Nýtt ár og nýtt líf? Nei, ætli það. Bara sama gamla og góða, enda þarf maður ekkert að ,,taka sig í gegn" - þannig. Engin óraunhæf nýársheiti en ein áminning: Ekki hanga svona mikið í tölvunni og alls ekki hanga svona mikið yfir bloggi einhvers fólks úti í bæ. Það er ekkert á því að græða, þú veist það.
Þegar að því óumflýjanlega kemur og sýning heimildarmyndarinnar ,,Þetta var líf þitt" hefst í deyjandi heilanum, vill maður helst ekki sjá eintómar svipmyndir af sjálfum sér glápandi á skjá, hvorki tölvu- né sjónvarpsskjá - sama hversu dagskráin er skemmtileg. Í lífinu vill maður vera þátttakandi, ekki bara áhorfandi. Maður vill svo sem ekki heldur að heimildarmyndin sé eintómt maður sjálfur upp í rúmi með bók í andlitinu, ekki hrjótandi í bælinu, ekki bölvandi í umferðarþvögu, svo kannski ætti maður að byrja að einbeita sér að hlutum sem maður vill láta rifja upp fyrir sér í andarslitrunum. Þú veist: maður sjálfur í sigurvímu hrópandi af fjallstindi, maður sjálfur komandi í mark í maraþonhlaupi, maður sjálfur siglandi á skútu inn í hitabeltissólarlag - þannig stöff.
Það eru helst síma- og jeppafyrirtæki sem sjá sér hag í að auglýsa þann augljósa sannleika að maður eigi að lifa lífinu lifandi. Enn ein uppbyggileg auglýsing frá slíku fyrirtæki gæti því verið: Einbeittu þér að því sem þú vilt láta rifja upp fyrir þér í síðustu sýningunni.
En það er ekki nóg að fróa sjálfum
sér með hetju-upplifunum í sló-mó. Maður
verður vitanlega að gera eitthvað fyrir náungann, láta
gott af sér leiða. Aðeins þannig helst jafnvægið.
Ég er of mikil gunga til að ganga til liðs við björgunarsveit
og ég hef heldur ekki það heiðríka hjartalag
að finnast það í lagi að ég sé truflaður
í miðri máltíð til að þvælast
upp á fjöll að leita að einhverjum bjánum sem
geta ekki hlustað á veðurfréttirnar. Ein auðveldasta
aðferð í heimi til að láta gott að sér
leiða er að gefa blóð. Það er svo auðvelt
að hver hugsandi þegn með vott af siðferðiskennd
ætti að gera það. Og svo færðu meira að
segja bakkelsi í kaupbæti og jólakort.
Maður sjálfur liggjandi á bekk með blóðlegg
úr arminum er meira en viðunandi myndskeið.