk hreinlega sturlast. Þetta er einmitt það sem Sjálfsstæðisflokkurinn á að vera að einbeita sér að núna, væla um hvað hinir eru ömurlegir. MBL-TV er að gera mjög góða hluti. Glæsileg frétt er þessi um mannvininn og öðlinginn Ólaf Klemm sem fékk fylgd út í Vísi. Ég hló mest af öllum dellufréttum gærdagsins þegar ég sá hana. Gæti verið Monty pæþon-skets. Minnir á atriði úr Holy grail myndinni. Hvað gerist eiginlega í dag? Ðe mænd böggöls.
---
(Ég vil bara benda fólki á og undirstrika það að í færslunni hér að ofan er hvergi minnst á Davíð Oddsson. Það hlýtur að vera einhverskonar Íslandsmet.)

09.02.09
"Ég hef aldrei hlaupist frá neinu verki sem ég hef tekið að mér og mun heldur ekki gera nú". Ókei þá, segjum það. Annars hefði maður haldið að þetta væri mission acomplíst fyrir DO. Þjóðin komin gjörsamlega í ræsið. Hann ætlar kannski að fokka þessu aðeins meira upp? Gvöð hjálpi okkur öllum. Annars eins gott og það eru bara peningar sem Davíð er að passa þarna í Seðlabankanum. Verra ef það væru smábörn eða kjarnorkusprengur eða eitthvað sem skiptir máli. 
---
Ég kom oft í Seðlabankann þegar ég vann sem gjaldkeri í aðalútibúi LÍ. Einhver var kannski veikur svo ég, verandi eini karlgjaldkerinn, var gerður sí svona að öryggisverði, og sendur með öðrum karli að sækja seðla. Á þessum tíma var miklu meira um að fólk væri að nota seðla, debet kort ekki einu komin, og fólk notaði helst kredit kort í útlöndum. Peningaskápur LÍ varð því alltaf að vera fullur af seðlum. Það kom oft fyrir að fólk mætti og vildi taka hrúgur af peningum. Skápurinn er ábyggilega hálftómur núna. Í Seðlabanka var auðvitað einhver öryggisgæsla til að maður kæmist í seðlahrúgu landsins. Ég er enn undir bankaleynd svo ég verð að vera launmáll. Ég hafði aldrei séð jafn mikið af peningum og þarna í Seðlabankanum. Heilir haugar. Eins og hjá Jóakim önd, bara skipulagðara. Sumir starfsmenn unnu við að flokka illa farna seðla frá hinum og svo var þessum löskuðu eytt. Í þessari vinnu minni missti ég endanlega allan áhuga á peningum. Þetta er ekki eftirsóknarverðara en hver annar illa lyktandi pappír. Rusl. Þetta er svona svipað og stelpur sem vinna í ísbúð missa örugglega lystina á ís. Svo bar maður töskur með illa lyktandi pappír inn í sendibíl, sem var ekki einu sinni brynvarður, og bar þetta í skápinn í Austurstræti. Ég hefði nú örugglega ekki komið við miklum vörnum ef velskipulagt glæpahyski með lambúshettur hefði ráðist á mig. Svona, takiði þetta helvítis ógeð, ekki rota mig, hefði ég örugglega sagt. Meðan ég skrifa þetta fæ ég lyktminningu um lyktina af búnti af fimmþúsund köllum. Hundrað stykki í einu, svo eru fimm búnt sett saman, 2.5 milla, spjöld sett fremst og aftast og allt vafið inn í teyjur samkvæmt staðli. Lyktin er ekkert nálægt ilmvatni Tinu Turner eða glænýju sérsaumuðu handklæði, heldur eins og eitthvað sem kemur upp úr niðurfalli í þvottahúsi plús smá mannaskítalykt. Það á að vorkenna fólki sem eltist við þetta drasl. Þetta er lið með saurgirnd. Ég sé bara karla að maka sig út í mannaskít þegar ég sé þessa svokölluðu útrásarvíkinga. Kannski alla saman í flottræfilsbústað alsbera að maka mannaskít á hvorn annan. Reyndu að sjá þetta fyrir þér. Þá verðurðu kannski alveg jafn snar þegar þú sérð þessi grey næst.
---
Þökk sé einum þeirra er nú ókeypis á listasöfn. Fór með krakkana á Alfreð Flóka í Hafnarhúsinu í gær. Þetta er glæsileg sýning og gríðarlegur fjöldi fólks var að skoða myndir Flóka. Það er misskilningur að fólk hafi ekki áhuga á list. Fólk hefur bara áhuga á einhverju almennilegu. Það nennir enginn að leggja sig eftir draslinu sem er svo yfirflæðandi í þessum bransa.
---
Sem alvarlegur neytandi tek ég fagnandi átaki eins og Kaka ársins. Ég hef vitanlega smakkað kökur ársins síðustu árin og svo sem ekki verið neitt gapandi hress með þessar kökur. Svona la la, hefur mér fundist. Í gær var komið að Köku ársins 2009 (2.500 kall í Mosfellsbakaríi) og verður að segjast að þessi kaka sprengdi alla skala, slíkt lostæti er hún. Hverrar krónu virði og gjörsamlega geðveik kaka. Tékkaði líka á ísbúðinni í Garðabæ. Ég er alltaf að sjá fyrir mér glæsiísbúð með bólstruðum diner-bekkjum og metnaði. Það vantar alveg á íslandi. Maður á að geta mætt, keypt sér ís og étið eins og manneskja. Þarna í Garðabæ voru úti tréborð og stólar innan húss og bara Kjörís í boði. Fullt á öllum borðum (þau eru tvö). Hagkaup þarna við hliðina er þó glæsileg verslun. Mér finnst skemmtilegast að versla í Hagkaupum, enda Íslendingur. Ísbúðir já. Ísbúðin í Álfheimum er úrsvalslega séð sú besta, en þar vantar aðstöðu til neyslu. Ef sá staður væri með diner-bekkjum og borðum væri kominn sigurvegari. 
---
Og áfram með neytendamál. Ég mæli eindregið með Skagfirskum sveitaosti. Feitur og bragðgóður og merktur glæsilegu héraði (og upprunninn þaðan). FrúTína er hins vegar ekkert góð jógúrt. Bara enn eitt gerfisykursruglið og ekkert stórir ávaxtabitar þótt öðru sé haldið fram. Besta íslenska jógúrtið í dag er tví, jafnvel þrí-mælalaust frá BíóBú, sérstaklega kókosbragðið, sem ég ét á hverjum morgni. Þeir mættu þó alveg koma með einhver ný brögð upp á flippið. 

08.02.09

Við mussu Múgabes! Kommatittir margir hafa undanfarið ráðist viðurstyggilega á frelsara vorn, Davíð Oddsson. Hann varaði sem kunnugt er við stækkun bankanna, gerði sitt besta, en á hann var ekki hlustað og því endaði allt með ósköpun. Hann hefur alla tíð borið hag fjölskyldna landsins fyrir brjósti og lítilmagnans, eins og gott samstarf hans við öryrkja ber vitni um, og aldrei skriðið fyrir neinum, eins og viðskipti hans við Bandaríkjastjórn sýnir. Davíð barði í borðið og öskraði burt með bankablóðsugur sem eru að rústa landinu okkar. Nú vilja kommar snúa öllu á haus. Segja að það sé "ný" frjálshyggjan, Davíð og Hannes sem bera ábyrgð, en allir sjá að þessu er þveröfugt farið. Bankahrunið er beisiklí VG að kenna og Helga Hós. Svo djúpstætt er hatur komma á Davíð að þeir harðsvíruðustu líkja honum við Robert Mugabe. Hefur Davíð gengið um í fötum með myndum af sjálfum sér, ha? Ha? Nei, en það væri reyndar töff og ég veit um nokkra sem myndu fá sér Davíðs mussu. Þetta er svo sem ekki leiðum að líkjast, því Mugabe hefur gert Zimbabwe að því sem landið er, paradís á jörð með iðandi mannlífi og hagsæld. Fjarstæða að halda öðru fram. Fáir vita að Mugabe á tvo góða vini, þá Harat og Kinte sem skrifa alltaf í aðalblaðið í Zimbabwe þegar innlent hyski er með leiðindi í garð Mugabes. Svona er margt líkt með Ísalandi og Zimbabwe. Hér eru Harat og Kinte: 
...sætir strákar!
---
Áfram á "svörtu" nótunum. Rent a negro er ný þjónustu í usa. Það kemur svo sem engu máli við, enda eitthvað grín. Ein plata sem iðulega poppar upp á öllum bestu plötum í heimi listum er What's going on með Marvin Gaye. Ég hef engu sambandi náð við hana, en þarf að gefa því enn einn sénsinn. Um plötuna má lesa á wiki. Kærasta Marvins hafði látist um aldur fram svo Marvin var þungt haldinn um hríð af sorg. Gerði enga músik í tvö ár. Kjartan Guðmundsson heldur því fram að Marvin hafi viljað að platan væri gjörsamlega laus við kynferðislega spennu. Hann vildi losa rödd sína við alla greddu og söng því ekki inn nema að hafa blóðrúnkað sér skömmu áður. Hafa skal þetta í huga þegar þér hlustið á hið íðilfagra titillag. 


Marvin Gaye - What's Going On
Marvin snéri svo aftur skömmu síðar með "Sexual healing" sem klárlega er um rúnk svo málefnið hefur verið honum hugleikið, að minnsta kosti.
---
Dropinn holar steininn en holar plötunál plötu? Á grammifóninum mínum fer nálin aldrei á sinn stað þegar plötuhliðin er komin á enda. Ef ég myndi ekkert gera í þessu og láta nálina snúast endalaust - leigja herbergi þar sem þessi tilraun gæti farið fram - hversu lengi þyrfti ég að bíða þar til nálin færi í gegnum vinylinn? Heila öld? Það er svo margt sem maður veit ekki.
---
Ég vil benda á undirsíður: Menningarafurðir með þremur nýjum ætemum og Gosi með funheitu exótísku gosi frá Líu Ástra.

07.02.09

Hef verið að taka strætó heim úr vinnunni. Það er fínt. Maður er kannski með nýjasta Grapevine undir hendinni og fílar sig erlendis. Kosmopolitan. Náungi fór að tala við mig. Ert þú ekki þarna poppari? Hvað heiturru? Hann sagðist hafa verið í hljómsveitinni Strákarnir í Grindavík, sem var, að hans sögn, fyrsta hljómsveitin ever í Grindavík. Spilaði á gítar. Keypti Höfner gítar og Selmer magnara í búðinni sem var þar sem tattoostofan er á horninu á Hverfisgötu og Snorrabraut núna. Sirka 1978. Svo var ELO besta hljómsveitin, náði hann að segja áður en það kom að stöðinni hans. Ég man alveg eftir þessari hljóðfærabúð. Held að sami gaur og er núna með Gítarinn hafi verið með hana. Fullt af notuðu gúmmilaði. Væri ekki amalegt að mæta þarna árið 78 í tímavél með fulla vasa af Einari Ben. Ég keypti einmitt fyrstu græjurnar mínar þarna. Yamaha gítar og Fender magnara, 50 w. Fermingargjöf. Allra fyrst varða þó Hagström kassagítar. (Sjá mynd af flotanum hér að ofan) Á sama tíma var Biggi Hrafns með Tónkvísl á Laufásvegi. Change-gallar til sölu og notuð gúmmilaðishljóðfæri. Myndi mæta þarna líka 78. Kaupa mér galla. Man glöggt eftir glæsilegum Kiss bassa sem var til sölu. Ef mig vantaði gítar í dag myndi ég eflaust bara kaupa íslenskt hjá Luthier. Þannig er stemmningin. Sem er alveg fín stemmning. Veljum íslenskt stemmningin. Það býr til einhverskonar samheldnis-fíling. Hér erum við og getum ekki annað (því við getum ekki selt húsin okkar og komið okkur burt). Eins gott að gera það besta úr því. Ef rétt er á spöðum haldið verður fílingurinn ekki að ömurlegu "Ísland - best í heimi" stemmningunni. Það er bara mont. Mont er tilkomið vegna minnimáttarkenndar. Og mont, eins og græðgi, er drasl. 
---
Ef ég hugsa djúpt með tungunni get ég fundið bragð af gosdrykknum Póló. Samt var ég nú enginn Póló aðdáandi, miklu oftar að maður fékk sér Egils Grape. Egils Grape er eina gosið í risaflöskunum utan á Agli Skallagrímssyni upp á Höfða sem er hætt að framleiða. Í Amrríkku hafa athafnaskáld hafið endurframleiðslu á gömlum gosdrykkjum. Nostalgic soda eitthvað. Ætli maður myndi moka endurvöktu Pólói út? Á ég að leggja allt undir og byrja með Gosverksmiðju Dr. Gunna? Póló og Spur í nostalgíu línunni, Dr. Gunna rótarbjór og rjómagos í fersku línunni. Maður ætti kannski að fara að leita að fjárfestum? Einhverjum sem vill endilega tapa fullt af peningum. Mér sýnist saga gosframleiðslu á Íslandi vera saga taps. Sól hf. og eitthvað rugl. Smæð þjóðfélagsins hindrar oft góðar hugmyndir. Smæðin getur auðvitað verið kostur líka. Eða ætti að vera það. Til dæmis hefði maður haldið að í forríku örsamfélagi eins og okkar gætu stjórnvöld haft vit á að skipta kökunni jafnt, eða allavega þannig að flestir hefðu það gott nema þeir sem hefðu einbeittan vilja til annars, en nei nei: Allt í fokki, skuldahaugur og 10% atvinnuleysi. Hvað er það annað en stórkostleg vanhæfni þess flokks sem hér hefur meira og minna ríkt í 18 ár þegar svona er komið? Samt ætlar liðið, 30% af því skv. könnunum (vonandi lélegum), að kjósa XD aftur næst!? Til hvers? Til að fokka öllu upp aftur? Manni fallast hendur.
---
Davíð Oddsson? Æi, á maður að nenna að tala um það grín? South Park leystu það ágætlega með Tom Cruise sem vildi ekki koma út úr skápnum. Ég býst fastlega við að Spaugsstofan taki málið fyrir á ófyrirleitinn og ærandi frumlegan hátt í kvöld. En þetta er náttúrlega sturlun allt saman, þessi karlugla og þjóðin sem er með hann á heilanum. Eða einhver hluti hennar. Kommon! Gif ös a fokking breik.
---
Ég nenni nú ekki að leggja eitthvað til málanna varðandi úthlutun listamannalauna. Ég nennti ekki að sækja um síðast. Leiðast skýrslugerðir. Svo er þessi peningur algjört pínöts. Eða var það allavega. Segi það ekki. Væri stuð að vera seif í þrjú ár að dútla sér eitthvað við bókaskrif með 250 kall útborgað á mánuði eða hvað þetta er. Svo má líka reyna að gera eitthvað sem einhver vill sjá og borgar sig þannig. Minna betl í því. Ég segi nú bara eins og Árni Matthíasson: Ég tek það sem að mér er rétt. Því fagna ég niðurfellingu punktakerfisins hjá STEF.
---
Íslenskir músikantar eru ekkert að liggja í leti. Fullt af fínheitis plötum komnar út eða að koma út. Hér á bæ er puttinn þvílíkt á púlsinum. Og því:


Fjallabræður - Minni Færeyinga
(Úr Fbl í dag): Fjallabræður elska systur sínar og bræður í Færeyjum, eru stoltir af að verða fyrst íslenskra hljómsveita skráð á G-festival í ár og hafa gefið Færeyingum lag.
„Rokk og ról. Þetta er „on". Við erum fyrsta íslenska bandið bókað á G-festival í ár sem er seinnipartinn í júlí," segir Halldór Gunnar Pálsson, stofnandi og kórstjóri Fjallabræðra.
Fjallabræður hafa vakið mikla athygli að undanförnu fyrir kröftugan kórsöng við rokkað undirspil. Og nú hefur stefnan verið tekin á Færeyjar á tónleikahátíðina G-festival. Fjallabræður tóku nýverið upp lag sem þeir gáfu Færeyingum sem þakklætisvott fyrir fjárframlög Færeyinga til Íslendinga þegar bankahrunið var í október á síðasta ári. Halldór segir þá Fjallabræður, sem kenndir eru við Flateyri, tengjast Færeyingum órofa böndum. Eftir snjóflóðið á Flateyri árið 1995 gáfu Færeyingar þorpinu leikskóla – hafa reyndar alltaf boðið fram aðstoð sína fyrstir þjóða þegar á bjátar svo sem eftir gos í Eyjum og snjóflóð í Súðavík. „Þetta er ekki frændþjóð heldur bræðraþjóð. Alltaf tilbúin án skuldbindinga að hjálpa til. Ef ég sé Færeying í vanda þarf ég ekki að hugsa mig um. Þetta kemur frá hjartanu, þannig er það," segir Halldór.
Fjallabræður skunduðu að Færeyjarstofu í gær og kyrjuðu braginn, lagið sem þeir gefa nú Færeyingum en viðstaddur var meðal annars Elís Poulsen frá færeyska ríkisútvarpinu. Lagið verður til niðurhals á vefsíðu þess. Minni Færeyinga. Átta mínútna langt. „Borgaraleg skylda að þakka Færeyingum með lagi."
Fjallabræður urðu til árið 2006 þegar Halldór krafðist þess að karlakór myndi syngja í afmælinu hans. Síðan hafa margir bæst við en kjarninn er frá Flateyri. „Nokkrir Reykvíkingar hafa fengið að vera með en þeir eiga það sameiginlegt að þekkja fjöllin fyrir vestan með nafni og/eða hafa drukkið sig undir borðið á þorrablóti á Vestfjörðum," segir Halldór. Fjallabræður er hreyfing ungra manna ekki síður en hljómsveit. „Við erum sveitalubbar sem þykir vænt um landið okkar og erum kurteisir, auðmjúkir og berum takmarkalausa virðingu fyrir kvenfólki. Stefna kórsins er ekki önnur en að „vera í lagi"."
Kórinn er langt kominn með að taka upp fyrstu plötuna sína. „Við erum alveg að verða tilbúnir með hana og hún verður gefin út fljótlega. Lögin eru öll eftir mig með textum eftir Ásgeir Guðmundsson, Geira Rokk, sem er í bandinu. Svo eru tvö tökulög, afi minn syngur forsöng í öðru þeirra, „Afadreng" eftir Sigfús Halldórsson. Það er mikið af afa mínum í þessu bandi." jbg/drg 
Við hlustun á laginu geri ég fastlega ráð fyrir að þú tútnir út af samnorrænu stolti. Sjálfum langar mig til Færeyja, þó ekki til annars en að ganga á fersk fjöll. Kannski maður elti Fjallabræðurna á G. 


Carpet Show - Music from soul
Fréttatilkynning: 13. feb kemur út ný og glæsileg plata á vegum útgáfunnar BRAK hljómplötur. Platan heitir Music From Soul og er fyrsta útgáfa einsmanns verkefnisins Carpet Show, en á bakvið það verkefni er 17 ára piltur sem heitir Brynjar Helgason. 
Brynjar hefur verið að fást við tónlist sem Carpet Show í nokkur ár og hefur tónlistin breyst mikið í gegnum tíðina, og er tónleikabandið hans aldrei eins; allt frá því að vera drungalegt rokkband yfir í krúttlega kassagítars og selló einingu. 
Tónlist Carpet Show má gjarnan lýsa sem lo-fi folk / lág-hljómgæða þjóðlagatónlist og má líkja henni við listamenn á borð við The Microphones,  Danielson og Daniel Johnston.  Brynjar tók plötuna upp sjálfur og sá einnig um hljóðblöndun. 
Auk þess sem Music From Soul er fyrsta útgáfa Carpet Show, er hún einnig fyrsta útgáfa BRAK hljómplatna.  BRAKið var stofnað í byrjun ársins af sama fólki og er á bakvið Kimi Records. Ætlar útgáfan að gefa út sem flestar plötur á árinu með allskonar listamönnum, lítt þekktum sem vel þekktum. Verða allar plöturnar í mjög takmörkuðu upplagi, númeraðar og framleiddar á Íslandi. Plöturnar munu heldur ekki kosta mikið en munu þó aðeins vera fáanlegar í völdum verslunum. Brak hljómplötur hvetja alla til að fylgjast vel með BRAK útgáfunni því hún mun koma vonandi sem flestum á óvart með fleiri frábærum útgáfum á árinu!
Platan er ágætis dútl, heyri þó engan Daniel Johnston í þessu.


7oi - Why can't a wasted void
Listamaðurinn 7oi, eða "Jói bróðir" eins og hann er oft kallaður, hefur verið duglegur í að moka út heimagerðum diskum. Þrír slíkir í einstaklingsbundnum umslögum hafa komið út, plús ein netplata, en nú er komin fyrsta alvöru platan hans, Dont push the rocks in my face. "Alvöru" þýðir að diskur og umslag er framleitt erlendis. Þessi skilgreining er þó ekki endilega rétt. Ég heyri akkúrart engan sándmun á diskum gerðum í Sony í Austurríki eða í Myndbandavinnslunni. En ég er nú svo sem heyrnalaus. Ég hef í hyggju að gefa skít í þetta snobb á næstu sólóplötu minni, sem er langt komin, og velja alfarið íslenskt. 7oi hefur alltaf verið tilraunakenndur, leitandi og flippaður, poppaður, rokkaður og sturlaður. Nýja platan er "alvarlegri" en hinar, þar fljóta hljóðskip á hafi, og platan er "heilsteyptari", sem þykir fínt. Mæspeis 7oa.


Sólstafir - Köld
Þungarokkararnir í Sólstöfum koma von bráðar með plötuna Köld. Hér er æsandi fagurt titillag, sem því miður er eina lag plötunnar á ylhýra. Enn á ný er finnska merkið Spinefarm sem gefur út og lögin eru löööööng... en hrottalega aðkallandi. Mæspeis Sólstafa.

06.02.09
Lux Interior, hinn geðveikt kúl útlítandi söngvari The Cramps, er fallinn frá, 62 ára gamall. Ég bjóst nú við að þessi meistari myndi aldrei leggjast svo lágt að drepast, en svona er þetta. Eftirlifandi er eiginkona hans, ekki síður massa kúl, gítarleikarinn í Cramps, Poison Ivy. Þau voru svo ógeðslega kúl saman eitthvað að safna gömlum rokkabillíplötum og droppa sýru og vera kúl – það var ímyndin sem maður hafði af þeim. The Cramps var beisiklí þau tvö með allskonar misófríðu liði. Komu á sama tíma og pönkið, en voru á allt öðrum slóðum, eigin slóðum, tóku gamla geðveika rokkabillíkarla og sturlaða 60s-hljómsveitir sér til fyrirmyndar og sköpuðu hið svokallaða Pyschobilly sem var vinsælt í öndergrándi í kringum 1980. Helstu boðberar Cramps á Íslandi var hin stórfenglega hljómsveit Oxzmá. Fyrir utan að gefa út slatta af sjúklega kúl plötum stóðu Crampsarar fyrir endurútgáfuplötum, Born Bad, studdu heilshugar áhugavakningu á gömlum lélegum bíómyndum og voru allt í öllu og algjörir snillingar. Ég sá aldrei bandið spila, sem var mikið áhyggjuefni lengi, enda Lux algjör geðsjúklingur á sviði, djöflast á tillanum í góðum fílingi berjandi sig á meðan hin lögulega eiginkona stóð eitursvöl og rauðhærð og sló gítarinn. Ég mæli með einni stórri Cramps-könnun um helgina. Að vanda eru það fyrstu plöturnar sem eru bestar, eftir A Date with Elvis er þetta svona og svona. Lux til heiðurs eru hér 5 lög og spes skannaðar myndir úr bókinni The wild wild world of The Cramps (útg. 1990) Þá skal vegfarendurm vísað í frámunalega geðveika upptöku af bandinu í myndinni Urgh the music war (sýnist myndin vera meira og minna öll á Youtube + outtakes).

The Cramps - Human fly

The Cramps - Mystery plane

The Cramps - Goo goo muck

The Cramps - You got good taste

The Cramps - Whats inside a girl

05.02.09
Það hefur greinilega einhver runnið í tröppunum frá World Class Laugum út í sundlaug. Kannski slasað sig. Það er allavega kominn miði þar sem áður var enginn miði um að fólk skuldi passa sig í hálku. Svo er verið að byggja yfir þetta, sýnist mér, svo fleiri detti ekki. Var nokkur að pæla í slysagildrum við Dettifoss fyrr en einhver hrumur túristi fótbrotnaði í stórgrýtinu? Svona er allt á Íslandi. Aðgát og fyrirhyggja sýnd eftir á, sem hefur kannski eitthvað með þjóðarkarakterinn að gera, þetta að þurfa alltaf að bægslast áfram. Síldar eitthvað. Veiða allt upp og klóra sér svo í hausnum. Auðvitað má færa þetta upp á bankahrunið. Er ekki hætta á að einhver fótbrotni hérna? hefur kannski einhver stunið upp en ráðendur ypptu bara öxlum. Nei nei, hvaða hvaða. Þetta reddast.
---
Annað hvort geðveikt góðæri eða geðveik kreppa. Hverskonar geðhvarfasker er þetta eiginlega? Er ekki hægt að stefna að jafnri línu? Verður þetta alltaf að vera fyllirí og þynnka til skiptis? Já. Þjóðarsálin segir að jöfn lína sé ekkert til að stefna að. Betra að gnísta tönnum framan í rokið, græða ógeðslega mikið og renna svo á rassgatið með allt. Spurðu bara Björgúlf.
---
Bakþanki #93 Skuldin fjallar um skuldina.
---
Nú gæti ég eflaust þotið upp vinsældarlista blogggáttarinnar ef ég tæki mig til og gerði ljómandi fotosjoppaða mynd af vinunum Davíð og Jón Ásgeiri. Jónshaus gæti verið á skrokknum á Ahab skipstjóra og Davíð á Moby Dick. Eða þeir tveir sem hausinn á kerlingum í leðjuslag. Jafnvel mætti leita á náðir hommaklámmynda, finna þrísom (svokallaða "teinsteikingu") þar sem hvor meistarinn væri á sitthvorum enda en miðjustykkið væri merkt sem "íslenska þjóðin". En það er nú ekki eins og maður nenni að standa í svona æfingum eldsnemma dags. Tvær fréttamyndir hlakkar mig til að sjá. Davíð með kassann sinn að koma út úr Seðlabankanum í síðasta skipti og burstaklipptur Jón á lyftara. Djísús kræst á teini! Þjóðin er búin að fá svo upp í kok af ykkur og ykkar fáránlegu typpaskilmingum að það er ekki einu sinni fyndið. Hvað þá sorglegt.
---
Eftir 15 ár spái ég að Jón Ásgeir fái þrjá sagnfræðinga til að skrifa þrjár bækur um uppgang og hrun Baugs. Bækurnar munu heita Aðförin, Vínber heiftar og Davíð girndist mig.
---
Krúska að Suðurlandsbraut 12 er ljómandi grænmetisstaður. Tókum teikavei í gær eftir vigt, kostaði rúmlega 2000kall, allir pakksaddir og ógeðslega gott. Mæli með þessu.
---
McDonalds var með spil í barnapökkunum um daginn, þar á meðal Monopoly. Við vorum að spila þetta. Ég var bankinn. Ég held ég hafi fengið góða innsýn í fjármálaheim íslenska góðærisins. Ég hefði getað borgað allt með bankastaflanum. En það er bara svindl.
---
Þessi hæfileikalausi og ófyndni Colbert er eins og fólk veit að níða skóinn af gjaldþrota og að sturlun kominni örþjóð hér. Hann er auðvitað kominn á dauðalista íslensku leynþjónustunnar við hliðina á hvalskipaníðingnum Watson, mellupjakkinum Seinfield og fúlpungnum Robbie Williams. Ég skammast mín nú smá fyrir að viðurkenna það en ég varð hálf fúll þegar hann byrjaði að pönkast á skyrinu okkar. Hann hefur greinilega aldrei étið skyr þessi fretur. En svo inngróinn var 5000kallinn í vitund mína að það þurfti útlending til að benda mér á hvað seðillinn er asnalegur.
---
Gleðipinnarnir á andríki bara splæsandi í heilsíður? Djöfull er ég þreyttur á andlausu og bitru tuðinu í "ungu" frjálshyggjupakki þessa dagana, þessum lúserum og púðluhundum hrunsins. Maður hefði haldið að þetta lið gæti haft vit á að halda kjafti í nokkra mánuði, svona í ljósi árangursins, en nei nei: voff voff, urr urr. Allt kommunum að kenna! Væli væl. Voff voff, urr urr. Ísland getur enn orðið ríkasta land í heimi, nei í alvöru. Urr urr. Græða á daginn og grilla á kvöldin. Voff voff. Urr urr. Kommar hækka bara skatta. Voff. Majonesið er orðið gult. Urrrrrrr. Okkar majones er ennþá skjannahvítt og æðislegt. Urr urr. Voff voff. Ýlfrandi smáhundar að flækjast fyrir "löppum breytinga". Snáfiði nú í bælið ykkar og sleikið sárin. Svona, hutt hutt. Burt með ykkur. Getiði ekki eytt tíma ykkar í safna peningum fyrir Hannes eða eitthvað? Ykkar tími er farinn.

04.02.09
Einu sinni þótti stórfrétt þegar kunnir útlendingar komu til Íslands. Í góðærinu minnkaði þessi undrun sveitamannsins. Ég sá Jude Law á náttbuxum í mötuneytinu á 101 Hótel og enginn horfði. Nú mun hin krúttlega undrun sveitamannsins aukast aftur, enda erum við sem þjóð að hætta að vera hipp og kúl og verðum aftur krúttlega hallærisleg, svona eins og einörðustu krúttin hafa náttúrlega alltaf stefnt að í sínum rifnu lopapeysum. Þjóðlega krúttlega hallærisleg - húrra fyrir því! Það er í raun miklu meira hipp og kúl, þegar allt er til tekið og frumlegra hipp og kúl heldur en að þykjast ekki sjá Jude Law á djöflabistrói auðvaldssvína. Mest hipp og kúl er að vita ekki einu sinni hver Jude Law.
---
En allavega. Nú 1978. Stranglers komu með pönkið til Íslands. Áður en dýrðin uppljómaðist fyrir þá heppnu í Höllinni (ég var smábarn heima) höfðu flestir horn í síðu punksins enda var þetta bara rugl af blaðafréttum að dæma. Ljósmyndari Vísis var mættur í tollinn þegar Kyrkjarar mættu:

Mogginn birti viðtal:

Þetta Stranglershorn er ekki fullkomið nema með laginu Five minutes sem ég man enn eftir þegar það var sýnt á Rúv. Þótt ég kæmist ekki í Höllinni hafði það gríðarleg áhrif á mig að sjá videóið og svo var um marga fleiri, enda var þetta fyrsti skammtur af einhverju öðru en Boney M og Abba (eins gott og það nú er á sinn hátt) sem við fengum. Magnað lag og á youtube má sjá videóið.
The Stranglers - Five minutes
(Þessi færsla er tileinkuð Valla í Fræbbblunum sem verður fimmtugur í vikunni og hefur flutt Stranglers tvisvar inn á síðustu árum!)

03.02.09
Dagbjartur byrjar stundum að söngla Vanhæf ríkisstjórn, vanhæf ríkisstjórn upp úr þurru. Byltingin var svona grípandi. Klive er búinn að rafvæða mussusönglið og setja á netið. Svo hefur Radíó Skakka tekið til starfa og þar er m.a.s. bæjarstjórinn orðinn borgarstjóri.
---
Er ekki hægt að ráða Vilhjálm Bjarnason í feitt embætti þar sem hann hefur áhrif? Hann spáir blóðbaði þegar 30 karlkrimmar og 3 kvenkrimmar af útrásarkyni verða teknir til bæna. Ekki láta smáatriðin flækjast fyrir aðalatriðunum. Þetta útrásarglæpahyski ber mestu sökina. Upp með ryksugurnar. Það þarf að ná inn fyrir skuldinni.
---

Bee Gees - Down the road
Gibb bræður 1974 af Mr. Natural. Þó platan teljist flopp og næst hafi þeir fattað diskóið er alveg ágætis stöff á þessari. Til dæmis þetta hjakkpopp með stuðlabergsrísandi millikafla. 

02.02.09
Nú er að sjá hvort frú forsætis Jóhanna Sig haldi ekki bara áfram að keyra bílinn sinn sjálf í vinnuna. Glatað ef hún verður á drossíu með einkabílstjóra. Ég missti einmitt allt álit á Svavari Gestssyni þegar ég sá hann feita kattalegan aftan í drossíu koma keyrandi upp úr Fannborginni, þarna einu sinni þegar hann var nýorðinn menntamála. Sama rassgatið undir þessu öllu, hugsaði ég. Steingrímur byrjar allavega vel, á gamla Volvo. Einkadrossíur eiga ekki við í dag. Að sparka Davíð Oddssyni úr Seðlabankanum á við í dag. Svo hann geti snúið aftur í Sjálfsstæðisflokkinn. Fá smá fútt í þetta!

01.02.09
Í nótt dreymdi mig G-mjólk. Hún var inn í ísskáp. Lítil óopnuð. Ætli það hafi djúpa merkingu úr undirmeðvitund?
---
Á morgunrúntinum: Ég hef aldrei lagt mig sérstaklega eftir grínistanum Bill Hicks en þessi gerir það. Hér segir svo að Kanadamenn séu að spá í að eiga okkur. Eftir því sem ég kemst næst eru Kanada og Svíþjóð einna best heppnuðu löndin í heiminum í dag og því segi ég go for it. Sjálfsstæði smjálfsstæði. Íslendingar eru svo vitlausir að þeir ráða ekki við sjálfsstæði. Hvað þá lýðræði. Eins og við vitum endaði það bara í gegnrotinni spillingargeðveiki, svínslegum peningamokstri svínslegra karlpunga inn á prívat reikninga á gulleyjum og úrkynjun a la syni Davíðs. Sem Kanadamenn fengjum við kanadískan dollar og hræbilleg fargjöld til Montreal og þjóðsöng sem hægt er að syngja. Neil Young og Bryan Adams yrðu landar okkar. Kannski myndi Davíð líka hætta í Seðlabankanum. Nei andskotinn. Það gerist nú aldrei. 
---
Helvítis hvalakjaftæði alltaf. Ég fór niðrá bryggju þegar verið var að leyfa einhverjar veiðar haustið 2006, minnir mig. Það var verið að dæla olíu á skipið og karlar að hittast eftir langt hlé. Skipstjóranum hafði verið flogið úr vodkaferð á Kanarí. Allt eldgamlir karlar og ekki snert á hvalveiðum síðan 1988. Voða krúttlegt og Moby Dickað. Ætli þessir gamlingjar eigi að veiða þessar 150 langreyðar sem Einar leyfði að drepa í taumlausri stjórnvisku sinni? Ætla Einar K og prúðuleikaradúkkan Kristján í Hval endanlega að gera út af við gömlu mennina? Alltaf gaman þegar Kristján í Hval og Árni í náttúrusamtökunum mætast í rökræðum. Þeir eru báðir svo prúðuleikaralegir. Með prúðuleikararaddir. Algjört bíó þegar þeir æsa sig.
---
Annars er mér alveg sama þótt hvalir séu veiddir. Eða ekki veiddir. Það er ekki eins og þeir séu fyrir manni. Þetta eru ekki andlegir heimspekingar í sjó sem þarf að vernda með öllum tiltækum ráðum. Svamlandi beljur. En auðvitað ekki ofveiða þetta og svona. Skilja eitthvað eftir fyrir hvalaskoðunina. Svo er spurning hvort markaður sé fyrir kjötið. Það er ekkert víst að greenpeacehippar fari að væla í útlöndum, enda um margt annað að hugsa en dauða hvali í kreppunni og svona. Svo er nóg pláss fyrir dauðar langreyðar ef enginn vill kaupa þetta. Heilt hálfkarað Tónlistarhús sem mætti fylla af dauðum hval. Helvíti flott. Einhver listahálfviti gæti mætt og kallað það innsetningu. 
---
Sæti smjörkúkurinn Bjaddni Ben ætlar að vera aðal í Sjall. Eflaust munu nokkrar kerlingar renna á rakspíralyktina. Ég held það væri gáfulegra að senda hann bara í Eurovision. Talandi um. Ég tel fullvíst að Jógvan syngi Eurovisionlag Íslands í ár. Lagið er söluvænlegt, Jógvan sætur (þarf þó að klæða sig betur næst) og rennur beint í sameiginlegan draumaheim eurohomma. Ekki síst eru svo aðstæður þannig að Íslendingar myndu síður en svo setja fyrir sig að senda Færeying í keppnina. Almennt yrði litið á það sem endurgreiðslu láns. Eða einskonar vinavexti á lánið. Jógvan vinnur. Þú last það fyrst hér. 
---
Kafaði í kassana hjá Jóa í Vonbrigðum í Kolaportinu í gær. Kom upp með nokkrar plötur á algjörum spottprís:
Fire Engines - Big Gold Dream 3 laga EP
The Attractions - Mad about the wrong boy (hljómsveitin hans Elvis Costello fær að vera aðal 1980)
Elvis Costello & The Attractions - Imperial bedroom
Xtc - The Big Express (vel gengur að komplítera Xtc á vinýl)
The Stranglers - No more heroes
McCartney II (Palli gerir útúrflippaðar tilraunir 1980)
Bee Gees - Mr. Natural (niðurlægingartímabilsplata frá 1974. Ekki búnir að fatta diskóið ennþá)
Þokkabót - Upphafið (og er þá komplíteringu Þokkabótar lokið)
Artery - One afternoon in a hot air balloon

31.01.09
Það gengur full seint að koma þessari stjórn saman. Framsókn eitthvað að dúlla sér. Þetta hangs er auðvitað vatn á myllu kölska/sjalla sem geta byrjað að þusa um gamla óreiðu. Væli væl. Ómar Ragnarsson er þó með puttann á púlsinum og hefur gert frábært lag.


Ómar Ragnarsson - Saga Jóhönnu
Ómar Ragnarsson er auðvitað hvílíkur meistari að það þarf ekki að nefna það. Hann er auðvitað hér. 
---
Enginn hefur iðrast gjörða sinna í Hrunlandi, nema Bjarni, en það var nú meira svona PR stönt. Auðvitað ekki. Guðmundur í Byrginu gerði ekkert af sér. Hitler sá ekki eftir neinu. Ekki austuríska karluglan í kjallaranum heldur. Það þarf mikið til að sakamenn að viðurkenni glæp sinn. Þeir sem skófu auðæfin úr ísland og komu þeim undan yppa bara öxlum. Ha við? Við gerðum ekkert ólöglegt. Okkur er drullusama um atvinnulausa og skuldum setta, segja þeir á leið til Tartúla, eða hvað þessi gulleyja þeirra heitir. Þó Eimskip skili stærsta tapi Íslandssögunnar voru forstjórarnir með súperlaun. Þetta er allsstaðar í heiminum eins. Sjúklega ríkir karlar eru óvinur þinn. Þeir komu okkur í þessa klípu með græðginni. Ekki þú með flatskjáinn. Þetta er ekkert flókið: Kreppan er gráðugum karlpungum að kenna. Ekki gleyma þessu.
---
Öppdeit: Forsætisráðherra Ástralíu er að segja þetta sama: "Rudd kennir græðgi fjármálamanna um hvernig umhorfs er í efnahagsmálum heimsins. Nýfrjálshyggjan og sú bókstafstrú hins frjálsa markaðar sem hún hefur alið af sér hefur verið afhjúpuð sem lítið meira en græðgi einstaklinga íklædd efnahagslegri hugmyndafræði,“ segir Rudd. Þar hafiði það. Nú er bara að ryksuga hverja krónu af þessu liði og rassskella opinberlega fyrir glæpi sína og græðgi.
---
Hagkaup – ó sjúklega æðislega Hagkaup – hefur í miðri kreppu hafið innflutning á A&W rótarbjór. Lesandi lak þessu í mig og ég var mættur í Skeifuna í gær. Náði mér í kassa. A&W er Coca Cola rótarbjórsins og bara miklu betra en ekki neitt. Það er takmarkað upplag svo rótarbjórsaðdáendur ættu að haska sér strax í næsta Hagkaup.

30.01.09
"Íslendingar hafa tilkynnt hver verður næsti forsætisráðherra; hún er lesbía og flugfreyja…eða var mig að dreyma þetta?" - Conan O'Brien.

29.01.09
Ekkert tuð í dag um "ástandið". Bara smá mótmælatekknó.


The Good Stuff - Við erum þjóðin
Hljómsveitin The Good Stuff tók þátt í byltingunni og reyndi að fanga ryþma og rödd hennar á segulband. Upp úr því vann hljómsveitin þetta lag sem er framlag hennar á dansgólf byltingarinnar.

28.01.09
Djöfull er þetta sikk. Ef ég skil fréttirnar rétt "lánaði" Kaupþing einhverjum vafasömum enskum Tjengis spaða næstum jafn miklar skrilljónir til að kaupa 2000 knæpur og AGS lánar nú íslensku þjóðinni til að við skrimtum. Frysta eigur auðmanna? Endilega, ef það gengur upp lagalega. Hvað með að gera fólk útlægt frá landinu? Senda það í járnum, tja, til dæmis til Brasilíu. Mér dettur strax tveir góðir í hug. Gapastokkar eru líka sjúklega vanmetið tæki. Geta VG komið með tillögu um þá?
---
Auðvitað munu Sjálfsstæðismenn væla úr sér lungun þar til þeir komast aftur að "kjötkötlunum". Tuða um að þetta sé nú alveg ömurlegt hjá vinstra liðinu og væli væl. Að þetta vinstra lið eyði bara og eyði (segja þeir hafandi stækkað ríkið meira en nokkrir aðrir) og að þeir séu aldrei sammála um neitt (halló, Borgarstjórn?). Vælinu verður auðvelt að svara svona: Einmitt. Við komum þó allavega þjóðinni ekki lóðbeint á hausinn eins og þið og ykkar sjúka hugmyndafræði. Við innleiddum ekki siðrof og kollvörpuðum þjóðarfinum, stéttlausu samfélagi og allt það. Hvað segir Hannes Hólmsteinn annars gott í dag? Ennþá að græða og grilla? Skák og mát í 16 ár svo Sjallar geta bara hætt að væla strax og litið í svokallaðan eigin barm. Næst endurnýjað hjá sér plötuskápinn. Keypt plötuna "Gott er að græða, en samt ekki þannig að heilt þjóðfélag fari á hliðina" með Pétri Blöndal og Mammonssystrum.
---
Það er meira hvað allir eru uppteknir af kynhneigð Jóhönnu. Ég reyni að hugsa sem minnst um það. Iceland to name lesbian prime minister. Flugleiðir geta kannski byrjað með Dirty weekend herferðina aftur. Fancy a dirty weekend in the land of the saucy lesbian prime minister. Er þetta ekki alveg að virka?:

Öööö.... Tja..... Eeee...... Jú jú! Þetta er það langskásta eins og er!
---
Það verður að segjast eins og er að lögin 16 í Söngvakeppninni í ár iða ekki beint af frumleika eða gríðarlega góðum lagasmíðum. Hvað þá textasmíðum. Það er svo sem ekki vaninn. Hér má heyra lögin, líka þessi 4 sem koma næst. Mér finnst þetta fimm skástu lögin: Got no love með kvennabandinu Elektra e. Örlyg Smára lekur eflaust inn fyrir skelina eftir sirka 5 hlustanir. Þar er svipað vindvélarviðlag og í This is your life. Veltur á sviðsframkomu bandsins hvort þjóðin kaupir nýtt súperkvennarokkband með Hara systur í frontinum. Lýgin ein e. Albert G. Jónsson sem Kaja konan hans syngur er í FM957-ofurpródúseruðu deildinni og nokkuð fínt. Það þarf þó að henda í þetta sirka hálfri milljón í viðbót, fá fagmann í pródúserið (Þorvald Bjarna eða Óskal Pál) og bingó. Plús að þetta sé á íslensku og ég mæli með að það verði það áfram ef það vinnur. Undir regnboganum e. Hallgrím Óskarsson sem Ingó syngur er ágætt af því melódían minnir á Gilbert O'Sullivan snilldina Alone again naturally og leikið er á ukulele. Svo eru þarna tvö sem eru krúttlega gamaldags og sungin af sætum stelpum, Vornótt eftir ömmuna fá Sauðárkróki og Cobwebs eftri Heimi tannlækni. Bæði hefðu auðveldlega getað verið leikin í Lögunum við vinnuna 1971. Þó gæti þjóðin auðveldlega tekið upp á því að senda Jógvan í keppnina til að þakka fyrir lánið frá Færeyjum. Erum við þá ekki kvitt?

27.01.09
Þetta er nú meira grínið sem manni er boðið upp á í sökkvandi landi. 
- Við vildum að Jóhanna yrði "verkstjóri" og þeir sögðu bara fokk off
- "Verkstjóri"? Hvað er nú það? Þetta heitir Forsætisráðherra. Jóhanna er fín en það var enginn búinn að minnast á þetta fyrr en í gær. Við vildum að Þorgerður Katrín væri aðal en þau sögðu bara fokk off.
(- Já, ég legg til að ný ríkisstjórn fari eftir þessum fjórum atriðum.... ble ble ble.) (þegiðu Óli)
- Þau voru ekki stjórntæk. Og þegar hún fór til útlanda þá fóru mýsnar á LSD í Þjóðleikhúskjallaranum.
- Spegla það. Fokk jú.
- Spegla það sinnum þúsund. Fokk jú sinnum þúsund.

Og svo byrja "ungliðar" að gelta. Merkilegt hvað Ingibjörg og Geir eru allt í einu ósammála og aggressíf hafandi hangið saman á slefunni í alla þessa mánuði. Þetta heitir víst "pólitík". Og ógeðslega er það leiðinleg tík. Það á að taka hana og skjóta í hausinn undir húsvegg. Þjóðin (ég) nennir ekki gamla tuðinu.
---
Annars finnst mér Jóhanna ágæt, eins og hverjum öðrum alþýðulúða ætti að finnast. Hún býr hérna rétt hjá og virðist ein af oss. Virðist í þessum bransa til að hafa jákvæð áhrif á samfélagið, ekki til að moka undir rassgatið á sjálfri sér.
---
En nú: funheitt íslenskt popp:


Eberg - One step at the time
Nú er hátíð í bæ því Eberg er að mæta með nýja plötu, Antidote. Hann átti sem kunnugt er bestu plötu ársins 2006, Voff Voff, og hefur legið lengi með þessa nýju sem hann segir poppaðri en allt hitt. (í Fbl) Ef þú telur þig þekkja þetta lag þá erða bara bassaintróið sem var í DV auglýsingu. Hérna má hlusta á tvö B-hliðar lög til viðbótar, Kringluauglýsingu á japönsku og Valla í Jan Mayen að syngja Kinks. Helvíti gott.

26.01.09
Eins og HHG lýsir í tenglinum hér að neðan voru auðlyndir Íslands ryksugaðar innan frá og öllum verðmætum komið fyrir á reikningum í skattaskjólum. Eins og Ari Matt lýsti í Silfri í gær voru haldnir fínir fundir á Hótel Holt þar sem kvótaeigendur fengu ráðleggingar hjá bankagosum hvernig ætti að koma þýfinu undan. Fiskurinn í sjónum var veðsettur upp í topp og miklu meira til. Eftir stendur velryksugað land, tandurhrein gjaldþrota skel. Næsta skref er að endurheimta þýfið, ef hægt er. Ömurlegt að það skuli ekki hafa verið gert strax og eignir þjófanna kyrrsettar. Þeir sem seldu ryksugurnar (komu á kerfinu sem gerði ryksugun mögulega) finna nú til tevatnsins, en sjálfir þjófarnir sleppa og rífa bara kjaft ef á þá er blásið (nema Bjarni sem þykist ægilega sorrí). Ekki gleyma þessu. Réttlætinu verður ekki fullnægt fyrr en hver einasta króna verður hirt af þjófunum og þeim stungið inn. Það kemur.
---
Í dag verður falleg sjón að sjá Davíð Oddsson yfirgefa Seðlabankann í síðasta skipti. Hann rífur örugglega kjaft af ekki minni krafti en kerlingin hans Ceausescu og reynir að dáleiða alla í kringum sig með frekjutaktíkinni. Enn skemmtilegra verður að sjá hann birtast í Kastljósi að ausa úr svörtu bókinni. Dörtí síkrets galor. Svo fer hann í framboð og endar eins og hver annar Albert Guðmundsson. Gott stöff. Jón Baldvin kemur kannski líka. Voðalega halda þessir gömlu skröggar að það sé eftirspurn eftir þeim.
---
Afhverju dregur fárveikt fólk sig ekki í hlé? Þú ert ekki ómissandi Ingibjörg.
---
Fór aðeins á mótmælafund á laugard. Einhver Magnús var að öskra. Mér leiðist fólk sem öskrar. Þessi mótmælagigg eru eins og rokktónleikar hjá Kid Rock, allt á svo plebbalegu plani. Alltaf gefnar endalausar pásur í ræðunum til að áhorfendur geti öskrað. Halló Wisconsins! Yeiiiiiii! Eru ekki allir í stööööðððððiiii!!!! Júúúú! Helvítis úrásarvíkingar, það þarf að skera undan þessu pakki!!!! Jáááá!!!!!! Kannski er þetta eina sem virkar. Fólki er kalt og svona, en heitt í hamsi. Kannski er besta leiðin til að koma skilaboðum til fjölda að öskra og vera reiður. Virkaði allavega helvíti vel hjá Adolfi. Nei nei, ekkert allir sem öskra. Margir taka annan vinkil á þetta.
---
Mér lýst vel á öldungaráðspælingar Friðriks Erlingssonar. Væri snilld ef Vigdís kæmi sterk inn aftur. Þjóðinni vantar sameiningartákn. Vigdís er miklu skárri en ekkert. Óli gæti þá bara dregið sig í hlé og flutt til London. Ekki skil ég af hverju hann er ekki löngu búinn að reka sjálfan sig. Er einhver eftir á landinu sem er álítur hann forseta sinn?

24.01.09
Það er af sem áður var. Einu sinni var leikskóli Dagbjarts á heljarþröm starfsmannalega séð og oft þurfti að loka og senda krakka heim því það vildi enginn vinna þarna. Um daginn var auglýst eitt starf og fimmtán sóttu um! Fimmtán hæfir kennarar. Þetta er svona 4 mánuðum eftir að síðast þurfti að senda krakka heim. Nú eru karlkyns kennarar orðnir sex (var alltaf bara einn) og sjálf TV-stjarnan Pacas fer á kostum í eldhúsinu og dælir út exótískum réttum. Segið svo að kreppan sé ekki góð til einhvers.
---
Þessi mónólógur HHG um "íslenska efnahagsundrið" er stórfenglega rangur í ljósi sögunnar. Hljómar eins og raus geðsjúklings miðað við ástandið í dag. Nú er verið að leita að sökudólgum. Ég fæ ekki betur séð en að þetta sé játning sakamanns. Vitlaus hugmyndafræði komin með hraði á ruslahaug sögunnar (eins og það hefur verið orðað).
---

Patrik Fitzgerald - Safety pin stuck in my heart *
Patrik Fitzgerald - Irrelevant battles **
Patrik Fitzgerald - Improve myself ***
Patrik Fitzgerald - Don't  tell me because i'm young +
Patrik Fitzgerald - Tonight ++
Patrik Fitzgerald - Grey Echoes +++
Ég hef verið með smá æði fyrir enska pönktrúbadornum Patrik Fitzgerald upp á síðkastið. Það helgast af því ég átti nokkrar plötur með honum sem ég lét frá mér og heyrði lögin af þeim aftur nýlega eftir langan tíma. Ég var líka að flækjast í Soho í London fyrir tveimur árum og rakst þá á holu þar sem hann var að spila. Ég klikkaði á að fara inn og er að naga á mér handarbökin ennþá útaf því. Hann er misgóður. Ekkert æðislegur einn með kassagítar en svo smellur allt þegar lítið pönkkombó er að spila með honum. Hann gerði þrjár 7" eps hjá Small Wonder indieleibelnum, áður en hann fór yfir á stórmerkið Polydor. Það þýddi m.a. upphitunartúr með The Jam. Eftir Polydor flæktist hann á ýmis merki og er enn að þótt afköstin séu ekki jafn mikil og fyrstu 4 árin. Hann virðist búa á Nýja sjálandi samkvæmt myspace. 

* Titillag af fyrsta 7" Epinu útgefnu af Small Wonder, 1978.
** Af síðasta Small Wonder-epinu, The Paranoid Ward, 1978.
*** Titillag 7" frá Polydor 1979
+ Af fyrsta lpinu Grubby Stories Polydor 1979. Létt pönk og stuð.
++ Titillagið af 12" epi frá 1980. Þunglyndið byrjað að grassera.
+++ Súper þunglyndi af súper þundlynda LPinu Gifts and Telegrams 1982..

Patriks-síða
Patrik á wiki
Patrik á myspace
Patrik á punk 77

22.01.09
OK, það verða kosningar. Geiri greyið og Imba geta bara farið tvö ein í sinn björgunarleiðangur einhvers staðar saman – Cayman kannski? Þá þarf bara einhver æðislegur stjórnmálaleiðtogi að rísa upp svo maður geti flaðrað upp um hann í fögnuði, svona a la Obama. Dagur? Tja... kannski skárra en ekkert?! Æ, ég veit það ekki. Sjáum hvaða snillingar stíga fram.
---
Annars fílar maður sig eins og einhvern skver gaur. Bara með krökkunum sínum í Bónus á meðan byltingin var gerð. Jæja, það þarf einhver að láta Vanhæf ríkisstjórn! óma í Vesturbænum líka. Þó það sé ekki nema í hljóði. Ég er ekki búinn að fá táragas á mig og ekki einu sinni piparúða. Ég hefði samt ekki hent hellum í lögguna. Er það nú ekki einum of? Nema löggan hafi kannski verið búin að tuddast eitthvað óeðlilega áður? Táragas og rugl. En samt, gera eins og Jesús, hinn vangann. Brjálaðir menn henda hellum. Brjálaðir menn eru ekki til neins gagns. Þeirra bíður ekkert nema að vera róaðir niður.
--- 
Og er þá ekki kominn tími á jákvæða uppbyggingu fyrst brennuvargar eru á útleið? Búa til andrúmsloft sem sýnir manni fram á að hér sé verandi áfram? Nýja Ísland etc. Ég er til ef vorið kallar á mig. 
---
TF-HFF hér. Flugslys, ekki skipsstrand.

20.01.09
Það er ekki verið að fara fram á mikið. Bara tækifærið til að losna við vanhæfa Ríkisstjórn. Það er suddaleg geðveiki að það hafi ekki verið boðað til kosninga fyrir löngu. Væri nú munur ef það væri jafn bjart yfir hér og í USA. Þar sem viðbjóðs-Bush er farinn og fólk eygir von með nýjum manni. Maður er ekki að fara fram á meira. Bara að eygja von. Það er engin von með þetta lið í sömu stólum. Engin von sem niðurlægð þjóð hefur áhuga á að fylkja sér um. Auðvitað verða kosningar. Sirka í apríl. Þá tekur við næsta mál: Að finna vonina til að eygja. Það er ekki VG með gamalt rúgbrauð í hillunum. Ekki Samfylking með duglausar hækjur. Ekki Framsókn með nýja frontinn. Ekki Frjálslyndir, auðvitað ekki glæpalýðurinn í Sjálfsstæðisflokkinum. Hvað er það þá? Ómar Ragnarsson? NÆS!? Eitthvað þannig já, nema Samfylking eða VG taki svo rækilega til í frontinum að maður hafa lyst á því.
---
Ameríkanar eru 1000 á móti einum okkar. Þeir fundu Obama. Hæpið að hér rísi upp álíka afburðarmaður sem maður getur hlaupið slefandi upp um í hrifningu. Maður leyfir sér samt að vona. Jon Favreau er 27 ára og skrifaði innsetningarræðu Obama. Amx segir: Hann lagði til hin fleygu orð baráttu Obama: „Yes We Can“ og hann skrifaði sigurræðu Obama eftir að hann var kosinn forseti. Alveg er ég viss um að Jon hafi stolið þessu frá Bubba byggir: Can we fix it? Yes we can! Það er sama hvaðan gott kemur...
---
Þar sem mikilmennin á bakvið Andríki bjóða ekki upp á komment segi ég það bara hér: "Æi, haldið kjafti þarna illa innrættu lúserar". 
---
Ég er að lesa svo nákvæma bók um Bítlana (The Beatles e. Bob Spitz) að verð buxna sem einhver í Quarry Men keypti fyrir gigg er með. Buxurnar kostuðu 37 sjillinga. Það versta við svona bækur er að þær byrja alltaf á heljar sagnfræði um Liverpool. Maður nennir því nú kannski ekkert.
---
Rokkskóli #1 - Hvað er kúl?
Eftir því sem hljóðfæri dingla neðar á hljómsveitarmanni því meira kúl er hann. Hljóðfæraleikari með bassa dinglandi fyrir neðan klof er kúl á meðan hljóðfæraleikari með bassa upp í hálsi er ekki kúl. Próf: Hvor þessara er meira kúl?

Level 42?


Sid Vicious?

18.01.09
Sigmundur, flúnkunýr formaður Framsóknar, er eflaust ágætur. Hann er allavega ferskur þótt hann verði eflaust farinn að tala eins og stjórnmálamaður eftir viku. Voða fínt að gefa "flokkseigendafélaginu" á baukinn. Næst er að þjóðnýta eigur Finns Ingólfssonar og Ólafs í Samskipum. Þar næst að hýða Halldór Ásgrímsson opinberlega fyrir að troða þjóðinni í stríð. Loks að fá einhvern annan í staðinn fyrir pókerBirki sem varaformann (af því hann er útrunnið lambakjöt) og þá fyrst gæti maður kannski kosið þennan flokk. Kannski. Bara kannski.
---
Helv. var hljómsveit Ólafs Gauks framsækin árið 1977. Ætli þetta sé ekki fyrsta og eina opinbera nektarsýningin í Grímsey?

16.01.09
Ég var fulltrúi ljóta og óvinsæla fólksins í þætti Loga Bergmann um 80s-ið í gærkvöldi. Ég hef lítið grínþol fyrir mörgu af þessu stöffi, Final Countdown er til að mynda ógeðslegt lag. Annað hefur elst betur. Ég man eiginlega ekki rassgat eftir þessu, nema sumu. Man ekki til þess að hafa verið með einhver leiðindi í garð Herberts og Rikshaw á þessum tíma, en mér fannst reyndar fjaðrafokið í kringum Gleðibankann gjörsamlega glatað og ég hafði fordóma í garð hljómsveitarinnar Módel, sem er erkieitísbandið. Greifarnir og Stuðkompaníið þóttu ekki merkilegt dót heldur. Áratugir hafa allir eitthvað. Fólki finnst gaman að rifja þetta upp, sérstaklega fólk sem var ungt á þessum tíma. 
---
Þetta voru miklir fagnaðarfundir hjá liðinu bakvið. Hebbi gekk um með kassagítar og strömmaði. Fegurðardrottningarnar Anna og Dóra Einars voru ægilega hressar, eins og þær væru að "komast í gírinn". Scobie kúl og Jón Gústafsson dáldið inn í sig. Viddi í Greifunum sagði mér að þeir hefðu verið mér sérstaka menneskju með sér til að mála sig og blása hárið fyrir böll. Ég hef aldrei málað mig og var farinn að missa hárið á þessum árum. Ég var meira að segja með leiðindi í garð Siggu Beinteins þegar ég var með henni í hljómsveit. Hún vildi náttúrlega dressa sig upp í kuldarokkshlébarðaeitthvað og blása hárið og mála sig fyrir einhver lúðagigg í félagsmiðstöðvum og ég var baksviðs með þunglyndislegar athugasemdir enda vildi ég að hún væri í fötum frá Vinnufatabúðinni eins og aðrir í bandinu. Glataður gaur!
---
Fyrir nokkrum mánuðum var ríkissjóður hallalaus og Geir Haarde ægilega stoltur. Nú skuldar íslenska ríkið:

2.225.600.000.000 isk (hugsanlega vitlaust því ég skil ekki svona mörg núll)

eða sirka 6.700.000 isk á hverja helvítis hræðu.

Mín spurning er: Afhverju er enginn af þessum ægilega merkilega körlum sem fengu 60.000.000 kall í mánaðarlaun fyrir nokkrum misserum af því að starfið þeirra var svo geðveikislega mikilvægt og ábyrgð þeirra svo mikil gangandi um bæinn núna sníkjandi peninga í rifnum fötum? Afhverju er ekki búið að hirða af þessu liði íbúðirnar, þoturnar, dressin, málverkin og hverja einustu krónu út af reikningunum, leynilegum jafnt sem ekki leynilegum? Helvíti þægilegt að slá um sig á ofurkaupi í skjóli einhverjar ægilegrar ábyrgðar og mikilfengleika en láta svo almenning skeina sig þegar allt siglir í strand, fara að grenja og kenna um utanaðkomandi aðstæðum. 

Afhverju var þessum bönkum ekki bara leyft að fara á hausinn með manni og mús? Voru þetta ekki sjálfsstæðar stofnanir? Einkafyrirtæki? Ríkið hefði getað borgað innistæður Íslendinganna sem áttu inn á reikningum. Það hefði örugglega verið mun ódýrara en að sitja uppi með allt klabbið. Afhverju þarf ég að sitja í annarra manna súpu? Bíddu eftir því... Helvítis fokking fokk! 

15.01.09
Krissrokk veltir því fyrir sér hvort Elín og Sigurjón séu sama manneskjan. Þau eru óneitanlega alveg eins:

Ekki verri samsæriskenning en allar hinar.
---

Jonathan Richman & The Modern Lovers - Afternoon 
Jónathan Richman snýr aftur! Þetta eru vitaskuld frábær tíðindi og fáir betri en Jónathan til að spila drungann og kreppuvælið úr okkur. Hann veit að tölurnar í tölvunni skipta minnstu máli, er alltaf svo helvíti hress og skemmtilegur. Ég man alltaf eftir einu útvarpsviðtali sem átti sér stað á Rúv sirka 1981 í óskalagaþætti. Einhver stelpa bað um óskalag með Jónathani af því hún hafði séð hann á tónleikum í London og eiginlega frelsast til trúar á lífið í kjölfarið. Hætti í dópi og hætti að hlusta á neikvæðu pönkarana við það eitt að láta sig dingla með í upplífgandi lífsgleði Jónathans. Þú hefur þetta í hendi þér. Eða heila öllu heldur. Ekki láta efnahræringinn í gráa grautnum fara yfir um. Hlustaðu bara á Jónathan og hættu að væla! Til dæmis á plötuna Rock 'n' roll with the modern lovers.


Animal Collective - Summertime Clothes
Nýja platan með þessum amerísku sýruþjóðlagatilraunakörlum heitir Merriweather Post Pavilion og menn eru gapandi yfir snilldinni. Ég hef aldrei kolfallið fyrir þessu bandi en maður óneitanlega leitar að snilldinni við að lesa allt slefið. Einhvers staðar sá ég að sumt minni á fyrstu plötu Pink Floyd, þegar Syd lék lausum hala í mildri sýruvímu (ekki orðinn geðveikur ennþá) og svona við fyrstu yfirreið er þetta lag einna helst að hringja bjöllum.


Women - Shaking hands
Platan Women með hljómsveitinni Women er nokkuð fín. Þetta er kanadískt gítarspúandi sýruindie, ágætis lög og fílingur. Frá Calgary!

14.01.09
Það eru takmörk fyrir því hvað maður getur horft á myndir af palestínskum barnalíkum. Það er alltaf verið að senda manni svona til að minna á hvað ástandið er ömurlegt. Djísús kræst, ég veit það er ömurlegt! Ég veit það! Ég veit það ekkert betur þótt ég sjá öll líkin. Ég er með lítið þol fyrir ógeðismyndum. Þessar teikningar af íslenskum milljarðamæringum með iðrin úti eru til dæmis næstum því alveg nóg fyrir mig. Gullfallegar myndir engu að síður. 
---

Hjörvar - News for everyone
Tónlistarmaðurinn Hjörvar Hjörleifsson var í hljómsveitum eins og Guði gleymdir og Los á síðustu öld en kom með sólóplötuna Paint Peace árið 2004 undir listamannsnafninu Stranger. Platan vakti athygli og Stranger fékk tilnefningu sem „bjartasta vonin" á íslensku tónlistarverðlaununum. Nú er Hjörvar mættur með nýja sólóplötu, A copy of me, en hefur lagt Stranger-nafninu.
„Þegar ég tók upp nafnið Stranger taldi ég mig vera búinn að þaulkanna á netinu hvort það væri til eitthvert band sem heitir þetta," segir Hjörvar. „Það var ekki fyrr en að platan var komin út sem bróðir minn fann hljómsveitina Stranger á netinu, alveg sjúklega hallærislega þungarokkshljómsveit í sokkabuxum, sem hafði gefið út plötu árið 1988 og var enn að. Þar með var Stranger-nafnið dauðadæmt. Ég var orðinn dauðleiður á þessu nafnarugli svo ég nota bara Hjörvar. Það eru ekki margir að gefa út undir því nafni, en það er nú kannski ekkert voðalega líklegt til vinsælda erlendis."
Það heyrist strax að nýja platan er gríðarlega metnaðarfull og stórt stökk frá hinni fremur mínímalísku Peace Paint. „Fyrri platan var nú bara uppgjör við gamla tíma," segir Hjörvar. „Maður var alltaf á leiðinni að gefa út plötur með þessum hljómsveitum sem maður var í en svo kom aldrei neitt. Á þessari nýju plötu langaði mig virkilega að fara alla leið og gera flotta plötu með flottu sándi."
Leiðin lá í PUK-hljóðverið á Jótlandi þar sem A copy of me var tekin upp. „Beggi vinur minn (Bergsveinn í Sóldögg) var nýbúinn að taka upp sólóplötuna sína þarna og mælti heilshugar með þessu stúdíói. Ég sló því bara til, seldi stúdíóið mitt í Reykjavík og húsnæðið og kýldi á þetta."
Hjörvar fór alla leið. Borgaði undir hljóðfæraleikarana til Jótlands, þá Guðna, Adda og Tobba úr Dr. Spock og Hrafn úr Ensíma. Og að auki undir tvo íslenska upptökumenn. „Þetta var gott spilafyllirí í viku. Ég næ auðvitað aldrei upp í kostnað og er löngu búinn að sætta mig við það. Þetta er ekkert nema heimska en að sama skapi skemmtilegt. Ég stórefast um að ég geri eitthvað þessu líkt aftur."
Tónlist Hjörvars er einhvers konar melódískt nýbylgju-rokk og á myspace-síðunni má sjá að hann segir meðal annars Depeche mode, Gary Numan, Air og Ultravox vera áhrifavalda. „Ég leyfi mér meira á þessari plötu en síðast, meðal annars að vera rólegri og nostra við melódíurnar. Ég sé fyrir mér að þessi tónlist ætti að geta heyrst á öllum útvarpsstöðvum," segir hann.
Útgáfutónleikar Hjörvars verða í Iðnó næsta föstudagskvöld og hljómsveitin Árstíðir hitar upp. Þá verður einnig frumsýnt vísindaskáldsögulegt myndband við lagið „See the Sea". (úr Fbl.)
---
Ungakaka.

13.01.09
Manni liði betur ef það væri annað fólk við stjórnvölin. Ekki brjálæðingar og heimskingar heldur svona dántúörð gaur eins og þessi Robert Wade sem geislar af visku. Ókei, einum of mikið að segja það kannski, en allavega betra en vitleysingastóðið sem haldið er að manni. Það skilur ekki neitt. Við viljum það burtu sem fyrst. Og ef það öskrar: hvað ætliði að fá í staðinn?, er auðvelt að svara: nú, bara hvað sem er. Það versnar varla úr þessu. Afburðafólk til starfa! Ekki fífl takk.
---
Ís og bragðarefsumræður eru fjörugar hér. Þarna eru komnar inn miklar upplýsingar um ís. Ólafur Arnarsson kemur með leiðindi og skrifar: Hverjum er ekki anskotan sama hvað Bragðarefur kostar, komdu nú með eitthvað sem skiptir máli... Tssssj. Hvílíkt væl. Hvað skiptir meira máli en ís? Ekkert!
---
Jón Þór og Gummi færa mér nýjustu fréttirnar úr íslenska hommaheiminum. Stórfréttin Svaf hjá 27 íslenskum karlmönnum á þremur vikum er tilkomin vegna síðustu heimsóknar þeirra. Það fylgir ekki fréttinni að slóðin á gúmmilaðisbloggið er þessi.
---
Þeir bentu mér líka á guðdómlega góðærisbók sem Baugur lét gera um veldi sitt. Þetta er ægilega artí doðrantur sem gaukað var að viðskiptavinum til að sýna þeim fram á hvað Baugur væri æðislegur og Ísland æðislegt og lífið fullt af tækifærum og þú veist, allt í blóma. Bókin heitir Baugur the movie, hvorki meira né minna, og má sjá brot af hér.

11.01.09
Ég hlustaði aðeins á mann á mótmælafundi. Lagði kjötskrokk minn í þvöguna. Það er nauðsynlegt að það sé allt fullt af fólki í þessu, helst 20.000 manns. Þá væri kjötfjallið harðara og þá yrði hlustað á það. Kannski, meina ég. Þið eruð ekki þjóðin. Þjóðin er í Kringlunni að láta hjól atvinnulífsins snúast. Ég var annars mættur í miðbæ Rvk til að gefa mér tími til að kafa í plötustaflana sem Ingvi í Lucky Records er með í Kolaportinu. Ég hékk yfir kössunum og fór skipulega í verkið. Ekki amaleg niðurstaða, rúmlega 20 plötur dregnar í hús, bókstaflega, því ég var labbandi og þurfti að drösla þessu heim í næfurþunnum plastpokum. Vegna upplistunaráráttu fylgir innkaupalistinn hér: 

Godley & Creme - Ismism
Radiators - Ghostown
Gilbert O'Sullivan - I am a writer, not a fighter
XTC - Go 2
The Rumour - Frogs sprouts clogs and krauts
Les Rita Mitsouko - The nocomprendo
Cat Stevens - Mona Bone Jakon
Cat Stevens - Tea for the Tillerman 
Cat Stevens - Teaser and the Firecat
Cat Stevens - Foreigner
Cat Stevens - Buddha and the Chocolate Box
Cat Stevens - Izitso
Stranglers - Aural Sculpture
Bee Gees - Spirits Having Flown
Paul McCartney - Tug of War
Undertones - Positive Touch
Elvis Costello - Get Happy!! 
Elvis Costello - Almost Blue
Billy Joel - Streetlife Serenade
Billy Joel - The stranger
Electric Light Orchestra - Eldorado
Electric Light Orchestra - Face the music


Godley & Creme - Under your thumb 
Eina verulega góða lagið á Ismism, sem er full pökkuð af slab-bassa og saxófónleik að öðru leiti. Strákarnir voru náttúrlega í 10cc (gott band!) en annars erða bara wikiíð. Þess má geta í götin á umslaginu eru alvöru göt.
---
Ég varð að fá mér mat hjá KFC í kvöldmat enda sá ég dramatíska mynd með Christopher Walken kvöldið áður sem gerist að miklu leiti inn á KFC stöðum. Myndin heitir Around the bend. Í gær sá ég hins vegar Cloverfield og langaði í Mountain Dew eftir á, enda er áhorfandinn að minnsta kosti tvisvar sinnum minntur á þann drykk í myndinni. Fæ mér örugglega Mountain Dew í dag. Hápunktur kvöldsins var ferð í Ísbúð vesturbæjar, Hagamel. Mikil ís-umræða hefur nefnilega átt sér stað á neytendasíðu minni á bloggvísir (hér). Meðal annars er þar þetta innlegg í kommentahala: 

Jakob skrifar: Besta bragðaref landsins er að mínu mati að finna í Ísbúðinni við Hagamel. Þessi tiltekni bragðarefur er sannarlega til hátíðarbrigða og hefur uppskriftin hlotið nafnið BRYND - ÍS og stenst fyllilega samanburð við bæði BRYNJU ÍS og HAAGEN DAZ. Formúlan er svona: “Gamli ísinn”, bláber, jarðarber og Toblerone hrærð vel saman. Ummh…og hverrar krónu virði.

Þetta innlegg hafði svo mikil bragðlaukaáhrif á mig að það kom ekkert annað til greina en að toppa kvöldið með litlum Brynd-ís, enda hafði ég svitnað í 3 klukkutíma um morguninn og átti það skilið. Í búðinni var svo Jakob sjálfur, sem skrifaði innleggið, og reyndist sá Jakob vera JFM. Við áttum ís-tengdar umræður í röðinni og í ljós kom að hann er mikill ís-fíkill eftir að hafa lifað eingöngu á ís í 2 vikur vegna kirtlatöku í æsku. Einnig kom fram að frændi Valgeirs Guðjónssonar átti og rak Dairy Queen ísbúðina á Hjarðarhaga og að þeir frum-Stuðmenn báðir unnu þar á unglingsaldri. Þegar Jakob var í LA kynntist hann töfrum Haagen Daz og hann og Sigurjón Sighvatsson gerðu sér oft ferð þvert yfir borgina til að fá sér Haagen Daz í eina útibúinu í borginni. Jakob hvarf loks á braut með sinn risaskammt af Brynd-ís en ísstelpan misheyrði þegar ég bað um lítinn Brynd-ís og gerði líter. Brynd-ísinn var ágætur en bláberin voru frosin og ég fann ekki fyrir neinum jarðaberjum. Án efa væri þetta enn guðdómlegra með ferskum berjum en þá þyrfti ísinn líklega að kosta 2000 kall líterinn, en ekki 1200.
---
Tónlistarhúsið er opið sár og merki um geðveiki "góðærisins". Tók ekki áratugi að koma Hallgrímsturni upp? Bubbi getur kannski haldið Þorláksmessugiggið á nýja staðnum svona 2020 þegar hann heldur upp á 40 ár í bransanum? Glerkúpull Ólafs Elíassonar utan um húsið átti að kosta litlar 2000 millur. Svo mikið verkfræðilegt undur að það var varla hægt að smíða hann. Mér er samt að það sé þegar búið að einfalda þetta "listaverk" svo mikið að tónlistarhúsið muni aldrei líta eins út og upphaflega var gert ráð fyrir. Síðan er allt í klessu út af því að það er ekki hægt að fá 100 kínverska verkamenn til landsins (undir því yfirskini að þeir væru sérfræðingar), en þeir áttu að setja draslið upp. Verkalýðsfélögin sætta sig aldrei við 100 kínverska verkamenn þegar allt er vaðandi í atvinnuleysi á Íslandi.

08.01.09
Það besta við viðtal Simma á Xinu við Bjaddna Ármanns var að maður skildi það. Maður skildi hvað var verið að segja, þetta var á einföldu máli. Ekkert verg og afleiða ávöxtunar í ömmu þinni. Simmi getur verið stoltur af því. Bjaddi greyið er rosa sorrí náttúrlega. Í honum takast á tvö gildi, ömurlegi græðgisviðbjóðurinn, kenndur við Sjálfsstæðismenn og Frjálshyggju, og samfélagsleg ábyrgð og kommonsens frá konunni hans og tengdó. Fólk fattaði ekki það augljósa - að viðbjóðurinn er rugl - fyrr en þjóðin var komin vælandi á botninn. Ekki fyrr en þá litu smjörgreiddir jakkafatakarlar grátandi upp úr excel-skjölunum og sögðu skjálfandi á beinunum: Æi, sjitt. Við höfðum rangt fyrir okkur. Græðgi er ekkert góð eftir allt saman. Plís, leifiði okkur að vera með á nýja Íslandi. Græðgi er góð, en sko, bara í hófi og það er engum meira treystandi til þess en Sjálfsstæðisflokknum að ákvarða hvar það hóf liggur. 

Svona verður unnið úr þessu.

Slagorði liðinna ára: Græðgi er góð, græðgi er drifkrafturinn - verður nú skipt úr fyrir Græðgi er góð, en bara í hófi, okkar hófi.

Og liðið mun kaupa þetta. Það er hneyksli að Sjálfsstæðisflokkurinn skuli enn mælast í skoðanakönnunum og það með 20% eða hvað það er. Það fylgi mun rísa af því fólk er bara fólk, Íslendingar eru bara Íslendingar. 

Hvað gerðist? Viðbjóðsleg samráð komst upp á Olíufélögin. Borgarstjórinn var rekinn, en allir topparnir sluppu og fólk hélt áfram að versla við þjófana eins og ekkert hefði í skorist. Eina fyrirtækið sem ekki var með í plottinu, Atlantsolía, fékk ekkert meira að gera. 

VG, hversu þurrkuntulegur sá flokkur kann að virðast, er Atlantsolía stjórnmálaflokkanna. Hitt draslið er Shell, Esso og Olís - uppvísir að rugli. Í sanngjörnum heimi yrði Steingrímur Joð forsætisráðherra. Ég meina, hvernig er hægt að klúðra þessu meira en liðið núna hefur gert? Steingrímur myndi þá allavega fá að "ríða úr sér" stjórnarandstöðu-meyjarhaftið. 

En vittu til. Sama draslið heldur áfram að stjórna eftir kosningar. Afhverju ættu Íslendingar allt í einu að fatta plottið og stoppa það af? Enn sem komið er eru Bjaddni Harðar og Guðni Ágústsson í hlutverki Þórólfar Árnasonar og ekkert útlit fyrir að fleiri taki að sér það hlutverk.

Framsóknarflokkurinn getur gleymt því fyrr en Finnur Ingólfsson, Ólafur og hvað þessir spillingarhrókar allir heita skila hverri einustu krónu með skömm. En auðvitað verður ekkert svoleiðis. Nei nei, uss...
---
Það hefði óneitanlega verið meira grand hjá Ásmundi að koma með þessa grein um peninga og listalífið fyrir hrun, en hún er fín engu að síður. Miklar umræður hafa spunnist um greinina, en ég á eftir að lesa það. Hins vegar er þarna ekki minnst á Kraum, styrktarlínu Ólafs í Samskip til íslenskrar ung-tónlistar. Hingað til hefur hugsnunin verið hjá listafólki, vei, gott að fá peninga, og okkur er alveg sama hvaðan þeir koma... og blóðmjólkurpeningar Ólafs úr íslensku samfélagi hafa ekki virðst verri en hvað annað. Ef fólk hefur list á að spila tónlist undir þessum formerkjum þá er mér svo sem drullusama. Best samt að vera alveg laus við "góða kapítalista" sem vilja rétta listaaumingjum hjálparhönd. Sjálfala listamaður er betri en ræfill á díl frá milla.
---
En að öðru: Vonlausasta dýrategundin er á bakinu.

07.01.09
Ég fordæmi viðurstyggilegan stríðsrekstur Ísraelsmanna gegn palestínskum almenningi. Ég fordæmi heiftina og ruglið. Þið eruð sama dýrategundin helvítis aumingjarnir ykkar. Ég mun aldrei aftur horfa á væmnar myndir sem gerast í útrýmingarbúðum í seinni heimsstyrjöldinni. Sko, Þorgerður Katrín, svona er lítið mál að fordæma. Hugsanlega gerist eitthvað ef vestrænar sjónvarpsstöðvar halda áfram að sýna okkur nógu mikið af látnum blóðugum börnum, ef til vill sundurtættum líka. Kannski ekki. Manni verður bara illt. Og ef manni verður illt reynir maður að hugsa um eitthvað annað. Hvað annað en mússikk...


Eyeless in Gaza - Fixation
Eina bandið með Gaza í titlinum á vel við. Helsúrraðir trommuheila-Bretar sem komu til Íslands og léku listarokk fyrir Fan Houtens Kókó og fleiri. Spiluðu meira að segja á Ísafirði og gerðu Sigurjón Kjartansson að forföllnum aðdáanda. Eldist ágætlega. 


Destroy all monsters - Bored
Látinn er gítarlekarinn Ron Asheton sem þekktur er fyrir sín þrumuskot með The Stooges. Eftir Igga fór hann í þetta prótópönkband sem átti þennan hliðræna smell. 


The Banned - Little girl
Syndicate of sound - Hey Little girl
Stundum vill maður bara hafa rokkið einfalt og gott. Ég kemst alltaf í gott stuð þegar ég heyri enska B-deildar pönkbandið The Banned spila Little girl, upprunalega með sixtíspönkbandinu Syndicate of Sound. Í hverju felst galdurinn? Hvaða máli skiptir það?

06.01.09
Fyrst var landið undirlagt í röfli um peninga. Hvað allir væru að græða rosalega mikið. Trilljón skrilljón á fyrsta ársfjórðungi. Verg þjóðarframleiðslu amma mín er pulsa. Dow Jones. Grægði er góð. Halelúja. Eftir hrunið er enn verið að röfla um peninga, bara á hinum endanum, og eiginlega er peningaröflið enn meira yfirþyrmandi en áður. Við skuldum trilljón skrilljón eða sjö ömmur með dýfu á mann í þrjár kynslóðir, ó ó ó æ æ æ. Dow Jones. Grægði er góð, en samt bara í hófi. Halelúja. Ég segi: Troðið þessum peningum í mínus eða plús upp í rassgatið á ykkur. Persónugeriði vandann. Hengið einhvern upp á eistunum. Leifiði lýðnum að brenna kapla "lýðræðisins". Leifði lýðnum að kjósa sama draslið yfir sig aftur sem fyrst á sama hátt og lýðurinn mætti skítglottandi á bensínstöðvarnar daginn eftir að upp komst um svínslegt samráðið. Étiði skít og látiði mig vera. (Ætli sé nokkur von til þess. Ég verð þá bara að hætta að "fylgjast með".) Rokk er betra en röfl um peninga. Ekki lesa eitthvað um peninga. Lesið eitthvað uppbyggilegt, mannbætandi og hamingjuinnspítandi. Eins og rokkkjaftæði:

Sjá! 1981. Plötusnúðurinn í Hollywood spilar ekkert nema Stars on 45 og Vigdís er nýorðin forseti. Og já, The Fall eru í borginni. Lesið allt um það í óborganlegri Melody Maker grein. 

Sjá! 1990. Hljómsveitin Bless á túr. Við erum í kommúnistaborginni Madison í Wisconsin.  Þetta er úr gömlum dagskrárliðá heimasíðu Matador útgáfunnar, "Reviews of Bands That Have Stayed At Your House":
Joe Gaer: This incident revolves around an Icelandic band from the early '90s. You can erase the image of cute little north-of-the-line nymphs cavorting around. This was five guys in a group called BLESS, led by a 6'3", 275-pound chap named Gunni whose thinning hair look made him look about 35 but who was actually ten years younger.
After they were done sound-checking we went to a Chinese restaurant, a delicacy they were not well versed in. Actually, they were not experienced in spicy food, something about how the Vikings didn't get a chance to pillage the "Spice Islands." They all ordered food that was too spicy and proceeded to guzzle any liquid in reach.
After a set in which they played Pixie-esque tunes at about five times the volume (obviously their ancestors did plunder the Marshall Islands), the indie trio came home to talk about the volcanic rock they live on and ate toast. The two youngest ones were off to try a homemade American delicacy of LSD. This was their first trip and so they had my roommate escorting them, the now-straight music editor of Time Out New York, Nathan Brackett, who had half a hit himself to keep up. Within about half an hour the two bandmates lost their ability to speak English and were babbling in old Norse. Around 4 a.m. the trio repaired to a fine 24-hour bistro known by the monsieur, Mobil gas station. Nathan, who was well-versed in Church Slavonic and High German, could not seem to communicate with them beyond hand signals. The two lads desired frozen burritos but had no idea how to run the microwave. Nathan showed his advanced knowledge of modern electronics and all was well. 
Ég man nú ekki eftir þessum kínverska mat sem við átum, sú minning er algjörlega strokuð út. Hins vegar man ég smá eftir morgninum þegar við hinir ósýrðu vöknuðum og þurftum að koma restinni af bandinu út í hinn forláta Ford Econoline Dodge Ram sendibíl sem keyptur hafði verið í upphafi ferðar á 2000$. Joe Gaer, sem hefur um mig fagrar lýsingar í upphafi greinar sinnar, man ég heldur ekkert eftir. Minnir að þetta hafi verið svona skeggjuð háskólatítla með gleraugu.

05.01.09
Nú er ætlunin að setja trukk í plötugerðina og klára loksins hina 18 laga sólóplötu, sem ég er enn að veltast með nafnið á. Það er ekkert rosa mikið eftir. Æpti mig hásann í heimastúdíói á Skaganum í gær. Í kvöldmat varða Ruby Tuesday sem virðast ekki alveg hafa sleppt sér í hrinu verðhækkana. Eru mun ódýrari en TGIS sem dæmi.
---
Í fyrragær bar það helst til tíðinda að ég fór á myndina Bolt. Þetta er teiknimynd í þrívídd. Á undan var sýnt úr þremur teiknimyndum, öllum í þrívídd líka. Skil ekki hvaða þrívíddaræði þetta er í Hollívúdd. Bolt er eins og allar þessar myndir. Ródmúví og nú færir verksmiðjan okkur þann boðskap í endann að það sé mun betra að vera nóbóddí heldur en stjarna. Að venjulegt líf sé betra en gerfiheimurinin. Það sem vakti mesta athygli í mínum huga er að illi umboðsmaðurinn var alveg eins og Lárus Welding. Þið takið kannski eftir þessu ef þið farið með krakkana á Bolt.

03.01.09

Nafni minn með Helvítis fokking fokk! skiltið færði mér Haarde vodka. Það fer vel í sprullhillu. Einhver athafnamaður ætti að koma Helvítis fokking fokk! á bol. Ég fengi mér eintak.
---
Ég sofnaði þegar svona 30 mínútur voru eftir af Nacho Libre. Þetta var follóöpp Jared Hess eftir hina frábæru Napoleon Dynamite, en þar sem hún fékk lélega dóma og ég á erfitt með að þola Jack Black hafði ég nennt að tékka á henni fyrr. Svo var Stöð2 meðana í gær. Engin snilld, en flott og alveg fyndin smá, eins og þegar litlu karlarnir með tröllaandlitin berjast við Nacho og félaga hans. Jack var alveg í lagi. Ég á fastlega von á að Nacho hafi staðið uppi sigurvegari með nunnuna í blálokin en því miður, ég lognaðist út af og rumskaði ekki fyrr en stafirnir runnu upp. Svona er nú líf mitt spennandi á föstudagskvöldum. Jared mun hinsvegar vera á leiðinni með myndina Gentlemen Broncos. Annar leikstjórameistari er Alexander Payne, sem gerði Sideways og About Schmidt, báðar meistaraverk. Hann kemur ekki aftur fyrr en 2010 með Fork in the road. Djöfull eru menn lengi að skila af sér. Þessar upplýsingar fæ ég af IMDB. Todd Solondz er annar góður. Hann mun vera á leiðinni með "Untitled Todd Solondz Project" þar sem sjálfur Pee Wee leikur í. Ég sé líka að Pee-wee's Playhouse: The Movie ku á leiðinni. Það er magnað. Ég þarf absúlútt að finna Big Top Pee-wee og Pee-wee's Big Adventure til að sýna Dagbjarti.
---
Nýi Ólafur, gamli Geir og biskupinn
Forsetinn var ægilega sorrí í ræðunni sinni. Ég nennti reyndar ekki að hlusta á hana alla, hún var svo illa leikin. Náði þó að Ólafur ætlar á túr um landið að boða sitt nýjasta fagnaðarerindi. Eitthvað um að rífa þjóðina upp andlega með frösum um hvað við séum dugleg og sérstök og eigum mikið vatn. Örugglega verður sprota-eitthvað líka.
Til að ná fullum afköstum í afturbatanum legg ég til að forsetinn safni myndarlegu skeggi í kotbóndastíl, sé það mögulegt. Einnig ætti hann að hætta þessum ofurmetnaði í hárgreiðslu og leggja hátíðarfötunum. Úfinn og skeggjaður forseti í rifinni lopapeysu, vinnugalla og gúmmístígvélum ætti hugsanlega séns, sérstaklega ef hann kæmi sjálfur keyrandi á bæina á ævagömlum Willys-jeppa. Svo drægi hann fram kassa, stigi upp á og færi að stappa stáli í hnípna þjóð.
Útpældur alþýðleikinn þarf auðvitað að ná til Bessastaða. Forrík fyrirmenni eiga engan séns á heimboði hjá nýja-Ólafi, bara nýbakaðir atvinnuleysingjar og þeir sem hafa tapað ævisparnaðinum, kannski í einhverju "alveg pottþéttu" eins og "varfærnum" hlutabréfasjóði Landsbankans. Þetta fólk myndi þiggja félagsskap forsetahjónanna og eitthvað gott að maula. Ekkert of fínt náttúrulega, bjór í dós kannski og Þykkva-bæjarsnakk. Þetta eru mínar ábendingar til forsetans. Almenningi mun þykja meira til þessa koma en að launin lækki um 15 prósent, eða hvað það smotterí á að vera.
Biskupinn skammaði almenning fyrir eyðslusemi en minntist auðvitað ekkert á að aðalmál allra kirkjuþinga í gegnum tíðina hafa verið hærri laun til presta og meira fé til kirkjunnar.
Í sinni ræðu sagði forsætisráðherrann eitthvað á þá leið að EF hann hefði gert einhver mistök þá myndi hann biðjast afsökunar. Ekki var nákvæmlega tilgreint hvenær upp kemst hvort um mistök hafi verið að ræða. Einmitt. Hvenær ætlar Geir eiginlega að biðjast afsökunar? Þegar enginn verður eftir til að heyra afsökunarbeiðnina?
(Við tækið, Fbl í dag)

02.01.09
Bláa lónið er í stuði. Nú kostar 3400 KALL að komast ofan í dýrðina. 3400 KALL!!! Á MANN! Eða 20 Evrur. Í maí kostaði 1800 oní. Þá tók við "sumarverð", 2400 kall. Frá 1. okt tók við "vetrargjald", 2800 kall. En nú er sum sé komið enn eitt verðið, 3400 kall frá og með 1. jan. Það mun vera "djöfull erum við viðbjóðslega gráðug"-verð. Þau segja verðin Evrutengd hjá þeim. Segja að það skýri gríðarlega hækkunina. Starfsfólkið hefur örugglega hækkað um 90% í launum á sama tímabili, og fær útborgað í Evrum – er þaggi? Þetta kemur fram á Okursíðunni, varðhundi neytenda (#1781). Þar kemur líka fram að 3ja rétta máltíð á Aski kostar í dag 2990 kall á kjaft. Hmmm... 3ja rétta á Aski eða leðjubað í lóninu innan um fulla útlendinga ... spurning!?

01.01.09
Skaupið var allt í lagi, nei, fínt. Erfitt að klikka á öðru eins geðveikisári og 2008. Jói var góður Geir, Kjartan fínn Ólafur F, skrýtinn Davíð. Kannski fátítt að maður fengi beinlínis hláturskast, sumt var líka fullteygt. Grínhamrar hefðu mátt lenda þyngra á kjötinu. Full mildilega tekið á mörgu þarna. Kryddsíldarmótmælin voru hinsvegar hressandi. Skrýtið með þetta lið sem vælir yfir mótmælum. Lengi höfum við litið öfundaraugum til franskra mótmælenda sturtandi úldnum fiski á tröppur. "Aldrei er neitt svona hér þótt sannarlega sé ástæða til", muldraði bolurinn fullur aðdáunar á frönskum berserkjum, en svo þegar vitavonlausum gungum og ræflum á alþingi lands sem er farið biggtæm á hausinn er loksins mótmælt af almennilegum krafti þá er það allt í einu alltof langt gengið, og ekkert nema "saving Ísland krakkafífl" og væli væl. Það er löngu sannað að það þarf almennilegt fútt í þetta, þá er hugsanlega séns að ræflarnir taki pínulítið mark á einhverju, en komist ekki upp með moðreyk og "þið eruð ekki þjóðin"-píp eins og Ingibjörg ömurlega. Það er nú kannski óþarfi samt að fara að slasa fólk og hvað þá eðal fólk eins og Eyþór tæknimann, sem stendur í ströngu á myndbandi. En eitthvað þarf af gera. Það er bara glott framan í kerlingar að prjóna. Það þarf að öskra á hyskið. Og þegar öskrin og taktfast bankið var sem sándtrakk við innihaldslausan og margendurtekinn kjaftavaðal kjörinni fulltrúa fylltist ég eldmóði og langaði niðreftir að lemja með. Auðvitað var enginn tími í slíkt enda var ég að fá kökuform lánað út í bæ, kaupa flugelda með syni mínum, og snattast eitthvað, eins og maður gerir á Gamlársdag. Því er fínt að hafa barnlausa mótmælendur til að sjá um þetta fyrir vísitölufólk eins og mig. Sigmundur hefði þó alveg mátt fá að klára að kreista úldinn gröftinn úr þessum síldartittum. Það hefði kannski einhver orðið fullur og skandaliserað. 
---
Mér skilst að Höfuðborgarbúar hafi eytt 500 millum í flugelda samanborið við 1200 millur þarsíðustu áramót. Þetta var stanslaus flugeldasturlun í klukkutíma, frá 11 til 12, skulum við segja. Ef Íslenska góðærið hefði verið flugeldasturlun hefði Icesave 500 milljarða skuldin getað verið svona manískt áramótasjó samfleytt í rúmlega 40 sólarhringa og það sem Jón Ásgeir skuldar gæti verið áttatíu sólarhringaflugeldamanía – það væri samfleytt geðveikissjó í næstum þrjá mánuði, á nóttunni og allt. Það væri álíka gáfulegt og hefði skilið jafn mikið eftir sig fyrir þjóðina. Reykjarkóf sem fýkur burt.
---
Það er alltaf verið að röfla um það að enginn nema útlendingar geti rannsakað "hvað fór úrskeiðis" af því allir Íslendingar séu svo tengdir og blabla. Þetta er rugl. Ég þekki til dæmis engann sem hefur nokkru sinni haft meira en milljón á mánuði í laun, þekki engann í háum stöðum í bönkunum, þekki ekkert af þessu fjármálaeftirliti, seðlabankaliði og stjórnmálapakki. Ég gæti því farið algjörlega hlutlaust og leitandi ofan í alla sauma og dregið fram sannleikann, hversu hryllilegur hann er. "Engum steinum yrði óvelt". Þ.e. ég gæti þetta siðferðislega séð, en vandamálið er þó helst að ég hef enga hugmynd um út á hvað þetta gengur og, það sem vegur þyngst, ég hef ekki snefil af áhuga á helvítis fjármálaleiðindum. Ég fæ nú bara hausverk þegar ég sé fyrir mér öll excelskjölin sem þarf að skoða. Það er engin tilviljun að maður lætur endurskoðanda gera skattskýrsluna sína. 
---
En jæja. Hér er svoleiðis sjóðheitt og ilmandi gúmmilaði af nýjum plötum sem eru að koma út:


The Prodigy - Invaders must die
Þessir virka nú alltaf vel á bretti og þetta titlatrakk ætti að fá álfalegustu kálfa til að svíða. Ekkert rugl í Proddidí. Útg. 01.03


Franz Ferdinand - Ulysess
Gjörvulegt stuðpopprokk frá Franza af #3, Tonight, útg. 26/01


Lily Allen - The Fear
Meðfram drykkju virðist Lillí hafa gert #2, It's not me, it's you. Platan mun væntanlega þjáðst af plötu2-sindrómi og ekki vera svipur hjá sjón #1. Mar gefrunni samt séns. Útg. 09.02.
 

---
(Helvítis fokking fokk! - aka eldra blögg)