Sá sem fann upp á spekinni um að ekki skuli dæma
bókina eftir kápunni var augljóslega að þvaðra
út um vitlausan enda. Eins og kápur segja til um innihald
bóka kemur fólk upp um skoðanir sínar með
útlitinu. Kápur og fólk leyna stundum á sér
en það er sjaldgæft.
Augljósast var þetta á uppvaxtarárum mínum.
Þá skiptist fólk í tvo mjög afgerandi flokka,
komma og sjalla. Kommar og sjallar litu mjög ólíkt út.
Kommarnir síðskeggjaðir og síðhærðir
í gæruúlpum en sjallarnir vatnsgreiddir í svörtum
jakkafötum, með lakkrísbindi og oftar en ekki með hornspangargleraugu
í svartri umgjörð á nefinu. Heima hjá mér
var þetta fólk kallað "smjörkúkar" og enn
þann dag er það fyrsta orðið sem mér dettur
í hug þegar ég sé fulltrúa þessa
hóps.
Nú eru gamlir kommar og smjörkúkar að reyna
að semja um það hvort láglaunafólk eigi að
fá 142.000, 145.000 eða 150.000 á mánuði í
staðinn fyrir þessar 125.000 sem það fær í
dag. Þótt menn hafi lítillega breyst sér maður
strax hver tilheyrir hvaða hópi. Það er annars merkilegt
að fyrir fjórum mánuðum var allt hér í
geðveikri uppsveiflu og útrásin í fullum blóma,
en nú, þegar láglaunafólk vill fá örlítið
stærri mylsnu af góðæristertunni, er allt að
fara til fjandans. Heppileg tilviljun.
Stjórnmálaútlitið sést einnig á
unga fólkinu í Háskólanum. Maður þarf
ekki að líta nema einu sinni yfir framboðslistana til að
sjá hver tilheyrir Röskvu og hver tilheyrir Vöku. Reyndar
er skemmtilegt að sjá að hornspangargleraugun sem enginn
sannur smjörkúkur gat verið án sjást nú
líka stundum á vinstrafólki og heita þá
nördagleraugu.
Undrunin og reiðin vegna valdaskiptanna í borginni um daginn
voru ekki síst tengd útliti aðalleikaranna. Við höfðum
Dag, glæsilegan ungan mann með vandað hár, sem slútti
tignarlega fram á ennið, löðrandi í ilmandi
hárvörum. Hann gæti leikið James Bond hvenær
sem er. Í staðinn höfðu tveir glærir karlar,
sem báðir gætu leikið vonda karlinn í Bond-mynd,
ruðst fram á sviðið með frekju. Hollywood-mötuð
undirmeðvitundin hvíslaði að borgarbúum: Vondu
karlarnir unnu og James Bond var gerður útlægur. Eðlilega
varð allt vitlaust. Nú er bara að sjá hvort höll
vondu karlanna springi ekki í loft upp eins og í öllum
alvöru Bond-myndum.