TOPP 5! 12. vika: Ramsey Kearney / John Trubee - Blind Man's Penis (Peace And Love) / Soviet Valves - Sight That Harms/Gaze That Harms / Wire - Three girl rhumba / Wire - From the nursery / Wire - The 15th    ELDRI LISTAR
26.03.06
Af Vísi í dag: Par handtekið í nótt á rölti með eins árs gamalt barn sitt í vagni
Lögreglan í Reykjavík handtók í nótt ölvað par á gangi með eins árs gamalt barn sitt í vagni, að sögn lögreglu var fólkið í mjög ölvað og verður það yfirheyrt þegar það verður búið að sofa úr sér. Barnaverndaryfirvöld tóku barnið að sér á meðan rannsókn á málinu stendur yfir. 

Ég spyr: Afhverju er svona fólk ekki gelt svo hægt sé fyrirbyggja frekari aumingjaskap í þeirra ættkvísl og bjarga því sem bjargað verður? Nei æ... þetta eru sjúklingar með sjúkdóm...
---
Tónlistarþáttur Dr. Gunna er ekkert slort í dag kl. 14 á XFM 91.9 og Topp fimm lætur ekki að sér hæða:

Topp fimm kynnir með stolti:
BESTA LAG Í HEIMI!

Ramsey Kearney / John Trubee - Blind Man's Penis (Peace And Love): Einu sinni var það auglýst í tímaritum að maður gæti komið sér á framfæri með því að skrifa ljóð og senda á einhverja addressu (oft í Nashville) og borga fullt af pening til að fá lagið sungið inn á plötu af einhverjum C-flokks kántríbolta. Heimsfrægðin átti að liggja í loftinu (rétt eins og í Idol) og skúffuskáldin sendu ljóð í búnkum. Þetta dæmi var kallað "songpoem" og er költ í dag. Magnaðasta söngljóðið var þetta hér. Þessi hippi (John Trubee) sem vann í sjoppu:

ákvað að semja súrasta ljóðið sem honum datt í hug og skrifaði þetta á 5 mínútum:

I got high last night on LSD
My mind was beautiful, and I was free
Warts loved my nipples because they are pink
Vomit on me, baby
Yeah Yeah Yeah.

Stevie Wonder's penis is erect because he's blind
It's erect because he's blind, it's erect because he's blind
Stevie Wonder's penis is erect because he's blind
It's erect because he is blind

Let's make love under the stars and watch for UFOs
And if little baby Martians come out of the UFOs
You can fuck them
Yeah Yeah Yeah.

The zebra spilled its plastinia on bemis
And the gelatin fingers oozed electric marbles
Ramona's titties died in hell
And the Nazis want to kill everyone.

Stevie Wonder's penis is erect because he's blind ... etc. 

Hann sendi "ljóðið" á addressu og til að gera langa sögu stutta kom þetta til baka sungið af þessum manni hér (Ramsey Kearney): 

Útkoman er eitthvað magnaðasta lag allra tíma og ægilegt költ í dag enda mætast í því tveir heimar. Ramsey og félagar vildu ekki syngja um tillann á Stevie Wonder og breyttu því í Blind man. John nefndi ljóðið Peace and Love upphaflega en lagið gengur eðlilega oftast undir nafninu Blind man's penis. (meira um þetta kostulega dæmi hér).


Soviet Valves - Sight That Harms/Gaze That Harms: Áströlsk ungmenni að spila gamaldags njúveifpönkgarass... Dæmt til að takast.


Wire - Three girl rhumba: Við erum að tala um Wire, fyrsta póstpönk band í heimi, getum við sagt. Fyrstu þrjár plötur bandsins hafa nú verið gefnar út á CD og ég segi óhikað: Skildueign á hvert heimili! Sérstaklega á þetta við um fyrstu plötuna, Pink Flag frá 1977, sem er klassískt meistaraverk. Hér heyrum við af henni lag sem Elastica stálu síðar, en annars er platan svo full af snilld að það er ekki fyndið. Eiginlega bara sorglegt, allavega fyrir þig ef þú ert ekki búin(n) að tékka áðí.


Wire - From the nursery: Önnur platan, Chairs missing, kom 1978 og er flóknari og tilraunakenndari en sú fyrri. Algjört skronster af plötu og ómetanlegt meistaraverk.


Wire - The 15th: Síðasta platan í hinni gullnu þrennu er sísta verkið, en gott engu að síður. Heitir 154 eftir fjölda tónleika sem bandið hafði spilað þegar platan var gerð. Hér heyrum við lag sem er einskonar fyrirrennari þess sem Pixies áttu eftir að gera mörgum árum síðar. Wire hætti skömmu eftir þessa plötu (var dömpað af EMI) en átti eftir að gera slatta af óáhugaverðum plötum in ðe eit- og næntís. Meðlimir gerðu líka nokkrar misþungar sólóplötur. Besta platan eftir gullnu þrennunna kom 2003 og heitir Send. Bandið virðist vera enn starfandi og rekur allavega útgáfuna Pink Flag.
---

Hér er mynd af mér með plötunum þremur, en ég var svo forsjáll að tíma ekki að selja þær þegar ég seldi Arnari Eggerti megnið af vinílnum mínum. Ahhh... minningar.
---
Húsráð dagsins er í boði Sölu varnarliðseigna: Finnst þér gaman að reka við með sterkri lykt? Ég mæli þá með að þú étir upp úr heilum poka af söl. Óborganlega óþverraleg lykt og mikið útstreymi.

25.03.06
Saur! Ég gleymdi að halda upp á það um daginn að hafa bloggað í 5 ár (síðan 11.03.01 skv. fælum). Fimm ár er hellings tími sérstaklega núna þar sem maður "þróast" svo hratt að allt það sem er fimm ára gamalt er eldgamalt rusl. Tja, hva... Ég er farinn að fá mér ís. Klassískt. 
---
Auglýsing frá 1982. Dáldið vond tímasetning segja þeir.

19.03.06
Það þarf vitanlega ekki að minna snilling eins og þig á það að Tónlistarþáttur DR.G er í dag á XFM kl. 14 - 16. Troðfullur þáttur af stöffi. Hér er svo auðvitað hunfeitur TOPPFIMM! í tilefni faxins:


Ókind - Ó, ég: Ókindin er komin með plötu #2, Hvar í Hvergilandi, sem sýnir öran vöxt í nýrnasteinum nýrokksins. Söngvarinn er "spes", textar góðir og á íslensku og bara allt í nettum fíling bara. Ekki amalegt, eins og maður segir.


Jim Noir - In the key of C: Dodda-í-Leikfangalandi popp frá Jim Noir sem er breskur og búinn að gera plötuna Tower of Love sem "inniheldur" einmitt þetta lag.


Lordi - Hard Rock Hallelujah: Finnar fara alla leið í Eurovisiongríninu og senda þetta í ár! Manni er nú bara farið að hlakka til.


Porest - Let's roll: Ögrandi samsæriskenninga-samklipp og drullað ofan í strjúpa "Haukanna frá Washington". Heilinn er Mark Gergis sem er líka í hljómsveitunum Neung Phak og MonoPause og rekur þá framúrstefnulegu heimstónlistarútgáfu Sublime Frequencies. Lagið er af plötunni Tourrorists!


Gil Scott-Heron - The Revolution Will Not Be Televised: Byltingakennt ljóðafönk "afi rappsins" frá 1971.
---
Leðurhommarnir eru í góðu stuði. Strangar klæðareglur eru inn á klúbbinn þeirra sem má lesa um á heimasíðu MSC félagsins. Þar segir m.a.: Nekt gengur alltaf. Að blanda saman ofannefndum fatastílum er yfirleitt í lagi. Það er vel hægt að blanda saman leðri, gallabuxum, gúmmíi og felulitafötum án þess að stíllinn, sérkennileikinn og virðuleikinn hverfi. Vilji menn vera í nærfötum eru hvít, svört eða felulituð pungbindi eða nærbuxur við hæfi. Leður- og gúmmínærföt eru líka fín. Sama gildir um boli og skyrtur. 
---
Mæspeis er alveg málið þótt Murdoch sé viðbjóður. Áhöfnin er að gera góða hluti í keflvíska rappinu. Sólstafir eru að gera góða hluti í málmbræðslunni. Morðingjarnir eru að gera góði hluti í pönkinu. 7oi er að gera góða hluti í spælt egg með rjóma. Svona mætti lengi telja.

18.03.06
Perlumarkaður Leikbæjar var ekki upp á marga fiska. Fór bara í Hagkaup og keypti "Loft" og Hefnd vígakanínunar fyrir DÓ. Gerði einnig rosakaup í Eimreiðinni, 20 rótarbjóra af síðustu amerísku dögum Hagkaupa á 10 kr stk. Svo er indversk veisla framundan á heimili mínu. Lífið er ljúft eins og alltaf.

17.03.06
Hva bara kominn föstutudagur og ég ekkert búinn að "blogga". Tssh, maður bloggar ekki mikið þegar maður skrifar í DV alla daga í góðu stuði. 
---
Meistari Conan fór til Finnlands og gerði heilan þátt. Þetta er komið á Youtube - sláið inn Conan og Finland til að finna þetta. Súper gott stöff...
---
Fór á Capote. 3ja stjörnu mynd.
---
Kaninn fer bla bla "Baugsmálið" bla bla Nælon hita upp fyrir Westlife bla bla "Ísraelski herinn skaut átta ára palestínska stúlku til bana". Allir í stuði bara.

12.03.06
Ég sem ritstjóri þessarar síðu heimta að fá að hitta alla ráðherra á einkafundum. Ég legg sérstaka áherslu á að hitta kvenráðherrana. Ef þeir gera ekki eins og ég segi kemur megadiss um vitlausar kerlingar. Þið fáið viku...
--
Nú er aftur á móti augljóst að hér kemur Topp 5:

Butthole surfers - I saw a x-ray of a girl passing gas: "Ég sá röntgenmynd af stúlku að reka við" er mjög góður titill á lagi, enda BS með þetta mikið til á hreinu. Lagið er af Hairway to Steven (1988). BS voru í amerísku postpunkdeildinni sem var skítug og öndergránd þar til Nirvana opnuðu allar dyr og jakkafötin komu til skjalana. (meira)


Roof tops - Sjúkur draumur um lasið blóm: Af 4-laga plötu frá 1969. Fyrsta "sýrulagið" íslenska en reyndar ósannað að liðsmenn Roof Tops hafi mikið verið í LSDinu, ef þá eitthvað. Bara "flipp" hjá sveitinni í anda þess sem Laddi gerði síðar með pönkið (í meistaraverki sínu Meira pönk). Útúrsýrt lag engu að síður. Grínsýra.


Zolar X - Jet star 19: Sjá þetta band! Glamspeisgeðveiki. Furðufyrirbæri frá Kaliforníu leit seventís. Enduruppgötvað af Jello Biafra og endurútgefið á Alternative Tentacles. Hafa endurlífgast í kjölfarið og ganga nú um götur San Fransisco í speisbúningum. (meira)


Steve Sampling - Serenade (radioedit): Aka Mezzías af plötu sem fæst á hefðbundnum stöðum við og á Laugarvegi. Beach Boys sömpl í hávegum höfð. (meira)


Kelley Stoltz - Ever thought of coming back: Meira Beach Boys, nú geigvænleg áhrif í lagasmíðum. Reyndar ekki nema í sumum lögum á nýrri plötu þessa Kana, Below the Branches, sem er góð poppplata. Útgefin á Sub Pop. (meira)
---
Í dag kl.14 er tónlistarþáttur Dr. Gunna þar sem dregur til tíðinda því Halldór Carlsson sem stendur fyrir hingaðkomu Laibach við annan mann kemur og segir okkur allt um þetta magnaða band. Og svo haugur af öðru stöffi að vanda... 

11.03.06
Hlekkir dagsins eru í boði Stjörnunnar, frábær útvarpsstöð:

Fólk er náttúrlega ekki í lagi... Mannanafnanefnd slær á geðveikina.

Ókeypis tónlist... Heilu haugarnir.

Vernon Robinson... ætlar að redda málunum fyrir bandaríska hægrimenn.

Karlinn með allsbera fólkið ætlar að gera list á Íslandi... Um að gera að signa sig upp svo rassinn á mér fái verðugan sess í listasögunni. En afhverju eru alltaf bestu sýningarnar á Akureyri!?
---
Hvað er málið með þessi vatnalög sem Ríkisstjórnin ætlar að troða í gegn? Af hverju er ekkert talað um þetta og bara einblínt á þetta málþóf? Á að selja Baugi eða einhverjum allt vatn í landinu? Eða er þetta bara "misskilningur" hjá stjórnarandstöðunni? Það er sjúk hugmynd að hægt sé að selja allt vatn á landinu. Vatn er beisik lífsnauðsyn. Menn gætu alveg eins talað um að einkavæða sólin og andrúmsloftið. Þetta er skerí skítur og þögn fjölmiðla æpandi. Nema ég sé bara að misskilja allt eins og stjórnarandstaðan.
---
Heyrði í Bryndísi og Jóni Baldvini í útvarpinu í gær. Voru ægilega mikið svona "rödd skynseminnar". Um "útrásina" sagði Jón t.d. "So what þó keyptar séu nokkrar skóbúðir á Strikinu?" (Er ekki kominn tími til að bjóða honum ritstjórastöðu á Fréttablaðinu?). Þetta virtist vera eina fólkið sem er ekki orðið samdauna íslensku útrásar geðveikinni (sem springur einn daginn framan í okkur eins og úldin blaðra). Ferskt loft frá útlöndum. Sama skynsemin lekur af Steingrími Hermannssyni þegar hann kemur í Silfur Egils eða eitthvað, svo þetta er æpandi augljóst: Jón Baldvin og Steingrím aftur á þing! Back to the nineties.

05.03.06
Tími fyrir Topp fimm:

Shogun Kunitoki - Montezuma: Við erum að tala um finnska hljómsveit frá Helsinki og lag af þeirra fyrstu plötu sem heitir Tasankokaiku. Finnskir Apparat, getum við sagt, en minna líka á Ítalíu-horror Goblins og kraut-hjakkið. Töff stöff.


Ghostigital - Dream of sleep: Við erum að tala um lag af nýju plötunni, In Cod we trust, sem er eins og rakkrem á fermingarköku rokkarans, gott þ.e. Eða eins og hrökkbrauð á vegakanti, eitthvað þannig. 


Dragon - April sun in Cuba: Við erum að tala um ástralskt band og sjá mynd! Hver vill ekki fá þessa glæsilegu menn í afmælið sitt? Las í Mbl að John Howard væri að rústa landinu. Helvítis hægra pakk. Ríkir ríkari, aðrir í drullu. Enginn griður gefinn aðkomumönnum, hvað þá frumbyggjum. Æi fokk. Upp með sænska velferðarkerfið! 


HuXuN - Dauði fyrir alla: Við erum að tala um Marlon Pollock og lag af plötunni hans nýju, Apokalyptik lullabyes. Við erum að tala um hipphoppívafna möndlugjöf í jólaveislu harmageddons. Nei nú fór ég yfir strikið.


Epo-555 - Harry Mambourg: Við erum að tala um danska indiehljómsveit sem spilar á Grand rokk á fimmtudaginn og líka í Smekkleysubúðinni. Við erum að tala um lag af nýjustu plötunni, Mafía, sem er að koma út. Ég vona að þeir vilji ekki vera eins og Coldplay. Las í Mbl að Arnar Eggert finnst Coldplay vera satan. Fólk vill satan. Fólk vill Coldplay = Fólk er fífl. Vælandi miðjumoð fyrir fávita. Nei, uss...
---
Vinir hrúgast á mig via mæspeisið. Ofsa fínt. Hefi ákveðið að þessi síða sé fyrir mig en hin fyrir hljómsveitina. Eitthvað þannig. Þó þetta mixist náttúrlega í eitt enda listin og lífið eitt og hið sama. Æi þegiðu.
---
Dagbjartur datt á hausinn í gær og það leið yfir hann. Við í panikk og babú. Upp á bráðamóttöku. Íslenskt velferðarkerfi hvað? Milljón manns í biðröð. Við biðum í tvo tíma, loks læknir og eitthvað svona, ekkert alvarlegt. Fórum út og þá var sama fólkið ennþá að bíða. Tótallí kreisí. Eins og í þriðja heimsríki. Ömurlegt. Bíddu, hvað græddu bankarnir aftur mikið í fyrra? Kjósa kommana í X-U næst. Þótt klám og sígarettur verði bannaðar. Það er skárra að hafa virkt velferðarkerfi og sæmilegan ballans en svona ríkir ríkari dæmi og allt til fjandans í öllu öðru eins og XD, XB og John Howard, GBush og Tony Blair (sem er víst ofsalega trúaður) eru að vinna að leynt og fokking ljóst. Spurning um að fara að mæta í Snarrót með steytta hnefa? Eða flytja upp í sveit og taka sjónvarpið ekki með sér? Eða bara ekkert. Bara áfram í Smáralind og láta hækka yfirdráttinn? Vííííí!

04.03.06
Kona keyrði aftan á mig í gær. Ég hafði snarhemlað fyrir aftan kyrrstæðan leigubíl og þá kom glænýr BMW aftan á Corrulluna mína. Konan var gráti næst enda hafði hún fengið BMWinn daginn áður. Hann var í steik framan á en það sást ekki á mínum. Nema smá framan á því bíllinn hoppaði fram og á leigubílinn. Sá var með krók sem hjóst í sundur svo það er far eftir krók framan á mínum. Ég æpti þegar bíllinn kom á mig, en sagði ekki fokk eða sjitt eins og ég bjóst við. Svo kom löggan. Þetta tók smá í bakið en ég held þetta sé ekkert. BMWinn var sem betur fer ekki nema á 30-40. Fyrsta og vonandi eina bílslysið mitt komið í hús. Passa sig!
---
Hef opnað Mæspeis síðuna myspace.com/drgunni, sem ég nenni örugglega aldrei að gera neitt við. Jæja maður reynir kannski að henda einhverjum lögum þarna inn eða eitthvað. Samt voða vinalegt að það skuli alltaf vera eitthvað fólk að biðja um að vera vinir mínir.
---
Ég vil minna lesendur á Tónlistarþátt Dr. Gunna á morgun kl. 2!

26.02.06
Stólpaþéttur Tónlistarþáttur Dr. Gunna í dag kl. 14 en nú er ég ekki frá því að Topp 5 sé kominn:


Paska - Bohemian rhapsody: Æstur finnskur gaur sem ég hitti einu sinni í Tampere þegar hann var með pönk-kareókíið sitt (hljómsveit spilaði undir). Hefur gert nokkrar litlar plötur með öskurútgáfum sínum af slögurum plús frumsamið efni. Í fyrra kom út plata í fullri og sligandi lengd, Women are from Venus, men from Anus, og þar afhelgaði hann þennan slagara Queen. Hrein sæla.


Pierre Henry & Michel Colombier - Jéricho jerk: Franskt gleðibrengl af plötunni "Messe pour le temps présent". Pierre Henry sá um speis-sinta-hljóðin og er svaka musique concrete frömuður. Hann vildi vinna með beat/hippa gaur og talaði við Michel. Útkoman er þessi snilld. Á tónlistarsíðu Egils Harðar má hala niður öðru lagi af þessari plötu og það er frægasta lagið á henni, Psyché rock.


The Flaming lips - The yeah yeah yeah song: Varirnar eru traustar í sprelligáfupoppinu. Þetta er fyrsta lagið á nýju plötunni, At War With The Mystics. 


Rah Bras - As she rah: Nýbylgju-goth tríó frá Richmond, VA af plötunni Whohm. Gæti verið frá 1982.


K'naan - I was stabbed by Satan: Sómali sem er að gera góða hluti í Ástralíu. Syngur um gamla landið. Platan hans heitir The Dusty Foot Philosopher.

25.02.06
Sá mann með Toyota merkið tattúverað á öxlina. Er það nú ekki einum of? 
---
Bílauglýsingar snúast um að upphefja skrjóðana. Hér er "auglýsinging" sem gengur alla leið. Fyndin.
---
Tímalega séð hugsar maður allt á ensku. Bítlarnir voru heitastir á sixtísinu, Duran á eitísinu og Nirvana sló í gegn örlí næntís. Þegar maður reynir að þýða þetta hefur það verið ægilega stirðbusalegt - Bítlarnir voru heitastir á sjöunda áratugnum o.s.frv. Uppfinningamaðurinn, trúbadorinn og vinur Eyfa, hann Ingi Gunnar, skrifaði um þetta í Mbl nýlega og kom með lausn. Hann vill meina að hægt sé að nota sextugurinn, sjötugurinn o.s.frv. Þannig að Bítlarnir voru heitastir á sextugnum og Nirvana slógu í gegn snemma á nítugnum (mun skárra en "snemma á tíunda áratugnum" eins og maður ætti að segja). Hmm? Er þetta ekki bara nokkuð góð lausn? Ég er allavega byrjaður að temja mér þetta, en ég er nú svo sem enginn íslenskumaður eins og dæmin sanna. Helvítis ypsilon.
---
Egill Harðar bloggar nú úr sér lifur og lungu hér. Tónlistarbloggið hans er sem áður hér.
---
Sjálfhvefan heldur áfram og nú er það nýjasta nýtt í bloggsjálfhverfunni. 

Fernt sem ég hef unnið við:
1. Hellusteypa (nei ég var ekki á Hrauninu)
2. Bankagjaldkeri
3. Poppstjarna
4. Blaðamaður

Fjórar bíómyndir sem ég get/gat horft á aftur og aftur:
1. Spinal Tap
2. Rokk í Reykjavík
3. Vertigo
4. Pee Wee Herman's Big Adventure

Fjórir sjónvarpsþættir sem mér finnast skemmtilegir:
1. The Simpsons
2. Pop up videos á VH1
3. Attenborough
4. Alan Partridge

Fjórar bækur sem ég gæti lesið aftur og aftur:
1. Íslensk fjöll - gönguleiðir á 151 tind
2. Atlasinn
3. Tinnabækurnar
4. English passangers (Matthew Kneale)

Fjórir staðir sem ég hef búið á:
1. Álfhólsvegi
2. Njálsgötu
3. Bergstaðastræti
4. Óðinsgötu

Fjórir staðir sem ég hef heimsótt í fríum:
1. Barcelona
2. París
3. New York
4. Akureyri

Fjórar síður sem ég fer inn á daglega:
1. Ordabok.is
2. Simaskra.is
3. Einkabanki.is
4. Baggalutur.is

Fernt matarkyns sem ég held upp á:
1. Rótarbjór
2. Sushi
3. Djönkfúdd
4. Harðfiskur

Fjórir staðir sem ég vildi vera á núna:
1. Á siglingu með Aranui.
2. Á hringferð um Ástralíu.
3. Á nuddbekk
4. Í heita pottinum í Árbæjarlaug

21.02.06
Grín er flókið fyrirbæri en þó einfalt: Annað hvort er það gott eða vont og það finnur maður út fljótlega. Sigtið nefnist grínþáttur sem Skjár einn byrjar með 9. mars. Þetta eru þessir hressu gaurar:

og þessi í miðjunni er aðalið: Frímann Gunnarsson, þáttargerðarstjórnandi og sá sem sér um Sigtið. Þeir segja þetta "mockumentary" (eða "háðildarmynd" eins og ég kalla það í lærðri grein í DV á morgun) og nefna verk Spinal Tap gengisins, Andy Partridge, Ali G osfrv til hliðsjónar. Allt er þetta snilldarstöff svo það má alveg gefa þessum þáttum séns og vel það. Gunnar Hansson minntist líka á BBC-þáttinn Human Remains sem ég hef ekki séð en þarf greinilega að tékka á. Hér eru þrjár auglýsingar fyrir Sigtið en mér skilst að þessi skot verði þó ekki í þáttunum heldur eru þetta svokölluð átteiks. 1   -   2   -   3.

19.02.06
Mér fannst ekki alveg eins fyndið að sjá THÍ í annað skiptið í gær, en svo fannst mér það nokkuð fyndið í þriðja skiptið þegar lagið var búið að vinna, eða rústa þessu dæmi öllu heldur. Nú tekur við gífurleg þróunarvinna við að gera lagið aðgengilegt fyrir Evrópu, tja, nema eigi bara að halda áfram með íslenska góðæriseinkahúmorinn. En allavega: hú kers!
---
Heyrði smá af því þegar karlpungar hringdu inn á Rás 2 til að velja kynþokkafyllstu konu landsins. Þá datt mér í hug spurningin: Af hverju er meirihluti þeirra sem hringja í opnar línur útvarpsstöðva hálfvitar?
---
Ég minni á stórfenglegan þátt minn á XFM í dag kl. 14. En nú, jafn stundvíslega og náttúruöflin: Topp fimm!


Bill Holt - Program ten songs, pt. 1: Af Dreamies, fyrstu og einu plötu Bill Holt sem kom út 1973. Glæsilegt tilraunapopp sem gæti verið eitthvað frá Fat Cat útgáfunni eða b-hlið með Flaming Lips.


Someone still loves you Boris Yeltsin - I am warm and powerful: Glæsilegt hljómsveitarnafn sem fékk mig til að staldra við. Tónlistin snoturt indiepopp. Bandið frá Missiouri og platan heitir Broom.


Psychic Ills - January rain: Sýrudrón frá NY. Tekið af fyrstu plötu sveitarinnar, Dins.


The Banned - Little girl: Öslandi gott enskt power popp pönk frá 1978. Lagið er kóver af gömlum slagara með The Syndicate of Sound. Djöfulli gott lag!


Big Balls & The Great White Idiot - Ain't Impressed: Ég á þrjú eintök af fyrstu LP plötu þessarar þýsk/íslensku ræflasveit. Það er lágmarksfjöldi af þeirri plötu á hverju nútímaheimili. Nú hef ég náð mér í niðurhal af annarri plötu sveitarinnar, Foolish Guys, frá 1978. Þeir gerðu víst einar 6-7 plötur á ferlinum en þynntust út held ég, urðu minna pönk og meira popp eða metall. Ég hélt að enginn í heiminum vissi af þessu bandi þegar ég var einu sinni að spila í Oslo. Á giggið mætir þybbinn rokkari blindfullur og er þar kominn forstöðumaður Big Ball records sem hafði á sínum snærum bönd eins og Anal Babes, Astroburger og Turbonegro. Hann reynist mikill Big Balls aðdáandi (eins og nafn fyrirtækisins gefur til kynna) og segir mér að hljómsveitin sé um þær mundir (1991) að búa til óperu í Berlín. Ég veit ekki meir...

Þetta eru úr Eru ekki allir í stuði:

Árangurslaust trúboðastarf Stóru punganna
Það voru hálf íslenskir, hálf þýskir, ræflarokkarar sem slógu botninn í erlendar rokkheimsóknir ársins 1978. Þeir kölluðu sig Big balls & the great white idiot, komu frá Hamborg í júlí skartandi öryggisnælum og öllu tilheyrandi. "Þessir ræflar eru fjórir," skrifaði Ómar Valdimarsson í Dagblaðið, "þar af þrír bræður sem eiga íslenska móðir, Önnu Halldórsdóttur, og þýskan föður, Lother Grund, sem bjó hér fyrir 15 árum og starfaði sem leiktjaldamálari hjá Þjóðleikhúsinu. Síðan flutti öll fjölskyldan til V-þýskalands og hefur búið þar síðan. Bræðurnir heita Alfreð, Pétur Garðar og Atli Halldór (allir bera ættarnafnið Grund), en fjórði ræfillinn í hljómsveitinni er Þjóðverji, Wolfgang Lorenz -- kallaður Wollie the Wild man".
Hljómsveitin hafði gefið út eina LP-plötu árið áður, en þá var fimmti maðurinn í bandinu, Baron Adolf Kaiser, en hann hafði hætt fyrir Íslandsferðina. Ræflarnir komu með plötuna með sér til að selja og ef vel er leitað í Kolaportinu má enn hafa upp á henni. Þar er úrvals fávitapönk á ferð, lög eins og "Kick her in the dirt" og "Go to hell" svíkja engan og ballaðan "I'm singing to you with my finger in your ass" er ógleymanleg. Hingað voru ræflarnir komnir á vegum Sigurjóns Sighvatssonar og Ámundi var fenginn til að bóka bandið á Klúbbnum, á sveitaböllum víðsvegar og á Rauðhettumótinu og ýmsum skemmtunum öðrum um Verslunarmannahelgina. Þeystu nú Stóru pungarnir um landsbyggðina og boðuðu pönk með fokk-jú merki á lofti.
"Við viljum gefa fólki högg undir bringuspalirnar með þeirri tónlist sem við flytjum," sagði Alfreð í viðtali í Vísi, "ekki sýna því hvað við erum klárir. Það sem vakir fyrir okkur er að velta tónlistinni af stjörnustallinum niður til áhorfenda í þeirri von að þeir grípi og taki við sér. Við viljum fá fólkið upp á svið til okkar og fara sjálfir ofan í sal, til þess að sýna því að það þarf ekki á stjörnum að halda. Við viljum opna augu þess fyrir einhverju öðru en þessu daglega þrasi til þess að það geti brotið af sér fjötrana og byrjað að lifa lífinu."
Þrátt fyrir göfug markmið ræflanna glápti sveitafólkið á þá í mikilli forundran og fannst yfirleitt ekki mikið til koma. Pungarnir komu m.a. fram í pásu hjá Deildarbungubræðrum í félagsheimilinu í Stykkishólmi og þar tóku sumir svo djúpt í árinni að segja þá hafa "skemmt ballið". Sjálfum fannst Alfreð stórskrýtið að spila fyrir Íslendinga. "Á Borg í Grímsnesi var liðið til dæmis hálffrosið, og tók ekki sérstaklega mikinn þátt í músikinni. Ég man að einni stelpunni þar þótti ég ofsalega ljótur -- fórnaði höndum af örvæntingu og sagðist aldrei hafa séð strák í svona hryllilegum jakka og hryllilegum buxum, ojojoj. Þetta er gott dæmi um, hvað fjötrar hefðarinnar eru sterkir hér eins og annars staðar."
Stóru pungarnir hurfu af landi brott án þess að trúboðastarf þeirri bæri mikinn árangur og síðan hefur lítið sem ekkert fréttst af þessum gleymdu spámönnum. 

16.02.06
Hlekkir dagsins eru í boði Pan hópsins sem sýnir erótísk nærföt við vel valin tækifæri:

Besti flutningur sem ég hef heyrt af leiðinlegasta lagi Bítlanna. En þú ferð til helvítis ef þú hlærð af þessu!!!

Þessi gaur bíður upp á úrvals myndbönd á hinum massífa You Tube vef.

Herramennirnir eru góðir.

Hurra Torpedo er fremsta heimilistækjahljómsveit Noregs.

Trommuheilasafnið er ómissandi.

15.02.06
Í dag er þetta ágæta viðtal við mig í Blaðinu eftir MHG sem er annars fínn bloggari. Það er allt rétt eftir mér haft í því og ég þarf ekki að endurbirta það með appelsínugulu yfirstriki eins og þessi maður hér. Það var frábært viðtal við hann í Blaðinu í gær en nú lítur út fyrir að það hafi verið uppspuni frá rótum. Hann vill meina það, a.m.k. Mér fannst þetta svo gott viðtal að ég las það upp fyrir Lufsuna. Við veltumst bæði um af hlátri. Sérstaklega var frásögnin af brúðkaupinu og brúðkaupsferðinni eftirminnilega. Nú er eins og þetta sé allt rugl og bull og þetta fólk ekki merkilegra en hvaða Smáralindarfarandi sjónvarpsgónandi illi annar í landinu.

13.02.06
Hlekkir dagsins eru í boði RC Cola. Töff gos í dagsins önn.
---
Ég held svei mér þá að landið hafi ekki átt frambærilegan búktalara síðan Baldur og Konni voru upp á sitt besta. Tja, nema Siggi sæti sé tekinn með. Búktal er greinilega deyjandi listform. Alþjóðlega búktalarafélagið er þó starfandi. Gaman er að skoða meðlimaskrár.
---

Little Marcy var vinsæl í búktalinu í gamla daga. Kristileg og góð. Hún er enn dáð og á aðdáendasíðu. Ég mæli eindregið með laginu Little pussy. Það er um kettling fíflið þitt.
---
Ertu kvenmannslaus en vilt krydd í kynlífið? Þetta kemur þá eflaust að góðum notum (varúð: typpi).
---
Hvort ætli gerist annars meira í Lost í kvöld eða heimildarþætti Attenboró um pöddurnar? Ætli þau komist 2 metrum lengra inn í neðanjarðarherberginu í kvöld? Vá hvað gerðist lítið í síðasta þætti.

12.02.06
Tónlistarþáttur Dr. Gunna kl. 14 eins og við er að búast og hér er Topp 5 aldrei þessu vant:


Eberg - I'm moving to Wales: Einar Tönsberg er Eberg og með plötuna VoffVoff handan við hornið. Þetta er af smáskífu sem gerir nú allt nokkuð vitlaust í útlöndum. Útgáfutónleikar í apríl nánar auglýstir síðar.


Quintron - Fly like a rat: Ýlfrandi orgelstuð og Miss Pussycat söngkona á heitum kolum í stuðlagi frá New Orleans. Gott til að ryksuga við.


The Presets - Steamworks: Ástralskt hárkremsauglýsingatölvupopp. Snoturt á kókaínbarnum. Af plötunni Beams.


Devo - Sloppy (I saw my baby gettin'): Lag af einni af tíu bestu plötum sögunnar, "Q: Are we not men, A: We are Devo". Nú berast þær fréttir úr herbúðum Devo að þeir hafi "þróast" í krakkabandið "dev.20" og gert samning við Disney. Hina hlægilegu hörmung má sjá hér. Karlarnir glotta alla leiðina í bankann.


Baskervilles - Midnight at the underground club: Magnað popplag sem vonandi kemst í auglsýningu og verður í framhaldi af því ofsa vinsælt. Mér finnst þetta allavega algjör hittari. Bandið er frá NYC.
 

11.02.06
Hlekkir dagsins eru í boði Wartburg. Traust kerra á vegum úti.

Gæti ekki gerst í dag: Flintstones auglýsa Winston og sýna andstyggilega kvenfyrirlitningu!

VG eru góðir við alla, líka jurtirnar: Öll blómin eru jöfn, segir Jón Bjarnason.

Devo syngja og leika um Downs heilkenni. Úr sjónvarpsþætti Thurston Moore.

Prumpuleikur Rens og Stimpy. Þroskaður húmor fyrir hátæknifólk.

Hlutir til að gera áður en ég dey: Klifra upp á Diamond Head.

10.02.06
Samdráttur í bloggi er staðreynd enda DV vettvangur minn þessa dagana. Segir sig sjálft að maður nennir ekki að skrifa mikið aukalega þegar maður gerir það að atvinnu. Sjáum til. Það verður allavega Topp 5 og vikuleg áminning um að hlusta á þáttinn á XFM! Já og svo margt fleira. Hvaða hvaða. 

05.02.06
Tónlistarþáttur Dr. Gunna verður vitaskuld í dag á XFM. Þar má líka kjósa í Tónlistaverðlaunum XFM. En það hlýtur að vera kominn tími á topp 5!


Iggy & The Stooges - Search and destroy: Tónleikar með þessum ellihrumu legendum 3. maí í Laugardalshöll! Skildumæting fyrir alla með viti. Þetta er hugsanlega besta lag í heimi, a.m.k. lagið sem ég ætlaði að setja á fóninn þegar kjarnorkusprengjan félli. Þá bjó ég einn og sá fyrir mér að ég myndi hækka allt í botn og vera með þetta í eyrunum þegar bomban bræddi á mér hausinn. Nú myndi ég bara setja eitthvað rólegt á og faðma fjölskylduna. En það fellur náttúrlega engin sprengja á okkur því það eru nokkar þyrlur og 4 þotur á Miðnesheiði, muniði. Annars sá ég Iggy fyrir nokkrum árum á Hróarskeldu og fannst gamli maðurinn hress. Enn magnaðra verður að sjá hann með gömlu vinum sínum í Stooges, sem er nokkurskonar forveri alls þess besta í rokkinu.


Bathtub shitter - Skate of Bulgaria: Japanskt brjálæði með söngvara með vítt raddsvið (rymja - baula - góla). Af glænýrri plötu; "Dance Hall Grind".


The Raincoats - Lola: Miðasalan á Ray Davies byrjar á föstudaginn. Hér er frægasta lagið hans með ensku kvennabandi frá pönkárunum sem Kurt Cobain ræfillinn hélt mikið upp á og dró með sér á túr stuttu áður en hann skaut sig. Regnkápurnar eru annars athyglisvert band og eiga alla athygli verðskuldaða.


The Raconteurs - Steady as she goes: Hliðardjobb Jack White og Brendan Benson + einhverra gaura. Plata á leiðinni og þetta fyrsta sínglan. 


Love is all - Used goods: Sænskt og að slá í gegn með plötuna "Nine Times That Same Song". Eitthvað örlí 80s í þessu í bland við núið. Voða fínt stöff.

04.02.06
Það er óhætt að fullyrða að aldrei áður hafi skrípómyndir haft jafn mikil áhrif. Það er bara tímaspursmál, en vonandi ekki, hvenær einhver deyr út af þessari vitleysu. Hér má sjá þessar ægilegu myndir sem uppþotinu ollu. Kallagreyin sem teiknuðu þetta eru nú í felum. Hvað kallarðu 13 ljóskur með stór brjóst sem leigja saman í Stokkhólmi? Teiknarana tólf og Salman Rushdie. Þetta var í raun fyndnari brandari en þessir tólf í JP. Reyndar er ég ekki voðalega sterkur í dönsku en þetta virðist voðalega dannað. Langt í frá eitthvað svona gyðingar sem svín og rottur nasista stöff. Og ef maður les textann þá er þetta voðalega pc. En eigum við samt ekki að leyfa fólki að vera móðgað í friði. Er það ekki réttur þess? En það er mikill munur á að vera móðgaður og að hvetja til að einhver sé drepinn. Nokkuð ljóst að maður er ekkert á leiðinni til miðausturlanda í bráð. Spurning líka að flýta framþróun á rafmagns- eða vetnisbílum.
---
Mér sýndist Arma Supra vera með danska fánann á sérstöku tilboði í Kolaportinu. Nokkuð fyndið og sætt. En þetta gæti orðið mjög ljótt og hatursfullt. "Þeir og við" dæmi eitthvað. Ég neita að taka þátt í svoleiðis vitleysu.

02.02.06

Stór dagur í persónulegri rótarbjórsögu minni í dag. Níu kílóa kassi barst frá USA með 24 mismunandi rótarbjórstegundum, þar af bara 2 sem ég hef þegar smakkað. Framundan er gríðarlegt smökkunar/átak, sem fer þannig fram að ég fæ ekki að drekka úr flösku fyrr en vigtin hefur þokast niður um ákveðið mikið. Þetta er vissulega furðulegt kerfi, svona álíka og ef alki myndi launa sér bindindi á vikufresti með því að detta íða, en hvað, þetta virkar alveg fyrir mig. Þó enginn hafi minnsta áhuga (það er mín reynsla að 9 af 10 finnst rótarbjór ógeðslegur - kvefmixtúra og tannkrem eru lýsingarorð sem oftast heyrast) þá er ég að hugsa um að stofna sérstaka gosdrykkjasíðu þar sem stjörnugjöfum mun rigna yfir bæði algenga og óalgenga drykki. Gosdrykkjasíða Dr. Gunna heitir hún.
---
Í dag var líka nokkuð stór dagur í átaksverkefninu mikla því samkvæmt hinum sadíska BMI-stuðli fór ég það mikið niður á vigtinni í dag að ég slefaðist frá því að vera ofitusjúklingur í að teljast ofalinn. Nú er því stefnan sett á næsta flokk: heilbrigður.

01.02.06
Í annars mjög ágætum Lista Núma yfir 9 fyrirbæri sem heimsbyggðin mun aldrei sjá á Baggalúti skýtur mjög skökku við að eitt fyrirbærið sé ég að sippa. Ég hef margoft sippað, bæði hér og erlendis, en er kannski enginn sippufíkill. Það getur vel verið að heimsbyggðin muni sjá mig sippa í sérstöku myndbandi sem ég er að spá í að birta hérna. Get þó varla ímyndað mér að fólk hafi ofsalegan áhuga á því. Tja, nema ég sé nakinn.
---
Til hamingju Ísland með að Til hamingju Ísland fær að fara til Grikklands og vinna þessa grátlega geðveiku keppni. Við Lufsan erum í skýjunum með að jákvæð niðurstaða hafi fengist í þessari dilemmu og munum hringja látlaust í rétt númer á laugardaginn. Eurovision í Egilshöll 2007 ekki spurning! 

31.01.06
Ef ég fæ ebólu þá fer ég í mál við Melabúðina. Var að slafra í mig belgbaunum frá Kenýa og tók eftir dauðri flugu í öskjunni í þann mund sem ég gleypti síðasta bitann. Uss.
---
Þetta You Tube er nú svaka fín tímaeyðsla. Svoleiðis allt gressarandi þarna í músik-myndböndum og sjitti. Tékkaði á Nick Cave, Captain Beefheart og Xtc, bara til að tékka á einhverju og vá, allt vaðandi í stöffi.
---

Johnny Rotten er fimmtugur í dag!
---
"Síðasti bærinn" í leikstjórn Rúnars Rúnarssonar er tilnefnd til Óskarsverðlauna í flokki leikinna stuttmynda. Hef ekki séð þessa mynd, en svo ég monti mig aðeins þá gerði Rúnar myndbandið Geimryk fyrir Unun á sínum tíma. Rúnar var líka viðstaddur í vonlitlu eftirpartíi sem ég kynntist Lufsunni í 1999. Eða mig minnir það.
---
Byrja parttæm á DV á morgun. Blaðið hefur náttúrlega gengið í gegnum hvílíkan hreinsunareld að ég þarf ekki að fara heim með hauspoka eftir daginn heldur get gengið út hnarrreistur með mitt framlag til besta dagblaðs landsins.
---
Abbababb söngleikurinn sem við Felix ætlum að skrifa saman fékk múltímonní frá einhverjum sjóði sem Felix sótti um úr. Það eru því yfirgnæfandi líkur á að Abbababb söngleikurinn fari á svið í haust. Ég sé svo fyrir mér plötu, dvd, Disney-mynd og Abbababb-MacDonalds dót í kjölfarið. Ég er þegar farinn að skoða hús á Arnarnesinu.
---
Þá hefur hljómsveitin Dr. Gunni hafið æfingar í mjög góðu lókali á besta stað í bænum. Platan Fitubrennsla Dr. Gunna ætti að koma út í sumar. 
---
Djöfull er mikið að gera eitthvað.

30.01.06
Vísindakirkjan tekur flestu út í fáránlegu bulli og er þó úr miklu að moða í trúarbragðagraut heimsins. South Park tóku þessa alvitlausu kirkju fyrir í þætti nýlega og Tom Cruise fór auðvitað í mál og fékk bann á þáttinn. Hann má þó ennþá sjá hér í boði You Tube.

Í dag Topp 5 í dag:

Reptilicus - Okkar heili er innsiglaður: Meistaraverk Jóa og Gumma af 4-laga plötunni S.O.B.S. frá 1996. Var leikið oft í vintage Tvíhöfða og því er ljóst að einhverjir muni hlusta með tár nostalgíunnar á hvarmi. Gunnar hefur aldrei verið svona góður hvorki fyrr né síðar! 


Cambodian Cassette Archives - lag #15: Sublime Frequencies er magnað leibel sem gefur út geysispennandi heimstónlistar-safndiska, m.a. frá kreisí stöðum eins og Norður Kóreu og Írak. Þetta útúrsýrða asíu-popp er af diskinum "Cambodian Cassette Archives" en nafn flytjanda og lagaheiti er því miður ekki vitað.


The Crimea - Lottery winners on acid: Hmm... ég hélt að þetta band væri skoskt en það er víst frá London. Þessi slagari kom út 2004 og er að sögn John Peel "besta lag sem ég hef heyrt í mörg ár". Er af stóru plötunni Tragedy Rocks sem kom út í fyrra.


Gal Costa - Tuareg: Brasilísk stórstjarna með funheitt og sveitt lag frá 1969. Af plötu sem heitir einfaldlega Gal.


Siouxsie & The Banshees - The Staircase (Mystery): Gotneska pönkskvísan á sinni annarri smáskífu frá 1979. Ég man eftir því að hún var í framan á hverju einasta Zig Zag sem barst til landsins á þessum tíma. Zig Zag var aðal nýbylgjutímaritið.

29.01.06
Hei, ekki gleyma Tónlistarþætti Dr. Gunna í dag kl. 14 á XFM. Magnaður þáttur forsjör.
---
Þá er ferli mínum sem skemmtikrafti á Rúv lokið að sinni. Pappaspjald og dansfífl. Ég ætla rétt að vona að Til hamingju Ísland!, hið stórskostlega eurolag Silvíu Nóttar taki þessa lummulegu forkeppni. Magnað lag alveg hreint og hversu gaman væri ekki að senda Silvíu þarna út til að fokka í hommunum? Eurovision hefði aldrei verið jafn spennandi og skemmtileg fyrir okkur að glápa á. Síðan Palli fór höfum við sent eintómt meinstrím lummudjönk en við eigum auðvitað að vera flippið í þessari keppni og alltaf að gefa skít í hana en heiðra um leið með tungu í kinn og bros á vör. Semsé: Djöfull vona ég innilega að íslenska þjóðin verði sammála mér og kjósi SN til keppni. Lagið verður í síðasta skammti næsta laugardag.
---
Til hamingju Ísland með að ég fæddist hér
Ég er Silvía Nótt og þið haldið með mér
Eurovision-nation fær sko flog er ég kem
Ég fer til að vinn'etta – tremma í hel, töff töff töff...

27.01.06
Fór í bíó í gærkvöldi. Bæði Thor Vilhjálmsson og Árni Bergmann voru mættir. Þá fattaði ég það. Ég var á franski kvikmyndahátíð.
---
Frétt á Vísi.is: Rændi eftirlíkingu af skauti konu
Einskonar nútíma brúðar-rán var framið í verslun með hjálpartæki ástarlífsins í Reykjavík í nótt. Eftirlitsmyndavélar sýna hvar ungur maður, að líkindum lang þreyttur á kvennmannsleysi, brýst þar inn um glugga, gengur rakleiðis að tiltekinni eftirlíkingu af skauti konu, stingur henni inn á sig og hverfur svo á auga bragði út í náttmyrkrið. Líklegt er talið að hann hafi komið í verslunina á afgreiðslutíma og fundið þá útvöldu. Látið svo til skrarar skríða í nótt og komist með hana yfir þröskuldinn heima hjá sér, því hann, og sú heitt elskaða, eru ófundin.

Hér fékk blaðamaður útrás fyrir grínið í sér. Ennþá fyndnari hefði þó verið fyrirsögnin Stal gerfipíku.

26.01.06
Hápunktar af verðlaunaafhendingu: 
1. Guðmundur Jónsson gaf mér í nefið bakkstage.
2. Bubbi potaði styttunni sinni í magann á mér. Ég sagði: Jæja, til hamingju. Mikið var að þú færð einhver verðlaun. Bubbi: Ha ha ha, þetta eru bara aumingjaverðlaun!
3. Lagið með Ég. Þorgerður Katrín var í rosa stuði þegar þeir spiluðu og headbangaði á fullu. Hr. Ólafur og Frú Valgerður högguðust hins vegar ekki.
4. Borgarstjórinn sagði að ég hefði grennst rosalega. Steini Sleggja var með djók og sagði að það væri af því ég eldaði svo vondan mat. Borgarstjórinn: Ha ha, maður þarf að koma í mat til þín.
5. Dröslaði dúkkulísunni af mér heim. Nú stendur hún í barnaherberginu og minnir soninn á feðraveldið.
---

Mér finnst þessar Securitas auglýsingar hálf óhuggulegar. Það er verið að mála svaka dökka og drulluga mynd af lífinu til þess að pranga fölsku öryggi upp á fólk. Það er dregin upp sú mynd að þarna úti sé fullt af geðveiku illþýði sem vill þukla nærbuxurnar þínar og ræna frá þér flatskjánum. Luralegir Securitas-gaurar er það eina sem getur bjargað þér, eða svo kölluð heimavörn. Nú er fyrirtækið komið í Dagsbrúnar pakkann og er þá ekki stutt að bíða þar til hámarks "samlegðar"-áhrif komi til skjalana. Sem sé að það verði blásið upp úr öllu valdi þegar eitthvað dópgreyið brýst inn og helst eitthvað nógu ógeðslegt gerist. Ef það kæmi frétt um einhvern ræfil sem leggði hendur á sofandi heimilisfólk hlýtur það að auka sölu heimavarna. Æi ég veit það ekki. Maður ætti kannski bara að fá sér Uzi undir koddann?

24.01.06
Á Íslandi eru nokkrar lifandi goðsagnir. Ef maður skreppur upp í Ríkisútvarp er líklegra en ekki að maður rekist á þær. Ég brá mér þarna uppeftir í morgun (í smá grín) og sá Ómar Ragnarsson heilsa Bjarna Fel. Ekkert mun toppa þetta í dag nema e.t.v. ef ég sé Bubba Morthens og Guðberg Bergsson saman á tveggja manna reiðhjóli.
---
Mér til mikils léttis er "meira en nóg til af eistum", skv. Fbl.
---

Reyndi að horfa á þennan þátt um forn-Egypta í gær en gafst upp og horfði á ameríska Idol með öðru. Nennti því ekki heldur, jafnvel þó þetta væri þáttur með vondum söngvurum. Ég tel fullreynt að ég geti haft gaman að Idol í hvaða mynd sem er. Það kom sér því vel að eiga nýjastu seríuna af Little Britain (#3) á bútlegg. Þeir halda dampi og spýta í ef eitthvað er. Meðal nýrra karaktera er táfýlukarlinn Dudley sem pantar sér tælenska eiginkonu, Ting Tong, og ný fituhlussa í spa-inu, fv. ungfrú Botswana (sjá mynd). Almagnað.

23.01.06
Úrslit liggja nú fyrir í samkeppniskosningu síðunnar á kynþokka landsmanna. Þátttaka var gríðarlega góð. Sigurvegari og kynþokkafyllsti karlmaður landsins er...


BJARNI SÖLUMAÐUR!!! Fær hann ekkert að launum nema heiðurinn.

Vinsælasti keppandinn var hins vegar

Friðbjörn frjálshyggjugaur og fær hann að launum að koma í Sunnudagsþáttinn og tala um hve allt yrði æðislegt ef allir væru ekki svona miklir fávitar.

22.01.06
Hnakkavæddur og pungrakaður Tónlistarþáttur Dr. Gunna framundan á XFM kl. 14 í dag (eins og endranær) en nú, elskulegi lesandi, er komið að Topp 5! (eins og næstum því endranær)...


Laibach - Geburt einer nation: Slavneskt fasistadiskó framundan! Nasa 22. mars. Allir að safna mottu og versla dress í Supra, já nú verður sko fjör! Hér fara þeir hergöngumarsahöndum um gamalt Kvínlag. Undursamlegt!


Tortoise & Bonny "Prince" Billie - Cravo é canela: Skaldbakan og skeggapinn slá saman í kóverplötuna The Brave and the bold, sem er lúnkin vel. Toga þar og teygja allskyns mússikk, frá Springsteen til Devo. Þetta var víst upphaflega flutt af brasilískri súperstjörnu, Milton eitthvað.


Graham Coxon - Don't let your man know: Þetta nörd enn á ferð og nú á leiðinni með sólóplötu #6, Love travels ar illegal speeds, sem er troðfull af urrandi einföldu og ágætis rokki. 


Deerhoof - Scream team: Þetta lið er nú dáldið spes – og gott, svei mér þá! Þetta er eitt besta lagið af nýjustu plötunni, The Runners Four, 20 laga gæðahlunki sem hefði skorað á árslistanum mínum hefði ég heyrt hana fyrr.


The Kinks - Brainwashed: Ray Davies bara með gigg hér við hliðina á mér, hva, 14. apríl. Maður drullast nú pottþétt á það enda maðurinn meistari. Hér er hann með eitt af mínum uppáhalds Kinks-lögum, af Arthur (Or the Decline and Fall of the British Empire), frá 1969.
---
Netið er vaðandi af fríbíum. Í fríbíum mæli ég með tónlist Morðingjana á Rokk punktur is. Svo er þarna áhugavert band, Transexual daycare, en þar í framlínunni eru tvíburasysturnar Birna og Hulda. Stutt í að þær verði framan á einhverju. Í erlendum fríbíjum má benda á tónlistarmanninn Ergo Phizmiz, sem gerir útúrflippaðar útgáfur af allskyns músik. Á Brax-tone er allt vaðandi í fríbíjs og á Union sömuleiðis. Bæði sænsk. Það held ég nú. Eru ekki allir í stuði annars?

21.01.06
Allt lítur nú út fyrir að langþráður draumur Lufsunnar rætist þann 22. apríl þegar hún mun berja átrúnaðargoð sitt Morrissey augum í tónleikahöllinni í Aberdeen. Ég mun vitanlega mæta líka og endurnýja kynnin af þessum ágæta poppara, en eins og frægt er orðið sá ég hann með Smiths 1983 og var ekkert endilega að fíla það. The Hollies eru að spila þarna í Aberdeen tveim dögum fyrr en ég held ég segi nei við því enda bara tveir orginal menn með og hvorki Nash né Clarke. Þetta er svona útgáfa sem hefði getað spilað á Broadway 1986. Ég nenni ekki alveg að sjá einhvern fæddan 1961 með sítt að aftan syngja He's my brother he aint heavy. Hollies er gott band engu að síður. Árið er annars undirlagt stórviðburðum. Stóns og poppminjaferð okkar Birgis og Gríms í ágúst. Helv gott mál.

20.01.06
Jæja... Hver er nú kynþokkafyllsti karlmaður landsins? Nú er kosið á Rás 2. Létt FM er líka að spyrja og hægt að kjósa hér. Þess má geta að Stebbi Hilmars fékk mitt atkvæði. Þarna hjá Létt er þó frekar takmarkað og einhæft úrval og því býð ég upp á samkeppniskönnun hér:

Hver er kynþokkafyllsti karlmaður landsins?
Í boði eru átta karlmenn valdir af algjöru handahófi á víðlendum Alnetsins:


Sverrir Jónsson, stuðningsfulltrúi

Þráinn Karlsson, leikari

Bjarni Ísleifsson, sölumaður

Gunnar Jónsson, forstöðumaður

Þengill, bloggari

Einar H. Guðmundsson, stjarneðlisfræðiprófessor

Grímur Bjarndal Jónsson, ökukennari


Friðbjörn Orri, frjálshyggjugaur
Kjósið núna!!! Úrslit tilkynnt á mánudaginn...
KOSNINGU LOKIÐ!
Free polls from Pollhost.com
Farið verður með öll atkvæði sem trúnaðarmál.

19.01.06
Hljómsveitin Dr. Gunni hittist í dag til skrafs og ráðagerða, eins og það er kallað. Lagður var fram 16-laga demódiskur. Lögin eru þessi:

BSÍ
Kviðmágar
Væ (*)
Bubbi Morthens
Góðærið (*)
Skjóðan (*)
Kvíði
Himnaríki Verlaines (*)
Verum góð við hnakkana
Síðasta fylliríið
Birgitta Haukdal
Fjólubláar varir
Sokkar (*)
Dramakvín (*)
Skipulagðri leit hefur verið hætt
Píanólagið (*)

Mörg þessara laga eru komin stutt og þessi - (*) - bera enn vinnuheiti. "Verum góð við hnakkana" gæti orðið hittari. Og mörg önnur náttúrlega. Auk þessara eru þessi lög til og hafa m.a.s. verið flutt opinberlega:

Dr. gunni intro
Mjallhvít
Ég elska að hata að elska þig
Meira meira stuð

Svo gætu eflaust fleiri bæst við. Stefnan er að koma með nýja plötu á árinu, helst ekki seinna en í september. 
---
Við hittumst á hinum snaruppaða stað 101 hótel. Ég fékk bragðlausa spínatsúpu og horfði með öfundaraugum á aðra meðlimi hesthúsa borgurum sem þeir dásömuðu. Á næsta fundi fæ ég mér sko borgara líka. Þessi staður er í hróplegri andstöðu við Kabarett í Austurstræti (nú Shalimar) en þar hittist Bless alltaf á sínum tíma enda stutt fyrir mig að skreppa úr bankanum. Þar voru dagblöð límd upp á veggina. Ekkert slíkt á 101 hótel, nei vá. Þetta er svo mikið dísæn að mér dauðverkjaði undan útúrdísænuðum stólnum og átti vandræðum með að fatta hvernig átti að skrúfa frá krananum á baðinu. Já, einmitt, svoleiðis staður. En góður matur hinsvegar. Þeir mega eiga það upparnir og fólkið með ferköntuðu gleraugun að það lætur ekki bjóða bragðlaukunum á sér hvað sem er.
---
Platan er enn nafnlaus. Og mun ekki heita Minni hvellur.

17.01.06
Húrra fyrir USA og Tortímandanum! Nú er þetta guðrækna fólk allt saman búið að drepa blindan og heyrarlausan mann í hjólastól. Réttlætið er ekki síður margslungið hugtak en sannleikurinn.
---
Hinn stórkostlegi meistari Páll Hilmarsson (aka Mixteip) hefur sett upp síðu þar sem hægt er að sækja 8 síðustu þætti af þættinum mínum, Karate, Dordingli og hádegisfréttum Rúv. Sjálfur hef ég verið að hlusta á Karate þarna enda verð ég að játa að kl. 10 á sunnudagskvöldum er ég ekkert endilega í stuði fyrir öslandi ferskt indírokk.
---
Það var víst eitthvað kokkupp í þessu á DV. Pistillinn "Um: Siðblindu" birtist ekki fyrr en á fimmtud.

16.01.06
Nútíminn er undursamlegur. Sonur fv. forseta Kenýa skrifar mér, já mér, og biður mig um að hjálpa sér. Í boði eru stórar fjárhæðir. Einhversstaðar í USA sitja menn og krukka í langt frá komið og rándýrt geimryk. Bráðum vitum við allt um allt. Samt munum við ekkert vita um neitt. Því miður er ekki til tímavél, annars væri best að setja þjóðina í hana og spóla til baka um viku. 

Unun - Geimryk (af meistaraverkinu Ótta sem enginn hefur heyrt)...
---
Þess má svo geta að ég byrja að skrifa í DV aftur á morgun. Fyrsti pistillinn heitir "Um: Siðblindu".

15.01.06
Ég minni á Tónlistarþátt Dr. Gunna kl. 14 í dag. Þetta er alls ekki svo lélegur þáttur, heldur þvert á móti! En nú er bráðupplagt að demba hér inn eins og einum Topp fimm! 


Electric president - Good morning, hypocrite: Amerískt krúttpopp í anda The Postal Service. Ágætt í blindhríð.


Captain Beefheart - Clear spot: Don Van Vliet aka Captain Beetheart er 65 ára í dag og því við hæfi að sýna smá virðingu. Ég hef reyndar aldrei fílað hann í botn enda um erfitt stöff að ræða en á það kannski eftir. Þetta lag er frá 1972 og var síðar tekið í ansi eftirminnilegri útgáfu af ástralska þönderbandinu The Scientists.


Captain Beefheart - Hard workin' man: Kapteinninn enn á ferð, nú með smáskífu frá 1978. Ástralarnir í Beasts of Bourbon tóku þetta síðar á geysiflottan hátt. 


Modey Lemon - Mr. Mercedes: Hér ku um að ræða bandarískt rokkband sem lítur ekki undan þegar Iggy Pop kíkir fyrir hornið. Af "Curious City" frá því í fyrra. Þær fréttir berast annars að Frodo, Elijah Wood, ætli að leika Iggy Pop í væntanlegri mynd. Maður er nú ekki alveg að sjá það svona fyrirfram...


Clearlake - Neon: Clearlake, þetta enska nýbylgjuband á vegum Domino Records, er búið að gera plötu #3, Amber, sem er nokkuð lunkið verk og til alls líklegt. Fjölbreytt og skemmtilegt stöff.
---

Er annars alveg að verða búinn með þessa bók, ævisögu hins sártsaknaða meistara. Hann gat því miður ekki klárað að skrifa sögu sína sjálfur en það sem hann var byrjaður á er fyrri helmingur bókarinnar, eðaltexti sem nær því miður ekki lengra en til 1965 eða svo. Þar segir frá uppvextinum, allt skrifað með dúndrandi húmor og jafnvel það þegar hann var látinn "þjóna" eldri nemendum í einkaskólanum (þ.e. veita þeim hand relief) er snúið upp í grín. Samt er hann ekki alveg í gríngír þegar hann segir frá því þegar einn eldri bekkinga nauðgaði honum á klósetti. Konan hans, Pig eins og hann kallaði hana, tekur við og segir söguna til enda. Þetta eru svona mósaíkbrot úr ævi þeirra og gripið niður hér og þar. Hinn undarlegi húmor Johns er dreginn fram, t.d. er gott sýnishorn þegar ein dóttir hans er að skrifa ritgerð fyrir skólann og sýnir pabba sínum uppkastið til að fá álit. John segir að það vanti meiri húmor í ritgerðina. Ritgerðin var um umskurð kvenna. John Peel: hetja og fyrirmynd!

14.01.06
Lufsan segir að ég sé með þetta DVmál á heilanum. Það er alveg satt. Manni er búið að vera heitt í hamsi (sem lýsir sér þannig að manni er heitt í hausnum og með stanslausan hausverk) og pælandi í þessu yfirþyrmandi rugli. Liggjandi á netinu, lepjandi upp eitthvað þar, sjónarmið pjónarmið, allir með sitt á hreinu, t.d. nafnleysingjarnar á málefnin með vandlætingu að mestu. En samt: hvernig er hægt að tala um siðferði annarra þegar maður þorir ekki einu sinni að standa við það sem maður segir og skrifar undir dulnefni? 
---
En jæja. Alltof miklar tilfinningastærðir. Maður er ekki vanur þessu. Þetta er eins og 9/11. Miklu gáfulegra bara að hugsa um léttmetið, hvort þetta eða hitt lagið sé leiðinlegt eða ekki. Naflaskoðun er kannski ágæt en samt best að taka því rólega. Það er örugglega einhversstaðar búið að finna upp máltækið Ekki hengja upp á snúru í fárviðri. Lufsan getur því hætt að hafa áhyggjur af mér. Ég er hættur.
---
Í dag var gaman að gera engla út á túni á leynistað fjölskyldunnar. 18:38
---
Bla bla bla og bla bla bla. Kannski væri margt vitlausara en að semja rokksöngleikinn Dagblaðið. Væri í grunninn svipað og Der Untergang eða Jesus Christ superstar, Speer og Hitler eða Júdas og Jesús í aðalhlutverkum. Umgjörðin ritstjórnarskrifstofan, efni: menn blindaðir af 300 watta peru "sannleikans", brjálaður múgur, hræðileg mistök, stórar siðferðisspurningar um rétt og rangt, glæp og refsingu, iðrun, eftirsjá... mannlegt drama af biblíulegri stærð. Í aðalhlutverkum menn og mýs, jafnvel rottur sem hlupu frá sökkvandi skipi. Allt í skugga látins manns. Er svo einhver lærdómur af öllu saman? Já. En hann gleymist fljótlega eins og alltaf í sögu Homo Sap.  09:15

13.01.06
A man's gotta do what a man's gotta do segi ég nú bara. Aumingja Spaugstofan að reyna að gera grín á morgun. Ætli Laddi verði fenginn til að leika Martein Mosdal?
---
Gaman væri ef Bubbi myndi oftar blanda sér í umræðuna og textablogga á síðunni sinni. Enn betra ef hægt væri að hlusta líka.

11.01.06
Í gær fór DV svo langt yfir strikið að ómögulegt er að afsaka það. Í einu vetvangi skaut blaðið undan sér öllu gúddivilli í þjóðfélaginu, því litla gúddvilli sem þó hefur verið að byggjast smámsaman upp síðan Bubbadæmið reið yfir í fyrra. Ég er ekki að vinna þarna (heldur skrifa greinar annað slagið) og ég get varla ímyndað mér að þetta rúlli áfram eins og ekkert hafi í skorist. Sjálfur hef ég varla lyst á að hjálpa til við að fylla síðurnar áfram. Það væri að kæfa samviskuna með kodda. Í lífinu er farsælla að gera helst ekki það sem maður skammast sín fyrir, breyta rétt, allt það biblíulega kjaftæði. Það er að breyta rétt að skrifa ekki meira fyrir blaðið, a.m.k. ef það gerir ekkert til að hrista af sér þá mannhatursfullu gerum-allt-til-að-selja-blaðið-skítt-með-afleiðingarnar stefnu sem það hefur keyrt á. Þó maður vinni þægilega innivinnu á kontornum á ruslahaugnum, og sé ekki sjálfur með hendurnar í skítnum, kemur maður samt angandi heim til sín.
---
Að léttari hjali, ekki veitir af. Fáið útrás fyrir skammdegisþunglyndið og hendið tómötum í James Blönt!

09.01.06
Í dag var mesti mánudagur ársins. Grátt og ljóslaust um að litast, jólatré fjúkandi um vatnssósa göturnar. Skítaveður. Maður örskraði "AFHVERJU ER MAÐUR AÐ BÚA HÉRNA!" út í rokið. Það getur ekki verið annað en uppímóti héðan af.
---
Lá andvaka og hugsaði sýru, mikið úr myndinni Spirited Away sem ég var að horfa á. Þeir eru nú meiri sýruhausarnir þessir Japanir.
---
Nú fer enginn að snobbast í Perlunni lengur á nýárskvöld. Allt aðal fólkið (og Björn Jörundur) fá partý með Tom Jones í London. Ég var að sjá þetta í fréttunum. Samt finnst manni þetta ekkert merkilegt lið. Bara svona einhverjir karlar sem væru að reka videóleigu ef það væri ennþá 1982. Er þetta ekki bara jákvætt? Á maður ekki bara að spila með? 
---
Tja... Hér er allavega kjallaragrein dagsins úr DV. Voða svona sósíal eitthvað.

Um: Ójöfnuð
"Allt það besta í lífinu er ókeypis". Þetta er fínn frasi til að slá á gremju almúgans, sem horfir með samblandi af undrun og öfund á vellauðuga yfirstétt landsins, sem nú er að spretta upp – tja, það á nú eiginlega að kalla þetta "langtyfirstétt" frekar. Já, ókei, allt það besta er frítt, en samt... Hversu ljúft væri það nú ekki að vera með 6 millur á mánuði, þó það væri ekki nema í einn mánuð. Maður gæti þá allavega greitt niður yfirdráttinn.
Ef okkar dvergsamfélag sættir sig við það að sumir séu með laun og fríðindi sem þorri landsmanna á ekki möguleika á nema vinna í Víkingalottóinu, þá er samfélagið um leið að segja: Þetta fólk er betra en þú og á skilið betra líf. Þannig hefur samfélaginu hrakað í það ástand að einn gaur – segjum kannski gaur sem á pabba sem fékk hluta af auðlyndum þjóðarinnar að gjöf fyrir nokkrum árum – er að lifa á launum sem fimmtíu gjaldkerar í banka eru að lifa af, eða áttatíu leikskólakennarar. Ég hef ekki heyrt neina viðhlítandi réttlætingu fyrir þessu ástandi. Er þetta ríka lið áttatíu sinnum duglegra en einn leikskólakennari – eða hvað er málið? Það hafa alltaf verið til ríkir og ekki ríkir og jafnvel fátækir í þessu landi. Fyrir stuttu var samt ekki meiri munur en svo að talað var um stéttlaust samfélag. Það sjá allir að það er hlægilegt kjaftæði að halda því fram í dag. 
En jæja. Samfélaginu – fyrir utan nokkra minnuga leigubílstjóra og bitra vinstrimenn, sem þó þagna um leið og þeir komast á spena, bara einhvern spena – verður smátt og smátt komið á þá skoðun að svona geðveikur ójöfnuður sé bara allt í lagi, óhjákvæmilegur í þessu "samkeppnisumhverfi". Svæfandi blístrið um að "þetta sé í takt við þróun erlendis" mun smá saman lægja reiðiöldurinar. Og þegar endanleg sátt hefur náðst um að sumir séu hér valsandi um á 80 sinnum hærri launum en aðrir, verður næsta skref í átt að þúsund ára ríki kapítalismans stigið. Þá mun Kári Stefánsson birtast eins og frelsari með rándýra aðferð til að lengja líf þeirra ríkustu – "litningalenging" verður það kallað og bætir öld við hvern skrokk. Fjandinn hafaði, það gengur náttúrlega ekki til lengdar að dauðinn sé þarna alltaf að flækjast fyrir uppgangi og útrás þeirra moldríku, eins og glottandi verkalýðsforingi í sinni svörtu hempu, sveiflandi ljánum og eigandi endalaust lokaorðið. Nei, það segir sig sjálft að stórmenni með 6 milljónir á mánuði verða að lifa mun lengur en láglaunapakkið. Hvers vegna í ósköpunum ekki?

08.01.06
Tónlistarþáttur Dr. Gunna í dag kl. 2 á Xfm! Árið "gert upp" (eiginlega ekki) og massastuð.
---
Fyrstu föstudagsrassgatskosningunni er nú lokið og eru niðurstöðurnar sláandi. Spurt var: Fyrir 130 milljónir, værir þú til í að láta sauma fyrir rassgatið á þér og vera með stómapoka sem eftir er? 75% aðspurðra sögðu Oj-nei! og sönnuðu þar með að heilbrigð virkni rassgats er mikilvægari en ofurlaun, 17% voru tilbúnir að svíkja eigið rassgat fyrir starfslokasamning Ragnhildar og 8% voru svokallaðir örvitar sem kusu stómapoka ef með í kaupunum fylgdi 5000 kall og nótt með himpigimpinu Tottantino. Fylgist spennt með á föstudaginn þegar næsta rassgatskosning fer fram (ef ég nenni).

06.01.06
Það er orðið helvíti langt síðan maður bauð upp á kosningu á þessari síðu. En nú er komið að því. Og kannski maður verði með nýja kosningu alla föstudaga þar sem fréttir vikunnar verða tengdar hinu göfugasta líffæri okkar. Allavega, hér er fyrsta kosningin!

KOSNINGU LOKIÐ!

05.01.06
Sparnaðar-tipp dagsins: Þegar maður fer á íslenskar myndir í bíó á maður að kaupa miða á einhverja erlenda mynd því það er 200 kalli ódýrara á hana. Gróðanum má svo eyða í popp. Var annars að koma af A little trip to heaven. Það kom mér verulega á óvart hvað hún var léleg. Er Dagur Kári virkilega eini leikstjórinn sem getur eitthvað?
---
Nei hvaða vitleysa. Kaupa sig inn á íslenskar myndir! Vonandi kemur bráðlega eitthvað almennilegt.

04.01.06
Maður í pósthúsinu lét mig hafa nafnspjald fyrir síðuna sína, Netsaga.is. Þar má finna ýmiskonar upplýsingar um geimverur á meðal vor og fleira hressandi. Gott er að dánlóda tónlist eftir Svenna og hlusta á meðan maður les.
---
Við Biggi fórum til Keflavíkur að tékka á sýningu Hellvars. Sáum Elvar mixa í tölvunni og bassaleikarann Sverri taka smá upp. Sjálf var Heiða á megafundi með nýjum bossi á Rás 2, Sigrúnu Stefánsdóttir, sem var eflaust mjög frábær, eða þannig, enda Sigrún Stefánsdóttir glæsilegur fulltrúi þess ferskasta í þjóðlífinu í dag. Einmitt það sem Rás 2 þarf á að halda. <varúð: kaldhæðni ofhleðsla>  Hellvar ætlar að gefa út 20 diska eftir sýninguna og selja á 20þúsund kall stk. Lagið "Ekki reiður" er mjög áheyrilegt.
---
Átum á Ólsen Ólsen, ágætis hamborgadjónt við Hafnargötuna. Verðlagið er þar mjög hagstætt og því halar staðurinn sig upp í 3 stjörnur.
---
Þetta virðist geta orðið hagstætt gömlukallarokkár. Hef fjárfest í miða á Rolling Stones á Wembley í ágúst. Svo skilst mér að Ray Davies verði með gigg í Háskólabíói. Ég þarf að tékka á því enda búinn að fá smekk fyrir Kinks fyrir nokkru. The Who ætla víst að túra og maður þarf að ná því. Svo er Morrissey með plötu og túr og bráðnauðsynlegt að koma Lufsunni á það gigg, enda mesti Smiths-aðdáandi landsins.
---
Hér er einhver Norðmaður með mjög fína síðu um gönguferðir á fjöll. Kappinn hefur m.a.s. tölt á nokkra íslenska toppa. Hér er annar Norðmaður sem hefur reyndar aldrei farið á íslenskan topp. Hér eru svo ennþá fleiri fjallstindar. Í fjallamennskunni hlýtur stefnan að vera sett á erlenda tinda, bara svona til að geta slegið um sig. Mér skilst t.d. að Kilimanjaro sé pís of keik...

02.01.06
2006 já. 1996. Ferlega stutt síðan það var. Lengra síðan 1986 var. 1976... vá.... 1966.... tvöfalt vá. En 2016? Voðalega var myndin 2001 lítið að marka. 
---
Allavega nýtt ár og sem betur fer eldast allir jafnt. Leiðinlegt ef fólk sem er með 6 millur á mánuði, eða t.d. fólk sem fær 130 millur í starfslokasamning eftir 5 mánuða vinnu myndi líka eldast hægar en láglaunayfirdráttarflatskjássklefandialmúginn. Það væri nú fokking fúlt. Skítt með þó fólk vaði upp fyrir klof í fimm þúsund köllum, þetta drepst allt jafn hratt, tja meðan Kári finnur ekki upp langlífispillur. Sem hann hlýtur auðvitað að stefna að, enda lítið eftir nema að vinna bug á dauðanum.
---
En uss... Hvar er jákvæðnin?! Á nú nýja árið að byrja á svartsýnisrausi og leiðindum. Nei fokking nei. Allt er frábært. Fjöll út um allt til að labba á. Fullt af frábæru menningarefni, kalda vatnið kalt og loftið hreint. Þannig. Heilsan góð svo fokkaðu þér. Engin ástæða til annars en megabjartsýni og stórfenglegrar gleði. Nýtt ár og stefnan sett á útgáfur. Tvær frekar en eina. Skáldsögu og sólóplötu, for helveðe. 2005 var flatt í þeirri deild. Maður gaf ekkert út, svo það verður að drullast til að gera eitthvað. Reyna það allavega. Ágætis byrjun samt að kasta upp einum Topp 5. Svo gjössovel: 

The Heb - Heimska tussan: Bjartasta von íslenska rappsins kemur frá Blönduósi og kallar sig The Heb. Ég fékk þetta lag með henni sent en ekki stóð hvað lagið heitir. Heimska tussan er ekki verra en hvað annað.

X-Cetra - Conversation: Þetta er úr sömu deild, unglingsstelpumúsik, en ekki frá Blönduósi heldur frá Kaliforníu. Þær vildu kannski vera eins og Akúlera en pabbi þeirra, framútstefnunýaldagaurinn, hjálpaði þeim svo þetta varð svona flippað og frumlegt. Hægt er að sækja fleiri lög undir 21. ágúst á hinum magnaða vef 365 days project.


Matson Jones - N.E.S.F.T.O.: Sallafínt sellópönk frá Colorado. Af fyrstu plötunni, "Matson Jones", sem kom út í fyrra.


Volcano suns - White elephant: Boston-band frá eitísinu sem sigldi sinn sjó til hliðar við Pixies og öll þessi Boston indiebönd. Þetta gæðalega lag mátti finna á plötunni "All Night Lotus Party" frá 1986. 


Belle & Sebastian - White collar boy: Drullugott popplag af nýju plötunni (kemur í feb) sem er alveg ágæt með mörgum sprellifínum sprettum að vanda.

---
Hér er gamla árið