Ég var í röðinni hjá báðum dótabúðunum þegar þær opnuðu. Ég bara réði ekki við mig. Ég var búinn að þaullesa auglýsingablöðin og merkja við. Ég ætlaði sko ekki að missa af þessum tilboðum. Hvorki mig né börnunum vantaði beinlínis eitthvað þarna inni, en það kemur ekki málinu við. Það er neysluspennan sem ég sækist í. Ég fæ það sama út úr því að bíða í röð og að skoða dót á netinu. Það að kaupa er skemmtilegasti hluti ferlisins. Sælutilfinningin sem hríslast um mig þegar ég ýti á “kaupa”-takkann er sú sama og þegar ég sé búðarlokuna nálgast dyrnar til að hleypa ösinni inn. Þetta er mun sætari tilfinningin en sú sem ég fæ þegar pósturinn kemur með dótið eða búðarlokan rennir dótinu í gegnum skannann. Forleikurinn er betri en fullnægingin.
Ég er með yfirdrátt á þremur reikningum. Ég lít svo á að ég sé að skaffa ríku köllunum bensíndropa á einkaþoturnar sínar. Og svo er ég auðvitað að styrkja íslenska dagskrárgerð í sjónvarpi. Vitaskuld er ég með kreditkort. Fegursta hljóð í heimi er hljóðið sem berst frá hraðbankanum þegar ég tek út peninga. Þá er eins og örlítill skjálfti fari um kassann, það heyrist hljóð eins og í tannhjólum; svo renna seðlarnir út. Ég hef tekið þetta hljóð upp og spila það stundum til að hressa mig við.
Það er margt fallegt í heiminum. Til dæmis hlutir
eftir vinsæla hönnuði, þriðju kynslóða
símar, Land Rover, Koi fiskar og dýr myndlist. Þetta
jafnast þó ekki á við það fegursta í
heimi. Þegar ég sé það fyllist ég
bjartsýni og trú á framtíðina. Yfir mig
kemur höfgi hins alsæla manns og mér finnst eins og ég
muni lifa að eilífu. Þetta eru miðarnar sem birtast
einu sinni í mánuði í gluggunum í búðunum.
Það stendur á þeim: Nýtt kortatímabil.