09.02.07
Nei sko, gistiheimilið í Breiðavík.
Ég var þar eina nótt eitt sumarið fyrir kannski
5 árum síðan með Lufsunni og mömmu og pabba
og óraði ekki fyrir því að eitthvað illt
hefði átt sér stað þarna til forna. Bara næs
pleis í fallegu umhverfi. Les í Fbl að ábúendur
núna hafi orðið fyrir böggi út af fornum viðbjóði.
Eru engin takmnörk fyrir því hvað fólk er
mikil fífl? Einmitt. Næst þegar ég á leið
fram hjá Öxl á Snæfellsnesi ætla ég
að banka upp á og hreita ónotum í ábúendur
og skamma þá fyrir morðin sem Axlar-Björn framdi
sirka sautjánhundruðogsúrkál.
08.02.07
Allir forsýningarmiðar búnir...
sorrí. Vinningshafar fá email bráðlega. Rétt
svar er að bókin var Tómas Jónsson metsölubók,
enda hundurinn gríðarlega gáfaður (og bókin
góð).
07.02.07
Forsýning / General prufa á
Abbababb! er á laugardaginn kl. 16. Mér hefur tekist að
kría út 20 miða til að gefa hér í gegnum
síðuna. Hvert email fær 2 miða. Fyrstir koma fyrstir
fá. Það fylgir þó sá böggull
skammrifi að svara þarf einni spurningu og hún er: Hvaða
bók er hundurinn sem Óli hundaóli fann í ruslinu
að lesa á myndinni í geisladisksbæklingi upprunalegu
Abbababb! plötunnar?
05.02.07
Fréttatilkynning frá leikhópnum
Á senunni.
Abbababb! Frumsýning
11. febrúar. Miðasala hafin!
Það er komið að því!
Söngleikurinn Abbababb! eftir Dr. Gunna verður frumsýndur
í Hafnarfjarðarleikhúsinu sunnudaginn 11. febrúar
kl. 17.00. Næstu sýningar verða laugardaginn 17.
febrúar kl. 14.00 og 17.00. Nýr geisladiskur með
tónlistinni úr sýningunni er einnig á leiðinni
til landsins.
Leikarar í Abbababb! eru Atli Þór
Albertsson, Álfrún Örnólfsdóttir, Jóhann
G. Jóhannsson, Jóhanna Friðrika Sæmundsdóttir,
Orri Huginn Ágústsson, Sigurjón Kjartansson og Sveinn
Þórir Geirsson. Tónlistarstjóri er Dr.
Gunni. Leikstjóri er María Reyndal.
Miðasala er hafin. Hægt er að
panta miða á senan@senan.is
eða í miðasölu Hafnarfjarðarleikhússins
í síma 555 2222. Nánari upplýsingar um
sýninguna og sýningartíma má finna á
heimasíðunni, Abbababb.is
Leikhópurinn Á senunni og Hafnarfjarðarleikhúsið
04.02.07
Hitti Bubba baksviðs þar sem hann beið
eftir því að komast í viðtal. Ég hélt
kannski að hann myndi kýla mig í gólfið fyrir
lítilsháttar diss í Bakþanka um daginn. Nei
nei, Bubbi var bara dúndurhress og ekkert að erfa lítilræði.
Hann sagðist bara ætla að segja satt um það hvað
honum findist um Eurovision (sem hann gerði). Bubbi sagðist vera
voða hrifinn af Stóra hvell. Spurði hvort ég væri
ekki að koma með nýja sólóplötu. Ég
sagðist nú varla nenna því harki því
Stóri hvellur hefði ekki selst rassgat. Bubbi blés á
það og sagði að maður ætti nú ekkert
að spá í það. Bara gera það sem maður
vildi. Ekki hefði hann nokkurn tímann pælt í því
hvort plata myndi seljast eða ekki. Sagðist svo vera að spá
í að gera plötu með Mínusstrákunum og
ætti ekki von á að hún seldi mikið. Þá
kom Heiða stormandi og fékk "þemu" hjá Bubba fyrir
næsta Næturvarðarþátt. Bubbi stakk upp á
því að þemað væri "blóð" sem
Heiða tók fagnandi.
---
Þegar það var bara eftir að
tilkynna eitt lag sem færi áfram og Ég og heilinn minn
var enn úti í kuldanum var ég satt að segja orðinn
drullustressaður. Ég fann fyrir greinilegum hjartsláttartruflunum.
En það reddaðist, svo takk kærlega ef þú
kaust. Frekar blóðugt samt að þurfa að borga 99
kall fyrir hvert skipti. Hver fær þennan pening eiginlega?
Rauði krossinn kannski? Það væri sök sér.
Enn eitt dæmi um íslenska okrið.
---
Eggert
Jóhannesson var á svæðinu og tók þessar
gullfallegu myndir:
Heiða og hópurinn. Það var
grínast með að kalla bakraddahópinn "Gott og gyllt".
Mín tillaga, "Gylturnar" fékk engan hljómgrunn. Heiða
og Heiðuretturnar kannski? Nei. Bara Heiða.
Höfundar að loknu góðu dagsverki.
Næsta verkefni: 17. febrúar.
---
Jæja, þótt ég sé
kominn í 9-laga úrslit Eurovision (vá, fyrir 15 árum,
hvað þá 25, hefði þessi setning hljómað
eins og martraðarkennt geðveikisraus) er engin ástæða
til annars en að sprengja hér inn einum brakandi hressum TOPP
5IMM, enda sunnudagur:
Of
Montreal - Suffer for fashion: Besta plata ársins til þessa
er Hissing Fauna, Are You the Destroyer með Of Montreal. Það
er ekki kanadískt band heldur amerískt. Kom saman í
indieháskólabænum Athens, Georgia og hefur Kevin Barnes
í forsvari. Mér telst til að þetta sé áttunda
plata bandsins og eins og ég segi þá er hún
helvíti fín, með hverju góðu laginu á
eftir öðru, og eiginlega bara einu sem er frekar leiðinlegt,
en það er reyndar hátt í 12 mínútur.
Hér er einfaldlega opnunarlagið sem sparkar í poppaðan
pung og gefur tóninn.
Bee
Gees - The Earnest of being George: Lag af annarri plötu Bee
Gees, Horizontal (1968). Hér eru Bítlaáhrifin gríðarleg
eins og heyra má.
The
Animals - Outcast: Biggi var að mixa nýju Abbababbs-plötuna
og skelltu þessu á til að við heyrðum segulbands-gegnumsýringuna
(e. tape-saturation) á söngvaranum Eric Burdon þegar
hann gefur í. Nú eru notuð sérstök forrit
til að herma eftir þessu sándi sem verður auðvitað
aldrei eins því digital er ekki analog. Dýrin voru
helvíti töff stöff og þetta er flott lag.
Wreckless
Eric - Whole wide world: Hápunktur myndarinnar Stranger
than fiction er þegar Will Farrell kaupir sér sægrænan
Fender Stratókaster og spilar þetta lag fyrir kærustuna.
Wreckless Eric var einn af skjólstæðingum Stiff Records
(aðrir voru t.d. Elvis Costello og Ian Dury) og gerði margt gott
stöff og gerir enn. Þetta, fyrsti síngullinn hans, er
lang frægasta lagið og þess má geta að Nick
Lowe er á bassa og Ian Dury á trommur á því.
Almagnað lag sem margir hafa tekið, m.a. Monkees (á kombakkplötunni
Pool it frá 1987) og Unun tók þetta meira að segja
á böllum, fullum unglingum til ekki svo mikillar hrifingar.
Bloc
Party - The Prayer: Blokkarpartí hefur dembt plötu#2
á lýðinn. Dálítið dekkri og þyngri
skífa en síðast, en venst vel og rennur inn í
undirmeðvitund. Hér er fyrsti singull sem kveikti á minni
peru all snögglega.
03.02.07
Ég og Heiða og Heilinn minn í
fríksjóinu Eurovision í kvöld.
900-2007 ER NÚMERIÐ!
Plís!!!
---
Ný staða í fjölmiðlum:
Mogginn er orðinn DV ("Milduðu dóminn"), DV er orðið
Fbl og Fbl er orðið Mbl. Blaðið er samt bara Blaðið
ennþá.
---
Dagbjartur er í sveitinni svo maður
er bara svínging í bænum. Út af borða og
bíó í gærkvöldi. Allsstaðar fullt út
úr dyrum svo það var Askur á endanum. Topp pleis!
Þjónninn kallaði mig "Herra minn". Sénsinn að
maður væri kallaður Herra minn á McDonalds. Auðvitað
betri hamborgarar á Aski líka. Bíómyndin var
Stranger than Fiction í Álfabakka. Fyrir hlé var ólag
á fókusnum svo Steini Sleggja þurfti að fara tvisvar
fram að kvarta. Það er óþolandi að þurfa
að eyða bíóferðinni í að böggast
yfir fókusnum. Meira um þessa notalegu kvöldstund á
veitingahúsagagnrýni
og menningarafurðir.
---
Diskurinn "Dr. Gunni og vinir hans syngja og
leika lögin úr söngleiknum ABBABABB!" er nú tilbúinn
til framleiðslu. Næst kannski út fyrir frumsýningu
sem er sunnudagurinn 11. febrúar kl. 17. Nánar á Abbababb.is
- Þar má meira að segja heyra nýtt lag, sjálft
lokalagið úr verkinu, ÁSTIN ER ROKK OG RÓL (hlustið
á windows media fælinn, mun betra sánd á honum
en á mp3inu). Þetta verða annars lögin á plötunni:
1. Abbababb!
2. Rauða hauskúpan
3. Óli hundaóli
4. Baba bú
5. Systa sjóræningi
6. Stóru strákarnir
7. Doddi draugur
8. Pála spákona
9. Meira diskó
10. Hr. Rokk og Fýlustrákarnir
11. Prumpufólkið
12. Látum Aron sprengja skólann
13. Ástarlag Steindórs
14. Frelsum Aron Neista
15. Litli Aron með eldspýturnar
16. Ástin er rokk og ról
8 gömul og 8 ný... samtals 16!
01.02.07
Hló upphátt í ræktinni
þegar ég sá sýnt úr næstu grínmynd
Eddie Murphy, Norbit.
Þegar feita kerlingin flaug í gegnum grindverkið réð
ég bara ekkert við mig. Þetta virðist vera lúnkin
stuðmynd. Eddie er náttúrlega rosalega mistækur
eins og þessir karlar allir, en magnaður þegar hann er
bestur. Við strákarnir í Bless vorum í miklu Eddie
stuði þegar við komum til San Fransisco 1990 og lágum
upp á lesbískum túrmanager okkar, Jo. Leigðum
Raw og eithvað Saturday Night Live stöff, minnir mig, og það
kom auðvitað svipur á konugreyið þegar við
hlógum að langt í frá pc-gríninu í
Eddie. Henti okkur sem betur fer þó ekki út. Kannski
næsti söngleikur verði um þennan Bless-túr?
Það væri allavega nóg af drama og gríni.
---
Horfði með öðru á Ístón.
Hápunktur kvöldsins tvímælalaust sleikja Gumma
og Bóasar og Óli Gaukur sem var hress. Nú og auðvitað
Felix.
---
Ég er búinn að vera á
bleiku skýi síðustu daga eftir að ég heyrði
afkomutölur bankana. Trilljón skrilljón er ekkert smá.
Og svo nennir enginn að vera fangavörður af því
byrjunarlausin eru 120 þúsund... Það er auðvitað
einhvers staðar eitthvað að.
---
Nú er komið í ljós að
Ég og heilinn minn verður næst síðasta lagið
á dagskrá á laugardaginn. Í gær dundu
yfir stífar dansæfingar. Gullgallinn á Heiðu er
kominn í hús og hún gefur Suzi Quatro ekkert eftir
í lostalúkkinu. Nú er bara að bíða
með öndina í buxunum þar til þjóðin
hefur sagt sitt álit.
29.01.07
Dömur mínar og herrar: Í fyrsta
skipti í alheiminum:
Heiða
- Ég og heilinn minn
Ekkert flókið er við ástina
boð sem flæða um taugaendana
ég og heilinn minn
eru orsökin
Hamingjan er ekki á tilboði
þú kaupir hana ekki á
krítarkorti
ég og heilinn minn
búa til efnin
og ég veit
að þegar boðefnin fylla kúpuna
þá mér finnst
eins og allt sé æði
og alveg dásamlegt og heiðskýrt
og það þarf ekki að
vera neitt útskýrt
Hjartað það er bara stór
vöðvi
Hann dregst sundur, saman, dælir
blóði
ég og heilinn minn
erum mótorinn
Þeg'ég sé þig
roðna kinnarnar
það er blóð að
fylla háræðarnar
ég og heilinn minn
sökudólgurinn
og ég veit
að þegar boðefnin fylla kúpuna
þá mér finnst
eins og allt sé æði
og alveg dásamlegt og heiðskýrt
og það þarf ekki að
vera neitt útskýrt
(geðveikt gítarsóló)
og ég veit
að þegar boðefnin fylla kúpuna
þá mér finnst
eins og allt sé æði
og alveg dásamlegt og heiðskýrt
og það þarf ekki að
vera neitt útskýrt
Lag: ég og Heiða / Texti: ég
/ Pródúser og allskonar: Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson
/ Trommur: Óli Hólm / Fiðlur og blástur: Fullt
af fólki úr Sinfóníunni / Gítar og bassi:
ég / Bakraddir: Pétur Örn, Matti Papi, Einar í
Dúndurfréttum, Heiða í Idol, Alma Rut í
Idol.
28.01.07
Fyndið. Kveikti á útvarpinu
áðan til að hlusta á Tvíhöfða. Hafði
gaman að hlusta á Smásálina. Svo fór Arnþrúður
Karlsdóttir að tala. Fattaði þá loksins að
ég var að hlusta á útvarp Sögu.
---
Heimasíða
ABBABABB! söngleiksins hefur verið opnuð í tilraunaútgáfu.
Þar má m.a. heyra og dánlóda glænýrri
útgáfu af Óla hundaóla. Alvöru hörku
töff heimasíða mun svo koma von bráðar. Frumsýning
er eins og áður segir 11. febrúar í Hafnarfjarðarleikhúsinu
(við hliðina á Fjörukránni).
---
Eurovisionlögin í gær voru
mun sterkari en á fyrsta kvöldinu. Maður man meira að
segja viðlögin í nokkrum eftirá. Nú er ég
kominn með í magann og verð með viðloðandi kvíðamagapínu
fram á næsta laugardagskvöld. Líklega verð
ég klósettinu allan tímann sem næsta forkeppni
fer fram. Andskotann er maður búinn að koma sér út
í.
---
Hlakka engu að síður mikið
til að fólk heyri lagið, hina gífurlegu hamingjusprengju
Ég og heilinn minn. Sykursætt og unaðslegt popplag með
jóla-, motown- og bítlabragði. Poppaðasta lag sem
ég hef gert til þessa. Það ætti að dúkka
upp á þessari
síðu í dag eða á morgun.
---
Góður grasrótar Jón
Ólafs í gær. Það mætti auðveldlega
gera 2-3 svona þætti í viðbót. Og einn bara
um pönk. Þar gæti Valli í Fræbbblunum setið
fyrir svörum og Pönkhljómsveitin Fjölnir, Æla
og Morðingjarnir spilað fyrir pönki. Því er hér
með komið á framfæri.
27.01.07
Topp 5imm, en ekki hvað?
The
Fall - Over! Over!: 26. stúdíóplata Fallara
hefur nú litið dagsins ljós, Reformation Post TLC. Karlskrattinn
er kominn með kana í bandið eftir að hinir undirgefnu
bretar sem komu með honum hingað 2004 fengu loksins nóg.
Þar á meðal er þessi skeggjaði bassaleikari
sem ku vera fyrsti maðurinn sem leyfist að vera með skegg í
bandinu. Við fyrstu hlustun er nýja platan ekki alveg jafn góð
og síðustu tvær, en kannski kemur það. Hér
er allavega opnunarlagið sem er stuð. Mark E virðist hafa þróað
nýja tegund af söngrödd, sem er einskonar gróft
rónaröfl og má m.a. heyra í þessu lagi.
Bee
Gees - Holiday: Fyrir nokkrum árum, segjum svona 15, var
alveg bannað að hafa gaman að Beach Boys. Fátt þótti
hallærislegra. Svo varð það smátt og smátt
í lagi og nú er enginn maður með mönnum nema
hafa hlustað á Pet Sounds og geta varpað fram gáfulegum
staðreyndum um snilld Brians Wilson. Bee Gees þykja enn ekki
nógu kúl til að um bandið sé fjallað á
vitrænan hátt, en það mun breytast á næstu
árum, enda eru fyrstu 4 plötur bandsins í Englandi mikil
snilld. Þetta er sixtís Bee Gees áður en þeir
endurfæddust í diskóinu. Við erum að tala um
plöturnar 1st, Horizontal, Idea og þá síðustu
góðu, Odessa, sem er tvöföld og yfirleitt talin besta
BGs platan fyrir utan diskóið. Odessa reyndi svo á samstarf
bræðranna að Robin gekk út og gerði sólóplötu,
en Maurice og Barry héldu áfram og gerðu næstu
plötu, Gúrkukastala (e. Cucumber castle), bara tveir. Tónlist
BGs á þessum tíma er oft sækadelísk og
dálítið dimm og melódramatísk. Hellingur
af stöffi naut vinsælda, mögnuð lög eins og I
started a joke og Massachucettes, en fullt er í gleymsku, eins og
t.d. þetta gullfallega lag af 1st (1967).
Pop
Levi - Flirting: Hann lítur út eins og eitthvað
frík og hljómar eins og T-Rex og Eberg saman í einni
sæng. Spilar á bassa með Ladytron og er frá Liverpool.
Er búinn að gefa út fyrstu sólóplötuna,
The Return To Form Black Magick Party, sem er helv góð. Skemmtilegt
popp með óvæntum hálstökum.
The
Guess who - Of a dripping pin: Kanadískir meistarar frá
Winnipeg. Örugglega einhver af íslenskum ættum. Ágætis
lag hér af Canned Wheat (1968).
Kaiser
Chiefs - Ruby: Síðasta plata var skemmtileg. Hér
er nýtt lag af nýju plötunni, Yours truely, Angry Mob.
Lofar góðu.
26.01.07
Allskonar læfupptökur í kassavís
hér.
---
Á ágætri heimasíðu
Benedikts Bjarnasonar rakst ég á slóðir á
ýmsa
heimildarþætti frá PBS. Maður tékkar
kannski á því.
---
Til að það sé nú
alveg á hreinu þá rúla líka þessar
hljóðfærabúðir á Íslandi: Tónastöðin,
Tónabúðin,
Rín
og Hljóðfærahúsið!
---
Ábyrgir neytendur geta stuðst við
þennan
lista. Eða bara yppt öxlum og klórað sér
í hausnum með kortinu. Minni líka á Atlantsolíu.
Dælulykillinn er málið.
25.01.07
Nýja hljómsveitin mín heitir
Rokkarnir og mun hún spila á leiksýningunni Abbababb!
Í Rokkunum eru auk mín Birgir Baldursson og Elvar Geir Sævarsson.
Forsöngvari Rokkanna er Hr. Rokk, svo hljómsveitin heitir eiginlega
Hr. Rokk og Rokkarnir. Frumsýningin á Abbababb! er 11. febrúar
í Hafnarfjarðarleikhúsinu. Æfingar hafa staðið
yfir síðan í desember en í gær mættu
Rokkarnir loksins á svæðið með sitt hafurtask
til að stilla saman strengi við leikarana. Hafnarfjarðarleikhúsið
hefur að auki fjárfest í rándýru þráðlausu
míkrafónasöngkerfi. Það er því
engin ástæða til að ætla annað en að
leiksýningin verði hreinlega rosalega æðisleg.
---
Ég spila á bassa með Rokkunum
og hef fjárfest í úrvalsgræjum. Tanglewood Hofnerbassa
stælingu í Gítarnum (fékk hann á 39.900
kr - Gítarinn rúlar!)
og Line 6 Lowdown Studio 110 bassamagnara (36.100 kr í Tónastöðinni).
Þetta hljómar saman eins og tóm gleði, spikfeitt
sánd sem minnir einna helst á bassasándið í
sixtísverkum Serge Gainsbourg. Hér er falleg samansett mynd
af bassakosti mínum:
Miðar á Abbababb! fara í almenna
sölu bráðlega en líklega munu nokkrir heppnir lesendur
geta unnið sér inn miða á svokallaða generalprufu
laugardaginn 10. feb. í gegnum þessa síðu. Nánar
síðar.
---
Lokafrágangur á Eurovisionlagi
mínu (og Heiðu) ÉG OG HEILINN MINN stendur nú
yfir í Kópavogi. Lokafrestur til að skila laginu inn
til löggiltra Eurovisionumsjónarmanna er á hádegi
á morgun. Ég er búinn að hlusta á lagið
uþb tíuþúsund sinnum í bílnum mínum
og er ekki kominn með leið á því ennþá.
Ég iða í skinninu að koma þessu fyrir almenningshljóðhimnur
en lagið er víst lag númer tvö á þriðja
og síðasta undanúrslitakvöldinu. Glansgalli
á Heiðu er í framleiðslu í Keflavík
og stórskotalið bakraddasöngvara étur nú
ekkert nema mentol og telauf til að undirbúa sig fyrir átökin.
---
Árvökull lesandi sendi bréf
v/ Bakþanka í
dag. Vill meina að Óli partíkarl sé ekkert
klár eins og ég hélt fram heldur sé þetta
allt eitthvað geðveikt Framsóknarplott, rússneska
mafían stæl. Hvernig hefur maður efni á partíi
fyrir 100 millur? Ónefndi lesandinn skrifar:
Þetta er nú ekki svo flókið......viðskiptaráðherra
íslands nennti ekki lengur
að vinna sem ráðherra 2002...kominn
voru inn á borð til hans verkefni um
einkavæðingu bankanna.
Hann hóar í félaga sína,,tekur
lán og kaupir búbbann.
Síðan þegar þeir fá
ekki Lansann, taka þeir VÍS úr einkavæðingarferli
hans og
selja sér á 6.8 milljarða
50% í því félagi sem þeir selja svo á
32 milljarða
sem er munur uppá 24 þúsund
millur.
Síðan kaupa þeir icelandair....stóran
hlut í straum Burðaráss, fl group
o.fl.....á innan við 5 árum
hafa þessir menn eignast um 200 þúsund milljónir
hið minnsta....sem eru 200.000.000.000
krónur......sumir segja þegar allt er
talið sé talan nær 300 þúsund
millum...
Þögnin um þessi mál
er æpandi - en við förum á hvolf yfir 5 millunum
hans árna
johnsen og áfengi á kostnaðarverði
hjá hæstaréttardómurum o.fl....
Ísland er æði!
Ég verð að viðurkenna að
ég nenni bara ekki að setja mig inn í þessi mál
eða ergja mig á þeim. Fáfræði er svo
sannarlega alsæla.
24.01.07
Hvaða bítlaplata/lag er best? Hvernig
er Love. BMExpress spyr nokkra
valinkunna.
21.01.07
Topp 5 tónlistarmenn sem ég væri
til í að láta spila í fimmtugsafmælinu mínu
2015:
1. Paul McCartney (varla minna en milljarður
með bandi svo ég yrði að láta mér nægja
að splæsa 70 millum til góðgerðarmála.)
2. Ringo Starr (kæmi líklega fyrir
50 millur (band innifalið)
3. The Who (bandið kæmi varla fyrir
minna en 80 millur)
4. Billy Joel (líklega tilkippilegur fyrir
svona 15 millur, gæti verið einn við píanóið.)
5. Mark E Smith og félagar í The
Fall (kostnaður sirka 500.000 kall, allt bandið)
Ég er þegar byrjaður að
skipuleggja...
---
"Myndbandið" hætti að dánlódast
svo ég fékk ekki nema 2 mínútna bút
áður en allt gufaði upp. En það er svo sem meira
en nóg. Lítur ekki út fyrir mikið aksjón
enda er BDSM klám það allra leiðinlegasta sem maður
sér. Grímukall með lille ven í hnút eins
og smjörsýrð skata á bekk og hið huggulega fórnarlamb
með tækjasýningu. Og svo eiga 40.000-50.000 manns að
hafa dánlódað þessu?! Ég ætla rétt
að vona að það hafi verið einhver aksjón í
restina á þessu.
---
Innlegg mitt í sögu Eurovision verður
flutt á síðasta kvöldinu, 3. feb. Lagið heitir
Ég og heilinn minn og er svaka fínt popplag sem Heiða
syngur glæsilega. Horfði á lögin í gær
og eins og kerlingin sagði þá hafa fæst orð
minnsta ábyrgð. Það var þó nokkuð
illa til fundið hjá Finni áður söngvara Eikar
að vera með þetta lúkk. Guðmundar í Byrgis-lúkkið
er ekki alveg að gera sig núna, myndi ég halda.
---
Komst að því í gær
að myndbandaleigurnar hafa hækkað spólur upp í
650 kall. Ég held því að þetta hafi verið
í síðasta skipti sem ég leigi mynd. VODið
er málið, allavega ef Síminn fer ekki að hækka
mikið líka. Ef VODið heldur áfram að sækja
í sig veðrið og eykur úrvalið verða videóleigur
eftir nokkur ár jafn úrelt fyrirbæri og bjórlíki.
20.01.07
Rosa klassi yfir því að fá
Elton John í fimmtugsafmælið sitt. Sérstaklega
ef maður heldur veisluna í frystigeymslu. Djísús,
á þessum "ríka liðið að halda partí"-fréttum
aldrei að ljúka? Varla annað í Fréttablaðinu,
sérstaklega keyrði um þverbak í síðasta
Sirkus þar sem ríkir plebbar á balli og "sjáðu
hvað þau eru rík"-myndagreinar flæddu yfir bakka
sína. Mikið var nú skemmtilegra þegar ríkt
fólk fór bara á Sinfóníutónleika
og hékk þess á milli bakvið þykka stórhýsa
með Kjarvalsverkunum sínum á Arnarnesinu. Er ekki hægt
að fá Kolkrabbann aftur og feitu karlana. Nokkuð fyndið
að það er alltaf Bubbi Morthens sem fer fremstur í
ríkukallapartíinum. Já það er svo sannarlega
ekkert 1981 lengur.
---
Það er náttúrlega fleira
öfugsnúið en að Bubbi sé fremstur í ríkukallapartíunum,
t.d. það að þeir ríku eru ekki feitir lengur
heldur fitt en almúginn er orðinn feitur og veltist um í
hveitispikinu glápandi á amerískar fituhlussur að
megra sig eða beinar útsendingar frá lýtaaðgerðum.
Söngur afmælisbarnisins á því ekki við
rök að styðjast í dag:
Þar standa bankarnir í röðum:
Lands-Búnaðar-Útvegs,
og fyrir utan stendur horaður almúginn.
En fyrir innan sitja feitir peninganna verðir
og passa að vondi kallinn komi ekki og
taki þá.
---
Topp 5imm og ekkert væl:
Laddi
- Nútímastúlkan hún Nanna: 6-tugur
í dag er hinn mikli meistari Laddi. Lagahöfundahlið meistarans
hefur nokkuð fallið í skuggann af grínhliðinni,
en það er staðreynd að Laddi hefur samið haug af
frábærum lögum. Gibba Gibb, Austurstræti, Flikk
Flakk, Ég vil fá meira pönk, svo aðeins 4 séu
nefnd. Honum þykir vænst um Eirík Fjalar skv. viðtölum
og ég er sammála, Eiríkur Fjalar er frábær
gaur. Þegar Eiríkur kom fyrst fram á sjónarsviðið
(í áramótaskaupi, er ég nokkuð viss um),
var hann bíómyndanörd en síðar átti
Laddi eftir að gera Eirík að meira bjána og vitleysingi.
Hér held ég að sé komið eitt fyrsta lag Eiríks
á plötu, magnað lag sem kemur öllum í gott
skap. Laddi rúls! (myndin er tekin af síðu Sessýjar).
Punishment
of Luxury - Engine of Excess: Lúxurefsingin var frá
Birmingham og kom fram í grímum og spilaði nokkuð
framúrstefnt nýbylgjupönk með útúrdúrum.
Minnir mig einhvern veginn helst á Jane's Addiction. En jæja,
hér er smáskífulag sem ég átti á
sínum tíma og fannst ekkert svo æðislegt en kann
nú betur að meta í spéspegli tímans og
nostalgíunnar. Mun vera frá 1979.
Pylon
- Volume: Frá Athens, Georgia, en bara ekki næstum
eins fræg og B-52's og R.E.M. sem komu þaðan líka.
Af plötunni Gyrate frá 1980, mínímalískt
og nett fönkað.
The
Passions - I'm In Love With A German Film Star: Þema dagsins
er nýbylgjurokk frá því um 1980 með hljómsveitum
sem byrja á P. Hér er enska nýbylgjubandið The
Passions með sitt frægasta lag. Kuldarokk hefði þetta
án efa verið kallað í íslenskum dagblöðum
þess tíma.
Peter
Ivers - In heaven (Lady in the radiator song): Sérsamið
lag fyrir Eraserhead myndina hans David Lynch (vá hvað mig hlakkar
til næstu bíósýru frá honum). Peter var
samt lítið ágengt í rokkinu (enda of skrækur)
og hann var að lokum barinn til dauða í íbúð
sinni árið 1983. Morðið er enn óupplýst.
17.01.07
Barack Obama.
Það væri nú munur að forseti BNA væri
ekki fáviti. Líst mun betur á Obama en á Hillary.
Eitthvað of snobbað í gangi þar. Hún gæti
verið í Samfylkingunni.
---
Frjálslyndiflokkurinn. Frjálslyndiflokkurinn.
Hverjum er ekki sama um það stuðgengi?
---
Ég ætla ekki að segja eitt orð
um Guðmund í Byrginu. Ekki vill maður fá á
mig kæru.
---
Stórfrétt í heimi gossins.
Nýtt bragð í bænum.
14.01.07
Heiladauðir Japanar í fréttaþættinum
Kompási í kvöld. Er þetta hugsanlega toppurinn
á spennandi og áhugaverðu sjónvarpsefni?
13.01.07
Áfram með móðurserðandi
smjörið: Topp 5imm.
Air
- Left bank: Frönsku séntilmennin varpa fram nýrri
plötu í febrúar sem heitir Pocket symphony. Þar
er lágfreyðandi lágstemmd lágmarkstónlist
við algjöru líði. Ég var nokkuð fúll
yfir þessari plötu til að byrja með, en þar sem
Air hafa sýnt af sér hvílíka snilld gaf ég
séns. Og voila! Platan vinnur svona líka ljómandi
á og ég er á góðri leið með að
fýla hana í taumlausan botn. Lögin renna reyndar dáldið
saman í unaðsheild og skítt með það. Hér
er sýnishorn.
Gruff
Rhys -Gyrru gyrru gyrru: Gaurinn úr Super Furry Animals
er kominn með sólóplötu númer tvö, Candylion.
Ég fílaði hina plötuna hans vel og þessi er
enginn eftirbátur. Þetta er Íslandsvinur sannarlega.
Kom hér '95 þegar SFA hélt eftirminnilega vonda tónleika
og var svo eitthvað að sprikla á Ísafirði með
syni Muga. Hér er lag sem minnir, mig að minnsta kosti, á
lagið Coconut með Harry Nilsson.
Harry
Nilsson - Gotta get up: Jæja, best að smella Harry þá
á fóninn fyrst Gruff minnir svona á hann. Hér
er meistarinn af plötunni Nilsson Schmilsson (1971). Harry var bytta
sem hékk með Lennon en afkastaði haug og er topp stöff.
The
Shins - Turn on me: Endurunnið "Then he kissed me" af nýjustu
plötu Shinsara, Wincing the night away, sem er að koma út
þótt niðurhalarar heimsins hafi haft þetta í
tölvunni sinni frá því á steinöld
(í fyrra). Gæða gáfumannapopp hefði þetta
verið kallað árið 1987 í myndbandaþætti
Skúla og Snorra.
Ascii.disko
- Black metal: Eitt brettasmjör að lokum. Ascii.disco
er einhver þýskur náungi sem framleiðir svona taktfast
fávitastöff sem gengur 100% í svitaframleiðslu.
Aðeins gáfaðri frændi Scooters, ef þú
vilt. Lag af nýjustu plötu meistarans, Alias, sem kom út
í fyrra.
---
Vert er að minna á góð
íslensk mp3blogg fyrst ég er ekki með línkasafn
hér til hliðar eins og almennilegt fólk: Bobby
Breiðholt er alltaf með puttann á kafi í rassi
púlsins og varpar m.a. fram nokkrum lögum af nýrri plötu
!!! (sem ég skil reyndar ekki hvað á að vera svona
æðislegt við, ekki frekar en ég skil aðdáun
margra á hinum hrútleiðinlega LCD Soundsystem), Zúri
er m.a. með topp 50 albúm yfir 2006 með flæðandi
hauga af tóndæmum, og Egill
hefur þú heyrt þetta stangar m.a. úr tönnunum
með súpergrúppunni Góð, vond og drottningin.
---
Nú hefur verið dregið í
riðla í forkeppni Eurovision og mun mitt ylhýra lag flytjast
3. feb (síðasta kvöldið af þrem). Upptökur
standa nú yfir með heimsfrægum pródúser.
Vonandi tekur Morrissey þátt svo það verði nú
ekki alveg 100% hallærislegt að vera með í þessu.
Nei, uss. Hitt pródéktið, söngleikurinn Abbababb!,
skríður nú hægt en örugglega saman í
Hafnarfjarðarleikhúsinu. Enn er stefnt á að frumsýna
4. feb og samhliða plötuupptökur ganga vel.
11.01.07
...Þessi snjór er nú ekkert
nema bögg.
---
Af nýríku plebbunum verður
ekki skafið. Duran Duran fyrir 35 millur? Það má náttúrlega
gera slatta fyrir þann pening eins og Baggalútur
hefur bent á. Svo er annað hvort að verða reiður
eins og Egill,
smá öfundsjúkur kannski, eða bara jákvæður
og vona að maður komist í partíið á endanum,
eða raunsær og vita sem er að þessu fólki þótt
ríkt sé líður illa inn við beinið og sannleikurinn
mun renna upp fyrir því súnn enöff. Eða bara
yppa öxlum eins og meirihlutinn sem heldur að orð eins og
"misskipting" sé bara eitthvað kommarugl. Allavega glætan
að maður versli eitthvað við Kbthing á næstunni.
Tja, nema ég fái boðsmiða í næsta partí.
---
Samt spurning hvort einhver hafi haft það
á orði í frönsku byltingunni að helvítis
múgurinn væri bara öfundsjúkur.
07.01.07
Ef einhverjum langar til að skrifa djúsí
unglingabók væri kannski ekki úr vegi að leggjast
í rannsóknarvinnu og lesa færslurnar á blabla.is.
Eins og einhver nenni því.
---
Eitt af því merkilegasta sem Internetið
færði okkur eru myndir af fullu kvenfólki í sleik.
Nú hefur þetta verið tekið skrefinu lengra því
boðið er upp á vegleg verðlaun fyrir bestu
sleikmyndina. Ef einhver veit um eitthvað heimskulegra á
netinu í dag má hann láta mig vita.
---
Með sömu þróun í
"frjálslyndisátt" má búast við að árið
2012 standi Mix og Völu buff fyrir samkeppni þar sem flottasta
tilli í píku-myndin vinnur ferð til Kaupmannahafnar og
kassa af Völubuffi.
---
Sá Little Miss Sunshine. Fíllgúdd
upp á 3 stjörnur af 4. Las Napóleon skjölin (óraunverulega
spenna upp á 3 af 4) og er að lesa Svartir englar e. Ævar
Örn Jósepsson (só far só gúdd). Þegar
maður byrjar að lesa reifara er hætta á að maður
nenni ekki að lesa annað. Manni finnst ekkert fútt í
spennulausar bækur án líka. Nei ég segi svona.
Ég byrjaði allavega á Vetrarferðinni e. Ólaf
Gunnarsson en nennti henni ekki e. 20 bls eða svo. Enginn dauður
og bara eitthvað hjakk.
06.01.07
Fyrsti Topp Fimm 2007 er hér, vaðandi
af sindrandi úrvalsefni. Húrra:
City
Boy - 5-7-0-5: Hljómsveitin City Boy var frá Birmingham
og strákarnir fengu samning aðallega út af því
að þeir þóttu sánda svipað og 10CC og
ELO. Þetta er eini smellurinn þeirra frá 1978. Ekki
verra en hvað annað að byrja topp5-árið á
löngu gleymdum iðnaðarrokksmelli. Smá upphitun fyrir
tónleika Toto kannski?
Rättö
ja Lehtisalo - Ihanan syyllinen pallokala: Finnarnir Jussi Lehtisalo
og Mika Rättö eru bassa- og gítarleikarar hljómsveitarinnar
Circle, sem hefur dælt út dúndurplötum á
síðustu 15 árum eða svo. Dúett sinn kalla
þeir Rättö ja Lehtisalo og spila öllu vægari
tónlist en Circle, en engu að síður súper
áhugaverða. Þriðja stóra platan þeirra
heitir því grípandi nafni Ed Benttonin Briljantti
Stabilismi Tai Taivaallinen Kylpysaippua og er góð eins
og hinar tvær. Hún kom út í fyrra (2006) og
ætti að vera til á öllum heimilum. Ef ég hefði
heyrt hana fyrr hefði hún komið sterk inn á topp
5 listann yfir bestu plötur ársins. Hér er skringilega
poppað lag af henni.
Spank
Rock - Backyard Betty: Önnur plata sem ég heyrði
of seint til að taka með í 2006-pakkann er Yoyoyoyoyo með
Spank Rock, hiphopdúett frá Brandaríkjunum, skipaður
Spankrokk frá Baltimore (sést hér á mynd með
annarri hetju Baltimore, John Waters) og Alex Epton sem ólst upp
í Oklahoma. Platan er árennileg mjög og til þess
fallinn að auka vægi hipphopps í hlustunarmynstrinu.
Deerhoof
- Believe E.S.P.: Áttunda plata San Francisco flippliðsins
í Deerhoof er handan við hornið (og heitir Friend Opportunity).
Makknað stöff, myndi ég halda. Kannski aðeins poppaðra
en áður og því jafnvel betra. Hér er þriðja
lag plötunnar sem krossar skemmtilega og hljómar eins og Tom
Zé í sleik við Ennio Morricone. Skratti frískandi.
Gruppo
Sportivo - Girls never know: Hollenskt grínrokk sem var
holað niður með pönkinu þegar þetta var að
koma út í kringum 1978. Maður tók eftir þessu
á sínum tíma en þótti aldrei nógu
spennandi til að tékka á. Ágætt stöff
engu að síður. Þetta lag rýmar við örlí
Stuðmenn og 10CC ef þú veist hvað ég á
við. Mun vera af fyrsta LPinu, Ten Mistakes frá 1977.
04.01.07
Sé það á Veitingahúsasíðunni
minni að ég hef ekkert etið úti síðan
í sumar. Þetta er náttúrlega ekki alveg rétt
því ég hefi etið á nokkrum stöðum
sem hafa þegar fengið dóm og svo át ég slatta
á ferð minni með Bigga til Englands en sá ekki ástæðu
til að rýna í það. Nú bregður hins
vegar svo við að ég fór á nýtt pleis
í dag og hef skrifað eftirfarandi:
Sjávarkjallarinn, Rvk XXXX
Eitthvert rándýrasta
átpleisið í bænum (skilst mér) og gæðin
eftir því. Það er gáfulegra að spælsa
þessu á sig í hádeginu því þá
er ódýrara. Við skelltum okkur á 3ja rétta
hádegistilboð á 2700 kall. Tampúrakrabbi í
forrétt (stórkostlegt), ég fékk mér
eggjanúðlur með sjittsveppum og tígrisrækjum
(3 stk - mætti vera fleiri), en Lufsan fékk sér lúðu
(of þurr). Mitt var helv gott og það var vel útilátið.
Eftirrétturinn fór alveg með geðveikina, geðveikt
súkkulaðimúss með ís. Hverrar krónu
virði og merkilega vel útilátin máltíð.
Ég var alveg á blístri enda var borið í
mann snittubrauð og sósa og ídýfukorn. Svaka fínt.
---
Voðalegt er að heyra af þessum
strákkálhausum sem lúskruðu á tveim í
Garðarstræti og skildu eftir meðvitundarlausa í blóði
sínu. Hvað er að þessu liði? Mér dettur
ekki í hug að koma ábyrgðinni á þjóðfélagið
eða "ofbeldismyndir". Og hvað er hægt að gera við
svona lið? Skera af þeim annan handlegginn? Kroppa úr
þeim annað augað? Maður verður pirraður og reiður
að heyra af svona fáránlegu ofbeldi og eins með þessa
ræfla endalaust keyrandi hér um á trilljón hættandi
lífi fólks í hættu. Alltaf er þetta sami
hópurinn, ungir karlar, og maður sér fyrir sér
þessu heimskulega bjána með ömurlegan smekk og slefuna
í munnvikinu. Fávitaskapur er helsta mein samtíðarinnar.
---
Tvær ókunnugar miðaldra konur
hafa stöðvað mig á götu í dag til að
þakka fyrir Bakþankana í Fbl. í dag. Þetta
er met. Venjulega þegar þokkalega hefur tekist upp með
Bakþankana stoppar mig ein miðaldra kona en nú voru þær
sem sagt tvær. Þetta hljóta því að
vera bestu Bakþankarnir til þessa. Það má
lesa þá hér.
---
Enn og aftur er Tónlistarþáttur
Dr. Gunna á vonarvöl. Enn einu sinni er útvarpsstöð
sem ég er að vinna hjá lögð niður. Þetta
er auðvitað ekkert annað en fyndið. Ég er þó
auðvitað í gífurlegu stuði til að vera áfram
með svona tónlistarþátt, svo það sé
á hreinu ef ske kynni að áhrifamikill snillingur á
sviði útvarpsmennsku sé að lesa þetta. En ég
var búinn að búa til næsta þátt heima
hjá mér og hann er hér að neðan. Ég
ætlaði að spila 30 bestu erlendu lögin í fyrra.
Sem voru eftirfarandi:
Bestu erlendu lögin 2006!!!
30 Shogun kunitoki - Montezuma
29 Lordi - Hard rock hallelujah
28 Sonic Chicken 4 - Sonic night
27 Fujiya & Miyagi - Collarbone
26 Welcome - All set
25 Tv on the radio - Province
24 Band of horses - The funeral
23 Bonde do role - Melo do tabaco (A-trak remix)
22 The Panda Band - Ghosts have the best time
21 Oh No Ono - Keeping warm in cold country
20 The Thermals - A pillar of salt
19 The Long blondes - Weekend without makeup
18 Morrissey - You have killed me
17 Mastodon - The wolf is loose
16 Jarvis Cocker - Cunts are still running the
world
15 The Raconteurs - Broken boy soldier
14 The Stills - Destroyer
13 Mew - The Zookeeper's boy
12 I'm from Barcelona - We're from Barcelona
11 CSS - Alala
10 Phoenix - Long distance call
09 Graham Coxon - You and I
08 Dukes of Windsor - The Others
07 Prototypes - Gentleman
06 Metric - Monster hospital
05 Yeah yeah yeahs - Gold lion
04 Gnarls Barkley - Crazy
03 Lily Allen - Smile
02 Peter Bjorn and John - Writer's Block
01 Belle & Sebastian - The Blues are still
blue
Hlusta
á fyrri partinn! / Hlusta
á seinni partinn!
03.01.07
Það tottar ekkert að vera Íslendingur
og það má auðvitað ekki kvarta, en samt: Við
vinnum mest allra í Evrópu og dýrasti Big Mac í
heimi (liggur við) er hér. Svo dýr að hann er beinlínis
kennslubókardæmi. En ég sagði ekki neitt. Uss...
02.01.07
Gleðilegt ár og takk fyrir þau
gömlu! Nú er 2007, eða árið 007. Dáldið
töff. Og svakalega mikið sci-fi eitthvað. 2007! Það
er nú bara einhver geðveiki. Hvað er maður eiginlega
orðinn gamall? Níutíu?
---
Skaupið = Fínt. Samt ekki það
besta. Ætli það sé ekki þetta með Árna
Johnsen í Innlit útlit.
2006 = Fínt.
Helstu áramótaheiti:
* Lesa meira, fara oftar í bíó
- jafnvel leikhús, fara út að borða 4. hvers mánaðar,
halda áfram að reyna að vera góður.
* Ná þeirri kjörþyngd
sem minnibók Blóðbankans gefur upp.
* Blogga daglega þótt ég
hafi ekkert að segja. Er auðvitað þegar búinn
að falla á því enda er annar í dag.
---
Gaf blóð í 18. skipti í
dag. Þegnskapur. Allir eiga að gefa blóð ef þeir
geta. Sá Strákarnir okkar í gær þegar
ég kom heim af fertugsafmæli Felixar. Svakalega léleg
mynd. Mun verri en Maður eins og ég, sem var mun verri en snilldarverkið
Íslenski draumurinn. Það er vonandi að Róbert
Douglas nái sér á strik.
---
Veislan var annars stórkostlega vel heppnuð
þótt mér hafi nú Jón Baldvin ekkert hafa
haft sérlega gaman að Prumpulaginu.
---
Það var hálf ógeðslegt
að horfa upp á Saddam hengdann. Sá þetta í
tölvunni hans Bigga þar sem við erum nú sveittir
við að taka upp skorið í Abbababb sem kemur án
efa út á plötu bráðlega. Algjör fokking
villimennska og fáránlegt að Ísland sem óbeint
þátttakandi í þessari drullu allri. Því
miður er ekkert helvíti til að taka á móti
þeim sem þangað ættu að enda. Bara sagan sem
dæmir.
---
Menn eru eitthvað að segja að það
sé búið að loka XFM (enn einu sinni). Það
er allavega enginn búinn að minnast á það við
mig, en ég tek eftir því að það hafa
ekki verið neinar kynningar í dag, bara pleilistinn. Svaka umrót
annars í fjölmiðlaheiminum. Það er aldrei friður
og fátt sem lafir lengur en nokkur misseri.
31.12.06
Síðasti dagur ársins er dáldið
spes. Búinn að versla vindla og rakettur. Nú er vonandi
að Skaupið totti ekki. Topp lið í þessu. Það
er ekki bara Jútjúb. Mér var bent á tvennt:
Gomma
af myndum hér (t.d. heimildarmyndin Dark Days og viðtöl
við John Lennon og Keith Richards (tekið af Hunter S. Thompson)
Zombie
zombie zombie - haugur af zombie-myndum og allt um fyrirbærið.
29.12.06
Hef auðvitað étið á
mig gat, eða tvö, um jólin, en ströng líkamsrækt
bjargar því sem bjargað verður. Fékk Fylgið
okkur e. Hugleik (ofursnilld) og Úti að aka - Á reykspúandi
Kadilakk yfir Ameríku (helv góð - Ólafur Gunnarsson
er í svo miklu stuði að ég endurnýjaði
kynnin og fékk lánaða Vetrarferðina í bókasafninu.
Maður þarf nú einhvern tímann að prófa
að keyra svona kagga. Það er ljóst.)
---
Ég get nú alveg verið með
völvuspá eins og hvaða rugludallur sem er á blöðunum.
Völvuspá 2007:
* Janúar: Fons kaupir ráðandi
hlut í Spons.
* Febrúar: DV breytist í DB. Davíð
dettur íða og hækkar vexti upp í 70%. Paris Hilton
sýnir á sér píkuna. Heróínsjúklingarnir
Pete og Kate Moss gera eitthvað merkilegt.
* Mars: Klámmyndin Phorno Dogs sýnir
fram á að góðan árangur af starfi Byrgisins.
Paris Hilton sýnir á sér píkuna. FL-group breytir
nafninu í Loftleiðir group-group. Heróínsjúklingarnir
Pete og Kate Moss gera eitthvað merkilegt.
* Apríl: Britney Spears sýnir á
sér píkuna. Heróínsjúklingarnir Pete
og Kate Moss gera eitthvað merkilegt. Kaupþing breytir nafninu
aftur í KB banka.
* Maí: Framsókn fær 4.3%
atkvæða og forsætisráðherrastólinn. Árna
Johnsen flokkurinn X-Á fær 3% og menntamálaráðuneytið.
Paris Hilton sýnir á sér píkuna.
* Júní: Spons kaupir 60% í
Fons. Bjarni Ármannsson fær sér einkaþotu. Í
svörtum fötum eru með fyrsta kombakkið.
Júlí: Paris Hilton sýnir
á sér píkuna. Britney Spears líka. Heróínsjúklingarnir
Pete og Kate Moss gera eitthvað merkilegt. Loftleiðir group-group
breyta nafninu í FL & Fons group.
* Ágúst: ..æi ég nenni
þessu ekki.
---
24.12.06
Gleðileg jól!
---
Og einn topp 5imm í tilefni dagsins:
El
Vez - Feliz Navidad: Mexíkóski Elvisinn með jólalag
sem trompar jólastuðið. Byrjar sem PIL en endar sem Katla
María.
ELO
- Livin' thing: Eins og Baggalútur hefur verið iðinn
við að sýna fram á er hægt að breyta hvaða
lagi sem er í jólalag (nánast). Bara bæta við
jólalegum texta og nokkrum hreindýrabjöllum og hei prestó.
Hér er snilldarlag með ELO sem beinlínis hrópar
á jólalagabreytingu. Í staðinn fyrir "It's a livin'
thing" mætti e.t.v. syngja "Litli jólasveinn" o.s.frv.
Hybrid
Kids - Happy xmas (was is over): Af jóóólaflippplötunni
Claws sem Hybrid Kids (Morgan Fischer) sendi frá sér um 1980.
Magnað lag Johns Lennon tekið í smá flippi og ekki
minnkar jólastuðið við það.
Petter
& The Pix - Nevermind: Tröllhærði bassaleikarinn
úr Hjálmum með sólóplötu korteri fyrir
jól en á vonandi eftir að fá meiri athygli á
2007. Ljómandi gott popp hjá honum, smá Jamaríkvæ
og ég veit ekki hvað. Easily tricked heitir platan og er svaka
fín. Mæspeis.
Field
Music - Got to get the nerve: Þrír strákar
frá Sunderland sem er spáð afrekum 2007. Þá
ku ný plata líta dagsins ljós. Á mæspeissíðunni
má sjá að áhrifavaldarnir eru safaríkir:
The Left Banke, Serge Gainsbourg, My Bloody Valentine, Stravinsky, Stax
& Motown, Thelonious Monk, Roxy Music, Talking Heads, The Neptunes
and Peter Gabriel. Þetta lag er af fyrstu plötunni sem kom út
2005.
---
Samkvæmt Orra Harðarsyni reykti Ringo
Starr Chesterfield af miklu afli á velmektarárum Bítlanna.Ringo
lét alltaf teipa sígarettupakka á snerilinn. Það
varð að vera hálfur pakki og það af Chesterfield.
Ekkert annað kom til greina! Einhverju sinni voru ekki til Chesterfield
í hljóðverinu. Hann neitaði að nota annað
og sendi mann út í sjoppu, segir
Orri.
22.12.06
Aldarafmæli snillingsins Hergé er
á næsta ári. Margt
verður gert að því stórtilefni.
---
Karton af Chesterfield, tvímælalaust
jólagjöfin í ár:
21.12.06
Oft er sagt að fólk með allt niðrum
sig vegna sukks og svínarís sé mun betur komið
með trúarbullið úr Krossi eða Byrgi í
heilanum en fíknina. Líklega rétt þótt
bæði sé nógu slæmt – það drepur
þá engan á meðan í Jesúnafni en ætti
það til í dópæði. Eins og alþjóð
veit er nú allt vitlaust eftir Kompásið um Gumma stuð
í Byrginu. Ég nenni ekki að hafa skoðun á
því máli, en það er ljóst að aðeins
tvennt virðist líklegt: Að Gummi sé siðlaus sækópat
og þrælsekur af öllu eða þetta sé allt
geðveikt samsæri, eins og hann vill meina og að loka þurfi
Stuð 2 í kjölfarið vegna vitleysunnar. Zeranico
hefur skemmtilega lausn á þessari dilemmu sem er svona: Er
ekki málið að Guðmundur Jónsson sýni alþjóð
á sér getnaðarliminn svo hægt sé að
bera hann saman við myndskilaboðin sem sýnd voru í
kompás um daginn?
---
Hnakkus
gagnrýnir kvikmyndina Iron Master og Lille Ven.
---
Árið að verða búið
og allir að gera bestu-plötur-ársins-lista. Hér
eru sigurvegarar nokkurra:
Bob Dylan - Modern Times (Rolling Stone)
Bob Dylan – Modern Times (Uncut)
Arctic Monkeys – Whatever People Say I Am, That’s
What I’m Not (NME)
Arctic Monkeys – Whetever People Say I Am, That’s
What I’m Not (Q)
The Raconteurs - Broken boy soldiers (Mojo)
The Knife - Silent Shout (Pitchforkmedia)
TV on the Radio - Return to Cookie Mountain (Spin)
Annars er heill haugur af listum hér...
(og
jafnvel enn fleiri hér...)
Sjálfur hef ég verið beðinn
um að búa til lista yfir bestu plötur ársins erlendar/íslenskar
og var niðurstaðan þessi:
1. Eberg - Voff voff
2. Pönkbandið Fjölnir - Sonur neyslusamfélagsins
var hér
3. Reykjavík! - Glacial landscapes, religion,
oppression and alcohol
4. Pétur Ben - Wine for my weakness
5. Benni Hemm Hemm - Kajak
1. Belle & Sebastian - The Life Pursuit
2. Lily Allen - Alright still
3. Peter Bjorn and John - Writer's Block
4. Mastodon - Blood mountain
5. CSS - Cansei de ser sexy
Sé þetta borið saman við
sömu niðurstöður fyrir árið í fyrra,
er ég ekki frá því að þetta ár
hafi verið mun slappara músiklega en 2005:
1 Trabant - Emotional
2 Sigur Rós - Takk
3 Emilíana Torrini - The Fisherman's woman
4 Ég - Plata ársins
5 Benni Hemm Hemm - Benni Hemm Hemm
1 System of a Down - Mezmerize / Hypnotize
2 Art Brut - Bang bang rock n roll!
3 The White Stripes - Get behind me Satan
4 Kaiser Chiefs - Employment
5 Paul McCartney - Chaos and creation in the
back yard
Þar fyrir utan verður það
sífellt augljósara, amk í mínu hlustunarmynsturstilfelli,
að tími albúmsins er liðinn. Staðreyndin er þessi:
Ég er hættur að hlusta á albúm! Ég
hlusta bara á lög og eiginlega glætan að ég
nenni að hlusta á 10-15 lög með sama listamanninum
í röð. Tími sjöffulsins er runninn upp. Og
því eru listarnir mínir um bestu lög ársins
mun viturlegri en albúmlistarnir. Íslenski listinn er hér
að neðan og var leikinn í síðasta Tónlistarþætti.
Erlendi listinn verður ekki birtur fyrr en 7. jan, en þá
fyrr um daginn verða 30 bestu erlendu lög ársins 2006 spiluð
í þættinum mínum á XFM.
20.12.06
Dagblöð eru úreld. Ég
fattaði þetta í dag þegar ég sá forsíðu
Moggans af strandaða skipinu. Í fyrsta lagi hef ég engan
áhuga á þessu strandi, en gott og vel, segjum að
ég hefði rosalegan áhuga. Í gær hefði
ég því hlustað á fréttir af strandinu
í útvarpi og lesið um það á mbl, ruv.is
og visir. Síðan hefði ég glápt á fréttirnar
af því á Stöð 2 og Rúv. Jafnvel 10
fréttir líka. En fjandinn hafiði, ég þyrfti
að vera sérlega mikil áhugamaður um skipsströnd
til að nenna að lesa mér til um þetta enn einu sinni
daginn eftir. Dagblöð eru þó ekki alveg úreld
því kynslóðin sem tórir er ekki vön
öðru. En eftir 30 ár..? Jafnvel úrelt og gegnsósa
geirfugl.
---
Pönkbandið Fjölnir, sem án
efa á eina alskemmtilegustu plötu ársins, vill koma
því á framfæri að platan fæst í
12 tónum og Smekkleysubúðinni.
---
Eberg er með Sober in June í jólaútgáfu
hérna.
---
Kristinn Pálsson sér um hinn metnaðarfulla
þátt Uppruni tegundanna á Rás 2. Hérnamá
hlusta á gamla þætti.
17.12.06
Tónlistarþáttur
Dr. Gunna kynnir: Bestu íslensku lögin 2006!!!
30 Koja - BBJ
29 Helmus und Dalli - Freaky design
28 Evil madness - A sudden moment of private
demonic psychodrama
27 Ókind - Ó ég
26 Mammút - Flottræfill
25 Mongoose - How do you
24 Þór Eldon / Dagur Sigurðarson
- Dauðaskammtur
23 Jakóbínarína - His lyrics
are dangerous
22 Hafdis Huld - Tomoko
21 Ham - Sviksemi
20 Hjálmar - Vagga vagga
19 FM Belfast - Lotus
18 Bloodgroup - Try on
17 Skúli Sverrisson (& Ólöf
Arnalds) - Geislar hennar
16 Dýrðin - Popp og co
15 Retro Stefson - Medallion
14 Gavin Portland - A cool way to hold hands
13 Gylfi Ægisson - Í stuði
12 Fræ - Freðinn fáviti
11 Motion Boys - Waiting to happen
10 Morðingjarnir - Í götunni
minni
09 Skakkamanage - None smoker
08 Ghostigital - Not clean
07 Æla - Magnarinn
06 Trabant - The one (Filthy dukes remix)
05 Benni Hemm Hemm - Sól á heyhóla
04 Pétur Ben - Something radical
03 Reykjavík! - Advanced dungeons &
dragons
02 Pönkbandið Fjölnir - Skilum
auðu!
01 Eberg - Love your bum
Hlustaðu á þáttinn
hér: Fyrri
hluti (mp3, 48 MB) / Seinni
hluti (mp3, 59 MB) |