Það er einfalt að vera vitur eftir á. Látinn vinur eða ættingi kallar á söknuð þótt maður hafi kannski sjaldan nennt að heimsækja hann í lifanda lífi, náttúra verður að ómetanlegri náttúruperlu þegar búið er að byggja stíflu ofan á hana og brunnir kofar sem enginn pældi í eru allt í einu orðnir svakaleg menningarverðmæti sem verður að endurbyggja í upphaflegri mynd vegna sögulegs gildis.
Hornið sem brann var orðið eins og rotin tönn í andliti Reykjavíkur. Rúnturinn silast framhjá og einu sinni sá ég ógæfumann míga þarna á rafmagnskassa um hábjartan dag. Fyrst tönnin brann úr er upplagt að setja nýja tönn í og hún þarf ekki endilega að vera alveg eins og sú gamla. Þar sem ég stóð upp á Arnarhóli og leit yfir rústirnar sá ég fyrir mér glæsilegan glerskála sem teygði sig yfir allt þetta svæði. Í senn kaffihús og tónleikastaður, gríðarleg lífæð í hjarta borgarinnar. Kannski væri þó bílabíó betri hugmynd því við nennum svo sjaldan úr bílunum. Rúnturinn jókst til muna eftir að það kom eitthvað til að skoða – þ.e.a.s. brunarústirnar – svo kannski er hugmynd að brenna kofa reglulega fyrir almenning.
Í Liverpool eru æskuheimili Bítlana í eigu borgarinnar og þúsundir manna góna vikulega á gluggana þar sem fyrir ekki svo löngu síðan mátti sjá tvo stráka bregða fyrir glamrandi á gítara. Þar kveiktu menn ekki strax á menningarverðmætunum og Cavern klúbburinn goðsagnakenndi var nánast rústir einar þegar framsýnir menn endurbyggðu hann á 9. áratugnum. Ég fór að gráta þegar ég stóð fyrir framan endurbyggt sviðið – það kalla ég menningarverðmæti.
Trampe greifi var ekki í Bítlunum en örþjóðin
verður að sætta sig við það sem hún
hefur. Gáfulegt væri að hlúa strax að menningarverðmætum
framtíðar. Þannig ætti íbúð Megasar
á Þórsgötu strax að fara á minjaskrá
og líka fyrrverandi íbúð Bubba á Eiðistorgi.
Einnig þarf að athuga staði sem tengjast Björk, Eið
Smára og Sigur Rós. Eða hvað munu framtíðaríbúar
lýðveldisins annars telja menningarverðmæti? Kannski
Smáralind og Kringluna? Þarf ekki að strax að friðlýsa
þau mannvirki? Þetta eru jú þeir staðir sem
almenningur elskar einna mest og fjölmennir í árið
um kring. Verum nú vitur fram í tímann, ekki bara
eftir á.