Í kjölfar pönksýningarinnar í Kópavogi fór Bjössi bassaleikari að leita í skúffum. Hann skrifaði og sendi þessar myndir: „Fór í gamla skúffu "heima" í Hrauntungunni og fann þar filmu frá því í den og hér er afraksturinn... eitthvað af þessum myndum eru reyndar á sýningunni. Teknar á "Kodak Instamatic" sem búin var leifturkubbi! Ekki man ég þó hver tók myndirnar.... Þá fann ég í sömu skúffu "kassettu" með upptöku frá giggi í Kópavogsbíó... gæðin úr bílskúrsupptökunum eru nú reyndar meiri en þó má m.a. heyra að allt ætlar um koll að keyra meðal áhangenda F8.... engu líkt! Þarf að koma þessu á mp3...“
Hér koma hljóðdæmi:
F/8
- Vinnuskólinn (úr Gufunni, biðst aðsökunar
á þulunum sem eyðileggja lagið)
+ Næstu fjögur lög voru tekin upp í bílskúrnum
heima hjá Bjössa bassaleikara, Hrauntungu 3.
F/8
- Útjaskaðir nemendur
F/8
- Bókassa
F/8
- Bölvun fylgi þeim (í lok upptökunnar má
heyra mömmu Bjössa stinga hausnum inn í hávaðabílskúrinn
og segja að klukkan sé orðin hálf átta og
því líklega kominn matur eða hávaðaleyfi
dagsins runnið út. Þess má einnig geta að Morðingjarnir
tóku ilmandi kóver af laginu á Áfram Ísland!
plötunni.)
F/8
- Kennari (Fyndin martröð)
+
F/8
- Tónleikar í Snælandsskóla 30/04/1981
(29 mínútur af ýlfrandi oðentik Kóp-pönki)
- Flutt voru lögin:
1. Blitzgren bop (Ramones)
2. Númer
3. Raggae-partur Bjössa
4. Útjaskaðir nemendur
5. So what (Crass)
6. Bölvun fylgi þeim
7. Now I wanna be a good boy (Ramones)
8. Sadistar
9. London's burning (Clash)
10. Vinnuskólinn
11. Belsen was a gas (Sex pistols)
12. So what (Crass - aftur!)
13. Last
F/8 - Tónleikar í Kópavogsbíó 22.05.81 (lokatónleikar F/8)
1. Blitzgren bop (Ramones)
2. Bölvun fylgi þeim
3. Númer
4. So what (Crass)
5. Útjaskaðir nemendur
6. Sadistar
7. Last (ósungna reggae-lagið)
8. Now I wanna be a good boy (Ramones)
9. London's burning (Clash)
10. Vinnuskólinn
11. Belsen was a gas (Sex pistols)
Anal-ég gerði auðvitað lista yfir öll gigg sem
F/8 spilaði: